8
Fimmtudagur 2. desember 2010 www.eystrahorn.is Eystrahorn 44. tbl. 28. árgangur Áætlunarflug Skipulagðar ævintýraferðir Leiguflug bóka ð u flugi ð á ernir.is Bókaðu flugið á netinu Ódýrara á ernir.is Verð frá 8.900 kr. Stúdentakort 30% afsláttur veittur við kaup á stúdentakorti Jólapakkatilboð Allir jólapakkar undir 10 kíló aðeins 1.350 kr. hver sending Næstkomandi laugardagskvöld þann 4. desember heldur Rökkurbandið tónleika á Kaffi Horninu eftir nokkurra mánaða hlé. Á efnisskránni eru bæði ný og gömul lög en bandið hefur til þessa spilað fjölbreytta tónlist þar sem flestir finna eitthvað við sitt hæfi. Rökkurbandið hefur spilað á hinum ýmsu hátíðum síðustu ár og má þar nefna Norðurljósablús á Höfn, Hammondhátíð á Djúpavogi, Bræðsluhátíðina á Borgarfirði Eystri og síðast en ekki síst á Blúshátíð Reykjavíkur sem er jafnframt með virtari hátíðum í blúsheiminum í dag. Tilvalið er fyrir þá sem eru á jólahlaðborðum að kíkja á tónleika á eftir en þess má geta að jólahlaðborð verður á Kaffi Horninu sama kvöld. Í Rökkurbandinu eru Bjartmar Ágústson á bassa, Eymundur I. Ragnarsson á trommur, Sigurður Guðnason á gítar og Hulda Rós Sigurðardóttir syngur. Tónleikarnir byrja upp úr kl. 22:00, kostar aðeins þúsund krónur inn og vonast meðlimir Rökkurbandsins til að sjá sem flesta. Rökkurbandið Fyrir nokkru var auglýst starf framkvæmdastjóra Ríki Vatnajökuls ehf. Umsækjendur um starfið voru 13 og eftir að stjórn hafði farið yfir umsóknir, voru tveir aðilar teknir í frekara viðtal, sem leiddi til þess að gengið var til samninga við Sigríði Dögg Guðmundsdóttur. Sigríður Dögg er með MS gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum og BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún lauk stúdentsprófi af ferðabraut við Menntaskólann í Kópavogi. Sigríður var blaðamaður á Fréttablaðinu í þrjú ár og býr frá þeim störfum yfir verðmætri reynslu og öflugu tengslaneti sem án efa munu gagnast í kynningu á Ríki Vatnajökuls,hvort heldur er þjónusta, afurðir eða menning. Samhliða námi vann Sigríður við ýmis störf í ferðaþjónustu og sem sölumaður. Hún hefur einnig talsverða reynslu af skipulagningu og stjórnun úr störfum sínum í félagsmálum undanfarin ár. Sigríður Dögg hefur störf í byrjun desember og mun á fyrstu vikunum heimsækja alla aðila að Ríki Vatnajökuls ehf og kynna sér starfssemi þeirra og alla staðhætti. Við bjóðum Sigríði Dögg velkomna til starfa. Stjórn Ríki Vatnajökuls ehf. Nýr framkvæmdastjóri

44. tbl. 2010

Embed Size (px)

DESCRIPTION

44. tbl. 2010

Citation preview

Page 1: 44. tbl. 2010

Fimmtudagur 2. desember 2010 www.eystrahorn.is

Eystrahorn44. tbl. 28. árgangur

Áætlunarflug Skipulagðar ævintýraferðirLeiguflug

bókaðu flugið á ernir.is

Bókaðuflugiðánetinu Ódýrara á ernir.is

Verð frá 8.900 kr.

Stúdentakort30% afsláttur veittur við kaup á stúdentakorti

JólapakkatilboðAllir jólapakkar undir 10 kíló aðeins 1.350 kr. hver sending

Næstkomandi laugardagskvöld þann 4. desember heldur Rökkurbandið tónleika á Kaffi Horninu eftir nokkurra mánaða hlé. Á efnisskránni eru bæði ný og gömul lög en bandið hefur til þessa spilað fjölbreytta tónlist þar sem flestir finna eitthvað við sitt hæfi. Rökkurbandið hefur spilað á hinum ýmsu hátíðum síðustu ár og má þar nefna Norðurljósablús á Höfn, Hammondhátíð á Djúpavogi, Bræðsluhátíðina á Borgarfirði Eystri og síðast en ekki síst á Blúshátíð Reykjavíkur sem er

jafnframt með virtari hátíðum í blúsheiminum í dag. Tilvalið er fyrir þá sem eru á jólahlaðborðum að kíkja á tónleika á eftir en þess má geta að jólahlaðborð verður á Kaffi Horninu sama kvöld. Í Rökkurbandinu eru Bjartmar Ágústson á bassa, Eymundur I. Ragnarsson á trommur, Sigurður Guðnason á gítar og Hulda Rós Sigurðardóttir syngur. Tónleikarnir byrja upp úr kl. 22:00, kostar aðeins þúsund krónur inn og vonast meðlimir Rökkurbandsins til að sjá sem flesta.

RökkurbandiðFyrir nokkru var auglýst starf framkvæmdastjóra Ríki Vatnajökuls ehf. Umsækjendur um starfið voru 13 og eftir að stjórn hafði farið yfir umsóknir, voru tveir aðilar teknir í frekara viðtal, sem leiddi til þess að gengið var til samninga við Sigríði Dögg Guðmundsdóttur.Sigríður Dögg er með MS gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum og BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún lauk stúdentsprófi af ferðabraut við Menntaskólann í Kópavogi. Sigríður var blaðamaður á Fréttablaðinu í þrjú ár og býr frá þeim störfum yfir verðmætri reynslu og öflugu tengslaneti sem án efa munu gagnast í kynningu á Ríki Vatnajökuls,hvort heldur er þjónusta, afurðir eða menning. Samhliða námi vann Sigríður við ýmis störf í ferðaþjónustu og sem sölumaður. Hún hefur

einnig talsverða reynslu af skipulagningu og stjórnun úr störfum sínum í félagsmálum undanfarin ár. Sigríður Dögg hefur störf í byrjun desember og mun á fyrstu vikunum heimsækja alla aðila að Ríki Vatnajökuls ehf og kynna sér starfssemi þeirra og alla staðhætti. Við bjóðum Sigríði Dögg velkomna til starfa.

Stjórn Ríki Vatnajökuls ehf.

Nýr framkvæmdastjóri

Page 2: 44. tbl. 2010

2 EystrahornFimmtudagur 2. desember 2010

EystrahornSími: 862-0249 • Rnr. 0172 – 26 - 000811 • Kt. 240249-2949Útgefandi: ................................HornafjarðarMANNIRitstjóri og ábyrgðarmaður: ......................Albert EymundssonNetfang: [email protected]ófarkalestur: ........................Guðlaug HestnesLjósmyndir: .............................Maríus SævarssonUmbrot: ..................................Heiðar SigurðssonAðstoð: .....................................Ásta ÁsgeirsdóttirPrentun: ..................................LeturprentISSN 1670-4126

Samfélagssjóður Hornafjarðar var stofnaður skömmu fyrir jólin 2009. Markmið sjóðsins er að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem þurfa fjárhagsaðstoð í samvinnu við félagsþjónustuna, presta og líknarfélög á Hornafirði. Vegna efnahagsástandsins í þjóðfélaginu má búast við því að fleiri sæki um styrk í sjóðinn til jólahalds. Þeir sem vilja leggja okkur og samfélaginu í heild liðsinni geta lagt inn á reikning Rauða krossins:

Samfélagssjóður Hornafjarðar 0172 – 05 – 6092 • kt. 620780-2439 Margt smátt gerir eitt stórt!

Þeim sem sækja um aðstoð í sjóðinn er bent á að hafa samband við Jónu Báru Jónsdóttur, gjaldkera Hornafjarðardeildar RKÍ í síma: 843-9785 [email protected] eða Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóra í síma: 470 8000 [email protected]. Úthlutað verður úr sjóðnum eftir 15. desember n.k. og þurfa umsóknir að hafa borist fyrir þann tíma.

Með von um góðar undirtektir Hornafjarðardeild RKÍ

Lionsklúbbur Hornarfjarðar Lionsklúbburinn Kolgríma

Samfélagssjóður

HúsgagnavalOpið 13 - 18 virka daga og 13 - 15 laugardaga

Konukvöld í kvöld

Nú styttist til jóla

Í tilefni þess bjóðum við öllum konum á konukvöld

í kvöld frá kl 20:00

Ýmis tilboð og léttar veitingar

í boði verslunarinnar

Verið velkomnar

Jólamarkaðurinn í Nýheimum og Miðbæ verður 4. desember klukkan 11:00 til 17:00.

Handverk, hönnun, bækur, nytjavara og matur úr Ríki Vatnajökuls verður til sölu.

Komið og gerið góð kaup fyrir jólin.

Jólamarkaður

Hafnarkirkja Sunnudaginn 5. desember

Aðventukvöld kl. 20:00Kórsöngur - HljóðfæraleikurÞóra Jóna Jónsdóttir flytur hugvekjuKomið og njótið notalegrar stundar á aðventunni

Sóknarprestur

Danskt jólahlaðborð

Íslandsvinurinn og matgæðingurinn

Vivi Petersen verður með sitt árlega danska hlaðborð 11. desember n.k. frá kl 19:30 - 01:00

Verð kr. 4.900,-

Siggi og Vivi

Borðapantanir í síma 478-1240

Page 3: 44. tbl. 2010

3Eystrahorn Fimmtudagur 2. desember 2010

Í heilsuleikskólum landsins er lögð áhersla á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik auk umhverfisverndar og starfar leikskólinn Krakkakot í samræmi við það. Það hefur verið nóg um að vera í heilsuleikskólanum Krakkakoti í haust. Í september var umferðarvika hjá krökkunum og margt skemmtilegt brallað. Fræðsluefni um umferðina var tengt inn í starfið, umferðarsögur lesnar, sungin umferðarlög og fleira í þeim dúr. Elstu börnin gerðu óformlega könnun á notkun bílbelta sem var mjög áhugaverð. Þau töldu 20 bíla og af þeim voru 9 sem notuðu ekki belti eða nærri helmingur. Þetta fannst krökkunum alls ekki nógu gott og miklar umræður sköpuðust um þetta. Elstu árgangarnir fara alltaf tvisvar í viku í íþróttahúsið og í umferðarvikunni fengum við Jón Garðar lögregluþjón til að ganga með okkur heim úr íþróttahúsinu til að hjálpa okkur að læra betur umferðareglurnar. Þegar við komum á leikskólann var Jón Garðar með umferðarfræðslu fyrir alla í leikskólanum ásamt Lúlla löggubangsa sem var mjög skemmtileg. Elstu börnin sem

hafa einnig verið að vinna með rím í markvissri málörvun sömdu vísu handa Lúlla löggubangsa og fluttu hana að sjálfsögðu fyrir hann en hún er á þessa leið:

Krakkar úti kátir hoppaÚti á götu alltaf stoppaHittum Lúlla löggubangsaOg lögguna sem er ekki að hangsa.

Í lok umferðarvikunnar var hjóladagur hjá krökkunum og þá fengum við lögregluna aftur í lið með okkur og fór hún með okkur í smá hjólreiðatúr sem allir höfðu mjög gaman af. Á haustin eru þemavikur á Krakkakoti og eru það t.d. litavikur og vinavika svo eitthvað sé nefnt en þá er reynt að tengja þemað inn í alla þætti starfsins. Ekki má svo gleyma þessu hefðbundna sem við vinnum með allan veturinn eins og degi íslenskrar tungu, bolludegi, öskudegi, sprengidegi og þorranum þar sem börnin fá fræðslu tengda þessum dögum og læra um íslenska menningu. Öll börnin í leikskólanum fara í gönguferðir einu sinni í viku, við erum líka í samstarfi við hjúkrunarheimilið og förum í heimsóknir yfir í dagvistina.

Margt annað er verið að bralla í vetur á leikskólanum og mikið fjör. Börnin æfa sig að dansa í hverri viku og eins og áður sagði fara þau líka í íþróttir þar sem elstu tveir árgangarnir fara tvisvar í viku í íþróttahúsið en yngri börnin fara í íþróttir í salnum á leikskólanum. Elstu börnin eru í markvissri málörvun og numicon stærðfræðikennslu sem undirbýr þau fyrir skólagönguna. Þessi kennsla fer að mestu fram í formi leikja því vitað er að börn læra best í gegnum leikinn. Leikskólinn er í góðu samstarfi við skólann og við förum í heimsóknir þangað en fáum líka fyrstu bekkinga í heimsókn í leikskólann. Einnig er gott samstarf milli leikskólanna og hittast börnin á báðum leikskólum nokkrum sinnum yfir veturinn og gera eitthvað skemmtilegt saman bæði úti og inni. Fleiri þættir sem unnið er með á Krakkakoti er til

að mynda tónlist, einingakubbar, myndlist og umhverfismennt. Í umhverfismenntinni er t.d. hver hópur með sinn leynistað sem farið er reglulega á og krakkarnir hugsa vel um hann allan veturinn. Þau skíra hann, tína rusl í kring, fara í leiki þar eða hafa notalega stund og lesa saman. Allt er þetta gert til að vekja áhuga barnanna á sínu nánasta umhverfi svo að þau vilji hugsa vel um það í framtíðinni. Margt annað er gert á leikskólanum en of langt er að telja það allt upp.Rauði þráðurinn í starfi heilsuleikskólans Krakkakots er að börnunum líði vel og séu örugg í leikskólanum og fái tækifæri til að prófa hlutina og gera sjálf en einnig að frjálsi leikurinn sé í hávegum hafður.

Bestu heilsukveðjur frá leikskólanum Krakkakoti

Danskt jólahlaðborð

Íslandsvinurinn og matgæðingurinn

Vivi Petersen verður með sitt árlega danska hlaðborð 11. desember n.k. frá kl 19:30 - 01:00

Verð kr. 4.900,-

Siggi og Vivi

Borðapantanir í síma 478-1240

Heilsuleikskóli

Page 4: 44. tbl. 2010

4 EystrahornFimmtudagur 2. desember 2010

á Jólamarkaði verður með opinn bás frá kl. 11:00 – 17:00 í Nyheimum.

Matvælaklasinn

Verslum afurðir úr héraði fyrir jólin.

,

Línuhappdrætti Slysavarnadeildarinnar

Framtíðarinnar

Slysavarnakonur munu ganga í hús og selja línuna

1. - 4. desember

Bæjarbúar eru hvattir til að taka vel á móti þeim

Fjöldi góðra vinninga í boði

Dregið verður 7. desember

Línan kostar 1.000,- (ekki eru tekin kort)

Bókin um ís kemur út fyrir jól! Ís - birting guðlegs máttar, hetjuleg áskorun eða kaldur spegill sjálfsins? Er ísöld yfirvofandi á ný eða munu jöklar heimsins hverfa og menning okkar með þeim? Á öllum tímum hefur maðurinn haft vakandi auga með þessum kalda nágranna sínum og reynt að finna honum stað í heimsmynd sinni. Þessi bók tengir saman vitsmunalegar og andlegar hliðar íssins við fegurð hans og sérkenni. Textabrotin endurspegla upplifun manna af ís síðustu 2000 ár. Sérstakar ljósmyndirnar, sem voru teknar á Jökulsárlóni, eru sjónræn dæmi um hversu fjölbreytt að útliti og litskrúðugt náttúrufyrirbærið ís getur verið.

Bókin er eftir Klaus Kretzer. Hún er á ensku, íslensku, þýsku og frönsku. Komið og skoðið hana á Jólamarkaðnum í Nýheimum 4. desember.

Sjónarsker ehf., Skaftafelli, Öræfum. S: 824 8903 / [email protected]

Á miðvikudaginn opnaði sýning í Nýheimum sem nefnist Hornfirðingar að verki og er yfirlitssýning yfir handverk og teikningar þeirra Ragnars Arasonar og Gísla Eysteins

Aðalsteinssonar og verður sýningin opin út desember og er þetta sölusýning. Ragnar Arason hefur lengi stundað rennismíði. Hann hefur munina sína til sölu í Handraðanum en hann hefur einnig farið með handverkið sitt á hina árlegu handverkssýningu í Hrafnagili í Eyjafirði síðustu 10 árin en sýningin er góður vettvangur til að koma sér á framfæri. Ragnar vinnur mest út íslenskum viði á borð við birki, reynivið, gullregn og ösp. Mest rennir hann af skálum, eggjabikurum, eftirlíkingum af mjólkurbrúsum, mjólkurfötum og strokkum. Sömuleiðis töluvert af pennum og taflmönnum. Ragnar hlaut þann heiður að vera valinn handverksmaður ársins árið 2010 á Handverkssýningunni í Hrafnagili. Gísli Eysteinn Aðalsteinsson hefur haft áhuga á teikningum frá því að hann var barn. Hann hefur teiknar mikið frá því að hann þurfti að hætta að vinna árið 1987 vegna veikinda. Mikið af myndefni Gísla kemur frá honum sjálfum þar sem hann hefur ekki tök á að vera mikið utandyra. Hann teiknar einnig eftir ljósmyndum en Sigurður Eymundsson vinur Gísla hefur fært honum margar góðar

ljósmyndir sem hann hefur teiknað eftir. Aðal myndefni Gísla eru hús, landslag og fuglar og þá aðallega rjúpur. Gísli hefur myndirnar sínar til sölu á facebook, netslóðin á sölusíðu Gísla er facebook/Sölusíða Gísla Eysteins Aðalsteinssonar. Verðin á myndunum fara eftir stærð þeirra en þær eru í þremur mismunandi stærðum. Gísli Eysteinn var tilnefndur til Menningarverðlauna árið 2009 fyrir blýantsteikningar sínar. Við hvetjum alla til að líta við á sýningunni í Nýheimum sem er opin alla virka daga frá klukkan 9:00 til 17:00 og fyrsta og þriðja hvern laugardag í desember.

Sýningar í Nýheimum

Page 5: 44. tbl. 2010

5Eystrahorn Fimmtudagur 2. desember 2010

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að næsta laugardag verður hinn árlegi jólamarkaður haldinn í Nýheimum. Á efri hæð hússins munu nokkrar hornfiskar meyjar hreiðra um sig með tískuhönnun og gæða handverk sem þær hanna og handgera sjálfar. Þær eru Ágústa Arnardóttir, Eyrún Huld Árnadótir, Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir, Guðlaug Pétursdóttir, Gunnhildur Stefánsdóttir og Helga Rún Guðjónsdóttir.

Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir og Guðlaug Pétursdóttir búa báðar á Hornafirði. Guðrún Ásdís hefur náð langt með skartgripi og fylgihluti sem hún vinnur meðal annars úr fiskiroði og leðri undir nafninu Gastu. Þess má geta að roðklæddir pelar sem hún gerir komust í gjafahandbók í New York. Hún selur vörur sínar í flugvélum Iceland Air sem og fjöldamörgum verslunum vítt og breitt um landið. Einnig rekur Guðrún vefverslun þar sem vörur hennar eru til sölu, www.gastu.is. Guðlaug Pétursdóttir þæfir hlýjar og flottar húfur, kraga, vettlinga og fleira úr íslenskri ull undir nafninu G-Ull. Guðlaug frumsýndi vörurnar sínar fyrir tveimur árum síðan og verður með margt nýtt og flott á markaðnum í ár.

Ágústa Margrét Arnardóttir og Helga Rún Guðjónsdóttir eru Hornfirðingar í húð og hár en búa nú báðar á Djúpavogi. Þar eru þær stöllur í fullri vinnu við að framleiða fallegar vörur og bæta kynstofn Djúpavogsbúa. Ágústa Margrét hefur hannað og handgert töskur og fylgihluti úr íslenskum skinnum í mörg ár. Fyrr á þessu ári frumsýndi hún fatnað og fylgihluti úr íslensku leðri og roði undir vörumerkinu Arfleifð. Nafnið Arfleifð er vísun í það að vörurnar eru úr íslensku hráefni, fengið úr íslenskri náttúru, innblásið af íslensku handverki og menningu. Á markaðnum í ár verður hún með fjölbreytt úrval af töskum frá 19.9oo kr., armböndum og skrauti frá 5ooo kr. sem og glæsilegan fatnað. Helga Rún Guðjónsdóttir hefur komið sér vel fyrir á vinnustofu Arfleifðar þar sem hún handgerir af kostgæfni fallegar hárspangir og spennur úr fiskiroði og leðri. Hún prjónar einnig vandaðar húfur og hárbönd sem hún skreytir í sama stíl og hárskrautið.

Gunnhildur Stefánsdóttir og Eyrún Huld Árnadóttir búa báðar í Reykjavík, en ólust upp á Hornafirði. Gunnhildur Stefánsdóttir er textílkennari að mennt en er einnig með B.A.-gráðu í íslensku og félagsfræði. Hún hefur starfað sem saumakona fyrir Volcano Design og GuSt en er nú byrjuð að hanna kvenfatnað undir eigin merki, Gammur. Nafnið Gammur sækir hún á æskuslóðirnar en textílkennarinn Margot Gamm kenndi Gunnhildi undirstöðu atriði í saumaskap og því við hæfi að nefna hönnunina eftir henni. Þá er Gammur sterkt íslenskt orð sem hæfir hönnun Gunnhildar vel. Eyrún Huld Árnadóttir rekur verslunina Eyju í Reykjavík sem selur íslenska hönnun eftir um 20 hönnuði, þar á meðal sína eigin. Eyrún hannar og handgerir töskur, fylgihluti og fatnað úr blönduðum hráefnum meðal annars áli, ull og roði. Á markaðnum ætlar hún að vera með gott sýnishorn úr búðinni ásamt sínum eigin vörum. Má þar nefna heimagerðar sápur og kerti, skartgripi, hárskraut, ostabakka, silkislaufur og margt fleira.

[email protected], [email protected], [email protected], [email protected], [email protected], [email protected]

Hornfirskir hönnuðir

Page 6: 44. tbl. 2010

6 EystrahornFimmtudagur 2. desember 2010

w w w . i n n i . i s

hafnarbraut Fallegt og rúmgott 149,3 m² einbýlishús ásamt steyptum 60 m² bílskúr innréttaður sem íbúð 4 svefnh., mikið endurnýjað hús í góðu viðhaldi.

Smárabraut

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum, Sími 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum, Sími 580 7908

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum, Sími 580 7907

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík, Sími 580 7925

Sigríður Kristinsdóttir, hdl, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari, Höfn

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari, Höfn, Sími 580 7915

Stórt steinsteypt 2ja hæða 178,5 m² einbýlishús með 67,5 m² innbyggðum bílskúr, samtals 246 m² . 4 -5 herb. 2 rúmgóðar stofur, flott útsýni og góð staðsetning.

Til sölu er 3000 m² lóðarréttindi ásamt 24 m² sumarhúsi. Lóðin er innarlega í sumarhúsabyggðinni, afgirt með neysluvatnsborholu.

Stafafellsfjöll í LóniNýtt á skrá

Alþjóðlegri athafnaviku lauk sl. helgi en hún er stærsta hvatningarátak heims á sviði nýsköpunar og tóku u.þ.b. 100 lönd og 10 milljónir manna um allan heim þátt að þessu sinni. Rétt eins og í fyrra voru Íslendingar mjög virkir og athafnasamir en u.þ.b. 150 viðburðir fóru fram um allt land. Hornfirðingar voru með 60 skráða viðburði af þessum 150 og fengu viðurkenningu fyrir. Tilgangur þeirra var að minna á gildi athafnasemi fyrir samfélagið og einnig að hvetja til jákvæðrar umfjöllunar um atvinnulífið. Athafnateygjur Innovit mældu framkvæmdagleði þjóðarinnar á hávísindalegan hátt en hægt var að fylgjast með ferðalögum teygjanna á athafnateygja.is. Um 200 teygjur voru sendar um land allt og þær látnar berast manna á milli. Hver og einn skráði það sem hann var að gera á þeim tímapunkti. Starfsmenn Actavis voru í efsta sæti en þar á eftir kom Sveitarfélagið Hornafjörður,

Bílaleiga Akureyrar í Reykjavík og Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði. Hornfirðingar voru klárlega langduglegasta sveitarfélagið í Athafnavikunni annað árið í röð, bæði hvað varðar Athafnateygjuna og fjölda viðburða. Fyrirtæki og stofnanir voru dugleg að skipuleggja viðburði, leikskólinn, grunnskólinn, Nýheimabúar og önnur fyrirtæki á Hornafirði. Viðburðirnir voru rúmlega 50 talsins og ekki annað hægt að segja en Hornfirðingar séu afar athafnasamir. Þátttakendur skiptu hundruðum og var rífandi stemning víða um bæinn. Stórt viðburðardagatal var hengt upp í miðrými Nýheima þar sem allir viðburðir voru skráðir og fólk gat fylgst með hvað um var að vera hvern dag fyrir sig. Hornfirðingar eru mjög virkir í félags- og menningarstarfi og nóg um að vera allan ársins hring og þetta er bara brot af því sem Hornfirðingar bjóða uppá.

Athafnavika 2010

Í Sveitarfélaginu Hornafirði voru 1.555 íbúar á kjörskrá og alls kusu 485 kjósendur. Kjörsókn var því 31,19%. Kjörsókn skiptist þannig eftir kjördeildum:

Kjördeild Á kjörskrá Alls kusu %Öræfi 65 32 49,23Suðursveit 57 19 33,33Mýrar 52 9 17,31Nes 176 46 26,14Höfn 1181 372 31,50Lón 24 7 29,17

Til samanburðar var kjörsókn í Icesave þjóðaratkvæðagreiðslunni 66,05%, sveitarstjórnarkosningunum (2010) 82,35% og alþingis-kosningunum (2009) 81,45%. Jón Stefán Friðriksson formaður kjörstjórnar sagði að það sem vekti athygli fyrir utan litla kjörsókn er að yngri kjósendur virtust ekki áhugasamir um kosninguna. Ekki hlaut “okkar fólk” sæti á nýkjörnu stjórnlagaþingi.

Kosning til stjórnlagaþings

Jólablað EystrahornsJólablað Eystrahorns kemur út fimmtudaginn 16. desember.

Þeir sem óska eftir að senda jólakveðjur, auglýsa eða fá birt efni í jólablaðinu eru beðnir að hafa samband við ritstjóra sem fyrst í tölvupósti: [email protected]

Fólk getur sjálft samið kveðjurnar eða valið staðlaðar kveðjur sem hægt er að fá sendar í tölvupósti.

Hér fyrir neðan er sýnishorn af einni gerð jólakveðju sem kostar kr. 3.000,- (3.765,- m/vsk).

Sendum vinum og vandamönnum innilegar jólakveðjur

með þökk fyrir liðin ár .

Jón og Gunna

Andri Heiðar Kristinsson hjá Innovit og Þórhildur Birgisdóttir framkvæmdastjóri athafnaviku á Íslandi afhenda fulltrúum Hornafjarðar viðurkenningu fyrir að vera athafnasamasta sveitarfélagið á Íslandi árið 2009.

Sindralegghlífarnar fást í íþróttahúsinu

Flott jólagjöf

Til í fjórum barnastærðum

TILBOÐ 2.500 kr

Page 7: 44. tbl. 2010

7Eystrahorn Fimmtudagur 2. desember 2010

Neðangreindar upplýsingarnar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.

Hvanney SF 51 ................... net ...........4 ......63,1 ......ufsi 50,5Von SF 2 .............................. net ............1 ........0,2 ......skötuselur

Sigurður Ólafsson SF 44 .... humarv ....2 ......15,4 ......blandaður afli Skinney SF 20 ..................... humarv ....1 ..... 26,5 ......humar 2,4Þórir SF 77 .......................... humarv ....2 ......36,7 ......humar 2,9

Þinganes SF 25 ................... rækjuv ......1 ......16,0 ......rækja 8,5Steinunn SF 10 ................... botnv ........1 ..... 43,3 ......steinbítur 33,3

Benni SF 66 ......................... lína ............4 ..... 16,3 ......þorskur 9,7Beta VE 36 .......................... lína ...........2 ........7,5 ......blandaður afliGuðmundur Sig SU 250 ..... lína ...........3 ......11,8 ......þorskur 7,8 Ragnar SF 550 ..................... lína ............3 ......21,1 ......þorskur 11,1Siggi Bessa SF 97 ............... lína ............2 ........5,6 ......þorskur/keila

Auðunn SF 48 ..................... handf. .......1 ........0,3 ......ufsiKalli SF 144 ......................... handf ........3 ........2,3 ......ufsi 1,8Sævar SF 272 ...................... handf ........3 ........2,4 ......ufsi 1,5

Í síðustu aflafréttum féll Þinganes niður, en báturinn landaði í tvígang á Sauðárkróki samtals 17,7 tonnum og þar af 10,0 tonnum af rækju.Að sögn Ásgeirs Gunnarssonar útgerðarstjóra hjá Skinney-Þinganesi lítur út fyrir að desember verði með rólegasta móti. Síldarvinnsla hefur haldið uppi mikilli vinnu í desember undanfarin ár en vertíðinni lauk um mánaðarmótin. Humarvertíð er lokið og skipin fara í slipp. Netavertíð fer ekki af stað fyrir alvöru fyrr en eftir áramót.

Heimild: www.fiskistofa.is

Aflabrögð 22. – 28. nóvember

Enn og aftur var það áskrifandi sem fékk vinnig hjá okkur þannig að það er ekki annað en að heyra í tippstjóranum og

setja miða í áskrift. Í áskorandaleiknum rúllaði Martölvan yfir Bókhaldsstofuna 9 – 4 og skorar Martölvan á dömurnar á

Pósthúsinu. Sjáum hverning það lítur út!

Martölvan Pósturinn1. Chelsea -Everton 1x2 1x2 2. Arsenal -Fulham 1 13. Birmingh.-Tottenham 2 24. Blackburn-Wolves 1x2 15. Man. City -Bolton 1 1 2 6. Wigan -Stoke x2 1x2 7. Derby -Norwich 2 18. Hull -QPR x2 1 9. Coventry -Middlesbro x 1x 10. Leeds -Crystal Palace x2 1 11. Portsmoth. -Burnley x 1x12. Sheff.Utd -Reading 1x2 1x213. Watford -Leicester 1 2

Tipphornið

Þá er fyrirtækjaleiknum lokið og eftir að hafa leitt nánast allan tíma þá stendur Hvanney SF uppi sem sigurvegari þegar búið er að taka út lélegustu vikurnar. Tippstofan óskar tippurunum á Hvanney til hamingju með sigurinn. Næsti leikur byrjar í janúar og þá vonandi verða fleiri fyrirtæki sem taka þátt.Vika SamtalsHvanney SF 76Ásgrímur Halldórsson 72Hopp.is 69H. Christensen 65Lyftaraverkstæði S-Þ 63Jaspis 23Nettó 22INNi 19Víkin 17Martölvan 14Blóm og Bróderí 13Flutningadeild KASK 7Bakaríið 5Bókhaldstofan 4

JólatónleikarKvennakórs Hornafjarðar

verða haldnir í Mánagarði miðvikudaginn 8.desember kl 20:00

Að venju er dýrlegt kaffihlaðborð hlaðið tertum, brauðréttum og fleiri gómsætum réttum

Verð er kr. 2000 á mann en frítt

fyrir 12 ára og yngri

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest

Kvennakór Hornafjarðar

Kiwanisklúbburinn Ós í samstarfi við Nettó styrkir Samfélagssjóð Hornafjarðar eins og sl. ár. Að þessu sinni með 300.000- krónu matarúttekt í Nettó sem leggur til 70.000- krónur til viðbótar. Er það ósk og von gefenda að þessi styrkur komi sér vel þar sem þörf er á stuðningi fyrir þessi jól. Gjöf þessi er

ágóði af árlegri jólatréssölu Kiwanisfélaga sem verður að venju nú fyrir jól. Jólatrén eru úr skógræktinni í Haukafelli nema Normansþinurinn sem er fluttur inn frá Danmörku. Einnig selja klúbbfélagar úrvals lakkrís sem framleiddur er hjá sælgætisgerðinni Freyju hér á Höfn.

Með góðum hug

Forseti Kiwanisklúbbsins Óss Guðjón Pétur ásamt gjaldkeranum Miralem Haseta og Pálma Guðmundssyni verslunarstjóra afhenda Jóni Kristjáni Rögnvaldssyni félagsmálastjóra gjafabréfin

Page 8: 44. tbl. 2010

Hátíðasteikur í úrvali

gleðjumst saman um jólin

HAMBORGARHRYGGUR KEA

HANGILÆRI M/BEINI

HANGIFRAMPARTUR SS - BIRKIREYKTUR ÚRB.

MELÓNA GRÆN

KJÚKLINGALEGGIR SAFFRAN

NAUTA RIB EYE FERSKT

1.499kr/kgáður 2.498 kr/kg

1.649kr/kg

áður 2.198 kr/kg

1.964kr/kg

áður 2.618 kr/kg

2.999kr/kg

áður 3.998 kr/kg

1.499kr/kg

áður 1.998 kr/kg

135kr/kg

áður 269 kr/kg

SVÍNALUNDIR FERSKAR m

arkh

onnu

n.is

25%afsláttur 25%

afsláttur 25%afsláttur

25%afsláttur 50%

afsláttur

Skráðu þig á póstlistann á www.netto.isMjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær

40%afsláttur

Tilboðin gilda 02. - 05. des. eða meðan birgðir endast

598kr/kg

áður 831 kr/kg

28%afsláttur

GJAFAKORT NETTÓ

GÓÐ GJÖF FYRIR ALLA