27
Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII Guðbjörg Bjarnadóttir lögfræðingur

Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

  • Upload
    jamar

  • View
    55

  • Download
    10

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII. Guðbjörg Bjarnadóttir lögfræðingur. Aðilaskipti að kröfuréttindum. Kröfuhafaskipti Nýr kröfuhafi í stað eldri Skuldaraskipti Nýr skuldari í stað eldri - skuldskeyting. Aðilaskipti að kröfuréttindum, frh. Skuldskeyting - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVIIGuðbjörg Bjarnadóttir

lögfræðingur

Page 2: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

2

Aðilaskipti að kröfuréttindum

• KröfuhafaskiptiNýr kröfuhafi í stað eldri

• SkuldaraskiptiNýr skuldari í stað eldri - skuldskeyting

Page 3: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

3

Aðilaskipti að kröfuréttindum, frh.• Skuldskeyting

– Skuldaraskipti geta almennt ekki farið fram án samþykkis kröfuhafa og nefnist það skuldskeyting– Rök: Kröfuhafa varðar það jafnan miklu hver skuldarinn er, því skilvísi manna og greiðslugeta er misjöfn.– Nýr skuldari verður að skuldbinda sig gagnvart kröfuhafa og kröfuhafi samþykki skuldara– Undantekingar frá því að samþykki kröfuhafa þurfi:

Andlát skuldaraNafnabreytingar á fyrirtækjumSamruni/yfirtaka – sjá hlutafélagalög

– Yfirtaka veðskulda – 20. gr. laga um samningsveð, nr. 75/1997Ef kaupandi fasteignar tekur að sér greiðslu veðskuldar og í veðbréfi eru ekki ákvæði um að skuldin gjaldfalli ekki þrátt fyrir eigendaskipti, þá verður kaupandi skuldbundinn gagnvart veðhafa við þinglýsingu afsals, og seljandi laus undan skuldbindingu sinni.

Page 4: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

4

Aðilaskipti að kröfuréttindum, frh.

• Skuldskeyting, frh.– Yfirtaka veðskulda – 20. gr. laga um samningsveð, nr. 75/1997, frh.

Meðan veðhafi hefur ekki fengið tilkynningu um skuldskeytinguna og þinglýsinguna, ásamt nauðsynlegum gögnum þessu til sönnunar, er honum heimilt að krefja fyrri eiganda um allar greiðslur samkvæmt bréfinu.

Seljandi á rétt á að veðhafi áriti veðbréf um skuldskeytinguna

Í öðrum tilvikum verða skuldaraskipti aðeins skuldbindandi fyrir veðhafa að hann samþykki skuldaraskipti í samningi við hinn nýja eiganda veðsins.

Page 5: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

5

Aðilaskipti að kröfuréttindum, frh.

• Kröfuhafaskipti– Meginregla að kröfuhafaskipti geta orðið án samþykkis skuldara

Rök – Skuldara má almennt standa á sama um hver er kröfuhafi.

Kröfuhafaskipti geta t.d. orðið með löggerningi, við erfðir, skipti, aðfarargerð, gjaldþrot og nauðungarsölu.

Við framsal hverfur allur kröfurétturinn frá fyrri kröfuhafa til hins nýja

Við veðsetningu kröfu hverfur aðeins hluti af kröfurétti kröfuhafa til veðhafa.

Page 6: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

6

Aðilaskipti að kröfuréttindum, frh.

• Kröfuhafaskipti, frh.– Takmarkanir á framsali kröfu

Meginregla að framsal kröfuréttinda sé frjálst, en frá því eru nokkrar undantekningar:1) Ekki heimilt að framselja ef verulegur munur verður á skyldu skuldara eftir því hver kröfuhafi er, t.d. vinnusamningar.

2) Bann við framsali í samningi

3) Framsal á gagnkvæmum samningi leysir framseljanda ekki undan sínum skyldum.

4) Lagaákvæði um takmörkun framsals, t.d.:

Bann við framsali bótakröfu vegna líkamstjóna, skv. 18. gr. skaðabótalaga, nr. 25/1993 og

52. gr. almannatryggingalaga, nr. 117/1993 banna framsal krafna um tryggingabætur.

Page 7: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

7

Aðilaskipti að kröfuréttindum, frh.

• Kröfuhafaskipti, frh.– Réttaráhrif framsals

Við framsal öðlast nýr kröfuhafi allan þann rétt sem fyrri kröfuhafi átti á hendur skuldara og að jafnaði ekki annan rétt

Skuldari getur borið fram allar þær sömu mótbárur við framsalshafann sem hann gat borið fram við framseljanda, þrátt fyrir að framsalshafi sé grandlaus. Mikilvæg undanþága frá þessu varðandi viðskiptabréf.

Sönnun um framsal – Skuldari má skoða framseljanda sem kröfuhafa þar til hann fær vitneskju um framsalið og getur neitað að greiða framsalshafa án þess að um vanefnd verði að ræða af hans hálfu, ef framsalshafi getur ekki sýnt fram á að vera orðinn kröfuhafi.

Page 8: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

8

Aðilaskipti að kröfuréttindum, frh.

• Kröfuhafaskipti, frh.– Réttaráhrif framsals, frh.

Framsal leiðir því aðeins til aðilaskipta að framseljandi eigi þann rétt til kröfunnar að hann geti framselt hana. Undantekning frá þessu varðandi viðskiptabréf.

Við framsalið getur framsalshafi öðlast önnur réttindi sem fylgja kröfunni, t.d.

1) Tryggingarréttindi, (veð og ábyrgðir.)

2) Afrakstur af söluhlut sem verður til fyrir afhendingu tilheyrir að jafnaði seljanda.

3) Kaup á kröfu sem ber vexti, ná til áfallinna vaxta sem ekki eru gjaldfallnir á umsömdum afhendingartíma , sbr. 81. gr. kpl.

Page 9: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

9

Aðilaskipti að kröfuréttindum, frh.

• Kröfuhafaskipti, frh.– Réttaráhrif framsals, frh.

Með framsali sínu ábyrgist framseljandi að:

1) krafa sé til

2) krafa sé þess efnis sem uppi er látið

3) að hann hafi heimild til þess að framselja hana

Framseljandi ábyrgist ekki að krafa verði greidd, nema hann hafi lofað því sérstaklega og kallast það skaðlaust framsal.

Sérreglur gilda um framsöl víxla og tékka

Page 10: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

10

Aðilaskipti að kröfuréttindum, frh.

• Kröfuhafaskipti, frh.– Réttaráhrif framsals, frh.

Ef framsal kröfu er liður í gagnkvæmum samningi, þá er forsenda fyrir greiðslu gagnaðila að hin framselda krafa fáist greidd, dæmi skuldabréf afhent sem greiðsla í bílaviðskiptum, tilraun til greiðslu.

Page 11: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

11

Lok kröfuréttinda

• Venjuleg lok kröfu– Greiðsla

– Skuldajöfnuður

– Viðtökudráttur

• Kröfu lýkur við uppgjöf• Krafa upphaflega skilyrt eða bundin takmörkunum• Samruni réttinda og skyldu eða ómöguleiki• Fyrning kröfu• Opinber innköllun

Page 12: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

12

Lok kröfuréttinda, frh.

• Kröfu lýkur við greiðsluHinn eðlilegi dauðdagi kröfu er að hún falli niður við greiðslu, en greiðsla leiðir því aðeins til brottfalls skyldu að:

– hún sé í samræmi við skylduna

– innt sé af hendi sú greiðsla sem greiða átti

– hún sé greidd á réttum tíma

– hún sé greidd á réttum stað

– hún sé greidd til kröfuhafa eða þess sem er bær til að taka við greiðslu fyrir hans hönd

Page 13: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

13

Lok kröfuréttinda, frh.

• SkuldajöfnuðurSkuldajöfnuður getur farið fram milli tveggja manna sem eiga kröfu hvor á annan um sömu einstaklega ákveðnu greiðsluna eða tegundargreiðslu sömu tegundar og báðar kröfurnar eru orðnar gjaldkræfar. Kröfurnar jafnast þá út án þess að greiðsla fari fram.

Skuldajöfnuður getur fram í eftirfarandi tilvikum:– á grundvelli samkomulags aðila

– hvor aðili um sig getur krafist þess einhliða að kröfur þeirra skuli mætast, ef skilyrði skuldajöfnuðar eru fyrir hendi.

– með dómi

Page 14: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

14

Lok kröfuréttinda, frh.

• Skuldajöfnuður, frh.Ef eftirfarandi skilyrði eru fyrir hendi, teljast báðar kröfur niður fallnar þegar annar hvor aðila lýsir yfir skuldajöfnuði:

– kröfurnar verða að vera á milli sömu aðila

– þær verða að vera sambærilegar

– þær verða báðar að vera gildar

– þær verða, með tilliti til greiðslutíma, að vera hæfar til að mætast.

Óvissri kröfu verður ekki skuldajafnað á móti viðurkenndri kröfu og ódæmdri kröfu verður ekki skuldajafnað á móti dæmdri kröfu

Page 15: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

15

Lok kröfuréttinda, frh.

• Skuldajöfnuður, frh.Sérreglur um skuldajöfnuð gilda ef báðar kröfur eru af sömu rót runnar eða samið hefur verið fyrirfram um skuldajöfnuð, sbr. 28. gr. eml. Ákvæðið heimilar þeim sem vill hafa uppi gagnkröfu til skuldajafnaðar gegn aðalkröfu fyrir dómi, m.a. að komast hjá að gagnstefna af því að kröfurnar eru af sömu rót runnar, samið hefur verið um þær, o.fl.

Sama gildir um skuldajafnaðarrétt aðila sem bæði skuldar og á hjágjaldþrotabúi, eða manni sem leitar nauðasamninga, sbr. 1. mgr. 100. gr. gjaldþrotaskiptalaga, nr. 21/1991. Þar er veittur mjög víðtækur réttur til að mæta kröfu búsins með gagnkröfu til skuldajafnaðar án þess að skilyrðin um að kröfurnar séu hæfar til að mætast og séu sambærilegar, séu fyrir hendi.

Page 16: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

16

Lok kröfuréttinda, frh.

• ViðtökudrátturÞað kallast viðtökudráttur þegar skuldara er ekki mögulegt að losna undan skyldu sinni með greiðslu, vegna atvika er varða kröfuhafann, enda þótt krafa sé orðin greiðslukræf og skuldari hafi bæði vilja og getur til að greiða.

Lög um geymslufé, nr. 9/1978

Hver sá sem inna á af hendi peningagreiðslu en fær ekki greitt kröfueiganda vegna aðstæðna eða atvika sem kröfueigandi ber ábyrgð á, getur fullnægt greiðsluskyldu sinni með því að greiða skuldina á geymslureikning í viðskiptabanka eða sparisjóði.

Page 17: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

17

Lok kröfuréttinda, frh.

• Viðtökudráttur, frh.Skuldari getur geymslugreitt í þeim tilvikum þegar

– kröfuhafi finnst ekki eða

– kröfuhafi neitar að taka við greiðslu

Greiðandi skal án ástæðulauss dráttar tilkynna kröfueiganda um greiðsluna ef það er unnt.

Geymslufé greiðist þeim aðila sem sannar rétt sinn til þess

Page 18: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

18

Lok kröfuréttinda, frh.• Kröfu lýkur við uppgjöf

Krafa getur fallið niður við löggerning og er það kallað uppgjöf eða eftirgjöf kröfu.

Uppgjöf getur tekið til– allrar kröfunnar eða

– hluta af kröfu (afsláttur)

– getur einnig lotið að greiðsluskilmálum (gjaldfrestur veittur)

Skuldari getur verið leystur undan skyldu

– gegn greiðslu annarrar greiðslu en honum bar (datio in solutum)

– gegn því að nýr skuldari komi í hans stað (novatio)

– án þess að nokkuð komi í staðinn (eiginleg uppgjöf)

Page 19: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

19

Lok kröfuréttinda, frh.

• Krafa upphaflega skilyrt eða bundin takmörkunumKrafa hefur falið í sér endalok sín frá því að stofnað var til hennar, dæmi:

– Krafa bundin lausnarskilyrði eða forsendu

– Kröfuréttindi eru tímabundin

– Greiðsla annars eða beggja tekur yfir óvíst tímabil og er uppsegjanleg

– Dauði annars eða beggja aðila

Page 20: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

20

Lok kröfuréttinda, frh.

• Lok kröfu vegna samruna réttar og skyldu eða vegna ómöguleikaÞær breytingar geta orðið, frá því að stofnað var til kröfu, að skilyrði fyrir því að um kröfu getu verið að ræða eru ekki lengur fyrir hendi. Þetta á við í eftirfarandi tilvikum:

– Réttur og skylda flyst á sömu hendi, t.d.• kröfuhafi á veðkröfu og kaupir hina veðsettu eign

• skuldari erfir kröfuhafa

– Hvorki unnt að efna skyldu eftir aðalefni hennar né með greiðslu efndabóta. Skuldari verður ekki þvingaður til að efna skyldu sem honum er ómögulegt að efna þótt sú skylda hvíli enn á honum.

Page 21: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

21

Lok kröfuréttinda, frh.• Fyrning kröfu og vanlýsing

› FyrningMeð fyrningu er átt við að krafa er látin niður falla þar sem kröfuhafi hefur látið langan tíma líða án þess að hann hafi beitt kröfurétti sínum gagnvart skuldara. Um fyrningu er fjallað í lögum nr. 14/1905.

Rök fyrir þessu eru:– Skuldari hættir að gera ráð fyrir því að þurfa greiða kröfu

– Kemur í veg fyrir að geyma þurfi kvittanir von úr viti

– Sparar dómstólum að dæma um gildi gamalla og óvissra krafna

Kröfuhafi verður að halda kröfu sinni fram með lögsókn innan fyrningarfrestsins til þess að hún fyrnist ekki, nema skuldari viðurkenni kröfuna innan frestsins.

Page 22: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

22

Lok kröfuréttinda, frh.

• Fyrning kröfu og vanlýsing, frh.› Fyrning, frh.Lengd fyrningarfrests er mismunandi eftir tegundum krafna, ýmist 4, 10 eða 20 ár.

– 4 ár er algengasti fyrningarfresturinn, 3. gr.

– 10 ár er hinni almenni fyrningarfrestur, ef annar frestur er ekki ákveðinn í lögum, 4. gr.

– 20 ár er sjaldgæfasti fyrningarfresturinn, 2. gr.

Sérreglur gilda um fyrningu víxla og tékka:– 3 ár á hendur samþykkjanda víxils, 1 ár á hendur útgefanda og ábekingum og 6 mánaða

viðbótarfrestur ef ábekingur innleysir. Víxillög, nr. 93/1933

– Tékkalög, 6 mánuðir frá lokum sýningarfrests (venjulega 30 dagar frá útgd.)

Page 23: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

23

Lok kröfuréttinda, frh.

• Fyrning kröfu og vanlýsing, frh.› Fyrning, frh.Upphaf fyrningarfrests er við gjalddaga kröfu

Fyrningu einungis slitið þegar

– mál telst höfðað

– sýslumaður hefur móttekið aðfararbeiðni

– lýst hefur verið kröfu í þrotabú, sbr. 165. gr. gþl.

– skuldari viðurkennir skyldu sína

Við slit fyrningar byrjar nýr fyrningarfrestur að líða

Page 24: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

24

Lok kröfuréttinda, frh.

• Fyrning kröfu og vanlýsing, frh.› VanlýsingHeimilt er að gefa út opinbera innköllun til allra skuldheimtumanna sinna og skora á þá að gefa sig fram innan tiltekins tíma og lýsa kröfum sínum, í eftirfarandi tilvikum:

– við gjaldþrotaskipti

– við nauðasamningsumleitan

– við opinber skipti á dánarbúi

– við slit hlutafélags eða samvinnufélags

Það kallast vanlýsing ef kröfu er ekki lýst innan frests og telst krafan þá niður fallin.

Page 25: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

25

Lok kröfuréttinda, frh.

• Ógild krafa greiddSkuldari getur greitt kröfu sem er lokið

Í slíkum tilvikum á skuldari rétt á endurgreiðslu, nema– viðtakandi hafi haft ástæðu til að ætla að skuldari greiddi vitandi það að

honum var það ekki skylt eða

– ef greiðandinn vekur trú hjá viðtakanda greiðslu um að hann hafi í raun og veru átt þetta hjá sér

Page 26: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

26

Réttarvernd kröfuréttinda

• Þvingunaraðgerðir kröfuhafa, tryggingarréttindi– Aðstoð dómstóla

– Eignir skuldara standa til tryggingar öllum fjárskuldbindingum hans

– Aðalreglan sú að kröfuhafi getur valið um hvaða eignir skuldara skuli standa til fullnustu kröfu hans.

– Frá aðalreglunni er sú undantekning að einstakir kröfuhafar geta átt forgangsrétt til að leita fullnustu í tiltekinni eign. Á við þegar

• kröfuhafi á tryggingarréttindi (veðréttindi, ábyrgðir)

• bú skuldara er tekið til gjaldþrotaskipta. Kröfum kröfuhafa skipt í flokka eftir því í hvaða röð þær koma til greiðslu:

Page 27: Kröfuréttur Kaflar IX og XVI - XVII

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

27

Réttarvernd kröfuréttinda, frh.• Skaðabótavernd kröfuréttinda

• Refsivernd kröfuréttindaKröfuréttindi stundum varin með refsiákvæðum, þannig að vanefnd varði skuldara refsingu, á einkum við í tengslum við auðgunarbrot.

• Vernd kröfuréttinda gagnvart þriðja manni– Þriðji maður kemur fram sem kröfuhafi

– Skuldari hefur lofað einstaklega ákveðinni greiðslu

– Um tegundargreiðslu er að ræða

– Þriðji maður gerir fjárnám hjá skuldara

– Þriðji maður skemmir eða eyðileggur greiðslu

– Eignir skuldara standa til tryggingar öllum fjárskuldbindingum hans

– Aðstoð dómstóla

– Aðalreglan sú að kröfuhafi getur valið um hvaða eignir skuldara skuli standa til fullnustu kröfu hans.

– Frá aðalreglunni er sú undantekning að einstakir kröfuhafar geta átt forgangsrétt til að leita fullnustu í tiltekinni eign. Á við þegar • kröfuhafi á tryggingarréttindi (veðréttindi, ábyrgðir)

• bú skuldara er tekið til gjaldþrotaskipta. Kröfum kröfuhafa skipt í flokka eftir því í hvaða röð þær koma til greiðslu: