35
Leiðbeint um leiðsagnarmat Ingvar Sigurgeirsson, apríl og maí 2013

Leiðbeint um leiðsagnarmat

  • Upload
    akasma

  • View
    94

  • Download
    3

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Leiðbeint um leiðsagnarmat. Ingvar Sigurgeirsson, apríl og maí 2013. Hvað er námsmat?. Hver eru helstu námsmatsverkin? Hversu stór þáttur í starfi kennara er tengdur námsmati? Hversu vel líkar kennurum þessi þáttur starfsins?. Úr rannsóknarviðtali: - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Leiðbeint um leiðsagnarmat

Ingvar Sigurgeirsson, apríl og maí 2013

Page 2: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Hvað er námsmat?• Hver eru helstu námsmatsverkin?• Hversu stór þáttur í starfi kennara er tengdur

námsmati?• Hversu vel líkar kennurum þessi þáttur

starfsins?

Úr rannsóknarviðtali: S: En hérna, námsmatið, hvernig er því fyrir komið?K: Ómægod. Það er, sko, hausverkur ársins.

Page 3: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

NámsmatshugtakiðNámsmat er öll öflun upplýsinga um nám

nemenda og miðlun þeirra til annarra

Samofið kennslu. Kennari fylgist með og á samskipti við nemendur í dagsins önn.

Allt skipulegt, formlegt, opinbert námsmat, s.s. próf, kannanir, skipulegar athuganir, skráning á árangri, formlegur vitnisburður.

Óformlegt – formlegt

Page 4: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Tilgangur námsmats

• Áríðandi er að hafa í huga að námsmat þjónar margvíslegum tilgangi

• Ekki er síður áríðandi gera sér grein fyrir því að námsmat nær ekki alltaf tilgangi sínum!

Page 5: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Námsmatshugtök sem tengjast tilgangi námsmats

• Greinandi mat (diagnostic assessment)• Stöðumat (placement assessment)• Lokamat (summative asssesment)• Símat / stöðugt mat (continuous assessment)• Leiðsagnarmat (formative assessment)

Page 6: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Hvað er leiðsagnarmat?• … námsmatsaðferðir (formlegar og óformlegar) sem

felldar eru inn í kennslu og beinast öðru fremur að því að bæta námsárangur (og kennslu), einkum með uppbyggilegri endurgjöf

• Líta má á leiðsagnarmat sem ráðgjöf um það hvernig nemendur geta bætt sig í námi!

Page 7: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Kjarninn í leiðsagnarmati

• Nemandinn fær (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf, leiðsögn, með hliðsjón af markmiðum)• Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna (2007, um 4000) sýni

þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur

• Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati

• Sjálfsmat og jafningjamat eru mikilvægir þættir í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilji markmiðin)

(Sjá um þessar áherslur: Black og Wiliam 1998: Inside the Black Box)

Page 8: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Hvernig fellur leiðsagnarmat að Aðalnámskrá grunnskóla (2011)?

• Mat á árangri og framförum … er reglubundinn þáttur í skólastarfi, órjúfanlegur frá námi og kennslu.

• Markmið skólastarfs eru margvísleg og hægt að fara ýmsar leiðir til að ná þeim. Því verða matsaðferðir að vera fjölbreyttar.

• Meta þarf alla þætti námsins, þekkingu, leikni og hæfni með hliðsjón af viðmiðum í aðalnámskrá.

• Kennarar þurfa að hjálpa börnum og ungmennum til raunhæfs sjálfsmats … Leggja skal áherslu á leiðsagnarmat. (Leturbr. IS)

Page 9: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Leiðsögn um lykilhæfni• Hæfni nemenda til að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir

munnlega, skriflega og á annan hátt. Hæfni til að miðla þekkingu og leikni sinni og flytja mál sitt skýrt og áheyrilega og taka þátt í samræðum og rökræðum.

• Skapandi hugsun og frumkvæði í efnistökum og úrvinnslu. Hæfni nemenda til að nota þekkingu og leikni, draga ályktanir, áræðni til að leita nýrra lausna og beita gagnrýninni hugsun og röksemdafærslu.

• Hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt, í samstarfi við aðra og undir leiðsögn.

• Hæfni nemenda til að nýta margvíslega miðla í þekkingarleit, úrvinnslu og miðlun og nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt.

• Hæfni nemenda til að bera ábyrgð á eigin námi og leggja mat á eigin vinnubrögð og frammistöðu. (Aðalnámskrá, bls. 53, leturbr. IS)

Page 10: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Lykilhæfni „endurskoðuð“• ... tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir munnlega, skriflega …

miðla þekkingu og leikni sinni og flytja mál sitt skýrt og áheyrilega.• … taka þátt í samræðum og rökræðum.• [… beita s]kapandi hugsun og [sýna] frumkvæði í efnistökum og

úrvinnslu.• … nota þekkingu og leikni, draga ályktanir, áræðni til að leita nýrra lausna

og beita gagnrýninni hugsun og röksemdafærslu.• … vinna sjálfstætt …• … [vinna] í samstarfi við aðra • … [vinna] undir leiðsögn.• … nýta margvíslega miðla í þekkingarleit, úrvinnslu og miðlun • … nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt• … bera ábyrgð á eigin námi og leggja mat á eigin vinnubrögð og

frammistöðu. (Aðalnámskrá, bls. 53, leturbr. IS)

Page 11: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Hæfniviðmið• Í nýrri námskrá er mikil áhersla á

hæfniviðmið – sem ættu að vera kennurum og nemendum leiðsögn í náminu

• Vandi er að mörg viðmiðanna gera mjög miklar kröfur – Skoðum dæmi

Page 12: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Nýi brautskráningarkvarðinn

Page 13: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Til umhugsunar um endurgjöf og einkunnir?

-

• Rannsóknir Ruth Butler o.fl. frá 1986 og 1988

–Endurgjöf í formi einkunna–Endurgjöf í formi umsagna–Endurgjöf í formi einkunna og umsagna–Engin endurgjöf

• Hvaða leið skilaði nemendum bestum árangri?

Page 14: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Alþjóðleg umræða Bandaríkin: Stöðluð próf eða óhefðbundið námsmat (alternative assessment, sjá grein IS)

England: Stöðluð próf eða leiðsagnarmat (formative assessment, sjá grein Black og Wiliam, 1998)

Sterkur rannsóknargrunnur!

Hér á landi Aðferðir sem eru að ryðja sér til rúms: Einstaklingsmiðað námsmat, leiðsagnarmat, sjálfsmat, jafningjamat, óhefðbundin próf, námsmöppur (ganga undir ýmsum nöfnum), ýmis námsmatstæki (gátlistar og kvarðar).

Dýrmæt reynsla er að verða til!

Bakgrunnur: Gróska, gerjun, deilur

Page 15: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Kennslufræði leiðsagnarmats

• Útskýra markmið fyrir nemendum

• Markvissar spurningar

• Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir)

• Virkja nemendur (sjálfsmat, jafningjamat)

• Jafningjakennsla

(Wiliam, 2007: Changing Classroom Practice)

Page 16: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Útskýra markmið fyrir nemendum Rannsóknir benda til þess að tilgangur náms

mætti vera oftar á dagskrá í skólastofum Rannsóknir benda til þess að áhersla á

markmið / tilgang náms hafi jákvæð áhrif á námsárangur–Samræða við nemendur–Nota markmiðin í kennslunni

» Í tengslum við námsáætlanir» Í tengslum við sjálfsmat og jafningjamat

Page 17: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Markvissar spurningar

Þrennt virðist skipta meginmáli:• Spurningar sem vekja nemendur til

umhugsunar um námsefnið• Uppröðun (sbr. hér)• Að gefa nemendum umhugsunartíma

Í þessu myndbandi, Secondary Assessment – Effective Questioning, útskýra Paul Black and Chris Harrison, mikilvægi góðra spurninga (smellið á myndina)!

Page 18: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir)

• Tvær stjörnur – ein ósk ...

• Þrjár stjörnur – tvö ráð ...

• O.s.frv.

Page 19: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Gæði endurgjafar• Hvað vitum við?

Page 20: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Hjálpartæki við leiðbeinandi endurgjöf:gátlistar, matskvarðar, marklistar

checklists, rating scales, rubrics

• Gátlisti

• Matskvarði

• Marklisti (sóknarkvarði, viðmiðunartafla, rúbrikka)

Page 21: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Nýting marklistanna• Sem viðmiðun um gæði (tengt markmiðum í

upphafi)• Sjálfsmat• Jafningjamat• Kennaramat• Samskipti við foreldra• Sem vitnisburður

Page 22: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat
Page 23: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Virkja nemendur (sjálfsmat, jafningjamat)

• Þátttaka nemenda• Auka ábyrgð nemenda á eigin námi• Nemendur verði tilgangur námins ljósari• Skilja betur hvernig þeir læra

Mikilvæg forsenda: Að nemendur viti til hvers er ætlastSjálfsmat verður að læra

Page 24: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Kostir jafningjamats

• Virkjar nemendur til þátttöku og ábyrgðar

• Eflir skilning nemenda á markmiðum námsins

• Bætir endurgjöfina, hún verður fyllri – fleiri sjónarhorn

• Nemendur taka ábendingum nemenda oft betur en ábendingum kennara

• Nemendur leggja sig oft meira fram ef þeir vita að félagar þeirra taka þátt í mati

• Veitir mikilvæga þjálfun, m.a. í tjáningu, samstarfi, jafningjastuðningi, og nemendur læra að gagnrýna uppbyggilega

Úr skólastefnu Laugarnesskóla (drög 2011)

Page 25: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Meira um jafningjamat• Jafningjamat í hópum hefur gefið góða raun• Jafningjamat þarf að kenna!• Heppilegt er að nota gát-, mats- og marklista

við jafningjamat – Vel kemur til greina að nemendur taki þátt í að búa þessi

tæki til

Page 26: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Brekkubæjarskóli, 3.

bekkur

• „Skriftarlöggur“: Jafningjamat í skrift

Skriftarlöggan og nemandinn ákveða í

sameiningu hvaða stafur, orð eða setning fær

stjörnu með hliðsjón af gátlista. Verkefnið hefur

gefist mjög vel en nemendur þóttu sýna miklar framfarir með

þessari aðferð og ábyrgð nemenda á eigin námi

jókst.

Page 27: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Að hvaða atriðum

þarf ég að einbeita mér

við upprifjun?

Hvar er ég

sterkur og hverjir

eru veikleikar

mínir?

Hvernig

stend ég mig?

Hvernig veit ég

hvort vinna mín sé

góð?

Hvað fær mig

virkilega til að

hugsa?

Hver eru

markmiðin mín?

Hvað get ég

munað og hvernig fæ

ég betur skilið?

Er ég að læra eins

og mér hentar best?

Hvað þarf ég

að gera til að

bæta mig?

Hvernig fer ég að

því að ná árangri og

taka framförum?

Lykilhlutverk sjálfsmatsins

Gagnlegt kver um leiðsagnarmat:Self-assessment Þýðing: Þóra Björk Jónsdóttir

Page 28: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Jafningjakennslan• Vannýtt auðlind• Nemendur skilja skýringar skólafélaga betur

en skýringar kennara• Jafningjakennsla felur í sér þjálfun í tjáningu• Kennsla er besta námsaðferðin!!!

Page 29: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Lykillinn er samræðan við nemandann

• Nemendasamtalið– Dæmi úr Norðlingaskóla– Dæmi úr Heiðarskóla

Page 30: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat
Page 31: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Matsfundir

• 10–20 þátttakendur• Orðið gengur tvo til þrjá hringi:

– Jákvæð atriði: Hvað eruð þið ánægð með?– Ráðahringur: Hvað má betur fara?

• Nemendur nefna eitt / tvö / þrjú atriði eftir því hvað ákveðið hefur verið

• Öll atriði eru skráð• Engar umræður

Page 33: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Próf í anda leiðsagnarmats• Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn

„Svindlpróf“, glósupróf, námsefni ... öll gögn• Heimapróf• Prófverkefni gefin upp með fyrirvara • Munnleg próf, dæmi• Atrennupróf: Nemendur fá að gera endurteknar

tilraunir við sama próf / sömu próf (dæmi prófavikurnar í Salaskóla)

• Einstaklingsmiðuð próf (Salaskóli, Norðlingaskóli)• Samvinnupróf (Salaskóli)

Page 35: Leiðbeint  um  leiðsagnarmat

Ræðið• Hvernig hugnast ykkur áherslur í

leiðsagnarmati?• Hverjar eru helstu hindranir?• Hvar eru sóknarfæri?