20
ÁRSSKÝRSLA 2012 annual report SAMEINUMST Í ÞÁGU BARNA

„Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

  • Upload
    others

  • View
    0

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

ÁRSSKÝRSLA 2012annual report

UNICEF Ísland

Laugavegur 176105 Reykjavík Sími: 552 6300 [email protected]

www.unicef.is

SAMEINUMST Í ÞÁGU BARNASAMEINUMST Í ÞÁGU BARNA

Page 2: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, var stofnuð árið 1946 og hefur starfsemi samtakanna vaxið jafnt og þétt á þessum 67 árum. Við berjumst fyrir réttindum barna á heimsvísu og sinnum bæði langtímauppbyggingu og neyð-araðstoð. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög og hefur að leiðarljósi þá bjargföstu trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsugæslu, menntun, jafnrétti og vernd. Við erum á vettvangi í yfir 190 löndum og leggjum áherslu á að ná til allra barna – hvar sem þau eru. Árið 1965 fékk UNICEF friðarverðlaun Nóbels og svo aftur árið 2001 sem stofnun innan vébanda Sameinuðu þjóðanna.

Forgangsatriði UNICEF eru:

• Baráttangegnbarnadauða–að sjá til þess að yngstu börnin komist vel af stað í lífinu, veita börnum lífsnauðsynlegar bólusetningar og aðra heilsugæslu.

• Menntun og jafnrétti – að veita öllum börnum, jafnt stúlkum sem drengjum, góða grunnmenntun og ýta undir jafnrétti kynjanna.

• HIV/alnæmi – að fyrirbyggja HIV-smit, veita smituðum börnum umönnun og sjá til þess að börn, sem orðið hafa munaðarlaus af völdum alnæmis, fái stuðning og vernd.

• Barnavernd–að stuðla að öruggu umhverfi fyrir börn, koma í veg fyrir að þau séu misnotuð, beitt ofbeldi eða vanrækt.

• Réttindagæsla–að auka þátttöku barna í samfélaginu og fræðslu um réttindi þeirra.

Forgangsatriðin fimm eru í samræmi við Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóð-anna um þróun (e. Millennium Development Goals) sem samþykkt voru á Alls-herjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2000. Með markmiðunum er ætlast til að hægt verði að ná fram mælanlegum árangri í þróunaraðstoð fyrir árið 2015. Þar á meðal eru sett fram mikilvæg markmið um að draga úr barnadauða og tryggja öllum börnum grunnmenntun.

UNICEFstarfarþarsemþörfinermestFjármunum UNICEF er ráðstafað eftir því hvar þörfin er mest hverju sinni. Þegar þörf er metin er meðal annars tekið tillit til tíðni ungbarnadauða og þjóðartekna í tilteknu landi en einnig er litið til þess hversu mörg börn eru van-nærð, hversu mörg börn þurfa á bólusetningum að halda, hve mörg börn hafa misst foreldra sína, sérstaklega vegna HIV/alnæmis, og hve stór hluti íbúanna hefur ekki aðgang að hreinu vatni.

Landsnefndir UNICEF eru nú 36 talsins, en þær sjá um fjáröflun og fræðslu um réttindi barna. Saman safna þær einum þriðja af heildartekjum UNICEF um heim allan. Landsnefnd UNICEF á Íslandi var stofnuð í mars 2004.

UNICEFÍSTUTTUMÁLI

Pre

ntv

inn

sla:

Od

di,

um

hve

fisv

ott

pre

nts

mið

ja

©UNICEF / Nesa

Takk!Stjórn og starfsfólk UNICEF á Íslandi á mikið að

þakka þeim fjölmörgu góðu aðilum sem koma

að starfi landsnefndarinnar með einum eða

öðrum hætti. Bæði einstaklingar og fyrirtæki

hafa sýnt UNICEF mikinn velvilja og stuðning.

Margir hafa gefið afslætti og stutt þannig við

reksturinn og aðrir hafa veitt beinan fjárhags-

legan stuðning. Við þökkum öllum þeim ótal

mörgu sem lögðu okkur lið á árinu 2012 og

gerðu þar með heiminn aðeins betri fyrir þau

sem reiða sig á starf UNICEF: Bágstödd börn.

©UNICEF / Bindra ©UNICEF / Haque

©UNICEF / Bindra

©UNICEF / Khuzaie ©UNICEF / Mawa

©UNICEF / Alcock

Page 3: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

EFNISYFIRLIT

Frá stjórnarformanni ........................................................................... 4

Fjáröflun ............................................................................................... 5

Innanlandsstarf .................................................................................... 9

Á vettvangi ........................................................................................... 10

Fjármál ................................................................................................. 12

Framlög íslenska ríkisins til UNICEF .................................................. 14

Overview of the year 2012 .................................................................. 16

Við erum UNICEF á Íslandi ................................................................. 18

©UNICEF / Wishwanathan

Page 4: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

4

Frá stjórnarformanniStarf UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, snýst um ófrávíkjanleg mannrétt-indi. Öll börn eiga óskor-aðan og meðfæddan rétt til lífs og þroska. Barnasátt-máli Sameinuðu þjóðanna gerir aðildarríkjum skylt að virða og tryggja þau réttindi sem skráð eru í sáttmálann, svo sem að börn fái notið menntunar og heilsugæslu,

þau fái að lifa við aðstæður sem gera þeim kleift að nýta hæfileika sína til fullnustu, til dæmis með virkri samfélags-legri þátttöku – og þeim sé tryggð vernd gegn líkamlegu og andlegu ofbeldi, vanrækslu og hvers kyns illri meðferð.

Þegar litið er yfir árangurinn af starfinu árið 2012 er sannarlega yfir ýmsu að gleðjast. UNICEF er starfandi í yfir 190 löndum; við leitumst við að koma til aðstoðar hvar sem réttindum barna er ógnað og erum jafnan fyrst á vettvang þegar neyðarástand hefur skapast – hvort sem er af manna völdum eða vegna náttúruhamfara. UNICEF heldur síðan áfram eftir að það versta er yfirstaðið og styður við uppbyggingu og langvarandi úrbætur fyrir börn á svæðinu.

Bestu tíðindin árið 2012 voru að fleiri börn upplifðu 5 ára afmælisdaginn sinn en nokkru sinni fyrr. Árið 1990 létust árlega 12 milljónir barna yngri en 5 ára – nú látast 6,9 milljónir barna á hverju ári. Talan er enn skelfilega há en baráttan gegn barnadauða hefur ótvírætt skilað árangri, ekki síst í ljósi þess að jarðarbúum hefur fjölgað á sama tímabili. Enn látast um 19.000 börn á hverjum degi af ástæðum sem koma mætti í veg fyrir – t.a.m. með bólusetningum, heilsugæslu, aðgengi að hreinu vatni, bættri næringu og menntun mæðra. Í ársskýrslunni eru rakin fleiri dæmi um árangur af starfsemi UNICEF á árinu 2012.

Á árinu beindi UNICEF kastljósinu að bágbornum aðstæðum barna í fátækrahverfum stórborga. Bent var á að hundruð milljóna barna í þéttbýli nytu engrar

grunnþjónustu og að hrikalegan ójöfnuð væri víða að finna. Fjölmennustu ríki heims eru nú komin í hóp svokallaðra millitekjuríkja, s.s. Kína og Indland. Þótt meðaltalstölur um aðbúnað þarlendra barna þróist sem betur fer í jákvæða átt er ljóst að 70% af fátækasta fólki heims býr í þessum ríkjum og misskipting hefur vaxið gríðarlega. Þörfin fyrir staðfastan málsvara fyrir fátækustu börnin hefur sjaldan verið meiri.

Landsnefndir UNICEF, sem eru alls 36 talsins, safna orðið þriðjungi af þeim fjármunum sem UNICEF ver til að bjarga lífi barna og verja réttindi þeirra um allan heim. Þrátt fyrir þá dapurlegu þróun að framlög ríkisstjórna til þessara brýnu verkefna hafi dregist saman um 7% á heimsvísu varð 3% vöxtur í heildarfjáröflun UNICEF á árinu. Það er ekki síst landsnefndum og almenningi í efnameiri ríkjum heims að þakka.

Starfsemi UNICEF á Íslandi hvílir áfram á traustum grunni þeirrar breiðfylkingar sem íslenskir heimsforeldrar, fjölmörg fyrirtæki og styrktarsjóðir mynda. Á árinu bættust hátt á sjötta þúsund heimsforeldra í hópinn, sem taldi í árslok tæplega 22.000 manns. Á sjötta hverju íslensku heimili er því að finna dýrmætan liðsmann UNICEF og mannréttindabaráttu barna. Enn heldur Ísland auk þess þeirri virðingarstöðu meðal landsnefnda að hvergi annars staðar kjósa hlutfallslega fleiri að leggja bágstöddustu börnum heims lið. Fyrir þetta erum við innilega þakklát.

Svanhildur Konráðsdóttirstjórnarformaður UNICEF á Íslandi

©UNICEF / Mawa ©UNICEF / Than

Page 5: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

5

FjáröflunUNICEF treystir alfarið á frjáls fjárframlög og stuðningur sem við fáum frá einstaklingum, fyrirtækjum, sjóðum og félagasamtökum er því forsenda þess að við getum staðið fyrir öflugu hjálpar- og þróunarstarfi og knúið fram réttindabætur fyrir börn um allan heim. Fjáröflun skipar þar af leiðandi stóran sess í starfi okkar.

Við erum einstaklega stolt af því að miðað við höfðatölu lagði engin landsnefnd jafnmikið til verkefna UNICEF í fyrra og sú íslenska. Framlög frá Íslandi námu 7,23 Bandaríkjadölum á hvern landsmann en næst á eftir voru Svíþjóð með 6,67 Bandaríkjadali og Hollendingar með 3,99. Alls aflaði UNICEF á Íslandi rúmra 437 milljóna króna á árinu sem gerir 16,5% vöxt á milli ára. Af slíkum vexti njóta þúsundir barna góðs.

Ástæðan fyrir þessum árangri er einföld. Almenningur á Íslandi og forsvarsmenn fyrirtækja og sjóða hérlendis deila með okkur þeirri sannfæringu að börn hafi ófrávíkjanleg réttindi hvar í heimi sem þau fæðast. Árangurinn

©UNICEF / Nakibuuka©UNICEF / Bindra

endurspeglar einnig það mikla traust sem UNICEF nýtur. Fyrir það traust erum við hjartanlega þakklát.

2,033

6,026

11,756

13,59113,518

15,63316,339

17,247

21,729

0

5,000

10,000

15,000

20,000

25,000

2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012

Framlag á hvern íbúa hjá tíu efstu landsnefndunum(í Bandaríkjadölum)

Landsnefnd USD

Ísland 7,23

Svíþjóð 6,67

Holland 3,99

Andorra 3,31

Finnland 2,95

Danmörk 2,75

Lúxemborg 2,66

Sviss 2,59

Noregur 2,18

Hong Kong 1,99

HeimsforeldrarHeimsforeldrar eru hjartað í starfsemi UNICEF á Íslandi. Styrkir frá heimsforeldrum árið 2012 voru 68% af heildarframlögum til landsnefndarinnar eða 298 milljónir króna. Heimsforeldrar styrkja verkefni UNICEF með föstum mánaðarlegum framlögum og gerir reglulegur og stöðugur stuðningur þeirra okkur kleift að skipuleggja starf okkar til lengri tíma. Slíkur stuðningur skiptir miklu máli þegar tryggja skal varanlegan árangur fyrir börn.

Alls bættust 5.511 íslenskir heimsforeldrar í hópinn á árinu; 3.165 konur, 2.316 karlar og 30 fyrirtæki. Að árinu 2006 undanskildu hafa aldrei fleiri kosið að gerast heimsforeldrar á einu ári.

Í lok árs 2012 voru íslenskir heimsforeldrar alls 21.754 með meðalmánaðarframlag

Fjöldi heimsforeldra 2004—2012. Heildarfjöldi í lok hvers árs.

Page 6: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

6

upp á 1.414 krónur. Þetta þýðir að tæp 7% prósent landsmanna eru heimsforeldar og eru þeir hlutfallslega hvergi jafnmargir. Þessi fjölmenni hópur samanstendur af fólki úr öllum aldurshópum hvaðanæva að af landinu sem á það sameiginlegt að vilja leggja sitt af mörkum til að bæta heiminn. Miðað við þennan fjölda má gera ráð fyrir að heimsforeldri sé að finna á sjötta hverju íslensku heimili.

NeyðarsafnanirMörg þúsund einstaklingar og hundruð fyrirtækja svöruðu ákalli okkar í apríl og september þegar við vöktum athygli á sárri neyð barna á Sahel-svæðinu í Vestur-Afríkur og síðar í Sýrlandi.

Með allsherjarátaki landsnefnda UNICEF um allan heim tókst að beina kastljósi fjölmiðla að ástandinu á Sahel-svæðinu og söfnuðust rúmar 26,4 milljónir króna hérlendis.

Tæplega 4,5 milljónir söfnuðust fyrir hjálparstarf UNICEF í Sýrlandi þar sem stigvaxandi átök hafa um langt skeið ógnað lífi og velferð fjölda barna. Ótal börn hafa neyðst til að flýja heimahagana ásamt fjölskyldum sínum. Um þriðjungur framlagsins kom frá framhaldsskólanemum sem stóðu meðal annars fyrir söfnunarátaki í nær öllum skólum landsins undir lok ársins. Söfnun fyrir neyðarstarfið í Sýrlandi var haldið áfram árið 2013.

©UNICEF / Haque©UNICEF / Sokol

„Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“

Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan 2011. Í hverjum mánuði gefur Andrea öll blaðberalaun sín til UNICEF.

„Heimsforeldri er fallegt orð sem lýsir þeirri sameigin-

legu ábyrgð sem við berum hvert á öðru – og þá sér-

staklega á öllum börnum, hvar sem þau fæðast.“

Gunnar Hansson, leikari og heimsforeldri síðan 2006.

„Ég veit að styrkurinn frá mér til UNICEF fer í að bjarga þeim börnum í heiminum sem þurfa mest á hjálp að halda. Ég vil láta gott af mér leiða af því að ég get það og ég veit að það er virkilega þörf á því að veita stuðning út um allan heim.“ Sigfríður Friðþjófsdóttir, fjármálastjóri, kaupandi sannra gjafa og heimsforeldri síðan 2011.

„Börnin og starfsfólkið í Flataskóla tók þátt í UNICEF-hreyfingunni í fyrra og nutum við þess mjög að gefa af okkur um leið og við bæði skemmtum okkur og styrktum kroppinn.“ Ólöf Sigurðardóttir, skólastjóri Flataskóla.

„Við viljum leggja okkar af mörkum í því metnaðarfulla og mikilvæga verkefni UNICEF að gera heiminn að betri stað fyrir börn.“

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen.

„Til að koma börnum í skóla sem búa við erfiðar félags-legar og efnahagslegar aðstæður þarf að huga að öllum mögulegum þáttum sem nauðsynlegir eru til að verk-efnið gangi upp og skili árangri. Allt þetta hefur UNICEF gert mjög vel og við teljum að verkefnið hafi skilað ótví-ræðum árangri í einu verst stadda landi heims þegar kemur að málefnum barna. Við hjá Auroru Velgerða-sjóði lítum á það sem forréttindi að hafa átt möguleika á að styðja við þetta verðuga verkefni.“

Ingibjörg Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Aurora Velgerðarsjóðs og heimsforeldri frá árinu 2004.

Nýir heimsforeldrar 2012 eftir skráningarleiðum.

4,267

1,010

172 62

Úthringingar

Dagur rau efsins

Heimasí a

Anna

na

Page 7: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

7

Sjóðir: Aurora og FatímaVelgerðasjóðurinn Aurora hefur frá árinu 2008 stutt við uppbyggingu menntunar og barnaverndarstarfs í Síerra Leóne. Árið 2012 úthlutaði stjórn Auroru hvorki meira né minna en 40 milljónum króna til verkefnisins. Heildarstuðningur sjóðsins við verkefni UNICEF nemur þar með alls 239,5 milljónum, að meðtöldum 36 milljónum

sem stofnendur sjóðsins lögðu í byggingu 50 skóla árið 2005. Stuðningur Auroru hefur skipt sköpum fyrir mörg þúsund börn sem hafa í krafti hans átt kost á að öðlast menntun í öruggu og barnvænu umhverfi. Slíkt tækifæri getur gjörbreytt framtíðarhorfum barns og er auk þess lykillinn að framþróun samfélagsins alls.

Um mitt ár styrkti Fatímu-sjóðurinn UNICEF um þrjár milljónir króna. Framlagið rann til heilsugæslu- og næringarverkefna í einu fátækasta ríki Mið-Austurlanda: Jemen. Aðstæður barna í Jemen eru víða afar bágbornar og tíðni bráðavannæringar er skelfilega há. Styrkur Fatímu-sjóðsins var því einkar kærkominn.

FyrirtækjasamstarfÍ desember hét Alvogen, alþjóðlegt lyfjafyrirtæki undir forystu Róberts Wessman, því að styrkja UNICEF um að lágmarki 30 milljónir króna fram til ársins 2015. Fyrsta skrefið í þessu verðmæta samstarfi var tekið þegar Alvogen styrkti lífsnauðsynlegar neyðaraðgerðir UNICEF á Sahel-svæðinu í Vestur-Afríku, dag rauða nefsins og fleiri verkefni um samtals 7,5 milljónir. Á næstu þremur árum mun Alvogen meðal annars leggja sitt af mörkum til að börn á Madagaskar fái notið menntunar – ekki síst stúlkur en á Madagaskar ganga mun færri stúlkur en drengir í skóla.

Farsælu samstarfi við nokkur fyrirtæki sem hafa í gegnum tíðina sýnt UNICEF mikinn velvilja var haldið áfram á árinu. Sala til vinnustaða á sérstöku gæðakaffi frá Te & Kaffi skilaði UNICEF til að mynda rúmum 4 milljónum króna en verkefnið hefur staðið yfir frá 2008. Prentsmiðjan Oddi gaf uppsetningu og prentun kynningarefnis eins og verið hefur frá stofnun landsnefndarinnar. Afar hagstæður leigusamningur við fasteignafélagið Reiti var endurnýjaður á árinu. Um 1,8 milljón safnaðist hérlendis í alþjóðlegu samstarfsverkefni með IKEA og rúmlega 400.000 krónur í alþjóðlegu samstarfi með Disney, en þær fjárhæðir fara þó ekki í gegnum reikninga íslensku landsnefndarinnar. Þá studdu MP banki og Valitor við dag rauða nefsins. Sem endranær stóðu Stöð 2, Saga Film og Vodafone auk þess þétt við bakið á UNICEF á degi rauða nefsins.

Fjölmörg önnur fyrirtæki lögðu okkur lið og birtist velvild þeirra með margvíslegum hætti. Ófá fyrirtæki aðstoðuðu okkur til að mynda við að halda rekstrarkostnaði

©UNICEF/Cranston ©UNICEF/Nakibuuka

Dagur rauða nefsinsFöstudaginn 7. desember stóðum við

fyrir degi rauða nefsins í fimmta sinn. Ótal manns tóku þátt í að gera þetta umfangsmikla fjáröflunar- og vitund-

arátak að veruleika og ljóst er að án sjálfboðavinnu listafólks og góðvilja helstu sam-

starfsaðila í hópi fyrirtækja væri ekki hægt að halda upp á daginn.

Meginmarkmiðið með degi rauða nefsins er að hvetja fólk til að gerast heimsforeldrar. Alls hlýddu 1.583 manns kallinu á þeim tveimur vikum sem átak-ið stóð yfir, þar af skráðu 1.010 sig í metnaðar-fullri sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 að kvöldi dags rauða nefsins. Rúmlega 9.000 manns tóku auk þess þátt í símaleik og á sjötta hundrað aðilar hétu stökum styrkjum að andvirði 3,5 milljónum króna. Um 4.000 rauð nef voru seld á völdum sölustöðum. Í þættinum var meðal annars sýnt frá heimsókn leikar-ans og heimsforeldrisins Gunnars Hanssonar til Búrk-ína Fasó þar sem hann kynnti sér aðstæður barna og starf UNICEF. Landslið grínara, skemmtikrafta og lista-manna kom auk þess fram í þættinum – allt í sjálfboða-vinnu. Verðskuldaða athygli vakti dýfingakeppni fræga fólksins þar sem nokkrir kunnir landsmenn lögðu líf og limi í hættu. Loks ber að nefna að lagið Öll í kór, sem hljómsveitin FM Belfast samdi sérstaklega fyrir daginn hljómaði á útvarpsstöðvum landsins.

UNICEF færir hjartans þakkir öllum þeim fjölmörgu sem gerðu dag rauða nefsins 2012 að veruleika.

Page 8: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

8

í lágmarki með ókeypis vöru og þjónustu eða veglegum afsláttarkjörum. Önnur veittu beina fjárstyrki í tengslum við einstök fjáröflunarverkefni, svo sem neyðarsafnanir og dag rauða nefsins. Þá keyptu fyrirtæki og vinnustaðir jólakort, sannar gjafir og rauð trúðanef, seldu vöru til styrktar UNICEF, stóðu fyrir söfnunum meðal viðskiptavina og starfsfólks og svona mætti lengi halda áfram. Öllum þessum fyrirtækjum kunnum við hjartans þakkir.

Sannar gjafirFjöldi fólks nýtti sér möguleikann á að kaupa sannar gjafir UNICEF á árinu. Um er að ræða hjálpargögn sem keypt eru í nafni þess sem gjöfina fær en gögnin sjálf nýtast í starfi UNICEF fyrir börn um allan heim. Allar sannar gjafir eru hlutir sem bjarga lífi barna, vernda þau gegn sjúkdómum eða stuðla að menntun þeirra og þroska. Á Íslandi voru keyptar sannar gjafir fyrir 3,6 milljónir króna árið 2012. Þær gjafir gerðu meðal annars að verkum að hægt var að útvega 12.900 skammta af vítamínbættu jarðhnetumauki

fyrir vannærð börn, rúma 10.000 skammta af bóluefni gegn mislingum og 10.650 vatnshreinsitöflur. Þá voru keyptir yfir 75.000 skammtar af lyfi við iðraormum, 11.260 bólusetningar gegn mænusótt, hátt í 400 moskítónet og skólagögn fyrir tæplega 1.000 börn.

Önnur framlög og rekstrarstyrkirAuk þeirra verkefna og styrkja sem þegar hafa verið nefndir barst UNICEF á Íslandi stuðingur víðs vegar að á árinu. Um er að ræða stök framlög á degi rauða nefsins, framlög frá grunnskólanemendum sem tóku þátt í UNICEF hreyfingunni (sjá bls. 9), áheit á hlaupara í hinu árlega Reykjavíkurmaraþoni, sölu yfirstrikunarpenna til fyrirtækja, ágóða af tombólum dugmikilla barna, sölu á minningarkortum, auk mikils fjölda óvæntra gjafa frá einstaklingum og fyrirtækjum. Samtals námu „önnur framlög“ og rekstarstyrkir 47 milljónum króna. Þá seldust að auki jólakort og gjafavara fyrir 6 milljónir.

Viðvörunarbjöllum hringt Vorið 2012 hringdi UNICEF viðvörunarbjöllum um allan heim vegna hættuástands sem skapast hafði í átta ríkjum á Sahel-svæðinu í Vestur- og Mið-Afríku. Varað var við því að ótal börn gætu látið lífið næstu vikur og mánuði bærist þeim ekki hjálp. Á Sahel-svæðinu ríkti þögul neyð sem fengið hafði litla sem enga fjölmiðlaathygli. Ástæðan var meðal annars þurrkar og uppskerubrestur.

UNICEF biðlaði til umheimsins að veita svæðinu at-hygli og láta það ekki verða að manngerðum ham-förum. Undirstrikað var að hér væri um eitt fátækasta svæði veraldar að ræða og að tíminn væri naumur. Neyðarsöfnun var hrundið af stað á sama tíma um allan heim. Almenningur á Íslandi og íslenskir fjölmiðlar tóku afar vel við sér og hvergi safnaðist hlutfallslega meira en hér á landi. Yfir 7.000 manns styrktu söfnunina á Ís-landi og meira en tvö hundruð fyrirtæki lögðu henni lið. UNICEF á Íslandi hlaut í kjölfarið fjölmiðlaverðlaun lands-nefnda UNICEF fyrir árið 2012.

Fjölmiðlaverðlaununum deildi landsnefndin með

UNICEF í Bretlandi sem fékk velgjörðasendiherra sinn, Ewan McGregor, til að fylgja UNICEF eftir við að flytja lífsnauðsynleg bóluefni fyrir börn til nokkurra af af-skekktustu stöðum heims. Með því vakti leikarinn athygli á því hvernig UNICEF vinnur og hvernig áherslan er á að ná til allra barna – hvar sem þau eru. Á árinu 2012 með-höndlaði UNICEF meira en 850.000 börn gegn alvarlegri bráðavannæringu á Sahel-svæðinu.

©UNICEF / Froutan ©UNICEF / Barongo

©UNICEF / Asselin

Page 9: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

9

meðal barna um þróunarmál og mannréttindi. Þess utan er verkefnið virk fjáröflun fyrir starf UNICEF í þágu þurfandi barna en um 4,3 milljónir króna söfnuðust árið 2012.

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðannaUNICEF á Íslandi hefur staðið að fjölda verkefna sem miða að því að vekja athygli á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Eitt af því er námsvefurinn www.barnasattmali.is sem unninn hefur verið í samstarfi við umboðsmann barna, Barnaheill og Námsgagnastofnun. Einnig er kennsluvefurinn „Allir eiga rétt“ áfram aðgengilegur á vef Námsgagnastofnunnar og vel nýttur af kennurum. Kennsluefnið er sniðið að efri bekkjum grunnskóla og er ætlað að auka þekkingu ungmenna á mannréttindum og fjölmenningu.

Innanlandsstarf UNICEF á Íslandi efldist mjög árið 2012. Verkefnin voru fjölbreytt og má þar nefna umsagnir um ný lög og yfirlýsingar og álit vegna réttinda barna. Meðal umsagna sem UNICEF á Íslandi gaf var um frumvarp til lögfestingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

UNICEF-hreyfinginGrunnskólaverkefni UNICEF á Íslandi, UNICEF-hreyfingin, hélt siglingu sinni áfram. Árið 2012 tóku tæplega 4.800 nemendur þátt úr 27 skólum. UNICEF-hreyfingin er verkefni fyrir grunnskóla þar sem kennarar nota fræðsluefni frá UNICEF til að fræða nemendur um jafnaldra þeirra í öðrum heimshlutum. Skólinn skipuleggur síðan íþróttadag þar sem nemendur safna fé til styrktar UNICEF með áheitasöfnun meðal sinna nánustu. Helsta markmið UNICEF með verkefninu er að stuðla að vitundarvakningu

Innanlandsstarf

Samstarf við fagfólk og börnÍ kjölfar útgáfu skýrslunnar Staða barna á Íslandi 2011 ákvað UNICEF á Íslandi að fylgja niðurstöðum hennar eftir og rannsaka nánar ofbeldi gegn börnum hér á landi.

Í apríl og maí 2012 boðaði UNICEF til níu funda með fagaðilum. Fundina sóttu aðilar frá ráðuneytum, sveitarfélögum, háskólum, félagasamtökum, lögreglu og mennta-, heilbrigðis- og barnaverndarkerfum. Á fundunum voru forvarnir vegna ofbeldis gegn börnum ræddar ítarlega og lagðar fram tillögur um hvernig koma megi í veg fyrir ofbeldi og bæta öll viðbrögð. UNICEF á Íslandi safnaði saman þeim tillögum og hugmyndum sem fram komu á fundunum og samþætti 16 tillögur fyrir stjórnvöld.

UNICEF leitaði ennfremur til Barnaverndarstofu, Barnahúss og barnaverndarnefndar Reykjavíkurborgar til að nálgast börn sem hafa verið beitt ofbeldi. Tilgangur þess var að setja á stofn sérfræðihóp barna til ráðgjafar um tillögur fagaðilanna.

Í samstarfi við Barnahús var settur saman sex manna

sérfræðihópur barna sem hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi og hefur verið í meðferð í Barnahúsi. Sérfræðingarnir voru 17-20 ára og komu reglulega saman til að ræða ofbeldi gegn börnum og hvernig koma megi í veg fyrir það. Sérfræðihópurinn setti fram eigin tillögur sem birtast í skýrslu UNICEF, Réttindi barna á Íslandi: ofbeldi og forvarnir sem gefin var út árið 2013.

©UNICEF / Nakibuuka©UNICEF / Markiz

Page 10: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

10

Á vettvangiUNICEF er á vettvangi í yfir 190 löndum og hefur að leiðarljósi þá bjarg-föstu trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsugæslu, menntun, jafnrétti og vernd. Fjöldi Íslendinga hefur unnið á vegum UNICEF, þar á meðal Margrét Rögn Hafsteinsdóttir á Gaza.

Hús úr húsi á Gaza

Margrét Rögn Haf-steinsdóttir er hjúkrun-arfræðingur og vann í tvö ár hjá UNICEF í Palestínu. Staða henn-ar var kostuð af Ís-lensku friðargæslunni. Meirihluta tímans bjó Margrét á Gaza.

Ungbarna- og mæðradauði hefur í gegnum tíðina verið hár á Gaza. Flest-ar konur sem gengið hafa í gegnum eðlilega fæðingu fara heim af sjúkra-húsi skömmu eftir fæðinguna – jafnvel klukkutíma síðar. Mesti áhættutíminn eftir fæðingu fyrir konur og nýbura er því án faglegs eftirlits. Til að vinna að Þú-saldarmarkmiðum SÞ um að lækka tölur um barnadauða og mæðradauða ákvað UNICEF að styrkja heilbrigðisráðuneytið á Gaza til að efla eftirlit og fræðslu hjúkr-unarfræðinga og ljósmæðra til nýbak-aðra mæðra sem fyrst eftir fæðingu. Markmiðið var að draga úr ungbarna- og mæðradauða með ráðgjöf og eftirliti.

Margrét vann með hópi palestínskra hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra sem hún þjálfaði upp og fór með í heima-hús. Hún heimsótti því fjölskyldur vítt og breitt á Gaza og kynntist mörgum. Nú er hún komin aftur heim eftir rúm-lega tveggja ára dvöl.

„Ég er ánægð að geta farið frá þessu vitandi að góður árangur hefur náðst,“ segir hún. „Starfssystur mínar á Gaza eiga heiður skilinn, þær eru fullar af áhuga og vilja halda verkefninu áfram. Það var vel sýnilegt í stríðinu í nóvem-ber; þá fóru margar þeirra í hús fót-gangandi þar sem bílarnir voru upp-teknir við að flytja særða. Þær lögðu sig í hættu til þess að komast heim til mæðra sem þær vissu að þyrftu á þeim að halda.“

FæðingarHelstu orsakir mæðradauða á Gaza eru sýkingar, blæðingar, blóð-tappar og hjartasjúkdómar. Helstu orsakir nýburadauða á Gaza eru sýkingar, fæðingargallar, fyrirburafæðingar og léttburafæðingar,“ segir Margrét. Talið er að í yfir 90% tilvika sé hægt að fyrirbyggja fylgikvilla fæðinga með reglubundnu eftirliti á meðgöngu, í fæð-ingu og eftir hana.

„Þessi stúlka var fyrsta barn foreldra sinna og mikil eftirvænting eftir henni,“ segir Margrét.

BrjóstagjöfÞar sem hættuástand er viðvarandi, líkt og á Gaza, getur brjóstagjöf skilið á milli þess hvort ungabarn kemst af eða ekki. Annað verkefni sem Margrét vann að var að aðstoða tvo fæðingarspítala á Gaza við að innleiða verkefnið Baby Friendly Hospital Initiative.

„Stofnanir þurfa að undirgangast mikla þjálfun til að fá þann gæða-stimpil sem verkefnið veitir. Það þýðir m.a. að fræðsla og stuðningur við brjóstagjöf sé til staðar og farið sé eftir 10 skrefum til árangurs-ríkrar brjóstagjafar sem verkefnið byggir á,“ segir Margrét.

Page 11: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

Mæðra- og ungbarnadauði „Mæðradauði hefur lækkað umtalsvert á síðustu tveimur árum á Gaza og stendur nú í þeirri tölu sem markmiðið var sett á fyrir 2015. Opinberar tölur hafa ekki verið birtar yfir ungbarnadauða en heilbrigðis-ráðuneytið segir að þær tölur hafi einnig lækkað umtalsvert. Það er því mikilvægt að halda boltanum á lofti og styðja áfram við þessi mikilvægu verkefni,“ segir Margrét. Hér er systkinahópur sem hún hitti í einni af fjölmörgum heimsóknum sínum.

Sálrænn stuðningur„Börn, hvar sem þau eru fædd í heiminum, eiga að fá að alast upp við öryggi. Á Gaza alast upp börn kynslóð eftir kynslóð við ógn um stríð. Eftir stríðið í nóvember 2012 hefur nærri því hver einasta barnssál á Gaza upplifað stríðsátök,“ segir Margrét. UNICEF er með afar umfangsmikið starf í Palestínu og aðstoðar börn og for-eldra þeirra meðal annars við að vinna úr þessari upplifun með sálrænum stuðningi.

11

Öryggi „Ár hvert drukkna börn í skólp-kerfinu á Gaza. Þriðja hvert heimili tengist ekki við skólpkerfi og skólp safnast því í tjarnir – oft mjög nálægt íbúabyggð. Börn dragast að þessum tjörnum og þær verða að lífshættu-legum leiksvæðum,“ segir Margrét.

UNICEF vinnur ásamt yfirvöldum að forvörnum með því að girða svæðin af og fræða börn og foreldra þeirra um hættuna. Með fræðslu og þjálfun hefur UNICEF auk þess virkjað unglinga í 16 hverfum til að vekja athygli á hættunni.

Page 12: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

12

Tekjur á árinu 2012 námu rúmum 437,4 milljónum króna en kostnaður við fjáröflun, kynningarmál, sölu og rekstur skrifstofu nam rúmum 118,3 milljónum, þar af var launakostnaður rúmar 42 milljónir. Vegna beinna rekstrarframlaga var hins vegar einungis 22,4% af söfnunarfé varið í kostnað. Söfnunarfé var varið þannig að af hverjum 100 krónum sem gefnar voru til UNICEF fóru 3,4 krónur í rekstur og stjórnun, 1,6 króna í kynningarmál og 17,4 krónur í að safna næstu 100 krónum og hjálpa enn fleiri börnum.

Eins og undanfarin ár var framlag heimsforeldra stærsti tekjuliður UNICEF á Íslandi. Heildartekjur af verkefninu námu 298 milljónum króna. Ráðstöfun til hjálparstarfs nam rúmri 341 milljón. Þar af var um 268,1 milljón varið til reglubundinna verkefna UNICEF og nýtist því í þeim löndum þar sem þörfin er mest. Af tekjum ársins 2012 verður 21,5 milljón varið til hjálparstarfs UNICEF á árinu

2013. Að auki var 9,7 milljónum króna varið í réttindagæslu og verkefni fyrir börn á Íslandi.

40 milljónir króna runnu til eflingar menntunar í Síerra Leóne en það er framlag frá velgerðasjóðnum Auroru. Það er fimmta framlag sjóðsins til menntunar í landinu. Vorið 2012 stóð UNICEF á Íslandi fyrir neyðarsöfnun fyrir Sahel-svæðið í Vestur-Afríku og námu framlög til þeirrar söfnunar rúmum 26,4 milljónum króna. Um haustið var hrundið af stað neyðarsöfnun fyrir Sýrland og námu framlög til þeirrar söfnunar tæplega 4,5 milljónum króna árið 2012. Söfnunin hélt áfram árið 2013. Samkvæmt lögum UNICEF á Íslandi er stofnfé samtakanna ein milljón króna. Í lok árs 2008, í kjölfar efnahagsþrenginga á Íslandi, ákvað stjórn UNICEF á Íslandi að 20 milljónir skyldu settar í sérstakan varasjóð og hefur honum ekki verið ráðstafað. Óráðstafaðar tekjur – þar með talið varasjóður og óráðstafaðar tekjur til hjálparstarfs – námu því rúmum 42,5 milljónum króna í lok árs 2012.

Fjármál

©UNICEF / Ferouz ©UNICEF / Holmes

Ráðstöfun söfnunarfjár árið 2012/Allocation of donations 2012

Alþjóðleg verkefni UNICEF árið 2012/Allocation to development assistance in 2012

ra

Reglubundi erkefni UNICEF

íUNICEF Síerra Leóne

íUNICEF JemenNey stoara

78%

12%

1%9%

n v

17%2%

3%2%

76%

Fjáröflun

Kynningarmál

Rekstur

Réttindagæsla og verkefni

Al jó le erkefni UNICEFg v

á Íslandi

Page 13: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

13

HELSTU TEKJUR OG GJÖLDTekjurHeimsforeldrar 298.092.139 Rekstrartekjur 27.771.478 Verkefnastyrkir 1.251.607 Sjóðir og fyrirtæki 49.284.048 Sala á kortum og gjafavörum 6.052.561 Neyðarsafnanir 34.204.310 Önnur framlög 19.278.318 Vaxtatekjur 1.527.001 Alls 437.461.462

ÚtgjöldKostnaður við fjáröflun 88.626.442 Kynningarmál 6.650.706 Kostnaður v/ sölu korta og gjafa 1.476.985 Annar rekstur 21.600.144 Alls 118.354.275

Ráðstöfun til hjálparstarfsErlend verkefniReglubundin verkefni UNICEF 268.110.377 UNICEF í Síerra Leóne 40.499.960 UNICEF í Jemen 3.000.000 UNICEF í Austur-Afríku, Sahel og Sýrlandi 29.405.844 Til erlendra verkefna alls 341.016.181

Innlend verkefniRéttindagæsla og verkefni á Íslandi 9.678.301 Til innlendra verkefna alls 9.678.301

Alls til verkefna UNICEF 350.694.482

Ráðstöfun til hjálparstarfs flutt til ársins 2013Verður ráðstafað árið 2013 21.513.384

Allar upphæðir eru í íslenskum krónum. Deloitte annaðist endurskoðun á ársreikningi UNICEF á Íslandi. Ársreikning-inn má nálgast á skrifstofu UNICEF á Íslandi.

KEY FINANCIAL FIGURESDonationsGlobal Parents 298.092.139Operational support 27.771.478Project support 1.251.607Corporates and foundations 49.284.048Sales of cards and gifts 6.052.561Emergency appeals 34.204.310Other donations 19.278.318Finance income and exhange rate gain 1.527.001Total 437.461.462

ExpenditureFundraising cost 88.626.442Communication 6.650.706Sales cost from cards and gifts 1.476.985Other expenditure 21.600.144Total 118.354.275

Programme allocationInternational projectsRegular resources, UNICEF projects 268.110.377UNICEF Sierra Leone 40.499.960UNICEF Yemen 3.000.000UNICEF Horn of Africa, Sahel and Sýrland 29.405.844Total international projects 341.016.181

Domestic projectsChild rights advocacy and domestic programmes 9.678.301Total domestic projects 9.678.301

Total UNICEF projects 350.694.482

Allocation to programmes transferred to 2013Will be allocated in 2013 21.513.384

All figures are in Icelandic krona. Deloitte audited the finances of UNICEF Iceland. For further information please contact UNICEF Iceland.

©UNICEF / Pirozzi ©UNICEF / Ferouz

Page 14: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

UNICEF er samkvæmt þingsályktun Alþingis um áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands ein af fjórum lykilstofnunum í þróunarsamvinnu Íslands.

Árið 2012 samþykkti Alþingi að hækka framlög Íslands til þróunarsamvinnu um einn milljarð í nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013. „Þróunarhjálp er okkar leið til að láta af höndum rakna til örsnauðs fólks í fátækustu ríkjum heims. Hún beinist ekki síst að mæðrum og börnum,“ skrifaði utanríkisráðherra í aðsendri grein í Fréttablaðinu í tilefni af þessu.

„Þróunarhjálp er meðal þeirra þátta sem ég hef lagt mesta áherslu á í starfi mínu sem utanríkisráðherra. Þess vegna gleðst ég einlæglega, eins og örugglega allir Íslendingar, yfir þessum sögulega áfanga.“

Framlög til UNICEF aukastFramlög íslenska ríkisins til UNICEF alþjóðlega hækkuðu um rúm 10,6% á milli áranna 2011 og 2012. Meirihluta þess fjár, um 54%, var varið til svokallaðra almennra framlaga. Slík framlög gera UNICEF meðal annars kleift að sinna hjálparstarfi á svæðum sem njóta engrar fjölmiðlaathygli og berjast fyrir réttindum barna á heimsvísu.

Íslensk stjórnvöld styrktu hjálparstarf UNICEF í Sýrlandi og nágrannaríkjunum með 11,5 milljóna króna framlagi árið 2012. Staðan í Sýrlandi hríðversnaði á árinu og straumur flóttamanna fór vaxandi. Börn eru helmingur flóttafólksins og því var starf UNICEF gríðarlega umfangsmikið á svæðinu.

Árið 2012 veitti utanríkisráðuneytið UNICEF í Palestínu 12,9 milljóna króna styrk til almennra verkefna samtakanna og var það fjórða árið í röð sem slíkt var gert. UNICEF í Palestínu leggur áherslu á vernd og umönnun barna sem líða fyrir ástandið á hernumdu svæðunum og verkefni UNICEF felast meðal annars í bólusetningum, menntun, sálgæslu og fræðslu um næringu og hreinlæti.

Íslenska ríkið hélt auk þess áfram stuðningi sínum við samstarfsverkefni UNICEF og UNFPA sem miðar að því að afnema limlestingu á kynfærum kvenna og stúlkna. Samstarf UNICEF og UNFPA felur í sér heildstæða nálgun og markmiðið er að hraða afnámi limlestinga á kynfærum kvenna. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að 140 milljónir kvenna hafi orðið fyrir limlestingu á kynfærum sínum og UNICEF áætlar að árlega eigi þrjár milljónir stúlkna á hættu að hljóta sömu örlög.

Fjármagni var einnig varið til stöðu ungs sérfræðings (e. Junior Professional Officer) í menntaverkefnum hjá UNICEF í Malaví. Viðkomandi hefur störf árið 2013. Loks ber að nefna að árið 2011 gerðu utanríkisráðuneytið og UNICEF á Íslandi með sér samstarfssamning til þriggja ára. Fyrsta árið veittu yfirvöld landsnefndinni 5 milljóna króna styrk og árið 2012 nam hann 5,5 milljónum króna. Landsnefndin sinnir á móti fræðslu og upplýsingagjöf er snertir starf UNICEF alþjóðlega. Aðrar upphæðir frá íslenskum yfirvöldum fara ekki í gegnum bókhald landsnefndarinnar.

Samstarf við íslensku friðargæslunaSamstarf Íslensku friðargæslunnar og UNICEF var formfest með samningi í febrúar 2007. Síðan þá hefur fjöldi Íslendinga verið sendur á vettvang til starfa fyrir UNICEF. Þeir hafa gegnt margvíslegum störfum og meðal annars verið í Georgíu, Srí Lanka, Tadjikistan, Súdan, Pakistan og Jemen. Guðrún Þorgeirsdóttir var á árinu 2012 á vegum Íslensku friðargæslunnar á Sómalíuskrifstofu UNICEF í Keníu.

Margrét Rögn Hafsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur, var auk þess að störfum hjá UNICEF í Palestínu. Margrét byggði upp verkefni um heilsuvernd nýbura og mæðra þeirra á Gaza-svæðinu, og hóf störf í febrúar 2011. Nánar má lesa um störf hennar á bls. 10-11.

14

Framlög íslenska ríkisins til UNICEF

2008 2009 2010 2011 2012

Almennt framlag 40 24,2 44,1 76,9 69,8

Neyðaraðstoð 7,4 11,5

Verkefni í Gíneu-Bissá 30 121,9 64,8

Verkefni í Palestínu 12,1 11,5 11,3 12,9

Verkefni í samvinnu við UNFPA 24,2 12,9

Ungir sérfræðingar 47,2 17,3

Landsnefnd UNICEF á Íslandi 5 5,5

Samtals: 124,6 158,2 120,3 117,4 129,9

Framlög íslenska ríkisins til verkefna UNICEF 2008–2012 (í milljónum króna):

54%

9%

10%

10%

13%

4%

Almennt framlag

Neyðaraðstoð

Verkefni í Palestínu

Verkefni í smvinnu við UNFPA

Ungir sérfræðingar

Landsnefnd UNICEF á Íslandi

Skipting framlaga ríkisins til UNICEF árið 2012

Page 15: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

15

Framlög íslenska ríkisins til UNICEF

©UNICEF / Vishwanathan

©UNICEF / Sibiloni

©UNICEF / Dicko

Page 16: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

16

FundraisingUNICEF Iceland was awarded 1st runner up for UNICEF Financial Performance Award for largest growth in per capita income in 2012. Each year the National Committee in Iceland gives the equivalent of 7,23 US dollars for every Icelander to development assistance.

Fundraising efforts were very successful in 2012 and as usual the Global Parent pledge programme was at the heart of UNICEF Iceland’s fundraising with 5,511 new Global Parents recruited (3,165 female, 2,316 male and 30 companies). UNICEF Iceland has more pledge donors per capita than any other National Committee for UNICEF in the world; a fact we are tremendously proud of and thank-ful for. Almost 7% of Icelanders have registered as Global Parents. The Global Parents have shown themselves to be a steady source of support for UNICEF’s long term projects for children in need around the world. At the end of 2012, there were 21,754 Global Parents in Iceland, and the ave-rage monthly donation was 1,414 ISK.

Other fundraising activities included the continuing sale of UNICEF’s cards and gifts, in memoriam cards and gift certificates, and an emergency appeal for the Sahel region and Syria, to name but a few. Sales of the so-called Inspi-red Gifts also continued in 2012, and a total of 3.6 million ISK was raised through the project. Through Inspired Gifts, over 12,000 children received vaccination against measles and polio from Icelanders and 1,000 children received school supplies. Other items include mosquito nets, thera-peutic food and milk for malnourished children.

Sponsored ProjectsIn recent years the Aurora foundation has supported an extensive and comprehensive education project in Sierra Leone, one of the poorest countries in the world. In 2012,

the board of the Aurora Foundation pledged a total of 40 million ISK in support of UNICEF projects in Sierra Leone. The total contribution of the Foundation to education in Sierra Leone now amounts to 239.5 million ISK. Schools have been constructed and over a hundred teachers have been fully trained. Local communities have been activated through the founding of parent associations and mother’s clubs in the schools which has a positive effect on student retention and child protection in general. Together, Aurora and UNICEF have changed the lives of thousands of children and families in Sierra Leone.

Advocacy and Education for DevelopmentUNICEF Iceland, the Ombudsman for Children in Iceland, Save the Children and The National Centre for Educatio-nal Materials teamed up and created the website www.barnasattmali.is with the aim to make educational ma-terial on the Convention of the Rights of the Child acces-sable to teachers and children in secondary school. The UNICEF-movement project, which encourages primary school children to raise awareness and funds for UNI-CEF through sponsored runs, also continued with over 4,500 students participating from 24 primary schools and after school care centres. Not only creating awareness among children on UNICEF‘s work the world over, the UNICEF-movement is also an active part of UNICEF‘s fundraising, raising 4,3 million ISK with the project in 2012. After UNICEF Iceland‘s report, State of Children in Iceland 2011, a decision was made to follow up its main results and take a closer look at violence against children in Iceland. In April and May 2012 UNICEF sought the opinion of experts from ministries, the education system, the child welfare system as well as the police and many more. A

Overview of the year 2012©UNICEF / Markisz ©UNICEF / Fannona

Page 17: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

17

series of meetings was held with the experts where the main threats to children in Iceland were discussed. Follow-ing those meetings a set of proposals was formed calling on immediate response from the authorities to prevent all kinds of violence against children. The need for a centrali-zed approach to funding, research and knowledge manage-ment was also addressed. UNICEF‘s report: Child Rights in Iceland: Violence and prevention will be out in 2013.

Corporate partnersA number of Icelandic companies co-operated with and supported UNICEF Iceland in 2012. In most cases the support was in the form of free or discounted goods and services, such as with Oddi printing company and the property company Reitir which renewed a very generous letting agreement with UNICEF Iceland. Such goodwill is tremendously important for the work of the National Committee as it serves to minimise the overhead costs of the operation.

IKEA launched its annual Soft Toy Campaign collecting 1,8 million ISK and UNICEF Iceland continued its successful co-operation with the sale of coffee to companies through a cause related telemarketing project with Te & Kaffi. MP bank and Valitor sponsored the Red Nose Day campaign and several companies and corporates supported the work of UNICEF in one way or another in 2012.

The Icelandic governmentThe Icelandic government raised its continued support for UNICEF in 2012 by 10,6% with funds being allocated to regular projects within UNICEF, as well as to UNICEF-projects in Syria, Palestine, and a joint programme with UNFPA aiming at ending female genital mutilation/cutting. Two UNICEF-positions were also paid for by the

Overview of the year 2012

Successful Red Nose Day On December 7th 2012 the Red Nose Day was ce-lebrated for the fifth time in Iceland. The main goal was to raise the number of Global Parents as well as raising awareness of the public, media, government and companies, on the need for development ass-istance for children.

The results were great: 1,583 new Global Parents registered! Over 4,000 red noses were sold, over 9,000 people participated in a text message lottery and the Red Nose Day song of the year by FM Belfast performed by fourteen Icelandic singers be-came highly popular. In the TV gala broadcasted on Channel 2 many of Iceland’s most beloved perform-ers entertained, and viewers got to see compelling stories of UNICEF’s work for children in need and give their support. To all the people who made the Red Nose Day 2012 a reality we extend our most heartfelt thanks.

Icelandic Crisis Response Unit, one at the Somalia-office in Kenya and one in Palestine. Funds for the hiring of a Junior Professional Officer for education programmes in Malawi were also allocated in 2012. In 2011 the ministry of foreign affairs and UNICEF made a three year donation agreement. In 2012 UNICEF received the second donation from the ministry of 5.5 million ISK.

Key financial figuresSee tables and graphs on p. 12-13.

©UNICEF / Sokol©UNICEF / Brooks

Page 18: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

18

StjórnStjórnarformaður Svanhildur Konráðsdóttir Varaformaður Karl Blöndal

Meðstjórnendur Bragi Guðbrandsson Guðrún ÖgmundsdóttirJóhanna VilhjálmsdóttirJóna Hrönn Bolladóttir Margrét Hallgrímsdóttir Ragna Sigurðardóttir Pétur Einarsson

Formaður ungmennaráðs Ragna Sigurðardóttir

Starfsfólk Framkvæmdastjóri Stefán Stefánsson Fjármálastjóri Dröfn Guðmundsdóttir Fjáröflunarstjóri Flóki Guðmundsson

Kynningarstjóri og fjölmiðlafulltrúi Sigríður Víðis Jónsdóttir Verkefnastjóri Bergsteinn Jónsson Bókari Arnheiður Þorsteinsdóttir

Fjáröflunarfulltrúar Helga Ólafsdóttir Hrafnhildur Helgadóttir Jóhanna Guðmundsdóttir Kynningarfulltrúi Sólveig Jónsdóttir Margmiðlunarhönnuður Andrea Hyldahl Ráðgjafi í innanlands- og réttindamálum Lovísa Arnardóttir Tengiliður heimsforeldra Bryndís Lúðvíksdóttir

Við erum UNICEF á Íslandi

Stjórn UNICEF á Íslandi 2012-2013. Stjórnarfólk kemur víða að úr samfélaginu og tekur virkan þátt í að móta starf landsnefndarinnar. Frá vinstri: Pétur Einarsson, Jóna Hrönn Bolladóttir, Ragna Sigurðardóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Margrét Hallgrímsdóttir, Svanhildur Konráðsdóttir, Bragi Guðbrandsson og Karl Blöndal. Á myndina vantar Jóhönnu Vilhjálmsdóttur. Stjórnin starfar í sjálfboðavinnu og kann UNICEF stjórnarmeðlimum bestu þakkir fyrir vel unnin störf.

Page 19: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, var stofnuð árið 1946 og hefur starfsemi samtakanna vaxið jafnt og þétt á þessum 67 árum. Við berjumst fyrir réttindum barna á heimsvísu og sinnum bæði langtímauppbyggingu og neyð-araðstoð. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög og hefur að leiðarljósi þá bjargföstu trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsugæslu, menntun, jafnrétti og vernd. Við erum á vettvangi í yfir 190 löndum og leggjum áherslu á að ná til allra barna – hvar sem þau eru. Árið 1965 fékk UNICEF friðarverðlaun Nóbels og svo aftur árið 2001 sem stofnun innan vébanda Sameinuðu þjóðanna.

Forgangsatriði UNICEF eru:

• Baráttangegnbarnadauða–að sjá til þess að yngstu börnin komist vel af stað í lífinu, veita börnum lífsnauðsynlegar bólusetningar og aðra heilsugæslu.

• Menntun og jafnrétti – að veita öllum börnum, jafnt stúlkum sem drengjum, góða grunnmenntun og ýta undir jafnrétti kynjanna.

• HIV/alnæmi – að fyrirbyggja HIV-smit, veita smituðum börnum umönnun og sjá til þess að börn, sem orðið hafa munaðarlaus af völdum alnæmis, fái stuðning og vernd.

• Barnavernd–að stuðla að öruggu umhverfi fyrir börn, koma í veg fyrir að þau séu misnotuð, beitt ofbeldi eða vanrækt.

• Réttindagæsla–að auka þátttöku barna í samfélaginu og fræðslu um réttindi þeirra.

Forgangsatriðin fimm eru í samræmi við Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóð-anna um þróun (e. Millennium Development Goals) sem samþykkt voru á Alls-herjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2000. Með markmiðunum er ætlast til að hægt verði að ná fram mælanlegum árangri í þróunaraðstoð fyrir árið 2015. Þar á meðal eru sett fram mikilvæg markmið um að draga úr barnadauða og tryggja öllum börnum grunnmenntun.

UNICEFstarfarþarsemþörfinermestFjármunum UNICEF er ráðstafað eftir því hvar þörfin er mest hverju sinni. Þegar þörf er metin er meðal annars tekið tillit til tíðni ungbarnadauða og þjóðartekna í tilteknu landi en einnig er litið til þess hversu mörg börn eru van-nærð, hversu mörg börn þurfa á bólusetningum að halda, hve mörg börn hafa misst foreldra sína, sérstaklega vegna HIV/alnæmis, og hve stór hluti íbúanna hefur ekki aðgang að hreinu vatni.

Landsnefndir UNICEF eru nú 36 talsins, en þær sjá um fjáröflun og fræðslu um réttindi barna. Saman safna þær einum þriðja af heildartekjum UNICEF um heim allan. Landsnefnd UNICEF á Íslandi var stofnuð í mars 2004.

UNICEFÍSTUTTUMÁLI

Pre

ntv

inn

sla:

Od

di,

um

hve

fisv

ott

pre

nts

mið

ja

©UNICEF / Nesa

Takk!Stjórn og starfsfólk UNICEF á Íslandi á mikið að

þakka þeim fjölmörgu góðu aðilum sem koma

að starfi landsnefndarinnar með einum eða

öðrum hætti. Bæði einstaklingar og fyrirtæki

hafa sýnt UNICEF mikinn velvilja og stuðning.

Margir hafa gefið afslætti og stutt þannig við

reksturinn og aðrir hafa veitt beinan fjárhags-

legan stuðning. Við þökkum öllum þeim ótal

mörgu sem lögðu okkur lið á árinu 2012 og

gerðu þar með heiminn aðeins betri fyrir þau

sem reiða sig á starf UNICEF: Bágstödd börn.

©UNICEF / Bindra ©UNICEF / Haque

©UNICEF / Bindra

©UNICEF / Khuzaie ©UNICEF / Mawa

©UNICEF / Alcock

Page 20: „Það er gaman að geta hjálpað börnum í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið.“ Andrea Benediktsdóttir, nemi í lyfjafræði, blaðberi og heimsforeldri síðan

ÁRSSKÝRSLA 2012annual report

UNICEF Ísland

Laugavegur 176105 Reykjavík Sími: 552 6300 [email protected]

www.unicef.is

SAMEINUMST Í ÞÁGU BARNASAMEINUMST Í ÞÁGU BARNA