18
Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla Náms- og starfsráðgjafar Árbæjar, Breiðholts, Grafarholts og Norðlingaholts

Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

  • Upload
    karma

  • View
    38

  • Download
    2

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla. Náms- og starfsráðgjafar Árbæjar, Breiðholts, Grafarholts og Norðlingaholts. Framhaldsnám…af hverju?. Mikilvægt að bæði unglingar og foreldrar velti þessari spurningu fyrir sér. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Náms- og starfsráðgjafarÁrbæjar, Breiðholts, Grafarholts og Norðlingaholts

Page 2: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Framhaldsnám…af hverju?• Mikilvægt að bæði unglingar og foreldrar

velti þessari spurningu fyrir sér.• Mikilvægt að velja framhaldsnám út frá

eigin forsendum…ekki vinanna eða foreldranna!

• Skoða bæði kosti og galla mismunandi námsleiða og mismunandi skóla.

• Allir sem lokið hafa grunnskóla eiga rétt á námi í framhaldsskóla.

• Margt í boði…Hvað hentar mér?

Page 3: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Námsbrautir framhaldsskóla• Bóknámsbrautir

• Starfsnámsbrautir

• Listnámsbrautir

• Starfsbrautir

• Almenn námsbraut

Page 4: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Bóknám

• Bóknám er nám á bóknámsbrautum; félagsfræðibraut, málabraut og náttúrufræðibraut.

• Námi á bóknámsbraut lýkur með stúdentsprófi.

• Stúdentspróf veitir aðgang að háskólanámi.

Page 5: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Stúdentspróf

• Stúdentspróf er samtals 140 einingar sem skiptast á eftirfarandi hátt:– Kjarni, 98 ein. Námsgreinar sem öllum

nemendum er skylt að taka. Námsgreinarnar eru mismunandi eftir brautum.

– Kjörsvið, 30 ein. Nemandi velur sér tilteknar greinar sem mynda kjörsvið hans. Þetta eru greinar á sviði félagsvísinda, náttúrufræða og tungumála.

– Frjálst val, 12 ein. Valgreinar í skólanum eða metið frá öðrum skólum.

Page 6: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Nám sem lýkur með stúdentsprófiBóknámsbrautir

– Félagsfræðibraut • Aðaláhersla er á félagsfræði, sálfræði, sögu,

fjölmiðlafræði, uppeldisfræði, þjóðhagfræði eða tölfræði.

– Málabraut • Aðaláhersla er á tungumálanám, velja 3. og 4. mál,

t.d. þýsku, frönsku eða spænsku.

– Náttúrufræðibraut• Aðaláhersla á náttúrufræðigreinar s.s. stærðfræði,

líffræði, eðlisfræði, efnafræði og jarðfræði.

– Viðskipta og hagfræðibraut

Page 7: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Starfsnám

• Starfsnám er nám í ýmiss konar iðngreinum og styttri námsleiðir sem veita réttindi til starfa á ákveðnu sviði.

• Starfsnám er bæði bóklegt og verklegt nám sem fer fram í skóla og stundum á vinnustað.

• Námið getur tekið frá einni önn upp í 5 ár.

Page 8: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Starfsnám

• Námi á iðnbrautum lýkur með sveinsprófi.

• Námi á styttri námsleiðum lýkur með ýmiss konar réttindaprófi.

• Sveinspróf veitir rétt til náms í Meistaraskóla.

• Nemendur geta tekið viðbótarnám til stúdentsprófs ef þess er óskað.

Page 9: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Listnám

• Listnámsbraut. Markmið með brautinni er að leggja grunn að frekara námi í listgreinum, sérskólum eða í skólum á háskólastigi.

• Námið tekur þrjú ár og hægt er að velja um fjórar listgreinar: dans, hönnun, myndlist og tónlist.

Hægt er að bæta við einingum

upp í stúdentspróf

Page 10: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Almenn námsbraut

• Almenn námsbraut er opin öllum þeim sem hafa lokið grunnskóla. Nám á brautinni er breytilegt eftir skólum og tekur 1-2 ár. Brautin hentar nemendum sem:

– eru óákveðnir og hafa ekki gert upp huga sinn

– uppfylla ekki skilyrði á námsbrautir

Page 11: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Áfanga- og bekkjarkerfi

• Nám í framhaldsskólum er skipulagt ýmist eftir áfanga- eða bekkjarkerfi.

• Mikilvægt að nemendur meti hvort kerfið henti þeim betur.

Page 12: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Áfangakerfi

• Skólaárið er skipulagt eina önn í senn og námsefni skipt niður í sérstaka áfanga.

• Skólaárið skiptist í tvær annir, haustönn og vorönn og lýkur hvorri önn með lokaprófum í viðkomandi áfanga

• Áfangar eru merktir þremur tölustöfum sem gefa m.a. til kynna röð áfanga innan námsgreinar og einingafjölda en fyrir hvern áfanga er hægt að fá eina til þrjár einingar (sbr. Ísl. 102 eða Stæ. 103)

Page 13: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Bekkjarkerfi

• Nemendum skipt í bekki sem fylgjast að allan veturinn (- valgreinar)

• Námið er skipulagt sem heils vetrar nám

• Fyrsta árið er yfirleitt eins hjá öllum• Nemandi þarf að fá ákveðna

lokaeinkunn að vori til að halda áfram í 2. bekk

• Lokapróf í hverri grein er stúdentspróf

Page 14: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Bundið áfangakerfi

• Námsefni er skipt niður í áfanga en kennt í bekkjakerfi, þannig að nemendur fylgja sama hópi í námi sínu.

Page 15: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Heimavistir úti á landi

• Nemendum er bent á að víða úti á landi má finna heimavistarskóla.

Page 16: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Inntökuskilyrði

• Inntökuskilyrði eru mismunandi milli skóla.

• Nemendum og foreldrum þeirra er bent á að leita sér upplýsinga hjá viðkomandi framhaldsskóla.

Page 17: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Kynning á framhaldsskólum• Kynningardagur - samstarf allra

grunnskóla í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti, Norðlingaholti og Þjónustumiðstöðva Breiðholts, Árbæjar og Grafarholts.

HVAR? Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti

• HVENÆR? 21. janúar 2009 frá kl. 17-20

Page 18: Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

Gagnlegar vefslóðir

• Menntagátt er upplýsingavefur um framhaldsskólana og innritun www.menntagatt.is

• Nám að loknum grunnskóla – bæklingur frá Menntamálaráðuneytinu http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/namlok_2007.pdf

• Iðan fræðslusetur – upplýsingar um nám og störf www.idan.is