14
Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi 1

Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

  • Upload
    marrim

  • View
    70

  • Download
    6

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi. Hagkerfi = skipulag á framleiðslu, neyslu, viðskipti eða dreifing. Öll framleiðsla felur í sér vinnuframlag ( labour ) Líf fólks byggir ávallt á neyslu Viðskipti ( exchange ) eru stunduð í öllum samfélögum.til dæmis vöruskipti, gjafaskipti og makaskipti. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

1

Page 2: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

2Þórður Kristinsson

Hagkerfi = skipulag á framleiðslu, neyslu, viðskipti eða dreifing

Öll framleiðsla felur í sér vinnuframlag (labour)

Líf fólks byggir ávallt á neyslu

Viðskipti (exchange) eru stunduð í öllum samfélögum.til dæmis vöruskipti, gjafaskipti og makaskipti

Page 3: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Þrjár gerðir viðskipta

3Þórður Kristinsson

•Gagnkvæmni (reciprocity)• afmæli

• Endurdreifing (redistribution) • skattur

•Markaðsviðskipti (market exchange)• peningaviðskipti

Page 4: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

HVAÐ ER HAGRÆN MANNFRÆÐI?

Hagkerfið er skoðað í tengslum við t.d. trúarbrögð, sifjakerfi og stjórnskipulag en ekki sem skýrt afmarkaður þáttur sem lýtur sjálfstæðum lögmálum

Samkvæmt Adams Smith og öðrum klassískum hagfræðingum stjórnast hagkerfið af rökréttum ákvörðunum einstaklinga sem leitast við að hámarka ágóða sinn og lögmálum sem eru óháð öðrum félagslegum stofnunum, þ.e. lögmálum markaðarins t.d. um framboð og eftirspurn – þetta er EKKI nálgun mannfræðinnar

4Þórður Kristinsson

Page 5: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Kula-hringurinn

Malinowski meðal Trobríanta

Skeljahálsmen (soulava) og skeljaarmbönd (Mwali).

Hálsmenin fara réttsælis og armböndin rangsælis hringinn sem tengir fjölmargar eyjar en á sér einnig stað innan einstakra eyja.

Skipt er á jafnverðmætum hlutum.

Skapa einstaklingum frægð og frama auk þess að skapa traust

5Þórður Kristinsson

Page 6: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Hvar er hinn hagræni maður?Mannfræðingar hafa einnig sett spurningamerki við

röklegan framgang hagkerfisins í nútímavæddum samfélögum. Eru t.d. rökréttar skýringar á því að fólk kaupir frekar ákveðna gerð af gallabuxum heldur en aðra, þó að báðar uppfylli þörf fyrir þess háttar klæðnað? Og á sama hátt, af hverju velur fólk dýrari matvæli en ódýrari þó að enginn munur sé á næringargildi þeirra? Er það sem telst rökrétt í einu samfélagi líka rökrétt í öðru? Hvernig tengjast siðir eins og gjafaskipti hagkerfi? Eða trúarbrögð eða sifjatengsl ef út í það er farið?

6Þórður Kristinsson

Page 7: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Gjöfin

Marcel Mauss (1925)

Gjafaskipti snerta öll svið samfélagsins, hið trúarlega, hið efnahagslega, lagalega og siðfe

Með gjafaskiptum tekur fólk því þátt í að skapa og viðhalda grunngildum samfélags og menningar og það er um leið ómögulegt að skilja viðskipti nema í félagslegu samhengirðislega

7Þórður Kristinsson

Page 8: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Potlatch

Athöfn sem stunduð er í samfélögum indíána á norð-vesturströnd Norður-Ameríku, t.d. meðal Kwakiutl, Tlingit-, Haida- og Chinook-fólksins.

Hver gefur “flottast”

8Þórður Kristinsson

Page 9: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Inntakssinnar vs. Formsinnar

Inntakssinnar (substantialists) Formsinnar (formalists)

Áhersla á samfélagslegar stofnanir Áhersla á einstaklinga

Samfélagið mótar einstaklinga Einstaklingar móta samfélagið

Menningarbundinn skilningur á hagkerfi Það eru algildar reglur í hagkerfum

Hugtök og greiningartæki eru aðstæðubundin Hugtök og greiningartæki eru algild

Hagrænar athafnir eru ávallt samofnar félags-

og menningarlegum stofnunum

Hagræna rökhyggju einstaklinga sem reyna

að hámarka ágóða sinn er alls staðar að finna

9Þórður Kristinsson

Page 10: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Og næstur er Karl Marx

Hugmyndir hans um stéttatengsl hentuðu vel til að skýra stöðu og aðstæður þróunarríkja

Hagkerfið er samofið samfélagslegum stofnunum

Hagrænar athafnir eru pólitískar í sjálfu sér = valdaformgerð

10Þórður Kristinsson

Page 11: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Fylgniþróunarkenningar (dependency theories)

og heimskerfiskenningar (world system theories)

vestræn iðnríki = kapitalistar

þróunarríki = öreigar

Hagsmunir iðnríkjanna felast í aðgangi að ódýru hráefni til að viðhalda stöðugum hagvexti á heimaslóðum og sökum aflsmunar eru þau í aðstöðu til að viðhalda ójöfnum valdatengslum í kerfinu og halda þar með fátækum ríkjum á jaðrinum

11Þórður Kristinsson

Page 12: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Græna byltingin

Tækni- og framleiðslubreytinga í

landbúnaði á eftirstríðsárunum sem

leiddu til mikillar framleiðsluaukningar

á matvælum

Nýjar korntegundir hafa kallað á meiri notkun á skordýraeitri og áburði auk þess sem þær henta misvel á ólíkum svæðum. Aukin einsleitni í framleiðslu smábænda hefur gert þá viðkvæmari fyrir hnattrænum hagsveiflum og alþjóðlegri samkeppni á matvörumarkaði, í stað þess að vera sjálfum sér nógir um nauðþurftir eru þeir nú háðari en áður sölu framleiðslunnar á markaði til að að geta keypt nauðsynjavörur.

12Þórður Kristinsson

Page 13: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

Heimilishald

Þessi skipting er þó tiltölulega nýleg því fyrir iðnbyltinguna var heimilið megin framleiðslueining samfélaga. Á Íslandi fór almennur vinnumarkaður t.d. ekki að myndast að ráði fyrr en á seinni hluta 19. aldar. Þá var ekki gerður skýr greinarmunur á markaði utan heimilis og framleiðslu innan heimilis.

13Þórður Kristinsson

Page 14: Kafli 8 – Viðskipti og hagkerfi

HNATTVÆÐING, NEYSLA OG FRAMLEIÐSLA

Hnattvæðing (globalization)

Ameríkuvæðing

Hnattrænt hagkerfi orðið staðreynd. Þrjár birtingarmyndir þess eru fjölþjóðafyrirtæki, vörukeðjur (commodity chains) og mikilvægi vörumerkja (brands)

Lífshættir fólks í neyslusamfélögum Vesturlanda eiga þátt í að viðhalda bágum lífskjörum í fátækari heimshlutum auk þess að ýta ákveðnum þjóðfélagshópum út á jaðar samfélagsins

14Þórður Kristinsson