15
8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét Sigurgeirsdóttir og Sigrún Reynisdóttir. Íslenska 8. bekkur Markmið Markmið að nemandi: Lestur – bókmenntir: Lesi bókmenntir og nái með því betra valdi á íslensku máli. Lesi fornsögu. Hraðlesi unglingabækur eftir íslenska og erlenda höfunda. Kynnist þekktustu ljóðskáldum frá fyrri hluta aldarinnar og verkum þeirra. Vinni með þjóðsögur og aðrar smásögur. Kynnist einkennum smásagna og noti hugtök eins og aðal- og aukapersónur, minni, boðskapur, hámark, niðurlag, umhverfi, vísun, þversögn. Vinni í ljóðum með ýmis hugtök ljóða s.s. bragfræði; rím, stuðla, braglínu, hákveðu, lágkveðu, stúf, forlið, endurtekningu. Myndmál; beina mynd, líkingar, myndhverfingar, viðlíkingar og vinni með persónugervingar. Geti nýtt sér þessi hugtök við umfjöllun á bókmenntatexta. Talað mál og framsögn: Þjálfist í að taka þátt í samræðum og komast að niðurstöðu. Nemandi geti tjáð sig frammi fyrir skólafélögum sínum, kynnt verkefni og haldið fyrirlestur. Hlustun og áhorf: Þjálfist í að hlusta á flókin fyrirmæli og fara eftir þeim. Geti hlustað af þolinmæði og geti gert sjálfum sér og öðrum grein fyrir umræðum. Ritun – Stafsetning: Þjálfist í að nota stafsetningarorðabækur. Þjálfist í uppsetningu og frágangi á eigin texta. Tileinki sér persónulega og læsilega rithönd. Geti skrifað skýr og greinileg fyrirmæli og hafi þá m.a. í huga sendanda og viðtakanda. Þjálfist í að skrifa útdrætti, sögur og ljóð. Æfi helstu stafsetningarreglur. Málfræði: Nemendur fái tækifæri til að vinna með málið á fjölbreyttan hátt s.s. með myndagátum, krossgátum og þrautum. Þeir átti sig á flokkun orða í fallorð, sagnorð og smáorð og helstu einkenni þeirra flokka.

8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

  • Upload
    others

  • View
    0

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét Sigurgeirsdóttir og Sigrún Reynisdóttir.

Íslenska 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Lestur – bókmenntir:

Lesi bókmenntir og nái með því betra valdi á íslensku máli.

Lesi fornsögu.

Hraðlesi unglingabækur eftir íslenska og erlenda höfunda.

Kynnist þekktustu ljóðskáldum frá fyrri hluta aldarinnar og verkum þeirra.

Vinni með þjóðsögur og aðrar smásögur.

Kynnist einkennum smásagna og noti hugtök eins og aðal- og aukapersónur, minni, boðskapur, hámark, niðurlag, umhverfi, vísun, þversögn.

Vinni í ljóðum með ýmis hugtök ljóða s.s. bragfræði; rím, stuðla, braglínu, hákveðu, lágkveðu, stúf, forlið, endurtekningu. Myndmál; beina mynd, líkingar, myndhverfingar, viðlíkingar og vinni með persónugervingar.

Geti nýtt sér þessi hugtök við umfjöllun á bókmenntatexta.

Talað mál og framsögn:

Þjálfist í að taka þátt í samræðum og komast að niðurstöðu.

Nemandi geti tjáð sig frammi fyrir skólafélögum sínum, kynnt verkefni og haldið fyrirlestur.

Hlustun og áhorf:

Þjálfist í að hlusta á flókin fyrirmæli og fara eftir þeim.

Geti hlustað af þolinmæði og geti gert sjálfum sér og öðrum grein fyrir umræðum.

Ritun – Stafsetning:

Þjálfist í að nota stafsetningarorðabækur.

Þjálfist í uppsetningu og frágangi á eigin texta.

Tileinki sér persónulega og læsilega rithönd.

Geti skrifað skýr og greinileg fyrirmæli og hafi þá m.a. í huga sendanda og viðtakanda.

Þjálfist í að skrifa útdrætti, sögur og ljóð.

Æfi helstu stafsetningarreglur.

Málfræði:

Nemendur fái tækifæri til að vinna með málið á fjölbreyttan hátt s.s. með myndagátum, krossgátum og þrautum. Þeir átti sig á flokkun orða í fallorð, sagnorð og smáorð og helstu einkenni þeirra flokka.

Page 2: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Kennsluefni

Málfræði:

Málvísi 1, Fallorð, Sagnorð, Smáorð, Orðhákur 1

Bókmenntir og ljóð:

Kjalnesingasaga, Bragfræðihefti, Ljóðspeglar, Kjörbækur, Mályrkja 1, Þjóð- og smásagnahefti

Stafsetning:

Stafsetning eftir Árna Haraldsson og Gunnar Guðmundsson ásamt fjölritum

Sögurammar og þemaverkefni Fornsögur

Þjóðsögur

Margmiðlunarverkefni

Námsmat Prófað er í lok hvorrar annar. Auk þess fer fram símat; þ.e. próf, verkefni, ástundun og fleira, sem liggur til grundvallar skólaeinkunn nemandans ásamt annarprófi. Skólaeinkunn:

Próf 30%

Bókmenntir 20%

Málfræði og stafsetning 10%

Stafsetning 10%

Ritgerðir og þemaverkefni 20%

Vinna og ástundun 10%

Stærðfræði 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi: Vinni með náttúrulegar tölur.

Vinni með almenn brot og tugabrot.

Æfi námundun og slump.

Læri hlutfalla og prósentureikning.

Læri almenn rúmfræðiverkefni.

Læri grunnaðferðir í algebru.

Vinni með frumtölur (prímtölur).

Geti lesið úr myndritum.

Læri aðferðir við að búa til myndrit.

Vinni með rómverskar tölur.

Læri metrakerfið.

Vinni með hnitakerfi og flutninga.

Læri tölfræði.

Page 3: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Noti hringfara og öðlist leikni við að nota hann.

Þekki líkindahugtakið.

Tileinki sér vönduð vinnubrögð m.a.við úrvinnslu dæma.

Leysi þrautir þar sem lausnaleiðir eru ekki augljósar.

Læri á vasareikni og þjálfist í að nota hann.

Kennsluefni Bók 8-tíu, hefti 1 og 2

Þrautir og séstök verkefni m.a. útiverkefni

Sögurammar og vefir rasmus.is

stoðkennarinn.is

namsmat.is

wolframalpha.com

Námsmat Nemendur þreyta próf við lok hvorrar annar.

Annarpróf 20%

3 kaflapróf 30%

3 verkefni 15%

10 leystar þrautir 10%

5 heimadæmi/heimakönnun 10%

Ástundun (tíma/heimavinna) 15%

Enska 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Hlustun:

Geti skilið ensku talaða á eðlilegum hraða, t.d.í frásögnum og samtölum.

Geti skilið og fylgt leiðbeiningum kennara á ensku.

Geti skilið innihald kvikmynda og söngva á ensku.

Lestur:

Geti lesið nákvæmlega eða hraðlesið eftir þörfum.

Geti lesið léttar smásögur og styttri skáldsögur.

Geti skilið lykilatriðið í aðgengilegu fjölmiðlaefni.

Læri að nota orðabækur og leiti upplýsinga í bókum og tölvum.

Tal:

Geti tjáð sig og tekið þátt í samtölum í kennslustund.

Geti tjáð sig um umhverfi sitt, áhugamál og um efni sem snerta daglegt líf.

Geti náð góðum tökum á framburði.

Page 4: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Ritun:

Þjálfist í stafsetningu og læri undirstöðuatriði í málfræði (stílar).

Geti skrifað frá eigin brjósti styttri texta, s.s. endursagnir og texta við myndir.

Kunni að nýta sér leiðréttingarforrit.

Kennsluefni Spotlight 8, lesbók og vinnubók

Move on

Skáldsögur: The elephant man og Forrest Gump

Aukaefni: Listen First 1, kvikmyndir, tónlist, málfræði A og talæfingar

Námsmat Haustönn: Spotlight 8 20% Bókmenntir 20% Move on 20% Hlustun 10% Ástundun 10% Málfræði 20%

Vorönn: Spotlight 8 20% Bókmenntir 20% Move on 10% Ritun 10% Hlustun 10% Ástundun 10% Málfræði 20%

Danska 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Hlustun.

Skilji venjulegt talað mál sem varðar umgengni og skilaboð.

Skilji aðalatriði í t.d.tilkynningum,samtölum og stuttum frásögnum í þar til gerðu hlustunarefni.

Lestur.

Geti beitt leitarlestri í stuttum textum, þ.e.lesið texta hratt yfir til að finna ákveðnar upplýsingar.

Geti hraðlesið stuttan texta og skilið í honum aðalatriðin.

Geti lesið nákvæmlega stuttan texta sem tengjast því sem unnið er með.

Geti getið sér til um merkingu orða út frá samhengi textans.

Talað mál.

Læri réttan framburð.

Geti sagt frá sjálfum sér og persónulegum högum sínum.

Geti tekið þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir vel.

Geti sagt stutta sögu eða lýst einhverju út frá mynd eða minnispunktum.

Ritun.

Geti skrifað einfaldar setningar.

Page 5: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Geti skrifað stutt sendibréf,skilaboð og dagbók þar sem orðaforði tengist efnisflokkum sem unnið er með.

Geti skrifað út frá mynd,stutta sögu eða lýsingu.

Kennsluefni Tænk (lestrarbók,hlustun og verkefnabók)

Málfræðihefti 1. og 2. (ljósrituð hefti)

Hvad siger du B (hlustunarbók)

Börneavisen (ýmsar greinar sem varða unglinga)

Ýmsar stutta smásögur úr bókinni Fisketuren og Molbohistorier

Ca. 2-3 vel valdar kvikmyndir. Endursögn eða ritun um efnið

Ritun. Unnið með myndasögur.

Námsmat Kaflapróf 20%

Málfræði 20%

Hlustun 15%

Ástundun 20%

Ritun 10%

Ólesið 15%

Náttúrufræði 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi geti:

Tekið þátt í skipulagi og unnið eftir verk- og tímaáætlun hóps við að hanna umhverfi, hlut eða kerfi.

Metið gildi þess að upplýsingum um vísinda- og tækniþróun sé miðlað á skýran hátt og skýrt með dæmum hvernig náttúruvísindi, tækni, menning, heimsmynd mannsins og náttúran hafa áhrif hvert á annað.

Beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúrugreinum unglingastigsins oglesið texta og myndefni um náttúrufræði sér til gagns.

Aflað sér upplýsinga um náttúruvísindi úr heimildum.

Beitt vísindalegum vinnubrögðum, s.s. tilraunum og athugunum á gagnrýninn hátt, við öflun upplýsinga innan náttúruvísinda og framkvæmt og útskýrt sérhannaðar eða eigin athuganir úti og inni.

Kannað áreiðanleika heimilda með því að nota hand- og fræðibækur, Netið og aðrar upplýsingaveitur.

Tekið þátt í að skoða og skilgreina stöðu umhverfismála á heimsvísu og rætt um markmið til umbóta.

Gert grein fyrir eigin athugunum á lífverum, hegðun þeirra og búsvæðum.

Útskýrt flokka lífvera eftir skyldleika, ein- og fjölfrumunga.

Útskýrt hvernig íslenskar lífverur hafa aðlagast umhverfi sínu og útskýrt þarfir ólíkra lífvera í ólíkum vistkerfum

Page 6: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Gert grein fyrir verndun og nýtingu náttúruauðlinda í tengslum við sjálfbæra þróun.

Útskýrt krafta sem verka í daglegu lífi manna.

Útskýrt forsendur vistvænnar hönnunar.

Unnið með samþætt viðfangsefni með vinnubrögðum náttúrugreina og tekið gagnrýna afstöðu til siðferðilegra þátta tengdum náttúru, umhverfi, samfélagi og tækni.

Aflað sér upplýsinga um náttúruvísindi úr heimildum á íslensku og erlendum málum.

Dregið ályktanir af gögnum og gefið ólíkar skýringar með því að nota ólík sjónarhorn.

Skipulagt, framkvæmt og gert grein fyrir athugunum á námsþáttum að eigin vali er varða búsetu mannsins á jörðinni.

Útskýrt breytingar á landnotkun og tengsl þeirra við jarðvegseyðingu og orkuframleiðslu.

Útskýrt árstíðabundið veðurlag og loftslagsbreytingar, ástæðurog afleiðingar.

Gert grein fyrir stöðu jarðar í himingeimnum og áhrifum hennar á líf á jörðu.

Rætt um notkun gervihnatta í samskiptum manna, rannsóknir og álitamál þeim tengdum.

Rökrætt umhverfismál frá ólíkum sjónarhornum, er tengjast vatni, vatnsnotkun og sjó.

Tekið dæmi af og útskýrt forvarnir, sem eru skipulagðar vegna náttúruhamfara.

Kennsluefni Kennt er í lotum. Námsmat er í lok hverrar lotu. Loturnar eru eftirfarandi:

1. Lífheimurinn Lesefni:

Lífheimurinn kaflar 1, 2, 5 og 6 2. Hvar er jörðin?

Lesefni:

Sól, tungl og stjörnur kaflar 2, 3, 4. 3. 1918

Lesefni:

1918 4. Umferð og mannvirki

Lesefni:

Kraftur og hreyfing kaflar 2, 3.

Page 7: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Námsmat hverrar lotu er misjafnt

1. Lífheimurinn 2. Hvar er jörðin

Dýragarðurinn 20% Verkefni um sólkerfi/geimferðir 25%

Kortlagning plantna á skólalóð 20% Próf 40%

Skýrslur og önnur verkefni 10% Tímavinna 15%

Próf 30% Heimavinna 15%

Tímavinna 10%

Heimavinna 10% 3. 1918 4. Farartæki og mannvirki

Frumleiki við útfærslu og uppsetningu 20% Skýrslur og önnur verkefni 20%

Málfar, stafsetning og skrift 20% Próf 30%

Útlit og innihald verkefnisins 20% Tímavinna 15%

Hópvinnan sjálf 20% Heimavinna 15%

Heildarútfærsla verkefnisins 20% Brúarbygging 20%

Samfélagsfræði 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Landafræði:

Læri að nota bauganet jarðar við nákvæma staðsetningu.

Þekki á heimskorti nöfn og legu heimsálfanna, úthafanna.

Þekki stærstu fjallgarða og mestu fljót jarðar.

Þekki legu miðbaugs, heimskautsbauga, póla, daglínu og núll lengdarbaugsins.

Þekki innri gerð jarðar í grófum dráttum.

Skilji í grófum dráttum hvernig yfirborð jarðar hefur þróast í rás jarðsögunnar.

Læri hvernig veðrun og rof verður af völdum vinda, vatns og jökla.

Læri að greina á milli endurnýjanlegra auðlinda og forða (t.d. jarðefnaeldsneytis).

Skilji hvernig vindar verða til.

Þekki mestu hafstrauma jarðar, orsök þeirra og áhrif á loftslag strandsvæða.

Kynnist því hvaða áhrif framkvæmdir manna hafa á höfin, t.d. ofveiði og mengun.

Skilji að úrkoma orsakast af því að rakt loft rís og kólnar.

Þekki mikilvægi vatnsorku (fallvatna og jarðhita) á Íslandi og hvernig hún er nýtt.

Saga:

Þekki undanfara fyrri heimstyrjaldar og atburðarás stríðsins.

Page 8: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Þekki sögu millistríðsáranna og áhrif kreppunnar.

Þekki aðdraganda síðari heimsstyrjaldar.

Þekki atburðarás stríðsáranna í stórum dráttum.

Sjái hernám Breta í ljósi stríðsins í Evrópu og hlutleysis Íslands.

Þekki áhrif hersetunnar á atvinnulíf, viðskipti og tækni.

Viti um aðdraganda varnarsamnings við Bandaríkin.

Þekki atburðarás sem leiddi til stofnunar lýðveldis á Íslandi.

Kunni skil á siglingum Íslendinga í stríðinu, áhættu og mannfalli.

Þekki áfanga sjálfstæðisbaráttu Íslands frá upphafi til dagsins í dag.

Kennsluefni

Landafræði.

Landafræði handa unglingum 1.hefti eftir Göran Andersson. Landakort, myndbönd og annað ítarefni.

Saga.

Styrjaldir og kreppa, saga 20. aldar I. Höf. Helllerud, S.V., Knutsen, K. og Moen, S.

Árið 1918. Höf. Helgi Grímsson

Sögurammar og vefir Árið 1918 verður samþætt með náttúrufræði.

Námsmat Skólaeinkunn í samfélagsfræði á hvorri önn: Verkefnabók og verkefnablöð 20% 4 kaflapróf 40%

Hópverkefni og ritgerð 20% Heimavinna og ástundun 20%

Lífsleikni – umsjón 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi: Geti séð fyrir sér margvísleg vandamál og fundið eigin lausnir á þeim.

Viti um námstilboð skólans fyrir 9.og 10. bekk.

Viti um rétt sinn til að ljúka grunnskóla á skemmri tíma en 10 árum.

Öðlist aukinn skilning á sjálfum sér og þeim gildum sem þeim finnst mikilvæg.

Efli og styrki sjálfsmynd sína.

Læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.

Þjálfist í að vera læsir á eigin tilfinningar og annarra.

Læri ýmsar gagnlegar aðferðir í samskiptum.

Geri sér grein fyrir réttindum sínum og skyldum og í hverju borgarvitund felst.

Geri sér grein fyrir eigin ábyrgð í tengslum við umhverfismál og umhverfisvernd.

Hefur lært að skilja hvernig fjölmiðlar skapa lífstíl sem endurspeglast m.a. í tilteknum kynhlutverkum og líkamsfyrirmyndum.

Page 9: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Kennsluefni Ýmis gögn frá kennara

SMT – reglur

Ertu?

Námsmat Einkunn og umsögn:

Vinnubók 50%

Ástundun 20%

Verkefni 30%

Tölvumennt 8 . bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Fái áframhaldandi þjálfun í fingrasetningu á lyklaborði, tileinki sér blindskrift og rétta líkamsbeitingu.

Hafi kynnst mismunandi hugbúnaði og gert sér grein fyrir notagildi hans.

Áframhaldani þjálfun í að nota ritvinnsluforrit, töflureikni , umbrotsforrit og glærugerðarforrit.

Fái áframhaldandi þjálfun í notkun myndvinnsluforritsins Paint.Net

Notfæri sér leitarvélar til efnisöflunar á netinu og vinni síðan úr efninu.

Geri sér grein fyrir hvað sé leyfilegt og óleyfilegt þegar efni er sótt á netið og unnið úr því.

Geri sér grein fyrir hvað séu góðar netvenjur og hvað beri að varast þegar netið er notað.

Geti sett upp kynningu / stuttan fyrirlestur um ákveðið efni og notað glærugerðarforrit til aðstoðar við flutning.

Geti tekið myndir og fært þær í tölvu.

Læri undirstöðuatriðið í að vinna eigin myndir í tölvu.

Áframhaldandi þjálfun í að vista með skipulegum hætti eigið efni.

Sýni frumkvæði og sjálfstæði í vinnu.

Kennsluefni Verkefni sem kennari leggur inn í tímum

Helstu forrit Microsoft Office Word

Microsoft Office Excel

Microsoft Office Publisher

Microsoft Office PowerPoint

Paint.Net

Vefskoðarar

Margmiðlunarefni

Page 10: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Kennsluhættir Nemendur vinna verkefni undir leiðsögn kennara en lögð er áhersla á góð og vönduð

vinnubrögð og sjálfstæði í vinnu.

Nemendur sækja sjálfir upplýsingar á hina ýmsu miðla og vinna úr þeim.

Nemendum kennt að nota tölvutækni til að létta sér störfin.

Námsmat Umgengni og hegðun.

Verkefni metin.

Sjálfstæði í vinnubrögðum.

Fari eftir fyrirmælum.

Sjálfsmat nemenda

List- og verkgreinar eru kenndar í lotum, 6 kennslustundir á viku í u.þ.b. 6 vikur hver lota.

Heimilisfræði 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Auki skilning sinn og þekkingu á heimilishaldi.

Fái áhuga á réttu fæðuvali.

Læri alla fæðuflokkana og gildi þess að setja saman máltíðir.

Læri að fara eftir uppskriftum og skilji mikilvægi þess að lesa þær vel yfir áður en byrjað er.

Sjái mikilvægi samvinnu, jafnt á heimili sem í skóla.

Temji sér skipulögð vinnubrögð og góðan frágang.

Öðlist færni í bakstri, matargerð og ræstingu svo og öðru þvi sem tilheyrir heimilishaldi.

Sýni sjálfstæði, samstarfsvilja og samábyrgð með öðrum nemendum.

Kennsluefni Heimilisfræði- uppskriftir fyrir unglingastig

Námsmat Í lok hvers tíma er metin ástundun, framkoma og vinnusemi. Lokamat er samantekt á

þeirri vinnu.

Myndmennt 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Rannsaki og greini hlutföll mannslíkamans.

Kanni mannslíkamann í myndlist á ýmsum skeiðum listasögunnar.

Page 11: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Kynnist ýmsum stílum í myndlist og hönnun.

Tileinki sér skyssugerð við hugmyndavinnu.

Kynnist myndmáli og geti túlkað það.

Fræðist um verðmæti efna og áhalda og temji sér góða umgengni.

Kennsluefni Ýmsar listaverkabækur og alnetið.

Annað sem til fellur

Sögurammar og vefir nams.is og margt fleira

Námsmat Metin er virkni, áhugi, frumkvæði, sköpun og framfarir.

Metið er hvort nemandi geti farið eftir fyrirmælum og tileinkað sér sjálfstæði í vinnu.

Regluleg endurgjöf í tímum.

Sjálfsmat.

Kennaramat.

Verkmappa.

Í lokin fara nemandi og kennari saman yfir verkefnin.

Hönnun og smíði 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Handverk

Geti smíðað vandaða gripi úr helstu smíðaefnum.

Hafi náð tökum á notkun bitjárna.

Hafi kynnst notkun rafmagnshandverkfæra og geti notað þau sem hæfa aldri og þroska.

Geti smíðað vandaðan hlut á eigin spýtur og metið hvenær fullnægjandi árangri er náð.

Takist á við vinnuaðferðir sem hann hefur ekki glímt við áður.

Hafi náð góðum tökum á að velja og nota nagla, og skrúfur.

Hafi glímt við samsetningar á málmhlutum.

Hafi tekist á við bræðslu málma (tin) og mótun þeirra.

Hafi náð góðum tökum á helstu tálguverkfærum.

Hafi fengið góða innsýn í eiginleika helstu smíðaefna.

Hafi notað harðvið í verkefnum sínum.

Hönnun

Geti notað hönnunarferli til að móta og teikna, eftir eigin hugmynd, hlut sem notast við tæknilega lausn.

Geti unnið eftir teikningu sem gerð er í ákveðnum mælikvarða.

Hafi hannað hlut sem tekur mið af því umhverfi sem hann á að vera í.

Page 12: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Einstaklingur og umhverfi

Hafi öðlast skilning á að það skiptir máli að halda hlutum í góðu ástandi.

Skilji að góð umgengni og endurnýting er mikilvæg fyrir umhverfið.

Hafi unnið krefjandi verkefni sem krefst þolinmæði, frumkvæðis og áræðis.

Viti hvers vegna verklegt nám er mikilvægt, ekki síður en bóklegt.

Hafi rætt um og áttað sig á að hver og einn býr yfir mikilvægum eiginleikum sem hægt er að þjálfa og þroska.

Kennsluefni Verkefna-möppur og - bækur auk tölvunnar

Námsmat Símat kennara, þ.e.metin er:

Hugmyndaauðgi og hönnun

Umgengni og hegðun

Verkfærni og vandvirkni

Iðni og afköst

Lokaafurð metin af kennara til lokaeinkunnar

Listir 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Geti gert tilraunir í eigin listsköpun byggða á gefnum verkefnum. með því að beita fleiri en einni aðferð og tækni.

Vinni hugmyndavinnu og skyssugerð.

Geti unnið myndverk og útskýrt vinnuferlið á einfaldan hátt.

Geti greint hvar sjónrænt áreiti daglegs lífs er að finna í umhverfinu.

Læri að fjalla um og lýsa inntaki listaverka í samstarfi við aðra og geti sýnt skoðunum annarra tillitsemi.

Geti gagnrýnt af þekkingu, sanngirni og virðingu eigin verk og annarra bæði einn og í samvinnu.

Geri sér grein fyrir hvernig sjónrænt áreiti daglegs lífs hefur áhrif á líf okkar og gildismat.

Kennsluefni Ýmsar listaverkabækur

Pappír og litir

Leir

Annað sem til fellur

Sögurammar og vefir

nams.is og margt fleira

Page 13: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Námsmat

Metin er virkni, áhugi, frumkvæði, sköpun og framfarir.

Metið er hvort nemandi geti farið eftir fyrirmælum og tileinkað sér sjálfstæði í vinnu.

Samvinna

Regluleg endurgjöf í tímum.

Sjálfsmat.

Kennaramat.

Verkmappa.

Í lokin fara nemandi og kennari saman yfir verkefnin.

Textílmennt 8.bekkur

Markmið

Markmið að nemandi: Geta unnið eftir fyrirmælum frá kennara.

Lögð áhersla á sjálfstæði nemenda í vinnu á grundvelli fyrra náms í textílmennt.

Geti beitt verklagi, áhöldum og vélum textílgreinarinnar.

Geti beitt skapandi hugsun í hönnun og textílvinnslu.

Geti komið hugmyndum sínum á framfæri i í skissubók.

Geti unnið með einföld snið og uppskriftir og áætlað efnisþörf.

Geti þrætt saumavél og skipt um undir og yfir tvinna.

Læri að búa til einfalt snið og taka upp snið.

Saumi í saumavél eftir nákvæmri leiðbeiningu frá kennara.

Læri frágang eftir að saumaskap lýkur.

Vinni frjáls verkefni eftir eigin sniði og munstri eða vinni út frá bókum og blöðum.

Rifji upp prjón, lítil stykki prjónuð, einfaldir vettlingar eða hárbönd.

Tileinki sér vönduð vinnubrögð og frágang.

Beri virðingu fyrir efnum og áhöldum.

Hafa öðlast innsýn í fjölbreytta möguleika textílgreinarinnar.

Kennsluefni Ýmiss konar handmenntabækur og blöð.

Internetið.

Námsmat Metin er virkni, frumkvæði, hugmyndavinna, frammistaða og framfarir.

Einnig að nemandi geti tileinkað sér fyrirmæli.

Endurgjöf í tímum.

Námsframvinda, sjálfsmat/kennaramat í smiðjulok.

Page 14: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Íþróttir 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Mæti ávallt með íþróttaföt og sé virkur í tímum.

Taki þátt í æfingum og leikjum sem veita útrás fyrir hreyfiþörf og efla færni í íþróttagreinum.

Þjálfist í undirstöðuatriðum nýrra eða áður lærðra hóp- og einstaklingsíþrótta sem stundaðar eru hér á landi.

Þjálfist í æfingum sem efla líkamsþol, hjarta og blóðrásarkerfi.

Taki þátt í ýmsum leikjum sem innihalda stöðugt álag í nokkuð langan tíma.

Þjálfist í að nota eigin líkamsþunga til kraftþjálfunar.

Tileinki sér rétta tækni við vöðvateygjur og liðkandi æfingar.

Öðlist enn frekari skilning og raunsætt mat á eigin getu í ýmsum færni- og tjáningarþáttum.

Fái hvatningu til frekari íþróttaiðkunar.

Læri með hvaða æfingum og leikjum hægt sé á markvissan hátt að efla hjarta og blóðrásarkerfi.

Viðfangsefni Útitímar á haustin og vorin þar sem áhersla er lögð á að efla þol og þrek.

Stöðvaþjálfun í lengri tíma.

Styrk, kraft- og liðleikaæfingar.

Ýmsar íþróttagreinar s.s. körfu- og handknattleikur, knattspyrna, badminton, tennis, frjálsar íþróttir og fimleikar teknar fyrir.

Ýmsir leikir verða teknir fyrir s.s. eltingarleikir, liðaleikir og boltaleikir.

Tekin fyrir umræða um heilbrigðan lífstíl og mikilvægi þess.

Stöðluð þol- og þrekpróf tekin yfir skólaárið.

Námsmat Kennaraeinkunn 50% þ.e ástundun, færni og virkni í íþróttatímum sem metið er jafnt og

þétt yfir veturinn. Prófseinkunn þ.e. öll próf sem tekin eru yfir veturinn

Þolpróf 15%

Þrekpróf 15%

Liðleikapróf 10%

Langstökk án atrennu 10%

Sund 8. bekkur

Markmið

Markmið að nemandi:

Mæti ávallt með sundföt og sé virkur í tíma.

Fái markvissa sundkennslu og verði fær um að bjarga sjáfum sér og öðrum.

Page 15: 8. bekkur. Umsjónarkennarar: Magnús Sigurjónsson, Margrét … · 2013. 10. 22. · 10 leystar þrautir 10% 5 heimadæmi/heimakönnun 10% Ástundun (tíma/heimavinna) 15% Enska

Skilji mikilvægi reglubundinnar sundiðkunar og geti nýtt sér sundið sem líkams- og heilsurækt.

Ljúki sundstigi sem hæfir hans aldri, þannig að þegar nemandi lýkur grunnskóla á hann að hafa lokið 10 sundstigum.

Bæti tækni í bringusundi.

Bæti tækni í skriðsundi.

Bæti tækni í baksundi.

Kynnist ýmsum möguleikum til sundíþrótta.

Nái tökum á nákvæmari útfærslu hreyfinga og öndunar í 25m skriðsundi.

Nái tökum á nákvæmari útfærslu hreyfinga og öndunar í 25m baksundi.

Nái valdi á fjölbreyttum og flóknum hreyfingum eins og samsettum hreyfingum arma og fóta með mismunandi útfærslu.

Viðfangsefni 8. stig

400m frjáls aðferð, viðstöðulaust

50m skriðsund, stílsund

50m baksund, stílsund

Troða marvaða í 1 mín

8m kafsund – nemandi nær í hlut á botni laugar og syndir með hann tilbaka (ekki í kafi). Æfingin endurtekin eftir 10 sek.

Tímataka

50m bringusund, lágmark

25m skriðsund, lágmark

Námsmat Veitt er einkunn og umsögn við annaskipti og að vori um námsframvindu nemenda.

Við gerð námsmats er höfð til hliðsjónar 8. sundstig sem gildir 60% .

Skólaeinkunn er 40% þ.e.s. virkni, áhugi , ástundun og framfarir nemenda.