26
Hvað þarftu að vita?

Kynningarglærur allt landið 24022014

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Page 1: Kynningarglærur allt landið 24022014

Hvað þarftu að vita?

Page 2: Kynningarglærur allt landið 24022014

Yfirlit

Atvinnuleysistryggingar – almennar upplýsingarRéttindi og skyldur.

Kynning á helstu þjónustuþáttum Vinnumiðlun.Ráðgjafaþjónusta.Vinnumarkaðsúrræði.

Atvinnuleit

Page 3: Kynningarglærur allt landið 24022014

Vinnumálastofnun

Heyrir undir VelferðarráðuneytiðFer með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu

atvinnuleysistryggingasjóðs.

Starfar samkvæmt lögum Nr. 54/2006 um Atvinnuleysistryggingar.Nr. 55/2006 um Vinnumarkaðsaðgerðir.

Markmið laganna er• Að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir þátttakendur á

vinnumarkaði.• Að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í landinu.

Page 4: Kynningarglærur allt landið 24022014

Skráning - vinnumiðlun - ráðgjöf

Nýskráning og móttaka Móttaka og skráning umsókna um atvinnu- og atvinnuleysisbætur, vottorða og annarra fylgigagna.

VinnumiðlunVeitir m.a. upplýsingar um laus störf og starfstengd vinnumarkaðsúrræði. Hægt er að panta tíma hjá vinnumiðlara.

RáðgjafaþjónustaVeitir upplýsingar og ráðgjöf varðandi atvinnuleit og möguleika á námi samhliða henni. Hægt er að panta tíma hjá náms- og starfsráðgjafa.

Úrskurður bótaréttarAfgreiðsla umsóknar og úrskurður bótaréttar getur tekið allt að 6 vikur frá því gögn berast til Greiðslustofu. Hægt er að fylgjast með stöðu umsóknar á ,,mínum síðum”.

Page 5: Kynningarglærur allt landið 24022014

Heimasíða Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is

Page 6: Kynningarglærur allt landið 24022014

Mínar síður

Page 7: Kynningarglærur allt landið 24022014

Réttur til atvinnuleysisbóta

Almenn skilyrðiLaunafólk á aldrinum 18 – 70 ára með búsetu, lögheimili og statt á

Íslandi.

Krafa er gerð um virka atvinnuleit: Vera fær til flestra almennra starfa. Skila þarf læknisvottorði ef

vinnufærni er skert. Frumkvæði við atvinnuleit og vera reiðubúinn að taka starfi á Íslandi

sem greitt er fyrir skv. lögum og kjarasamningum. Vilji og geta til að taka þátt í úrræðum samanber lög um

vinnumarkaðsaðgerðir.

Lengd bótatímabilsBótatímabilið er þrjú ár (36 mánuðir).

Page 8: Kynningarglærur allt landið 24022014

Upphæð atvinnuleysisbóta

Grunnatvinnuleysisbætur

eru kr. 178.823.- miðað við fullan bótarétt (100%)

Tekjutengdar atvinnuleysisbætur Bætur eru tekjutengdar í þrjá mánuði í upphafi bótatímabils. Grunnbætur er greiddar fyrsta hálfa mánuðinn.70% af heildartekjum.

Launamaður - Miða skal við meðaltal heildarlauna á 6 mánaða tímabili sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus.

Sjálfstætt starfandi – Miða skal við síðasta heila tekjuár.

Hámark tekjutengdra bóta kr. 281.909.- Vegna hvers barns á framfæri yngra en 18 ára eru greiddar kr. 7.153.- á mánuði til viðbótar, óháð hlutfalli bótaréttar.

Page 9: Kynningarglærur allt landið 24022014

Útborgun atvinnuleysisbótaAtvinnuleysisbætur eru greiddar út fyrsta virkan dag í mánuði.Greitt er fyrir einn mánuð í einu sem nær yfir tímabilið 1. – 31. hvers mánaðar, greitt eftirá.

Veikindi Tilkynna skal veikindi sem hindra virka atvinnuleit.

5 daga veikindaréttur er á hverju 12 mánaða tímabili eftir 5 mánuði á atvinnuleysisskrá.

FerðalögAtvinnuleysisbætur eru ekki greiddar ef dvalið er erlendis. Tilkynna þarf um dvöl erlendis fyrir brottför og óska eftir afskráningu. Þegar heim er komið þarf að mæta á næstu þjónustuskrifstofu innan þriggja virkra

daga til að skrá sig aftur í atvinnuleit.Skila þarf afriti af flugfarseðli eftir að heim er komið.

Page 10: Kynningarglærur allt landið 24022014

Reglubundin samskipti

Staðfesting á atvinnuleit fer fram í gegnum ,,Mínar síður”

Atvinnuleit þarf að staðfesta 20.- 25. hvers mánaðar þann tíma sem einstaklingur er skráður í atvinnuleit.

Ef staðfest er á tímabilinu 26. – 3. næsta mánaðar seinkar greiðslum um 5 virka daga.

Þeir sem ekki staðfesta atvinnuleit á tilsettum tíma eru afskráðir

Page 11: Kynningarglærur allt landið 24022014

Staðfesting - ,,Mínar síður”

Þegar atvinnuleit hefur verið staðfest berst tölvupóstur um að skráning hafi tekist.

Berist tölvupóstur ekki er mikilvægt að hafa strax samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar

Page 12: Kynningarglærur allt landið 24022014

Atvinnuleit innanlands og í Evrópu

Upplýsingar um störf í boði innanlands á www.vinnumalastofnun.is

Upplýsingar um laus störf erlendis á www.eures.is

Vinnumiðlarar og ráðgjafar Vinnumálastofnunar aðstoða fólk við leit að starfi og veita nánari upplýsingar

Tenglasafn á aðrar ráðningarþjónustur á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Page 13: Kynningarglærur allt landið 24022014

Atvinnuleit í Evrópu

Vottorð U-2Veitir þeim sem eiga staðfestan rétt til atvinnuleysisbóta heimild til að leita að starfi erlendis í allt að þrjá mánuði á greiddum atvinnuleysisbótum frá Íslandi . Afgreiðsla umsókna tekur 3-4 vikur.Nánari upplýsingar á þjónustuskrifstofum VMST.

ATH. Ekki er heimilt að fara til útlanda samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta nema með U-2

Eures - Evrópsk vinnumiðlunUpplýsingar og ráðgjöf um atvinnuleit erlendis.

Page 14: Kynningarglærur allt landið 24022014

Hlutastörf og tilfallandi vinna

Hlutastarf Breyta þarf rafrænni umsókn og skrá rétt starfshlutfall. Fylla þarf út eyðublaðið Breyting á umsókn Fylla út áætlun um tekjur (heildartekjur) vegna hlutastarfs á ,,mínar síður”.

Tilfallandi vinna Tilkynna VMST í síðasta lagi með dags fyrirvara t.d. í tölvupósti.

Heimilt að tilkynna samdægurs við sérstakar aðstæður. Á við alla tilfallandi vinnu óháð lengd, tíma eða launum. Tilkynna um heildartekjur inn á “mínar síður” þegar laun eru greidd út.

Frítekjumark er kr. 59,047.Þegar tekjur + atvinnuleysisbætur eru hærri en sem nemur óskertum

rétti + frítekjumark þá skerðast atvinnuleysisbætur um helming þeirra

tekna sem umfram eru.

Page 15: Kynningarglærur allt landið 24022014

Tilkynning um tekjur skráð inn gegnum “mínar síður”

Tilkynna þarf um allar tekjur og styrki á ,,mínar síður”.

Page 16: Kynningarglærur allt landið 24022014

Sjálfstætt starfandi

• Ekki má opna virðisaukaskattsnúmer á eigin kennitölu samhliða atvinnuleysisbótum.

• Einstaklingur getur ekki verið í sjálfstæðum rekstri og fengið greiddar atvinnuleysisbætur samhliða.

• Þeim sem býðst vinna sem verktakar á eigin kennitölu verða að afskrá sig á meðan verkefni/vinnu stendur.

Page 17: Kynningarglærur allt landið 24022014

Upplýsingaskylda

Mikilvægt er að tilkynna um breytingar á högum s.s.

• Heimilisfang, síma, netfang.• Vinnu (fullt starf, hlutastarf, tilfallandi vinnu).• Tekjur - t.d. laun, lífeyrisgreiðslur, fjármagnstekjur, styrki.• Þátttöku í námi.• Orlof og ferðir utanlands án U-2.• Veikindi sem hindra virka atvinnuleit.

(5 daga veikindaréttur á ári eftir 5 mánuði samfellt á skrá)

• Skerta vinnufærni eða óvinnufærni.

Ef ekki er tilkynnt um breytingar þá getur það leitt til biðtíma/viðurlaga

Page 18: Kynningarglærur allt landið 24022014

Biðtími og viðurlög

Komið getur til biðtíma eða viðurlaga í tengslum við...

• Starfsmaður segir upp starfi. • Starfsmaður er valdur að eigin uppsögn.• Námsmaður hættir námi án lokaprófs.• Starfi hafnað.• Atvinnuviðtali hafnað.• Þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum hafnað.• Látið hjá líða að veita upplýsingar um vinnu eða tilkynna um

breytingar á högum (heimilisfang, símanúmer, netfang).

Atvinnuleitandi hefur ávallt tækifæri til að skila skýringu

Page 19: Kynningarglærur allt landið 24022014

Vinnumarkaðsúrræði

Tegundir vinnumarkaðsúrræðaStarfstengd úrræði, námskeið, námsúrræði, atvinnutengd endurhæfing og ráðgjöf

Markmið vinnumarkaðsúrræða Sporna gegn atvinnuleysi Auðvelda fólki að halda virkni Stuðla að tengslum við atvinnulífið Endurmenntun – viðhalda og öðlast nýja hæfni

Page 20: Kynningarglærur allt landið 24022014

Starfstengd vinnumarkaðsúrræði

• Starfsþjálfun (3-6 mánuðir)

• Reynsluráðning (3-6 mánuðir)

• Sérstök átaksverkefni (3-6 mánuðir)

• Sjálfboðaliðastarf

• Atvinnutengd endurhæfing

• Starfsorka – Frumkvöðlastarf innan fyrirtækis (allt að 6 mán.)

• Eigið frumkvöðlastarf (3-6 mánuðir)

Nánari upplýsingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is

Page 21: Kynningarglærur allt landið 24022014

Atvinnuleysisbætur og nám

Atvinnuleysisbætur – fyrir þá sem eru í virkri atvinnuleit og vilja nýta tíma sinn til að afla sér þekkingar og færni með því að sækja námskeið og styttra nám. Sbr. reglugerð nr. 13/2009.

Námslán – fyrir þá sem ákveða að hætta atvinnuleit um lengri tíma og fara í formlegt nám.

Nám á eigin vegum samhliða atvinnuleit verður að vera samþykkt af Vinnumálastofnun og uppfylla skilyrði í samræmi við reglugerð. Atvinnuleitendur geta óskað eftir námssamningi skv. reglum þar um.

Page 22: Kynningarglærur allt landið 24022014

Viðmið fyrir vorönn 2014

• Nám í dagskóla á framhaldsskólastigi er ekki samþykkt samhliða atvinnuleit.

• Að höfðu samráði við náms- og starfsráðgjafa er hægt að gera námssamning um 50% nám í fjarnámi/kvöldskóla á framhaldsskólastigi (9 einingar).

• Gerður er námssamningur vegna náms á háskólastigi – 10 ECTS ein. Með fleiri einingum á misseri skerðast bætur í ákv. hlutfalli.

Nánari upplýsingar hjá náms- og starfsráðgjöfum.

Page 23: Kynningarglærur allt landið 24022014

Námskeið Vinnumálastofnunar

Námskeið skipulögð af Vinnumálastofnun eru atvinnuleitendum með staðfestan bótarétt að kostnaðarlausu.

Upplýsingar og skráning hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar.

Hægt er að sækja um námsstyrk til greiðslu hluta af námskeiðsgjaldi vegna annarra námskeiða en þeirra sem Vinnumálastofnun skipuleggur.

• Umsókn um námsstyrk skal skila til ráðgjafa (eyðublað á www.vmst.is). Með umsókninni þurfa að fylgja tilskilin gögn varðandi námið.

• Sækja þarf um áður en námskeið hefst. • Skriflegt svar gildir sem staðfesting á greiðslu Vinnumálastofnunar.

Page 24: Kynningarglærur allt landið 24022014

Styrkir og afsláttarkjör

NámsstyrkurTil greiðslu námskeiðsgjalda. Skilyrði er að námið auki líkur á vinnu og að umsækjandi sé kominn með staðfestan bótarétt. Sækja þarf um áður en námskeiðið eða námið hefst, á þar til gerðum eyðublöðum.

BúferlastyrkurHeimilt er að veita styrk vegna búferlaflutnings innanlands frá lögheimili til þess staðar sem lögheimili er flutt í því skyni að sækja vinnu hjá nýjum atvinnurekanda sem hefur sannanlega boðið fastráðningu í starf. Með umsókninni þurfa að fylgja reikningar fyrir útlögðum kostnaði.

LækniskostnaðurAfsláttur fyrir atvinnuleitendur sem hafa verið atvinnulausir samfellt í 6 mánuði eða lengur. Framvísa þarf vottorði frá Vinnumálastofnun við komu á heilsugæslustöð eða lækni

Page 25: Kynningarglærur allt landið 24022014

Annað í boði

Stéttarfélög í samstarfi við fjölmarga aðila bjóða fjölbreytta þjónustu þeim félagsmönnum sínum, sem hafa misst vinnu og fá greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun.

Ýmis sveitarfélög bjóða atvinnuleitendum fríðindi, t.d. frítt í sund. Atvinnuleitendum er bent á að leita upplýsinga á skrifstofu síns sveitarfélags.

Page 26: Kynningarglærur allt landið 24022014

Skipulögð atvinnuleit

Ferilskrá og kynningarbréfNálgast atvinnuleit eins og vinnu

með ákveðin verkefni á hverjum degi.

Gera vinnuáætlun og setja sér markmið Skrifleg og mælanleg, t.d. fyrir eina viku í senn.

Skráningarblöð – halda skrá yfir: Störf sem sótt er um. Starfsviðtöl sem farið er í. Fyrirspurnir og tengiliði í tengslaneti. Ráðningastofur og samskipti við þær.

Leiðbeiningar um ferilskrárgerð og sniðmát fyrir ferilskrá er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is

26