2
Vefsíða: http://www.nordlingaskoli.is Skólaárið 2011 - 2012 24. maí - bréf nr. 7 Ábyrgðamenn fréttabréfs: Sif Vígþórsdóttir og Ellert Borgar Fréttabréf NOrðlingaSKÓLA Vorskóli 6 ára nemenda Það var mikil eftirvænting í lofti þegar verðandi 1. bekkingar komu í Vorskólann 14. maí. Þann dag fengu þeir tækifæri til að vera með fyrr- verandi „nýnemum” á kennslusvæði undir styrkri stjórn kennara. Þann 15. maí komu „nýnemarnir” aftur í skólann en nú í fylgd foreldra sinna. Á meðan nemendur unnu inni á kennslusvæðum fóru foreldrar í létta upplýsinga– og fræðsluhringekju þar sem farið var yfir ýmis hagnýt atriði varðandi skólann og starf hans. Í lok velheppnaðra Vorskóladaga komu „nýnemar” og foreldrar þeirra saman til myndatöku á sal. Skólaupphaf í ágúst Skólaupphaf í ágúst Skóladagatal næsta skólaárs, 2012 - 2013 er nú komið á heimasíðu skólans. Þar kemur fram að skólasetningardagur í haust er 22. ágúst og degi síðar hefst skóli skv. stundaskrá. Skólaboðunardagur er laugardaginn 18. ágúst, en skv. hefð og venju heimsækja þá tveir starfsmenn skólans heimili nemanda, Viðhorfskönnun meðal foreldra Í viðhorfskönnun meðal foreldra grunnskóla- nemenda í Reykjavík sem framkvæmd var á tíma- bilinu 31. janúar til 8. mars 2012 kemur eftir- farandi m.a. fram varðandi viðhorf foreldra nemenda í Norðlingaskóla: 92% er ánægðir með skólann 93% er ánægðir með viðmót umsjónarkennara í samskiptum við foreldra og nemendur 94% er ánægðir með samskipti starfsfólks við nemendur 99% er ánægðir með síðasta foreldraviðtal. Þá má geta þess að 65% foreldra er ánægðir með þann mat sem nemendur fá í skólanum en meðal- tal í borginni eru 64%. Norðlingaleikarnir Norðlingaleikasmiðja hófst í skólanum 22. maí og stendur yfir til 30. maí en þ. 31. maí fara fram Norðlingaleikarnir. Smiðjan í ár er byggð á viðfangsefninu Bretland og Ólympíuleikarnir. Nemendur vinna eins og jafnan í Norðlingaleikasmiðju í blönduðum hópum frá 1. bekk og upp í 10. bekk og fræðast um ýmislegt tengt Ólympíu- leikunum og landinu þar sem þeir fara fram í sumar. Smiðjuhóparnir mynda svo keppnislið sem etja kappi á Norðlinga- leikadeginum 31. maí. Foreldrar eru velkomnir í skólann til þess að fylgjast með leikunum þ. 31. maí en þeir munu standa yfir frá kl. 09:00 - 12:00 Marítafræðsla Nemendum 5. - 10. bekkja og foreldrar þeirra gafst kostur á að sitja Marítafræðslu sem skólinn og foreldrafélagið stóðu sameiginlega að. Auk þess styrkja ABC samtökin fræðsluna í 5. - 7. bekk. Maríta- fræðslan gengur út á að efla for- varnir gegn skaðsemi vímuefna. Foreldrar voru mjög ánægðir með fundina sér- staklega að fá tækifæri til að hlýða á fræðsluna með börnum sínum og taka í framhaldinu þátt í umræðum. Hvað er Marita(fræðsla) og hvaðan er hún komin? Marita var ung, dönsk stúlka sem dó af völdum ofneyslu vímuefna. Fjölskylda hennar og vinir stofnuðu sjóð til að semja kennsluefni fyrir aðila sem vildu fræða ungt fólk um skaðsemi vímuefna. Félagasamtökin Samhjálp létu þýða efnið og hafa síðan stöðugt bætt við íslensku efni. Siglingar á Bugðu Unglingadeildin fékk frábært tækifæri til að læra undirstöðuatriði siglinga. ÍTR lánaði skólanum nokkra kanóa sem notaðir voru til þessa skemmtilega úti- vistarverkefnis. Mikil ánægja ríkti meðal þátttakenda með siglingarverkefnið sem fór fram án nokkurra óhappa enda nemendur undir öruggri stjórn og leiðsögn kennara. Sönn vinátta er planta sem vex hægt!

Fréttabréf Norðlingaskóla

Embed Size (px)

DESCRIPTION

frettabref nordlingaskola

Citation preview

Page 1: Fréttabréf Norðlingaskóla

Vefsíða: http://www.nordlingaskoli.is

Skólaárið 2011 - 2012 24. maí - bréf nr. 7

Ábyrgðamenn fréttabréfs: Sif Vígþórsdóttir og Ellert Borgar

Fréttabréf NOrðlingaSKÓLA

Vorskóli 6 ára nemenda

Það var mikil eftirvænting í lofti þegar verðandi 1. bekkingar komu í

Vorskólann 14. maí. Þann dag fengu þeir tækifæri til að vera með fyrr-

verandi „nýnemum” á kennslusvæði undir styrkri stjórn kennara. Þann

15. maí komu „nýnemarnir” aftur í skólann en nú í fylgd foreldra sinna.

Á meðan nemendur unnu inni á kennslusvæðum fóru foreldrar í létta

upplýsinga– og fræðsluhringekju þar sem farið var yfir ýmis hagnýt

atriði varðandi skólann og starf hans.

Í lok velheppnaðra Vorskóladaga komu „nýnemar” og foreldrar þeirra

saman til myndatöku á sal.

Skólaupphaf í ágústSkólaupphaf í ágúst Skóladagatal næsta skólaárs, 2012 - 2013 er nú komið á heimasíðu

skólans. Þar kemur fram að skólasetningardagur í haust er 22.

ágúst og degi síðar hefst skóli skv. stundaskrá. Skólaboðunardagur

er laugardaginn 18. ágúst, en skv. hefð og venju heimsækja þá tveir

starfsmenn skólans heimili nemanda,

Viðhorfskönnun meðal foreldra

Í viðhorfskönnun meðal foreldra grunnskóla-

nemenda í Reykjavík sem framkvæmd var á tíma-

bilinu 31. janúar til 8. mars 2012 kemur eftir-

farandi m.a. fram varðandi viðhorf foreldra

nemenda í Norðlingaskóla:

92% er ánægðir með skólann

93% er ánægðir með viðmót

umsjónarkennara í samskiptum

við foreldra og nemendur

94% er ánægðir með samskipti

starfsfólks við nemendur

99% er ánægðir með síðasta

foreldraviðtal. Þá má geta þess að 65% foreldra er ánægðir með

þann mat sem nemendur fá í skólanum en meðal-

tal í borginni eru 64%.

Norðlingaleikarnir Norðlingaleikasmiðja hófst í skólanum 22. maí og stendur yfir til 30. maí en þ. 31. maí

fara fram Norðlingaleikarnir. Smiðjan í ár er byggð á viðfangsefninu Bretland og Ólympíuleikarnir. Nemendur vinna eins

og jafnan í Norðlingaleikasmiðju í blönduðum hópum frá 1. bekk og upp í 10. bekk

og fræðast um ýmislegt tengt Ólympíu-leikunum og landinu þar sem þeir fara fram í sumar. Smiðjuhóparnir mynda svo keppnislið sem etja kappi á Norðlinga-

leikadeginum 31. maí. Foreldrar eru velkomnir í skólann til þess að fylgjast með leikunum þ. 31. maí en

þeir munu standa yfir frá kl. 09:00 - 12:00

Marítafræðsla

Nemendum 5. - 10. bekkja og

foreldrar þeirra gafst kostur á að

sitja Marítafræðslu sem skólinn og

foreldrafélagið stóðu sameiginlega

að. Auk þess styrkja ABC samtökin

fræðsluna í 5. - 7. bekk. Maríta-

fræðslan gengur út á að efla for-

varnir gegn skaðsemi vímuefna.

Foreldrar voru mjög ánægðir með fundina sér-

staklega að fá tækifæri til að hlýða á fræðsluna

með börnum sínum og taka í framhaldinu þátt í

umræðum. Hvað er Marita(fræðsla) og hvaðan er hún komin? Marita var ung, dönsk stúlka sem dó af völdum ofneyslu

vímuefna. Fjölskylda hennar og vinir stofnuðu sjóð til að semja kennsluefni fyrir aðila sem vildu fræða ungt fólk um

skaðsemi vímuefna. Félagasamtökin Samhjálp létu þýða efnið og hafa síðan stöðugt bætt við íslensku efni.

Siglingar á

Bugðu Unglingadeildin fékk

frábært tækifæri til að

læra undirstöðuatriði

siglinga. ÍTR lánaði

skólanum nokkra

kanóa sem notaðir voru til þessa skemmtilega úti-

vistarverkefnis. Mikil ánægja ríkti meðal

þátttakenda með siglingarverkefnið sem fór fram

án nokkurra óhappa enda nemendur undir öruggri

stjórn og leiðsögn kennara.

Sönn vinátta er planta sem vex hægt!

Page 2: Fréttabréf Norðlingaskóla

Aðstoðarskólastjóri

Ágúst Ólason aðstoðarskólastjóri hefur sagt stöðu sinni lausri við skólann. Í

kjölfar þess var staðan auglýst laus til umsóknar með umsóknarfresti til 18.

maí sl.

Umsóknarfrestur er útrunninn og voru umsækjendur samtals 23. Stefnt er að

því að ljúka ráðningu um næstu mánaðamót.

Á þessum tímamótum er Ágústi þakkað gott og farsælt starf í þágu skóla-

samfélagsins í Norðlingaholti og óskað velfarnaðar sem skólastjóri í Varma-

hlíðarskóla.

Emilía 10.b.

Nei, nei. Það gengur vel með liðið. Við stefnum

að góðum árangri.

Danmerkur-Danmerkur-

ferð 10. ferð 10.

bekkjarbekkjar

Öflug fjáröflun 10.

bekkjar gerði þeim kleyft

að fara í „útskriftarferð

til Danmerkur. Farar-

stjórar í ferðinni voru

kennararnir Dagbjört

Þorsteinsdóttir og Júlía

Hrönn Guðmundsdóttir.

Í ferðinni leystu nemendur ýmis dönskutengd verkefni sem hluta af námi sínu.

Ferðin heppnaðist frábærlega og var nemendum, fararstjórum og skólanum til

mikils sóma.

Útskrift 10. bekkingaÚtskrift 10. bekkinga

Útskrift 10. bekkjar fer fram fimmtudaginn 31. maí kl. 18:00. Athöfnin fer fram á

sal skólans. Að þessu sinni kveðja 17 nemendur skólann sinn margir eftir sam-

fellda 7 ára samfylgd. Þessi hátíðlega stund er því jafnan blandin gleði og

söknuði. Skólinn væntir þess að aðstandendur nemenda fjölmenni til út-

skriftarinnar.

Rétt er að geta þess að útskriftinni hefur verið flýtt vegna nemenda sem ekki

eiga þess kost að vera við útskriftina síðar.

Skólaslit og vorhátíðSkólaslit og vorhátíð

Skólaslit Norðlingaskóla og vorhátíð foreldrafélagsins Vaðið verða

miðvikudaginn 6. júní. Dagskráin hefst kl. 16:00 og stendur yfir til kl. 18:00.

Að þessu sinni fer hátíðin fram við skólann sunnanverðan þ.e. á svæði út frá

aðalanddyri og yfir á bílastæðin, en ekki fram í Björnslundi eins og jafnan

áður.

Margt verður til gamans gert á vorhátíðinni og foreldrafélagið býður upp á

veitingar.

Skólinn hvetur nemendur og aðstandendur þeirra til góðrar þátttöku í

hátíðinni.

Nokkrir liðstjórar svara:Nokkrir liðstjórar svara:Nokkrir liðstjórar svara:

Kvíðirðu Norðlinga-Kvíðirðu Norðlinga-Kvíðirðu Norðlinga-leikunum?leikunum?leikunum?

Hjördís 10.b.

Nei, við erum bara spennt í mínu liði. Þetta er gott lið

sem mun ná árangri.

Páll 10.b.

Nei, mitt lið er með ýmislegt óvænt í pokahorninu!

Matthildur 9.b.

Nei. Liðið er ágætt og trúir á góðan árangur þrátt fyrir

gallaða stigagjöf.

Birta 10.b.

Nei ég kvíði engu. Við erum með gott lið þar sem allir eru

stilltir inn á að gera sitt besta.

Ísold 9.b.

Nei, ég hlakka til. Við hristum bara upp í liðinu og þá

gera allir sitt besta.

Guðrún 9.b.

Nei. Ég er ánægð með liðið mitt - Pöndurnar. Allir eru

ákveðnir að gera sitt besta.

Samráðsdagar 30. maí og 5. júní Tveir samráðsdagar verða í vor. Sá fyrri er 30. maí og er hann ætlaður

nemendum 10. bekkjar og foreldrum þeirra.

Síðari samráðsdagurinn er 5. júní og er ætlaður nemendum 1. - 9. bekkja og

foreldrum þeirra.

Á næstu dögum munu kennarar senda út nánari tilkynningar um tímasetningar á

samráðsdögunum.