18
Byggingarreglugerð 2012

Byggingarreglugerð 2012

  • Upload
    dillan

  • View
    94

  • Download
    0

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Byggingarreglugerð 2012. 8. hluti Burðarþol og stöðugleiki. 8.1 Markmið og almennar kröfur 8.2 Burðarvirki 8.3 Sement og steinsteypa 8.4 Stál og ál 8.5 Timbur og gler. 8. hluti Burðarþol og stöðugleiki. Erindisbréf ráðherra Áhersla á að skapa örugg skilyrði fyrir börn - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Byggingarreglugerð 2012

Byggingarreglugerð 2012

Page 2: Byggingarreglugerð 2012

8. hlutiBurðarþol og stöðugleiki

8.1 Markmið og almennar kröfur8.2 Burðarvirki8.3 Sement og steinsteypa8.4 Stál og ál8.5 Timbur og gler

Page 3: Byggingarreglugerð 2012

8. hlutiBurðarþol og stöðugleiki

• Erindisbréf ráðherra– Áhersla á að skapa örugg skilyrði fyrir börn

• Grunnkrafa í lögum um mannvirki

Page 4: Byggingarreglugerð 2012

8. hlutiBurðarþol og stöðugleiki

• 8.1 Markmið og almennar kröfur

- Hús og önnur mannvirki skulu ávallt gerð úr haldgóðum byggingarefnum, þola íslenskt veðurfar og þá áraun sem ætla má að þau verði fyrir. Burðarvirki mannvirkis skal vera fullnægjandi að gerð, þannig að mannvirkið sjálft eða einstakir berandi hlutar þess hvorki sígi óeðlilega né hrynji og komið sé í veg fyrir að formbreytingar verði umfram heimil mörk.

Page 5: Byggingarreglugerð 2012

8. hlutiBurðarþol og stöðugleiki

• 8.1 Markmið og almennar kröfur – frh.– Tryggja skal fullnægjandi stöðugleika allra þátta

mannvirkja á byggingartíma og koma skal í veg fyrir möguleg skaðleg áhrif á mannvirki af völdum veðurs.

– Skilgreint er hvernig og hvenær hönnuðum ber að staðfesta fullnægjandi burðarþol eldri bygginga þegar gerðar eru breytingar á þeim eða starfsemi innan þeirra breytt.

Page 6: Byggingarreglugerð 2012

8. hlutiBurðarþol og stöðugleiki

• 8.2 Burðarvirki– Tilvísun er í evrópska þolhönnunarstaðla

(Eurocodes) og íslenska þjóðarviðauka við þá.– Ítarlegri kröfur til festinga, m.a. fjallað um efnisval og

hættu á tæringu.– Formbreytingakröfur – ítarlegri ákvæði auk

smávægilegra breytinga.– Hegðun bygginga vegna titrings á að vera

ásættanleg með þægindi notenda í huga.– Slagregnsprófun glugga til að tryggja að þeir henti

við íslenskar aðstæður.

Page 7: Byggingarreglugerð 2012

8. hlutiBurðarþol og stöðugleiki

• 8.3 Sement og steinsteypa– Alkalívirkni steinefna, tekin upp tilvísun til RILEM

prófunaraðferða auk ASTM staðla.– Frostþol steinsteypu, tekin upp tilvísun í sænskan

staðal.– Heimild steypustöðvar til framleiðslu á steinsteypu til

notkunar í mannvirkjum er háð því að viðkomandi rekstraraðili hafi jákvæða umsögn óháðrar rannsóknarstofu, sem Mannvirkjastofnun viðurkennir, um að starfsemi og framleiðsla stöðvarinnar uppfylli ákvæði reglugerðar þessarar og viðeigandi staðla.

Page 8: Byggingarreglugerð 2012

8. hlutiBurðarþol og stöðugleiki

• 8.3 Sement og steinsteypa – frh.– Leyfisveitandi skal gæta þess að jákvæð umsögn

um steypustöð liggi fyrir vegna mannvirkjagerðar í hans umdæmi.

– Ef steinsteypa uppfyllir ekki kröfur gæðamats skal leyfisveitandi banna notkun hennar uns úr hefur verið bætt og tilkynna það til Mannvirkjastofnunar.

Page 9: Byggingarreglugerð 2012

8. hlutiBurðarþol og stöðugleiki

• 8.4 Stál og ál– Áhersla á tæringarvarnir.

• 8.5 Timbur og gler– Gagnvörn timburs, vísað til staðals og kerfis

Norræna timburverndarráðsins.– Nýjar kröfur vegna glers, m.a. vísað í norskan

staðal og nýútgefin rb-blöð um glerþykktir og val glergerða við mismunandi aðstæður.

Page 10: Byggingarreglugerð 2012

11. hlutiHljóðvist

• Erindisbréf ráðherra– Bætt hljóðvist m.a. í umhverfi barna– Áhersla á að skapa örugg skilyrði fyrir börn

• Grunnkrafa í lögum um mannvirki

11.1 Varnir gegn hávaða

Page 11: Byggingarreglugerð 2012

11. hlutiHljóðvist

• Kröfustig aukið og kröfur gerðar skýrari með því að taka upp viðmið við staðal (ÍST 45). Þar með eru kröfur til hljóðvistar í húsum á Íslandi orðnar sambærilegar þeim kröfum sem almennt gilda á Norðurlöndum.

• 11.1 Varnir gegn hávaða– Byggingar og önnur mannvirki skulu þannig hönnuð og

byggð að heilsu og innra umhverfi sé ekki spillt af völdum hávaða og óþægindum af hans völdum sé haldið í lágmarki. Hávaði sem fólk í mannvirki eða næsta nágrenni skynjar skal vera viðunandi og ekki hærri en svo að það geti sofið, hvílst og starfað við eðlileg skilyrði.

Page 12: Byggingarreglugerð 2012

11. hlutiHljóðvist

• 11.1 Varnir gegn hávaða – frh.– Þess skal gætt sérstaklega að hljóðvist sé góð í umhverfi

barna, s.s. í leikskólum, grunnskólum, frístundaheimilum og öðrum stöðum þar sem börn dvelja. Jafnframt skal gæta sérstaklega að hljóðvist m.h.a. þörfum heyrnarskertra.

– Byggingar skulu þannig hannaðar að óþægindi vegna hávaða innan rýma, frá aðliggjandi rýmum, lögnum, tæknibúnaði og umferð séu takmörkuð. Þessar kröfur

skulu uppfylltar í samræmi við fyrirhugaða notkun. – Ákvæði um staðfestingu á fullnægjandi hljóðvist vegna

breytinga á þegar byggðum mannvirkjum.

Page 13: Byggingarreglugerð 2012

13. hlutiOrkusparnaður og hitaeinangrun

13.1 Almennt um orkusparnað13.2 Heildarorkuþörf, ákvörðun U-gilda

og heildarleiðnitap13.3 Mesta leiðnitap byggingarhluta13.4 Raka- og vindvarnir13.5 Loftþéttleiki húsa

Page 14: Byggingarreglugerð 2012

13. hlutiOrkusparnaður og hitaeinangrun

• Markmiðsákvæði laganna– Að stuðla að vernd umhverfis með því að hafa

sjálfbæra þróun að leiðarljósi við hönnun og gerð mannvirkja

– Að stuðla að góðri orkunýtingu við rekstur bygginga

• Grunnkrafa í lögum um mannvirki

Page 15: Byggingarreglugerð 2012

13. hlutiOrkusparnaður og hitaeinangrun

• Kröfur um einangrun eru auknar með orkusparnað og vistvænni byggingar í huga. Í þessum áfanga færum við okkur nær norrænum kröfum, en kröfur reglugerðarinnar eru þó ennþá talsvert vægari en þær norrænu.

• 13.1 Almennt um orkusparnað– Við ákvörðun einangrunar í mannvirkjum ber að

tryggja hollustu og þægindi innan mannvirkja jafnframt því að orkunýting sé hagkvæm og náttúruauðlindir nýttar á sjálfbæran hátt.

Page 16: Byggingarreglugerð 2012

13. hlutiOrkusparnaður og hitaeinangrun

• 13.2 Heildarorkuþörf, ákvörðun U-gilda og heildarleiðnitap

– Heildarorkuþörf byggingar skal ákvarðast að teknu tilliti til heildarleiðnitaps, loftskipta byggingar og lofthita úti og inni.

– Útreikningur U-gilda byggingarhluta skal gerður í samræmi við ÍST EN ISO 6946 og ÍST 66.

– Heildarleiðnitap skal reiknað fyrir allar nýbyggingar.

Page 17: Byggingarreglugerð 2012

13. hlutiOrkusparnaður og hitaeinangrun

• 13.3 Mesta leiðnitap byggingarhluta– Kröfur eiga annars vegar við um nýbyggingar og viðbyggingar

og hins vegar um viðhald mannvirkja.– Heimilt er að U-gildi einstakra byggingarhluta í nýbyggingum sé

allt að 20% hærri en fram kemur í reglugerðinni, en þá skal auka einangrunarþykktir annarra byggingarhluta tilsvarandi til að heildarleiðnitap byggingarinnar hækki ekki.

– Á svæðum þar sem orkukostnaður vegna húshitunar er hár á íslenskan mælikvarða er mælt með að leiðnitap nýbygginga sé a.m.k.10% lægra en reglugerðin kveður á um. Við viðhald og endurnýjun byggingarhluta á þessum svæðum er mælt með að U-gildi fyrir þak, útveggi og gólf taki mið af kröfum til nýbygginga.

Page 18: Byggingarreglugerð 2012

13. hlutiOrkusparnaður og hitaeinangrun

• 13.4 Raka- og vindvarnir– Við hönnun og útfærslu á einangrun húsa skal

þess gætt að raka- og vindvarnir séu fullnægjandi svo raki og lofthreyfing hafi ekki óæskileg áhrif á einangrunargildi byggingarhluta og ekki geti orðið uppsöfnun raka í byggingarhlutanum.

• 13.5 Loftþéttleiki húsa– Tryggja skal að hús séu nægjanlega loftþétt til að

koma í veg fyrir orkutap og að dragsúgur valdi ekki óþægindum.