32
Skipulag, umhverfi, samgöngur Skipulagsmál Samgöngur; gatnakerfi í þéttbýli og dreifbýli og stígar Sorp og veitur Brunavarnir Efnisnámur Eyðing á mink og ref Náttúruvernd Green Globe 21 Staðardagskrá 21 Önnur umhverfismál Hafnir

Skipulag, umhverfi, samgöngur

  • Upload
    alena

  • View
    56

  • Download
    4

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Skipulag, umhverfi, samgöngur. Skipulagsmál Samgöngur; gatnakerfi í þéttbýli og dreifbýli og stígar Sorp og veitur Brunavarnir Efnisnámur Eyðing á mink og ref Náttúruvernd Green Globe 21 Staðardagskrá 21 Önnur umhverfismál Hafnir. Skipulagsmál. Staða - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Skipulag, umhverfi, samgöngur

Skipulagsmál Samgöngur; gatnakerfi í þéttbýli og dreifbýli og stígarSorp og veiturBrunavarnirEfnisnámurEyðing á mink og refNáttúruverndGreen Globe 21Staðardagskrá 21Önnur umhverfismálHafnir

Page 2: Skipulag, umhverfi, samgöngur

SkipulagsmálStaða

• Öll þéttbýlissveitarfélögin með nýlegt aðalskipulag. Gildistími – 2015 / 2022. Grundarfjarðarbær vinnur að aðalskipulagi fyrir dreifbýlið

• Eyja- og Miklaholtshreppur og Helgafellssveit, ásamt Kolbeinsstaðahreppi hafa samið við arkitekt um gerð ASK, en lítið hefur miðað

• Almennt góður grunnur í skipulagsmálum og sveitarfélögin eiga loftmyndir og kortagrunn

• Unnið að landupplýsingakerfi í Snæfellsbæ• Breiðafjarðarnefnd hefur óskað eftir að unnið verði svæðisskipulag.

Sveitarfélögin ekki tilbúin til að taka þátt í kostnaði• Skipulagsstofnun myndi ekki gera kröfu um svæðisskipulag

Page 3: Skipulag, umhverfi, samgöngur

SkipulagsmálStjórnsýsla & starfsfólk

• Skipulags- og byggingarnefndir / umhverfisnefnd (Grfj). Funda að jafnaði 1 x í mánuði

• Byggðasamlag um byggingarfulltrúaembætti Snb, Helgaf.sv., Eyja- og M., Kolb. og sveitahr. á Borgarfj.- og Akranesssvæði.

• Sameiginleg byggingarnefnd Helgafellssv., Eyja- og M., & Kolb.

• 1 starfsmaður yfir tækni- og skipulagsmálum í hverju af þéttbýlissveitarfélögunum. 2 byggingarfræðingar og 1 arkitekt

Page 4: Skipulag, umhverfi, samgöngur

SkipulagsmálFramtíðarhorfur

• Breyttar forsendur þegar byggingarfulltrúi byggðasamlags hættir á næstunni og vegna sameininga

• Gerðar vaxandi kröfur um fagleg vinnubrögð í skipulagsmálum

• Krefst stöðugt meiri sérhæfingar starfsmanna• Aðalskipulag á að vera framtíðarsýn hvers sveitarfélags

Page 5: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Áhaldahús og vinnuskóli Staða

• Áhaldahús í Stykkishólmi, Grundarfirði og Ólafsvík + geymsla á Hellissandi

• Vinnuskóli / unglingavinna; tengt áhaldahúsum. Helgafellssveit: Vinna í Sauraskógi á vegum Skógr.félags Stykkishólms. Er ekki í Eyja- og Miklaholtshreppi og hefur ekki verið spurt um

Framtíðarhorfur• Vaxandi áhersla á að kaupa þjónustuna af verktökum og að

gera þjónustusamninga

Page 6: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Samgöngur Staða

• Talsverðar samgöngubætur á undanförnum árum, Búlandshöfði, Vatnaleið og brúin yfir Kolgrafafjörð

• Dreifbýli: Eitthvað kallað eftir bundnu slitlagi heim á bæi• Gatnakerfi í þéttbýli, þörf á eðlilegum endurbótum. Meiri

endurbóta þörf í Ólafsvík og í Grundarfirði, en þar hafa framkvæmdir dregist vegna vona um hitaveitu, sem nú er á næsta leiti

• Göngu-, hjóla- og reiðstígar: Víða inni á skipulagi og framkvæmt að hluta.

• Sveitarfélögin eru háð ákvörðunum ríkisvalds varðandi vegagerð, en geta þó beitt sér. Hafa staðið saman um forgangsröðun verkefna síðustu ár.

Page 7: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Samgöngur Framtíðarhorfur

• Næstu verkefni eru slitlag yfir Fróðárheiði og síðan á Útnesveg. Flöskuháls við Vegamót þegar er snjór

• Dreifbýli: Eitthvað kallað eftir bundnu slitlagi heim á bæi• Vegabóta er þörf á innsveitarvegi og útsveitarvegi í

Helgafellssveit, í Framsveit Eyrarsveitar og að Kvíabryggju• Göngu-, hjóla- og reiðstígar: Auknar kröfur frá íbúum.

Verkefni sem er unnið að eftir því sem svigrúm leyfir• Sundabraut og lækkun gangagjalds, er hagsmunamál

Snæfellinga

Page 8: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Sorp Staða

• Dreifbýli; heimilissorp sótt í Helgafellssveit og Snæfellsbæ og safngámar. Heimilissorp ekki sótt í Eyja- og Miklaholtshreppi, en safngámar, þ.m.t. fyrir spilliefni. Farvegur fyrir rúllubaggaplast og brotajárn.

• Öll sveitarfélögin með urðun í Fíflholti• Gámastöðvar; eftir að byggja betur upp í Grundarfirði og

eftir að leggja slitlag í Stykkishólmi• Pappír og fernum safnað í Stykkishólmi og í athugun í

Snæfellsbæ. Sent til Sorpu.• Sorphirða í höndum verktaka í hverju sveitarfélagi fyrir sig. • Grundarfjarðarbær hefur sent erindi til að leita eftir samstarfi

í sorpmálum

Page 9: Skipulag, umhverfi, samgöngur

SorpFramtíðarhorfur

• Almennt vaxandi kröfur, bæði frá hinu opinbera og frá íbúum

• Núverandi urðunarstaður í Fíflholti mun duga til um 2015 og þá er til meira landrými á jörðinni til nýtingar eftir það

Page 10: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Veitur Staða

• Vatnsveitur: Ágæt staða í vatnsmálum í þéttbýli. Helst að geti orðið vatnsskortur í Grundarfirði. Eigin vatnsveitur á bæjum í dreifbýli

• Fráveitur í þéttbýli: Uppfylla ekki skilyrði skv. Evróputilskipun. • Fráveitur í dreifbýli: Rotþrær almennt á bæjum.• Hitaveita:

• Hitaveita Stykkishólms, í eigu bæjarins• Tvö sjálfstæð félög í Eyja- og Miklaholtshreppi, rekin af

notendum• Fundist hefur heitt vatn í Grundarfirði og er unnið að

undirbúningi

Page 11: Skipulag, umhverfi, samgöngur

VeiturFramtíðarhorfur

• Fráveitur: Á öllum þéttbýlisstöðunum ber að gera úrbætur á fráveitum fyrir 2005 skv. Evróputilskipun. Mjög kostnaðarsamar framkvæmdir. Spurning um stefnu ríkisvaldsins

• Vaxandi kröfur í dreifbýli, t.d. að mjólkurframleiðendur þurfi að koma upp fituskiljum í mjólkurhúsum

• Hitaveita í Grundarfirði – hugsanlega samið við orkufyrirtæki?

Page 12: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Brunavarnir Staða

• Þrjú slökkvilið, ágætlega búin, í Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ

• Helgafellssveit á aðild að slökkviliði Stykkishólms• Eyja- og Miklaholtshreppur, ásamt Kolbeinsstaðahreppi í

samstarfi við Borgarbyggð. Hlutafélag• Slökkviliðin sinna einnig eldvarnaeftirliti• Eitthvað verið um samstarf t.d. varðandi tækjakaup

Page 13: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Brunavarnir Framtíðarhorfur

• Brunamálastjóri hefur hvatt til samstarfs og liggur fyrir skýrsla um stöðu og samstarfsmöguleika

• Slökkviliðið í Borgarbyggð, sem þjónar Eyja- og Miklaholtshreppi og Kolbeinsstaðahreppi, er hlutafélag nú, en Borgarbyggð vill yfirtaka og gera samning við hreppana

Page 14: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Efnisnámur Staða

• Námur eru í öllum sveitarfélögunum nema Stykkishólmi• Minniháttar efnistaka til eigin nota er heimil eiganda eða

umráðamanni eignarlands án framkvæmdaleyfis sveitarstjórnar nema þegar um er að ræða efnistöku af svæðum sem lúta vernd samkvæmt náttúruverndarlögum.

• Mest eldri námur og / eða námur á eignarlandi og því almennt ekki til áætlanir um væntanlega efnistöku, vinnslutíma og frágang.

• Gert hefur verið umhverfismat fyrir nýrri námur t.d. vegna Kolgrafarfjarðarbrúar

Page 15: Skipulag, umhverfi, samgöngur

EfnisnámurFramtíðarhorfur

• Vaxandi kröfur sbr. leiðbeiningarritið “Námur – efnistaka og frágangur”

• Hluti af því sem huga þarf að í skipulagi og náttúruvernd• Stefnumótun í Green Globe 21:

• Beina skal þeim tilmælum til þeirra er hyggja á efnisnám að þeir hagi vinnu sinni þannig að sem minnst sjónmengun verði af

• Einstaklingar leiti tilskilinna framkvæmdaleyfa fyrir meiriháttar efnisnám í eigin landi

• Sveitarfélög kynni og fylgi eftir reglum og lögum um efnisnám

• Einnig eru ákvæði í stefnumótuninni sem snúa að opinberum aðilum

Page 16: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Eyðing minka og refaStaða

• Framlag ríkisins minnkaði á síðasta ári, sem hefur leitt til breytinga á fyrirkomulagi og í ýmsum tilfellum til samsvarandi lækkunar á heildarfjármagni til málaflokksins

• Verktakar hafa séð um veiði og grenjaleit. Almennt í umsjón staðkunnugra• Stærri sveitarfélögin eingöngu með verktaka og hætt að greiða fyrir skott• Eyja- og Miklaholtsheppur hefur greitt öllum fyrir skott, auk þess að ráða

verktaka, en óvíst að því verði haldið áfram• Helgafellssveit greiðir landeigendum fyrir skott og ræður verktaka• Í þjóðgarðinum Snæfellsjökli fara fram gildruveiðar á mink, en allar

skotveiðar eru bannaðar• Ótti við að “friðun” refa í þjóðgarðinum geri hann að “uppeldisstöð”

Page 17: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Eyðing minka og refaFramtíðarhorfur

• Refum hefur verið að fjölga á öllu vestanverðu landinu• Nýtt fyrirkomulag veiða er að mótast í kjölfar lægra fjárframlags

ríkisins• Náttúrustofa Vesturlands telur ekki alvarlega hættu á að

þjóðgarðurinn verði “uppeldisstöð” fyrir refi, enda virðist svæðið ekki bera marga refi. Náttúrustofa fylgist með grenjum í ábúð

• Hugsanlegt samstarf við Breiðafjarðarnefnd um uppsetningu á gildrum, t.d. í Helgafellssveit

Page 18: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Náttúruvernd og umhverfisverkefni Staða

• Áætlað að núverandi verndarsvæði nái samtals yfir 207 km2 af 1475 km2 lands sem sveitarfélögin ná yfir, eða 14%. Ath. þó útreikning á strandlengju, vegna verndunar Breiðafjarðar

• Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull nær yfir 170 km2, eða 25% lands Snæfellsbæjar

• Tilkoma þjóðgarðsins er merkur áfangi í náttúruvernd og ferðaþjónustu á Snæfellsnesi

• Verndun Breiðafjarðar: Ekki er eining um túlkun á stærð svæðisins

• Náttúrustofa Vesturlands: Stykkishólmsbær er eina sveitarfélagið sem tekur þátt í kostnaði

Page 19: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Náttúruvernd og umhverfisverkefni Staða - frh

• Umhverfisátak í dreifbýli, “Fegurri sveitir” hefur skilað góðum árangri

• Hreinsunardagar á vorin á þéttbýlisstöðum• Bláfáninn fyrir Stykkishólmshöfn og Arnarstapahöfn• Öll þéttbýlissveitarfélögin hafa samþykkt Staðardagskrá 21

en ekki er unnið markvisst eftir. • Green Globe 21: Snæfellsnes hefur tekið leiðandi skref í

umhverfisvænni ferðaþjónustu, á landsvísu og þótt víðar væri leitað

Page 20: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Náttúruvernd og umhverfisverkefni Framtíðarhorfur

• Umhverfismál hafa á undanförnum árum orðið stöðugt fyrirferðarmeiri málaflokkur í starfsemi sveitarfélaga og það á enn eftir að aukast

• Vinnan í Green Globe 21 mun tengjast SD21 og ætti að gera allt umhverfisstarf markvissara

• Minnstu sveitarfélögin hafa efasemdir um getu sína til að skila skýrslum vegna Green Globe 21

• Hluti af verkefninu Green Globe 21 snýst um að tryggja fjármögnun þess með utanaðkomandi styrkjum, en sveitarfélögin munu greiða kostnaðinn að hluta. Ákveðin óvissa um fjármögnun á þessu stigi

Page 21: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Skipulag, umhverfi og samgöngurSamstarf

• Var komið á nokkuð fast form á samstarfi starfsmanna tæknideilda en hefur breyst við mannabreytingar

• Enn talsvert samstarf milli yfirmanna tæknideilda í Snæfellsbæ og í Grundarfirði

• Hafa m.a. leitað eftir sameiginlegum tilboðum og skipst á útboðsgögnum

• Samstarf í Green Globe 21 verkefninu hefur gengið vel, en framkvæmd þess væri mun einfaldari ef um eitt sveitarfélag væri að ræða

Page 22: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Hafnir Staða

• Fimm hafnir – hver og ein með sína kosti og galla• Arnarstapi - smábátahöfn • Rif – hefðbundin fiskihöfn, liggur vel við

fiskibátaflotanum• Ólafsvík – hefðbundin fiskihöfn, liggur vel við

fiskibátaflotanum• Grundarfjörður – fiskihöfn og skemmtiferðaskip. Mest

dýpi • Stykkishólmur – fiskihöfn, ferju- og skemmtisiglingar

Page 23: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Hafnir Staða - frh

• Sambærileg þjónusta. Viðbót: skipasmíðastöð og dráttarbraut í Stykkishólmi, slippur í Rifi og ís blásið beint um borð í Grundarfirði

• Hafnarvernd skv. alþjóðlegum kröfum í Grundarfirði og Stykkishólmi og Bláfáninn í Stykkishólmi og væntanlegur á Arnarstapa

Stjórnsýsla• Sjálfstæð fyrirtæki í eigu sveitarfélaga• Eigin stjórn• Bæjarstjórar eru hafnarstjórar í Stykkishólmi og

Grundarfirði, en sér hafnarstjóri í Snæfellsbæ

Page 24: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Hafnir Núverandi samstarf og frekari samstarfsmöguleikar

• Ágæt samskipti en ekki formlegt samstarf• Möguleiki á samstarfi, t.d. varðandi innkaup og hafnarvernd• Í einhverjum tilvikum vilja forsvarsmenn halda áfram frekari

uppbyggingu sjálfstætt um sinn, áður en kemur til sameiningar

Page 25: Skipulag, umhverfi, samgöngur

HafnirÚr ársreikningum 2003

Heimild: Frá sveitarfélögunum

Snb. alls Grundarfjörður StykkishólmurTekjur 71.444 28.367 15.807Gjöld án fjármagnsliða 45.394 17.288 15.022Hlutfall launa af tekjum 38% 25% 45%Afkoma eftir fjármagnskostnað & afskriftir 10.558 2.004 -4.286Eignir - hafnarmannvirki 167.431 95.223 305.128Skuldir alls 54.272 62.194 75.683Skuldir sem hlutfall af eignum - hafnarmannv. 32% 65% 25%Skuldir sem hlutfall af tekjum 76% 219% 479%

Page 26: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Hafnir Framtíðarhorfur

• Helstu sóknarfæri:• Arnarstapi – fiskihöfn fyrir minni báta við Faxaflóa og Breiðafjörð.

Aðdráttarafl fyrir ferðamenn• Ólafsvík – hvalaskoðun og önnur náttúruskoðun• Rif - vertíðarbátar• Stykkishólmur – smábátar og skemmtibátar, ásamt þjónustu tengdri

ferðamennsku• Grundarfjörður – skemmtiferðaskip og frosthótel• Stór höfn á Grundartanga getur ógnað en líka skapað tækifæri• Opnun norðurleiðar – Asíumarkaður?• Tollhafnir – farið að tollafgreiða í öllum höfnum?

• Hafnsækin starfsemi krefst í vaxandi mæli aukins landrýmis við hafnir• Ríkisframlag vegna nýframkvæmda verður afnumið eftir 2006, nema fyrir

litlar hafnir• Samgönguráðherra hefur hvatt til stofnunar hafnasamlaga

Page 27: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Skipulag, umhverfi og samgöngur – ef sameinað

Samantekt

Page 28: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Ef sameinað Tæknideildir

• Byði upp á aukna sérhæfingu starfsmanna sem væri faglega sterkt. Hugsanlega einn starfsmaður með yfirumsjón með skipulagsmálum, annar tæknimálum og þriðji með framkvæmdum

• Eitt megin-áhaldahús, en þó boðið upp á grunnþjónustu á hverjum stað. Samhæfing

• Ekki er hægt að fullyrða um hvort kostnaður myndi hækka eða lækka

Skipulagsmál• Yrði faglegur styrkur að sameiningu• Ef fyrsta aðalskipulag nýs sveitarfélags yrði unnið fljótlega er

aðallega um að ræða dreifbýlið og einhverja endurskoðun á skipulagi innan þéttbýlisins. Annars góður grunnur

• Ekki er hægt að fullyrða um hvort kostnaður myndi hækka eða lækka

Page 29: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Ef sameinað Brunavarnir

• Sameining myndi treysta brunavarnir, en kostnaður gæti aukist

• Auðveldara að sinna eldvarnaeftirliti þegar svæðið er stærra. Ekki eins mikil nálægð

Veitur• Að óbreyttum lögum eru framundan miklar fjárfestingar í

fráveitum á þéttbýlisstöðunum, sem eru sveitarfélögunum ofviða, án tillits til sameiningar

• Veitur sveitarfélaganna yrðu sameinaðar

Page 30: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Ef sameinað Samgöngur

• Skapar sameiningarátak á landsvísu sóknarfæri til að þrýsta á um samgöngubætur?

• Fróðárheiði• Útnesvegur• Safn-, tengi- og styrkvegir

• Haldið áfram með endurbætur á gatnakerfi og stígagerð eftir því sem þörf krefur og svigrúm leyfir

• Sameiginleg útboð

Page 31: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Ef sameinað Ýmis umhverfismál

• Auðveldari framkvæmd og samræming á ýmsu• Sambærilegar reglur á öllu svæðinu > meiri árangur• Áfram yrði unnið að eyðingu á mink og ref, eftir þörfum og svigrúmi• Sameining myndi auðvelda til muna framkvæmd og eftirfylgni við

Green Globe 21 verkefnið• Sameining ætti að styrkja Náttúrustofu Vesturlands Spurning um

mögulegt samstarf við útibú Hafrannsóknastofnunar í Ólafsvík• Engir verulegir annmarkar. Haldið áfram að veita þjónustuna.

Faglegra og meiri samræming• Gæti skapað möguleika til að auka hagræðingu, t.d. með

sameiginlegu útboði í sorpmálum og umhirðu opinna svæða

Page 32: Skipulag, umhverfi, samgöngur

Ef sameinað Hafnir

• Hafnirnar munu væntanlega þurfa að taka afstöðu til hafnasamlags á næstu árum, án tillits til sameiningar

• Yrðu sameinaðar ef sveitarfélögin sameinuðust• Ekki fyrirsjáanlegar miklar breytingar á starfsemi hafnanna –

hver og ein haldi sinni sérstöðu• Við niðurfellingu ríkisframlags vegna nýframkvæmda eftir

2006, teldust Grundarfjarðarhöfn og Stykkishólmshöfn áfram styrkhæfar ef ekki yrði sameinað eða stofnað hafnasamlag (teljast vera “litlar hafnir”). Styrkir vegna séraðstæðna, skv. reglum, s.s. vegna dýpkunar, verða þó óbreyttir