View
35
Download
3
Category
Preview:
DESCRIPTION
Merki þess sem er með kynningu. Yfirlit yfir þjónustu Nýsköpunarmiðstöðvar. Handleiðsla og upplýsingagjöf Námskeið og stuðningsverkefni Átak til atvinnusköpunar Frumkvöðlasetur Samstarf um tækniþróun Eurostars Sókn í norrænt samstarf Enterprise Europe Network www.nmi.is. - PowerPoint PPT Presentation
Citation preview
Merki þesssem er með
kynningu
Yfirlit yfir þjónustu Nýsköpunarmiðstöðvar
• Handleiðsla og upplýsingagjöf• Námskeið og stuðningsverkefni• Átak til atvinnusköpunar• Frumkvöðlasetur• Samstarf um tækniþróun• Eurostars • Sókn í norrænt samstarf• Enterprise Europe Network
www.nmi.is
Merki þesssem er með
kynningu
Handleiðsla og upplýsingagjöf
Markmið: Að veita einstaklingum endurgjaldslausa leiðsögn við þróun viðskiptahugmynda, gerð viðskiptaáætlana og stofnun og rekstur fyrirtækis. Að vera fyrsti viðkomustaður einstaklinga með viðskiptahugmyndir og beina fólki í réttar áttir í stuðningsumhverfinu.
Markhópur: Einstaklingar með viðskiptahugmyndir og starfandi fyrirtæki sem vilja innleiða nýjungar eða huga að endurbótum í rekstri.
Lýsing: Hægt er að panta tíma í handleiðslu og fá persónulega ráðgjöf. Á ári hverju veitir Nýsköpunarmiðstöð um
6000 slík viðtöl. Upplýsingabrunnur um stofnun og rekstur fyrirtækis á www.nmi.is
Reiknilíkön í Excel fyrir áætlanagerð Vefnám um rekstrarform fyrirtækja Listi yfir algeng leyfi sem þarf til atvinnurekstrar O. fl.
Umfang: Handleiðsla er persónulegt viðtal og ráðgjöf í allt að klukkustund í senn. Hægt er að koma oftar en einu sinni.
1. Fjármögnun 2. Ráðgjöf X 3. Tengslamyndun 4. Annað XTegund stuðningsþjónustu
Námskeið og stuðningsverkefni
Markmið: Að bjóða upp á námskeið og stuðningsverkefni fyrir þá sem hafa hug á að stofna fyrirtæki eða innleiða nýjungar í rekstri.
Markhópur: Einstaklingar með viðskiptahugmyndir og lítil fyrirtæki í rekstri.
Lýsing: Stofnun og rekstur smáfyrirtækja – kennt á höfuðborgarsvæðinu, 35 klst. Sóknarbraut – kennt á landsbyggðinni, 40 klst. Brautargengi – námskeið fyrir konur sem vilja vinna að viðskiptahugmynd, 75 klst. Virkjum hugmyndir til framkvæmda – fyrir þá sem eru ekki með fastmótaða hugmynd, 25 klst. O. fl.
Tegund stuðningsþjónustu
Umfang/fjármögnun: Námskeiðin eru allt frá tveimur dögum upp í 75 klst. Á lengri námskeiðum (t.d. Brautargengi og Sóknarbraut) vinna þátttakendur að viðskiptaáætlun fyrir eigin viðskiptahugmyndir. Sum námskeiðanna eru einungis í boði á landsbyggðinni.
1. Fjármögnun 2. Ráðgjöf X 3. Tengslamyndun X 4. Annað
Merki þesssem er með
kynningu
Átak til atvinnusköpunar
Markmið: Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta og styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum.
Markhópur: Einstaklingar með nýsköpunarhugmyndir og starfandi fyrirtæki í nýsköpun.
Lýsing:Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins en Nýsköpunarmiðstöð hefur umsjón með umsóknarferlinu. Opið er fyrir umsóknir tvisvar á ári; snemma á haustin og í ársbyrjun. Þeir sem fá styrk frá Átaki til atvinnusköpunar þurfa að skila áfangaskýrslu og lokaskýrslu til Nýsköpunarmiðstöðvar.
1. Fjármögnun X 2. Ráðgjöf 3. Tengslamyndun 4. Annað
Tegund stuðningsþjónustu
Umfang/fjármögnun: Styrkupphæðir eru oftast frá 500.000 kr. upp í 1.000.000 kr. en geta verið hærri. Athugið að Nýsköpunarmiðstöð hefur einnig umsjón með öðrum styrkjum sem í boði eru á landsbyggðinni, t.d. Framtaki, Skrefi framar og Frumkvöðlastuðningi.
Merki þesssem er með
kynningu
Frumkvöðlasetur
Markmið: Að veita einstaklingum og hópum aðstöðu og stuðning til að hrinda viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd.
Markhópur: Einstaklingar með viðskiptahugmyndir og sprotafyrirtæki.
Lýsing: Frumkvöðlasetur Nýsköpunarmiðstöðvar henta bæði einstaklingum sem eru að stíga fyrstu skrefin í stofnun fyrirtækis og sprotafyrirtækjum sem eru lengra komin. Frumkvöðlasetrin eru sex talsins, fjögur á höfuðborgarsvæðinu (Keldnaholt, Kím – Medical Park, Kveikjan og Kvosin) og tvö á landsbyggðinni (Fruma og Eyrin). Einnig kemur Nýsköpunarmiðstöð að rekstri frumkvöðlaseturs í Ásbrú, Reykjanesbæ.
Skrifstofuaðstaða gegn vægu gjaldi Faglegur stuðningur starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvar Skapandi umhverfi og öflugt tengslanet
1. Fjármögnun 2. Ráðgjöf 3. Tengslamyndun X 4. Annað XTegund stuðningsþjónustu
Umfang: Hægt er að dvelja á frumkvöðlasetri Nýsköpunarmiðstöðvar frá nokkrum mánuðum upp í nokkur ár ef þörf krefur en leigugjald hækkar í takt við þróun og rekstrarárangur fyrirtækjanna.
Samstarf um tækniþróun
Markmið: Að auka nýsköpun í íslenskum framleiðsluiðnaði og stuðla að þróun nýrra afurða.
Markhópur: Framleiðslufyrirtæki með yfir 10 starfsmenn
Lýsing:
1. Fyrirtækið leggur fram hugmynd um framtíðarafurð
2. Fyrirtækið mótar með Nýsköpunarmiðstöð sýn á hvernig hún er þróuð í samstarfi við aðra
3. Nýsköpunarmiðstöð stýrir umsóknarskrifum í innlenda eða erlenda sjóði
4. Aðilar þróa síðan afurðina saman, oftast í samvinnu við fleiri aðila.
1. Fjármögnun 2. Ráðgjöf x 3. Tengslamyndun x 4. Annað XTegund stuðningsþjónustu
Umfang/fjármögnun: Styrkir Tækniþróunarsjóðs geta verið frá nokkrum milljónum og upp í 30 milljónir. Umfang verkefnis er
a.m.k. tvöfaldur styrkurinn. Evrópustyrkir eru tífalt stærri. Umfang verkefnis er 30% hærra en styrkurinn.
Merki þesssem er með
kynningu
Markmið: Að stuðla að uppbyggingu lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem stunda sjálf rannsóknir og þróun á öllum sviðum og efla þannig samvinnu og samstarf á sviði rannsókna og nýsköpunar í Evrópu og bæta samkeppnishæfni álfunnar.
Markhópur: Sprotafyrirtæki sem stunda sjálf rannsóknar- og þróunarstarfsemi, oftast þróun á nýrri vöru, ferli eða þjónustu nálægt markaði.
Lýsing: Eurostars er áætlun sem Evreka og Evrópusambandið standa að. Eurostars-verkefni eru samstarfsverkefni milli a.m.k. tveggja lögaðila frá tveimur Eurostars-löndum sem taka virkan þátt í áætluninni. Aðalumsækjandi í verkefninu er lítið eða meðalstórt fyrirtæki sem stundar sjálft rannsóknir og þróun. Stærstur hluti fjármögnunar verkefnanna kemur frá Eurostars löndunum 38, á Íslandi frá Tækniþróunarsjóði, en ESB leggur til viðbótar- fjármagn. Umsóknarfrestur er opinn en umsóknum er safnað saman tvisvar á ári, næst 30. september 2010.
1. Fjármögnun X 2. Ráðgjöf X 3. Tengslamyndun X 4. Annað
Tegund stuðningsþjónustu
Umfang/fjármögnun: Hámarksstuðningur til íslensks hluta Eurostars verkefnis getur orðið
10 m.kr. við 1 árs verkefni, 20 m.kr. við 2ja ára verkefni og 30 m.kr. við 3ja ára verkefni.
http://www.nmi.is/nyskopunarmidstod/eurostars/
Sókn í norrænt samstarf
Markmið: Að upplýsa og auka möguleika íslenskra fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og einstaklinga að sækja í norræna styrkja- og stuðningsmöguleika.
Markhópur: Fyrirtæki, háskólar og rannsóknastofnanir. Í vissum tilfellum geta einstaklingar og félagasamtök einnig sótt um styrki.
Lýsing: Undir Norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði eru fjölmargar ráðherra- og embættismannanefndir, vinnuhópar, stofnanir og áætlanir sem bjóða upp á ýmsa styrkjamöguleika. Verkefnisstjóri á Nýsköpunarmiðstöð veitir ráðgjöf og stuðning varðandi fjármögnunarleiðir og leiðbeinir m.a. við umsóknarskrif og við myndun tengslaneta.
Tegund stuðningsþjónustu
1. Fjármögnun X 2. Ráðgjöf X 3. Tengslamyndun X 4. Annað
Umfang/fjármögnun: Á heimasíðunni www.norraentsamstarf.is er yfirlit yfir þá möguleika sem standa Íslendingum til boða á sviði atvinnumála, auðlinda-, orku- og umhverfismála, byggðamála, félags- og heilbrigðismála, mennta- og menningarmála og rannsókna-, vísinda- og nýsköpunarmála.
Merki þesssem er með
kynningu
Enterprise Europe Network
Markmið: Að efla samkeppnishæfni og hvetja til nýsköpunar
Markhópur: Lítil og meðalstór fyrirtæki, rannsóknaaðilar og háskólar
Lýsing: Aðstoð við að koma íslenskri tækni og vörum á framfæri í Evrópu Aðstoð við að finna nýja tækni í Evrópu sem nýtist íslenskum aðilum Leit að samstarfsaðilum í viðskiptum og rannsóknum Komum á fyrirtækjastefnumótum í Evrópu í ýmsum atvinnugreinum Upplýsingar um styrki og rannsóknaverkefni ESB
1. Fjármögnun X 2. Ráðgjöf X 3. Tengslamyndun X 4. Annað XTegund stuðningsþjónustu
Fab Lab smiðja
Markmið: Að veita einstaklingum og fyrirtækjum aðstöðu til þess að þróa hugmyndir að vörum, auka þekkingu á stafrænum framleiðsluaðferðum og stuðla að þróun nýrra afurða.
Markhópur: Einstaklingar með hugmyndir að vörum, fyrirtæki í vöruþróun og nemendur.
Lýsing: 1. Fab Lab (Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem
er. Í smiðjunni eru m.a. tölvustýrðar fræsivélar, laserskurðartæki, þrívíddarskanni og vinylskeri.
2. Fab Lab smiðjan er hluti af neti Fab Lab smiðja um víðs vegar um heiminn í Evrópu, Asíu, Ameríku og Afríku.
3. Í smiðjunni er viðskiptavinum boðin aðstaða við þróun frumgerða og aðstoð við notkun á búnaði smiðjunnar.
1. Fjármögnun 2. Ráðgjöf x 3. Tengslamyndun x 4. Annað XTegund stuðningsþjónustu
Umfang/fjármögnun: Fyrirtæki og einstaklingar geta komið í smiðjuna og stundað sína vöruþróun. Viðskiptavinir greiða fyrir
efnisnotkun og fá persónulega leiðsögn í notkun á búnaði Fab Lab smiðjunnar. Fab Lab smiðjur Nýsköpunarmiðstöðvar eru í Vestmannaeyjum og á Sauðarkróki en einnig er Fab Lab
smiðja á Akranesi. Nánari upplýsingar www.fablab.is
Recommended