Upload
ingimar-arnason
View
218
Download
0
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Ferðaáætlun 2013
Citation preview
Ferðafélag Akureyrar var stofnað 1936. Félagið er sjálf-stæð deild innan Ferðafélags Íslands, sem þýðir að félagsmenn njóta allra sömu réttinda og félagar í F.Í. Ferðafélag Akureyrar býður upp á góða landkynningu og skemmtilegan félagsskap. Ferðir félagsins eru fjölbreyttar, lengri og styttri gönguferðir, jeppaferðir, sjóferðir, fjölskyldu- og skemmtiferðir, náttúruskoðunarferðir og fleira. Allir geta fundið ferðir við sitt hæfi.
Félagið á og rekur sjö skála í óbyggðum á Norðulandi. Gæsla er í stærstu skálunum yfir sumarmánuðina. Nauðsynlegt er að panta gistingu með góðum fyrirvara.
Skrifstofa félagsins er opin í júní, júlí og ágúst milli kl.15 og 18 virka daga. Á öðrum árstímum er opið milli kl.18 og 19 á föstudögum þegar ferðir eru á dagskrá um komandi helgi. Tölvupósti er svarað tvísvar í viku á veturna. Á heimasíðu félagsins er að finna upplýsingar um félagið, skála þess, ferðaáætlun og göngukort þau sem félagið hefur gefið út. Allir eru velkomnir í ferðir félagsins. Félagsmenn fá afslátt af fargjöldum og af gistigjöldum í skálum allra félagsdeilda F.Í. Þessara réttinda nýtur fjölskyldan öll þótt aðeins einn sé skráður félagi.
Nauðsynlegt er að panta tímanlega í lengri ferðir. Í sumarleyfisferðir þarf að greiða staðfestingagjald kr. 8.000við bókun. Fargjald skal greitt að fullu a.m.k. 3 vikum fyrir brottför. Ef ferð er afpöntuð innan viku frá bókun og meira en 2 vikum fyrir brottför, er hún endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu. Ef 7-14 dagar eru til brottfarar fæst helmingur fargjalds endurgreitt, en eftir það er ekki um endurgreiðslu að ræða. Ferðafélagið áskilur sér rétt til að fella niður eða breyta ferðum ef nauðsyn krefur. Félagið tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra og hvetur því fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingu fyrir ferðir.
Léttar og stuttar ferðir:Ætlað öllum.
Miðlungs erfiðar ferðir:Flestir geta tekið þatt hafi þeir réttan útbúnað og líkamlega getu til þess.
Erfiðar ferðir:Einungis fyrir vana ferðamenn sem geta borið með sér allan útbúnað og eru færir um að takast á við ófyrirséðan vanda.
Mjög erfiðar ferðir:Ferðir þar sem fólk ber með sér allan búnað og þarf að takast á við mikin hæðarmun. Aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.
Ferðafélag AkureyrarStrandgötu 23600 Akureyri
Sími: 462 2720Netfang: [email protected]: www.ffa.is
DREKI Í DYNGJUFJÖLLUMFjöldi: 60 mannaÞjónusta:Verð: 3.500 / 5.500Gamli: 2.800 / 4.500GPS: staðsetning 65°02.520 16°35.720
LAUGAFELLFjöldi: 35 mannaÞjónusta:Verð: 3.300 / 5.000 GPS: staðsetning 65°01.630 18°19.950
ÞJÓNUSTUMERKI
SKÁLAR FERÐAFÉLAGS AKUREYRAR
ÞORSTEINSSKÁLIHERÐUBREIÐARLINDIRFjöldi: 30 mannaÞjónusta:Verð: 3.400 / 5.000 GPS: staðsetning 65°11.560 16°13.390
Skálaverðir á sumrin Vatnssalerni
Tjaldsvæði Kamar
Gönguleiðir Rennandi vatn
Eldunaraðstaða Sturta
Neyðarsími
Áætlunarbílar Heit laug
SorpílátBOTNI Í SUÐURÁRBOTNUMFjöldi: 16 mannaÞjónusta:Verð: 3.000 / 4.000GPS: staðsetning 65°16.180 17°04.100
LAMBI Á GLERÁRDALFjöldi: 6 mannaÞjónusta:Verð: 2.500 / 3.500 GPS: staðsetning 65°34.880 18°17.770
DYNGJUFELL Í DYNGJUFJÖLLUMFjöldi: 16 mannaÞjónusta:Verð: 3.000 / 4.300GPS: staðsetning 65°07.480 16°55.280
BRÆÐRAFELL Í ÓDÁÐAHRAUNIFjöldi: 12 mannaÞjónusta:Verð: 2.500 / 3.500 GPS: staðsetning 65°11.310 16°32.290
JAN
ÚA
R -
FEB
RÚ
AR
Við
Suðu
rárb
otna
1. janúar Nýársganga Brottför kl. 11 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Grétar Grímsson Verð: Frítt. Farið út í óvissuna til að fagna nýju ári. Nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins www.ffa.is
2. febrúar Súlumýrar. Skíðaferð Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Anke Maria Steinke Verð: Kr. 500 / kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.Gangan hefst við afleggjarann að Fálkafelli og haldið þaðan upp Sigurðargil og á Súlumýrar. Þar er frábært skíðagöngusvæði og finna má leiðir við allra hæfi.
7. febrúar Ferðakynning 2013 Ferðir ársins kynntar í máli og myndum í Hömrum, litla salnum í Hofi, kl. 20Frímann Guðmundsson, formaður ferðanefndar kynnir.Fyrirlesari: Andri Snær Magnason. Kynning á útivistarvörum frá Horninu, Sportveri og Skíðaþjónustunni.Aðgangseyrir kr. 1.000. Hægt verður að kaupa kaffi og meðlæti á veitingastaðnum í Hofi.
16.-17. febrúar Þorraferð í Botna. SkíðaferðBrottför kl. 10 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Ingvar Teitsson Verð: Kr. 6.900 / kr. 4.900. Innifalið: Gisting og fararstjórn. Ekið að Svartárkoti, gengið þaðan á skíðum í Botna, skála FFA í Suðurárbotnum þar sem snæddur verður þjóðlegur þorramatur um kvöldið í friðsæld öræfanna. Haldið heimleiðis næsta dag. Vegalengd um 15 km hvora leið.
FEB
RÚ
AR
- M
AR
SÁ
Fljó
tshe
iði
23. febrúar Skólavarða. Gönguferð Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Einar Brynjólfsson Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að afleggjara upp með trjálundi í Veigastaðalandi og gengið eftir merktri leið upp heiðina að vörðunni þaðan sem víðsýnt er um Eyjafjörðinn. Vegalengd samtals 6 km. Gönguhækkun 530 m. 2. mars Lambi. Skíðaferð Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: FerðanefndVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Njótið útiveru og dásemda fjallahringsins á útivistar-svæði Akureyringa. Í góðu færi er þetta frekar létt ferð. Gangan hefst við bílastæðið v. Súluveg. Vegalengd samtals 22 km. Gönguhækkun 440 m.
9. mars Ólafsfjörður. Skíðaferð Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Helga Guðnadóttir Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Nánari lýsing: Sjá ferðaáætlun www.ffa.is
16. mars Héðinsfjörður. SkíðaferðBrottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Una Sigurðardóttir Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Ekið á einkabílum í Héðinsfjörð og gengið um fjörðinn eftir því sem aðstæður og vilji leyfa. Saga byggðar og búsetu í þessari fyrrum einangruðu byggð rakin.
MA
RS
- APR
ÍL
Laug
arla
ndsh
eiði
23. mars Engidalur - Einbúi. Skíðaferð Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Ingvar Teitsson Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Ekið inn Bárðardal og að Engidal eða eftir því sem færð leyfir. Þaðan gengið meðfram Kálfborgarárvatni og út heiðar og ása þar til haldið er niður að býlinu Einbúa þar sem farið er í bílana. (Bíll ferjaður að Einbúa). Vegalengd 21 km. Göngulækkun 200 m.
30. mars Hlíðarfjall - Þelamörk. Skíðaferð Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Frímann Guðmundsson Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið frá Skíðastöðum út hlíðina á Sjónarhól. Síðan er þægilegt rennsli niður að Þelamerkurskóla. Farið þar í heita pottinn (ekki innifalið í verði). Þetta er létt ferð við flestra hæfi.
6. apríl Hestur (Hvassafellsfjall). Gönguferð Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Viðar Örn Sigmarsson Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Þátttakendur þurfa að vera vel búnir til vetraferðar með brodda og ísöxi.Gengið er upp norðurhrygg fjallsins frá bænum Miklagarði. Af Hesti er mikið útsýni út Eyjafjörð, um sveitina og til nærliggjandi fjalla. Vegalengd 8 km. Gönguhækkun 1050 m.
APR
ÍLÞe
ngils
höfð
i13. - 14. apríl Klaustur – Þeistareykir – Mývatn. Skíðaferð Brottför kl. 9 á einkabílum, frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Frímann Guðmundsson Verð: Kr. 7.400 / kr. 5.900 Innifalið: Fararstjórn og gisting. Ekið að Klaustri á Mývatnsöræfum austan Námaskarðs og gengið norður að Þeistareykjum og gist þar. Næsta dag er haldið til baka að Mývatni. Þetta er stórkostleg gönguleið og frábært útivistarsvæði sem svíkur engan. Vegalengd um 50 km.
20. apríl Þengilshöfði við Grenivík. Gönguferð Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Stefán Sigurðsson Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Ekið er á einkabílum til Grenivíkur þar sem gangan hefst, og er gengið eftir götuslóðum kring um höfðann. Að lokum er gengin merkt gönguleið frá Skælu upp á höfðann. Vegalengd 10 km. Hækkun 260 m.
27. – 28. apríl Stóratunga – Réttartorfa. Skíðaferð / Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Sjá ferðaáætlun www.ffa.is Verð: Kr. 7.900 / kr. 6.900 Innifalið: Fararstjórn og gisting.Ekið er á einkabílum að Stórutungu og gengið þaðan inn á Réttartorfu þar sem gist verður um nóttina. Daginn eftir verður gengið til baka í Stórutungu. Vegalengd 16 km hvora leið.
MA
ÍG
anga
á S
úlur
1. maí Súlur, 1143 m. / Mæting kl. 9 við bílastæðið á Glerárdal. Fararstjóri: Konráð Gunnarsson Verð: Frítt. Árleg ferð FFA á bæjarfjall Akureyrar. Gengið er eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Af Súlum er afar fallegt útsýni. Ferð við flestra hæfi. 2. maí. Opið hús á vegum ferðanefndar.Ferðakynning í húsnæði FFA, Strandgötu 23 kl. 20. Ferðir sumarsins verða kynntar í máli og myndum. Kynnir: Örn Þór EmilssonFrítt inn meðan húsrúm leyfir. Kaffi og meðlæti í boði félagsins. 4. maí Hrossadalur – Miðvíkurfjall. GönguferðBrottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Einar Brynjólfsson Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið verður fram Hrossadal suður af Víkurskarði og leifar af gamalli rétt skoðaðar. Svo er haldið áfram för að Þórisstaðaskarði og sveigt til norðurs og gengið á Miðvíkurfjall 561 m þaðan sem víðsýnt er um Eyjafjörð. 10. maí Kaldbakur, 1173 m. Skíða- eða gönguferð /Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjórn: Félagar frá 24x24.Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Kaldbakur er ein af perlum Eyjafjarðar með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands. Er talinn vera ein af orkustöðvum Íslands og ferð upp á hann er ógleymanleg lífsreynsla. Þar er stór landmælingavarða hlaðin af dönsku landmælingamönnunum árið 1914. Vegalengd 13 km. Gönguhækkun 1100 m.
MA
ÍM
öðru
valla
rfjal
l18. maí Fuglaskoðunarferð Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjórar: Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen. Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Árleg fuglaskoðunarferð FFA. Sjá nánar www.ffa.is 25. maí Reistarárskarð – Flár, 1000 m, skíðaferð Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Grétar GrímssonVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Ferðin hefst við Freyjulund við Reistará. Þegar komiðer upp í skarðið er stigið á skíðin og sveigt til suðurs og upp á Flár, hábungu fjallsins, þar sem gott útsýni er yfir Þorvaldsdalinn og fjöllin vestan við. Gengið suður eftir fjallinu eins og aðstæður leyfa, síðan haldið til baka norður í skarðið. Vegalengd 18 km, gönguhækkun 950 m.
JÚN
ÍÁ
topp
num
með
FFA
Á toppnum með Ferðafélagi Akureyrar.
Sumarleikurinn frá í fyrra verður endurtekinn í ár og hefst í byrjun júní.
Gerist þaular Eyjafjarðar. Sjá nánar á heimasíðunni www.ffa.is
þegar nær dregur.
1. júní Drangey. Sigling/gönguferð. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjórar: Sverrir Thorstensen og JónMagnússon, ásamt staðkunnugum leiðsögumanni. Verð: Kr. 10.900 / kr. 10.400 Innifalið: Sigling, akstur og fararstjórn.Ekið í Skagafjörð og að Reykjum á Reykjaströnd þaðan sem siglt verður (20 mín.) út í Drangey og gengið upp í eyjuna og hún skoðuð (ekki fyrir loft-hrædda). Auk þess verður siglt umhverfis eyjuna sem er ævintýri líkust. Ekki gleyma sundfötum ef áhugi er fyrir laugarferð. 8. júní Kotagil – Bólugil. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Örn Þór EmilssonVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Kotagil er mikið árgljúfur í Norðurárdal í Skagafirði þar sem lesa má í elsta skeið jarðsögu Skagafjarðar (Tertíer tímabilið) og uppbyggingu fjallanna á Tröllaskaga. Í Bólugili er sagt að skessan Bóla hafi haldið sig í tilkomumiklu gljúfrinu þar er sérkennileg og falleg friðlýst fossaröð.
10. – 14. júní. Gönguvika.
10. júní Gásir. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Örn Þór EmilssonVerð: Kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.Gásir við Eyjafjörð var verslunarstaður á miðöldum um aldir og má sjá þar friðlýstar fornleifar. Gengið um svæðið, rýnt í söguna og ummerki fornrar byggðar skoðuð.
JÚN
ÍKo
tagi
l
JÚN
ÍG
öngu
garp
ur11. júní Bryðjuskál í Staðarbyggðarfjalli. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Konráð Gunnarsson Verð: Kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.
12. júní Harðarvarða á Hlíðarfjalli. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjórn: Félagar frá 24x24Verð: Kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að Skíðastöðum og gengið þaðan á fjallið og að vörðunni. Reikna má með að ferðin taki a.m.k. 4 tíma. 13. júní Haus í Staðarbyggðarfjalli. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Roar KvamVerð: Kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið frá sumarhúsinu Seli. 14. júní Stórihnjúkur á Hlíðarfjalli. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Einar BrynjólfssonVerð: Kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að Skíðastöðum og gengið þaðan á fjallið. 15. júní Klængshóll - Skriða. Brottför kl. 8 í rútu frá FFA Strandgötu 23 . Fararstjóri: Grétar GrímssonVerð: Kr. 7.000 / kr. 6.500. Innifalið: Akstur og fararstjórn.Ekið að Klængshóli í Skíðadal þar sem gangan hefst. Gengið inn Heiðinnamannadal og er hann sveigir til suðurs er farið til vinstri upp í Skriðudalsskarð yfir í Skriðudal. Í lokin er gengið niður með fallegu gljúfri Syðri - Tunguár. Vegalengd 19 km, gönguhækkun 1010 m.
16. júní Fífilbrekkuhátíð að Hrauni. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Bjarni E. GuðleifssonVerð: Frítt.Í samstarfi við Ferðafélagið Hörg verður boðið upp á göngu á Halllok 998 m undir leiðsögn eins okkar fróðustu manna um þetta svæði. Vegalengd 9 km, gönguhækkun 780 m. Auk þess verða aðrir menningarviðburðir í tilefni dagsins. 21. júní Sumarsólstöður á Múlakollu.Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Gunnar HalldórssonVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Gangan hefst á gamla Múlaveginum ofan við Brimnes. Gengið upp dalinn norðan við Brimnesána upp á Múlakollu.
23. júní Laufáshnjúkur, Jónsmessunæturganga Brottför kl. 21 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Roar KvamVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að prestssetrinu í Laufási og gengið þaðan á hnjúkinn. Auðvelt er að komast upp, en síðasti hlutinn er nokkuð brattur. Þegar upp er komið blasir við stórkostlegt útsýni yfir Eyjafjörðinn og Höfðahverfið. Vegalengd 6 km. Gönguhækkun 680 m. 29. júní Meðfram Glerá. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Ingimar EydalVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið meðfram Glerá frá Heimari - Hlífá til ósa. Þetta er frábær og áhugaverð gönguferð í okkar nánasta umhverfi þar sem m.a. má skoða sjaldséðar jurtir.
JÚN
ÍSu
mar
sóls
töðu
r á M
úlak
ollu
Hra
undr
anga
r séð
frá
Stór
alæ
kjag
ili1. – 4. júlí. Gönguvika Akureyrarstofu.
1. júlí Reykárgil í Eyjafirði. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Anke Maria SteinkeVerð: Kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið meðfram gili Reykár. 2. júlí Fossárgil á Þelamörk. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjórn: Félagar frá 24x24Verð: Kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið meðfram gili Fossár.
3. júlí Þverárgil í Eyjafirði. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Roar Kvam Verð: Kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið meðfram gili Þverár. 4. júlí Stóralækjagil í Öxnadal. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.Fararstjóri: Konráð GunnarssonVerð: Kr. 500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið upp með gilinu sem er nokkuð bratt.
JÚLÍ
JÚLÍ
Kerli
ng6. júlí Heljardalsheiði. Brottför kl. 8 í rútu frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Helga GuðnadóttirVerð: Kr. 10.900 / kr.10.400 Innifalið: Akstur og fararstjórn.Gengin er forn þjóðleið frá Atlastöðum í Svarfaðardal að Hólum í Hjaltadal. Vaða þarf Heljará og Kolbeinsdalsá sem getur verið vatnsmikil og nokkuð straumhörð. Þá er gengin vegslóð að eyðibýlinu Fjalli þangað sem bílinn sækir okkur. Ef aðstæður leyfa verður staldrað við á Hólum. Vegalengd að Fjalli 19 km, gönguhækkun 670 m. 7. júlí Þeistareykir – Þeistareykjabunga. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Sigurgeir SigurðssonVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.Þeistareykjabunga er ein stærsta dyngja landsins og eru upptök hennar í Stóravíti. Gangan hefst á Þeistareykjum og gengið að Litlavíti sem er mjög sérstakt og áfram að Stóravíti. Síðan gengið á hæsta punkt Þeistareykjabungu, þaðan sem víðáttu-mikil hraun hafa runnið og er þar víðsýnt um svæðið. 13. júlí Kerling. Sjö tinda ferð. 1538 m. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjórar: Sigurlína Jónsdóttir og Frímann GuðmundssonVerð: Kr. 3.500 / kr. 3.000. Innifalið: Fararstjórn.Gengið á hæsta fjall í byggð á Íslandi, Kerlingu í Eyjafirði (1538 m). Ekið að Finnastöðum og farið þaðan á fjallið, gengið norður eftir tindunum Hverfanda, Þríklökkum, Bónda, Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðrisúlu og Ytrisúlu. Gengið niður í Glerárdalinn þar sem ferðin endar. Vegalengd um 20 km. Topp ferð.
JÚLÍ
19. - 23. júlí Öskjuvegur 1. Sumarleyfisferð. Trússferð Brottför kl. 17 í rútu frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Ingvar TeitssonVerð: Kr. 81.500 / kr. 74.100. Innifalið: Akstur, trúss, fullt fæði, gisting og fararstjórn. Skráningargjald kr. 8.000 greiðist við bókun.Gist í skálum og gengið með lágmarksbúnað, ekið með farangur á milli skála.Nánari lýsing:1. d. Ekið í Dreka, skála FFA austan Dyngjufjalla.2. d. Gengið eftir stikaðri leið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju, e.t.v. farið í sund í Víti. Hópurinn verður sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka að Dreka.3. d. Ekið upp í Öskjuop. Gengið eftir stikaðri leið þaðan, yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og niður í Dyngjufjalladal. Gist í Dyngjufelli, skála FFA. Vegalengd 20 km.4. d. Frá Dyngjufelli er gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna, skála FFA. Vegalengd 22 km.5. d. Lokadag göngunnar er fylgt gömlum jeppaslóða frá Botna niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. Vegalengd 15 – 16 km. Ekið í Mývatnssveit um Engidal og Stöng, farið í Jarðböðin í Mývatnssveit. Ekið til Akureyrar.
Ösk
juva
tn
19. – 21. júlí Bræðrafell. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Frímann GuðmundssonVerð: Kr. 10.100 / kr. 7.600. Innifalið: Gisting og fararstjórn. 1. d. Ekið frá Akureyri í Herðubreiðarlindir og umhverfið skoðað áður en gengið er í Bræðrafell,17 km ganga um hraun fremur gott yfirferðar. Gist í Bræðrafelli, skála FFA. 2. d. Gengið á Kollóttudyngju og gígurinn litinn augum. Síðan er gengið um Bræðrafellið og hinar ýmsu jarð-myndanir skoðaðar. Gist í Bræðrafelli.3. d. Gengið meðfram Herðubreið og á leiðinni eru skoðaðir margir gígar, drýli og hellar. Seinnipartinn er ekið heim.
29. júlí. – 3 ágúst Öskjuvegur 2. Sumarleyfisferð. TrússferðBrottför kl. 16 í rútu frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Frímann GuðmundssonVerð: Kr. 81.500 / kr. 74.100. Innifalið: Akstur, trúss, fullt fæði, gisting og fararstjórn. Skráningargjald kr. 8.000 greiðist við bókun.Sjá lýsingu hér framar.
27. júlí Hraunþúfuklaustur - Vesturdalur. Söguferð Brottför kl. 8 í rútu frá FFA Strandgötu 23. Fararstjórar: Hjalti Pálsson og Grétar GrímssonVerð: Kr. 8.600 / kr. 7.700. Innifalið: Akstur og fararstjórn. Farið er með fjallarútu að Þorljótsstöðum og farinn fjallvegur F752 inn fyrir Stafnsvötn. Þaðan er svo gengið um sléttlendi að brún Vesturdals og þar niður hlíðina sem er all brött. Þegar niður kemur þarf að vaða Runukvísl og Hraunþúfuá til að komast að rústasvæðinu. Eftir að hafa skoðað svæðið er haldið til baka niður með Runukvísl og hún vaðin ofan Lambár. Þá verður forn-byggðin í Vesturdal skoðuð á leiðinni að Þorljótsstöðum þar sem bíllinn bíður.
JÚLÍ
Bræ
ðraf
ell
3. ágúst Kerling í Skíðadal. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjórn: Félagar frá 24x24Verð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn. Ekið er að Melum í Skíðadal og er gengið þaðan upp bratta en gróna hlíðina upp brún Melafjalls vestan Kerlingardals og svo sem leið liggur á Kerlingu þaðan sem mjög fallegt útsýni er yfir dali og fjöll. Vegalengd 7 km, gönguhækkun 1100 m. 9. - 11. ágúst Herðubreið, 1682 m. Brottför kl. 17 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Ingvar TeitssonVerð: Gisting í húsi: Kr. 12.400 / kr. 9.500. Gisting í tjaldi: Kr. 9.200 / kr. 8.700. Innifalið: Gisting og fararstjórn. Árleg ferð FFA á þjóðarfjallið. Á föstudegi er ekið á einkabílum í Herðubreiðarlindir og gist þar í tjöldum eða skála. Gengið á þjóðarfjallið á laugardegi og haldið heim á sunnudegi. Nauðsynlegur aukabúnaður er hjálmur.
10. ágúst Hestfjall og Siglunesmúli. Brottför kl. 7 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Una SigurðardóttirVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn. Genginn hringur umhverfis Nesdalinn. Gangan hefst á Siglufirði. Gengið upp í Hestskarð og upp á Hestskarðshnjúk. Af Hestskarðshnjúknum gengið austur á Hestfjall og allveg norður á enda fjallsins. Af Hestfjalli er svo gengið niður í Nesdal, þvert yfir hann og upp á Nesnúp, ysta hluta Siglunesmúla. Þaðan gengið inn fjallið og niður í Kálfsskarð, Kálfsdal og Staðarhólsströnd aftur að bílum.Vegalengd: 25 - 30 km, göngutími ca. 10-12 klst.,Mjög krefjandi ferð ekki fyrir lofthrædda, gönguhækkun 680 m.
ÁG
ÚST
Her
ðurb
reið
ÁG
ÚST
Stór
urð
og D
yrfjö
ll9. - 11. ágúst Stórurð – Víkur. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Grétar GrímssonVerð: Kr.13.900 / kr.11.600 Innifalið: Gisting ogfararstjórn.Skráningargjald kr. 8.000. Ekið austur á Úthérað og á bílastæði við Vatnsskarðsveg. Nánari lýsing: 1. d. Gengið frá bílastæðinu í Stórurð og svæðið skoðað. Farin sama leið til baka að bílunum, vegalengd 14,5 km, síðan ekið til Borgar- fjarðar þar sem gist verður.2. d. Gengið frá Borgarf. um Brúnavíkurskarð í Brúnavík, 4,5 km og síðan er haldið áfram og gengið um Súlu-skarð og Syðravarp í Breiðuvík, 8 km, þar sem gist verður. (Bíll ferjaður áleiðis í Breiðuvík.)3. d. Eftir að hafa skoðað umhverfi Breiðuvíkur er haldið heimleiðis. 17. ágúst Seljahjallagil. Brottför kl. 8 á einkabílum (jeppum!) frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Ingvar TeitssonVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn. Ekin jeppaslóð að Hverfjalli og suður undir Bláfjallsfjall-garð. Þaðan gengið í Seljahjallagil og fram úr gilinu í Arahvamm og upp að bílnum. 24. ágúst Glóðafeykir. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Konráð GunnarssonVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn. Glóðafeykir er eitt nafnfegursta fjall í Skagafirði og gaman að skoða betur. Ekið er að bænum Flugumýri. Þaðan er gengið upp norðurhrygg fjallsins og á toppinn. Gott útsýni er yfir Skagafjörðinn. Vegalengd 7 km, gönguhækkun 760 m.
Jöku
lsár
gljú
fur
31. ágúst Gullvegur. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Ingvar TeitssonVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn. Gullvegurinn er gömul reiðleið frá Helluvaði í Mývatnssveit vestur að Arndísarstöðum í Bárðardal. Vegurinn var gerður með handverkfærum á árunum 1879 - 1897, sett ræsi á læki, steinum rutt úr vegi og grafnir vegarskurðir. Staldrað er við hjá eyðibýlunum og saga þessara heiðarbýla rifjuð upp. Vegalengd um 20 km. 7. september Hreppsendasúlur. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Gunnar HalldórssonVerð: Kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn. Haldið er á fjallið skammt vestan við neyðarskýlið á Lágheiði, upp á súlurnar og til baka sömu leið. Þegar á toppinn er komið blasir stórkostlegt útsýni við til allra átta. Þetta er frekar létt ganga við flestra hæfi. 14. september Haustlitaferð í Jökulsárgljúfur, Hólmatungur - Ásbyrgi. Brottför kl. 8 í rútu frá FFA Strandgötu 23. Fararstjóri: Örn Þór EmilssonVerð: Kr. 9.200 / kr. 8.700. Innifalið: Akstur og fararstjórn. Farið er með rútu í Hólmatungur í Jökulsárgljúfrum. Siðan er gengið niður með gljúfrum Jökulsár á Fjöllum um Hólmatungur, Vesturdal, Hljóðakletta, farið um Kvíar og komið að Klöppunum þar sem sést yfir furðu-smíðina Ásbyrgi. Falleg haustlitaferð í stórbrotnulandslagi sem varla á sínn líka hér á landi. Vegalengd um 19 km.
ÁG
ÚST
- SE
PTEM
BER