55
51. útgáfa – 7. ágúst 2014 – vika 32 Nýtt góðæri feNgið að láNi Einkaneysla íslenskra heimila er komin á fullt. Lántökur aukast og innstæður þeirra fara minnkandi. Samhliða hefur orðið 35 milljarða viðsnúningur á vöruskiptum. Neyðarástand blasir við.

Kjarninn - 51. útgáfa

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Versnandi vöruskiptajöfnuður skapar neyðarástand á Íslandi. ÁTVR kostar hátt í þrjá milljarða á ári. Stígur Helgason með Kjaftæði o.fl. Kjarninn er kominn.

Citation preview

Page 1: Kjarninn - 51. útgáfa

51. útgáfa – 7. ágúst 2014 – vika 32

Nýtt góðæri feNgið að láNi

Einkaneysla íslenskra heimila er komin á fullt. Lántökur aukast og innstæður þeirra fara minnkandi. Samhliða hefur orðið 35

milljarða viðsnúningur á vöruskiptum. Neyðarástand blasir við.

Page 2: Kjarninn - 51. útgáfa

Hlaðvarp

Formaður samtakanna 78 segir viðhorf til hinsegin fólk versna

sjóNvarp

Viral Trade ætlar að setja upp kauphöll fyrir sýndargjaldmiðla

NeyteNdamál

Starfsfólk ÁTVR fór í 46 utanlandsferðir 2013 og fyrirtækið greiddi 15 milljónir í risnu og gjafir

Laugavegi 71, 101 ReykjavíkSími 551-0708

[email protected]

www.kjarninn.is

ISSN 2298-4402

Ritstjóri: Þórður Snær JúlíussonFramkvæmdastjórar: Gísli Jóhann Eysteinsson og Hjalti Harðarson

Kjarninn miðlar ehf. gefa Kjarnann út.

Tíðindamikið sumar alþjóða samfélagsinsKristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, skrifar um hvarf alþjóðakerfisins.

Þegar Facebook breytir þá breytist alltÁhrif Facebook á niðurhal á vefnum gerir það að verkum að ýmsir vilja setja vöruþróun fyrirtækisins takmarkanir.

Ráðherra eins og skagfirskur MósesStígur Helgason segir ljóst að Gunnar Bragi Sveinsson ráði engu nema hvar hann fer í klippingu.

Kaffiþamb og fasteigna auglýsingarSigríður Thorlacius söngkona í sjö spurninga yfirheyrslu Kjarnans.

51. útgáfa

efnisyfirlit7. ágúst 2014 – vika 32

Page 3: Kjarninn - 51. útgáfa

Nýtt útlit á hleðslu og nýr fjölskyldumeðlimur

hledsla.is

Sama hvað gerist líkaminn þarf Hleðslu

Page 4: Kjarninn - 51. útgáfa

leiðari

ægir Þór eysteinsson

kjarninn 7. ágúst 2014

01/03 leiðari

metunum rignir á Keflavíkurflugvelli þessa dagana. Í júlí var þar enn eitt metið slegið í fjölda farþega, en þá fóru tæplega 550 þúsund farþegar um flugvöllinn og var það í fyrsta skiptið sem fjöldinn í einum mánuði

fer yfir hálfa milljón. Fjölgunin nemur 17,8 prósentum miðað við sama mánuð í fyrra, en það sem af er árinu hafa 2,2 millj-ónir farþega stungið nefinu inn á Keflavíkurflugvöll. Það er fjölgun upp á ríflega tuttugu prósent á milli ára.

Athygli skal vakin á því að um er að ræða farþega um Keflavíkurflugvöll, bæði þá sem eru að koma og fara, en fjölgunin í júlímánuði rennir óneitanlega stoðum undir spár sérfræðinga sem telja að fjöldi ferðamanna á Íslandi á þessu ári muni fara yfir eina milljón, í fyrsta skipti síðan mælingar hófust.

Þessari miklu farþegafjölgun síðustu ár fylgir aukið álag á innviði flugstöðvarinnar, eð því er fram kom í

How do you like iceland?

Ægir Þór Eysteinsson skrifar um skaðlegt stefnuleysi stjórnvalda varðandi ferðamannaiðnaðinn.

Page 5: Kjarninn - 51. útgáfa

02/03 leiðari

fréttatilkynningu frá Isavia á dögunum. Til þess að bregðast við sprengingunni hefur Isavia ráðist í ýmsar framkvæmdir undanfarið. Nýverið var lokið við tvöföldun á afkastagetu farangursflokkunarkerfisins og þessi dægrin er unnið að því að steypa sökkul að fimm þúsund fermetra viðbyggingu við suðurhluta flugstöðvarinnar sem gert er ráð fyrir að taka í

notkun árið 2016.

viðrekstrar og olnbogaskotÁ sama tíma og alþjóðaflugvöllurinn okkar er svo gott sem sprunginn ríkir kraðaksástand á helstu ferðamanna-stöðum landsins, með tilheyrandi við-rekstrum og olnbogaskotum, samfara ört hækkandi verði á súkkulaðitertu-sneiðum, vondu kaffi og snakkpokum. Á meðan brugðist er við vegna hriktandi

innviða á Keflavíkurflugvelli eru aðrir innviðir látnir reka á reiðanum. Það blasir við að stóraukinn fjöldi ferðamanna hefur sömuleiðis áhrif á aðra innviði samfélagsins, svo sem vegakerfið og heilbrigðiskerfið. Þar hlýtur óneitanlega að hrikta líka í stoðum.

Biðraðir við helstu ferðamannastaði landsins eru orðnar daglegt brauð og á þeim er farið að sjá. Algjört stefnuleysi virðist ríkja varðandi ágang á íslenskar náttúruperlur.

Sprenging í komu ferðamanna til landsins hefur margar afleiðingar, og alls ekki bara slæmar. Verslunarrekstur blómstrar til að mynda við Laugaveginn, litlar búðir með sérhæfðan varning spretta upp eins og gorkúlur og töluvert líf hefur færst í minni bæjarfélög úti á landi, sem áður máttu muna sinn fífil fegurri. Á sama tíma hlaðast ný hótel upp, sem margir efast um að muni nokkurn tímann standa undir sér. Gullæðið er í algleymingi.

tjaldað til einnar nætur eins og venjulegaÞó svo að ferðaþjónustan sé nú orðin ein helsta tekjustoð þjóðarbúsins má gera miklu betur. Í tengslum við boðaðan

„Viljum við að Ísland verði eins og

heildsöluverslun, með malbikaða vegi fyrir

Yaris bílaleigubíla með ótakmarkað framboð af vörum fyrir alla?“

Page 6: Kjarninn - 51. útgáfa

03/03 leiðari

náttúrupassa hefur verið um það rætt að koma á sérstöku komugjaldi á alla farþega sem hingað koma. Komugjaldið myndi að sjálfsögðu leggjast á íslenska farþega líka, enda óheimilt að mismuna fólki eftir þjóðerni. Tekjur af náttúru-passanum myndu skila milljörðum króna, en pattstaða passans skýrist að mörgu leyti af því að hagsmunaaðilar í ferðaþjónustunni geta ekki komið sér saman um tvennt; hver eigi að halda utan um fjármagnið sem safnast og hver og hvernig skuli útdeila því. Þá getur ferðaþjónustugeirinn ekki hugsað sér fyrir sitt litla líf að stjórnvöld fái að festa klær sínar í sjóðinn, enda rökstuddur grunur fyrir hendi að stjórnvöld muni verja fénu í annað en því er ætlað.

Á meðan hópast yfir milljón ferðamenn til landsins með tilheyrandi ágangi og náttúruspjöllum. Á meðan stjórnvöld og hagsmunaaðilar geta ekki komið sér saman um hvert skuli stefna er hætta á að landið glati sérstöðu sinni. Sem fyrr er tjaldað til einnar nætur á Íslandi.

Stórri spurningu er þar að auki ósvarað, varðandi það hvernig við viljum markaðssetja Ísland. Viljum við að Ísland verði eins og heildsöluverslun, með malbikaða vegi fyrir Yaris-bílaleigubíla með ótakmarkað framboð af vörum fyrir alla? Eða viljum við að Ísland verði dýr lúxusverslun, þar sem fjöldi ferðamanna er ef til vill takmarkaður og rómantík landsins felst fyrst og síðast í malarvegasveitarómantíkinni?

ríkissjóður þarf að fá stærri sneið af kökunniFyrir ekki svo löngu eyddu Íslendingar meira af peningum á ferðum sínum erlendis en ferðamenn eyddu hér á landi. Er það ekki hagur okkar allra, fyrst við erum að opna dyr landsins upp á gátt þó að við séum engan veginn í stakk búin að taka við þeim öllum svo gott sé, að við högnumst vel í leiðinni? Gistináttaskatturinn, sem hefði skilað ríkissjóði umtals verðum fjármunum, var talaður niður og ferða-þjónustuna hryllir við óhjákvæmilegri fargjaldahækkun sem sérstakt komugjald myndi hafa í för með sér. Væri ekki ráð að við lærðum af reynslunni og krefðumst þess að við græddum svolítið á auðlindum okkar svona til tilbreytingar?

Page 8: Kjarninn - 51. útgáfa

01/07 neytendamál kjarninn 7. ágúst 2014

átvr kostar skildinginn

Það kostar 2,8 milljarða á ári að reka ÁTVR. Starfsfólk fór í 46 utanlandsferðir í fyrra og um 15 milljónir voru greiddar í risnu og gjafir.

Page 9: Kjarninn - 51. útgáfa

02/07 NeyteNdamál

Beinn rekstrarkostnaður ÁTVR var um 2,8 millj-arðar króna í fyrra. Þar af fóru 1,6 milljarðar króna í laun og launatengd gjöld fyrir þau 270 ársverk sem reiknuð voru unnin á árinu. For-stjórinn, Ívar J. Arndal, fékk alls 15,8 milljónir

króna í laun. Það gera 1.316 þúsund krónur á mánuði. ÁTVR er stofnun í eigu íslenska ríkisins sem er með

einokun á sölu á tóbaki og áfengi. Af þeim rúmu 27 milljörð-um króna sem hún veltir á ári fara um 22,5 milljarðar króna í vasa ríkisins. Þorri þeirrar upphæðar er hins vegar til kominn vegna skatta og gjalda sem lögð eru á áfengi og tóbak, eða 21,3 milljarðar króna. Því koma einungis 1,2 milljarðar króna af þeim peningum sem renna til ríkisins á ári til vegna arðgreiðslna.

Hundruð milljóna í húsnæði og markaðskostnaðFyrir utan laun greiðir ÁTVR rúman hálfan milljarð króna í húsnæðiskostnað og tæpar 200 milljónir króna í markaðs- og dreifingarkostnað. Undir síðarnefnda liðinn falla meðal annars allar auglýsingar Vínbúðanna, sem flestar leggja áherslu á samfélagslega ábyrgð samhliða því að vörumerki búðanna er auglýst, og útgáfa á veglegu efni á borð við ársskýrslu fyrirtækisins, sem er hönnuð og uppsett af Janúar, prentuð af Odda og dreift víða.

Samkvæmt rekstrarreikningi ÁTVR greiddi fyrirtækið samtals 259 milljónir króna í stjórnunar- og skrifstofu-kostnað fyrir utan laun og húsnæðiskostnað og 53,5 millj-ónir króna í það sem er kallað „annar rekstrarkostnaður“. Hvorugum liðanna fylgja nánari skýringar. Kjarninn sendi fyrirspurn á Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR, og óskaði eftir sundurliðun á þessum kostnaði.

Í svari hennar kemur meðal annars fram að starfsmanna-kostnaður vegna heilsueflingar, samgöngustyrkja, funda og félagsgjalda hafi numið 31,2 milljónum króna í fyrra og að 31,9 milljónir króna hafi farið í síma, burðargjöld, prentun, ritföng og þess háttar. Hægt er að sjá sundurliðunina í heild sinni í meðfylgjandi grafík.

NeyteNdamálÞórður Snær Júlíusson

L @thordursnaer

„Af 46 ferðum voru 33 ferðir

vegna náms- og kynningarferða

starfsfólks, þar voru þátt-

takendur starfs-fólk Vínbúða,

vínsérfræðingar og stjórnendur.“

Page 10: Kjarninn - 51. útgáfa

03/07 NeyteNdamál

46 utanlandsferðirÍ ársskýrslu ÁTVR kemur einnig fram að starfsfólk hafi farið í samtals 46 ferðir til og frá Íslandi á árinu 2013. Þar er ekki tilgreint hver kostnaður við ferðirnar var, hverjir það voru sem fóru í þær ferðir né hver tilgangur þeirra var. Í svari Sigrúnar Óskar við fyrirspurn Kjarn-ans um málið er því ekki svarað beint hver kostnaður við utanlandsferðirnar hafi verið, þótt í sundurliðun á stjórnunar- og skrifstofukostnaði komi fram að ferða-kostnaður, innlendur og erlendur, hafi verið 19,8 milljón-ir króna. Þar kemur auk þess fram að ÁTVR hafi eytt 15,3

Forstjóri ÁtVr: „ÁFengi er ólíkt ÁVaxtasaFa“

Ljóst er að hart verður tekist á um fyrirkomulag áfengissölu á næstu misserum, enda fyrirhugað að leggja fram frumvarp í haust um að flytja hana í matvöruverslanir. Samhliða verður að teljast líklegt að ÁTVR í núverandi mynd verði annaðhvort lagt niður eða selt til einkaaðila. Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, fjallar um þessi mál í formála sínum í árs-skýrslu fyrirtækisins fyrir árið 2013 og spyr hvort áfengi sé venjuleg söluvara. Í formála Ívars segir: „Þeir sem vilja frjálsræði í áfengissölu segja að ekk-ert flóknara eða erfiðara sé að selja áfengi umfram aðrar söluvörur. Enginn munur sé á að selja t.d. mjólk eða ávaxtasafa annars vegar og áfengi hins vegar. Hvað er svona merkilegt við áfengissöluna? Er áfengi ekki bara eins og hver önnur söluvara? Það er eðlilegt að menn spyrji sig þessara spurninga. Ef litið er á áfengi eins og hverja aðra söluvöru þá eiga lögmál markaðarins við og ríkiseinkasölur þar með óþarfar. Hvað er þá málið? Af hverju látum við ekki áfengissöluna í hendur einkaaðilum og lofum samkeppninni að ráða.

Lítum nú nánar á þetta. Sjá má að áfengi er ólíkt ávaxtasafa. Ávaxtasafi býr ekki til fíkla með sama hætti og áfengi. Ávaxtasafi veldur ekki lífshættu-legum sjúkdómum. Samfélagið ber ekki mikinn kostnað af ofdrykkju ávaxtasafa. Samfélagið ber hins vegar kostnaðinn af alkóhólisma, áfengis-tengdum sjúkdómum, áfengistengdum glæpum og

ölvunarakstri. Sú staðreynd að áfengi er ávana-bindandi og ógnar lífi þeirra sem misnota það og annarra sem misnotkunin bitnar á veldur miklum kostnaði fyrir samfélagið. Skattborgarar greiða þann kostnað eins og annan sem felst í að búa í siðuðu samfélagi.

Þess vegna er áfengi ekki venjuleg söluvara og á ekki að meðhöndlast sem slík. Eðlilegt er að setja stífar reglur um söluna og mikilvægt að halda samfélagskostnaðinum eins lágum og kostur er. Ríkisrekin áfengisverslun sem hefur samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi selur minna áfengi en almenn-ar verslanir sem keppa um hylli viðskiptavina.

Minni sala, minni skaðsemi, minni kostnaður fyrir samfélagið. Til þess er leikurinn gerður. Í nýlegri aðgerðaáætlun WHO fyrir Evrópu er lögð á það mikil áhersla að þar sem ríkisreknar einkasölur á áfengi eru við lýði eigi skilyrðislaust að halda í þær. Íbúar Norður -Ameríku vita vel að áfengi er ekki venjuleg söluvara. Áfengi er t.d. eina varan sem getið hefur verið í stjórnarskrá Bandaríkjanna og það meira að segja tvisvar. Í fyrra skiptið þegar allsherjarbann var lagt við sölu áfengis í öllum Bandaríkjunum og í seinna skiptið þegar banninu var aflétt. Ekki hefur verið minnst á ávaxtasafa í stjórnarskrá Bandaríkjanna. Enda er það svo að í mörgum fylkjum Banda ríkjanna og Kanada eru ennþá starfandi ríkisreknar áfengiseinkasölur.“

Page 11: Kjarninn - 51. útgáfa

FÁÐU DEAN OG FLEIRI BINDI Á SONS.IS

Page 12: Kjarninn - 51. útgáfa

Rekstrarkostnaður ÁTVR samtals

2.793.000.000 kr.

04/07 NeyteNdamál

Húsnæðiskostnaður504.000.000 kr.

Markaðs- og dreifingarkostnaður

197.000.000 kr.

Laun og launatengd gjöld1.596.000.000 kr.

Sími, burðargjöld, prentun og ritföng o.þ.h31.900.000 kr.

Ferðakostnaður, inn-lendur og erlendur19.800.000 kr.

Aðkeypt sérfræðiþjónusta og peningaflutningar44.400.000 kr.

Rekstur tölvukerfa og hugbúnaðar109.700.000 kr.

Starfsmannakostnaður*31.200.000 kr.

Þjónustusamningar Vínbúða18.800.000 kr.

Kostnaður vegna mötu-neytis og kaffikostnaður28.000.000 kr.

Vinnufatnaður6.800.000 kr.

Endurmenntun6.700.000 kr.

Afskriftir183.600.000 kr.

Gjafir og risna15.300.000 kr.

rekstrarkostnaður átvrSundurliðaður og samandreginn

* v/ heilsueflingar, samgöngu-

styrkja, funda og félagsgjalda

Page 13: Kjarninn - 51. útgáfa

05/07 NeyteNdamál

milljónum króna í gjafir og risnu. Líklegt er að hluti þeirrar risnu sé vegna dagpeninga á ferðalögum erlendis.

Í svari Sigrúnar Óskar segir enn fremur: „Af 46 ferðum voru 33 ferðir vegna náms- og kynningarferða starfsfólks, þar voru þátttakendur starfsfólk Vínbúða, vínsérfræðingar og stjórnendur. Fjórar ferðir eru á ráðstefnur og níu ferðir á fundi vegna samstarfs við einkasölur á Norðurlöndunum, Bandaríkjunum og Kanada, þessar ferðir eru flestar farnar af forstjóra og stjórnendum.“ Því voru rúmlega 70 prósent allra ferða á vegum ÁTVR svokallaðar náms- og kynningarferðir starfsfólks.

tóbakssalan þriðjungur af tekjumÍ síðustu útgáfu Kjarnans var fjallað ítarlega um umsvif ÁTVR í áfengissölu á Íslandi, þar sem fyrirtækið er með ein-okunarstöðu. Til stendur að leggja fram frumvarp á Alþingi í haust sem mun heimila sölu á áfengi í verslunum. Verði það að lögum mun slíkt frumvarp hafa gífurleg áhrif á ÁTVR, enda 2/3 hluti veltu fyrirtækisins tilkominn vegna áfengis-sölu. Þorri þeirra tekna myndi hvort eð er fara í ríkissjóð ef

áfengið yrði selt annars staðar, í formi áfengisgjalds og virðis-aukaskatts. Ljóst er að stærsti hluti kostnaðar ÁTVR er líka vegna áfengissölunnar, enda eru starfræktar 48 verslanir um land allt í þeim tilgangi að selja það með tilheyrandi starfsmannakostnaði.

Hinn þriðjungur tekna ÁTVR, 9,1 milljarður króna, kemur hins vegar úr tóbaks-

sölu. Hún útheimtir ekki jafn mikið umstang og áfengissalan. Þvert á móti er öll tóbaksdreifing ÁTVR nú orðin miðlæg, þ.e. hún fer fram á einum og saman staðnum, Útgarði, dreifingarmiðstöð fyrirtækisins í Reykjavík. Í ársreikningi ÁTVR segir að „mikið hagræði fylgir breytingunni þar sem

Page 14: Kjarninn - 51. útgáfa

06/07 NeyteNdamál

birgðahald og vörumeðhöndlun minnkar og dreifingarkostn-aður lækkar. Samhliða hefur verið lögð áhersla á rafrænar pantanir til hagsbóta fyrir alla aðila“.

Kostnaðurinn ekki gefinn uppÍ ársskýrslu ÁTVR kemur ekkert fram um hver kostnaður fyrirtækisins af tóbakssölunni sé. Kjarninn leitaði því eftir upplýsingum um hver sá kostnaður væri. Í svari Sigrúnar Óskar, fyrir hönd ÁTVR, segir að „Kostnaður vegna tóbaks-

sölu er ekki færður sér-staklega í bókhaldi ÁTVR nema vörunotkun tóbaks sem nam 7,7 milljörðum. Tóbaksgjaldið er skilgreint sem hluti af kostnaðarverði seldra vara í bókhaldi ÁTVR og fært undir vörunotkun“.

Uppistaðan í vörunotkun tóbaks er tóbaksgjald sem rennur mánaðarlega til ríkisins, alls 5,5 milljarðar króna í fyrra. Þegar vöru-gjald tóbaks er dregið frá tekjum fyrirtækisins vegna þess sitja 1,4 milljarðar króna eftir, sem er hærri upphæð en ÁTVR greiddi ríkinu í arð í fyrra. Því má

ætla að þorri þess hagnaðar sem ÁTVR sýnir árlega sé vegna sölu á tóbaki, ekki vegna áfengis, þ.e. að sala áfengis sé ekki arðbær.

ÁTVR upplýsir því ekki beint hver kostnaður vegna tóbakssölunnar er. Í ársskýrslu fyrirtækisins sést hins vegar að 5,5 milljarðar króna af „vörunotkun“ eru vegna tóbaksgjalds og því eru 2,2 milljarðar króna vegna annars kostnaðar.

Uppistaðan í tóbakssölu ÁTVR er reyktóbak, og aðallega

30.000

25.000

20.000

15.000

10.000

5.000

0 kg

27.616 kg

28.800 kg

30.231 kg

19.948 kg

16.940 kg

10.874 kg

Neftóbakssala átvr 2002 til 2013Rúmlega 30 tonn af neftóbaki seldust árið 2011

2002 2007 2008 2011 2012 2013

Page 15: Kjarninn - 51. útgáfa

07/07 NeyteNdamál

sígarettur. Rúmlega 93 prósent af tóbakssölunni eru vegna þess.

fjórföldun á veltu vegna „rudda“En ÁTVR framleiðir líka tóbak, neftóbak, og hefur gert árum saman. Í janúar 2002 var fínkornað munn- og neftóbak bann-að með lögum á Íslandi. Það þýðir að neftóbakið sem ÁTVR framleiðir hefur verið í nánast einokunarstöðu á markaðnum síðan lögin voru sett. Samhliða hefur neysla á munntóbaki aukist töluvert og þeir sem neyta þess kaupa annaðhvort smyglvarning á svörtum markaði, þar sem er mikið framboð, eða nota neftóbakið sem ÁTVR framleiðir, hinn svokallaða „Rudda“, sem munntóbak. Þessi aukna neysla hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opinbera svo um munar, bæði vegna hækkunar á tóbaksgjaldi og stóraukinnar eftirspurnar. Tóbaksgjald á neftóbak hækkaði til að mynda um 100 prósent 1. janúar 2013. Meðalútsöluverð á tóbaksdós af „Rudda“ er, samkvæmt lauslegri könnun Kjarnans, nú um 1.900 krónur.

Page 16: Kjarninn - 51. útgáfa

Neyðar ástand að skapast á ÍslandiAukin einkaneysla heimila er farin að skapa þjóðhagsleg vandamál. Aðgerðir stjórnvalda hafa ýtt mjög undir hana. Skuldasöfnun heimila er komin á fullt á ný.

01/05 Efnahagsmál kjarninn 7. ágúst 2014

Innlán

Útlán Nóvember 2013

Nóvember 2012

Page 17: Kjarninn - 51. útgáfa

efNaHagsmálÞórður Snær Júlíusson

L @thordursnaer

02/05 efNaHagsmál

Í aðdraganda falls íslenska bankakerfisins haustið 2008 lifði íslenska þjóðin mjög hátt og gerði það án þess að eiga fyrir því. Í lok árs 2007 voru til að mynda fasteignaskuldir íslenskra heimila um 108 prósent af landsframleiðslu og átti þá eftir að taka tillit til

annarra neysluskulda, eins og bíla- og yfirdráttarlána. Eftir hrunið hækkuðu þessar skuldir mjög hratt og í mars

2009 námu þær 135 prósentum af þjóðarframleiðslu. Ástæður þessa voru fyrst og síðast tvær: Önnur var að stór hópur íslenskra heimila ákvað fyrir hrun að taka há fasteigna- og bílalán í öðrum gjaldmiðlum, þrátt fyrir að vera með tekjur í íslenskum krónum, vegna þess að vextir þeirra voru mun lægri. Þau lán hækkuðu stórkostlega í kjölfar þess að ís-lenska krónan hrundi ásamt bönkunum. Hin er sú að þorri skulda íslenskra heimila var verðtryggðar skuldir og þegar

verðbólgan fór með himinskautun-um á árunum 2008 og 2009 hækk-uðu skuldir þeirra gríðarlega.

Gengisfall krónunnar og sú háa verðbólga sem fylgdi hruninu eru þau atriði sem margir kalla forsendubrest í íslenska hagkerfinu og þrýstihópar hafa kallað eftir að verði leiðréttur. Á undanförnum árum hefur verið unnið ötullega að

þeirri leiðréttingu. Gengistryggðu lánin reyndust flest vera ólögmæt, ráðist var í sértækar skuldaaðlaganir og svo hina frægu 110 prósenta leið. Þessar aðgerðir gerðu það að verkum að höfuðstóll skulda heimilanna í landinu hafði verið færður niður um 244 milljarða króna í lok árs 2013. Þessar aðgerðir leiddu til þess að skuldir heimilanna voru komnar niður í rúmlega 105 prósent af landsframleiðslu.

Þetta er nánast einsdæmi um þróun á skuldsetningu heimila í heiminum síðan fjármálakreppan skall á. Einungis Írland og Bandaríkin hafa upplifað sambærilega þróun. Íslensk heimili voru að koma sér út úr hinu gegndarlausa skuldaveseni fyrirhrunsáranna.

„Á milli nóvember- og desember-mánaðar 2013, þegar skuldaniður-

fellingaráformin voru tilkynnt, jukust útlán innlánsstofnana til

heimila landsins um tæp tíu pró-sent, fóru úr 633,7 milljörðum króna í 694,2 milljarða króna.“

Page 18: Kjarninn - 51. útgáfa

03/05 efNaHagsmál

enn meiri skuldaniðurfellingEn margur vill meira og sitjandi ríkisstjórn tilkynnti í lok nóvember 2013 að verðtryggðar skuldir yrðu lækkaðar um 72 milljarða króna til viðbótar í gegnum ríkissjóð. Auk þess er stefnt að því að ná fram 70 milljarða króna viðbótar lækkun á húsnæðisskuldum með því að leyfa heimilum að nota séreignarlífeyrissparnaðinn sinn til slíks. Seðlabankinn telur að skuldaniðurfærslan nemi um átta prósentum af lands-framleiðslu ársins 2014.

Í nýjustu fjármálastöðugleikaskýrslu Seðlabankans segir: „Skuldaniðurfærslan eykur hreinan auð heimilanna sem hefur áhrif til að auka útgjaldavilja og þar með talið einkaneyslu. Aukið veðrými mun í einhverjum tilfellum leiða til aukinnar lántöku heimila á móti niðurfellingunni og því er líklegt að nettó breyting á skuldum heimila verði minni en sem nemur 8% af landsframleiðslu. … Seðlabankinn gerir ráð fyrir verulega aukinni einkaneyslu á árinu 2014, þ.e. að aukningin verði 4,6% í ár í stað 1,6% á síðasta ári en aðgerðir stjórnvalda vegna lækkunar húsnæðisskulda heimila hafa hér töluverð áhrif.“

partíið byrjar á nýAf hagtölum að dæma virðist ljóst að íslensk heimili hafi ekki beðið boðanna, eftir að tilkynnt var um auknar skuldaniður-fellingar, við að fara að skuldsetja sig á fullu aftur. Á milli nóvember- og desembermánaðar 2013, þegar skuldaniðurfell-ingaráformin voru tilkynnt, jukust útlán innlánsstofnana til heimila landsins um tæp tíu prósent, fóru úr 633,7 milljörð-um króna í 694,2 milljarða króna. Þetta er langhæsta stökk í útlánum til heimila sem átt hefur sér stað eftir bankahrunið.

Skuldir heimilanna við innlánsstofnanir eru einungis skuldir þeirra við þau fyrirtæki sem taka við innlánum og því alls ekki tæmandi. Heimilin skulda líka íbúðalánasjóði, lífeyrissjóðum landsins og Lánasjóði íslenskra námsmanna mörg hundruð milljarða króna. Skuldir þeirra við innláns-stofnanir eru þó ágætis mælistika á aukna skuldasöfnun. Þær náðu hámarki í desember 2007, þegar þær námu 838

fleiri bílar hafa selst á fyrstu mánuðum ársins 2014.

-10 milljarðar króna

25 milljarðar króna

er vöruskiptajöfnuður þjóðarbúsins það sem af

er ári

er vöruskiptajöfnuður þjóðarbúsins á sama tíma

í fyrra

er það hlutfall sem skuldir heimila munu lækka til viðbótar vegna skulda-

niðurfellingar

Page 20: Kjarninn - 51. útgáfa

04/05 efNaHagsmál

milljörðum króna. Skuldirnar höfðu þá hækkað um 55 pró-sent á tveimur árum, farið úr 541 milljarði króna.

Samhliða því að nýju viðskiptabankarnir keyptu útlán fyr-irrennara sinna á niðursettu verði lækkuðu skuldir heimil-anna mikið og voru 513 milljarðar króna í nóvember 2009. Þorra þess afsláttar var svo komið til viðskiptavina þeirra í gegnum höfuðstólslækkanir vegna gengislánadóma, sértækr-ar skuldaniðurfellingar og 110 prósenta leiðarinnar. Frá þeim tíma hafa skuldir heimilanna við innlánsstofnanir hækkað jafnt og þétt og eru nú tæplega 714 milljarðar króna.

Samhliða hefur gengið töluvert á innlán heimilanna. Þau hafa dregist saman um 136 milljarða króna frá lokum árs 2009, um tæpan fimmtung. Það þýðir að þjóðin hefur verið að nota sparnaðinn sinn til að takast á við eftirhretur hrunsins. Til viðbótar höfðu heimili landsins nýtt sér tímabundnar heimildir til að taka út séreignarlífeyrissparnað upp á um 100 milljarða króna í lok síðasta árs.

Staðan í dag er því svona: sparnaður heimilanna hefur dregist verulega saman en heildarskuldir þeirra aukist umtalsvert.

neyðarFundir haldnir Vegna ójöFnuðar sem ógnar rýmkun haFta

Samhliða aukinni skuldsetningu heimila er ríkis-búskapurinn að glíma við skyndilegan, og stór-hættulegan, neikvæðan vöruskiptajöfnuð. Hann er að mestum hluta til drifinn áfram af mikilli lækkun útflutningstekna en líka af aukinni einkaneyslu. Það sem af er árinu 2014 er vöruskiptajöfnuður Íslands neikvæður um tíu milljarða króna. Það þýðir að virði þess sem við framleiðum og flytjum út er tíu milljörðum króna minna en það sem við flytjum inn og kaupum. Á sama tímabili í fyrra var vöruskipta-jöfnuður jákvæður um 25 milljarða króna. Viðsnún-ingurinn er því heilir 35 milljarðar króna.

Þessi halli er mjög alvarlegur fyrir þjóðarbúið og samkvæmt heimildum Kjarnans telja margir hátt-settir aðilar innan Seðlabankans og stjórn kerfisins að neyðarástand ríki í þjóðarbúinu. Stjórnvöld

tilkynntu nýverið skipan framkvæmdastjórnar um afnám hafta og hafa látið í það skína að vinna við rýmkun þeirra gæti hafist fljótlega. Það ójafnvægi sem er í vöruskiptum þjóðarinnar ógnar mjög þeim áformum.

Heimildir Kjarnans herma að mikil fundarhöld hafi átt sér stað, meðal annars með aðkomu er-lendra sérfræðinga, vegna þessa ástands undan-farin misseri. Meðal þess sem ráðgjafarnir erlendu hafa verið að ræða við stjórnvöld er að ákveðin þjóðhagsleg skilyrði verði að vera til staðar til að hægt sé að rýmka höft. Eitt það mikilvægasta er að þjóðarbúið fái fleiri krónur fyrir framleiðslu sína en það borgar fyrir vörurnar og þjónustuna sem það flytur inn.

er aukning útlána til heimila í mánuðinum eftir að skulda-

niðurfellingaráform ríkis-stjórnarinnar voru tilkynnt.

er aukning á einkaneyslu á fyrsta ársfjórðungi 2014.

er aukning á veltu á húsnæðis markaði á milli ára.

Page 21: Kjarninn - 51. útgáfa

05/05 efNaHagsmál

einkaneyslan á flugÞessi aukna skuldsetning þjóðarinnar tekur á sig ýmsar myndir. Ljóst er að tvennt drífur hana aðallega áfram: aukin lántaka vegna húsnæðiskaupa og aukin einkaneysla.

Glæðing húsnæðismarkaðarins hefur vart farið framhjá neinum. Eftir mikil rólegheit áranna eftir hrun er skollinn á stormur. Samkvæmt Greiningardeild Íslandsbanka hefur húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um tæp tíu prósent á einu ári og velta á húsnæðismarkaðnum er 21,6 pró-sentum meiri á fyrstu mánuðum ársins 2014 en á sama tíma

árið áður. Fjárfestingar í húsnæði jukust enn fremur um 31 prósent á fyrsta ársfjórðungi.

Einkaneyslan er líka komin á fleygiferð aftur, en það er sú þjónusta og þær vörur sem heimilin nota. Þetta getur verið matur, fatnaður, skemmt-anir, utanlandsferðir, bíl-ar og svo framvegis. Hún hafði dregist stórkostlega saman á árunum 2008 og 2009 en aukist lítillega, farið úr 1,2 í 2,6 prósent, á tímabilinu 2011-2013. Á

undanförnum mánuðum hefur hún tekið kipp. Þrátt fyrir að þjóðarframleiðsla hafi dregist saman um 0,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi ársins 2014 jókst einkaneysla um 3,9 prósent.

Hægt er að sjá merki þessa í ýmsum tölum. Þannig hafa til að mynda selst 30 prósentum fleiri bílar hérlendis á fyrstu sjö mánuðum ársins 2014 en á sama tímabili í fyrra, samkvæmt tölum frá Samgöngustofu. Greiðslukortavelta Íslendinga erlendis, sem er mælikvarði á umfang þess fjár sem heimilin eyða í útlöndum, hefur líka aukist mikið. Í febrúar var veltan til að mynda 26 prósentum meiri en í sama mánuði árið áður.

Fleiri og dýrari sumarfríGreiðslukortavelta Íslendinga erlendis, sem er mælikvarði á umfang þess fjár sem heimilin eyða í útlöndum, hefur aukist mikið. Í febrúar 2014 var velt-an 26 prósent meiri en í sama mánuði árið áður.

Page 22: Kjarninn - 51. útgáfa

Hlaðvarp KjarNaNs

Hinsegin dagar í reykjavíkHilmar Magnússon formaður Samtakanna 78

kjarninn 7. ágúst 2014

Bakslag í viðhorfi fólksSegir versnandi viðhorf almennings í garð hinsegin fólks vera áhyggjuefni

01/01 KosNiNgar

Hlaðvarp Kjarnans er aðgengi-legt á vefnum www.kjarninn.is

Kjarninn ræddi við Hilmar Magnússon, formann Samtakanna ´78, í tilefni af Hinsegin dögum í Reykjavík sem nú standa sem hæst.

Hilmar segir mikið hafa áunnist í réttindabaráttu hinsegin fólks hér á landi á síðustu árum og systursamtök víða erlendis líti til þess góða árangurs sem hér hafi náðst. Hann segir að hinsegin fólk finni þó fyrir versnandi viðhorfum í sinn garð í samfélaginu, sem sé mikið áhyggjuefni.

Smelltu hér til að hlusta á þáttinn

Page 23: Kjarninn - 51. útgáfa

01/01 sjóNvarp

sjóNvarp

NýsköpunViral Trade

kjarninn 7. ágúst 2014

Kjarninn, Keldan og Arion banki hafa tekið höndum saman um að fjalla ítarlega um Start Up Reykjavík verkefnið, frumkvöðla og íslensk nýsköpunarfyrirtæki.

peningar fyrir sýndarféViral Trade hyggst koma á fót kauphöll fyrir sýndargjaldmiðla úr tölvuleikjum

Kauphöll fyrir sýndargjaldmiðla úr tölvuleikjum er í burðarliðnum, en fyrirtækið Viral Trade þróar nú viðskiptahugmynd sína i tengslum við Startup Reykjavík. Með tilkomu kauphallarinnar munu tölvuleikjaspilar-ar geta selt gervipeninga og önnur verðmæti úr tölvuleikjum á opnu markaðstorgi fyrir alvöru peninga. Kjarninn ræddi við Guðlaug Lárus Finnbogason, stofnanda Viral Trade, um hina væntanlegu kauphöll.

Page 24: Kjarninn - 51. útgáfa

01/01 sjö spUrNiNgar

svo lánsöm að geta legið áhyggjulaus milli þúfnaHvað gleður þig mest þessa dagana?

Að vera svo lánsöm að komast í frí og geta farið út í sveit hvar ég get svo legið áhyggjulaus milli þúfna.

Hvert er þitt helsta áhugamál?

Kaffiþamb með áhugaverðu fólki. Ég hef líka sérstakan áhuga á að skoða fasteignaauglýsingar.

Hvaða bók lastu síðast?

Er með Dísu-sögu eftir Vigdísi Gríms á náttborðinu. Einnig stór-skemmtilega bók, Leyndarmál 30 kvenna eftir Gunnar M. Magnúss

sem ég nældi mér í í gömlu bóka-búðinni á Flateyri ekki alls fyrir löngu.

Hvert er þitt uppáhaldslag?

Það fer algjörlega eftir árstíma, vikudegi og tíma dags.

Til hvaða ráðherra berðu mest traust?

Ætli ég beri ekki mest traust til þeirra sem hafa sig minnst í frammi hverju sinni. Ef það segir eitthvað.

Ef þú ættir að fara til útlanda á morgun og mættir velja land, hvert myndir þú vilja fara?

Ég myndi fara til Sikileyjar og bjóða öllum sem mér þykir vænt um með mér. Við myndum borða sítrusávexti í öll mál.

Hvaða fer mest í taugarnar á þér?

Ymislegt. Til dæmis að vera með hósta. Það er óbærilegt með öllu. Að vera andvaka er svo fullkom-lega óþolandi.

sjö spUrNiNgar

sigríður thorlaciussöngkona

01/01 sjö sPURNINGAR kjarninn 7. ágúst 2014

Page 25: Kjarninn - 51. útgáfa

SMASSSALAT

PANTA & SÆKJA5 78 78 74

Page 26: Kjarninn - 51. útgáfa

sérstakur saksóknari án starfs

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, var áður sýslumaður á Akranesi. Hann fékk leyfi frá starfinu þegar hann tók við sem sérstakur saksóknari. Í nýlegum hrókeringum innanríkisráðuneytisins var sýslumönnum og lögreglustjórum landsins fækkað umtalsvert og nú hefur verið skipað í flestar nýju stöðurnar. Í Bakherbergjum hefur verið sagt frá því að Ólafur hafi ekki sótt um neina þeirra og sé því ekki lengur með örugga vinnu þegar tími hans sem sérstakur saksóknari er liðinn.

Ætlar sér að stýra íslensku ökokrim

Miklar bollaleggingar eru um það á meðal manna í Bakherberginu að þetta þýði að Ólafur muni sækjast eftir að stýra nýrri efnahagsbrotastofnun sem mun í náinni framtíð taka við verkefnum sérstaks saksóknara og mögulega skattrannsóknarstjóra. Þverpólitískur vilji er fyrir uppsetningu slíkrar stofn-unar sem myndi verða að fyrirmynd hinnar norsku Ökokrim. Fyrstu skrefin í þessa átt voru stigin þegar efnahagsbrotadeildin var flutt yfir til sérstaks sak-sóknara. Það embætti hefur hins vegar tímabundin líftíma og hægt er að leggja það niður hvenær sem er.

af NetiNU

samfélagið segirum ástandið á Gasa

kjarninn 7. ágúst 2014

facebook twitter

hjördís jónsdóttir

Hamas hætta ekki fyrr en þeir elska börnin sín meir en þeir hata gyðinga....Sà þetta einhversstaðar og verð að segja að því miður

virðist sem Hamas liðum sé skítsama um sitt fólk. Þeir bera jafn mikla âbyrgð og fj.. Ísraelsmenn.Þriðjudagurinn 5. ágúst 2014

eVa hauksdóttir

Fréttin er semsagt ekki sú að þeir hafi lýst yfir vopnahléi og svikið það, heldur sú að dragi úr mannfalli.

Mánudagurinn 4. ágúst 2014

guðmundur kristjÁn guðmundsson

Þetta er ekki Vopnahlé er pása Ísraelsmanna á barnamorðum.Mánudagurinn 4. ágúst 2014

ólaFur Þór ólaFsson @halloheimur

Hamas er andstæðingurinn en börn og óbreyttir borgarar eru skotmörkin. Hverjir eru "góðu karlarnir" í þessu stríði?

http://fb.me/6W1iO8t3DMánudagurinn 4. ágúst 2014

dagur B. eggertsson @Dagurb

Yfir 1715 eru látnir á Gaza. Sex spítalar og 30 heilbrigðisst. hafa lokað vegna árása. Skólar eru sprengdir. Þessu verður að linna. Núna!

Sunnudagurinn 3. ágúst 2014

adalheidur snaeBj @adalheidursn

Af hverju er Ísland ekki með balls til að gera þetta? http://www.visir.is/boliviumenn-lysa-thvi-yfir-ad-israel-se--hrydjuverkariki--/

article/2014140739828��Föstudagurinn 1. ágúst 2014

01/01 samfélagið segir

Page 27: Kjarninn - 51. útgáfa

erleNt

gallerí

kjarninn 7. ágúst 2014

Smelltu á myndirnar til að sjá þær stærri og lesa um augnablikin

Page 28: Kjarninn - 51. útgáfa

hátt í þúsund látnir af völdum ebólaveirunnarEbólafaraldurinn í Vestu-Afríku hefur dreifst víða í Líberíu, Síerra Leóne og Nígeríu eftir að hann hófst í Gíneu í mars. Hátt í þúsund manns hafa látist af völdum sjúkdómsins sem ræðst á rauðu blóðkornin. Alþjóðaheilbrigðismála-stofnuninn telur rúmlega 1.700 manns sýkta.

Mynd: AFp

Page 29: Kjarninn - 51. útgáfa

Bein íhlutun rússa líklegri en nokkru sinniEftir að uppreisnarmenn í Úkraínu skutu niður farþegaþotu fyrir þremur vikum hafa stjórnvöld í Úkraínu náð stórum svæðum á sitt vald sem uppreisnarmenn réðu yfir áður. Því er talið líklegra en nokkru sinni fyrr að Rússar blandi sér í átökin með beinum hætti enda eru þeir í þröngri stöðu í málinu.

Mynd: AFp

Page 30: Kjarninn - 51. útgáfa

jarðskjálfti í luidan-héraðiMeira en 367 fórust og nærri 2.000 manns eru slasaðir eftir að jarðskjálfti reið yfir hið fjalllenda Luidan-hérað í suð-austurhluta Kína á mánudag. Skjálftinn mældist 6,1 að styrk, nógu öflugur til að leggja heimili fjölmargra í rúst. Gríðarlega umfangsmiklar björgunaraðgerðir voru skipulagðar.

Mynd: AFp

Page 31: Kjarninn - 51. útgáfa

Boðið upp á andlega hjálppalestínsk börn hlutu andlegan stuðning frá starfsfólki Sameinuðu þjóðanna í skóla sem breytt hefur verið flóttamannabúðir í Jabalia, norðarlega á Gasa-ströndinni. „Við reynum að hjálpa þeim að finna fyrir gleði og hamingju, og hafa gaman í búðunum,“ sagði sálfræðingur sem starfar með börnunum.

Mynd: AFp

Page 32: Kjarninn - 51. útgáfa

aðstæður kannaðar í vopnahléiVopnahléið sem ríkir á Gasa er enn brothætt þó sendinefndir palestínu og Ísrael fundi í Kaíró um framlenginu þess. Árásir Ísrael á Gasa hafa staðið í mánuð og liggja 1.875 palestínumenn í valnum og 67 Ísraelar.

Mynd: AFp

Page 33: Kjarninn - 51. útgáfa

OFBELDI ER ÚTBREIDDASTAMANNRÉTTINDABROT Í HEIMI.SAMAN GETUM VIÐ BREYTT ÞVÍ.

Gakktu í Systralagið! www.unwomen.is · Sími 552 6200

Page 34: Kjarninn - 51. útgáfa

01/01 spes

01/01 spes kjarninn 7. ágúst 2014

spes Óupplýstur bandarískur þingmaður elur á hræðsluáróðri í garð innflytjenda

innflytjendabörn líklega smituð af ebólaveirunni

repúblikaninn Todd Rokita, sem á sæti í fulltrúadeild bandaríska þingsins, telur að innflytjendabörn frá Mið-Ameríku séu mögulega

smituð af Ebólaveirunni. Þingmaðurinn lét ummælin falla í

útvarpsviðtali á dögunum, en Ebólaveiran hefur dregið um átta hundruð manns til bana í Vestur-Afríku á árinu.

Þá fullyrti Rokita í áðurnefndu útvarps-viðtali að almenningi stafaði töluverð heilsufarsógn af því að börnunum væri komið í fóstur hjá bandarískum ættingjum

þeirra eða velgjörðarmönnum tímabundið, áður en þau væru send aftur úr landi, eða til frambúðar.

Engin dæmi eru um að nokkur hafi smitast af Ebólaveirunni á vesturhveli jarðarinnar, og ekkert þeirra ríflega þrjátíu þúsund barna sem komið hefur verið fyrir í fóstur í Bandaríkjunum hefur greinst með veiruna, að því er fram kemur í upplýsingum frá bandarísku Flóttamannastofnuninni.

Þá undirgangast innflytjendabörn ítarlega læknisskoðun og bólusetningu við komuna til Bandaríkjanna.

Page 35: Kjarninn - 51. útgáfa

01/05 álit

vandi heimilanna, fyrirtækjanna og þjóðarinn-ar er krónan, sem vegna smæðar framkallar sveiflur, verðbólgu og miklu hærri vexti en þekkjast annars staðar. Krónan er mesti óvinur íslenskra launamanna og heimila. Vegna

þess að trúverðugleiki Seðlabanka Íslands og innlends hagkerfis mun seint jafnast á við trú-verðugleika seðlabanka stærstu viðskiptalanda heims má búast við að innlendir vextir verði hærri en erlendir vextir um ókomna framtíð. Það hefur meðal annars það í för með sér að afborg-anir af fasteignalánum eru hærri og að fjárfestingar einstaklinga og fyrirtækja eru óhagstæðari. Hátt vaxta-stig á Íslandi hefur orðið til þess að fyrirtæki fjármagna sig í síauknum mæli í erlendri mynt. Atvinnulífið er með öðrum orðum á undanhaldi frá krónunni.

vandi íslensku krónunnar

Bjarni Janusson skrifar um þann kostnað sem almenningur ber vegna íslensku krónunnar.

álit

Bjarni janussonNemi

kjarninn 31. júlí 2014

Page 36: Kjarninn - 51. útgáfa

02/05 álit

Kostnaður krónunnar Á meðan við erum með sjálfstæða mynt verðum við að halda úti gjaldeyrisvarasjóði, sem við eigum ekki fyrir og verðum þess vegna að taka að láni. Vaxtakostnaður vegna gjaldeyris-varasjóðsins er um 33 milljarðar króna á ári. Krónan veldur því að vaxtamunur á ríkisskuldabréfum og húsnæðislánum er allt að 4,5% hærri hér á landi en í nágrannalöndum okkar. Þessi vaxtamunur stafar af verðbólgu og óstöðugleika, sem rekja má beint til krónunnar. Vegna hárra skulda þjóðar-búsins fara miklir fjármunir í að greiða niður vaxtakostnað skulda. Skuldir þjóðarinnar allrar (ríkissjóðs, heimila og

fyrirtækja) eru rétt rúmlega 4.500 milljarðar. Þjóðin öll greiðir því hátt í 200 milljarða í vaxta-kostnað af krónunni. Allur kostnaður af vöxtum lendir vitanlega á almenningi beint eða óbeint. Þannig gæti sparnaður ríkisins farið í að koma til móts við skuldsett heimili og lækkaðar skuld-ir fyrirtækja myndu einnig koma heimilum til góða, með aukinni fjárfestingu atvinnulífsins, hærri launum eða lægra verðlagi. Útgjöld ríkis-sjóðs eru rúmlega 570 milljarðar, ríkissjóður einn og sér borgar um 90 milljarða króna í vexti.

Höfundur telur það glapræði að ríkið skuli borga um 16% af útgjöldum sínum í vaxtakostnað af krónunni.

Allur útflutningur á sjávarafurðum er um 230 milljarðar. Árlegur kostnaður landsmanna vegna krónunnar samsvarar því nær öllum útflutningstekjum sjávarafurða. Þessi auka-kostnaður landsmanna vegna krónunnar jafngildir um 13% af landsframleiðslu. Það hljóta allir stjórnmálaflokkar að vera sammála um að engin þjóð þolir slíkan kostnað af sínum eigin gjaldmiðli.

Mesti sparnaður Íslandssögunnar yrði með því að taka upp annan gjaldmiðil. Þjóð sem notar svo dýran gjaldmið-il er langt komin með að gera stóran hluta þegna sinna eignalausa. Á síðustu fimm árum höfum við greitt yfir 1.000 milljarða í vaxtakostnað og við munum þurfa að greiða aðra 1.000 milljarða næstu fimm árin með áframhaldi krónunnar.

„Þjóð sem notar svo dýran gjald-

miðil er langt komin með að

gera stóran hluta þegna sinna eignalausa.“

Page 37: Kjarninn - 51. útgáfa

03/05 álit

verðbólga og verðtryggingKrónan veldur einnig hærri verðbólgu. Verðbólgan er mikil af því að við erum með litla og veika mynt. Á síðustu 60 árum hefur verðbólga verið um það bil 16% að meðaltali og verðlag á Íslandi hefur sexfaldast frá árinu 1986. Verðbólga hefur einnig valdið því að kaupmáttur hefur rýrnað afar mikið síðustu áratugi. Á síðasta aldarfjórðungi hefur kaupmáttur einungis aukist um 25-30% á meðan laun hafa hækkað um 355%. Frá árinu 1989 hafa því 92% launahækkana á Íslandi brunnið upp í verðbólgu.

Hrun krónunnar árið 2009 tvöfaldaði lán í erlendum gjaldmiðlum og hækkaði verðtryggð húsnæðislán um tugi prósenta, vegna þess að verðbólgan rauk af stað við gengis-hrunið. Ímyndum okkur ef skuldir heimila hefðu lækkað um 20% árið 2009. Þá hefði 40 milljóna króna lán farið niður í 32 milljónir. Út af verðbólgunni væri þetta lán hins vegar komið upp í rúmlega 40 milljónir í dag.

Verðtryggingin er afleiðing af krónunni, verðtryggingin er þannig óhjákvæmilegur fylgifiskur krónnunar. Það er helst í vanþróuðum ríkjum, sem búa við óstöðugan gjaldmiðil og mikla verðbólgu, sem almenn verðtrygging tíðkast. Fólk treystir sér hins vegar ekki til þess að lána peninga hérlendis nema lánin séu verðtryggð eða með mjög háum vöxtum vegna þess að það er svo mikil sveifla í hagkerfinu. Það er því ólíklegt að mikill áhugi sé á að gera langtímasamn-inga í viðkomandi mynt án verðtryggingar. Það að dæma verðtryggingu ólöglega leysir ekki lánavanda heimilanna, lánavandinn mun einfaldlega breytast og ekki endilega til hins betra.

gengissveiflur og gjaldeyrishöft Gjaldeyrishöft kallast þau höft sem ríkið setur á gjaldeyrinn. Þetta þýðir að erlendir fjárfestar mega einungis taka ákveðna upphæð af peningum úr landinu. Þetta fælir erlenda fjárfesta og veldur meðal annars því að hér á landi er fjárfesting nú í sögulegu lágmarki. Höftin hindra það að fjármunir séu nýttir þar sem þeirra er mest þörf og valda því að innlendur

Page 38: Kjarninn - 51. útgáfa

04/05 álit

fjármálamarkaður missir tengsl við alþjóðlega fjármála-markaði. Þannig takmarka höftin möguleika innlendra aðila til að sækja sér fjármagn, sem dregur úr samkeppnishæfni atvinnulífsins og hagvexti. Þrátt fyrir þessa ókosti eru þessi höft hins vegar nauðsynleg hér á landi. Einkum vegna þess að höftin koma í veg fyrir að efnahagurinn á landinu hrynji og skapar jafnframt vissan stöðugleika. Þannig getur það verið stórhættulegt að afnema gjaldeyrishöft og um leið halda í krónuna. Einnig gætu frjáls gjaldeyrisviðskipti með

núverandi snjóhengju til staðar leitt til verulegs gengisfalls krónunnar og óðaverðbólgu.

Saga gengis krónunnar er samfelld sorgar-saga sveiflna, sem aðallega hafa verið niður á við. Gengissveiflur gera alla áætlunargerð fyrirtækja sem stunda inn- eða útflutning afar erfiða. Sífellt flökt krónunnar hefur hingað til reynst inn- og útflutningsfyrirtækjum hér á

landi dýrkeypt því aldrei má vita með fullri vissu hvað fáist fyrir vöruna erlendis eða hvað það á endanum muni kosta að fá vörur hingað til lands. Þar sem íslenska hagkerfið er fremur lítið er það háð innflutningi. Þar af leiðandi hafa gengissveiflur krónunnar óhjákvæmilega áhrif á verðlagið. Þessu hafa landsmenn orðið vitni að á undanförnu.

Allt frá upphafi íslensku krónunnar hefur hún aldrei verið til friðs til lengri tíma litið, hvort heldur sem hún var bundin eða látin fljóta. Hér á landi var til að mynda mikil umræða í gangi upp úr aldamótunum 2000 í kjölfarið á ofhitnun efnahagslífsins. Þá var mikill viðskiptahalli og verð-bólguþrýstingur, sem varð meðal annars til þess að gengi íslensku krónunnar lækkaði umtalsvert.

Með áframhaldi krónunnar þurfum við að sætta okkur við það sem fylgir henni. Við þurfum að búa við háa verð-bólgutíðni, miklar gengissveiflur, háa vexti og þann kostnað sem fylgir þeim. Við þurfum að sætta okkur við gjaldeyris-höft og fjárfestingu í lágmarki, við þurfum að sætta okkur við stökkbreytt húsnæðislán, hátt verðlag og mikla kaup-máttarrýrnun, einnig þurfum við að sætta okkur við mikla

„Þjóðin öll greiðir því hátt í 200 milljarða í vaxtakostnað

af krónunni.“

Page 39: Kjarninn - 51. útgáfa

05/05 álit

lífskjaraskerðingu. Eins og staðan er núna notum við mein-gallaðan gjaldmiðil og miklar takmarkanir á viðskiptum og gengisfellingar eru það eina sem getur haldið gjaldmiðlinum okkar gangandi.

Stöðugt efnahagsumhverfi og trú viðskiptalanda á Íslandi eru forsendur þess að þjóðin geti byggt upp atvinnulíf sem getur selt verðmætar vörur og þjónustu úr landi. Á Íslandi er hins vegar ekki stöðugt efnahagsumhverfi til staðar og hefur í raun aldrei verið. Einnig er trú viðskiptalanda á Íslandi lítil sem engin. Ekki má síðan gleyma því að opið hagkerfi með lítinn gjaldmiðil er auðveldur skotspónn spákaupmanna. Síaukin hnattvæðing gerir það svo að verkum að smáir gjaldmiðlar verða viðkvæmari fyrir spákaupmennsku og breytingum í hinu alþjóðlega fjármálaumhverfi.

að lokum Krónan er ein helsta viðskiptahindrun Íslands. Til þess að Ísland haldist samkeppnishæft í framtíðinni verðum við að skipta krónunni út fyrir annan stöðugri gjald miðil. Íslendingar geta ekki leyft frjálsa för fjármagns, fylgt sjálfstæðri peningastefnu og um leið viðhaldið stöðugu gengi. Flestir Íslendingar halda reyndar í þá trú að þetta sé mögulegt. Það er hins vegar ekkert nema tálsýn. Þegar öllu er á botninn hvolft er það því ekki spurning um hvort heldur hvenær við munum taka hér upp nýjan og stöðugri gjaldmiðil.

Page 40: Kjarninn - 51. útgáfa

01/04 álit

pétur Halldórsson skrifar mikla grein í Kjarnann um varnir gegn mengun, meðal annars um birki-skóga í Bárðardal.

Þar segir hann að fyrir ofan bæinn á Hlíð-skógum sé nú að koma upp birki þar sem

sauðfé hafi haldið fjallinu skóglausu með beit.Frá því að ég man eftir (ég er fæddur 1937) var

sauðfénu beitt sem kostur var í fjallið og á Valley þegar Vallakvísl var ísilögð. Að sjálfsögðu var fénu ekki beitt í skóginn nema þegar snjólaust var en á vetrum var skógurinn yfirleitt fullur af snjó, því var beitarsvæðið ofan skógarins. Hafa ber í huga að tilvera fólks hér byggðist að langmestu leyti á sauðfjárbúskap.

Það má segja að það væri töluvert merkilegt, nær ómögu-legt, að land tæki ekki breytingum við friðun eða mjög minnkandi ágang sauðfjár, því betur.

Það er ekki á allt kosið

Jón Aðalsteinn Hermannsson kemur með sitt innlegg í heita umræðu um skógrækt á Íslandi.

álit

jón aðalsteinn HermannssonFrá Hlíðarskógum

kjarninn 7. ágúst 2014

Page 41: Kjarninn - 51. útgáfa

02/04 álit

Bændur vel meðvitaðirAlveg frá upphafi 20. aldar hafa bændur hér verið vel með-vitaðir um gildi birkiskóga og varðveislu þeirra, þó að þá væri hugtakið eða staðreyndin um mengun jarðar af manna-völdum ekki komin til. Allmiklar deilur urðu hérlendis þegar kom fram á Alþingi skömmu eftir aldamótin 1900 tillaga um að friða og girða alla birkiskóga sem þá voru enn eftir á

landinu. Margir bændur urðu mjög andvígir og reiðir yfir tillöguflutningi þessum og töldu að óbúandi yrði á jörðunum.

Páll H. Jónsson, hreppstjóri á Stóruvöllum í Bárðardal, skrifaði grein þar sem hann útskýrði tilganginn með hugmyndinni.

Jafnframt skýrði hann hvernig bændum bæri að umgangast birkiskóginn, sem þá var töluverður á flestum jörðum á Vesturkjálka Bárðardals, frá Hlíðarenda til Mýrar. Þar voru þá skógarleifar syðst í landi jarðarinnar og nyrst.

Langmesta skógarjörðin var og er Halldórs staðir, þar næst Sandhaugar.

Lítill skógur var þá í Stóruvallalandi utan Torfskógurinn sem tæpast var lengur nýtan-

legur til eldiviðar, en mikill skógur nyrst í landi Stóruvalla, þar sem frá 1926 er býlið Hlíðskógar (fornt nafn).

Nýting skógarins var til eldiviðar og kolagerðar. Um 1880 var ekki lengur neinn skógur það stórvaxinn í vesturhlíðum Bárðardals að gera mætti þar kol.

ekki allir skógar friðaðirSíðast voru gerð kol á Sandhaugum um það árabil. Mikill markaður var fyrir viðarkol t.d. í Eyjafirði enda allur skógur þar upp eyddur. Algengt var að bændur kæmu hestum sínum til vetrarbeitar þangað og greiðslan var ein tunna af viðar-kolum með hverjum hesti en það fór saman, að steinkol fóru að berast til Íslands, og féll markaðurinn fyrir viðarkolin og gerð viðarkola hætti.

„Hugmyndin um friðun allra skóga

á Íslandi náði auð-vitað ekki fram

að ganga sökum kostnaðar en Hall-

ormsstaðaskógur og Vaglaskógur voru girtir og friðaðir, og ef til vill fleiri

skógar á landinu.“

Page 42: Kjarninn - 51. útgáfa

03/04 álit

Hugmyndin um friðun allra skóga á Íslandi náði auðvitað ekki fram að ganga sökum kostnaðar en Hallormsstaða-skógur og Vaglaskógur voru girtir og friðaðir, og ef til vill fleiri skógar á landinu.

Hálsskógur féll sökum Kötlugoss 1755 (sjá Fnjóskdælasögu bls. 249 í neðanmálsgrein, úr ferðabók Ebenezers Henderson) sem var það mesta í sögunni, þá féll líka skógur austur á Héraði.

Séra Gunnar Sigurðsson á Hallormsstað talar um Móðu-hallærið hið fyrra.

Gjóskulagið í Skarfártungum var talið að jafnaði á um 30 cm þykkt. Gríðarleg aska féll á skóginn sem þá þakti núverandi Hálsmela. Á þessu sést hve tilviljunarkennt er hvernig áhrifa eldgosa gætir. „Leifar skógarins má sjá austan árinnar (Fnjóskár) er þar fjöldi af rótarstúfum birkitrjáa, sum alltað tvö fet í þvermál“ (úr ferðabók Ebenezers Henderson).

Séra Jón Þorgrímsson var prestur á Hálsi 1739 til 1795 og því var það í prestskapartíð

hans sem skógurinn féll.Ég sóttist mjög eftir að fara með föður mínum á haustin er

hann fór til skógar að höggva birkihríslur til eldiviðar. Hann fór eftir fyrirmælum hvernig skyldi höggva, aldrei beint upp brekkuna heldur þvert á brekkuna, höggva helst liggjandi tré, ekki þau beinvöxnu, sem sagt grisja skóginn, því eru hér og þar í brekkunum ennþá reitir þar sem er þyrping fallegra hvítstofna trjáa. Þau eru beinvaxin og standa yfirleitt upp úr öðrum skógi.

Skógurinn í Sandhaugalandi er nær samfelldur frá því nyrst í Vallaklifi að merkjum móti Hlíðarenda og skógurinn á Hlíðarenda endar auðvitað þar sem hlíðin endar.

Svo eru skógar leifar nyrst í Hvarfslandi og syðst í Öxarárlandi.

Allir þessir skógar eru stækkandi og breiðast út. Mestu skipti að eftir smölun í september er sauðfé ekki sleppt aftur

„Frá því að ég man eftir (ég er fæddur

1937) var sauðfénu beitt sem kostur var

í fjallið og á Valley þegar Vallakvísl

var ísilögð.“

Page 43: Kjarninn - 51. útgáfa

04/04 álit

í fjallið, á það við á nær öllum jörðum á Veturkjálka. Skógur sem ekki er nytjaður hvorki til eldiviðar né beitar, vex óhindrað og þéttis óhóflega. Á snjóþungum vetrum leggst nýgræðingurinn undan brekkunni og snjóþyngslunum, þá er með öllu ógengt um skóginn og hann ekki smalaður nema með góðum smalahundum.

rótarskotin þurfa friðTil þess að skógurinn geti endurnýjað sig þurfa rótarskotin að hafa frið til að vaxa en þau eru konfektið fyrir sauðféð, því skiptir máli fyrir endurnýjun birkiskóga að sprotarnir fái frið á vorin og á haustin. Hins vegar eru eiginleikar nýgræðinganna þannig að þeir eru of þéttir og margir, svo að fá tré vaxa upp og ekki koma upp fallegar hríslur, ekkert vaxtarrými. Þetta er öllum sjáanlegt í Vallaklifi, þar sem vegaskurðirnir eru að fyllast. Nú á síðustu árum hefur birkiskógurinn skriðið upp fjallið hér ofan Hlíðskóga, upp að bratta, eru það runnar, þéttir og liggja undir snjó á vetrum. Hófleg beit á skógivaxið land er í góðu lagi bara ef sauðféð er ekki haft of lengi hvert sumar á landinu.

Mér eiginlega blöskrar hvaða breytingar hafa orðið á skömmum tíma á gróðurríkinu í brekkum Vallafjalls. Lag-vaxinn gróður, svo sem hrútaberjalyng og jarðarberjalyng, er að hverfa undan ofríki t.d. blágresis og bláberjalyngið er að kaffærast. Gróðurinn er fábrotnari en var og gönguleiðir torsóttar, svo ekki sé meira sagt, ég ruddi gönguleiðir um brekkuna. Ég tel að mannkynið standi frammi fyrir ógn vegna umsvifa sinna, sem ógna afkomu okkar og við öll berum ábyrgð á. Það er ekki á allt kosið.

Page 44: Kjarninn - 51. útgáfa

01/04 pistill

sjö sumrum eftir að fjármálakerfi heimsins byrjaði að riða er sumarið 2014 orðið jafn afhjúpandi á bresti þeirra alþjóðastofnana sem undanfarinn mannsaldur hafa staðið undir kerfi lögmætra og friðsamra samskipta ríkja og sumarið 2007 varð

afhjúpandi um alþjóðlegt gangvirki peninganna. Við lítum á það sem sjálfsagða hluti að geta gert hvaða

viðskipti sem er með íslenskum greiðslukortum í útlöndum, að sitja örugg í breiðþotum þótt fyrir neðan sé barist á evrópsku landi og að vondu kallar heimsins tapi alltaf – því ríki sem séu „eins og við“ eigi sigurinn ætíð vísan.

Sumarið hefur sýnt okkur tómarúm sem nær víðar og ristir dýpra en það sem kalda stríðið skildi eftir sig. Með öðrum orðum: Nú á í vök að verjast sú alþjóðaskipan sem reis eftir síðari heimsstyrjöldina af viðleitni nýs alþjóðasamfélags til að reisa siðmenningu úr rústum alræðisvæðingar, árásar-stríða, útrýmingarbúða og kjarnorkuvopnabeitingar.

sumarið sem sýndi alþjóða kerfið hverfaKristrún Heimisdóttir segir sumarið 2014 hafa verið tíðindamikið fyrir alþjóðasamfélagið.

pistill

Kristrún Heimisdóttirframkvæmdastjóri SI

kjarninn 7. ágúst 2014

Page 45: Kjarninn - 51. útgáfa

02/04 pistill

Á árunum eftir 1945 urðu til alþjóðastofnanirnar SÞ, AGS, NATO, Norðurlandaráð, Evrópuráðið með Mannréttindasátt-mála sinn og dómstól og efnahagsbandalagið sem nú heitir Evrópusambandið. Við lok kalda stríðsins gekk Rússland í Evrópuráðið eins og önnur ríki hins horfna Varsjárbandalags og „stækkunin til austurs“ varð í raun lýsing á friðsamlegri útbreiðslu frelsis og stjórnarskrárbundins lýðræðis um alla Evrópu.

En hafi vestrið „unnið“ kalda stríðið og fyllst sjálfs-trausti til að beita heimslögregluvaldi á Balkanskaga og Mið-Austurlöndum á sl. 20 árum er tími þess sjálfstrausts nú liðinn. Og hafi kjör Baracks Husseins Obama 2008 eða arabíska vorið sem hófst 2010 fyllt margt fólk bjartsýni um

lýðræðis- og friðartíð alþýðu drógust tjöldin snemma fyrir þann glugga gullinna tækifæra.

Ein hættan sem jafnan stafar af fjármála-kreppum er að af þeim leiði stríðsátök. Hin trausta vissa hverfur og í staðinn kemur tómarúm. Mér verður ávallt minnisstætt hvernig Jean Claude Trichet, þá bankastjóri Seðlabanka Evrópu, tók til orða á vorfundi AGS í Washington vorið 2011 „að nú steðjaði mesta hætta að Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar“. Mörgum fannst tveimur

árum síðar hættan liðin hjá en slíkar viðvaranir rætast sjaldnast bókstaflega heldur í annarri útgáfu – sennilega vegna þess að samspil orsakasamhengis, atburðarásar og tíma er flóknara en nokkur mannleg spádómsgáfa nær fullum tökum á.

Í ágúst 2008 hófst stríð í Evrópu milli Georgíu og Rússlands. Ótti ríkja eins og Eistlands og annarra við Eystrasalt var mikill en gleymdist snarlega þegar bankahrun yfirtóku alla athygli innan við mánuði frá því að vopnahlé var samið. Nú er stríðið í Úkraínu með Rússland sem virkan þátttakanda gengið svo langt að farþegaþota er skotin niður, hundruð manna drepin og það eitt að safna saman jarðneskum leifum og greftra reyn-ist alþjóðasamfélaginu nánast um megn. Af hverju?

„En hafi vestrið „unnið“ kalda

stríðið og fyllst sjálfstrausti

��������IV�X®QM�¿IWW�sjálfstrausts

nú liðinn.“

Page 46: Kjarninn - 51. útgáfa

03/04 pistill

Í lok desember 2008 hófust stríðsaðgerðir Ísraels á Gaza-ströndinni og lauk í janúar með einhliða vopnahléi. Ísraelsher beitti hernaðarlegri yfirburðastöðu og fjölmargir almennir borgarar voru drepnir. Skorður sem SÞ, Bandaríkin og fleiri settu Ísrael þá voru sýnilega nógu rammar til að setja að-gerðinni mörk í tíma og skotmörkum. Nú er aftur herjað á Gaza og 72 klukkustunda vopnahlé, sem tilkynnt var af utan-ríkisráðherra Bandaríkjanna, virðir Ísrael ekki heldur gerir árás innan tveggja stunda. Skólar Sameinuðu þjóðanna reynast viðvarandi skotmörk. Að setja Ísrael mörk alþjóðalaga reynist stofnunum og stórveldum sem það vilja gera um megn. Af hverju?

Uppgjör hrunsins og efnahagskreppunnar felur í sér á alþjóðavísu að herjandi ríki meta ekki einungis hvaða hættur steðji að þeim í varnarskyni heldur hversu langt þau geti gengið óáreitt í sóknarskyni. Stórskuldsett ríki í pólitískri kreppu missa vægi á alþjóðavettvangi.

Hér á Íslandi ná fjölmiðlar alls ekki að miðla því hvernig Rússar og Ísraelsmenn sjá sig sjálf né hvernig forystufólk þessara ríkja skilgreinir markmið sín í opinberri umræðu heima fyrir. Af þessu þarf að segja fréttir.

Ungverjaland er dæmi um land sem átti um margt sam-eiginleg örlög með Íslandi í hruninu. Ríkin fóru jafnsnemma til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og í báðum löndum varð gjald-miðilshrun til þess að skekkja hroðalega fasteignalán einstak-linga tekin í erlendum gjaldmiðli. Viktor Urban, forsætis-ráðherra Ungverjalands, er feimnislaus fasisti á valdastóli í hjarta Evrópu, hann styður Pútín og gefur lýðræðis kerfi evrópskra stofnana eins og það leggur sig langt nef. Kreppan sanni að þetta kerfi dugi ekki, þjóðríkin þurfi sterkari stjórn til að verjast efnahagsáföllum. Orðræða Urbans er bergmál frá þriðja áratugnum og hann vill vera bandamaður Pútíns.

Á sama tíma minnkar líka lýðræðislegur stuðningur við þetta kerfi sem fasistinn Urban hafnar og það hvert sem aug-að eygir. Orðræða Urbans um ónýtt kerfi sem hafi ekki ráðið við hagstjórnina og fjármálavaldið getur virkað til rökstuðn-ings hvaða stefnu sem er. Vörum okkur á því!

Page 47: Kjarninn - 51. útgáfa

04/04 pistill

Alþjóðalög og skipan byggð á þeim hefur afar sjaldan reynst jafn veik og á þessu sumri. Ísland sem eitt fámennasta fullvalda ríki heims, eitt af fáum herlausum aðildarríkjum SÞ, varið af jaðarstöðu sinni um aldir – þarf að vakna til vitundar um áhrif alls þessa á sig og stöðu sína í heims-þorpinu. Hingað til lands hefur ekki komið bandarískur utanríkisráðherra frá því fyrir bankahrun. Hins vegar kom kínverski Seðlabankastjórinn í sérstaka heimsókn. Þegar Ís-land tók sjálft við fullu forræði á eigin vörnum sumarið 2007 létu Rússar strax reyna á hvar mörk lofthelginnar yrðu sett með skipulegu flugi orrustuþotna upp að landinu. Pólverjar lánuðu okkur hins vegar peninga haustið 2008 – um leið og Færeyingar og án skilyrða. Al-Thani fjölskyldan í Katar hafði í senn áhuga á íslenskum bönkum og pólitískum lykilhlut-verkum t.d. bæði í Líbíustríðinu 2011 og innbyrðis átökum Palestínumanna.

Meðan öllu þessu fer fram er Ísland án heildstæðrar utanríkisstefnu. Á hvað hyggjumst við treysta næst þegar á reynir?

Page 48: Kjarninn - 51. útgáfa

01/01 græjur kjarninn 7. ágúst 2014

Whatsapp

Whatsapp eða eitthvað svipað sam-skiptaapp er frábært

þegar maður er að skrif-ast á við fjölskyldu og vini í útlöndum. Maður borgar ekki fyrir SMS, því allt er í gegnum netið.

yr.no

Maður þarf jú áreiðan-legt veður-app og yr.no er hið eina

sanna! Bráðnauðsynlegt þegar maður ákveður hvernig maður á að klæðast á golfhringnum.

genius scan

Genius Scan er alltaf að bjarga mér þegar ég á t.d. að

senda glósur á einhvern, eða skanna eitthvað skjal. Maður þarf bara símann núna og þetta er svo einfalt, fer beint á emailinn.

ólafía Þ. kristinnsdóttirÍslandsmeistari í golfi

„Ég er með iphone 5“

01/01 græjUr

tæKNi Parrot AR.Drone 2.0 færir þér myndefni framtíðarinnar

Drónar (e. Drones) hafa vakið mikla athygli og notið vinsælda hjá ljósmyndurum og kvikmynda-tökumönnum undanfarin misseri. Með drónunum er hægt að ná mögnuðum myndum og frá sjónar-hornum sem ekki er hægt að fá á jörðu niðri. Nýjustu drónarnir búa yfir mikilli flughæfni og geta náð mikilli hæð og verið lengi á flugi. parrot AR.Drone 2.0 er einn besti drone sem völ er á á markaðnum miðað við verð, samkvæmt fagtímaritum.

parrot AR.Drone býr yfir góðir 720 HD innbyggðri myndavél sem tekur ljósmyndir og myndbönd, og getur einnig verið með aðrar vélar áfastar.

Flugtíminn er að hámarki 18 til 20 mínútur ef rafhlaða er fullhlaðin, og getur náð mikilli hæð, sem reyndar er háð aðstæðum og sambandi við fjarstýringu.

Verðið er um 300 Bandaríkjadalir, eða um 36 þúsund krónur, ef dróninn er keyptur í Bandaríkj-unum.

Fyrsta útgáfa parrot AR.Drone var á lista yfir 50 bestu tækninýjungar heimsins árið 2012 sem birtur var á vef ritsins Complex.

Page 49: Kjarninn - 51. útgáfa

01/03 samfélagsmiðlar

áhrifamesti og stærsti samfélagsmiðill heims, Facebook, hefur víðtæk áhrif á líf fólks í gegnum tölvur, síma og spjaldtölvur. Ríflega 829 milljónir manna um allan heim teljast til daglegra notenda miðilsins samkvæmt

tilkynningu félagsins til Nasdaq-kauphallarinnar í New York hinn 16. júní. Vöxtur Facebook er fyrir löngu orðinn þrykktur í sögubækurnar sem einhver ótrúlegasta innreið tækni-nýjungar í sögunni hvað fjölda notenda varðar. En hann hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Margs konar vanda-mál hafa komið upp frá því miðillinn varð til formlega hinn

facebook breytir...og það breytir öllu

Samfélagsmiðillinn Facebook er orðinn svo stór að hann hefur gríðarleg áhrif á fjarskiptamarkað.

samfélagsmiðlarMagnús Halldórsson

L @maggihalld

01/03 SamfélagSmiðlar kjarninn 7. ágúst 2014

Page 50: Kjarninn - 51. útgáfa

02/03 samfélagsmiðlar

4. febrúar 2004. Sá sem mest hefur verið rætt um er árekstur miðilsins við persónufrelsið. Fjölmörg álitamál er varða með-ferð persónuupplýsinga hafa komið upp, þar á meðal aðgengi öryggisstofnana eins og Þjóðaröryggis stofnunar Banda-ríkjanna (NSA) í Bandaríkjunum að þeim og síðan hvernig farið er með þær. Rökræður um þessi mál eru lifandi víða um heim, ekki síst eftir að uppljóstranir Edward Snowden, fyrrverandi starfsmanns NSA, leiddu til þess að umræður um þessi mál komust upp á yfirborðið.

peningamaskína, beint og óbeintBreytingar á ýmsum tæknilegum atriðum hjá Facebook geta haft víðtæk áhrif á fjarskiptamarkaði og nýlegar breytingar eru dæmi um það. Margir kannast við breytingar á miðlinum þar sem myndskeið opnast sjálfkrafa þegar miðillinn er skoðaður, en þær breytingar voru nýlega gerðar og upplifun myndskeiða á miðlinum þar með breytt. Þetta var meðal annars gert til þess að fólk eyddi meiri tíma við að skoða miðilinn svo hann styrktist sem auglýsingavettvangur. Heildarfjöldi notenda er ríflega 1,3 milljarðar á heimsvísu samkvæmt upplýsingum frá Facebook og þar af eru tæp-lega 82 prósent utan Bandaríkjanna og Kanada, sem teljast til heima markaðar fyrirtækisins. Hliðarverkun þessarar breytingar hefur verið að gagnaniðurhal notenda hefur stóraukist og í mörgum tilvikum hefur það hækkað verð sem fólk þarf að greiða fyrir til fjarskiptafyritækja. Álagið hefur aukist á gagnaniðurhal, sem getur skilað sér í meiri

risi sem stÆkkar og stÆkkar og stÆkkar

Facebook og áhrif þess á niðurhal og fjarskiptaþjón-ustu er léttvægt við hliðina á þeim miklum áhrifum sem miðillinn hefur haft á samfélagsumræðu. Vöxtur fyrirtækisins er stöðugur, ekki síst þegar kemur að Gagnaverum, þar sem hafsjór persónu-legra upplýsinga um notendur miðilsins eru meðal annars vistaðar. Nýjasta gagnaver félagsins var opnað í Altoona, Iowa, 22. apríl en þau hafa sprottið

hratt upp undanfarin ár samhliða vexti fyrirtækis-ins. Meðal annars eru tvö stór gagnaver í Svíþjóð, meðal annars eitt fullkomnasta gagnaver heimsins sem staðsett er í Lulea.

Höfuðstöðvar Facebook eru við Hacker Way, Menlo park, í Kaliforníu en í dag starfa 7.185 hjá fyrirtækinu, samkvæmt nýjustu upplýsingum á vefsíðu fyrirtækisins. Þeim fjölgar þó ört.

„Heildarfjöldi notenda er ríflega 1,3

milljarðar á heimsvísu.“

Page 51: Kjarninn - 51. útgáfa

03/03 samfélagsmiðlar

kostnaði fyrir bæði neytendur, og fjarskiptafyrirtækin. Í ljósi þess hversu mikið umfang Facebook er í daglegri netnotkun hafa þessar breytingar mikil áhrif. Kostnaðaraukningin við niðurhal nemur meira en 60 milljónum Bandaríkjadala á heimsvísu, um 6,7 milljörðum króna, á undanförnum þremur mánuðum, samkvæmt umfjöllun tæknivefsins Tech Crunch. Eftir því sem tíminn líður verður kostnaðurinn meiri, en í mörgum tilvikum lendir hann á fjarskiptafyrirtækjum þar sem einstaklingar og fyrirtæki kaupa í mörgum tilvikum lausnir þar sem ótakmarkað niðurhal er innifalið.

verður hægt að gera hvað sem er?Mikil áhrif Facebook á niðurhal af vefnum hafa vakið spurn-ingar um hvort þurfi að setja vöruþróun Facebook einhverjar skorður svo að álag vegna niðurhals í gegnum Facebook verði ekki of mikið. Ekki er ólíklegt að sú umræða muni aukast þegar fram í sækir, eftir því sem tækninni fleygir fram og niðurhal eykst enn frekar.

Page 52: Kjarninn - 51. útgáfa

01/04 Kjaftæði

gunnar Bragi var næstum sloppinn fyrir horn. Það var enginn að pæla í honum lengur. Hann hafði tíst til stuðnings Palestínumönnum og sett mildilega ofan í við Pútín þrátt fyrir að það hafi ábyggilega illa samrýmst norðurslóða-

áætlunum helsta bakhjarls Framsóknarflokksins. Var Gunnar Bragi kannski allur að braggast? Var hann jafnvel farinn að rifja upp austantjaldskaflana í grunnskólalanda-fræðinni? Ætlaði hann að reka af sér slyðruorðið fyrir fullt og fast? Það lá við að maður hefði trú á því.

Svo skipaði hann tvo sendiherra.Það hallærislegasta var ekki að þeir væru pólitískt

skipaðir. Það var í takti við annað að hverfa sex ár aftur í tímann í þeim málum – nokkrum mánuðum aftur fyrir hrun. Auk þess eru mennirnir sem fengu vegtylluna þetta sinnið eflaust frambærilegustu sendiherrar, tala einhver nauðsyn-leg tungumál, eru góðir við börnin sín, hressir eftir einn drykk, geta sagt snyrtilega brandara og fara vel í móttökum. Að minnsta kosti annar þeirra er meira að segja söngelskur og gæti raulað sig blíðlega inn í hugi og hjörtu harðsoðnustu

sendil herrannStígur Helgason skrifar um skipan Gunnars Braga Sveinssonar

á tveimur nýjum sendiherrum.

Kjaftæði

stígur Helgasonfyrrverandi blaðamaður

kjarninn 7. ágúst 2014

Page 53: Kjarninn - 51. útgáfa

02/04 Kjaftæði

diplómata í Washington. Eitt „Give Peace a Chance“ frá honum á tröppunum fyrir utan Capitol Hill og Ísraelsmenn geta gleymt því að fá fleiri fríar áfyllingar á vopnabúrið sitt úr þeirri áttinni. Það versta við að akkúrat þessir karl-

pólitíkusar á miðjum aldri skuli hafa verið skipaðir er líklega að það gerði Björn Val Gíslason leiðan. Það er sorglegt.

Kannski seinnaNei, það hallærislegasta er þessi tilvitnun úr Fréttatímanum í síðustu viku: „Það er alveg hárrétt, að þetta lítur ekki vel út. Við erum meðvituð um að við þurfum að laga þetta, ekki bara í sendiherrastöðum heldur þurfum við að auka almennt hlut kvenna í hærri stöðum í utanríkisþjónustunni og ráðuneytinu. Ég hef sem betur fer tæp þrjú ár í viðbót til þess. Þótt ég hafi bara skipað karla í þetta skipti er ekki þar með sagt að það verði þannig.“

Og: „Þetta hljómar ef til vill eins og klisja en sendiherrastörf kalla oft á tíðum á vinnu-tíma sem er allan sólarhringinn og gera

kröfu á flutningsskyldu milli landa. Það gæti verið að konur sækist síður eftir þessum störfum.“

Einmitt það.Gunnar Bragi hefði alveg viljað bæta hlut kvenna í utan-

ríkisþjónustunni. Hann veit alveg að það er þörf á því. Hann bara gerði það ekki. Ekki núna. Kannski seinna. Ef þær eru þá til í það.

Þetta svar afhjúpar ekki vondan hug utanríkisráðherrans. Það afhjúpar ekki glópsku hans (og þó). Þetta svar afhjúpar aðallega það að Gunnar Bragi Sveinsson er valdalaus ráð-herra. Hann skipaði ekki þessa sendiherra – nema þá að forminu til. Ákvörðunin var annarra, ekki hans, vegna þess að svona talar ekki maður sem tekur sína eigin sjálfstæðu, yfirveguðu ákvörðun, stendur við hana og ver hana. Svona

„Það sem máli skiptir er að Gunnar

Bragi framfylgdi henni eins og

skagfirskur Móses með fangið fullt

af líparíttöflum á leið niður af Tinda-stóli. Og er þá ljóst

að þar fer maður sem ræður engu

öðru en hvar hann fer í klippingu.“

Page 54: Kjarninn - 51. útgáfa

03/04 Kjaftæði

talar maður sem fékk afhent plagg með nöfnum og skilaði málinu í höfn, án þess að svo mikið sem depla auga eða leiða hugann að því hvort þetta mundi kannski allt líta dálítið ankanna lega út. Hann er minna ráðherra og meira bréf-sendill. Sendilherra.

Það skiptir í raun engu máli hver afhenti ordruna, hvort það var flokksformaðurinn, formaður samstarfsflokksins, Davíð eða Guðni eða óformlegur bakherbergissamráðs-

vettvangur allra flokka nema anarkistanna í Pírötum sem enginn nennir að hafa með af því að þeir mundu leka öllum fundar-gerðunum beint á deildu.net. Það er í raun engin leið að vita það nema bara að leita uppi „ha? haarde og árni þór? uu...ok, er ekki ann-ar þeirra kommúnisti og hinn í mála ferlum við okkur? lol, en fine by me – reynum að grafa þetta rétt fyrir versló“-SMSið af Voda-fone.is þegar næsti tyrkneski hakkari sýnir okkur hvað við kunnum lítið á tölvur.

Skipunin gæti allt eins hafa komið af himnum ofan – það sem máli skiptir er að

Gunnar Bragi framfylgdi henni eins og skagfirskur Móses með fangið fullt af líparíttöflum á leið niður af Tindastóli. Og er þá ljóst að þar fer maður sem ræður engu öðru en hvar hann fer í klippingu.

HugmyndirEn þá vitum við það líka; Gunnar Bragi Sveinsson tekur við tillögum að sendiherrum eins og hann sé þjarki – eins konar utanríkisráðherraforrit sem maður matar á upplýsingum og treystir að skili tilætlaðri niðurstöðu – og þess vegna eru hér að lokum nokkrar uppástungur að sendiherraefnum:

HaNNa BIrNa KrIstjáNs dóttIr Byrjum á því augljósasta. Hanna Birna er í klandri og vill ekki víkja á meðan ráðuneyti hennar sætir lögreglurannsókn af því að þá tapar hún stríðinu sem hún er búin að ákveða að hún sé í við DV, eins

„Eitt „Give Peace a Chance“ frá honum

á tröppunum fyrir utan Capitol Hill og

Ísraelsmenn geta gleymt því að fá

fleiri fríar áfyllingar á vopna búrið sitt úr þeirri áttinni.“

Page 55: Kjarninn - 51. útgáfa

04/04 Kjaftæði

og Páll Vilhjálmsson (af öllum mönnum) benti réttilega á, undir röngum formerkjum þó. Ráðherra á hins vegar ekki að vera í stríði þótt honum finnist að sér sótt og þess vegna væri snjallast að senda Hönnu bara burt í kælingu. London væri tilvalinn áfangastaður; hún gæti tekið Gísla Frey Valdórsson með sér og athugað hvort hann fengi ekki pólitískt hæli hjá ekvadorskum kollega hennar eins og aðrir lekaliðar sem geta ekki um frjálst höfuð strokið.

sveINN aNdrI sveINssoN Mundi leysa forvígismenn Við-reisnar undan þeirri kvöð að þurfa að finna sæti neðarlega á lista fyrir stofnmeðlim sem er nú þegar á svarta listanum í Boltalandi (að því gefnu að Viðreisn fari nokkurn tíma í framboð). Gefið honum lausa kvöldstund með blekpenna, einn blýstífan gin og tónik og bréfsefni merkt utanríkisþjón-ustunni og lítið svo í hina áttina af gömlum vana.

davíð oddssoN Nýja-Delí væri fín, þar er vísast fullt af Vikrömum sem er hægt að ruglast á og kalla þá svo múlatta þegar þeir gera athugasemd.

Marta María Eins og kollegi hennar í liðnum hér að ofan er Marta smarta vel verseruð í kokkteilboðafræðum og er búin einstökum hæfileikum til að laga sig að framandi aðstæðum.

NáuNgINN seM vIll eKKI BarNaHÚs í götuNa síNa Það þarf að leysa þetta mál hratt og það er best að gera það með því að flytja þann mann bara úr augsýn.

Þetta var ókeypis, Gunnar. Nú er bara að sjá hvort þetta ratar ekki beina leið í Stjórnartíðindi.