16
Landslagsteiknun á rauntíma Sjálfstætt verkefni á vorönn 2002 eftir Kára Halldórsson og Úlf Kristjánsson

Landslagsteiknun á rauntíma

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Landslagsteiknun á rauntíma. Sjálfstætt verkefni á vorönn 2002 eftir Kára Halldórsson og Úlf Kristjánsson. 3D á rauntíma. 24+ rammar á sekúndu 40 ms eða minna til að teikna ramma Landslag getur innihaldið hundruð þúsunda eða milljónir marghyrninga. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Landslagsteiknun á rauntíma

Landslagsteiknun á rauntíma

Sjálfstætt verkefni á vorönn 2002

eftir

Kára Halldórsson og Úlf Kristjánsson

Page 2: Landslagsteiknun á rauntíma

3D á rauntíma

• 24+ rammar á sekúndu• 40 ms eða minna til að teikna ramma• Landslag getur innihaldið hundruð

þúsunda eða milljónir marghyrninga.• Fyrir hvern punkt í marghyrningi þarf að

skilgreina staðsetningu og stefnu, reikna lit út frá 1 eða fleiri ljósgjöfum o.fl. o.fl. áður en loks er ákvarðað hvað sést á skjánum og því varpað á hann.

Page 3: Landslagsteiknun á rauntíma

3D á rauntíma

• Ræður tölvan þín við þetta?

• Þegar fjöldi marghyrninga er kominn yfir 100.000 ráða jafnvel öflugustu skjákort ekki við að teikna þá á undir 40 ms.

• Hvað er þá gert?

• Það verður augljóslega að fækka marghyrningunum, þ.e. einhverju verður að sleppa að teikna.

Page 4: Landslagsteiknun á rauntíma

Hvað má missa sín?

• 1. Það sem ekki sést!

• Það sem “myndavélin” er ekki að horfa á í gefnum ramma á ekki að þurfa að eyða tíma í.

• Þessa hluti þarf að losna við á “ódýran” hátt áður en dýrir útreikningar eru framkvæmdir.

Page 5: Landslagsteiknun á rauntíma

Hvað má missa sín?

• Smáatriði? Smáatriði sem ekki er tekið eftir.

• Ef brekka er í 300 metra fjarlægð, hve mörgum þúfum tökum við eftir í henni?

• Gott ef hægt er að miða nákvæmni við sjónarhorn. Teikna aðeins með mikilli nákvæmni það sem áhorfandinn veitir athygli.

Page 6: Landslagsteiknun á rauntíma

Það sem ekki sést

• Einföld lausn væri að athuga fyrir hvern marghyrning áður en kallað er á teikniföll fyrir hann hvort hann er innan sjónsviðs eða ekki.

• Á þann hátt losnum við við eitthvað af dýrum útreikningum og notum ódýrari í staðinn en þurfum þó að framkvæma þessa útreikninga fyrir alla marghyrninga.

• Til eru betri leiðir.

Page 7: Landslagsteiknun á rauntíma

Ferundartré (e. Quadtree, QT)

• Tré þar sem hver hnútur á 4 börn.

• Látum hvern hnút tákna ferhyrnt svæði á hæðarhnitakorti.

• Barn hnúts táknar eitt af 4 jafnstórum svæðum sem svæði hnútsins skiptist upp í

• Öll 4 lauf hnúts saman tákna þannig allt svæði þess hnúts.

Page 8: Landslagsteiknun á rauntíma

Ferundartré (e. Quadtree, QT)

• Hnútar í QT og svæðin sem þeir skilgreina

Page 9: Landslagsteiknun á rauntíma

Ferundartré (e. Quadtree, QT)

• Tréð er notað þannig að byrjað er í rót og athugað hvort eitthvað af svæðinu sem hún skilgreinir sé innan sjónsviðs.

• Ef svo er er það einnig athugað fyrir börn rótar.

• Sé hnútur að hluta til eða í heild innan sjónsviðs er haldið áfram að ítra, annars er hætt.

Page 10: Landslagsteiknun á rauntíma

Það sem ekki er tekið eftir

• Hér þarf að taka ákvörðun um það hvað á að teikna með minni nákvæmni.

• Þetta eru hlutir innan sjónsviðs þannig að þetta mun hafa áhrif á það sem sést.

• Einnig þarf að ákveða hve fljótt nákvæmni á að tapast.

• Velja og hafna – nákvæmni vs. hraði.

Page 11: Landslagsteiknun á rauntíma

Nákvæmnistig(e. Level of Detail, LOD)

• Aðferðir til að ákveða með hve mikilli nákvæmni skuli teikna svæði.

• Í verkefninu er þetta metið eftir fjarlægð frá “myndavél”.

• Skilgreindar mismunandi fjarlægðir og lágmarksnákvæmni sem hlutir skulu teiknaðir í innan þeirrar fjarlægðar.

• Hlutir næst “manni” teiknaðir með fullri nákvæmni en nákvæmni minnkar eftir því sem fjær dregur.

• Taka verður ákvörðun um nákvæmni hvers stigs og fjarlægð þess frá “myndavél”.

Page 12: Landslagsteiknun á rauntíma

Nákvæmnistig(e. Level of Detail, LOD)

• Hér er verið að teikna talsvert færri marghyrninga heldur en ef full nákvæmni væri notuð.

• 1 marghyrningur í stað 64 í mestu fjarlægð og gætu verið fleiri enn fjær.

Page 13: Landslagsteiknun á rauntíma

QT & LOD

• Geysilega hentugt að beita aðferðunum saman.

• Labba QT á sama hátt en hætta að ítra annaðhvort þegar svæði er utan sjónsviðs eða þegar nákvæmnin er nægjanleg miðað við fjarlægð svæðisins frá “myndavél”.

Page 14: Landslagsteiknun á rauntíma

Mælitölur og niðurstöður

Page 15: Landslagsteiknun á rauntíma

Mælitölur og niðurstöður

Page 16: Landslagsteiknun á rauntíma

Takk fyrir!

Kári Halldórsson