12
Costa Dorada Velkomin til

Costa Dorada

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Handbók Ferðaskrifstofu Íslands um Costa Dorada.

Citation preview

Page 1: Costa Dorada

Costa Dorada

Velkomin til

Page 2: Costa Dorada

Velkomin til Spánar

Úrval-Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir bjóða farþega sína velkomna til Costa Dorada á Spáni. Fararstjóri verður ykkur innan handar á meðan ferð stendur. Viðtalstímar eru á gististöðum okkar einu sinni í viku. Hikið ekki við að hafa samband á viðtalstímunum, en þeir eru nánar auglýstir í upplýsingamöppum á hótelum. Við hvetjum alla til að fylgjast vel með upplýsingamöppunum því þar eru allar tilkynningar settar sem varða ferðir og önnur atriði sem farþegar þurfa að vita.Í upplýsingamöppunni má einnig finna þjónustu- og neyðarsímanúmer fararstjóra. Lýsingar á skoðunarferðum og hagnýtar upplýsingar er einnig að finna í upplýsingamöppunum.

Við vonum að dvölin verði ánægjuleg og uppfylli væntingar ykkar.

COSTA DORADA Costa Dorada er einstaklega fallegt svæði við Miðjarðarhafið. Landslagið er fjölbreytt með langar, gullnar og breiðar strandlengjur. Lítil þorp og bæir einkenna svæðið en saga, menning og falleg náttúra skipa þar einnig stóran sess. Helstu svæðin á Costa Dorada eru bæirnir Tarragona, Reus Salou, Cambrils og La Pineda. Costa Dorada ströndin er oft nefnd „ Gyllta ströndin“ sem liggur við Miðjarðarhafið.

SALOUSalou er eitt vinsælasta ferðamannasvæðið á Costa Dorada svæðinu, með yfir tvær milljónir ferðamanna á ári. Salou er sérstaklega vinsæll sumarleyfisstaður fyrir fjölskyldur enda aðstaðan frábær og nóg af afþreyingu í boði fyrir alla aldurshópa. Íbúar Salou eru um 27.000 talsins. Salou er fallegur strandbær og spannar saga bæjarins aftur til 13. aldar. Sögulegar minjar og byggingar eru á svæðinu allt frá 18. öld. Má þar nefna Catedral de Santa María de

Tarragona sem var byggð árið 1766. Salou hefur stækkað mikið með tilkomu ferðamannaþjónustunnar og í bænum blandast saman sögulega klassískar byggingar við nútímalegri byggingar.Í Salou er fjöldi góðra veitingahúsa og einna helst ráða þar ríkjum hefðbundnir spænskir réttir eins og paella og tapas. Glæsilegt úrval er af sjávarréttastöðum sem bjóða upp á ferskan fisk og sjávarföng.

CAMBRILS Cambrils er strandbær í Tarragona héraðinu í Katalóníu. Cambrils er næsti bær við Salou og hefur Tarragona svæðið þróast hratt á síðustu tveimur áratugum. Fiskveiði var helsti atvinnuvegur bæjarins en hefur nú vikið fyrir ferðaþjónustu. Mikið af Spánverjum eiga sumarhús í Cambrils sjávarþorpinu en bærinn er einnig mjög vinsæll hjá erlendum ferðamönnum. Ströndin í Cambrils er 9 km af gylltum fínum sandi og er við Miðjarðarhafið.

VEÐURFAR Sérstaklega gott verðurfar er á Costa Dorada svæðinu en meðalhitinn yfir hásumarið á ströndum Costa Dorada er um 25 gráður og skín sólin að meðaltali í 14 klst á sólarhring. Helsti rigningatíminn er í janúar og lok október en meðalúrkoman er 50 mm.

FARARSTJÓRIFararstjóri Úrvals Útsýnar, Sumarferða og Plúsferða verður til aðstoðar á meðan ferðinni stendur. Hann er enskumælandi og kemur til með að þjónusta farþega á Costa Dorada.

VIÐTALSTÍMAR Upplýsingar um viðtalstíma fararstjóra er að finna í upplýsingamöppu Sumarferða á gististöðum. Í viðtalstímum getið þið fengið upplýsingar um ýmis atriði sem gætu gert dvöl ykkar ánægjulegri og bókað ykkur í skoðunarferðir.

2

COSTA DORADA

Page 3: Costa Dorada

ÞJÓNUSTUSÍMI Þjónustusími er opinn mánud-föstud. Í þjónustusímanum er hægt að bóka bílaleigubíla, skoðunarferðir og bera fram almenn erindi. Sjá símanúmer í upplýsingamöppu.

NEYÐARSÍMI Eftir kl 17:00 tekur neyðarvakt fararstjóra við þjónustusíma. Í neyðartilfellum er hægt að ná í fararstjóra allan sólarhringinn, alla daga vikunar. ATH þetta númer er aðeins fyrir neyðartilfelli. Sjá símanúmer í upplýsingamöppu.

UPPLÝSINGAMÖPPUR Upplýsingamöppur eru í viðtalsaðstöðu fararstjóra á öllum hótelum. Þar er að finna nánari upplýsingar um þjónustu ferðaskrifstofanna. s.s viðtalstíma, símanúmer þjónustusíma, neyðarsíma og skoðunarferðir. Einnig er að finna lýsingar á skoðunarferðum ásamt frekari upplýsingum um Costa Dorada, matsölustaði, skemmtigarða og margt fleira. Ýmsar

tilkynningar frá fararstjórum eru settar í upplýsingamöppuna. Vinsamlegast fylgist reglulega með möppunni.

BROTTFÖR Daginn fyrir brottför er að finna fremst í upplýsingamöppu nákvæma tíma um brottför rútanna frá hótelum ásamt nánari upplýsingum um ferðatilhögun heimferðar. Innritun á flugvellinum í Barcelona (BCN) hefst 2 klst fyrir flugtak.

Skoðunarferðir

Bókað er í skoðunarferðir í viðtalstíma eða í þjónustusíma. Ferð sem farin er á mánudegi, þarf að bóka fyrir kl 16:00 á föstudegi. Bóka og afbóka þarf ferð með minnst sólarhrings fyrirvara. Barnagjald í skoðunarferðum er mismunandi. Sjá hverja ferð fyrir sig. Vinsamlegast greiðið skoðunarferðina við skráningu hjá fararstjóra. ATH eingögu er

COSTA DORADA

3

Page 4: Costa Dorada

4

COSTA DORADA

Page 5: Costa Dorada

hægt að greiða með evrum og ekki er hægt að greiða með kortum. Rúta kemur og sækir farþega á áður auglýstan stoppi stað og tíma en athugið að mismunandi bið getur orðið eftir rútunni, eftir því hvar rútan hefur ferðina.

GOLF Fyrir þá sem hafa áhuga á að spila golf stendur valið milli 12 mismunandi golfvalla sem eru á svæðinu. Frekari upplýsingar um golf er að finna í hótelmöppunni í gestamóttökunni.

SKEMMTIGARÐAR Í Costa Dorada er fjölskyldu- og skemmtigarðurinn Port Aventura, einn glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Þar er fjöldinn allur af leiktækjum, stórir rússíbanar, vatnsrennibrautir, leiktæki fyrir börn og fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa. Auðveldlega er hægt að eyða heilum degi og jafnvel fleirum í þessum frábæra skemmtigarði.Vatnsrennibrautagarðurinn Aqoapolis er í næsta bæ, Tarragona, sem er í um 5 mínútna akstursfjarlægð frá Salou. Aqoapolis er með margar gerðir af vatnsrennibrautum, leiktækjum og einnig er þar sædýrasafn sem er m.a. daglega með höfrungasýningar.

Almennar upplýsingar

APÓTEK Apótek heita Farmacia á spænsku og eru merkt með grænum krossi. Þau eru almennt opin alla virka daga frá 09:00-13:00 og frá 16:00-20:00. Eitt apótek er ávallt opið allan sólahringinn en það breytist vikulega. Leigubílstjórar vita yfirleitt hvaða apótek er á vakt hverju sinni, sem og starfsfólk í hótelmóttöku.

BANKAR/ HRAÐBANKAR Bankar eru opnir alla virka daga frá 08:15-14:00. Lokað er á laugardögum og sunnudögum og almennum hátíðisdögum. Í nágrenni allra hótela eru hraðbankar og inni á mörgum hótelum. Spyrjið gestamóttöku um næsta hraðbanka. Ef kort týnist eða því stolið verður að loka því umsvifalaust. Neyðarsími Vísa á Íslandi er 00 354 525 2000 og Mastercard 00 354 533 1400.

GJALDMIÐILLEvra / Euro

HÓTELREGLUR Á öllum gististöðum eru reglur um umgengni. Ætlast er til að ró sé komin á fyrir miðnætti. Ekki er leyfilegt að halda veislur/party innandyra á Spáni. Vinsamlega kynnið ykkur reglur þess gististaðar sem þið dveljið á. Virðið þær og sýnið öðrum tillitsemi.

HÚSBÚNAÐUR Hverri íbúð fylgir ákveðið magn af eldunaráhöldum og borðbúnaði miðað við fjölda manns í gistingunni. Ef eitthvað vantar uppá er hægt að tala við gestamóttöku. Uppþvottabursti og uppþvottalögur fylgir venjulega ekki íbúðum af hreinlætisástæðum.

LEIGUBÍLAR Leigubílastöðvar eru víða við hótelin. Grænt ljós logar á leigubílunum ef þeir eru lausir. Salou: 00 34 977 38 31 04Cambrils: 00 34 977 36 26 22

LÆKNAÞJÓNUSTAEf þörf er á læknisaðstoð er hægt að hafa samband í neðangreind númer. Eins mun fararstjóri hafa upplýsingar um lækna, spítala og hvaða apótek eru opin allan sólarhringinn.Salou: 00 34 977 38 31 04Cambrils: 00 34 977 36 26 22La Pineda: 00 34 977 39 40 27

COSTA DORADA

5

Page 6: Costa Dorada

RAFMAGN Er 220-240 volt. Hægt er að nota öll algengustu rafmagnstæki hér eins og heima á Íslandi.

MAGAVEIKI Með breyttu mataræði, sól og hita gera meltingartruflanir oft vart við sig. Margir verða fyrir því að fá í magann og vilja gjarnan kenna matnum um. Í fæstum tilfellum er um matareitrun að ræða heldur er breyttu loftslagi, mataræði og köldum drykkjum um að kenna. Varist að drekka of kalda drykki í sólinni og sleppið ísmolum. Fortasec og Immodium eru góðar töflur við niðurgangi en ef þið eruð veik í meira en 2 daga er æskilegt að leita læknis.

SJÓBÖÐ Á flestum ströndum eru ákveðnar öryggisreglur. Þegar rauður fáni er við hún má alls ekki synda í sjónum, með gulan fána skal sýna varúð, en grænn fáni þýðir að óhætt er að taka sundsprett.

SÓLBÖÐ – BRUNI Fara þarf varlega í sólböðin, sérstaklega fyrstu dagana meðan húðin er að venjast sólinni. Best er að vera ekki lengi í sólbaði til að byrja með og lengja tímann smátt og smátt. Notið sterka sólarvörn í byrjun og munið að huga sérstaklega að börnunum. Þótt sólarvörnin sé vatnsheld þarf samt að bera hana á eftir tíð vatns-eða sjóböð. Höfuðföt eru nauðsynleg í sólinni og sérstaklega fyrir börnin. Gott er að hvíla sig á sólböðum yfir heitasta tímann frá 12.00-15.00. Athugið að drekka mikið vatn.Gott er að bera Aloe Vera gel eða hreina jógúrt á sólbruna. Ef um meiriháttar bruna er að ræða þarf að hafa samband við lækni.

ORÐABELGURJá SiNei NoHalló HolaGóðan dag ( morgun) Buenos díasGott kvöld Buenas noches

Góða nótt Buenas noches /Hasta mananaBless AdíosHvernig hefurðu það? Como éstas?Gott BuenoTakk GraciasAfsakið PerdónViltu vera svo góður! Por favor Allt í lagi Todo bienVatn AguaKaffi CaféMjólk LecheTe TéGull OroSilfur PlataLeður CueroHvað kostar þetta? Cuanto vale ?Lokað CerradoOpið AbiertoBréf CartaFrímerki SelloApótek FarmaciaBanki BancoHvað er klukkan? Qué hora es ?Hvenær? Cuando ?Flugvöllur AeropuertoStrætisvagn Autobus / Gua-guaVinstri IzquierdaHægri DerechaBeint áfram RectoEpli ManzanaAppelsína NaranjaBanani PlátanoJarðaber FresasTómatar TomatesAgúrka Pepino Súpa SopaKjúklingur PolloFiskur PescadoKjöt Carne

TÖLUORÐ:1 Uno2 Dos3 Tres4 Quatro5 Cinco

6

COSTA DORADA

Page 7: Costa Dorada
Page 8: Costa Dorada

8

COSTA DORADA

Page 9: Costa Dorada

6 Seis7 Siete8 Ocho9 Nueve10 Diez

VIKUDAGARNIRMánudagur LunesÞriðjudagur MartesMiðvikudagur MiercolesFimmtudagur JuevesFöstudagur ViernesLaugardagur SabadoSunnudagur Domingo

KAFFICafé solo- Sterkt expresso kaffi.Café cortado- Espresso kaffi með örlítilli mjólk. Café con leche- Espresso kaffi með mikilli mjólk.Café americano- Líkist mest kaffinu heima. Carajillo- Espresso kaffi með brandy eða baileys út í. Bon Bon/Leche y leche - Espresso kaffi með niðursoðinni mjólk. Barraquido- Espresso kaffi með niðursoðinni mjólk ásamt líkjör 43.

TÖLVUR OG INTERNETNær öll hótelin bjóða uppá internetaðgang gegn vægu eða engu gjaldi. Í anddyrum margra hótela er hægt að vera í þráðlausu netsambandi með eigin fartölvu. Á mörgum hótelum er hægt að komast á internetið í gegnum sjónvarpið á hótelherbergjum og þarf þá að fá lyklaborð í gestamóttöku. Hægt er að komast á internetið í fjölmörgum leikja/spilasölum út um allan bæ.

VATNVatnið hér er drykkjarhæft og óhætt til matreiðslu en ekkert sérstaklega gott á bragðið og mælum við með að fólk kaupi sér vatn í matvöruverslunum til drykkjar. Drykkjarvatnið fæst í öllum

matvöruverslunum og oftast er selt vatn út af veitingastöðum. Vatnið heitir á spænsku: “Agua mineral natural”/ “Agua manantial”. Athugið að auka þarf daglega vatnsdrykkju þegar komið er til sólarlanda.

VERSLANIRÍ Salou er nóg af verslunum og eru helstu verslanir að finna við meðfram strandlengjunni og þaðan út frá hliðargötum. Einnig er fjöldi verslana í gamla miðbænum og á mánudögum er yfirleitt útimarkaður þar. Næsta verslunarmiðstöð er Port Halley en hún er staðsett rétt við Port Aventura skemmtigarðinn. Einnig er stutt að fara til Barcelona.

ÞJÓFNAÐURVarist að hafa peningaveski í rass-eða brjóstvösum. Hengið ekki handtöskur á stólbak eða leggið þær frá ykkur. Forðist einnig að skilja verðmæti eftir í bíl sem þið eruð með á leigu. Takið ekki með ykkur verðmæti á ströndina og passið eigur ykkar alltaf vel. Geymið PIN númer kredit-eða debetkorta aldrei á sama stað og kortin. Mælt er með því að hótelgestir leigi öryggishólf og geymi öll verðmæti og vegabréf í þeim.

ÞJÓRFÉÞað er siður á Spáni að gefa þjórfé, ef gestir eru ánægðir með þjónustuna. Ef þið eruð ánægð með þjónustu á veitingastöðum er til siðs að gefa 5-7% í þjórfé. Herbergisþernum er ágætt að gefa 5 € á viku. Rútubílstjórum er ágætt að gefa 1-2 € fyrir heilsdagsferð.

ÞORSTINauðsynlegt er að drekka meira en maður gerir alla jafna heima á Íslandi vegna útgufunar vatns vegna hitans. Vatn svalar þorstanum best. Góð regla er að vera alltaf með vatnsflösku í töskunni og sérstaklega er nauðsynlegt að passa upp á börnin.

COSTA DORADA

9

Page 10: Costa Dorada

Rjómaís og ávaxtaklakar svala ekki þorstanum, heldur auka hann. Maginn fær létt sjokk þegar ískaldir drykkir koma í líkama sem er gegnheitur af sólböðum. Íbúar í suðurálfu nota heita drykki, kaffi eða te, jöfnum höndum til að svala þorstanum. Athugið að áfengir drykkir auka vökvatapið.

ÞRIF Á HÓTELHERBERGJUMRæstingafólk sér um að þrífa borð og gólf, búa um rúm, taka rusl og skipta á sængurfötum og handklæðum, annað er ekki í þeirra verkahring. Ræstingafólk á ekki að taka til í íbúðinni eða að vaska upp. Ef skór, föt eða annað dót er á gólfum er þeim gert erfiðara fyrir með þrifin. Ef drasl á gólfum er yfirgengilega mikið ber þeim engin skylda að þrífa þau.

ÖRYGGISHÓLFHeita CAJA FUERTE á spænsku. Við viljum benda farþegum okkar á að leigja öryggishólf. Tryggingagjald fæst endurgreitt þegar lykli er skilað og kvittun sýnd. Hafið samband við gestamóttöku.

Vonum að þið eigið ánægjulega daga hér á Costa Dorada.Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir.

10

COSTA DORADA

Page 11: Costa Dorada
Page 12: Costa Dorada