2
Sveitarfélög skulu tryggja að sérfræðiþjónusta sé veitt í grunnskólum, ákveða fyrirkomulag hennar og stuðla að því að hún fari fram innan grunnskóla. Í sérfræðiþjónustu felst annars vegar stuðningur við nemendur og fjölskyldur þeirra og hins vegar stuðningur við starfsemi grunnskóla og starfsfólk þeirra. Í grunnskólum skal frá upphafi skólagöngu nemenda unnið að forvarnastarfi með skimunum og athugunum á nemendum til að tryggja þeim kennslu og námsaðstoð við hæfi. Auk þess skal fara fram greining á nemendum sem eiga í sálrænum eða félagslegum erfiðleikum sem hafa áhrif á nám þeirra. Allar athuganir á vegum skóla sem varða einstaka nemendur skulu gerðar í samráði við og með samþykki foreldra og óheimilt er að taka gjald fyrir slíkar athuganir. Greina skal foreldrum frá niðurstöðum slíkra athugana. Lög um grunnskóla, Menntamálaráðuneytið 2008 Sími: 411-7640 Netfang: [email protected] Heimasíða: http://www.nordlingaskoli.is Samstarf við foreldra Í Norðlingaskóla er litið svo á að vinna með nemendur sé sameiginlegt viðfangsefni foreldra og starfsfólks skólans enda eru foreldrar sérfræðingar í börnum sínum og starfsfólkið í námi og kennslu. Því er gert ráð fyrir því að foreldrar hafi sem mest um nám og umhverfi barna sinna í skólanum að segja og að samstarf þessara aðila sé sem allra best. norðlingaskóli norðlingaskóli Gert í ágúst 2012 Um stoðþjónustu í grunnskólum Stoðþjónusta

Kynnningarbæklingur um stoðþjónustu Norðlingaskóla

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Kynnningarbæklingur um stoðþjónustu Norðlingaskóla

Citation preview

Page 1: Kynnningarbæklingur um stoðþjónustu Norðlingaskóla

Sveitarfélög skulu tryggja að sérfræðiþjónusta sé veitt í

grunnskólum, ákveða fyrirkomulag hennar og stuðla

að því að hún fari fram innan grunnskóla. Í

sérfræðiþjónustu felst annars vegar stuðningur við

nemendur og fjölskyldur þeirra og hins vegar

stuðningur við starfsemi grunnskóla og starfsfólk

þeirra.

Í grunnskólum skal frá upphafi skólagöngu nemenda

unnið að forvarnastarfi með skimunum og athugunum

á nemendum til að tryggja þeim kennslu og

námsaðstoð við hæfi. Auk þess skal fara fram greining

á nemendum sem eiga í sálrænum eða félagslegum

erfiðleikum sem hafa áhrif á nám þeirra. Allar

athuganir á vegum skóla sem varða einstaka nemendur

skulu gerðar í samráði við og með samþykki foreldra

og óheimilt er að taka gjald fyrir slíkar athuganir.

Greina skal foreldrum frá niðurstöðum slíkra

athugana. Lög um grunnskóla,

Menntamálaráðuneytið 2008

Sími: 411-7640

Netfang:

[email protected]

Heimasíða:

http://www.nordlingaskoli.is

Samstarf við foreldra

Í Norðlingaskóla er litið svo á að vinna með

nemendur sé sameiginlegt viðfangsefni foreldra og

starfsfólks skólans enda eru foreldrar sérfræðingar í

börnum sínum og starfsfólkið í námi og kennslu. Því

er gert ráð fyrir því að foreldrar hafi sem mest um

nám og umhverfi barna sinna í skólanum að segja og

að samstarf þessara aðila sé sem allra best. norðlingaskóli

norðlingaskóli

Gert í ágúst 2012

Um stoðþjónustu í grunnskólum

St

þjó

nu

st

a

Page 2: Kynnningarbæklingur um stoðþjónustu Norðlingaskóla

Í Norðlingaskóla eru það aðstoðar-

skólastjóri, sérkennari og umsjónar-

kennari nemandans sem eru í

móttökuteymi skólans.

Þeir kennarar sem koma til með að

koma á einhvern hátt að skólagöngu

nemandans bera ábyrgð á því að kynna sér og undirbúa

komu nemandans.

Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu skólans.

stuðnings - og sérkennsla

Í Norðlingaskóla er litið svo á að öll

kennsla eigi að vera sérkennsla, enda

skuli reynt eftir fremsta megni að

tryggja að námsaðstæður og

námsefni henti ávallt getu og áhuga

hvers og eins nemanda. Í þessu tilliti

eru því allir kennarar „sér“

kennarar.

Lögð er áhersla á að þekking og

færni nemandans verði til við vinnu

hans og að útkoman úr námsferlinu

geti verið breytileg, einstaklings-

bundin og ekki alltaf fyrirsjáanleg.

Til að ná því markmiði að veita

hverjum og einum nemanda kennslu

við hæfi leggur skólinn metnað sinn í

að hafa yfir að ráða góðum og

breiðum hópi fagfólks. Hlutverk

þessa fólks er að taka þátt í

teymisvinnu og vera þátttakendur í að lögun n ámsaðs tæðna og

námsefnis fyrir hvern og einn

nemanda eða nemendahópa.

Fimm sérkennarar starfa við

Norðlingaskóla og bera ábyrgð á að

framfylgja stefnu Norðlingaskóla í

sérkennslumálum og sjá um ráðgjöf

til nemenda, aðstandenda og

starfsfólks.

móttaka nemenda af erlendum uppruna

Náms- og starfsráðgjöf

Náms- og starfsráðgjöf er í eðli sínu

forvarnarstarf og meginmarkmið er

að veita nemendum faglega þjónustu

og ráðgjöf í málum sem tengjast

námi þeirra, framtíðaráformum og

samskiptum og líðan í skólanum.

Allir nemendur og foreldrar þeirra

eiga kost á að snúa sér til náms- og

starfsráðgjafa og geta komið eða

hringt milliliðalaust eða beðið fyrir

skilaboð á skrifstofu skólans.

Náms- og starfsráðgjafi heldur utan

um samstarf við næsta skólastig og

vinnur að því að flutningur milli

skólastiga sé vel undirbúinn.

Stefnt er að því að allir nemendur

eigi greiðan aðgang að náms- og

starfsráðgjafa sem er trúnaðarmaður þeirra og málsvari.

Náms- og starfsráðgjafi í Norðlingaskóla er Guðrún Helga

Kristinsdóttir.

skólaheilsugæsla

Heilsugæsla í Norðlingaskóla

heyrir undir Heilsugæsluna Árbæ.

Viðverutími í skólahjúkrunar-

f ræðings í skó lanum er

sveigjanlegur eftir þeim verkefnum sem í gangi eru hverju

sinni en ritari skólans hefur upplýsingar um viðverutíma og

tekur skilaboð til hjúkrunarfræðings ef hann er ekki við.

E i n n i g e r hæg t að s enda tö l v upós t á

[email protected].

Meginmarkmið skólaheilsugæslu er að stuðla að því að börn

fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu andlegu,

líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á.

Heilsugæsla skólabarna er framhald af ung- og

smábarnavernd. Skólaheilsugæslan leitast við að efla

heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk

skólaheilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við foreldra/

forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma

að málefnum nemenda. Farið er með allar upplýsingar sem

trúnaðarmál.

Skólahjúkrunarfræðingur í Norðlingaskóla er Þorbjörg Edda Björnsdóttir.

Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts

Þjónustumiðstöðin er fyrir íbúa

Árbæjar og Grafarholts og er í

samstarfi við Norðlingaskóla.

Starfsfólk þjónustumiðstöðvar-

innar leggur áherslu á að styrkja hvers kyns hverfastarf og

forvarnarstarf í samvinnu við íbúa, félagasamtök og aðra þá

sem vilja láta til sín taka.

Á þjónustumiðstöðinni eru veittar upplýsingar um þjónustu

Reykjavíkurborgar en meðal þjónustu sem veitt er má nefna

sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, ferðaþjónustu

fatlaðra og félagslega ráðgjöf. Þar er einnig hægt að sækja um

ýmis úrræði sem Reykjavíkurborg býður upp og má t.d.

nefna liðveislu, tilsjón, stuðningsfjölskyldur, unglingasmiðjur

o.fl.

Hægt er að skila öllum umsóknum um þjónustu borgarinnar

til þjónustumiðstöðvarinnar sem ber ábyrgð á því að koma

þeim í réttar hendur innan borgarkerfisins.

Þjónustumiðstöðin er staðsett á Hraunbæ 115, 110

Reykjavík og er opin kl. 8:20-16:00 alla virka daga.

Sími: 411-1200 Netfang: [email protected]

Heimasíða: http://www.arbaer.is.

Viðbragðsáætlanir í norðlingaskóla

Markmið viðbragðsáætlana eru að tryggja skipulögð og samræmd

viðbrögð þegar til nauðsyn krefur. Frekari upplýsingar má nálgast

á heimasíðu skólans.

Viðbragðsáætlanir í Norðlingskóla eru:

Viðbrögð við einelti.

Viðbrögð við áföllum og slysum.

Viðbragðsáætlun vegna veðurs.

Viðbragðsáætlanir vegna

öskufalls.