Upload
sigurdur-fjalar-jonsson
View
219
Download
4
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Leiðbeiningar um uppsetningu og notkun á Shadowbox viðbótinni við Wordpress.
Citation preview
SHADOWBOX + YOUTUBE
MYNDSKEIÐ Í WORDPRESS
Shadowbox er svo kallað “lightbox”, þ.e. hugbúnaður sem notaður er til að
birta efni innan vefs án þessa að kalla fram nýjan glugga í vefskoðaranum.
Shadowbox má m.a. nota til þess að birta myndir eða myndskeið frá YouTube
eins og hér verður sýnt.
11)) Fyrst þarf að sækja og setja upp Shadowbox viðbótina (e. plugin) í Wordpress. Til þess
er valið [Plugins] og smellt á [Add New]. Í leitarreitinn er slegið „Shadowbox“ og
síðan [Search Plugins] hnappinn.
Birtist þá listi af viðbótum og nefnist ein þeirra Shadowbox JS. Hægt er að smella á
[Details] til að fá frekari upplýsingar eða [Install Now] til að setja upp. Hér verður
látið duga að smella á [Install Now].
Sækir þá Wordpress viðkomandi skrár og setur upp. Smellt er á [Activate Plugin] til
að virkja viðbótina sem í kjölfarið verður tilbúin til notkunar.
S.Fjalar 2011 B l s | 2
22)) Næsta skref er að láta reyna á Shadowbox með því að búa til færslu (eða síðu) og
kalla þaðan á myndskeið. Smellt er á [Posts] og þaðan [Add New] til að búa til nýja
færslu.
Færslan er skrifuð eins og lög gera ráð fyrir og notast við einfaldan texta í prufuskyni.
Ætlunin er að breyta textanum í krækju sem vísar á myndskeið sem opnað er með
aðstoð Shadowbox.
S.Fjalar 2011 B l s | 3
Áður en færslan er kláruð er nauðsynlegt að sækja slóð að myndskeiðinu sem ætlunin
er að birta. Þetta má að sjálfsögðu gera áður en færslan er búin til.
33)) YouTube er opnað í nýjum flipa (til að glata ekki færslunni) og myndskeið valið. Hér
verður notast við frábæran fyrirlestur Sir Ken Robinson sem aðgengilegur er á
slóðinni: http://www.youtube.com/watch?v=iG9CE55wbtY.
Áður en vísað er í slóðina þarf að breyta henni lítillega eins og sjá má hér að neðan.
Upprunaleg slóð
http://www.youtube.com/watch?v=iG9CE55wbtY
Breytt slóð
http://www.youtube.com/ v/iG9CE55wbtY
Watch? textinn er fjarlægður og einnig jafnt-og merkið, en í stað þess er sett skástrik.
Þessi slóð er sett í ritilinn í Wordpress og textinn gerður að krækju.
S.Fjalar 2011 B l s | 4
44)) Þá er um að gera að prufukeyra herlegheiti. Opna síðuna og smella á krækjuna.
55)) Hægt er að breyta slóðinni þannig að myndskeiðið spilist í háskerpu (HD) hafi það
verið gert aðgengilegt í þeirri upplausn:
http://www.youtube.com/ v/iG9CE55wbtY&hd=1
Hægt er að ráða sjálfgefnu stærðinni á boxinu sem birtinst með því að velja Settings >
Shadowbox JS. Einnig er hægt að setja eftirfarandi í handvirkt í kóðan á krækjunni til
að breyta stærðinni á boxinu sem inniheldur myndskeiðið:
<a title="Sir Ken Robinson" href="http://www.youtube.com/v/iG9CE55wbtY"
rel="shadowbox;width=800;height=600">Smelltu hér til að horfa á myndskeiðið</a>
66)) Loks mæli ég með því að þú lesandi góður horfir á þennan frábæra fyrirlestur. Hann
er vel þess virði.