28
Heilbrigð skynsemi Ljúffengar uppskriftir í boði Ebbu Guðnýjar og Himneskrar Houstu

Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

  • Upload
    oloef

  • View
    274

  • Download
    3

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Page 1: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Heilbrigð skynsemi

Ljúffengar uppskriftir í boði Ebbu Guðnýjar og Himneskrar Hollustu

Page 2: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Piparkökur

Innihald:4 dl gróft spelt frá Himneskri Hollustu4 dl fínt spelt frá Himneskri Hollustu2 dl hrásykur frá Himneskri Hollustu2 tsk engifer krydd frá Himneskri Hollustu4 tsk ceylon kanill frá Himneskri Hollustu2 tsk negull1/4 tsk svartur pipar frá Himneskri Hollustu2 tsk vínsteinslyftiduft180 gr smjör (mjúkt - gott að láta standa á borði í smá stund)3/4 dl mjólk að eigin vali (byrjið með hálfan)1/2 dl dökkt agave sýróp frá Himneskri Hollustu

Aðferð:1. Hitið ofninn í 180°C. 2. Blandið fyrst þurrefnunum saman

og hnoðið svo smjörinu, mjólkinni og sýrópinu saman við.

3. Gott ef þið getið látið deigið vera í kæli í um 30 mínútur en ekki nauðsynlegt.

Fletjið út deigið í smá pörtum (hvert og eitt barn á mínu heimili fær deigbút til að fletja út) og ég nota fínt spelti til þess að ekki festist við borðið. Stingið út kökur, raðið á bökunarpappír og bakið við 180°C í um 10-12 mínútur.

Geymast best í frysti.

Page 3: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Kókoskúlur með fíkjum!

Innihald:1 dl malaðar möndlur frá Himneskri Hollustu150 g döðlur frá Himneskri Hollustu 150 g fíkjur frá Himneskri Hollustu2 msk möndlusmjör frá Monki 2 msk kaldpressuð Kókoshnetuolía frá Himneskri Hollustu, mjúk (látið krukkuna standa við stofuhita)2 msk chiafræ frá NOW1 dl kókosmjöl frá Himneskri Hollustu 3 msk kakó frá Naturata1 tsk vanilluduft frá Naturata1 tsk kanill frá Himneskri Hollustu

Aðferð:1. Setjið chia fræin í 1/2 dl af vatni

og látið standa, malið möndlur fremur smátt í matvinnsluvél.

2. Skerið eða klippið með skærum döðlur og gráfíkjur í bita, skellið öllu í matvinnsluvél og vinnið vel saman.

3. Hnoðið kúlur og veltið upp úr kókosmjöli.

Geymast best í frysti.

Page 4: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Botninn:100 g möndlur frá Himneskri Hollustu100 g kókosmjöl frá Himneskri Hollustu250 g döðlur frá Himneskri Hollustu4 msk kakó frá Naturata1 tsk vanilluduft frá Naturata3 msk heitt vatn

Aðferð:1. Malið möndlur í matvinnsluvél,

skerið döðlur í tvennt og bætið restinni við.

2. Maukið þetta saman í klístrað deig.

3. Notið teskeið og fingurna til að setja litlar kúlur í lítil bréfform. Þið getið líka pressað þetta ofan í eldfast mót.

PiparmyntusúkkulaðiÞvílíkt nammi!

Piparmyntusúkkulaði ofan á:1 dl kaldpressuð kókoshnetuolía frá Himneskri Hollustu og eða kakósmjör (ég nota bæði til helminga)1 dl kakó frá Naturata 1/2 dl dökkt agave sýróp frá Himneskri Hollustu2 dropar af piparmyntu ilmkjarnaolíu frá NOW.

Aðferð:1. Bræðið mjög varlega á mjög

lágum hita í potti kókosolíuna og kakósmjörið.

2. Blandið hinu saman við og hrærið vel. Setjið væna doppu af súkkulaði á hvern mola.

3. Setjið í ílát og geymið í frysti.

Page 5: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Súkkulaði- appelsínukókoskúlur

Aðferð:1. Malið hneturnar gróft í mat-

vinnslu vél, bætið við döðlum, mórberjum, hampfræjum, kakói, appelsínuhýði, sjávarsalti og blandið vel, bætið í lokin við goji-berjum og blandið gróft.

2. Veltið svo upp úr kókosmjöli.

Geymast best í frysti.

Innihald:100 g kasjúhnetur/macadamia hnetur frá Himneskri Hollustu100 g möndlur frá Himneskri Hollustu200 g döðlur frá Himenskri Hollustu50 g mórber100 g hampfræ frá Himneskri Hollustu2 msk kakó frá Naturata2 msk appelsínuhýði (af lífrænum appelsínum)2 handfylli gojiber1/2 tsk sjávarsaltkókosmjöl frá Himneskri Hollustu til að velta upp úr ef vill

Page 6: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Hversdagsbollur

Aðferð:1. Hitið ofninn í 180°C.2. Hrærið fyrst þurrefnin saman. 3. Bætið þá döðlunum og svo

blautu efnunum við og hnoðið í deigkúlu.

4. Búið til bollur og setjið á bökunar -pappír. Bakið í um 15-18 mínútur.

Innihald:300 g gróft spelt frá Himneskri Hollustu50 g kókoshveiti frá Dr. Goerg3 tsk vínsteinslyftiduft1/2 tsk salt2 tsk kardimommuduft4 msk sesamfræ frá Himneskri Hollustu6-8 döðlur frá Himneskri Hollustu, skornar smátt (má sleppa)1 dós lífræn hrein jógúrtHeitt vatn þangað til þið eruð komin með deig (ég hræri bara með skeið og hnoða svo í höndunum).

*Ég geymi svo mínar í kæli og hita upp í ofni áður en ég ber þær fram, þá verða þær eins og nýjar.

Page 7: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Fljótlegar ostabollur – uppáhald með súpum!

Aðferð:1. Hitið ofninn í 180°C. 2. Blandið öllu saman, þurrefnum

fyrst, hrærið bara eins og þarf, ekki of mikið svo deigið verði ekki seigt, bakið í um 15-18 mín (fer eftir stærð).

Innihald:350 g gróft spelt frá Himneskri Hollustu3 tsk vínsteinslyftiduft1 tsk sjávarsalt1-2 dl heitt vatn100 g rifinn ostur (mozzarella til dæmis)4 msk hvítlauksolía frá Himneskri Hollustu200 ml kókosmjólk frá Dr. Goerg og svo heitt vatn á móti þangað til deigið verður klístrað. *Þessar eru alltaf borðaðar með MIKIÐ

af kaldpressaðri ólífuolíu og sjávar- eða Himalayasalti.

*Geymið afganginn í kæli/frysti og hitið upp í ofni, þá verða þær eins og nýjar.

Page 8: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Fljótlegt bananabrauð

Innihald:15 döðlur frá Himneskri Hollustu2 hamingjusöm egg3 þroskaðir bananar1 dós lífræn hrein jógúrt1 tsk vanilluduft frá Naturata1/2 tsk Ceylon kanill frá Himneskri Hollustu1 tsk kardimommuduft2 tsk vínsteinslyftiduft 3 dl gróft spelt frá Himneskri Hollustu1 dl malaðar möndlur frá Himneskri Hollustu

Aðferð:1. Hitið ofninn í 180°C.2. Skerið döðlurnar smátt og malið

möndlurnar3. Maukið saman banana og egg. 4. Blandið saman og bætið restinni

saman við. 5. Bakið í 25*10 cm brauðformi

í 30 mínótur. (gott að setja bökunarpappír inn í formið eða smyrja það með smjöri/kókosolíu) Takið brauðið úr forminu, hækkið hitann í 200°C og bakið í um 8-10 mínútur.

*Þetta má líka setja í muffins form. Bökunartíminn styttist þá verulega. Auðvelt að frysta og hita svo upp í ofni.

Page 9: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Chili-, súkkulaði-, hindberjakaka

Innihald:2 hamingjusöm egg 3/4 dl kaldpressuð kókosolía frá Him-neskri Hollustu1 dl möndlumjólk frá Isola1 dl dökkt agave sýróp frá Himneskri Hollustu2 msk hindberja- eða sólberjasulta1/3 tsk Chili duft frá Himneskri Hollustu3 tsk vínsteinslyftiduft1 dl kakó frá Naturata1/2 tsk vanilluduft frá Naturata2 dl fínt spelt frá Himneskri Hollustu

Aðferð:1. Hitið ofninn í 180°C. 2. Blandið saman öllum innihalds-

efnum, hverju á fætur öðru, hrærið saman létt og setjið í meðalstórt smelluform og bakið í um 18 mínútur.

Krem:100 g hvítt súkkulaði1/2 dós lífræn grísk jógúrt 1/2 tsk vanilluduft frá Naturata

Aðferð:1. Bræðið súkkulaðið mjög varlega

og bætið jógúrtinni og vanillu-duftinu við.

2. Kælið ögn og smyrjið svo á kökuna. 3. Skreytið með ristuðum kókosflögum

og jafnvel ögn af vanillu dufti.

Page 10: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Aðferð:Setjið vöfflujárnið í samband, blandið saman þurrefnum, bætið blautu efn-unum við og hrærið þar til deigið er orðið eins og grautur, byrjið að baka.

VöfflurKlikka ekki!

Innihald:400 g gróft spelt frá Himneskri Hollustu1/2 tsk sjávarsalt2 tsk kardimommuduft 2-3 hamingjusöm egg (má sleppa)30 g kaldpressuð kókoshnetuolía eða ólífuolía frá Himneskri Hollustu3 dl mjólk að eigin vali (ég nota oftast lífræna hreina jógúrt )4 dl vatn

*Stundum bræði ég dökkt súkkulaði í ögn af rjóma og býð upp á með vöfflunum ásamt þeyttum rjóma. Einnig er æði að nota rís-, möndlu- eða hafrarjóma.

*Sleppa má eggjum í vöfflur og pönnukökur ef einhver er með eggjaofnæmi en þá þarf oft aðeins meiri fitu (smjör/kókosolíu) eða um 80-100 g.

Page 11: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Pönnukökur

Innihald: 400 g spelti frá Himneskri Hollustu (ég nota gróft og fínt til helminga)2 tsk vínsteinslyftiduft1/2 tsk sjávarsalt1/2 sítróna, safinn2 hamingjusöm egg (má sleppa)40 g kaldpressuð kókoshnetuolía frá Himneskri Hollustu0,8-1 L mjólk að eigin vali og best finnst mér að nota volgt vatn á móti mjólkinni eða um 300 ml vatn og 500 ml mjólk (einnig má nota lífræna hreina jógúrt út í líka)

Aðferð:1. Blandið saman þurrefnunum,

setj ið svo sítrónusafa, egg og vökva og hrærið vel saman, endið á að bæta við olíunni.

2. Bakið á pönnukökupönnu í um 15-20 sekúndur á hvorri hlið og munið að fyrstu tvær pönnu-kökurnar mistakast yfirleitt alltaf því þá er maður aðeins að stilla af hitann og ná upp færni.

Ég set smá smjör á pönnuköku-pönnuna fyrir um það bil þriðju hver-ja pönnuköku áður en ég baka.

*Gott að bjóða upp á hrásykur, jafnvel kanil og líka gott að kreista sítrónu yfir þær. Ef þið látið þær kólna eru þær ljúffengar með sultu og rjóma, eða bönunum og súkkulaði. Þið megið setja vanillu extract eða kanil í deigið líka.

*Ef þið lendið í vandræðum með vöfflu- eða pönnukökudeig þá má skella því í blandara eða nota töfrasprotann á deigið til að ná því alveg kekkjalausu en það má alveg baka úr því með smá kekkjum, ég geri það iðulega.

Page 12: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Aðferð:1. Hitið allt saman nema möndlu-

mjólkina. 2. Bætið möndlumjólkinni við og

hitið upp í um 40-50°C. 3. Gott að bera fram með þeyttum

rjóma.

Heitt kakó

Innihald:1 dl vatn4 msk kakó Naturata 3-4 msk hrásykur frá Himneskri Hollustu1/3 tsk Vanilluduft frá Naturata4 dl möndlumjólk frá IsolaÞeyttur rjómi út í

*Ég nota oft um 15 dropa af vanillu stevíu og þá nota ég bara um 2 msk af annarri sætu.

Page 13: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Innihald:150 g smjör50 g dökkt agave sýróp frá Himneskri Hollustu100 g hrásykur frá Himneskri Hollustu2 hamingjusöm egg250 g fínt spelt frá Himneskri Hollustu1/2 tsk sjávarsalt2 tsk vínsteinslyftiduft1 tsk vanilluduft frá Naturata2 msk volgt/heitt vatn100 g heslihnetur(hakkaðar) frá Himneskri Hollustu100 g 75% súkkulaði frá Naturata

Aðferð:1. Stillið ofninn á 170°C blástur

(eða 185°C undir og yfirhita).2. Bræðið smjörið, setjið í skál og

hrærið saman við hrásykurinn og eggin. Bætið hinu saman við og hrærið saman rólega, ég hræri hnetur og súkkulaði saman í lokin með sleif.

3. Setja um eina tsk fyrir hverja köku á bökunarpappír, bakið kökurnar í um 12 mínútur.

Geymast langbest í frysti.

Súkkulaðihnetusmákökurfrá ömmu Þóru

Page 14: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Njóttu þess að borða heilnæma og fjölbreytta fæðu sem er líka holl fyrir budduna.

Það er heilbrigð skynsemi

lífrænar vörur á

góðu verði

Page 15: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Njóttu þess að borða heilnæma og fjölbreytta fæðu sem er líka holl fyrir budduna.

Það er heilbrigð skynsemi

Page 16: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Aðferð:Þurrefnin sett saman í skál. Vökva-num bætt út í og blandað vel saman. Sett í smurt form og bakað við 180°C í 30 mín. Tekið úr forminu, sett aftur inn í ofn og bakað í 10-15 mín.

SpeltbrauðHeilsubrauð fyrir sælkera

Innihald:3 dl gróft spelt frá Himneskri Hollustu2 dl fínt spelt frá Himneskri Hollustu1 dl hveitikím frá Naturfood*1 1/4 dl fræblanda frá Himneskri Hollustu1/2 - 1 tsk sjávarsalt1 msk vínsteinslyftiduft1 msk hrásykur* frá Himneskri Hollustu1 msk jómfrúar ólífuolíaf rá Himneskri Hollustu1,5 dl ab mjólk**1 dl vatn

*Má sleppa**Mjólkurlaust: Í stað ab mjólkur má nota jurtamjólk

Page 17: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

HeilhveitibrauðEinfalt og fljótlegt

Aðferð: Þurrefnin sett saman í skál. Vökvanum bætt út í og blandað vel saman. Sett í smurt form og bakað við 180°C í 30 mín. Tekið úr forminu, sett aftur inn í ofn og bakað í 10-15 mín.

Innihald:5 dl heilhveiti* frá Himneskri Hollustu1 1/2 dl Fræblanda frá Himneskri Hollustu1 dl kókosflögur frá Himneskri Hollustu1/2 - 1 tsk sjávarsalt1 msk vínsteinslyftiduft 1 msk jómfrúar ólífuolía frá Himneskri Hollustu1 1/2 dl ab mjólk**1 dl vatn

*Má líka nota spelt**Mjólkurlaust: Í stað ab mjólkur má nota jurtamjólk

Page 18: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Afmælisbrúnterta

Innihald:80 g smjör1 1/2 dl hrásykur frá Himneskri Hollustu1-2 msk hunang frá Himneskri Hollustu15 dropar vanillu eða karamellu stevía 5 msk kakó frá Naturata3 tsk vínsteinslyftiduft 1 hrein lífræn jógúrt1 dl volgt vatn3 dl spelt frá Himneskri Hollustu (2 fínt og 1 gróft)2 hamingjusöm egg

Aðferð: 1. Hitið ofninn í 185°C2. Bræðið smjörið og hellið í skál.3. Bætið þurrefnunum við og

hrærið saman. 4. Bætið svo jógúrtinni, vatni,spelti

og hrærið saman ásamt eggjunum síðast.

5. Setjið í 26 cm smelluform og bakið í um 18 mínútur.

Page 19: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Stevía er græn jurt og stevíudropar sem nú fást í flestum búðum eru unnir úr stevíu plöntunni. Stevían er miklu sætari en sykur en inniheldur engar hitaeiningar, hækkar ekkert blóðsykur og skemmir ekki tennurnar.

Krem:30 g smjör4 msk kakó1 tsk af vanilludufti frá Naturata1/2 dl vatn150 g mjúkt smjör200 g flórsykur, lífrænn

Aðferð: 1. Hitið 30 g af smjöri ásamt kakói,

vanilludufti og vatni. 2. Bætið 150 g af mjúku smjöri og

flórsykri í hrærivél þangað til þið eruð komin með áferðarfallegt krem.

Döðlusúkkulaðikrem á súkkulaðiköku150 g döðlur frá Himneskri Hollustu2 dl vatn4-5 msk kakó frá Naturata1/2 dl kaldpressuð kókosolía frá Himneskri Hollustu

Aðferð: Best er að leggja döðlurnar í bleyti í 20 mínútur. Setjið allt í blandara og blandið saman.

Page 20: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Heimalagað heslihnetusmjör

Innihald:Allt sem til þarf eru 2 bollar afhesli hnetum frá Himneskri Hollustu.

Aðferð:1. Heslihnetur ristaðar í ofni við

175°C í 10 mín eða þar til hýðið er farið að skilja sig frá hnetunum.

2. Tekið úr ofninum og hýðið fjarlægt af hnetunum meðan þær eru heitar.

3. Heslihnetur settar í matvinnsluvél og maukaðar þar til þær er orðnar að kremuðu hnetusmjöri.

Page 21: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Hnetu- og döðlubotn með rjóma, jarðarberjum og dökku súkkulaði

Innihald:150 g döðlur frá Himneskri Hollustu75 g heslihnetur frá Himneskri Hollustu75 g brasilíuhnetur frá Himneskri Hollustu1 bolli kókosflögur frá Himneskri Hollustu1 peli rjómi250 g fersk jarðarber100g 75% súkkulaði frá NaturataKókoshnetuolía (kaldpressuð) frá Himneskri Hollustu

Aðferð: 1. Döðlur og hnetur skornar niður

í smærri bita og blandað saman í matvinnsluvél ásamt kókos-flögum.

2. Meðalstórt form smurt með kókoshnetuolíu frá Himneskri Hollustu. Botn = Döðlu- og hnetublanda sett í formið.

3. Kæla botninn í frysti í ca 30 mín. 4. Þeyta rjómann og brytja súkku-

laðið í fína bita. 5. Þeytta rjómanum smurt á botninn

og kakan skreytt með jarðar-berjunum og súkkulaðinu.

Page 22: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Kanilsnúðar

Innihald: 200 g fínt spelt frá Himneskri Hollustu150 g gróft spelt frá Himneskri Hollustu4 tsk vínsteinslyftiduft1 tsk sjávarsalt3 msk lífrænt hunang frá Himneskri Hollustu50 g kókoshnetuolía frá Himneskri Hollustu1 dl möndlumjólk/hrísmjólk frá Isola (eða önnur mjólk/hrein jógúrt sem þið viljið nota)1/2 dl heitt vatn

Innan í deigið:3 msk smjör2 msk kanill frá Himneskri HollustuSæta eftir smekk (sem er dreift jafnt yfir t.d kókospálmasykur, hunang, agave, hrásykur, eplamauk, rúsínur, muldar möndlur, gæðasulta.

Page 23: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

*Í þetta deig má svo sannarlega setja malaðar möndlur í staðinn fyrir eitthvað af speltinu!

*Það má frysta afganginn ef einhver er og hita upp í ofni, eða einfaldlega láta þiðna á eldhúsborði eða í ísskáp.

Aðferð:1. Hitið ofninn í um 175°C. 2. Blandið þurrefnunum saman í

skál, bræðið smjörið við vægan hita í litlum potti, blandið saman þurrefnum, hunangi, smjöri og mjólk/jógúrt.

3. Hnoðið í deig en gætið þess að hnoða ekki of lengi því þá verður deigið seigt.

4. Bætið við spelti ef deigið er of blautt og mjólk ef það er of þurrt.

5. Skiptið deiginu í 2 hluta og fletjið einn í einu út þunnt og notið til þess fínt spelt svo það festist ekki við borðið.

6. Bræðið 3-4 matskeiðar af sm-jöri/kókosolíu við vægan hita í litlum potti og smyrjið þunnt inn í deigið.

7. Stráið því næst inn í (ofan á smjörið) vel af kanil og því sem þið viljið.

8. Rúllið deiginu upp, skerið niður í litla snúða og raðið þeim á bökunarpappír á ofnskúffu.

9. Bakið snúðana í 13-16 mínútur (fer eftir stærð).

Page 24: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Unaðslegur föstudagsdesertHafrakaka með ferskjum og bláberjum borin

fram glóðvolg með ís eða rjóma

Innihald:6 meðalstórar ferskjur2 bollar fersk eða frosin bláber1 bolli heilhveiti frá Himneskri Hollustu3/4 bolli hrásykur frá Himneskri Hollustu1/2 bolli grófar hafraflögur frá Himneskri Hollustu1/2 bolli heslihnetur frá Himneskri Hollustu1 tsk kanill frá Himneskri Hollustu1/2 tsk sjávarsalt110 g smjör

Aðferð: 1. Ofnfast form smurt með kókos-

hnetuolíu.2. Ferskjur skornar niður í báta og

blandað saman með bláberjum í botninn á forminu.

3. Grófum hafraflögum, heilhveiti, hrásykri, smjöri, fínt skornum heslihnetum, sjávarsalti og kanil hrært vel saman og dreift yfir ferskjurnar og bláberin (gott að gera með fingrunum).

4. Bakað við 180° í 45 mín.

Verði ykkur að góðu og njótið vel!

Page 25: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Guðdómlega góð laugardagskakaHeslihnetu- og kókosflögubotn toppaður með rjómasúkkulaði, jarðarberjum og bláberjum

Botn undirbúinn1. Heslihnetum og kókosflögum

blandað saman í matvinnsluvél.2. Kakódufti, hrásykri og kókos-

hnetu olíu bætt út í matvinnslu-vélina og blandað saman við hesli-hnetu- og kókosflögu blönduna.

3. Form smurt með kókoshnetuolíu og dreift jafnt úr blöndunni í formið (má vera kringlótt meðal-stórt form).

4. Bakið við 180°C í 10-15 mín. - takið út úr ofninum og látið botninn kólna

5. Krem undirbúið: Hitið og bl and ið saman kókosrjóma og 75% súkku -laði í potti við vægan hita.

6. Látið kremið kólna og smyrjið síðan á botninn.

7. Kælið kökuna í frysti í ca 30 mín.8. Kakan skreytt með jarðarberjum

og bláberjum.

Njótið vel á góðum laugardegi!

Innihald:220 g heslihnetur frá Himneskri Hollustu100 g kókosflögur frá Himneskri Hollustu40 g kakó frá Naturata50 g Hrásykur frá Himneskri Hollustu2 msk kókoshnetuolía frá Himneskri Hollustu1 peli Isola kókosrjómi300 g 75% súkkulaði frá NaturataFersk jarðarber og bláber

Page 26: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Lífræn kryddlína með einstök bragðgæði

Page 27: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

Lífræn kryddlína með einstök bragðgæði

Bragð- og lyktarlausKaldpressuð/jómfrúar

Upplögð í· þeytinginn· grautinn· baksturinn· til að smyrja bökunarform· te og kaffi· til inntöku ein og sér, t.d. 1–2 msk daglega· næring fyrir húð og hár

Upplögð· þegar kókosbragðs er ekki óskað· til steikingar á kjöti, fiski og grænmeti· til að poppa poppmaís.· til að smyrja bökunarform · út í te og kaffi

Kókoshnetuolía inniheldur hátt hlutfall af lárinsýru, eykur upptöku og nýtingu á omega 3 og 6 fitu sýrum, bætir meltingu, örvar brennslu, styrkir ónæmiskerfið, er græðandi, sótthreinsandi og góð fyrir liði, húð og hár.

KókoshnetuolíaEinstaklega holl og næringarrík

Page 28: Bakaðu með Ebbu Guðnýju og Himneskri Hollustu

HollustudásemdÞessa kókosbita er yndislegt að eiga bæði til að njóta og bjóða

Innihald:250 g kókosflögur frá Himneskri Hollustu5 msk kókoshnetuolía frá Himneskri Hollustu5 msk hunang frá Himneskri Hollustu1/2 tsk vanilluduft frá Naturata100 g 70% súkkulaði frá Naturata

Aðferð:1. Kókosflögum, kókoshnetuolíu,

hunangi og vanilludufti blandað saman í matvinnsluvél þar til blandan er orðin þykk og þétt í sér.

2. Búið til 18 litlar kúlur og kælið í 30 mín.

3. Bræðið súkkulaði og látið kólna í 5 mín.

4. Þekið hverja kúlu með súkkulaði, gott er að nota tvo gaffla til að dýfa og velta kúlunum upp úr súkkulaðinu.

5. Látið súkkulaðið storkna og geymið í kæli.