View
232
Download
2
Category
Preview:
DESCRIPTION
Rit stjórnmálafræðinema við Háskóla Íslands. 1.tbl. 13.árg.
Citation preview
1. tbl. 13. árg. 2013
Erkióvinir ráðleggja
kjósendum
Spurningar til forsætis
ráðherra
Námsferð til Banda
ríkjanna
Kosningahugurinn
gerður upp
Hannes Hólmstein Gissurarson og Stefán
Ólafsson ráðleggja kjósendum og spá fyrir um
úrslit kosninganna.
Jóhanna Sigurðardóttir sækist ekki eftir
áframhaldandi kjöri í næstu þingkosningum.
Ferðadagbók alþjóðafulltrúa Politica í ferð til Washington og
New York.
Hafa stúdentar í Háskóla Íslands ákveðið hvað þeir ætla að kjósa í alþingis
kosningunum í vor?
Erfiðast að flytja til Kína
Ritstjóraspjall
Stundum er talað um að konur sækist síður eftir stjórnunarstöðum
en karlmenn. Að okkur finnist hreinlega þægilegra að láta aðra
stjórna. Þegar ég hóf leit mína að ritnefnd Íslensku leiðarinnar
sóttist þó enginn karlmaður eftir stöðu innan hennar. Til þess
að gæta að kynjajafnvægi bauð ég persónulega nokkrum karlmönnum stöðu
innan nefndarinnar, án árangurs.
Ekki er hægt að segja að konur í stjórnmálafræði forðist stjórnunarstöður.
Í stjórn Politica sitja nefnilega sex konur og aðeins tveir karlmenn og
voru þeir einu karlmennirnir sem sóttust eftir kjöri. Þó er kynjahlutfall í
stjórnmálafræðideild nokkuð jafnt.
Ég hef alla tíð verið umkringd sterkum konum og hef trú á því að þetta
sé merki um það sem koma skal. Við þurfum ekki endilega kynjakvóta til
þess, við þurfum að sækjast eftir því sem við viljum.
Í þessu blaði er viðtal við Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og ég
vil í þessu samhengi vitna í orð hennar þar sem hún segir: ,,Við konur getum
ekki krafist aukinna valda og ábyrgðar í samfélaginu en á sama tíma vísað frá
okkur tækifærunum þegar þau bjóðast.”
Að því sögðu kynni ég með stolti ritnefnd Íslensku leiðarinnar sem í
fyrsta sinn er aðeins skipuð konum og vil þakka þeim sem í henni sitja fyrir
vel unnin störf.
Takk fyrir lesturinn.
Berglind Jónsdóttir, ritstjóri Íslensku leiðarinnar
Berglind Jónsdóttir Karen Kristine Pye
Lilja Kristín Birgisdóttir Lilja Kristjánsdóttir
EFNISYFIRLIT
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Berglind Jónsdóttir
Ritstjórn Íslensku leiðarinnar: Berglind Jónsdóttir Karen Kristine Pye Lilja Kristín Birgisdóttir Lilja Kristjánsdóttir
Hönnun & umbrot: Birgir Þór Harðarson
Ljósmyndir: Berglind Jónsdóttir Lilja Kristjánsdóttir Einar Valur Sverrisson
Íslenska leiðin þakkar aðstoðina
Birgir Þór Harðarson Einar Valur Sverrisson Stjórn Politica 2013 Elva Ellertsdóttir Margrét Birgis Halldór Arnarsson Hótel Holt
Íslenska leiðin þakkar einnig öllum viðmælendum kærlega fyrir þátttökuna og öllum styrktaraðilum fyrir hjálpina.
Spurningar til forsætisráðherra ........................................................................... 4Jóhanna Sigurðardóttir sækist ekki eftir endurkjöri á Alþingi eftir áratuga starf.Kosningahugurinn gerður upp ............................................................................ 5Erkióvinir ráðleggja kjósendum .......................................................................... 6Stefán Ólafsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson deila skoðunum sínum.Erfiðast að flytja til Kína ........................................................................................ 8Viðtal við Hjálmar W. Hannesson og Önnu Birgis, sendiherrahjón í Winnipeg.Stjórnmálafræðingar í atvinnulífinu ................................................................... 12Hvert fara stjórnmálafræðingar að námi loknu?Starf Politica 2012-2013 ........................................................................................ 13Vinalega þjóðin, grein eftir Viktor Stefánsson .................................................. 14Being a foreign student at the Political Science Department ......................... 15Námsferð til Bandaríkjanna .................................................................................. 16Kristín Arnórsdóttir, alþjóðafulltrúi Politica, deilir ferðadagbók sinni með lesendum.Sturlaðar staðreyndir um stjórnmálafræði ........................................................ 18
2 | ÍSLENSKA LEIÐIN 2013
Jóhanna Sigurðardóttir
hefur setið á Alþingi
síðan 1978 og er því einn
þaulsetnasti þingmaður
þjóðarinnar frá stofun Lýðveldisins.
Hún er jafnframt fyrsti kvenkyns
forsætisráðherra þjóðarinnar og
hefur stýrt ráðuneyti sínu síðustu
fjögur árin á miklum erfiðatímum í
sögu þjóðarinnar. Hún sækist ekki
eftir áframhaldandi kjöri í næstu
þingkosningum og því er ekki úr
vegi að spurja Jóhönnu hvernig
stjórnmálaferillinn hefur verið.
Hvað var það sem fyrst vakti
áhuga þinn á stjórnmálum? Ég var
alinn upp á miklu jafnaðarmanna
heimili þar sem barátta ömmu
minnar, Jóhönnu Egils dóttur og
starf föður míns Sigurðar Egils
Ingimundar sonar fyrir bættum hag
verka fólks og lífeyrisþegar var allt
um lykjandi. Líklega hef ég þannig
fengið stéttar vitundina og jafnaðar
mennsk una með móður mjólkinni
ef svo má að orði komast. Ég hef
alla tíð verið póli tísk og mun líklega
verða.
Þegar þú tókst við embætti
forsætis ráðherra á Íslandi, fannstu
fyrir aukinni pressu sem fyrsta konan
til að gegna því embætti? Já, á því er
enginn vafi. Í mínum huga vó það
enda mjög þungt í ákvörðun minni
um að takast verkefnið á hendur, að
ella hefði ég verið að bregðast konum
þessa lands. Við konur getum ekki
krafist aukinna valda og ábyrgðar
í sam félaginu en á sama tíma vísað
frá okkur tæki færunum þegar þau
bjóðast.
Ef þú lítur yfir tíma þinn sem
forsætis ráðherra, hefur þú einhverja
eftir sjá? Nei, ég get ekki sagt það.
Auð vitað gæti maður velt fyrir sér
hvort eitt eða annað hefði mátt gera
með öðrum hætti en gert var í for
dæmalausu aðstæðum og verk efnum
liðins kjörtímabils, en slíkar vanga
veltur eru í raun til lítils. Ég hef allan
tíman lagt mig alla fram og valið þær
leiðir sem ég taldi bestar fyrir land
og þjóð og í samræmi við mína bestu
sam visku. Árangurinn liggur nú
fyrir og ég sé ekki eftir að hafa tekið
slaginn.
Í 35 ár hefur líf þitt verið helgað
pólitíkinni, nú fer þessu kjörtímabili
senn að ljúka, hvað tekur við? Það
er enn óráðið, en ég kvíði því í engu
enda framtíðin full af tækifærum
og spennandi verkefnum svo lengi
sem mér endist heilsan. Til að byrja
með mun ég nú einbeita mér að
fjöl skyldunni sem ég hef lítið séð af
síðustu árin.
Þegar þú stígur frá stjórnmálum,
fyrir hvað viltu helst láta minnast
þín? Ég hef ekki velt því fyrir
mér... Ætli það sé ekki helst að
hafa verið trú þeim hugsjónum
jafnaðarstefnunnar sem ég hef svo
lengi barist fyrir.
Hvaða ráðleggingar gæfir
þú ungu fólki sem stefnir á
þingmennsku í dag? Það á enginn
að stefna á þing mennsku, en finni
menn hjá sér þörfina og viljann
til að berjast fyrir fram gangi
góðra mála, þá eigum við öll að
vera reiðubúin að leggja okkar af
mörkum. Þáttaka í stjórnmála starfi
er gríðarlega mikilvæg fyrir fram
þróun samfélagsins og hvort sem
maður leggur slíku starfi lið með
þing mennsku eða með öðrum hætti,
þá skiptir öllu máli að vera trúr
sjálfum sér og þeim hugsjónum sem
maður ber í brjósti. Þing mennska
er ekki og má aldrei verða venju
legt starf sem einstaklingar stefna á
eða halda í sjálfs síns vegna. Þing
mennska, ráðherradómur eða önnur
störf stjórn málamanna eru fyrst og
síðast tæki og tækifæri til að leggja
góðum verkefnum og góðum hug
myndum lið og slík tækifæri verða
menn að nýta vel ef þau gefast.
Það á enginn að stefna á þingmennsku, en finni menn hjá sér þörfina og viljann til að berjast fyrir framgangi góðra mála, þá eigum við öll að vera reiðubúin að leggja okkar af mörkum.
Spurningar til forsætisráðherra
EFTIR LILJU KRISTÍNU BIRGISDÓTTUR
4 | ÍSLENSKA LEIÐIN 2013
Kosningahugurinn gerður uppÍSLENSKA LEIÐIN FÓR Á STÚFANA OG ATHUGAÐI HVORT
STÚDENTAR HEFÐU ÁKVEÐIÐ HVAÐ ÞEIR ÆTLA AÐ KJÓSA Í VOR.
Nanna Elísa 22 ára lögfræðinemi,,Akkúrat núna finnst mér flest framboðin frekar óspennandi en ég á eftir að kynna mér þetta betur.”
Friðjón Örn 25 ára stjórnmalafræðinemi,,Ég er ekki flokksbundinn en er búinn að ákveða hvað ég kýs og ætla að kjósa rétt.”
Margrét Berg Sverrisdóttir 23 ára lögfræðinemi,,Ég hef hingað til alltaf kosið Sjálfstæðisflokkinn og mun líklega kjósa hann aftur en það verður ekki með jafn mikilli gleði og áður.”
Baldvin Baldvinsson 23 ára sálfræðinemi,,Ég hef ekki skoðað þetta neitt svo það er allt opið.”
Gylfi Þór 23 ára hagfræðinemi,,Ég ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn því mér finnst hin framboðin ekki vera nógu góð.”
Ólafur Ingibergsson 33 ára þjóðfræðinemi,,Það eina sem ég get sagt með fullri vissu er að ég mun aldrei kjósa Sjálfstæðisflokk, aldrei Framsókn og aldrei Hægri Græna.”
Davíð Fjölnir Ármannsson 31 árs umhverfis- og auðlindafræðinemi,,Ég hef ekki gert upp hug minn. Ég er tilbúinn til að skoða ný framboð og mun líta sérstaklega til umhverfisstefnu flokkanna.”
Jóna Elísabet Ottesen 32 ára nemi í hagnýtri menningarmiðlun,,Ég ætla að kjósa Bjarta Framtíð, list vel á eitthvað nýtt og ferskt.”
KOSNINGAR 2013 ÍSLENSKA LEIÐIN 2013 | 5
Hvað myndir þú ráðleggja fólki að gera sem hefur
ekki gert upp hug sinn fyrir Alþingiskosningarnar í
vor en vill taka upplýsta ákvörðun?
Ég myndi ráðleggja fólki að kynna sér árangur
núverandi ríkisstjórnar og leggja mat á hvort um sagnir
um hana séu sanngjarnar. Síðan er auðvitað að skoða
það sem stendur til boða nú. Fólk á að hafa í huga
að það var frjálshyggja Sjálf stæðis flokksins sem leiddi
þjóðina afvega á tíma bilinu frá um 1995 til 2008.
Sú stefna sigldi Íslandi inn í stærsta bóluhagkerfi
sögunnar og svo í stærsta hrun sögunnar. Það er
ekkert smá mál engin smá mistök. Svo á fólk að
spyrja að hvaða leyti hefur Sjálfstæðiflokkurinn skipt
um stefnu? Mér sýnist hann í engu hafa breytt um
kúrs. Þeir sækja vúdúhagfræðina og auðmannadekrið
til Hannesar Hólmsteins sem aldrei fyrr og bjóða enn
stærri skammt af þessari snákaolíu en fyrr. Er það trú
verðugt?
Svo er Framsókn á mikilli siglingu núna. Fólk
virðist trúa því að hún muni bæta hag heimilanna
með fastri áherslu á skuldaniðurfellingu. Framsókn
gerðist of höll undir frjálshyggju Sjálfstæðismanna
á árum Davíðs og Halldórs og tengdust talsverðri
fjár mála spillingu þá. Nú er ný forysta og fleira nýtt
fólk. Kannski vill fólk láta reyna á hvort þau skili
kjara bótum. Það er ekki fráleit afstaða miðað við að
stæður, þó fortíðin og fjármálaöflin sem standa á bak
við flokkinn hræði óneitanlega.
Svo eru nýju framboðin. Ég er svolítið skotinn
í Bjartri framtíð. Mér finnst þau með áhuga verða
öðruvísi nálgun á pólitík og geðþekka miðju
stefnu. Mér hugnast það líka vel að þau vilja klára
aðildarviðræðurnar við ESB til að sjá hvað kemur
út úr því og leyfa þjóðinni svo að taka upplýsta
ákvörðun. Svo finnst mér Guðmundur Steingrímsson
sérstaklega geðþekkur forystu maður. Faðir hans var
vel þokkaður leiðtogi Framsóknar flokksins á sini tíð
og að mörgu leyti farsæll stjórn mála maður.
Ég held að önnur ný framboð muni ekki komast
á skrið, nema helst Lýðræðisvaktin. Þar mun
væntanlega ráða miklu hvernig til tekst við upp
stillingu á framboðslistum. Það á eftir að koma í ljós.
Mér skilst að ungt fólk hafi einhvern áhuga á Pírötum,
en það er held ég einkum leið til að sóa atkvæði sínu.
Þetta kallar allt á svolitla stúdíu, en ef menn vilja
taka upplýsta ákvörðun um örlög atkvæðis síns þá
kallar það á vinnu. Stjórnmálafræðinemar eiga að
vera öðrum fremri í könnun valkostanna. Kannski
væri það verðugt verkefni fyrir stjórnmálafræðinema
að taka saman hlutlaust skýrt yfirlit um einkenni allra
framboðanna og stefnumálanna sem verða í boði
fyrir kosningarnar í vor. Þannig gætuð þið eflt ykkar
eigin upplýstu ákvörðun og hjálpað öðrum kjós
endum í leiðinni.
Hvort telur þú að það sé betra eða verra að hafa
færri og aðgreindari flokka eða fleiri og líkari?
Frá sjónarhóli markaðsfræðanna eru fleiri og
sérhæfðari framboð líklegri til að koma betur til
móts við fjölbreyttar skoðanir kjósenda. Þá aukast
líkurnar á að einstakir kjósendur geti fundið sér
"klæðskerasaumað" framboð til að velja! Þetta er hins
vegar ekki eina sjónarmiðið, því fámennisframboð
skipta engu máli þegar á hólminn er komið. Ef þau
ná ekki 5% markinu þá detta atkvæði þeim greidd í
reynd niður dauð. Tveir allt umlykjandi flokkar, eins
og er í Bandaríkjunum og lengi var í Bretlandi (hægri
og vinstri valkostir) ná yfir megin áherslumun fólks,
en eru svolítið eins og fjöldaframleiðsluverksmiðjur
eða loðnubræðslur. Taka oft lítið tillit til sérmála. Örfá
framboð til viðbótar geta mætt slíku, eins og t.d. VG
gerir hér á landi, þjóna vel ákveðinni og mikilvægri
sér visku, eins og á sviði umhverfisverndarmála og
femínisma. Samt á fólk líka að hugsa sem svo að
hægt er að vinna sérmálum fylgi innan stærri fram
boðanna. Án stærðar ná menn engum áhrifum í
fulltrúa lýðræðinu. Þess vegna er mikilvægt að hafa
stóra flokka og menn eiga að forðast að sundra fólki
sem hefur sömu lífsskoðun í megindráttum. Það
dregur á mögu leikum á að hafa áhrif og þá er til
lítils unnið.
Heldur þú að kosningaþátttaka í ár verði
frábrugðin kosningaþátttöku fyrri ára?
Ég myndi spá því að kosningaþátttaka verði lítil
lega minni en áður.
Hver er þín persónulega spá fyrir útkomu
kosninganna í vor?
Þetta er stærsta spurningin! Ég held að það sé
enn mikil óvissa um útkomur. Fylgið er almennt
mjög laust og reikult. Það er ein af afleiðingum þess
tapaða trausts sem kom með hruninu. Það vekur
auðvitað mikla athygli nú hversu illa gengur hjá
Sjálfstæðisflokknum og velgengni Fram sóknar að
sama skapi vekur athygli. Ég býst við að stjórnar
flokkarnir muni rétta hlut sinn eitt hvað frá núverandi
könnunum en tapa þó miklu frá síðustu kosningum,
sem voru þeim óvenju hag stæðar. Stjórnarflokkarnir
munu líða fyrir það að enginn getur verið ánægður
með kjör sín í dýpstu kreppu lýðveldissögunnar,
jafnvel þó þau hafi náð þokkalegum árangri við
endurreisnina og hrein gerninguna ekki síst miðað við
aðrar kreppu þjóðir. Ég hélt um tíma að Björt framtíð
gæti endur tekið leik Besta flokksins í Reykjavík og
siglt upp í hæstu hæðir. Það er alls ekki útilokað að
þau fái góða kosningu. Framsókn virðist þó vera að
taka það svolítið frá þeim, en þetta gæti breyst. Svo
er óvissa um Lýðræðisvaktina. Hún gæti sett strik í
reikninginn. Óvissa er sem sagt enn mjög mikil.
Erkióvinir ráðleggja kjósendum
KOSNINGAR 2013
STEFÁN ÓLAFSSON FÉLAGSFRÆÐIPRÓFESSOR
6 | ÍSLENSKA LEIÐIN 2013
Hvað myndir þú ráðleggja fólki að gera sem hefur
ekki gert upp hug sinn fyrir Alþingiskosningarnar í
vor en vill taka upplýsta ákvörðun?
Ég myndi ráðleggja því að kjósa annan hvorn
stjórnarandstöðuflokkinn, Sjálfstæðisflokkinn eða
Fram sóknar flokkinn. Ríkisstjórnin, sem nú situr,
er hin versta, sem ég hef þekkt. Hún hóf feril sinn
í skugga ofbeldis og óeirða og lét verða fyrstu verk
sín að hrekja gamla stjórnmálaandstæðinga úr
embættum (Davíð Oddsson) og jafnvel draga þá
inn í réttarsal (Geir Haarde), sem er einsdæmi í
Íslands sögunni. Hún kiknaði í hnjáliðunum fyrir
framan útlendinga og gerði fráleitan samning
við Breta og Hollendinga, sem hefði sett okkur
í skulda fangelsi áratugum saman: Kostnaðurinn
af Icesavesamningnum, sem átti að keyra óséðan
í gegnum þingið, hefði verið um 531 milljarðar.
Hún tók lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, sem var
hreinn óþarfi að taka, en vaxtakostnaðurinn nam
um 30 milljörðum á ári. Hún afhenti erlendum
vogunarsjóðum tvo af bönkunum á silfurfati, sem
er óskiljanleg ákvörðun. Hún efndi til kosninga
á stjórn lagaþing, sem Hæstiréttur dæmdi ógildar,
en gaf síðan Hæstarétti langt nef með því að skipa
sömu einstaklinga í svokallað stjórnlagaráð, og frá
því fólki hefur komið óskýr óskalisti, sem á að neyða
upp á þjóðina kortéri fyrir kosningar. Hún reynir að
þröngva okkur inn í Evrópusambandið, þótt Vinstri
grænir svíki með því sín kosningaloforð, á sama tíma
og ESB er að glíma við stórkostlegan vanda, og hún
kallar aðlögunarferilinn „samninga viðræður“. Hér
hefur enginn hagvöxtur verið frá banka hruninu
(nema sýndarvöxtur vegna þess, að menn tóku út
lífeyrissparnað og lengdu í lánum), en í öðrum
Evrópulöndum, sem fengu jafnvondan skell, er nú að
verða ör hagvöxtur, til dæmis í Eystra salts ríkjunum.
Og forsætisráðherrann getur ekki einu sinni farið rétt
með fæðingarstað Jóns forseta.
Hvort telur þú að það sé betra eða verra að hafa
færri og aðgreindari flokka eða fleiri og líkari?
Ég er þeirrar skoðunar, að best sé að hafa tveggja
flokka kerfi eins og í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þá
verður ábyrgð einstakra flokka skýrari. Þá eiga menn
völ um tvo ólíka kosti, stjórn eða stjórnarandstöðu.
Hlutfallskosningar virðast á yfir borðinu réttlátari. En
markmið kosninga er í rauninni ekki að endurspegla
þjóðarviljann, því að hann er ekki til nema sem
hugtak í stjórn máladeilum. Markmið kosninga er
að draga valda menn til ábyrgðar. Kjósendur eru
spurðir á nokkurra ára fresti, hvort þeir vilji áfram
þá valda menn, sem þeir hafa. Lýðræði er umfram allt
frið samleg leið til að skipta um valdamenn, ef meiri
hluti kjósenda eru óánægðir með þá. Aðalatriðið er,
að menn geti búið við sömu réttindi, hvort sem þeir
lenda í meiri hluta eða minni hluta. Það er til dæmis
mikið ranglæti, ef skattamálum er svo fyrir komið, að
meiri hluti kjósenda greiði engan tekjuskatt eða mjög
lágan, en geti síðan ákveðið með afli atkvæða, að
minni hlutinn greiði hlutfallslega miklu hærri skatta.
Þá er meiri hlutinn að kúga minni hlutann. Menn
eiga allir að greiða sama hlutfall af tekjum sínum í
skatt yfir einhverju lágmarki.
Heldur þú að kosningaþátttaka í ár verði
frábrugðin kosningaþátttöku fyrri ára?
Það kæmi mér ekki á óvart, ef kosningaþátttakan
yrði minni en venjulega. Margir hafa orðið fyrir von
brigðum með stjórnmálin, en það er vegna þess, að
þeir hafa ætlast til of mikils af þeim. Marx sagði, að
frelsun verkalýðsstéttarinnar yrði að verða verk hennar
sjálfrar. Á sama hátt verður frelsun hvers manns að
verða verk hans sjálfs. Stjórn málamenn geta ekki boðið
okkur hamingju eða hagsæld. Það eru einstaklingarnir
sjálfir, sem skapa hamingju sína eða hagsæld. Reynslan
sýnir, að hagsældin helst í hendur við frelsið, svigrúm
manna til athafna. Stjórnmálamenn gera best í að
halda sér til hlés, ryðja úr vegi hindrunum fyrir því,
að ein staklingarnir geti í frjálsum viðskiptum og sam
skiptum sínum bætt hag sín og sinna.
Hver er þín persónulega spá fyrir útkomu
kosninganna í vor?
Ég held, að Sjálfstæðisflokkurinn og Fram sóknar
flokkurinn bæti báðir við sig fylgi frá því, sem var
í kosningunum 2009. Ég yrði ekki hissa, þótt þeir
fengju hvor um sig eitthvað í kringum 5–8% meira
en þá, saman 10–15%. Stjórnar flokkarnir tveir,
Svört fortíð, munu missa meiri hluta sinn, en ekki
gjalda eins mikið afhroð og skoðana kannanir sýna.
Gangnamönnum þeirra mun takast að draga marga
sauði aftur inn í dilkana. Björt framtíð tekur eitthvað
frá stjórnarflokkunum, þó meira frá Samfylkingunni.
Aðrir flokkar fá lítið, held ég. En kosningar eru aðeins
önnur lota baráttunnar. Hin er stjórnarmyndun. Þar
er allt opið. Sjálfstæðisflokkurinn gæti hugsanlega
myndað stjórn með Samfylkingunni eða með
Fram sóknar flokknum. Framsóknarflokkurinn
gæti myndað stjórn með Samfylkingunni og
Bjartri framtíð. Jafnvel væri hugsanlegt, að allir
vinstri flokkarnir myndi saman stjórn ásamt
Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokkurinn verði
áfram í stjórnar andstöðu. Það gæti gerst, ef hann
bætir ekki veru lega við sig fylgi frá síðustu kosningum.
Hið eina, sem kæmi mér verulega á óvart, væri, ef
Sjálfstæðis flokkur og Framsóknarflokkur fengju ekki
saman meiri hluta á þingi, þótt það merki alls ekki
sjálfkrafa, að þeir fari saman í stjórn. Það væri hins
vegar rökréttast. En ekki öfunda ég þá stjórn, sem
þarf að taka við af þessari.
KOSNINGAR 2013
Nú líður senn að Alþingiskosningum og eru væntanlega margir kjósendur með valkvíða þar sem úrvalið hefur sjaldan verið jafnmikið. Íslenska leiðin fékk prófessoranna og andstæðurnar Hannes Hólmstein Gissurarson og Stefán Ólafsson til þess að ráðleggja kjósendum og spá fyrir um úrslit kosninganna.
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON STJÓRNMÁLAFRÆÐIPRÓFESSOR
ÍSLENSKA LEIÐIN 2013 | 7
Hjálmar W. Hannesson stjórn mála
fræðingur hefur verið í utan ríkis
þjónust unni frá árinu 1976 og mun
í byrjun sumars fara ásamt konu
sinni Önnu Birgis til Kanada til þess að taka við
stöðu aðalræðismanns Íslands í Winnipeg.
Berglind Jónsdóttir hitti Hjálmar og fór yfir
störf hans sem sendiherra, hvað felst í starfinu og
mikil vægi íslensku utanríkisþjónustunnar ásamt
því að spjalla við Önnu um líf og störf sendi herra
frúar innar.
Hjálmar hafði áhuga á námi í Bandaríkjunum
og tvítugur flutti hann vestur um haf þar sem
hann nam stjórnmálafræði við háskólann í
NorðurKarólínu í Chapel Hill. Hjálmar hafði
áður lokið kennaraprófi og starfaði sem kennari
í MR, í Kennaraskólanum og við Námsbraut í
almennum þjóðfélagsfræðum við HÍ eftir dvölina
í Bandaríkjunum. Hann var síðar hvattur til þess
að sækja um starf hjá utanríkisþjónustunni, hóf þar
störf þrjátíu ára gamall og ári síðar var hann fluttur
til Brussel þar sem hann gegndi stöðu sendiráðsritara
í þrjú ár. Frá Brussel fór Hjálmar til Stokkhólms
sem sendiráðunautur, var næst skipaður sendiherra
í afvopnunar og mannréttindamálum, varð síðar
sendi herra í Þýskalandi rétt áður en múrinn féll, setti
á lagg irnar fyrstu sendiráð Íslands bæði í Peking og
Ottawa, var fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum
í New York og tók síðar við stöðu sendiherra í
Washington DC. Frá þessum sendiherrapóstum
var hann jafnframt sendiherra í nærri 30 öðrum
ríkjum, t.d. Páfaríkinu, Japan, Kúbu og Kóreu.
En hver skildu helstu störf sendiherra vera í
íslensku sendiráði? „Í venjulegu sendiráði felst
starfið aðallega í þremur þáttum, viðskiptamálum,
menningu og pólitík. Viðskiptahlutinn snýr m.a.
að aðstoð við að koma á viðskiptatengslum á milli
Íslands og viðkomandi ríkis, í menningar hlutanum
felast ýmsar uppákomur og mikil land kynningar
starfsemi og pólitíska hliðin er m.a. að sækja fundi
fyrir hönd Íslands og koma stefnumálum landsins
á framfæri við stjórnvöld annarra ríkja. Einnig er
hluti starfsins borgaraþjónusta við Íslendinga í við
komandi ríki, að heimsækja íslenska fanga, aðstoða
ferða menn sem lenda í vandræðum o.s.frv. Störf í
fasta nefndum eru annars eðlis og sérhæfðari.”
Hjálmar segist geta nefnt þrjá hápunkta ferils
síns og einn þeirra sé að hafa verið í Þýskalandi
þegar Berlínarmúrinn féll. ,,Ég varð sendiherra í
VesturÞýskalandi í september 1989 og múrinn
fellur þarna tveimur mánuðum síðar. Það vildi svo
til að á þessum tíma var sendiherrann í Moskvu
farinn heim, en hann hafði séð um Austur
Þýskaland. Og því fór það svo að ég varð einn
þriggja erlendra sendiherra í Bonn sem varð jafn
framt sendiherra í AusturÞýskalandi áður en það
hvarf við sameininguna 3. okt. 1990. Svo það
má segja að við sameinuðum þannig Þýskaland á
undan Þjóðverjum!”
Annan hápunkt segir Hjálmar hafa verið að
hafa tekið þátt í stofnun fyrsta íslenska sendiráðsins
í Kína. ,,Það var mikill hörgull á heppilegu húsnæði
í Peking á þessum tíma því þarna voru fyrrum
Sovétlýðveldin öll og fleiri ný ríki nýbúin að opna
sendi ráð. Skrifstofan var því fyrstu sex vikurnar
eftir opnun á Hilton hótelinu þar sem við gistum
í Peking. Það er auðvitað mikill tímamunur á
Kína og Íslandi svo þegar ég var búinn að loka
skrif stofunni í Kína á daginn þá fór ég að taka við
erindum frá Íslandi og oft var vinnudagurinn frá
hálf níu á morgnanna til miðnættis fyrsta hálfa árið.
Þetta var heilmikil vinna en á sama tíma ótrúlega
gaman og mikil upplifun. Að opna sendiráð Íslands
í Ottawa, höfuðborg Kanada, var létt verk miðað
við Peking.”
Hjálmar talar um að þriðji hápunktur ferils
síns hafi verið þegar hann var sendur til New
York árið 2003 til þess að vera fastafulltrúi hjá
Sameinuðu þjóðunum. Hann var tvisvar kjörinn
einn af varaforsetum ECOSOC og eitt ár vara
forseti allsherjaraþingsins. Mestur tími starfs hans
í NY fór í að afla fylgis við framboð Íslands til
Öryggisráðsins en framboðið var ákveðið árið 1998
af þáverandi ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. „Þetta
var gríðarlega spennandi og mikil vinna. Það voru
tvö sæti sem þrjú ríki kepptust um, Tyrkland,
Austur ríki og Ísland. Tyrkir virtust líklegir til þess
að komast inn í fyrstu umferð. Kosningarnar voru
17. október 2008 og við vorum búin að gera fullt af
samningum við ríki um að styðja okkur. Við áttum
mikla möguleika á því að komast inn en svo verður
hrunið á Íslandi þann 6. október, ellefu dögum
fyrir kosningarnar. Almennt er talið að það hafi gert
það að verkum að Austurríki marði það að komast
inn í fyrstu umferð.”
Hvað myndirðu segja að væri annars vegar það
erfiðasta við starf sendiherra og hins vegar það
skemmtilegasta?
„Ætli það erfiðasta séu ekki flutningarnir.
Þeir geta verið afskaplega erfiðir fyrir fjölskyldur
diplómata en eru á sama tíma mjög spennandi. Það
skemmti legasta við starfið er að hitta jákvætt og
áhuga vert fólk. Starfið snýst að miklu leyti um að
um gangast fólk svo maður verður að hafa gaman af
því til þess að geta sinnt starfinu vel.”
Síðustu ár hafa ýmsir talað um að sendiráðin séu
óþörf og að peningum skattborgara væri betur varið
annars staðar. Hvað myndir þú segja við þessu?
,,Auðvitað ber okkur að fara vel með peninga
skattborgarans jafnt þarna sem annars staðar í
Erfiðast að flytja til KínaVIÐTAL VIÐ HJÁLMAR W. HANNESSON OG ÖNNU BIRGIS, SENDIHERRAHJÓN
EFTIR BERGLINDI JÓNSDÓTTUR
Við erum að gera mikið fyrir lítinn
pening, ekki viljum við loka á SÞ, ekki lokum við í Brussel, hvað þá í Frakklandi, Þýskalandi eða í Bandaríkjunum þar sem er mikilvægt að viðhalda sterkum tengslum. Viljum við loka í Kína þar sem er annað stærsta hagkerfi heims eða viljum við loka á mikilvæg sambönd við Norðurlöndin?
8 | ÍSLENSKA LEIÐIN 2013
ríkisrekstrinum en hefðbundin íslensk utan ríkis
þjónusta kostar aðeins um 0,5 til 0,7% af útgjöldum
ríkisins á ári. Að halda úti utanríkisþjónustu
er mjög mikilvægt fyrir sjálfstætt ríki. Öll ríki
heimsins, sama hversu smá, hafa einhverskonar
utanríkisþjónustur. Þetta er nauðsynlegt til þess
að geta verið í mikilvægum samskiptum við aðrar
þjóðir m.a. á sviði viðskipta. Persónuleg tengsl
koma ríkjunum alltaf til góða. Við erum að gera
mikið fyrir lítinn pening, ekki viljum við loka á
SÞ, ekki lokum við í Brussel, hvað þá í Frakklandi,
Þýska landi eða í Bandaríkjunum þar sem er mikil
vægt að viðhalda sterkum tengslum. Viljum við
loka í Kína þar sem er annað stærsta hagkerfi
heims eða viljum við loka á mikilvæg sambönd við
Norður löndin? Ef við lokum sendiráði, til dæmis í
Kanada, þá loka þeir hér á gagnkvæmnisgrundvelli.
Ég þurfti bara að sparka af mér háu
hælunum og njóta þess sem landið hafði upp á að bjóða
Það er ekki vinnufólk á heimilinu nema
að við kjósum það og þá borgum við þeirra laun úr eigin vasa.
„Ætli það erfiðasta séu ekki flutningarnir. Þeir geta verið afskaplega erfiðir fyrir fjölskyldur diplómata en eru á sama tíma mjög spennandi," segir Hjálmar W. Hannesson, aðalsræðimaður Íslands í Winnipeg.
ÍSLENSKA LEIÐIN 2013 | 9
Þá færi nú lítið fyrir sparnaði og yrði jafnvel tap
fyrir íslenska hagkerfið í heild.”
Aðspurður segir Hjálmar að fyrir þá stjórn mála
fræðinema sem hafa áhuga á diplómatastarfinu sé
mikilvægt að hafa reynslu í farteskinu.
„Fyrst og fremst þarf að hafa a.m.k. masterspróf,
helst í einhverju tengdu alþjóðastjórnmálum og
skrifa góða mastersritgerð um eitthvað tengt Íslandi
og um heiminum. Til að öðlast reynslu væri sniðugt
að sækja um starfsnám í utanríkisráðuneytinu
eða hjá alþjóða stofnunum, því meiri reynsla, því
betra.”
Hjálmar og kona hans Anna, fagna nú í apríl
47 ára brúðkaupsafmæli sínu og hefur Anna sinnt
sendi herrafrúarstarfinu af miklum áhuga.
Hún segir að flestar íslenskar sendiherrafrúr
vinni heilmikið og þetta snúist auðvitað mikið um
sam starf hjónanna. Ríkið fái í raun “tvo fyrir einn”.
,,Það er ekki ætlast til þess að við (sendiherrafrúr)
vinnum úti og það myndi alls ekki ganga í mörgum
löndum, til dæmis í Bandaríkjunum, vegna
atvinnu leyfis og þess háttar.”
Er alltaf vinnufólk sem sinnir heimilinu í sendi
ráðsbústöðum?
,,Nei, það er ekki vinnufólk á heimilinu nema
að við kjósum það og þá borgum við þeirra laun
úr eigin vasa. Stundum er það þannig, til dæmis
eins og í Washington, að þá höfðu fyrrum sendi
herrahjónin verið með konu í vinnu á heimilinu
og við héldum henni þegar við tókum við. Þar er
mikið um heimsóknir og gott að vera með hjálp en
Það var búið að tengja fyrir okkur
fína þvottavél sem henni leist ekki alveg nógu vel á og með aðstoð bílstjórans, sem talaði góða ensku, kom í ljós að hún óskaði eftir því að keypt yrði þvottabretti! Henni fannst þvottavélin hreinlega ekki þvo nógu vel og var vön að þvo á þvottabretti svo það var auðvitað keypt í snatri.
Hjálmar og Anna ásamt Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, og konu hans Michelle Obama.
ein af skyldum sendiherra er að halda móttökur og
matar boð í sendiherrabústöðunum.”
Anna hefur alls ekki setið aðgerðalaus sem
sendi herrafrú og hefur alltaf tekið virkan þátt í
margs konar félagsstörfum. Í New York t.d. stofnaði
hún ásamt fleiri eiginkonum diplómata félagið
UN Women for Peace sem hefur styrkt konur til
masters náms við friðarháskólann í Costa Rica. ,,Við
vildum vekja fólk til umhugsunar á stöðu kvenna í
heiminum. Við héldum góðgerðaviðburði eins og
tíðkast í NY, meðal annars stóra menningarveislu
í allsherjarþingssalnum þar sem peningum var
safnað. Fyrsta árið styrktum við fjórar konur til
náms og höfum nú styrkt alls tólf konur frá stofnun
félagsins.” Anna var fyrsti formaður félagsins og
situr enn í stjórn þess. Á Stokkhólmsárunum var
Anna formaður félags diplómatakvenna, svo fátt
eitt sé nefnt.
Beðin að rifja upp eftirminnileg og skemmtileg
dæmi úr lífi sendiherrafrúarinnar segir Anna að
sem betur fer sé svo margt skemmtilegt við þetta
starf.
,,Ég hef haft mjög mikla ánægju af dvöl okkar, á
öllum þeim stöðum sem við höfum verið á, en Kína
var örugglega mesta upplifunin, en um leið var
erfiðast að flytja þangað. Þar er mikil mengun og
óhreinindi sem við á Íslandi erum ekki vön en ég
þurfti bara að sparka af mér háu hælunum og njóta
þess sem landið hafði upp á að bjóða. Ég slóst í hóp
með konum sem hjóluðu reglulega um Peking og
þannig kynntist ég borginni á mjög skemmtilegan
hátt. Ætli ein skemmtilegasta sagan sé ekki frá því
við vorum í Peking, en þá var kona sem kom til
okkar og sá um þvottinn ásamt öðru. Það var búið
að tengja fyrir okkur fína þvottavél sem henni leist
ekki alveg nógu vel á og með aðstoð bílstjórans,
sem talaði góða ensku, kom í ljós að hún óskaði
eftir því að keypt yrði þvottabretti! Henni fannst
þvotta vélin hreinlega ekki þvo nógu vel og var vön
að þvo á þvotta bretti svo það var auðvitað keypt í
snatri.”
Íslenska leiðin þakkar hjónunum Hjálmari og
Önnu fyrir viðtalið og óskar þeim velfarnaðar í
Winnipeg.
Bran
denb
urg
10 | ÍSLENSKA LEIÐIN 2013
Bran
denb
urg
Stjórnmálafræðingar í atvinnulífinu
LILJA KRISTJÁNSDÓTTIR HAFÐI SAMBAND VIÐ STJÓRNMÁLAFRÆÐINGA
BENEDIKT VALSSONHraðfréttamaður í Kastljósi Rúv
Hvenær útskrifaðist þú úr stjórnmálafræði? Ég er enn óútskrifaður. Tók mér ársleyfi vegna vinnu en á smotterí eftir.
Hvernig hefur stjórnmálafræðimenntun hjálpað þér á þínum starfsvettvangi? Innan fjölmiðlageirans þarf maður að vera vakandi fyrir því sem er í gangi í samfélaginu. Það er því afar mikilvægt að vita hvernig stjórnkerfið fúnkerar. Þó ég starfi við annars konar fréttaöflun en gengur og gerist þá þarf maður alltaf vera á tánum.
Hvað fannst þér eftirminnilegast úr náminu? Tímarnir hjá Hannesi Hólmsteini, þar var engin lognmolla.
Hver er uppáhalds pólitíkusinn þinn og hvers vegna? Álfheiður Ingadóttir er í sérstöku uppáhaldi, þá aðallega vegna þess að hún auglýsti Hraðfréttir í ræðustól Alþingis. Annars hef ég mjög gaman af Kötu Jak, hún er svo létt í lund eitthvað.
Hvað er draumastarfið þitt? Að vinna í sjónvarpi hefur alltaf verið draumur og þar er ég.
Hefurðu einhver ráð fyrir núverandi stjórnmálafræðinema? Ég mæli ekkert með því að fara í svona leyfi, nema rík ástæða sé til.
GÍSLI MARTEINN BALDURSSONBorgarfulltrúi í Reykjavík
Hvenær útskrifaðist þú úr stjórnmálafræði? 2008, eftir langt hlé. Ég var „næstum því” búinn þegar ég fékk vinnu hjá Sjónvarpinu 1997, og hið stutta hlé sem ég ætlaði að taka mér varð að 10 árum.
Hvernig hefur stjórnmálafræðimenntun hjálpað þér á þínum starfsvettvangi? Ég man eftir nokkrum mjög praktískum kúrsum, t.d. um Evrópumál, stjórnmálahagfræði og ýmislegt annað sem oft nýtist enn þann dag í dag. Svo eru það kúrsarnir sem koma í veg fyrir að maður geri sig að fífli í almennri þekkingu á stjórnmálasögu landsins. Þá varð ég fyrir miklum áhrifum af þeirri stjórnmálaheimspeki sem Hannes Hólmsteinn kenndi og var þá einn vinsælasti kúrsinn í náminu. Maður sér alltaf betur og betur hvað kenningar Platós og gömlu meistaranna eru stórkostlegar og geta ennþá kennt manni margt.
Hvað fannst þér eftirminnilegast úr náminu? Ætli ég segi ekki bara kennararnir, skemmtilegustu kennslubækurnar, stemmningin í Odda og
vísindaferðirnar! Annars fór ég fljótlega í Vöku og megnið af tímanum fór í það sem kalla má praktíska stjórnmálafræði á vettvangi stúdentaráðs.
Hver er uppáhalds pólitíkusinn þinn og hvers vegna? Ég sé það alltaf betur og betur hvað fólk fer
í stjórnmál af ólíkum ástæðum. Ég kann mjög að meta stjórnmálamenn úr öllum flokkum sem hafa eitthvað greinilegt erindi, eða hugmyndir um það hvernig þjóðfélagið eða borgin gæti verið betra. Slíkir stjórnmálamenn eru í uppáhaldi hjá mér, jafnvel þótt ég sé ekkert endilega sammála stefnu þeirra. Allt of margir eru í stjórnmálum valdanna vegna. Slíkir menn eru stundum kallaðir “sleipir” eða “pólitískir refir” og stundum er jafnvel talað um þessa eiginleika af nokkurri virðingu (þeir sem hafa séð House of Cards vita hvers konar stjórnmálamenn ég er að meina). Ég ber enga virðingu fyrir slíku. Ég
ætla nú ekkert að nefna nein nöfn hérna heima, því þetta eru vinnufélagar mínir.
En af útlendum stjórnmálamönnum sem mér finnst standa sig vel, get ég nefnt Boris Johnson borgarstjóra Lundúna. Hann er að gera Lundúni að betri borg með því að minnka bílaumferð, stækka svæðin fyrir gangandi, hjólandi, standandi, sitjandi, talandi eða syngjandi og með því gerir hann borgina skemmtilegri og öruggari. Allt hlutir sem við viljum gera hér í Reykjavík líka.
Hvað er draumastarfið þitt? Borgarfulltrúi í Reykjavík. Ég er ekki að djóka. Besta starf í heimi ef maður hefur áhuga á borgarmálum.
Hefurðu einhver ráð fyrir núverandi stjórnmálafræðinema? Ég veit nú ekki hvað Ólafi Þ. Harðarsyni finndist um það að ég væri að gefa ykkur ráð! Jæja, ætli ég segi ekki bara að best sé að lesa góðu kennslubækurnar, hlusta vel á góðu kennarana því þeir hafa margt gott að segja. En umfram allt að njóta vel þeirra forréttinda sem okkur eru veitt með því að hafa hér (næstum) ókeypis háskóla á háu plani. Ekki taka því sem sjálfsögðum hlut.
ERLA ÓSK ÁSGEIRSDÓTTIRMarkaðsstjóri Handpoint
Hvenær útskrifaðist þú úr Stjórnmálafræði? Ég útskrifaðist með BA gráðu árið 2004 og MPA gráðu í stjórnsýslufræðum 2012.
Hvernig hefur stjórnmálafræðimenntun hjálpað þér á þínum starfsvettvangi? Stjórnmálafræðin hefur nýst mér mjög vel í mínum störfum, bæði aðferðarfræðin sem mikil áhersla var lögð á þegar ég var í námi hefur reynst mikilvæg í starfi mínu sem markaðsstjóri og þekkingin á stjórnkerfinu hefur komið sér vel þegar ég hef setið á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Hvað fannst þér eftirminnilegast úr náminu? Þetta var svo frábær tími að það er erfitt að gera upp á milli en það var alltaf gaman að fara í tíma þar sem að kennararnir voru algerlega frábærir. Starf
mitt sem formaður Politica var dýrmæt og skemmtileg reynsla og það er mér minnisstætt þegar við stofnuðum Forum Politica og Íslenska leiðin var gefin út í fyrsta skipti og það er virkilega gaman að sjá að þetta tvennt lifir enn góðu lífi.
Hver er uppáhalds pólitíkusinn þinn og hvers vegna? Einu sinni var það Davíð Oddsson, hann var frábær leiðtogi á sínum tíma, skemmtilegur og útsjónasamur. Nú eru það hins vegar konurnar sem eiga sviðið að mínu mati Hillary Clinton, Angela Merkel og Hanna Birna Kristjánsdóttir (stjórnmálafræðingur). Þær hafa allar látið taka til sín á vettvangi stjórnmálanna og eiga það sammerkt að vera ástríðufullar, hugrakkar, staðfastar og samkvæmar sjálfum sér. Ég fíla það!
Hvað er draumastarfið þitt? Ég er alltaf í draumastarfinu mínu hverju sinni. Ég markaðsstjóri hugbúnaðarfyrirtækis og það starf hefur reynst virkilega skemmtilegt og krefjandi. Við erum á kafi í nýsköpun og það er mjög gaman að vera þátttakandi í að breyta því hvernig fólk tekur við kortagreiðslum.
Hefurðu einhver ráð fyrir núverandi stjórnmálafræðinema? Njóta þess að læra stjórnmálafræði því þetta skemmtilega tímabil tekur enda. Ég myndi leggja áherslu á að kynnast samnemendum og kennurum vel því það eru ekki síður tengslin og fólkið sem maður kynnist sem er dýrmætt að námi loknu. Já og mig langar til að hvetja stjórnmálafræðinema til að taka þátt í félagslífinu það var dýrmæt reynsla fyrir mig sé ég bý enn að.
12 | ÍSLENSKA LEIÐIN 2013
STJÓRN POLITICA 2012-2013
FÉLAGSLÍF POLITICA 2012-2013
Frá vinstri: Kristín alþjóðafulltrúi, Berglind ritstjóri, Brynjar meðstjórnandi, Lilja nýnemafulltrúi, Ásta hagsmunafulltrúi 2. og 3. árs, Einar formaður, Bryndís gjaldkeri, Rósanna varaformaður og Viktoría skemmtanastýra.
Aðalfundur Politica 2013 verður haldinn fimmtudaginn 4. apríl. Þar verður ný stjórn Politica kosin. Kosið verður í eftirfarandi stöður: formaður, vara formaður, gjaldkeri, ritstjóri, meðstjórnandi, skemmtanastjóri, hags munafulltrúi og alþjóða fulltrúi. Frambjóðendur eru hvattir til að kynna sér lög Politica á heimasíðu okkar. Framboð skal senda á politica@hi.is og er framboðsfrestur fram að kosningum.
ÍSLENSKA LEIÐIN 2013 | 13
fíf Félag íslenskra félagsvísindamanna - www.bhm.is/fi f - s:581 2720
FélagsfræðingurStjórn-málafræ ðingurHeim-s p e k i n g u r A f b r o t a -fræðingurMannfræðin-gurÞjóðfræðingurÞróu-n a r f r æ ð i n g u r S a f n a -fræðingurTrúfræðin-gurFötlunarfræðingur
K j a r a s a m n i n g a R á ð n -i n g a r s a m n i n g a Ré tt i n -davörsluSjúkrasjóðiOr-lofssjóðStarfsmenntas-jóðKjararannsóknirStar-fsþróunarseturHagsmu-nagæsluVinnumarkaðs-ráðgjöfLögfræðiráðgjöf
Stéttarfélag allra félagsvísindamanna
Ef þú ert félagsvísindamaður: Þá getum við aðstoðað með:
Í fréttum nýlega kom fram að Ísland
væri vinalegasta þjóðin í garð erlendra
ferðamanna, Íslendingar bjóði ferðamenn
velkomna með mikilli vinsemd og hjálpfýsi
og virðast alltaf vera tilbúnir að skemmta sér
vel með ferðamönnum á skemmtistöðum
miðborgarinnar. En þar sem innflytjendamál
hafa verið ofarlega í huga mínum seinustu
árin vakti þessi frétt athygli mína og fékk mig til
þess að hugsa hver raunveruleg afstaða Íslendinga er
gagnvart útlendingum. Er þessi vinsemd Íslendinga
í garð útlendinga raunveruleg eða erum við einungis
tækifærasinnar sem reyna að hirða hverja krónu sem
ferðamenn hafa? Aldrei hef ég heyrt né lesið frétt um
hversu samvinnu eða hjálpfúsir Íslendingar eru í garð
innflytjenda. Eru ferðamenn og innflytjendur svona
ólíkir?
Samkvæmt tölum Hagstofu árið 2010 voru
26.171 innflytjandi á Íslandi sem mynda 8,2%
heildaríbúafjölda Íslands. Á góðæristímanum komu
hingað fjölskyldur í leit að betri launum og betra lífi
á Íslandi og Íslendingum fannst það ágætt þar sem
þessar fjölskyldur voru reiðubúnar til þess að vinna
þau störf sem Íslendingar vildu ekki sinna. En viðhorf
Íslendinga virðist enn einkennast af íhaldssemi,
vantrausti og einangrunarhyggju. Börn
innflytjenda virðast verða fyrir aðkasti
í skólum, innflytjendur ná oft ekki að
tengjast hinu þétta samfélagi Íslendinga,
Íslendingar eru óhræddir að finna að
íslenskukunnáttu innflytjenda og við
virðumst vera gædd einstökum hæfileikum
til að alhæfa um innflytjendur, þeir séu
allir glæpamenn eða öfgafullir múslimar. Á sama
tíma og Íslendingar lofsyngja fjölmenningarlegar
stórborgir á borð við New York og London og
fjalla iðulega um frábæra erlenda veitingastaði þá
virðast þeir ekki sjá mikinn hag í því að taka á móti
stórum hópi innflytjenda nema auðvitað þegar við
þurfum að reisa stíflur. Ég kenni mikilli fáfræði
um þetta vandamál okkar, t.d. hvað varðar trúmál.
Íslendingar virðast almennt hræddir við byggingu
mosku í Reykjavík, kristileg gildi skulu vera í
hávegum höfð og Þjóðkirkjan skal vernda menningu
okkar. Umræðan um Evrópusambandsaðild
einkennist einnig af hræðslu við útlendinga og
einangrunahyggju. Svo virðist vera að við inngöngu
Íslands inn í Evrópusambandið myndu hingað
flykkjast útlendingar í stjarnfræðilegu magni og
eyðileggja menningu okkar, tungumál og hirða af
okkur auðlindirnar. Útlenska yrði móðurmálið
og hinir varnarlausu Íslendingar myndu fljótlega
verða undirokar erlendra stórþjóða. Eitt allsherjar
samsæri. Mér dytti ekki í hug að dreifa hér áróðri
um hina mörgu kosti Evrópusambandsins en
afstaða Íslendinga gagnvart útlendingum verður að
breytast.
Fjölmenningarlegt samfélag sem sýnir hæfni til
aðlögunar að breyttum aðstæðum er betur sett til
þess að bjóða íbúum sínum betri lífskjör en önnur.
Íslendingar myndu óumdeilanlega hagnast á frekari
aðkomu innflytjenda þar sem þeir bera með sér
venjur, siði og þekkingu sem myndu lífga upp á tilveru
Íslendinga og skapa fjölbreytni. Fjölmenningarlegt
samfélag stuðlar að mun meira umburðarlyndi og
upprætir fáfræði og kynþáttahyggju. Minnumst þess
að án utanaðkomandi hjálpar myndum við aldrei
ganga í þeim fötum sem við notum, borða þann
mat sem við borðum eða njóta góðs af þeirri tækni
sem einmitt útlendingar hafa skapað. Í samanburði
við þá verðum við alltaf litlu eyjaskeggjarnir sem
þurfa á hjálp að halda. Innflytjendur eru komnir til
að vera og vinna að þvíað skapa gott samfélag fyrir
alla en ferðamennirnir koma og fara. Hverjir eru
mikilvægari?
Vinalega þjóðin
Viktor Stefánsson
VIÐHORF14 | ÍSLENSKA LEIÐIN 2013
fíf Félag íslenskra félagsvísindamanna - www.bhm.is/fi f - s:581 2720
FélagsfræðingurStjórn-málafræ ðingurHeim-s p e k i n g u r A f b r o t a -fræðingurMannfræðin-gurÞjóðfræðingurÞróu-n a r f r æ ð i n g u r S a f n a -fræðingurTrúfræðin-gurFötlunarfræðingur
K j a r a s a m n i n g a R á ð n -i n g a r s a m n i n g a Ré tt i n -davörsluSjúkrasjóðiOr-lofssjóðStarfsmenntas-jóðKjararannsóknirStar-fsþróunarseturHagsmu-nagæsluVinnumarkaðs-ráðgjöfLögfræðiráðgjöf
Stéttarfélag allra félagsvísindamanna
Ef þú ert félagsvísindamaður: Þá getum við aðstoðað með:
Joseph Boer is a 20yearold exchange student
from Canada who currently studies Political
Science at the University of Iceland. We
asked Joseph a few questions about his expe
rience as a foreign student in Iceland.
What was it that made you decide to study in
Iceland? “In the summer of 2008, I came to Iceland
on vacation with my family. I immediately fell in
love with the country. I was captivated by Iceland’s
unique culture and the beautiful landscape. I’ll nev
er forget seeing the bright sky from my hotel room
at 3 in the morning. Since then, I’ve always known
I wanted to return to Iceland someday. As soon as I
had the chance to come here on exchange, I jumped
on the opportunity.”
Why did you pick political science? “At my home
university, my major is in International Studies, so
it was natural for me to take political science courses
on exchange here. I believe it’s important, as a Ca
nadian citizen, to follow politics in my country, as
it directly affects my life. I also enjoy learning about
political events in other countries because I have a
keen interest in travelling, and politics helps me un
derstand what happens in other parts of the world.”
Do you think that the teaching differs a lot from
your home University? If yes, in what way ? “Gener
ally, I find that courses here are of the same quality
as my courses back home. However, I have an ad
vantage in the English classes here, since I’m a na
tive English speaker. Back home, I take many of my
courses in French, my second language, so to speak
the course language more fluently than the other
students is a big change.”
What are the highlights of your stay so far? “I
have so many fantastic memories of my time here
that it’s hard to narrow it down. Last semester, I
went on a trip to the East Fjords with some other
international students, and many of the sights we
saw were incredibly beautiful. I'm also happy I’ve
been able to see the northern lights. I never saw
them before coming to Iceland, but seeing the
northern lights is an unforgettable experience.”
What is the weirdest thing you‘ve come across
here in Iceland? “The strangest thing so far in Ice
land was definitely Þorrablót. I’ve never eaten or
seen such strange food in my life, and I will never
forget the taste of hákarl. I also really enjoy the pig
logo of Bónus because of its bizarre expression. For
Christmas, I gave my Canadian friends Bónus shop
ping bags, and they all enjoy the bags because of
how strange the pig looks!”
Do you believe that your stay in Iceland will
benefit you in some way in the future? “My time
in Iceland has already transformed my life. Before
I came here, I was unsure if I would be able to cope
on my own in an unfamiliar country. Fortunately,
I found a great, supportive community of friends,
which made this the greatest experience of my life
so far. In the future, I hope to live outside of Canada
again, and because of my time in Iceland, I’m con
fident in my ability to step out of my comfort zone
and thrive.”
Being a foreign student at the Political Science Department
EFTIR LILJU KRISTÍNU BIRGISDÓTTUR OG BERGLINDI JÓNSDÓTTUR
Boer says he immediately fell in love with Iceland while on holiday here in 2008.
SÍMI 58 12345
W W W.DOMINOS.IS
DOMINO’S APPPANTAÐU MEÐ APPI EÐA Á NETINU
UGNÖGNIE MUTON ÐIV
TSO NAKSNELSÍ %001
ÍSLENSKA LEIÐIN 2013 | 15
Eftir Kristínu Arnórsdóttur, alþjóðafulltrúa Politica
Eins og margur veit stendur
stjórnmálafræði nemum á 2. og
3. ári í grunnnámi til boða að
fara í námsferð á vorönn. Ef
áhugi er fyrir námsferð meðal nemenda er kosið
á milli áfangastaðanna Brussel í Belgíu og New
York og Washington í Bandaríkjunum. Það
varð ljóst nokkuð snemma að meiri áhugi var
fyrir Bandaríkjunum meðal nemenda, og því var
stefnan sett vestur um haf strax í október á seinasta
ári. Þá tók við margra mánaða skipulags og
fjáröflunarverkefni nemendahópsins og má segja að
undirbúningsvinnan sem nemendur stóðu að hafi
gengið einstaklega vel upp.
Alls fóru 25 nemendur í ferðina, en auk þeirra
fengum við Jón Gunnar Ólafsson, aðjúnkt í stjórn
mála fræðideild og alhliða snilling, með okkur í
ferðina sem kennara fagsins. Það var mikið happ
fyrir námsferðalanganna að fá Jón Gunnar í þetta
verkefni, enda stóð hann fyrir meirihluta þeirra
heim sókna sem hópnum bauðst að sækja.
Flogið var til New York frá Keflavík, föstu
daginn 1. mars síðastliðinn. Hópurinn hittist á Leifi
Eiríks, en þar skiptust nemendur á að aðvara hvorn
annan um stranga landamæraverði á flug völlum
í Bandaríkjunum. Sem betur fer lenti þó enginn í
vandræðum þegar út var komið, fyrir utan alþjóða
fulltrúann sem fékk leiðinlega ræðu um fingra
skannann frá einum landamæraverðinum.
Því næst safnaðist hópurinn saman í tveimur
glæsi kerrum sem fluttu þá að forláta hóteli í efra
vestur hverfinu (Upper West side) í New York. Eftir
að allir höfðu komið sér fyrir fór hópurinn saman út
að borða á veitingastaðnum El Malecón, sem mat
reiðir rétti frá Dómeníska lýðveldinu. Það má segja
að maturinn hafi komið flestum að óvart þar sem
nánast enginn vissi hvað hann var að panta.
Laugardagurinn var svo mest megnis frídagur,
fyrir utan heimsókn í NYU (New York University)
þar sem nemendur í stjórnmálafræðideild skólans
tóku á móti okkur og fræddu okkur um bandarísk
stjórn mál og kosningar. Nemendurnir áttu það
sameiginlegt að hafa unnið á kosningaskrifstofu
fyrir forsetaframbjóðanda fyrir kosningarnar 2012.
Eftir hringumræður með nemendunum í skólanum
fóru þau með okkur á matsölustaðinn Amity Hall
þar sem námsferðalöngum gafst kostur á að taka þau
eintali um hin ýmsu málefni.
Á mánudagsmorgni mættu nemendur svo
hressir í morgunmat eftir annan frídag í stóra eplinu.
Því miður var morgunmaturinn á hótelinu ekki upp
á marga fiska en það spilti þó ekki eftir væntingu
hópsins fyrir heimsóknum dagsins. Byrjað var á ferð
í Sameinuðu þjóðirnar þar sem okkur var skipt í tvo
hópa sem fékk hver sinn leið sögumann. Það var ys og
þys í aðalbyggingunni útaf árlegri kvennaráðstefnu
sem byrjaði á sama degi. Alls staðar mátti sjá konur
í fallegum þjóðbúningum og aðalþingsalurinn var
þétt setinn af fulltrúum land anna.
Eftir heimsóknina lá leið okkar til fulltrúa í
Maltnesku riddarareglunni (Sovereign Military
Order of Malta) sem bauð okkur í heimsókn á
sendi skrifstofu sína og ræddi við okkur um starf
semi reglunnar. Því næst flýtti hópurinn sér á Time
Square í hjarta borgarinnar þar sem við áttum
bókaða heimsókn til ritsjórans Toni Reinhold
hjá Reuters. Dagurinn endaði svo á heimsókn á
skrif stofu fastanefndar Íslands hjá Sameinuðuðu
þjóðunum.
Þriðjudagurinn var svo seinasti dagur nemenda
í New York. Dagurinn byrjaði á heimsókn í
skemmtileg grasrótar hagsmunasamtök sem kallast
NYPRIG (New York Public Interest Research
Group). Samtökin vinna meðal annars að því að
hvetja nemendur og ungt fólk í Bandaríkjunum til
að skrá sig á kosningaskrá (þess má geta að Barack
Obama er fyrrverandi meðlimur samtakana).
Seinni heimsóknin var svo hringborðsumræða með
Dr. Cörlu Ann Robbins hjá Council on Foreign
Relations. Eftir heimsóknina tóku nemendur svo
rútur til Washington DC en þar kom hópurinn sér
fyrir á hefðbundnu farfuglaheimili (Youth Hostel).
Miðvikudagsmorguninn í Washington var
heldur dauflegur. Veðurspáin gerði ráð fyrir snjó
stormi í borginni (Snow Storm Saturn) og því var
nánast allt lokað og enginn á ferð nema hópur af
létt klæddum Íslendingum. Heimsóknirnar sem
höfðu verið bókaðar þann daginn héldust þó mest
megnis eftir áætlun, og við byrjuðum daginn á
heim sókn í American Foreign Service Association
og skoðunarferð um Utanríkisráð Bandaríkjanna.
Ferðadagbók alþjóðafulltrúa
Námsferð til Bandaríkjanna í mars 2013
Texti: Kristín ArnórsdóttirLjósmyndir: Salka Margrét Sigurðardóttir
16 | ÍSLENSKA LEIÐIN 2013
Seinni part dagsins heimsóttum við íslenska
sendi ráðsbústaðinn á Kalorama Road þar sem
Guðmundur Árni Stefánsson og samstarfsmaður
hans Erlingur Erlingsson tóku vel á móti okkur.
Nemendahópurinn tók fimmtudaginn ein stak
lega snemma með heimsókn í Pentagon þar sem
við byrjuðum á skoðunarferð um bygginguna.
Leið sögumennirnir okkar voru algjörir snillingar,
strákur í sjóhernum og stelpa í flughernum, bæði
voru þau meistarar í gríni og að ganga aftur á
bak. Eftir skoðunarferðina var okkur svo boðið
að ræða við starfsmenn Pentagon sem fengust við
málefni Íslands. Eftir hádegið lá síðan leið okkar
í þinghúsið, þar sem við fengum skoðunarferð og
glimmrandi flotta fyrirlestra um hin ýmsu listaverk
í þeirri margbrotnu byggingu.
Það var vægast sagt mikil eftirvænting fyrir
föstudags morgninum, en þá áttum við bókaða
heim sókn í Hvíta húsið. Okkur barst tilkynning
um það að öllum heimsóknum í Hvíta húsið
skyldu verða aflýst frá og með laugardeginum 9.
mars vegna sparnaðar hjá ríkinu (þar með mun
fólk ekki geta fengið að heimsækja hvíta húsið í
fram tíðinni uns kostnaðarmál verða leyst) og því
rétt sluppum við inn meðal seinustu gestanna í bili.
Eftir hádegið héldum við svo á skemmtilegan fund
með stategistanum Will Marshall, sem hefur meðal
annars unnið fyrir Bill Clinton.
Laugardagurinn var fyrsti frídagur nemenda í
Washington. Flestir nýttu hann til að skoða söfn og
minnis varða eða versla og rölta um borgina. Tvær
val heimsóknir stóðu nemendum til boða á laugar
deginum, heimsókn í Fox News, og heimsókn og
skoðunar ferð í Georgetown University.
Ferðin okkar endaði á sunnudeginum,
nemendur fengu frí um morguninn í glimrandi sól
og hita til að kíkja á seinustu staðina í Washington
áður en lúxusrútan sem við leigðum kom og sótti
okkur.
Námsferðin var í fáum orðum einstaklega
lær dómsrík og skemmtileg. Frábær hópur af
nemendum, frábærar heimsóknir og ómetanleg
innsýn inn í stjórnmál frá ýmsum sjónarhornum.
Við viljum nýta tækifærið og þakka þeim sem
styrktu okkur með gjöfum. Hafliða Ragnarssyni
og konfekt.is sem gáfu okkur einstaklega flotta og
girni lega konfektkassa, 66° norður sem gaf okkur
fallegar húfur og bókaútgáfuna Bjart sem gaf okkur
vandaðar ljósmyndabækur. Einnig viljum við
þakka Háskóla bíói fyrir aðstoð við fjáröflun.
Að ofan: Fyrir utan Hvítahúsið.
Til hliðar: Hópurinn í Council of Foreign Relations.
ÍSLENSKA LEIÐIN 2013 | 17
Sturlaðar staðreyndir um stjórnmálafræði
KAREN KRISTINE PYE TÓK SAMAN ÁHUGAVERÐAR STAÐREYNDIR UM FAGIÐ OKKAR
7 af 63 Alþingismönnum eru
með B.A. gráðu í Stjórn-málafræði.
Ólafur Ragnar Grímsson er stjórnmálafræðingur að
mennt
OBA
MA
SA
FNA
R SP
IDER
MA
N O
G C
ON
AN
TH
E BA
RBA
RIA
N T
EIK
NIM
YND
ASÖ
GU
MÍ Hvíta Húsinu
eru 132 herbergi
og 35 baðherbergi...
... og það koma um það bil
6000 gestir á dag þangað að
skoða
Abraham Lincoln
var með réttindi
sem barþjónn.
George W. Bush var yfir klappstýruliðinu í skólanum
sínum.
Allir alskeggj-aðir forsetar
Banda ríkjanna hafa verið
repúblikanar.
Stjórnmálafræði hefur verið kennd við Háskóla Íslands
frá árinu 1970, fyrst við Námsbraut í þjóðfélagsfræði
en síðar (frá 1976) við félagsvísindadeild
10Tíu örlátustu ríkisstjórnir
heims (í tengslum við GDP) eru allar í Evrópu.
Í Fiji, Chile og Egyptalandi gætir þú lent í fangelsi fyrir að
kjósa ekki.
WINSTON CHURCHILL fæddist inni á kvennaklósetti á
miðju balli.
Stærstiskemmtistaður
í heimi!
Þú finnur Nova
appið í App Store
og Play Store sem
Nova Iceland!
da
gu
r &
st
ein
i
18 | ÍSLENSKA LEIÐIN 2013
Stærstiskemmtistaður
í heimi!
Þú finnur Nova
appið í App Store
og Play Store sem
Nova Iceland!
da
gu
r &
st
ein
i
Recommended