40
Copyright © 2011 Cengage Learning 33 Keynes og IS-LM- líkanið

Keynes og IS-LM-líkanið

  • Upload
    conor

  • View
    70

  • Download
    0

Embed Size (px)

DESCRIPTION

33. Keynes og IS-LM-líkanið. Kjarninn í Keynes. Kjarninn í kenningu Keynes Efnahagslægðir og kreppur geta stafað af ónógri eftirspurn í hagkerfinu, of lítilli heildareftirspurn Keynes gagnrýndi klassísku þjóðhagfræðina - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Keynes og IS-LM-líkanið

Copyright © 2011 Cengage Learning

33Keynes og

IS-LM-líkanið

Page 2: Keynes og IS-LM-líkanið

KJARNINN Í KEYNES Kjarninn í kenningu Keynes

Efnahagslægðir og kreppur geta stafað af ónógri eftirspurn í hagkerfinu, of lítilli heildareftirspurn

Keynes gagnrýndi klassísku þjóðhagfræðinaHún gat aðeins sagt fyrir um áhrif

hagstjórnar á efnahagslífið til langs tíma litið “Þegar til lengdar lætur, verðum við öll

komin undir græna torfu. Hagfræðingar velja sjálfum sér of auðvelt og of gagnslítið verkefni, ef allt, sem þeir hafa að segja í stórsjó, er, að þegar storminn lægir, verður sjórinn sléttur á ný.”

Page 3: Keynes og IS-LM-líkanið

KJARNINN Í KEYNES Þjóðhagfræðilíkan Keynes gerir

greinarmun á fyrirætlunum og atferli fólks og fyrirtækjaKannski hyggstu spara €100 á

mánuði, en ef þú missir aukavinnu, leggurðu kannski ekki nema €20 til hliðar á mánuði

Kartöfluframleiðandi ætlar sér kannski að hafa 50,000 poka í birgðageymslu, en ef sala dregst saman, aukast óseldar birgðir upp í 150,000 poka

Page 4: Keynes og IS-LM-líkanið

KJARNINN Í KEYNES Ef áætlanir heimila og fyrirtækja

ganga ekki eftir ...þ.e. ef t.d. fyrirhugaður sparnaður

eða fyrirhugaðar birgðir reynast frábrugðnar raunverulegum sparnaði og raunverulegum birgðum

... þá getur landsframleiðslan lent neðan við það framleiðslustig, sem mótsvarar fullri atvinnu á vinnumarkaði

Page 5: Keynes og IS-LM-líkanið

KJARNINN Í KEYNES Kenningu Keynes má lýsa á einfaldri mynd, þar sem 45o lína tengir alla punkta þar sem neyzla (= útgjöld) heimilanna er jöfn þjóðartekjum, þ.e. landsframleiðsluE = Y

Page 6: Keynes og IS-LM-líkanið

MYND 1A. LÆGÐARGAP OG HÆÐARGAP

Hagkerfið er í jafnvægi, þegar útgjaldalínan sker 45o línuna. Ef jafnvægið (Y0) er neðan við fulla atvinnu: Lægðargap.

Útgjöld

Lægðargap

C + I + G1 + NX

C + I + G0 + NX

Þjóðartekjur0

Page 7: Keynes og IS-LM-líkanið

MYND 1B. LÆGÐARGAP OG HÆÐARGAP

Hagkerfið er í jafnvægi, þegar útgjaldalínan sker 45o línuna. Ef jafnvægið (Y1) er ofan við fulla atvinnu: Hæðargap.

Hæðargap

Þjóðartekjur

Útgjöld

1

0

C + I + G1 + NX

C + I + G0 + NX

Page 8: Keynes og IS-LM-líkanið

KJARNINN Í KEYNES Almannavaldið getur lokað hvort

heldur lægðargapi eða hæðargapi með markvissum aðgerðum í ríkisfjármálum og peningamálum til að hafa áhrif á einstaka þætti heildareftirspurnar ... C, I, G og NX

... og færa þannig jafnvægið í þjóðarbúskapnum nær fullri atvinnu

Page 9: Keynes og IS-LM-líkanið

MARGFELDISÁHRIF Með margfeldisáhrifum er átt við viðbótaraaukningu heildareftirspurnar, þegar aukin ríkisútgjöld eða lægri skattar auka þjóðartekjur og þar með einnig neyzlu heimilanna

Page 10: Keynes og IS-LM-líkanið

MARGFELDISÁHRIF Aukin ríkisútgjöld hafa

margfeldisáhrif á heildareftirspurnAukning ríkisútgjalda um €100 eykur

heildareftirspurn um meira en €100Ef ríkisstjórnin byggir jarðgöng fyrir

100 makr., þá aukast tekjur þeirra, sem byggja göngin, og þeir verja auknum tekjum til að kaupa vörur og þjónustu af öðrum og þannig koll af kolli

Page 11: Keynes og IS-LM-líkanið

MARGFELDISÁHRIF: EINFÖLD FORMÚLA Margfeldisformúlan er

Margfaldari = 1/(1 - MPC) Lykilstærðin í formúlunni er markaneyzluhneigðin (MPC)Markaneyzluhneigðin er það hlutfall tekjuaukningar, sem heimilin verja til aukinnar neyzlu frekar en sparnaðar

Skoðum betur

næst, þá útleiðum

við formúluna

Page 12: Keynes og IS-LM-líkanið

MARGFELDISÁHRIF: EINFÖLD FORMÚLA Ef MPC is 3/4, höfum viðMargfaldari = 1/(1 - 3/4) = 4

Í þessu dæmi leiðir aukning ríkisútgjalda um 10 makr. til 40 makr. aukningar eftirspurnar eftir vörum og þjónustu

Skoðum betur

næst, þá útleiðum

við formúluna

Page 13: Keynes og IS-LM-líkanið

MEIRA UM MARGFELDISÁHRIFIN Margfeldisáhrifin eiga ekki

aðeins við um breytingu ríkisútgjalda, heldur einnig með líku lagi um allar breytingar á einstökum þáttum heildareftirspurnarNeyzla CFjárfesting IRíkisútgjöld GHreinn útflutningur

Enda birtast þessar fjórar stærðir hlið við hlið í Y = C + I + G + NX

Page 14: Keynes og IS-LM-líkanið

MEIRA UM MARGFELDISÁHRIFIN Óháð útgjöld: Útgjöld, sem eru óháð tekjumSérhver aukning óháðra útgjalda hefur margfeldisáhrif á eftirspurn

Afleidd útgjöld: Viðbótarútgjöld, sem leiðir af margfeldisáhrifunum

Page 15: Keynes og IS-LM-líkanið

MEIRA UM MARGFELDISÁHRIFIN Margfaldarinn er mikilvægur, þar

eð hann sýnir, hvernig hagkerfið magnar áhrif útgjaldabreytingaSmábreyting á C, I, G eða NX getur haft mikil áhrif á landsframleiðslu Y

Hversu mikil áhrifin á Y verða fer eftir markaneyzluhneigðinniÁ ensku: marginal propensity to consume, MPC

Page 16: Keynes og IS-LM-líkanið

MEIRA UM MARGFELDISÁHRIFIN Í opnu hagkerfi með ríkisbúskap

er viðbótartekjum heimilanna ekki aðeins varið annaðhvort til neyzlu eða sparnaðar, heldur einnig til kaupa á innfluttri vöru og þjónustu og til að greiða skatta til ríkisins

Féð, sem þannig er lagt til hliðar (W fyrir withdrawals á ensku), stendur í beinu hlutfalli við tekjur

Page 17: Keynes og IS-LM-líkanið

MEIRA UM MARGFELDISÁHRIFIN Halli útgjaldalínunnar fer eftir því, hversu miklu af viðbótartekjum upp á €1 er haldið eftir, þ.e. ekki eyttMPT: markaskattahneigðMPM: markainnflutningshneigðMPS: markasparnaðarhneigðMPT + MPS + MPM = MPW

Page 18: Keynes og IS-LM-líkanið

MEIRA UM MARGFELDISÁHRIFIN

Margfaldarinn k er nú:

k = 1/(MPS + MPT + MPM)

k = 1/MPW

Page 19: Keynes og IS-LM-líkanið

MEIRA UM MARGFELDISÁHRIFIN Aukning markahneigðarinnar

MPW til að leggja fé til hliðar minnkar margfaldarann og minnkar þannig áhrif aukningar óháðra útgjalda á eftirspurn og landsframleiðslu

Því hærri sem MPW er, þeim mun minni er margfaldarinn og þeim mun flatari er útgjaldalínan

Page 20: Keynes og IS-LM-líkanið

MYND 2A. HALLI ÚTGJALDALÍNUNNAR OG BREYTINGAR ÓHÁÐRA ÚTGJALDA

Hér er útgjaldalínan frekar flöt, markahneigðin til að leggja til hliðar er frekar mikil, og margfeldisáhrifin eru frekar lítil.

C + I + G1 + NX

C + I + G0 + NXÚtgjöld

Þjóðartekjur0

Page 21: Keynes og IS-LM-líkanið

MYND 2B. HALLI ÚTGJALDALÍNUNNAR OG BREYTINGAR ÓHÁÐRA ÚTGJALDA

Hér er útgjaldalínan frekar brött, markahneigðin til að leggja til hliðar er frekar lítil og margfeldisáhrifin eru frekar mikil.

C + I + G0 + NX

C + I + G1 + NXÚtgjöld

Þjóðartekjur

Page 22: Keynes og IS-LM-líkanið

Í jafnvægi eru fyrirhuguð útgjöld jöfn raunverulegum útgjöldum

Þetta nefnist jafnvægi á vörumarkaðiRéttar sagt: á vöru- og þjónustumarkaðiHöfum þegar skoðað jafnvægi á

peningamarkaði (í 24. kafla) Í kjölfar Keynes kom John Hicks og bjó

til kenningu til að lýsa tengslunum milli þessara tveggja markaðaÞ.e. til að byggja brú á milli vörumarkaðs

og peningamarkaðs

MEIRA UM MARGFELDISÁHRIFIN

Page 23: Keynes og IS-LM-líkanið

IS-KÚRFAN OG LM-KÚRFAN IS-LM-líkanið lýsir jafnvægi á

vörumarkaði og peningamarkaði og hvernig það leiðir til almenns jafnvægis í þjóðarbúskapnumIS – e. Investment og SavingLM – e. Liquidity og Money

Stærðin, sem tengir vörumarkaðinn og peningamarkaðinn, er vextir, iHugsum okkur til einföldunar, að

verðbólga sé engin, svo að i = nafnvextir = raunvextir

Page 24: Keynes og IS-LM-líkanið

MYND 3. IS-KÚRFAN

IS-kúrfan er leidd af myndinni af útgjaldalínunni og 45o línunni. Upphaflega er jafnvægi í punktinum a. Lækkun vaxta örvar fjárfestingu og lyftir útgjaldalínunni, svo að nýju jafnvægi er náð í punktinum b.

Þjóðartekjur

Útg

jöld C + I1 + G + NX

C + I0 + G + NX

Vex

tir

Þjóðartekjur

Page 25: Keynes og IS-LM-líkanið

IS-kúrfan sýnir öfugt samband milli vaxta og landsframleiðslu

Halli IS-kúrfunnar fer eftir því, hversu næm neyzla og fjárfesting eru fyrir vaxtabreytingum og eftir stærð margfaldarans

Því næmari sem C and I eru fyrir vaxtabreytingum, þeim mun flatari er IS-kúrfan

IS-KÚRFAN OG LM-KÚRFAN

Page 26: Keynes og IS-LM-líkanið

IS-kúrfan hliðrast til í fletinum við breytingar á óháðum útgjöldum

Aukning ríkisútgjalda, óháð vaxtabreytingum, hliðrar IS-kúrfunni til hægri

Samdráttur útflutnings hliðrar IS-kúrfunni til vinstri

IS-KÚRFAN OG LM-KÚRFAN

Page 27: Keynes og IS-LM-líkanið

MYND 4. LM-KÚRFAN

LM-kúrfan er leidd af myndinni af jafnvægi á peningamarkaði. Upphaflega er jafnvægi í punkti a. Aukning þjóðartekna eykur eftirspurn eftir peningum, svo að nýtt jafnvægi næst í punktinum b.

Vex

tir

Vex

tir

Peningamagn Þjóðartekjur

Page 28: Keynes og IS-LM-líkanið

LM-kúrfan hallar upp og sýnir, að aukning þjóðartekna helzt í hendur við hækkun vaxta og öfugt

Halli LM-kúrfunnar fer eftir því, hversu næm eftirspurn eftir peningum er fyrir breytingum á vöxtum

IS-KÚRFAN OG LM-KÚRFAN

Page 29: Keynes og IS-LM-líkanið

LM-kúrfan hliðrast til hægri, ef seðlabankinn eykur peningamagn í umferð

LM-kúrfan hliðrast til vinstri, ef seðlabankinn dregur úr peningamagni í umferð

IS-KÚRFAN OG LM-KÚRFAN

Page 30: Keynes og IS-LM-líkanið

ALMENNT JAFNVÆGI OGIS-LM-LÍKANIÐ Jafnvægi næst í IS-LM-líkaninu þar

sem IS-kúrfan sker LM-kúrfunaAllir punktar á IS-kúrfunni lýsa jafnvægi á vörumarkaði

Allir punktar á LM-kúrfunni lýsa jafnvægi á peningamarkaði

Skurðpunktur IS-kúrfunnar og LM-kúrfunnar hlýtur því að lýsa jafnvægi á vörumarkaði og peningamarkaði samtímis

Page 31: Keynes og IS-LM-líkanið

MYND 5. ALMENNT JAFNVÆGISkurðpunktur IS og LM lýsir jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Bæði vörumarkaður og peningamarkaður eru í jafnvægi, þegar vextir eru ie og þjóðartekjur (þ.e. landsframleiðsla) eru Ye.

Vex

tir

Þjóðartekjur

Page 32: Keynes og IS-LM-líkanið

Hugsum okkur, að ríkisstjórnin ákveði að auka ríkisútgjöld til að örva efnahagslífið

Slík aukning óháðra útgjalda hliðrar IS-kúrfunni til hægri

Af þessu leiðir aukningu þjóðartekna og einnig hækkun vaxta

STJÓRN RÍKISFJÁRMÁLA

Page 33: Keynes og IS-LM-líkanið

MYND 6. ÁHRIF AÐGERÐA Í RÍKISFJÁRMÁLUM

Aukning ríkisútgjalda hefur sömu áhrif og lækkun skatta.V

exti

r

Þjóðartekjur

Page 34: Keynes og IS-LM-líkanið

Ef seðlabankinn ákveður að auka peningamagn í umferð, hliðrast LM-kúrfan til hægri

Þjóðartekjur hækka, og vextir lækka

STJÓRN PENINGAMÁLA

Page 35: Keynes og IS-LM-líkanið

MYND 7. ÁHRIF AÐGERÐA Í PENINGAMÁLUM

Aukning peningamagns hliðrar LM-kúrfunni til hægri.V

exti

r

Þjóðartekjur

Page 36: Keynes og IS-LM-líkanið

STJÓRN PENINGAMÁLA Í reyndinni hegða seðlabankar sér ekki óháð ríkisstjórninni, þótt þeir eigi að heita sjálfstæðir

Seðlabankar fylgjast með stefnunni í ríkisfjármálum til að athuga, hvaða áhrif hún hefur t.d. á verðbólgu, og bregðast við

Page 37: Keynes og IS-LM-líkanið

Hugsum okkur, að ríkisstjórnin lækki skatta til að örva þjóðarbúskapinn

IS-kúrfan hliðrast til hægri, svo að bæði þjóðartekjur og vextir hækka

Ef seðlabankinn vill halda vöxtum óbreyttum, þarf hann að auka peningamagn í umferð og hliðra LM-kúrfunni til hægri

STJÓRN PENINGAMÁLA

Page 38: Keynes og IS-LM-líkanið

MYND 8. AÐ HALDA VÖXTUM FÖSTUM Í KJÖLFAR SKATTALÆKKUNAR

Vex

tir

Þjóðartekjur

Page 39: Keynes og IS-LM-líkanið

Við eigum nú stutt ófarið frá IS-LM-líkaninu til líkansins af heildareftirspurn og heildarframboði (kemur næst, í 34. kafla)

Takið eftir: Þegar við höfum talað um peningamagn, höfum við átt við raunverulegt peningamagn, þ.e. kaupmátt peningamagnsins, M/PRaunverulegt peningamagn er nafnvirði

peningamagnsins M deilt með verðvísitölu landsframleiðslunnar P

FRÁ IS-LM TIL HEILDAREFTIRSPURNAR

Page 40: Keynes og IS-LM-líkanið

Hækkun P veldur samdrætti M/P, svo að LM-kúrfan hliðrast til vinstri

Þjóðartekjur minnka, og vextir hækkaY minnkar, i hækkar

Heildareftirspurnarkúrfan sýnir öfugt (þ.e. niðurhallandi) samband milli þjóðartekna (þ.e. landsframleiðslu) og verðlagsÖfugt samband Y og P

FRÁ IS-LM TIL HEILDAREFTIRSPURNAR

P

YAD