65
Að orða hugsun sína Steingerður Steinarsdóttir

Að orða hugsun s ína

  • Upload
    masato

  • View
    100

  • Download
    7

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Að orða hugsun s ína. Steingerður Steinarsd óttir. Ég skildi, að orð er á Íslandi til um allt sem er hugsað á jörðu. (Móðir mín Vogar 1921). Hinar innri sj ónir. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Að orða hugsun s ína

Að orða hugsun sínaAð orða hugsun sína

Steingerður SteinarsdóttirSteingerður Steinarsdóttir

Page 2: Að orða hugsun s ína

Ég skildi, að orð er á Íslandi til um allt sem er hugsað á jörðu.

(Móðir mín Vogar 1921)

Page 3: Að orða hugsun s ína

Hinar innri sjónir Hinar innri sjónir

Í forngrískum sögnum voru skáldin oft blind. Demódókus sem segir frá í Odysseifskviðu Hómers var blindur. Kannski er þess vegna talið að Hómer sjálfur hafi verið blindur. Skáldin þurftu ekki á sjóninni að halda því þau höfðu innri sjónir sem þau höfðu þegið að gjöf frá Appólon. Platón telur að skáldið sé léttfætt vera, fleyg og helg og það getur ekki ort fyrr en það er orðið frá sér numið og vitstola. Hlutverk skálda var að túlka einhvers konar sammannlegan sannleika og vera tengiliður milli fornra og nýrra tíma.

Page 4: Að orða hugsun s ína

Spádómar og kraftaskáldSpádómar og kraftaskáld

Völuspá er lögð í munn völvu sem er alvitur um fortíðina en sér einnig fram í tímann. Hún syngur um það sem verið hefur og verður. Hér á landi var lengi ríkjandi sú trú að til væru kraftaskáld sem gátu kveðið þá sem gerðu þeim illt yfir móðuna miklu. Níðvísur áttu menn einnig bágt með að þola og segja má að nágrannar Bólu-Hjálmars hafi haft nokkra ástæðu til að hugsa illa til hans því níðvísur hans um Akrahrepp hafa lifað með þjóðinni þótt engin muni nú lengur tilefni þeirra.

Page 5: Að orða hugsun s ína

Línulaga FrásögnLínulaga Frásögn

1. Upphaf

2. Miðja

3. Endir

1. Upphaf

2. Miðja

3. Endir

Page 6: Að orða hugsun s ína

Laumuspil í leyniþjónustunniLaumuspil í leyniþjónustunni

I. Upphaf: Sagan hefst á því að dómsmálaráðherrra finnst myrtur á skrifstofu nýstofnaðrar leyniþjónustu á vegum ráðuneytisins.

a) Fyrsti kafli: Jóna Jóns. hreingerningakona kemur inn á skrifstofu leyniþjónustunnar til að þrífa.

b) Líki dómsmálaráðherra hefur verið troðið undir skrifborðið og skrifborðsstóllinn færður vandlega að því.

Page 7: Að orða hugsun s ína

c) Lýsing á hvernig Jóna þrífur allt í kringum líkið án þess að sjá það en þegar hún

tekur fram skrifborðstólinn fellur dómsmálaráðherra að fótum hennar. Kaflinn endar á skerandi veini sem berst um bygginguna og bergmálar á tómum göngunum.

Page 8: Að orða hugsun s ína

II. Miðja: Meginmál sögunnar segir frá rannsókn málsins. Af hálfu lögreglunnar er hún í höndum Sigfinns rannsóknarlögreglumanns. Sigfinnur er drykkfellt karlrembusvín og alls ekki með á nótunum. Það er því undir rannsóknarblaðamanninum Kristínu Hersveinsdóttur komið að leysa þetta flókna mál en hún hefur myndað tengsl við undirheima borgarinnar.

Á eftir þessu fylgir svo nánari sundurgreining á hverjum kafla fyrir sig og hvernig rannsókninni vindur fram.

Page 9: Að orða hugsun s ína

III. Endirinn er svo nokkrir æsispenanndi lokakaflar þar sem Kristín þarf að takast á við Olgu Federovu, lettneskan mafíuforingja sem er ákveðinn í að hasla sér völl hér á landi og hefur þegar náð umtalsverðum ítökum í nokkrum stórum fyrirtækjum. Þessar sterku konur mætast í mögnuðu lokauppgjöri sem endar með

því að önnur liggur í valnum.

Page 10: Að orða hugsun s ína

Ritgerðir byggja mikið til á sama formi.

1. Inngangur.

2. Meginmál.

3. Niðurlag.

1. Inngangur.

2. Meginmál.

3. Niðurlag.

Page 11: Að orða hugsun s ína

Beinagrind af ritgerð Beinagrind af ritgerð

Ritgerð um gildi Íslendingasagna § Inngangur a) Sögulegur bakgrunnur sagnanna, höfundar

og ritungartími. b) Efnisyrðing: Íslendingasögur eru

klassískar heimsbókmenntir sem hafa skírskotun enn í dag.

Page 12: Að orða hugsun s ína

2. Meginmál a) Umfjöllun um bókfestu- og

sagnfestukenningarnar. Íslendingasögurnar á miðöldum og fleira. Þáttur þeirra í að móta sjálfsmynd þjóðarinnar.

3. Niðurlaga) Skoðað hvernig Íslendingasögurnar hafa

haft áhrif á ýmsa rithöfunda, kvikmyndagerðamenn og fleira. Gildi þeirra fyrir nútímamanninn skoðað.

Page 13: Að orða hugsun s ína

1. Um hvað ætla ég að fjalla?

2. Hvað er áhugaverðast við það sem ég hef að segja?

3. Hvaða hughrifum vil ég ná fram hjá þeim sem frásögnin er ætluð?

4. Hvernig er best að gera það?

Page 14: Að orða hugsun s ína

Almennt gildir að eftir að höfundur hefur mótað skýrt í huganum það sem hann ætlar að fjalla um, búið til efnisyrðingu þá raðar hann öðrum atriðum á eftir henni í röð eftir mikilvægi. Það sem er áhugaverðast eða mikilvægast fyrir framvindu sögunnar kemur fyrst síðan það sem síðra er og í lokin er frásögnin hnýtt saman og hnykkt á þeim útgangspunkti sem byrjað var með í upphafi.

Page 15: Að orða hugsun s ína

II. Munnleg frásögn II. Munnleg frásögn

Munnleg frásögn byggir að mörgu leyti á sömu lögmálum og rituð frásögn. Helsti munurinn er sá að í munnlegri frásögn getur sögumaður auðgað söguna með því að breyta um raddblæ, nota líkamstjáningu og svipbrigði til að auka áhrif ýmissa atburða og með því hreinlega að leika persónur og atburði.

Page 16: Að orða hugsun s ína

Í munnlegri frásögn er enn mikilvægara að halda góðu skipulagi en í ritaðri. Til að mynda er mjög ruglingslegt þegar saga hleypur fram og aftur í tíma. Í rituðu máli er slíkt oft gert en þá getur lesandinn flett til baka og glöggvað sig á því sem ekki er skýrt. Það er ekki hægt í munnlegri frásögn þannig að sögumaður verður að halda vel utan um ytri uppbyggingu frásagnarinnar og passa að hvorki skeiki í tíma eða rúmi.

Page 17: Að orða hugsun s ína

Í stuttri frásögn er gott að: 1. Byrja á hnitmiðaðri setningu sem nær

athygli áheyrandans strax, t.d. This is the story of how the West was found and lost again.

2. Gæta þess að halda einni mynd út í gegnum textann. Ef til dæmis er vísað til myndmáls sem á rætur að rekja til sjávar fara þá ekki að skapa ímyndir sem dregnar eru úr fótboltamáli, t.d. víkingar ýttu úr vör og lögðu yfir hafið í landaleit. Þeir skoruðu flott á Íslandi og á Grænlandi.

Page 18: Að orða hugsun s ína

Skynjun og myndmálSkynjun og myndmál

Page 19: Að orða hugsun s ína

Hvernig skynjum við?Hvernig skynjum við?

Skilningarvitin eru fimm.

1. Sjón

2. Heyrn

3. Bragð

4. Lykt

5. Tilfinning

Skilningarvitin eru fimm.

1. Sjón

2. Heyrn

3. Bragð

4. Lykt

5. Tilfinning

Page 20: Að orða hugsun s ína

Með notkun myndmáls er verið að höfða til skilningarvitanna og með að vekja eins mörg þeirra og hægt er því áhrifameiri verður textinn.

Við höfum öll tilhneigingu til að lýsa fyrst og fremst því sem við sjáum en gleymum að hljóð, lykt, bragð eða tilfinning geta vakið upp viðbrögð engu að síður en það sem augað sér.

Page 21: Að orða hugsun s ína

Ljósið kemur langt og mjótt,

logar á fífustöngum

Halla kerling fetar fljótt

framan eftir göngum.

Ljósið kemur langt og mjótt,

logar á fífustöngum

Halla kerling fetar fljótt

framan eftir göngum.

Page 22: Að orða hugsun s ína

MyndmálMyndmál

Bein mynd

Bein mynd er það kallað þegar dregin er upp bein mynd úr raunveruleikanum án þess að notað sé einhvers konar viðmið, viðlíking eða tilraun til endursköpunar.

Handan við Okið er hafið grátt,

heiðarfugl stefnir í suðurátt. (Á Rauðsgili e. Jón Helgason)

Page 23: Að orða hugsun s ína

Líking Líking

Líking er fólgin í því að einhverju er líkt við eitthvað annað. Lesandinn verður þá að þekkja til þess fyrirbæris sem líkt er við og geta séð hann fyrir sér.

sólin var hjá mér,

eins og grannvaxin kona

í gulum skóm. (Tíminn og vatnið e. Stein Steinarr)

Page 24: Að orða hugsun s ína

Eins og kórall í djúpum sjó varst þú undir bláum himninum, eins og sylgja úr drifnu silfrihvíldir þú á brjóstum jarðarinnar. Sorg e. Jóhann Sigurjónsson

Fuglar sem flugu yfir hafiðmeð fögnuði og vængjagný,- hurfu í himinblámannhratt eins og vindlétt ský. (Heimþrá e. Jóhann Sigurjónsson)

Page 25: Að orða hugsun s ína

MyndhverfingMyndhverfing

Myndhverfing er ekki ósvipuð líkingu nema tengiorðið er fallið brott. Í stað þess að segja að sumir dagar séu eins og hús er fullyrt að sumir dagar séu hús, að ljósið vaki stillt í stjakans hvítu hönd eða ljóðið vængjaður fugl.

Page 26: Að orða hugsun s ína

Gleðin er fífill í garði manns og ljóð sem vaknar á vörum hans. (Þorsteinn Valdimarsson)

Ást er föstum áþekk tindÁst er veik sem bóla,Ást er fædd og alin blind,Ást sér gegnum hóla. (Steingrímur Thorsteinson)

Page 27: Að orða hugsun s ína

PersónugervingPersónugerving

Persónugerving er það kallað þegar alls kyns raunveruleg fyrirbæri eða hugtök er gefið líf og þau látin birtast eins og gerendur eða persónur með eigin skapgerðareinkenni, hæfileika og útlit.

Page 28: Að orða hugsun s ína

Ljósið loftin fyllir og loftin verða bláVorið tánum tyllir tindana á. (Þorsteinn Gíslason)

Page 29: Að orða hugsun s ína

EndurtekningEndurtekning

Endurtekning er stílbragð sem getur gefist vel en það er vandmeðfarið. Ekki má ofnota endurtekna orðið. Stundum verða sífelldar endurtekningar eins frekar til marks um orðafæð höfundar en stílleikni hans.

Page 30: Að orða hugsun s ína

Vappar ósyndur ungi á bakka

með augun blikandi af þrá -

en sumir þora ei til þess að hlakka

sem þeim er annast að fá.

Gegn svo mörgu sem guð þeim sendir

menn gera kvíðann að hlíf,

og kvíða oft því sem aldrei hendir,

og enda í kvíða sitt líf. (Vikivaki e. Guðmund Kamban)

Page 31: Að orða hugsun s ína

Mér fannst mjög fallegt í London. Þar voru fallegar byggingar, falleg föt í búðunum og fallegir garðar. Mér fannst líka mjög gaman að vera þar, gaman að ganga um, gaman að fara í búðirnar og gaman skemmta sér þar.

Page 32: Að orða hugsun s ína

Nokkur dæmi um myndmál í óbundnum texta.

Vani er vani og enginn getur einfaldlega fleygt honum út um gluggann. Hins vegar er hægt að lokka hann niður stigann, þrep fyrir þrep. (Mark Twain)

Fegurðin og mannlífið eru tveir elskendur sem fá ekki að hittast.(Heimsljós e. Halldór Laxness)

Page 33: Að orða hugsun s ína

The night is a jet black lake. A person could sink down and disappear without a trace.

No wonder he never fought back. Her weapons are invisible, and she would never admit to even carrying them much less putting them to use. (Jest of God Margaret Laurence)

Page 34: Að orða hugsun s ína

Kreppan er eins og vindurinn. Enginn veit hvaðan hún kemur eða hvert hún fer.

(Ásgeir Ásgeirsson)

,Maður er langa ævi að hrapa, hrapa og lengst niðri í botninum er tjara, tjörudíki þar sem litlar mýs byltast og krafsa í seigri eðjunni, með örlitlum smágerðum fótum og berjast við dauðann. (Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns e. Ásta Sigurðardóttur)0000

Page 35: Að orða hugsun s ína

Þegar um það bil tíu minútur voru liðnar af kennslustundinni var bankað á dyr kennslustofunnar. Siggi kíkti inn og gekk síðan í sæti sitt. Hann dró skólatöskuna á eftir sér og á leið framhjá borði Gunnu rakst hún í borðfótinn svo af hlaust nokkur skarkali.

Siggi flýtti sér að setjast og taka upp kennslubókina og fór að fletta í henni.

Page 36: Að orða hugsun s ína

Varla voru liðnar nema tíu mínútur af tímanum þegar barið var að dyrum í kennslustofunni. Halla kennari kallaði: Kom inn. Siggi stakk úfnum rauðhausnum í gættina. Afsakaðu hvað ég er seinn, sagði hann feimnislega. Hann smeygði sér inn og gekk niðurlútur af stað í átt að borðinu sínu. Hann dró þunga töskuna á eftir sér en þegar hann ætlaði að kippa henni upp á öxlina rakst hún í borðfótinn á borði Gunnu.

Page 37: Að orða hugsun s ína

Af þessu hlaust mikill skarkali og Siggi eldroðnaði. Hann flýtti sér að setjast og þorði varla að líta upp en teygði sig í kennslubókina í töskunni. Um leið og bókin var komin á borðið grúfði Siggi sig yfir hana og fletti í henni sem mest hann mátti. Það var engu líkara en líf lægi við að hann fyndi kaflann sem verið var að fara í.

Page 38: Að orða hugsun s ína

Sjónarhorn og persónusköpunSjónarhorn og persónusköpun

Steingerður SteinarsdóttirSteingerður Steinarsdóttir

Page 39: Að orða hugsun s ína

Sjónarhorn Sjónarhorn

Hver segir söguna?

Saga er sögð. Einhver lýsir atburðum fyrir öðrum. Stundum vitum við hver sögumaðurinn er en í öðrum tilfellum er hann ekki sýnilegur. Hver og einn sögumaður setur sinn svip á frásögnina.

Page 40: Að orða hugsun s ína

Aldrei er hægt að segja frá öllu þannig að við veljum það sem helst vekur athygli okkar og sleppum hinu. Þess vegna er ólíklegt að einhverjir tveir menn segi eins frá sömu atburðum. Þetta er velþekkt og hefur mikið verið rannsakað einkum í tengslum við vitnisburð í sakamálum. Mismunandi lífsstíll, viðhorf, siðferði og athyglisgáfa setja svip sinn á frásögnina.

Page 41: Að orða hugsun s ína

Saga mótast ævinlega af persónu þess sem segir frá jafnvel þótt menn reyni að gæta fyllstu hlutlægni. Þetta gerir það einnig að verkum að erfitt er að dæma eina frásögn betri eða réttari en aðra. Smekkur ræður þar nokkru um en einnig hversu lík viðhorf áheyrandans og sögumannsins eru. Sumir skilja strax hvað er verið að fara meðan aðrir geta ekki tengst því sem sagt er.

Page 42: Að orða hugsun s ína

Staða höfundarStaða höfundar

Staða höfundar lýsir því hvernig hann sér atburði sögunnar. Er hann sjálfur þátttakandi eða stendur hann utan við atburðarrásina og lýsir henni? Fræðilega er sjónarhorni skipt í fjóra flokka.

Page 43: Að orða hugsun s ína

Alvitur höfundurAlvitur höfundur

Höfundur er alvitur. Hann veit hvað fram fer í huga allra persóna sögunnar og hvað gerist á öllum sögusviðum. Hann getur talað beint til lesenda og lagt út frá atburðum (móralíserað) og í sumum tilfellum eru vangaveltur alviturs höfundar fyrirferðarmiklar í sögunni. Sjálfstætt fólk er sögð frá þessu sjónarhorni.

Page 44: Að orða hugsun s ína

Takmörkuð vitneskja Takmörkuð vitneskja

Höfundur hefur ekki fulla yfirsýn yfir atburði og sér ekki inn í hug allra persóna í sögunni. Stundum veit hann aðeins hvað ein persóna sér eða hugsar. Hann gæti hugsanlega talað til lesenda og lagt út frá atburðum en gerir það sjaldnast. Land og synir er dæmi um frásögn af þessu tagi.

Page 45: Að orða hugsun s ína

Hlutlæg frásögnHlutlæg frásögn

Höfundur horfir hlutlægt á atburði og lýsir þeim en lætur lesendur um að dæma og leggja út frá atburðum. Hann er eins og myndavél eða afskiptalaus áhorfandi. Hann veit ekki hvað persónur eru að hugsa. Íslandsklukkan er sögð með þessari aðferð.

Page 46: Að orða hugsun s ína

Fyrstu persónu frásögnFyrstu persónu frásögn

Höfundur felur sig bak við eina persónu sögunnar og lýsir atburðarrásinni frá hennar sjónarhorni. Hann veit ekki hvað aðrir eru að hugsa né heldur hvað gerist þegar persóna hans er ekki viðstödd. Brekkukotsannáll er dæmi um svona frásögn en einnig The Murder of Roger Ackroyd.

Page 47: Að orða hugsun s ína

Sjaldnast binda höfundar sig algerlega við eitthvert eitt sjónarhorn. Finna má dæmi um það í allflestum bókum að brugðið sé út frá sjónarhorninu og sjaldnast er höfundur alveg hlutlaus. Líka er hægt að skipta alveg um sjónarhorn innan bókar og það getur haft mikil áhrif á lesandann að horfa allt í einu á atburðina frá allt öðru sjónarhorni. Í Íslendingasögunum er skipting af þessu tagi algeng.

Page 48: Að orða hugsun s ína

Sjónarhorn getur snúist um fleira en stöðu höfundar gagnvart verkinu. Hægt er að gefa fólki aukna tilfinningu fyrir samhengi hlutanna með því að breyta ögn um sjónarhorn. Til að mynda er algengt að höfundar gefi lesendum hugmynd um hið stóra með því að einbeita sér að hinu smáa.

Page 49: Að orða hugsun s ína

Sú var tíð, segir í bókum, að íslenska þjóðin átti aðeins eina sameign sem metin varð til fjár. Það var klukka. Þessi klukka hékk fyrir gafli Lögréttuhússins á Þingvöllum við Öxará, fest upp við bjálka uppí kverkinni. Henni var hringt til dóms og á undan aftökum. Svo var klukkan forn að einginn vissi leingur aldur hennar með sannindum. En um það er sagan hefst var laungu kominn

Page 50: Að orða hugsun s ína

brestur í þessa klukku og elstu menn þóttust muna hljóm hennar skærari. Samt undu gamlir menn enn þessari klukku. Að viðstöddum landfógeta, lögmanni og böðli, og manni sem átti að höggva og konu sem átti að drekkja mátti oft á kyrrum degi um jónsmessubil í andvara af Súlum og kjarrlykt úr Bláskógum heyra óm klukkunnar blandinn niði Öxarár.

Page 51: Að orða hugsun s ína

Persónur og persónusköpunPersónur og persónusköpunÞví fleiri persónur sem koma að einni sögu því flóknari er hún. Uppbygging frásagnar verður einnig erfiðari ef margir koma við sögu og þess vegna er best að takmarka sig eins og hægt er. Grundvöllur flestra sagna er mannleg vandamál eða mannleg reynsla þannig að mestu skiptir að gæða persónurnar lífi.

Því fleiri persónur sem koma að einni sögu því flóknari er hún. Uppbygging frásagnar verður einnig erfiðari ef margir koma við sögu og þess vegna er best að takmarka sig eins og hægt er. Grundvöllur flestra sagna er mannleg vandamál eða mannleg reynsla þannig að mestu skiptir að gæða persónurnar lífi.

Page 52: Að orða hugsun s ína

Staðreyndin er sú að áheyrandinn eða lesandinn hefur mun meiri samúð og áhuga á persónu sem hann veit eitthvað um en þeirra sem hann þekkir ekki. Hægt er að lýsa persónum á marga vegu. Beinar lýsingar þar sem útliti og skapgerðareinkennum er lýst eru einfaldastar. Þá er sagt frá útliti viðkomandi og oft hnýtt aftan við að hann hafi verið gáfaður maður og góður.

Page 53: Að orða hugsun s ína

Skalla-Grímur var iðjumaður mikill. Hann hafði með sér jafnan margt manna, lét sækja mjög föng þau er fyrir voru til atvinnu mönnum voru, því að þá fyrst höfðu þeir fátt kvikfjár hjá því sem þufti til fjölmennis þess sem var.

Page 54: Að orða hugsun s ína

Óbeinar lýsingar felast í að láta viðbrögð manneskju, tungutak hennar og gerðir gefa skýra mynd af því hvers konar persónuleiki er þarna á ferð. Tiltölulega auðvelt er að gefa til kynna feimni, vanlíðan eða gleði með því að lýsa líkamlegum viðbrögðum. Erfiðara getur verið að gefa til kynna grimmd, lymsku eða sakleysi en oft kemur slíkt fram í orðum og gerðum fólks.

Page 55: Að orða hugsun s ína

Óbeinar lýsingar eru mun áhrifameiri en beinar og sennilega hafa engir tveir sömu hugmyndir um hvernig tiltekin skáldsagnapersóna lítur út. Allir þekkja hversu miklum vandkvæðum þetta getur valdið. Nýlegt dæmi er sögupersónan Robert Langdon úr The Da Vinci Code en ótrúlega margir lesendur bókarinnar voru á þeirri skoðun að Tom Hanks hentaði alls ekki í hlutverkið.

Page 56: Að orða hugsun s ína

Allir Íslendingar hafa líka sínar hugmyndir um hvernig Salka Valka og Bjartur í Sumarhúsum eiga að vera bæði hvað varðar útlit þeirra og persónueinkenni. Samt eru lýsingar á útliti þeirra í bókunum og margt sagt óbeint um eðliseiginleika þeirra en hver og einn túlkar þær upplýsingar að vild. Aldur þeirra er meira að segja á reiki og stundum hafa menn reiðst því að of gamlir leikarar fari með hlutverk þeirra.

Page 57: Að orða hugsun s ína

Mörgum mönnum sýndist hann oftar heldur halla gerðum á klerka en óvini sína. Virtu menn þá fyrstu sök til þess að vildi ei láta þá vanrefsaða vera sem hann átti yfir að dæma. Sú önnur að hann mætti fyrir það djarflega heimta réttindi fyrir sig eða sína vini í þeim hlutum sem aðrir þeim svara áttu, í þeim málum sem hann átti ei yfir að dæma. En sú hin þriðja að hann gerði sér vini af óvinum sínum í því er hann

Page 58: Að orða hugsun s ína

hélt þeirra hluta langt fram þó vinir hans væru í móti sem forðum gerði Jón Loftsson og endurtryggði þá óvinina með sæmdum eða fégjöfum. (Árna saga biskups)

Þá mælti Koðrán: Fyrir hví vildir þú taka heldur af þessum peningum fyrir hönd sonar míns en af hinum sem ég færði þér fyrr? Hún svarar: Því að þú hefir að þessum vel kominn er þú hefir tekið í arf eftir föður þinn. (Þorvalds þáttur víðförla)

Page 59: Að orða hugsun s ína

Hver og einn hefur sinn stíl og það er smekksatriði hvort menn hafi góðan stíl eða vondan. Orðaforði og málnotkun segja margt um sögumanninn sömuleiðis hversu einfaldur eða flókinn stíll hans er. Notkun myndmáls og tákna til að skapa hugblæ skipta miklu. Snorri Sturluson mælti með því að menn notuðu ævinlega fremur færri orð en fleiri og víst er að hnitmiðaðar setningar eru eftirminnilegri en flóknar og langar.

Page 60: Að orða hugsun s ína

Það getur borgað sig að fara yfir setningar sínar aftur og aftur til að skera niður og taka burtu þau orð sem er ofaukið. Mörg smáorð eru mjög ofnotuð. Meðal þeirra eru svo, það, síðan, þá og því. Í 80% tilfella er það til dæmis óþarft.

Það er gaman að lifa. Gaman er að lifa.

Það er gott að búa á Grænlandi. Gott er að búa á Grænlandi.

Page 61: Að orða hugsun s ína

Svo gengum við niður í bæ. Við gengum niður í bæ. Svo var farið í leiki. Farið var í leiki.

Því verður að fullyrða. Fullyrða verður ...

Við skemmtum okkur vel því vel var að öllu staðið. Við skemmtum okkur vel, enda vel að öllu staðið.

Page 62: Að orða hugsun s ína

Setningar sem byrja á sterku frumlagi eru áhrifameiri en hinar. Það er gervifrumlag og þess vegna ætti að nota það sparlega. Svo og síðan eru tengiorð sem gefa til kynna tíma en stundum er óþarft að taka slíkt fram. Í mörgum tilfellum er auðráðið af samhenginu að nokkur stund er liðin frá síðustu atburðum. Meitlið því allar setningar.

Page 63: Að orða hugsun s ína

Málið er klæði hugsunarinnar. Eini tilgangur rithöfundarins er að auðvelda

lesendum að njóta lífsins - eða þola það. (Samuel

Johnson)

Af öllum stundum er sú sælust þegar maður sofnar þreyttur. En það er einsog ég segi, bjánaskapurinn er góður meðan einhver hefur gagn af honum. (Halldór Laxness)

Page 64: Að orða hugsun s ína

Mitt er að yrkja, ykkar að skilja. (Benedikt Sveinbjarnarson

Gröndal)

Biðjum ekki um betri brýr heldur lærum að sigla.

Þeim var ég verst er ég unni mest.

Auðlærð er ill danska.

Aumur er öfundlaus maður.

Bókvitið verður ekki í askana látið

Ég hef mjög einfaldan smekk vel aðeins það besta.

Page 65: Að orða hugsun s ína

Fólk heldur að ég geti kennt því góðan stíl. Því fer fjarri! Hafið eitthvað að segja og segið það eins skýrt og þið getið. Það er leyndardómur góðs stíls. (Matthew Arnold)