25
Getraun í tilefni af norrænum loftslagsdegi 11. nóvember 2009 Á þeim skýjum sem voru með rangar yrðingar hafa rétt svör verið skrifað inn á með rauðu

Getraun í tilefni af norrænum loftslagsdegi 11. nóvember 2009 Á þeim skýjum sem voru með rangar yrðingar hafa rétt svör verið skrifað inn á með rauðu

  • View
    221

  • Download
    5

Embed Size (px)

Citation preview

Getraun í tilefni af norrænum loftslagsdegi 11. nóvember 2009

Á þeim skýjum sem voru með rangar yrðingar hafa rétt svör verið skrifað

inn á með rauðu

Stofa 4

Gróðurhúsalofttegundir hafa þann eiginleika að hleypa geislun sólar í gegnum sig.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 5

Bensínvélar mynda nituroxíð sem orsakar súrt regn, koleinoxíð sem er eiturefni sem drepur fólk andi það að sér útblástursreyk og koltvíoxíð sem er helsti valdur að gróðurhúsaáhrifum.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Smíðastofa

Tvinnbílar (blendingsbílar) hafa rafmótor og brennsluvél (rafhlöðu og bensíngeymi) til að keyra.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Dansstofa

Útblástur koltvísýrings sem veldur m.a. svokölluðum gróðurhúsaáhrifum er meiri (minni) frá bílvél sem knúin er metangasi en úr díselbílum.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 11

Gróðurhúsalofttegundir endurvarpa varmageislun jarðarinnar og stuðla þannig að svokölluðum gróðurhúsaáhrifum.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 13

Dagur ósonlagsins er 16. september.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 15

Sala úðabrúsa sem innihalda ósoneyðandi efni var bönnuð frá og með 1. júní 2009 (1990).

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 16

Montrealbókunin um verndun ósonlagsins er talin vera árangursríkasti alþjóðasamningur sem gerður hefur verið á sviði umhverfismála.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 21

Bílvél knúin metangasi er um 10 % (50 %) hljóðlátari en hefðbundin díselvél.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 23

Notkun ósoneyðandi efna hefur minnkað um 95 % frá því að bann við notkun þeirra var sett.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 24

Styrkur CO2 í andrúmslofti er nú 387 ppm. Haft er eftir vísindamönnum að það magn af kolefni í andrúmslofti sem sé öruggt fyrir andrúmsloftið sé 350 ppm.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 26

Mælingar benda til þess að innan við 10 % rykagnamengunar að vetri eigi rætur að rekja til útblásturs. Afgangurinn er að mestu vegna vegslits og uppblásturs.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 30

Lífdísel = Olía úr dýrafitu + bensín (dísel).

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 31

Þeir orkuberar sem nefndir hafa verið til að leysa olíuna af hólmi á Íslandi eru lífrænt eldsneyti eins og metangas, rafmagn sem geymt er á rafhlöðum, vetni og annað gervieldsneyti unnið úr vetni og kolefni t.d. svonefnd Fischer-Tropsch-gerviolía og metanól.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 34

Útstreymi gróðurhúsalofttegunda er tvíþætt á Íslandi, af mannavöldum og náttúrlegt.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 41

Á tímabilinu 1999 til 2005 jókst losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík um 3 % (30 %).

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 43

Blý er mjög eitraður málmur. Stórir skammtar af því skaða heila og taugar, einkum í börnum sem eru að vaxa og þroskast. Byrjað var að flytja blýlaust bensín til Íslands árið 1988.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 45

Hvarfakútar á bílum þola (þola ekki ) blý.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 47

Árlega myndar meðalbíll fjórfalda þyngd sína af koltvíoxíði.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 50

Hvarfakútar er búnaður sem dregur úr þeirri mengun sem veldur súru regni og svokallaðri reykþoku í mörgum stórborgum. Hins vegar minnkar hann ekki magn koltvíoxíðs sem berst frá bílum.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 53

Með því að eyða trjám erum við að eyðileggja bestu náttúrlegu vörnina gegn gróðurhúsaáhrifum.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 55

Lofthjúpur umlykur alla jörðina. Í honum eru fjölmargar lofttegundir en aðallega súrefni (nitur) (78 %) og nitur (súrefni) (21 %).

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 57

Hvarfakútar eru gerðir úr sjaldgæfum málmum sem þarf að grafa eftir en námugröftur getur haft í för með sér eyðingu regnskóga og önnur neikvæð áhrif á umhverfið.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur

Stofa 58

Bruni skóga leiðir til myndunar á gífurlegu magni af koltvíoxíði sem berst út í andrúmsloftið og eykur gróðurhúsaáhrifin.

Rétt Rangt

Norrænn loftslagsdagur