32
L ISTIN LIFA VETUR 2014 leb.is Meðal efnis: Stjórnendur þurfa að meta eldra starfsfólk að verðleikum - 4 Forvarnir með hjálp fjölvirkra náttúruefna - 13 Lífeyrissjóðakerfið er sterkt - gegnumstreymiskerfi óhugsandi - 8 Sigrún Magnúsdóttir alþingismaður ræðir um þingstörfin og eldri borgara - 26 Nýsköpun og tækni í félagsþjónustu - 28

Listin ad lifa vetur 2014

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Tímarit Landssambands eldri borgara.

Citation preview

Page 1: Listin ad lifa vetur 2014

LISTINLIFAAÐ

V E T U R 2 0 1 4

l e b . i s

Meðal efnis:Stjórnendur þurfa að meta eldra starfsfólk að verðleikum - 4

Forvarnir með hjálp fjölvirkra náttúruefna - 13Lífeyrissjóðakerfið er sterkt - gegnumstreymiskerfi óhugsandi - 8

Sigrún Magnúsdóttir alþingismaður ræðir um þingstörfin og eldri borgara - 26Nýsköpun og tækni í félagsþjónustu - 28

Page 2: Listin ad lifa vetur 2014

Reykjavíkur Apótek býður upp á allar

tegundir lyfja. Mikið og

fjölbreytt úrval af heilsulyfjum,

bað- og ilmvörum, gjafavörum

auk ýmissa annarra góðra kosta.

Reykjavíkur Apótek er

sjálfstætt starfandi apótek sem

leggur áherslu á persónulega

þjónustu og hagstætt verð.

Apótekið þittí gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2

Afgreiðslutími:9-18:30 virka daga

10-16:00 laugardaga

Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur

Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | [email protected]

Page 3: Listin ad lifa vetur 2014

3

Stjórnendur meti eldra starfsfólk að verðleikum ................................. 4

Hefja á uppbyggingu nýs Landspítala strax .. 6

Íslenska lífeyrissjóðakerfið er sterkt .............. 8

FÁÍA vill fá fleiri til liðs við félagið ..............10

Auknar álögur á aldraða og sjúklinga .......... 12

Forvarnir með hjálp fjölvirkra náttúruefna................................... 13

Mikil lífsgæði að sjá vel án gleraugna .......... 15

Fræðsluhornið ..............................................16

Heyrnarskerðing á efri árum .........................18

Hvernig er best að taka út séreignarsparnað? ..................................... 20

Haustfundur samstarfsnefndar eldri borgara á Norðurlöndunum NSK ....... 22

Námskeið um minnisglöp .......................... 23

Krossgáta ...................................................... 24

Vísnaskrínið ................................................. 25

Vinnubrögðin betri og umræðan opnari..... 26

Húsbílafélagið og eldri borgarar ...................27

Ný tækifæri til aukinna lífsgæða .................. 28

Varnarbarátta er framundanSamkvæmt lista Global Age Watch yfir þau lönd þar sem best er að verða gamall þá er Ísland í sjöunda sæti. Fyrstu tvö sætin verma Noregur og Svíþjóð, sem kemur ekki á óvart. Ísland er reyndar í þriðja sæti þegar kemur að fjárhagslegu öryggi eldri borgara, en þarna er í heildina verið að meta hina ýmsu þætti sem skapa sameiginlega það sæti sem hver þjóð lendir í. Ef skoðað er hvar við erum hvað varðar aðgengi fólks að heil-brigðisþjónustu erum við í 8. sæti. Allt er þetta tiltölulega ánægjuleg staða þar sem hér er um allt að 100 lönd að ræða sem metin eru á þessum lista. Við sem tilheyrum þessum hópi vitum þó að svona meðal-tal segir ekki alla söguna. Fólk lifir ekki á meðaltali. Það skiptir hvern og einn máli hvernig hans aðstæður eru. Eldri borgarar eru afar marg-breytilegur hópur fólks á stóru aldursbili.

Nú í október var í Helsinki haldinn fundur í stjórn hinnar norrænu samstarfsnefndar eldri borgara á Norðurlöndunum, sem við í Lands-sambandinu erum aðilar að. Í skýrslum fulltrúanna og umræðum komu víða fram áhyggjur af niðurskurði sem bitnar á kjörum líf-eyrisþega. Alls staðar er verið að tala um hækkun á lífeyristökualdri og fjölgun í hópi eldri borgara. Hart er sótt að grunnlífeyrinum, sem allir hafa átt rétt á óháð öðrum tekjum. Það er einnig að gerast hér á landi. Í vinnu nefndar um endurskoðun almannatrygginga höfum við í Landssambandi eldri borgara lagt áherslu á óskertan grunnlífeyri. Hvers vegna er LEB að berjast fyrir óskertum grunnlífeyri fyrir alla líf-eyrisþega óháð lífeyrissjóðstekjum? Sá réttur var tekinn af okkur með einhliða lagasetningu 1. júlí 2009, en okkur tókst að ná þeim rétti til baka á árinu 2013. Nú eigum við aftur í vök að verjast þegar rætt er um sameiningu bótaflokka almannatrygginga. Það sem margir gera sér ekki grein fyrir er að þarna er um „prinsip“ mál að ræða. Um grunnlífeyri fyrir alla óháð lífeyrissjóðstekjum, var samið milli aðila vinnumarkaðar-ins og ríkisstjórnar fyrir áratugum þegar lífeyrissjóðakerfinu var komið á. Það var liður í því að tryggja samstöðu þjóðarinnar fyrir hinu nýja lífeyriskerfi. Það tryggði samheldni og ákveðna samtryggingu allra. Þar skyldi eitt yfir alla ganga. Ef á að kasta fyrir borð öllum fyrri loforðum í lífeyrismálum þá er hætta á að samstaðan rofni. Þá fer hver að skara eld að eigin köku og samhjálpin bíður skaða af. Þá erum við ekki lengur þjóðfélag samhjálpar og samstöðu. Er ekki einmitt þörf á að treysta grunnstoðirnar? Hverjir voru það sem byggðu upp það þjóðfélag sem við eigum í dag? Byggðu upp samgöngur, vegi, hafnir, skóla, mannsæm-andi íbúðir. Byggðu upp framtíðina fyrir sitt unga fólk, sem í dag getur valið sér framtíðarverkefni eftir sínu áhugasviði. Það gátum við ekki sem lögðum hart að okkur til að framfleyta fjölskyldunni upp úr miðri 20 öldinni. Þetta eru lífeyrisþegar dagsins í dag og þeir eiga skilið að vel sé að þeim búið, en ekki leitað allra leiða til að skera niður það litla sem samfélagið lætur þeim í té.

Með ósk um gleðileg jól og aukna farsæld á komandi ári.Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður LEB.

Útgáfustjórn: Grétar Snær Hjartarson, [email protected], Bryndís Steinþórsdóttir, [email protected], Þrúður Kristjánsdóttir, [email protected], Haukur Ingibergsson, [email protected], Jóna Valgerður Kristjánsdóttir [email protected]óri: Jóhannes Bjarni Guðmundsson, [email protected]íðumynd: Eldgos í Holuhrauni, ljósmynd: Anton Hugi Kjartansson.Auglýsingar: Sökkólfur ehf., [email protected] & útlit: Sökkólfur ehf., [email protected]: Ísafoldarprentsmiðja.Útgefandi: Landssamband eldri borgara,Sigtúni 42, 105 Reykjavík, [email protected]

Meðal efnis

Page 4: Listin ad lifa vetur 2014

4

„Viðmælendur mínir voru sammála um að færni þeirra í starfi hefði aukist með árunum, meðal annars færni til ákvarðanatöku og færni í mannlegum samskiptum. Þá búa þeir yfir gríðarlegri þekkingu sem aðrir leita í, bæði sam-starfsfólk og viðskiptavinir, og tengsl-anetið þeirra er sterkt. Tveir af átta viðmælendum mínum höfðu lokið eða voru í þann mund að ljúka meistara-námi samhliða starfi.“ Þetta segir Jóna Valborg Árnadóttir um meistararitgerð sína sem fjallar um miðaldra og eldra fólk á vinnumarkaði. Ritgerðin nefnist Glatað fé eða fundið?

Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að vinnuumhverfið og sú hvatn-ing sem ræður ríkjum þar hefur úrslita-áhrif á frammistöðu eldri starfsmanna. „Stjórnendur gegna þar lykilhlutverki, en það er í þeirra höndum að taka stjórnina og skapa umhverfi þar sem miðaldra og eldra starfsfólk er virkt og afkastamikið,“ bætir Jóna Valborg við.

Aldurstengdri stjórnun starfsmanna-mála hefur verið lítill sem enginn gaumur gefinn fram til þessa. Þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á að hægt sé að auka starfsánægju og ná meiri hagræðingu í rekstri og mannauðsmál-um stórra fyrirtækja með því að beina sjónum sérstaklega að hópi miðaldra og eldri starfsmanna. Í aldurstengdri stjórnun er unnið út frá því að starfs-menn á aldrinum 50 ára og eldri búi yfir lykilþekkingu og mikilli yfirsýn sem geri þá verðmæta. Fyrirtæki ættu þar af leiðandi að leggja kapp á að halda sem lengst í þessa starfsmenn og tryggja að sú þekking sem þeir búa yfir glatist ekki þegar þeir láta af störfum.

Markmið rannsóknar Jónu Valborg-ar var að auka þekkingu og skilning á þessum verðmæta starfsmannahópi, 50 ára og eldri. Sömuleiðis að setja fram tillögur sem nýtast mega sem verkfæri í aldurstengdri stjórn starfsmannamála, þar sem tekið er mið af þörfum þessa hóps. Jóna Valborg segist hafa lagt upp

með að kanna viðhorf starfsfólksins sjálfs, hvernig það upplifir sig í starfi og vinnuumhverfi sitt, til að komast að því hvað hvetur það áfram og stuðlar að starfsánægju þess. Rætt var við átta einstaklinga á aldrinum 50 til 63 ára, þrjá karla og fimm konur. Þetta eru ólíkir einstaklingar með mislangan starfsaldur á sínum vinnustað og ólíka menntun. „Einn þessara starfsmanna hafði sem dæmi aðeins verið eitt ár hjá sínum vinnuveitanda. Hann hafði ákveðið að skipta um starf eftir að hafa verið „plataður“ í viðtal á ráðningar-stofu. Ein meginástæðan fyrir því að hann ákvað að stökkva til var sú að hann var ekki nógu ánægður á sínum gamla vinnustað. Jóna Valborg segir sögu hans vera áminningu til stjórn-enda því hún sýnir að eldra fólk er vel samkeppnishæft. „Stjórnendur mega ekki taka því sem gefnu að eldra fólki bjóðist ekki ný tækifæri eða að það hafi ekki áhuga á að breyta til.“

Að hennar sögn er það þó almennt reynsla fólks sem þarf að leita sér að nýrri vinnu þegar það er komið yfir miðjan aldur að það geti verið erfiðara en áður. Draga má þá ályktun að þær stöðluðu myndir sem uppi eru um miðaldra og eldra fólk í dag, jafnt í vinnuumhverfinu sem annars staðar, hefti framgang þeirra í starfi og leiði til mismununar. Kom það nokkuð sterkt í ljós í rannsókn Jónu Valborgar að þau skilaboð sem umhverfið sendir

viðmælendum á ekki endilega upp á pallborðið hjá þeim sjálfum. Myndin sem dregin er upp er brengluð. Hún passar ekki við þeirra eigin hugmyndir um þá sjálfa og jafnaldra þeirra. Einn viðmælandi rannsóknarinnar segir:

„Ég sótti um eitt starf sem mér fannst bara vera búið til fyrir mig, en ég fékk ekki einu sinni séns á viðtali og þá einmitt fór ég að hugsa þetta mikið. Og ég á svona kunn-ingja í Capacent og Hagvangi og þeir segja bara að þegar þú ert orðin 55…6..7 ára þá er það næstum ómögulegt.“

Á öðrum stað segir sami viðmælandi: „Það er ekkert mál að senda fólk 55

… 60 ára í dag á námskeið. Það er bara kjaftæði að við getum það ekki.“

Og á öðrum stað segir hann.:„…mér finnst það alveg náttúrulega fá-

ránlegt að maður skuli þurfa að vera bara fimmtíu ára og maður er kannski úti á at-vinnumarkaðinum til sjötugs og þú verður bara…þú getur ekki hreyft þig í 20 ár. Mér finnst þetta náttúrulega ömurlegt.“

Annar viðmælandi nefnir að eldri starfsmenn njóti oft ekki sama sveigjan-leika og þeir yngri. Ungt fólk njóti oftar skilnings stjórnenda þegar það þarf að sinna veikum börnum og fá frí vegna sumarleyfa og starfsdaga í leikskólum. Jóna Valborg segir að eldra fólk hafi líka þörf fyrir sveigjanleika í starfi, ekkert síður en ungt fólk. Það sé ein af forsend-unum fyrir því að eldra fólk sé ánægt í starfi. Fleiri þættir komi einnig til eins og það að fá að upplifa að vera í félags-legu umhverfi og í tengslum við aðra.

Jóna Valborg hefur fengið afar jákvæð viðbrögð við meistararitgerð sinni og hafa mörg fyrirtæki þegar sýnt efni hennar áhuga og viljað kynna sér það betur. „Þetta segir mér að þörfin er til staðar, stjórnendur vilji beina sjónum sínum í meira mæli að eldri starfsmönnum og leiti nú leiða til þess.“ segir Jóna Valborg. Hún hvetur til áframhaldandi umræðna og nýrra viðhorfa gagnvart miðaldra og eldra fólki. Tækifærið er núna!

Ný rannsókn um hvað hvetur eldra fólk í starfi:

Stjórnendur meti eldra starfsfólk að verðleikumSamkvæmt þeim staðalímyndum sem dregnar eru upp af eldra fólki vinnur það hægar, á erfiðara með breytingar og hefur minni áhuga á námi en þeir sem yngri eru. Jóna Valborg Árnadóttir, sem nýlega lauk meistaranámi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands, segir fordóma í garð eldra fólks ekki eiga rétt á sér. „Þessi staðlaða mynd þarf að breytast,“ segir hún.

Jóna Valborg Árnadóttir,MS í mannauðsstjórnun.

Page 5: Listin ad lifa vetur 2014

– fyrir lifandi heimili –

Hinn eini sanni!LA-Z-BOY er hágæða vörumerki, þar sem

þægindi, notagildi og ending fara saman.

Upplifðu hvíld á nýjan hátt og færðu

þægindi inn á þitt heimili með LA-Z-BOY.

LA-Z-BOY er eini stóllinn í heiminum sem

hefur 18 mismunandi hægindastillingar.

LA-Z-BOY er skrásett vörumerki og fæst

eingöngu í Húsgagnahöllinni.

«

Mest seldi hægindastóll

í heiMi

«

«

La-z-boy – líklega besta sæti í heimi!

Page 6: Listin ad lifa vetur 2014

6

Kjaramálanefnd LEB fjallaði í september síðastliðnum um nýtt frumvarp til fjárlaga fyrir næsta ár og áhrif þeirra á stöðu eldri borgara. Fyrst ber að nefna aðför að matarverði sem þar er lögð til. Það er algjör bjartsýni að mótvæg-isaðgerðir muni skila sér. Fyrir því er margra áratuga reynsla sem gleymist ekki. Því hafnar Kjaranefnd LEB allri umræðu um að hækka matarskattinn frá 7% í 12% og síðar 14% eins og einn ráðherrann tilkynnti í eld-húsdagsumræðum. Aðrar hækkanir sem boðaðar hafa verið eru hækkanir á lyfjum og því greiðsluþaki sem þar er. Því er alfarið hafnað ekki síst þar sem á Íslandi er hæsti virðisaukaskattur á lyf sem finnst í samanburðar-löndum. Víða annars staðar er enginn virðisaukaskattur á lyf eða þá mjög lágur.

Í fjárlagafrumvarpinu er ekki að finna neinar úrbætur fyrir fólk sem er eingöngu á bótum frá Tryggingastofnun, en þar hefur orðið gliðnun árum saman og nú á þessu ári um nokkur prósent. Hækkun bóta um næstu áramót nær ekki að vinna á þessari þróun þannig að fólk sem er á lægstu bótunum er almennt illa statt fjárhagslega.

Öryggi skert með fjársvelti:Langvarandi umræða um Landspítalann og hvort eigi

að byggja eða fresta er orðin gatslitin. Umræðan um að aldraðir teppi svo og svo mörg rúm eða fylli ganga er ómakleg þar sem hvert þjóðfélag er upplýst um að öldr-uðum fjölgar og lífaldur lengist og því fylgja innlagnir á sjúkrahús. Umræðan sem líka fjallar um sífellt neyðar-ástand hefur slæm heilsufarsleg áhrif á eldri borgara og er mál að linni. Kostnaður við að gera út hverja nefnd-ina á fætur annarri og breytingar á teikningum og deili-skipulagi kostar orðið tugi milljóna. Þeim peningum hefði verið betur varið í alvöru þarfagreiningu í upphafi. Því skorum við á stjórnvöld að vinna hratt að uppbygg-ingu nýs sjúkrahúss.

Eldra fólk vill búa við öryggi eins og allir aðrir. Í okkar vel-ferðarsamfélagi hefur öryggi fólks verið skert.

Kjaramálanefnd LEB.

Ályktun Kjaramálanefndar LEB frá 25. september 2014:

Hefja á uppbyggingu nýs Landspítala strax – hafna því að matur og lyf eigi að hækka

Eyesland . Gleraugnaverslun . Glæsibæ, 5. hæð . www.eyesland.is

Viteyes augnvítamín

Inntaka Viteyes í ákveðnum skömmtum hjálpar þeim sem eru

með ellihrörnun í augnbotnum.

Eschenbach stækkunargler

Margar gerðir

15% afsláttur

15% afsláttur

Gleraugu frá kr. 11.124,-

Margskipt gleraugu frá kr. 22.124,-

Stjórn LEB á fundi: F.v. Jón Kr. Óskarsson fyrsti varamaður, Haukur Ingibergsson varaformaður og framkvæmdastjóri, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir formaður, Anna Lúthersdóttir ritari og Eyjólfur Eysteinsson gjaldkeri.

Page 7: Listin ad lifa vetur 2014

ÍSLENSKA

SIA

.IS

IC

E 7

0888

10/

14

Árshátíð, stórafmæli eða vinaferð?Njótið þess að ferðast saman og vera til. Icelandair býður hópferðir til fjölmargra áfangastaða austan hafs og vestan. Allar ferðir eru sniðnar að þörfum fólks í góðra vina hópi* og hrista hópinn vel saman.

Hafið samband við hópadeild IcelandairSkipuleggið ferðina tímanlega. Við getum séð um að bóka flug, hótel, rútur, skoðunarferðir og veislur. Leitið tilboða með því að fylla út fyrirspurnarformið á icelandair.is/hopar

+ Nánari upplýsingar hjá hópadeild Icelandair í síma 50 50 406 eða á [email protected]

* Hópur miðast við að 10 eða fleiri ferðist saman.

HÓPFERÐIR

GEFÐU ÞÉR GÓÐAN TÍMA Í GÓÐRA VINA HÓPI

Page 8: Listin ad lifa vetur 2014

8

Gunnar Baldvinsson formaður Lands-samtaka lífeyrissjóða telur brýnt að hlúa vel að starfsumhverfi lífeyris-sjóðanna til að þeir geti sem best sinnt hlutverki sínu að greiða lífeyri. Blaðið hitti Gunnar og spurði hann nokkurra spurninga um málefni lífeyrissjóðanna.

Hversu stór hluti alls ellilífeyris er greidd-ur af ríkinu og hversu stór hluti er á vegum lífeyrissjóðanna? Er þessi mynd að breytast?

„Árið 2013 greiddu lífeyrissjóðir sam-tals 66 milljarða í eftirlaunagreiðslur og almannatryggingar 33 milljarða.

Almannatryggingar greiddu lengst af stærsta hluta eftirlauna landsmanna en frá árinu 2004 hafa lífeyrissjóðirnir tekið við þessu hlutverki. Búast má við að vægi lífeyrissjóðanna í eftirlauna-greiðslum aukist enn frekar á næstu árum, bæði með auknum fjölda líf-eyrisþega en eins vegna þess að á næstu árum fara kynslóðir á eftirlaun sem hafa greitt alla ævina í lífeyrissjóð.“

Þeir sem nú eru að njóta greiðslna úr líf-eyrissjóðum þurfa að þola skerðingar á greiðslum frá Tryggingastofnun vegna annarra tekna. Er það ekki til þess fallið að draga úr hvatningu fólks til að legga í lífeyrissjóð?

„Ég get tekið undir það að tekjuteng-ingar lífeyrisgreiðsla almannatrygginga eru of miklar. Það verður hins vegar að setja hlutina í samhengi og líta til hlutverks almannatrygginga sem er að tryggja að allir lífeyrisþegar hafi lágmarksframfærslu. Ef við leggðum ekki fyrir í lífeyrissjóði er líklegt að lág-markslífeyrir væri lægri fjárhæð en er í dag þar sem lífeyrisgreiðslur eru fjár-magnaðar með sköttum hverju sinni.“

Sú kynslóð sem nú nýtur ellilífeyris hefur mátt þola miklar skerðingar á lífeyri, bæði hjá almennum lífeyrissjóðum og hjá Tryggingastofnun á árunum eftir banka-hrun. Hvernig eru horfurnar núna?

„Lífeyrisgreiðslur hjá almennu líf-eyrissjóðunum eða þeim sjóðum sem starfa án ábyrgðar launagreiðenda hafa vissulega lækkað eftir efnahagshrunið

2008 en það verður að hafa í huga að árin á undan höfðu lífeyrisgreiðslur hækkað. Ef litið er á lífeyrisgreiðslur lífeyrissjóða frá árinu 1997 hafa lífeyris-greiðslur sjóðanna hækkað nokkurn

veginn í takt við verðlag þrátt fyrir vax-andi greiðslubyrði vegna lengri meðal-ævi. Ég tel að horfurnar fyrir sjóðina í heild séu góðar til skamms tíma en um síðustu áramót voru heildareignir 2% lægri en skuldbindingar sem telst jafn-vægi miðað við skilgreiningar í lögum. Meiri óvissa er um horfur til langs tíma vegna gjaldeyrishafta. „

Lífaldur er að hækka, hvernig þurfa líf-eyrissjóðirnir að mæta þeirri staðreynd?

„Á síðustu áratugum hefur meðalævi landsmanna lengst og er gert ráð fyrir því að þessi þróun haldi áfram. Þessi þróun er auðvitað mjög jákvæð en hefur áhrif á lífeyrissjóðina. Þar sem sjóðirnir greiða lífeyri til æviloka aukast skuldbindingar sjóðanna með lengri meðalævi. Hægt er að bregðast við þessari þróun með hækkun iðgjalda, hækkun lífeyrisaldurs eða með því að greiða lægri lífeyri á mánuði en í lengri tíma. Mér finnst líklegt að farin verði

Íslenska lífeyrissjóðakerfið er sterkt Lífeyrissjóðir greiða 2/3 af öllum lífeyri, en almannatryggingar 1/3

Gunnar Baldvinssonformaður Landssamtaka lífeyrissjóða

Við núverandi aðstæður er óhugsandi að hverfa

frá núverandi kerfi og taka upp gegnumstreymiskerfi.

Page 9: Listin ad lifa vetur 2014

9

blönduð leið með hærri iðgjöldum og hærri lífeyrisaldri. Ef lífeyrisaldur verður hækkaður má búast við að breytingunni verði dreift yfir nokkurn tíma þannig að þeir sem fara á lífeyri á næstu árum verða ekki fyrir miklum breytingum.“

Telurðu að það verði mikil breyting á líf-eyrissjóðakerfinu á næstu árum. Stundum er rætt um að hverfa frá núverandi kerfi og taka upp gegnumstreymiskerfi?

„Íslenska lífeyriskerfið er sterkt og þjóðin er betur í stakk búin en flestar aðrar til að mæta breyttri aldurssam-setningu með vaxandi fjölda lífeyris-þega. Nýleg mannfjöldaspá Hagstof-unnar gerir ráð fyrir að Íslendingum á aldrinum 67 ára og eldri muni fjölga úr 36 þúsund árið 2013 í 98 þúsund árið 2060 eða um 173%. Við þessar aðstæð-ur er óhugsandi að hverfa frá núverandi kerfi og taka upp gegnumstreymiskerfi. Mun brýnna að hlúa vel að starfsum-hverfi lífeyrissjóðanna þannig að þeir geti sem best staðið undir hlutverki sínu að greiða lífeyri.“

Hvaða afleiðingar hefur breytt aldursamsetn-ing þjóðarinnar á þjóðfélagið til framtíðar?

„Augljóslega mun fjöldi einstaklinga

á eftirlaunum aukast. Lífeyrissjóðirnir, sem byggja á sjóðsöfnun, eru undir það búnir og á næstu árum munu lífeyris-greiðslur þeirra aukast um leið og lífeyr-isþegum fjölgar. Ekki er við því að búast að lífeyrisgreiðslur almannatrygginga aukist að sama skapi. Ekki er hægt að gera ráð fyrir að fjárhagsstaða ríkissjóðs leyfi það en auk þess má búast við að útgjöld ríkissjóðs vegna heilbrigðismála hækki á næstu áratugum þegar fjölgar í

elstu þjóðfélagshópunum eða þeim ald-urshópum sem þurfa mesta þjónustu.

Fyrir einstaklinga sem eru á vinnualdri þýða þessar breytingar að þeir þurfa að treysta á sjálfa sig og sýna fyrirhyggju ef þeir vilja tryggja sér eftirlaun í takt við laun á starfsævinni. Lífeyrissjóðir munu greiða grunn eftirlauna en hver og einn verður því að gera ráðstafanir til að bæta við eftirlaunin til að forðast tekjutap eftir að vinnu lýkur.“

Augnheilbrigði

Fæst í öllum helstu apótekum um allt land.www.provision.is

Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með

sinki, lúteins og zeaxantíns og er ætlað

við aldursbundinni augnbotnahrörnun.

Nú er vítamínið með endurbættri formúlu

sem gerir það enn betra en áður.

Viteyes í nýju umbúðunum er komið í

dreifingu og er fáanlegt á sömu stöðum

og áður, um allt land.

NÝTT OG ENDURBÆTT AUGNVÍTAMÍN Í NÝJUM UMBÚÐUM!

Eldriumbúðir

Nýjarumbúðir

Rúmlega fimmtungur nýtir heimaþjónustuÁrið 2013 nutu 8.387 heimili félagslegrar heimaþjónustu. Rúmlega fjögur af hverjum fimm þessara heimila voru heimili aldraðra eða 6.893 (82,2%) og hafði þeim fjölgað um 93 (1,4%) frá árinu 2012. Á þessum heimilum aldraðra bjuggu 8.655 einstaklingur og jafngildir það 20,2% landsmanna 65 ára og eldri. Í Reykjavík naut tæplega fjórðungur (23,7%) 65 ára og eldri félagslegrar heimaþjónustu. Meðalfjöldi vinnustunda við heimaþjónustu á heimili árið 2013 var 112 (2,4 stundir á viku) og hafði þeim fækkað um tvær frá árinu á undan. Um 38% vinnustunda voru eingöngu við þrif, en í öðrum tilvikum var einnig um persónulega þjónustu að ræða.

Heimild: www.hagstofa.is

Page 10: Listin ad lifa vetur 2014

10

Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, FÁÍA hefur þegar haldið námskeið á 50 stöðum víðs vegar um landið. Á veg-um félagsins eru fjölmargir fastir liðir ár hvert eins og íþrótta- og leikdagur á öskudaginn, Íslandsmót í Boccía fyrir 60 ára og eldri og púttmót fyrir 60 ára og eldri.

FÁÍA var stofnað árið 1985 að danskri fyrirmynd, en Danir settu þetta verkefni af stað til að koma til móts við vaxandi þörf fyrir hreyfingu eldra fólks. Þorsteinn Einarsson íþrótta-fulltrúi, Guðrún Nielsen og Elísabet Hannesdóttir íþróttakennarar heill-uðust af hugmyndinni og stofnuðu félagið FÁÍA ásamt fleiri áhugasömum um sama málefni.

Félagið starfar sem regnhlífasamtök og hefur haldið námskeið í margvís-legum úti- og inniíþróttum, leikfimi, dansi, sundleikfimi og leikjum fyrir leiðbeinendur sem starfa við félags-miðstöðvar og í félögum eldri borgara. Þannig hefur félagið stuðlað að aukinni fjölbreytni í æfingavali fyrir þennan aldurshóp, þeim til gagns og gleði.

Afmælisrit og saga félagsins í 25 ár

voru send til formanna allra félaga eldri borgara vorið 2013.

FÁÍA þætti mikill ávinningur að fá fleiri til liðs við þessa starfsemi sem félagsmenn og stuðningsaðila, því verkefnin eru mikið að aukast. Árgjaldið er kr. 2.000 að viðbættu seðilgjaldi.

Markmið okkar „Aldrei of seint“,er að efla og styrkja velferð manna.En starfsemi okkar ljóst bæði og leynt,er leiðsögn um áhrif íþróttanna.

Höf: Hjörtur Þórarinsson

Bjóða íþróttanámskeið fyrir FEB um allt land

FÁÍA vill fá fleiri til liðs við félagið

Stjórn FÁÍA 2014:Nafn sími netfangÞórey S. Guðmundsdóttir formaður 6944216 [email protected]örtur Þórarinsson varaformaður 8930722 [email protected] Jessen gjaldkeri 8681008 [email protected] Ingimundarson ritari 8981851 [email protected]ós Ottósdóttir meðstjórnandi 8960653 [email protected] Sigurvinsdóttir meðstjórnandi 8938949 [email protected] Bjarnason meðstjórnandi 8636847 [email protected] FÁÍA: [email protected]

Frá íþróttadegi FÁÍA sem orðinn er fastur liður í starfi félagsins á hverju ári.

Page 11: Listin ad lifa vetur 2014

11

Stefán B. Stefánsson er einn fjölmargra sem farið hefur í augasteinsaðgerð og hann segir það algjörlega hafa breytt öllu til hins betra. Hann fékk það sem kallað er fjölfókus-linsur sem hjálpa honum að sjá vel, bæði langt frá sér og það sem er nálægt. Þessir fjölfókusaugasteinar sem settir eru í stað-inn fyrir venjulega gerviaugasteina lagfæra bæði fjarsýni og nærsýni. „Þetta er alveg yndislegt, alveg svakalegur munur,“ segir Stefán. „Það var nú eiginlega tilviljun að ég fylgdi konunni í augnskoðun í Sjónlag í Glæsibæ síðastliðið vor. Þá kom í ljós ský á augasteini hjá mér og frekar döpur sjón. Það þurfti að skipta um augasteinana og maður hefði þurft að nota gleraugu áfram við lestur. Hinn valkosturinn var að fá fjöl-fókusaugasteina, sem ég gerði,“ segir Stefán.

Sjúklingar sem fá hefðbundna gerviaugasteina fá yfir-leitt góða sjón, sérstaklega til að sjá frá sér, en slíkir gervi-augasteinar eru með fókus á einni fjarlægð. Flestir þurfa þó að nota gleraugu til að sjá vel nálægt sér eins og við lestur. Stöðugt eru í þróun nýjar tegundir gerviaugasteina sem eiga það sameiginlegt að gera einstaklinga minna háða gleraugum, sem eru svokallaðir fjölfókus gerviaugasteinar. Rannsóknir sýna að um það bil 8 af hverjum 9 sjúklingum sem fá þessar tegundir gerviaugasteina þurfa aldrei að nota gleraugu. Þessir gerviaugasteinar eru því spennandi val-kostur við hefðbundna gerviaugasteina fyrir þá sem eru með ský á augsteini og vilja geta séð sem mest án gleraugna eftir augasteinsaðgerð. Þeir eru ekki síður spennandi kost-ur fyrir þá sem eru þreyttir á gleraugunum og vilja geta séð bæði nálægt sér og frá sér gleraugnalaust.

Stefán segist í raun ekki hafa gert sér grein fyrir hvað sjón-in hafi verið orðin léleg fyrr en eftir aðgerðina. Þetta muni gríðarlega miklu núna í öllum daglegum störfum. „Ég lenti í hjartaaðgerð fyrir fjórum árum og eftir það var jafnvægið ekki eins gott, en læknar sögðu að það tengdist heilanum. Mér finnst jafnvægið hafa batnað núna eftir að sjónin lagað-ist, enda virkar þetta allt saman“, segir Stefán og hlær. „Svo verður maður bara meira sjálfbjarga að öllu leyti. Ég er 86 ára og konan mín 83 ára. Við sjáum algjörlega um okkur sjálf og það eru mikil lífsgæði að hafa heilsu til þess. Góð sjón skiptir þar miklu máli“, segir Stefán. Sjón hans fór að hraka strax um þrítugsaldur enda sjóndepra í ættinni. Hann var alltaf með tvískipt gleraugu eftir að slíkt bauðst. „Svo virðist sjóninni hafa hætt að hraka svona um sextugt, en svo hafa byrjað smám saman aftur,“ segir Stefán um leið og hann dáist að fögru útsýninu að heiman frá sér – án gleraugna.

Mikil lífsgæði að sjá vel án gleraugnaKynning

Stefán B á heimili sínu í Kópavogi þar sem hann getur nú notið útsýnisins gleraugnalaus eftir augnaðgerð í Sjónlagi.

Page 12: Listin ad lifa vetur 2014

12

Nú höfum við fengið að líta augum fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2015. Það flytur engan gleði-boðskap fyrir eldri borgara. Hækkun virðisaukaskatts á matvæli vegur engan veginn upp á móti lækkun almennra vörugjalda þó þau séu góðra gjalda verð. Að hækka virðisaukaskatt á matvæli úr 7% sem samið var um í kjarasamning-um á sínum tíma, í 12% er forkastanleg aðgerð. Það kemur að sjálfsögðu mest við þá sem lægst hafa laun eða lífeyri. Það er ekki marktækur rökstuðningur að halda því fram að allir eyði sama hlutfalli af ráðstöfunartekjum í mat-arinnkaup og þar af leiðandi sé þetta ekki árás á lágtekjufólk. Því verðum við að vona að það takist í meðförum þingsins að fella þessa ákvörðun út úr fjárlögunum. Þó að lækkun í efra þrepi virðisaukaskatts úr 24,5% í 24% sé til-raun til að lækka verðlag og lækka sölu-verð ýmissa heimilistækja, þá vegur það ekki á móti þeirri hækkun matarskatts sem hér er stefnt að. Auk þess sem allir þurfa að borða daglega, en ekki að kaupa sér heimilistæki nema á nokk-urra ára fresti. Varla er gert ráð fyrir því að hækkun barnabóta komi öldruðum til góða! Ef mótvægisaðgerðir eiga að nýtast þeim sem hafa lágar tekjur væri vænlegra að hækka persónuafsláttinn.

HeilbrigðiskerfiðÍ fyrra kom út skýrsla hjá Krabbameins-félagi Íslands þar sem farið var yfir það hve hlutur almennings í heilbrigisþjón-ustu hefur verið að aukast á Íslandi. Kostnaðurinn er nú með því hæsta sem gerist í löndum sem við berum okkur saman við. Almennt má segja að kostnaður almennings í heilbrigðis-kerfinu sé kominn að þolmörkum eins og staðan er núna. Það er því algjörlega á skjön við allt sem fram kom í þessari skýrslu að bæta í þennan kostnað með því að sjúklingar greiði fyrir S-merkt lyf. Eldri borgarar og öryrkjar munu gjalda þess verulega, því þetta er sá hópur sem einna mest notar heilbrigðiskerfið og er einn stærsti kaupandi lyfja . Auk þess eru lyf flokkuð í hæsta virðisaukaþrep hér á landi, en t.d. í mörgum öðrum löndum eru lyf ýmist með engan virðis-

aukaskatt eða í lægra þrepinu. Það kom vel fram í grein sem Jakob Falur Garðarsson skrifaði í Morgunblaðið og einnig Jón Kr. Óskarsson formaður FEB í Hafnarfirði. Landssamband eldri borgara hefur ítrekað óskað eftir lækkun virðisaukaskatts á lyf.

Hiti og rafmagnÞá mun þessi fyrirhugaða breyting á virðisaukaskatti hækka verulega kostnað heimila fyrir hita og rafmagn.

Verst mun það koma niður á þeim sem búa á landsbyggðinni og búa við dýr-ari hitunar- og rafmagnskostnað en á höfuðborgarsvæðinu. Hækkun á hvert heimili á ári er á bilinu 3.300- 8.600 kr. Nóg er nú samt þegar dæmi eru um að rafmagn og hiti í dreifbýli kosti á heim-ili 303.000 kr. á ári. Niðurgreiðslur til húshitunar til þeirra sem búa á köldum svæðum er í frumvarpinu nánast sama krónutala og á þessu ári og tekur því ekki einu sinni verðlagsbreytingum þrátt fyrir yfirlýsingar um jöfnun orku-verðs.

Þeir 40 milljarðar sem fjármálráð-herra fullyrðir að verði nú eftir hjá heimilum landsins með skattabreyting-unum, munu ekki bæta hag þeirra sem mest þurfa á því að halda. Þvert á móti taka þeir á sig auknar byrðar.

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, og formaður

Krabbameinsfélags Breiðfirðinga.

Auknar álögur á aldraða og sjúklinga

Greinarhöfundur á góðri stund með sonar-dóttur sinni, Söru Margréti Jóhannesdóttur.

Ellimóður er með lausnina! Setjum gamla fólkið í fangelsi og afbrotamenn á elliheimiliÞá fengi gamla fólkið aðgang að baði, tölvu, sjónvarpi, líkamsrækt og gönguferðum. Allt starfsfólk talaði íslensku við það og enginn stæli frá þeim.

Ellimóður

Þeir sem vildu gætu stundað nám, smá vinnu eða dútlað við föndur og gamla fólkið fengi líka greitt í stað þess að þurfa að borga háan hluta af ellilífeyrinum sínum. Bubbi Morthens og Ari Eldjárn kæmu svo til að skemmta á aðfangadag.Afbrotamenn fengju þá kaldan mat, engan pening, væru aleinir, starfsfólkið talaði allt að 10 ólík tungumál og enga íslensku. Þeir þyrftu að slökkva ljósin kl. 20 og fengju að fara í bað einu sinni í viku. Félagar úr Harmonikkufélagi Reykjavíkur svo kæmu til að skemmta þeim á sjómannadaginn. Eiga ellilífeyrisþegar kannski eitthvað betra skilið?

30 GERÐIR Í BOÐI

15% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM PÖNTUNUM TIL ELDRI BORGARA

PERSÓNULEG JÓLAKORTÞÍN MYND OG ÞINN TEXTI

AUÐVELT AÐ PANTA Á JOLA.ISAfsláttarkóði: listinadlifa2014

(afslátturinn reiknast þegar gengið er frá pöntun í körfu)

Page 13: Listin ad lifa vetur 2014

13

Fjölvirk náttúruefni eru efni sem er m.a. að finna í ýmsum lækninga-jurtum, grænmeti og kryddjurtum. Þessi fjölvirku náttúruefni geta virkað á mörg ensím og efnaferla í frumum líkamans og haft jákvæð eða jafnvel neikvæð áhrif á starfsemi þeirra. Í þessari grein verður einkum fjallað um notkun fjölvirkra náttúruefna úr lækn-ingajurtum til að styrkja forvarnir gegn sjúkdómum sem erfitt er að glíma við svo sem krabbameinum, æðakölkun og heilabilun. Túrmerik og ætihvönn eru dæmi um slíkar uppsprettur fjölvirkra náttúruefna en hér verður einkum fjallað um efni úr túrmerik. Hafa menn farið ýmsar leiðir í leit að leiðum til að fyrirbyggja sjúkdóma og jafnvel lækna þá þegar hefðbundnar lyfjameðferðir hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Stundum hefur leitin skilað þeim árangri sem að var stefnt. Læknar eru tregir til að mæla með óhefðbundnum meðferðum og vilja eðlilega bíða eftir klínískum rannsóknum á gagnsemi slíkra meðferða. Klínískar rannsóknir taka oft langan tíma og eru verulega kostnaðarsamar. Margar óhefðbundn-ar meðferðir byggjast á notkun náttúru-efna. Áhugi lyfjafyrirtækja er yfirleitt lítill á náttúruefnum ef ekki er unnt að taka einkaleyfi á virku náttúruefn-unum en lyfjaiðnaðurinn á upphaf sitt að rekja til notkunar á náttúruefnum úr lækningajurtum.

Eitt af þeim efnum sem mikið er rannsakað um þessar mundir er curc-umin sem er í turmerik en það er eink-um notað í kryddblönduna karrý. Túr-merik er unnið úr rótinni á Curcuma longa og er notað við matreiðslu og til lækninga í Suðaustur Asíu, Kína og Indlandi. Kryddjurtir hafa verið not-aðar til að styrkja forvarnir í baráttu við ýmsa sjúkdóma. Virka efnið í turmerik er curcumin og nokkur áþekk curcum-in efni. Frásog eða upptaka curcumins í blóðið gengur hægt og curcumin brotnar einnig hratt niður í líkam-anum og gefur því minni virkni en við var búist. Með því að nota samtímis svartan pipar þá dregur piperine sem kemur úr piparnum úr niðurbrotinu á curcumin og margfaldar frásog eða

upptöku á curcumin og gerir það miklu virkara. Rannsóknir sýna að curcumin og piperine eru skaðlaus efni sem virka gegn bólgum og ýmsum bólgutengdum sjúkdómum svo sem krabbameinum, heilabilun, æðakölkun o.fl. Sýnt hefur verið í fjölda klínískra rannsókna að turmerik og pipar eru örugg til neyslu enda hafa þau verið notuð um aldir sem krydd við matseld.

Curcumin og krabbameinCurcumin hefur margvísleg áhrif á myndun og vöxt krabbameina. Curc-umin getur hindrað myndun á krabba-meinsfrumum úr normal frumum og getur einnig hindrað fjölgun á krabba-meinsfrumum (heimild 1). Curcumin stuðlar að því að gölluðum frumum og þar með krabbameinsfrumum verði eytt, en það nefnist sjálfstýrður frumudauði. Curcumin hindrar einnig nýæðamyndun en þegar krabbameins-æxli vex þarf það að mynda nýjar æðar til að flytja næringu til æxlisins. Ef það tekst að hindra myndun á nýjum æðum í æxlinu þá getur það ekki vaxið og verður æxlið þá bara smá baun (heimild 1). Það er athyglisvert að áhrif curcumins sem er í túrmerik eru mjög svipuð og áhrif fúranókúmarin efna

sem eru í ætihvannafræjum og þá í jurtaveiginni Angelicu sem framleidd er úr þessum fræjum. Einnig eru til staðar efni í hvannalaufi (SagaPro) sem hindrar vöxt á krabbameinsæxlum.

Curcumin og æðakölkunÁrið 2012 birtist yfirlitsgrein frá há-skóla í Montreal í Kanada um áhrif curcumins á hjarta- og æðasjúkdóma (heimild 2), á æðakölkun, ofstækkun hjarta (cardiac hypertrophy), háan blóðþrýsting o.fl. Æðakölkun er lýst sem sjúkdómi sem byrjar með þrá-látum bólgum og aukinni oxun eða þránun í æðaþeli og æðaveggjum. Framvinda sjúkdómsins innifelur aukna samloðun á blóðflögum, oxun eða þránun fituefna og myndun á æða-kölkun sem þrengir æðarnar og getur dregið úr blóðflæði þegar mikið liggur við. Rannsóknir hafa sýnt að curcumin getur dregið úr þeim breytingum sem leiða til æðakölkunar, getur verndað gegn bólgum, dregið úr sjúklegri oxun á kólesteróli og hindrað samloðun á blóðflögum og á þann máta dregið úr æðakölkun.

Hjartastækkun er aðlögun að auknu álagi á hjartað sem verður oft hjá íþróttamönnum en einnig hjá mönn-um sem hafa fengið kransæðastíflu. Stækka þá starfhæfar hjartavöðva-frumur og þá einnig hjartað. Þessi stækkun hjartans hjá íþróttamönnum gengur til baka að verulegum hluta þegar þeir hætta keppnisíþróttum. Hjartastækkun eftir kransæðastíflu og skemmd á hjartavöðva getur hins vegar haldið áfram og leitt til hjartabilunar. Rannsóknir sýna að curcumin getur stöðvað slíka hjartastækkun og dregið úr hættu á hjartabilun (heimild 2). Vert er að geta þess að samskonar áhrif er að finna í ýmsum fúranókúmarín efnum sem eru í hvannafræjum (og í Angelicu).

Curcumin og heilabilunAlzheimers sjúkdómur var skilgreindur 1907 af þýskum lækni, dr. Alois Alzhei-mer. Tölfræðin sýnir að um 10% ein-staklinga eldri en 65 ára og um 50% þeirra sem eru eldri en 85 ára hafa Alz-

Forvarnir með hjálp fjölvirkra náttúruefna

Sigmundur Guðbjarnason, Prófessor emeritus.

Page 14: Listin ad lifa vetur 2014

14

heimers sjúkdóm með tilheyr-andi minnistapi og þverrandi lífsgæðum. Sjúdómurinn teng-ist lífsstíl og öðrum þáttum svo sem öldrun, sykursýki, ofþyngd og hjarta- og æðasjúkdómum. Orsök sjúkdómsins er í raun ekki þekkt og engin lækning er við þessum sjúkdómi. Þekktasta kenningin er sú að prótein sem tengjast Alzheimers sjúkdómi hagi sér svipað og prion prótein sem valda kúariðu (mad cow disease), kindariðu og Creutz-feld-Jakob sjúkdómi í mönnum. Þessi Alzheimers prótein sem nefnast beta-amyloid peptid og tau prótein taka afbrigði-legt form og þvinga önnur prótein til að gera slíkt hið sama. Þessi prótein mynda klumpa og skaða taugafrumur og boðsendingar eftir þessum frumum.

Um miðja síðustu öld fóru vísinda-menn á Vesturlöndum að rannsaka áhrif curcumins á ýmsa sjúkdóma og þá einnig á meðferð við taugasjúk-dómum, m.a. Alzheimers sjúkdómi, Parkinson sjúkdómi og heilaæxlum (3). Vísindamenn telja að þessir sjúkdómar eigi það sameiginlegt að bólgur séu veigamiklar með auknum skemmdum á kjarnsýrum og próteinum og á fitu-efnum af völdum þránunar eða oxunar í heila (3). Telja þeir að gagnsemi curc-umins við meðferð þessara sjúkdóma felist m.a. í margþættum áhrifum á ýmis boðefni og ensím sem koma við sögu. Curcumin er andoxunarefni sem dregur úr bólgum og skemmdum á fituefnum í frumuhimnum af völdum of mikillar oxunar í heilanum. Curc-umin dregur úr uppsöfnun á beta-amyloid peptídum sem skaða taugafrumur og boðkerfi í heila o.m.fl.

Skert orkuvinnsla í heila Alz-heimers sjúklinga getur einnig átt þátt í þessum sjúkdómi. Á síðari árum hefur komið fram sú tilgáta að skert orkuvinnsla úr sykri (glúkósa) í orkuverum heilans eigi þátt í Alzheimers sjúkdómi (sykursýki 3) en að ketónar, sem myndast við niðurbrot fituefna geti þjónað sem orkugjafar í heila í stað sykurs. Hafa menn kannað

áhrif fituefna sem hafa einkum meðal-langar fitusýrur, svo sem kókoshnetu-olíu (heimild 4), og einnig ketona sem myndast við niðurbrot fitu, svo sem acetoacetate og beta hydroxy- butyrate.

Mikill áhugi er á notkun kókosolíu við meðferð á Alzheimers sjúkdómi en þessi olía er fáanleg í matvöruversl-unum. Það var læknir að nafni Mary T. Newport sem meðhöndlaði eiginmann sinn með þessari olíu en hann var illa haldinn af Alzheimers sjúkdómi (4). Hefðbundnar meðferðir höfðu ekki skilað árangri. Kókosolía inniheldur caprylsýru sem er frekar stutt fitusýra sem er breytt í keton efni við niðurbrot sem getur þjónað sem eldsneyti í heil-anum sem virðist ekki geta notað sykur til orkuvinnslu. Eftir nokkra mánuði batnaði ástand eiginmannsins verulega og hæfileiki til tjáningar og minnið batnaði einnig. Þessi meðferð hefur hjálpað mörgum sjúklingum með heilabilun en ekki öllum enda getur

verið um að ræða fleiri tegundir af heilabilun.

Túrmerik jurtaseyði. Ef þið hafið hug á að prófa túrmerik jurtaseyði (þ.e. túrmerik og pipar ásamt engifer, sem er að finna á kryddhillum mat-vöruverslana) þá er hér ein ódýr uppskrift: Takið einn líter af eplasafa (eða vatni) og hitið að suðu. Látið tvær teskeiðar af túrmerik dufti og eina teskeið af möluðum svörtum pipar út í vökvann ásamt ca. 2-3 gr. af nið-ursneiddu afhýddu engifer og hrærið vel. Hitið að suðumarki í 5-10 mín., kælið niður og síið svo í gegnum grisju. Látið síðan

jurtaseyðið á glerflösku og drekkið 1 glas á dag í forvarnarskini en 3-4 glös ef hugað er að meðferð við sjúkdómi. Þessi drykkur fær bragð af engifer og bragðast ágætlega. Engin neikvæð áhrif hafa komið fram við neyslu og hafa margir sjúklingar haft mikið gagn af þessu seyði. Hafa sumir krabbameins-sjúklingar jafnvel notað þetta seyði samhliða lyfjameðferð en ráðlegt er þá að gera það með vitund læknisins.

Heimildir.Curcumin: a promising agent targeting cancer

stem cells.Zang S, Liu T, Shi J, Qiao L. Anticancer Agents

Med Chem. 2014;14(6):787-792.Cardiovascular Protection by Curcumin: Mole-

cular Aspects. GeorgiaKapakos, Victoria Youreva and Ashok K. Srivastava. Ind. J. Biochem. & Biophysics. 2012;49:306-315.

Curcumin and its derivatives: their application in neuropharmacology and neuroscience in the 21st centurt. Lee WH, Loo CY, Beawy M, Luk F, Mason RS, Rohanizadeh R. Curr.

Neuropharmacol. 2013; 11(4): 338-378.Coconut oil dietary guidlines and suggestions. Mary T. Newport, 2009. www.coconutketones.com

Sigmundur Guðbjarnason.

Hvönn er algeng í íslenskri náttúru.

Túrmerik er unnið úr rótinni á Curcuma longa.

Page 15: Listin ad lifa vetur 2014

15

Listin að lifaTenerife og Kanarí

VITASkógarhlíð 12Sími 570 4444Flogið með Icelandair

Las Camelias

Verð frá 119.900 kr.*og 12.500 VildarpunktarVerð á mann m.v. 2 í íbúð á Las Camelias 5. janúar í 12 nætur

22 nætur kosta 159.900 kr. / 169.900 kr.*Verð án Vildarpunkta 129.900 kr.

Kanarí Columbus íbúðir

Verð frá 129.900 kr.*og 12.500 VildarpunktarVerð á mann m.v. 2 í íbúð á Las Camelias 5. janúar í 12 nætur

22 nætur kosta 175.900 kr. / 185.900 kr.

*Verð án Vildarpunkta 139.900 kr.

Tenerife Karl og Svanhildur eru skemmtanastjórar á Kanarí en á Tenerife Hjördís Gísladóttir.

Fararstjórar

Margvíslegur munur er á högum og aðstæðum karla og kvenna á hjúkr-unarheimilum, hvort sem í hlut eiga íbúar eða starfsfólk. Fjárhags-lega bera konur að jafnaði minna úr býtum, hvort sem litið er til launa eða lífeyris. Þetta kemur fram í loka-skýrslu velferðarráðuneytisins um kynjaða hagstjórn sem fjallar um hjúkrunarheimili.

Í samræmi við þriggja ára áætlun frá árinu 2011 um innleiðingu kynjaðrar hagstjórnar við fjárlagagerð var öllum ráðuneytum falið að velja sér tiltekinn málaflokk og vinna með hann samkvæmt aðferðafræði kynjaðrar hagstjórnar. Velferðarráðuneytið valdi málefni aldraðra og afmarkaði verkefnið við aldraða á hjúkrunarheimilum. Heildarfjárframlög til hjúkrunarheimila á fjárlögum ársins 2014 eru um 23 milljarðar króna og þar af renna um 18,8 milljarðar til þeirra hjúkrunarheimila sem verkefni ráðu-neytisins tekur til.

Í skýrslunni er dreginn fram ýmis lýðfræðilegur kynjamunur en einnig bent á mun sem tengist starfsvali, at-vinnuþátttöku og launum kynjanna. Fram kemur að konurnar bera að jafnaði minna úr býtum fjárhagslega en karlarnir og eins benda skýrslu-höfundar á að umönnun aldraðra sem aðstandendur sinna lendi frek-ar á konum. Því megi því segja að ákveðið misvægi fylgi kynjunum alla tíð, frá upphafi til æviloka.

Ýmsar ákvarðanir stjórnvalda geta haft áhrif til þess að draga úr kynjamun, til dæmis hvað varðar eftirlaun og greiðsluþátttöku íbúa á hjúkrunarheimilum. Í skýrslunni eru settar fram tillögur um aðgerðir til að draga úr misrétti í samræmi við niðurstöður verkefnisins. Meðal annars er lagt til að stefna í málefnum aldraðra verði endurskoðuð þannig að kynjasjónarmið verði hluti af henni og að sett verði skilyrði í þjónustusamninga við hjúkrunarheimili um að þau setji sér jafnréttisáætlanir.

Heimild: www.vel.is

Ólíkar aðstæður karla og kvenna á hjúkrunarheimilum

Page 16: Listin ad lifa vetur 2014

16

María K. mælir með þessari hnetusteik, sem er frá Sollu í Gló.Hnetusteik 225 g rauðar linsur (ósoðnar) 700 ml vatn (7 dl) 2 hvítlaukar, skornir í bita 2 tsk currypaste eða karrýduft 2 tsk grænmetiskraftur 300 g kasjúhnetur, þurrristaðar og malaðar 300 g heslihnetur, þurrristaðar og malaðar 2 msk hitaþolin olía, t.d. kaldpressuð kókosolía 1 rauðlaukur, smátt saxaður 3 hvítlauksrif, pressuð 2 sellerístilkar, smátt skornir 2 gulrætur, gróft rifnar 1 sæt kartafla, afhýdd og gróft rifin 4-5 msk tómatpúrra 2-3 msk mangó chutney (t.d. frá Geetas) 1 tsk grænmetiskraftur 1 ½ tsk timian (blóðberg) ½ tsk salvia ½ – 1 tsk himalaya eða sjávarsalt ¼ tsk cayenne pipar 50 g sesamfræ Skolið rauðu linsurnar og setjið í pott með vatni, hvítlauk og grænmetis-krafti. Látið suðuna koma upp og sjóðið í um 20-25 mín eða þar til lins-urnar eru soðnar. Á meðan linsurnar eru að soðna ristið hneturnar í ofni 170°C í 6-8 mín eða þar til tilbúnar. Best að rista 1 tegund í einu. Kælið og malið síðan í matvinnsluvél. Hitið olíu á pönnu og mýkið lauk + hvítlauk í smá stund, bætið sellerí +

gulrótum + sætum kartöflum útá og hrærið í smá stund, kryddið síðan með tómatpúrru + mangó chutney + grænmetiskrafti + timian + salvíu. Látið þetta malla í svona 5-10 mín. Setjið þetta allt í skál og bætið soðn-um linsum og hnetum útí og hrærið vel saman. Smyrjið lítil „soufflé“ form með kaldpressaðri olíu, stráið sesam-fræjum inní forming og setjið deigið í og bakið við 200°C í 25-30 mín.

Sætar kartöflur (bakstur)frá Ernu S. A.Sjóðið 2-3 sætar kartöflur og afhýðiðMaukið þær og setjið ca. ¼ teskeið af salti saman við2 egg 1 tsk lyftiduft ½ -1 dl sykur eða hrásykur1 dl brætt smjör 1 tsk vanilla ef villÖllu blandað saman. Látið í eldfast mót og bakað í 20 mín. 180°C

Toppur3 msk brætt smjör ¼ bolli púðursykur 1 bolli (2 dl) kornflex mulið1 dl saxaðar heslihnetur Öllu blandað saman og dreift yfir kart-öflurnar í mótinu

Bakið áfram í 20 mín. við hita 180-200°C

Kartöflubaksturinn er góður t.d. með hnetusteik.

Spergilkálbaka (brokkolí-baka) frá Elísabetu S. M.Uppskriftin er fyrir 5-6 manns.Botn:3 dl heilhveiti (160 g) eða gróft spelt125 g kalt smjör, skorið í litla bita2-3 msk kalt vatn.Setjið mjölið í matvinnsluvél og bætið köldu smjörinu saman við. Myljið þetta saman í vélinni, það tekur örskamma stund. Blandið köldu vatni saman við og hnoðið deigið létt saman. Þrýsið deiginu í 25 cm eldfst mót svo það þeki botninn og aðeins upp á hliðarnar. Pikkið deigið með gaffli og látið bíða í kæliskáp í 15 mínútur.Fylling :1 lítill blaðlaukur (ca 100 g)1 msk ólífu-eða repjuolía.1 tsk karrý400 g spergilkál3-4 dl rifinn ostur (ca 150 g)3 egg3 dl mjólkörlítið saltAðferð:Skolið og sneiðið blaðlaukinn. Látið hann krauma í olíu og karrý í nokkrar mínútur. Skerið spergilkálið í lítla bita og sjóðið í léttu saltvatni í örfáar mín-útur. Hellið soðinu af og kælið. Setjið blaðlaukinn og spergilkálið ofan í deigið. Stráíð því næst rifna ostinum yfir. Þeytið saman egg, mjólk, salt og pipar og hellið yfir grænmetið. Hitið ofninn í 200°C og bakið neðarlega í ofni í u.þ.b. 40 mínútur, eða þar til eggjablandan er orðin stíf og bakan hefur fengið fallegan gulrúnan litBerið bökuna fram með litríku græn-metissalati

FræðsluhorniðBryndís Steinþórsdóttir

Ágætu lesendur!Bestu þakkir fyrir ánægjuleg símtöl og efnisöflun í blaðið. Nú sem fyrr eru neytenda- og umhverfismál í brennidepli. Við erum minnt á að lesa vörumerkingar, vörulýsingar og dagsetningar á matvælum sem við kaupum, sérstaklega er bent á upprunaland matvælanna. Ég aflaði mér upplýsinga frá Neytendasamtökunum og staðan er sú að það er skylda að merkja grænmeti þ.m. kartöflur, nautakjöt og hunang með upprunalandi. Frá Matvælastofnun fengust þær upplýsingar að nýjar reglur um merkingu matvæla eru væntanlegar í desember n.k. Fylgjumst vel með því. Í um-hverfismálum eru neytendur m.a. hvattir til að minnka notkun plastpoka við innkaup og nota þess í stað innkaupatöskur eða poka úr vistvænum efnum.

Að venju hafa margar áhugaverðar uppskriftir borist, einkum fyrir þá sem aðhyllast grænmetisfæði.

Page 17: Listin ad lifa vetur 2014

17

Grænmetislasange frá Gunnu á Ítalíu2 stórir smátt saxaðir laukar4 stórar gulrætur sneiddar6-8 stórir sveppir sneiddir1 búnt brokkál skorið í bita1 lítið blómkálshöfuð skorið í bita1 dós hakkaðir tómatar1 dós tómatpuré (mauk)1 dós kotasæla1-4 hvítlauksrif pressuð4 tsk oregano3 tsk basilikum1 tsk timian (blóðberg)salt og pipar eftir bragði2 ½ dl vatn1 tsk rauðvínsedik (má sleppa)1 grænetissúputeningurGrænmetið er léttsteikt með kryddinu í olífuolíu á pönnu.Síðan er öllu öðru blandað saman við og látið krauma í nokkrar mínútur.

Ostasósa30 g smjör3 msk hveiti5-6 dl mjólk200 g rjómaosturSósan er bökuð upp eins og jafningur og ostinum síðan bætt út í. Þá er allt sett í lögum í stórt eldfast mót. Fyrst hluti af ostasósunni, því næst græn lasangneblöð og hluti af grænmetinu, síðan koll af kolli. Að lokum er gott að strá rifnum osti yfir.Bakað í hálfa klukkustund við 200° C.Borið fram með heitu hvítlauksbrauði og hrásalati.

Döðluterta með karamellu-sósu frá Helgu B.H. 250 g döðlur1 dl vatn1 tsk matarsódi (natron)120 g mjúkt smjör5 msk sykur2 egg3 dl hveiti1 ½ tsk lyftiduft½ tsk salt½ tsk vanilludropar

Döðlurnar eru hitaðar með vatninu, þar til suðan kemur upp. Látið bíða í pottinum í nokkrar mínútur. Því næst er matarsódinn látinn saman við döðlurnar. Smjör og sykur er hrært vel saman ásamt eggjunum. Öllu blandað saman og döðlumaukinu síðast.Bakað í djúpu tertumóti með lausum botni. (Setjið bökunarpappír á botn-inn á mótinu)Ofnhiti 180° C, bakað í 30-40 mínútur.

Karamellusósa150 g smjör150 g púðursykur¾ tsk vanilludropar1 ½ dl rjómiSjóðið saman í 5 mínútur.Hrært stöðugt í. Sósan er borin fram heit með volgri kökunni og þeyttum rjóma.

Hrökkbrauð frá Ágústu K. 1 dl. sólblómafræ 1 dl. sesemfræ 1 dl. hörfræ 1 dl. graskersfræ 1 dl. hafragrjón 3 ½ dl.heilhveiti eða spelt 1 ½ dl. olía 2 ½ dl. vatn 2 tsk. salt

Öllu blandað saman í skál og hrært m. sleif. Deiginu skipt í 2 hluta og flatt út á ofnplötur milli tveggja laga af smjör-pappír.Bakað við 200°C í 15-20 mín.Skorið eða brotið í bitaAth. Ég nota stundum 1-2 msk. af tamarisósu í þessa uppskrift.Önnur útgáfa er 3 tsk. af hvítlauks-dufti eða sesamfræ og kúmen.Svo er líka gott að hafa krydd, olívur eða rifinn ost ofan á.

Ath.í síðasta blaði var prjónauppskrift frá Föndru en þar láðist að setja skýring-arnar með uppskriftinni. Hér koma þær:

Kertaskreyting

Það er auðvelt að búa til kertaskeyt-ingu. Það sem til þarf er að mestu leyti fengið úr garðinum eða úti í nátt-úrunni. Í þessari skreytingu eru smá-greinar af birki, könglar og smágreinar af grenitré, silkiband eða pakkaband og jólakúla. Sem undirstöðu fyrir skreytinguna má nota t.d. lítinn disk, undirskál, litla skál, jafnvel gamlan bolla. Eins má nota spýtukubb, flatan stein, lítinn trédrumb eða litla tréplötu. Til að festa skreytinguna er hægt að fá leir, límleir, eða oasis (blómasvamp) í blómabúðum. Ef við notum oasis þarf að líma hann fastan á undirlagið svo stingum við skreytiefninu og kertinu einfaldlega í oasiskubbinn, eða leirinn og bætum svo við þeim skreytingum öðrum sem við viljum. Gott er að festa slaufur og annað með blómavír.Munið svo að svona skreytingar eru eldfimar og aldrei má skilja þær eftir með logandi á kertinu. Látið kertið aldrei brenna alveg niður, skiptið um þegar það nálgast efnið. Hafið skreyt-inguna ekki nálægt gluggatjöldum eða öðru sem kviknað gæti í. Skreytingin getur verið skemmtileg gjöf og til að hafa á miðju matar- eða kaffiborði. Gangi ykkur vel.Þrúður Kristjánsdóttir. [email protected]

Ég hlakka til að heyra frá ykkur og er til viðtals ef óskað er.Með bestu óskum.

Bryndís Steinþórsdóttir hússtjó[email protected]

Page 18: Listin ad lifa vetur 2014

18

Eftir 50 ára aldur fer heyrn minnk-andi einkum á hátíðnisviði. Karlar missa meiri heyrn en konur sem lík-lega á rætur að rekja til að þeir hafa önnur áhugamál og atvinnu sem oft er hávaðasamari. Efnaskiptabreytingar með aldrinum og ýmis ytri áhrif geta einnig haft áhrif á þróun heyrnar-skerðingar. 5 – 15% aldraðra eru með truflun í miðlægum heyrnarbrautum, þ.e. í heilastofni og heila, sem að heftir hæfileika þeirra til að greina talmál, sem aftur leiðir til erfiðleika í sam-skiptum. Einkenni þessarrar heyrnar-skerðingar getur t.d. verið að fólk heyr-ir hljóðin eða hávaðann en greinir ekki hvaða upplýsingar hljóðin innibera, þ.e. greina orð illa. Við þessa tegund heyrnarskerðingar gagnast heyrnartæki ekki eins vel eins og þegar skemmdin er í mið- eða innra eyra.

Vörumst hávaða – Hlífum heyrninniVaxandi heyrnarskerðing er ferli sem að flestir eiga erfitt með að aðlagast. Heyrnarskerðing á sér oftast stað á löngu tímabili og er ekki alltaf aldurs- eða erfðatengd. Þannig er fólk sem er í miklum hávaða, þó ekki sé nema í stuttan tíma, frekar útsett fyrir því að fá heyrnarskerðingu á lífsleiðinni. Næmni innra eyrans fyrir hávaða er mismikil á milli einstaklinga. Margir halda að þó að þeir hafi verið stutt í hávaða að þá hafi það ekki áhrif á heyrnina, en það safnast upp í gegnum lífið skemmd sem verður á hárfrumum í kuðungi innra eyrans sem veldur síðan heyrnartapi. Þessar frumur endurnýja sig ekki. Eyrað er marg-slungið, viðkvæmt og mikilvægt líf-færi sem við eigum að umgangast með virðingu. Skemmd í einhverjum hluta eyrans getur leitt til heyrnarskerðingar. Við þurfum að veita meiri fyrir-byggjandi fræðslu almennt varðandi heyrnina og efla forvarnir í þessum málaflokki. Fólk þarf að vera meðvitað hvernig það getur skýlt heyrninni með heyrnarhlífum og forðast aðstæður þar sem mikill hávaði er.

Heyrnartap leiðir til félags-legrar einangrunarEinstaklingar upplifa heyrnartapið á ólíkan hátt en vissir hlutir eru oft sameiginlegir t.d. að erfiðara að halda góðu sambandi við aðra, þátttaka í félagsstarfi minnkar sem leiðir til að einstaklingarnir upplifa einangrun og einmanaleika. Heyrnarskertir eiga oft erfitt með að fylgjast með tali úr fjarlægð, þeir misskilja það sem sagt er, reyna þá að giska og missa af mikil-vægum skilaboðum. Þetta leiðir til þess að þeir fylgjast síður með umræðum, geta ekki tekið virkan þátt í samræðum og draga sig í hlé. Einnig er til að hinn heyrnarskerti haldi orðinu og hleypi ekki öðrum að, það er einfaldara að stjórna ferðinni en að fylgjast með hvað aðrir segja.

Mikilvægt að viðurkenna heyrnar-tapið, læra að lifa með því og nota við-eigandi heyrnar- og hjálpartæki. Einnig hjálpar að hafa góðan húmor og taka sjálfan sig ekki of alvarlega þegar mis-skilningur kemur upp.

Heyrnartæki auka lífsgæðiNotkun heyrnartækja hefur aukist hérlendis en það má áætla að um tíu

þúsund notendur séu hér á landi sem er undir þörfinni. Miðað við algengi heyrnarskerðingar mætti telja eðlilegra að um 15-17 þúsund manns væru með heyrnartæki en það eru þó áætlaðar tölur.

Heyrnartæki eru alltaf að verða betri og betri og hljóðið í þeim betra. Þau eru orðin mun þægilegri í notkun en áður. Engin tæki gefa þó fulla heyrn, hvorki hefðbundin tæki né ígrædd tæki. Öll tæki breyta utanaðkomandi hljóðum í rafrænt form þannig að fólk heyrir ekki eins og með náttúrulegri heyrn. Þó er sífellt betri hljóðvinnsla í tækjunum. Rannsóknir hafa sýnt að með réttri notkun heyrnartækja aukast lífsgæði eldri borgara verulega, líkam-leg líðan og félagsfærni batna til muna.

Heyrnar-, og talmeinastöð Íslands er leiðandi á sviði meðferðar heyrnarskertra á ÍslandiMun fleiri nota heyrnartæki nú en á árum áður en því miður er fjöldi fólks enn ómeðhöndlað vegna heyrnartaps. Í boði eru sífellt notendavænni heyrn-ar- og hjálpartæki við allra hæfi.

Heyrnar-og talmeinastöð Íslands útvegar hágæða heyrnartæki frá nokkr-um þekktustu framleiðendum heims, Siemens, Phonak og Widex. Tækin fást í mismunandi útgáfum, allt frá einfaldari, ódýrum tækjum og upp í mjög fullkomin tæki í efri verðflokk-um. Heyrnartæki eru niðurgreidd af sjúkratryggingum, mismikið eftir eðli og alvarleika heyrnarskerðingarinnar.

Ígrædd heyrnartæki og hjálpartækiÞeir sem missa mjög mikla heyrn eða verða heyrnarlausir og börn sem fæðast heyrnarlaus eiga í mörgum tilvikum kost á s.k. kuðungsígræðsluaðgerð að upp fylltum ákveðnum skilyrðum. Í að gerð inni er elektróða þrædd inn í kuðunginn og tæki sem er borið utan á höfðinu er síðan stillt fyrir hvern og einn. Þessi tæki hafa reynst vel og gefið einstaklingum möguleika á sam-skiptum á talmáli.

Töluvert er til af hjálpartækjum til

Heyrnarskerðing á efri árum

Ingibjörg Hinriksdóttir, yfirlæknir Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands

skrifar.

Heyrnartæki eins og hér sjást eru alltaf að verða betri og betri og hljóðið að batna.

Page 19: Listin ad lifa vetur 2014

19

S HELGASON- Steinsmiðja síðan 1953

Verslun okkar á Skemmuvegi 48,hefur að geyma ríkulegt vöruúrvalá borðplötum, legsteinum,náttúruflísum, sólbekkjum,vatnsbrettum, bón- og hreinsi-vörum ásamt fleiri vörutegundum.

Í verslun okkar færðu yfirlit yfirfjölbreytnina og ráðgjöf umnýtingu og meðferð efnisins.Við hvetjum þig til að líta inn.

OpnunartímiMán - fim 9:00 -18:00Föstudaga 9:00 - 17:00Laugardaga 10:00 -14:00Sími: 557 6677Netfang: [email protected]

Nýr vefur sem heitir Lifðu núna (www.lifdununa.is) hóf göngu sína í júní síðastliðn-um. Markmiðið með rekstri vefsíðunnar er að gera líf og störf þeirra landsmanna sem eru komnir um og yfir miðjan aldur sýnilegri en þau eru, auka umræðu um þau málefni sem tengjast þessu æviskeiði og lífs-gæði þeirra sem eru komnir á þennan aldur.

Menn lifa lengur en áður og Íslend-ingar lifa hvað lengst Evrópubúa við góða heilsu ef marka má evrópska töl-fræði. Á aldrinum eftir sextugt hefst nýtt æviskeið, sem stundum er kallað þriðja aldursskeiðið, með nýjum við-fangsefnum og áskorunum.

Þessi vefsíða, Lifðu núna, ætlar að fjalla um þau málefni sem brenna á þessum

hópi. Það er byrjað smátt en ætlunin er að þróa síðuna áfram með þáttöku þeirra sem hafa áhuga á málefninu. Allir sem vilja vinna að sömu markmiðum, hafa hugmyndir um efni fyrir síðuna eða vilja leggja eitthvað af mörkum eru hvattir til að hafa samband. Netfang vefsins er: [email protected] og ritstjóri er Erna Indriðadóttir.

Heimild: www.lifdununa.is

Ný vefsíða um málefni eldri borgara

að draga úr vanda heyrarskertra. Marg-víslegur aukabúnaður gerir fólki kleift að senda hljóð úr t.d. farsímum, hljóm-tækjum og sjónvarpi beint í heyrnar-tækin. Nýjasta tæknin er „app“ fyrir snjallsíma, sem gerir heyrnartækjanot-endum kleift að stjórna ýmsum still-ingum heyrnartækjanna frá símanum sínum. Allur slíkur búnaður auðveldar fólki lífið.

Skilningur og stuðningur aðstandenda skiptir mikluVinnufélagar og fjölskyldumeðlimir skilja oft ekki mikilvægi þess að hinn heyrnarskerti noti hjálpartæki t.d. við sjónvarp og síma og telja að heyrnar-tækin ein eigi að duga. Hér þyrfti meiri fræðslu til aðstandenda og vina. Sá sem talar við heyrnarskertan ein-stakling þarf ekki endilega að hrópa hátt. Hitt skiptir meira máli að fylgja einföldum reglum s.s. að tala hægt og skýrt, tryggja að ekki sé mikill bak-grunnshávaði, að ekki tali margir í einu og að snúa ekki baki í viðmælandann.

Page 20: Listin ad lifa vetur 2014

20

Mistök við úttekt séreignarsparnaðar geta reynst dýrkeypt og því er mikilvægt að kynna sér málin vel. Séreignarsparn-aður er ólíkur samtryggingarsjóðum að því leyti að eignin er á okkar kennitölu, við ákveðum hvar og hvernig hún er ávöxtuð og hvernig við högum úttekt. Þar sem aðstæður fólks eru ólíkar þarf hver og einn að skoða vandlega hvenær og hvernig henti best að taka sparnaðinn út þannig að ekki tapist fé við úttektina.

Úttekt sparnaðar fyrir 67 ára aldur Sá misskilningur er útbreiddur að út-tekt séreignarsparnaðar hafi svo mikil áhrif á lífeyri Tryggingastofnunar (TR) að það borgi sig að taka hann allan út áður en taka lífeyris hefst. Í tilkynn-ingu frá TR í febrúar 2012 segir „sér-eignarsparnaður hefur almennt ekki áhrif á útreikning lífeyrisgreiðslna frá Tryggingastofnun.“ Úttektin hefur því eingöngu áhrif á þá sem þiggja upp-bætur á lífeyri, svo sem sérstaka fram-færsluuppbót.

Einhverjir lífeyrisþegar geta þó átt rétt á afslætti af fasteigna- og holræsa-gjöldum og getur sá afsláttur minnkað við auknar tekjur, svo sem við úttekt séreignar. Upplýsingar um slíkt er að finna hjá sveitarfélögunum.

Flýttu þér hægt við úttektina Við úttekt er greiddur tekjuskattur af sparnaðinum. Þar sem tekjuskattur er þrepaskiptur getur skattgreiðsla verið misjöfn eftir því hversu mikill

séreignarsparnaður er tekinn út í einu. Því kjósa margir sem eiga umtalsverðan sparnað að fara sér hægt við úttektina og losa hann út á nokkrum árum. 39,74% skattur er greiddur af tekjum frá 290.001 – 784.619 kr. á mánuði en tekjur umfram það bera 6,5% hærri skatt (hátekjuskatt). Það getur því verið dýrt að flýta sér við úttektina.

Notkun sparnaðar í greiðslu skulda Almennt er uppgreiðsla lána góð hug-mynd enda bera skuldir yfirleitt hærri vexti en eignir. Það er t.d. sjálfsagt að nýta séreignarsparnað til að borga upp mjög óhagstæð lán á borð við yfirdrátt. Þar sem tekjur lækka hjá flestum við starfslok vegur greiðslubyrði lána þá hlutfallslega þyngra. Margir kjósa því að greiða inn á lán sín til að lækka mánaðalegar afborganir og draga úr

áhættu. Aftur er þó gott að muna eftir skattþrepunum, ef há upphæð er tekin út úr séreignarsparnaði á einu ári getur það þýtt að borga þurfi hátekjuskatt af úttektinni.

VÍB hefur opnað aðgengilega upp-lýsingasíðu um fjármál við starfslok á slóðinni www.vib.is/60. Þar er meðal annars að finna ítarlegar upplýsingar um úttekt séreignarsparnaðar og er öllum velkomið að sækja sér pers-ónulega ráðgjöf um hvernig henni er best háttað. Þá bendum við einnig á fræðsludagskrá VÍB en þar er meðal annars að finna námskeið um fjár-mál við starfslok. Kynntu þér endilega málin í tíma þannig að þú getir tekið skynsamlegar ákvarðanir um úttekt sér-eignarsparnaðarins.

Höfundur: Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri hjá VÍB

Hvernig er best að taka út séreignarsparnað?

Frá fræðslufundi VÍB um fjármál við starfslok nú í október. Innfelld mynd: Greinarhöfundur Björn Berg Gunnarsson.

FerðaVagn

Nr. 1 - vor 2015

Nýtt tímarit um ferðavagna!Tjaldvagnar, fellihýsi, hjólhýsi, húsbílar

Úttekt og skoðun á landssvæðum og tjaldstæðumAllt það nýjasta í tækni tengdri ferðavögnum

Áskrift aðeins kr. 2.900 á ári*Skráðu þig á vagn.is

Sökkólfur ehf. - útgáfufélag. S. 824 8070 *Verð m.v. 2 tbl. á ári.

Page 21: Listin ad lifa vetur 2014

Turbuhaler innöndunartæki

Turbuhaler er fjölskammta innöndunartæki sem inniheldur ýmis lyf við lungnasjúkdómum eins og astmaog langvinnri lungnateppuLeiðbeiningar um notkun fást á næstu heilsugæslustöð eða í lyfjaverslunum

Umboðsaðili: Vistor.hf. Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, sími 535 7000

Einfalt og auðveltí notkun

10-2

013-0

1

Page 22: Listin ad lifa vetur 2014

22

Dagana 13. og 14. október síðastlið-inn var haldinn haustfundur NSK í Helsinki í Finnlandi. Formaður LEB Jóna Valgerður Kristjánsdóttir sat fundinn ásamt Birnu Bjarnadóttur stjórnarmanni í FEB í Reykjavik. Á dagskrá fundarins var þróun málefna aldraðra hjá Evrópusambandinu, staða lífeyrismála á Norðurlöndun-um, minnisglöp og skýrslur aðildar-sambandanna um þróun málefna aldraðra á Norðurlöndunum.

Á fundinum var gerð ítarleg grein fyrir stöðu umræðna um málefni eldri borgara á vettvangi Evrópu-sambandsins. Norræna sambandið hefur tilnefnt nokkra fulltrúa í málefnahópa um öldrunarmál og í haust var samþykkt tillaga um þátt-töku Birnu í málefnahópi um heil-brigða öldrun.

Rætt var um stöðu öldrunarráða á Norðurlöndunum og var áhugavert að fylgjast með umræðum um þau mál þar sem nú er verið að stofna til öldrunarráða í ýmsum sveitar-félögum á Íslandi. Framkvæmd

kosninga í öldrunarráð er mis-munandi og misjafnt hver verkefni öldrunarráða eru. Í Danmörku eru í gildi lög um öldrunarráð og virðist skipan þeirra þar vera með ágætum. Í nokkur ár hafa öldrunarráð verið við lýði í Noregi en lagalegar for-sendur eru ekki fyrir hendi. Góðar upplýsingar liggja fyrir frá sambönd-um eldri borgara í þessum löndum.

Næsti fundur NSK verður hald-inn í Færeyjum í maí 2015. For-maður Landsfelags Pensionista í Færeyjum er Arne Thorsteinsson og mun hann hafa veg og vanda af undirbúningi þess fundar.

Birna Bjarnadóttir.

Haustfundur samstarfsnefndar eldri borg-ara á Norðurlöndunum NSK

Birna Bjarnadóttir er fulltrúi NSK í málefnahópi Age Platform Europe um heilbrigða öldrun og Ewa Hedkvist Petersen er fulltrúi NSK í málefnahópi um lög um málefni aldraðra í Evrópu.

Arne Thorsteinsson, formaður Landsfélags Pen-sionista í Færeyjum og Jóna Valgerður Kristjáns-dóttir, formaður LEB á Íslandi.

FA

STU

S_H

_44.

10.1

4

Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 - 2.hæð. Opið mán - fös 8.30 - 17.00Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is

Veit á vandaða lausn

Sérhannaður næringardrykkur fyrir aldraða

Resource Senior Active er drykkur fyrir aldraða sem þurfa næringarviðbót og fá ekki uppfyllt orku- og næringarþörf

sinni úr fæðunni.Notist samkvæmt ráðleggingum læknis og/ eða næringarfræðings.

Jarðarber

Karamella Vanilla

200ml

300kcal

3gtrefjar

500 IU D3vítamín

20gpróteinNæringarvörur

falla undir niður-greiðsluákvæði

Sjúkratrygginga Íslands

Þessar vörurfást í verslun Fastus

og í flestum apótekum

Page 23: Listin ad lifa vetur 2014

23

Norræn samstarfsnefnd landssam-banda aldraðra NSK hélt námskeið um minnisglöp í framhaldi af haustfundi sem haldinn var dagana 14. og 15. október 2014 í Helsinki. Námskeiðið var skipulagt af fulltrúum landssam-bands háskólamenntaðra eldri borgara í Finnlandi, Kalevi Kivistö og Anu Mäki.

Áður en námskeiðið hófst var farið í stutta heimsókn til Gröndals minn-is miðstöðvarinnar sem opnuð var í mars sl. Í miðstöðinni er boðið upp á skammtíma- og dagvistun þar sem fram fer mat og þjálfun auk heimilis-vistunar fyrir 48 einstaklinga til lang-dvalar. Starfsmenn stöðvarinnar bjóða einnig upp á þjónustu við þá sem búa heima en þurfa tímabundna aðstoð og leiðbeiningar. Þar voru fulltrúar tveggja fyrirtækja sem kynntu sérstak-lega hönnun húsgagna fyrir aldraða og einnig gólfefni með skynjurum sem lagt var undir gólfdúk í herbergjum heimilisfólks þannig að starfsmenn gætu fylgst með umgengni í herbergj-um vistmanna sérstaklega á kvöldin og á nóttunni.

Fyrst fjallaði Anneli Sarvimäki, sér-fræðingur í siðfræði um minnissjúk-dóma, viðkvæmni, siðfræði og sjálfs-ákvörðunarrétt. Erindi hennar var mjög fróðlegt og lagði hún áherslu á ný lög um sjálfsákvörðunarrétt til vel-ferðarþjónustu sem mun gjörbreyta

stöðu sjúklinga en markmið laganna er að styrkja og tryggja rétt þeirra til þjónustu. Það verður athyglisvert að fylgjast með þróun öldrunarmála í Finnlandi með tilkomu þessara laga sérstaklega þar sem þar er einnig verið að leggja aukna áherslu á búsetu sem lengst á heimilum með aðstoð maka og nánustu aðstandenda.

Því næst flutti Helena Ahlérs, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í minnis sjúkdómum og elliglöpum erindi um fyrstu merki minnissjúk-dóma. Lagði hún áherslu á að öldrun

væri eðlileg og ekki væru öll merki um minnisglöp vísbending um Alzheimer.

Fulltrúar stjórna eldri borgara frá Svíþjóð, Danmörku og Noregi sögðu frá stöðu minnissjúkra í löndum þeirra og fjölluðu um þá þróun sem virðist vera framundan í velferðarþjónustu gagnvart eldri íbúum sem búa heima, en eru sjúkir og þurfa þjónustu heil-brigðisstarfsmanna og heimaþjónustu. Af umræðum á námskeiðinu má ráða að á Norðurlöndunum er lögð áhersla á að aldraðir og sjúkir dvelji heima eins lengi og frekast er unnt þar sem kostn-aður vegna rekstrar hjúkrunarheimila fyrir aldraða er þegar of mikill en auk þess verði sífellt erfiðara að fá starfsfólk til að starfa við heilbrigðisþjónustu.

Stjórn Landssambandsins mun fylgj-ast áfram náið með þróun og stefnu vel-ferðarþjónustu á Íslandi á næstu árum. Stjórnarmenn sátu nýlega ráðstefnu vel-ferðarráðuneytisins sem bar yfirskriftina Ný hugsun og þróun í heimaþjónustu í hinum vestræna heimi og samþætting félags- og heilbrigðisþjónustu. Þar flutti Virpi Timonen, finnskur prófessor við háskóla í Dublin mjög athyglisverðan fyrirlestur um væntingar, strauma og mótsagnir við stefnumótun í þjónustu við aldraða. Þar kom fram að best var staðið að öldrunarþjónustu á Norður-löndunum í samanburði við önnur lönd í Evrópu.

Birna Bjarnadóttir.

Norræn samstarfsnefnd landssambanda eldri borgara NSK:

Námskeið um minnisglöp

Anu Mäki, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður LEB og Kalevi Kivistö, formaður stjórnar sambands háskólamenntaðra eldri borgara. Hann er fyrrum ráðherra í ríkisstjórn Finnlands. Anu Mäki er ritari í stjórn þess sambands.

Gerist áskrifendurþað kostar ekkert !

www.vefflugan.is

Page 24: Listin ad lifa vetur 2014

24

KROSSGÁTALausnarorðið felst í númeruðum reitum í gátunni.

Dregið verður úr réttum lausnum. Sendið lausnirtil skrifstofu LEB fyrir 15. janúar 2015. LEB, Sigtúni 42, - 105 Reykjavik.Vinningshafi síðustu krossgátu var: Sigurbjörn Guðmundsson, Laugarnesvegi 87, 105 Reykjavík og hlýtur hann kr. 10.000 í verðlaun.Lausnarorð síðustu gátu var: Allt skal með varygð vinna

Matur                        Æmta

Niður                    Stöng

Byrgi                      Bragð

Hræri-­‐              grautur                    Duft

Fiskur                    Planta                Bábilja

Bylgja                  Tónn                  Hnykill

MetiðAkur                      Eink-­‐                stafir

Tjara                      Mistur

Kven-­‐                      dýr                        

Hindra

Óreiða                    Rugl                    

ÓjafnaFyrir-­‐                    hyggja                        Bil

10 Gufa                          Sár

2 16

13 Kvað                      Brá                  

Skessa

Hugaður                        Soð                                    

VelturKjöt-­‐                      réttur                        Kák

21 Hlóðir                    Ósið                      Hljóm

Ber                            Kýr

Brallar                        Friður

7

Óhljóð                      Poki

5 Rugga                      Sérhlj.                  Dula

Hitt-­‐                umst                          Lyfsala

19 4Titill

NöldurMaður                      Átt                      

Áfengi

Óregla                  Broddur                  Byrði

KL.  3                        Fag

Fiskur                      Band                    Hanki

11 17 Samhlj.                            Tengi

ÞautÓratími                  Sniðug

12 Óskaði                      Goð                  Áköf

9

Kyn1 Þreyta                      

Þegar Hjólið

Hár                      Málfæri                      Magn

Kvíði                        Hóf

Erfiði                      Smá-­‐                  lest

Átt                        Áfellur

Hlut-­‐                  verk                      Ærsl

15 Slá                        Öskra

Gára                          Tölur

Kúgun                      Droll

6 Stinga                        sér

18 Á  fæti                          Fæði Úfin

14

UmrótAfkimi                      Drátt                        OP

20

Árás                          Stafur

8 Svik                        Tónn                Leyfist

Ögn                      Skip                      

Mittið

3

Rimla-­‐                      kassi

Svið                      Veifa                      Elska

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12

13 14 15 16 17 18 19 20 21

Page 25: Listin ad lifa vetur 2014

25

Að þessu sinni verður meira af limrum í vísnaskríninu en áður fyrr enda finnst mér þetta ljóðform ansi skemmtilegt. Á fundi ritnefndar þessa blaðs var rætt um hvað við værum farin að gleyma og því er við hæfi að byrja á limru eftir Krist-ján Eldjárn forseta, en þar kveður við annan tón.

Ljúft er að láta sig dreyma og líða um heima og geima.En það er helvíti hart að hugsa svo margt að það hafist ei undan að gleyma.

Jón Ingvar Jónsson lýsir þessu ljóðformi á þennan einfalda

hátt og telur eina sína bestu limru.Limran svo langt sem hún nær er ljóðform með skammlínur tvær. En þessi er ekki með þær.

Eftir Hjörleif Hjartarson liggur það sem nefna mætti rím í mæltu máli.Ég hef engan áhuga á limru og ætla ekki að búa til limru. Það er auðvitað leitt en það er ekki neitt orð sem að rímar við limru.

Bekkjarfélagi minn á Bifröst, Sigurður heitinn Geirdal, lét hugann reika. Það situr á móti mér meyja og margt væri gaman að segjaen hvað hugurinn geymir og holdið um dreymirer þannig að best er að þegja.

Þegar ég var að vinna þurfti ég á dagbókum að halda og keypti alltaf eina sérstaka útgáfu þar sem vísa var við hverja viku. Í einni var þessi limra eftir Jónas Árnason.Hann Bóas var blíðari og hýrarien bróðir hans Jóhannes skírari. En það úrslitum réð að andlega séðvar Jóhannes skírari skýrari.

Benedikt Axelsson er góður hagyrðingur og eftir hann er þessi limra frá haustinu þegar haustpestir voru farnar að ganga. Hún sofnaði svefninum langaað síðustu Grímseyjar-Manga. Honum stórlega létti, Steina er hann fréttiað andlát væru ekki að ganga.

Benedikt var eins og fleiri á menningarnótt og kominn heim orti hann heilmikla drápu. Tvær fyrstu limrurnar skulu til-færðar.

Nú yrki ég andskoti fljóttog efnið er vafalaust sótt í heilann minn dauða og hafið, það rauða en mest þó í menningarnótt.

Vor menning er makalaust góð og magnað vort útþynnta blóð. Við elskumst og yrkjum í útnárakirkjum vor ástsæla þrautpínda þjóð.

Það var eitt af skylduverkum kennara í Varmárskóla í Mos-fellsbæ að vera annað slagið á vakt í frímínútum. Emil Ragnar Hjartarson og Jón, smíðakennari, Hannibalsson frá Hanhól í Syðridal við Bolungarvík stóðu venjulega vörðinn saman, en nú brá svo við að Jón mætti ekki og var það eins-dæmi. Emil sendi honum kveðju í refsingarskyni.Einn ég vaktaði ólman lýð sem að mér stöðugt þrengdi. Æpti á Jón í erg og gríð....en engu maðurinn gegndi.

Að smíðashúsi í hjálpar von hræddur ég augum beindi. En Bolungarvíkur besti son brást þegar mest á reyndi.

Egill Jónasson á Húsavík var hagyrðingur góður. Búið er að gefa út vísur Egils, en forðum var orkt þegar Egill fékk skáldalaun. Egill margan kvað í kút, kannski ætti að virkja hann.Fyrir að gefa ekki út eru þeir að styrkja hann.

Karl Kristjánsson alþingismaður, var ágætur hagyrðingur og orti vísuna frægu um það þegar hafmeyjan á Tjörninni var sprengd í loft upp forðum daga. Auður var þá borgarstjóri.

Ómynd býður eyðing heim. Auði brást með vörnina. Enginn hefur uppi á þeim sem afmeyjaði Tjörnina.

Að lokum þessi ágæta limra Eysteins Gíslasonar frá Skál-eyjum sem hann kallar „Ágirnd.“

Hinn gráðugi Geirþjófur dósent græddi víst þó nokkur prósenter seldi hann Merðiá margföldu verði mölétið Jónsbókarljósprent.

VísnaskríniðGrétar Snær Hjartarson tók saman

Í síðasta tölublaði láðist að geta höfundar að Vísna-skríninu en það var Grétar Snær Hjartarson eins og nú. Biðjum við hann vel-virðingar á því. JBG

Page 26: Listin ad lifa vetur 2014

26

Við síðustu kosningar til Alþingis náði kona á eftirlaunaaldri kjöri og er elsta kona sem sest hefur á þing. Sú heitir Sigrún Magnúsdóttir og er formaður þingflokks Framsóknarflokksins. Hún varð sjötug í sumar og fór í fyrsta sinn í framboð til sveitarstjórnar árið 1970, þá á Bíldudal eða fyrir 44 árum. Hún var lengi formaður borgarráðs í Reykja-vík og m.a. fyrsti oddviti R-listans þegar hann bauð fram í borginni. Þegar síðast var kosið til Alþingis var Sigrún í öðru sæti á lista Framsóknar í Reykjavík norður. „Það segir sig sjálft að maður þarf að hafa brennandi áhuga á félags-málum til að nenna þessu svona lengi og hafa drifkraft til að vilja ná fram breytingum og vera ekki bara áhorf-andi“, segir Sigrún aðspurð um hvað valdi þessari elju í stjórnmálastarfi.

Það vakti athygli þegar fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið á blaðamanna-fundi í haust að hann nefndi sérstaklega að eitt af stærri verkefnum ríkisvaldsins á næstunni væri að mæta fjölgun eldri borg-ara á næstu árum. Þessi fjölgun kallar á að meiri peningum verði varið í heilbrigðis-kerfið, bæði í þjónustu og nýbyggingar og þá er einnig horft til þess að reynt verði að nýta velferðartækni og heimaþjónstu til að gera öldruðum kleift að búa heima hjá sér eins lengi og kostur er. Enn eitt sem rætt er um að þurfi að gerast, er að hækka lífeyristökualdurinn og Sigrún segir að um það hafi m.a. verið rætt innan þing-flokksins. „Við höfum rætt það óform-lega og þá einkum í tengslum við vinnu nefndar um endurskoðun almannatrygg-ingakerfisins. Ég lít á það sem okkar okkar helsta verkefni að gæta að því að öryggisnet sé til staðar fyrir alla. Sem betur fer eru margir eldri borgarar sem hafa það ágætt. En við þurfum að gæta þess að enginn verði útundan, það er okkar hlut-verk“ segir Sigrún. Hún vill líka að fólk átti sig á þeirri breytingu sem orðið hefur á vinnubrögðum í þinginu. „Hér áður fyrr var fjárlagafrumvarpið lagt fram í október og tekjuhlið þess, svokallaður bandormur, kom oft ekki fram fyrr en í desember. Þá voru stjórnarflokkar gjarnan að takast á um tekjuhliðina sín á milli á bak við tjöld-in þar til tekjuhliðin var lögð fram. Þessi umræða fer nú fram fyrir opnum tjöldum

og aldrei fyrr hefur fjárlagafrumvarpið ásamt tekjuhlið þess verið lagt svona snemma fram. Nú getur farið fram al-menn umræða í samfélaginu um hvernig eigi t.d. að afla tekna og hvað séu brýn mál og hvað ekki. Samtök eins og LEB hafa meira tækifæri til að rýna í frumvarpið og gera við það athugasemdir og koma með ábendingar. Þetta er af hinu góða. Sem stjórnarþingmanni finnst manni samt ókostur að hafa ekki lengri tíma en raunin er til að skoða frumvarpið áður en það fer í opinbera umfjöllun. Núna verðum við að gera það á sama tíma og aðrir. Það er unnið á fullu hér í þinginu í fjárlagafrum-varpinu og margt að gerast sem haft getur áhrif á endanlega niðurstöðu, eins og ný hagvaxtarspá, atvinnuleysistölur og fleira. Ég vona að LEB og aðrir trúi því að við vinnum hér af heilindum og reynum að grannskoða hvaða svigrúm við höfum og í hvað eigi að setja peningana sem til eru. Við ætlum hins vegar ekki að hvika frá meginmarkmiðinu sem er að ríkissjóður skuli rekinn hallalaus.“

Sigrún segir að nú liggi fyrir tillaga að enn breyttara vinnulagi við fjárlagagerð-ina. Nái hún fram að ganga, muni Al-þingi strax á vori fari yfir og ákveða hver verði áherslumálin við næstu fjárlaga-gerð. Hún minnir líka á að stjórnvöld hafi gert vel fyrir ári síðan að afturkalla skerðinguna sem sett var á örorku- og ellilífeyri árið 2009 og auka við fjár-magn til málefna eldri borgara. Það hafi verið algjört forgangsatriði nýrrar ríkis-stjórnar að ganga í það sem allra fyrst.

Nýtum sérstöðu ÍslandsSigrún hefur lagt fram á Alþingi þings-ályktunartillögu um rannsóknarklasa

á sviði taugavísinda og taugahrörn-unarsjúkdóma, svo sem á sviði ALS/MND-sjúkdómsins. Í tillögunni segir að Alþingi feli ríkisstjórninni að hlutast til um að vísindasamfélagið á Íslandi fái nauðsynlega aðstoð við að afla styrkja til að fjármagna rannsóknir á taugasjúkdómum, einnig frá alþjóða-samfélaginu. „Þetta er mikið áhugamál mitt. Ég held við Íslendingar gætum nýtt sérstöðu okkar í þessum málum og svona klasi gæti orðið árangursríkur rétt eins og við höfum séð í öðrum greinum eins og varðandi nýtingu jarðvarma og í sjávarútvegi. Um leið og þjóðin eldist þá verður æ mikilvægara að efla þessar rannsóknir. Eldri borgurum er að fjölga gríðarlega um heim allan og eitt stærsta vandamálið er heilahrörnun. Við sjáum að þetta er víða í umræðunni erlendis og nýverið voru nóbelsverðlaun í læknavísindum veitt þeim sem höfðu náð merkum árangri í rannsóknum á heilanum“, segir Sigrún. Í greinargerð með tillögu Sigrúnar segi m.a. að Ís-land henti sérstaklega vel sem miðstöð rannsókna á sviði taugavísinda þar sem þjóðin er fámenn, ættartengsl ljósari en hjá flestum öðrum þjóðum og veruleg vísindaþekking er til staðar.

Eldri borgarar mættu vera virkari í stjórnmálumSigrún segist hafa gert sína áætlanir um ell-ina. Hún skellti sér í háskólanám og nam þjóðfræði og borgarfræði. Námið hyggst hún nýta sér til ritstarfa einhverskonar, að skrifa sögur eða bækur þegar tími vinnst til. Hún er samt enn afar virk félagslega eins og hún segir sjálf og gæti ekki hugsað sér annað en að hafa nóg fyrir stafni. „Við eldri borgarar þurfum ekkert að verða löt þótt árin verði 60 eða 70. Viðhorfið finnst mér stundum vera þannig að fólk ætlist til að aðrir sinni störfunum sem þarf að vinna og vilji heldur vera þiggjendur. En það þarf að berjast fyrir öllu í þessu lífi og það er líka gefandi og skemmtilegt. Þessi fjölmenni og stækkandi hópur þarf að gera sig meira gildandi. Lífaldur fólks hækkar stöðugt og heilsan er mun betri en áður var. Þetta veldur því að samfélagið einfaldlega þarfnast krafta eldra fólks í ríkara mæli.“

Fjárlagafrumvarpið 2015 á Alþingi

Vinnubrögðin betri og umræðan opnari

Sigrún Magnúsdóttir á Alþingi. Hún er einn fárra eldri borgara á þingi.

Page 27: Listin ad lifa vetur 2014

27

Á næstu Sparidögum höldum við uppá 25 ára afmæli Sparidaga.

Af því tilefni bjóðum við sérlega vandaða dagskrá alla dagana.

Meðal annars verður farið í heimsókn í Hestaleikhúsið Fákasel

og einnig verður Landgræðsla Ríkisins í Gunnarsholti sótt heim.

Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði - [email protected] - sími: 483 4700www.hotelork.is

Ljúfir dagar í sveitasælu

Sparidagar 25 ára

Innifalið á Sparidögum – gisting í 5 nætur í tveggja manna herbergi –

– morgunverðarhlaðborð –

– einn hádegisverður af hlaðborði –

– þriggja rétta kvöldverður öll kvöldin –

– og fjölbreytt dagskrá –

Bókanir fara fram hjá umsjónarmanni félags eldri borgara á

hverjum stað. Einnig er hægt að hafa samband við Hótel Örk þar

sem starfsfólkið veitir allar nánari upplýsingar í síma 483 4700.

Vel á annað þúsund manns eru í Félagi húsbílaeigenda en það er eitt nokkurra slíkra félaga sem eru starfandi hér á landi . Tilgangur félagsins er að ferðast um landið í skipu-lögðum ferðum, standa vörð um hagsmuni húsbílaeigenda, efla kynni milli þeirra; að stuðla að landkynningu innan félagsins og góðri umgengi um landið og efla samstöðu og kynni milli annarra sambærilegra félaga. Soffía Ólafsdóttir hefur verið formaður félagsins síðustu 6 árin og hún segir að margir eldri borgarar séu í þessum líflega félagsskap. „Það er fólk á öllum aldri í félaginu, en stór hluti hópsins er fólk sem komið er í hóp eldri borgara, enda er þetta tilvalið tóm-stundargaman. Elsti félaginn er t.d. fæddur 1922 og mætir í allar ferðir.“ Félagið stendur fyrir 6 til 9 hópferðum á hverju sumri og nú í september var síðasta ferðin í Árnes þar sem haldin var árshátíð, þar mættu yfir 200 manns. „Þar að auki er alltaf ein stór ferð sem farin er í júlí ár hvert og gengur undir nafninu Stóra ferðin. Í sumar var stóra ferðin um Suðurlandið, allt frá Selfossi til Hafnar í Hornafirði og í fyrra fórum við frá Hvammstanga til Ólafsfjarðar. Þar fyrir utan eru margar smærri ferðir og margt gert sér til skemmt-

unar,“ segir Soffía. Hún segir að þeir sem vilja kynna sér félagið nánar geti skoðað vefsíðuna www.husbill.is, sent tölvupóst á husbí[email protected] eða hringt í síma 8965057.

Húsbílaeigendum fjölgar

Vinsælt meðal eldri borgara

Soffía stendur hér við húsbílinn sinn, en hún mælir með húsbíla-mennskunni fyrir eldri borgara.

FerðaVagn

Nr. 1 - vor 2015

Nýtt tímarit um ferðavagna!Skráðu þig í áskrift á vagn.is

Sökkólfur ehf. - útgáfufélag. S. 824 8070

FerðaVagn

Nr. 1 - vor 2015

Page 28: Listin ad lifa vetur 2014

28

Í janúar sl. skipaði félags- og húsnæðis-málaráðherra, Eygló Harðardóttir, sam-ráðshóp sem fékk það hlutverk að vinna drög að stefnu íslenskra stjórnvalda um nýsköpun og tækni í félagsþjónustu. Á grundvelli stefnunnar yrði síðan unnin áætlun um framkvæmd hennar til ársins 2020. Í hópinn voru skipaðir fulltrúar frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Samtökum atvinnulífsins, Landssam-bandi eldri borgara, Öryrkjabandalagi Íslands, Landssamtökunum Þroskahjálp og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Við mótun stefnunnar átti samráðs-hópurinn víðtækt samráð og samvinnu við fjölda aðila, þ.e. við fulltrúa ríkis, sveitarfélaga, notenda og atvinnulífsins sem koma með einum eða öðrum hætti að þróun og nýsköpun innan velferðar-þjónustunnar. Í þessu sambandi var horft til lausna sem nýtast borgurum með sérstakar þarfir, t.d. við umönnun, notkun hjálpartækja, skipulag á heim-ilum, þjálfun, endurhæfingu, hæfingu, sérkennslu og atvinnu með stuðningi svo eitthvað sé nefnt. Stefnuvinnan var því ekki afmörkuð við eitthvert eitt mála- eða áherslusvið heldur snerti hún marga málaflokka, t.d. heilbrigðismál, félags-mál, menntamál og vinnumál, auk þess að hafa áhrif á samfélagið í heild sinni.

Í tillögum samráðshópsins er gert ráð fyrir því að stefnan taki til tímabilsins 2014 til 2020. Jafnframt er gert ráð fyrir því að stefnan verði endurskoðuð reglu-lega í samræmi við áherslur stjórnvalda hverju sinni.

Segja má að sú þjónusta sem veitt er á fyrrgreindum áherslusviðum sé í dag að mörgu leyti samofin og því beinist umfjöllunin að miklu leyti að samspili þeirra og þeirri þjónustu sem hægt er að skilgreina sem velferð. Tæknilausnir og notendamiðuð velferðarþjónusta er eðli máls samkvæmt í stöðugri þróun og þar er nýsköpun drifkraftur breytinga. Stefnumótun á sviði nýsköpunar og tækni tekur jafnframt til þátta er varða almenn úrræði, aðgengi og upplýsingar, sem gagnast almenningi áður en til sér-tækrar þjónustu kemur.

Stefnudrögunum um nýsköpun og tækni er skipt í fjögur áherslusvið og í

einu þeirra er því m.a. lýst hvernig hægt sé að útfæra tæknitengdar lausnir. Þar eru m.a. skilgreind verkefni sem lúta að: • Öryggistækni sem getur skapað

örugga umgjörð um líf einstaklingsins og heilbrigði hans. Í því sambandi er sérstaklega bent á notkun öryggis-hnappsins sem er algengasta lausnin.

• Tækni sem bætt getur fyrir missi og aukið vellíðan.Í þessu samhengi er einkum átt við tækni sem dregur úr áhrifum minnis-taps eða skertrar hreyfigetu. Hér er einnig átt við tækni sem eykur lífs-gæði almennt, t.d. með því að fólk geti sjálft stjórnað ljósum og hita.

• Tækni til félagslegra samskipta.Hér er átt við tækni sem hjálpar fólki að komast í félagslegt samneyti við aðra, t.d. upplýsingatækni af ýmsu tagi.

• Tækni til þjálfunar og umönnunar.Hér er átt við tækni sem hjálpar ein-staklingum að fylgjast sjálfir með eigin heilsu, t.d. þegar um langvar-andi sjúkdóma er að ræða. Má þar nefna sjálfvirka mælingu á blóðsykri og blóðþrýstingi með eða án beinna tengsla við heilbrigðisstarfsfólk. Nýsköpun og tækni á sviði velferðar-

þjónustu getur nýst sem verkfæri í þeirri viðleitni að færa þjónustuna nær not-endum (nærþjónusta) þar sem áhersla er á samvinnu milli sveitarfélaga, frjálsra félagasamtaka, nærsamfélagsins og að-standenda. Velferðartækni getur því rutt brautina fyrir nýja samstarfsfleti og nýjar aðferðir í samvinnu þessara aðila.

Ástæða þess að aukin áhersla er á ný-sköpun og tækni er ekki eingöngu vegna áskorana framtíðarinnar, m.a. vegna

aldurssamsetningar þjóðarinnar heldur er það mjög gagnlegt fyrir samfélagið í heild sinni að stuðlað sé að bættri heilsu og reynt að fyrirbyggja áföll af ýmsu tagi.

Í fyrrgreindum stefnudrögum er mikil áhersla lögð á að ríki, sveitarfélög og frumkvöðlar búi til virkan samstarfsvett-vang á sviði velferðarlausna. Meðal ann-ars um það hvernig mótaðar eru hug-myndir um þróun sérhæfðra úrræða á hinum ýmsu sviðum.

Áhersla er einnig lögð á að almenning-ur geti aflað sér með aðgengilegum hætti upplýsinga um ýmsar velferðarlausnir sem boðið er upp á og að þau þróunar-verkefni sem eru í gangi geti hugsanlega nýst til að auka lífsgæði þeirra sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda.

Loks er áréttað mikilvægi þess að auka þekkingu og færni á sviði nýsköpunar og tækni hjá þeim sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum. Útfærðar verði hagnýtar aðferðir með tilheyrandi námi og kennslu í því hvernig stuðningsþarfir fólks skuli metnar og þá skoðað hvaða lausnum sé best að hrinda í framkvæmd. Námstil-boðið leggi því áherslu á þarfir notenda, vinnuumhverfi, vinnuferli og tækni.

Undir áherslusviðunum fjórum í stefnu drögunum, eru skilgreind 25 mark-mið. Í þeim birtist metnaður til þess að nýta þau tækifæri sem þegar eru til staðar og jafnframt vilji til að þróa vinnulag sem gerir það mögulegt að skapa ný tækifæri til nýsköpunar og tækni innan velferðar-þjónustunnar. Ljóst er að taka muni tíma að hrinda sumum þeirra markmiða sem gerð er tillaga um í framkvæmd. Mikil-vægt er þó að stefna stjórnvalda sé skýr í þessu efni þannig að ljóst sé hvert ferðinni er heitið. Grunnmarkmiðið er að styrkja og bæta þá þjónustu sem boðið er upp á þannig að hún sé alltaf í samræmi við þær kröfur sem nútíminn gerir.

Samráðshópurinn hefur nú skilað tillögum að stefnu og markmiðum til félags- og húsnæðismálaráðherra sem hefur nú stefnudrögin til skoðunar. Ráðherra mun innan tíðar taka ákvörð-un um hvernig unnið verður með þau áfram og þar með næstu skref í þróun nýsköpunar og tækni innan velferðar-þjónustunnar á Íslandi.

Nýsköpun og tækni í félagsþjónustu

Ný tækifæri til aukinna lífsgæða

Þór G. Þórarinsson, sérfræðingur,velferðarráðuneytinu skrifar.

Page 29: Listin ad lifa vetur 2014

Ömmur eru dýrmætustu manneskjur í lífi hvers manns. Stundum er eins og þær komi úr einhverjum öðrum tíma með alla sína visku og hlýju. Þær lauma til manns súkkulaðimolum þegar pabbi sér ekki til. Þær skamma mann af umhyggju. Það er eins og þær bíði við símann eftir því þegar maður hringir og þarf að létta á sér.Ömmur eiga að búa við öryggi.

Öryggishnappur securitas - Hnappur sem getur bjargað þínu lífi og þinna nánustu.

Page 30: Listin ad lifa vetur 2014

Faxafeni 5, Reykjavik, Dalbraut 1, Akureyri og Skeiði 1, Ísafirði • Sími 588 8477 • www.betrabak.is

Þráir þú dýpri svefn? Heilsurúm í sérflokki

C&J stillanlegt 2 x 90 x 200cm Með Tempur heilsudýnu Fullt verð Kr. 803.800

D Ý N U R O G K O D D A R

Stillanlegu heilsurúmin frá C&J:n Inndraganlegur botn.

n Lyftigeta er yfir 2 x450 kg per botn.

n Mótor þarfnast ekki viðhalds.

n Tvíhert stálgrind undir botni.

n 2 nuddmótorar með tímarofa.

n Þráðlaus fjarstýring með klukku, vekjara og vasaljósi.

n LED lýsing undir rúmi - góð næturlýsing.

n Hliðar og endastopparar svo dýnur færist ekki í sundur.

n Botn er sérstaklega hannaður fyrir Tempur heilsudýnur.

Fyrir þínar bestu stundir!

Þegar þú sefur á TEMPUR heilsudýnu, hvílast hryggur og liðir í sinni náttúru legu stöðu. Með því

einu að snerta takka getur þú stillt rúmið í hvaða stöðu sem er og með öðrum færðu nudd.

Vaknaðu upp endurnærð(ur) og tilbúin(n) í átök dagsins.

Upplifðu þægindi, upplifðu stuðning, upplifðu TEMPUR®

EINA DÝNAN OG KODDINN SEM VIÐURKENND ERU AF NASA OG VOTTUÐ AF GEIMFERÐASTOFNUNINNI

LED-vasaljós

Klukka

Vekjaraklukka

Upp/niður höfðalag

Upp/niður fótasvæði

Rúm í flata stöðu

3 minni

Nudd

Bylgjunudd

Þráðlaus fjarstýring

va

xta

lau

sar afborganir í 1

2 m

án

*

Aðeins

55.627kr. á mán.

*3,5% lántökugjald.

Fæst einnig

í stærðunum

2x80x200 cm

2x90x210 cm

2x100x200 cm

120x200 cm

140x200 cm

Tempurdagatilboð* 643.040 kr.

*Nóvember 2014

Page 31: Listin ad lifa vetur 2014

Faxafeni 5, Reykjavik, Dalbraut 1, Akureyri og Skeiði 1, Ísafirði • Sími 588 8477 • www.betrabak.is

Þráir þú dýpri svefn? Heilsurúm í sérflokki

C&J stillanlegt 2 x 90 x 200cm Með Tempur heilsudýnu Fullt verð Kr. 803.800

D Ý N U R O G K O D D A R

Stillanlegu heilsurúmin frá C&J:n Inndraganlegur botn.

n Lyftigeta er yfir 2 x450 kg per botn.

n Mótor þarfnast ekki viðhalds.

n Tvíhert stálgrind undir botni.

n 2 nuddmótorar með tímarofa.

n Þráðlaus fjarstýring með klukku, vekjara og vasaljósi.

n LED lýsing undir rúmi - góð næturlýsing.

n Hliðar og endastopparar svo dýnur færist ekki í sundur.

n Botn er sérstaklega hannaður fyrir Tempur heilsudýnur.

Fyrir þínar bestu stundir!

Þegar þú sefur á TEMPUR heilsudýnu, hvílast hryggur og liðir í sinni náttúru legu stöðu. Með því

einu að snerta takka getur þú stillt rúmið í hvaða stöðu sem er og með öðrum færðu nudd.

Vaknaðu upp endurnærð(ur) og tilbúin(n) í átök dagsins.

Upplifðu þægindi, upplifðu stuðning, upplifðu TEMPUR®

EINA DÝNAN OG KODDINN SEM VIÐURKENND ERU AF NASA OG VOTTUÐ AF GEIMFERÐASTOFNUNINNI

LED-vasaljós

Klukka

Vekjaraklukka

Upp/niður höfðalag

Upp/niður fótasvæði

Rúm í flata stöðu

3 minni

Nudd

Bylgjunudd

Þráðlaus fjarstýring

va

xta

lau

sar afborganir í 1

2 m

án

*

Aðeins

55.627kr. á mán.

*3,5% lántökugjald.

Fæst einnig

í stærðunum

2x80x200 cm

2x90x210 cm

2x100x200 cm

120x200 cm

140x200 cm

Tempurdagatilboð* 643.040 kr.

*Nóvember 2014

Page 32: Listin ad lifa vetur 2014

RÁÐGJÖF UM SPARNAÐ OG FJÁRFESTINGAR

Fjármál flækjast til muna þegar taka lífeyris hefst. Starfsfólk VÍB hefur sérhæft sig

í fjármálum í aðdraganda og kjölfar starfsloka. Við höfum sett upp einfalda vefsíðu

þar sem leitast er við að svara áleitnum spurningum er kunna að brenna á fólki

á þessum tímamótum.

Kynntu þér málið á vib.is/60 eða bókaðu fund þér að kostnaðarlausu í síma 440 4900.

HOLLRÁÐ VIÐSTARFSLOK

EN

NE

MM

/ S

ÍA /

NM

59

56

0

» Hvernig eru greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar?

» Hvernig og hvenær ætti ég að taka út

séreignarsparnaðinn minn?

» Hvað þarf ég að vita varðandi skattkerfið?

» Hvaða áhrif hefur ávöxtun sparifjár?

Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | [email protected] facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is