4
Súkkulaði-Tíramísú Mjúka og þykka súkkulaðisósan er afgerandi í þessum sívinsæla eftirrétti.

Súkkulaði Tíramísú

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: Súkkulaði Tíramísú

Súkkulaði-Tíramísú

Mjúka og þykka súkkulaðisósan er afgerandi í þessum sívinsæla eftirrétti.  

Page 2: Súkkulaði Tíramísú

Innihald

• 5 dl rjómi• 300 g Síríus Konsum 56% súkkulaði, saxað• 375 g mascarpone-ostur, mjúkur• 3 msk. flórsykur• 3 msk. Ameretto-möndlulíkjör• 2 msk. kaffilíkjör• 1 dl sterkt kaffi, kalt• 16 stk. fingurkex (ladyfingers-kökur)

Page 3: Súkkulaði Tíramísú

Aðferð

• Hitið 1 dl af rjóma og súkkulaðið saman í potti við mjög hægan hita þar til súkkulaðið er bráðið. Hrærið mjög oft og gætið þess vel að súkkulaðið hitni ekki of mikið.

• Þeytið saman í skál afganginn af rjómanum, mascarpone-ostinn, flórsykurinn og Ameretto-líkjörinn þar til blandan verður slétt og samfelld.

• Blandið kaffilíkjör og kaffi saman í annarri skál. Dýfið kökunum ofan í kaffiblönduna og raðið þeim upp með hliðunum á fallegri, djúpri skál.

Page 4: Súkkulaði Tíramísú

Aðferð

• Hellið þriðjungi af súkkulaðiblöndunni á botninn á skálinni og setjið helminginn af rjómaostblöndunni þar ofan á.

• Hellið öðrum þriðjungi af súkkulaðiblöndunni yfir og dreifið svo afganginum af rjómaostblöndunni þar yfir. Jafnið loks afganginum af súkkulaðiblöndunni yfir allt saman.

• Breiðið plastfilmu yfir skálina, setjið hana í ísskáp og kælið réttinn í um 3 klukkustundir.

Verði ykkur að góðu!