31
1 Guðshús í Reykjavíkurprófastsdæmi Ljósmyndir og samantekt Eiríkur Grímsson

Kirkjur og guðshús í Reykjavík

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Myndir og fróðleikur um kirkjur

Citation preview

Page 1: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

1

Guðshús í

Reykjavíkurprófastsdæmi

Ljósmyndir og samantekt

Eiríkur Grímsson

Page 2: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

2

Árbæjarkirkja

Árbæjarkirkja

Árbæjarkirkja rís hátt upp af bökkum Elliðaánna og ber því víða fyrir augu í Árbæjarhverfi. Að fornum

sið er klukknaport framan við kirkju. Einnig er þar "kirkjutorg". Ljósið, sólarljósið, hefur ráðið mestu

um form kirkjunnar. Inn um háreistan glugga yfir altari fellur ljósið niður sem foss. Ljósið seytlar

einnig niður með langveggjum kirkjunnar. Timburloftið yfir kirkjuskipi eins og svífur á milli hinna

hrjúfu steinveggja. Safnaðarsalur er í beinu framhaldi af kirkju, þannig að skil milli þessara rýma eru

óglögg. Kirkjurýmið getur vaxið inn í safnaðarsal. Stór gluggi á safnaðarsal opnar fagurt útsýni yfir

Elliðaárdal. Í fordyri kirkjunnar fellur ljósið einnig að ofan. Kirkjan er klædd að innan með einföldum

og ódýrum efnum, þ.e. hraunaðir veggir og hvítkölkuð fura í loftum. Gólf eru með gráum steinflísum.

Litir eru ljósir og hlutlausir nema purpuralitur á sessum kirkjubekkja. Við hönnun á innréttinum er

reynt að láta efnið njóta sín og öll form höfð einföld og sterk. Innréttingar eins og altari,

predikunarstóll og "himinn" þar yfir og kirkjubekkir eru smíðaðir úr furu (límtré) og hvítkalkað. Kirkjan

er raflýst með fjöldamörgum nöktum, glærum ljósaperum, sem gefa kirkjunni hátíðlegan blæ, þegar

ljós eru kveikt. Við alla hönnun innandyra hef ég leitast við að skapa rólegt andrými um hinar

kirkjulegu athafnir. Þessu hef ég reynt að ná fram með ljósi, litum, áferð og efnisvali.

Manfreð Vilhjálmsson

Page 3: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

3

Áskirkja

Áskirkja

Sr. Grímur Grímsson, þáverandi sóknarprestur tók fyrstu skóflustunguna að grunni Áskirkju 16.

september árið 1971.

Kirkjan er byggð eftir teikningu arkitektanna Helga Hjálmarssonar, Vilhjálms Hjálmarssonar og

Haraldar V. Haraldssonar og hefur Haraldur annast alla hönnun hússins innan dyra og er öll sérsmíði

innréttinga og ýmiss búnaðar hugverk hans.

Teiknistofan Óðinstorg annaðist verkfræðiþjónustu, en stofuna starfrækja Vífill Oddsson og Hilmar

Knudsen ásamt arkitektunum Helga og Vilhjálmi Hjálmarssonum. Þess má einnig geta að Vífill

Oddsson var lengst af formaður bygginganefndar Áskirkju.

Eftirtaldir iðnmeistarar stjórnuðu byggingu Áskirkju, Magnús K. Jónsson, húsasmíðameistari, fram yfir

fokheldingu, eftir það Sigurður Kr. Árnason, trésmíðameistari, Hafsteinn Júlíusson, múrarameistari,

Jónas Valdimarsson, pípulagningameistari, Magnús Lárusson, rafvirkjameistari, Sigurður Ingólfsson,

málarameistari og Steinþór Eyþórsson, dúklagningameistari.

Biskup Íslands, herra Pétur Sigurgeirsson vígði Áskirkju, þriðja sunnudag í aðventu árið 1983, sem þá

bar upp á 11. desember. Við athöfnina fluttu herra Pétur Sigurgeirsson, biskup og Þórður

Kristjánsson, sóknarnefndarformaður bænir. Ritningarlestra lásu herra Pétur Sigurgeirsson, biskup,

Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson, sóknarprestur Áskirkju, Helga Guðmundsdóttir, formaður

Page 4: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

4

Safnaðarfélags Ásprestakalls, Sr. Grímur Grímsson, frv. sóknarprestur, Sr. Ólafur Skúlason,

vígslubiskup og Kristján Sigtryggsson, organisti Áskirkju. Herra Pétur Sigurgeirsson, biskup predikaði

og Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson, sóknarprestur flutti ávarp. Kirkjukór Áskirkju söng undir stjórn

Kristjáns Sigtryggssonar organista.Hljóðfæraleik önnuðust Guðrún Birgisdóttir á flautu, Gústaf

Jóhannesson á orgel, Jón Sigurðsson á trompet, Lárus Sveinsson á trompet, Ragna Gunnarsdóttir á

sello og Valur Pálsson á kontrabassa.

Breiðholtskirkja

Breiðholtskirkja

Þann 7. janúar 1973 var fyrsta guðsþjónustan í hátíðarsal Breiðholtsskóla. Þá var og keypt

rafmagnsorgel frá Hollandi. 14. apríl 1974 var safnaðarstjórn sent bréf frá borgarstjóra um úthlutun

lóðar fyrir kirkjubyggingu í Mjóddinni. Kosin var byggingarnefnd og formaður kosinn Sigurður E.

Guðmundsson. Í framhaldi af því var efnt til samkeppni um hönnun kirkju. Í júní 1977 lýkur

samkeppninni og bárust 19 tillögur. Valin var teikning Guðmundar Kr. Kristinssonar og Ferdinands

Alfreðssonar arkitekta og Harðar Björnssonar byggingaverkfræðings. 5. nóvember 1978 á allra

heilagra messu, var fyrsta skóflustungan tekin af sr. Lárusi Halldórssyni. Byggingameistari við

kirkjubygginguna var ráðinn Kristinn Sveinsson.

Árið 1980 lýkur steypuvinnu við neðri hæð kirkjunnar sem mun í framtíðinni verða safnaðarheimili

kirkjunnar. 1983 eru burðarstoðir kirkjunnar reistar. Árið 1986 lætur sr. Lárus Halldórsson af störfum

og sr. Gísli Jónasson kosinn sóknarprestur í hans stað. Þann 13. mars 1988 er kirkjan vígð af herra

Pétri Sigurgeirssyni biskupi. Safnaðarheimilið var tekið í notkun 12. janúar 1992.

Page 5: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

5

Bústaðakirkja

Bústaðakirkja

"Fyrsta sunnudag í aðventu 1971 var Bústaðakirkja vígð. Hér er úrdráttur úr byggingarsögu kirkjunnar

eins og hún var við vígsluna.

Sóknarnefnd Bústaðasóknar ákvað 1964 að byggja kirkju og safnaðarheimili svo fljótt sem við yrði

komið. Fengin var lóð úr landi Áshóls, norðan Bústaðavegar og austan Tunguvegar. Lóðin liggur í

fallegri brekku mót suðri, niður Fossvogsdal. Leitað var til Teiknistofu húsameistara ríkisins, sem fól

verkið þáverandi starfsmanni sínum, arkitektinum Helga Hjálmarssyni. Var fyrsta skóflustungan tekin

af sóknarprestinum, séra Ólafi Skúlasyni við hátíðlega athöfn 7. maí 1966.

Síðan hefur á hverju ári verið unnið í áföngum, eftir því sem mögulegt hefur verið vegna fjármagns.

Strax í upphafi var sóknarnefnd einhuga um að steypa upp og ganga frá allri byggingunni að utan.

Árið 1969 var síðan ákveðið að ljúka sem fyrsta áfanga kirkjuskipi, forkirkju, andyri og

snyrtiherbergjum ásamt safnaðarsal og kirkjuvarðarherbergi. Myndast hér einnig bráðabirgðaaðstaða

fyrir prest safnaðarins.

Þetta var mikil höfuðnauðsyn, þar sem sóknin hafði þrefaldast að stærð, og aðstaða prestsins mjög

erfið við að halda uppi eðlilegu safnaðarstarfi og kirkjulífi. Gólfflötur neðri hæðar er um 640 ferm.

Hæðin með sönglofti um 1.040 ferm. Mest lofthæð er 12,5 m., en í kirkjuskipi miðju 9 metrar. Teknir

verða í notkun nú í vetur 500 ferm. eða 2.600 rúmmetrar, en byggingin öll er 6.200 rúmmetrar.

Byggingarnefnd skipa nú Ottó A. Michelsen, formaður, og séra Ólafur Skúlason sóknarprestur sem

hafa verið frá upphafi og Sveinn Guðmundsson húsgagnameistari.

Page 6: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

6

Öllum þeim sem gert hafa það mögulegt að reisa slíka kirkju ber að þakka.

Gjafirnar eru margar og miklar, og gefendur eru fjölmargir. Sé þeim öllum

endurgoldið í þeim anda, sem heitið er."

Digraneskirkja

Digraneskirkja

Digranessöfnuður var stofnaður í ágúst 1971.

Fyrsta skóflustungan að Digraneskirkju var tekin þann 27. mars 1993 af dr. Sigurbirni Einarssyni

biskupi, og sr. Þorbergur Kristjánsson flutti ritningarorð og bæn.

Þá voru í sóknarnefnd Þorbjörg Daníelsdóttir, formaður, Kristján Ingimundarson, varaformaður, Jónas

Frímansson, ritari, Bjarni Bragi Jónsson, gjaldkeri, Sólveig Árnadóttir, Arnþór Ingólfsson og Hrefna

Pétursdóttir. Í varastjórn voru Guðmundur Guðjónsson, Rannveig Sigurðardóttir, Magnús

Bjarnfreðsson, Guðrún Vigfúsdóttir og Jón Þorkell Rögnvaldsson.

Hitann og þungann af allri undirbúningsvinnu við kirkjubygginguna, m.a. langar umræður um

staðsetningu hennar, bar byggingarnefndin, Þorbjörg Daníelsdóttir sóknarnefndarformaður, Jónas

Frímansson ritari, Bjarni Bragi Jónsson gjaldkeri, Kristján P. Ingimundarson, varaformaður.

Reisugildi kirkjunnar var haldið 4. desember 1993. og bauð sóknarnefndin upp á kaffiveitingar.

Hr. Ólafur Skúlason, biskup yfir Íslandi vígði kirkjuna 17. sunnudag eftir þrenningarhátíð, 25.

september 1994 kl. 16:00. Séra Þorbergur Kristjánsson þjónaði fyrir altari ásamt biskupi.

Tónlistarflutning fyrir athöfn önnuðust Smári Ólason organisti við Digraneskirkju, Örn Falkner

Page 7: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

7

organisti við Kópavogskirkju og Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri. Við athöfnina sá Smári Ólason

organisti um tónlistarflutnig ásamt Einari Jónssyni og Jóhanni Stefánssyni á trompet. Guðrún Lóa

Jónsdóttir söng einsöng, ásamt kór Digraneskirkju og kór Kópavogskirkju.

Dómkirkjan

Dómkirkjan í Reykjavík

Vígsla Dómkirkjunnar við Austurvöll. Eftir Sr. Þóri Stephensen

Kirkjuvígslur hér á landi á tímabilinu frá siðbreytingu, á árunum 1540-1550 og fram yfir miðja 19. öld,

eru efni, sem hefur ekki verið rannsakað til hlítar. Þar eru reyndar mörg vafamál. Þess vegna er t.d.

ekki vitað, hvernig vígsla Dómkirkjunnar í Reykjavík fór fram í smáatriðum árið 1796. Hér verður ekki

lagt út í ítarlega umfjöllun um þetta efni, en þó tínt til það, sem vitað er um slíkar athafnir, hér heima

og á Norðurlöndum, á þeim tíma, sem næstur er vígslu Dómkirkjunnar. Hér verður einnig fjallað um

vígsludag kirkjunnar, sem er annar en talið hefur verið.

Hannes Finnsson Skálholtsbiskup lést 4. ágúst 1796.(208) Ólafur Stephensen stiftamtmaður gerði þá

tillögu til kansellísins í Kaupmannahöfn um tvo menn í biskupsembættið, sr. Markús Magnússon

prófast í Görðum á Álftanesi eða sr. Geir Vídalín dómkirkjuprest í Reykjavík, en hann sat á

Lambastöðum á Seltjarnarnesi. Jafnframt setti Ólafur sr. Markús stiftsprófast, en það fól í sér

þjónustu biskupsembættisins, uns nýr biskup yrði skipaður.(209) Það kom því í hlut sr. Markúsar að

vígja hina nýju dómkirkju í Reykjavík.

Page 8: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

8

Í Árbókum Reykjavíkur eftir Jón Helgason biskup er kirkjan sögð hafa verið vígð 6. nóvember

1796.(210) Við þá dagsetningu hafa kirkjudagar undanfarinna áratuga verið miðaðir. Dagsetningin

mun þó ekki vera rétt. Í bréfi, sem Ólafur stiftamtmaður skrifaði rentukammerinu með

byggingarreikningum kirkjunnar 25. janúar 1797 segir hann, að kirkjan hafi, 30. október árið áður,

verið hátíðlega vígð af herra stiftsprófastinum, Markúsi Magnússyni, og frá þeim tíma hafi

Það virðist óyggjandi, að 30. október 1796 sé hinn rétti vígsludagur. Það styðja a.m.k. tveir

vitnisburðir aðrir. Sr. Markús stiftsprófastur, sem vígði kirkjuna, segir í bréfi, dagsettu 2. nóvember

1796, til sr. Árna Þorsteinssonar, prófasts Norðmýlinga, vegna vígslu aðstoðarprests að Hofi í

Vopnafirði, að hann skuli láta prestsefnið koma til Reykjavíkur til vígslunnar, "hver fram fara á í þar nú

innvígðu nýju Dómkirkju".(212) Ennfremur segir Magnús Stephensen svo í Minnisverðum tíðindum:

"Var hr. prófasturinn, Markús Magnússon, þann 18. ágúst 1796, af hr. stiftamtmanninum settur

stiftprófastur til að gegna biskupsverkum. Vígði hann Reykjavíkur nýju Dómkirkju þann 30. október

sama ár."(213)

Page 9: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

9

Fella- og Hólakirkja

Fella- og Hólakirkja

Þegar ákveðið var að byggja eina kirkju fyrir bæði hverfin (Fellahverfi og Hólahverfi) var hafist handa

um undirbúning byggingarinnar. Skyldi kirkjan heita Fella- og Hólakirkja. Að lokinni samkeppni um

teikningu kirkjunnar var samþykkt að kaupa tillögu arkitektanna Ingimundar Sveinssonar og Gylfa

Guðjónssonar.

Fyrsta skóflustungan var tekin á pálmasunnudag 1982. Formaður bygginganefndar var kosinn Jón

Hannesson, byggingameistari. Haraldur Sumarliðason var ráðinn sem byggingameistari kirkjunnar.

Fullyrða má að mjög vel var staðið að byggingu kirkjuhússins, vandað til verka og hugsað vel um að

húsið yrði í senn heppilegt undir þá starfsemi sem þar fer fram og bæri reisn og fegurð sem

tilhlýðilegt er en án óþarfa íburðar. Það er líka ljóst að allir sem að verkinu komu vönduðu verk sitt og

miklar kröfur gerðar um efnisval.

Auk kirkjuskipsins er í byggingunni safnaðarheimili, kennslustofa, skrifstofur prestanna og annars

starfsfólks, kapella og mikið opið rými á göngum.

Bygging kirkjunnar tók ekki langan tíma. Eftir eitt ár var húsið komið undir þak en innivinna fór fram í

áföngum og var til dæmis messað fyrst í safnaðarheimilinu. Kirkjan var svo vígð formlega á

pálmasunnudag 1988.

Page 10: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

10

Fossvogskirkja

Fossvogskirkja

Í Fossvogskirkju er, auk kirkjuskipsins, kapella, bænhús, líkhús, bálstofa og skrifstofa. Skrifstofan er

opin frá kl. 08:00 - 16:30, alla virka daga. Fossvogskirkja er ekki sóknarkirkja, hún er útfararkirkja í

eigu KGRP, þó er hún búin eins og sóknarkirkja væri og þar er raunar hægt að framkvæma allar

kirkjulegar athafnir. Kirkjan tekur um 350 manns í sæti.

Samkvæmt meðaltalstölum koma yfir 100 þúsund manns til athafna í Fossvogi á hverju ári og er þá

ekki talinn sá fjöldi sem leggur leið sína í Fossvogskirkjugarð.

Starfsmenn Fossvogskirkju sinna margþættum verkefnum. Þeir sjá um að bóka athafnir sem

starfsmenn útfararstofa og prestar biðja um. Þeir taka á móti aðstandendum sem koma til athafna og

sjá um rekstur líkhúss og bálstofu.

Náin samvinna er milli starfsmanna Fossvogskirkju og útfararþjónustumanna, bæði við móttöku

látinna í líkhúsið og við athafnir.

Page 11: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

11

Fríkirkjan

Fríkirkjan í Reykjavík

http://frikirkjan.is/

Hér hefur mér ekki tekist að finna upplýsingar um kirkjuna.

Page 12: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

12

Grafarholtskirkja

Guðríðarkirkja í Grafarholti

Bygging kirkjunnar

Ákveðið var að leita nýrra leiða við byggingu Guðríðarkirkju, sem að tryggði söfnuðinum fagurt

guðshús þar sem jafnframt væri gætt mikillar hagkvæmni. Kirkjuráð með biskup Íslands í broddi

fylkingar hafði forgöngu um slíkt samstarf og er það í fyrsta sinn sem yfirstjórn Þjóðkirkjunnar og

einstök sókn vinna svo náið saman að kirkjubyggingu. Hefur Jöfnunarsjóður sókna styrkt

kirkjubygginguna myndarlega. Guðríðarkirkja er fyrsta kirkja á Íslandi sem byggð er í lokuðu alútboði.

Fjórir verktakar tóku þátt í útboðinu og varð Sveinbjörn Sigurðsson hf. hlutskarpastur. Arkitektar

kirkjunnar eru Þórður Þorvaldsson og Guðrún Ingvarsdóttir hjá Arkþingi ehf . Með Arkþingi ehf. unnu

Landhönnun, Almenna Verkfræðistofan, Fagtækni og Trivium ráðgjöf að gerð tillögunnar. Yfirsmiður

kirkjunnar er Finnur Jóhannsson. Við hönnun kirkjunnar var farin sú óvenjulega leið að ramma

kirkjuskip og safnaðarsali inn með tveimur görðum. Austurgarðurinn myndar því eins konar þrívíða

altaristöflu handan við altarið sem tekur breytingum í takt við árstíðirnar og veitir jafnframt birtu og

dýpt inn í kirkjurýmið. Garðarnir eru hannaðir af Hermanni Ólafssyni hjá Landhönnun svo og Pétri

Jónssyni og Höllu Hrund Pétursdóttur hjá Landark. Reynir Sýrusson húsgagnahönnuður hefur hannað

flestar innréttingar hússins í samráði við arkitekta hússins og eru stólar, altari, grátur og sálmatafla

smíðuð hjá Beyki ehf. Innviðir kirkjunnar eru úr birki sem gefur henni hlýjan og léttan blæ.

Í kirkjunni eru tveir garðar, altarisgarðurinn Geisli - sem kemur í stað altaristöflu - og inngarðurinn

Lilja. Garðarnir eru nefndir eftir tveimur helgikvæðum frá miðöldum.

Page 13: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

13

Grafarvogskirkja

Grafarvogskirkja

Fyrsta skóflustungan var tekin 18. maí 1991. Fyrri hluti kirkjunnar var vígður 12. desember 1993.

Kirkjan var síðan vígð þann 18. júní 2000. Arkitektar hennar eru Finnur Björgvinsson og Hilmar Þór

Björnsson

Grafarvogskirkja er þrískipt, - miðskipið er „Via Sacra,“ hinn heilagi vegur sem táknar um vegferð

mannsins frá vöggu til grafar og áfram til eilífðar. Við enda hins heilaga vegar er hringurinn sem er

söfnuðurinn. Hringurinn er opinn á móti eilífðinni þar sem er altarið; borð Drottins. Þarna sameinast

tveir helstu pólar í kirkjuarkitektúr; vegurinn og hringurinn. Eins og í dómkirkjum miðalda tengjast

miðskipinu ótal rými og kapellur sem þjóna þörfum líðandi stundar.

Miðskipið er steinsteypt og klætt steinum. Steinarnir í veggjum miðskipsins er skírskotun til

ritningarinnar þar sem segir „… látið sjálfir uppbyggjast sem lifandi steinar í andlegt hús.“ Steinarnir

tákna þar mannlífið sem er „… musteri Guðs.“ Þannig eru steinarnir tákn safnaðarins.

Þegar inn í kirkjuna er komið blasir við enda miðskipsins stór steindur gluggi, „Kristnitakan“ eftir Leif

Breiðfjörð sem er um 6 metrar á breidd og 12 metrar á hæð. Veggir og gólf eru klædd steinflísum af

sömu gerð og notaðar eru utaná byggingunni. Í loftinu eru hvítar málmplötur sem stjórna ómtíma

hljóðsins í kirkjunni. Ofan við málmplöturnar er lýsing sem er ofurlítið óregluleg og fer vaxandi þar til

komið er að altarinu þar sem hún er í hámarki í hæð og ljósmagni. Þetta er skírskotun til himinsins.

Ómtíminn lengist eftir því sem nær dregur altari. Forkirkjan og miðskipið „Via Sacra“ er lífæð hússins

þar sem hátíðlegt yfirbragð eykst eftir því sem innar dregur.

Page 14: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

14

Grensáskirkja

Grensáskirkja

Saga Grensássafnaðar

Grensássókn var stofnuð í september 1963 og fyrsti sóknarpresturinn séra Felix Ólafsson var vígður til

starfa í desember það sama ár. Fyrst í stað voru guðsþjónustur haldnar í Breiðagerðisskóla en síðar í

safnaðarsal í Miðbæ við Háaleitisbraut.

Safnaðarheimili kirkjunnar var vígt 1972 og var notað sem kirkja safnaðarins allt fram til 1996, en 8.

desember 1996 var kirkja safnaðarins vígð og tekin í notkun.

Íbúar í Grensássókn voru í ágúst 2003, 6041 talsins.

Page 15: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

15

Hallgrímskirkja

Hallgrímskirkja

Hallgrímskirkja er stærsta kirkja Íslands og rís hæst bygginga yfir höfuðborgina Reykjavík. Turninn er

73 metra hár og þar er hægt að njóta útsýnis yfir borgina, sundin blá og fjallahringinn umhverfis

hana. Hallgrímskirkja er fjölsóttasti ferðamannastaðurinn í Reykjavík.

Alþingi Íslendinga hlutaðist til um byggingu kirkjunnar. Í hugmyndasamkeppni sem haldin var 1929

var áskilið að kirkjan skyldi rúma 1200 manns og hafa háan turn sem gæti nýst fyrir væntanlegt

„víðvarp“ á Íslandi.

Húsameistari ríkisins, Guðjón Samúelsson (1887 – 1950), einn virtasti arkitekt landsins, hófst handa

við að teikna kirkjuna árið 1937. Þjóðlegur stíll einkenndi arkitektúr hans eins og margra starfsbræðra

hans á Norðurlöndum í þá tíð. Aðalbygging Háskóla Íslands, Þjóðleikhúsið og Kristskirkja í Landakoti

eru einnig meðal hugarsmíða hans og handarverka. Hann notaði íslenskar fyrirmyndir og íslenskt efni.

Hallgrímskirkja, sem varð hans síðasta verk, minnir á stuðlaberg, íslensk fjöll og jökla.

Fram til ársins 1940 var Reykjavík einn söfnuður, en það ár voru þrjár nýjar sóknir stofnaðar, þar á

meðal Hallgrímssókn, sem fékk það hlutverk að standa fyrir byggingu Hallgrímskirkju.

Bygging Hallgrímskirkju hófst árið 1945 og 1948 var kjallari kórsins vígður sem kirkjusalur. Þar var

messað þar til nýr kirkjusalur var tekinn í notkun í suðurálmu turnsins árið 1974. Kirkjan sjálf var síðan

vígð 26. október 1986, daginn fyrir 312. ártíð Hallgríms Péturssonar, sama ár og Reykjavík hélt upp á

200 ára afmæli sitt.

Page 16: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

16

Ríki og borg studdu verkið en 60% byggingarkostnaðar kom úr sjóðum safnaðarins og frá

einkaaðilum. Margir listmunir og kirkjugripir eru gjafir frá einstaklingum og samtökum, gefnar til

minningar eða til þess að efla kirkjustarfið.

Háteigskirkja

Háteigskirkja

Háteigsprestakall var stofnað með lögum 17. júlí 1952, en árið 1963 breyttust sóknarmörk með

stofnun Grensásprestakalls. Í upphafi var söfnuðurinn án kirkju, en messað var í Fossvogskapellu og í

hátíðarsal Sjómannaskólans. Háteigskirkja var hönnuð af Halldóri H. Jónssyni arkitekt.

Byggingameistari var Þórður Jasonarson. Þótt ýmsu væri ólokið var kirkjan vígð á aðventu 1965. Það

var þáverandi biskup Íslands, hr. Sigurbjörn Einarsson sem vígði kirkjuna að viðstöddu fjölmenni

Page 17: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

17

Hjallakirkja

Hjallakirkja

Sóknarnefndin skipaði fimm manna byggingarnefnd í ársbyrjun 1988 sem hún fól að annast

undirbúning og umsjón framkvæmda við Hjallakirkju. Byggingarnefnd skipuðu Karl M. Kristjánsson,

formaður, Bragi Lárusson, ritari, Jónína Júlíusdóttir, gjaldkeri sóknarnefndar, Gunnar Þorleifsson og

Steingrímur Hauksson. Með byggingarnefndinni starfaði sóknarprestur, Kristján Einar Þorvarðarson.

Byggingarnefndin lagði mikla vinnu í undirbúning. Hróbjartur Hróbjartsson, arkitekt Vinnustofu

arkitekta hf. var ráðinn til að teikna kirkjuna. Aðrir hönnuðir eru Verkfræðistofa Guðmundar

Magnússonar (burðarþol og lagnir), Tómas Kaaber (rafhönnun), Verkfræðistofan lagnatækni

(loftræstikerfi) og Stefán Einarsson (hljómburður). Að lokinni ítarlegri kynningu á tillögunum meðal

safnaðarfólks var samþykkt á aðalsafnaðarfundi í maí 1991 að hefja byggingu kirkjunnar. Þá hafði

bæjarstjórn afhent söfnuðinum lóðina við Álfaheiði 17 en hún hafði verið afmörkuð sem kirkjulóð

þegar hverfið var skipulagt.

Á Hvítasunnudag, þann 19. maí 1991, helgaði herra Ólafur Skúlason, þáverandi biskup Íslands, lóðina

og dr. theol. Sigurbjörn Einarsson, biskup, tók fyrstu skóflustunguna. Þá hafði verið samið við

verktakafyrirtækið Gunnar & Guðmundur sf. um framkvæmdir við fyrsta áfanga verksins sem var

gröftur og fylling í lóð. Annar áfangi var uppsteypa sökkla. Það verk annaðist fyrirtækið Einar Trausti

og Gunnar og lauk því verki í október 1991. Þriðji og síðasti áfangi framkvæmdarinnar sem var

uppsteypa hússins og fullnaðarfrágangur að utan, ásamt múrhúðun burðarveggja og gólfa að innan

og einangrun þaka, hófst í apríl 1992. Byrgi hf. lauk verkinu að mestu í byrjun árs 1993.

Page 18: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

18

Kársneskirkja

Kárneskirkja (Kópavogskirkja)

Kópavogskirkja var reist á árunum 1958-1962 eftir teikningum frá embætti húsameistra ríkisins sem

Hörður Bjarnason veitti forstöðu á þeim tíma. Ragnar Emilsson arkitekt hjá embættinu vann ásamt

húsameistara mikið að teikningu kirkjunnar. Grunnur hennar var helgaður þann 16. ágúst árið 1958

og hornsteinn lagður af biskupi Íslands þann 20. nóvember árið eftir. Það var svo þann 16. desember

árið 1962 sem kirkjan var vígð af Sigurbirni Einarssyni þáverandi biskupi Íslands.

Kópavogskirkja er krosskirkja og að því leyti er hún hefðbundin en bogar hennar, sem svo mjög

einkenna hana, gera hana sérstaska og gefa henni í senn bæði tignarlegt og mjúkt yfirbragð. Kirkjan

þykir ein af fegurstu guðshúsum landsins og fagur vitnisburður um þá sem að unnu og verðug

umgjörð um helgihald og tilbeiðslu. Hún stendur á stað sem nefnist Borgir eða Borgarholt en

umhverfi hennar er friðað vegna þeirrar sérstöðu og þess margbreytileika sem það býr yfir. Frá

kirkjunni er útsýni mikið og fagurt enda eru þeir margir sem koma þangað bæði til að njóta hins mikla

útsýnis og skoða kirkjunna og njóta þar friðar og andlegrar uppbyggingar.

Page 19: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

19

Kefas

Fríkirkjan Kefas

Saga Kefas

Hér verður einungis stikklað á stóru varðandi upphaf og þróun Fríkirkjunnar Kefas. Vonandi verður

einhverntímann síðar hægt að gera þessari sögu betri skil því hún er einkar athyglisverð

og á köflum næsta ótrúleg.

Tildrög stofnunar kirkjunnar voru þau að um nokkurt skeið hafði fámennur hópur fólks hist sem

bæna- og Biblíuleshópur í heimahúsi. Ætlun þessa hóps var ekki að verða að eða stofna kirkju þó að

sú hafi orðið raunin. Stækkaði hópurinn með tíð og tíma og kom að því að hann varð

of stór til vistunar í heimahúsi. Var þá hafin leit að heppilegu húsnæði undir hópinn og starfsemi

hans, sem sífellt varð umsvifameiri. Fljótlega kom svo að þeim tímamótum að kjarni þessa hóps ákvað

að stofna kirkju formlega og varð Kefas, kristið samfélag til þann 18. janúar 1992 í Ólafsvík þar sem

hjón innan hópsins bjuggu.

Frá og með mars 1992 fram í apríl 1993 var Kefas með starfsemi sína í veglegum bílskúr hjóna í

Kópavoginum og undi þar vel sínum hag. Fluttist Kefas svo til Garðabæjar í hálft ár þar sem kirkjan

fékk inni einn dag í viku í húsnæði hjá öðrum kristnum söfnuði. Í september 1993 flutti Kefas svo

aðsetur sitt að Dalvegi 24 í Kópavoginum þar sem kirkjan starfaði samfleytt í 8 ár.

Árið 2000 hófst svo mikið átak hjá kirkjunni þar sem hafist var handa við að byggja eigið húsnæði

undir alla starfsemi kirkjunnar að Vatnsendabletti 601 við Vatnsendaveg. Var svo flutt inn í það

húsnæði haustið 2001 og nafni kirkjunnar breytt í Fríkirkjan Kefas.

Page 20: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

20

Langholtskirkja

Langholtskirkja

Vígslan fór fram (hvenær?) eins og áætlað hafði verið. Sóknarnefnd gekk til kirkju með helgimuni

með biskup í fararbroddi ásamt sr. Jóni Helga Þórarinssyni, sem þá var í kórnum, sr. Pjetri Maack, sr.

Árelíusi Níelssyni, sr. Sigurði Hauki, Ólafi Skúlasyni, dómprófasti og biskupi Íslands, hr. Pétri

Sigurgeirssyni. Hannes Hafstein, sem lengi hafði verið safnaðarfulltrúi eða frá því Magnús Jónsson lét

af því starfi 1966, gekk í fararbroddi heimamanna með kross, Ingimar Einarsson bar biblíu, Stefán

Guðjohnsen bar kaleikinn, Garðar Þórhallsson bar patínuna, helgisiðabókin var í höndum Hennings

Finnbogasonar, Þórný Þórarinsdóttir bar sálmabók og Jóhann Sigurðsson og Sigríður Jóhannsdóttir

báru kertastjaka. Formaður Kórs Langholtskirkju, Gunnlaugur Snævarr, stóð við altarið og las úr

helgisiðabók.

Forseti Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir var gestur safnaðarins á þessum degi, ásamt borgarstjóra,

Davíð Oddssyni og frú og Jóni Helgasyni, dóms- og kirkjumálaráðhera.

Þá var einnig boðið u.þ.b. 300 öðrum gestum og þóttust sumir þó hafa verið settir hjá, aðallega þó

þeir sem ekki höfðu sést á kirkjubekkjum til þessa.

Vígslunni var sjónvarpað beint og þótti takast vel þó tæknilegir erfiðleikar hefðu gert vart við sig.

Stafnglugginn í austri reyndist myndavélunum erfiður og lausu míkrófónarnir rugluðust lítillega hjá

umsjónarmönnum. Engin leið er að láta dauða bókstafi lýsa því lífi er var á vettvangi síðustu dagana

fyrir vígsluna.

Page 21: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

21

Þreyta, gleði, tilhlökkun og stolt blönduðust í hjörtum fólksins og mynduðu afar eftirminnilega

stemmningu sem þeim gleymist aldrei er þarna var. Björninn

var unninn. Orðin ,VIÐ VERÐUM AÐ KOMA UPP KIRKJU OG ÞAÐ SEM ALLRA FYRST´ sem Helgi

Þorláksson mælti í Laugarneskirkju á sóknarnefndarfundi

Langholtssafnaðar 22. febrúar 1953 voru nú meira en orðin tóm. Vilhjálmur Bjarnason sagði einnig 9.

desember 1973:,VIÐ SKULUM REISA KIRKJU.´

Fullbúið safnaðarheimili og glæsileg kirkja var risin, erfiðleikar og strit, von og trú hafði borið ávöxt.

Page 22: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

22

Laugarneskirkja

Laugarneskirkja

Laugarneskirkja var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni (f.1887 - d.1950) og var vígð þann 18. desember

árið 1949

Ekki hefur tekist að finna nánari upplýsingar um þessa kirkju og byggingu hennar.

Page 23: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

23

Lindakirkja

Lindakirkja

Lindakirkja er í Lindaprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Lindasókn í Kópavogi var stofnuð í

febrúar 2002 og varð að prestakalli sama ár. Fyrsta skóflustunga að kirkjunni var tekin í febrúar 2007

og í ágúst 2008 var samið um annan áfanga verksins, fullfrágenginn sal og safnaðaraðstöðu. Síðasta

guðsþjónustan var haldin í Salaskóla kl. 11:00 14. desember 2008 og kl. 17:00 sama dag vígði biskup

Íslands safnaðarsal kirkjunnar. Fyrsta guðsþjónustan fór síðan fram sunnudaginn 21. desember s.á.

Við vígsluna söng kór safnaðarins undir stjórn Keith Reed organista og Helga Magnúsdóttir söng

einsöng.

Arkitektastofan ASK varð fyrir valinu eftir útboð. Lóð kirkjunnar er í svonefndum Hádegishólum við

gatnamót Fífuhvammsvegar og Salavegar. Nýr grafreitur liggur að kirkjunni, sem er óvenjulegt við

nýjar kirkjur í þéttbýli nú á dögum.

Kirkjuna prýða steindir gluggar eftir Gerði Helgadóttur myndhöggvara.

Page 24: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

24

Neskirkja

Neskirkja

Neskirkja var vígð pálmasunnudag 1957. Arkitekt kirkjunnar var Ágúst Pálsson, húsameistari. Fyrir

nokkrum árum var kirkjan friðuð hið ytra en hún er fyrsta kirkja landsins sem ekki lýtur hefðbundnum

stíl í arkitektúr.

Page 25: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

25

Seljakirkja

Seljakirkja

Kirkjubyggingin eftir Valgeir Ástráðsson

Verkefnið var stórt, en bjartsýni og þörf knúðu til verka. Kirkjubyggingar eru ekki greiddar af opinberu

fé eins og skólar, svo dæmi sé tekið, heldur verða eigendur kirkjunnar, fólkið í hverfinu, að sjá fyrir

þeirri byggingu. En þar var staðið saman. Á byggingartímanum var oft leitað til safnaðarfólks og þar

var vel við brugðist.

John Fr. Zalewski var ráðinn byggingarmeistari kirkjumiðstöðvarinnar.

11. júní árið 1983 tók Pétur Sigurgeirsson, þáverandi biskup Íslands, fyrstu skóflustungu að

byggingunni við hátíðlega athöfn á kirkjustæðinu. Strax að lokinni þeirri athöfn hófust framkvæmdir

með stórvirkum vinnuvélum. Sú vinna var gefin til minningar um Ingunni Unnsteinsdóttur, unga

stúlku, sem látist hafði af slysförum skömmu áður. Það sem annað var táknrænt um samstöðu og vilja

fólks til að koma kirkjunni upp. Það ár og fram á það næsta var unnið við sökkla og kjallara. Í

maímánuði 1985 var hafist handa við að steypa alla útveggi húsanna, og því verki var lokið á rúmum

mánuði. 23. júní 1985 var haldin eftirminnileg guðsþjónusta innan veggja kirkjusalarins undir berum

himni. Sumarið 1986 var þak eins húsanna fjögurra reist og gengið frá þaki tengibyggingarinnar. 10.

október 1987 var skrifstofa sóknarprests flutt í kirkjumiðstöðina ásamt annarri starfsemi sem verið

hafði í Tindaselinu. Það sama ár var samhliða unnið að kirkjuhúsinu. 3. sunnudag í aðventu, 13.

desember 1987 var Seljakirkja vígð við hátíðlega athöfn og mikið fjölmenni. Sigurður Guðmundsson,

biskup, framkvæmdi vígsluna.

Page 26: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

26

Seltjarnarneskirkja

Seltjarnarneskirkja

Hér á eftir fer stutt lýsing á kirkjunni: Greiður aðgangur er inn á báðar hæðir kirkjunnar, en kjallari

eða jarðhæð er undir kirkjunni, þar sem eru skrifstofur sóknarprests, organista og kirkjuvarðar. Þar

er einnig salur þar sem messað var frá jóladegi 1985 til vígsludags 19. febrúar 1989. Þar er hægt að

loka af fyrir kennslustofu og vinnu með smærri hópum. Á neðri hæð er einnig stór salur, sem notaður

er fyrir æskulýðsstarfsemi. Uppbygging kirkjunnar er þannig, að veggir eru steyptir, en þök léttbyggð.

Þak kirkjuskipsins er þrístrent og hvílir á steyptum skífum, en burðarviðir eru úr límtré. Einnig halda

límtré uppi þökum útbygginga, sem hvíla á sömu undirstöðum auk minni undirstaða. Límtrén eru

sýnileg inni, en á milli þeirra er klætt með furu. Þakið er klætt að utan með hvítum stálplötum.

Gluggaband er upp við þak milli aðalþaks og útbygginga hornrétt á þakflötinn allt í kring og auk þess

eru gluggar upp við þak útbygginga. Rými yfir skrúðhúsi og forkirkju er nýtt fyrir kirkjugesti og er þar

rúm fyrir 40 manns, en á aðalgólfi er rúmt um 235 manns, að meðtöldu söngfólki.

Safnaðarsalurinn uppi var tekinn í notkun á hvítasunnu 1990. Í framtíðinni er stefnt að því að nýta

rými yfir andyri og snyrtingum, svo og eldhúsi, en þar er hægt að fá um 50-60 manns í sæti umfram

þau, sem komast fyrir á aðalgólfi, en það eru um 100 manns.

Kristín Friðbjarnardóttir, formaður sóknarnefndar frá stofnun sóknarinnar árið 1974-1990 tók fyrstu

skóflustunguna að kirkjunni þann 16. ágúst 1981, en ekki var hafist handa við bygginguna fyrr en á

vordögum 1982.

Page 27: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

27

Á jóladag árið 1985 vígði þáverandi biskup Íslands, herra Pétur Sigurgeirsson guðsþjónustusalinn á

neðri hæð kirkjunnar, en þá var einnig vígð skírnarskál, sem enn er í notkun en hún var gjöf frá Eyjólfi

og Ernu Kolbeins. Þá keypti söfnuðurinn lítið fjagra radda orgel, sem enn er í notkun. Stefnt er að því

að festa kaup á nýju orgeli, sem hæfir kirkjunni á þessu ári.

Hinn 19. febrúar 1989 vígði Herra Pétur Sigurgeirsson síðan aðalkirkjuskipið.

Fáa kirkjumuni á söfnuðurinn enn sem komið er. Þó má nefna altarissilfur, sem teiknað var af Herði

Björnssyni og smíðað af Vali Fannar, gullsmið. Það var gefið til kirkjunnar af Lions klúbbi

Seltjarnarness þann 3. október 1987. Silfrið var fyrst tekið í notkun þann 4. október auk sérbikara,

sem pantaðir voru frá Danmörku.

Page 28: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

28

Maríukirkja er Rómversk kaþólsk kirkja við Raufarsel í Reykjavík.

Maríukirkjan við Raufarsel

Maríukirkja, Kirkja Maríu, Stjörnu Hafsins

Maríukirkja í Breiðholti var tekin í notkun 25. mars árið 1985 og var vígð 24. maí árið 2001.

Að vígslumessunni lokinni færði biskupinn, Jóhannes Gijsen, sókninni styttu. Það var brjóstmynd af verndara sóknarinnar, Maríu, Stjörnu Hafsins. Brjóstmyndin sýnir andlit Guðsmóðurinnar eins og hún hefur verið heiðruð í margar aldir í basilíku Vorrar Frúar í Maastricht í Hollandi, þar sem María heldur á barninu Jesú.

Þessi brjóstmynd var gjöf herra Alfons Castermans, fyrrum aðstoðarbiskups í Roermond, sem Maastricht biskupsdæmið tilheyrir og sem hið forna Skálholtsbiskupsdæmi heyrði undir. Vegna þessara tengsla við Ísland, var það ósk biskupsins að sýna þau með þessari gjöf.

Þessa styttu ber fyrir augu þeirra sem ganga inn í Maríukirkju. Hún er þar í anddyrinu. María tekur þar á móti gestum sem koma í kirkju hennar og leiðir þá til Sonar hennar, sem bíður þeirra þar. Að auki verndar hún sóknina, sem er helguð henni.

Page 29: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

29

Krossinn

Krossinn Kópavogi

Krossinn var stofnaður 12. ágúst 1979 í Kópavogi og hlaut löggildingu trúfélags 1982. Fyrstu árin hafði

söfnuðurinn aðsetur í Auðbrekku 34, en flutti sig um set 1982 og innréttaði safnaðarheimili á efri hæð

KRON-hússins að Álfhólsvegi 32. Fjórum árum síðar keypti Krossinn húsnæði í Auðbrekku 2, en

núverandi safnaðarheimili er við Hlíðarsmára 5-7.

Rætur Krossins liggja í Hvítasunnukirkjunni og má einna helst skilgreina söfnuðinn sem afsprengi

hvítasunnuvakningarinnar. Þannig leggur hann áherslu á persónulegt trúarsamfélag meðlima sinna og

þátttöku hvers og eins í safnaðarstarfinu. Frá upphafi hefur söfnuðurinn einkum verið þekktur fyrir

líflegt samkomuhald og ákveðna rödd inn í samfélagið, meðal annars hvað snertir vímuefnavarnir og

siðferðisleg álitamál. Forstöðumaður Krossins er Sigurbjörg Gunnarsdóttir.

Page 30: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

30

Vegurinn er frjáls kirkja í Kópavogi. Tilgangur kirkjunnar er að breiða út ríki Krists innan lands og utan samkvæmt kristniboðsskipuninni. Vegurinn boðar að Biblían sé innblásið orð Guðs og þegar það er boðað hreint og ómengað hefur það kraft til að frelsa frá synd, lækna sjúkdóma og breyta lífi fólks. Vegurinn var stofnaður árið 1982. Margir af stofnendunum tóku þátt í "Ungu fólki með hlutverk" sem starfaði innan íslensku Þjóðkirkjunnar á sínum tíma. Í framhaldi af því varð Vegurinn til sem ávöxtur náðargjafavakningarinnar sem átti sér stað á áttunda áratugnum. Hugsjón kirkjunnar er að vera vettvangur þar sem fólk uppbyggist og fær lækningu á líkama og sál. Stofnendur samfélagsins höfðu kirkju Nýja testamentisins í huga varðandi andlegar þjónustur og embætti. Starf kirkjunnar felst m.a. í samkomuhaldi, biblíufræðslu, bænastundum og fyrirbænastarfi og fer að mestu fram í húsnæði hennar að Smiðjuvegi 5 í Kópavogi. Á samkomum er Jesús Kristur boðaður með lofgjörð, predíkun og fyrirbæn. Friður og nærvera Drottins verður raunveruleg. Reglulega eru haldnir lækningadagar þar sem nærvera og flæði kærleiksanda Guðs læknar mein líkama og sálar. Lögð er áhersla á mikilvægi heimahópa þar sem fólk kemur saman í smærri hópum. Þar er fræðsla, beðið fyrir persónulegum málefnum og svo fá menn sér kaffi og spjalla um trúna. Unga fólkið í kirkjunni hefur auðvitað sinn vettvang með líflegum samkomum, ferðalögum og félagslífi. Vegurinn hefur staðið fyrir trúboði á erlendri grundu og hefur svo að segja tekið bæinn Tasiilaq á austur Grænlandi að sér. Þar er mikil þörf, ekki síst hjá unga fólkinu og er rík áhersla lögð á forvarnir vímuefna í því starfi. Hópar frá kirkjunni eru sendir þangað reglulega en þess má geta að Tasiilaq er vinabær Kópavogs þar sem Vegurinn hefur aðsetur. Fólk í Veginum trúir á mikilvægi einingar innan líkama Krista og leitast við að hafa gott samstarf við aðra söfnuði sem og allt fólk. Vegurinn trúir því að Biblían í heild sé Guðs orð, innblásið af Heilögum anda.

Page 31: Kirkjur og guðshús í Reykjavík

31

Um Hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu

Hvítasunnuhreyfingin á Íslandi hóf starfsemi sína í Vestmannaeyjum árið 1921 og breiddist þaðan út um landið. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía var stofnuð árið 1936 og er sjálfstæð fríkirkja.

Hvítasunnuhreyfingin er sú kirkjudeild sem vex hvað hraðast í heiminum í dag en nú eru hvítasunnumenn um 400 milljónir og um 600 milljónir með tengdum kirkjudeildum. Mjög gott samstarf er við aðrar kirkjudeildir.

Starfsemi kirkjunnar

Í Fíladelfíu er mjög öflugt tónlistarstarf, barnastarf, Royal Rangers (kristilegt skátastarf),

unglingastarf, alþjóðakirkja á ensku og starf eldri borgara. Þá er boðið upp á ýmis námskeið

og má þar nefna hin vinsælu „Alfa“ námskeið sem haldin eru tvisvar á ári.

Markmið kirkjunnar

Markmið kirkjunnar er að boða fagnaðarerindið um Frelsarann Jesú Krist. Kirkjan hvetur fólk til að elska Drottin Guð af öllu hjarta, allri sálu og öllum huga og elska náungann eins og sjálft sig. Einnig hvetur hún til mannbætandi lífsstíls sem gerir einstaklinga að betri þjóðfélagsþegnum.

Meðlimir kirkjunnar eru úr öllum stigum þjóðfélagsins.

Hjálparstarf

Söfnuðurinn hefur lagt sig fram um að hjálpa þeim sem fara halloka í lífinu og þeim sem hafa ánetjast fíkn eiturlyfja og áfengis. Samhjálp, sem rekur umfangsmikið hjálpar- og meðferðarstarf, er sjálfstætt starfandi stofnun sem komið var á fót af Fíladelfíu árið 1973.