12

M2014 04 03

  • Upload
    monitor

  • View
    248

  • Download
    3

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Hér birtist sérstakt Monitor blað um Söngkeppni Framhaldsskólanna sem fer fram 5. apríl n.k.

Citation preview

Page 1: M2014 04 03
Page 2: M2014 04 03

Hraðfréttamennirnir Fannar Sveinsson ogBenedikt Valsson munu halda uppi fjörinu ámilli atriða á Söngkeppni framhaldsskólannaannað árið í röð. Strákarnir segjast sérlega velstemmdir fyrir söngkeppninni í ár og jafnvelbetur en í fyrra. „Við erum eiginlega spenntarinúna af því að við ætlum að gera skíðaferð úrþessu,“ segir Benedikt og bætir við að það sékominn tími á skemmtilega vinaferð. „Þettasnýst bara um krakkana,“ segir Benedikt umvið hverju megi búast af þeim félögum ásviðinu. „Við erum bara í aukahlutverki en viðverðum samt alveg skemmtilegir, tökum eitt– tvö – þrjú – fjögur lög eða svo,“ segir hannglettnislega.

Þó svo að þeir Fannar og Benni hafi látiðfyrir sér fara í félagslífi Verzlunarskólans áárum áður tók hvorugur þeirra nokkurn tímaþátt í söngkeppninni. „Ég syng ekki,“ segirFannar ákveðinn en bendir á að starfsbróðirhans hafi þó gert heiðarlega tilraun til þessað komast í söngkeppnina. „Ég tók þátt íVælinu, forkeppninni í Verzló og lenti í öðrusæti. Ég tapaði fyrir Ólöfu Jöru sem fór síðaní úrslit svo hún eyðilagði þennan draum fyrirmér,“ segir Benedikt. Þrátt fyrir að hótuninni

um lögin fjögur hafi verið hent fram í glettnier nokkuð ljóst að hann gæti auðveldlegafengið uppreisn æru á laugardagskvöldið. „Viðgætum alveg tekið lagið, hver veit.“Varðandi verkaskiptingu sín á milli segja

drengirnir það hlutverk Benedikts að haldaöllu gangandi. „Ég spila bara af fingrum fram,“segir Fannar en Benedikt fullyrðir að Fannarviti í raun ekkert hvað þeir eru að fara út í. „Éger mjög vel undirbúinn og tilbúinn að takastá við þetta verkefni en Fannar veit ekkertum þetta.“ segir Benedikt sem finnst Fannarfrekar líklegur til að missa eitthvað óheppilegtút úr sér á laugardaginn en Fannar virðistsultuslakur. „Það getur allt gerst í beinniútsendingu,“ segir hann hinn rólegasti.

Tóku lazertag fram yfir Sigga ÞórÞeir félagar verða örlítið skömmustulegir

þegar eftirminnilegasta atriði söngkeppniframhaldsskólanna ber á góma en þeir erusammála um að þann titil hljóti góðvinurþeirra, leikarinn Sigurður Þór.„Siggi Þór komst í úrslit árið 2008 og vann

meira að segja. Hann var að vona að viðvinahópurinn kæmum að styðja hann áAkureyri. Þá vorum við hinsvegar eitthvaðvoðalega uppteknir þar sem það var lazertagmót í Verzló sama kvöld svo við gáfum okkurekki tíma í að fara,“ segir Benedikt.„Hann var eðlilega og er örugglega enn

leiður yfir því svo við verðum eiginlega aðsegja að hann hafi verið í uppáhaldi.“Þeir Fannar og Benedikt segjast bjartsýnir á

að söngkeppnin verði með glæsilegasta móti íár. „Við vonum bara að fólk horfi á keppnina,hafi gaman af og muni eiga fallegan laugardagog laugardagskvöld með okkur í Hofinu,“ segirBenedikt að lokum.

Til mikils að vinnaVerðlaunin í Söngkeppni framhaldsskólanna 2014 eru af veglegri endanum en sigurvegaranum mun hlotnast einstakt tækifæriá framabrautinni. Auk þess að hljóta risa vodafone RED pakka og splunkunýjan samsung s4 mini síma mun sigurvegarinn

hljóta útgáfusamning við senu. Margir af helstu listamönnum þjóðarinnar vinna með Senu en nú þegar liggur fyrir aðsigurvegarinn mun gefa út lag í sumar á þeirra vegum og ekki er ólíklegt að úr verði aðalsumarsmellurinn 2014.

Um helgina fer 25. Söngkeppni framhaldsskólanna fram í Hofi á Akureyri. Þessi sögu-fræga keppni hefur verið haldin árlega frá árinu 1990 og hafa margir af fremstu tónlist-armönnum Íslendinga stigið þar sín fyrstu skref í átt að frægð og frama. Þar má nefnaPál Óskar Hjálmtýsson, Emilíönu Torrini og Eyþór Inga Gunnlaugsson en einnig NönnuBryndísi Hilmarsdóttur og Sverri Bergmann. Á síðum 4 og tíu má kynna sér sigurvegaraseinasta árs og sögu keppninnar eilítið betur en aðrar síður þessa blaðs eru tileinkaðarSöngkeppninni 2014, keppendum hennar, kynnum og dómurum auk alls þess stórkost-lega sem Akureyri hefur upp á að bjóða þessa helgina.

Gleðilega hátíð!

„Það geturallt gerst

í beinniútsendingu“

Hraðfréttafélagarnir Benni og Fannar eru tilalls vísir en þeir munu sjá um að kynnakeppendur á svið í Hofi á laugardaginn kemur.

Fær Benniuppreisn æru?

DagskRáhElgaRinnaRá akuREyRiFimmTuDaguR14.00 Snilldarlausnir ímenningarhúsinu Hofi.19.00 King of Hlíðarfjall„Hver er fyrstur niður!”19.00 Grillveisla íHlíðarfjalli.20.30 Sjallinn opnar.21:00 Egill dj.22:30 Mafama.23:20 Vök.00:00 Logi Pedro.

FösTuDaguR12.00 Hádegistónleikarí Hofi.17.00 Brettabíó íBorgarbíó.20.00 Leiksýning VoriðVaknar í samkomuhúsinu.21.00 BURN Jib mót ígöngugötunni.21.30 TónlistarhátíðAKX í Sjallanum.22.00 Helgi Björns ogreiðmenn vindanna áGræna Hattinum.

laugaRDaguR10.00 Hlíðarfjall opnar.10.00 Slopestyle hjáyngri flokkum í Hlíðarfjalli.13.00 UndankeppniSöngkeppni framhalds-skólanna 2014 í Hofi.16.00 Skautapartý íSkautahöllinni –frítt inn.19.00 RÚV fréttirí beinni frá Hofi.19.30 Úrslit Söngkeppniframhaldsskólanna2014 í Hofi.21.00 AK Extrememeð Big Jump í gilinu.22.00 Helgi Björns ogreiðmenn vindanna áGræna Hattinum.

sunnuDaguR11.00 Sunnudagsmorgunnmeð Gísla Marteini í Hofi.14.00 Tumi Tímalausií álfheimum barna-leiksýning í Hofi.

Dómarateymi ársins er skipað frábærum listamönnum sem öll eigaþað sameiginlegt að syngja eins og englar. Þau eiga það vandasamaverk fyrir höndum að velja þá sem halda áfram úr undanúrslitumsöngkeppninnar og að lokum sigurvegarann sjálfan.Verkefnið erærið og síst öfundsvert en það er mikil mildi að svo hæfir einstakl-ingar skuli tilbúnir til að taka það að sér.

Dýrðlegtdómarateymi

lovísa sigurðardóttirLovísa er líklega betur þekkt

undir listamannsnafninu sínu,Lay Low, en hún hefur veriðmeðal ástsælustu tónlistar-

manna þjóðarinnar allt frá þvíað hún sendi frá sér sína fyrstu

sólóplötu Please don‘thate me árið 2006.

högni EgilssonHefur gert garðinn frægan semeinn af söngvurum Hjaltalín ogGusGus auk þess sem hann hefurnýlega hafið sólóverkefni undirnafninu HE. Högni hefur vakiðathygli fyrir einstakan stíl ogfagran makka en hann er líklegaeinn vinsælasti söngvari landsinsum þessar mundir.

valgerður guðnadóttirValgerður Guðnadóttir er sópransöngkona sem hefur komið víðavið á sínum ferli. Hún hefur leikiðog sungið í ýmsum uppfærslumí leikhúsum landsins hefur húnmargsinnis komið fram sem ein-söngvari og léði Disney-persónumeins Pocahontas, Mulan og LitluHafmeyjunni rödd sína.

söngkeppni framhaldsskólanna 2014Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen ([email protected])umbrot: Hilmar Gunnarsson ([email protected])Forsíða: Hvíta húsið.Útgefandi: Árvakur. Prentun: Landsprent.

Page 3: M2014 04 03

Þrír snjallirá góðu verði

Vodafone

Sony Xperia Z1

10.990 kr. /12 máneða 119.990 kr. stgr.

Samsung Galaxy Ace 3

4.590 kr. /12 máneða 49.990 kr. stgr.

Samsung Galaxy s4 mini

6.490 kr. /12 máneða 69.990 kr. stgr.

Page 4: M2014 04 03

Ásdís María Viðarsdóttir vann Söngkeppni framhaldsskólannaí fyrra fyrir hönd Menntaskólans við Hamrahlíð. Ásdís sönglagið „Pink Matter“ en lagið er þekktast í flutningi Íslandsvinarins FrankOcean. „Frank Ocean var nýbúinn að gefa út seinni plötuna sína ,,ChannelOrange’’ og allir voru að hlusta á hana, þar á meðal ég,“ segir Ásdís. „Égvissi að ég vildi bara syngja lög af henni þannig að ég prófaði þau næstumöll og Pink Matter kom bara best út.“ Ocean sótti Ísland heim síðastasumar og kom fram í Laugardalshöll við mikinn fögnuð ungu kynslóðar-innar. Ásdís María lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á viðburðinn. „Ég þurftisamt að einbeita mér rosalega að því að bara hlusta á hann syngja en ekkialla unglingana í kringum mig,“ segir Ásdís sposk og bætir við að Ocean séótrúlegur söngvari.

SkátastemningÁsdís María hafði aðeins fylgst með keppninni með öðru auganu síðustu

árin áður en hún sjálf tók þátt en hún segist hafa fylgst vel með þegar húnvar lítil. Hún viðurkennir að hafa verið stressuð fyrir úrslitakeppninni ensegir stressið hafa verið sér hollt. „Ef ég er stressuð þá reyni ég bara aðhlæja og róa aðra niður með því að segja sögur og brandara, á endanum þáróast maður sjálfur,“ segir Ásdís en hún líkir stemningunni baksviðs viðstemninguna í skátunum. „Allir góðir vinir en aðeins of mikið sungið.“

Bara kóngafólk í MHÁsdís María vann ekki titilinn einan og sér því hún fékk snjallsíma, birgð-

ir af súkkulaðimjólk og ferð til Danmörkur í verðlaun. „Systir mín rekurverslun og á heima í Kaupmannahöfn þannig að flugmiðinn var rosalegahentugur. Ég nýtti hina vinningana eins og þá ber að nýta. Ég talaði ísúkkulaðimjólkina og drakk símann,“ segir Ásdís glettnislega og fylgir eftirsnöggu „búm-ts!“ hljóði. „Mér var tekið eins og drottningu í skólanum eftirsigurinn. Það er samt eiginlega bara kóngafólk í MH þannig að það vareðlilegt,“ segir Ásdís.

Hópferð í söbbogsundÁsdís hefur ekki setið auðum höndum síðan í keppninni því hún flutti

lag Hauks Johnson „Amor“ í Söngvakeppni sjónvarpsins. „Söngkeppninlék auðvitað lykilhlutverk í þátttöku minni í Júró. Fólk kannast við mannog hefur margt að segja og það er oftast frábært.Ég á þessari keppni margt að þakka,“ segir Ásdísen auk þess segir hún margt fleira spennandiframundan. „Ég er að vinna með tveimurspennandi tónlistarmönnum og svo erum ég ogOddur að fara að henda út nokkrum lögum,“ segirÁsdís og á þar við Odd Inga Kristjánsson semsá um útsetningu og undirleik á „Pink Matter“fyrir Ásdísi á sínum tíma. Spurð um góð ráð fyrirkeppendur segir Ásdís „Ekkert stress, einn SunLolly og þeir sigra sem ögra.“ Eins vill hún komaþví á framfæri að Subway á Akureyri sé einfaldlega betra en annað Subway.„Ég legg til hópferð í söbbogsund á söbbsundudeginum. Ég skal búa tilevent,“ segir Ásdís sem er greinilega vel upplögð fyrir helgina.

Þeir sigrasem ögra

Sigurvegari söngkeppninnar 2013 segirstemninguna baksviðs hafa minnt á skátafund

„Ég legg til hópferð

í söbbogsund á

söbbsundudeginum.“

RED skautapartý íboði Vodafone

í Skautahöllinni á Akureyrilaugardaginn 5. apríl, kl.15-18.

Listhlaupssýning og skemmtileg stemmningfyrir alla fjölskylduna. Allir sem ekki eiga skautageta fengið skauta lánaða sér að kostnaðarlausu.

Vodafone

Mynd/Árni Sæberg

Page 5: M2014 04 03
Page 6: M2014 04 03

Sunna Líf og TiFjölbrautaskóli NorðuLag: „I See Fire“ – Ed SheeranHvað hafið þið verið að gera í verkfallinu?Við erum bara búnar að hafa það gott. Æfum fyrirsöngkeppnina, vinnum og lærum svona til skiptis.Gerið þið ráð fyrir að leggja sönginn fyrir ykkur íframtíðinni?Auðvitað gerum við ráð fyrir söng í framtíðinni,allavega klárlega alltaf eitthvað á hliðarlín-unni.Eigið þið ykkur einhverjar fyrirmyndir ítónlistinni?Hann Bubbi Morthens er okkar helstafyrirmynd. Hann er alveg æðislegur texta- oglagahöfundur og frábær söngvari.

Dagrún ÞórnýFjölbrautaskólinn í ÁrmúlaLag: „Það er draumur að vera með dáta“.Fylgdist þú með söngkeppninni sem barn?Ég fór á keppnina árið 1996 í Laugardalshöllinni. Það erfrábært að sjá hversu margir úr þeirri keppni eru frægirtónlistarmenn í dag.Hvað hefur þú verið að gera í verkfallinu?Ég hef verið að reyna að halda mér við lærdóminn svo égdragist ekki mikið aftur úr og notað tímann til að fara íræktina.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið á bakviðsöngkeppnina hingað til?Það er framkomunámskeiðið og það er frábært að kynnastöðrum keppendum því það minnkar bæði stressið ogverður meiri stemning á keppninni sjálfri.

Ásdís Rán KristjáFjölbrautaskóli Suðurnesj

nsdóttirsja

Lag: „Leiddu mig“, sem er íslensk þýðing á „Let it be“.Fylgdist þú með söngkeppninni sem barn? Nei, en þó ég hafiekki einu sinni verið fædd, stendur frammistaða Jónsa árið ´96upp úr en hann söng Litli tónlistamaðurinn. Allt atriðið varbara svo fullkomið að það er ekki hægt að gleyma því.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið bakvið söngkeppnina:Ætli það sé ekki í workshoppinu, þar sem ALLIR sem voru aðvinna þarna spurðu mig um nafnið mitt og virkilega héldu aðþau væru þau fyrstu til að koma með Ásdísar Ránar djók.Átt þú einhverja fyrirmynd í tónlistinni:Já, Björk Guðmundsdóttir er hátt skrifuð hjá mér. Hún er svoöðruvísi og er alveg óhrædd að gera það sem hún vill og húnelskar. Það ættu fleiri að taka hana til fyrirmyndar og hættaað reyna vera alveg eins og allir aðrir.

Bryndís GunnarsdóttFramhaldsskólinn í Mosfellsbæ

tiræ

Lag: „Time After Time“ - Cyndi Lauper.Fylgdist þú með söngkeppninni sem barn?Ekki þannig séð en ég man að ég var eitt sinn í matarboði og þá varsöngvakeppninn í sjónvarpinu. Ég man sérstaklega eftir laginu semað fulltrúi MS söng, Ég man ekkert hvort að það var stelpa eðastrákur en ég man bara hvað mér fannst þetta fallegt lag.Hvað hefur þú verið að gera í verkfallinu?Vá hvað ég er búin að horfa á margar bíómyndir og takamaraþon í Friends í 100 skiptið.Átt þú þér einhverjar fyrirmyndir í tónlistinni?Eva Cassidy er klárlega mín fyrirmynd. Lögin hennar ogröddin geta ekki klikkað og svo er það meistari Villi Vill. Þaueru ófá skiptin sem ég mamma, amma, og systir mín öskrummeð lögunum hans á leið uppí bústað.

Elín Harpa HéðinsdóttirVerzlunarskóli ÍslandsLag: „Bennie and the Jets“.Fylgdist þú með söngkeppninni sem barn?Ég fór eiginlega ekki að fylgjast með keppninni fyrr enfyrir nokkrum árum en ég man alltaf eftir henni Hallfríðigleðipinna sem keppti fyrir Versló 2010. Síðan er ég eins ogflestir Íslendingar sem halda ekki vatni yfir Einari Bárðarsem keppti 1991.Hvað ert þú búin að gera í verkfallinu?Verzló er ekki í verkfalli. Því miður, eða ekki þvímiður.Hvað gerir þú ef þú vinnur?Ég myndi hringja í Einar Bárðar as soon aspossible.

Gréta SigurðardóttirFjölbrautaskóli SnæfellingaLag: „Ástin er eilíf“.Hvað hefur þú verið að gera í verkfallinu?Það hefur verið mjög lítið að gera hjá mér. Ég hef fengið mjög litla vinnuen annars hef ég verið á blakæfingum, að æfa fyrir Grease söngleiksem skólinn er að setja upp og láta mér leiðast.Gerir þú ráð fyrir að leggja sönginn fyrir þig í framtíðinni?Já, vonandi eitthvað ef ég fæ tækifæri til þess. Er meira spenntfyrir leiklistinni en þar er auðvitað gott að geta sungið ogvonandi á það eftir að hjálpa mér.Átt þú þér einhverjar fyrirmyndir í tónlistinni?Auðvitað Beyonce, þó að það sé aldrei neinn sem er að faraað toppa hana er alveg hægt að líta upp til hennar á öðrumsviðum eins og hversu flottur ferillinn hennar er,lögin og fleira.

Harpa BenediktsFramhaldskólinn á Laug

sdóttirgum

Lag: „Who you are“ með Jessie J.Hvað hefur þú verið að gera í verkfallinu?Ég hef mikið verið að æfa mig og eytt tíma meðvinum mínum.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið á bakviðsöngkeppnina hingað til?Tónkvíslin, undankeppnin söngkeppninnar á Laugum.Ég mun aldrei gleyma þessu kvöldi. Það var í fyrstaskipti sem ég tók þátt í Tónkvíslinni.Átt þú þér einhverjar fyrirmyndir í tónlistinni?Já, Jessie J er fyrirmyndin mín í tónlist.

Helga Sóley ogFramhaldsskólinn í Ve

g Una

Lag: „Sumar“.Hvað hafið þið verið að gera í verkfallinu?Vinna, verið á æfingum fyrir leikrit sem verið er aðsetja upp hér í Eyjum, og svo bara chill inná milli.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið ábakvið söngkeppnina hingað til?Framkomuþjálfunin.Gerið þið ráð fyrir að leggja sönginn fyrirykkur í framtíðinni?Já, söngurinn er lífið.Eigið þið ykkur einhverjar fyrirmyndir ítónlistinni?Beyoncé, vegna þess að hún er fullkomin.

Indíana, RagnhilduKvennaskólinn í Reykjav

r, Stefanía og Kristborgík

Lag: „Something‘s Got a Hold on Me“.Fylgdist þú með söngkeppninni sem barn?Já, ég (Indíana) fylgdist langoftast með keppn-inni. Ég man helst eftir því þegar ég var að horfaá keppnina svona í kringum 2003 með frændamínum. Ég heillaðist svo af þessu og varákveðin í því að þegar ég færi í menntaskólaþá myndi ég taka þátt.Hvað gerir þú ef þið vinnið?Það væri allavega í fyrsta sinn sem aðKvennó myndi vinna keppnina og það værigeðveikt. Ég veit annars ekkert hvað égmyndi gera, líklega bara springa úr gleði.

Kvartettinn BarbariMenntaskólinn í ReykjavíkLag: „Drottinn einn veit“ með Beach Boys.Fylgdust þið með söngkeppninni sem börn?Við höfum vissulega fylgst með söngkeppninni að einhverjuleyti, Eflaust verður það að teljast eftirminnilegast þegar SverrirBergmann sigraði hjörtu landsmanna með laginu Án þín.Eigið þið ykkur einhverjar fyrirmyndir í tónlistinni?Við lítum mikið upp til King’s Choir, drengjakór King’s College íCambridge á Englandi. Þessir piltar eru sannkallaðir gullbarkar.Hvað gerið þið ef þið vinnið?Við myndum eflaust reyna að endurvekja Kvartett-menningunaá Íslandi. Þetta er mjög skemmtileg tónlist sem okkur finnstað mætti vel vera meira áberandi í íslensku tónlistarlífi. Sigur íkeppninni yrði frábær stökkpallur fyrir slíkt markmið.

Page 7: M2014 04 03

Sara PétursdóttirTækniskólinn

r

Lag: ‘‘Make you feel my love‘‘ eftir Bob Dylan.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið?Það eftirminnilegasta er að eftir að ég var búin í myndatökun-um og viðtölunum fyrir þessa keppni, þá var búið að bjóðamér hlutverk í kvikmynd og svo er ég líklega að fara ásamning hjá Elite. Ég er hrikalega ánægð með það.Gerir þú ráð fyrir að leggja sönginn fyrir þig?Ég gæti ekki ímyndað mér lífið án þess að syngja, Efég hef ekki tíma til að taka smá söngæfingu þálíður mér illa svo ég skýst upp í herbergi og teknokkur lög svo mér líði betur.Átt þú einhverjar fyrirmyndir í tónlistinni?Ég á mér margar fyrirmyndir í tónlistinni enuppáhalds fyrirmyndin er pabbi minn.

Magdalena KatrínMenntaskólinn að Laugarvat

Bergþóra, IðunFjölbrautaskóli SuðuurlandsLag: „Tonight“ með Enrique Iglesias.Hvað hafið þið verið að gera í verkfallinu?Sitja við lestur og handverk aðallega.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið ábakvið söngkeppnina hingað til?Framkomunámskeiðið og svo auðvitaðallt fólkið.Gerið þið ráð fyrir að leggja sönginnfyrir ykkur í framtíðinni?Það er ekki á planinu núna en hverveit? Kannski bara kannski.Hvað gerið þið ef þið vinnið?Jeijum og vúhum. Vúh!

Elísabet SkagfjörðMenntaskólinn við HamrahlíðmrahlíðLag: „Toxic“ - Britney SpearsHvað hefur þú/þið verið að gera í verkfall-inu? Ég hef verið að undirbúa leiksýningu MHá fullu, við höfum nýtt verkfallið eins mikiðog við getum og frumsýndum það núna 26.mars.Hvað er það eftirminnilegasta viðferlið á bakvið söngkeppnina hingaðtil? Vinnusmiðjan hjá Sagafilm þegarvið fluttum lagið fyrir framan alla ímjög skrítinni útgáfu því við vorumekki með nein hljóðfæri á staðnum.Hvað gerir þú/þið ef þú/þið vinnið?Ég fæ örugglega bara taugaáfall!

Magnea ogMenntaskólinn í KópavogiLag: „Hiding My Heart“ – Adele.Hvað hafið þið verið að gera í verkfallinu?Magnea hefur verið að gera mest lítið. Hún er búin aðlíta smá í bækur en vonar bara að þetta fari að takaeitthvern enda en ef ekki þá skellir hún sér kannskibara til útlanda í smá frí. Sigurpáll hefur verið aðaðstoða við að setja upp leiksýninguna Börrlesk semað MK-ingar standa fyrir og núna er því ferli að ljúka.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið á bakviðsöngkeppnina hingað til?Það eftirminnilegasta hingað til er klárlega þaðaugnablik þegar að við fengum að heyra að viðhefðum unnið MK Urpið, söngkeppni MK. Algjörlegaólýsanlegt augnablik.

tniLag: „Roxanne“ með The PoliceFylgdist þú með söngkeppninni sem barn?Ég hef fylgst með söngkeppninni alveg frá því að ég var pínulítil,kannski er ekkert sérstakt sem stóð upp úr en ég ákvað mjög ungað þetta væri keppni sem ég ætlaði að taka þátt í og nú erég hér.Átt þú þér einhverjar fyrirmyndir í tónlistinni?Þær eru nokkrar, Högni í Hjaltalín því hann syngur meðsálinni og nær einhvern veginn alltaf að vera trúrsjálfum sér og Bítlarnir því þeir breyttu algjörlegatónlistarstefnunni á sínum tíma, gerðu fáranlega góðatónlist og þeim var alveg sama um hvað öðrum fannst.

Elísabet CathiIðnskólinn í Hafnarfir

incarði

Lag: „Keep my head up“.Fylgdist þú með söngkeppninni sem barn?Ég fylgist smá með sem barn. Það sem mér finnst standaupp úr var þegar Kristmundur Axel og Júlí Heiðar unnukeppnina, mér fannst þetta geðveikt flott lag.Hvað hefur verið það eftirminnilegasta við ferlið?Það eftirminnilegastal við ferlið er að mér fannstgaman í viðtölunum því þá fékk ég alla athyglina(hlær).Áttu þér fyrirmyndir í tónlistinni?Pink, út af því að stóra systir mín hlustaði á hanaog mig langaði að verða eins og stóra systir mínog svo Biggi frændi minn því hann hefur alltafhvatt mig áfram.

Katrín Lilja SigurjónsdóttirVerkmenntaskóli AusturlandsLag: „Listen”.Fylgdist þú með söngkeppninni sem barn?Já mamma fór alltaf með nemendur í hárgreiðslu að greiða fyrir keppn-irnar þegar ég var yngri svo það var alltaf mikill spenningurfyrir keppninni hjá okkur systrunum.Munt þú leggja sönginn fyrir þig í framtíðinni?Það væri algjör draumur að hafa söng að atvinnu enég geri ekki ráð fyrir því, allavega ekki ennþá. Á samtklárlega eftir að syngja mikið í frammtíðinni.Átt þú þér einhverjar fyrirmyndir í tónlistinni?QueenB er náttúrulega díva aldarinnar og hún erklárlega fyrirmynd, en það er samt önnur semstendur uppúr. Hún er kannski ekki fyrirmynd enAmy Winehouse er í miklu uppáhaldi hjá mér.

Matthías GunnarssMenntaskólinn á Tröllaskag

songa

Lag: „Angels on the Moon” með hljómsveitinni Thriving Ivory.Fylgdist þú með söngkeppninni sem barn?Nei en það er eitt atriði, þar sem einhver tók „Muscle Museum”með Muse sem svona líka sýjaðist inní í hausinn á mér. Þá varkeppandinn klæddur í munka slopp, það voru rauð ljós og alltsvaka drungalegt.Munt þú leggja sönginn fyrir þig í framtíðinni?Þó að ég geri kannski ekki ráð fyrir því vona ég að eitt-hvað opnist fyrir mér í tónlistarheiminum í framtíðinni.Hvað gerir þú ef þú vinnur?Ég var víst búinn að lofa því að ég myndi taka „It’sRaining Men” dansinn úr kvikmyndinni Magic Mikeef að ég vinn þessa keppni. Það er þá bara að bíðaog sjá hvernig mér gengur með það.

Karen Lind HarðBorgarholtsskóli

ðardóttir

Lag: „Closer“ – Kings of LeonHvað hefur þú verið að gera í verkfallinu?Vinna og bara njóta þess að vera með fólkinu sem mérþykir vænt um.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið á bakviðsöngkeppnina hingað til?Mér fannst framkomunámskeiðið á vinnuhelginnialveg hreint frábært. Svo mikið af skemmtilegufólki.Hvað gerir þú ef þú vinnur?Fagna með fjölskyldu og vinum og alveg missa migí gleðinni.

Salóme KatrMenntaskólinn á

trínÍsafirði

Lag: „Blue Velvet”.Hvað hefur þú verið að gera í verkfallinu?Ég hef verið á allskonar æfingum – dans, píanó, söng og leik. Þaðer eiginlega bara meira en nóg að gera í þessu blessaðaverkfalli.Átt þú þér einhverjar fyrirmyndir í tónlist?Ég á ekki margar fyrirmyndir í tónlist en ég er hrikalegahugfanginn af tónlist. Ég get sagt með sanni aðdagur án tónlistar er ekki fyrirmyndardagur í mínumhuga.Hvað gerir þú ef þú vinnur?Ætli ég brosi ekki bara ótrúlega mikið og voni aðþað verði ekki vandræðalegt að fara aftur uppá svið, þarf maður ekki annars að gera það?

Page 8: M2014 04 03

Andrea Anna ArnMenntaskólinn við Sund

nardóttir

Lag: „Hefðum getað átt“ með Adele.Texti eftir Guðmund Karl Brynjarsson.Hvað hefur þú verið að gera í verkfallinu?Ég hef verið að vinna, ég hef ekkert á móti smá auka„money“ svo hef ég auðvitað æft lagið um það bilbilljón sinnum.Hvað er eftirminnilegast við ferlið á bakviðsöngkeppnina hingað til?Mér finnst workshoppið eftirminnilegast. Þaðvar svo gaman að hitta alla og kynnast hinumkeppendunum.Gerir þú ráð fyrir að leggja sönginn fyrir íframtíðinni?Ójá, það er og hefur alltaf verið stefnan.

Íris Björk ogFramhaldsskólinn

Birkir

Lag: „Who Am I“Fylgdust þið með söngkeppninni sem börn?Já klárlega, maður fylgist alltaf með þessarikeppni.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið?Allt fólkið. Allir eru alltaf mjög hressir ogkátir. Það taka allir mjög vel á mótimanni, þetta er allt mjög stórt ogmikið, sérstaklega fyrir utanbæjarfólk,.Hvað gerið þið ef þið vinnið?Við myndum bjóða öllum vinum okkarí stóra beikonveislu. Svo bara nýtatækifærið og byrja að semja tónlistog aðallega bara njóta þess.

Úrsúla HannaMenntaskóli Borgarfj

RannveigFjölbraut í Br

DagurFlensboorgLag: „Án þín“ í útgáfu TrúbrotsHvað er það eftirminnilegasta viðferlið á bakvið söngkeppnina?Þegar ég vann SöngkeppniFlensborgar.Átt þú þér fyrirmyndir ítónlistinni?Sem söngvaraaðallega Ronnie JimSteel, David Byronog svo gítarleikar-ann Andy Latimer.

g Sól

Lag: „Dream on“ – AerosmithHvað hefur þú verið að gera íverkfallinu? Ég hef verið að syngjaeins og brjálæðingur.Gerir þú ráð fyrir að leggjasönginn fyrir þig í framtíðinni?Já kannski, en að verða tattoo artister í fyrsta sæti.Átt þú þér einhverjar fyrirmyndir ítónlistinni?Já, Jimi Hendrix því hann er Guð.Hvað gerir þú ef þú vinnur?Fer að leita að kjálkanum mínumsem ég missti.

SunnaMenntask

Rebekka Ýr og SnæVerkmenntaskólinn á AkurreyriLag: „You are the one that I want“/„Never ever let you go“ eða „Youare the one that I will never ever let go“.Hvað hafið þið verið að gera í verkfallinu?Ef við byrjum á Snæþóri þá hefur þetta svokallaða „verk-fallsfrí” snúist aðallega um undirbúning og æfingar fyrirÍslandsmótið í fitness. Rebekka hefur lagt sig fram við aðstyðja við bakið á Snæþóri ásamt því að sprikla aðeinssjálf í ræktinni á milli þess sem hún vinnur. En það sem-hefur verið okkur efst í huga er allur undirbúningurinnog vinnan í kringum okkar atriði,Hvað gerið þið ef þið vinnið?Ef við vinnum Söngkeppni framhaldsskólanna, semværi algjör draumur í dós, þá myndum við skellaokkur út í heim og njóta þess að vera til.

Ruth RagnarFramhaldsskólinn

rsdóttirá Húsavík

Lag: „Suitcase“ með Emeli SandeHvað hefur þú verið að gera í verkfallinu?Ég hef aðallega bara verið að sofa og borða, svo horfi ég ánokkra þætti þar inn á milli.Átt þú þér einhverjar fyrirmyndir í tónlistinni?Beyoncé er mín fyrirmynd almennt í lífinu bara, hún erbara fullkomin. Hún er svo falleg sál og metnaðarfullfyrir sinni vinnu.Hvað gerir þú ef þú vinnur?Ég held hellað partý fyrir Þórunni, Heiðdísi ogHelgu sem ætla að koma og styðja mig í Hofi.

Karlotta SigurðardMenntaskólinn á Akureyri

dóttiri

Lag: „Bound To You“Hvað hefur þú verið að gera í verkfallinu?Reyna að læra eins mikið og ég get.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið á bakviðsöngkeppnina hingað til?Workshop helgin í Sagafilm.Átt þú þér einhverjar fyrirmyndir í tónlistinni?Klárlega pabbi.Hvað gerir þú ef þú vinnur?Held að ég færi örugglega bara að gráta.

Lag: „I put a spell on you“ meðScreamin’ Jay HawkinsHvað hefur þú verið að gera íverkfallinu?Ég er aðallega búin að veraað fara á hestbak og aðspila tölvuleiki.Átt þú þér fyrirmyndir ítónlistinni?Tom Waits af því aðhann er með áhugaverðyrkisefni og flotta rödd.

fjarðarLag: „Vor í Vaglaskógi“Hvað hafið þið verið að gera í verkfallinu?Við höfum verið að æfa okkur fyrir söng-keppnina en Valur hefur verið að æfa fyrirMúsíktilraunir líka. Svo hefur Úrsúla veriðað vinna og hjálpa til á bænum heima.Hvað er það eftirminnilegasta viðferlið? Valur var svo óviðbúinn aðvinna keppnina í skólanum okkar aðhann týndist. Hann fannst hálfsofandií einhverjum sófa. Ætli það sé samtekki þegar Valur fékk sms á sviðinuá undankeppninni og það heyrðistfrekar hátt.

Selma Rán ogFjölbrautaskólinn í Ga

Patrekur Ísakarðabæ

Lag: „My False“ eftir Matt CorbyHvað hafið þið verið að gera í verkfallinu?Erum búin að vera að sýna leiksýninguna Beetlejuicemeð leikfélaginu Verðandi í FG. Einnig syngja á tónleikumen aðallega bara sofa.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið á bakviðsöngkeppnina hingað til?Workshop helgin í Sagafilm og fá að kynnast öllufólkinu í kringum keppnina.Gerið þið ráð fyrir að leggja sönginn fyrir ykkur íframtíðinni?Já, en ætli að leiklistin verði ekki alltaf númer 1.Hvað gerið þið ef þið vinnið?Fögnum vel og mikið.

Aðalsteinn, Hjördís, Margrét, Sigurlaug og SindriFjölbrautaskóli Vesturla

Margrét, Sigurlaug og Sindriands

Lag: As long as you love me/ Wide awakeHvað hafið þið verið að gera í verkfallinu?Við höfum aðallega verið að æfa fyrir söngkeppn-ina, annars hafa menn bara sofið, sérstaklegaSindri. Strákarnir hafa einnig tekið þátt íuppsetningu Gauragangs á vegum FVA ogspiluðu þar í hljómsveitinni.Hvað er það eftirminnilegasta við ferlið?Það sem stendur mest uppúr er auðvitaðvinnusmiðjan. Þetta var frábær helgi og viðkynntumst fullt af skemmtilegu fólki. Svovar auðvitað frábæra kassasólið hans Allaí kynningamyndbandinu okkar á Monitorsíðunni.

Page 9: M2014 04 03

TakTu Tröppu-selfieÞað þurfa allir gestir á Akureyri

að smella af sér mynd á tröppum

Akureyrarkirkju. Monitor mælir með

að þú bætir um betur og mætir á

bomsum eða flókum og takir svo

Stuðmannahoppið alla leið upp

eins og sannur íslenskur karlmaður,

hvors kyns sem þú nú ert.

Hvað fylgirmiðanum?Þeir sem kaupa sér miða áSöngkeppni framhaldsskól-anna geta unnið glæsileganSamsung S4 síma í boði Voda-fone og veglegan glaðningfrá helstu samstarfsaðilumkeppninnar s.s. Coke, Subway,Serrano og Flugfélagi Íslands.Dregið verður út bæði á und-ankeppninni og úrslitunumog því er um að gera að veljasætið sitt vel.

Auk möguleika á glæsilegumvinningum veitir miðinnáhorfendum aðgang að ýms-um skemmtilegum viðburðumog afsláttum yfir helgina.Highlands kemur fram áundankeppninni. Frítt verðurinn á fyrsta kvöldið af þrem íSjallanum á tónlistar- og snjó-brettahátíðinni AK Extremeþar sem Egill Dj, Mafama,Vökog Logi Pedro koma fram. AKExtreme armbandið fæst á 900kr. afslætti. Moving Concert ístrætó. Grillveisla á vegum AkExtreme fimmtudagskvöldið 3.apríl þar sem hægt verður aðfylgjast með King of the Hillkeppninni eða taka þátt.Handhafar miða á Söng-keppni framhaldsskólanna2014 fá afslátt á eftirtöldumstöðum:

• Benetton• Body Shop• Centro• Stjörnusól• Jara• Make Up Gallery• Intersport• Levi’s• Passion• Mössubúð• Pier• Eymundsson• Geisli• Rúmfatalagerinn• Sportver• Goya Tapas Bar• Rub 23• Bjarg• Body Shop• Heilsuhúsið• Lyf og heilsa• Serrano• Glerárlaug• Sundlaug Akureyrar• Keilan

Akureyringar eru höfðingjar heimað sækja og það er um að gera aðnýta sér helgina í að sjá og upplifasem mest af þessum fallega bæ.

8

5

hlutirtil að geraá Akureyri10

halló Akureyrifarðu í sundRennibrautin í

sundlaug Akureyrar er

sú skemmtilegasta á

landinu ef frá er talið

dauðagildru-trampól-

ínið í Vestmannaeyjum.

Ef þig langar í alvöru

sveitastemningu getur

þó verið enn skemmti-

legra að skella sér í

sund í Þelamörk sem

er rétt utan við bæinn

en þar geturðu gónt á

fjöllin og stjörnurnar

á meðan þú slakar á í

heita pottinum.upplifðu maTarmenningunaDjúpsteikt pylsa með öllu er sérréttur Akureyr-inga og eru margir sem ekki geta án hennarverið á þunnudögum. Þú gætir þurft að taka þaðsérstaklega fram ef þú vilt ekki kokteilsósu enfyrst þú ert að fá þér djúpsteikta pylsu á annaðborð er um að gera að ganga alla leið og bætajafnvel við súrum gúrkum.

farðu á göTubarinnEf þú hefur aldur til, það er að

segja (ehemm). Götubarinn er

menningarleg gersemi og þegar

góðir tónlistarmenn koma þar

saman við píanóið er ekki viðlíka

stemningu að finna nokkurs

staðar á landinu. Svo er nóg af

skúmaskotum á barnum til að stela

einum laufléttum kossi af ástinni í

lífi manns nú eða bara ástinni í lífi

finndu hinn sannajólaandaJólaandinn býr í Jólahúsinu þar

sem jólin eru haldin hátíðleg allt

árið um kring. Allt er eitthvað svo

hlýtt og gott í Jólahúsinu, þar

eru aldrei verkföll, próf eða drama

-tík. Kíktu í jólahúsið og kauptu

eitthvert fallegt jólaskraut í búið

eða handa ömmu þinni. Svo er líka

tilvalið að ná ljósmyndinni fyrir

jólakortið bara snemma þetta árið.

fáðu þér ísEr þér kalt?Seigur skítur! Þegarborgarbörn og fólk aföðrum landshlutumheimsækir Akureyrijafnast það á viðguðlast að fá sér ekkiBrynjuís. Skelltu þérí lopapeysuna og íullarsokkana og röltuupp gilið með ís íhendi en sól í hjarta.

farðu í hlíðarfjallHlíðarfjall veitir besta mögu-

lega sjónarhornið á AK City.

Því er um að gera að drífa sig

í fjallið og leika sér á skíðum

eða bretti. Ef þú ert ekki

vopnaður svoleiðis græjum má

yfirleitt leigja þær á staðnum

en annars er alltaf hægt að

skella sér á þotu, byggja snjó-

karl eða bara velta sér nakinn

upp úr snjónum. Nektarhlaup

í snjó bætir og kætir en varist

þó kul og hrellið ekki aðra

gesti með þjóhnöppunum eða

öðrum líkamspörtum sem sjá

sjaldan til sólar.

kynnTu þér háskólann á akureyriÞað er líf eftir framhaldsskóla og það er svo sannarlegalíf utan Reykjavíkur. HA býður upp á frábært félagslífog gott námsframboð á ýmsum sviðum. Ef þig langarað verða kvótakóngur er til dæmis tilvalið að skella sérí sjávarútvegsfræði og ef þú vilt vera undirlaunaðurheilbrigðisstarfsmaður geturðu skellt þér í hjúkrunar-fræði eða í iðjuþjálfun.

kíkTu á visTinaÍ Menntaskólanum og Verkmenntaskólanum á

Akureyri eru ýmsir utanbæjarmenn sem eiga sér

samastað á heimavistinni við Eyrarlandsveg. Það er

ekki hlaupið að því að verða sér úti um gistipláss

þar því „vistmenn“ þurfa að sækja sérstaklega

um að fá að hafa næturgest. Það ætti þó ekki að

stoppa neinn í að kynna sér vistarverurnar örlítið

betur enda er lífið á vistinni vafalaust villt.

verTu exTremeAK Extreme er sannkölluð bretta- og

tónlistarveisla sem enginn má láta

framhjá sér fara. Boðið verður upp

á tónleika fimmtudags-, föstudags-

og laugardagskvöld auk þess sem

þétt dagskrá verður í Hlíðarfjalli alla

dagana. Brettakappar sýna listir

sínar og keppa sín á milli og ef þú

telur þig geta skákað þeim bestu er

um að gera að taka þátt.

1

2

3

4

6

79

10

Page 10: M2014 04 03

Vissir þú...

Söngkeppni framhaldsskólanna hefur verið haldin árlegafrá árinu 1990 og hefur hún reynst frábær stökkpallurfyrir upprennandi tónlistarmenn. Það er vel þess virðiað líta yfir farinn veg og rifja upp það sem söngkeppninhefur fært íslenskri menningu í gegnum tíðina.

...að árið 2006

varð Gréta Mjöll

Samúelsdóttir í öðru

sæti í söngkeppninni

ásamt systur sinni

Hólmfríði Ósk með

frumsamda útgáfu af

sjómannaslagaranum

„Ó María“. Lagið naut

gríðarlega vinsælda

á útvarpsstöðvum

landsins í kjölfarið og

var jafnvel framleitt

tónlistarmyndband.

...að aldrei hefur sést eins stórkostleg salsa-

sveifla og sú sem Jónsi (þá ekki í Svörtum

fötum heldur glimmerskyrtu) vippaði fram úr

erminni í keppninni árið 1996.

...Anna KatrínGuðbrandsdóttir vann

söngkeppnina þann

30. apríl 2003. Anna

Katrín átti einmitt 17

ára afmæli þann dag

og eftir að verðlaunin

höfðu verið afhent lét

Birgitta Haukdal salinn

syngja afmælissönginn

fyrir Önnu.

...að Nanna Bryndís Hilmars-dóttir úr Of Monsters and Mentók þátt í söngkeppninni árið2007 og varð í þriðja sæti..Hún flutti frumsamda lagið„Gleym mér ei“ og vitnaði þarmeðal annars í ljóð DavíðsStefánssonar „Til eru fræ“.

...að söngkeppni

framhaldsskólanna

fór fram í fyrsta skipti

árið 1990. Þá bar Lárus

Ingi Magnússon frá

Fjölbrautaskóla Suður-

lands sigur úr býtum

en í þriðja sæti var hinn

eini og sanni Páll Óskar

Hjálmtýsson.

...að Eyþór Ingivar uppgötvaður íSöngkeppni fram-haldsskólanna ogþaðan boðaðurí Bandið hansBubba þar semhann var einnigsigurvegari.

...að Auðunn Blöndal samdi

íslenska textann við lagið „Án þín“

sem Sverrir Bergmann söng og

sigraði með í söngkeppninni árið

2000. Setningin „Ég skæri mér

hjartað úr með skeið“ er fengin að

láni úr kvikmynd um Hróa Hött.

...að BirgittaHaukdalskartaðifullum hausaf fléttumá keppninniárið 1998.

...að þau Regína Ósk, PállÓskar, Eyþór Ingi og Hera Björkhafa öll lent í þremur efstusætum söngkeppninnar oghafa sömuleiðis öll tekið þátt íEurovision fyrir Íslands hönd.

...að Emilíana Torrinisöng sig til sigurs árið1994 með diskóslagarann„I will Survive“ að vopni.

...að leikarinn Sigurður Þór

Óskarsson vann keppnina

árið 2008 með laginu „The

Professor“ sem er að hluta

til á frönsku.

...að árið 2012 vannkarlakór Sjómanna-skólans söngkeppninafyrir hönd Tækniskól-ans. Sigurvegararnirþað árið voru fleiri ensigurvegarar keppn-innar frá upphafi.

...að Hreimur Örn Heimisson tók einnigþátt árið 1996, aðeins rúmu ári áðuren hljómsveitin Land og Synir gerði alltvitlaust með laginu Vöðvastæltur.

...að lengst af var bannað að syngja á

öðru tungumáli en íslensku í keppn-

inni og þurftu því keppendur oft að

semja nýja texta við erlend lög.

...aðþegar MagniÁsgeirssontók þátt íSöngkeppniFramhalds-skólannaárið 1996var hannmeð sítt ogmikið hár.

...lagið „Komdu til baka“ sem Kristmundur Axel og JúlíHeiðar sigruðu með árið 2010 fyrir hönd Borgarholts-skóla byggðist á raunverulegri reynslu Kristmundar afþví þegar faðir hans sem var óvirkur alkóhólisti féll.

Page 11: M2014 04 03
Page 12: M2014 04 03

Vodafone RED erkomið til Íslands

takmörkuð s mtöl og háð kerí alla farsíma og heimasíma á Íslandi

Skiptu y r í Vodafone á odafone.i

Vodafone