24
SEPTEMBER / OKTÓBER 2011 DAGSKRÁ

Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Dagskrá Bíó Paradísar í sept. og okt. 2011.

Citation preview

Page 1: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

SEPTEMBER / OKTÓBER 2011DAGSKRÁ

Page 2: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

Nú er að hefjast annað starfsár

Bíó Paradísar. Á okkar fyrsta

ári sýndum við hátt á fjórða

hundrað kvikmynda frá 22 löndum,

bíómyndir, heimildamyndir, stutt- og

tilraunamyndir - nýjar sem eldri.

Kvikmyndahúsagestir hafa nú að-

gang að margfalt fjölbreyttara

framboði kvikmynda en áður hefur

tíðkast.

Haustdagskráin er þétt pökkuð.

Margar nýjar íslenskar heimilda-

myndir líta dagsins ljós, költleikarinn

Crispin Glover kíkir í heimsókn með

myndir sínar og fremur gjörning,

kínverskar kvikmyndir verða í bren-

nidepli um mánaðamótin okt.-nóv.,

vinsælasta mynd Woody Allen

kemur í október, Páll Óskar snýr

aftur með kúríósur sínar í sama

mánuði og nýr liður, Mánuður

meistarans, hefur einnig göngu sína

þá, en þar verður hver mánuður

helgaður tilteknum leikstjóra. Já og

Rúnar Rúnarsson ætlar að droppa

við eftir RIFF og halda Masterclass.

Og talandi um RIFF, hátíðin hefst 22.

september og Bíó Paradís verður

undirlagt í tíu daga. Eftir það... tjah,

eftir það heldur hátíðin bara áfram.

Góðar stundir í Bíó Paradís!

2 A SUMMER OF ICELANDIC CINEMA 2011

Nýtt haust - ný byrjun

Bíó Paradís er rekið af sjálfseignarstofnuninni Heimili

kvikmyndanna ses. Stjórn: Ari Kristinsson, form., Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Ragnar Bragason. Aðsetur: Hverfi sgata 54,101 Reykjavík. Sími: 412 7712. Vefur: www.bioparadis.is. Framkvæmdastjóri: Lovísa Óladóttir [email protected]. Dagskrárstjóri: Ás-

grímur Sverrisson [email protected]. Rekstrarstjóri: Guðmundur Lúðvíksson [email protected]. Dagskrárráð: Anna María Karlsdóttir, Friðrik Þór Friðriksson, Halla Kristín Einarsdóttir, Ottó Geir Borg, Vera Sölvadóttir. Miðasala: Opnar hálftíma fyrir fyrstu sýningu. Sími: 412 7711. Miða er einnig hægt að kaupa á midi.is. Margskonar afsláttarkjör eru í boði á bioparadis.is/adgangskort. Kaffi hús/bar: Opnar hálftíma fyrir fyrstu sýningu. Kaffi , léttvín, bjór, léttar veitingar. Einnig er úrval mynddiska til sölu. Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar. Sýninga-

tíma dagsins og vikunnar má sjá á forsíðu vefsins: www.bioparadis.is.

Bíó Paradís er rekið með stuðningi Reykjavíkurborgar og Kvikmynda-miðstöðvar Íslands.

EFNI:NÝJAR MYNDIR:

GE9N ..........................................3JÓN OG SÉRA JÓN ......................3CARLOS ......................................4MIDNIGHT IN PARIS .....................4PARADOX ....................................5SUPERCLÁSICO ...........................5ICELAND VOLCANO .....................6I AM SLAVE .................................6

VIÐBURÐIR:

DANSMYNDAHÁTÍÐ .....................7KVIKMYNDAVERÐLAUNNORÐURLANDARÁÐS ..................8HEIMSÓKN CRISPIN GLOVER .....10ÚKRAÍNA KEMUR TIL ÞÍN ...........11MASTERCLASS MEÐRÚNARI RÚNARSSYNI ................14ICELAND AIRWAVES DAGAR .......15STEFNUMÓT VIÐ FRANSKARKVIKMYNDIR ..............................16UPPVAKNINGAHÁTÍÐ .................17KÍNVERSKIR KVIKMYNDADAGAR 18

FASTIR LIÐIR:

MÁNUÐUR MEISTARANS: ALEJANDRO JODOROWSKY ......12KLÚBBAR OG AÐRIR FASTIR LIÐIR ..............................21

Page 3: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

NÝJAR MYNDIR 3

GE9NÍSLAND/2011

HEIMILDAMYND. 92 MIN. STJÓRNANDI: HAUKUR MÁR HELGASON.

MEÐFRAMLEIÐANDI: BOGI REYNISSON. AÐALKVIKMYNDATAKA: MIRIAM FASS-

BENDER.

FRAMLEIÐSLA: SEKÚNDU NÆR DAUÐANUM Í

SAMVINNU VIÐ ARGOUT FILM.

Ge9n er kvikmynd um níu þátttak-

endur í pólitískri aðgerð á pöllum

Alþingis 8. desember 2008. Ári eftir

aðgerðina voru þessi níu ákærð

fyrir „árás á Alþingi“. Í myndinni

er grennslast fyrir um sýn þeirra á

íslenskt samfélag og samtíma

okkar, hvað þeim gekk til sem

gengu lengra en fl estir 40 dögum

fyrir búsáhaldabyltinguna svoköll-

uðu.

SÝND FRÁ: 9. SEPTEMBER 2011

NÝJAR MYNDIR:

JÓN OG SÉRA JÓNÍSLAND/2011

HEIMILDAMYND. 72 MIN. STJÓRNANDI: STEINÞÓR BIRGISSON.

FRAMLEIÐENDUR: STEINÞÓR BIRGISSON,

BIRNA GUNNARSDÓTTIR.

MEÐFRAMLEIÐANDI: SEYLAN EHF.

KVIKMYNDATAKA: STEINÞÓR BIRGISSON,

SIGURBJÖRN BÚI BALDVINSSON.

TÓNLIST: BJÖRN JR. FRIÐBJÖRNSSON.

Séra Jón Ísleifsson hefur verið

sóknarprestur í Árnesi á Ströndum

í 12 ár. Hann lifi r lífi nu á sinn eigin

sérstæða máta og af honum eru

margar sögur bæði sannar og

ósannar. Í kjölfar langvinnra deilna

innan safnaðarins er svo komið að

mikill meirihluti sóknarbarna hefur

skrifað undir vantraust á séra Jón

og lýst því yfi r að þau vilji ekki að

hann starfi lengur sem sóknar-

prestur í Árnesprestakalli. Er séra

Jón óhæfur prestur? Eða eru aðrir

kraftar að verki? Hvað sem því líður

er séra Jón maður sem er staddur á

miklum tímamótum. Myndin hlaut áhorfendaverðlaunin á Skjald-borg, hátíð íslenskra heimilda-mynda, í vor.

SÝND FRÁ: 16. SEPTEMBER 2011

Page 4: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

4 NÝJAR MYNDIR

CARLOS: THE MOVIE(CARLOS)FRAKKLAND/ÞÝSKALAND/2011

PÓLITÍSKT DRAMA. 162 MIN. LEIKSTJÓRI: OLIVIER ASSAYAS.

AÐALHLUTVERK: ÉDGAR RAMÍREZ, ALEXAN-

DER SCHEER, ALEJANDRO ARROYO.

ENSKUR TEXTI.

Saga hins alræmda morðingja og

hryðjuverkamanns Ilich Ramírez

Sánchez, betur þekktur sem

Carlos eða Sjakalinn. Eftir fjölda

sprengjuárása öðlaðist Carlos

heimsfrægð þegar hann réðist til

atlögu á höfuðstöðvar OPEC í Vínar-

borg með þeim afl eiðingum að þrír

létu lífi ð. Hann var um árabil einn

eftirsóttasti glæpamaður heims.

Myndin hefur hlotið fjölda verðlauna og einróma lof gagn-rýnenda. Þá var hún á fjölda lista yfi r bestu myndir ársins 2010, m.a. í tímaritinu Film Comment, vefsíðunni IndieWire og vikub-laðinu Village Voice.

SÝND FRÁ: 7. OKTÓBER 2011

Þetta er kvikmyndaútgáfan af hinni

mögnuðu sjónvarpsþáttaröð Assayas,

báðar útgáfur hafa fengið frábæra dóma.

MIDNIGHT IN PARIS(MIÐNÆTTI Í PARÍS)SPÁNN/BANDARÍKIN/2011

GAMANMYND. 100 MIN. LEIKSTJÓRI: WOODY ALLEN.

AÐALHLUTVERK: OWEN WILSON, RACHEL

MCADAMS, MARION COTILLARD.

ÍSLENSKUR TEXTI.

Nýjasta mynd Woody Allen segir af

handritshöfundinum Gil og kærustu

hans Inez sem verja fríi sínu í París.

Gil vinnur að fyrstu skáldsögu sinni

en Inez lætur sér fátt um fi nnast.

Gil fær óvænt uppfyllta ósk sína um

að ferðast aftur í tímann til þriðja

áratugsins, sögusviðs skáldsögu

sinnar. Þar hittir hann fyrir fjölmarga

fræga listamenn og rithöfunda sem

hjálpa honum varðandi skrifi n og

hvernig eigi að lifa lífi nu. Gil áttar

sig á því að fortíðarþráin er alltaf

til staðar á öllum tímum, því að

stundum getur verið meira freistandi

að horfa til baka gegnum rósrauð

gleraugu en að sætta sig við fl ókinn

samtíma og óvissa framtíð. Þessi afar sjarmerandi mynd Allen hefur fengið afbrags dóma (t.d. 92% jákvæðar umsagnir á Rotten Tomatos, 7.9 í meðaleinkunn). Roger Ebert skrifar: “Það er ekki hægt að líka illa við þessa mynd. Annaðhvort tengir þú við hana eða ekki. Ég er þreyttur á myndum sem eru fyrir “alla”, þ.e. engan sérstakan. Þessi mynd er fyrir mig.”

SÝND FRÁ: 14. OKTÓBER 2011

Page 5: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

NÝJAR MYNDIR 5

SUPERCLÁSICO(ERKIFJENDUR)DANMÖRK/2011

GAMANMYND. 99 MIN. LEIKSTJÓRI: OLE CHRISTIAN MADSEN.

AÐALHLUTVERK: ANDERS W. BERTHELSEN,

PAPRIKA STEEN, JAMIE MORTON, SEBASTIAN

ESTEVANEZ.

ÍSLENSKUR TEXTI.

Vínbúðareigandinn Christian er afar

óhress með yfi rvofandi brúðkaup

fyrrverandi konu sinnar Önnu og

hins heimsfræga og alræmda kn-

attspyrnukappa Juan Diaz. Eftir að

hafa fundið kjarkinn á botni eðalvín-

fl ösku ákveður Christian að halda

til Argentínu, stöðva brúðkaupið og

vinna Önnu sína aftur. Þessi eld-fjöruga rómantíska kómedía frá leikstjóra Flammen og Citronen sló rækilega í gegn í Danmörku fyrr á árinu og var nýlega valin framlag Danmerkur til Óskars-verðlaunanna.

SÝND FRÁ: 21. OKTÓBER 2011

PARADOXÍSLAND/2011

HEIMILDAMYND. 58 MIN. STJÓRN: HAFSTEINN GUNNAR SIGURÐSSON

OG SIGURÐUR SKÚLASON. HANDRIT: HAF-

STEINN GUNNAR SIGURÐSSON, SIGURÐUR

SKÚLASON OG JANUS BRAGI JAKOBSSON.

MYNDATAKA: ÁRNI FILIPPUSSON OG HAF-

STEINN GUNNAR SIGURÐSSON. KLIPPING: JANUS BRAGI JAKOBSSON. UPPTAKA STUTTMYNDAR 1967: NÍELS ÓSKARSSON

OG ÞRÖSTUR MAGNÚSSON. EFTIRVINNSLA STUTTMYNDAR 2011: DANÍEL BJARNASON

OG KRISTJÁN LOÐMFJÖRÐ. FRAMLEIÐSLA: MYSTERY ISLAND.

Árið 1967 lék Sigurður Skúlason

leikari í sinni fyrstu kvikmynd - stutt-

myndinni Paradox - en gerð leikinna

stuttmynda þóttu fáheyrð tíðindi

þar sem skilyrði til kvikmyndagerðar

voru afar frumstæð í landinu. Enda

fór það svo að myndin var aldrei

kláruð. En minningin um gerð

myndarinnar sótti á Sigurð og næst-

um hálfri öld síðar eru tveir ungir

menn, Kristján Loðmfjörð klipp-

ari og Daníel Bjarnason tónskáld,

fengnir til þess að ljúka verkinu.

Með því hefst undarleg atburðarás

sem vekur upp spurningar um tíma

og kynslóðabil um leið og lífi er

blásið í þetta gleymda en einstaka

myndefni.

SÝND FRÁ: 14. OKTÓBER 2011

Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstjóri og

Sigurður Skúlason leikari hafa búið til afar

athyglisverða heimildamynd um sköpun

og endursköpun.

Page 6: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

6 NÝJAR MYNDIR

I AM SLAVE(AMBÁTTIN)BRETLAND/2011

DRAMA. 82 MIN. LEIKSTJÓRI: GABRIEL RANGE.

AÐALHLUTVERK: WUNMI MOSAKU, ISAACH

DE BANKOLÉ, LUBNA AZABAL.

ÍSLENSKUR TEXTI.

Malia kemur úr stoltri súdanskri

fjölskyldu. Faðir hennar, Bah, er

ættbálkahöfðingi og valdamikill

maður í samfélagi þeirra. Það

skiptir hins vegar engu máli þegar

Malia er tekin til fanga, ásamt fjölda

annarra kvenna, í árás íslamskra

stríðsmanna (mujahideen) á þorpið

hennar. Malia er fl utt til Khartoum,

höfuðborgar Súdans og þaðan seld

til arabískrar fjölskyldu. Laila, nýi

“eigandi” Maliu, beitir hana andlegu

og líkamlegu ofbeldi í tilraun sinni

til að brjóta hana niður og gera að

hlýðnum þjóni. Eftir nokkur ár er

Malia send til London til að vinna

fyrir frænku Lailu, Haleema, en þar

heldur sama þrælkunin áfram. Malia

vinnur allan daginn og alla nóttina,

fær enginn laun, ekkert frí, engin

fríðindi og nánast aldrei að fara út

húsi. Hún heldur hins vegar alltaf í

vonina um að einn góðan veðurdag

muni hún öðlast frelsi á nýjan leik.

Myndin er byggð á sannsögu-legum atburðum og fjallar á hispurslausan hátt um hinn leynda og óhugnanlega þræla-markað í London.

SÝND FRÁ: 28. OKTÓBER 2011

ICELAND VOLCANO ERUPT-ION / INTO THE VOLCANOÍSLAND/2011

TVÆR HEIMILDAMYNDIR SÝNDAR SAMAN. ALLS 97 MÍN.STJÓRNENDUR: JÓHANN SIGFÚSSON & BO

LANDIN. FRAMLEIÐENDUR: ANNA DÍS ÓLAF-

SDÓTTIR & MARIANNE LANDIN. MEÐFRAM-LEIÐANDI: HINRIK ÓLAFSSON. HANDRIT: BO

LANDIN. MYNDATAKA: JÓHANN SIGFÚSSON,

GUNNAR KONRÁÐSSON BJARNI FELIX BJAR-

NASON (INTO ICELAND‘S VOLCANO). HLJÓÐ: SIGTRYGGUR BALDURSSON. KLIPPING: MICHAEL FOX, STEVEN HAUGEN, ADAMN VAN

WAGONER.

Fyrri myndin er ítarleg frásögn af

eldgosinu í Eyjafjallajökli vorið 2010

og áhrif þess á umheiminn. Sú

seinni lýsir einstökum leiðangri inní

Þríhnjúkagíg, sem er eini staðurinn í

heiminum þar sem hægt er að

komast inn í eldfjall. Leiðangurs-

menn fi nna þar merk gögn um

hvernig íslensk eldfjöll virka. Báðar myndirnar voru unnar fyrir National Geographic Channel og hafa vakið mikla athygli. Þær voru á dögunum báðar tilnefndar til Emmy-verðlauna fyrir kvikmynda-töku.

SÝND FRÁ: 21. OKTÓBER 2011

Tvær afar athyglisverðar heimildamyndir

um íslensk eldfjöll, gerðar fyrir National

Geographic Channel og tilnefndar til

Emmy-verðlauna.

Page 7: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

VIÐBURÐIR 7

VIÐBURÐIR:

Reykjavík Dance Festival kynnir í samstarfi við Bíó Paradís úrval styttri og

lengri dansmynda í valinni dagskrá þar sem við fáum að kynnast rjómanum

í íslenskri og alþjóðlegri dansmyndagerð. Breiddin er mikil og viðfangsefnin

ólík en dans og hreyfi ng koma þar alls staðar við sögu í margvíslegu og ólíku

samhengi þar sem dulúð dansformsins mætir næmi linsunnar ýmist á raun-

sæjan, framúrstefnulegan eða absúrd hátt. Allt er mögulegt. Auk dagskrár

í Bíó Paradís kynnir RDF röð video-innsetninga eftir bæði myndlistarmenn

og danshöfunda sem verða til sýnis í Bíó Paradís, Tjarnarbíói og Dansverk-

stæði/Kex Hostel, Skúlagötu 28. Góða skemmtun!

DAGSKRÁ I: ALÞJÓÐLEGAR: Le Jour Imbecile 2009 Clementine Delbecq (Frak-kland) 18' / Insyn 2010 Klara Elenius (Svíþjóð) 15' / Shake Off 2007 Hans Beenhakker (Holland) 10' / LoopLoop 2008 Patrick Bergeron (Kanada) 5' / Horizon of Exile 2007 Isabel Rocamora (England) 30'

DAGSKRÁ II: ALÞJÓÐLEGAR: The God 2004 Konstantin Bronzit (Rússland) 4' / Nora 2008 Alla Kovgan & David Hinton (Mozambique/UK/USA) 40' / Rewind 2003 Gunilla Heilborn (Svíþjóð) 5' / Rain 2007 Pontus Lidberg (Svíþjóð) 30'

DAGSKRÁ III: ÍSLENSKAR: Slurpinn & co. 1997 Katrín Ólafsdóttir 13´ / While the

Cat’s Away 2003 Helena Jónsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir 5´ / Burst 2003 Katrín Hall, Reynir Lyngdal 5´ / Zimmer 2004 Helena Jónsdóttir 8´ / Another 2005 Helena Jónsdóttir, Rene Vilbre 26´ / Fiðrildi 2008 Kristín Ólafsdóttir, Erna Ómarsdóttir 9´ / Uniform Síerra 2008 Sigríður Soffía Níelsdóttir 8´ / Between 2010 María Þórdís Ólafsdóttir 6´ / Retrograde 2010 Júlíanna Lára Steingrímsdóttir, Ásgeir Helgi Magnússon og Inga Maren Rúnarsdóttir 4’ / Örsögur úr

Reykjavík 2000 Margrét Sara Guðjónsdóttir, Ragna Sara Jónsdóttir, Sveinbjörg Þórhallsdóttir 15'

Meðal video-innsetninga í Bíó Paradís, Tjarnarbíó og Dansverkstæði/Kex Hostel verða verk eftir eftirfarandi listamenn - myndlistarmenn og danshöfunda: Harald Jónsson, Söru Björnsdóttur, Þorvald Þorsteins-

son, Hrafnkel Sigurðsson, Finnboga Pétursson, Þóru Hilmarsdóttur, Snorra

Ásmundsson, Ernu Ómarsdóttur og Guðna Gunnarsson, Lottu Suomi, Eva

Pfi tzenmaier og Karen Eide Boen, Maríu Dalberg, Þóru Sólveigu Bergsteins-

dóttur, Huldu Rós Guðnadóttur, Justyna Górowska og Doddu Maggý.

DAGSKRÁ:

MÁN. 5. SEPT. ÞRI. 6. SEPT. LAU. 10. SEPT.

KL. 19:00: Opnun og Dagskrá I

KL. 20:00: Dagskrá II

KL. 20:00: Dagskrá III

Dansmyndahátíð!5.-10. september

Page 8: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

8 VIÐBURÐIR

Í BRENNIDEPLI / IM FOKUS / IN FOCUS:

Græna ljósið kynnir fi mm áhrifaríkar en jafnframt afar ólíkar norrænar kvikmyndir sem keppa um hin eftirsóttu verðlaun

KvikmyndaverðlaunNorðurlandaráðs7.-11. september

SIGURVEGARINN KYNNTUR Í OKTÓBER

Dómnefnd sem skipuð er einum

fulltrúa frá hverju Norðurlandanna

tilkynnir í október hver hlýtur

Kvikmyndaverðlaun Norður-

landaráðs 2011. Þau verða afhent á

Norðurlandaráðsþingi í Kaupman-

nahöfn 2. nóvember. Verðlaunin

að andvirði 350.000 danskra króna

eru veitt kvikmynd sem á rætur í nor-

rænni menningu og býr yfi r miklum

listrænum gæðum. Kvikmyndin á

einnig að sýna listræna nýsköpun og

jafnframt þróa kvikmyndalistina með

því að sameina hinar ýmsu hliðar

hennar í sannfærandi og heilsteyptu

verki.

Kvikmyndirnar fi mm sem tilnefndar

eru til Kvikmyndaverðlauna Norður-

landaráðs árið 2011 eru:

SANDHEDEN OM MÆND (SANNLEIKURINN UM KARLA) DANMÖRK/90 MÍN.LEIKSTJÓRI: NIKOLAJ ARCEL

Ástrík frásögn

af kynslóð karla

sem hræðist

miklar skuld-

bindingar, en

spyr engu að

síður stórra

spurninga um

lífi ð og ástina.

Mads fer að

búa með Marie, yndislegri kærustu

sinni, en allt í einu er hann gripinn

miklum efa. Er þetta tilgangur

lífsins? Hafa allir draumar hans

ræst? Hann kastar öllu frá sér, fl ytur

frá kærustunni og kastar sér út í

örvæntingarfulla för til að lifa alla

stærstu drauma sína, með það að

markmiði að fi nna tilgang lífsins og

hina einu sönnu.

HYVÄ POIKA (GÓÐI SONURINN)FINNLAND/

87 MÍN.LEIKSTJÓRI: ZAIDA BERGROTH

Að lokinni

hneykslanlegri

frumsýningu, sem

Page 9: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

VIÐBURÐIR 9

Í BRENNIDEPLI / IM FOKUS / IN FOCUS: CHRIS KRAUSekki gekk vel, fl ýr leikkonan Leila í

sumarhús fjölskyldunnar við vatnið.

Þar er hún í friðsælu fríi með sonum

sínum Ilmari og Unto, en friðurinn

er úti þegar hún býður nokkrum

vinum sínum í háværa helgardvöl.

Eftir veisluna býður Leila heillandi og

óútreiknanlega rithöfundinum Aimo

að dvelja áfram í nokkra daga. En

19 ára sonur hennar Ilmari sem er

mjög náinn móður sinni og hagar

sér oft eins og lífvörður hennar, er

fjandsamlegur gagnvart Aimo.

BRIMÍSLAND/95 MÍN.LEIKSTJÓRI: ÁRNI ÓLAFUR ÁSGEIRSSON

Ung kona er

ráðin sem háseti

á fi skibát, þar

sem þéttur

hópur karla er

fyrir. Hægt og

sígandi kemur

í ljós að starf

hennar var

aðeins laust

vegna þess að

sorglegur atburður hafði átt sér stað

og vera hennar um borð fer ekki vel

í áhöfnina. Þar sem átök eiga sér

stað innan hópsins og einnig barátta

við náttúruöfl in, verður áhöfnin

að standa saman og takast á við

örlögin í sjóferð sem tekur óvænta

stefnu.

OSLO, 31. AUGUST(OSLÓ, 31. ÁGÚST)NOREGUR/105 MÍN.

LEIKSTJÓRI: JOACHIM TRIER

Anders (34) er

að ljúka með-

ferð, vegna

fíkniefnaneyslu,

í sveitinni. Hann

fær leyfi til að

fara til borgar-

innar í starfs-

viðtal á meðan

á meðferðinni

stendur. En hann notar tækifærið

og dvelur lengur í borginni, ráfar

um og hittir fólk sem hann hefur

ekki séð lengi. Anders er vel gefi nn,

myndarlegur og kemur frá góðri

fjölskyldu, en tækifæri sem hann lét

sér úr greipum renna og fólk sem

hann hefur brugðist eru honum ofar-

lega í huga. Hann er frekar ungur

en fi nnst samt að lífi ð sé að mörgu

leyti búið. Það sem eftir lifi r dags og

langt fram á nótt, berjast draugar

mistaka fortíðarinnar við tækifærin

til að elska, tækifæri til að lifa nýju

lífi og vonina um að það sé framtíð í

morgundeginum.

SVINALÄNGORNA

(SVÍNASTÍAN)SVÍÞJÓÐ/94 MÍN.LEIKSTJÓRI: PERNILLA AUGUST

Morgun einn rétt

fyrir jól fær

Leena (Noomi

Rapace) símtal

frá sjúkrahúsi

í bænum sem

hún ólst upp í.

Henni er sagt

að móðir hennar

sé að deyja.

Fréttirnar verða

til þess að unga konan fer til að hitta

móður sína í fyrsta sinn frá því hún

var fullorðin. Leena hefur barist til að

losna við sorgina vegna glataðrar,

myrkrar æsku sinnar. Hún neyðist

nú til að takast á við fortíðina til að

halda lífi nu áfram. Svínastían hefur sópað upp verðlaunum víða um heim. Myndin var metsölumynd Nordisk Film í Skandínavíu eftir Millenium-þríleikinn. Svínastían er fyrsta myndin sem sænska verðlaunaleik-konan Pernilla August stýrir, en hún er ein af þekktustu leikkonum Svía á alþjóðavettvangi. August mun sækja Ísland heim í tilefni sýninga á myndinni.

Page 10: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

10 VIÐBURÐIR

Bandaríska stórstjarnan, ‘cult’-leikarinn og kvikmyndagerð-armaðurinn Crispin Glover sýnir tvær mynda sinna og fl ytur leikverk sitt ‘Crispin Hellion Glover’s Big Slide Show’

Heimsókn Crispin Glover16.-17. september

Myndum Crispins er ekki dreift í kvikmyndahús samkvæmt reglubundnu

dreifi ngarkerfi og eru ekki gefnar út á DVD eða neinu hliðstæðu formi heldur

eru þær eingöngu sýndar í kvikmyndasölum að viðstöddum höfundinum

sem ferðast þá sjálfur með fi lmurnar. Að lokinni sýningu

býður leikstjórinn alltaf uppá spurningar úr sal (Q&A)

og áritar bækur sínar.

Crispin öðlaðist ungur að árum þann ‘cult’ -

status sem hann býr enn að meðal kvikmynda-

áhugamanna, þegar hann fór með hlutverk

George McFly í fyrstu Back to the Future

myndinni. Hann lék Andy Warhol í The Doors

mynd Oliver Stone, Cousin Dell í Wild at Heart og einnig minni hlutverk í What’s Eating Gilbert Grape, Even Cowgirls Get the Blues

og The People vs. Larry Flint. Á síðustu

árum hefur hann síðan átt minnisstæðar

innkomur í myndum á borð við

Charlie’s Angels og Alice in Won-derland.

Crispin hefur nýtt þær tekjur sem

hann hefur fengið við að leika í

stórum Hollywood framleiðslum

til að fjármagna sínar eigin, óháðu

kvikmyndir. Sú fyrsta, What is it?,

kom út árið 2005 og er nánast

eingöngu skipuð leikurum með

Downs heilkenni. It is Fine. Everything is Fine! kom síðan

út árið 2007. Þessar tvær

myndir munu verða sýndar í

Bíó Paradís dagana 16. og 17.

september.

SÝNINGAR KL. 20:00 BÁÐA DAGA:16. SEPT.: CRISPIN HELLION GLOVER'S BIG SLIDE SHOW, 1. hluti + WHAT IS IT?

17. SEPT.: CRISPIN HELLION GLOVER'S BIG SLIDE SHOW, 2. hluti + It IS FINE. EVERYTHING IS FINE!

MIÐAVERÐ: 2.500 kr. á staka sýningu /4.500 kr. á báðar ef keyptar saman.

Miðasala á midi.is.

Page 11: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

VIÐBURÐIR 11

Úkraínskar stuttmyndir, úrval stuttmynda frá Wiz-Art hátíðinni og Skuggar hinna gleymdu forfeðra eftir Sergei Paradjanov

Úkraína kemur til þín!17.-19. september

NÝJARÚKRAÍNSKAR STUTTMYNDIR(ALLS 75 MÍN.):

MAN IN COAT 6’ Maks Mylenko, 2010 / LOVERS 4’ Anna Smoliy, 2009 / WICKENBRAT 13’ Alexander Milov, 2011 / EYE 10’ Mykyta Lys’kov, 2010 / NOT SCARED 13’ Kate Naumenko, 2009 / INSIDE 9’ Olena Potyomkina, 2010 / CRADLE OF DES-

TINY 6’ Serhiy Silyava 2010 / DIARY OF MY I 13’ Oleksandr Anpilogov, 2011 / IN DREAM 8’ Kateryna Chepik, 2010.

ÚRVAL ALÞJÓÐ-LEGRA STUTT-MYNDA FRÁ WIZ-ART(ALLS 75 MÍN.)

LITTLE QUENTIN 9’ Albert 'T Hooft & Pako Vink Holland, 2010 / CIGARETTE CANDY 13’ Lauren Wolkstein BNA, 2009 / BULBA-

HAIR 8’ Alexandra Brozyna Pólland, 2010 / TURNING 10’ Karni & Saul Bretland, 2010 / AVE.AVI 5’ Maks Afanasyev Úkraína, 2011 / MISSING 12’ Joachem De Vries Holland, 2009.

SKUGGAR HINNA GLEYMDUFORFEÐRA / SERGEI PARA-DJANOV, 1964:(FRÍTT INN)Sýnd með leyfi Dovz-henko Film Studios.

Myndin sem skóp nafn Paradjanov er stórkostlegt sjónarspil lita og tákna, fornar menningar Hutsul þjóðfl okksins í Karpatíafjöl-lum og óhamdra ástríðna. Þetta er harmræn ástarsaga um Ivan, ungan mann sem elskar stúlku sem hannfær ekki að eiga sökum deilna milli fjölskyldna þeirra. Stúlkan ferst og síðar giftist Ivan annarri, en sú skynjar að hugur hans er ekki hjá henni, með alvarlegum afl eiðingum.

Wiz-Art lista-hátíðin í Lviv í Úkraínu

hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á

stuttmyndir, það form kvikmyndarin-

nar sem nýtur meira listræns frelsis

en fl est önnur. Hátíðin hefur ávallt

lagt mikla áherslu á alþjóðleg

sam-skipti og í þeim anda koma

hingað tveir fulltrúar hátíðarinnar til

að kynna hana

fyrir Íslend-

ingum. Þetta

eru annars-

vegar Valentyna Zalevska, einn

af stjórnend-

um Wiz-Art og

hinsvegar

samlandi hennar, leikstjórinn

Anna Smoliy, sem á eina af þeim

stuttmyndum sem sýndar verða.

Smoliy mun einnig halda fyrirlestur

um óháða kvikmyndagerð í Úkraínu

samhliða sýningu á verkum sínum í

The Lost Horse galleríinu við Hverf-

isgötu. Boðið verður uppá tvær

stuttmyndadagskrár; annarsvegar

Nýjar Úkraínskar stuttmyndir og

hinsvegar Úrval alþjóðlegra stutt-

mynda frá

Wiz-Art hátíðinni.

Auk þess verður

sérstök sýning

á hinni frægu

kvikmynd Sergei

Paradjanov,

Skuggar hinna gleymdu

forfeðra sem enginn má missa af.

Við tökum hinum gersku gestum

fagnandi!

Valentyna Zalevska. Anna Smoliy.

Page 12: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

12 MÁNUÐUR MEISTARANS

Meistari sýrunnar er vissulega grófur og ofbeldisfullur en um leið óendanlega skemmtilegur. Stranglega bannað börnum!

Alejandro JodorowskyAllar helgar í október

Mánuður meistarans er nýr liður á dagskránni okkar. Hver mánuður frá október til apríl verður helgaður tilteknum leik-stjóra og verða fjórar myndir viðkomandi sýndar, hver þrisvar um hverja helgi. Ýmsir kvikmyndafræðingar munu kynna leikstjórana og myndirnar og ræða þær við áhorfendur á eftir.

FANDO Y LIS1968/93 MÍN.

Fando og hinn hálf lamaða unnusta

hans Lis leita hinnar horfnu borgar

Tar. Verkið er byggt á minningum

Jodorowsky um leikverk eftir súr-

realistann Fernando Arrabal. Jodor-

owsky átti fótum fjör að launa þegar

myndin var frumsýnd á kvikmynda-

hátíðinni í Acapulco 1968. Áhorf-

endur misstu sig gersamlega yfi r

hinum "siðspilltu myndum" sem

birtust á tjaldinu. Myndin var síðan

bönnuð í Mexíkó og Jodorowsky

hótað brottvísun frá landinu fyrir öll

þau uppþot sem myndin olli.

SÝND: 7.-9. OKTÓBER 2011

EL TOPO1970/125 MÍN.

El Topo (Moldvarpan, leikin af

Jodorowsky sjálfum) er í fl okki

svokallaðra sýru-vestra og segir

af samnefndum manni sem leitar

að tilgangi lífsins ásamt 6 ára syni

sínum. Þeir feðgar lenda í miklum

mannraunum og loks er El Topo

drepinn en hann rís upp aftur og fær

skjól hjá samfélagi afmyndaðs fólks

sem er lokað inní stórum helli.

SÝND: 14.-16. OKTÓBER 2011

Page 13: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

MÁNUÐUR MEISTARANS 13

Alejandro Jodorowsky er fæddur 1929 í Chile. Hann er hylltur um veröld víða fyrir afar sérstæðar myndir sínar sem eru uppfull-ar af súrrealísku ofbeldi og sérkennilegri blöndu mystíkur og trúarlegra ögrana. Verk hans hafa hlotið takmarkaða dreifi ngu en notið vinsælda í hverskyns jaðarkreðsum. Sjálfur nefnir hann Fellini sem sinn helsta áhrifavald meðan listamenn á borð við Marilyn Manson og David Lynch hafa sótt innblástur til hans. Jodorowsky hefur ekki verið mjög pródúktívur sem kvikmynda-gerðarmaður hin seinni ár, en hann starfar einnig sem leikskáld og sviðsleikstjóri í Mexíkó. Hann stefnir þó að því að fi lma framhald af El Topo á næsta ári og kallast verkið Abel Cain.

THE HOLY MOUNTAIN1973/114 MÍN.

Í kjölfar mikillar velgengni El Topo

lögðu John Lennon og Yoko Ono

fram hluta af framleiðslufé þessar-

ar myndar. Afar sýrukennd með

hverskyns andlegum og trúarlegum

vísunum. Kristgervingur lendir í afar

einkennilegum upplifunum í leit sinni

að fjallinu helga, þar sem ætlunin er

að kasta frá sér öllum jarðneskum

eigum, fjarlægja guðina sem þar

búa og öðlast þannig eilíft líf.

SÝND: 21.-23. OKTÓBER 2011

SANTA SANGRE1989/123 MÍN.

Ungur maður er vistaður á geðdeild.

Gegnum endurlit komumst við að

áfalli því sem hann varð fyrir í æsku

þegar hann sá trúarofstækisman-

ninn föður sinn skera hendurnar

af móðurinni og fyrirfara sér síðan.

Unga manninum tekst að sleppa

af spítalanum og hefur uppá hinni

handalausu móður sinni. Gegn vilja

hans verða hendur hans að hennar

og saman leggja þau upp í blóðug-

an leiðangur morða og hefndar.

SÝND: 28.-30. OKTÓBER 2011

Page 14: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

14 VIÐBURÐIR

Leikstjórinn ræðir um stutt-myndir sínar og ferilinn. Stuttmyndirnar sýndar ásamt broti úr Eldfjalli, fyrstu bíó-mynd Rúnars

Masterclass með Rúnari Rúnarssyni6. október kl. 20:00

Rúnar Rúnarsson hefur á undan-

förnum árum vakið mikla athygli

í kvikmyndaheiminum fyrir stutt-

myndir sínar og má þar sérstaklega

nefna Síðasta bæinn sem hlaut

m.a. tilnefningu til Óskarsverðlauna

og Smáfugla sem keppti um

Gullpálmann í Cannes í fl okki

stuttmynda. Báðar myndirnar hafa

sópað að sér tugum verðlauna á

kvikmyndahátíðum um allan heim,

auk Önnu, lokamyndar hans frá

Danska kvikmyndaskólanum. Rúnar

hefur nú sent frá sér fyrstu bíó-

Rúnar Rúnarsson.

mynd sína Eldfjall, sem frumsýnt

var í Director's Fortnight fl okknum

á kvikmyndahátíðinni í Cannes í

maí síðastliðnum. Myndin verður

frumsýnd hér á landi á RIFF, 29.

september. Í tilefni þeirra tímamóta

stendur Bíó Paradís fyrir svoköl-

luðum Masterclass með Rúnari

þann 6. október þar sem hann ræðir

um feril sinn, reynslu sína af því að

fóta sig í kvikmyndabransanum og

myndir sínar. Alls tekur dagskráin

um þrjár klukkustundir með hléi.

Úr myndum Rúnars,sólargangur frá vinstri: Smáfuglar, Síðasti bærinn, Anna og Eldfjall.

Page 15: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

VIÐBURÐIR 15

Nýjar og eldri tónlistarmyndir og daglegir tónleikar!

Iceland Airwaves dagar12.-16. október

Iceland Airwaves opnar útibú í Bíó Paradís

dagana sem hátíðin stendur yfi r. Við sýnum

kl. 16:00 hvern dag ýmsar tónlistarmyndir,

bæði nýjar erlendar og eldri, auk þess sem

tónlistaruppákomur verða í forsal frá kl.

14:00. Frekari upplýsingar um hljómsveitir

birtast þegar nær dregur.

MYNDIRNAR ERU:

Backyard eftir Árna Sveinsson, um tónlistarsenuna í Reykjavík þessi

misserin; Rokk í Reykjavík, hin goðsagnakennda mynd Friðriks Þórs

Friðrikssonar um pönkárin; Gargandi snilld eftir Ara Alexander um

íslenska tónlistarævintýrið á nýliðnum áratug, Popp í Reykjavík eftir

Ágúst Jakobsson um músiksenuna undir lok síðustu aldar og síðast

en ekki síst Everything, Everywhere, All the time eftir Pierre-Alain

Giraud, um Bedroom Community og tónleikaför þeirra, The Whale

Watching Tour, um Evrópu á síðasta ári.

DAGSKRÁ:

MIÐ. 12.10

KL. 14:Konsert

KL. 16:Everything, Everywhere, All the time / Backyard / Rokk í Reykjavík / Gargandi snilld.

FIM. 13.10

KL. 14:Konsert

KL. 16:Everything, Everywhere, All the time / Backyard / Rokk í Reykjavík / Popp í Reykjavík.

FÖS. 14.10

KL. 14:Konsert

KL. 16:Everything, Everywhere, All the time / Backyard / Popp í Reykjavík / Gargandi snilld.

LAU. 15.10

KL. 14:Konsert

KL. 16:Everything, Everywhere, All the time / Popp í Reykjavík / Rokk í Reykjavík / Gargandi snilld.

SUN. 16.10

KL. 14:Konsert

KL. 16:Popp í Reykjavík / Backyard / Rokk í Reykjavík / Gargandi snilld.

Page 16: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

16 VIÐBURÐIR

Alliance Francaise heldur uppá hundrað ára afmæli sitt með því að fá ýmsa þekkta einstaklinga til að sýna uppáhalds frönsku kvikmyndina sína

Stefnumót við franskarkvikmyndirHelgarnar 14.-16. & 21.-23. október

Í tilefni Hrekkjavökuhelgi sýnum við sex hressilegar uppvakningamyndir í samstarfi við hljómsveitina Malneirophreniu

UppvakningahHelgina 29.-30. októb

Alliance

Francaise

heldur uppá

aldarafmælið

með ýmsu móti.

Tvær helgar

í október eru

helgaðar frönskum kvikmyndum

og verða sex þekktir einstaklingar

fengnir til að velja og kynna uppá-

haldsmyndirnar sínar úr franskri

kvikmyndasögu. Sýndar verða þrjár

myndir á hvorri helgi, föstudag til

sunnudags.

Nánar verður tilkynnt síðar hvaða

einstaklingar og kvikmyndir koma

við sögu, en okkur fi nnst alveg

óhætt að lofa bráðskemmtilegum

og spennandi kvikmyndakvöldum

- enda fundu Frakkar upp kvik-

myndina og kunna ýmislegt fyrir sér

í greininni!

Myndirnar kljást allar við uppvakn-inga (eða zombíur) á einn eða ann-an hátt. Hryllingssveitin Malneiro-phrenia sér um dagskrána, en hún mun auk þess standa fyrir kvik-myndatónleikum kl. 20 á laugar-dagskvöldinu. Í myndavali var áhersla lögð á lítt þekktar perlur og fyrst og fremst eldri myndir, sjaldséð eða gleymd meistarastykki sem hafa staðist tímans tönn og slá út fl est það sem ber upp á hvít hryllingstjöld samtímans.

LAUGARDAGUR:

18:00 NON SI DEVE PROFANARE IL SONNO DEI MORTI(LET SLEEPING CORPSES LIE) SPÁNN/ÍTALÍA/1974/95 MÍN.

LEIKSTJÓRI: JORGE GRAU

... er frumlegt

og spennandi

verk sem ber

þess merki að

hafa verið gert

áður en seinni

tíma hefðir

geirans hafa

mótast, en hún

kom út á undan stóru uppvakningab-

ylgjunni sem reið yfi r áttunda áratug-

inn. Let Sleeping Corpses Lie byggir

jafnt á stemningu og andrúmslofti

sem blóði og subbuskap og er í raun

ákveðin blendingur enskrar glæpa-

myndar og ítalskrar hryllingsmyndar.

Þetta er gleymd gersemi sem löngu er

tímabært að enduruppgötva.

Cinematheque Francaise,

heimili kvikmyndanna.

Page 17: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

VIÐBURÐIR 17

hátíð!ber

20:30 L’INFERNO (tónleikar)ÍTALÍA/BRET-

LAND/1911/

90 MÍN.

LEIKSTJÓRI: GIUSEPPE DE LIGUORO

... er ekki uppvakningamynd í hefðbund-

num skilningi, en er engu að síður stútfull

af lifandi dauðum, þar sem við fylgjumst

með ferðalagi söguhetjunnar um ólíka

heima helvítis. Myndin er þögul og hryl-

lingssveitin Malneirophrenia mun fl ytja

frumsamda tónlist meðan á sýningu

stendur. Þar að auki mun Radio Karlsson

fl ytja raftónlist undir stuttmynd (nánar

auglýst síðar).

22:00 LES RAISINS DE LA MORT (THE GRAPES OF DEATH)FRAKKLAND/1978/90

MÍN.

LEIKSTJÓRI: JEAN

ROLLIN

... er listrænni en gengur og gerist í

geiranum, draumkennd og hálf-súrrealísk

á köfl um. Svo snýst söguþráðurinn

auðvitað fyrst og fremst um víndrykkju.

Ung stúlka er á ferðalagi til vínekru þar

sem unnusti hennar vinnur. Þar hefur

uppskeran eitrast og umbreytt öllum

drykkfelldum sveitungum í rotnandi br-

jálæðinga. Hennar bíður löng, kafl askipt

martröð, þar sem hún ráfar í gegnum

sveitina í leit að ástmanni sínum.

SUNNUDAGUR:

18:00 THE PLAGUE OF THE ZOM-BIESBRETLAND/1966/

91 MÍN.

LEIKSTJÓRI: JOHN GILLING

... er eina uppvakningamynd Hammer-

kvikmyndafyrirtækisins (ef Frankenstein-

myndirnar eru ekki taldar með). Öll helstu

einkennismerki Hammer eru áberandi í

sviðsetningunni á þessari nítjándu aldar

vúdú-sögu: gotneskur fílingur, gamaldags

mystería og skærrautt fl jótandi blóð.

20:00 I WALKED WITH A ZOMBIEBANDARÍKIN/1942/69 MÍN. LEIKSTJÓRI: JACQUES TOURNEUR

... er blendingur

af þráðum úr

skáldsögunni Jane

Eyre eftir Brontë og

hryllingssögu um

vúdú-töfra í Karíba-

hafi nu. Uppvakn-

ingarnir eru ekki í

stóru hlutverki, en

myndin heldur uppi

einstakri stemningu

dulúðar og tvíræðni,

þar sem áhorfandinn verður sjálfur að

gera upp við sig hvort um yfi rnáttúrulega

atburði sé að ræða eða ekki.

22:00 ZOMBI 2 (ZOMBIE FLESH EATERS)ÍTALÍA/1979/91 MÍN.

LEIKSTJÓRI: LUCIO

FULCI

... er tryllt subbuhátíð

sem er fræg fyrir að

hafa verið klippt og

ritskoðuð af krafti á sínum tíma og er

ein þekktasta og alræmdasta mynd

hryllingsmeistarans Lucio Fulci. Líklega

á þessi blóðuga epík fyrst og fremst

erindi til áhugafólks um splattermyndir,

en engu að síður er hún merkileg í sögu

hryllingsmynda almennt sem ákveðinn

hápunktur ítölsku uppvakningabylgjun-

nar. Þar að auki mun þetta vera eina

kvikmynd sögunnar þar sem hægt er að

sjá uppvakning éta hákarl.

Malneirophrenia leikur kammer-

pönk á píanó, selló og bassa og hefur

haldið nokkra kvikmyndatónleika

áður, m.a. í samstarfi við RIFF. Sveitin

gaf út sína fyrstu plötu, M, fyrr á

árinu, þar sem fi nna má 10 frumsam-

dar tónsmíðar innblásnar af klassík,

rokki og kvikmyndatónlist.

Page 18: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

18 VIÐBURÐIR

KínverskirKVIKMYNDADAGAR

28. OKTÓBER TIL 6. NÓVEMBER

Átta nýjar myndir frá Kína, þar á meðal nýjustu verk meistaranna Zhang Yimou og Chen Kaige

Page 19: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

VIÐBURÐIR 19

____________________________________________________________________

OPNUNARMYND:

SACRIFICEZhao shi gu er / Chen Kaige, 2010 / 127 mín.

Hið persónudrifna hefndardrama Kaige, með stórstjörnunni Ge You, sló í

gegn í Kína. Myndin gerist í fjarlægri fortíð. Hershöfðinginn Tuan slátrar hinni

voldugu Zhao fjölskyldu en einn meðlimur hennar sleppur, nýfætt sveinbarn

sem læknirinn Cheng Ying (Ge You) tekur að sér. Cheng þyrstir í hefnd og

í fyllingu tímans kemur hann drengnum fyrir í þjónustu Tuans með það fyrir

augum að koma hershöfðingjanum illa fyrir kattarnef. En góð ráð eru dýr

þegar ætterni piltsins uppgötvast...

____________________________________________________________________

FOREVER ENTHRALLEDMei Lanfang / Chen Kaige, 2008 / 145 mín.

Kaige, sem ekki hafði sent frá sér mynd síðan Farewell My Concubine 1993,

sneri aftur með þessari sannsögulegu mynd um óperustjörnuna Mei Lanfang

sem náði mikilli frægð fyrir túlkun sína á kvenpersónum - þrátt fyrir að vera

karlkyns. Myndin fylgir Lanfang frá byrjun ferilsins um tíu ára aldurinn geg-

num stormasama ævi hans.

____________________________________________________________________

UNDER THE HAWTHORNE TREEShanzha shu zhi lian / Zhang Yimou, 2010 / 115 mín.

Hin áferðarfallega og næmlega gerða ástarsaga Yimou (Hero, House of

Flying Daggers) gerist í menningarbyltingunni. Stúlkan Jing er send útá land

í "endurhæfi ngarbúðir" en faðir hennar hefur verið fangelsaður fyrir tilraun til

gagnbyltingar. Jing gerir sér grein fyrir því að framtíð fjölskyldunnar veltur á

vilja hennar til að láta umsnúa sér. Þegar hún verður ástfangin af Sun, syni

háttsetts foringja á staðnum, verða þau að leyna sambandi sínu.

____________________________________________________________________

Kínverskur kvikmyndaiðnaður hefur vaxið gríðarlega hratt á undanförnum árum og spannar nú allt frá ódýrum sjálfstæðum myndum til stórra verk-efna sem oft eru unnin í samvinnu við erlenda aðila. Kínverskir kvikmynda-dagar í Bíó Paradís taka púlsinn á stöðunni í kvikmyndagerð þessa merka lands og færa þér átta nýjar myndir, þar á meðal frá meisturunum Zhang Yimou og Chen Kaige. Þarna má fi nna drama og kómík, samtíma-sögur og sögulegar stórmyndir; allt forvitnileg verk sem áhugavert er að njóta. Myndirnar eru allar með enskum texta og verður hver mynd sýnd tvisvar (opnunarmyndin þrisvar).

Kínverskir kvikmynda-

dagar eru haldnir

í samvinnu við

Fjölmiðlaskrifstofu Kín-

verska sendiráðsins á

Íslandi (The Press Offi ce

of the Chinese Embassy

in Iceland).

Page 20: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

20 VIÐBURÐIR

Í BRENNIDEPLI / IM FOKUS / IN FOCUS:THE MESSAGEFeng shen / Kuo-fu Chen, Gao Qunshu, 2009 / 118 mín.

Ógnar spennandi njósnaþriller af gamla skólanum. Árið er 1942 og Japanir

haf hernumið Kína. Njósnari á vegum kommúnista hefur náð að koma sér

fyrir í samskiptamiðstöð leppstjórnarinnar í Nanjiing. Stjórnin sendir frá

sér falskar upplýsingar til að leiða njósnarann í gildru og í framhaldinu eru

fi mm menn handteknir og pyntaðir. En tekst Japönum að fi nna hinn rétta

njósnara?

__________________________________________________________________

THE PIANO IN A FACTORYGang de qin / Zhang Meng, 2010 / 105 mín.

Cheng er fyrrum verkamaður í stálverksmiðju en reynir nú að draga fram

lífi ð með spileríi í hljómsveit sinni. Þegar konan hans skilur við hann tilkynnir

dóttir þeirra að hún vilji búa hjá því foreldrinu sem geti skaffað henni píanó.

Chen safnar saman gömlum vinnufélögum og saman freista þeir þess að

smíða píanó í gamalli stálverksmiðju. Fullt af undirfurðulegum húmor, súrr-

ealískum dansatriðum og rússneskum tregasöngvum!

____________________________________________________________________

DEEP IN THE CLOUDSLiu Jie, Cai Ni, 2010 / 93 mín.

Sagan gerist í stórbrotnu landslagi suðvestur Kína og segir af Lisu-ættbálkn-

um. Þessi gullfallega saga lýsir hinu sérstæða sambandi milli þorpsbúanna

og bjarnanna sem búa í nágrenninu, en þorpsbúarnir trúa því að þeir séu

afkomendur bjarndýranna. Inní þetta fl ettast ástarsaga tveggja ungmenna

sem fá ekki að eigast; pilturinn er barnabarn þorpsöldungsins en stúlkan

hefur verið lofuð öðrum.

____________________________________________________________________

IF YOU ARE THE ONE 2Fei cheng wu rao 2 / Xiaogang Feng, 2010 / 130 mín.

Ein vinsælasta myndin í Kína á síðasta ári. Rómantískar kómedíur koma

sjaldnast inná skilnaði og jarðarfarir ólíkt þessari. Auðkýfi ngur um fi mmtugt

(Ge You aftur, sjá einnig Sacrifi ce) á í mestu brösum með kærustu sína, sem

er ung fl ugfreyja (leikinn af annarri stjörnu, Shu Qi).

____________________________________________________________________

BODYGUARDS AND ASSASSINSShi yue wei cheng / Teddy Chen, 2009 / 135 mín.

Myndin, sem hlaut alls átta verðlaun á Hong Kong Film Awards í fyrra, segir

sögu Sun Wen sem barðist gegn hinni spilltu Qing-keisaraætt. Hann kemur

til Hong Kong 1905 til að ráðgast við félaga um byltingaraðgerðir, en er sýnt

banatilræði við komuna þangað. Upphefst síðan hinn æsilegasti leikur þar

sem þekktar asískar slagsmálastjörnur fara á kostum í bardagasenum og

hverskyns vopnfi mi.

Page 21: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

FASTIR LIÐIR 21

Það er aldrei dauður punktur í Bíó Paradís. Auk almennra sýninga og hverskyns viðburða eru í hverjum mánuði fastir liðir þar sem margskonar blóm spretta!

FASTIR LIÐIR:

KÚRÍÓSUR PÁLS ÓSKARSFJÓRÐA SUNNUDAG HVERS MÁNAÐAR (nema annað sé tekið fram)

Páll Óskar Hjálmtýsson kemur

mánaðarlega í Bíó Paradís frá og

með októbermánuði og sýnir for-

vitnilegt efni úr sarpi sínum ásamt

því að kynna efnið úr garði. Í okt-

óber sýnir hann okkur safn sprell-

fjörugra teiknimynda úr sarpi Tex Avery!

SÝNING: 23. OKTÓBER KL. 20

SPURT REYNOLDS!ÞRIÐJA FIMMTUDAG HVERS MÁNAÐAR

Haukur Viðar Alfreðsson kvikmynda-

rýnir hefur umsjón með hinni æsi-

spennandi kvikmyndaspurninga-

keppni í vetur. Tilboð á barnum og

dúndurstemmning!

DAGS.: 15. SEPTEMBER 2011

DAGS.: 20. OKTÓBER 2011

KINO-KLÚBBURINNANNAN SUNNUDAG HVERS MÁNAÐAR

Kinoklúbburinn er hluti af Kino-

smiðjunni. Spanna sýningarnar

vítt svið kvikmyndalistarinnar ,

hvort sem það eru stuttmyndir eða

myndir í fullri lengd. Heimildamyndir

– hreyfi myndir – kvikmyndadag-

bækur – framúrstefnu- og listrænar

kvikmyndir eru dæmi um tegundir

mynda sem sýndar eru en oftast

nær er ákveðið yrkisefni og/eða

kvikmyndagerðarmaður í brennidepli

á sýningarkvöldunum.

L'ABOMINABLE: 16mm kvikmyndir

frá systursmiðju Kinosmiðju í París.

SÝNING: 18. SEPTEMBER 2011

MILLENIUM FILM: 16mm

kvikmyndir frá New York City.

SÝNING: 16. OKTÓBER 2011

Page 22: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

22 FASTIR LIÐIR

ARNARHREIÐRIÐÞRIÐJA MIÐVIKUDAG HVERS MÁNAÐAR

Hverskyns költmyndir, innlendar

sem erlendar.

MAGNÚS: Þráinn Bertelsson leik-

stjóri verður viðstaddur sýningu og

ræðir við gesti á eftir.

SÝNING: 21. SEPTEMBER 2011

ZOO : A ZED AND TWO NOUGHTS: Mynd eftir Peter

Greenaway.

SÝNING: 19. OKTÓBER 2011

DEUS EX CINEMAFYRSTA SUNNUDAG HVERS MÁNAÐAR (nema annað sé tekið fram)

Rannsóknarhópurinn Deus ex

cinema (DEC) skoðar trúarstef í

kvikmyndum. Mynd mánaðarins er

fylgt úr hlaði með stuttri innlýsingu

og á eftir er gert ráð fyrir umræðum

með þátttöku gesta.

EFTER BRYLLUPET: Drama eftir

Susanne Bier. Jakob hefur helgað

líf sitt því að hjálpa götubörnum á

Indlandi. Reksturinn á barnaheimi-

linu gengur þó ekki sem best og

hætta á að því verði lokað. Þegar

fokið virðist í fl est skjól berst honum

óvenjulegt tilboð.

SÝNING: 4. SEPTEMBER 2011

PAHAA MA: Drama eftir Aki Louhi-

mies. Keðjuverkun og stigmögnun

ofbeldis í mannlegum samskiptum

er fylgt eftir í þessari biksvörtu og

dramatísku fi nnsku kvikmynd.

SÝNING: 9. OKTÓBER 2011

ÞÖGLAR MYNDIRFJÓRÐA MÁNUDAG HVERS MÁNAÐAR (nema annað sé tekið fram)

Valin verk frá tímabili þöglu mynd-

anna. Umsjón hefur Oddný Sen

kvikmyndafræðingur. Stutt innlýsing

á undan hverri mynd.

DAS KABINETT DES DR. KALIGARI: Robert Wiene, 1920.

Ein af frægustu kvikmyndum þögla

tímabilsins og frumherjaverk

á margan hátt.

SÝNING: 19. SEPTEMBER 2011

FAUST: F.W. Murnau, 1926. Myndin

hefst með veðmáli á milli Mephisto

og engils þar sem Mephisto veðjar

að hann geti eyðilagt sál roskins

gullgerðarmanns að nafni Fást.

SÝNING: 31. OKTÓBER 2011

ZARDOZANNAN FÖSTUDAG HVERS MÁNAÐAR (nema annað sé tekið fram)

Sci-fi klúbburinn Zardoz sýnir

hverskyns vísindamyndir líkt og

nafnið gefur til kynna. Umsjón hefur

Haukur Viðar Alfreðsson.

Nánar auglýst síðar.

SÝNING: 9. SEPTEMBER 2011

ALIEN: Ridley Scott, 1979. Áhöfn

geimskips lendir í rimmu við mann-

ýga geimveru.

SÝNING: 14. OKTÓBER 2011

Page 23: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011

SÝNINGARSKRÁ 23

Í BRENNIDEPLI / IM FOKUS / IN FOCUS:SÝNINGARSKRÁLISTI Í TÍMARÖÐ YFIR ÞÆR MYNDIR SEM SÝNDAR ERU Í SEPTEMBER OG OKTÓBER. BIRT MEÐ FYRIRVARA UM BREYTINGAR. SÝNINGARTÍMA DAGSINS OG VIKUNNAR MÁ SJÁ Á BIOPARADIS.IS.

KVIKMYND DAGSKRÁ SÝNDEfter bryllupet Deus Ex Cinema 4. september

Dansmyndahátíð Rvik Dance Festival 5.-10. sept.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs Viðburður 7.-11. sept.

Ge9n Nýjar myndir Frá 9. sept.

Nánar auglýst síðar Zardoz 9. september

Spurt Reynolds Viðburður 15. september

Jón og séra Jón Nýjar myndir Frá 16. sept.

Heimsókn Crispin Glover Viðburður 16.-17. sept.

Úkraína kemur til þín Viðburður 17.-19. sept.

L'abominable Kino-klúbburinn 18. september

Das Kabinett des Dr. Kaligari Þöglar myndir 19. september

Magnús Arnarhreiðrið 21. september

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík RIFF 22. sep.- 2. okt.

Masterclass með Rúnari Rúnarssyni Viðburður 6. október

Fando y Lis Mánuður meistarans 7.-9. október

Carlos Nýjar myndir Frá 7. október

Pahaa ma Deus Ex Cinema 9. október

Iceland Airwaves dagar Viðburður 12.-16. október

Midnight in Paris Nýjar myndir Frá 14. október

Paradox Nýjar myndir Frá 14. október

Alien Zardoz 14. október

El Topo Mánuður meistarans 14.-16. október

Stefnumót við franskar kvikmyndir Alliance Francaise 14.-16. október

Millenium Film Kino-klúbburinn 16. október

Zoo: A Zed and Two Noughts Arnarhreiðrið 19. október

Spurt Reynolds Viðburður 20. október

Superclásico Nýjar myndir Frá 21. október

Iceland Volcano Eruption/Into the Volcano Nýjar myndir Frá 21. október

Holy Mountain Mánuður meistarans 21.-23. október

Stefnumót við franskar kvikmyndir Alliance Francaise 21.-23. október

I am Slave Nýjar myndir Frá 28. október

Santa Sangre Mánuður meistarans 28.-30. október

Kínverskir kvikmyndadagar Viðburður 28. okt.-6. nóv.

Uppvakningahátíð Viðburður 29.-30. október

Faust Þöglar myndir 31. október

Page 24: Bíó Paradís dagskrárblað sept.-okt. 2011