8
UPPBYGGING VÖRUMERKIS Þessi bæklingur um uppbyggingu vörumerkisins Íslenski hesturinn, er leiðarvísir til þeirra sem koma til með að sinna markaðssetningu á íslenska hestinum erlendis. Bæklingurinn er ekki hugsaður sem kynningarefni eða til dreifingar á almennum markaði.

Horses of Iceland (Icelandic)

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Brochure on the marketing project Horses of Iceland

Citation preview

Page 1: Horses of Iceland (Icelandic)

UPPBYGGING VÖRUMERKISÞessi bæklingur um uppbyggingu vörumerkisins Íslenski hesturinn, er leiðarvísir til þeirra sem koma til með að sinna markaðssetningu

á íslenska hestinum erlendis. Bæklingurinn er ekki hugsaður sem kynningarefni eða til dreifingar á almennum markaði.

Page 2: Horses of Iceland (Icelandic)

Stoðir vörumerkisins eru grunnurinn að þeim sögum sem við viljum segja af íslenska hestinum. Hver stoð hefur svo að geyma útgangspunkt eða áherslur hverrar sögu fyrir sig.

STOÐIRVÖRUMERKISINS

Page 3: Horses of Iceland (Icelandic)

STOÐIR VÖRUMERKISINS

Stofn íslenska heststinser upprunalegur.

Hann býr yfir fimm gang-tegundum þ.m.t. skeiði og tölti.

Hann er geðgóður, meðfærilegur, viljugur, þrautseigur og fjölhæfur.

Saga íslenska hestsins er samofin sögu Íslands. Hann var þarfasti þjónn okkar í aldaraðir.

Hann er ein af hetjum Íslendingasagnanna.

Íslenski hesturinn veitir okkur frelsi.

Hann hvetur til útiveru og gæðastunda með fjölskyldu og vinum.

Hann er uppspretta sagna, söngva og skemmtunar.

Hann eflir tengsl okkar hvert við annað og veitir lífsfyllingu.

Í gegnum hestinn upplifum við útiveru á einstakan hátt.

Við komumst í snertingu við töfra náttúrunnar og torfærur milliliðalaust.

Við njótum frelsis, friðar og fetum nýjar slóðir.

Að vera hestamaður er lífsstíll.

Fagmennska, menntun og vel mótaðir staðlar einkenna starfið í kringum íslenska hestinn.

WorldFengur, upprunaættbók íslenska hestsins, er einstakur á heimsvísu.

REIÐHESTURINNSAGA ÍSLANDS OG MENNING

ÆVINTÝRI OG FÉLAGSSKAPUR

NÁLÆGÐ VIÐ NÁTTÚRUNA

SAMFÉLAG ÍSLENSKA HESTSINS

Page 4: Horses of Iceland (Icelandic)

Karakter vörurmerkisins gefur til kynna þann tón og talsmáta sem skal einkenna allt markaðsefni og er jafnframt leiðarljós í öllum aðgerðum.

Vörumerkið Íslenska hestinn ber að skilja í víðu samhengi og sem samnefnara fyrir alla þá �ölbreyttu starfsemi sem tengist hestinum og samfélagi hestamanna um heim allan.

KARAKTER VÖRUMERKISINS

Page 5: Horses of Iceland (Icelandic)

KARAKTER VÖRUMERKISINS

Íslenski hesturinn er laus við alla tilgerð en um leið heillandi. Hann er meðfærilegur, �ölhæfur og þrautseigur. Hann tekur öllum fagnandi og á skilið fólk með brennandi áhuga á hestamennsku.

Íslenski hesturinn hefur verið okkar þarfasti þjónn frá því Ísland var numið og sinnt sínu hlutverki með glæsibrag. Hann er náttúra Íslands holdi klædd, frjáls og ósvikinn.

Íslenski hesturinn opnar fyrir þér ævintýraveröld sem er mörgum hulin. Veröld sem er rík í litum og áferð og eilíf uppspretta sagna og söngva.

Íslenski hesturinn er náttúruafl í sjálfu sér, óspjallaður og kraftmikill. Í þann kraft sækjum við með margvíslegum hætti okkar lífsþrótt og gleði.

Íslenski hesturinn er frumforsenda og drifkraftur samfélags sem býr að gríðarlegri þekkingu á eðli hans og anda. Samfélag sem tekur þér opnum örmum og leggur mikið upp úr vináttu, félagsskap og lífsgleði.

ÁN TILGERÐAR ÓSVIKINN ÆVINTÝRAGJARN KRAFTMIKILLTEKUR ÞÉR FAGNANDI

Page 6: Horses of Iceland (Icelandic)

LEIÐIN AÐ SÝNINNI

SÝN

STAÐFÆRSLA

KARAKTER

STOÐIR SAGA ÍSLANDSOG MENNING

NÁLÆGÐ VIÐ NÁTTÚRUNA

SAMFÉLAG ÍSLENSKA HESTSINS

ÆVINTÝRI OG FÉLAGSSKAPUR

RAMMIVÖRUMERKISINS

ÓSVIKINN

AÐ TENGJA HESTAMENN NÁNAR VIÐ NÁTTÚRUNA

AÐ ÍSLENSKI HESTURINN VERÐI ÞEKKTUR Á HEIMSVÍSU SEM HINN NÁTTÚRULEGI REIÐHESTUR

HINN NÁTTÚRULEGI REIÐHESTUR

ÆVINTÝRAGJARN KRAFTMIKILL TEKUR ÞÉR FAGNANDI

ÁN TILGERÐAR

REIÐHESTURINN

Page 7: Horses of Iceland (Icelandic)

Íslenski hesturinn er náttúra Íslands holdi klædd, einstakur, óspjallaður og

ósvikinn. Hann er laus við alla tilgerð en að sama skapi gríðarlega kraftmikill,

heillandi og �ölhæfur. Aldagamalt hlutverk íslenska hestsins sem þarfasta

þjónsins hefur vikið fyrir tækninýjungum en hlutverk hans í dag er ekki síður

mikilvægt. Íslenski hesturinn opnar fyrir okkur stórbrotinn ævintýraheim.

Sem reiðhestur sinnir íslenski hesturinn því hlutverki að veita okkur aðgang

að samfélagi fólks þar sem vinátta, félagsskapur og lífsgleði er öðru

mikilvægara og sem reiðhestur sinnir íslenski hesturinn því hlutverki enn

fremur að tengja hestamenn nánar við náttúruna. Hlutverk sem hæfir hans

upprunalegu eiginleikum og eðli fullkomlega.

STAÐFÆRSLAStaðfærsla skilgreinir hvernig vörumerkið uppfyllir þarfir og langanir öðruvísi eða betur en samkeppnin og markar þar með sérstöðu vörumerkisins í huga neytandans.

Page 8: Horses of Iceland (Icelandic)

BRING YOU CLOSER TO NATURE

SLAGORÐSetning til birtingar í almennu markaðsefni sem fangar aðdráttarafl vörumerkisins eins og það hefur verið skilgreint í staðfærslu.