19
STUTT NÁMSKEIÐ | 1 ENDURMENNTUN FYRIR SÉRFRÆÐINGA OG STJÓRNENDUR Námskeiðsframboð haustið 2013

ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

  • Upload
    others

  • View
    2

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

STUTT NÁMSKEIÐ | 1

ENDURMENNTUNFYRIR SÉRFRÆÐINGA OG STJÓRNENDUR

Námskeiðsframboð haustið 2013

Page 2: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

OPNI HÁSKÓLINN Í HR | 3 2 | OPNI HÁSKÓLINN Í HR

OPNI HÁSKÓLINN Í HR

Velkomin í Opna háskólann í HR

Íslenskt atvinnulíf hefur þróast mjög hratt á undanförnum árum; tækninni hefur fleygt fram og áherslur breyst töluvert. Við þurfum því stöðugt að viðhalda og bæta færni okkar og þekkingu til að vera samkeppnishæf á vinnumarkaði. Hjá Opna háskólanum í HR er mikill metnaður lagður í að vera í takt við þarfir atvinnulífsins og bjóða upp á fræðslu og menntun á lykilsviðum HR sem eru tækni, viðskipti og lög.

Viðskiptavinir okkar eru annars vegar sérfræðingar og stjórnendur sem vilja bæta árangur í starfi og efla persónulega færni og hins vegar fyrirtæki og stofnanir sem leita til okkar eftir heildarlausnum á sviði fræðslumála með fjárfestingu í mannauði og verðmætasköpun að leiðarljósi.

Námskeiðsframboð okkar byggir á traustum fræðilegum grunni og hagnýtri þekkingu úr atvinnulífinu. Leiðbein-endur við Opna háskólann í HR eru ýmist sérfræðingar Háskólans í Reykjavík, aðrir fulltrúar atvinnulífs eða erlendir gestafyrirlesarar.

Á vefnum opnihaskolinn.is eru ítarlegri upplýsingar um öll námskeið, leiðbeinendur, verð og skráningu.

Efnisyfirlit

Stutt námskeið 4 Alþjóðaviðskipti og efnahagsmál 4Bókhald 5Fjármál og rekstur 6Lagaleg viðfangsefni 11Mannauður 12Markaðsmál og sala 14Stjórnun og stefnumótun 16Tækni- og verkfræði 18Tölvunarfræði 22Verkefnastjórnun 26

Lengri námskeið 28PMD-stjórnendanám HR og MBA 30Samstarf við atvinnulífið 31Starfsfólk 34

Page 3: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

„Straumlínustjórnun var skemmtilegt og fræðandi nám, umgjörðin flott og andinn góður. Ég mun hiklaust stunda meira nám í Opna háskólanum í framtíðinni.“

Ásdís Kristinsdóttir,forstöðumaður verkefnastofu Orkuveitu Reykjavíkur

BÓKHALD – STUTT NÁMSKEIÐ | 5 4 | STUTT NÁMSKEIÐ – ALÞJÓÐAVIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL

STUTT NÁMSKEIÐ

Efnahagslífið hefur tekið stakkaskiptum undanfarin ár og ekki síst vegna aukinnar alþjóðavæðingar. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að bæta aðgengi íslenskra fyrirtækja að erlendum mörkuðum.

ÞVERmEnningaRlEg samsKiptiCross-cultural negotiationsKennt á ensku2. október

Þátttakendur á námskeiðinu læra að bæta samskipti og samninga-tækni í hnattvæddu alþjóðlegu samfélagi.Leiðbeinendur: Sigurður Ragnarsson, MBA í stjórnun og markaðs-fræðum, stundakennari við viðskiptadeild HR og Erla S. Kristjáns-dóttir, PhD, aðjúnkt við viðskiptadeild HÍ.

FjÁRmagnsHöFt EFni Og ÞRóun ÞEiRRa FRÁ 2008 – nÝtt29. október

Á námskeiðinu verður fjallað um tilurð fjármagnshafta og markmið með þeim. Þá verður farið yfir hagnýt atriði tengd fjármagnshöftunum og í lokin almennar umræður.Leiðbeinendur: Jón Karlsson, ML, forstöðumaður undanþágudeild-ar gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands og Pétur Steinn Pétursson, forstöðumaður eftirlitsdeildar gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands.

Úrval vandaðra námskeiða til sí- og endurmenntunar fyrir starfandi bókara, í góðu samstarfi við Félag viður-kenndra bókara (FVB) og útskrifaða nemendur.

ExcEl í staRFi bóKaRans28. október

Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar.Leiðbeinandi: Páll Daði Ásgeirsson, lögg. endursk. hjá Deloitte.

tEKjusKattssKuldbinding, sjóðstREymi Og sKattaR26. og 27. nóvember

Námskeið í reikningshaldi fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB 15 endurmenntunareiningar.Leiðbeinandi: Lúðvík Þráinsson, lögg. endursk. hjá Deloitte.

Styttri námskeið Opna háskólans í HR eru á bilinu 3–30 klst. að lengd. Námskeiðin eru hagnýt en byggja á traustum fræðilegum grunni. Horft er til alþjóðlegra fyrirmynda og leitað til fremstu sér-fræðinga við þróun og uppbyggingu. Námsefnið er alltaf sniðið að íslensku atvinnulífi.

AlþJóðAViðskipti Og EFnAhAgsmál BókhAld

Fjármagnshöft tóku gildi stuttu eftir bankahrunið haustið 2008 og eru enn við lýði, nú tæpum fimm árum síðar. Hvers vegna voru þau sett á, hvaða áhrif höfðu þau og hver eru áframhaldandi áhrif þeirra? Jón Karlsson og Pétur Steinn Pétursson, starfsmenn gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands, leitast við að svara því og fleiri spurningum á námskeiðinu Fjármagnshöft – efni og þróun þeirra frá 2008. „Eins og nafnið gefur til kynna verður á námskeiðinu gerð grein fyrir þeim takmörkunum á fjármagnshreyfingum á milli landa og gjaldeyrisviðskiptum sem verið hafa hér á landi frá 28. nóv-ember 2008 en þær takmarkanir hafa í daglegu tali verið nefndar gjaldeyrishöft,“ segir Jón. „Fjallað verður um tilurð og markmið að baki höftunum sem og þróun laga og reglna sem þau hafa byggt á fram til dagsins í dag.“ Námskeiðið er öllum opið en Jón telur að fólk úr viðskiptalífinu muni hafa mestan áhuga á að sækja það. „Það er, stjórnendur og starfsmenn þeirra fyrirtækja sem höftin snerta með einhverju móti. Markmið námskeiðsins er að fara yfir hagnýt atriði sem tengjast höftunum og veita þátttakendum betri innsýn í efni þeirra og eðli. Í lokin verða svo almennar umræður.“

Jón karlssonNámskeið: Fjármagnshöft – efni og þróun þeirra frá 2008

Page 4: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

6 | STUTT NÁMSKEIÐ – FJÁRMÁL OG REKSTUR FJÁRMÁL OG REKSTUR – STUTT NÁMSKEIÐ | 7

traustur og öflugur fjármálamarkaður er þjóðinni mikil-vægur. Í samstarfi við helstu fjármálafyrirtæki landsins, hin ýmsu samtök á sviði fjármála og háskólasamfélagið bjóðum við upp á námskeið sem bæta sérfræði- þekkingu og vönduð vinnubrögð stjórnenda og annarra starfsmanna á fjármálamarkaði. námsframboðið er fjölbreytt og tekur á öllum helstu viðfangsefnum fjármálafræða.

bEyOnd budgEting – nÝtt30. ágúst

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum innsýn inn í Beyond Budgeting stjórnunarmódelið og hvernig fyrirtæki eru rekin án hefðbundinna fjárhagsáætlana. Farið verður yfir reynslu fjölmargra fyrirtækja af notkun módelsins m.t.t. gerðar rúllandi fjárhagsspáa (e. rolling forecast), markmiðasetningar og stjórnun kostnaðar ásamt öðrum þáttum módelsins. Leiðbeinendur: Axel Guðni Úlfarsson, BSc í viðskiptafræði frá HR, sérfræðingur í hagdeild Össurar og Birgir Grétar Haraldsson, lögg.endursk., forstöðumaður hagdeildar Össurar.

FjÁRmÁl FyRiR stjóRnEnduR5. og 6. september

Námskeiðinu er ætlað að kynna fyrir þátttakendum undirstöðuatriði fjármálastjórnunar; áætlanir og kostnaðargreiningu, ársreikninga og helstu kennitölur, fjármögnun og fjárstýringu og verðmat fyrirtækja og fjárfestingakosta.Leiðbeinandi: Hrönn Greipsdóttir, MBA frá City University.

pOwER piVOt – ExcEl10. og 12. september PowerPivot er viðbót í Excel sem gefur notendum möguleika á að útfæra eigin greiningar, skýrslur og mælaborð með lítilli fyrirhöfn. Með PowerPivot má skilja á milli gagna, útreikninga og flokkana annars vegar og skjalanna sjálfra hins vegar. Þetta skilar miklum sveigjanleika og tímasparnaði.Leiðbeinandi: Grímur Sæmundsson, kerfisfræðingur frá HR, sérfræðingur í gagnavöruhúsum hjá Sjóvá.

líKanagERð FyRiR REKstRaRÁætlaniR, aRðsEmismat Og VERðmat17., 24. og 26. september

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur nái færni í gerð reiknilíkana í Excel, fyrst og fremst á sviði fyrirtækjareksturs og fjármála. Einkum verður fjallað um gerð líkana fyrir rekstraráætlanir fyrirtækja en einnig arðsemislíkön fyrir fjárfestingaverkefni og áætlanir um fjárstreymi til að meta virði fyrirtækja. Leiðbeinandi: Páll Jensson, PhD í aðgerðarannsóknum, MSc í iðnaðarverkfræði frá DTU, prófessor við tækni- og verkfræðideild HR.

FJáRmál Og REkstuR

FjÁRFEstingaR FagFjÁRFEsta – nÝtt18. og 19. september

Kynntar eru helstu aðferðir við ákvarðanatöku í algengustu ferlum fagfjárfesta. Farið verður yfir lög og reglur sem gilda, mengi fjárfest-inga skoðað heima og að heiman sem og einkenni þeirra á íslenskum markaði. Leiðbeinandi: Birgir Stefánsson, MSc, sjóðsstjóri hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.

ÁHættustÝRing – mælingaR Og ViðbRögð – nÝtt27. og 30. september og 1. október

Þátttakendur kynnast mörgum af þeim líkönum og útreikningum sem notuð eru við áhættustýringu, læra um tilgang þeirra og hvernig eigi að túlka niðurstöður slíkra útreikninga. Horft er til notkunar fyrirtækja á áhættustýringu. Námskeiðið kemur að góðum notum fyrir þá sem hyggjast þreyta GARP og PRIMA-prófin sem eru alþjóðleg viður-kenningarpróf í áhættustýringu.Leiðbeinandi: Kristján Markús Bragason, MSc í fjármálum fyrirtækja og MSc í fjárfestingastjórnun.

„það var frábært að koma aftur inn í skólaumhverfi og stunda nám sem var bæði hagnýtt og fræðilegt. Einnig lærir maður mikið af því að vinna verkefni með fólki úr ólíkum fyrirtækjum.“

patrick Karl winrow,framleiðslustjóri hjá marel.

NÁLGUN NÁMSEFNIS ER HAGNýT OG Í TAKT VIÐ STRAUMA OG STEFNUR ATVINNULÍFSINS

Page 5: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

STUTT NÁMSKEIÐ | 9 8 | STUTT NÁMSKEIÐ – FJÁRMÁL OG REKSTUR

undiRstöðuatRiði Við VERðmat FyRiRtæKja – nÝttKennt á ensku8. október

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði í verðmati eigna almennt með sérstaka áherslu á verðmat einstakra verkefna og fyrirtækja.Leiðbeinandi: Sverrir Ólafsson, PhD, prófessor í fjármálastærðfræði við tækni- og verkfræðideild HR.

ÁHættustÝRing Og innRa EFtiRlit 24. og 25. október

Fjallað verður um uppbyggingu og innleiðingu innra eftirlits hjá fyrirtækjum og stofnunum. Einnig verður farið í aðferðarfræði við að greina, meta og stýra þeirri áhættu sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir og eftirlitsaðgerðir eiga að beinast að. Umfjöllunin tekur m.a. mið af eftirlitslíkani COSO (Internal Control – Integrated Framework) sem gefið var út í uppfærðri útgáfu í maí 2013. Hlutverk og ábyrgð stjórnar, stjórnenda, almennra starfsmanna og innri endur-skoðenda verður skilgreint við uppbyggingu og vöktun innra eftirlits.Leiðbeinendur: Anna Margrét Jóhannesdóttir, stjórnsýslufræðingur og faggiltur innri endurskoðandi hjá Reykjavíkurborg og Nanna Huld Aradóttir, viðskiptafræðingur og faggiltur innri endurskoðandi hjá Seðlabanka Íslands.

„Á þessu námskeiði verður farið yfir helstu atriði í verðmati eigna almennt, með sérstakri áherslu á verðmat einstakra verkefna og fyrirtækja,“ segir Sverrir Ólafsson, prófessor við viðskiptadeild HR og leiðbeinandi á nýju námskeiði sem snýr að fjármálum og rekstri; The Basis of Corporate Value Creation. „Í upphafi förum við yfir almenn atriði verðmats með áherslu á þá þætti sem helst hafa áhrif á verð, svo sem vöxt og ávöxtun nýtts fjármagns í samanburði við fjármagnskostnað,“ bætir Sverrir við. Hann segir nemendur fá að kynnast verðmatslíkönum á borð við DCF (e. discounted cash flow) og EP (e. economic profit) sem notuð verði í raunveru-legum verkefnum og þannig geti nemendur séð kosti þeirra og galla. „Þá ræðum við mögulegar leiðir til að bæta hefðbundnar verðmatsaðferðir með því að notast við aðferðir sem byggja á notkun afleiðusamninga.“ Sverrir undirstrikar kosti þess að nota afleiðusamninga við verðmat, t.d. á nýsköpunarfyrirtækjum og einkaleyfum. Á námskeiðinu verður einnig skoðuð mismunandi fjármögnun verkefna og fyrirtækja, með tilliti til áhrifa á áhættu. Þá verða ávöxtunarhorfur hlutafjár greindar og í lok námskeiðsins fá nemendur að spreyta sig á að nota verðmatsaðferðirnar til að meta hagkvæmni yfirtöku eða samruna fyrirtækja.

sverrir ólafssonNámskeið: Undirstöðuatriði við verðmat fyrirtækja

Page 6: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

LAGALEG VIÐFANGSEFNI – STUTT NÁMSKEIÐ | 11 10 | STUTT NÁMSKEIÐ – FJÁRMÁL OG REKSTUR

sala til FagFjÁRFEsta – nÝtt5. og 6. nóvember

Námskeiðið miðar að því að auka skilning og þekkingu söluaðila á fagfjárfestum og eðli viðskipta. Skoðuð verða raunveruleg dæmi í söluferlum, kynningum og nálgun við kaupendur/seljendur.Leiðbeinandi: Sverrir Ólafsson, PhD, prófessor í fjármálastærðfræði við tækni- og verkfræðideild HR.

nOtKun aFlEiða í FjÁRmÁlum FyRiRtæKja – nÝttKennt á ensku12. nóvember

Hægt er að nota afleiður til að mynda tilbúið sjóðstreymi sem meðal annars getur nýst til að mæta fjárhagslegum skuldbindingum. Á þessu námskeiði verða rædd mörg dæmi um notkun afleiða við áhættustýringu.Leiðbeinandi: Sverrir Ólafsson, PhD, prófessor í fjármálastærðfræði við tækni- og verkfræðideild HR.

iFRs alÞjóðlEgiR REiKningssKilastaðlaR – nÝtt12. nóvember

Á námskeiðinu verður farið yfir grunnreglur alþjóðlegra reikningsskila-staðla (IFRS). Fjallað verður um framsetningu reikningsskila sem og helstu skráningar- og matsreglur eigna, skulda, tekna og gjalda.Leiðbeinandi: Unnar Friðrik Pálson, MSc í fjármálum fyrirtækja og MSc í fjárfestingastjórnun, aðjúnkt við viðskiptadeild HR og lög-giltur endurskoðandi hjá KPMG.

EnduRsKipulagning FyRiRtæKja20. og 21. nóvember

Farið verður yfir grunnatriði fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja með sérstaka áherslu á sameiningu fyrirtækja í fjárhags-legum vanda. Fjallað verður um endurskipulagningu skulda, eigna og eigin fjár, hagrænar ástæður og nauðsyn endurskipulagningar.Leiðbeinandi: Brynjar Pétursson, MBA frá MIT, stofnandi Contra og stundakennari við HR.

gREining ÁRsREiKninga10. og 12. desember

Fjallað verður um lykilstærðir og áhersla lögð á þau atriði sem mestu máli skipta í núverandi rekstrarumhverfi, s.s. sjóðstreymi og fjárhagsstöðu. Greining ársreikninga verður svo sett í samhengi við mat á skuldsetningu, áhættu og arðsemi.Leiðbeinandi: Kristján Markús Bragason, MSc í fjármálum fyrirtækja og MSc í fjárfestingastjórnun.

sViKsEmi í FjÁRmÁlum Og FjÁRmÁlaglæpiR – nÝttFraud Accounting Kennt á ensku4. september

Farið verður yfir það hverjir fremja slíka glæpi, hvernig koma má auga á þá og hvernig koma má í veg fyrir þá og spara fyrirtækjum um leið stórar fjárhæðir.Leiðbeinandi: Rick Dull, PhD, dósent við Virginia Tech University.

það er samfélagi okkar afar mikilvægt að bjóða upp á faglegan vettvang þar sem fram fer fræðsla og málefnaleg umræða um hin ýmsu álitamál á sviði lagalegra viðfangsefna. með fjölbreyttum námskeiðum Opna háskólans á þessu sviði miðlum við þekkingu fremstu sérfræðinga lagadeildar hR og sérfræðinga í íslensku atvinnulífi.

baRnaRéttuR: bREytingaR Á ÁKVæðum um FORsjÁ Og umgEngni – nÝtt17. september

Á námskeiðinu verður fjallað um barnalögin nr. 76/2003 og áhersla lögð á þær fjölmörgu breytingar sem gerðar voru á barnalögum með breytingarlögum nr. 61/2012. Breytingarnar tóku gildi 1. janúar 2013 og snúa einkum að ákvæðum um forsjá og umgengni. ýmis mikilvæg nýmæli er að finna í hinum nýju ákvæðum og verður vandlega farið yfir þær breytingar.Leiðbeinandi: Dögg Pálsdóttir, cand.jur. og MPH í lýðheilsufræðum, aðjúnkt við lagadeild HR.

lagaEnsKa Kennt á ensku14., 17. og 21. október

Hagnýtt námskeið fyrir lögfræðinga sem vilja bæta enskukunnáttu sína.Leiðbeinandi: Erlendína Kristjánsson, M.Paed., aðjúnkt við viðskiptadeild HR.

lagalEg atRiði Við gERð samninga – nÝtt28. nóvember

Fjallað er um það hvenær samningur telst hafa stofnast og hvaða sjónarmið gilda um mismunandi samninga. Farið verður yfir helstu reglur um túlkun samninga og litið verður til helstu samningsákvæða, t.d. í fjármögnunarsamningum. Þá verður fjallað um ógildingu samninga og heimildir til riftunar. Ennfremur verður farið yfir þýðingu fyrirvara við samningsgerð sem og umboðsreglur sem getur reynt á.Leiðbeinandi: Eiríkur Elís Þorláksson, LL.M. og hrl., lektor við lagadeild HR.

lAgAlEg ViðFAngsEFni

Eiríkur Elís Þorláksson, hæstaréttarlögmaður og lektor við laga-deild HR, er leiðbeinandi á námskeiðinu Lagaleg atriði við gerð samninga. „Á námskeiðinu verður farið yfir þau lagalegu atriði sem geta komið upp við hvers kyns samningsgerð,“ segir Eiríkur. Hann segir námskeiðið henta mörgum en það sé þó sérstaklega miðað að stjórnendum í atvinnulífinu sem hafi með samningagerð að gera. „Farið verður yfir helstu reglur um túlkun samninga og fjallað um ógildingu samninga og heimildir til riftunar,“ bætir Eiríkur við en rétturinn til að rifta samningi er einmitt eitt þeirra vafaatriða sem oft er ógreinilegt í samningum og getur leitt til lengri tíma skjalavafsturs og jafnvel lagalegra inngripa sé ekki rétt staðið að uppsögn á samningi.

Eiríkur Elís þorlákssonNámskeið: Lagaleg atriði við gerð samninga

Page 7: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

MANNAUÐUR – STUTT NÁMSKEIÐ | 13 12 | STUTT NÁMSKEIÐ – MANNAUÐUR

góður starfsandi og samheldni innan vinnustaða er mikilvægur þáttur í að ná markmiðum og árangri. mikil-vægt er fyrir stjórnendur að hlúa vel að liðsheildinni og vera í stakk búnir til að takast á við krefjandi störf á sviði mannauðsmála. námskeiðin miða að því að bæta árangur í starfi og auka persónulega færni þátttakenda, m.a. á sviði samskipta og skipulags.

mælabORð mannauðsstjóRans – aRðsEmi Og ÁRanguR12. og 19. september

Skoðað er hvaða mælikvarðar skipta máli og hvernig þeir geta verið breytilegir á milli vinnustaða. Unnið verður með raungögn þátttakenda eins mikið og hægt er og mælaborð þeirra búið til eða endurbætt þannig að þeir séu tilbúnir að kynna mannauðsmælingar á næsta stjórnendafundi á sínum vinnustað.Leiðbeinandi: Herdís Pála Pálsdóttir, MBA og ACC markþjálfi, sjálfstætt starfandi markþjálfi og ráðgjafi.

FRamKOma Og tjÁning24. og 25. september

Þátttakendur eru þjálfaðir í að gera á skilmerkilegan hátt grein fyrir máli sínu, leggja áherslu á aðalatriði og tala af öryggi fyrir framan hóp fólks. Unnið er út frá verkefnum úr lífi og starfi þátttakenda og þeir þjálfaðir í að útskýra þau á sannfærandi og hnitmiðaðan hátt.Leiðbeinandi: María Ellingsen, BA í leiklist frá New York University, leikstjóri, höfundur og kennari.

ÁRanguRsRíK samsKipti: HlutVERK stjóRnEnda3. október

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur átti sig á eigin sam-skiptamynstrum. Þátttakendur þurfa að líta í eigin barm og setja sér markmið varðandi samskiptamáta. Sérstaklega er farið yfir samvinnu í hópi, ólíka samskiptastíla og vænlegar leiðir til að ná fram breytingum í samskiptamynstrum. Leiðbeinandi: Sigríður Hulda Jónsdóttir, MA í náms- og starfs-ráðgjöf.

mAnnAuðuR

staRFsmannasamtöl, launaViðtöl Og samningatæKni8. og 9. október

Á námskeiðinu verða kynnt tæki og tól sem nýst geta stjórnendum til að undirbúa sig af kostgæfni fyrir starfsmannasamtöl og launaviðtöl.Leiðbeinendur: Ingunn B. Vilhjálmsdóttir, MBA, ráðgjafi hjá Atten-tus og Inga Björg Hjaltadóttir, hdl. hjá Attentus.

Áttu stund? tímastjóRnun Og sKipulag – nÝtt9. október

Vinnustofa þar sem farið er yfir hagnýt ráð varðandi tölvupóst, skipu-lag, forgangsröðun, truflanir og algenga tímaþjófa. Gerðar eru æfingar sem auðvelda þátttakendum að nýta tímann betur og þar með afkasta meiru. Lögð er áhersla á virka þátttöku og raunhæf dæmi.Leiðbeinandi: Alda Sigurðardóttir, BA í stjórnmála- og atvinnulífs-fræði frá HÍ og ACC stjórnendamarkþjálfi, markþjálfi og eigandi Vendum stjórnendaþjálfunar.

auKin ORKa, staRFsÁnægja Og líFsgæði – nÝtt 24. október

Kynntar verða nokkrar einfaldar en áhrifaríkar leiðir sem geta elft orku okkar þannig að við nýtum tíma okkar betur, verðum ánægðari í starfi og lífsgæði aukast. Æfingarnar snúa að því hvernig við byrjum daginn í vinnunni, gerum upp vikuna o.fl.Leiðbeinandi: Herdís Pála Pálsdóttir, MBA og ACC markþjálfi, sjálfstætt starfandi markþjálfi og ráðgjafi.

lEiðiR til úRlausna KREFjandi staRFsmannamÁla5. og 6. nóvember

Tekið er bæði á jákvæðum og neikvæðum hliðum starfsmannamála og úrlausnum tengdum þeim. Horft er til áhrifa persónulegra erfiðleika á starfsumhverfi og metnað. Jafnframt er ákjósanleg frammistaða starfsmanna skoðuð og farið yfir umbunarkerfi og hvata.Leiðbeinandi: Gunnhildur Arnardóttir, MBA, framkvæmdastjóri Stjórnvísi.

staRFsÁnægja Og liðsHEild11. nóvember

Hvernig er hægt að stuðla að sterkri liðsheild í atvinnulífinu með aðferðum íþróttasálfræðinnar? Hvað er liðsheild? Hvað einkennir þau lið sem ná árangri og hvernig er hægt að nýta sér þá þekkingu? Skoðað verður hvað stjórnandi getur gert til þess að efla liðsheild á sínum vinnustað, m.a. með aðferðum sem þjálfarar og íþróttamenn nota til þess að ná hámarks árangri. Leiðbeinandi: Hafrún Kristjánsdóttir, Cand. Psych., MSc. og sviðsstjóri við íþróttafræðisvið HR.

„Námskeiðið er ætlað stjórnendum með mannaforráð sem vilja efla sig enn frekar í starfi og leysa krefjandi starfsmannamál á farsælan hátt,“ segir Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi, en hún leiðbeinir á námskeiðinu Leiðir til úrlausna krefjandi starfsmannamála. „Það er hagur stjórnandans, starfsmannsins og vinnustaðarins að leysa úr málum á sem bestan hátt. Þess vegna er lögð áhersla á jákvæðar aðferðir við að greiða úr erfiðum málum.“ Gunnhildur segist velta upp bæði neikvæðum og jákvæðum hliðum starfsmannamála og leiðir til úrbóta. „Það geta verið viðbrögð við áföllum og breytingum, uppsagnir, veikindi, fjarvistir, óásættanleg frammistaða eða hrós, hvati og endurgjöf.“ Þá verði farið yfir hvernig eigi að nálgast og ræða við starfsmenn til að ná fram æskilegum breytingum. Gunnhildur segir of algengt að stjórnendur bíði með að tala við starfsmann í þeirri von að vandamálið leysist en það sé árangurslítil leið. „Á þessu námskeiði heyra þátttakendur reynslusögur annarra og læra mikilvægi þess að fresta ekki til morguns því sem hægt er að gera í dag.“

gunnhildur ArnardóttirNámskeið: Leiðir til úrlausna krefjandi starfsmannamála

Page 8: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

MARKAÐSMÁL OG SALA – STUTT NÁMSKEIÐ | 15 14 | STUTT NÁMSKEIÐ – MARKAÐSMÁL OG SALA

Ímynd og ásýnd fyrirtækja og stofnana er mikilvæg aukinni verðmætasköpun. Í samstarfi við öflugt fag-ráð og félag íslensks markaðsfólks (ÍmARk) viljum við stuðla að faglegu markaðs- og sölustarfi og auka veg og virðingu sérfræðinga og stjórnenda sem starfa á þessu sviði.

sölutæKni Og ÞjónustuFRamKOma FyRiR aFgREiðsluFólK í VERslunum – nÝtt 17. október

Þátttakendur eru þjálfaðir með raunhæfum æfingum. SVAKA- sölumódelið er kynnt og farið er yfir hvernig skipulag þess nýtist við sölu í verslunum.Leiðbeinandi: Ágústa Þóra Jónsdóttir, MBA, markaðs- og sölustjóri hjá Hringrás endurvinnslu.

VinnustOFa í RÁðgEFandi sölu Og Þjónustu – nÝtt22. og 24. október

Á námskeiðinu er lögð sérstök áhersla á að þátttakendur setji sig í spor viðskiptavina, spyrji spurninga og hugi að því hver og hvernig eigi að nýta það sem verið er að selja. Leiðbeinandi: Ágústa Þóra Jónsdóttir, MBA, markaðs- og sölustjóri hjá Hringrás endurvinnslu.

linKEd-in Og Við sEm VöRumERKi12. og 14. nóvember

Á námskeiðinu er kynnt hvernig byggja megi upp markviss ferli í notkun LinkedIn og eru ýmis greiningartæki og tól kynnt til sögunnar. Farið er yfir markmiðatengda stefnumótun í notkun samfélagsmiðla og hvernig tengja megi slíkt við heildarímynd og stefnu fyrirtækja.Leiðbeinandi: Þorvarður Goði Valdimarsson, MBA, markaðs-ráðgjafi.

ViðbuRðastjóRnun14., 16., 21. og 23. október

Skoðað er að hverju þarf að huga við undirbúning og skipulag viðburðar; markaðssetningu, framkvæmd, samantekt og mati. Viðburðastjórnun er einnig skoðuð út frá sjónarhorni upplýsinga- fulltrúa og almannatengla sem vilja komu vöru eða þjónustu á framfæri með árangursríkum hætti. Á námskeiðinu er ennfremur lögð áhersla á hagnýta nálgun með því að fá í heimsókn fyrirlesara með haldbæra reynslu af viðburðastjórnun á ólíkum sviðum. Leiðbeinandi: Svanhvít Friðriksdóttir, MA í almannatengslum og markaðssamskiptum frá University of Westminster, upplýsinga-fulltrúi hjá WOW air og formaður AÍ.

mARkAðsmál Og sAlA

Viðburðastjórnun er mikilvægur hluti af allri starfsemi tengdri markaðsmálum því það skiptir sköpum að viðburðir sem efnt er til uppfylli markmiðin sem sett eru í upphafi. Þeir geta farið fram á mismunandi vettvangi, á samfélagsmiðlum, vefsíðum, í ljósvakamiðlum og blöðum, svo að ýmsu er að hyggja og oft þarf að samræma aðgerðir vel. „Námskeiðið er hagnýtt þeim sem vilja nýta sér viðburði sem öflugt tól í markaðssetningu og almannatengslum,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi hjá WOW Air og formaður Almannatengslafélags Íslands en hún kennir námskeiðið Viðburðastjórnun. „Ég mun fara yfir hvernig vel framkvæmdir viðburðir, bæði stórir sem smáir, geta haft mikil áhrif á árangur fyrirtækja til að ná til almennings á jákvæðan hátt.“ Hún segir mikilvægt að líta á heildarmyndina við undirbúning viðburðar. „Illa skipulagður viðburður getur haft þau áhrif að betra sé heima setið en af stað farið.“ Námskeiðið er opið öllum og segir Svan-hvít það vera fyrir alla þá sem koma með einhverjum hætti að skipulagningu viðburða, bæði stórra og smárra og vilja ná árangri í starfi sínu.

svanhvít FriðriksdóttirNámskeið: Viðburðastjórnun

HRingbORðsumRæðuR maRKaðsstjóRa – nÝttHaustið 2013

Lokað námskeið fyrir markaðsstjóra þar sem tekist er á við helstu áskoranir stjórnenda í markaðsstarfi fyrirtækja. Hópurinn mun hittast nokkrum sinnum yfir önnina og takast á við og ræða fyrirfram ákveðin viðfangsefni. Frábært tækifæri til að efla tengslanetið, auka víðsýni og bæta árangur í starfi. Leiðbeinandi: Ninja Ómarsdóttir, MSc í alþjóðlegri viðskiptastjórnun frá Copenhagen Business School.

Page 9: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

STJÓRNUN OG STEFNUMÓTUN – STUTT NÁMSKEIÐ | 17 16 | STUTT NÁMSKEIÐ – STJÓRNUN OG STEFNUMÓTUN

námskeiðin eru skipulögð þannig að þau auki færni, frammistöðu og frumkvæði stjórnenda í dagsins önn. þau miða að því að styðja stjórnendur í að takast á við helstu áskoranir í íslensku viðskiptalífi, vakta breyting-ar og tækifæri og nýta sannreyndar og hagnýtar leiðir með hliðsjón af nýrri tækni og þróun alþjóðasam-félagsins. Við uppbyggingu námskeiða á þessu sviði störfum við náið með stjórnendamenntun viðskipta-deildar hR og leggjum áherslu á virkt samstarf við fagfélög á borð við stjórnvísi.

samningatæKni – gRunnuR4. september

Á námskeiðinu er fjallað um helstu atriði árangursríkrar samninga-mennsku og samvinnu til að komast að góðu samkomulagi. Með fyrirlestrum, umræðum og æfingum afla nemendur sér þekkingar og færni í samningatækni.Leiðbeinandi: Sigurður Ragnarsson, MBA í stjórnun og markaðs-fræðum, stundakennari við viðskiptadeild HR.

caF líKanið: aðFERðiR Við sjÁlFsmat Og FRamKVæmd caF VERKEFna – nÝtt10. og 11. september

Námskeiðið er ætlað stjórnendum og sérfræðingum sem hyggjast beita CAF-líkaninu við stjórnun og leiða CAF-verkefni. Leiðbeinandi: Haraldur Hjaltason, MSc í rekstrarverkfræði, framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Artemis.

agilE Og lEan: innganguR FyRiR stjóRnEnduR mEð adVania – nÝtt12. september

Agile og Lean aðferðir (t.d. Scrum, XP og Kanban) hafa verið að ryðja sér til rúms í tæknigeiranum á undanförnum árum. Innleiðing þessara aðferða hefur í för með sér töluverðar breytingar í starfsemi fyrirtækja og stofnana. Námskeiðið er fyrir stjórnendur, fulltrúa viðskiptahliðar og aðra sem starfa með þróunarteymum. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi bakgrunn í tæknilegri vinnu.Leiðbeinandi: Baldur Kristjánsson, MSc í Business Informatics frá Universiteit Utrecht í Hollandi og BSc í tölvunarfræði frá HR. Sér-fræðingur í hugbúnaðargerð og stjórnun upplýsingatækniverkefna hjá Advania.

samningatæKni – FRamHald18. september

Framhaldsnámskeið í samningatækni þar sem lögð er sérstök áhersla á það stig samningamennsku þar sem samingsaðilar vinna saman að lausnum sem eiga að skila sameiginlegum ávinningi. Fjallað er um faglega ákvarðanatöku og traust og siðferði í samningamennsku. Leiðbeinandi: Sigurður Ragnarsson, MBA í stjórnun og markaðs-fræðum, stundakennari við viðskiptadeild HR.

lEiðtOgaFæRni: lyKilHlutVERK lEiðtOga16. og 23. október

Á námskeiðinu verður fjallað um lykilhlutverk og helstu áskoranir stjórnenda í dag. Áhersla verður lögð á að miðla vinnubrögðum sem munu koma til með að styrkja og þróa leiðtogahæfileika þátttakenda.Leiðbeinandi: Auður Arna Arnardóttir, PhD í ráðgjafarsálfræði, lektor við viðskiptadeild HR.

stjóRnun 2.0 – nÝtt21. og 26. nóvember

Hér verður farið yfir nýjar og óhefðbundnar stjórnunaraðferðir sem nokkur fremstu fyrirtæki heims hafa tileinkað sér eins og t.d. Google, Semco, Whole Foods o.fl. Aðstæður fyrirtækja og eðli þeirra er allt annað nú en fyrir 100 árum og kalla nýir tímar á nýjan hugsunarhátt við uppbyggingu og stjórnun fyrirtækja.Leiðbeinandi: Pétur Arason, MSc í rekstrarverkfræði frá háskóla-num í Álaborg, framleiðsluþróunarstjóri hjá Marel.

bREytingastjóRnun4. desember

Fjallað verður um eðli breytinga á vinnustöðum, aðferðafræði við stjórnun breytinga, möguleg viðbrögð fólks við breytingum sem það hefur ekki sjálft frumkvæði að og leiðum til að styðja við fólk í breytingaferli.Leiðbeinandi: Ketill Berg Magnússon, MA, MBA, framkvæmdastjóri Festu og stundakennari við viðskiptadeild HR.

stJóRnun Og stEFnumótun

„Samningatækni skiptir sífellt meira máli í starfi og í daglegu lífi, þar sem við tökum fleiri og fleiri ákvarðanir í samvinnu við aðra,“ segir Aðalsteinn Leifsson, sem kennir Case vinnustofu í samninga-tækni. „Við semjum ekki aðeins um laun og kaup og sölu á vörum og þjónustu heldur einnig um hvernig verkefni eru unnin, af hverjum og hvernig og um ýmis konar daglegar ákvarðanir á vinnustað og heimili.“ Aðalsteinn segir að hæfileikinn til að ná fram því besta með góðri samningatækni sé langt í frá meðfæddur. „Flestir treysta á brjóstvitið í samningaviðræðum og sumir halda því fram að fólk fæðist „góðir“ eða „slæmir“ samningamenn. Rannsóknir benda hins vegar eindregið til þess að flestir séu slæmir samingamenn. Yfirleitt náum við ekki þeim árangri sem við gætum náð fyrir okkur sjálf auk þess sem við skiljum eftir verðmæti á „borðinu“ eða missum af tækifærum til að skapa aukin verðmæti fyrir alla samningsaðila. Með því að læra – og æfa – vandaðar og heiðarlegar aðferðir í samningaviðræðum getum við náð betri árangri og á sama tíma skapað sterkari sambönd, hvort heldur við samstarfsmenn eða viðskiptavini.“

Aðalsteinn leifssonNámskeið: Case-vinnustofa í samningatækni

casE-VinnustOFa í samningatæKni6. og 13. desember

Markmiðið er að gera þátttakendur að sterkari samningamönnum með því að kynna fyrir þeim aðferðafræði sem nýtist einnig samstar-fsfólki þeirra og leiðir til bættra samninga fyrir vinnustaðinn í heild.Leiðbeinandi: Aðalsteinn Leifsson, MSc í alþjóðastjórnmálum og MBA, lektor við viðskiptadeild HR.

Page 10: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

TÆKNI- OG VERKFRÆÐI – STUTT NÁMSKEIÐ | 19 18 | STUTT NÁMSKEIÐ – TÆKNI- OG VERKFRÆÐI

Atvinnulífið kallar eftir einstaklingum með menntun á sviði tækni- og raungreina. hjá Opna háskólanum höfum við mætt þessari þörf með því að leggja aukna áherslu á vandað framboð sí- og endurmenntunar á sviði tækni- og verkfræði. Við vinnum náið með sér-fræðingum innan tækni- og verkfræðideildar hR, Verk-fræðingafélagi Íslands, tæknifræðingafélagi Íslands og hinum ýmsu sérfræðingum í atvinnulífinu.

ViRKni mótORstÝRinga – nÝtt27. og 29. ágúst

Námskeiðið hentar sérstaklega verk-, tækni- og iðnfræðingum og rafeindavirkjum sem starfa við raforkukerfi og vinna við uppsetningu og notkun stjórnbúnaðar fyrir aflfrek tæki eins og rafmagnsmótora.Leiðbeinendur: Kristinn Sigurjónsson, MSc í efnaverkfræði frá NTH og CSc í rafmagnsverkfræði frá HÍ, lektor við tækni- og verkfræði-deild HR og Friðrik Alexanderson, BSc í rafmagnstæknifræði frá Odense Teknikum, deildarstjóri á iðnaðarsviði Verkís.

pOwER piVOt – ExcEl10. og 12. september

PowerPivot er viðbót í Excel sem gefur notendum möguleika á að útfæra eigin greiningar, skýrslur og mælaborð með lítilli fyrirhöfn. Með PowerPivot má skilja á milli gagna, útreikninga og flokkana annars vegar og skjalanna sjálfra hins vegar. Þetta skilar miklum sveigjanleika og tímasparnaði.Leiðbeinandi: Grímur Sæmundsson, kerfisfræðingur frá HR og sérfræðingur í gagnavöruhúsum hjá Sjóvá.

tækni- Og VERkFRæði

upplÝsingatæKni í VERKEFnumHefst 7. september

Námskeiðið, sem er fyrir byrjendur og lengra komna, er hluti af náms-braut í Verkefnastjórnun APME og er kennt í fjarnámi. Kennt verður á hugbúnaðinn Word og Excel.Leiðbeinandi: Eðvald Möller, MSc í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá KTH í Svíþjóð og aðjúnkt við viðskiptafræðideild HÍ.

agilE Og lEan: innganguR FyRiR stjóRnEnduR mEð adVania – nÝtt12. september

Agile og Lean aðferðir (t.d. Scrum, XP og Kanban) hafa verið að ryðja sér til rúms í tæknigeiranum á undanförnum árum. Innleiðing þessara aðferða hefur í för með sér töluverðar breytingar í starfsemi fyrirtækja og stofnana. Námskeiðið er fyrir stjórnendur, fulltrúa viðskiptahliðar og aðra sem starfa með þróunarteymum. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi bakgrunn í tæknilegri vinnu.Leiðbeinandi: Baldur Kristjánsson, MSc í Business Informatics frá Universiteit Utrecht í Hollandi og BSc í tölvunarfræði frá HR. Sér-fræðingur í hugbúnaðagerð og stjórnun upplýsingatækniverkefna hjá Advania.

líKanagERð FyRiR REKstRaRÁætlaniR, aRðsEmismat Og VERðmat17., 24. og 26. september

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur nái færni í gerð reiknilíkana í Excel, fyrst og fremst á sviði fyrirtækjareksturs og fjármála. Einkum verður fjallað um gerð líkana fyrir rekstraráætlanir fyrirtækja en einnig arðsemislíkön fyrir fjárfestingaverkefni og áætlanir um fjárstreymi til að meta virði fyrirtækja. Leiðbeinandi: Páll Jensson, PhD í aðgerðarannsóknum, MSc í iðnaðarverkfræði frá DTU, prófessor við tækni- og verkfræðideild HR.

Páll Jensson, prófessor í aðgerðarannsóknum við tækni- og verk-fræðideild HR kennir námskeiðið Reiknitækni í rekstri fyrirtækja. Hann mælir því með að þeir sem lítið hafi notað Excel taki þau Excel-námskeið sem í boði eru í Opna háskólanum áður en þeir sæki námskeiðið. „Við höfum valið að kynna nokkrar aðferðir í þessu námskeiði þar sem saman fer áhersla á hagnýtt gildi og einfaldleiki við að nýta aðferðirnar. Við notum Excel eða viðbætur við Excel sem allir sem vinna við rekstur geta notað. Jafnframt er valið byggt á því sem við álítum að komi íslenskum fyrirtækjum og stofnunum helst að gagni í dag.“ Námskeiðið er kennt í þremur lotum, fjórar klukkustundir í senn, og eftir hverja lotu fara þátt-takendur heim með sýnidæmi um aðferðirnar sem kenndar eru hverju sinni og ættu þá ýmist að vera í stakk búnir til að beita þeim í fyrirtækjum sínum eða að hafa áttað sig á notkunarmögu-leikunum.

páll JenssonNámskeið: Reiknitækni í rekstri fyrirtækja

sQl-gagnagRunnaRHefst 1. október

Farið er yfir helstu atriði við notkun á SQL-gagnagrunni eins og fyrirspurnir og uppfærslur á gögnum. Meðal annars er farið yfir eftirfarandi atriði: Hvernig sækja á gögn úr einni töflu og eins hvernig töflur eru tengdar saman í fyrirspurnum, samantektarfyrirspurnir, hlutfyrirspurnir, hvernig á að bæta við gögnum og margt fleira.Leiðbeinandi: Kjartan R. Guðmundsson, BSc í tölvunarfræði og Oracle Certified DBA, sérfræðingur í hugbúnaðardeild Lands-bankans.

tEiKniFORRitun í inVEntOR – nÝtt14. október

Þrívíddarhönnun og -teikning hefur verið að ryðja sér til rúms síðustu árin. Í þrívíddarmódelum er auðveldara að koma auga á hönnunar-galla á teikniborðinu í stað þess að komast að gallanum á verkstað og því er hægt að spara stórfé með þessari tækni. Leiðbeinendur: Gísli Gunnar Pétursson, BSc í vél-, iðn- og rekstrariðnfræði frá HR, rafhönnuður hjá Rafeyri, stundakennari við tækni- og verkfræðideild HR.

REiKnitæKni í REKstRi FyRiRtæKja8., 15. og 22. október

Rekstrarstjórnun í fyrirtækjum og stofnunum verður sífellt meira krefjandi með árunum. Á móti kemur að aðferðafræði við stjórnun og reiknitækni hefur þróast ört. Aðgerðarannsóknir hafa leitt af sér margar hagnýtar aðferðir við greiningu flókinna viðfangsefna, skipu-lagningu og rekstur og hugbúnaður eins og Excel hefur þróast mikið á síðustu árum. Leiðbeinandi: Páll Jensson, PhD í aðgerðarannsóknum, MSc í iðnaðarverkfræði frá DTU, prófessor við tækni- og verkfræðideild HR.

HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK úTSKRIFAR RÍFLEGA TVO ÞRIÐJU ÞEIRRA SEM LJúKA TÆKNIMENNTUN Á HÁSKÓLASTIGI Á ÍSLANDI

Page 11: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

20 | STUTT NÁMSKEIÐ – TÆKNI- OG VERKFRÆÐI

FRamlEiðsla Og gæðastjóRnunHefst 15. október

Farið verður yfir greiningar á framleiðsluferli með það að leiðarljósi að það verði sem hagkvæmast og tryggi viðskiptavinum umsamin gæði. Fjallað verður um uppbyggingu á stefnumiðuðu gæðakerfi og verður einkum horft til ISO-9000 staðlaraðarinnar. Námskeiðið er hluti af námsbraut í verkefnastjórnun, APME, og er kennt í fjarnámi.Leiðbeinandi: Hlynur Stefánsson, PhD í verkfræði frá Imperial College London og lektor í rekstrarverkfræði við tækni- og verk-fræðideild HR.

R - tölFRæðiúRVinnsla30. október, 6. og 13. nóvember

R er opinn tölfræðihugbúnaður sem má setja upp á öllum stýri-kerfum. Forritið er nú sá tölfræðihugbúnaður sem er mest notaður í tölfræðirannsóknum á Íslandi og víða erlendis. Á námskeiðinu munu nemendur kynnast helstu kostum og sérstöðu R í samanburði við önnur þekkt forrit eins og Matlab, Excel, SAS og SPSS. Að nám-skeiðinu loknu ættu þátttakendur að vera færir um að skrifa einföld forrit og framkvæma algengustu gerðir tölfræðiúrvinnslu í R.Leiðbeinendur: Anna Helga Jónsdóttir, MSc í stærðfræði frá DTU, BSc í vélaverkfræði frá HÍ, doktorsnemi og aðjúnkt í tölfræði við HÍ.Sigrún Helga Lund, MEd í kennsluréttindum, BSc í stærðfræði frá HÍ, doktorsnemi og aðjúnkt í tölfræði við HÍ. Bjarki Þór Elvarsson, MSc í stærðfræði frá háskólanum í Warwick og doktorsnemi við HÍ.

mERKing VinnusVæða7. og 8. nóvember

Námskeið fyrir verkkaupa, hönnuði og eftirlitsmenn sem á einn eða annan hátt koma að undirbúningi og framkvæmd vega- og gatnagerðarmannvirkja.Leiðbeinendur: Björn Ólafsson, MSc í byggingarverkfræði, for-stöðumaður þjónustudeildar Vegagerðarinnar. Ingvi Árnason, BSc í byggingartæknifræði, deildarstjóri tæknideildar Vegagerðarinnar.Jóhann Christiansen, BSc í rekstrartæknifræði, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg.

að bREyta gögnum í VERðmætaR upplÝsingaR7., 14. og 21. nóvember

Mikil verðmæti eru oft falin í þeim gögnum sem fyrirtæki hafa yfir að ráða um hegðunarmynstur viðskiptavina sinna. Markmiðið með þessu námskeiði er að kynna fyrir þátttakendum ýmis konar aðferðir, tól og tæki til sjálfvirkrar tölvugreininar á gögnum (e. data mining). Leiðbeinandi: Yngvi Björnsson, PhD í tölvunarfræði frá University of Alberta í Kanada, dósent við tölvunarfræðideild HR og meðstjórn-andi Gervigreindarseturs HR.

Page 12: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

22 | STUTT NÁMSKEIÐ – TÖLVUNARFRÆÐI TÖLVUNARFRÆÐI – STUTT NÁMSKEIÐ | 23

Í ljósi örar þróunar í tæknivísindum er mikilvægt fyrir sérfræðinga og stjórnendur að viðhalda menntun sinni og færni. Opni háskólinn hefur á síðustu misserum lagt áherslu á að byggja upp fjölbreytt framboð á sviði upplýsingatækni og hugbúnaðarþróunar. Við njótum þekkingar sérfræðinga við tölvunarfræðideild hR og eigum í góðu samstarfi við fyrirtæki innan þessarar starfsgreinar.

upplÝsingatæKni í VERKEFnumHefst 7. september

Námskeiðið, sem er fyrir byrjendur og lengra komna, er hluti af náms-braut í Verkefnastjórnun APME og er kennt í fjarnámi. Kennt verður á hugbúnaðinn Word og Excel.Leiðbeinandi: Eðvald Möller, MSc í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá KTH í Svíþjóð og aðjúnkt við viðskiptafræðideild HÍ.

pOwER piVOt – ExcEl10. og 12. september

PowerPivot er viðbót í Excel sem gefur notendum möguleika á að útfæra eigin greiningar, skýrslur og mælaborð með lítilli fyrirhöfn. Með PowerPivot má skilja á milli gagna, útreikninga og flokkana annars vegar og skjalanna sjálfra hins vegar. Þetta skilar miklum sveigjanleika og tímasparnaði.Leiðbeinandi: Grímur Sæmundsson, kerfisfræðingur frá HR og sérfræðingur í gagnavöruhúsum hjá Sjóvá.

agilE Og lEan: innganguR FyRiR stjóRnEnduR mEð adVania – nÝtt12. september

Agile og Lean aðferðir (t.d. Scrum, XP og Kanban) hafa verið að ryðja sér til rúms í tæknigeiranum á undanförnum árum. Innleiðing þessara aðferða hefur í för með sér töluverðar breytingar í starfsemi fyrirtækja og stofnana. Námskeiðið er fyrir stjórnendur, fulltrúa viðskiptahliðar og aðra sem starfa með þróunarteymum. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi bakgrunn í tæknilegri vinnu.Leiðbeinandi: Baldur Kristjánsson, MSc í Business Informatics frá Universiteit Utrecht í Hollandi og BSc í tölvunarfræði frá HR. Sér-fræðingur í hugbúnaðagerð og stjórnun upplýsingatækniverkefna hjá Advania.

samHliða FORRitun – nÝttHefst 18. september

Til að námskeiðið nýtist þátttakendum sem best þurfa þeir að hafa góða þekkingu á C eða C++ forritunarmálunum. Að námskeiðinu loknu ættu þátttakendur að skilja helstu undirstöðuatriði í nýtingu skjákorta til samhliða vinnslu. Þeir ættu að geta skrifað kóða sem keyrir á CUDA samhæfðum skjákortum og greint afköst hans.Leiðbeinendur: Ársæll Þór Jóhannsson, MSc í tölvunarfræði frá HR og hugbúnaðarsérfræðingur hjá Videntifier Technologies. Kristleifur Daðason, BSc í tölvunarfræði frá HR og meðstofnandi að Videntifier Technologies.

sQl-gagnagRunnaRHefst 1. október

Farið er yfir helstu atriðin við notkun á SQL-gagnagrunni eins og fyrirspurnir og uppfærslur á gögnum. Meðal annars er farið yfir eftirfarandi atriði: Hvernig sækja á gögn úr einni töflu og eins hvernig töflur eru tengdar saman í fyrirspurnum, samantektarfyrirspurnir, hlutfyrirspurnir, hvernig á að bæta við gögnum og margt fleira.Leiðbeinandi: Kjartan R. Guðmundsson, BSc í tölvunarfræði og Oracle Certified DBA, sérfræðingur í hugbúnaðardeild Lands-bankans.

VöRuHús gagna mEð adVania – nÝtt4. og 11. október

Farið er yfir helstu þætti vöruhúsa gagna og þær aðferðir sem hægt er að beita við undirbúning, uppbyggingu og rekstur þeirra svo sem gagnalíkön, samþættingu, gagnaöryggi, gæði gagna, stjórnun stofn-gagna, gagnamarkaði og OLAP.Leiðbeinendur: Hinrik Jósafat Atlason, MSc í gervigreind frá Uni-versity of Essex í Bretlandi, BSc í tölvunarfræði frá háskólanum í Álaborg og ráðgjafi í viðskiptagreind hjá Advania. Ragnar Már Magnússon, BSc í tölvunarfræði frá HR og ráðgjafi í viðskiptagreind hjá Advania.

tEiKniFORRitun í inVEntOR – nÝtt14. október

Þrívíddarhönnun og -teikning hefur verið að ryðja sér til rúms síðustu árin. Í þrívíddarmódelum er auðveldara að koma auga á hönnunar-galla á teikniborðinu í stað þess að komast að gallanum á verkstað og því er hægt að spara stórfé með þessari tækni. Leiðbeinandi: Gísli Gunnar Pétursson, BSc í vél-, iðn- og rekstrariðnfræði frá HR, rafhönnuður hjá Rafeyri og stundakennari við tækni- og verkfræðideild HR.

itil staðall um Þjónustu í upplÝsingatæKni mEð adVania – nÝtt15. október

Á þessu námskeiði kynnumst við grunnatriðum þjónustustjórnunar í upplýsingatækni (ITSM) og kynnum okkur ITIL-aðferðafræðina sem nýtist í stefnumótun og daglegum rekstri. Fyrir upplýsingatæknistjóra, framkvæmdastjóra rekstrar og tæknisviða, deildar-, verkefna-, vöru-, og þjónustustjóra sem eiga sitt starf undir skilvirkri upplýsinga-tækniþjónustu.Leiðbeinandi: Einar Þórarinsson, BSc í tölvunarfræði frá HR og forstöðumaður rekstrarlausna hjá Advania.

tölVunARFRæði

TöLVUNARFRÆÐIDEILD HR ER STERKASTA TöLVUNARFRÆÐIDEILD LANDSINS*

*Viðurkenningarskýrsla um doktorsnám, 2008 | http://en.ru.is/media/td/SCS_accreditation.pdf

Page 13: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

TÖLVUNARFRÆÐI – STUTT NÁMSKEIÐ | 25 24 | STUTT NÁMSKEIÐ – TÖLVUNARFRÆÐI

R - tölFRæðiúRVinnsla30. október, 6. og 13. nóvember

R er opinn tölfræðihugbúnaður sem má setja upp á öllum stýri-kerfum. Forritið er nú sá tölfræðihugbúnaður sem er mest notaður í tölfræðirannsóknum á Íslandi og víða erlendis. Á námskeiðinu munu nemendur kynnast helstu kostum og sérstöðu R í samanburði við önnur þekkt forrit eins og Matlab, Excel, SAS og SPSS. Að nám-skeiðinu loknu ættu þátttakendur að vera færir um að skrifa einföld forrit og framkvæma algengustu gerðir tölfræðiúrvinnslu í R.Leiðbeinendur: Anna Helga Jónsdóttir, MSc í stærðfræði frá DTU, BSc í vélaverkfræði frá HÍ, doktorsnemi og aðjúnkt í tölfræði við HÍ. Sigrún Helga Lund, MEd í kennsluréttindum, BSc í stærðfræði frá HÍ, doktorsnemi og aðjúnkt í tölfræði við HÍ. Bjarki Þór Elvarsson, MSc í stærðfræði frá háskólanum í Warwick og BSc í stærðfræði og doktorsnemi við HÍ.

ÞaRFagREining HugbúnaðaRlausna mEð adVania5. og 6. nóvember

Námskeiðið er fyrir alla sem koma nálægt hugbúnaðarverkefnum, fyrir viðskiptavini sem vilja að rödd þeirra heyrist og tæknifólk sem vill bæta þjónustu við viðskiptavini. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur þekki samstarfsfleti viðskipta- og tæknihliðar í hugbúnaðarverkefnum og hafi tileinkað sér kunnáttu í viðurkenndum aðferðum, m.a. á grundvelli Agile og Lean hugbúnaðargerðar.Leiðbeinandi: Gunnar Sigurjónsson, BSc í rafmagns- og tölvuverk-fræði frá HÍ, ráðgjafi hjá Advania.

að bREyta gögnum í VERðmætaR upplÝsingaR – nÝtt7., 14. og 21. nóvember

Mikil verðmæti eru oft falin í þeim gögnum sem fyrirtæki hafa yfir að ráða um hegðunarmynstur viðskiptavina sinna. Markmiðið með þessu námskeiði er að kynna fyrir þátttakendum ýmis konar aðferðir, tól og tæki til sjálfvirkrar tölvugreininar á gögnum (e. data mining). Leiðbeinandi: Yngvi Björnsson, PhD í tölvunarfræði frá University of Alberta í Kanada, dósent við tölvunarfræðideild HR og meðstjórn-andi Gervigreindarseturs HR.

tölVuöRyggi3., 5. og 10. desember

Tíðni tölvuinnbrota hjá stórum alþjóðlegum fyrirtækjum hefur aukist umtalsvert á undanförnum misserum. Fyrirtæki og stofnanir eru í auknum mæli að leita leiða til að stemma stigu við þessari þróun. Áherslan á þessu námskeiði er á árásaraðila og fjallað er um þá hluti sem geta farið úrskeiðis, svo hægt sé að byggja upplýsingaöryggi á traustari grunni.Leiðbeinandi: Ýmir Vigfússon, PhD í tölvunarfræði frá Cornell University, lektor við tölvunarfræðideild HR og eigandi Syndis sem sérhæfir sig í upplýsingaöryggi.

Yngvi Björnsson, dósent við tölvunarfræðideild HR, kynnir fyrir þátttakendum ýmis konar aðferðir, tól og tæki til sjálfvirkrar tölvugreininar á gögnum (e. data mining), en slíkar aðferðir eru gagnlegar til að finna mynstur í gögnum sem nýta má til bættrar ákvörðunartöku. Að sögn Yngva geta mynstrin verið margvísleg. „Við getum tekið vefverslun sem dæmi. Með því að fylgjast með hegðun notenda á versluninni er hægt að komast að því hvaða vörur notendur eru líklegir til að kaupa saman og í framhaldinu auglýsa þær vörur saman.” Yngvi segir mikinn hag af því að skilgreina betur notendahópa og þar af leiðandi beita sértækari markaðssetningu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur á námskeiðinu hafi einhverja reynslu í að greina gögn, en ekki er nauðsynlegt að kunna á þessar aðferðir sem hér er minnst á.

Yngvi BjörnssonNámskeið: Að breyta gögnum í verðmætar upplýsingar

„mín upplifun af fyrirlestrum Opna háskólans: stuttir, hnitmiðaðir, hagnýtir og umfram allt skemmtilegir. Einmitt það sem atvinnulífð þarf.“

Vilborg Einarsdóttir,framkvæmdastjóri mentors.

Page 14: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

STUTT NÁMSKEIÐ | 27 26 | STUTT NÁMSKEIÐ – VERKEFNASTJÓRNUN

„Eftir að hafa úskrifast úr meistaranámi í lögfræði vissi ég að dýpri þekking á verkefnastjórnun væri lykillinn að draumastarfinu. hugurinn stefndi að alþjóðlegum fyrirtækjum á olíu- og gasmarkaðnum. mikilvægt er að hafa góða þekkingu á verkefnaferlum; áhættustýringu, samskipta-tækni o.fl. til að vinna í teymum innan slíkra fyrirtækja sem sinna oft mjög áhættusömum verkefnum.

Verkefnastjórnun ApmE varð fyrir valinu þar sem námið er góður undirbún-ingur fyrir alþjóðlega ipmA d-stigs vottunarprófið. námið er mjög áhugavert, hagnýtt og metnaðarfullt. Við kennslu voru fræðin tengd raunhæfum verkefn-um sem skilar sér í góðum skilningi á verkefnaferlinu. skipulagning, aðstaða og umsjón með náminu hjá Opna háskólanum í hR var framúrskarandi og gef ég því mín bestu meðmæli fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að fá dýpri skilning á verkefnastjórnun. Ég fékk draumastarfið viku eftir útskrift.“

Kristín laufey björgvinsdóttir, Consultant in global mobility, Assignment management hjá statoil í noregi.

Morten Fangel rekur eigið ráðgjafafyrirtæki í Danmörku og kemur til landsins til að kenna í þriggja daga staðarlotu í námskeiðinu Advanced Project Management. Að henni lokinni tekur við æfingatímabil þar sem þátttakendur nýta það sem þeir læra í eigin verkefnum í sinni vinnu og hittast svo aðra hvora viku í smærri hópum til að deila reynslu sinni. „Við mælum með að fólk noti um það bil fimm klukkustundir á viku í sjálfsnám og æfingar og nýti svo hópfundina vel,“ segir Morten. Hann telur að þátttakendur geti vel sinnt fullri vinnu meðfram námskeiðinu því nemendur fái að einhverju leyti að nýta verkefni úr vinnunni í náminu. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að verkefnastjórar sýni frumkvæði og brýni leið-togahæfileika sína og kenndar eru aðferðir til þess.

morten FangelNámskeið: Verkefnastjórnun

VERkEFnAstJóRnun

gott skipulag og vönduð vinnubrögð auka skilvirkni í daglegum störfum. á námskeiðum Opna háskólans læra þátttakendur að nýta sér aðferðir verkefna- stjórnunar m.a. til að taka ákvarðanir, bæta skipulag, gera áætlanir, greina ferla og mæla árangur. Í samstarfi við Verkefnastjórnunarfélag Íslands hefur Opni háskól-inn í hR boðið reglulega upp á alþjóðleg próf sem staðfesta þekkingu þátttakenda á verkefnastjórnun. um er að ræða ipmA-vottun samkvæmt stigi C og d.

upplÝsingatæKni í VERKEFnumHefst 7. september

Námskeiðið, sem er fyrir byrjendur og lengra komna, er hluti af náms-braut í Verkefnastjórnun APME og er kennt í fjarnámi. Kennt verður á hugbúnaðinn Word og Excel.Leiðbeinandi: Eðvald Möller, MSc í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá KTH í Svíþjóð, aðjúnkt við viðskiptafræðideild HÍ.

ExcEl 1 Hefst 9. september

Grunnnámskeið í Excel. Námskeiðið nýtist helst þeim sem hafa stigið sín fyrstu skref í Excel-forritinu en hafa lítið unnið með það og þurfa að auka grunnþekkingu sína. Leiðbeinandi: Páll Daði Ásgeirsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte.

gRunnatRiði í VERKEFnastjóRnun17. og 18. september

Á námskeiðinu er farið yfir grundvallaratriði í aðferðafræði verk-efnastjórnunar og uppbyggingu verkefna. Á námskeiðinu vinna þátttakendur í hópum með verkefni eins þátttakanda. Verkefnið er sett upp í verkefnisáætlun sem viðkomandi þátttakandi fær með sér heim. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur tileinki sér aðferðir verkefnastjórnunar til að geta aukið skilvirkni í daglegum störfum og stýrt verkefnum.Leiðbeinandi: Þóra Valný Yngvadóttir, BA, verkefnastjóri hjá Lands-bankanum.

ExcEl 211. nóvember

Framhaldsnámskeið í Excel fyrir þá sem hafa grunnþekkingu og vilja bæta við hana. Námskeiðið kemur helst til með að nýtast þeim sem eru að leitast eftir að geta nýtt Excel-forritið nánar við vinnu og/eða reglulega vinnslu.Leiðbeinandi: Páll Daði Ásgeirsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte.

VERKEFnastjóRnun – nÝttKennt á ensku14. – 16. janúar 2014

Námskeið þar sem nemendur fá þjálfun í verkefnastjórnun með æfingum í raunverulegum aðstæðum. Leiðbeinandi: Morten Fangel, MSc, framkvæmdastjóri Fangel Consulting, Danmörku.

Page 15: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

28 | LENgRI NÁMSKEIÐ LENgRI NÁMSKEIÐ | 29

ViðuRKEnndiR bóKaRaRHefst 19. ágúst

Undirbúningsnám til viðurkenningar bókara. Nám á háskólastigi sem veitir ígildi 12 ECTS-eininga inn í grunnnám við viðskiptadeild HR. Leiðbeinendur eru sérfræðingar á sviði bókhalds og endurskoðunar og búa yfir margra ára reynslu af kennslu og prófagerð til viður- kenningar bókara. Æskilegt er að umsækjendur hafi unnið við bókhald í a.m.k. 2–3 ár og hafi á þeim tíma sinnt margvíslegum og krefjandi bókhaldsstörfum.

stRaumlínustjóRnun: ÞRóun ViðsKiptaFERla mEð stöðugum umbótumLean Management ProgrammeHefst 27. ágúst

Nám að alþjóðlegri fyrirmynd í aðferðum straumlínustjórnunar, stöðugra umbóta og þróun viðskiptaferla. Námið varpar ljósi á þá möguleika til umbóta og framfara sem liggja í viðskiptaferlum fyrirtækja. Það hentar sérstaklega sérfræðingum og stjórnendum framleiðslu- og þjónustufyrirtækja sem hafa áhuga á að skoða nánar möguleika straumlínustjórnunar.

VERðbRéFamiðlun, 1. Hluti: lögFRæðiKennt í fjarnámiHefst 4. september

Nám til undirbúnings prófa í verðbréfaviðskiptum. Í fyrsta hluta er farið yfir grunnatriði lögfræðinnar og réttarreglur á þeim sviðum sem varða störf á fjármagnsmarkaði.

VERKEFnastjóRnun, apmEApplied Project Management ExpertKennt í fjarnámiHefst 7. september

Nám á háskólastigi sem veitir ígildi 24 ECTS-eininga inn í grunnnám við tækni- og verkfræðideild HR. Lýkur með alþjóðlegu IPMA-prófi til vottunar um þekkingu nemenda á aðferðafræði verkefnastjórnunar. Lögð er áhersla á tölulegar greiningar við ákvarðanatöku og stjórnun rekstrar og verkefna.

ÁbyRgð Og ÁRanguR stjóRnaRmannaHefst 11. september

Námskeiðið er ætlað stjórnarmönnum fyrirtækja, stofnana og eftirlitsskyldra aðila samkvæmt skilyrðum FME, sem og þeim sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu. Markmið námslínunnar er að efla faglegan grunn þátttakenda m.a. með þjálfun á sviði lagalegra, fjárhagslegra og siðferðilegra þátta auk umfjöllunar um endurskoðun og áhættustýringu.

LENGRI NÁMSKEIÐNám sem er sniðið að þörfum atvinnulífsins og getur verið allt frá einni önn upp í eitt ár að lengd. Námskeiðin henta vel samhliða starfi og veitir hluti þeirra ígildi ECTS-eininga. Meginmarkmið lengri námskeiða er að veita þátttakendum viðurkenningu í sínu fagi eða auka þekkingu þeirra og færni innan ákveðinna fagsviða.

Lögð er áhersla á öflug tengsl við atvinnulífið, hagnýta nálgun með raunhæfum verkefnum og virkni nemenda.

maRKÞjÁlFunExecutive CoachingHefst 12. september

Nám á háskólastigi þar sem áhersla er lögð á stjórnendamarkþjálfun og helstu áskoranir stjórnenda í íslensku atvinnulífi. Veitir ígildi allt að 12 ECTS-eininga í valdar námsleiðir innan viðskipta-deildar HR. Námið undirbýr nemendur fyrir alþjóðlega ACC/PCC vottun (Associate/Professional Certified Coach) og veitir þeim traustan grunn til að starfa sjálfstætt sem markþjálfar. Leiðbeinandi er Cheryl Smith, en hún býr yfir rúmlega 25 ára reynslu af leiðtogaþjálfun fyrir stórfyrirtæki og hinar ýmsu ríkisstofnanir Bandaríkjanna.

REKstRaR- Og FjÁRmÁlanÁmHefst 17. september

Hagnýtt nám fyrir þá sem vilja auka færni sína í fjármálum og rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Einnig verður farið yfir helstu þætti við stofnun fyrirtækja, markaðsmál, samningatækni og verkefnastjórnun. Námið hentar sérstaklega vel þeim sem eru að stofna eða hafa stofnað eigin fyrirtæki og þeim sem starfa við iðnað, hönnun eða smásölu.

stjóRnun aðFangaKEðjunnaR – nÝttSupply Chain ManagementHefst 24. september

Lögð er áhersla á að auka þekkingu þátttakenda á heildarmynd aðfangakeðjunnar. Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og byggir á fræðilegum grunni en áhersla er lögð á að námið sé hagnýtt og efnistök því aðlöguð íslensku atvinnulífi. Námið er kennt í lotum og hentar sérstaklega sérfræðingum og stjórnendum fyrirtækja sem starfa á sviði framleiðslu, þjónustu, dreifingar og inn- eða útflutnings.

staFRæn maRKaðssEtning – nÝttProfessional Digital MarketingHefst 26. september

Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og miðar að því að dýpka skilning nemenda á markaðssetningu og viðskiptum á netinu og auka færni þeirra við notkun á þeim tækjum og tólum sem til staðar eru. Námið er ætlað íslensku markaðsfólki og því gert ráð fyrir að umsækjendur búi yfir skilningi á grunnþáttum markaðsfræðinnar. Um er að ræða metnaðarfullt og hagnýtt nám sem byggt er upp í samstarfi við viðskiptadeild HR og fremstu sérfræðinga landsins á sviði viðskipta og markaðssetningar á netinu.

Page 16: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

30 | LENgRI NÁMSKEIÐ

SAMSTARF VIÐ ATVINNULÍFIÐöflug samvinna háskóla og atvinnulífs er forsenda verðmætasköpunar og samkeppnishæfni þjóða. Starfsemi Opna háskólans í HR grundvallast á slíkri samvinnu. Við störfum með fulltrúum íslensks atvinnulífs með margvíslegum hætti og njótum þekkingar sérfræðinga frá m.a. Viðskiptaráði Íslands, Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins.

FagRÁð Opna HÁsKólans í HRTil að styrkja tengsl við íslenskt atvinnulíf höfum við meðal annars unnið að því að koma á fót fagráðum með sérfræðingum úr akademískum deildum HR, sérfræðingum úr atvinnulífinu, fulltrúum fagfélaga og fyrrum nemendum HR. Þessi umræðuvettvangur færir okkur bæði sterkari og virkari tengsl við atvinnulífið og þar með aukinn skilning á helstu áskorunum sérfræðinga og stjórnenda.

FRæðslulausniR FyRiR FyRiRtæKiHáskólinn í Reykjavík starfar með fyrirtækjum og stofnunum að því að sérsníða lausnir að þörfum og starfsumhverfi vinnustaða. Fræðslan skilar sér ekki eingöngu í aukinni starfsánægju og betri liðsheild heldur jafnframt í bættum rekstri fyrirtækisins, aukinni framleiðni og verðmætasköpun fyrir samfélagið í heild sinni.

stjórnendaþjálfun og heildarlausnir á sviði sí- og endurmenntunar Við leggjum okkur fram við að greina þarfir fyrirtækisins og skilja starfsemina. Við setjum upp fræðsluáætlun fyrir stjórnendur og vinnustaðinn í heild. Sérsniðnar lausnir eru ólíkar eftir áherslum fyrirtækja en efnistök eru einkum sótt til sérfræðinga viðskiptadeildar HR, sérfræðinga í íslensku atvinnulífi sem og til erlendra samstarfs-aðila og gestakennara.

samstarfsverkefni og sérsniðnar námslínurOpni háskólinn í HR hefur haldið fjölda stórra námskeiða í samstarfi við fyrirtæki og fagsamtök sem miða að því að bæta árangur og færni starfsmanna á ákveðnu sviði innan sama fyrirtækis eða sömu atvinnu-greinar. Kennsluefni er sótt inn í deildir HR og til annarra sérfræðinga í íslensku atvinnulífi og lagað að þörfum viðskiptavina okkar.

Dæmi: Vottun fjármálaráðgjafa í samstarfi við SFF og íslensku bankana, Tryggingaskólinn í samstarfi við vátryggingafélögin, Flutn-inga- og vörustjórnun í samstarfi við SVÞ, Eimskip og Samskip og Stjórnun og forysta í fluginu með Icelandair.

Verkefni geta einnig verið afmörkuð með sérstakar þarfir eða markmið í huga líkt og Viðskiptaáætlunarkeppni fyrir konur sem unnið var með Íslandsbanka og FKA.

pmd – stjóRnEndanÁm HRProgramme for Management DevelopmentHefst 19. september

Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og lagað að íslenskum aðstæðum til að efla faglega þekkingu og færni stjórnenda. Sér-fræðingar og samstarfsaðilar Háskólans í Reykjavík sjá um kennsluna sem er byggð að miklu leyti á hagnýtum verkefnum. Námið hentar vel þeim stjórnendum sem vilja bæta menntun sína án þess að skuld-binda sig í langtímanám.

mba-VinnustOFuR HRMBA-nám við HR er alþjóðlega vottað stjórnendanám sem sniðið er að þörfum fólks á vinnumarkaðnum. Opnar MBA-vinnustofur Háskólans í Reykjavík koma til móts við stjórnendur í atvinnulífinu. Leiðbeinendur koma frá mörgum bestu viðskiptaháskólum heims eins og IESE í Barcelona, London Business School og Boston University.

developing your professional people management skills19. september

Vinnustofa með Paul Kearns, sem hefur yfir þriggja áratuga reynslu af stjórnun mannauðsmála. Kearns hefur frá árinu 1991 rekið eigið ráðgjafafyrirtæki (PWL) í Bretlandi og hefur kennt við MBA-nám HR síðan 2005. Á vinnustofunni verður áhersla lögð á tengsl man-nauðsstjórnunar við stefnu fyrirtækis og rekstrarárangur.

strategic decision makingVinnustofan verður haldin í nóvember 2013. Nánari dagsetning auglýst síðar.

Vinnustofa með Dr. Eric Weber aðstoðarrektor IESE-viðskipta-háskólans í Barcelona. Weber situr í ráðgjafanefnd HR og hefur kennt við MBA-nám HR frá 2005. Fjallað verður um leiðir til að ná hámarksárangri, stefnumótun og innleiðingu á stefnu, valddreifingu og samhæfingu.

Tengiliður vegna stjórnendaþjálfunar og fræðslulausna fyrir fyrirtæki og stofnanir er:

„Við vorum með stóran hóp stjórnenda með ólíkan bakgrunn á sérsniðnu námskeiði þar sem lögð var áhersla á stjórnun, mannleg samskipti og aukið fjármálalæsi. námskeiðin voru blanda af fræðilegu efni og verklegu, námsefnið og kennslan voru fagleg og áhugi á okkar fyrirtæki skein í gegn hjá leiðbeinendunum. Við vorum mjög ánægð með námskeiðið.“

Þórhildur ólöf Helgadóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Securitas.

Guðmunda SmáradóttirForstöðumaður stjórnendamenntunar HRSími 599 [email protected]

Page 17: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

32 | SAMSTARF VIÐ ATVINNULÍFIÐ SAMSTARF VIÐ ATVINNULÍFIÐ | 33

sígild stutt námskeiðÍ námskeiðsframboði okkar má finna úrval sígildra námskeiða sem við teljum eiga erindi inn á hvern vinnustað. Námskeiðin miða að því að bæta árangur í starfi og auka persónulega færni þátttakenda, m.a. á sviði samskipta og skipulags. Um er að ræða námskeið á borð við tímastjórnun, verkefnastjórnun, samningatækni o.fl.

Dæmi um samstarfsfyrirtæki: Íslandsbanki, landsbankinn, Arion banki, mp banki, tm, VÍs, sjóvá, Vörður, landspítalinn, CCp, landsnet, Eimskip, samskip, Airport Associates, Flugvirkjafélag Íslands, marel, Advania, n1, Reiknistofa bankanna, Bl, toyota, tax Free Worldwide, nýherji, Applicon, Borgun, FmE, ls Retail, Valitor, Actavis, læknafélagið, Orkuveitan, Íbúðalánasjóður, Íslandsstofa, sAF, sérstakur saksóknari, samkaup, RÚV, Voda-fone, iceland travel, marel, ingvar helgason, þjóðskrá, matís, isavia, Vendum, Corporate Coach u o.fl.

lEiðbEinEnduRLeiðbeinendur okkar eru ýmist sérfræðingar við HR, samstarfsaðilar úr íslensku atvinnulífi eða erlendir sérfræðingar. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar.

samstaRFsaðilaRVið leggjum mikla áherslu á að vera í virku samstarfi við öll helstu fag-félög á sviði tækni, viðskipta og laga. Gott samstarf færir okkur nær því að greina þarfir atvinnulífsins og þar með geta sérfræðingar og stjórnendur haft með beinum hætti áhrif á námskeiðsframboð okkar.

• SA, Samtök atvinnulífsins• SI, Samtök iðnaðarins• VÍ, Verslunarráð Íslands• VFÍ, Verkfræðingafélag Íslands• TFÍ, Tæknifræðingafélag Íslands• VSF, Verkefnastjórnunarfélag Íslands• FKA, Félag kvenna í atvinnulífinu • Stjórnvísi• IÐAN, fræðslusetur• Ímark, Félag íslensks markaðsfólks• SÍA, Samtök íslenskra auglýsingastofa• SFF, Samtök fjármálafyrirtækja• FVH, Félag viðskipta- og hagfræðinga• FVB, Félag viðurkenndra bókara• FLE, Félag löggildra endurskoðenda• Markþjálfunarfélag Íslands• SVÞ, Samtök verslunar og þjónustu• Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

öFlugRa tEngslanEtÁ námskeiðum hjá Opna háskólanum í HR gefst þér dýrmætt tækifæri til að styrkja tengslanet þitt, kynnast öðrum sérfræðingum og stjórnendum og helstu áskorunum þeirra í starfi. Leiðbeinendur hvetja til umræðna þar sem þátttakendur miðla reynslu og upplýsingum sín á milli sem getur jafnframt veitt þér aðra sýn á ákveðin viðfangsefni.

„Reynsla mín af Opna háskólanum í hR er mjög góð, þar stundaði ég praktískt nám sem nýttist mér vel í starfi.”

Kristinn björn sigfússonsérfræðingur í fjárstýringu hjá landsbankanum.

Page 18: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

35 34 | STARFSFÓLK OH

Salóme Guðmundsdóttir

Forstöðumaður

Sími 599 6353

[email protected]

Heiður Hallfreðsdóttir

Verkefnastjóri

Sími 599 6337

[email protected]

Heimir Skúli Guðmundsson

Verkefnastjóri

Sími 599 6331

[email protected]

STARFSFÓLK OPNA HÁSKÓLANS Í HR Kamilla Reynisdóttir

Verkefnastjóri

Sími 599 6398

[email protected]

Sóley Jónsdóttir

Verkefnastjóri

Sími 599 6341

[email protected]

Sif Gunnlaugsdóttir Nielsen

Þjónustufulltrúi

Sími 599 6300

[email protected]

Telma Sæmundsdóttir

Verkefnastjóri

Sími 599 5474

[email protected]

Viðar Þorláksson

Verkefnastjóri

Sími 599 6388

[email protected]

Page 19: ENDURMENNTUN · 2013. 8. 13. · Hagnýtt námskeið í notkun Excel fyrir starfandi bókara. Námskeiðið veitir félagsmönnum FVB samtals 30 endurmenntunareiningar. Leiðbeinandi:

HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK | Menntavegi 1 | 101 Reykjavík | Sími 599 6200 | [email protected] | www.hr.is

/opnihaskolinn

SAmKEppNISHæfNI - StARfSÁNægJA - VERðmætASKöpuNEitt stærsta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag er að byggja upp og efla sam-keppnishæfni íslensks atvinnulífs. Fjöldi innlendra og erlendra rannsókna sýna fram á að aukin menntun skilar sér í auknum hagvexti, minna atvinnuleysi og meiri nýsköpun. öflugt samstarf atvinnulífs og háskóla er því forsenda verðmætasköpunar og hagsældar. Starfsemi Opna háskólans í HR grundvallast á virku samstarfi við atvinnulífið.

Til að vera samkeppnishæf á vinnumarkaði er mikilvægt að viðhalda og bæta reglulega við færni okkar og þekkingu. Sí- og endurmenntun er líklega ein öruggasta fjárfesting sem einstaklingar og fyrirtæki eiga völ á.

• Áætlaður efnahagslegur ávinningur af einu aukaári í menntun innan OECD-landanna er venjulega á milli 3–6%, þann aukna hagvöxt má m.a. rekja til aukinnar vinnuframleiðni í kjölfar menntunar.• Menntun er einnig talin auka félagslegan jöfnuð og samheldni.• Símenntun eykur starfsánægju, styrkir tengslanetið og ýtir undir nýsköpun á vinnustöðum.

OpNI HÁSKÓLINN Í HRAfgreiðslutími skrifstofu er frá kl. 8:30–16:30 alla virka daga.Símsvörun er alla virka daga frá kl. 8:30–16:30. Síminn er 599 6300.Hægt er að hafa samband með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].

Upplýsingar um skráningu á námskeið og greiðsluskilmála eru á vefnum opnihaskolinn.is.

Ágú

st 2

013

/haskolinnireykjavik /haskolinn /ReykjavikUniversity /in/haskolinn