Gróðurbeltin – 6 helstu
• Túndra
• Barrskógur
• Laufskógur
• Makkíkjarr
• Savanni
• Hitabeltisregnskógur
Gróðurbeltin – frh.
• Gresja: víðáttumikið sléttlendi þar sem grös eru ríkjandi. Gresjur eru kallaðar hinum ýmsu nöfnum eftir heimshlutum: steppa (step, steppe) í SA-Evrópu og Asíu, prería í N‑Ameríku, llano og pampas í S‑Ameríku. Í raun er Savanni líka gresja: hitabeltisgresja.
Gróðurbeltin – frh.
• Runnasteppa: (hálfeyðimörk) úrkoma svo lítil að grös þrífast ekki. Einkennist af strjálum þyrnótt-um runnum, þykkblöðungum og kaktusum.
• Eyðimörk: í þeim eru stundum vinjar með gróskumiklum gróðri. Stærstu eyðimerkur jarðarinnar eru kringum hvarfbaugana, á 20°-30°N og 20°- 30°S.
Túndra
• Nyrsta gróðurbeltið – nær lengst suður að 60°N.
• Sífreri – aðeins efsta lagið sem bráðnar á sumrin.
• Almennt þurrt svæði sem einkennist af lágum gróðri – engar hávaxnar plöntur.
• Lágvaxnar víðitegundir, fjalldrapi (=dvergbirki), grös, mosi, fléttur.
Túndra – í Alaska
Túndrusvæði í Síberíu
Aðal túndrusvæði jarðar
Barrskógabeltið (Taiga, Coniferous forest)
• Barrtré: conifer, firtree.
• Nyrðri mörkin eru ca þar sem meðalhiti heitasta mánaðar er 10°C
• Syðri mörkin eru þar sem meðalhiti fjögurra hlýjustu mánaðanna er 10°C
• Greni, fura, lerki ásamt harðgerðustu lauftrjánum: birki, ösp, víðir, elri, reyniviður
Dæmigerður barrskógur með mosa sem helsta undirgróðri
Mism. barrskógasvæði í N-Am.
Mism. barrskógasvæði í Evrópu og Asíu.
Barrskógur: hvítgreni, birki og runnagróður
Finnskur barrskógur
Laufskógabeltið
• Tekur við af barrskógabeltinu
• Frjósamt belti á breiddargráðubilinu 30°N til 55°N. Á suðurhveli nánast bara í Argentínu og S-Chile.
• Eik, beyki, hlynur, askur, álmur, kastanía, hnota, linditré.
Askur (Ash)
• Evrópskur Askur • Amerískur fjallaaskur
Eik (oak)
• Svört eik • Ensk eik
Hlynur (maple)
• Lauf af hlyni • Sýrópi tappað af hlyni
Álmur (elm)
• Amerískur álmur • Enskur álmur með sveppasýkingu
Akureyskur álmur
Beyki (beech)
• Evrópskt beyki • Lögun + laufblöð
Kastanía (chestnut)
• Evrópsk kastanía • Hneturnar oft ristaðar
Margar fallegar kastaníur í Tívolí Kaupmannahöfn
Linditré (linden, basswood)
• Lauf og ávextir (ber)
Makkíkjarr (maquis)
• Lágvaxinn gróður sem þolir vel þurrka.
• Þykkblaða og þyrnóttar jurtir.
• Hæfir Miðjarðarhafsloftslagi: heit, þurr sumur og mildir, rakir vetur.
• Við Miðjarðarhaf, í Kaliforníu, miðhluta Chile, syðst í Suður-Afríku og sunnanverðri Ástralíu.
Dæmi um runnagróður/makkíkjarr
• Planta af ættkvíslinni einir • Nálar fremur en lauf á eininum, sbr. einiberjarunn
Tvær tegundir af salvíuættkvísl
• Salvia azurea • Salvia officinalis
Savanni
• Savanni (savanna, savannah): hitabeltisgresja
• Hálfþurrt svæði sem einkennist af háu grasi, strjálum trjám og runnum
• Regnhlífartré einkennandi
• Á þurrkatímabilum fella trén laufin
• Í öllum heimsálfum nema S.sktsl. og Evr.
Náttúruleg savannasvæði heimsins
Savannasvæði í Tansaníu (termítabú fremst)
Savanni - afrískur buffalói
Pálmasavanni í NA-Argentínu
Gróður á savannasvæði, regnhlífartré einkennandi
Hitabeltisregnskógarnir
Hitabeltisregnskógarnir
• Losa um jafn mikið súrefni og þeir binda, þ.e. rotnun er svo hröð að rotverur (ásamt dýrum) binda jafn mikið súrefni við kolefni og jurtirnar ná að losa frá kolefni með ljóstillífun.
• Eyðing regnskóganna skekkir hins vegar þetta jafnvægi milli koldíoxíðs og súrefnis, þ.e. ef skógurinn er brenndur eykst hlutfall koldíoxíðs í heiminum svolítið og hlutfall súrefnis minnkar örlítið.
Í hitabeltisregnskógunum
• er álitið að a.m.k. helmingur allra tegunda jurta og dýra á þurrlendi jarðar sé að finna.
• er mestmegnis harðviður, þ.e. kjörviður til t.d. húsgagnagerðar og því ekki viður sem almennt er notaður til pappírsgerðar (tré úr barrskógabeltinu eru notuð til þess).