6
Fimmtudagur 9. apríl 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn 14. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is Íbúum sveitarfélagsins er bent á að búið er að setja upp flokkunarkrá við Gáruna. Þar er hægt að flokka sorp allan sólarhringinn alla daga ársins. Ekki er ætlast til að komið sé með stærri hluti þá þarf að koma með á opnunartíma sorpstöðvarinnar. Vegna breyttra aðstæðna er fólk beðið ykkur um að setja allan pappír í poka áður en hann er settur í endurvinnslutunnuna. Flokkunin gengur ágætlega og íbúar eru jákvæðir gagnvart henni en þó má benda á að í síðustu hreinsun var talsvert af almennu sorpi en einhvers misskilnings gætir þar sem mikið magn af bleiupokum hafa verið í endurvinnslutunnunni. Það má alls ekki setja GLER í endurvinnslutunnuna vegna slysahættu starfsmanna. Við frágang endurvinnsluefnanna varð slys á starfsmanni, fékk hann skurð á hendi sem kom til eingöngu vegna glers. Einnig er áréttað að endur vinnslan tekur ekki við fatnaði, ef vilji er að endurnýta slíkt á að koma því í RKÍ. Tekið er við fatnaði fyrir RKÍ í Gárunni, en ekki er ætlast til að föt séu sett í endurvinnslutunnuna. Ef fólk vill endurnýta sín föt á að koma þeim til RKÍ m.a. í Gárunað eða í gáminn við N1. Opnunartími Endurvinnslunnar þ.e. flöskumóttakan er opin þriðjudaga og fimmtudaga milli 13:00 og 17:00 á laugardögum er opið frá 11:00 til 15:00. Þann 1. apríl síðast liðinn hefði Torfi Steinþórsson á Hala orðið 100 ára ef honum hefði auðnast líf svo lengi. Torfi var mikill áhugamaður um bridge og stóð fyrir spilamennsku í Suðursveit áratugum saman. Suðursveitungar komu þá saman og spiluðu bridge, hin síðari ár alltaf á fimmtudögum. Yfirleitt var spilað á fjórum borðum og stundum fimm. Síðan var einu sinni á vetri alvöru sveitakeppni við Hafnarmenn, þar voru fremstir í flokki Árni Stefánsson og Ragnar Björnsson ásamt fleiri þekktum Hornfirðingum. Uppáhaldsmatur Torfa var saltað hrossakjöt og helst vel feitt. Á hverju ári stendur Þórbergssetur nú fyrir bridgehátíð og hrossakjötsveislu í Þórbergssetri, sem næst afmælisdegi Torfa, að þessu sinni 11. og 12. apríl næstkomandi. Þá er spilað nær linnulaust frá föstudagskvöldi til sunnudagssíðdegis og etið þess á milli hrossakjöt og silungur að hætti Halamanna. Mótið hefur verið vel sótt undanfarin ár og kemur fólk víðs vegar að af landinu, en heldur hefur dregið úr þátttöku heimamanna seinni árin. Hægt er að skrá þátttöku og gistingu í síma 4781073 / 8672900 eða á netfang [email protected]. Mótsgjald er 3000 krónur Gisting í tvær nætur morgunverður, hrossakjötsveisla og hádegisverður á sunnudegi kostar 16.000 kr. Gaman væri ef heimamenn og gamlir spilafélagar Torfa kæmu í Þórbergssetur þessa helgi í tilefni 100 ára ártíðar Torfa. Allir velkomnir Bridgehátíð og Hrossakjötsveisla í Þórbergssetri Endurvinnsla Nú er lokið öllum aðalfundum deilda Sindra sem eru starfandi í dag. Reksturinn gekk ágætlega á síðasta ári og hefur velta félagsins aldrei verið meiri eða tæpar 90 milljónir. Af aðalstjórn er það að frétta að Ásgrímur Ingólfsson hætti í stjórn eftir 9 ára stjórnarsetu og þar af 7 ár sem formaður. Þakkar Umf. Sindri Ásgrími fyrir vel unnin störf. Gunnhildur Lilja Gísladóttir kom í hans stað og bjóðum við hana velkoma til starfa. Aðalstjórn Sindra skipa núna ásamt Gunnhildi formanni, Halldóra Katrín Guðmundsdóttir og Gauti Árnason. Á fundinum var Sævari Þór Gylfasyni veitt gullmerki Sindra fyrir mikið og gott starf en hann hóf þjálfun árið 1988 hjá knattspyrnudeild auk þess að þjálfa og vera í stjórn Blakdeildar til margra ára. Að auki var Sævari veitt silfurmerki KSÍ fyrir störf sín í þágu knattspyrnunnar. Sævar er að flytja á höfuðborgarsvæðið ásamt fjölskyldu sinni. Þakka ungmennafélagar Sævari fyrir óeigingjarnt og ómetanlegt starf í nálægt þrjá áratugi. Í Ungmennafélaginu eru nú starfandi sex deildir auk aðalstjórnar og fjöldi þjálfara. Í þessum sjö stjórnum eru 25 stjórnarmenn og þar af 15 konur sem við erum ákaflega stolt af. Stjórnir Umf. Sindra Aðalfundir Sindra Sævar Þór, Kristján Guðnason og Valdimar Einarsson.

Eystrahorn 14. tbl. 2015

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Fimmtudagur 9. apríl 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn14. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is

Íbúum sveitarfélagsins er bent á að búið er að setja upp flokkunarkrá við Gáruna. Þar er hægt að flokka sorp allan sólarhringinn alla daga ársins. Ekki er ætlast til að komið sé með stærri hluti þá þarf að koma með á opnunartíma sorpstöðvarinnar. Vegna breyttra aðstæðna er fólk beðið ykkur um að setja allan pappír í poka áður en hann er settur í endurvinnslutunnuna. Flokkunin gengur ágætlega og íbúar eru jákvæðir gagnvart henni en þó má benda á að í síðustu hreinsun var talsvert af almennu sorpi en einhvers misskilnings gætir þar sem mikið magn af bleiupokum hafa verið í endurvinnslutunnunni. Það má alls ekki setja GLER í endurvinnslutunnuna vegna slysahættu starfsmanna. Við frágang endurvinnsluefnanna varð slys á starfsmanni, fékk hann skurð á hendi sem kom til eingöngu vegna glers. Einnig er áréttað að endurvinnslan tekur ekki við fatnaði, ef vilji er að endurnýta slíkt á að koma því í RKÍ. Tekið er við fatnaði fyrir RKÍ í Gárunni, en ekki er ætlast til að föt séu sett í endurvinnslutunnuna. Ef fólk vill endurnýta sín föt á að koma þeim til RKÍ m.a. í Gárunað eða í gáminn við N1. Opnunartími Endurvinnslunnar þ.e. flöskumóttakan er opin þriðjudaga og fimmtudaga milli 13:00 og 17:00 á laugardögum er opið frá 11:00 til 15:00.

Þann 1. apríl síðast liðinn hefði Torfi Steinþórsson á Hala orðið 100 ára ef honum hefði auðnast líf svo lengi. Torfi var mikill áhugamaður um bridge og stóð fyrir spilamennsku í Suðursveit áratugum saman. Suðursveitungar komu þá saman og spiluðu bridge, hin síðari ár alltaf á fimmtudögum. Yfirleitt var spilað á fjórum borðum og stundum fimm. Síðan var einu sinni á vetri alvöru sveitakeppni við Hafnarmenn, þar voru fremstir í flokki Árni Stefánsson og Ragnar Björnsson ásamt fleiri þekktum Hornfirðingum. Uppáhaldsmatur Torfa var saltað hrossakjöt og helst vel feitt. Á hverju ári stendur Þórbergssetur nú fyrir bridgehátíð og hrossakjötsveislu í Þórbergssetri, sem næst

afmælisdegi Torfa, að þessu sinni 11. og 12. apríl næstkomandi. Þá er spilað nær linnulaust frá föstudagskvöldi til sunnudagssíðdegis og etið þess á milli hrossakjöt og silungur að hætti Halamanna. Mótið hefur verið vel sótt undanfarin ár og kemur fólk víðs vegar að af landinu, en heldur hefur dregið úr þátttöku heimamanna seinni árin. Hægt er að skrá þátttöku og gistingu í síma 4781073 / 8672900 eða á netfang [email protected]. Mótsgjald er 3000 krónur Gisting í tvær nætur morgunverður, hrossakjötsveisla og hádegisverður á sunnudegi kostar 16.000 kr. Gaman væri ef heimamenn og gamlir spilafélagar Torfa kæmu í Þórbergssetur þessa helgi í tilefni 100 ára ártíðar Torfa. Allir velkomnir

Bridgehátíð og Hrossakjötsveisla í Þórbergssetri

Endurvinnsla

Nú er lokið öllum aðalfundum deilda Sindra sem eru starfandi í dag. Reksturinn gekk ágætlega á síðasta ári og hefur velta félagsins aldrei verið meiri eða tæpar 90 milljónir. Af aðalstjórn er það að frétta að Ásgrímur Ingólfsson hætti í stjórn eftir 9 ára stjórnarsetu og þar af 7 ár sem formaður. Þakkar Umf. Sindri Ásgrími fyrir vel unnin störf. Gunnhildur Lilja Gísladóttir kom í hans stað og bjóðum við hana velkoma til starfa. Aðalstjórn Sindra skipa núna ásamt Gunnhildi formanni, Halldóra Katrín Guðmundsdóttir og Gauti Árnason. Á fundinum var Sævari Þór Gylfasyni veitt gullmerki Sindra fyrir mikið og gott starf en hann hóf þjálfun árið 1988 hjá knattspyrnudeild auk þess að þjálfa og vera í stjórn Blakdeildar til margra ára. Að auki var Sævari veitt silfurmerki KSÍ fyrir störf sín í þágu knattspyrnunnar. Sævar er að flytja á höfuðborgarsvæðið ásamt fjölskyldu sinni. Þakka ungmennafélagar Sævari fyrir óeigingjarnt og ómetanlegt starf í nálægt þrjá áratugi. Í Ungmennafélaginu eru nú starfandi sex deildir auk aðalstjórnar og fjöldi þjálfara. Í þessum sjö stjórnum eru 25 stjórnarmenn og þar af 15 konur sem við erum ákaflega stolt af.

Stjórnir Umf. Sindra

Aðalfundir Sindra

Sævar Þór, Kristján Guðnason og Valdimar Einarsson.

2 EystrahornFimmtudagur 9. apríl 2015

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

EystrahornEystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Arnar Þór Guðjónsson háls-, nef- og eyrnalæknir

verður með stofu á heilsugæslustöðinni dagana 21. -22 . apríl nk

Tímapantanir í síma 470-8600 virka daga.

Tekið er við kortum

Bifreiðaskoðun á Höfn 13., 14. og 15. apríl.Tímapantanir í síma 570 9090

fyrir kl. 16:00 föstudaginn 10. apríl.

Næsta skoðun er 18., 19. og 20. maí.

Þegar vel er skoðað

Aðalfundur verslunarmannadeildar AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn 14. apríl 2015 kl. 18:00 að Víkurbraut 4 Hornafirði

Dagskrá:• Kjaramál• Skýrsla um störf deildarinnar liðið starfsár• Kjör stjórnar deildarinnar• Önnur mál

Stjórn Verslunarmannadeildar

AFLs

Félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga

Samverustund á föstudaginn kl. 17:00 með Birni Arnarsyni sem sýnir fugla- og náttúrulífsmyndir og fjallar um komu farfuglanna í vor.EKRUMEISTARINN í Hornafjarðarmanna 2015Á laugardaginn kemur kl. 13:00 verður spilað um EKRUSKÁLINA í EKRUNNI.Albert Eymundsson stjórnar Mannanum og veitir viðurkenningar.Aðgangseyrir kr. 1000 og aðeins tekið við reiðufé.

Allir hjartanlega velkomnir að spila !Dans- og spilanefndin

Laus störf á HSU HornafirðiAuglýst eftir sumarstarfsfólki í ýmis störf á HSU

Hornafirði. Skemmtilegur vinnustaður, hentar bæði körlum og konum! Upplýsingar í síma 470-8600 eða

senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Laun samkvæmt kjarasamningum viðeigandi stéttarfélags og

Launanefnd sveitarfélaga.

Frá Ferðafélaginu

Eitt fjall í mánuði Sunnudaginn 12. aprílHrossatindur við Lónsheiði 744 m. Lagt af stað kl. 9:00 frá tjaldstæðinu og sameinast í bíla. Ekið að Lónsheiði þar sem gangan hefst um kl. 9:40.Léttir göngubroddar nauðsynlegir, léttur bakpoki, nesti og hlýr klæðnaður. Klæðnað og útbúnað þarf að miða við veður og aðstæður.Skorum á starfsfólk Ráðhússins að fjölmenna í þessa ferð.Ferðatími er um 6-7 klst. Verð 1000- kr. fyrir 18 ára og eldri. Séu hundar með skal vera ól meðferðis.Allir velkomnir. Frekari upplýsingar Ragna Pétursdóttir 662-5074

Aðalfundur Ferðafélags Austur-Skaftfellinga verður haldinn 9. apríl í Gömlubúð kl 20:00.

Venjuleg aðalfundarstörf.

3Eystrahorn Fimmtudagur 9. apríl 2015

Aðildarfélög Starfsgreina-sambandsins afturkölluðu sameiginlega atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun eftir að Félagsdómur dæmi sambærilega atkvæðagreiðslu nokkurra félaga innan Rafiðnaðarsambandsins ólögmæta þar sem atkvæði höfðu verið greidd og talin sameiginlega. SA höfðaði málið fyrir dómnum. Það eru undarlegar áherslur að þvæla málum fyrir dómstólum frekar en að snúa sér að hinu raunverulega verkefni, að ganga frá kjarasamningum. Nú mun hvert félag fara í atkvæðagreiðslur um vinnustöðvun til að fylgja eftir kröfum félaganna en meginkrafa aðildarfélaga SGS er að lágmarkslaun verði hækkuð í 300 þúsund krónur innan þriggja ára og stefna félögin saman á verkfallsboðun til að þrýsta á um að ná fram markmiðum sínum um mannsæmandi kjör. Aðgerðirnar ná til félagsmanna sem starfa í fiskvinnslu, kjötvinnslu og sláturhúsum, í þjónustugreinum, svo sem ferðaþjónustu og ræstingum og í byggingastarfsemi, mannvirkjagerð, iðnaði og flutningsgreinum. Eftir helgina munu félagsmenn AFLs Starfsgreinafélags sem starfa í þessum greinum fá senda atkvæðaseðla heim þar sem þeir greiða atkvæði um tillögu trúnaðarráðs félagsins um verkfallsboðun. Atkvæðagreiðslan verður rafræn en aðstoð býðst á skrifstofum félagsins fyrir þá sem þess óska. Þeir félagsmenn sem falla undir ofangreint samningssvið en fá ekki senda atkvæðaseðla eru beðnir um að snúa sér til félagsins eftir skýringum. Baráttan er núna- vertu með?

Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFLs StarfsgreinafélagsSkýringar:• Boðað hefur verið til vinnustöðvunar vegna kröfu AFLs um

samninga við undirverktaka á Alcoalóð • Viðræður ganga ekkert í samningum verslunarmanna og

iðnaðarmanna.• Viðræður eru í gangi vegna starfsmanna Alcoa. • Samningar við ríkið og sveitarfélögin renna út í lok apríl. • Ekki er verið að fara í atkvæðagreiðslu hjá þessum hópum núna• Þeir hópar sem eru ekki í deilunni í dag eru sjómenn,

starfsmenn á bændabýlum, við uppstokkun og beitningu og við Norðfjarðargöng auk nokkurra sérsamninga.

Aðalfundur verkamannadeildar AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn 16. apríl 2015 kl. 18:00 að Búðareyri 1 Reyðarfirði

Dagskrá:• Kjaramál• Skýrsla fum störf deildarinnar• Kjör stjórnar deildarinnar• Önnur mál

Stjórn Verkamannadeildar

AFLs

Atkvæðagreiðslur um verkföll

Lausar stöður við Grunnskóla Hornafjarðar

• sérkennsla• íþróttakennsla• umsjónarkennsla á miðstigi• heimilisfræðikennsla• starf náms- og starfsráðgjafa• starf þroskaþjálfa• starf bókasafnsvarðar

Í Grunnskóla Hornafjarðar eru 270 nemendur í 1. – 10. bekk. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf þar sem fjölbreyttir kennsluhættir, skapandi starf og einstaklingsmiðuð nálgun er grunnurinn í skólastarfinu. Skólinn er heilsueflandi, grænfána skóli sem starfar eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar (Restitution).

Menntunar og hæfniskröfur:• háskólamenntun og starfsréttindi á viðkomandi sviði• frumkvæði og jákvæðni gagnvart skólaþróun• samstarfsvilji, hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæði

í vinnubrögðumLaun samkvæmt kjarasamningum SA og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir og ferilskrá skal senda á skólastjóra á netföngin [email protected] og [email protected]óknarfrestur til 24. apríl 2015Upplýsingar um starfið veita skólastjórarnir Eygló Illugadóttir í síma 470 4820 og Hulda Laxdal Hauksdóttir í síma 470 8440.

Sumarstarf hjá Hornafjarðarhöfn

Hornafjarðarhöfn óskar eftir sumarstarfsmanni frá og með 2. maí til og með 31. ágúst

Starfslýsing:Skipstjórn á Birni Lóðs, vigtun á hafnarvog og fiskmarkaði, hreinsun hafnarumhverfis og viðhald hafnarmannvirkjaStarfið heyrir undir Hornafjarðarhöfn.

Menntun og hæfniskröfur:• Skipstjórnarréttindi AD (Gamla pungaprófið)• Vélstjórnarréttindi, vélavörður 750 kW og minna (VV),

vigtarréttindi• Þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Laun og kjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og SAMFLOT bæjarstarfsmannafélaga.Nánari upplýsingar um starfið gefur Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður Hornafjarðarhafnar í síma 854 0242.

4 EystrahornFimmtudagur 9. apríl 2015

Pósturinn á Höfn í Hornafirði óskar eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingar. Óskað er eftir jákvæðum einstaklingum með ríka þjónustulund sem eiga auðvelt með samskipti.

Bréfberi í 75% starf þar sem vinnutíminn er frá 8:30 til 14:30. Tímabil frá 6. júlí - 15. ágúst.

Gjaldkeri í 100% starf þar sem vinnutíminn er frá 8:30 til 16:45. Tímabil frá 1. júní - 15. ágúst.

Umsóknarfrestur er til 1. maí 2015

Nánari upplýsingar gefur Sigríður Lucia Þórarinsdóttir í síma 478-1101 eða í netfangið [email protected]

Hægt er að sækja um á postur.is en skriflegum umsóknum skal skilað á Pósthúsið á Höfn merkt:

PósturinnSigríður Lucia Þórarinsdóttir AfgreiðslustjóriHafnarbraut 21780 Höfn

Starfsfólkóskast

Leikskólafótbolti í BárunniByrjar aftur sunnudaginn 12. apríl kl 13:00

Þjálfari er Miralem Haseta

Neysla grunnskólanemenda á ýmisskonar orkudrykkjum hefur aukist mikið að undanförnu enda framboð mjög mikið. Nokkuð er um að börn allt niður í 13 ára neyti þessara drykkja reglulega. Algengt er að skólahjúkrunarfræðingar fái fyrirspurnir varðandi þessa drykki og neyslu þeirra í eldri deildum Grunnskóla Hornafjarðar. Einn þeirra drykkja sem krakkarnir hafa verið að neyta er Amino Energy en hann er samkvæmt merkingu ekki ætlaður börnum 18 ára og yngri. Við nánari skoðun á þessum drykk er hann sagður vera: vatnslosandi, örvandi, vöðvastækkandi og heilahreinsandi ásamt fleiri eiginleikum. Þessi orkudrykkur inniheldur koffein, vatnslosandi grænt te, Taurin sem er amínósýra (á að virka svipað og kreatín) og á að draga vatn og næringarefni inn í vöðvafrumur og þannig stækka þær, einnig á hún að auka áhrif koffeins. Svo er Glútamín sem sagt er í leiðbeiningum að styðji við prótein upptöku og framleiðslu vaxtahormóna ásamt því að afeitra heilann. Koffein er örvandi efni sem getur valdið svefnleysi, óþægindum í maga, örum hjartslætti, hækkuðum blóðþrýstingi og minnkaðri athygli. Önnur efni sem þessi orkudrykkur inniheldur hafa ekki verið rannsökuð með tilliti til neyslu barna og unglinga og ætti þessi aldurshópur því ekki að neyta þessara efna. Það sem vakti spurningar var sú staðreynd að unglingarnir voru ekki endilega að taka þessa drykki fyrir æfingar heldur sem almennan svaladrykk. Þegar börnin eru spurð að því hvers vegna þau noti þessa drykki eru svörin yfirleitt á þá leið að þau vanti orku. Sem skólahjúkrunarfræðingur velti ég fyrir mér af hverju heilbrigðum unglingum vanti orku og hvort ástæðan geti verið of mikil koffein neysla sem leiði til svefntruflana? Önnur tala um að þau þurfi að brenna hraðar eða vegna þess að félagarnir neyti þessara drykkja. Flest vita þó ekki hvað þessir drykkir gera fyrir þau. Það er nauðsynlegt að vekja athygli á þeirri staðreynd að börn í efri bekkjum grunnskóla virðast drekka talsvert magn af þessum drykkjum. Því er það hvatning til foreldra að skoða með gagnrýnum augum hvað börnin þeirra eru að setja ofan í sig og kynni sér innihaldsefni þeirra fæðubótaefna sem börnin eru að neyta.Börn og unglingar sem eru að vaxa og þroskast þurfa fjölbreytta fæðu, nægan svefn og reglubundna hreyfingu. Þau eiga ekki að þurfa fæðubótarefni eða orkudrykki til að komast í gegnum daginn. Vatn er besti svaladrykkurinn fyrir og á meðan æfingum stendur og kostar ekkert. Einu fæðubótarefnin sem ráðlagt er að taka sérstaklega er lýsi og D vítamín.

F.h. Heilsugæslu Hornafjarðar-HSU Ragnheiður Rafnsdóttir skólahjúkrunarfræðingur

Neysla ungmenna á orkudrykkjum

Lausar stöður við Heilsuleikskólann

KrakkakotHeilsuleikskólinn Krakkakot auglýsir eftir leikskólakennurum eða leiðbeinendum í 100 % stöður frá 1. maí og einnig frá 11. ágúst 2015. Um framtíðarstörf er að ræða. Krakkakot er þriggja deilda heilsuleikskóli og starfar eftir viðmiðum Samtaka heilsuleikskóla. Laun greidd samkvæmt samningum launanefndar Sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2015.

Tekið er á móti umsóknum hjá Snæfríði leikskólastjóra og Elínborgu aðstoðarleikskólastjóra á Krakkakoti og í síma 470-8480 eða á [email protected].

AðAlfuNdur Aðalfundur Ríkis Vatnajökuls ehf. 2015 verður haldinn í Árnanesi sunnudaginn 12. apríl kl. 20:00-22:00.

Dagskrá aðalfundar er venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins og lögum um einkahlutafélög nr.138/1994.

Olga Ingólfsdóttir, nýr framkvæmdastjóri félagsins verður kynnt.

5Eystrahorn Fimmtudagur 9. apríl 2015

Föstudagshádegi í NýheimumFöstudaginn 10. apríl kl. 12:30 mun

Vilhjálmur Magnússon, staðarhaldari í Vöruhúsinu, koma í Nýheima og segja frá starfsemi hússins.

Viðburðurinn er öllum opinn og áhugasamir hvattir til að koma og kynna sér hvað íbúum stendur til boða.

KútmagakvöldHið árlega og vinsæla kútmagakvöld Lionsmanna verður haldið í Sindrabæ

laugardaginn 11. apríl nk.

Veislustjóri : Jóhannes Sigfússon

Gunnarsstöðum

Miðaverð: 5000 kr

Húsið opnar kl. 19:30

Allir karlmenn velkomnir

Lionsklúbbur Hornafjarðar

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra setti í gang í október sl. vinnu við mótun stefnu og framtíðarsýnar fyrir ferðaþjónustu á Íslandi. Markmiðið er að byggja góðan grunn fyrir íslenska ferðaþjónustu og stuðla að samkeppnishæfni hennar á alþjóðlegum vettvangi til lengri tíma. Stefnt er að því að niðurstöður vinnunnar liggi fyrir í júní nk. Það eru tímamót í ferðaþjónustu á Íslandi. Ferðaþjónustan er nú sú atvinnugrein sem skilar þjóðarbúinu mestum gjaldeyristekjum og árleg fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands hefur verið yfir 20% undanfarin þrjú ár. Vöxtur í greininni skapar mikil tækifæri en einnig áskoranir og við þeim þarf að bregðast af skynsemi. Mikið hefur verið kallað eftir því að stjórnvöld móti stefnu og framtíðarsýn fyrir íslenska ferðaþjónustu og sterkur vilji er meðal hagsmunaaðila að koma að þeirri vinnu. Stýrihópur um verkefnið starfar undir formennsku ráðherra en þar eiga einnig sæti ferðamálastjóri og formaður og framkvæmdastjóri SAF. Samhliða er starfandi verkefnahópur, sem heldur utan um verkefnið, og er ætlað að kortleggja stöðuna í íslenskri ferðaþjónustu, huga að að umgjörð ferðaþjónustunnar á Íslandi og taka mið af þekkingu og þróun ferðaþjónustu erlendis, einkum þar sem vel hefur tekist til. Verkefnahópnum er ætlað að gera tillögu að stefnu og framtíðarsýn til lengri tíma og aðgerðaráætlun til skemmri tíma. Mikilvægasti þátturinn í stefnumótunarvinnunni er aðkoma hagsmunaaðila, m.a. fyrirtækja, starfsmanna í greininni og almennings. Það eru hagsmunir allrar þjóðarinnar að vel takist til og hefur verkefnahópurinn opnað heimasíðuna, www.ferdamalastefna.is en þar gefst öllum kost á að koma á framfæri ábendingum og leiðum sem þeir vilja sjá til að bæta og gera íslenska ferðaþjónustu alþjóðlega samkeppnishæfa.

Stefna og framtíðarsýn fyrir íslenska ferðaþjónustu

www.ferdamalastefna.is

Minnum á tónleika HamrahlíðakórsinsLaugardagur 11. apríl kl. 15:00 Tónleikar í félagsheimilinu Hofgarði í Öræfum.

Sunnudagur  12. apríl  kl. 11:00  Sungið á hjúkrunardeild HSU, Hornafirði.   kl. 14:00  Tónleikar í Hafnarkirkju í Hornafirði. 

Mánudagur 13. apríl kl. 10:00 Skólatónleikar fyrir Grunnskóla Hornafjarðar, 1. - 6. bekk.

kl. 11:30 Skólatónleikar fyrir Framhaldsskólann í A- Skaftafellssýslu og efstu bekki Grunnskóla Hornafjarðar.

Ókeypis aðgangur að öllum tónleikum

Viltu merkja fugla?Í tilefni 10 ára afmælis Fuglaathugunarstöðvar

Suðausturlands verður fólki boðið að koma og fylgjast með og taka þátt í merkingum í Einarslundi nk. laugardag og sunnudaginn

frá kl. 8:00 - 12:00 báða dagana.

Ný aðstaða stöðvarinnar verður líka til sýnis.

BæjarmálafundurBæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða með súpufund í Sjálfstæðishúsinu laugardaginn 11. apríl kl. 11:00 – 13:00.

Alþingismaðurinn Ásmundur Friðriksson verður sérstakur gestur á fundinum.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðismanna

Rakarastofan verður lokuð frá 10. apríl til 19. apríl.

Rakarastofa Baldvins

Ærblanda SS óerfðabreytt Kjarnfóðurblanda framleidd af DLG fyrir íslenska sauðféð• Orkurík kjarnfóðurblanda með 17,2% hrápróteini.• Gott jafnvægi í steinefnum og snefilefnum og rík af kalsíum, fosfór og magnesíum.

Kjarnfóðrið inniheldur ekki erfðabreytt hráefni

Saltsteinn fyrir kindur Salto får • Inniheldur stein- og snefilefni• Inniheldur ekki kopar• Inniheldur selen• Inniheldur náttúrulegt bergsalt• Má notast við lífræna ræktun

-10 kg steinn

Bætiefnafata fyrir kindurVitlick Soft Sheep • Steinefna- og snefilefnaríkt og hentugt með vetrarfóðrun• Inniheldur A-vítamín, D-vítamín og E-vítamín• Án kopars• Hátt seleninnihald • Inniheldur hvítlauk

- 15 kg fata

Sláturfélag Suðurlands svf. • Fosshálsi 1 • 110 Reykjavík • Sími 575 6000 • www.ss.isSölumaður Bjarni Hákonarson sími 894-0666.

Yea-Mix Iceland Bætiefnablanda með lifandi geri

• Lifandi ger hjálpar til á marga vegu: - Það jafnar sýrustigið í vömbinni og minnkar líkur á súrri vömb. - Nýting sterkju og meltanleiki trénis eykst. - Aukin nyt og lægri frumutala í mjólkinni. - Hlutfall fitusýra verður hagstæðara. - Eykur almennt heilbrigði og frjósemi.• Inniheldur lífrænt selen og náttúrulegt

E-vítamín.• Inniheldur bíótín• Inniheldur gott hlutfall af kalsíum, fosfór og magnesíum

-20 kg poki

Friska Sød Mjólkurduft fyrir kálfa

• Tvær gerðir af mjólkurdufti:

-Friska Sød Extra: Hágæða undanrennuduft sem hentar allt mjólkur-

fóðrunartímabilið.

-Friska Sød Special: Hágæða mysuduft sem hentar síðari hluta mólkur- fóðrunartímabilið.

-25 kg poki