View
3
Download
0
Category
Preview:
Citation preview
Meistaranám í íþróttafræðum
MSc í íþróttavísindum og þjálfun 120 ECTS
MSc Exercise Science and Coaching
MEd í Heilsuþjálfun og kennslu 120 ECTS MEd Sport and Health Education
Íþróttafræðisvið
október 2013
Háskólinn í Reykjavík
Efnisyfirlit
MEd í Heilsuþjálfun og kennslu ......................................................................................... 3
MSc í Íþróttavísindum og þjálfun ....................................................................................... 3 Yfirlit yfir námskeið ........................................................................................................... 4 MEd í Heilsuþjálfun og kennslu. ........................................................................................ 4 Aðferðafræði rannsókna E-702-REME .......................................................................... 6 Árangursríkir og nýir kennsluhættir E-826-ANKE ......................................................... 7
Heilsuefling; aðferðir og skipulag E-727-HPMO ........................................................... 8 Hagnýt heilsuþjálfun og heilsuefling E-830-EFHP ...................................................... 10
Íþróttamælingar og rannsóknir E-715-ETPR ................................................................ 11
Kennsluæfingar E-829-TEAC ....................................................................................... 12 Lausnamiðuð leikni og jákvæð samskipti E-827-LAUS .............................................. 12 Mat og matsaðferðir E-112-MATM ................................................................................ 13 Nám, þroski og rannsóknir E-713-NTHR ..................................................................... 15
Námsefnisgerð E-835-NAGE ...................................................................................... 15 Ráðstefnur og verkefni E-743-COPO .......................................................................... 16
Sálræn þjálfun og liðsheild E-726-PSSP ....................................................................... 18 Siðfræði E-720-ETHI ................................................................................................ 19 Sjálfstætt verkefni E-718-IDEP .................................................................................... 19
Skipulag og mat skólastarfs E-726-SKMS ................................................................... 20
Stefnumótun og stjórnun E-714-POAD ....................................................................... 22 Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva E-709-EXPH .............................................. 22 MSc í Íþróttavísindum og þjálfun. .................................................................................... 24
Aðferðafræði rannsókna E-702-REME ........................................................................ 25 Endurheimt og næring í íþróttum E-725-SPNU ............................................................ 27
Hagnýt tölfræði E-707-APST ........................................................................................ 27 Hugmyndafræði og skipulag þjálfunar E-716-PTTR .................................................... 28 Íþróttamælingar og rannsóknir E-715-ETPR ................................................................ 29
Meistararitgerð E-899–THES ........................................................................................... 30 Sálræn þjálfun og liðsheild E-726-PSSP ....................................................................... 32
Siðfræði E-720-ETHI ................................................................................................ 32 Sjálfstætt verkefni E-718-IDEP .................................................................................... 33 Tæki og tækni við íþróttamælingar E-721-EXTP ........................................................ 34
Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva E-709-EXPH .............................................. 35 Þjálfunarlífeðlisfræði hreyfinga E-712-EPHY .............................................................. 36
3
MEd í Heilsuþjálfun og kennslu MEd Sport and Health Education
Uppsetning námsins:
Tveggja ára framhaldsnám, 120 ECTS einingar. Námið skiptist í 60 ECTS eininga nám í
kennslufræði og 60 ECTS í námskeiðum tengdum íþróttafræði og heilsuþjálfun.
Markhópur:
Námið er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í íþróttakennslu og heilsuþjálfun.
Tilgangur og markmið:
Markmið námsins er að undirbúa nemendur fyrir störf við íþróttakennslu á öllum
skólastigum og heilsuþjálfun almennings á öllum aldri og getustigum.
Forkröfur:
Ætlast er til að nemendur hafi lokið grunnnámi í íþróttafræði, sjúkraþjálfun,
heilsuþjálfun, líffræði, menntavísindum eða öðrum skyldum greinum.
Skipulag og tilhögun námsins:
Meistaranámið í heilsuþjálfun og kennslu er skipulagt sem tveggja ára nám (fjórar annir)
til 120 ECTS til MEd gráðu.
MSc í Íþróttavísindum og þjálfun
MSc Excercise Science and Coaching
Uppsetning námsins:
Tveggja ára framhaldsnám, 120 ECTS einingar. Námið skiptist í 90 ECTS eininga nám
þar sem lögð er áhersla á íþróttavísindi og 30 ECTS lokaverkefni.
Markhópur:
Námið er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í þjálfun keppnis- og afreksíþróttafólks og
rannsóknum á sviði íþróttafræði.
Tilgangur og markmið:
Markmið námsins er að undirbúa nemendur fyrir störf við rannsóknir og þjálfun á sviði
íþrótta. Sérstök áhersla verður lögð á afreksþjálfun í íþróttum og rannsóknir þeim
tengdum.
Forkröfur:
Ætlast er til að nemendur hafi lokið grunnnámi í íþróttafræði, sjúkraþjálfun,
heilsuþjálfun, líffræði eða öðrum skyldum greinum.
Skipulag og tilhögun námsins:
Meistaranámið í íþróttavísindum og þjálfun er skipulagt sem tveggja ára nám (fjórar
annir), 120 ECTS til MSc gráðu.
4
Yfirlit yfir námskeið
MEd í Heilsuþjálfun og kennslu
Aðferðafræði rannsókna E-702-REME
Árangursríkir og nýir kennsluhættir E-826-ANKE
Heilsuefling; aðferðir og skipulag E-727-HPMO
Hagnýt heilsuþjálfun og heilsuefling E-830-EFHP
Íþróttamælingar og rannsóknir E-715-ETPR
Kennsluæfingar E-829-TEAC
Lausnamiðuð leikni og jákvæð samskipti E-827-LAUS
Mat og matsaðferðir E-112-MATM
Nám, þroski og rannsóknir E-713-NTHR
Námsefnisgerð E-835-NAGE
Ráðstefnur og verkefni E-743-COPO
Sálræn þjálfun og liðsheild E-726- PSSP
Siðfræði E-720-ETHI
Sjálfstætt verkefni E-718-IDEP
Skipulag og mat skólastarfs E-726-SKMS
Stefnumótun og stjórnun E-714-POAD
Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva E-709-EXPH
MSc í Íþróttavísindum og þjálfun
Aðferðafræði rannsókna E-702-REME
Endurheimt og næring E-725-SPNU
Hugmyndafræði og skipulag þjálfunar E-716-PTTR
Hagnýt tölfræði E-707-APST
Íþróttamælingar og rannsóknir E-715-ETPR
Meistaraverkefni E-899 -THES
Sálræn þjálfun og liðsheild E-726- PSSP
Siðfræði E-720-ETHI
Sjálfstætt verkefni E-718-IDEP
Tæki og tækni við íþróttamælingar E-721-EXTP
Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva E-709-EXPH
Þjálfunarlífeðlisfræði hreyfinga E-712-EPHY
5
MEd í Heilsuþjálfun og kennslu. MEd námið er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í heilsuþjálfun og kennslu á sviði íþrótta.
Námið er samsett úr námskeiðum sem fjalla m.a. um kennslufræði, forvarnargildi
hreyfingar, áhrifaþætti heilbrigðis, skipulag og hlutverk kennarans og heilsuþjálfarans.
Einnig hvernig megi hámarka lífsgæði með skipulagðri hreyfingu á öllum aldri og
getustigum sem byggist á forsendum uppeldis- og kennslufræði, sálfræði, íþróttafræði og
lýðheilsufræði.
Við lok Meistaraprófs í heilsuþjálfun og kennslu skal eftirfarandi viðmiðum náð:
ÞEKKING OG SKILNINGUR
Við lok námsins hefur nemandi góða þekkingu og skilning á:
meginstoðum þjálffræði, kennslufræði og heilsueflingar frá innlendu og alþjóðlegu sjónarhorni
helstu hugtökum og kenningum þjálffræði, kennslufræði og heilsueflingar
helstu kenningum og aðferðum við námsmat í íþróttakennslu og við mat á skólastarfi
helstu kenningum og aðferðum við hönnun og þróun á íþróttakennslu og heilsueflingu
lögum og reglum um íslenskt skólakerfi
helstu kenningum um nám skrárgerð
aðferðum til að efla sjálfstraust og sjálfsvirðingu nemenda og gagnlegum viðtalsaðferðum
notkun upplýsinga- og samskiptatækni í skólastarfi
helstu kenningar í þ jálffræði
helstu kenningar í íþróttalífeðlisfræði
helstu kenningum heilsueflingar
helstu rannsóknaraðferðum á sviði íþrótta, kennslu og heilsueflingar
skipu lagi, stjórnun og stefnumótun við þjálfun , heilsueflingu og í íþróttakennslu, bæði innanlands og erlend is
TEGUND ÞEKKINGAR
Að loknu námi hefur nemandi tileinkað sér viðamikla þekkingu og skilning á:
fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
grundvallaratriðum námskrár og framkvæmd hennar
starfssviði og fagmennsku kennara
kennslufræði
þjálffræði
íþróttalífeðlisfræði
heilsueflingu
rannsóknaraðferðum og hagnýtingu rannsókna
alþjóðlegum straumum og stefnum í íþróttafræði, kennslu og heilsueflingu
HAGNÝT HÆFNI
Að loknu námi felst hagnýt hæfni nemanda í að geta:
nýtt sér alþ jóðlega strauma og stefnur í íþróttafræði, kennslufræði og heilsueflingu
aflað heimilda á fjölbreyttum vettvangi og beitingu skipulegra vinnubragða á
6
grunni þeirra
nýtt sér rannsóknir á sviði íþróttafræði, kennslufræði og heilsueflingar
skipu lagt heild stætt nám og einstaka námskeið
skipu lagt kennslu í samræ mi við námskrá og námskeiðslýsingu
beitt fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
kennt fjölbreyttum nemend ahóp i og ákveðið hvaða aðferð hentar mismunand i nemendahópum og mismunandi námsgreinum
tekist á við vandamál sem upp koma í starfi kennara
unnið að nýjungum og tekið þátt í þróunarstarfi
tekið þátt í uppbyggingu íþróttastarfs og heilsueflingar á þverfaglegum grunni
metið mikilvægi stefnumótunar og mats á íþróttastarfi og heilsueflingu
FRÆÐILEG HÆFNI
Að loknu námi felst fræðileg hæfni nemanda í að geta:
lesið, tú lkað og metið gæði fræðilegra greina
aflað heimilda á fjölbreyttum vettvangi og beitt skipulögðum vinnubrögðum á grunni þeirra
beitt skipu lögðum aðferðum við rannsóknir og uppbyggingu íþrótta-, kennslu- og heilsueflingarverkefna
metið hvaða leið sé árangursríkust við ólíkar aðstæður í íþróttakennslu og heilsueflingu
skilið vandamál, valið lausn ir og ú tfært í íþróttakennslu og heilsueflingu
skapað þekkingu og unnið að nýsköpun í starfi
sett fram nýjar hugmynd ir og stýrt þróunarstarfi
beitt sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýnni hugsun á vettvangi íþrótta , kennslu og heilsueflingar
HÆFNI Í SAMSKIPTUM, UPPLÝSINGALÆSI OG MIÐLUN
Að loknu námi felst hæfni nemanda í samskiptum í að:
meta mannleg samskip ti og skynja mikilvægi þess að virða hvern og einn án tillits til bakgrunns, trúarbragða, stjórnmálaskoðana
geta unnið í hóp að sameiginlegri úrlausn verkefna og leyst úr árekstrum sem kunna að verða
Að loknu námi felst hæfni nemanda í upplýsingalæsi í að:
geta lagt mat á gild i og áreiðanleika heimilda
geta lagt mat á upplýsingar um íþróttafræði og heilsueflingu Að loknu námi felst hæfni nemanda í miðlun í að:
geta tekið að sér íþróttakennslu og heilsuþ jálfun með árangursríkum hætti
geta stungið upp á, skipulagt og stjórnað verkefnum á sviði íþrótta, kennslu og heilsueflingar
geta rökrætt um íþróttaþ jálfun, íþróttastarf, kennslu og heilsueflingu á skýran og greinargóðan hátt
NÁMSHÆFNI
Að loknu námi felst námshæfni nemanda í að:
hafa frumkvæði að og geta unnið sjálfstætt að verkefnum og úrlausnum þeirra
hafa náð þeim þroska og sjálfstæði sem þarf til að geta starfað sem íþróttakennari og heilsuþjálfari
geta tileinkað sér nýja þekkingu um íþróttakennslu og heilsueflingu almennings og sett hana í viðeigandi samhengi
geta beitt viðurkenndum aðferðum og hugmynd um við lausn vandamála
7
Aðferðafræði rannsókna E-702-REME Ár: 1
ECTS: 10
Önn: Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Í námskeiðinu er farið yfir lykilatriði rannsókna í íþróttum og heilsu. Í upphafi er fjallað
um vísindaheimspeki og sjónarhorn og hvernig fjöldamargar vísindagreinar koma að
þekkingarsköpun með rannsóknum á kennslu, heilsu og heilbrigði. Fjallað er um ýmis
rannsóknarsnið og kostir þeirra og gallar teknir til skoðunar. Aðferðafræði eigindlegra og
megindlegra rannsókna er metin og hvernig svara má ólíkum rannsóknarspurningum með
þessum nálgunum. Þá er fjallað um gerðir mælibreyta, um úrtök og úrtakadreifingu og
um bjölludreifingu (normal dreifingu). Einnig er fjallað um alpha og beta villur og
mögulegar skekkjur í mælingum og um aðferðir við gagnaöflun.
Námsmarkmið:
Við lok námskeiðsins ættu nemendur að: • hafa öðlast skilning á ólíkum aðferðum
rannsókna, • þekkja til ólíkra rannsóknasniða, • geta dregið ályktanir um kosti og galla
ólíkra aðferða og mælinga, • geta hannað og skipulagt gagnaöflun með tilteknar aðferðir í
huga.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
8
Árangursríkir og nýir kennsluhættir E-826-ANKE Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Val
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Meginviðfangsefni námskeiðsins eru fjölbreyttar aðferðir við kennslu. Fjallað verður um
eiginleika árangursríkra kennsluhátta og rannsóknir að baki þeim. Kynntar verða
mismunandi kennsluaðferðir, s.s. bein kennsla, samvinnunám, lausnamiðað nám (PBL)
og uppgötvunarnám, nám sem nýtir upplýsingatækni og leiðir til að meta hvaða nálgun er
viðeigandi hverju sinni. Sérstök áhersla verður á fjölgreindarkenninguna og
einstaklingsmiðað nám, þ.e. hvernig hægt er að koma til móts við þarfir nemenda með
mismunandi bakgrunn, námshraða og áhugasvið. Gefið verður yfirlit yfir hvernig
upplýsinga- og samskiptatækni (UST) er nýtt í skólastarfi, hver staðan er, hvaða
möguleikar eru og hvað eykur eða hamlar notkun. Kynnt verða ný námsform, s.s. fjarnám
og dreifnám, og hvernig UST er nýtt í því samhengi. Námsefnisgerð og verkefnagerð á
neti verður tekin fyrir og atriði því tengd s.s. hvað forrit henta og höfundaréttur. Kynntar
verða sérstaklega aðferðir sem þykja henta við kennslu unglinga og fullorðinna.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • þekkja mismunandi kennsluaðferðir með
áherslu á kennslu unglinga og fullorðinna, • geta valið viðeigandi kennsluaðferðir sem
hæfa námsefni, aldri og getustigi nemenda og námsmarkmiðum hverju sinni, • þekkja
helstu niðurstöður rannsókna á árangri ólíkra kennsluaðferða, • geta útlistað
kennslufyrirkomulag sem kemur til móts við mismunandi þarfir nemenda, • þekkja til
notkunar upplýsinga- og samskiptatækni í skólakerfinu, • þekkja kennslufræði
tölvunotkunar og hafa kynnst nýjum kennsluformum, s.s. fjarnámi og dreifnámi, • þekkja
námsefnisgerð fyrir netið og helstu forrit sem notuð er í dag.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
9
Heilsuefling; aðferðir og skipulag E-727-HPMO Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Í námskeiðinu er saga og hugmyndafræði heilsueflingar kynnt, farið yfir helstu kenningar
sem heilsuefling byggist á og nemendum kennd aðferðafræði við skipulag
aðgerðaáætlana og íhlutana á sviði heilsueflingar. Námskeiðinu er ætlað að þjálfa
nemendur í að nýta rannsóknir, kenningar og aðferðafræði heilsueflingar við skipulag,
innleiðingu og mat á samfélagslegum íhlutunum. Áhersla er lögð á að meta aðgerðir og
íhlutanir heildrænt út frá þverfaglegu sjónarhorni og nemendum verða kynntar hagnýtar
leiðir við innleiðingu íhlutana.
Námsmarkmið:
Að loknu námskeiði ættu nemendur að; • hafa þekkingu á sögu, hugmyndafræði og
aðferðum heilsueflingar, • geta lýst tilgangi íhlutunar, mælanlegum markmiðum,
kenningarlegum grunni og þeim matsaðferðum sem notaðar eru við skipulag
aðgerðaáætlana, • hafa færni í að framkvæma þarfagreiningu fyrir mismunandi
heilsueflandi aðgerðir, • geta þróað og sett fram tilgang og mælanleg markmið fyrir
heilsueflandi aðgerðir, • hafa færni í að greina, rökstyðja og ákvarða mismunandi leiðir
við framkvæmd íhlutana, • geta greint og fundið mismunandi viðfangsefni og bjargráð
sem henta hverju sinni við að ná fram sem bestum árangri við íhlutanir, • hafa öðlast
skilning á samhenginu milli skipulagningar- og matsferlisins og vera færir um að setja
viðeigandi matsaðferðir inn í skipulagsferlið, • vera færir um að nýta skipulagsmódel við
skipulag og mat á aðgerðaáætlunum og íhlutunum sem ná eiga til samfélagshópa.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
10
Hagnýt heilsuþjálfun og heilsuefling E-830-EFHP Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Fjallað verður um aðferðir til að efla heilsu almennings á markvissan hátt með áherslu á
aldraða. Farið verður yfir nýjustu rannsóknir og stefnu stjórnvalda í heilsueflingu.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • þekkja helstu aðferðir til heilsueflingar, •
þekkja nýjustu rannsóknir á þessu sviði, • þekkja félags-og efnahagslegum stöðu
lýðheilsu, • skilja stöðu lýðheilsu í tengslum við hreyfingu og þjálfun almennings á
Íslandi, • skilja þau lögmál sem gilda þegar efla á heilsu almennings, • hafa kynnst
heilsueflandi verkefnum sem eru í gangi og tekið þátt í heilsueflingu almennings, • kunna
að skipuleggja heilsueflandi verkefni fyrir einstaklinga/hópa sem þurfa sérstaklega á því
að halda t.d. vegna heilsubrests eða aldurs.
Námsmat: Verkefni, verklegar æfingar og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni, verklegar æfingar og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
11
Íþróttamælingar og rannsóknir E-715-ETPR Ár: 1/2
ECTS: 5
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Enginn
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Námskeiðið skiptist annars vegar í fræðilega umfjöllun um mæliaðferðir og hins vegar í
verklega færni við framkvæmd mælinga á líkamsástandi á íþróttamönnum og almenningi.
Áhersla verður lögð á aðferðir, forsendur þeirra og gagnsemi og notkun tækjabúnaðar við
mælingar og mat á líkamsástandi og líkamssamsetningu. Í fræðilegri umfjöllun er gert ráð
fyrir málstofum þar sem nemendur kynna niðurstöður úr rannsóknum er tengjast
matsaðferðum og líkamsástandi almennings og íþróttamanna.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • þekkja og hafa öðlast hæfni til að nota
algengustu mælitæki við mat á líkamsástandi og líkamssamsetningu íþróttamanna og
almennings , • þekkja tæknilegar, lífeðlisfræðilegar og eðlisfræðilegar forsendur fyrir
virkni mælitækjanna, • þekkja helstu og nýjustu rannsóknir á líkamsástandi og
líkamssamsetningu íþróttamanna og almennings, • hafa þjálfast í að gera grein fyrir
niðurstöðum rannsókna og skapa umræður um þær.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
12
Kennsluæfingar E-829-TEAC Ár: 1
ECTS: 10
Önn: Vor/Haust
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Að hafa lokið 30 einingum í MEd
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Lögð áhersla á að þjálfa nemendur í góðum og árangursríkum kennsluaðferðum með
áherslu á kennslu unglinga og fullorðinna. Lögð verður áhersla á að þeir kynnist af eigin
raun mismunandi kennsluaðferðum, skipuleggi kennslu útfrá mismunandi aðferðum og
æfi sig í að beita þeim í raun. Nemendur þekki helstu einkenni unglinga og fullorðna sem
námsmanna og skoði hlutverk kennarans í því samhengi. Nemendur kynnist
kennslutækjum og notkun þeirra og þjálfist í framsögn. Nemendur þjálfast í kennslu við
raunverulegar aðstæður. Lögð er áhersla á að nemendur þekki námsskrárgerð,
markmiðssetningu við námsskrárgerð og þekki fjölbreyttar aðferðir við námsmat
Námsmarkmið:
Að námskeiðinu loknu er stefnt að því að nemar: • þekki í raun beitingu árangursríkra
kennsluaðferða í kennslu, • geti skipulegt kennslu miðað við ólík námsmarkmið, • hafi
öðlist færni í framsögn, framsetningu efnis, • þekki til notkunar á algengustu
kennslutækjum, • þekki lög og reglur um íslenskt skólakerfi s.s. gildandi aðalnámsskrám,
• þekki helstu kenningar í námskrárfræðum, • þekki fjölbreyttar aðferðir til að meta
námsframvindu nemenda og geta metið áreiðanleika og réttmæti ólíkra matsaðferða, •
geti hannað einföld matstæki til að meta námsframvindu nemenda með hliðsjón af
námskrá og markmiðum.
Námsmat: Verkefni og verklegt próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni, kennsluþjálfun og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
13
Lausnamiðuð leikni og jákvæð samskipti E-827-LAUS
Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að þekkja aðferðir: til að efla sjálfstraust og
sjálfsvirðingu nemenda sem og áhugahvöt nemenda. Kynntar verða aðferðir til að efla
markviss vinnubrögð nemenda, auka sjálfstæði þeirra í námi og færni til að takast á við
margvísleg verkefni á skipulagðan hátt. Einnig verður fjallað um leiðir til að auka færni
nemenda í lausnamiðaðri leikni og jákvæðum samskiptum. Fjallað verður um
viðurkenndar viðtalsaðferðir og aðferðir til að hvetja nemendur til þátttöku í námi s.s.
„Motivational Interviewing“. Fjallað verður um námsvenjur og aðferðir er varða
námstækni og námsskipulag og þætti sem geta haft áhrif á námsframvindu eins og kvíða,
frestun og streitu. Brottfall, skilgreiningar hugtaksins og ástæður þess verða til
umfjöllunar ásamt stuðningi og fyrirbyggjandi aðgerðum.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • þekkja aðferðir til að efla sjálfstraust og
sjálfsvirðingu nemenda, • þekkja aðferðir til að efla áhugahvöt nemenda og ýta undir
rökhugsun, • þekkja aðferðir til að draga úr neikvæðri hegðun, • viðtalsaðferðir s.s.
„Motivational Interviewing“, • þekkja aðferðir til að auka lausnamiðaða leikni nemenda
og skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð, • þekkja aðferðir til þess að efla vinnubrögð
nemenda og sjálfstæði í námi• þekkja helstu ástæður brotthvarfs og hvernig vinna má
gegn því, • helstu þætti sem geta hamlað námsframvindu.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
14
Mat og matsaðferðir E-112-MATM Ár: 1/2
ECTS: 5
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Val
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Megin viðfangsefni námskeiðsins eru námsmat og matsaðferðir. Farið verður yfir
mismunandi aðferðir við að meta námsframvindu nemenda með tilliti til réttmætis og
áreiðanleika en einnig kennsluhátta. Áhersla er lögð á að nemendur geti valið um
námsefni og kennsluaðferðir miðað við námsmarkmið og nemendahóp og geti einnig
metið hvaða námsmatsaðferðir henta best hverju sinni.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að:• þekkja fjölbreyttar aðferðir við mat á
námsframvindu nemenda og geta metið áreiðanleika og réttmæti ólíkra matsaðferða, •
geta hannað einföld matstæki til að meta námsframvindu nemenda með hliðsjón af
námsskrá og markmiðum, • geta metið stöðu nemenda, sett fram námsmarkmið, valið
námsefni og kennsluaðferðir með hliðsjón af niðurstöðum mats og þörfum nemenda.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
15
Nám, þroski og rannsóknir E-713-NTHR Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Gefið verður yfirlit yfir helstu kenningar um nám og þroska barna og unglinga og hvernig
þær tengjast mismunandi nálgunum að kennslu. Kynntar verða stefnur um nám og
kennslu sem eru framarlega á nýrri öld. Fjallað verður um rannsóknir innan náms- og
þroskasálfræði á áhrifum erfða og umhverfisþátta á þroska einstaklinga á ýmsum sviðum.
Einnig verður vikið að ýmsum álitamálum innan námssálfræði og rök með og á móti
vegin með hliðsjón af niðurstöðum rannsókna. Gefið yfirlit yfir aðferðir sem notaðar eru
við rannsóknir á skólastarfi. Fjallað verður um mismunandi rannsóknarsnið, aðferðir við
gagnasöfnun, úrvinnslu og túlkun niðurstaðna. Nemendur fá þjálfun í að lesa og meta
rannsóknargreinar með tilliti til þess hvernig nýta megi niðurstöður þeirra í kennslu.
Námsmarkmið:
Að námskeiðinu loknu ættu nemendur að: • hafa kynnst kenningum innan náms- og
þroskasálfræði og kennslunálgunum tengdum þeim, • þekkja til umræðu dagsins um
náms- og kennsluaðgerðir, • þekkja helstu rannsóknarsvið í náms- og þroskasálfræði,
• þekkja helstu rannsóknaraðferðir sem nýttar eru við rannsóknir á skólastarfi, • vera færir
um að nota vefleitarvélar til að finna rannsóknargreinar um tiltekið efni, • geta metið
rannsóknargreinar með tilliti til rannsóknarsniðs, aðferðafræði og hagnýts gildis
niðurstaðna.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
16
Námsefnisgerð E-835-NAGE Ár: 2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Val
Undanfarar: Að hafa lokið 30 einingum í MEd námi
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Nemendur kynnist kenningum og aðferðum við hönnun, þróun og mat á kennslu– og
þjálfunarefni. Nemendur þjálfist í þarfagreiningu, markmiðssetningu og skipulagningu
við námsefnisgerð og gerð kennsluleiðbeininga. Nemendur kynnist mismunandi
framsetningu á kennsluefni. Sérstök áhersla verður lögð á að nemendur þekki til
vinnubragða við gerð rafræns kennsluefnis.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • þekkja kenningar og aðferðir við hönnun, þróun
og mat á kennslu– og þjálfunarefni, • þekkja til aðferða við þarfagreiningu,
markmiðssetningu og skipulagningu við námsefnisgerð og gerð kennsluleiðbeininga, •
þekkja til mismunandi framsetningar á kennsluefni og geta metið hvað henti mismunandi
nemendahópum og mismunandi námsgreinum, • geta útbúið rafrænt kennsluefni, • þekkja
til helstu forrita sem notuð eru við námsefnisgerð hverju sinni.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
17
Ráðstefnur og verkefni E-743-COPO Ár: 1/2
ECTS: 5-10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Val
Undanfarar: Að hafa lokið 30 einingum á meistarastigi
Skipulag: 15 vikna námskeið
Lýsing: Nemendur taka þátt í ráðstefnum sem tengjast beint því námi sem að þeir stunda við
Háskólann í Reykjavík. Ráðstefnurnar þurfa að samsvara einnar viku vinnu og þurfa
nemendur að skila greinargerð og kynna inntak ráðstefna í málstofu með upplýsingum
um inntak ráðstefna.
Námsmarkmið:
Nemendur taka þátt í ráðstefnu og velja svo aðra leið af eftirfarandi tveimur: 1. Halda
erindi og skila skýrslu eða greinagerð um sama efni sem er ca. 3000 orð. 2. Halda erindi
og skrifa stutta blaðagrein (800-1000 orð) og styttri skýrslu um sama efni sem er ca. 2000
orð. Þátttaka á ráðstefnu er metin til 1 einingar og skil á verkefnum og erindi 2 eininga.
Lokaeinkunn í námskeiði er gefin á grundvelli verkefnaskila.
Námsmat: Skýrsla og dagbók
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Verkefni, málstofa og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
18
Sálræn þjálfun E-726-PSSP
Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Val
Undanfarar: Grunnnámskeið í íþróttasálfræði
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Námskeiðið er framhaldsnámskeið í íþróttasálfræði. Kenndar verða helstu sálfræðilegu
og félagslegu aðferðir sem hægt er að nota við þjálfun eða kennslu íþrótta á öllum
aldursskeiðum til að ná betri árangri. Kenndar verða aðferðir til að skipuleggja
æfingatímabil þar sem lögð verður áhersla á sálræna og félagslega þjálfun í íþróttastarfi.
Einnig fá nemendur kennslu og þjálfun í samskiptum og framkomu við íþróttafólk og þá
sem koma að eða tengjast íþróttastarfi.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • vera færir um að nota helstu sálfræðilegu og
félagslegu aðferðir til að ná fram hámarksafkastagetu íþróttamanna, • geta skipulagt
þjálfun til að bæta sálræna og félagslega líðan iðkenda í íþróttum, • geta beitt áhrifaríkum
og uppbyggilegum samskiptaaðferðum.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
19
Siðfræði E-720-ETHI Ár: 1/2
ECTS: 5
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Námskeiðið er ætlað þeim nemendum sem hafa áhuga á að breikka sjóndeildarhringinn
og kynnast betur grundvallarhugmyndum þeirrar siðfræði sem vestræn heimspeki hefur
mótað samfélag okkar og lagasetningu með. Námskeiðið veitir kjörið tækifæri til þess að
kynnast kenningum nokkurra af mestu hugsuðum sögunnar, allt frá Aristótelesi til John
Stuart Mill og frá Immanuel Kant til 20. aldar fræðimanna á borð við Robert Notzick og
John Rawls. Þar er fengist við margar þær spurningar sem íþróttaþjálfarinn þarf að takast
á við í starfi sínu m.a. fagmennsku og ábyrgð íþróttaþjálfarans, þjálfun afreksmanna og
ímynd íþróttagreina. Farið verður yfir kröfur um hlutlægni, hlutleysi og
jafnréttissjónarmið í starfi. Námskeiðinu er ætlað að efla þátttakendur í siðferðilegri
röksemdafærslu en sá hæfileiki skiptir sköpum fyrir alla þá sem starfa á félagslegum og
opinberum vettvangi.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • þekkja til grundvallarkenninga siðfræðinnar. •
hafa öðlast þjálfun í siðferðilegri röksemdafærslu, • hafa fengið innsýn í siðfræði í
íþróttum, • öðlast færni í að greina siðferðileg álitamál.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
20
Sjálfstætt verkefni E-718-IDEP Ár: 2
ECTS: 5
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Að hafa lokið 30 einingum á meistarastigi
Skipulag: 6- 12 vikna námskeið
Lýsing:
Nemendur vinna sjálfstætt verkefni sem getur verið einstaklingsverkefni eða hópverkefni.
Hámarkstærð í hóp eru þrír. Verkefnishugmyndin getur verið hvort sem er að frumkvæði
nemenda eða kennara eða samvinna þeirra á milli. Lögð er áhersla á að í hugmyndinni
felist nýjung og rannsókn eða mat sem þjálfar nemandann í sjálfstæðum vinnubrögðum. Í
upphafi námskeiðs þarf að skila inn lýsingu á verkefninu til tilvonandi leiðbeinandi sem
þarf að vera fastur kennari við deildina og ekki hægt að hefja verkefnið fyrr en sú lýsing
hefur verið samþykkt.
Námsmarkmið:
Að námskeiðinu loknu ættu nemendur að: • hafa öðlast færni í sjálfstæðum
vinnubrögðum, • geta aflað heimilda og unnið úr þeim, • geta tekið rökstudda afstöðu til
lausna á vandamálum, lagt til lausnir og túlkað niðurstöður, • geta sett fram niðurstöður á
skýran hátt í skýrslu eða á annan hátt sem leiðbeinandi telur eðlilegt.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
21
Skipulag og mat skólastarfs E-726-SKMS Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing Megin viðfangsefni námskeiðsins eru námsskrárgerð, markmiðssetning í skólastarfi,
námsmat og mat á skólastarfi. Fjallað verður um val og niðurröðun námsefnis í námsskrár
ásamt framsetningu námsmarkmiða með hliðsjón af gildandi aðalnámsskrám. Farið
verður yfir mismunandi aðferðir við að meta námsframvindu nemenda með tilliti til
réttmætis og áreiðanleika en einnig kennsluhátta. Áhersla er lögð á að nemendur geti
valið um námsefni og kennsluaðferðir miðað við námsmarkmið og nemendahóp og geti
einnig metið hvaða námsmatsaðferðir henta best hverju sinni. Lögð er áhersla á að
nemendur kynnist lögum og reglugerðum um mat á skólastarfi á Íslandi og þekki helstu
matstæki og matsaðferðir.
Námsmarkmið Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • þekkja lög og reglur um íslenskt skólakerfi s.s.
gildandi aðalnámsskrár og lög um mat á skólastarfi, • þekkja helstu kenningar í
námskrárfræðum ,• þekkja fjölbreyttar aðferðir við mat á námsframvindu nemenda og
geta metið áreiðanleika og réttmæti ólíkra matsaðferða, • geta hannað einföld matstæki til
að meta námsframvindu nemenda með hliðsjón af námsskrá og markmiðum, • geta metið
stöðu nemenda, sett fram námsmarkmið, valið námsefni og kennsluaðferðir með hliðsjón
af niðurstöðum mats og þörfum nemenda, • þekkja mismunandi aðferðir til að meta
skólastarf og geta metið hvað á við hverju sinni, • þekkja til helstu matsaðferða sem
notaðar eru við mat á skólastarfi.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
22
Stefnumótun og stjórnun E-714-POAD Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Val
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Stefnumótun og stjórnun er hagnýtt námskeið. Á námskeiðinu verða kynnt helstu
grunnhugtök og viðfangsefni í stefnumótun og stjórnun og þau tengd viðfangsefnum á
sviði mennta, íþrótta og heilsu. Eftir því sem námskeiðinu vindur fram verður áhersla
lögð á að setja efnið í íslenskt samhengi. Þannig verður uppbygging íslenska mennta-,
íþrótta- og heilbrigðiskerfisins kynnt sérstaklega og farið ofan í það hvar völdin liggja,
hverjir hafa áhrif á stefnumótun, ákvarðanir og framkvæmdir. Þá verður líka fjallað um
hvaða þættir ráða úrslitum um það hvort stefna nái fram að ganga og verkefni komist til
framkvæmda.
Lögð er áhersla á að nemendur velji sér verkefni á sínu sérsviði og kynni sér lög, reglur
og helstu stefnur er því tengjast sem og ábyrgð, fjárhagslega stöðu og daglega stjórnun.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • þekkja til lykilþátta sem skipta máli til að stefna
komist til framkvæmda og verkefni verði árangursrík, • þekkja til grundvallaratriða
stjórnunar: árangursstjórnunar, breytingastjórnunar, mannauðsstjórnunar,
verkefnastjórnunar og hlutverks leiðtoga, • hafa reynslu af gerð verkefnaáætlana og
undirbúnings stefnumótunar þar sem byggt er á niðurstöðum vísindalegra rannsókna, •
skilja hvernig og hvar ákvarðanir á sviði mennta, íþrótta og heilsu eru teknar, hvað ræður
því hvaða viðfangsefni komast á dagskrá stjórnvalda og hvers vegna mótuð stefna kemst
ýmist til framkvæmda eða ekki, • geta lagt faglegt mat á verkefnaáætlanir á sviði mennta,
íþrótta og heilsu.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
23
Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva E-709-EXPH Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Grunnnám í lífeðlisfræði
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Í áfanganum verður farið yfir starfsemi vöðvafrumna, byggingu og störf, frumuskiptingu,
frumuhimnur og efnaflutning. Fjallað verður ítarlega um flutning orkuefna og hvernig
þau nýtast í þjálfun. Hvernig ólíkar þjálfunaraðferðir hafa áhrif á flutningsgetu orkuefna
með það í huga að skoða hverjir eru helstu flöskuhálsar í flutningi á orkuefnum til vöðva
og hvað orsakar þreytu og ofþjálfun.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • hafa þekkingu á þeim efnaskiptum sem eiga sér
stað við þjálfun, • hafa þekkingu á áhrifum mismunandi þjálfunaraðferða til framfara eða
stöðnunar.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
MSc í Íþróttavísindum og þjálfun. MSc námið er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í þjálfun keppnis- og afreksíþróttafólks
og rannsóknum á sviði íþróttafræði. Námið er samsett úr námskeiðum sem fjalla m.a. um
íþróttarannsóknir og rannsóknaraðferðir, skipulag þjálfunar, hugmyndafræði þjálfunar og
hlutverk þjálfarans. Einnig tekur námið til þess hvernig megi hámarka íþróttagetu með
þjálfun sem byggir á forsendum lífeðlisfræði, þjálffræði, sálfræði, siðfræði,
næringarfræði, taktík og tækni.
Við lok meistaraprófs í Íþróttavísindum og þjálfun skal eftirfarandi viðmiðum náð:
ÞEKKING OG SKILNINGUR
Við lok námsins hefur nemandi góða þekkingu og skilning á:
meginstoðum þjálf- og íþróttalífeðlisfræði frá innlendu og alþjóðlegu sjónarhorni
helstu hugtökum og kenningum í þjálf- og íþróttalífeðlisfræði
áhrifaþáttum á heilsu íþróttamanna
aðferðafræði þjálf- og íþróttalífeðlisfræði, bæði hvað varðar rannsóknir og störf á vettvangi
skipu lagi, stjórnun og stefnumótun við þjálfun og í íþróttastarfi, bæði innanlands og erlend is
gagnreyndri vísindavinnu á sviði þjálf- og íþróttalífeðlisfræða
TEGUND ÞEKKINGAR
Að loknu námi hefur nemandi tileinkað sér viðamikla þekkingu og skilning á:
alþjóðlegum straumum og stefnum í þjálffræði og íþróttalífeðlisfræði
grundvallarhugtökum í þjálf- og íþróttalífeðlisfræði og tölfræði lífvísinda
fræðilegum grunni megind legrar og eigind legrar aðferðafræði
mikilvægi fyrstu æviáranna á þroska barna og unglinga í íþróttum
áhrifum félags-, efnahags- og sálfélagslegra þátta á iðkun barna og fullorðinna í íþróttum
hvernig sku li nálgast afreksmenn í íþróttum þannig að hámarksárangur náist
hvernig þjálfarar koma opinberlega fram og þekki áhrifaríkar leiðir til stjórnunar
helstu mælingum til að meta þjálfunarástand og framvindu íþróttamanna í íþróttum
helstu aðferðum til að meta líkamsstöðu íþróttamanna með tilliti til vöðvamisræmis
uppbyggingu íþróttastarfs á þverfræðilegum grunni, m.a. samvinnu mismunandi fagaðila og sjálfboðaliða sem koma að þjálfun íþróttamanna/ liða og þeirra sem koma að rekstri íþróttafélaga
mikilvægi stefnumótunar og mats á íþróttaþjálfun og íþróttastjórnun
25
HAGNÝT HÆFNI
Að loknu námi felst hagnýt hæfni nemanda í:
að geta unnið með niðurstöður mælinga og nýtt þær við skipulagningu á íþróttaþjálfun
öflun heimilda á fjölbreyttum vettvangi og beitingu skipulegra vinnubragða á grunni þeirra
að setja saman skýran og greinargóðan texta um þ jálf- og lífeðlisfræði íþrótta
skipu lagi þjálffræðirannsókna, framkvæmd þeirra og tölfræðilegri úrvinnslu gagna
stjórnun, skipulagi og mati á þjálffræðiverkefnum
þverfaglegum vinnubrögðum
sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýnni hugsun í íþróttastarfi
FRÆÐILEG HÆFNI
Að loknu námi felst fræðileg hæfni nemanda í að:
geta lesið, tú lkað og metið gæði fræðilegra greina um þjálf- og íþróttalífeðlisfræði
geta beitt megind legum og eigind legum aðferðum við rannsóknir, skipu lagningu áætlana í þ jálfun og önnur viðeigandi verkefni
geta beitt fræðilegum aðferðum í íþróttaþjálfun og í íþ róttastarfi
geta skrifað skýran og greinargóðan fræðilegan texta
þekkja til helstu strauma um stjórnun og stefnumótun
hafa tamið sér gagnrýna hugsun
HÆFNI Í SAMSKIPTUM, UPPLÝSINGALÆSI OG MIÐLUN
Að loknu námi felst hæfni nemanda í samskiptum í að:
meta mannleg samskip ti og skynja mikilvægi þess að virða hvern og einn einstakling án tillits til bakgrunns, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða annars sem er framandi
geta unnið í hóp með öðrum að sameiginlegri úrlausn verkefna Að loknu námi felst hæfni nemanda í upplýsingalæsi í að:
geta lagt mat á gild i og áreiðanleika heimilda um þjálf- og íþróttalífeðlisfræði
geta lagt mat á upplýsingar um þjálf- og íþróttalífeðlisfræði Að loknu námi felst hæfni nemanda í miðlun að:
geta kynnt og rætt niðurstöður eigin rannsókna á opinberum vettvangi
geta komið til skila gagnreyndum upplýsingum um þjálf- og íþróttalífeðlisfræði til einstaklinga, liða, fjölskyldna og almennings
geta rökrætt um íþróttaþ jálfun og íþróttastarf á skýran og greinargóðan hátt
NÁMSHÆFNI
Að loknu námi felst námshæfni nemanda í að:
hafa frumkvæði að og geta unnið sjálfstætt að verkefnum og úrlausn þeirra
geta tileinkað sér nýja þekkingu um þjálfun íþróttamanna og sett hana í viðeigand i samhengi
geta beitt viðurkenndum aðferðum og hugmynd um við lausn vandamála
geta tekið þátt í rannsóknarstarfi
26
Aðferðafræði rannsókna E-702-REME Ár: 1
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Í námskeiðinu er farið yfir lykilatriði rannsókna á íþróttum og heilsu. Í upphafi er fjallað
um vísindaheimspeki og sjónarhorn og hvernig fjöldamargar vísindagreinar koma að
þekkingarsköpun með rannsóknum á heilsu og heilbrigði. Fjallað er um ýmis
rannsóknarsnið og kostir þeirra og gallar teknir til skoðunar. Aðferðafræði eigindlegra og
megindlegra rannsókna er metin og hvernig svara má ólíkum rannsóknarspurningum með
þessum nálgunum. Þá er fjallað um gerðir mælibreyta, um úrtök og úrtakadreifingu og
um bjölludreifingu (normal dreifingu). Einnig er fjallað um alpha og beta villur og
mögulegar skekkjur í mælingum og um aðferðir við gagnaöflun.
Námsmarkmið:
Við lok námskeiðsins ættu nemendur að: • hafa öðlast skilning á ólíkum aðferðum
rannsókna, á margvíslegum rannsóknarsniðum, • geta dregið ályktanir um kosti og galla
ólíkra aðferða og mælinga, • geta hannað og skipulagt gagnaöflun með tilteknar aðferðir í
huga.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
27
Endurheimt og næring í íþróttum E-725-SPNU Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: E-709-EXPH Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva eða
Þjálfunarlífeðlisfræði hreyfinga E-712-EPHY
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Námskeiðið fjallar um næringu og endurheimt í íþróttaþjálfun. Fjallað verður um
samsetningu fæðunnar og endurheimtaraðferðir með tilliti til aldurs, aðstæðna,
mismunandi íþróttagreina og þjálfunartímabila. Fjallað verður um nýjustu rannsóknir á
sviði næringar og endurheimtar í íþróttum.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • hafa aukna þekkingu á mikilvægi næringar í
íþróttaþjálfun og áhrifum hennar á árangur í íþróttum ,• hafa dýpri þekkingu á
samverkandi áhrifum næringar og endurheimtar í íþróttaþjálfun , • hafa kynnst helstu
rannsóknum á sviði næringar og endurheimtar í íþróttum, • hafa öðlast hagnýta þekkingu
á þessu sviði og þjálfun í að nýta hana.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
28
Hagnýt tölfræði E-707-APST Ár: 1
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Aðferðafræði rannsókna E-702-REME
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Í námskeiðinu læra nemendur grundvallaratriði hagnýtrar tölfræðigreiningar og munu
vinna með raungögn. Rifjuð verða upp grunnhugtök í tölfræði og farið yfir
greiningaraðferðir eins og lýsandi tölfræði, tíðnitöflur, krosstöflur og kí-kvaðrat próf.
Eftir það er farið yfir Pearsons’s r (fylgni), t-próf, einfalda dreifigreiningu og einfalda- og
fjölbreytuaðhvarfsgreiningu. Að lokum verður farið í tvíundargreiningu (logistic
regression). Sérstök áhersla er lögð á að nemendur læri að vinna sjálfstætt með gögn í
tölfræðiforritinu SPSS; s.s. að endurkóða breytur og setja filter á gögn ásamt því að keyra
marktektarpróf. Einnig er lögð áhersla á að nemendur læri að túlka tölfræðilegar
niðurstöður og svara rannsóknarspurningum.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • hafa öðlast þekkingu og sjálfstraust til að vinna
sjálfstætt með tölfræðileg gögn í rannsóknum og verkefnum, • geta nýtt tölfræðileg gögn
til að svara rannsóknarspurningum með tilgátuprófunum , • geta notað tölfræðiforrit
(SPSS) til gagnagreiningar og gagnavinnu, • hafa öðlast nægan skilning á tölfræðilegri
gagnagreiningu til að lesa og meta vísindagreinar með gagnrýnum augum.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
29
Hugmyndafræði og skipulag þjálfunar E-716-PTTR Ár: 1
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: E-709 EXPH Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva eða
E-712-EPHY Þjálfunarlífeðlisfræði hreyfinga
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Námskeiðið er framhaldsnámskeið í þjálffræði. Fjallað verður um þær lífeðlisfræðilegu
kröfur sem tilteknar íþróttagreinar gera til iðkenda sinna. Þá verður fjallað um hvernig ber
að haga skipulagi þjálfunar til að hámarka árangur íþróttamanna. Farið verður í umfjöllun
um þjálffræðilega hugmyndafræði og stefnumótun í þjálfun.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • hafa aukið þekkingu sína á þjálffræði, • hafa
öðlast dýpri skilning á hugmyndafræði, skipulagi og stefnumótun í íþróttaþjálfun.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
30
Íþróttamælingar og rannsóknir E-715-ETPR Ár: 1/2
ECTS: 5
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: E-709 EXPH Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva eða
E-712-EPHY Þjálfunarlífeðlisfræði hreyfinga
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Námskeiðið skiptist annars vegar í fræðilega umfjöllun um mæliaðferðir og hins vegar í
verklega færni við framkvæmd mælinga á líkamsástandi á íþróttamönnum og almenningi.
Áhersla verður lögð á aðferðir, forsendur þeirra og gagnsemi og notkun tækjabúnaðar við
mælingar og mat á líkamsástandi og líkamssamsetningu. Í fræðilegri umfjöllun er gert ráð
fyrir málstofum þar sem nemendur kynna niðurstöður úr rannsóknum er tengjast
matsaðferðum og líkamsástandi almennings og íþróttamanna.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • þekkja og hafa öðlast hæfni til að nota
algengustu mælitæki við mat á líkamsástandi og líkamssamsetningu íþróttamanna og
almennings , • þekkja tæknilegar, lífeðlisfræðilegar og eðlisfræðilegar forsendur fyrir
virkni mælitækjanna, • þekkja helstu og nýjustu rannsóknir á líkamsástandi og
líkamssamsetningu íþróttamanna og almennings, • hafa þjálfast í að gera grein fyrir
niðurstöðum rannsókna og skapa umræður um þær.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
31
Meistararitgerð E-899–THES Ár: 2
ECTS: 30
Önn: Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: 60 einingum lokið á meistarastigi
Skipulag: 15 vikna námskeið
Lýsing: Í námskeiðinu fá nemendur tækifæri til að kynnast rannsóknum á sínu sérsviði og vinna í
nánu samstarfi við fræðimenn skólans. Lögð er áhersla á að nemandi kynnist og noti
viðurkenndar aðferðir við rannsóknarvinnu og öðlist fræðilegan grunn til frekari
rannsóknarstarfa. Mikilvægt er að nemendur þjálfist í vísindalegum skrifum. Nemendur
gera rannsóknaráætlun sem þarf að liggja fyrir í upphafi námskeiðs og unnið verður eftir
þeirri áætlun. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sín verkefni á sameiginlegum fundum
þegar líður á önnina og ræði þar þau vandamál sem upp koma.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • hafa þjálfast í sjálfstæðum vinnubrögðum, •
hafa þjálfast í vísindalegri vinnu ,• hafa þjálfast í að skipuleggja rannsókn og framkvæma
hana, • hafa þjálfast í úrvinnslu gagna og framsetningu niðurstaða, • hafa þjálfast í
vísindalegum skrifum
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Sjálfstæð vinna nemenda undir leiðsögn leiðbeinanda
Tungumál:
Íslenska/enska
32
Sálræn þjálfun E-726-PSSP
Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: að hafa lokið grunnnámskeiði í íþróttasálfræði
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Námskeiðið er framhaldsnámskeið í íþróttasálfræði. Kenndar verða helstu sálfræðilegu
og félagslegu aðferðir sem hægt er að nota við þjálfun eða kennslu íþrótta á öllum
aldursskeiðum til að ná betri árangri. Kenndar verða aðferðir til að skipuleggja
æfingatímabil þar sem lögð verður áhersla á sálræna og félagslega þjálfun í íþróttastarfi.
Einnig fá nemendur kennslu og þjálfun í samskiptum og framkomu við íþróttafólk og þá
sem koma að eða tengjast íþróttastarfi.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • vera færir um að nota helstu sálfræðilegu og
félagslegu aðferðir til að ná fram hámarksafkastagetu íþróttamanna, • geta skipulagt
þjálfun til að bæta sálræna og félagslega líðan iðkenda í íþróttum, • geta beitt áhrifaríkum
og uppbyggilegum samskiptaaðferðum.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
33
Siðfræði E-720-ETHI Ár: 1/2
ECTS: 5
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Engir
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Námskeiðið er ætlað þeim nemendum sem hafa áhuga á að breikka sjóndeildarhringinn
og kynnast betur grundvallarhugmyndum þeirrar siðfræði sem vestræn heimspeki hefur
mótað samfélag okkar og lagasetningu með. Námskeiðið veitir kjörið tækifæri til þess að
kynnast kenningum nokkurra af mestu hugsuðum sögunnar, allt frá Aristótelesi til John
Stuart Mill og frá Immanuel Kant til 20. aldar fræðimanna á borð við Robert Notzick og
John Rawls. Þar er fengist við margar þær spurningar sem íþróttaþjálfarinn þarf að takast
á við í starfi sínu m.a. fagmennsku og ábyrgð íþróttaþjálfarans, þjálfun afreksmanna og
ímynd íþróttagreina. Farið verður yfir kröfur um hlutlægni, hlutleysi og
jafnréttissjónarmið í starfi. Námskeiðinu er ætlað að efla þátttakendur í siðferðilegri
röksemdafærslu en sá hæfileiki skiptir sköpum fyrir alla þá sem starfa á félagslegum og
opinberum vettvangi.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • þekkja til grundvallarkenninga siðfræðinnar. •
hafa öðlast þjálfun í siðferðilegri röksemdafærslu, • hafa fengið innsýn í siðfræði í
íþróttum, • öðlast færni í að greina siðferðileg álitamál.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
34
Sjálfstætt verkefni E-718-IDEP Ár: 1/2
ECTS: 5
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: að hafa lokið 30 einingum á meistarastigi
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing:
Nemendur vinna sjálfstætt verkefni sem getur verið einstaklingsverkefni eða hópverkefni.
Hámarkstærð í hóp eru þrír. Verkefnishugmyndin getur verið hvort sem er að frumkvæði
nemenda eða kennara eða samvinna þeirra á milli. Lögð er áhersla á að í hugmyndinni
felist nýjung og rannsókn eða mat sem þjálfar nemandann í sjálfstæðum vinnubrögðum. Í
upphafi námskeiðs þarf að skila inn lýsingu á verkefninu til tilvonandi leiðbeinandi sem
þarf að vera fastur kennari við deildina og ekki hægt að hefja verkefnið fyrr en sú lýsing
hefur verið samþykkt.
Námsmarkmið:
Að námskeiðinu loknu ættu nemendur að: • hafa öðlast færni í sjálfstæðum
vinnubrögðum, • geta aflað heimilda og unnið úr þeim, • geta tekið rökstudda afstöðu til
lausna á vandamálum, lagt til lausnir og túlkað niðurstöður, • geta sett fram niðurstöður á
skýran hátt í skýrslu eða á annan hátt sem leiðbeinandi telur eðlilegt.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
35
Tæki og tækni við íþróttamælingar E-721-EXTP Ár: 1/2
ECTS: 5
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: E-709-EXPH Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva eða
E-712-EPHY Þjálfunarlífeðlisfræði hreyfinga
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Námskeiðið skiptist annars vegar í fræðilega umfjöllun um mæliaðferðir í afreksíþróttum
og hins vegar í verklega færni við framkvæmd mælinga á afreksíþróttamönnum. Áhersla
verður lögð á aðferðir við mælingar og mat á taktík, tækni, styrk, hraða, þoli, liðleika. Í
fræðilegri umfjöllun er gert ráð fyrir málstofum þar sem nemendur kynna niðurstöður úr
rannsóknum er tengjast afreksíþróttum, þjálfun og mælingum.
Námsmarkmið:
Að námskeiðinu loknu ættu nemendur að: • þekkja og hafa öðlast hæfni til að nota helstu
mælitæki sem notuð er við íþróttaþjálfun og íþróttarannsóknir. • þekkja tæknilegar,
lífeðlisfræðilegar og eðlisfræðilegar forsendur fyrir virkni þeirra. • þekkja helstu og
nýjustu rannsóknir og mælingar sem íþróttafræðin byggir á. • hafa þjálfast í að gera grein
fyrir niðurstöðum rannsókna og skapa umræður um þær.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
36
Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva E-709-EXPH Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Grunnnám í lífeðlisfræði
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Í áfanganum verður farið yfir starfsemi vöðvafrumna, byggingu og störf, frumuskiptingu,
frumuhimnur og efnaflutning. Fjallað verður ítarlega um flutning orkuefna og hvernig
þau nýtast í þjálfun. Hvernig ólíkar þjálfunaraðferðir hafa áhrif á flutningsgetu orkuefna
með það í huga að skoða hverjir eru helstu flöskuhálsar í flutningi á orkuefnum til vöðva
og hvað orsakar þreytu og ofþjálfun.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • hafa þekkingu á þeim efnaskiptum sem eiga sér
stað við þjálfun. • þekkingu á áhrifum mismunandi þjálfunaraðferða til framfara eða
stöðnunar.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
37
Þjálfunarlífeðlisfræði hreyfinga E-712-EPHY Ár: 1/2
ECTS: 10
Önn: Haust/Vor
Tegund námskeiðs: Skylda
Undanfarar: Enginn
Skipulag: 6 vikna námskeið
Lýsing: Í áfanganum er farið yfir hvernig drif- og sefkerfið stjórnar starfsemi mið- og
úttaugakerfisins. Hvernig þjálfun, aldur, hiti og kuldi hefur áhrif á kerfin. Farið er ítarlega
í lífeðlisfræði tauga, vöðva, beina og annarra bandvefja og áhrif hreyfingarleysis,
áreynslu og þjálfunar á þá. Fjallað verður um skynjunarlífeðlisfræði með áherslu á
jafnvægisskynjun og sársauka, viðbragðsboga, stjórn hreyfinga og EMG.
Námsmarkmið:
Að námskeiði loknu ættu nemendur að: • hafa skilning á hvernig eiginleikar mismunandi
vöðvafrumna og vöðvavinna tengist tauga- og orkukerfunum og þar með árangri í
mismunandi íþróttum, • hafa skilning á hvernig mismunandi ytri aðstæður geta haft áhrif
á tauga- og vöðvakerfið.
Námsmat: Verkefni og/eða próf
Lesefni: Tilkynnt síðar
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, verkefni og umræður
Tungumál:
Íslenska/enska
Recommended