1
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1982 11 HVAÐ ER VERIÐ GERA?I „Ég var allt því farinn til Vinar eftir menntaskólann, læra söng, en ég hætti við það. Ég var bara hræddur við þad. Ég hafði enga undirstöðu- menntun í tónlist og hefði sem sagt verið fara til lands, þar sem tónlist er á geysilega háu plani og gífurleg samkeppni er rikjandi á þessu sviði og ég taldi mig bara ekki mann í þetta, svo ég hélt bara áfram í líffræðinni." „Lang mest gaman starfa hérna heima éá Kristinn Sigmundsson söngvari hefur vakið mikla athygli fyrir söng sinn í hlutverki Peter Hom- onay greifa í sýningu íslensku óperunnar á Sígaunabaróninum eftir Johann Strauss. Hlaðvarpinn hafði samband við Kristin og bað hann segja frá tildrögum þess hann syngur eitt aðalhlut- verkið í Sígaunabaróninum fjór- um sinnum í viku, stundar nám í Söngskólanum og kennir líffræði við Menntaskólann við Sund. „Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á tónlist og það segja, þegar ég byrjaði í kórnum í Menntaskólanum í Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur, hafi ég endanlega fengið bakteríuna, en ég fór þó ekki utan til söngnáms og ég ekkert eftir því núna. Ég veit mikið betur núna, hvað ég vil og hvað ég þarf gera. Hefði ég farið út i þetta þarna um árið, hefði ég kannski bara lent í bjórnum. En núna langar mig sem sagt halda áfram læra syngja og vita hvort ég get ekki einhvern tíma orðíð góður söngvari." Ýmsir virðast þegar álíta þeirri spurningu svarað? „Já, ég veit það ekki. Ég er auðvitað mjög þakklátur fyrir þá jákvæðu gagnrýni sem ég hef hlot- ið, en" þess ber gæta í því sam- bandi hlutverk greifans í Síg- aunabaróninum er þakklátt hlut- verk frá höfundarins hendi. Það er ekki jafn erfitt og sum hinna hlut- verkanna í þessari óperu. Ég hef engar sérstakar fastmót- aðar áætlanir um framtíðina, en ég verð minnsta kosti hér á landi í eitt ár í viðbót, en síðan hef ég mikinn áhuga á komast út. Vinarborg er mjög freistandi, ekki síst þegar maður veit af fólki þar Rætt við Krístin Sigmundsson sóngvara i I.|«MII. tridþjnfur Helganon) Kristinn (t.h.) og Garðar Cortes í hhitverkum sínum í Sígauna- haróninum. (l.jósm. OI.K.M.) kristinn Sigmundsson á borð við Erik Werba og fleiri mjög góða kennara. En á sínum tíma kláraði ég líffræðinám við Háskólann og lauk því árið 1977 og hef síðan kennt «við Menntaskólann við Tjörnina og arftaka hans við Sund. Það sem varð til þess ég fór inn á þessa söngbraut aftur, var það ég var syngja með Filharmóníukórnum og þegar Sin- fóníuhljómsveitin og Fflharmóní- an settu upp óperuna La Traviata í konsertformi í Háskólabíói snemma árs 1980 þá vantaði mann til syngja þrjú smáhlutverk. Það voru tveir þjónar og einn sendiboði. Marteinn Hunger hvatti mig til reyna þetta og Gilbert Levine sem þá var hljómsveitarstjóri sin- fóníunnar eins og oftar var mjög jákvæður og hvetjandi, svo ég ákvað síá til. Þetta'hafði verið gamall draumur hjá mér, taka þátt í svona löguðu. Það því segja það mikið til Mart- eini þakka eða kenna, ég fór. útí þetta aftur. Þegar ég á sínum tíma hætti við fara til Vínar, var það í og með sjáifsagt vegna þess á þeim tima kynntist ég konunni minni sem þá var í námi í hjúkrunar- fræði og okkur leist hálfilla á það, hve miklu þurfti fórna ef af utanlandsferð yrði. En ég lærði líka mikið á þessum árum hérna heima. Ég söng alltaf ýmist meö Fílharmóníunni eða Pólýfónkórn- um og lærði heilmikið af þeim mönnum sem þar hafa stjórnað. Ég gleymi einum manni, sem ég á mikið þakka og það er Guðmundur Jónsson, óperusöngv- ari. Hann er sem ekki hvað síst hefur hjálpað mér í sambandi við þetta allt saman. Hann er stór- kostlegur kennari. Mér finnst hann hafa unnið algert kraftaverk á mér, síðan ég byrjaði hjá honum, fyrir einu og hálfu ári." Finnst þér það hafa háð þér hafa ekki hlotið sérstaka menntun í tónlistarskóla ? „Það var erfitt fyrst þegar ég fór syngja, en það gengur ágæt- lega núna. Eg hef annars verið heppinn með, það hefur jafnan verð fullt af fólki í kringum mig sem hefur verið boðið og búið til hjálpa mér við ýmislegt í þessu sambandi, en því er ekki neita fyrst um sinn þá gekk þetta stundum svolítið seint hjá mér. Það sem hefur hjálpað mér mik- Sýning Sigurð- ar K. Arnasonar er það, hvað ég hef fengið mörg tækifæri til syngja, bæði hjá Ingólfi Guðbrandssyni, Jóni Stef- ánssyni og fleirum. Eg er mjög þakklátur fyrir það." Hvers vegna heldurðu sóngurinn hafi skipað svo háan sess í lífi þínu eftir þú byrj- aðir í kórnum í MH forðum. Margir syngja í kór í áraraðir án þess nokkra bakteríu. „Já, ætli þetta ekki spurn- ing um það, hvað höfðar til hvers og eins. Svo hefur það náttúrulega sitt segja, ef maður finnur maður getur eitthvað. Þá eykst áhuginn um leið. Annars er það ábérandi hve stór hópur fólksins sem sungið hefur í kórnum hjá Þorgerði, heldur áfram á tónlist- arbrautinni." Hvað er skemmtilegast syngja? „Hér áður fyrr söng ég fyrst og fremst óratoríutónlist, barokk, svo sem Bach og Hándel, og ennþá er það syngja Bach eitt það skemmtilegasta sem ég geri. Á ljóðasöngsnámskeiðinu hjá Erik Werba í sumar kynntist ég svo ýmsum hlutum sem höfða sterkt til mtn og ég þekkti lítið áður, til dæmis tónlist eftir Hugo Wolf og Gustav Mahler. legg ég þetta allt jöfnu, óperu, óratortu og ljóðasong. I framhaldi af því verð ég segja, ég hefði gaman af þvt' tækifæri til syngja Verdi, þeg- ar ég er búinn læra í nokkur ár." Hvað beldurðu um framtíð íslensku óperunnar? „Ég held það ljóst þrátt fyrir góðar undirtektir al- mennings verðt hún ekki rekin sem hugsjónafyrirtæki endalaust. Þetta er mikil og erfið vinna og í framtíðinni verður greiða fólk- inu laun fyrir þessa vinnu rétt eins og aðra vinnu. Það er eðlilegt, þegar fram í sækir verði starfs- fólkinu greitt fyrir sína vinnu bæði á æfingum og sýntngum. Nú- verandi fyrirkomulag er byggt á því greiða söngvurunum altént fyrir sýningar. Söngvarar hafa annars oft þurft taka á sig fjár- hagslega áhættu vegna þessa starfs stns. Þannig getur þetta ekki gengið í framtíðinni. En þetta kemur ailt saman. Viðtökurnar hafa verið frábærar, annað verður ekki sagt. Þá er þetta hús líka al- veg frábært. Það þarf ekki annáð en opna munninn og þá glymur í öllu." Hvað um nánustu framtíð? „Nú fer ég huga próf- um í Söngskólanum í vor. Ég þarf æfa upp lög fyrir það. Sfðan stendur til ég syngi í Matthe- usar-passíunni með Pólýfónkórn- um um páskana. ððru leyti held ég áfram vtð það sem ég er gera núna, kenna líffræði á daginn og syngja með íslensku óperunni á kvöldin. Þetta fer kannski ekkert óskaplega vel sam- an. Núna á eftir þarf ég til dæmis fara tína þörunga niðri fjóru, vegna kennslunnar, og ég verð passa mig á því kvefast ekki vegna sðngsins. Annars bjargast þetta alveg ennþá og fjöl- skyldan sýnir mér mikið umburð- arlyndi. Ég er eiginlega mest hissa á þau skuli ennþá þekkja mig." Hefurðu áhuga á því starfa eríendis sem söngvari? „Vitaskuld væri gaman tækifæri til kynnast því, en ef vel gengur í framtíðinni með ís- lensku óperuna, eins og flest bend- ir til, þá er þó langmest gaman starfa hérna heima." SIB BinEOEÐ Bragi Asgeirsson I vestri sal Kjarvalsstaða sýnir um þessar mundir og fram mánaðamótum Sigurdur K. Árna- son, 63 olíumálverk. Myndirnar spanna yfir aldarfjórðungs at- hafnasemi gerandans á myndlist- arsviði og mætti því vissu marki skoðast sem yfirlitssýning. Þó eru langflestar myndanna mál- aðar á síðustu 15 árum og mikið er um nýlegar myndir, jafnvel ekki með öllu þornaðar. En hér mun vera átt við yfirborð litarins því olíulitur þornar sjaldnast alveg í gegn á skemmri tíma en tveim árum samkvæmt efnafræðibókum. Á sýningu Sigurðar ber lang- mest á landslagsmyndum víða af landinu og á því sviði virðist hann njóta sín best og þar er tæknisvið hans fjölbreyttast. Sigurður vakti fyrst athygli mína með nokkrum landslags- myndum máluðum í kúbískum stíl á árunum 1966—67 og eru nokkrar þeirra á sýningunni Kjarvals- stóðum, t.d. „Vor við ströndina" (1967) og „Úr Fljótshverfi" (1966). Þetta eru sérkennilegar myndir á vettvangi íslenzkrar landslags- hefðar og er mér nokkur eftirsjá því Sigurður skuli ekki hafa haldið áfram á þeirri braut því hann tæmdi hvergi nærri mögu- leikana, réttara væri segja, hann hafi þreifað fyrir sér á þessu sviði en hætt fljótlega. Það vinna í kúbisma á mjög marg- víslegan hátt svo sem sjá í myndlistarsögunni en hann hefur einnig þá náttúru gerandinn verður kanna dýpri lífæðar málunarmátans til veru- legum árangri. Þetta gerði Sigurð- ur ekki og tel ég hann hafi hér misst af góðu tækifæri til útvíkk- unar tæknisviðs síns. Á þessari sýningu er það mjög áberandi, Sigurður nýtur sín hvað best í myndum dökkra tóna, því í slíkum myndum er hann magnað- astur með pentskúfinn og virðist gefa mest af sjálfum sér. Það er dálítið skemmtilegt hugsa til þess síðasta sýning sl. árs á þessum stað var öðru fremur óður til sólskinsbjartra daga í fðgru landslagi og sterkustu myndir þeirrar sýningar voru er gerand- anum tókst fram dularfullu ljósflæði inn í myndirnar í anda Ásgríms Jónssonar. Þessi sýning er andhverfa þeirrar sýningar því bestu myndirnar mínu mati, eru sem fyrr segir, myndir dökkra og dulúðugra tóna. Ég nefni hér myndir svo sem „Strúturinn, (1978), „Keilir", (1980), „Úr Hraunteig" (1980) og vísa jafn- framt á fleiri hliðstæðar myndir. Pensilmeðferð Sigurðar er nokkuð hrjúf og honum er nokkuð laus höndin í mörgum mynda sinna, sem ber vott um, hanp hafi ekki notið strangrar og ag- aðrar skólagöngu, sem er harla mikilvæg í sambandi við þessa tegund myndlistar. Nigurdur H. Arnason Mannamyndirnar eru stórum lausari í sér en landslagsmyndirn- ar enda er hér um allt annað svið ræða og hér skiptir einnig und- irstöðumenntunin miklu máli. Sigurður K. Árnason hefur verið frekar hlédrægur með sýn- ingar á myndlistarvettvangi og ekki tranað sér fram. Hann hefur tekið þátt í samsýningum heima og erlendis og hlotið ýmsar viður- kenningar m.a. verið sæmdur gullmedalíu Akademíu lista og vinnandi stétta á ítalíu (4. marz 1980) (Accademia Italia delle Arti e del Lavoro). Litið á heildina er nokkur tómstundamálarabragur yfir sýningunni og einhvernveginn finnst manni vanta úrskerandi átök við efniviðinn er á heildina er litið. Það er von mín það hafi góð áhrif á Sigurð sjá svona mörg verka sinna frá ýmsum tímabilum samankomin á einn stað og verði honum aflgjafi til nýrra landvinn- inga. Bragi Ásgeirsson Bók um sögu stein- steypu á íslandi STEINSTEYPUFÉLAG íslands ákvað á fundi sínum, þann 10. des. sj. standa útgáfu bókar sem rekur sögu stein- steypu á íslandi. Félagið er áhugamannafélag á sviði mann- virkjagerðar úr steinsteypu og stendur félagið fyrir fundum og námskeiðum til þess útbreiða þekkingu á þessu sviði. Félagið varð 10 ára þann 10. Fundirnir verða auglýstir síð- des. sl. og verður bókin gefin út í ar auk þess sem félagsmönnum tilefni afmælisins. Tveir fundir hafa verið haldn- ir á starfsárinu. I júlí hélt þýsk- ur prófessor, Gerhard Mehlhorn fyrirlestur um þýska brúargerð- arlist og í nóvember var haldið tveggja daga námskeið sem fjallaði um sýnilega steypufleti. Það sem eftir er starfsársins verða haldnir fundir um eftir- farandi málefni: 7. janúar verður rætt um breytingar á íslensku sementi. í febr. verður fjallað um nýjungar í byggingariðnaði, þróun í mótatækni og forsteypt- ar einingar. Viðgerðir á alkalí- skemmdum verður á dagskrá í mars og í apríl/maí verður rætt um steypuframleiðslu í Reykja- vík, vandamál og lausnir. er tilkynnt um þá bréflega. Steinsteypufélag íslands hefur einnig um nokkurra ára skeið tekið þátt í norræni samvinnu steinsteypufélaga og íslenska fé- lagið hefur forustu í rann- sóknanefnd félaganna, sem á samræma og örfa rannsóknir á Norðurlöndunum á sviði stein- steypu. Það kemur því í hlut fé- lagsins sjá um ráðstefnu 1984, þar sem allir þeir er stunda rannsóknastörf á þessu sviði á Norðurlöndum tækifæri til kynna rannsóknir sínar og niðurstöður. Eins og áður sagði er félagið áhugamannafélag og því öllum opið.

BinEOEÐ - listasafnreykjavikur.is

  • Upload
    others

  • View
    0

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: BinEOEÐ - listasafnreykjavikur.is

MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1982 1 1

HVAÐ ER VERIÐ AÐ GERA?I

„Ég var allt að því farinn til Vinar eftir menntaskólann, að læra söng, en ég hætti við það. Ég var bara hræddur við þad. Ég hafði enga undirstöðu-

menntun í tónlist og hefði sem sagt verið að fara til lands, þar sem tónlist er á geysilega háu plani og gífurleg samkeppni er rikjandi á þessu sviði og ég

taldi mig bara ekki mann í þetta, svo ég hélt bara áfram í líffræðinni."

„Lang mest gaman að starfa hérna heima éá

Kristinn Sigmundsson söngvari hefur vakið mikla athygli fyrir söng sinn í hlutverki Peter Hom-onay greifa í sýningu íslensku óperunnar á Sígaunabaróninum eftir Johann Strauss. Hlaðvarpinn hafði samband við Kristin og bað hann að segja frá tildrögum þess að hann syngur nú eitt aðalhlut-verkið í Sígaunabaróninum fjór-um sinnum í viku, stundar nám í Söngskólanum og kennir líffræði við Menntaskólann við Sund.

„Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á tónlist og það má segja, að þegar ég byrjaði í kórnum í Menntaskólanum í Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfs-dóttur, hafi ég endanlega fengið bakteríuna, en ég fór þó ekki utan til söngnáms og ég sé ekkert eftir því núna. ■ Ég veit mikið betur núna, hvað ég vil og hvað ég þarf að gera. Hefði ég farið út i þetta þarna um árið, hefði ég kannski bara lent í bjórnum.

En núna langar mig sem sagt að halda áfram að læra að syngja og vita hvort ég get ekki einhvern tíma orðíð góður söngvari."

— Ýmsir virðast nú þegar álíta að þeirri spurningu sé svarað? — „Já, ég veit það ekki. Ég er

auðvitað mjög þakklátur fyrir þá jákvæðu gagnrýni sem ég hef hlot-ið, en" þess ber að gæta í því sam-bandi að hlutverk greifans í Síg-aunabaróninum er þakklátt hlut-verk frá höfundarins hendi. Það er ekki jafn erfitt og sum hinna hlut-verkanna í þessari óperu.

Ég hef engar sérstakar fastmót-aðar áætlanir um framtíðina, en ég verð að minnsta kosti hér á landi í eitt ár í viðbót, en síðan hef ég mikinn áhuga á að komast út. Vinarborg er mjög freistandi, ekki síst þegar maður veit af fólki þar

Rætt við Krístin Sigmundsson

sóngvara

i I.|«MII. tridþjnfur Helganon)

Kristinn (t.h.) og Garðar Cortes í hhitverkum sínum í Sígauna-haróninum.

(l.jósm. OI.K.M.)

kristinn Sigmundsson

á borð við Erik Werba og fleiri mjög góða kennara.

En á sínum tíma kláraði ég líffræðinám við Háskólann og lauk því árið 1977 og hef síðan kennt «við Menntaskólann við Tjörnina og arftaka hans við Sund. Það sem varð til þess að ég fór inn á þessa söngbraut aftur, var það að ég var að syngja með Filharmóníukórnum og þegar Sin-fóníuhljómsveitin og Fflharmóní-an settu upp óperuna La Traviata í konsertformi í Háskólabíói snemma árs 1980 þá vantaði mann til að syngja þrjú smáhlutverk. Það voru tveir þjónar og einn sendiboði.

Marteinn Hunger hvatti mig til að reyna þetta og Gilbert Levine sem þá var hljómsveitarstjóri sin-fóníunnar eins og oftar var mjög jákvæður og hvetjandi, svo ég ákvað að síá til. Þetta'hafði nú verið gamall draumur hjá mér, að taka þátt í svona löguðu. Það má því segja að það sé mikið til Mart-eini að þakka eða kenna, að ég fór. útí þetta aftur.

Þegar ég á sínum tíma hætti við að fara til Vínar, var það í og með sjáifsagt vegna þess að á þeim tima kynntist ég konunni minni sem þá var í námi í hjúkrunar-fræði og okkur leist hálfilla á það, hve miklu þurfti að fórna ef af utanlandsferð yrði. En ég lærði líka mikið á þessum árum hérna heima. Ég söng alltaf ýmist meö Fílharmóníunni eða Pólýfónkórn-um og lærði heilmikið af þeim mönnum sem þar hafa stjórnað.

Ég gleymi einum manni, sem ég á mikið að þakka og það er Guðmundur Jónsson, óperusöngv-ari. Hann er sá sem ekki hvað síst hefur hjálpað mér í sambandi við þetta allt saman. Hann er stór-kostlegur kennari. Mér finnst hann hafa unnið algert kraftaverk á mér, síðan ég byrjaði hjá honum, fyrir einu og hálfu ári."

— Finnst þér það hafa háð þér að hafa ekki hlotið sérstaka menntun í tónlistarskóla ? — „Það var erfitt fyrst þegar ég

fór að syngja, en það gengur ágæt-lega núna. Eg hef annars verið heppinn með, að það hefur jafnan verð fullt af fólki í kringum mig sem hefur verið boðið og búið til að hjálpa mér við ýmislegt í þessu sambandi, en því er ekki að neita að fyrst um sinn þá gekk þetta stundum svolítið seint hjá mér.

Það sem hefur hjálpað mér mik-

Sýning Sigurð-ar K. Arnasonar

ið er það, hvað ég hef fengið mörg tækifæri til að syngja, bæði hjá Ingólfi Guðbrandssyni, Jóni Stef-ánssyni og fleirum. Eg er mjög þakklátur fyrir það."

— Hvers vegna heldurðu að sóngurinn hafi skipað svo háan sess í lífi þínu eftir að þú byrj-aðir í kórnum í MH forðum. Margir syngja í kór í áraraðir án þess að fá nokkra bakteríu. — „Já, ætli þetta sé ekki spurn-

ing um það, hvað höfðar til hvers og eins. Svo hefur það náttúrulega sitt að segja, ef maður finnur að maður getur eitthvað. Þá eykst áhuginn um leið. Annars er það ábérandi hve stór hópur fólksins sem sungið hefur í kórnum hjá Þorgerði, heldur áfram á tónlist-arbrautinni."

— Hvað er skemmtilegast að syngja? — „Hér áður fyrr söng ég fyrst

og fremst óratoríutónlist, barokk, svo sem Bach og Hándel, og ennþá er það að syngja Bach eitt það skemmtilegasta sem ég geri. Á ljóðasöngsnámskeiðinu hjá Erik Werba nú í sumar kynntist ég svo ýmsum hlutum sem höfða sterkt til mtn og ég þekkti lítið áður, til dæmis tónlist eftir Hugo Wolf og Gustav Mahler.

Nú legg ég þetta allt að jöfnu, óperu, óratortu og ljóðasong. I framhaldi af því verð ég að segja, að ég hefði gaman af þvt' að fá tækifæri til að syngja Verdi, þeg-ar ég er búinn að læra í nokkur ár."

— Hvað beldurðu um framtíð íslensku óperunnar? — „Ég held að það sé ljóst að

þrátt fyrir góðar undirtektir al-mennings verðt hún ekki rekin sem hugsjónafyrirtæki endalaust. Þetta er mikil og erfið vinna og í framtíðinni verður að greiða fólk-inu laun fyrir þessa vinnu rétt eins og aðra vinnu. Það er eðlilegt, að þegar fram í sækir verði starfs-fólkinu greitt fyrir sína vinnu bæði á æfingum og sýntngum. Nú-verandi fyrirkomulag er byggt á því að greiða söngvurunum altént fyrir sýningar. Söngvarar hafa annars oft þurft að taka á sig fjár-hagslega áhættu vegna þessa starfs stns. Þannig getur þetta ekki gengið í framtíðinni. En þetta kemur ailt saman. Viðtökurnar hafa verið frábærar, annað verður ekki sagt. Þá er þetta hús líka al-veg frábært. Það þarf ekki annáð en að opna munninn og þá glymur í öllu."

— Hvað um nánustu framtíð? — „Nú fer ég að huga að próf-

um í Söngskólanum í vor. Ég þarf að æfa upp lög fyrir það. Sfðan stendur til að ég syngi í Matthe-usar-passíunni með Pólýfónkórn-um um páskana. Að ððru leyti held ég áfram vtð það sem ég er að gera núna, að kenna líffræði á daginn og syngja með íslensku óperunni á kvöldin. Þetta fer nú kannski ekkert óskaplega vel sam-an. Núna á eftir þarf ég til dæmis að fara að tína þörunga niðri fjóru, vegna kennslunnar, og ég verð að passa mig á því að kvefast ekki vegna sðngsins. Annars bjargast þetta alveg ennþá og fjöl-skyldan sýnir mér mikið umburð-arlyndi. Ég er eiginlega mest hissa á að þau skuli ennþá þekkja mig."

— Hefurðu áhuga á því að starfa eríendis sem söngvari? — „Vitaskuld væri gaman að fá

tækifæri til að kynnast því, en ef vel gengur í framtíðinni með ís-lensku óperuna, eins og flest bend-ir til, þá er þó langmest gaman að starfa hérna heima." SIB

BinEOEÐ Bragi Asgeirsson

I vestri sal Kjarvalsstaða sýnir um þessar mundir og fram að mánaðamótum Sigurdur K. Árna-son, 63 olíumálverk. Myndirnar spanna yfir aldarfjórðungs at-hafnasemi gerandans á myndlist-arsviði og mætti því að vissu marki skoðast sem yfirlitssýning. Þó eru langflestar myndanna mál-aðar á síðustu 15 árum og mikið er um nýlegar myndir, jafnvel ekki með öllu þornaðar. En hér mun vera átt við yfirborð litarins því að olíulitur þornar sjaldnast alveg í gegn á skemmri tíma en tveim árum samkvæmt efnafræðibókum.

— Á sýningu Sigurðar ber lang-mest á landslagsmyndum víða að af landinu og á því sviði virðist hann njóta sín best og þar er tæknisvið hans fjölbreyttast.

Sigurður vakti fyrst athygli mína með nokkrum landslags-myndum máluðum í kúbískum stíl á árunum 1966—67 og eru nokkrar þeirra á sýningunni að Kjarvals-stóðum, t.d. „Vor við ströndina" (1967) og „Úr Fljótshverfi" (1966). Þetta eru sérkennilegar myndir á vettvangi íslenzkrar landslags-hefðar og er mér nokkur eftirsjá að því að Sigurður skuli ekki hafa haldið áfram á þeirri braut því að hann tæmdi hvergi nærri mögu-leikana, — réttara væri að segja, að hann hafi þreifað fyrir sér á þessu sviði en hætt fljótlega. Það má vinna í kúbisma á mjög marg-víslegan hátt svo sem sjá má í myndlistarsögunni en hann hefur einnig þá náttúru að gerandinn verður að kanna dýpri lífæðar málunarmátans til að ná veru-legum árangri. Þetta gerði Sigurð-ur ekki og tel ég að hann hafi hér misst af góðu tækifæri til útvíkk-unar tæknisviðs síns. Á þessari sýningu er það mjög áberandi, að Sigurður nýtur sín hvað best í myndum dökkra tóna, því að í slíkum myndum er hann magnað-astur með pentskúfinn og virðist gefa mest af sjálfum sér. Það er dálítið skemmtilegt að hugsa til þess að síðasta sýning sl. árs á þessum stað var öðru fremur óður til sólskinsbjartra daga í fðgru landslagi og sterkustu myndir þeirrar sýningar voru er gerand-anum tókst að ná fram dularfullu ljósflæði inn í myndirnar í anda Ásgríms Jónssonar. Þessi sýning er andhverfa þeirrar sýningar því

að bestu myndirnar að mínu mati, eru sem fyrr segir, myndir dökkra og dulúðugra tóna. Ég nefni hér myndir svo sem „Strúturinn, (1978), „Keilir", (1980), „Úr Hraunteig" (1980) og vísa jafn-framt á fleiri hliðstæðar myndir.

Pensilmeðferð Sigurðar er nokkuð hrjúf og honum er nokkuð laus höndin í mörgum mynda sinna, sem ber vott um, að hanp hafi ekki notið strangrar og ag-aðrar skólagöngu, sem er harla mikilvæg í sambandi við þessa tegund myndlistar.

Nigurdur H. Arnason

Mannamyndirnar eru stórum lausari í sér en landslagsmyndirn-ar enda er hér um allt annað svið að ræða og hér skiptir einnig und-irstöðumenntunin miklu máli.

— Sigurður K. Árnason hefur verið frekar hlédrægur með sýn-ingar á myndlistarvettvangi og ekki tranað sér fram. Hann hefur tekið þátt í samsýningum heima og erlendis og hlotið ýmsar viður-kenningar m.a. verið sæmdur gullmedalíu Akademíu lista og vinnandi stétta á ítalíu (4. marz 1980) (Accademia Italia delle Arti e del Lavoro). Litið á heildina er nokkur tómstundamálarabragur yfir sýningunni og einhvernveginn finnst manni vanta úrskerandi átök við efniviðinn er á heildina er litið.

Það er von mín að það hafi góð áhrif á Sigurð að sjá svona mörg verka sinna frá ýmsum tímabilum samankomin á einn stað og verði honum aflgjafi til nýrra landvinn-inga.

Bragi Ásgeirsson

Bók um sögu stein-steypu á íslandi STEINSTEYPUFÉLAG íslands ákvað á fundi sínum, þann 10. des. sj. að standa að útgáfu bókar sem rekur sögu stein-steypu á íslandi. Félagið er áhugamannafélag á sviði mann-virkjagerðar úr steinsteypu og stendur félagið fyrir fundum og námskeiðum til þess að útbreiða þekkingu á þessu sviði.

Félagið varð 10 ára þann 10. Fundirnir verða auglýstir síð-

des. sl. og verður bókin gefin út í ar auk þess sem félagsmönnum tilefni afmælisins.

Tveir fundir hafa verið haldn-ir á starfsárinu. I júlí hélt þýsk-ur prófessor, Gerhard Mehlhorn fyrirlestur um þýska brúargerð-arlist og í nóvember var haldið tveggja daga námskeið sem fjallaði um sýnilega steypufleti.

Það sem eftir er starfsársins verða haldnir fundir um eftir-farandi málefni: 7. janúar verður ræt t um breytingar á íslensku sementi. í febr. verður fjallað um nýjungar í byggingariðnaði, þróun í mótatækni og forsteypt-ar einingar. Viðgerðir á alkalí-skemmdum verður á dagskrá í mars og í apríl /maí verður ræt t um steypuframleiðslu í Reykja-vík, vandamál og lausnir.

er tilkynnt um þá bréflega.

Steinsteypufélag íslands hefur einnig um nokkurra ára skeið tekið þátt í norræni samvinnu steinsteypufélaga og íslenska fé-lagið hefur nú forustu í rann-sóknanefnd félaganna, sem á að samræma og örfa rannsóknir á Norðurlöndunum á sviði stein-steypu. Það kemur því í hlut fé-lagsins að sjá um ráðstefnu 1984, þar sem allir þeir er stunda rannsóknastörf á þessu sviði á Norðurlöndum fá tækifæri til að kynna rannsóknir sínar og niðurstöður.

Eins og áður sagði er félagið áhugamannafélag og því öllum opið.