6
Fimmtudagur 22. október 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn Þann 5. október sl. var bæjarráði afhent skýrsla um verkefnið Sjávarþorpið Höfn, en það er afrakstur vinnu áhugahóps um að draga fram helstu sérkenni Hafnar og nota þau sérstaklega til að efla bæinn sem áfangastað ferðamanna og búsetukost. Hugmyndin að verkefninu kviknaði hjá grasrótinni meðal ferðaþjónustuaðila á Höfn vorið 2013 og var síðar boðið upp á opnar vinnustofur þar sem allir áhugasamir voru hvattir til að mæta og taka þátt í að móta framtíðarsýnina bæði fyrir Höfn sem áfangastað og búsetukost. Fjölmargir þátttakendur tóku þátt í verkefninu þar sem var leitast við að sameinast um sérstöðuna auk þess sem lögð var áhersla á að sátt ríkti um hana á meðal ferðaþjónustuaðila og íbúa. Sameiginleg framtíðarsýn hópsins var Höfn yrði „Eftirsóttur heilsárs áfangastaður og búsetukostur- sjávarþorp með fjölbreyttu atvinnulífi“ og megin niðurstaða stefnumótunarvinnunnar var að skilgreina Höfn sem heildstæða vöru þar sem helsta sérstaðan er talin vera humarinn, hafnarsvæðið, fólkið og nálægð byggðar við jökul. Umsjón með verkefninu var í höndum SASS og Ríkis Vatnajökuls og afhentu þær Fanney Björg Sveinsdóttir verkefnastjóri SASS og Árdís Erna Halldórsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls, bæjarráði skýrsluna með þeim óskum að þær tillögur sem þar koma fram verði hafðar að leiðarljósi í þeim skipulags-, markaðs- og kynningarmálum er snúa að þéttbýlinu Höfn. Hægt er að nálgast skýrsluna á heimasíðu sveitarfélagsins og stendur aðilum til boða að nota þær verkefnahugmyndir sem koma fram í henni. Árdís Erna Halldórsdóttir og Fanney Björg Sveinsdóttir 36. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is Sjávarþorpið Höfn Ljósmynd: Þorvarður Árnason „Að hlusta á nið aldanna“ - málþing í Þórbergssetri Haustþing Þórbergsseturs verður haldið 25. október kl. 11:00 og verður að þessu sinni helgað sögu, náttúrufræði og fornleifafræðirannsóknum í Skaftafellssýslu. Fornleifafræðingarnir Vala Garðarsdóttir, Bjarni F. Einarsson og Steinunn Kristjánsdóttir verða með erindi er tengjast rannsóknum þeirra hér í sýslu, og Helgi Björnsson jöklafræðingur fjallar um Breiðamerkurjökul og jöklafræði. Bjarni F. Einarsson mun kynna nýútkomna bók sem hann er að gefa út, þar sem fjallað er um rannsóknir hans á fornleifum m.a. merkilegar rannsóknir á völvuleiðum sem eru mörg þekkt hér í sýslu. Vala Garðarsdóttir hefur unnið að rannsóknarverkefni sem hún kallar Útræði í Hornafirði frá öndverðu og Steinunn Kristjánsdóttir fjallar um rannsóknir sínar tengdar uppgreftri á Skriðuklaustri og sögnum um ferðir vermanna og fiskveiðar Austfirðinga frá hinni fornu Hálsahöfn og dvöl þeirra í Borgarhöfn á öldum áður. Í lok málþings verður farið í heimsókn í Kambtún og skyggnst um á slóðum vermanna. Gluggað verður í þjóðsögur og gamlar sagnir á milli erinda fræðimannanna m.a. lesið upp úr þjóðsögum Torfhildar Hólm og Suðursveitarbókum Þórbergs. Dagskrá málþingsins er að finna í blaðinu.

Eystrahorn 36. tbl. 2015

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Page 1: Eystrahorn 36. tbl. 2015

Fimmtudagur 22. október 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn

Þann 5. október sl. var bæjarráði afhent skýrsla um verkefnið Sjávarþorpið Höfn, en það er afrakstur vinnu áhugahóps um að draga fram helstu sérkenni Hafnar og nota þau sérstaklega til að efla bæinn sem áfangastað ferðamanna og búsetukost. Hugmyndin að verkefninu kviknaði hjá grasrótinni meðal ferðaþjónustuaðila á Höfn vorið 2013 og var síðar boðið upp á opnar vinnustofur þar sem allir áhugasamir voru hvattir til að mæta og taka þátt í að móta framtíðarsýnina bæði fyrir Höfn sem áfangastað og búsetukost. Fjölmargir þátttakendur tóku þátt í verkefninu þar sem var leitast við að sameinast um sérstöðuna auk þess sem lögð var áhersla á að sátt ríkti um hana á meðal ferðaþjónustuaðila og íbúa. Sameiginleg framtíðarsýn hópsins var að Höfn yrði „Eftirsóttur heilsárs áfangastaður og búsetukostur- sjávarþorp með fjölbreyttu atvinnulífi“ og megin niðurstaða stefnumótunarvinnunnar var að skilgreina Höfn sem heildstæða vöru þar sem helsta sérstaðan er talin vera humarinn, hafnarsvæðið, fólkið og nálægð byggðar við jökul. Umsjón með verkefninu var í höndum SASS og Ríkis Vatnajökuls og afhentu þær Fanney Björg Sveinsdóttir verkefnastjóri SASS og Árdís Erna Halldórsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls,

bæjarráði skýrsluna með þeim óskum að þær tillögur sem þar koma fram verði hafðar að leiðarljósi í þeim skipulags-, markaðs- og kynningarmálum er snúa að þéttbýlinu Höfn. Hægt er að nálgast skýrsluna á heimasíðu

sveitarfélagsins og stendur aðilum til boða að nota þær verkefnahugmyndir sem koma fram í henni.

Árdís Erna Halldórsdóttir og Fanney Björg Sveinsdóttir

36. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is

Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is

Sjávarþorpið Höfn

Ljósmynd: Þorvarður Árnason

„Að hlusta á nið aldanna“- málþing í Þórbergssetri

Haustþing Þórbergsseturs verður haldið 25. október kl. 11:00 og verður að þessu sinni helgað sögu, náttúrufræði og fornleifafræðirannsóknum í Skaftafellssýslu. Fornleifafræðingarnir Vala Garðarsdóttir, Bjarni F. Einarsson og Steinunn Kristjánsdóttir verða með erindi er tengjast rannsóknum þeirra hér í sýslu, og Helgi Björnsson jöklafræðingur fjallar um Breiðamerkurjökul og jöklafræði. Bjarni F. Einarsson mun kynna nýútkomna bók sem hann er að gefa út, þar sem fjallað er um rannsóknir hans á fornleifum m.a. merkilegar rannsóknir á völvuleiðum sem eru mörg þekkt hér í sýslu. Vala Garðarsdóttir hefur

unnið að rannsóknarverkefni sem hún kallar Útræði í Hornafirði frá öndverðu og Steinunn Kristjánsdóttir fjallar um rannsóknir sínar tengdar uppgreftri á Skriðuklaustri og sögnum um ferðir vermanna og fiskveiðar Austfirðinga frá hinni fornu Hálsahöfn og dvöl þeirra í Borgarhöfn á öldum áður. Í lok málþings verður farið í heimsókn í Kambtún og skyggnst um á slóðum vermanna. Gluggað verður í þjóðsögur og gamlar sagnir á milli erinda fræðimannanna m.a. lesið upp úr þjóðsögum Torfhildar Hólm og Suðursveitarbókum Þórbergs.Dagskrá málþingsins er að finna í blaðinu.

Page 2: Eystrahorn 36. tbl. 2015

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 22. október 2015

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

EystrahornEystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Veturnáttablót

Veturnáttablót Hornfirðinga verður við Sílavík fyrsta vetrardag, laugardaginn 24. október og hefst kl. 17. Blótið er helgað

Frigg og Freyju, uppskeru haustsins og öllum þeim lifandi verum sem hverfa til hinnar eilífu hringrásar.

Öll hjartanlega velkomin, Svínfellingagoði.

Félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga

SamveruStund í umsjón Hauks Helga. Efni stundarinnar er spurningaleikur: Þekkið þið fuglshljóðin?

danSiball og vöFFlukaFFi sunnudaginn 25. október kl. 16:00 - 17:30. Hilmar og fuglarnir spila fyrir dansi. Allir velkomnir í dansinn.

Arnar Þór Guðjónsson háls-, nef- og eyrnalæknir

verður með stofu á heilsugæslustöðinni dagana 27. og 28. október nk.

Tímapantanir í síma 470-8600 virka daga. Tekið er við kortum

Ástkær sonur okkar og bróðir,

Kári KristjánssonHlíðartúni 8 Höfn,

lést þann 9. október. Útför hans verður gerð frá Hafnarkirkju laugardaginn 24. október kl. 14:00.

Lone Jacobsen Kristján Þór JónssonBjörgvin Þór KristjánssonDavíð Þór Kristjánsson

Konukvöld-fræðsla í bleikum mánuðiKonukvöld verður þriðjudagskvöldið 27. október kl 20:00 á Hótel Höfn Elín Freyja Hauksdóttir læknir flytur fræðsluerindi um heilsu kvenna og líðan. Hulda Laxdal jógakennari leiðbeinir og fræðir um núvitund og slökun.Höfum gaman saman og mætum í einhverju bleiku. Kaffi á könnunni.Allar konur hjartanlega velkomnar Aðgangur ókeypis

Krabbameinsfélag Suðausturlands

HafnarkirkjaSunnudaginn 25. október

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

BjarnaneskirkjaSunnudaginn 25. október

Uppskerumessa kl. 17:00Við færum Guði þakkir fyrir gjöfult sumar og afrakstur jarðarinnar í nýmálaðri Bjarnaneskirkju.

Eftir messu býður sóknarnefnd til kjötsúpu í Mánagarði.

Allir velkomnir

Prestarnir og sóknarnefnd

Kaþólska KirkjanDavid Tencer verður biskup í Reykjavík. Við þökkum honum fyrir allt og gangi honum vel í nýrri þjónustu. En okkar andlegt líf heldur áfram, hittumst eins og venjulega, næst 25. október kl. 12:00. Kaffi eftir messu.Allir hjartanlega velkomnir.

Page 3: Eystrahorn 36. tbl. 2015

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 22. október 2015

Skrifstofan verður lokuðföstudaginn 23. október

vegna námskeiða starfsmannaog árshátíðar

BÓKHALDSSTOFAN EHF.

Vetrarstarfið hjá Lionsklúbbi Hornafjarðar byrjaði þann 14. október og tók þá við ný stjórn sem er þannig skipuð: Einar B. Karlsson formaður, Steinþór Hafsteinsson ritari og Leifur Jón Helgason gjaldkeri. Félagar í klúbbnum eru 34. Fundir eru haldnir annan og fjórða miðvikudag hvers mánaðar. Gegnum árin hefur Lionsklúbbur Hornafjarðar, sem var stofnaður árið 1966, látið fé af hendi rakna til margs konar líknar- og hjálparstarfs hér í byggðinni okkar og er af mörgu að taka ef telja ætti. Nefna má að á síðasta starfsári var ákveðið að færa hjúkrunarheimilinu u.þ.b. hálfa milljón til tækjakaupa og alltaf hefur klúbburinn látið fé til aðstoðar bágstöddum í hvers kyns erfiðum aðstæðum. Miðvikudaginn 28. október n.k. verður hin víðfræga Sviðaveisla Lions haldin í Pakkhúsinu kl. 18:00 - 20:00. Sviðaveislan er einn af stóru liðunum í fjáröflun Lionsklúbbsins og rennur afraksturinn til líknarmála. Velunnarar klúbbsins og samfélagsins okkar gefa allt efni til veislunnar og Pakkhúsið hýsir hana. Þar verður boðið upp á ný og söltuð svið ásamt kartöflumús og rófustöppu. Aðgangseyrir er kr. 3.000,- en hálft gjald fyrir börn yngri en 15 ára.

Lionsklúbbur Hornafjarðar

Frá Lionsklúbbi Hornafjarðar

Sviðaveisla Lionsverður í Pakkhúsinu miðvikudaginn

28. október kl. 18:00 – 20:00.

knattspyrnunámskeiðMinnum á knattspyrnunámskeið hjá Coerver Coaching í Bárunni

á Höfn í Hornafirði um næstu helgi.

Námskeiðið er fyrir alla drengi og stúlkur í 3.-6. flokki.

Sjá auglýsingu í síðasta Eystrahorni

Page 4: Eystrahorn 36. tbl. 2015

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 22. október 2015

Nú stendur til að setja upp yfirlitssýningu með verkum Bjarna Henrikssonar (Bassa). Til þess að sýning geti orðið að veruleika þarf að skrá og taka myndir af verkum hans. Bjarni Henriksson fæddist árið 1927 á Höfn, gekk Handíða – og myndlistarskólann í Reykjavík, starfaði sem málarameistari á Höfn og málaði myndir í tómstundum. Hann var afkastamikill málari og eru verk hans til á mörgum stöðum utan sem innan sveitarfélagsins. Bjarni lést árið 1989. Nú þegar skráning er að fara af stað þá óskum við á Hornafjarðasöfnum eftir samstarfi við fyrirtæki, stofnanir og íbúa sveitarfélagsins. Því viljum við góðfúslega biðla til þeirra sem eiga verk og myndir eftir Bjarna, að taka af þeim myndir skrá stærð (lengd og breidd verksins) og gerð (olía, vatnslitir, akrýl og þessháttar) og senda á [email protected] einnig er hægt að hringja í síma 4708057 og 865 3302Með ósk um gott samstarf.

Hornafjarðasöfn/Listasafn Svavars Guðnasonar

ADALFUNDUR FORELDRAFÉLAGSINS -

Stjó rn foreldrafélagsins

Skráning á verkum Bjarna Henrikssonar

Aðalfundur Leikfélags Hornafjarðar verður haldinn í Hlöðunni Fiskhól 5 fimmtudaginn 29. október kl. 20:00.

Venjuleg aðalfundarstörf.

Allir velkomnir

Stjórnin

Föstudagshádegi

Leitum eftir leikurum!Einar Sigurjónsson kynnir flugslysaæfingu Isavia sem verður á Hornafjarðarflugvelli

laugardaginn 24. október.

Kynningin verður 23. október kl. 12:15.

Allir velkomnir!

Page 5: Eystrahorn 36. tbl. 2015

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 22. október 2015

Auglýsing um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Hornafirði

Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum þann 21. júlí 2015 breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030.

Aðalskipulagsbreyting Hof Öræfum

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 felur í sér að; Stækka a.vinnusvæði, um 15 ha. svæði fyrir verslun og þjónustu.

Gert er ráð fyrir að afmarka íbúðarsvæði norðan Hringvegar ofan við félagsheimilið Hofgarð, um 7 ha. að stærð.

Umrætt svæði er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Sveitarfélagið óskaði eftir því að landbúnaðarráðherra staðfesti breytingu á landnotkun að Hofi. Staðfesting frá ráðherra barst sveitarfélaginu 14. október þar sem hann heimilar breytingu á landnotkun á tveimur landspildum A og B að Hofi Öræfum.

Deiliskipulag Hof Öræfum

Bæjarstjórn samþykkti tillögu að nýju deiliskipulagi á fundi sínum 3. september 2015.

Markmið með gerð deiliskipulagsins eru fyrirhugaðar framkvæmdir á uppbyggingu mannvirkja í tengslum við landbúnaðarstarfsemi og auka ferðaþjónustu á jörðinni.

Skipulagssvæðið skiptist í tvö meginsvæði A og B þar sem byggja á upp á áður óbyggðu landi. Að auki er fyrirhuguð stækkun og endurnýjun íbúðar og útihúsa við Hof. Deiliskipulagstillagan er auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030.

Aðalskipulagstillagan ásamt greinargerð verður til kynningar hjá Skipulagstofnun.

Aðal-og deiliskipulagstillagan ásamt greinargerð verða einnig til kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27, 270 Höfn frá 16. október til 28. nóvember 2015 og á heimasíðu sveitarfélagsins wwww/hornafjordur.is/stjórnsýsla – skipulag í kynningu.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við aðal- og deiliskipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. nóvember 2015 og skal skila skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið [email protected].

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson Skipulags- og byggingafulltrúi

Að hlusta á nið aldanna- málþing í Þórbergssetri

Dagskrá11:00 Setning11:10 Bjarni F: Einarsson fornleifafræðingur; „Álagablettir, völvuleiði, haugar, dysjar og kuml í A-Skaftafellssýslu“.12:20 Hádegisverður13:00 Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur; Útræði í Hornafirði frá öndverðu; staða rannsókna13:50 Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur; Áð í Skriðuklaustri; Ferðir vermanna til og frá Borgarhöfn í Suðursveit14:40 Helgi Björnsson jöklafræðingur; Breiðamerkurjökull og jöklafræði15:20 Sögur um Kambtún rifjaðar upp; upplestur15:30 Kaffiveitingar16:00 Ferð í Kambtún

Búið er að fastmæla við seljanda hvaða ómtæki verður keypt á heilsugæslustöðina. Tækið kostar rúmar 6 m.kr. með afslætti. Nokkuð góður árangur hefur náðst í söfnuninni en betur má ef duga skal.

minnum á reikningsnúmer söfnunarinnar í Landsbankanum:

reikningsnúmer 172 - 26 - 6704 kennitala 670415-0230Frekari upplýsingar eru á heimasíðunni hssa.is.

Stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Hornafirði

Áskorun - lokaátakið

Page 6: Eystrahorn 36. tbl. 2015

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480 8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið [email protected]. Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn sudurland.is.

Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar og ráðgjöf við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna á vefnum sudurland.is.

Uppbyggingarsjóðurinn er hluti af Sóknar áætlun Suðurlands og er á ábyrgð Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknumSjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar, menningar og atvinnuþróunar á Suðurlandi

Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember nk.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurlandi, samstarfs- og þjónustuvettvangur um hagsmunamál

sveitarfélaga, íbúa og atvinnulífs á Suðurlandi.

SASS - SelfossAusturvegur 56

480 8200

SASS - HvolsvöllurOrmsvöllur 1

480 8200

SASS – VestmannaeyjarÞekkingarsetur VE

480 8200

SASS - HöfnNýheimar480 8200

Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur tekið við hlutverki Menningarráðs og Vaxtar­samnings Suðurlands.

Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands:

Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi Að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi

•P

rent

met

Suð

urla

nds

PókerMót fellur niður vegna

verkefna fyrir Íslandsmót.Í staðinn verður opinn fundur í Pakkhúsinu

fimmtudaginn 23. október kl. 20:00.

Þeir sem hafa hug á að sækja mótið hvattir til að

mæta.

Skáldhugi - helgarnámskeið Skáldhugi er listasmiðja í skapandi skrifum sem byggir á að sækja sér innblástur frá hugtökum úr mannréttindum, náttúru, umhverfi og listum.

Leiðbeinandi er Erla Steinþórsdóttir leiklistarkona og listkennari.

Erla lærði European Theatre Arts í Englandi þar sem áhersla er lögð á skapandi leikhúsverk. Í kennaranámi lagði hún áherslu á skapandi þróunarferli og hefur hún verið undanfarin misseri að starfa með fólki við skapandi skrif.

Nýheimum 4. desember kl. 16:00 - 20:00, 5. og 6.desember kl. 10:00 - 14:00.

Verð: 19.900,-

ATH. sum stéttarfélög greiða niður námskeið af þessu tagi.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Nínu Síbyl, [email protected] s: 560-2050.Nú hver hver að verða síðastur

að skella sér á ball með okkur strákunum þetta haustið en á laugardaginn kemur ætlum við

að leika og syngja eins og okkur einum er lagið á dansiballi

á HóTEL HöfN. Dansiballið mun hefjast strax að lokinni sýningu Hornfirska

skemmtifélagsins eða um kl. 23:30 og standa til 03:00. Miðaverð er aðeins kr. 2.500 sem þykir alls ekki mikið nú til dags. Aldurstakamrið er 18 ár.

Heyrst hefur að þessi föngulegi bóndi úr ónefndri sveit ætli að mæta á ballið. Hann ætlar hinsvegar

að skilja hanann eftir heimaStúlkur - nú er lag.