Upload
others
View
7
Download
0
Embed Size (px)
Citation preview
Framhaldsskóli.is
SNORRA-‐EDDA 1. hluti
Prologus
GYLFAGINNING
og valdir kaflar úr Skáldskaparmálum
Framhaldsskóli.is 2
Um þessa bók Snorra-‐Edda er íslensk handbók í skáldskaparfræðum, samin af Snorra Sturlusyni,
einhvern tíma á bilinu 1220–1230. Verkið hefst á Prologus (formála) þar sem lýst er
sköpun heims, upphafi trúarbragða og tilurð hinna fornu ása.
Meginmálið skiptist svo í þrjá hluta þar sem fremst fer Gylfaginning, þá
Skáldskaparmál og loks Háttatal.
Gylfaginning er öðrum þræði frásögn og kennslubók í goðafræði. Er hún okkar helsta
heimild um norrænan goðsagnaheim. Skáldskaparmál segja frá upphafi
skáldskaparins. Þar er kenningum og heitum lýst með dæmum úr fornum skáldskap,
og vitnað er í fjölmörg skáld. Einnig er þar að finna goðsögur og hetjusögur sem
sagðar eru til að lýsa uppruna kenninga. Þriðji hlutinn er kvæðið Háttatal ásamt
bragfræðiskýringum og hves kyns fróðleik um skáldskap og brag. Það er hundrað og
tvær vísur og sýnir þá bragarhætti og afbrigði þeirra sem Snorri þekkti.
Ef litið er til Gylfaginningar sem er uppistaðan í þessu bindi, þá segir þar frá Gylfa,
sem var konungur þar „er nú heitir Svíþjóð“. Gylfi þessi hafði haft kynni af ásum og
skynjaði yfirburði þeirra. Hafði hann t.a.m. verið blekktur af Gefjun ásynju sem hafði
af honum töluvert landsvæði. Til að komast að hinu sanna varðandi æsi ákvað hann
gera sér ferð til Ásgarðs dulbúinn sem gamall maður (Gangleri) og kynna sér í hverju
kraftur þeirra væri fólginn. Æsir komast á snoðir um ætlun Gylfa og gera í móti honum sjónhverfingar. Kemur
Gylfi til stórrar hallar sem hann telur vera Ásgarð og þar taka á móti honum þrír
konungar er allir bera nafn Óðins; Hár, Jafnhár og Þriðji. Í samtali Gylfa við
konungana þrjá fræðist hann um hin fornu fræði og ásatrú. Í lokin hverfa konungarnir
og höllin, og Gylfi konungur er þá staddur einn úti á víðavangi. Hafði allt verið
blekking eða ginning. Þegar Snorri skrifar Gylfaginningu hefur kristin trú verið lögboðin á Íslandi í yfir 200 ár
og markmið hans með frásögninni því fyrst og fremst að fræða fólk um þessa gömlu
trú. Hann hefur eflaust þekkt erlend rit um goðafræði og viljað koma þessari
norrænu goðafræði í búning. Formið, þ.e. samtalsformið, var algengt í fræðiritum á
miðöldum og hentar vel efninu. Gylfaginning hefur lengi staðið Íslendingum nærri, enda býr texti hennar yfir miklum
töfrum og geymir afar dýrmætar upplýsingar um fornan hugarheim forfeðranna.
Segja má að Gylfaginning sé hluti af Íslandssögunni; undanfari hinnar eiginlegu
atburðasögu eins og við þekkjum hana. Það er því hverjum Íslendingi nauðsynlegt að
kunna skil á henni.
Ingólfur B. Kristjánsson
Framhaldsskóli.is 3
Prologus
I. Þeir skildu alla jarðlega hluti
Almáttugur guð skapaði í upphafi himin og jörð og alla þá hluti, er þeim fylgja, og síðast menn tvo, er ættir eru frá komnar, Adam og Evu, og fjölgaðist þeirra kynslóð og dreifðist um heim allan.
En er fram liðu stundir, þá ójafnaðist mannfólkið. Voru sumir góðir og rétttrúaðir, en miklu fleiri snerust eftir girndum heimsins og óræktu guðs boðorð, og fyrir því drekkti guð heiminum í sjávargangi og öllum kvikindum heimsins nema þeim, er í örkinni voru með Nóa. Eftir Nóaflóð lifðu átta menn, þeir er heiminn byggðu, og komu frá þeim ættir, og varð enn sem fyrr að þá er fjölmenntist og byggðist veröldin, þá var það allur fjöldi mannfólksins er elskaði ágirni fjár og metnaðar en afræktust guðs hlýðni, og svo mikið gerðist að því, að þeir vildu eigi nefna guð. En hver myndi þá segja sonum þeirra frá guðs stórmerkjum? Svo kom, að þeir týndu guðs nafni, og víðast um veröldina fannst eigi sá maður, er deili kunni á skapara sínum. En eigi að síður veitti guð þeim jarðlegar giftir, fé og sælu, er þeir skyldu við vera í heiminum. Miðlaði hann og spektina, svo að þeir skildu alla jarðlega hluti og allar greinar, þær er sjá mátti loftsins og jarðarinnar.
Það hugsuðu þeir og undruðust hverju það myndi gegna að jörðin og dýrin og fuglarnir höfðu saman eðli í sumum hlutum og var þó ólíkt að hætti. Það var eitt eðli að jörðin var grafin í háum fjalltindum og spratt þar vatn upp, og þurfti þar eigi lengra að grafa til vatns en í djúpum dölum. Svo er og dýr og fuglar, að jafnlangt er til blóðs í höfði og fótum. Önnur náttúra er sú jarðar, að á hverju ári vex á jörðinni gras og blóm og á sama ári fellur það allt og fölnar. Svo eru dýr og fuglar, að þeim vex hár og fjaðrir og fellur af á hverju ári. Það er hin þriðja náttúra jarðar þá er hún er opnuð og grafin þá grær gras á þeirri moldu er efst er á jörðinni. Björg og steina þýddu þeir móti tönnum og beinum kvikinda.
Af þessu skildu þeir svo að jörðin væri kvik og hefði líf með nokkurum hætti, og það vissu þeir að hún var furðulega gömul að aldartali og máttug í eðli. Hún fæddi öll kvikindi, og hún eignaðist allt það er dó. Fyrir þá sök gáfu þeir henni nafn og töldu ættir sínar til hennar. Það sama spurðu þeir af gömlum frændum sínum, að síðan er talið voru mörg hundruð vetra, þá var hin sama jörð og sól og himintungl.
En gangur himintunglanna var ójafn. Áttu sum lengra gang, en sum skemmra. Af þvílíkum hlutum grunaði þá að nokkur myndi vera stjórnari himintunglanna, sá er stilla myndi gang þeira að vilja sínum, og myndi sá vera ríkur mjög og máttugur. Og þess væntu þeir, ef hann réði fyrir höfuðskepnunum, að hann myndi fyrr verið hafa en himintunglin; og það sáu þeir, ef hann réði gang himintunglanna, að hann myndi ráða skini sólar og dögg loftsins og ávexti jarðarinnar er því fylgir, og slíkt sama vindinum loftsins og þar með stormi sævarins. Þá vissu þeir eigi, hvar ríki hans var. Af því trúðu þeir að hann réð öllum hlutum á jörðu og í lofti, himins og himintunglum, sævarins og veðranna.
Framhaldsskóli.is 4
En til þess að heldur mætti frá segja eða í minni festa þá gáfu þeir nafn með sjálfum sér öllum hlutum og hefur þessi átrúnaður á marga lund breyst svo sem þjóðirnar skiptust og tungurnar greindust. En alla hluti skildu þeir jarðlegri skilningi, því að þeim var eigi gefin andleg spektin. Svo skildu þeir að allir hlutir væri smíðaðir af nokkru efni.
afrækjast: afrækja, vanrækja, forsóma
giftir: gjafir
kvikur: lifandi
ríkur: voldugur
höfuðskepnurnar: náttúruöflin (höfuðskepnurnar fjórar: jörð, vatn, loft, eldur)
Spurningar
1. Hvers vegna drekkti guð heiminum í sjávargangi? 2. Hvað lifðu margir menn eftir Nóaflóð? 3. Hvers eðlis voru þær gjafir sem guð gaf mönnum? 4. Nefndu dæmi um að jörðin og dýrin hafi sama eðli. 5. Gefur textinn tilefni til að jörðin sé kölluð móðir jörð? Rökstyddu svarið.
II. Asía er fegurst
Veröldin var greind í þrjár álfur. Frá suðri í vestur og inn að Miðjarðarsjó; sá hlutur var kallaður Afríka. Hinn syðri hlutur þeirrar deildar er heitur og brunninn af sólu. Annar hlutur frá vestri til norðurs og inn til hafsins; er sá kallaður Evrópa eða Enea. Hinn nyrðri hlutur er þar svo kaldur að eigi vex gras á og eigi má byggja. Frá norðri og um austurálfur allt til suðurs, það er kallað Asía. Í þeim hlut veraldar er öll fegurð og prýði og eignir jarðarávaxtar, gull og gimsteinar. Þar er og mið veröldin. Og svo sem þar er jörðin fegri og betri að öllum kostum en í öðrum stöðum, svo var og mannfólkið þar mest tignað af öllum giftum, spekinni og aflinu, fegurðinni og alls kostar kunnustu.
Spurningar
1. Í hvaða þrjár álfur var veröldin greind? 2. Í hvaða álfu eru menn fegurstir og gáfaðastir skv. textanum?
Framhaldsskóli.is 5
III. Ætt Óðins
Nær miðri veröldinni var gert það hús og herbergi er ágætast hefur verið, er kallað var Trjóa. Það köllum vér Tyrkland. Þessi staður var miklu meiri gjör en aðrir og með meira hagleik á marga lund með kostnaði og föngum er þar voru til. Þar voru tólf konungdómar og einn yfirkonungur, og lágu mörg þjóðlönd til hvers konungdóms. Þar voru í borginni tólf höfuðtungur. Þessir höfðingjar hafa verið umfram aðra menn þá er verið hafa í veröldu um alla manndómlega hluti.
Einn konungur er þar nefndur Munon eða Mennon. Hann átti dóttur höfuðkonungs Príami. Sú hét Tróan. Þau áttu son. Hann hét Tror, þann köllum vér Þór. Hann var að uppfæðslu í Trakía með hertoga þeim, er nefndur er Lorícus. En er hann var tíu vetra þá tók hann við vopnum föður síns. Svo var hann fagur álitum er hann kom með öðrum mönnum sem þá er fílsbein er grafið í eik. Hár hans er fegra en gull. Þá er hann var tólf vetra hafði hann fullt afl. Þá lyfti hann af jörðu tíu bjarnstökum öllum senn, og þá drap hann Lorícum fóstra sinn, og konu hans, Lora eða Glora, og eignaði sér ríkið Trakía. Það köllum vér Þrúðheim. Þá fór hann víða um lönd og kannaði allar heimsálfur og sigraði einn saman alla berserki og alla risa og einn inn mesta dreka og mörg dýr. Í norðurálfu heims fann hann spákonu þá er Sibil hét, er vér köllum Sif, og fékk hennar. Engi kann að segja ætt Sifjar. Hún var allra kvenna fegurst. Hár hennar var sem gull. Þeirra sonur var Loriði, er líkur var föður sínum. Hans son var Einriði, hans son Vingeþór, hans son Vingenir, hans son Móða, hans son Magi, hans son Seskef, hans son Beðvig, hans son Athra er vér köllum Annan, hans son Íturmann, hans son Heremóð, hans son Skjaldun er vér köllum Skjöld, hans son Biaf er vér köllum Bjár, hans son Jat, hans son Guðólfur, hans son Finn, hans son Friallaf er vér köllum Friðleif. Hann átti þann son er nefndur er Voden, þann köllum vér Óðin. Hann var ágætur maður af speki og allri atgervi. Kona hans hét Frigida, er vér köllum Frigg.
bjarnstökur: bjarnarskinn (eintala: bjarnstaka)
Spurningar
1. Hvar er miðja heimsins samkvæmt textanum?
2. Hvað kallast ríki Þórs og hvað heitir kona hans?
3. Hvað er að segja um hár Sifjar?
Framhaldsskóli.is 6
IV. Óðinn heldur norður að bóginn
Óðinn hafði spádóm og svo kona hans, og af þeim vísindum fann hann það að nafn hans myndi uppi vera haft í norðurálfu heims og tignað umfram alla konunga. Fyrir þá sök fýstist hann að byrja ferð sína af Tyrklandi og hafði með sér mikinn fjölda liðs, unga menn og gamla, karla og konur, og höfðu með sér marga gersamlega hluti. En hvar sem þeir fóru yfir lönd, þá var ágæti mikið frá þeim sagt, svo að þeir þóttu líkari goðum en mönnum. Og þeir gefa eigi stað ferðinni fyrr en þeir koma norður í það land er nú er kallað Saxland. Þar dvaldist Óðinn langar hríðir og eignast víða það land. Þar setur Óðinn til landsgæslu þrjá sonu sína. Er einn nefndur Veggdegg, var hann ríkur konungur og réð fyrir Austur-‐Saxlandi; hans sonur var Viturgils, hans synir voru þeir Vitta, faðir Heingests, og Sigar, faðir Svebdegg, er vér köllum Svipdag. Annar sonur Óðins hét Beldegg, er vér köllum Baldur; hann átti það land er nú heitir Vestfal. Hans son var Brandur, hans son Frioðigar, er vér köllum Fróða, hans son var Freovin, hans son Wigg, hans son Gevis er vér köllum Gavi. Hinn þriðji son Óðins er nefndur Siggi, hans son Rerir. Þeir langfeðgar réðu þar fyrir, er nú er kallað Frakkland, og er þaðan sú ætt komin, er kölluð er Völsungar. Frá öllum þeim eru stórar ættir komnar og margar.
gersamlegur: dýrmætur, fullkominn
Spurningar
1. Hvers vegna hélt Óðinn frá Tyrklandi?
2. Hvort er Óðinn maður eða guð í þessari lýsingu?
V. Óðinn sest að á Norðurlöndum
Þá byrjaði Óðinn ferð sína norður og kom í það land er þeir kölluðu Reiðgotaland og eignaðist í því landi allt það er hann vildi. Hann setti þar til landa son sinn er Skjöldur hét, hans son hét Friðleifur, þaðan er sú ætt komin er Skjöldungar heita, það eru Danakonungar, og það heitir nú Jótland er þá var kallað Reiðgotaland. Eftir það fór hann norður þar sem nú heitir Svíþjóð. Þar var sá konungur er Gylfi er nefndur. En er hann spyr til ferða þeirra Asíamanna er æsir voru kallaðir, fór hann í móti þeim og bauð að Óðinn skyldi slíkt vald hafa í hans ríki sem hann vildi sjálfur. Og sá tími fylgdi ferð þeirra að hvar sem þeir dvöldust í löndum, þá var þar ár og friður góður, og trúðu allir að þeir væri þess ráðandi, því að það sáu ríkismenn að þeir voru ólíkir öðrum mönnum þeim er þeir höfðu séð að fegurð og að viti. Þar þótti Óðni fagrir landskostir ok kaus sér þar borgstað er nú heita Sigtúnir. Skipaði hann þar höfðingjum og í þá líking, sem verið hafði í Tróju, setti tólf höfuðmenn í staðnum að dæma landslög, og svo skipaði hann réttum öllum sem fyrr höfðu verið í Tróju og Tyrkir voru vanir.
Framhaldsskóli.is 7
Eftir það fór hann norður, þar til er sjár tók við honum, sá er þeir hugðu að lægi um öll lönd, og setti þar son sinn til þess ríkis er nú heitir Noregur. Sá er Sæmingur kallaður, og telja þar Noregskonungar sínar ættir til hans og svo jarlar og aðrir ríkismenn, svo sem segir í Háleygjatali. En Óðinn hafði með sér þann son sinn er Yngvi er nefndur, er konungur var í Svíþjóðu og eru frá honum komnar þær ættir er Ynglingar eru kallaðir.
Þeir æsir tóku sér kvonföng þar innan lands, en sumir sonum sínum, og urðu þessar ættir fjölmennar, að um Saxland og allt þaðan um norðurálfur dreifðist svo, að þeirra tunga, Asíamanna, var eigin tunga um öll þessi lönd, og það þykjast menn skynja mega af því, að skrifuð eru langfeðganöfn þeirra, að þau nöfn hafa fylgt þessari tungu og þeir æsir hafa haft tunguna norður hingað í heim, í Noreg og í Svíþjóð, í Danmörk og í Saxland, og í Englandi eru forn landsheiti eða staðaheiti þau er skilja má að af annarri tungu eru gefin en þessi.
ár: gott árferði, góðæri
Spurningar 1. Hvað kallast Reiðgotaland nú? 2. Hverjir eru Skjöldungar? 3. Af hvaða orði er orðið æsir leitt? Hver er eintala orðsins? 4. Hvað hét sá sonur Óðins sem varð konungur í Svíþjóð?
Hugleiðingar Í Prólogus er sagt á annan veg frá Óðni og ásum en í öðrum heimildum, t.d. Gylfaginningu eins og sjá má hér á eftir. Erfitt er að skýra þann mun. Þetta og fleira hefur valdið því að sumir fræðimenn draga í efa að Snorri sjálfur hafi ritað Prologus. Prologus myndar ramma um verk Snorra, kristilegan ramma um verk sem fræðir okkur um heiðin goð (minnst er á Adam og Evu og að menn hafi fjarlægst hinn sanna guð). Hugsanlega hefur höfundur með tali sínu um hinn sanna guð viljað „baktryggja“ sig, fyrirbyggja að menn færu að ásaka hann um trúvillu.
Framhaldsskóli.is 8
Gylfaginning 1. kafli Gylfi konungur réð þar löndum er nú heitir Svíþjóð. Frá honum er það sagt að hann gaf einni farandi konu að launum skemmtunar sinnar eitt plógsland í ríki sínu það er fjórir öxn (uxar) drægi upp dag og nótt. En sú kona var ein af ása ætt, hún er nefnd Gefjun. Hún tók fjóra öxn norðan úr Jötunheimum, en það voru synir jötuns og hennar, og setti þá fyrir plóg. En plógurinn gekk svo hart og djúpt að upp leysti landið, og drógu öxnirnir það land út á hafið og vestur og námu staðar í sundi nokkru. Þar setti Gefjun landið og gaf nafn og kallaði Selund. Og þar sem landið hafði upp gengið var þar eftir vatn. Það er nú Lögurinn kallaður í Svíþjóð, og liggja svo víkur í Leginum sem nes í Selundi. Svo segir Bragi skáld gamli: Gefjun dró frá Gylfa glöð djúpröðuls óðla, svo að af rennirauknum rauk, Danmarkar auka; báru öxn og átta ennitungl þar er gengu fyrir vineyjar víðri valrauf, fjögur höfuð.
[Glöð Gefjun dró gott land frá Gylfa svo að rauk af dráttardýrunum, og bætti því við Danmörku. Uxarnir báru fjögur höfuð og átta augu þegar þeir gengu fyrir stórri og grösugri eynni sem rænt hafði verið. – Veitum eftirtekt kenningunni ennitungl: tungl ennis, þ.e. augu.]
öxn: uxar Selund: Sjáland (þar sem Kaupmannahöfn stendur nú) Spurningar
1. Hvar réð Gylfi konungur ríkjum? 2. Hvað gaf Gylfi Gefjun? 3. Hvað kallaði Gefjun land sitt? 4. Útskýrðu setninguna: „Það er nú Lögurinn kallaður í Svíþjóð, og liggja svo
víkur í Leginum sem nes í Selundi.“ Hugleiðingar Hér kynnumst við vinnubrögðum Snorra. Hann segir sögu og vísar í fornan kveðskap máli sínu til stuðnings. Bragi gamli Boddason er elsta skáldið sem vitað er um að hafi ort undir dróttkvæðum hætti. Hann var norskur og uppi á 9. öld að því er talið er.
Framhaldsskóli.is 9
2. kafli
Gylfi konungur var maður vitur og fjölkunnugur. Hann undraðist það mjög er ásafólk var svo kunnugt að allir hlutir gengu að vilja þeirra. Það hugsaði hann hvort það myndi vera af eðli sjálfra þeirra eða myndi því valda goðmögn þau er þeir blótuðu. Hann byrjaði ferð sína til Ásgarðs og fór með laun og brá á sig gamals manns líki og duldist svo. En æsir voru því vísari að þeir höfðu spádóm, og sáu þeir ferð hans fyrr en hann kom og gerðu í
móti honum sjónhverfingar. En er hann kom í borgina, þá sá hann þar háa höll svo að varla mátti hann sjá yfir hana. Þak hennar var lagt gylltum skjöldum svo sem spónþak. Svo segir Þjóðólfur hinn hvinverski að Valhöll var skjöldum þakin: Á baki létu blíkja, barðir voru grjóti, Sváfnis salnæfrar seggir hyggjandi.
[Hyggnir menn létu skildi blika á baki sér. Þeir voru barðir grjóti. – Sváfnir er eitt fjölmargra nafna Óðins. Í vísunni er talað um næfra (klæðningu) salar Óðins: það er kenning fyrir skildi. – Hér vitnar Snorri í vísu Þjóðólfs einungis vegna skjaldar-‐kenningarinnar; í henni felst að þak Valhallar hafi verið þakið skjöldum.]
Gylfi sá mann í hallardyrunum og lék að handsöxum og hafði sjö senn á lofti. Sá spurði hann fyrr að nafni. Hann nefndist Gangleri og kominn af refilstigum og beiddist að sækja til náttstaðar og spurði hver höllina ætti. Hann svarar að það var konungur þeirra. „En fylgja má ég þér að sjá hann. Skaltu þá sjálfur spyrja hann nafns.“ Og snerist sá maður fyrir honum inn í höllina, en hann gekk eftir og þegar laukst hurðin á hæla honum. Þar sá hann mörg gólf og margt fólk, sumt með leikum, sumir drukku, sumir með vopnum og börðust. Þá litaðist hann um og þótti margir hlutir ótrúlegir þeir er hann sá. Þá mælti hann: „Gáttir allar áður gangi fram um skyggnast skyli; því að óvíst er að vita hvar óvinir sitja á fleti fyrir.“
(Sjá 1. erindi Hávamála) skyli: skyldi
Framhaldsskóli.is 10
Hann sá þrjú hásæti og hvert upp frá öðru og sátu þrír menn, sinn í hverju. Þá spurði hann hvert nafn höfðingja þeirra væri. Sá svarar er hann leiddi inn að sá er í hinu neðsta hásæti sat var konungur og heitir Hár, en þar næst sá er heitir Jafnhár, en sá ofarst er Þriðji heitir. Þá spyr Hár komandann hvort fleira er erindi hans, en heimill er matur og drykkur honum sem öllum þar í Háva höll. Hann segir að fyrst vill hann spyrja ef nokkur er fróður maður inni. Hár segir að hann komi eigi heill út nema hann sé fróðari, og „stattu fram meðan þú fregn, sitja skal sá er segir.“ kunnugur (hér): vitur, fjölkunnugur refilstigur (refilstígur): villugjörn leið, villigata. þegar: þegar í stað, strax
ofarst: efst fregna: spyrja
Spurningar
1. Hvað undraðist Gylfi konungur? 2. Hvað vildi Gyldi fá að vita um æsi (ásafólk)? 3. Hvernig dulbjó Gylfi sig? 4. Hvernig fréttu æsir af ferðum Gylfa? 5. Hvernig brugðust æsir við væntanlegri komu Gylfa? 6. Hvað kallaði Gylfi sig? 7. Hvað hétu konungarnir sem tóku á móti Gylfa?
Hugleiðingar Það er eins og það skipti máli að maðurinn sem tekur á móti Gylfa spyr hann fyrr að nafni; það er eins og því fylgi vald eða kraftur að vera fyrri til.
Nafnið Hár birtist okkur í orðinu Hávamál, kvæði Óðins þar sem hann leggur mönnum lífsreglunrar. Öll þrjú nöfnin eru Óðinsnöfn; sjónhverfingarnar gera það að verkum að Gylfa finnst hann vera að tala við þrjá menn. Nú fer mikil „spurningakeppni“ í hönd. Gyfli veit ekki að hann er að tala við Óðin sjálfan.
Hugum að vinnubrögðum Snorra og heimildanotkun. Hann vísar hér í eddukvæðasafnið, nánar tiltekið í Hávamál, 1. erindi. Hér á eftir vísar hann hvað eftir annað í eddukvæðin, einkum Völuspá, Vafþrúnðismál og Grímnismál. Höfum í huga að stundum er smávægilegur munur á erindunum hjá Snorra og þeirri gerð eddukvæða sem við þekkum úr Konungsbók eddukvæða. En augljóst er að eddukvæðin eru Snorra mikilvæg heimild. Svo er spurning hvaðan honum koma þær upplýsingar sem við þekkjum ekki úr eddukvæðunum eða þeim dróttkvæðum sem hann vísar til.
Vel kæmi til greina að fá einhverja nemendur til að kynna t.d. Vafþrúðnismál, greina stuttlega frá innihaldi og formi.
Benda má nemendum á bragarhátt Gestaþáttar Hávamála: ljóðaháttur (sex línur, þar sem 3. og 6. lína eru alveg sér um ljóðstafi).
Framhaldsskóli.is 11
3. kafli Gangleri hóf svo mál sitt: „Hver er æðstur eða elstur allra goða?“
Hár segir: „Sá heitir Alföður að voru máli, en í Ásgarði hinum forna átti hann tólf nöfn. Eitt er Alföður, annað er Herran eða Herjan, þriðja er Nikar eða Hnikar, fjórða er Nikuss eða Hnikuður, fimmta Fjölnir, sjötta Óski, sjöunda Ómi, áttunda Bifliði eða Biflindi, níunda Sviðar, tíunda Sviðrir, ellefta Viðrir, tólfta Jálg eða Jálkur.“
Þá spyr Gangleri: „Hvar er sá guð eða hvað má hann eða hvað hefur hann unnið framaverka?“
Hár segir: „Lifir hann of allar aldir og stjórnar öllu ríki sínu og ræður öllum hlutum, stórum og smáum.“
Þá mælir Jafnhár: „Hann smíðaði himin og jörð og loftin og alla eign þeirra.“
Þá mælti Þriðji: „Hitt er mest er hann gerði manninn og gaf honum önd þá er lifa skal og aldrei týnast, þótt líkaminn fúni að moldu eða brenni að ösku. Og skulu allir menn lifa, þeir er rétt eru siðaðir, og vera með honum sjálfum þar sem heitir Gimlé eða Vingólf, en vondir menn fara til Heljar og þaðan í Niflhel, það er niður í hinn níunda heim.“
Þá mælti Gangleri: „Hvað hafðist hann að áður en himinn og jörð væru gerð?“
Þá svarar Hár: „Þá var hann með hrímþursum.“
Verkefni
1. Hver sagði Hár að væri æðstur allra goða? 2. Hvað sögðu þeir Hár, Jafnhár og Þriðji um mátt og störf Alföðurs? 3. Hverjir munu dvelja með Alföður í Gimlé? 4. Hvert fara vondir menn? 5. Hvar hafðist Alföður við áður en himinn og jörð voru gerð? 6. Hvaða ályktun getum við dregið um hrímþursa af kaflanum?
Hugleiðingar Þessi lýsing á Alföður minnir óneitanlega á guð kristinna manna. Ætli við verðum ekki að gera ráð fyrir einhverjum áhrifum sköpunarsögu biblíunnar hér. Við tökum eftir beygingu orðsins Alföður (nf. Alföður, ekki Alfaðir; eingarfall Alföðurs, ekki Alföður!) 4. kafli Gangleri mælti: „Hvað var upphaf eða hversu hófst eða hvað var áður?“ Hár svarar: „Svo sem segir í Völuspá:
Framhaldsskóli.is 12
Ár var alda það er ekki var, vara sandur né sær né svalar unnir; jörð fannst eigi né upphiminn, gap var Ginnunga, en gras ekki.“
(Sjá Völuspá 3. erindi)
ár alda: í upphafi alda
var-‐a: var ekki.
[Í upphafi var ekkert, hvorki sandur né sær né svalar öldur; hvorki jörð né upphiminn. Þá var Ginnungagap (hið mikla tóm) en ekki gras.]
Þá mælti Jafnhár: „Fyrr var það mörgum öldum en jörð var sköpuð er Niflheimur var gjör, og í honum miðjum liggur brunnur sá er Hvergelmir heitir, og þaðan af falla þær ár er svo heita: Svöl, Gunnþrá, Fjörm, Fimbulþul, Slíður og Hríð, Sylgur og Ylgur, Víð, Leiftur. Gjöll er næst Helgrindum.“
Þá mælti Þriðji: „Fyrst var þó sá heimur í suðurhálfu er Múspell heitir. Hann er ljós og heitur, sú átt er logandi og brennandi, er hann og ófær þeim er þar eru útlendir og eigi eiga þar óðöl. Sá er Surtur nefndur er þar situr á landsenda til landvarnar. Hann hefur logandi sverð og í enda veraldar mun hann fara og herja og sigra öll goðin og brenna allan heim með eldi. Svo segir í Völuspá:
Surtur fer sunnan með svigalævi, skín af sverði sól valtíva; grjótbjörg gnata, en gífur rata, troða halir helveg, en himinn klofnar“
(Sjá Völuspá 51. erindi)
sviga (viðar) læ (svik, tjón): eldur (tjón viðarins)
gífur: tröllkona
[Surtur kemur að sunnan með eldi sól skín af sverði goðanna. Björg bresta, tröll hrasa, menn farast en himinn rofnar.]
Verkefni
1. Hvenær var Niflheimur skapaður? 2. Hvað er Hvergelmir? 3. Hvað var fyrst til í heiminum? 4. Lýstu Múspellsheimi. 5. Hver er Surtur?
Hugleiðingar Hér lýsir Snorri því sem var og því sem verður. Og hann nýtir sér Völuspá í þessum „fréttaflutningi“. Það byrjar allt með eldi og endar með eldi. Minnum nemendur á bragarhátt Völuspár: fornyrðislag (8 línur; einn eða tveir stuðlar á móti höfuðstaf.
Framhaldsskóli.is 13
5. kafli
Gangleri mælti: „Hversu skipaðist áður en ættirnar yrðu eða aukaðist mannfólkið?“
Þá mælti Hár: „Ár þær er kallaðar eru Élivogar, þá er þær voru svo langt komnar frá uppsprettunni að eiturkvika sú er þar fylgdi harðnaði svo sem sindur það er rennur úr eldinum, þá varð það ís. Og þá er sá ís gaf staðar og rann eigi, þá hélaði yfir þannig úr það er af stóð eitrinu og fraus að hrími, og jók hrímið hvert yfir annað allt í Ginnungagap.“
Þá mælti Jafnhár: „Ginnungagap, það er vissi til norðurættar, fylltist með þunga og höfugleik íss og hríms og inn í frá úr og gustur. En hinn syðri hlutur Ginnungagaps léttist mót gneistum og síum þeim er flugu úr Múspellsheimi.“
Þá mælti Þriðji: „Svo sem kalt stóð af Niflheimi og allir hlutir grimmir, svo var það er vissi námunda Múspelli heitt og ljóst. En Ginnungagap var svo hlætt sem loft vindlaust. Og þá er mættist hrímin og blær hitans, svo að bráðnaði og draup, og af þeim kvikudropum kviknaði með krafti þess er til sendi hitann og varð manns líkandi og var sá nefndur Ýmir, en hrímþursar kalla hann Aurgelmi, og eru þaðan komnar ættir hrímþursa, svo sem segir í Völuspá hinni skömmu:
Eru völur allar frá Viðólfi, vitkar allir frá Vilmeiði, en seiðberendur frá Svarthöfða, allir jötnar frá Ými komnir.
(Sjá Hyndluljóð, 32. erindi)
völur (ft. af völva): seiðkona
vitki: galdramaður
seiðberendur: seiðmenn
En hér segir svo Vafþrúðnir jötunn: Hvaðan Aurgelmir kom með jötna sonum fyrst hinn fróði jötunn: Úr Élivogum stukku eiturdropar og óx uns úr varð jötunn, þar órar ættir komu allar saman, því er það æ allt til atalt.
(Sjá Vafnþrúðnismál 30–31)
órar: vorar, okkar
atall: grimmur (til atalt: of grimmt)
Þá mælti Gangleri: „Hvernig óxu ættir þaðan eða skapaðist svo að fleiri menn urðu? Eða trúir þú þann guð er nú sagðir þú frá?“
Framhaldsskóli.is 14
Þá svarar Hár: „Fyr engan mun játum vér hann guð. Hann var illur og allir hans ættmenn, þá köllum vér hrímþursa. Og svo er sagt að þá er hann svaf fékk hann sveita. Þá óx undir vinstri hönd honum maður og kona, og annar fótur hans gat son við öðrum. En þaðan af komu ættir, það eru hrímþursar. Hinn gamli hrímþurs, hann köllum vér Ými.“
aukaðist (jókst): fjölgaði eiturkvika: ískalt (eða eitrað) klakahröngl sindur: gjall úr (no., hk.): úði, regn
sía: glóandi járnmoli hlætt: milt (sbr. hlána) sveiti: blóð, sbr. orðið sviti
Spurningar
1. Hvað eru Élivogar? 2. Úr hverju myndaðist Ýmir? 3. Hvað kölluðu hrímþursar Ými? 4. Hver var Ýmir? 5. Hvað óx undir vinstri hönd Ýmis? Hvað er að segja um fætur hans?
Hugleiðingar
Snorri heldur hér áfram að lýsa sköpunarsögunni og vísar í tiltekna staði í eddukvæðum. Snorri reynir að bræða saman fremur sundurleitar heimildir um þetta efni. Það er verðugt verkefni að bera t.d. saman frásögn Snorra annars vegar og Völuspár hins vegar um sköpunina. Þar ber ýmislegt í milli. 6. kafli
Þá mælti Gangleri: „Hvar byggði Ýmir, eða við hvað lifði hann?“
Hár svarar: „Næst var það þá er hrímið draup að þar varð af kýr sú er Auðhumla hét, en fjórar mjólkár runnu úr spenum hennar, og fæddi hún Ými.“
Þá mælti Gangleri: „Við hvað fæddist kýrin?“
Hár svarar: „Hún sleikti hrímsteinana er saltir voru. Og hinn fyrsta dag er hún sleikti steina kom úr steininum að kveldi mannshár, annan dag mannshöfuð, þriðja dag var þar allur maður. Sá er nefndur Búri. Hann var fagur álitum, mikill og máttugur. Hann gat son þann er Bor hét, hann fékk þeirrar konu er Bestla hét, dóttir Bölþorns jötuns, og fengu þau þrjá sonu. Hét einn Óðinn, annar Vilji, þriðji Vé. Og það er mín trúa að sá Óðinn og hans bræður munu vera stýrandi himins og jarðar. Það ætlum vér að hann muni svo heita. Svo heitir sá maður er vér vitum mestan og ágætastan, og vel megið þér hann láta svo heita.“
fæddi (hér): veitti fæðu, nærði fæddist: nærðist
Framhaldsskóli.is 15
Spurningar
1. Hvernig myndaðist Auðhumla? 2. Hvað rann úr spenum Auðhumlu? 3. Á hverju nærðist Ýmir? 4. Á hverju nærðist Auðhumla? 5. Hvernig varð Búri til? 6. Hvað hét sonur Búra? 7. Hvaða konu fékk Bor? 8. Hvað hétu synir Bors og Bestlu? 9. Hvert segir Hár að sé hlutverk þeirra Óðins og bræðra hans?
Hugleiðingar
Kýrin skipar hér heiðurssess eins og svo víða í sögum og trúarbrögðum (sbr. t.d. Búkollusöguna): Hún veitir dýrmæta fæðu (og tengist hér jafnframt sköpuninni).
Hér er Hár (Óðinn) farinn að lýsa eigin ætt og eigin hlutverki án þess að Ganglera gruni neitt.
Við tökum eftir stuðluninni (b-‐unum) í nöfnum ættmennanna. Í nágrannamálum er v-‐hljóð í upphafi Óðinsnafnsins (Wodan); þannig hefur það upphaflega stuðlað við Vilja og Vé.
7. kafli
Þá mælti Gangleri: „Hvað varð þá um þeirra sætt, eða hvorir voru ríkari?“ Þá svarar Hár: „Synir Bors drápu Ými jötun, en er hann féll, þá hljóp svo mikið blóð úr sárum hans að með því drekktu þeir allri ætt hrímþursa, nema einn komst undan með sínu hyski. Þann kalla jötnar Bergelmi. Hann fór upp á lúður sinn og kona hans og hélst þar, og eru af þeim komnar hrímþursa ættir, svo sem hér segir: Örófi vetra áður væri jörð of sköpuð, þá var Bergelmir borinn; það eg fyrst of man er sá hinn fróði jötunn á var lúður of lagður.
(Sjá Vafþrúðnismál, 35. erindi)
ríkur: voldugur
lúður: kvarnarstokkkur (sem kvörnin stendur á); í vísunni gæti orðið lúður merkt líkbörur.
borinn: fæddur
Spurningar
1. Hvað varð um Ými jötun? 2. Hvernig dó ætt hrímþursa? 3. Hvaða Hrímþurs lifði af?
Framhaldsskóli.is 16
Hugleiðingar Hér drukkna margir en einhver lifir. Þetta gæti minnt á syndaflóðið. Sköpunarsögur þjóða og þjóðflokka geta verið keimlíkar. 8. kafli Þá segir Gangleri: „Hvað höfðust þá að Bors synir, ef þú trúir að þeir séu guð?“
Hár segir: „Eigi er þar lítið af að segja. Þeir tóku Ými og fluttu í mitt Ginnungagap og gerðu af honum jörðina, af blóði hans sæinn og vötnin. Jörðin var gjör af holdinu, en björgin af beinunum. Grjót og urðir gerðu þeir af tönnum og jöxlum og af þeim beinum er brotin voru.“
Þá mælti Jafnhár: „Af því blóði er úr sárum rann og laust fór, þar af gerðu þeir sjá þann er þeir gyrtu, og festu saman jörðina og lögðu þann sjá í hring utan um hana, og mun það flestum manni ófæra þykja að komast þar yfir.“
Þá mælti Þriðji: „Tóku þeir og haus hans og gerðu þar af himin og settu hann upp yfir jörðina með fjórum skautum, og undir hvert horn settu þeir dverg. Þeir heita svo: Austri, Vestri, Norðri, Suðri.
Þá tóku þeir síur og gneista þá er lausir fóru og kastað hafði úr Múspellsheimi og settu á miðjan Ginnungahimin, bæði ofan og neðan til að lýsa himin og jörð. Þeir gáfu staðar öllum eldingum, sumum á himni, sumar fóru lausar undir himni, og settu þó þeim stað og sköpuðu göngu þeim. Svo er sagt í fornum vísindum að þaðan af voru dægur greind og áratal svo sem segir í Völuspá:
Sól það né vissi hvar hún sali átti, máni það né vissi hvað hann megins átti, stjörnur það né vissu hvar þær staði áttu.
(Sjá Völuspá, 5. erindi)
né vissi: vissi ekki
[Hér er lýst þeirri ringlureið sem var áður en himintunglin fundu sér stað á himnum]
Svo var áður en þetta væri of jörð.“
Framhaldsskóli.is 17
Þá mælti Gangleri: „Þetta eru mikil tíðindi er nú heyri ég. Furðu mikil smíð er það og haglega gert. Hvernig var jörðin háttuð?“
Þá svarar Hár: „Hún er kringlótt utan og þar utan um liggur hinn djúpi sjár, og með þeirri sjávarströndu gáfu þeir lönd til byggðar jötna ættum. En fyrir innan á jörðunni gerðu þeir borg umhverfis heim fyrir ófriði jötna, en til þeirrar borgar höfðu þeir brár Ýmis jötuns og kölluðu þá borg Miðgarð. Þeir tóku og heila hans og köstuðu í loft og gerðu af skýin svo sem hér segir:
Úr Ýmis holdi var jörð of sköpuð, en úr sveita sjár, björg úr beinum, baðmur úr hári, en úr hausi himinn.
sveiti: blóð
baðmur: tré, skógur
En úr hans brám gerðu blíð regin Miðgarð manna sonum, en úr hans heila voru þau hin harðmóðgu ský öll of sköpuð.
(Grímnismál, 40.–41. erindi)
Miðgarður: hin byggða jörð; garðurinn umhverfis byggðina
harðmóðugur: harðhugaður, grimmúðlegur
síur: glóandi járnmolar Spurningar
1. Hvaða stöðu hafa Borssynir samkvæmt textaa Snorra? 2. Hvert fluttu Borssynir Ými og hvað gerðu þeir úr honum? 3. Segðu frá sjónum og tilurð hans. 4. Úr hverju er himinninn gerður? 5. Hverjir halda uppi himninum? 6. Hvar fengu jötnarnir lönd? 7. Hvað og hvar er Miðgarður? 8. Úr hverju eru skýin?
Hugleiðingar
Hér er lýst sköpuninni og heimsmyndinni. Gott væri að spreyta sig á að teikna þetta upp. Jötnar eru greinilega við sjóinn en æsir innar í landinu. Sjórinn virðist umlykja landið (jörð og sjór virðast vera í láréttri stöðu og kringlótt, ekki hnöttótt!).
Framhaldsskóli.is 18
9. kafli Þá mælti Gangleri: „Mikið þótti mér þeir hafa snúið til leiðar er jörð og himinn var gert og sól og himintungl voru sett og skipt dægrum. Og hvaðan komu mennirnir þeir er heim byggja?“
Þá svarar Hár: „Þá er þeir Bors synir gengu með sævarströndu fundu þeir tré tvö og tóku upp trén og sköpuðu af menn. Gaf hinn fyrsti önd og líf, annar vit og hræring, þriðji ásjónu, málið og heyrn og sjón; gáfu þeim klæði og nöfn. Hét karlmaðurinn Askur en konan Embla, og ólust þaðan af mannkindin, þeim er byggðin var gefinn undir Miðgarði.
Þar næst gerðu þeir sér borg í miðjum heimi er kallað er Ásgarður. Það köllum vér Trója. Þar byggðu guðin og ættir þeirra og gerðust þaðan af mörg tíðindi og greinir bæði á jörðu og í lofti. Þar er einn staður er Hliðskjálf heitir, og þá er Óðinn settist þar í hásæti, þá sá hann of alla heima og hvers manns athæfi og vissi alla hluti þá er hann sá. Kona hans hét Frigg Fjörgynsdóttir og af þeirra ætt er sú kynslóð komin er vér köllum ása ættir er byggt hafa Ásgarð hinn forna og þau ríki er þar liggja til, og er það allt goðkunnug ætt. Og fyrir því má hann heita Alföður að hann er faðir allra goðanna og manna og alls þess er af honum og hans krafti var fullgert. Jörðin var dóttir hans og kona hans. Af henni gerði hann hinn fyrsta soninn, en það er Ásaþór. Honum fylgdi afl og sterkleikur. Þar af sigrar hann öll kvikvendi.
snúa til leiðar: koma í verk, framkvæma Spurningar
1. Hvaðan komu mennirnir er heim byggja? 2. Hvað hétu fyrsti maðurinn og fyrsta konan? 3. Hvað og hvar er Ásgarður? 4. Hvar er hásæti Óðins? 5. Hvað sá Óðinn úr hásæti sínu? 6. Hvað heitir kona Óðins? 7. Hver er fyrsti sonur Óðins og hver var móðir hans?
Hugleiðingar
Nöfnin Askur og Embla minna óneitanlega á nöfn Adams og Evu. Hér kemur fram að Óðinn hefur ekki verið við eina fjölina felldur. Þór er ekki sonur Friggjar; Jörðin er móðir hans.
Framhaldsskóli.is 19
10. kafli
Nörfi eða Narfi hét jötunn er byggði í Jötunheimum. Hann átti dóttur er Nótt hét. Hún var svört og dökk sem hún átti ætt til. Hún var gift þeim manni er Naglfari hét. Þeirra sonur hét Auður. Því næst var hún gift þeim er Annar hét. Jörð hét þeirra dóttir. Síðast átti hana Dellingur. Var hann ása ættar. Var þeirra sonur Dagur. Var hann ljós og fagur eftir faðerni sínu.
Þá tók Alföður Nótt og Dag, son hennar, og gaf þeim tvo hesta og tvær kerrur og setti þau upp á himin, að þau skulu ríða á hverjum tveim dægrum umhverfis jörðina. Ríður Nótt fyrri þeim hesti er kallaður er Hrímfaxi, og að morgni hverjum döggvir hann jörðina með méldropum sínum. Sá hestur er Dagur á heitir Skinfaxi og lýsir allt loft og jörðina af faxi hans.“
méldropar: froða úr kjaftvikum hests (mél: beislismél) Spurningar
1. Hvað hét faðir Nætur og hverrar ættar var hann? 2. Hver voru börn Nætur? 3. Hvað heitir hestur sá er Nótt ríður? 4. Hverju veldur Hrímfaxi á hverjum morgni? 5. Hvað heitir hestur Dags?
Hugleiðingar
Hér er eins og verið sé að koma lagi á dægrin, skiptingu sólarhringsins í nætur og daga. Dagur og nótt eru persónugerð.
Við tökum eftir því að Nótt er jötna ættar en maður hennar Dellingur er ása ættar. Þannig blandast þessir ættstofnar gjarnan (sbr. t.d. hjónin Frey, sem var af ætt vana, og Gerði sem var af ætt jötna).
11. kafli
Þá mælti Gangleri: „Hversu stýrir hann gang sólar og tungls?“
Hár segir: „Sá maður er nefndur Mundilfari er átti tvö börn. Þau voru svo fögur og fríð að hann kallaði annað Mána en dóttur sína Sól og gifti hana þeim manni er Glenur hét. En goðin reiddust þessu ofdrambi og tóku þau systkin og settu upp á himin, létu Sól keyra þá hesta er drógu kerru sólarinnar, þeirrar er guðin höfðu skapað til að lýsa heimana af þeirri síu er flaug úr Múspellsheimi. Þeir hestar heita svo: Árvakur og Alsvinnur. En undir bógum hestanna settu guðin tvo vindbelgi að kæla þá, en í sumum fræðum er það kallað ísarnkol.
Framhaldsskóli.is 20
Máni stýrir göngu tungls og ræður nýjum og niðum. Hann tók tvö börn af jörðu er svo heita: Bil og Hjúki, er þau gengu frá brunni þeim er Byrgir heitir og báru á öxlum sér sá er heitir Sægur, en stöngin Símul. Viðfinnur er nefndur faðir þeirra. Þessi börn fylgja Mána, svo sem sjá má af jörðu.“
sía: glóandi járnmoli ísarnkol: járnkol ný (no.hk.): nýtt tungl, vaxandi tungl nið (no.hk.): þverrandi tungl (sem ekki sést nema mjó sneið af) sár: kerald stöngin: stöngin sem sárinn er borinn á Verkefni
1. Hvað kallaði Mundilfari börn sín og af hverju reiddust goðin því? 2. Hverjir voru Árvakur og Alsvinnur? 3. Hvað voru ísarnkol? 4. Hverjir fylgja Mána?
Hugleiðingar
Hér er enn greint frá því hvernig goðin koma reglu á gang himintungla. Jafnframt er þetta saga um afleiðingar ofdrambs: refsingin er hörð: Börnin sem bera hin goðkynjuðu nöfn, Sól og Máni, eru tekin frá föður sínum.
Spyrja má síðan hvers börnin Bil og Hjúki eiga að gjalda: Þau eru tekin alsaklaus og hneppt í þrældóm!
12. kafli Þá mælti Gangleri: „Skjótt fer sólin og nær svo sem hún sé hrædd, og eigi mundi hún þá meir hvata göngunni að hún hræddist bana sinn.“
Þá svarar Hár: „Eigi er það undarlegt að hún fari ákaflega. Nær gengur sá er hana sækir, og engan útveg á hún nema renna undan.“
Þá mælti Gangleri: „Hver er sá er henni gerir þann ómaka?“
Hár segir: „Það eru tveir úlfar, og heitir sá er eftir henni fer Skoll. Hann hræðist hún og hann mun taka hana. En sá heitir Hati Hróðvitnisson er fyrir henni hleypur og vill hann taka tunglið, og svo mun verða.“
Þá mælti Gangleri: „Hver er ætt úlfanna?“
Hár segir: „Gýgur ein býr fyrir austan Miðgarð í þeim skógi er Járnviður heitir. Í þeim skógi byggja þær tröllkonur er Járnviðjur heita. Hin gamla gýgur fæðir að sonum marga jötna og alla í vargs líkjum, og þaðan af eru komnir þessir úlfar. Og svo er sagt
Framhaldsskóli.is 21
að af ættinni verður sá einn máttkastur er kallaður er Mánagarmur. Hann fyllist með fjörvi allra þeirra manna er deyja, og hann gleypir tungl og stökkvir blóði himin og loft öll. Þaðan týnir sól skini sínu og vindar eru þá ókyrrir og gnýja héðan og handan. Svo segir í Völuspá:
Austur býr hin aldna í Járnviði og fæðir þar Fenris kindir; verður úr þeim öllum einna nokkur tungls tjúgari í trölls hami.
[Sú gamla (tröllkonan) býr austur í Járnskógi og elur þar úlfa. Einn þeirra verður sá sem grandar tunglinu í líki trölls.]
Fyllist fjörvi feigra manna, rýður ragna sjöt rauðum dreyra; svört verða sólskin of sumur eftir, veður öll válynd. Vituð þér enn eða hvað?“
(Sjá Völuspá, 39.–40. erindi)
[Úlfurinn fyllist lífi hinna feigu og roðar heimkynni goðanna með blóði. Sólskin verða svört næstu sumur og veður ótrygg. Vitið þér enn eða hvað?
dreyri: blóð;
válynd: hættuleg.]
hvata: hraða hann hræðist hún: hún hræðist hann gýgur (kvk, eingarfall: gýgjar): tröllkona vargur: úlfur fjör (þgf. fjörvi): líf, lífskraftur Spurningar
1. Hví fer sólin jafn hratt og raun ber vitni? 2. Hvað vill Hati Hróðvitnisson ná í? 3. Hverjir búa í Járnviði? 4. Hvaðan kemur Mánagarmi krafturinn?
Hugleiðingar
Enn vísar Snorri í Völuspá þar sem völvan er farin að spá fyrir um endalok heimsins. Það er greinilegt að jötnarnir eiga eftir að hafa betur í viðskiptum sínum við goð og menn. Drungalegt er stefið í Völuspá: Vituð þér enn eða hvað?: Eruð þið búin að heyra nóg – eða viljið þið kannski heyra aðeins meira?
Framhaldsskóli.is 22
13. kafli Þá mælti Gangleri: „Hver er leið til himins af jörðu?“
Þá svarar Hár og hló við: „Eigi er nú fróðlega spurt. Er þér eigi sagt það að goðin gerðu brú til himins af jörðu, og heitir Bifröst? Hana muntu séð hafa. Kann vera að það kallir þú regnboga. Hún er með þrem litum og mjög sterk og ger með list og kunnáttu meiri en aðrar smíðir. En svo sterk sem hún er, þá mun hún brotna þá er Múspells megir fara og ríða hana, og svima hestar þeirra yfir stórar ár. Svo koma þeir fram.“
Þá mælti Gangleri: „Eigi þótti mér goðin gera af trúnaði brúna, ef hún skal brotna mega, er þau mega gera sem þau vilja.“
Þá mælti Hár: „Eigi eru goðin hallmælis verð fyrir þessa smíð. Góð brú er Bifröst, en enginn hlutur er sá í þessum heimi er sér megi treystast þá er Múspells synir herja.“
megir (et. mögur): synir svima: synda Spurningar
1. Hvernig komust menn milli himins og jarðar? 2. Hverjir munu granda Bifröst?
Hugleiðingar
Goðin hæðast hér að Ganglera og vanþekkingu hans. Það er húmor í þessu; við höfum líka tekið eftir því að Gangleri er dálítið barnslegur stundum, verður stundum alveg seinhissa (eins og lítið barn). Okkur grunar að hann eigi ekki mikla möguleika í „spurningakeppninni“ úr þessu. 14. kafli Þá mælti Gangleri: „Hvað hafðist Alföður þá að er gjör var Ásgarður?“
Hár mælti: „Í upphafi setti hann stjórnarmenn í sæti og beiddi þá að dæma með sér örlög manna og ráða um skipun borgarinnar. Það var þar sem heitir Iðavöllur í miðri borginni. Var það hið fyrsta þeirra verk að gera hof það er sæti þeirra standa í, tólf önnur en hásætið það er Alföður á. Það hús er best gert á jörðu og mest. Allt er það utan og innan svo sem gull eitt. Í þeim stað kalla menn Glaðsheim.
Annan sal gerðu þeir, það var hörgur er gyðjurnar áttu og var hann allfagur. Það hús kalla menn Vingólf.
Þar næst gerðu þeir það að þeir lögðu afla, og þar til gerðu þeir hamar og töng og steðja og þaðan af öll tól önnur, og því næst smíðuðu þeir málm og stein og tré og
Framhaldsskóli.is 23
svo gnóglega þann málm er gull heitir, að öll búsgögn og öll reiðigögn höfðu þeir af gulli, og er sú öld kölluð gullaldur, áður en spilltist af tilkomu kvennanna. Þær komu úr Jötunheimum.
Þar næst settust goðin upp í sæti sín og réttu dóma sína og minntust hvaðan dvergar höfðu kviknað í moldunni og niðri í jörðunni, svo sem maðkar í holdi. Dvergarnir höfðu skipast fyrst og tekið kviknun í holdi Ýmis og voru þá maðkar, en af atkvæði guðanna urðu þeir vitandi manvits og höfðu manns líki og búa þó í jörðu og í steinum. Móðsognir var æðstur og annar Durinn. Svo segir í Völuspá [sjá Völuspá 9–16]:
Þá gengu regin öll á rökstóla, ginnheilug goð, og of það gættust: að skyldi dverga drótt of skepja úr brimi blóðgu og úr Bláins leggjum. Þar mannlíkun mörg of gerðust, dvergar í jörðu sem Durinn sagði.
skepja: skapa
Og þessi segir hún nöfn þeirra dverganna: Nýi, Niði Norðri, Suðri, Austri, Vestri, Alþjófur, Dvalinn, Nár, Náinn, Nipingur, Dáinn, Bifur, Báfur, Bömbur, Nori, Óri, Ónar, Óðinn, Mjöðvitnir, Vigur og Gandálfur, Vindálfur, Þorinn, Fili, Kili, Fundinn, Vali, Þrór, Þróinn, Þekkur, Litur, Vitur, Nýr, Nýráður, Rekkur, Ráðsvinnur.
Framhaldsskóli.is 24
En þessir eru og dvergar og búa í steinum, en hinir fyrri í moldu: Draupnir, Dólgþvari, Haur, Hugstari, Hleðjólfur, Glóinn, Dór, Óri, Dúfur, Andvari, Heftifili, Hár, Svíar. En þessir komu frá Svarinshaugi til Aurvanga á Jöruvöllu og er þaðan kominn Lofar. Þessi eru nöfn þeirra: Skirfir, Virfir, Skafiður, Ái, Álfur, Ingi, Eikinskjaldi, Falur, Frosti, Fiður, Ginnar.“ hörgur: e.k. blótstaður leggja afla: hlaða eldstæði (sbr. afl í smiðju) reiðigögn: (sennilega) reiðtygi af tilkomu kvennanna: hér er vísað í Völuspá (er. 8) þar sem talað er um þrjár þursa meyjar sem öllu virðast spilla meðal ása. Spurningar
1. Hvar var Iðavöllur og hvað fór fram þar? 2. Hvar er Glaðsheimur? 3. Hvaða sal áttu gyðjurnar? 4. Hvert rekja dvergarnir upphaf sitt? 5. Nefnið nokkra dverga.
Hugleiðingar
Hér er vikið að því hvernig koma kvennanna úr Jötunheimum spillti friði meðal ása og manna. Þær eru kallaðar „þursa meyjar“ í 8. erindi Völuspár og tengjast sennilega Gullveigu sem nefnd er í 21. erindi sama kvæðis. Gullveig virðist vera táknmynd græðginnar sem er mikill friðarspillir í lífi ása og manna.
Framhaldsskóli.is 25
15. kafli
Þá mælti Gangleri: „Hvar er höfuðstaðurinn eða helgistaðurinn goðanna?“
Hár svarar: „Það er að aski Yggdrasils. Þar skulu goðin eiga dóma sína hvern dag.“
Þá mælti Gangleri: „Hvað er að segja frá þeim stað?“
Þá segir Jafnhár: „Askurinn er allra trjáa mestur og bestur. Limar hans dreifast yfir heim allan og standa yfir himni. Þrjár rætur trésins halda því uppi og standa afar breitt. Ein er með ásum en önnur með hrímþursum, þar sem forðum var Ginnungagap. Hin þriðja stendur yfir Niflheimi, og undir þeirri rót er Hvergelmir, en Níðhöggur gnagar neðan rótina. En undir þeirri rót er til hrímþursa horfir, þar er Mímisbrunnur, er spekt og mannvit er í fólgið, og heitir sá Mímir er á brunninn. Hann er fullur af vísindum, fyrir því að hann drekkur úr brunninum af horninu Gjallarhorni. Þar kom Alföður og beiddist eins drykkjar af brunninum, en hann fékk eigi fyrr en hann lagði auga sitt að veði. Svo segir í Völuspá:
Allt veit eg, Óðinn, hvar þú auga falt, í þeim hinum mæra Mímis brunni; drekkur mjöð Mímir morgun hverjan af veði Valföðurs. Vituð þér enn eða hvað?
(Sjá Völuspá, erindi 28)
Þriðja rót asksins stendur á himni, og undir þeirri rót er brunnur sá er mjög er heilagur er heitir Urðarbrunnur. Þar eiga guðin dómstað sinn. Hvern dag ríða æsir þangað upp um Bifröst. Hún heitir og Ásbrú. Hestar ásanna heita svo: Sleipnir er bestur, hann á Óðinn, hann hefur átta fætur. Annar er Glaður, þriðji Gyllir, fjórði Glenur, fimmti Skeiðbrimir, sjötti Silfrintoppur, sjöundi Sinir, áttundi Gils, níundi Falhófnir, tíundi Gulltoppur, ellefti Léttfeti. Baldurs hestur var brenndur með honum. En Þór gengur til dómsins og veður ár þær er svo heita:
Körmt og Örmt og Kerlaugar tvær, þær skal Þór vaða dag hvern er hann dæma fer að aski Yggdrasils, því að Ásbrú
(Sjá Grímnismál, erindi 29)
hlóa: hitna
[Greinilegt er að Þór getur ekki riðið um Ásbrú (Bifröst) í þetta sinn.]
Framhaldsskóli.is 26
brenn öll loga, heilug vötn hlóa.“ Þá mælti Gangleri: „Brennur eldur yfir Bifröst?“
Hár segir: „Það er þú sérð rautt í boganum er eldur brennandi. Upp á himin myndu ganga hrímþursar og bergrisar ef öllum væri fært á Bifröst þeim er fara vilja.“
Margir staðir eru á himni fagrir, og er þar allt guðleg vörn fyrir. Þar stendur salur einn fagur undir askinum við brunninn, og úr þeim sal koma þrjár meyjar, þær er svo heita: Urður, Verðandi, Skuld. Þessar meyjar skapa mönnum aldur. Þær köllum vér nornir. Enn eru fleiri nornir þær er koma til hvers manns er borinn er, að skapa aldur, og eru þessar goðkunnugar en aðrar álfa ættar en hinar þriðju dverga ættar svo sem hér segir:
Sundurbornar mjög hygg ég að nornir sé, eigu-‐t þær ætt saman; sumar eru áskunnar, sumar eru álfkunnar, sumar dætur Dvalins.“
sundurbornar: af ólíkum uppruna áskunnar: af kyni ása eigu-‐t: eiga ekki
Þá mælti Gangleri: „ Ef nornir ráða örlögum manna, þá skipta þær geysi ójafnt, er sumir hafa gott líf og ríkulegt en sumir hafa lítið lén eða lof, sumir langt líf, sumir skammt.“
Hár segir: „Góðar nornir og vel ættaðar skapa góðan aldur. En þeir menn er fyrir ósköpum verða, þá valda því illar nornir.“
Spurningar
1. Hvar er helgistaður goðanna? 2. Hvað liggja margar rætur úr aski Yggdrasils? 3. Hvað er undir þeirri rót er stendur yfir Niflheimi? 4. Hvað er fólgið í Mímisbrunni? 5. Hvað þurfti Óðinn að greiða fyrir að fá að drekka úr Mimisbrunni? 6. Segið frá Urðarbrunni. 7. Nefnið nokkra hesta ásanna. 8. Hvaða áhrif hafa nornir á líf manna?
Framhaldsskóli.is 27
Hugleiðing
Hér er askinum lýst sem er n.k. tré lífsins. Hann heitir Yggdrasill. Yggur er eitt af nöfnum Óðins: sá sem veldur ugg, ótta; drasill er sama og drösull og Yggdrasill merkir því hestur Óðins. En hestur Óðins er sama og gálgi Óðins og tengist sögunni um að Óðinn hafi þurft að hanga í askinum (gálganum) níu nætur til að öðlast visku (sjá Hávamál, 138. erindi.).
Í kaflanum kemur fram hve Óðinn metur þekkinguna, viskuna mikils: hann fórnar öðru auga sínu fyrir sopa úr brunni viskunnar.
Í seinni hluta kaflans er rætt um misjöfn örlög mannanna (hvers vegna eiga sumir betra líf en aðrir?), og nornir sagðar ráða þeim. Við þekkjum slíkt úr fjölmörgum ævintýrum.
Sleipnir hefur átta fætur. Forn steinrista frá víkingaöld fannst á Gotlandi og sýnir mann á áttfættum hesti og þar gæti verið um Óðin og Sleipni að ræða; slíkt rennir stoðum undir það að upplýsingar Snorra um átta fætur Sleipnis sé gömul sögn. En til greina kemur reyndar að líta svo á að allir þessir fætur á myndinni eigi einungis að gefa í skyn hraðann á hestinum!
16. kafli
Þá mælti Gangleri: „Hvað er fleira að segja stórmerkja frá askinum?“
Hár segir: „Margt er þar af að segja. Örn einn situr í limum asksins, og er hann margs vitandi, en í milli augna honum situr haukur sá er heitir Veðurfölnir. Íkorni sá er heitir Ratatoskur rennur upp og niður eftir askinum og ber öfundarorð milli arnarins og Níðhöggs. En fjórir hirtir renna í limum asksins og bíta barr. Þeir heita svo: Dáinn, Dvalinn, Duneyr, Duraþrór. En svo margir ormar eru í Hvergelmi með Níðhögg að engin tunga má telja. Svo segir hér:
Askur Yggdrasils drýgir erfiði meira en menn viti. Hjörtur bítur ofan, en á hliðu fúnar, skerðir Níðhöggur neðan.
drýgja erfiði: þola þrautir
Svo er sagt: Ormar fleiri liggja und aski Yggdrasils en það of hyggi hver ósvinnra afa, Góinn og Móinn, þeir eru Grafvitnis synir, Grábakur og Grafvölluður,
ósvinnur: óskynsamur
má: naga
(sjá Grímnismál 34 og 35)
Framhaldsskóli.is 28
Ófnir og Sváfnir hygg ég að æ muni meiðs kvistum má. Enn er það sagt að nornir þær er byggja við Urðarbrunn taka hvern dag vatn í brunninum og með aurinn þann er liggur um brunninn og ausa upp yfir askinn til þess að eigi skuli limar hans tréna eða fúna. En það vatn er svo heilagt að allir hlutir þeir sem þar koma í brunninn verða svo hvítir sem hinna sú er skjall heitir er innan liggur við eggskurn, svo sem hér segir: Ask veit ég ausinn heitir Yggdrasill, hár baðmur, heilagur, hvíta auri, þaðan koma döggvar er í dali falla. Stendur hann æ yfir grænn Urðarbrunni. Sú dögg er þaðan af fellur á jörðina, það kalla menn hunangfall, og þar af fæðast býflugur. Fuglar tveir fæðast í Urðarbrunni, þeir heita svanir, og af þeim fuglum hefur komið það fuglakyn er svo heitir.“ hinna: himna fæðast (hér): nærast Spurningar
1. Hvar situr Veðurfölnir? 2. Hvað hefst íkorninn Ratatoskur að? 3. Hvað heita hirtirnir sem hafast við í limum asksins Yggdrasils? 4. Hvað gera nornir þær er byggja við Urðarbrunn á hverjum degi? 5. Hvað er hunangfall? 6. Hvaða fuglakyn má rekja til Urðarbrunns?
Hugleiðingar
Ástandið er heldur drungalegt í askinum: rógur og illmælgi ráða ríkjum. En jafnframt er eins og ýmislegt sé gert til að bæta ástandið og fyrirbyggja skaða, sbr. hvíta aurinn. Hvíti liturinn birtist líka í svönunum á Urðarbrunni. Nú hefur askinum og umhverfi hans verið lýst. Gaman væri að fá nemendur til að myndgera það sem sagt er um hann. Einnig mætti leita að myndum listamanna sem hafa spreytt sig á verkefninu.
Framhaldsskóli.is 29
17. kafli
Þá mælti Gangleri: „Mikil tíðindi kanntu að segja af himnum. Hvað er þar fleira höfuðstaða en að Urðarbrunni?“
Hár segir: „Margir staðir eru þar göfuglegir. Sá er einn staður þar er kallaður er Álfheimur. Þar byggir fólk það er ljósálfar heita, en dökkálfar búa niðri í jörðu, og eru þeir ólíkir þeim sýnum en miklu ólíkari reyndum. Ljósálfar eru fegri en sól sýnum, en Dökkálfar eru svartari en bik.
Þar er einn sá staður er Breiðablik er kallaður og enginn er þar fegri staður. Þar er og sá er Glitnir heitir, og eru veggir hans og steður og stólpar af rauðu gulli, en þak hans af silfri. Þar er enn sá staður er Himinbjörg heita. Sá stendur á himins enda við brúarsporð, þar er Bifröst kemur til himins. Þar er enn mikill staður er Valaskjálf heitir. Þann stað á Óðinn. Þann gerðu guðin og þöktu skíru silfri, og þar er Hliðskjálfin í þessum sal, það hásæti er svo heitir. Og þá er Alföður situr í því sæti, þá sér hann of allan heim.
Á sunnanverðum himins enda er sá salur er allra er fegurstur og bjartari en sólin, er Gimli heitir. Hann skal standa þá er bæði himinn og jörð hefur farist, og byggja þann stað góðir menn og réttlátir of allar aldir. Svo segir í Völuspá:
Sal veit ég standa sólu fegra gulli betra á Gimlé. Þar skulu dyggvar dróttir byggja og of aldurdaga yndis njóta.“
(Sjá Völuspá, erindi 18)
Gimlé: nafnið virðist merkja „eld-‐hlé“ (Suratlogi hefur þá ekki náð þangað)
dyggvar dróttir: góðir menn
of aldurdaga: ævinlega
Þá mælti Gangleri: „Hvað gætir þess staðar þá er Surtalogi brennir himin og jörð?“
Hár segir: ,,Svo er sagt að annar himinn sé suður og upp frá þessum himni og heitir sá himinn Andlangur, en hinn þriðji himinn sé enn upp frá þeim og heitir sá Víðbláinn, og á þeim himni hyggjum vér þennan stað vera. En ljósálfar einir hyggjum vér að nú byggi þá staði.“
steður: stoðir Spurningar
1. Hvers konar álfar eru til? 2. Útskýrðu eftirfarandi: Breiðablik, Glitnir, Himinbjörg, Valaskjálf, Hliðskjálf,
Gimli, Andlangur og Víðbláinn.
Framhaldsskóli.is 30
Hugleiðingar
Hér væri fróðlegt að rýna í nöfnin og kanna hvernig þau hafa verið notuð, t.d. sem heiti á fyrirtækjum, samkomuhúsum o.s.frv. 18. kafli (Vindurinn) Þá mælti Gangleri: „Hvaðan kemur vindur? Hann er sterkur svo að hann hrærir stór höf, og hann æsir eld. En svo sterkur sem hann er, þá má eigi sjá hann. Því er hann undarlega skapaður.“
Þá segir Hár: „Það kann ég vel að segja þér. Á norðanverðum himins enda situr jötunn sá er Hræsvelgur heitir. Hann hefur arnarham. En er hann beinir flug, þá standa vindar undan vængjum honum. Hér segir svo:
Hræsvelgur heitir er situr á himins enda, jötunn í arnarham; af hans vængjum kveða vind koma alla menn yfir.“
(Vafþrúðnismál, 37. erindi)
Verkefni
1. Hver er Hræsvelgur? 2. Hvernig myndast vindurinn?
19. kafli (Sumar og vetur) Þá mælti Gangleri: „Hví skilur svo mikið að sumar skal vera heitt en vetur kaldur?“
Hár segir: „Eigi myndi svo fróður maður spyrja, því að þetta vita allir að segja. En ef þú ert einn orðinn svo fávís að eigi hefur þetta heyrt, þá vil ég þó það vel virða að heldur spyrjir þú eitt sinn ófróðlega en þú gangir lengur duliður þess er skylt er að vita.
Svásuður heitir sá er faðir Sumars er, og er hann sællífur svo að af hans heiti er það kallað sváslegt er blítt er. En faðir Vetrar er ýmist kallaður Vindlóni eða Vindsvalur. Hann er Vosaðarson, og voru þeir áttungar grimmir og svalbrjóstaðir, og hefur Vetur þeirra skaplyndi.“
duliður: dulinn; ganga dulinn einhvers: vera ókunnugt um eitthvað. áttungur: ættingi
Framhaldsskóli.is 31
Spurningar
1. Hvað heitir faðir sumars? 2. Hvað er faðir Vetrar kallaður?
Hugleiðingar
Hér eins og víðar eru náttúruöflin persónugerð; sumar og vetur eru gerð að persónum; sama er að segja um vindinn. Við sjáum hér hvernig Hár (þ.e. Óðinn) hæðist að Ganglera, þessum forvitna og dálítið skoplega gesti. 20. Kafli (Óðinn og Frigg)
Þá mælti Gangleri: „Hverjir eru æsir þeir er mönnum er skylt að trúa á?“
Hár segir: „Tólf eru æsir guðkunnugir.“
Þá mælti Jafnhár: „Eigi eru ásynjurnar óhelgari og eigi mega þær minna.“
Þá mælti Þriðji: „Óðinn er æðstur og elstur ásanna. Hann ræður öllum hlutum, og svo sem önnur goðin eru máttug þá þjóna honum öll svo sem börn föður. En Frigg er kona hans og veit hún örlög manna þótt hún segi eigi spár, svo sem hér er sagt að Óðinn mælti sjálfur við þann ás er Loki heitir:
Ær ertu Loki og örviti, hví né leggst-‐a þú, Loki? Örlög Frigg hygg ég að öll viti, þótt hún sjálfgi segi.
(sjá Lokasennu, 21, 29. og 47. erindi)
leggst-‐a: leggst ekki
þótt hún sjálf-‐gi segi: þótt hún segi þau ekki sjálf
Óðinn heitir Alföður, því að hann er faðir allra goða. Hann heitir og Valföður, því að hans óskasynir eru allir þeir er í val falla. Þeim skipar hann Valhöll og Víngólf, og heita þeir þá einherjar. Hann heitir og Hangaguð og Haftaguð, Farmaguð – og enn hefur hann nefnst á fleiri vega þá er hann var kominn til Geirröðar konungs: Hétum-‐k Grímur og Gangleri, Herjan, Hjálmberi, Þekkur, Þriði, Þuður, Uður, Helblindi, Hár, Saður, Svipall, Sanngetall,
(Sjá Grímnismál 46.–50. erindi) hétum-‐k: ég kallaðist
Framhaldsskóli.is 32
Herteitur, Hnikar, Bileygur, Báleygur, Bölverkur, Fjölnir, Grímnir, Glapsviður, Fjölsviður, Síðhöttur, Síðskeggur, Sigföður, Hnikuður, Alföður, Atríður, Farmatýr, Óski, Ómi, Jafnhár, Biflindi, Göndlir, Hárbarður, Sviður, Sviðrir, Jálkur, Kjalar, Viður, Þrór, Yggur, Þundur, Vakur, Skilvingur, Váfuður, Hroftatýr, Gautur, Veratýr.“ Þá mælti Gangleri: „Geysimörg heiti hafið þér gefið honum! Og það veit trúa mín að þetta mun vera mikill fróðleikur sá er hér kann skyn og dæmi hverjir atburðir hafa orðið sér til hvers þess nafns!“
Þá segir Hár: „Mikil skynsemi er að rifja vandlega það upp. En þó er þér það skjótast að segja að flest heiti hafa verið gefin af þeim atburð að svo margar sem eru greinir tungnanna í veröldinni, þá þykjast allar þjóðir þurfa að breyta nafni hans til sinnar tungu til ákalls og bæna fyrir sjálfum sér. En sumir atburðir til þessara heita hafa gerst í ferðum hans, og er það fært í frásagnir, og muntu eigi mega fróður maður heita ef þú skalt eigi kunna segja frá þeim stórtíðindum.“
sér til hvers: til sérhvers Spurningar
1. Hvað eru goðkunnugir æsir margir? 2. Hvað segir Jafnhár um ásynjurnar? 3. Hvernig lýsir Þriðji sambandi Óðins við hin goðin? 4. Hver er kona Óðins og hvað veit hún? 5. Nefndu tíu af nöfnum Óðins. 6. Hvernig skýrir Hár þessa fjölbreyttu nafngiftir Óðins?
Hugleiðing
Allur þessi nafnafjöldi sýnir með öðru mátt og vinsældir Óðins.
Talan tólf býr greinilega yfir krafti. Sama er að segja um töluna níu. Rifjum upp nokkur dæmi um það!
Framhaldsskóli.is 33
21. kafli (Þór)
Þá mælti Gangleri: „Hver eru nöfn annarra ásanna, eða hvað hafast þeir að, eða hvað hafa þeir gert til frama?“
Hár segir: „Þór er þeirra framast, sá er kallaður er Ásaþór eða Ökuþór. Hann er sterkastur allra guðanna og manna. Hann á þar ríki er Þrúðvangar heita en höll hans heitir Bilskirnir. Í þeim sal eru fimm hundruð gólfa og fjórir tigir. Það er hús mest svo að menn hafa gert. Svo segir í Grímnismálum [24. erindi]:
Fimm hundrað gólfa og um fjórum tugum svo hygg ég Bilskirni með bugum. Ranna þeirra er ég reft vita míns veit ég mest magar.
með bugum: þegar allt er talið
[Ranna ……. magar: Ég veit hús magar (þ.e. sonar) míns mest (þ.e. stærst) þeirra ranna (húsa) er ég vita (þ.e. veit) reft (þ.e. með þaki).]
Þór á hafra tvo er svo heita: Tanngnjóstur og Tanngrisnir, og reið þá er hann ekur, en hafrarnir draga reiðina. Því er hann kallaður Ökuþór. Hann á og þrjá kostgripi. Einn þeirra er hamarinn Mjöllnir er hrímþursar og bergrisar kenna þá er hann kemur á loft, og er það eigi undarlegt. Hann hefur lamið margan haus á feðrum eða frændum þeirra. Annan grip á hann bestan: Megingjarðir. Og er hann spennir þeim um sig, þá vex honum ásmegin hálfu. Hinn þriðja hluta á hann, þann er mikill gripur er í, það eru járnglófar. Þeirra má hann eigi missa við hamarsskaftið. En enginn er svo fróður að telja kunni öll stórvirki hans. En segja kann ég þér svo mörg tíðindi frá honum að dveljast munu stundirnar áður en sagt er allt það er ég veit.“ ásmegin: kraftur reið: kerra, vagn kenna: þekkja Spurningar
1. Hver er næstur ásanna á eftir Óðni og hvaða hæfileikum er hann gæddur? 2. Hvar er ríki Þórs?
Framhaldsskóli.is 34
3. Hvað heitir höll Þórs? 4. Hverjir draga vagn Þórs? 5. Hverjir eru þrír kostgripir Þórs?
Hugleiðing Töfragirpir og töfradýr einkenna bæði goðsögur og ævintýri. Gaman væri að huga að gömlum ævintýri eða goðsögum og rifja upp þá töfragripi og töfradýr sem þar birtust (speglar, egg, epli, alur, kýr o.s.frv.). 22. kafli Þá mælti Gangleri: „Spyrja vil ég tíðinda af fleiri ásunum.“ Hár segir: „Annar son Óðins er Baldur, og er frá honum gott að segja. Hann er bestur og hann lofa allir. Hann er svo fagur álitum og bjartur svo að lýsir af honum, og eitt gras er svo hvítt að jafnað er til Baldurs brár. Það er allra grasa hvítast, og þar eftir máttu marka hans fegurð bæði á hár og á líki. Hann er vitrastur ásanna og fegurst talaður og líknsamastur. En sú náttúra fylgir honum að enginn má haldast dómur hans. Hann býr þar sem heitir Breiðablik. Það er á himni. Í þeim stað má ekki vera óhreint, svo sem hér segir: Breiðablik heita þar er Baldur hefir sér of gerva sali; á því landi er ég liggja veit fæsta feiknstafi.
(Sjá Grímnismál, 12. erindi) feiknstafir: skelfing, skelfingartákn
ekki: ekkert
Spurningar
1. Segið frá Baldri í einni línu og notið efsta stig lýsingarorða!. 2. Hvar bjó Baldur?
Hugleiðing
Engin er regla á undantekninga! Allt virðist gott um Baldur nema eitt: dómar hans haldast ekki. Síðar fregnum við að einungis einn hlutur getur gert honum mein. 23. kafli (Njörður og Skaði)
Hinn þriðji ás er sá er kallaður er Njörður. Hann býr á himni þar sem heitir Nóatún. Hann ræður fyrir göngu vinds og stillir sjá og eld. Á hann skal heita til sæfara og til veiða. Hann er svo auðugur og fésæll að hann má gefa þeim auð landa eða lausafjár er á hann heita til þess. Eigi er Njörður ása ættar. Hann var upp fæddur í Vanaheimum,
Framhaldsskóli.is 35
en vanir gísluðu hann goðunum og tóku í mót að gíslingu þann er Hænir heitir. Hann varð að sætt með goðunum og vönum.
Njörður á þá konu er Skaði heitir, dóttir Þjassa jötuns. Skaði vill hafa bústað þann er átt hafði faðir hennar. Það er á fjöllum nokkrum, þar sem heitir Þrymheimur. En Njörður vill vera nær sæ. Þau sættust á það að þau skyldu vera níu nætur í Þrymheimi en þá aðrar níu að Nóatúnum. En er Njörður kom aftur til Nóatúna af fjallinu, þá kvað hann þetta:
Leið erum-‐k fjöll Var-‐k-‐a ég lengi á, nætur einar níu: úlfa þytur mér þótti illur vera hjá söngvi svana. erum-‐k: eru mér var-‐k-‐a: ég var ekki þytur: væl Þá kvað Skaði þetta: Sofa ég né máttigak sævar beðjum á fugls jarmi fyrir: sá mig vekur er af víði kemur morgun hverjan már.
mátta-‐k: mátti ég (gat ég) víðir: sjór
Þá fór Skaði upp á fjallið og byggði í Þrymheimi, og fer hún mjög á skíðum og með boga og skýtur dýr. Hún heitir Öndurguð eða Öndurdís. Svo er sagt: Þrymheimur heitir er Þjassi bjó, sá hinn ámáttki jötunn, en nú Skaði byggir skír brúður guða fornar tóttir föður.
(Sjá Grímnsimál, erindi 11)
ámáttkur: sterkur og fjandsamlegur
skír: bjartur
Spurningar
1. Hvar býr Njörður? 2. Hver eru sérsvið Njarðar? 3. Að hvaða leyti er Njörður frábrugðinn ásum? 4. Hver er kona Njarðar? 5. Hvaða ágreiningur kom upp hjá Nirði og konu hans og hvernig leystu þau hann?
Framhaldsskóli.is 36
Hugleiðingar
Í kaflanum er vikið að deilum ása og vana. Njörður, Freyr og Freyja voru vana ættar. Vanir og æsir áttu í deilum eins og m.a. er greint frá í Völuspá (24. erindi) en sættir urðu eins og fram kemur hér. 24. kafli (Freyr og Freyja)
Njörður í Nóatúnum gat síðan tvö börn. Hét sonur Freyr en dóttir Freyja. Þau voru fögur álitum og máttug. Freyr er hinn ágætasti af ásum. Hann ræður fyrir regni og skini sólar, og þar með ávexti jarðar, og á hann er gott að heita til árs og friðar. Hann ræður og fésælu manna. En Freyja er ágætust af ásynjum. Hún á þann bæ á himni er Fólkvangur heitir, og hvar sem hún ríður til vígs, þá á hún hálfan val, en hálfan Óðinn, svo sem hér segir:
Fólkvangur heitir en þar Freyja ræður sessa kostum í sal. Hálfan val hún kýs á hverjan dag, en hálfan Óðinn á.
(Sjá Grímnismál, 14. erindi)
ræður sessa kostum: ræður hvernig menn skulu sitja
Salur hennar, Sessrúmnir, hann er mikill og fagur. En er hún fer þá ekur hún köttum tveim og situr í reið. Hún er nákvæmust mönnum til á að heita, og af hennar nafni er það tignarnafn er ríkiskonur eru kallaðar fróvur. Henni líkaði vel mansöngur. Á hana er gott að heita til ásta.“
reið: vagn nákvæmur (hér): nákominn, náinn mansöngur: ástarkvæði Verkefni
1. Hver eru börn Njarðar? 2. Hverju ræður Freyr fyrir? 3. Hvaða bæ á himni á Freyja? 4. Hvað á Freyja á móti Óðni?
Hugleiðing
Tiltekin dýr fylgja gjarnan tilteknum goðmögnum. Kettir tengjast Freyju, hafrar Þór, hrafnar Óðni o.s.frv. Þessi dýr hafa þá líklega verið tignuð á þeim stöðum þar sem viðkomandi goð var í hávegum haft.
Framhaldsskóli.is 37
25. kafli (Týr)
Þá mælti Gangleri: „Miklir þykja mér þessir fyrir sér æsirnir og eigi er undarlegt að mikill kraftur fylgi yður er þér skuluð kunna skyn goðanna og vita hvert biðja skal hverrar bænarinnar. Eða eru fleiri enn goðin?“
Hár segir: „Sá er enn ás er Týr heitir. Hann er djarfastur og best hugaður, og hann ræður mjög sigri í orustum. Á hann er gott að heita hreystimönnum. Það er orðtak að sá er týhraustur er umfram er aðra menn og ekki sést fyrir. Hann var vitur svo að það er mælt að sá er týspakur er vitur er. Það er eitt mark um djarfleik hans, þá er æsir lokkuðu Fenrisúlf til þess að leggja fjöturinn á hann, Gleipni, þá trúði hann þeim eigi að þeir myndu leysa hann fyrr en þeir lögðu honum að veði hönd Týs í munn úlfsins. En þá er æsir vildu eigi leysa hann þá beit hann höndina af þar er nú heitir úlfliður, og er hann einhendur og ekki kallaður sættir manna.
Spurningar
1. Hvaða eiginleikum býr Týr yfir? 2. Hvaða atburður sýnir vel djarfleik Týs?
Hugleiðingar
Hinn hrausti Týr fórnar hendi sinni; hin víðsýni Óðinn fórnar auga; Heimdallur sem heyrði jafnvel grasið spretta virðist fórna hlust sinni.
26. kafli (Bragi og Iðunn)
Bragi heitir einn. Hann er ágætur að speki og mest að málsnilld og orðfimi. Hann kann mest af skáldskap, og af honum er bragur kallaður skáldskapur, og af hans nafni er sá kallaður bragur karla eða kvenna er orðsnilld hefur framar en aðrir, kona eða karlmaður. Kona hans er Iðunn. Hún varðveitir í eski sínu epli þau er goðin skulu á bíta þá er þau eldast, og verða þá allir ungir, og svo mun vera allt til ragnarökkurs.“
Þá mælti Gangleri: „Allmikið þykir mér goðin eiga undir gæslu eða trúnaði Iðunnar.“
Þá mælti Hár og hló við: „Nær lagði það ófæru einu sinni. Kunna mun ég þar af að segja, en þú skalt nú fyrst heyra nöfn ásanna fleiri.
eski: askja ragnarökkur: heimsendir (sennilega er eðlilegra að tala um ragnarök (þannig í Völuspá): örlög goðanna) Verkefni
1. Hvaða eiginleikum býr Bragi yfir? 2. Hvernig tengist Bragi skáldskap? 3. Hver er kona Braga? 4. Hvað varðveitir Iðunn í eski sínu?
Framhaldsskóli.is 38
Hugleiðing Við gætum þess að rugla ekki saman goði skáldskaparins, Braga, og Braga gamla Boddasyni, norska dróttkvæðaskáldinu frá 9. öld. Alla dreymir um eilífa æsku. Goðin eru gjarnan hafin yfir lögmál lífs og náttúru; þau lýsa gjarnan þeim heimi sem mennirnir vildu vera þátttakendur í. En skuggi dauðans vofir einnig yfir goðunum, sbr. það að hér er minnst á ragnarökkur (heimsendi).
27. kafli (Heimdallur)
Heimdallur heitir einn. Hann er kallaður hvíti ás. Hann er mikill og heilagur. Hann báru að syni meyjar níu og allar systur. Hann heitir og Hallinskíði og Gullintanni, tennur hans voru af gulli. Hestur hans heitir Gulltoppur. Hann býr þar er heitir Himinbjörg við Bifröst. Hann er vörður goða og situr þar við himins enda að gæta brúarinnar fyrir bergrisum. Þarf hann minni svefn en fugl. Hann sér jafnt nótt sem dag hundrað rasta frá sér. Hann heyrir og það er gras vex á jörðu eða ull á sauðum og allt það er hærra lætur. Hann hefur lúður þann er Gjallarhorn heitir, og heyrir blástur hans í alla heima. Heimdallar sverð er kallað höfuð. Hér er svo sagt:
Himinbjörg heita, en þar Heimdall kveða valda véum; þar vörður goða drekkur í væru ranni glaður hinn góða mjöð.
(sjá Grímnismál, 13. erindi)
valda véum: ráða heilögum stað
rann: hús
Og enn segir hann sjálfur í Heimdallargaldri:
Níu em ég mæðra mögur, níu em ég systra sonur. Heimdallar sverð er kallað höfuð: höfuð er kallað „sverð Heimdallar“ (kenning) Spurningar
1. Hvaða viðurnefni er tengt Heimdalli? Hvaða tvö önnur nöfn á hann sér? 2. 2. Hvað er sérstakt við móðerni Heimdallar? 3. 3. Hvað kallast hestur Heimdallar? 4. 4. Hvar býr Heimdallur? 5. Hvert er helsta hlutverk Heimdallar? 6. Yfir hvaða eiginleikum býr Heimdallur?
Hugleiðingar Enn er talað um yfirnáttúrlega hæfileika; eflaust hefur alla menn einhvern tíma dreymt um að geta það sem Heimdallur getur, en slíkt er aðeins ætlað goðum.
Framhaldsskóli.is 39
28. kafli (Höður)
Höður heitir einn ásinn. Hann er blindur. Ærið er hann styrkur, en vilja myndu goðin að þennan ás þyrfti eigi að nefna, því að hans handaverk munu lengi vera höfð að minnum með goðum og mönnum. Spurningar
1. Hvernig er Höður frábrugðinn hinum ásunum? 2. Af hverju vilja goðin helst ekki nefna Höð?
Hugleiðingar
Sagan um mistilteininn og dauða Baldurs er ein allara þekktasta goðsaga frá norðurslóðum. Hún verður rakin síðar. 29. kafli (Víðar)
Víðar heitir einn, hinn þögli ás. Hann hefur skó þjökkvan. Hann er sterkur næst því sem Þór er. Af honum hafa goðin mikið traust í allar þrautir. þjökkur (þf. þjökkvan): þykkur Spurning
Hvað einkennir Víðar? Hugleiðingar
Víðar kemur við sögu í ragnarökum eins og síðar mun greint: hann gengur af Fenrisúlfi dauðum, hvorki meira né minna. 30. kafli (Áli/Váli)
Áli eða Váli heitir einn, sonur Óðins og Rindar. Hann er djarfur í orustum og mjög happskeytur. happskeytur: hittinn Spurningar
1. Hver er móðir Ála/Vála? 2. Geturðu nefnt þrjár konur sem Óðinn eignaðist börn með?
Framhaldsskóli.is 40
31. kafli (Ullur)
Ullur heitir einn, sonur Sifjar, stjúpsonur Þórs. Hann er bogmaður svo góður og skíðfær svo að enginn má við hann keppast. Hann er fagur álitum og hefur hermanns atgervi. Á hann er og gott að heita í einvígi. Spurningar
1. Hvers son er Ullur? 2. Hvaða hæfileikum býr hann yfir? 3. Hvenær er gott að heita á Ull?
Hugleiðing
Til mun vera félag gönguskíðamanna og heitir það Ullur, eitt af fjölmörgum dæmum um að leitað sé á vit goðafræðinnar og Snorra-‐Eddu um nafngiftir. Reynum að rifja upp svo sem tíu slíkar nafngiftir. (Dæmi: Breiðablik, Valaskjálf, Skinfaxi.) 32. kafli (Forseti)
Forseti heitir sonur Baldurs og Nönnu Nepsdóttur. Hann á þann sal á himni er Glitnir heitir. En allir er til hans koma með sakarvandræði, þá fara allir sáttir á braut. Sá er dómstaður bestur með guðum og mönnum. Svo segir hér: Glitnir heitir salur, hann er gulli studdur og silfri þaktur hið sama; en þar Forseti byggir flestan dag og svæfir allar sakar.
(sjá Grímnismál, 15. erindi) gulli studdur: með stoðir úr gulli hið sama: sömuleiðis sakar: sakir
Spurningar
1. Hvaða sal á himni á Forseti? 2. Hverjir leita helst til Forseta?
Hugleiðing
Rifja má upp að Baldur, faðir Forseta, kvað einnig upp dóma, en dómar hans stóðust ekki. Forseti virðist farsælli dómari eða mannasættir; að þessu leyti er hann föðurbetrungur.
Framhaldsskóli.is 41
33. kafli (Loki)
Sá er enn taldur með ásum er sumir kalla rógbera ásanna og frumkveða flærðanna og vömm allra goða og manna. Sá er nefndur Loki eða Loftur, sonur Fárbauta jötuns. Móðir hans er Laufey eða Nál, bræður hans eru þeir Býleistur og Heldblindi. Loki er fríður og fagur sýnum, illur í skaplyndi, mjög fjölbreytinn að háttum. Hann hafði þá speki umfram aðra menn er slægð heitir og vélar til allra hluta. Hann kom ásum jafnan í fullt vandræði, og oft leysti hann þá með vélræðum. Kona hans heitir Sigyn, sonur þeirra Nari eða Narfi. frumkveði flærðanna: upphafsmaður svikanna vél: brögð, vélabrögð, svik Spurningar
1. Fyrir hvaða eiginleika er Loki helst kunnur? 2. Hverra manna var Loki? 3. Hvaða speki hafði Loki helst umfram aðra menn? 4. Hvað hét kona Loka? 5. Hvað hét sonur Loka og Sigynjar?
Hugleiðing
Í Loka er eins og sjálf illskan og flærðin sé persónugerð. Margar goðsagnanna greina frá einstökum illvirkjum hans eins og síðar kemur fram. En eins og hér sést bætir Loki gjarnan fyrir pretti sína. Þekkjum við slíka persónuleika í samtímanum? 34. kafli (Fenrisúlfur, Miðgarðsormur, Hel)
Enn átti Loki fleiri börn. Angurboða heitir gýgur í Jötunheimum. Við henni gat Loki þrjú börn. Eitt var Fenrisúlfur, annað Jörmungandur, það er Miðgarðsormur, þriðja er Hel.
En er goðin vissu til þess að þessi þrjú systkin fæddust upp í Jötunheimum og goðin röktu til spádóma að af systkinum þessum myndi þeim mikið mein og óhapp standa og þótti öllum mikils ills af væni, fyrst af móðerni og enn verra af faðerni, þá sendi Alföður til goðin að taka börnin og færa sér. Og er þau komu til hans, þá kastaði hann orminum í hinn djúpa sæ er liggur um öll lönd, og óx sá ormur svo að hann liggur í miðju hafinu of öll lönd og bítur í sporð sér. Hel kastaði hann í Niflheim og gaf henni vald yfir níu heimum, að hún skipti öllum vistum með þeim er til hennar voru sendir, það eru sóttdauðir menn og ellidauðir. Hún á þar mikla bólstaði og eru garðar hennar forkunnar háir og grindur stórar. Éljúðnir heitir salur hennar, Hungur diskur hennar, Sultur knífur hennar, Ganglati þrællinn, Ganglöt ambátt, Fallandaforað þreskuldur hennar er inn gengur, Kör sæng, Blíkjandaböl ársali hennar. Hún er blá hálf en hálf með hörundar lit. Því er hún auðkennd og heldur gnúpleit og grimmleg.
Framhaldsskóli.is 42
Úlfinn fæddu æsir heima og hafði Týr einn djarfleik til að ganga að úlfinum og gefa honum mat. En er guðin sáu hversu mikið hann óx hvern dag, og allar spár sögðu að hann myndi vera lagður til skaða þeim, þá fengu æsir það ráð að þeir gerðu fjötur allsterkan er þeir kölluðu Læðing, og báru hann til úlfsins og báðu hann reyna afl sitt við fjöturinn. En úlfinum þótti sér það ekki ofurefli og lét þá fara með sem þeir vildu. Hið fyrsta sinn er úlfurinn spyrnti við brotnaði sá fjötur. Svo leystist hann úr Læðingi.
Því næst gerðu æsirnar annan fjötur hálfu sterkari er þeir kölluðu Dróma, og báðu enn úlfinn reyna þann fjötur og töldu hann verða myndu ágætan mjög að afli ef slík stórsmíð mætti eigi halda honum. En úlfurinn hugsaði að þessi fjötur var sterkur mjög og það með að honum hafði afl vaxið síðan er hann braut Læðing. Kom það í hug að hann myndi verða að leggja sig í hættu ef hann skyldi frægur verða, og lét leggja á sig fjöturinn. Og er æsir töldust búnir, þá hristi úlfurinn sig og laust fjötrinum á jörðina og knúði fast að, spyrnti við, braut fjöturinn svo að fjarri flugu brotin. Svo drap hann sig úr Dróma. Það er síðan haft fyrir orðtak að „leysi úr Læðingi“ eða „drepi úr Dróma“ þá er einhver hlutur er ákaflega sóttur.
Eftir það óttuðust æsirnar að þeir myndu eigi fá bundið úlfinn. Þá sendi Alföður þann er Skírnir er nefndur, sendimaður Freys, ofan í Svartálfaheim til dverga nokkurra og lét gera fjötur þann er Gleipnir heitir. Hann var gjör af sex hlutum: Af dyn kattarins og af skeggi konunnar og af rótum bjargsins og af sinum bjarnarins og af anda fisksins og af fugls hráka. Og þóttú vitir eigi áður þessi tíðindi, þá máttu nú finna skjótt hér sönn dæmi að eigi er logið að þér: Séð munt þú hafa að konan hefur ekki skegg, og enginn dynur verður af hlaupi kattarins, og eigi eru rætur undir bjarginu. Og það veit trúa mín að jafnsatt er það allt er ég hef sagt þér, þótt þeir séu sumir hlutir er þú mátt eigi reyna.“
Þá mælti Gangleri: „Þetta má ég að vísu skilja að satt er. Þessa hluti má ég sjá er þú hefur nú til dæma tekið. En hvernig varð fjöturinn smíðaður?“
Hár segir: „Það kann ég þér vel segja. Fjöturinn varð sléttur og blautur sem silkiræma en svo traustur og sterkur sem nú skaltu heyra.
Þá er fjöturinn var færður ásunum þökkuðu þeir vel sendimanni sitt erindi. Þá fóru æsirnir út í vatn það er Ámsvartnir heitir, í hólm þann er Lyngvi er kallaður, og kölluðu með sér úlfinn, sýndu honum silkibandið og báðu hann slíta og kváðu vera nokkru traustara en líkindi þættu á fyrir digurleiks sakir, og seldi hver öðrum og treysti með handaafli, og slitnaði eigi. En þó kváðu þeir úlfinn slíta myndu.
Þá svarar úlfurinn: „Svo líst mér á þennan dregil sem enga frægð muni ég af hljóta þótt eg slíti í sundur svo mjótt band. En ef það er gjört með list og vél, þótt það sýnist lítið, þá kemur það band eigi á mína fætur.“
Þá sögðu æsirnir að hann mundi skjótt sundur slíta mjótt silkiband er hann hafði fyrr brotið stóra járnfjötra. „En ef þú færð eigi þetta band slitið, þá muntu ekki hræða mega goðin, enda skulum vér þá leysa þig.“
Framhaldsskóli.is 43
Úlfurinn segir: „Ef þér bindið mig svo að ég fæ eigi leyst mig, þá skollið þér svo að mér mun seint verða að taka af yður hjálp. Ófús er ég að láta þetta band á mig leggja. En heldur en þér frýið mér hugar, þá leggi einhver yðar hönd sína í munn mér að veði að þetta sé falslaust gert.“
En hver ásanna sá til annars og þótti nú vera tvö vandræði, og vildi enginn sína hönd fram selja fyrr en Týr lét fram hönd sína hægri og leggur í munn úlfinum. En er úlfurinn spyrnir, þá harðnaði bandið, og því harðar er hann braust um því skarpara var bandið. Þá hlógu allir nema Týr. Hann lét hönd sína.
Þá er æsirnir sáu að úlfurinn var bundinn að fullu, þá tóku þeir festina er úr var fjötrinum, er Gelgja hét, og drógu hana gegnum hellu mikla, sú heitir Gjöll, og festu helluna langt í jörð niður. Þá tóku þeir mikinn stein og skutu enn lengra í jörðina. Sá heitir Þviti, og höfðu þann stein fyrir festarhælinn.
Úlfurinn gapti ákaflega og fékkst um mjög og vildi bíta þá. Þeir skutu í munn honum sverði nokkru. Nema hjöltin við neðri gómi en efri gómi blóðrefill. Það er gómsparri hans. Hann grenjar illilega og slefa rennur úr munni hans. Það er sú á er Von heitir. Þar liggur hann til ragnarökkurs.“
Þá mælti Gangleri: „Furðu illa barneign gat Loki. En öll þessi systkin eru mikil fyrir sér. En fyrir hví drápu æsir eigi úlfinn er þeim er ills von af honum?“
Hár svarar: „Svo mikils virtu goðin vé sín og griðastaði að eigi vildu þau saurga þá með blóði úlfsins, þótt svo segi spárnar að hann muni verða að bana Óðni.“
gýgur: tröllkona væni: von ársali: lokrekkjutjöld gnúpleitur: álútur, þungbúinn allsterkur: mjög sterkur þóttú: þótt þú
blautur: mjúkur skolla: hlæja, sbr. hlátrasköll skarpur: harður blóðrefill: sverðsoddur gómsparri: ginkefli vé: heilagur staður, griðastaður
Spurningar
1. Hver var Angurboða? 2. Hver voru afkvæmi Loka og Angurboðu? 3. Hvað gerði Óðinn við Miðgarðsorminn? 4. Hvar kom Óðinn Hel fyrir og hvaða vald fékk hann henni? 5. Hvernig lítur Hel út? 6. Hver eru Ganglati og Ganglöt? 7. Hvað nefndust fjötrarnir sem notaðir voru á Fenrisúlfinn? Nefnið tvö orðtök
sem eiga uppruna í þessari sögu. 8. Úr hvaða efnum var Gleipnir? 9. Hvert fóru æsirnir með Fenrisúlfinn er hann var fjötraður?
Framhaldsskóli.is 44
Hugleiðing
Þetta er einn magnaðasti kaflinn í Snorra-‐Eddu. Nöfnin á persónum og hlutum í kringum Hel eru ógnvekjandi og fela í sér hugnur og böl. Síðan kemur frásögnin um fjötra Fenrisúlfs. Við skynjum ógnina sem af úlfinum stafar, og tortryggina á báða bóga. Týr birtist hér sem hin áræðna hetja en fær hlátur að launum fyrir björgunarstarf sitt. Rétt eins og hinn sjáandi Óðinn missir auga, missir hinn hrausti Týr aðra hönd sína. Sögunni af hendi Týs er m.a. ætlað að skýra nafið úlflið. En líta verður á það sem alþýðuskýringu því að sennilega er upphaflega orðið únliður, skylt orðinu alin (mælieining: frá úlnlið að olnboga).
Þrátt fyrir hina miklu ógn vilja æsir ekki drepa úlfinn vegna þess að þau vildu ekki saurga griðastað sinn (vé) með blóði. En augljóst er að goðin sviku loforð sitt.
35. kafli (Ásynjur)
Þá mælti Gangleri: „Hverjar eru ásynjurnar?“
Hár segir: „Frigg er æðst. Hún á þann bæ er Fensalir heita og er hann allveglegur.
Önnur er Sága. Hún býr á Sökkvabekk og er það mikill staður.
Þriðja er Eir. Hún er læknir bestur.
Fjórða er Gefjun. Hún er mær og henni þjóna þær er meyjar andast.
Fimmta er Fulla. Hún er enn mær og fer laushár og gullband um höfuð. Hún ber eski Friggjar og gætir skóklæða hennar og veit launráð með henni.
Freyja er tignust með Frigg. Hún giftist þeim manni er Óður heitir. Dóttir þeirra heitir Hnoss. Hún er svo fögur að af hennar nafni eru hnossir kallaðar það er fagurt er og gersemlegt. Óður fór í braut langar leiðir, en Freyja grætur eftir, en tár hennar er gull rautt. Freyja á mörg nöfn, en sú er sök til þess að hún gaf sér ýmis heiti er hún fór með ókunnum þjóðum að leita Óðs. Hún heitir Mardöll og Hörn, Gefn, Sýr. Freyja átti brísingamen. Hún er kölluð Vanadís.
Sjöunda Sjöfn. Hún gætir mjög til að snúa hugum manna til ásta, kvenna og karla. Af hennar nafni er elskhuginn kallaður sjafni.
Áttunda Lofn. Hún er svo mild og góð til áheita að hún fær leyfi af Alföður eða Frigg til manna samgangs, kvenna og karla, þótt áður sé bannað eða þvertekið. Fyrir því er af hennar nafni lof kallað, og svo það er lofað er mjög af mönnum.
Níunda Vár. Hún hlýðir á eiða manna og einkamál er veita sín á milli konur og karlar. Því heita þau mál várar. Hún hefnir og þeim er brigða.
Tíunda Vör. Hún er vitur og spurul svo að engan hlut má hana leyna. Það er orðtak að kona verði vör þess er hún verður vís.
Framhaldsskóli.is 45
Ellefta Syn. Hún gætir dura í höllinni og lýkur fyrir þeim er eigi skulu inn ganga og hún er sett til varnar á þingum fyrir þau mál er hún vill ósanna. Því er það orðtak að syn sé fyrir sett þá er maður neitar.
Tólfta Hlín. Hún er sett til gæslu yfir þeim mönnum er Frigg vill forða við háska nokkrum. Þaðan af er það orðtak að sá er forðast hleinir.
Þrettánda Snotra. Hún er vitur og látprúð. Af hennar heiti er kallað snotur kona eða karlmaður sá er hóflátur er.
Fjórtánda Gná. Hana sendir Frigg í ýmsa heima að erindum sínum. Hún á þann hest, er rennur loft og lög, er heitir Hófvarpnir. Það var eitt sinn er hún reið að vanir nokkrir sá reið hennar í loftinu. Þá mælti einn:
„Hvað er þar flýgur? Hvað þar fer eða að lofti líður?“ Hún svarar: „Né eg flýg, þó eg fer og að lofti líð-‐k á Hófvarpni þeim er Hamskerpir gat við Garðrofu.“
né eg flýg: ég flýg ekki líð-‐k: ég líð (svíf)
Af Gnár nafni er svo kallað að það gnæfir er hátt fer. Sól og Bil eru taldar með ásynjum, en sagt er fyrr frá eðli þeirra. eski: askja launráð: leynilegt ráðabrugg brísingamen: skrautmen, smíðað af dvergum brigða: svíkja (sbr. bregða loforði) Spurningar
1. Hvað eru margar ásynjur nefndar í kaflanum? 2. Hver er æðst ásynjanna? 3. Hver ásynjanna er bestur læknir? 4. Hvað hét maður Freyju og dóttir þeirra?
Framhaldsskóli.is 46
5. Freyja á mörg nöfn. Hvernig stendur á því? 6. Freyja er kölluð Vanadís. Hvers vegna? 7. Hvaða skilningur og/eða merking er dregin af nafni Lofnar? 8. Hvað og hver er Hófvarpnir? 9. Hvaða eiginleikum býr Vör yfir?
Hugleiðingar Hér eru nöfn gyðjanna gjarnan tengd ákveðnum eiginleikum. Vel mætti spyrja sig: Hvort kemur á undan, nafn gyðjunnar eða heitið á eiginleikanum?! Í kvenkenningum skáldanna er iðulega gripið til gyðjunafna; þannig eru t.d. auðar Gná og silki Hlín kenningar fyrir konu.
Skemmtilegt er að staldra við falleg orð í Snorra-‐Eddu, sbr. lýsingarorðin látprúð og hóflátur. Orðið snotur hefur aðra merkingu í fornmáli (vitur) en yfirleitt í nútímamáli (laglegur).
36. Kafli (Valkyrjur)
Enn eru þær aðrar er þjóna skulu í Valhöll, bera drykkju og gæta borðbúnaðar og ölgagna. Svo eru þær nefndar í Grímnismálum (erindi 36): Hrist og Mist vil eg að mér horn beri, Skeggjöld og Skögul, Hildur og Þrúður, Hlökk og Herfjötur, Göll og Geirahöð, Randgríð og Ráðgríð, og Reginleif. Þær bera einherjum öl. Þessar heita valkyrjur. Þær sendir Óðinn til hverrar orustu. Þær kjósa feigð á menn og ráða sigri. Gunnur og Rota og norn hin yngsta er Skuld heitir ríða jafnan að kjósa val og ráða vígum.
Jörð, móðir Þórs, og Rindur, móðir Vála, eru taldar með ásynjum.
Spurningar
1. Hver eru hlutverk valkyrja? 2. Nefnið nokkrar valkyrjur. 3. Með hverjum eru Jörð og Rindur taldar?
Framhaldsskóli.is 47
Hugleiðingar
Valkyrjur kjósa val (sbr. orðið valkyrja, skylt kjör/ kjörinn), þ.e. þær ákveða hvaða menn eigi að liggja í valnum og fara síðan til Óðins. Þær völdu gjarnan hraustustu mennina því að Óðinn (Valföður) þurfti gott lið til að undirbúa síðustu orustuna! En einherjar (svo nefndust þeir sem féllu í orustu) lifðu greinilega góðu lífi í Valhöll (létu þjóna sér til borðs eftir að hafa barist á daginn). Þess vegna má halda því fram að það hafi verið eftirsóknarverðara að falla í orustu en deyja ellidauða eða á sóttarsæng og fara til Heljar. Hernaðarandi er yfir þjóðum sem þannig hugsa.
37. kafli (Freyr og Gerður)
Gymir hét maður en kona hans Aurboða. Hún var bergrisaættar. Dóttir þeirra er Gerður, er allra kvenna er fegurst. Það var einn dag er Freyr hafði gengið í Hliðskjálf og sá of heima alla. En er hann leit í norðurætt, þá sá hann á einum bæ mikið hús og fagurt, og til þess húss gekk kona, og er hún tók upp höndum og lauk hurð fyrir sér þá lýsti af höndum hennar bæði í loft og á lög, og allir heimar birtust af henni. Og svo hefndi honum það mikla mikillæti er hann hafði sest í það helga sæti að hann gekk í braut fullur af harmi. Og er hann kom heim mælti hann ekki, hvorki svaf hann né drakk. Enginn þorði og krefja hann orða.
Þá lét Njörður kalla til sín Skírni, skósvein Freys, og bað hann ganga til Freys og beiða hann orða og spyrja hverjum hann væri svo reiður að hann mælti ekki við menn. En Skírnir kvaðst ganga myndu, og eigi fús, og kvað illra svara vera von af honum. En er hann kom til Freys, þá spurði hann hví Freyr var svo hnipinn og mælti ekki við menn. Þá svarar Freyr og sagði að hann hafði séð konu fagra, og fyrir hennar sakir var hann svo harmsfullur að eigi myndi hann lengi lifa ef hann skyldi eigi ná henni. „Og nú skaltu fara og biðja hennar mér til handa og hafa hana heim hingað hvort er faðir hennar vill eða eigi, og skal ég það vel launa þér.“
Þá svarar Skírnir, sagði svo að hann skal fara sendiferð en Freyr skal fá honum sverð sitt. Það var svo gott sverð að sjálft vóst. En Freyr lét eigi það til skorta og gaf honum sverðið.
Þá fór Skírnir og bað honum konunnar og fékk heit hennar, og níu nóttum síðar skyldi hún þar koma er Barrey heitir og ganga þá að brullaupinu með Frey. En er Skírnir sagði Frey sitt erindi, þá kvað hann þetta:
„Löng er nótt, löng er önnur, hve mega ég þreyja þrjár? Oft mér mánaður minni þótti en sjá hálf hýnótt.“
(Sjá Skírnismál, erindi 42)
mega: má (get)
sjá: þessi
hýnótt: nótt eða nætur þegar maður bíður eftir konu sinni til hjúskapar
Framhaldsskóli.is 48
Þessi sök er til er Freyr var svo vopnlaus er hann barðist við Belja og drap hann með hjartarhorni.“
Þá mælti Gangleri: „Undur mikið er þvílíkur höfðingi sem Freyr er vildi gefa sverð svo að hann átti eigi annað jafngott. Geysimikið mein var honum það þá er hann barðist við þann er Belji heitir. Það veit trúa mín að þeirrar gjafar mundi hann þá iðrast.“
Þá svarar Hár: „Lítið mark var þá að er þeir Belji hittust. Drepa mátti Freyr hann með hendi sinni. Verða mun það er Frey mun þykja verr við koma er hann missir sverðsins þá er Múspellssynir fara og herja.“
mikillæti: stærilæti, yfirlæti vóst (af vegast): barðist (sverðið barðist sjálft) Spurningar
1. Af hverju varð Freyr fullur af harmi er hann sá Gerði? 2. Hvað bað Freyr Skírni að gera fyrir sig? 3. Hverrar greiðslu krafðist Skírnir fyrir greiðann? 4. Hverrar náttúru var sverð Freys? 5. Hár sagði að Freyr ætti eftir að sakna sverðsins. Hvenær yrði það 6. Upprifjun: Hver sýndi mikillæti þegar hann gaf börnum sínum nöfn? (Sjá 11.
kafla). Hugleiðing
Hinni frægu ástarsögu af Gerði og Frey er nánar lýst í Skírnismálum. Þar kemur fram að Skírnir þurfti að beita miklum hótunum og bolabrögðum til að ná Gerði á vald sitt.
Sagan af Gerði er af mörgum talið lýsa helgileik eða athöfn þar sem reynt er að vekja frjómagn jarðar (Gerðar) úr viðjum vetrarins með krafti Freys (frjósemisguðsins) og kynngi Skírnis sem gæti táknað skin sólar (Skírnir: sá sem skín).
Þetta er líka saga um það hve miklu menn eru reiðubúnir að fórna fyrir ástina: Frey mun að lokum hefnast fyrir að hafa látið sverð sitt af hendi. Þá mætti kalla þetta sögu um vináttu: Skírnir leggur á sig hættulega ferð til að þóknast vini sínum.
Þá má segja að þetta sé saga um mikillæti, e.k. ofmetnað: Freyr leyfir sér að setjast í sæti sjálfs Óðins, og honum hefnist fyrir það að lokum.
38. kafli (Valhöll)
Þá mælti Gangleri: „Það segir þú að allir þeir menn er í orustu hafa fallið frá upphafi heims eru nú komnir til Óðins í Valhöll. Hvað hefur hann að fá þeim að vistum? Ég hugði að þar skyldi vera allmikið fjölmenni.“
Þá svarar Hár: „ Satt er það er þú segir. Allmikið fjölmenni er þar. En miklu fleira skal enn verða, og mun þó of lítið þykja þá er úlfurinn kemur. En aldrei er svo mikill
Framhaldsskóli.is 49
mannfjöldi í Valhöll að eigi má þeim endast flesk galtar þess er Sæhrímnir heitir. Hann er soðinn hvern dag og heill að aftni. En þessi spurning er nú spyr þú þykir mér líkara að fáir muni svo vísir vera að hér kunni satt af að segja. Andhrímnir heitir steikarinn, en Eldhrímnir ketillinn. Svo er hér sagt:
Andhrímnir lætur í Eldhrímni Sæhrímni soðinn, fleska bast, en það fáir vita við hvað einherjar alast.“
(Sjá Grímnismál, 18. erindi)
lætur soðinn: sýður
bast: best
Þá mælti Gangleri: „Hvort hefur Óðinn það sama borðhald sem einherjar?“
Hár segir: „Þá vist er á hans borði stendur gefur hann tveim úlfum er hann á er svo heita: Geri og Freki. Og enga vist þarf hann. Vín er honum bæði drykkur og matur. Svo segir hér:
Gera og Freka seður gunntamiður hróðigur Herjaföður, en við vín eitt vopngöfigur Óðinn æ lifir.
(Sjá Grímnismál, erindi 19)
gunntamiður: taminn eða vanur orustum (gunnur: orusta)
hróðigur: frægur
Hrafnar tveir sitja á öxlum honum og segja í eyru honum öll tíðindi þau er þeir sjá eða heyra. Þeir heita svo: Huginn og Muninn. Þá sendir hann í dagan að fljúga um allan heim og koma þeir aftur að dögurðarmáli. Þar af verður hann margra tíðinda vís. Því kalla menn hann hrafnaguð, svo sem sagt er: Huginn og Muninn fljúga hverjan dag jörmungrund yfir. Óumk eg Hugin að hann aftur né komi, þó sjáumk ég meir um Munin.“
(Sjá Grímnismál, 20. erindi)
jörmungrund: hið mikla land: jörðin
óum-‐k: ég óttast
sjáum-‐k: ég óttast
dagan: dögun dögurðarmál: sá tími þegar dagverður (dögurður) er etinn Spurningar
1. Hverjir voru hjá Óðni í Valhöll? 2. Hverrar náttúru er Sæhrímnir?
Framhaldsskóli.is 50
3. Hver er Andhrímnir og hver Eldhrímnir? 4. Á hverju nærist Óðinn? 5. Hvað heita úlfar Óðins? 6. Hvað heita hrafnar Óðins og hvað segja þeir honum?
Hugleiðingar
Enn mætti tala um draumaástand: að eiga alltaf nóg að éta, þurfa ekki að hafa fyrir því að sjá sér og sínum fyrir nauðþurftum. 39. kafli (Heiðrún og Eikþyrnir)
Þá mælti Gangleri: „Hvað hafa einherjar að drykk, það er þeim endist jafngnóglega sem vistin, eða er þar vatn drukkið?“
Þá segir Hár: „Undarlega spyrðu nú, að Alföður mun bjóða til sín konungum eða jörlum eða öðrum ríkismönnum og muni gefa þeim vatn að drekka! Og það veit trúa mín að margur kemur sá til Valhallar er dýrt myndi þykjast kaupa vatnsdrykkinn ef eigi væri betri fagnaðar þangað að vitja, sá er áður þolir sár og sviða til banans.
Annað kann ég þér þaðan segja. Geit sú er Heiðrún heitir stendur uppi á Valhöll og bítur barr af limum trés þess er mjög er nafnfrægt, er Léraður heitir. En úr spenum hennar rennur mjöður sá er hún fyllir skapker hvern dag. Það er svo mikið að allir einherjar verða fulldrukknir af.“
Þá mælti Gangleri: „Það er þeim geysihagleg geit! Forkunnar góður viður mun það vera er hún bítur af!“
Þá mælti Hár: „Enn er meira mark að of hjörtinn Eikþyrni, er stendur á Valhöll og bítur af limum þess trés, en af hornum hans verður svo mikill dropi að niður kemur í Hvergelmi, en þaðan af falla ár þær er svo heita: Síð, Víð, Sekin, Ekin, Svöl, Gunnþró, Fjörm, Fimbulþul, Gipul, Göpul, Gömul, Geirvimul; þessar falla um ásabyggðir. Þessar eru enn nefndar: Þyn, Vin, Þöll, Höll, Gráð, Gunnþráin, Nyt, Naut, Nönn, Hrönn, Vína, Vegsvinn, Þjóðnuma.“
mjöður (þgf. miði; ef. mjaðar): hunangsvín, soðin og gerjuð blanda hungans og vatns Spurningar
1. Hvað drekka einherjar í Valhöll? 2. Hvað er Léraður?
Hugleiðing
Kostulegar spurningar Ganglera og háði blandin og skopleg svör Háva lyfta frásögninni. Hér bendir Hár á að það sé nú varla þess virði að falla í hernaði upp á þau býti að fá bara vatn eftir dauðann. Með öðrum orðum: hér er látið í það skína að
Framhaldsskóli.is 51
það sé tilhlökkunarefni að deyja á þennan hátt, þ.e. í orustu (áfengir drykkir í boði, fram reiddir af valkyrjum; auk þess fá einherjar að berjast á daginn og rísa upp heilir að kvöldi).
40. Kafli (Valhöll)
Þá mælti Gangleri: „Þetta eru undarleg tíðindi er nú sagðir þú. Geysimikið hús mun Valhöll vera. Allþröngt mun þar oft vera fyrir durum.“
Þá svarar Hár: „Hví spyr þú eigi þess hversu margar dyr eru á Valhöll og hversu stórar? Ef þú heyrir það sagt þá muntu segja að hitt er undarlegt ef eigi má ganga út og inn hver er vill. En það er með sönnu að segja að eigi er þrengra að skipa hana en ganga í hana. Hér máttu heyra í Grímnismálum (erindi 23):
Fimm hundrað dura og of fjórum tögum, svo hygg ég á Valhöllu vera. Átta hundruð einherja ganga senn ór einum durum þá er þeir fara með vitni að vega.“
(Sjá Grímnismál, erindi 23) [Fimm hundruð og fjörutíu dyr hygg ég vera á Valhöll. Átta hundurð einherjar ganga í senn úr hverjum dyrum þegar þeir fara að berjast „með“ [sennilega: við] úlfinum.] vitnir: úlfur
Spurningar
1. Hvað eru margar dyr á Valhöll? 2. Hvaða úlf skyldi vera átt við í vísunni?
Hugleiðing
Fjöldi einherja er greinilega mikill; þar sem talað er um hundrað er væntnalega átt við stór hundruð (120). Þá mætti margfalda 540x800x1,2. En þessi fjöldi dugir samt ekki á móti úlfinum! Merkilegt er að Óðinn, sem allt veit, reynir að koma í veg fyrir það sem þó mun verða (ragnarök). [Svipað mætti segja um Njál og Njálsbrennu, en Njálsbrennu mætti kannski líkja við ragnarök!]
41. kafli (Einherjar)
Þá mælti Gangleri: „Allmikill mannfjöldi er í Valhöll, svo njóti ég trú minnar að allmikill höfðingi er Óðinn er hann stýrir svo miklum her. Eða hvað er skemmtun einherjanna þá er þeir drekka eigi?“
Hár segir: „Hvern dag þá er þeir hafa klæðst, þá hervæða þeir sig og ganga út í garðinn og berjast og fellir hver annan. Það er leikur þeirra. Og er líður að dögurðarmáli, þá ríða þeir heim til Valhallar og setjast til drykkju, svo sem hér segir:
Framhaldsskóli.is 52
Allir einherjar Óðins túnum í höggvast hverjan dag. Val þeir kjósa og ríða vígi frá, sitja meir um sáttir saman.
(Sjá Vafþrúðnimál, erindi 41)
höggvast: höggva hver annan
val þeir kjósa: þeir fella hver annan
meir: eftir það
En satt er það er þú sagðir: Mikill er Óðinn fyrir sér. Mörg dæmi finnast til þess. Svo er hér sagt í orðum sjálfra ásanna: Askur Yggdrasils hann er æðstur viða, en Skíðblaðnir skipa, Óðinn ása, en jóa Sleipnir, Bifröst brúa, En Bragi skálda, Hábrók hauka, en hunda Garmur.“
(Sjá Grímnismál, erindi 44)
svo njóti ég trú minnar: það veit trúa mín Spurningar
1. Við hvað skemmta einherjar sér þegar þeir sitja ekki að drykkju? 2. Hver er æðstur viða? 3. Hvert er æðst skipa? 4. Hver er æðstur skálda? 5. Hver er æðstur hauka? 6. Hver er æðstur hunda?
Hugleiðing
Hér er enn lýst draumalífi hermannsins. Sú trú sem hér virðst liggja að baki (þ.e. að vopndauðir menn fari til veislu í Valhöll) ætti að hafa stuðlað að hermennsku eins og áður er sagt.
Vísan úr Grímnismálum sem Snorri vitnar til gefur okkur hugmynd um það sem æðst er! Gera mætti leik í þessum anda og tengja samtímanum (hvaða bíll/ hvaða leikari o.s.frv.)
Framhaldsskóli.is 53
42. kafli (Sleipnir og Svaðilfari)
Þá mælti Gangleri: „Hver á þann hest Sleipni? Eða hvað er frá honum að segja?“
Hár segir: „Eigi kanntu deili á Sleipni og eigi veistu atburði af hverju hann kom. En það mun þér þykja frásagnar vert.
Það var snemma í öndverða byggð goðanna, þá er goðin höfðu sett Miðgarð og gert Valhöll, þá kom þar smiður nokkur og bauð að gera þeim borg á þrem misserum svo góða að trú og örugg væri fyrir bergrisum og hrímþursum þótt þeir komi inn um Miðgarð. En hann mælti sér það til kaups að hann skyldi eignast Freyju, og hafa vildi hann sól og mána.
Þá gengu æsirnir á tal og réðu ráðum sínum, og var það kaup gert við smiðinn að hann skyldi eignast það er hann mælti til ef hann fengi gert borgina á einum vetri. En hinn fyrsta sumars dag, ef nokkur hlutur væri ógjör að borginni, þá skyldi hann af kaupinu. Skyldi hann af engum manni lið þiggja til verksins. Og er þeir sögðu honum þessa kosti, þá beiddist hann að þeir skyldu lofa að hann hefði lið af hesti sínum er Svaðilfari hét. En því réð Loki er það var til lagt við hann.
Hann tók til hinn fyrsta vetrardag að gera borgina, en of nætur dró hann til grjót á hestinum. En það þótti ásunum mikið undur hversu stór björg sá hestur dró, og hálfu meira þrekvirki gerði hesturinn en smiðurinn. En að kaupi þeirra voru sterk vitni og mörg særi, fyrir því að jötnum þótti ekki tryggt að vera með ásum griðlaust ef Þór kæmi heim, en þá var hann farinn í austurveg að berja tröll.
En er á leið veturinn þá sóttist mjög borgargerðin og var hún svo há og sterk að eigi mátti á það leita. En þá er þrír dagar voru til sumars þá var komið mjög að borghliði.
Þá settust guðin á dómstóla sína og leituðu ráða, og spurði hver annan hver því hefði ráðið að gifta Freyju í Jötunheima eða spilla loftinu og himninum svo að taka þaðan sól og tungl og gefa jötnum. En það kom ásamt með öllum að þessu myndi ráðið hafa sá er flestu illu ræður, Loki Laufeyjarson, og kváðu hann verðan ills dauða ef eigi hitti hann ráð til að smiðurinn væri af kaupinu, og veittu Loka aðgöngu. En er hann varð hræddur þá svarði hann eiða að hann skyldi svo til haga að smiðurinn skyldi af kaupinu, hvað sem hann kostaði til.
Og hið sama kveld er smiðurinn ók út eftir grjótinu með hestinn Svaðilfara þá hljóp úr skógi nokkrum meri að hestinum og hrein við. En er hesturinn kenndi hvað hrossi þetta var þá æddist hann og sleit sundur reipin og hljóp til merarinnar, en hún undan til skógar og smiðurinn eftir og vill taka hestinn. En þessi hross hlaupa alla nótt og dvelst smíðin þá nótt. Og eftir um daginn varð ekki svo smíðað sem fyrr hafði orðið. Og þá er smiðurinn sér að eigi mun lokið verða verkinu þá færist smiðurinn í jötunmóð. En er æsirnir sá það til víss að þar var bergrisi kominn, þá varð eigi þyrmt eiðunum, og kölluðu þeir á Þór og jafnskjótt kom hann. Og því næst fór á loft hamarinn Mjöllnir, galt þá smíðarkaupið og eigi sól og tungl, heldur synjaði hann honum að byggja í Jötunheimum og laust það hið fyrsta högg er hausinn brotnaði í smáan mola og sendi hann niður undir Niflhel.
Framhaldsskóli.is 54
En Loki hafði þá ferð haft til Svaðilfara að nokkru síðar bar hann fyl. Það var grátt og hafði átta fætur, og er sá hestur bestur með goðum og mönnum. Svo segir í Völuspá:
Þá gengu regin öll á rökstóla, ginnheilug goð, og of það gættust, hver hefði loft allt lævi blandið eða ætt jötuns Óðs mey gefna.
[Þá settust hin helgu goð á rökstóla og könnuðu hver hefði blandið loft allt svikum og gefið jötnum konu Óðs, þ.e. Freyju]
lævi: þgf. af læ: svik, brögð
Á gengust eiðar, orð og særi, mál öll meginleg er á meðal fóru. Þór einn þar vá, þrungin móði, hann sjaldan situr er hann slíkt of fregn.“
(Sjá Völuspá, erindi 25 og 26) [Rofnir voru eiðar og svardagar og allt samkomulag. Þór drap þar einn, æfur af bræði. Hann situr sjaldan á sér við slík tíðindi.]
borg: borgarvirki, varnargarður særi: eiður, svardagi leita (hér): ráðast á hrein: þátíð af hrína, gefa frá sér mikið hljóð laust: þátið af ljósta: slá fyl: folald Spurningar
1. Hvað bauðst smiðurinn til að smíða fyrir goðin og hvað vildi hann fá að launum?
2. Hvað hét hestur smiðsins? 3. Af hverju heimtuðu goðin að Loki Laufeyjarson hindraði smiðinn í að ljúka
verkinu? 4. Hvað gerði Loki til að hamla smíðinni? 5. Hvað kom í ljós með smiðinn þegar hann þurfti að vinna enn hraðar? 6. Hvernig launuðu goðin smiðnum fyrir verkið? 7. Hvernig tengist Sleipnir, hestur Óðins, sögunni af borgarvirkinu?
Hugleiðing
Hér birtist þekkt minni: Einhver tekur að sér verk gegn loforði sem síðan er svikið. (Við hugsum t.d. til þjóðsögunnar af kirkjusmiðnum á Reyni.) Æsir gera sig seka um
Framhaldsskóli.is 55
eiðrof og það er alvarlegur glæpur og stuðlar með öðru að falli þeirra (Það sem átti að vernda þá verður þeim að falli). Einnig má benda á að dómgreind ása bregst þeim þegar þeir lofa að láta af hendi sól og mána auk Freyju.
Hamskipti (og kynskipti!) birtast hér sem oftar í goðsögum: Loki breytir sé í meri. Þannig verðum við enn sem fyrr vitni að mætti goðanna: þau eru hafin yfir þau lögmál sem dauðlegir menn þurfa að lúta.
Loki birtst hér í dæmigerðu hlutverki: Hann stuðlar að vandræðum en leysir síðan úr þeim.
Þessi goðsaga, sem er ein hin þekktasta í eddu, felur í sér þann lærdóm að ekki skuli menn lofa upp í ermina á sér; það leiðir m.a. til þess að þeir gerist eiðrofar. Og slíkt leiðir til glötunar.
Skemmtilegt er að rýna í vinnubrögð Snorra: Hann segir okkur ekki strax hverju æsir lofuðu smiðnum fyrir að taka að sér verkið; lesandinn þarf að bíða spenntur eftir þeim upplýsingum.
43. kafli (Skíðblaðnir og Naglfari)
Þá mælti Gangleri: „Hvað er að segja frá Skíðblaðni er hann er bestur skipa? Hvort er ekki skip jafngott sem hann er eða jafnmikið?“
Hár segir: „Skíðblaðnir er bestur skipanna og með mestum hagleik ger, en Naglfari er mest skip, það er á Múspell.“
Dvergar nokkrir, synir Ívalda, gerðu Skíðblaðni og gáfu Frey skipið. Hann er svo mikill að allir æsir mega skipa hann með vopnum og herbúnaði og hefur hann byr þegar er segl er dregið, hvert er fara skal. En þá er eigi skal fara með hann á sæ þá er hann gjör af svo mörgum hlutum og með svo mikilli list að hann má vefja saman sem dúk og hafa í pung sínum.
Spurningar
1. Hvað er Naglfari? 2. Hverjir gerðu Skíðblaðni? 3. Hvaða eiginleikum býr Skíðblaðnir yfir?
Hugleiðingar
Hér birtist okkur óskaskip, skip sem alltaf hefur byr og enginn vandi er að koma fyrir þegar það er ekki í notkun. Enn sem fyrr sést að goðin þurfa ekki að beygja sig undir lögmál náttúrunnar, eru t.d. óháð veðrum og vindum.
Framhaldsskóli.is 56
44. kafli (Þjálfi og Röskva)
Þá mælti Gangleri: „Gott skip er Skíðblaðnir en allmikil fjölkynngi mun vera við höfð áður svo fái gert. Hvort hefur Þór hvergi svo farið að hann hafi hitt fyrir sér svo ríkt eða rammt að honum hafi ofurefli í verið fyrir afls sakir eða fjölkynngi?“
Þá mælti Hár: „Fár maður vættir mig að frá því kunni að segja, en margt hefur honum harðfært þótt. En þótt svo hafi verið að nokkur hlutur hafi svo verið rammur eða sterkur að Þór hafi eigi sigur fengið á unnið, þá er eigi skylt að segja frá, fyrir því að mörg dæmi eru til þess og því eru allir skyldir að trúa að Þór er máttkastur.“
Þá mælti Gangleri: „Svo líst mér sem þess hlutar mun ég yður spurt hafa er enginn er til fær að segja.“
Þá mælti Jafnhár: ,,Heyrt höfum vér sagt frá þeim atburðum er oss þykja ótrúlegir að sannir muni vera. En hér mun sá sitja nær er vita mun sönn tíðindi af að segja og muntu því trúa að hann mun eigi ljúga nú hið fyrsta sinn er aldrei laug fyrr.“
Þá mælti Gangleri: „Hér mun ég standa og hlýða ef nokkur úrlausn fæst þessa máls. En að öðrum kosti kalla ég yður vera yfirkomna ef þér kunnið eigi að segja það er ég spyr.“
Þá mælti Þriðji: ,,Auðsýnt er nú að hann vill þessi tíðindi vita þótt oss þyki eigi fagurt að segja. En þér er að þegja.
Það er upphaf þessa máls að Ökuþór fór með hafra sína og reið og með honum sá ás er Loki er kallaður. Koma þeir að kveldi til eins búanda og fá þar náttstað. En um kveldið tók Þór hafra sína og skar báða. Eftir það voru þeir flegnir og bornir til ketils. En er soðið var þá settist Þór til náttverðar og þeir lagsmenn. Þór bauð til matar með sér búandanum og konu hans og börnum þeirra. Sonur búanda hét Þjálfi, en Röskva dóttir. Þá lagði Þór hafurstökurnar utar frá eldinum og mælti að búandi og heimamenn hans skyldu kasta á hafurstökurnar beinunum. Þjálfi, son búanda, hélt á lærlegg hafursins og spretti á knífi sínum og braut til mergjar.
Þór dvaldist þar of nóttina. En í óttu fyrir dag stóð hann upp og klæddi sig, tók hamarinn Mjöllni og brá upp og vígði hafurstökurnar. Stóðu þá upp hafrarnir og var þá annar haltur eftra fæti. Það fann Þór og taldi að búandinn eða hans hjón myndu eigi skynsamlega hafa farið með beinum hafursins. Kennir hann að brotinn var lærleggurinn.
Eigi þarf langt frá því að segja, vita mega það allir hversu hræddur búandinn myndi vera er hann sá að Þór lét síga brýnnar ofan fyrir augun, en það er sá augnanna þá hugðist hann falla myndu fyrir sjóninni einni samt. Hann herti hendurnar að hamarsskaftinu svo að hvítnuðu knúarnir. En búandinn gerði sem von var og öll hjúin, kölluðu ákaflega, báðu sér friðar, buðu að fyrir kæmi allt það er þau áttu.
En er hann sá hræðslu þeirra þá gekk af honum móðurinn og sefaðist hann og tók af þeim í sætt börn þeirra, Þjálfa og Röskvu, og gerðust þau þá skyldir þjónustumenn Þórs og fylgja þau honum jafnan síðan.
Framhaldsskóli.is 57
eftra: aftari en það er sá augnanna: en það sem sást af augunum knúar: hnúar Spurningar
1. Af hverju er viðmælendum Ganglera illa við að svara spurningu hans í þessum kafla?
2. Af hverju var annar hafurinn haltur? 3. Hvað hétu börn búandans sem Þór dvaldi hjá? 4. Hvernig refsaði Þór búandanum og fjölskyldu hans?
Hugleiðing
Það er vandræðalegt fyrir goðin að þurfa að segja frá einhverju sem tengist vanmætti Þórs. En ekki er um annað að ræða úr því að Gangleri mun annars hrósa sigri í „spurningakeppninni“.
Hér birtist enn draumur mannsins um að geta lifað án þess að þurfa að hafa fyrir hlutunum: að geta alltaf etið alltaf sama hafurinn, sbr. söguna af geltinum Sæhrímni hér að framan.
Við höfum samúð með Þjálfa af því að svo er að sjá sem hann hafi ekki verið varaður við hættunni sem fylgdi því að brjóta legginn til mergjar. Ef til vill má segja að goðsagan greini m.a. frá þeirri staðreynd að menn fari flestir í fyllingu tímans að heiman, hleypi heimdraganum; mörg ævintýi greina einmitt frá slíku.
Við kynnumst hér skapgerð Þórs. Hann reiðist snögglega og verður afar ógnvænlegur en mildast þegar hann sér hvað fólkið verður hrætt. Hann beitir ekki hamrinum við þessar aðstæður (drepur engan) en refsar fjölskyldunni að vísu harðlega.
45. kafli (Skrýmir)
Lét hann þar eftir hafra og byrjaði ferðina austur í Jötunheima og allt til hafsins, og þá fór hann út yfir hafið það hið djúpa. En er hann kom til lands þá gekk hann upp og með honum Loki og Þjálfi og Röskva.
Þá er þau höfðu litla hríð gengið varð fyrir þeim mörk stór. Gengu þau þann dag allan til myrkurs. Þjálfi var allra manna fóthvatastur. Hann bar kýl Þórs, en til vista var eigi gott.
Þá er myrkt var orðið leituðu þeir sér til náttstaðar og fundu fyrir sér skála nokkurn mjög mikinn. Voru dyr á enda og jafnbreiðar skálanum. Þar leituðu þeir sér náttbóls. En of miðja nótt varð landskjálfti mikill. Gekk jörðin undir þeim skykkjum og skalf húsið. Þá stóð Þór upp og hét á lagsmenn sína og leituðust fyrir og fundu afhús til hægri handar í miðjum skálanum og gengu þannig. Settist Þór í dyrnar, en önnur þau
Framhaldsskóli.is 58
voru innar frá honum og voru þau hrædd. En Þór hélt hamarskaftinu og hugði að verja sig. Þá heyrðu þau ym mikinn og gný.
En er kom að dagan þá gekk Þór út og sér hvar lá maður skammt frá honum í skóginum, og var sá eigi lítill. Hann svaf og hraut sterklega. Þá þóttist Þór skilja hvað látum verið hafði of nóttina. Hann spennir sig megingjörðum og óx honum ásmegin. En í því vaknar sá maður og stóð skjótt upp. En þá er sagt að Þór varð bilt einu sinni að slá hann með hamrinum og spurði hann að nafni, en sá nefndist Skrýmir – „en eigi þarf ég,“ sagði hann, „að spyrja þig að nafni. Kenni ég að þú ert Ásaþór. En hvort hefur þú dregið á braut hanska minn?“
Seildist þá Skrýmir til og tók upp hanska sinn. Sér Þór þá að það hafði hann haft of nóttina fyrir skála, en afhúsið – það var þumlungurinn hanskans.
Skrýmir spurði ef Þór vildi hafa föruneyti hans, en Þór játti því. Þá tók Skrýmir og leysti nestbagga sinn og bjóst til að eta dögurð, en Þór í öðrum stað og hans félagar. Skrýmir bauð þá að þeir legðu mötuneyti sitt, en Þór játti því. Þá batt Skrýmir nest þeirra allt í einn bagga og lagði á bak sér. Hann gekk fyrir of daginn og steig heldur stórum. En síðan að kveldi leitaði Skrýmir þeim náttstaðar undir eik nokkurri mikilli.
Þá mælti Skrýmir til Þórs að hann vill leggjast niður að sofna, „en þér takið nestbaggann og búið til nótturðar yður.“ Því næst sofnar Skrýmir og hraut fast. En Þór tók nestbaggann og skal leysa. En svo er að segja, sem ótrúlegt mun þykja, að engan knút fékk hann leyst og engan ólarendann hreyft svo að þá væri lausari en áður. Og er hann sér að þetta verk má eigi nýtast þá varð hann reiður. Greip þá hamarinn Mjöllni tveim höndum og steig fram öðrum fæti að þar er Skrýmir lá og lýstur í höfuð honum. En Skrýmir vaknar og spyr hvort laufsblað nokkurt félli í höfuð honum, eða hvort þeir hefði þá matast og séu búnir til rekkna. Þór segir að þeir munu þá sofa ganga. Ganga þau þá undir aðra eik. Er það þér satt að segja að ekki var þá óttalaust að sofa.
En að miðri nótt þá heyrir Þór að Skrýmir hrýtur og sefur fast, svo að dunar í skóginum. Þá stendur hann upp og gengur til hans, reiðir hamarinn títt og hart og lýstur ofan í miðjan hvirfil honum. Hann kennir að hamarsmunnurinn sekkur djúpt í höfuðið. En í því bili vaknar Skrýmir og mælti: „Hvað er nú? Féll akarn nokkurt í höfuð mér? Eða hvað er títt um þig, Þór?“
En Þór gekk aftur skyndilega og svarar að hann var þá nývaknaður, sagði að þá var mið nótt og enn væri mál að sofa. Þá hugsaði Þór það ef hann kæmi svo í færi að slá hann hið þriðja högg, að aldrei skyldi hann sjá sig síðan. Liggur nú og gætir ef Skrýmir sofnaði enn fast.
En litlu fyrir dagan, hann heyrir þá að Skrýmir mun sofnað hafa. Stendur þá upp og hleypur að honum. Reiðir þá hamarinn af öllu afli og lýstur á þunnvangann þann er upp vissi. Sekkur þá hamarinn upp að skaftinu. En Skrýmir settist upp og strauk of vangann og mælti: „Hvort munu fuglar nokkrir sitja í trénu yfir mér? Mig grunar er ég vaknaði að tros nokkurt af kvistunum félli í höfuð mér. Hvort vakir þú Þór? Mál mun
Framhaldsskóli.is 59
vera upp að standa og klæðast, en ekki eigið þér nú langa leið fram til borgarinnar er kölluð er Útgarður. Heyrt hef ég að þér hafið kvisað í milli yðar að ég væri ekki lítill maður vexti, en sjá skuluð þér þar stærri menn ef þér komið í Útgarð. Nú mun ég ráða yður heilræði. Látið þér eigi stórlega yfir yður. Ekki munu hirðmenn Útgarða-‐Loka vel þola þvílíkum kögursveinum köpuryrði. En að öðrum kosti hverfið aftur, og þann ætla ég yður betra af að taka. En ef þér viljið fram fara þá stefnið þér í austur, en ég á nú norður leið til fjalla þessara er nú munuð þér sjá mega.“
Tekur Skrýmir nestbaggann og kastar á bak sér og snýr þvers á braut í skóginn frá þeim. Og er þess eigi getið að æsirnir bæðu þá heila hittast.
mörk: skógur kýll (hér): nestispoki, malur ganga skykkjum: bylgjast honum varð bilt (hér): honum féllust hendur (hann hikar og beitir ekki hamrinum) dögurður: dagverður nótturður: náttverður lýstur (nafnháttur: ljósta): slær búnir til rekkna: tilbúnir að ganga til svefns (rekkja: rúm) akarn: ávöxtur eikartrés þunnvangi: gagnauga tros: kvistir kögursveinn: smástrákur köpuryrði: stóryrði, gort þann: þann kost Spurningar
1. Hvaða eiginleikum gætu þau Þjálfi og Röskva búið yfir ef litið er á nöfn þeirra? 2. Hvar gistu þau Þór fyrstu nóttina? 3. Hvað var það sem truflaði Þór og félaga hans fyrstu nóttina sem þau voru í
nánd við Skrými? 4. Hvað fannst Skrými um öll höfuðhöggin sem Þór veitti honum með Mjöllni? 5. Hvaða ráð gaf Skrýmir Þór er hann kæmi til Útgarðs?
Hugleiðing
Niðurlæging Þórs er hér mikil. Og nú skiljum við að æsir hafi ekki gert það að gamni sínu að segja þessa ferðasögu af honum: Gylfi þvingaði þá til þess.
Eins og svo oft í goðsögum eru hér náttúrufyrirbrigði skýrð: jarðskjálftinn stafar af hrotum Skýmis (eða því að hann hefur bylt sér í svefni).
Sagt er um Skými að hann hafi verið eigi lítill, gott dæmi um stílbragðið úrdrátt: dregið er úr því sem í rauninni er átt við: að hann hafi verið gríðarstór.
Framhaldsskóli.is 60
46 kafli (Ferðin til Útgarða-‐Loka)
Þór fór fram á leið og þeir félagar og gekk fram til miðs dags. Þá sáu þeir borg standa á völlum nokkrum og settu hnakkann á bak sér aftur áður þeir fengu séð yfir upp. Ganga til borgarinnar og var grind fyrir borghliðinu og lokin aftur. Þór gekk á grindina og fékk eigi upp lokið. En er þeir þreyttu að komast í borgina þá smugu þeir milli spalanna og komu svo inn. Sáu þá höll mikla og gengu þannig. Var hurðin opin. Þá gengu þeir inn og sáu þar marga menn á tvo bekki og flesta ærið stóra. Því næst koma þeir fyrir konunginn, Útgarða-‐Loka, og kvöddu hann. En hann leit seint til þeirra og glotti við tönn og mælti:
„Seint er um langan veg að spyrja tíðinda. Eða er annan veg en ég hygg að þessi sveinstauli sé Ökuþór? En meiri muntu vera en mér líst þú. Eða hvað íþrótta er það er þér félagar þykist vera við búnir? Enginn skal hér vera með oss sá er eigi kunni nokkurskonar list eða kunnandi umfram flesta menn.“
Þá segir sá er síðast gekk, er Loki hét: „Kann ég þá íþrótt er ég er albúinn að reyna, að enginn er hér sá inni er skjótara skal eta mat sinn en ég.“
Þá svarar Útgarða-‐Loki: „Íþrótt er það ef þú efnir, og freista skal þá þessarar íþróttar.“ Kallaði utar á bekkinn að sá er Logi heitir skal ganga á gólf fram og freista sín í móti Loka.
Þá var tekið trog eitt og borið inn á hallargólfið og fyllt af slátri. Settist Loki að öðrum enda en Logi að öðrum, og át hvortveggi sem tíðast og mættust í miðju troginu. Hafði þá Loki etið slátur allt af beinum, en Logi hafði og etið slátur allt og beinin með og svo trogið, og sýndist nú öllum sem Loki hefði látið leikinn.
Þá spyr Útgarða-‐Loki hvað sá hinn ungi maður kunni leika. En Þjálfi segir að hann mun freista að renna skeið nokkur við einhvern þann er Útgarða-‐Loki fær til. Hann segir, Útgarða-‐Loki, að þetta er góð íþrótt og kallar þess meiri von að hann sé vel að sér búinn of skjótleikinn ef hann skal þessa íþrótt inna, en þó lætur hann skjótt þessa skulu freista. Stendur þá upp Útgarða-‐Loki og gengur út, og var þar gott skeið að renna eftir sléttum velli. Þá kallar Útgarða-‐Loki til sín sveinstaula nokkurn er nefndur er Hugi og bað hann renna í köpp við Þjálfa. Þá taka þeir hið fyrsta skeið, og er Hugi því framar að hann snýst aftur í móti honum að skeiðsenda.
Þá mælti Útgarða-‐Loki: „Þurfa muntu, Þjálfi, að leggja þig meir fram ef þú skalt vinna leikinn. En þó er það satt að ekki hafa hér komið þeir menn er mér þykir fóthvatari en svo.“
Þá taka þeir aftur annað skeið, og þá er Hugi er kominn til skeiðsenda og hann snýst aftur þá var langt kólfskot til Þjálfa.
Þá mælti Útgarða-‐Loki: „Vel þykir mér Þjálfi renna skeiðið, en eigi trúi ég honum nú að hann vinni leikinn. En nú mun reyna er þeir renna hið þriðja skeiðið.“
Þá taka þeir enn skeið, en er Hugi er kominn til skeiðsenda og snýst aftur, og er Þjálfi eigi þá kominn á mitt skeiðið.
Framhaldsskóli.is 61
Þá segja allir að reynt er um þennan leik.
Þá spyr Útgarða-‐Loki Þór hvað þeirra íþrótta mun vera er hann muni vilja birta fyrir þeim, svo miklar sögur sem menn hafa gjört um stórvirki hans. Þá mælti Þór að helst vill hann taka það til að þreyta drykkju við einhvern mann. Útgarða-‐Loki segir að það má vel vera og gengur inn í höllina og kallar skutilsvein sinn, biður að hann taki vítishorn það er hirðmenn eru vanir að drekka af. Því næst kemur fram skutilsveinn með horninu og fær Þór í hönd.
Þá mælti Útgarða-‐Loki: „Af horni þessu þykir þá vel drukkið ef í einum drykk gengur af, en sumir menn drekka af í tveim drykkjum. En enginn er svo lítill drykkjumaður að eigi gangi af í þremur.“
Þór lítur á hornið og sýnist ekki mikið, og er þó heldur langt. En hann er mjög þyrstur, tekur að drekka og svelgur allstórum og hyggur að eigi skal þurfa að lúta oftar að sinni í hornið. En er hann þraut erindið og hann laut úr horninu og sér hvað leið drykknum, og líst honum svo sem alllítill munur mun vera að nú sé lægra í horninu en áður.
Þá mælti Útgarða-‐Loki: „Vel er drukkið og eigi til mikið. Eigi mundak trúa ef mér væri sagt frá að Ásaþór myndi eigi meiri drykk drekka. En þó veit ég að þú munt vilja drekka af í öðrum drykk.“
Þór svarar engu, setur hornið á munn sér og hyggur nú að hann skal drekka meiri drykk og þreytir á drykkjuna sem honum vannst til erindi, og sér enn að stikilinn hornsins vill ekki upp svo mjög sem honum líkar. Og er hann tók hornið af munni sér og sér í, líst honum nú svo sem minna hafi þorrið en í hinu fyrra sinni. Er nú gott berandi borð á horninu.
Þá mælti Útgarða-‐Loki: „Hvað er nú, Þór? Muntu nú eigi sparast til eins drykkjar meira en þér mun hagur á vera? Svo líst mér ef þú skalt nú drekka af horninu hinn þriðja drykkinn sem þessi mun mestur ætlaður. En ekki muntu mega hér með oss heita svo mikill maður sem æsir kalla þig, ef þú gerir eigi meira af þér um aðra leika en mér líst sem um þennan mun vera.“
Þá varð Þór reiður, setur hornið á munn sér og drekkur sem ákaflegast má hann og þrýtur sem lengst að drykknum. En er hann sá í hornið þá hafði nú helst nokkuð munur á fengist. Og þá býður hann upp hornið og vill eigi drekka meira.
Þá mælti Útgarða-‐Loki: ,,Auðséð er nú að máttur þinn er ekki svo mikill sem vér hugðum. En viltu freista um fleiri leika? Sjá má nú að ekki nýtir þú hér af.“
Þór svarar: „Freista má ég enn um nokkra leika. En undarlega myndi mér þykja, þá er ég var heima með ásum, ef þvílíkir drykkir væru svo litlir kallaðir. En hvað leik viljið þér nú bjóða mér?“
Þá mælti Útgarða-‐Loki: „Það gera hér ungir sveinar er lítið mark mun að þykja, að hefja upp af jörðu kött minn. En eigi munda-‐k kunna að mæla þvílíkt við Ásaþór ef ég hefði eigi séð fyrr að þú er miklu minni fyrir þér en ég hugði.“
Framhaldsskóli.is 62
Því næst hljóp fram köttur einn grár á hallargólfið og heldur mikill, en Þór gekk til og tók hendi sinni niður undir miðjan kviðinn og lyfti upp, en kötturinn beygði kenginn svo sem Þór rétti upp höndina. En er Þór seildist svo langt upp sem hann mátti lengst, þá létti kötturinn einum fæti, og fær Þór eigi framið þennan leik.
Þá mælti Útgarða-‐Loki: „Svo fór þessi leikur sem mig varði. Kötturinn er heldur mikill en Þór er lágur og lítill hjá stórmenni því sem hér er með oss.“
Þá mælti Þór: „Svo lítinn sem þér kallið mig, þá gangi nú til einhver og fáist við mig! Nú er ég reiður!“
Þá svarar Útgarða-‐Loki og litast um á bekkina og mælti: „Eigi sé ég þann mann hér inni er eigi mun lítilræði í þykja að fást við þig.“ Og enn mælti hann: „Sjáum fyrst. Kalli mér hingað kerlinguna fóstru mína, Elli, og fáist Þór við hana ef hann vill. Fellt hefur hún þá menn er mér hafa litist eigi ósterklegri en Þór er.“
Því næst gekk í höllina kerling ein gömul. Þá mælti Útgarða-‐Loki að hún skal taka fang við Ásaþór. Ekki er langt um að gera. Svo fór fang það að því harðara er Þór knúðist að fanginu því fastara stóð hún. Þá tók kerling að leita til bragða og varð Þór þá laus á fótum, og voru þær sviftingar allharðar og eigi lengi áður en Þór féll á kné öðrum fæti. Þá gekk til Útgarða-‐Loki, bað þau hætta fanginu og sagði svo að Þór myndi eigi þurfa að bjóða fleirum mönnum fang í hans höll. Var þá og liðið á nótt. Vísaði Útgarða-‐Loki Þór og þeim félögum til sætis og dveljast þar náttlangt í góðum fagnaði.
borg (hér): vikisveggur, borgarmúr spölur kk.; ef. spalar; ft. spelir: rimill í grind (beygist eins og köttur) þannig (hér): þangað slátur (hér): kjötláta leikinn: bíða lægri hlut, tapa renna skeið: hlaupa, fara í kapphlaup skeiðsendi: endi hlaupabrautar eða skeiðvallar kólfskot: sú vegalengd sem hægt er að skjóta með kólfi (kastvopni eða ör) skutilsveinn: framreiðslumaður vítishorn: horn til að drekka af „víti“, refsihorn til mikið: of mikið stikill: mjórri endi horns berandi borð á horninu: (sennilega) hafði minnkað svo mikið í horninu að auðvelt var að bera það. ekki nýtir þú hér af: þetta er ekki til neins fyrir þig munda-‐k: mundi ég Spurningar
1. Hvað merkir eftirfarandi sertning: „og settu hnakkann á bak sér aftur áður þeir fengu séð yfir upp.“
2. Við hvern atti Loki kappi og í hvaða íþrótt? 3. Við hvern atti Þjálfi kappi og í hvaða íþrótt? 4. Nefndu þær þrjár viðureignir sem Þór tók þátt í.
Framhaldsskóli.is 63
Hugleiðing
Sennilega er lesandann farið að gruna að ekki sé allt með felldu; brögð gætu verið í tafli. En augljós er niðurlæging Þórs og félaga hans. Huga má að nöfnum persóna og velta fyrir sér hvort einhver þeirra hafa merkingu sem tengjast innihaldi textans. Við veitum því eftirtekt að Þór og félagar lenda í „góðum fagnaði“ eftir alla niðurlæginguna!
Hér er talað um að „láta leikinn“ og „vinna leikinn“. Fyrrnefnda orðalagið er ekki notað mikið nú, en hitt er í fullu gildi. Höfum í huga að ekki er talað um að „sigra leikinn“! (menn sigra persónur eða lið, ekki leik eða keppni!).
Orðin „eigi ósterklegri“ undir lok kaflans eru gott dæmi um tvöfalda neitun og jafnframt um stílbragðið úrdrátt: dregið er úr því sem raunverulega er átt við, þ.e. að viðkomandi hafi verið mun sterklegri en Þór. Þá má minna á að andstæður eru áberandi stílbragð í köflunum af viðskiptum Þórs við Útgarða-‐Loka og félaga.
47. kafli (Skýringar Útgarða-‐Loka)
En að morgni þegar dagaði stendur Þór upp og þeir félagar, klæða sig og eru búnir braut að ganga. Þá kom þar Útgarða-‐Loki og lét setja þeim borð. Skorti þá eigi góðan fagnað, mat og drykk. En er þeir hafa matast þá snúast þeir til ferðar.
Útgarða-‐Loki fylgir þeim út, gengur með þeim braut úr borginni. En að skilnaði þá mælti Útgarða-‐Loki til Þórs og spyr hvernig honum þykir ferð sín orðin eða hvort hann hefur hitt ríkari mann nokkurn en sig. Þór segir að eigi mun hann það segja að eigi hafi hann mikla ósæmd farið í þeirra viðskiptum. „En þó veit ég að þér munuð kalla mig lítinn mann fyrir mér, og uni ég því illa.“
Þá mælti Útgarða-‐Loki: „Nú skal segja þér hið sanna er þú ert út kominn úr borginni, að ef ég lifi og mega-‐k ráða þá skaltu aldrei oftar í hana koma, og það veit trúa mín að aldrei hefðir þú í hana komið ef ég hefði vitað áður að þú hefðir svo mikinn kraft með þér, og þú hafðir svo nær haft oss mikilli ófæru.
En sjónhverfingar hef ég gert þér, svo að fyrsta sinn er ég fann þig á skóginum kom ég til fundar við yður. Og þá er þú skyldir leysa nestbaggann þá hafða-‐k bundið með grésjárni, en þú fannst eigi hvar upp skyldi lúka. En því næst laust þú mig með hamrinum þrjú högg, og var hið fyrsta minnst, og var þó svo mikið að mér myndi endast til bana ef á hefði komið. En þar er þú sást hjá höll minni setberg og þar sástu ofan í þrjá dali ferskeytta og einn djúpastan, þar voru hamarspor þín. Setberginu brá ég fyrir höggin, en eigi sást þú það.
Svo var og of leikana er þreyttuð við hirðmenn mína. Þá var það hið fyrsta er Loki gerði. Hann var mjög soltinn og át títt. En sá er Logi heitir, það var villieldur, og brenndi hann eigi seinna trogið en slátrið. En er Þjálfi þreytti rásina við þann er Hugi hét, það var hugur minn og var Þjálfa eigi vænt að þreyta skjótfæri hans.
En er þú drakkst af horninu og þótti þér seint líða, en það veit trúa mín að þá var það undur er ég myndi eigi trúa að vera mætti. Annar endi hornsins var úti í hafi, en það
Framhaldsskóli.is 64
sástu eigi. En nú er þú kemur til sjávarins, þá muntu sjá hvern þurrð þú hefur drukkið á sænum.“ -‐Það eru nú fjörur kallaðar.
Og enn mælti hann: „Eigi þótti mér hitt minna vera vert er þú lyftir upp kettinum, og er þér satt að segja, þá hræddust allir þeir er sáu er þú lyftir af jörðu einum fætinum. En sá köttur var eigi sem þér sýndist, það var Miðgarðsormur er liggur um öll lönd, og vannst honum varlega lengdin til að jörðina tæki sporður og höfuð, og svo langt seildist þú upp að skammt var þá til himins.
En hitt var og mikið undur um fangið, er þú stóðst svo lengi við og féllst eigi meir en á kné öðrum fæti er þú fékkst við Elli. Fyrir því að enginn hefur sá orðið og enginn mun verða ef svo gamall er að elli bíður að eigi komi ellin öllum til falls.
Og er nú það satt að segja að vér munum skiljast, og mun þá betur hvorratveggju handar að þér komið eigi oftar mig að hitta. Ég mun enn annað sinn verja borg mína með þvílíkum vélum eða öðrum, svo að ekki vald munuð þér á mér fá.“
En er Þór heyrði þessa tölu greip hann til hamarsins og bregður á loft. En er hann skal fram reiða þá sér hann þar hvergi Útgarða-‐Loka. Og þá snýst hann aftur til borgarinnar og ætlast þá fyrir að brjóta borgina. Þá sér hann þar völlu víða og fagra en enga borg. Snýst hann þá aftur og fer sína leið til þess er hann kom aftur í Þrúðvanga. En það er satt að segja að þá hafi hann ráðið fyrir sér að leita til ef saman mætti bera fundi þeirra Miðgarðsorms, sem síðar varð.
Nú ætla ég engan kunna þér sannara að segja frá þessari ferð Þórs.“
búinn (hér): tilbúinn ríkur (hér): voldugur mega-‐k: megi ég, geti ég hafða-‐k: hafði ég grésjárn: einhves konar járnband fang: glíma ekki (hér): ekkert Spurningar
1. Hvað fannst Útgarða-‐Loka raunverulega um Þór og félaga hans? 2. Hver var raunverulegur andstæðingur Loka í kappátinu? 3. Við hvað keppti Þjálfi? 4. Hvað náttúrufyrirbæri skýrist út frá fyrstu viðureign Þórs? 5. Hvers vegna gat Þór ekki sigrast á Elli kerlingu? 6. Hvaða orð er notað í kaflanum yfir bellibrögð Útgarða-‐Loka? 7. Í upphafi kaflans stendur: „Þór segir að eigi mun hann það segja að eigi hafi
hann mikla ósæmd farið í þeirra viðskiptum.“ Endurorðið þessa málsgrein með því að taka út neitanirnar þrjár (eigi, eigi, ó-‐) en halda þó nokkurn veginn sömu merkingu.
Framhaldsskóli.is 65
Hugleiðing
Rétt eins og Gylfi er beittur sjónhverfingum í „spurningakeppninni“ er nú Þór beittur sama bragði. Þetta leiðir hugann að því að Þór er kannski ekki eins klókur og hann er sterkur. Segja má að Þór og Óðinn bæti hvor annan upp: Óðinn er snjall en Þór er sterkur. Svipað má segja um fleiri tvenndir í fornum og nýjum sögum, sbr. t.d. Njál á Bergþórshvoli og Gunnar á Hlíðarenda.
Þegar goð eru sett í skoplegt ljós má segja að þau fái á sig mannlegri svip en ella væri. Einnig má halda því fram að þegar sögur af þessu tagi eru sagðar þá sé það til vitnis um dvínandi trú. En höfum í huga að þetta var aðeins sjónhverfing. Í lok kaflans er látið að því liggja að Þór muni hefna sín.
Þolfall fleirtölu af völlur er hér völlu (sbr. líka eldri beygingu á orðunum fjörður (þf.ft. fjörðu), stígur (þf.f. stigu); sonur (þf.ft. sonu).
48. kafli (Þór og Miðgarðsorðmur)
Þá mælti Gangleri: „Allmikill er fyrir sér Útgarða-‐Loki, en með vélum og fjölkynngi fer hann mjög. En það má sjá að hann er mikill fyrir sér að hann átti hirðmenn þá er mikinn mátt hafa. Eða hvort hefur Þór þessa hefnt?“
Hár svarar: „Eigi er það ókunnugt þótt eigi séu fræðimenn að Þór leiðrétti þessa ferðina er nú var frá sagt, og dvaldist ekki lengi heima áður en hann bjóst svo skyndilega til ferðarinnar að hann hafði eigi reið og eigi hafrana og ekki föruneyti. Gekk hann út of Miðgarð svo sem ungur drengur og kom einn aftan að kveldi til jötuns nokkurs. Sá er Hymir nefndur. Þór dvaldist þar að gistingu um nóttina.
En í dagan stóð Hymir upp og klæddist og bjóst að róa á sæ til fiskjar. En Þór spratt upp og var skjótt búinn og bað að Hymir skyldi hann láta róa á sæ með sér. En Hymir sagði að lítil liðsemd myndi að honum vera, er hann var lítill og ungmenni eitt – „og mun þig kala ef ég sit svo lengi og utarlega sem ég er vanur.“ En Þór sagði að hann myndi róa mega fyrir því langt frá landi að eigi var víst hvort hann myndi fyrr beiðast að róa utan, og reiddist Þór jötninum svo að þá var búið að hann myndi þegar láta hamarinn skjalla honum, en hann lét það við berast, því að hann hugðist þá að reyna afl sitt í öðrum stað.
Framhaldsskóli.is 66
Hann spurði Hymi hvað þeir skyldu hafa að beitum, en Hymir bað hann fá sér sjálfan beitur. Þá snerist Þór á braut þangað er hann sá öxnaflokk nokkurn er Hymir átti. Hann tók hinn mesta uxann, er Himinhrjóður hét, og sleit af höfuðið og fór með til sjávar. Hafði þá Hymir út skotið nökkvanum. Þór gekk á skipið og settist í austurrúm, tók tvær árar og reri, og þótti Hymi skriður verða af róðri hans.
Hymir reri í hálsinum fram og sóttist skjótt róðurinn. Sagði þá Hymir að þeir voru komnir á þær vastir er hann var vanur að sitja og draga flata fiska. En Þór kveðst vilja róa miklu lengra, og tóku þeir enn snertiróður. Sagði Hymir þá að þeir voru komnir svo langt út að hætt var að sitja utar fyrir Miðgarðsormi. En Þór kveðst myndu róa eina hríð, og svo gerði hann. En Hymir var þá allókátur.
En þá er Þór lagði upp árarnar, greiddi hann til vað heldur sterkjan, og eigi var öngullinn minni eða órammlegri. Þar lét Þór koma á öngulinn uxahöfuðið og kastaði fyrir borð, og fór öngullinn til grunns. Og er þá svo satt að segja að engu ginnti þá Þór miður Miðgarðsorm en Útgarða-‐Loki hafði spottað Þór þá er hann hóf orminn upp á hendi sér.
Miðgarðsormur gein yfir uxahöfuðið en öngullinn vó í góminn orminum. En er ormurinn kenndi þess, brá hann við svo hart að báðir hnefar Þórs skullu út á borðinu. Þá varð Þór reiður og færðist í ásmegin, spyrnti við svo fast að hann hljóp báðum fótum gegnum skipið og spyrnti við grunni. Dró þá orminn upp að borði. En það má segja að enginn hefur sá séð ógurlegar sjónir er eigi mátti það sjá er Þór hvessti augun á orminn en ormurinn starði neðan í mót og blés eitrinu.
Þá er sagt að jötunninn Hymir gerðist litverpur, fölnaði og hræddist er hann sá orminn og það er særinn féll út og inn of nökkvann. Og í því bili er Þór greip hamarinn og færði á loft, þá fálmaði jötunninn til agnsaxinu og hjó vað Þórs af borði, en ormurinn sökktist í sæinn. En Þór kastaði hamrinum eftir honum, og segja menn að hann lysti af honum höfuðið við grunninum, en ég hygg hitt vera þér satt að segja að Miðgarðsormur lifir enn og liggur í umsjá. En Þór reiddi til hnefann og setur við eyra Hymi, svo að hann steyptist fyrir borð og sér í iljar honum. En Þór óð til lands.“
reið: vagn vél: vélabrögð, svik láta við berast: láta eiga sig öxnaflokkur: flokkur nauta austurrúm: sá staður í skipi (báti) þar sem það er ausiðháls (hér): framhluti skips (báts) vastir: mið hætt: hættulegt vaður: reipi litverpur: með breyttan lit í andlitinu (hér: fölur) nökkvi: skip agnsax: beituhnífur
Framhaldsskóli.is 67
Spurningar
1. Hvað bað Þór Hymi um? 2. Af hverju reiddist Þór Hymi? 3. Hvað notaði Þór sem beitu? 4. Hvers vegna vildi Þór róa svo langt út? 5. Hvernig lyktaði viðureign Þórs og Miðgarðsorms? 6. Sýndu fram á að Þór hafi beitt Hymi sjónhverfingum.
Hugleiðingar
Þór beitir Hymi blekkingum, sjónhverfingum, hann birtist honum sem ungur drengur og þannig fær hann að fara á skipið með honum. Svo færist hann í ásmegin þegar hann fer að takast á við Miðgarðsorm. Ekki er þó tekið fram að hann sé með „hjálpartækin“, þ.e. megingjarðirnar og hanskana. En hamarinn er á sínum stað.
Hvasst og ógnvekjandi augnaráð Þórs birtist okkur hér enn, sbr. söguna af fjölskyldu Þjálfa og Röskvu eftir að upp komst að hafur Þórs var haltur og Þór lét síga brúnirnar (Gæti minnt á Egil Skallagrímsson í frægri frásögn eftir lát Þórólfs).
Það sér í iljar Hymi. Nokkuð augljóst virðist að Þór hafi með hnefahögginu gert út af við Hymi jötun. Þá má segja að hann hafi hefnt ófaranna í Útgörðum.
49. kafli (Dauði Baldurs)
Þá mælti Gangleri: „Hafa nokkur meiri tíðindi orðið með ásunum? Allmikið þrekvirki vann Þór í þessari ferð!“
Hár svarar: „Vera mun að segja frá þeim tíðindum er meira þótti vert ásunum. En það er upphaf þessarar sögu að Baldur hinn góða dreymdi drauma stóra og hættulega um líf sitt. En er hann sagði ásunum draumana, þá báru þeir saman ráð sín, og var það gert að beiða griða Baldri fyrir allskonar háska. Og Frigg tók svardaga til þess að eira skyldu Baldri eldur og vatn, járn og allskonar málmur, steinar, jörðin, viðirnir, sóttirnar, dýrin, fuglarnir, eitur, ormar.
En er þetta var gert og vitað, þá var það skemmtun Baldurs og ásanna að hann skyldi standa upp á þingum, en allir aðrir skyldu sumir skjóta á hann, sumir höggva til, sumir berja grjóti. En hvað sem að var gert sakaði hann ekki, og þótti þetta öllum mikill frami.
En er þetta sá Loki Laufeyjarson þá líkaði honum illa er Baldur sakaði ekki. Hann gekk til Fensalar til Friggjar og brá sér í konu líki. Þá spyr Frigg ef sú kona vissi hvað æsir höfðust að á þinginu. Hún sagði að allir skutu að Baldri og það að hann sakaði ekki. Þá mælti Frigg: „Eigi munu vopn eða viðir granda Baldri. Eiða hef ég þegið af öllum þeim.“
Þá spyr konan: „Hafa allir hlutir eiða unnið að eira Baldri?“
Framhaldsskóli.is 68
Þá svarar Frigg: „Vex viðarteinungur einn fyrir vestan Valhöll. Sá er mistilteinn kallaður. Sá þótti mér ungur að krefja eiðsins.“ Því næst hvarf konan á braut.
En Loki tók mistiltein og sleit upp og gekk til þings. En Höður stóð utarlega í mannhringnum, því að hann var blindur. Þá mælti Loki við hann: „Hví skýtur þú ekki að Baldri?“ Hann svarar: „Því að ég sé eigi hvar Baldur er, og það annað að ég er vopnlaus.“ Þá mælti Loki: „Gerðu þó í líking annarra manna og veit Baldri sæmd sem aðrir menn. Ég mun vísa þér til hvar hann stendur. Skjót að honum vendi þessum.“
Höður tók mistiltein og skaut að Baldri að tilvísun Loka. Flaug skotið í gegnum hann og féll hann dauður til jarðar. Og hefur það mest óhapp verið unnið með goðum og mönnum.
Þá er Baldur var fallinn þá féllust öllum ásum orðtök og svo hendur að taka til hans, og sá hver til annars og voru allir með einum hug til þess er unnið hafði verkið. En enginn mátti hefna, þar var svo mikill griðastaður.
En þá er æsirnir freistuðu að mæla, þá var hitt þó fyrr að gráturinn kom upp, svo að enginn mátti öðrum segja með orðunum frá sínum harmi. En Óðinn bar þeim mun verst þennan skaða sem hann kunni mesta skyn hversu mikil aftaka og missa ásunum var í fráfalli Baldurs.
En er goðin vitkuðust þá mælti Frigg og spurði hver sá væri með ásum er eignast vildi allar ástir hennar og hylli, og vilji hann ríða á Helveg og freista ef hann fái fundið Baldur og bjóða Helju úrlausn, ef hún vill láta fara Baldur heim í Ásgarð. En sá er nefndur Hermóður hinn hvati, sonur Óðins, er til þeirrar farar varð. Þá var tekinn Sleipnir, hestur Óðins, og leiddur fram, og steig Hermóður á þann hest og hleypti braut.
En æsirnir tóku lík Baldurs og fluttu til sævar. Hringhorni hét skip Baldurs. Hann var allra skipa mestur. Hann vildu goðin fram setja og gera þar á bálför Baldurs. En skipið gekk hvergi fram. Þá var sent í Jötunheima eftir gýgi þeirri er Hyrrokkin hét, en er hún kom og reið vargi og hafði höggorm að taumum, þá hljóp hún af hestinum, en Óðinn kallaði til berserki fjóra að gæta hestsins og fengu þeir eigi haldið nema þeir felldu hann. Þá gekk Hyrrokkin á framstafn nökkvans og hratt fram í fyrsta viðbragði,
Framhaldsskóli.is 69
svo að eldur hraut úr hlunnunum og lönd öll skulfu. Þá varð Þór reiður og greip hamarinn og myndi þá brjóta höfuð hennar áður en goðin öll báðu henni friðar.
Þá var borið út á skipið lík Baldurs, og er það sá kona hans, Nanna Nepsdóttir, þá sprakk hún af harmi og dó. Var hún borin á bálið og slegið í eldi. Þá stóð Þór að og vígði bálið með Mjöllni, en fyrir fótum hans rann dvergur nokkur, sá er Litur nefndur, en Þór spyrnti fæti sínum á hann og hratt honum í eldinn, og brann hann.
Að þessari brennu sótti margskonar þjóð. Fyrst að segja frá Óðni að með honum fór Frigg og valkyrjur og hrafnar hans. En Freyr ók í kerru með gelti þeim er Gullinbursti heitir eða Slíðrugtanni. En Heimdallur reið hesti þeim er Gulltoppur heitir. En Freyja ók köttum sínum. Þar kemur og mikið fólk hrímþursa og bergrisar. Óðinn lagði á bálið gullhring þann er Draupnir heitir. Honum fylgdi síðan sú náttúra að hina níundu hverja nótt drupu af honum átta gullhringar jafnhöfgir. Hestur Baldurs var leiddur á bálið með öllu reiði.
En það er að segja frá Hermóði að hann reið níu nætur dökkva dala og djúpa svo að hann sá ekki fyrr en hann kom til árinnar Gjallar og reið á Gjallarbrúna. Hún er þökt lýsigulli. Móðgunnur er nefnd mær sú er gætir brúarinnar. Hún spurði hann að nafni eða ætt og sagði að hinn fyrri dag riðu um brúna fimm fylki dauðra manna – „en eigi dynur brúin minnur undir einum þér, og eigi hefur þú lit dauðra manna. Hví ríður þú hér á Helveg?“ Hann svarar að „ég skal ríða til Heljar að leita Baldurs. Eða hvort hefur þú nokkuð séð Baldur á Helvegi?“ En hún sagði að Baldur hafði þar riðið um Gjallarbrú, „en niður og norður liggur Helvegur.“
Þá reið Hermóður þar til er hann kom að Helgrindum. Þá sté hann af hestinum og gyrti hann fast, steig upp og keyrði hann sporum, en hesturinn hljóp svo hart og yfir grindina að hann kom hvergi nær. Þá reið Hermóður heim til hallarinnar og steig af hesti, gekk inn í höllina, sá þar sitja í öndugi Baldur bróður sinn, og dvaldist Hermóður þar um nóttina. En að morgni þá beiddist Hermóður af Helju að Baldur skyldi ríða heim með honum, og sagði hversu mikill grátur var með ásum. En Hel sagði að það skyldi svo reyna hvort Baldur var svo ástsæll sem sagt er, og „ef allir hlutir í heiminum, kvikir og dauðir, gráta hann þá skal hann fara til ása aftur, en haldast með Helju ef nokkur mælir við eða vill eigi gráta.“
Þá stóð Hermóður upp, en Baldur leiðir hann út úr höllinni og tók hringinn Draupni og sendi Óðni til minja, en Nanna sendi Frigg rifti og enn fleiri gjafir. Fullu fingurgull. Þá reið Hermóður aftur leið sína og kom í Ásgarð og sagði öll tíðindi þau er hann hafði séð og heyrt.
Því næst sendu æsir um allan heim erindreka að biðja að Baldur væri grátinn úr Helju. En allir gerðu það, mennirnir og kvikindin og jörðin og steinarnir og tré og allur málmur, svo sem þú munt séð hafa að þessir hlutir gráta þá er þeir koma úr frosti og í hita.
Þá er sendimenn fóru heim og höfðu vel rekið sín erindi finna þeir í helli nokkrum hvar gýgur sat. Hún nefndist Þökk. Þeir biðja hana gráta Baldur úr Helju. Hún segir:
Framhaldsskóli.is 70
„Þökk mun gráta þurrum tárum Baldurs bálfarar. Kyks né dauðs Naut-‐k-‐a eg karls sonar. Haldi Hel því er hefir.“
kykur: lifandi
naut-‐k-‐a: naut ég ekki
karls sonur (hér): sonur Óðins, þ.e. Baldur (merkingin er niðrandi)
En þess geta menn að þar hafi verið Loki Laufeyjarson, er flest hefur illt gert með ásum.“
gýgur (þf. og þgf. gýgi; ef. gýgjar): tröllkona vargur: úlfur jafnhöfgir: jafnþungir fylki: fimmtíu manna flokkur minnur: minna rifti: klæði, léreft Spurningar
1. Hvað dreymdi Baldur? 2. Hvernig brugðust æsir við draumum Baldurs? 3. Hvaða skemmtun varð til með ásunum er Baldur var orðinn svo verndaður? 4. Hvað uppgötvaði Loki Laufeyjarson hjá Frigg? 5. Hver drap Baldur? 6. Hver fór að freista þess að frelsa Baldur úr klóm Heljar? 7. Hvað var Hringhorni? 8. Hver var Nanna Nepsdóttir og hver urðu örlög hennar? 9. Hverjum hratt Þór í eldinn er Hringhorni brann? 10. Nefndu nokkra sem komu til útfarar Baldurs. 11. Hvaða brúar gætir Móðgunnur? 12. Hvernig tók Helja í bón Hermóðs? 13. Hver neitaði að gráta Baldur? 14. Nefndu dæmi um að tvenns konar náttúrufyrirbæri sem skýrð eru í textanum. 15. Nefndu tvo staði í kaflanum þar sem talan níu kemur fyrir.
Hugleiðing
Enn kynnumst við skapgerð Þórs. Hann snöggreiðist og sparkar saklausum dvergi í eldinn. Sennilega er hann reiður yfir því að hafa ekki getað ýtt (eða verið látinn ýta) skipinu á flot.
Með dauða Baldurs hverfa hin góðu öfl úr heiminum. Óðinn gerir sér fulla grein fyrir þessu og því er harmur hans meiri en annarra. Auk föðurástarinnar greinir sagan frá móðurástinni: móðirin (Frigg) óttast um líf sonarins og grípur til ráðstafana; en jafnframt uggir hún ekki að sér og ljóstrar leyndarmáli upp – og sonurinn deyr.
Framhaldsskóli.is 71
Segja má að Baldur og goðin hafi storkað örlögunum með því að „leika sér að eldinum“. Þeim hefndist fyrir það. Slíkt er reyndar algengt og væri gaman að fá nemendur til að benda á dæmi um slíkt úr nútíð og fortíð.
Margar sögur, gamlar og nýjar, greina frá bróðurdrápi (mjög algengt og fornt minni, sbr. Kain og Abel í gamla testamentinu, fóstbræðurna Bolla og Kjartan í Laxdælu o.s.frv.): hinn saklausi lætur lífið.
Hugtökin handbani og ráðbani koma upp í hugann: Loki er ráðbaninn en Höður handbani. „Höfuðpaurinn“ fær grandalausan mann til að fremja sjálfan glæpinn.
Alþekkt minni goðsagna birtast okkur í þessari sögu, sbr. t.d. hamskipti (Loki sem kona og gýgur). Hér birtist okkur líka sú þrá mannsins að geta kallað látna ástvini til lífsins á ný: það reynist vonlaust.
Þá má benda á aðra ósk manna sem er sú að eignast gull án þess að hafa nokkuð fyrir því, sbr. hringinn Draupni sem getur af sér átta hringi níundu hverja nótt.
Fjölmörg skáld hafa ausið úr brunni Snorra-‐Eddu í sköpun sinni. Vísanir í eddurnar eru óteljandi og m.a. af þeim sökum er mikilvægt að fólk þekki til hennar. Benda má á hringhendu Stephans G. Stephanssonar í þessu sambandi, Leikslokin. Hvert sem hallast hugans skeið heims um galla og trúna: fara allir eina leið: yfir Gjallarbrúna. Með öðrum orðum: við förum öll til Heljar, við deyjum öll; það eru „leikslok“ okkar.
50. kafli (Refsing Loka)
Þá mælti Gangleri: „Allmiklu kom Loki á leið er hann olli fyrst því er Baldur var veginn og svo því er hann varð eigi leystur frá Helju. Eða hvort varð honum þessa nokkuð hefnt?“
Hár segir: „Goldið var honum þetta svo að hann mun lengi kennast. Þá er guðin voru orðin honum svo reið sem von var, hljóp hann á braut og fal sig á fjalli nokkru, gerði þar hús og fernar dyr að hann mátti sjá úr húsinu í allar áttir. En oft um daga brá hann sér í lax líki, og falst þá þar sem heitir Fránangursfoss. Þá hugsaði hann fyrir sér hverja vél æsir myndu til finna að taka hann í fossinum. En er hann sat í húsinu tók hann língarn og reið á ræksna, svo sem net er síðan gert, en eldur brann fyrir honum. Þá sá hann að æsir áttu skammt til hans, og hafði Óðinn séð úr Hliðskjálfinni hvar hann var. Hann hljóp þegar upp og út í ána og kastaði netinu fram á eldinn.
En er æsir komu til hússins þá gekk sá fyrst inn er allra var vitrastur, er Kvasir hét. Og er hann sá á eldinum fölskvann, er netið hafði brunnið, þá skildi hann að það myndi vél vera til að taka fiska og sagði ásunum. Því næst tóku þeir og gerðu sér net eftir því sem þeir sáu á fölskva að Loki hafði gert. Og er búið var netið þá fara æsir til árinnar
Framhaldsskóli.is 72
og kasta neti í fossinn. Hélt Þór öðrum netshálsi og öðrum héldu allir æsir, og drógu netið. En Loki fór fyrir og leggst niður í milli steina tveggja. Drógu þeir netið yfir hann og kenndu að kvikt var fyrir og fara í annað sinn upp til fossins og kasta út netinu og binda við svo þungt að eigi skyldi undir mega fara. Fer þá Loki fyrir netinu. En er hann sér að skammt var til sævar þá hleypur hann upp yfir þinulinn og rennir upp í fossinn.
Nú sáu æsirnir hvar hann fór. Fara enn upp til fossins og skipta liðinu í tvo staði en Þór veður eftir miðri ánni, og fara svo út til sævar. En er Loki sér tvo kosti: Var það lífsháski að hlaupa á sæinn, en hitt var annar að hlaupa enn yfir netið, og það gerði hann, hljóp sem snarast yfir netþinulinn. Þór greip eftir honum og tók um hann og renndi hann í hendi honum svo að staðar nam höndin við sporðinn. Og er fyrir þá sök laxinn afturmjór.
Nú var Loki tekinn griðalaus og farið með hann í helli nokkurn. Þá tóku þeir þrjár hellur og settu á egg og lustu rauf á hellunni hverri. Þá voru teknir synir Loka, Váli og Nari eða Narfi. Brugðu æsir Vála í vargs líki og reif hann í sundur Narfa, bróður sinn. Þá tóku æsir þarma hans og bundu Loka með yfir þá þrjá eggsteina – stendur einn undir herðum, annar undir lendum, þriðji undir knésbótum – og urðu þau bönd að járni. Þá tók Skaði eiturorm og festi upp yfir hann svo að eitrið skyldi drjúpa úr orminum í andlit honum. En Sigyn, kona hans, stendur hjá honum og heldur mundlaug undir eiturdropa. En þá er full er mundlaugin þá gengur hún og slær út eitrinu. En meðan drýpur eitrið í andlit honum. Þá kippist hann svo hart við að jörð öll skelfur. Það kallið þér landskjálfta. Þar liggur hann í böndum til ragnarökkurs.“
ræksn(i): hnútur, möskvi fölskvi: brunnar leifar vél: bragð, tæki
netsháls: efra horn á enda nets þinull: netteinn
Spurningar 1. Hvað heitir fossinn þar sem Loki faldist? 2. Upphafi hvers konar veiða má segja að Loki eigi mestan þátt í samkvæmt sögunni? 3. Hvað í kaflanum er til marks um að Þór sé sterkari en aðrir æsir? 4. Hvers vegna synti laxinn (Loki) ekki út í sjó? 5. Hví er laxinn afturmjór? 6. Hvert var „hlutverk“ sona Loka þegar kom að því að refsa Loka? 7. Hvernig útskýrir sagan jarðskjálfta?
Framhaldsskóli.is 73
Hugleiðingar
Enn fáum við skýringu á fyrirbærum í náttúrunni: sagan skýrir það að laxinn sé afturmjór og að jarðskjálftar stafi af kippum Loka við að fá eitrið í andlitið.
Sigyn er hér fulltrúi hinnar fórnfúsu eiginkonu sem gerir það sem hún getur til að lina þjáningar eignmanns síns: ást hennar er sterkari en aðrar tilfinningar. Ýmis seinni tíma skáld hafa lagt út af þessu.
Frumlegt er atriðið um netið: Loki „grefur sjálfum sér gröf“ með því að hugsa þá refsingu sem æsir geta beitt, þ.e. hann býr til net. Þetta er alþekkt í lífinu: menn gæla við hætturnar, leika sér að eldinum, búa til sönnunargögn sem nota má gegn þeim (sbr. t.d. þegar menn láta taka myndir af sér við glæpsamlegar athafnir). Minnst er á tvo „útsýnisstaði“ í kaflanum. Fjallið þar sem Loki gerði húsið og svo Hliðskjálf Óðins. Augljóst er að enginn getur falið sig fyrir auga Óðins, jafnvel klækjarefurinn Loki á sér ekki undankomu auðið. 51. kafli (Ragnarökkur)
Þá mælti Gangleri: „Hver tíðindi eru að segja frá um ragnarökkur? Þess hef eg eigi fyrr heyrt getið.“
Hár segir: „Mikil tíðindi eru þaðan að segja og mörg. Þau hin fyrstu að vetur sá kemur er kallaður er Fimbulvetur. Þá drífur snær úr öllum áttum. Frost eru þá mikil og vindar hvassir. Ekki nýtur sólar. Þeir vetur fara þrír saman og ekki sumar milli. En áður ganga svo aðrir þrír vetur að þá er um alla veröld orustur miklar. Þá drepast bræður fyrir ágirni sakir, og enginn þyrmir föður eða syni í manndrápum eða sifjasliti. Svo segir í Völuspá:
Bræður munu berjast og að bönum verðast, munu systrungar sifjum spilla. Hart er með höldum, hórdómur mikill, skeggjöld, skálmöld, skildir klofnir, vindöld, vargöld áður veröld steypist.
(Völuspá, 44. erindi)
að bönum verðast: verða banamenn hver annars
sifjum spilla: spilla frændsemi eða tengdum
höldar: menn
skeggöld: vígöld (skeggja: skeggöxi)
skálmöld: ófriðaröld (skálm: sverð)
vargöld: grimmdaröld (vargur: úlfur)
Þá verður það er mikil tíðindi þykja að úlfurinn gleypir sólina og þykir mönnum það mikið mein. Þá tekur annar úlfurinn tunglið og gerir sá og mikið ógagn. Stjörnurnar hverfa af himninum. Þá er og það til tíðinda að svo skelfur jörð öll og björg að viðir losna úr jörðu upp, en björgin hrynja, en fjötrar allir og bönd brotna og slitna.
Framhaldsskóli.is 74
Þá verður Fenrisúlfur laus. Þá geysist hafið á löndin fyrir því að þá snýst Miðgarðsormur í jötunmóð og sækir upp á landið. Þá verður og það að Naglfar losnar, skip það er svo heitir. Það er gert af nöglum dauðra manna og er það fyrir því varnanar vert ef maður deyr með óskornum nöglum að sá maður eykur mikið efni til skipsins Naglfars, en goðin og menn vildu seint að gert yrði. En í þessum sævargang flýtur Naglfar. Hrymur heitir jötunn er stýrir Naglfari.
En Fenrisúlfur fer með gapandi munn og er hinn efri kjaftur við himni en hinn neðri við jörðu. Gapa myndi hann meira ef rúm væri til. Eldar brenna úr augum hans og nösum. Miðgarðsormur blæs svo eitrinu að hann dreifir loft öll og lög, og er hann allógurlegur, og er hann á aðra hlið úlfinum.
Í þessum gný klofnar himinninn og ríða þaðan Múspellssynir. Surtur ríður fyrst, og fyrir honum og eftir bæði eldur brennandi. Sverð hans er gott mjög. Af því skín bjartara en af sólu. En er þeir ríða Bifröst þá brotnar hún, sem fyrr er sagt. Múspells megir sækja fram á þann völl er Vígríður heitir. Þar kemur og þá Fenrisúlfur og Miðgarðsormur. Þar er og þá Loki kominn og Hrymur og með honum allir hrímþursar, en Loka fylgja allir Heljarsinnar. En Múspellssynir hafa einir sér fylking, og er sú björt mjög. Völlurinn Vígríður er hundrað rasta víður á hvern veg.
En er þessi tíðindi verða þá stendur upp Heimdallur og blæs ákaflega í Gjallarhorn og vekur upp öll guðin og eiga þau þing saman. Þá ríður Óðinn til Mímisbrunns og tekur ráð af Mími fyrir sér og sínu liði. Þá skelfur askur Yggdrasils og enginn hlutur er þá óttalaus á himni eða jörðu.
Æsir hervæða sig og allir einherjar og sækja fram á völluna. Ríður fyrstur Óðinn með gullhjálm og fagra brynju og geir sinn er Gungnir heitir. Stefnir hann móti Fenrisúlfi, en Þór fram á aðra hlið honum, og má hann ekki duga honum, því að hann hefur fullt fang að berjast við Miðgarðsorm. Freyr berst móti Surti og verður harður samgangur áður Freyr fellur. Það verður hans bani er hann missir þess hins góða sverðs er hann gaf Skírni.
Þá er og laus orðinn hundurinn Garmur er bundinn er fyrir Gnipahelli. Hann er hið mesta forað. Hann á víg móti Tý og verður hvor öðrum að bana. Þór ber banaorð af Miðgarðsormi og stígur þaðan braut níu fet. Þá fellur hann dauður til jarðar fyrir eitri því er ormurinn blæs á hann. Úlfurinn gleypir Óðin. Verður það hans bani. En þegar eftir snýst fram Víðar og stígur öðrum fæti í neðri kjaft úlfsins. Á þeim fæti hefur hann þann skó er allan aldur hefur verið til safnað. Það eru bjórar þeir er menn sníða úr skóm sínum fyrir tám eða hæli. Því skal þeim bjórum braut kasta sá maður er að því vill hyggja að koma ásunum að liði. Annarri hendi tekur hann hinn efri kjaft úlfsins og rífur sundur gin hans, og verður það úlfsins bani.
Loki á orustu við Heimdall, og verður hvor annars bani. Því næst slyngur Surtur eldi yfir jörðina og brennir allan heim. Svo er sagt í Völuspá [sjá erindi 45–55]:
Framhaldsskóli.is 75
Hátt blæs Heimdallur, horn er á lofti, mælir Óðinn við Mímis höfuð. Skelfur Yggdrasils askur standandi. Ymur hið aldna tré, en jötunn losnar.
ymur: stynur
hið aldna tré: askurinn
jötunn: (sennilega) Loki
Hvað er með ásum? Hvað er með álfum? Ymur allur Jötunheimur, æsir eru á þingi. Stynja dvergar fyrir steindurum, veggbergs vísir. Vitið ér enn eða hvað?
[Seinni hluta vísunnar mætti taka saman: Dvergar, kunnugir í bjarginu, stynja úti fyrir steinum sínum]
Hrymur ekur austan hefist lind fyrir, snýst Jörmungandur í jötunmóði. Ormur knýr unnir, örn mun hlakka, slítur nái Niðfölur, Naglfar losnar.
hefist lind fyrir: ber fyrir sig skjöld (úr lindiviði)
Jörmungandur: Miðgarðsormur (jörmun: áhersluorð; gandur: stafur)
knýja: lemja
unnir (et. unnur): öldur
nár: lík
Kjóll fer austan, koma munu Múspells of lög lýðir, en Loki stýrir. Þar eru fíflmegir með freka allir, þeim er bróðir Býleists í för.
kjóll: skip
Múspells lýðir: jötnar
fíflmegir: jötnar (fífl: jötunn)
freki: úlfur
bróðir Býleists: Loki
Surtur fer sunnan með sviga lævi, skín af sverði sól valtíva. Grjótbjörg gnata, en gífur rata, troða halir helveg, en himinn klofnar.
(Sjá skýringu í 4. kafla.)
Framhaldsskóli.is 76
Þá kemur Hlínar harmur annar fram, er Óðinn fer við úlf vega, en bani Belja bjartur að Surti. Þar mun Friggjar falla angan.
[Þegar Óðinn berst við úlfinn kemur annar harmur Friggjar fram (fyrri harmurinn hefur verið dauði Baldurs).]
bani Belja: Freyr
angan Friggjar: eftirlæti Friggjar, þ.e. Óðinn
Gengur Óðins son við úlf vega, Víðar of veg að valdýri. Lætur hann megi Hveðrungs mund of standa hjör til hjarta. Þá er hefnt föður.
valdýr: hrædýr (Fenrisúlfur)
mögur Hveðrungs: sonur Loka, þ.e. Fenrisúlfur
mund: þ.e. með hendinni (tækisfall)
hjör: sverð
Gengur hinn mæri mögur Hlóðynjar neppur af naðri níðs ókvíðnum. Munu alir allir heimstöð ryðja er af móði drepur Miðgarðs véur.
[Hér er því lýst þegar Þór (sem er að þrotum kominn) hefur drepið orminn; og síðan er sagt að allir menn muni farast (ryðja heimsstöð) þegar verndari Miðgarðs (Miðgarðs véur, þ.e. Þór) drepur.]
mær: ágætur, frægur, bjartur
mögur Hlóðynjar: sonur Jarðar: Þór
neppur: að þrotum kominn
naður: ormur
Sól mun sortna, sökkur fold í mar, hverfa af himni heiðar stjörnur. Geisar eimi og aldurnari, leikur hár hiti við himin sjálfan.
eimi: eldur
aldurnari (sennilega): eldur
Hér segir enn svo:
Framhaldsskóli.is 77
Vígríður heitir völlur er finnast vígi að Surtur og hin svásu guð. Hundrað rasta hann er á hverjan veg. Sá er þeim völlur vitaður.“
(Sjá Vafþrúðnismál, 18. erindi)
svás: blíður
sá er þeim völlur vitaður: sá völlur er þeim ætlaður
megir (ft. af mögur): synir geir: spjót Spurningar
1. Hver er fyrsta vísbending um yfirvofandi ragnarökkur (ragnarök)? 2. Hvað verður um sólina og tunglið? 3. Hvað er naglfar? 4. Hvers vegna telur þú að eyjan Surtsey hafi fengið þetta nafn þegar hún
myndaðist suður af Vestmannaeyjum? 5. Hvað verður um Óðin? 6. Hvernig fer fyrir Þór og Miðgarðsormi? 7. Hvað verður um Fenrisúlf? 8. Hvað verður um heiminn?
52. kafli
Þá mælti Gangleri: „Hvað verður þá eftir er brenndur er himinn og jörð og heimur allur og dauð goðin öll og allir einherjar og allt mannfólk? Og hafið þér áður sagt að hver maður skal lifa í nokkrum heimi um allar aldir!“
Þá svarar Þriðji: „Margar eru þá vistir góðar og margar illar. Best er þá að vera á Gimlé á himni, og allgott er til góðs drykkjar þeim er það þykir gaman, í þeim sal er Brimir heitir. Hann stendur á Ókólni. Sá er og góður salur er stendur á Niðafjöllum, gjör af rauðu gulli. Sá heitir Sindri. Í þessum sölum skulu byggja góðir menn og siðlátir.
Á Náströndum er mikill salur og illur og horfa í norður dyr. Hann er ofinn allur ormahryggjum sem vandahús, en ormahöfuð öll vita inn í húsið og blása eitri svo að eftir salnum renna eiturár, og vaða þær ár eiðrofar og morðvargar, svo sem hér segir:
Sal veit ég standa sólu fjarri Náströndu á, norður horfa dyr, falla eiturdropar inn of ljóra,
(Sjá Völuspá, 37.–38. erindi)
ljóri: gluggi
Framhaldsskóli.is 78
sá er undinn salur orma hryggjum. Skulu þar vaða þunga strauma menn meinsvara og morðvargar.
menn meinsvara: meinsærismenn
En í Hvergelmi er verst: Þar kvelur Níðhöggur nái framgengna.“
(Sjá Völuspá, 38. erindi)
Níðhöggur: hinn dimmi dreki
framgenginn: framliðinn, dáinn
vandahús: hús með fléttuðum veggjum. Spurningar
1. Hvar er best að vera þegar brenndur er himinn og jörð? 2. Hvað einkennir salinn á Niðafjöllum? 3. Hvar er verst að vera við ragnarökkur (ragnarök) og hvers vegna? 4. Hvað gerir Níðhöggur? Hugleiðing
Þessi kafli greinir frá því að lífið haldi áfram og menn fara í ólíka staði eins og fyrr. Þetta er ekki ósvipað kenningum kristinna manna um góðar vistarverur þeim góðu til handa, og illar þeim illu. Breytni manna í lífinu skiptir greinilega máli viðvíkjandi því sem gerist eftir dauðann.
53. kafli
Þá mælti Gangleri: „Hvort lifa nokkur goðin þá, eða er þá nokkur jörð eða himinn?“
Hár segir: „Upp skýtur jörðunni þá úr sænum og er þá græn og fögur. Vaxa þá akrar ósánir. Víðar og Váli lifa, svo að eigi hefur særinn og Surtalogi grandað þeim, og byggja þeir á Iðavelli, þar sem fyrr var Ásgarður, og þar koma þá synir Þórs, Móði og Magni, og hafa þar Mjöllni. Því næst koma þar Baldur og Höður frá Heljar, setjast þá allir samt og talast við og minnast á rúnir sínar og ræða um tíðindi þau er fyrrum höfðu verið, um Miðgarðsorm og um Fenrisúlf. Þá finna þeir í grasinu gulltöflur þær er æsirnir höfðu átt. Svo er sagt:
Framhaldsskóli.is 79
Víðar og Váli byggja vé goða Þá er sortnar Surta logi, Móði og Magni skulu Mjöllni hafa Vingnis að vígþroti.
(Sjá Vafþrúðnismál, 51. erindi)
[Þegar eldurinn kulnar munu Víðar og Váli byggja helgistaðinn: Móði og Magni taka við Mjöllni þegar Þór (Vingnir) getur ekki barist lengur.]
En þar sem heitir Hoddmímisholt leynast menn tveir í Surtaloga er svo heita: Líf og Leifþrasir, og hafa morgundöggvar fyrir mat. En af þessum mönnum kemur svo mikil kynslóð að byggist heimur allur, svo sem hér segir: Líf og Leifþrasir, en þau leynast munu í holti Hoddmímis. Morgindöggvar þau að mat hafa, en þaðan af aldir alast.
(Sjá Vafþrúðnismál, 45. erindi)
Og hitt mun þér undarlegt þykja er sólin hefur getið dóttur eigi ófegri en hún er, og fer sú þá stígu móður sinnar, sem hér segir: Eina dóttur ber Álfröðull áður hana Fenrir fari, sú skal ríða er regin deyja móður brautir mær.
(Sjá Vafþrúðnismál, erindi 47)
fara: granda, eyða
regin: goð
En nú, ef þú kannt lengra fram að spyrja, þá veit eg eigi hvaðan þér kemur það, fyrir því að engan mann heyrði eg lengra segja fram aldarfarið. Og njóttu nú sem þú namst.“
frá Heljar: frá Hel (sennilega undanskilið: hús eða e-‐ð þess háttar: frá húsum Heljar) Spurningar
1. Hvað verður um jörðina efir ragnarökkur? 2. Hvar byggja Víðar og Váli? 3. Hverjir koma með Mjöllni? 4. Á hverju nærast Líf og Leifþrasir? 5. Á hvaða frægt fólk úr biblínunni gætu Líf og Leifþrasir minnt? 6. Hver fetar í spor móður sinnar?
Framhaldsskóli.is 80
Hugleiðing
Hér er lýst framtíðarástandi í goðheimi sem virðist svipað og það var áður en friðurinn spilltist. Friður ríkir á ný, og gulltöflurnar finnast. Og í mannheimum er ástandið lífvænlegt einnig.
54. kafli
Því næst heyrði Gangleri dyni mikla hvern veg frá sér og leit út á hlið sér, og þá er hann sést meir um þá stendur hann úti á sléttum velli. Sér þá enga höll og enga borg. Gengur hann þá leið sína braut og kemur heim í ríki sitt og segir þau tíðindi er hann hefur séð og heyrt.
Og eftir honum sagði hver maður öðrum þessar sögur.
En æsir setjast þá á tal og ráða ráðum sínum og minnast á þessar frásagnir allar er honum voru sagðar, og gefa nöfn þessi hin sömu, er áður voru nefnd, mönnum og stöðum þeim er þar voru, til þess að þá er langar stundir liðu, að menn skyldu ekki efast í að allir væru einir, þeir æsir er nú var frá sagt og þessir er þá voru þau sömu nöfn gefin. Þar var þá Þór kallaður, og er sá Ásaþór hinn gamli. Sá er Ökuþór og honum eru kennd þau stórvirki er Ektor gerði í Tróju. En það hyggja menn að Tyrkir hafi sagt frá Úlixes og hafi þeir hann kallað Loka, því að Tyrkir voru hans hinir mestu óvinir.
Spurningar
1. Hver var Gangleri? 2. Hverjir eru Hár, Jafnhár og Þriðji? 3. Hvaða heimild vísar Snorri gjarnan í í Gylfaginningu?
Hugleiðing
Gangleri (Gylfi konungur) stendur skyndilega á sléttum velli eins og Þór eftir fund sinn með Útgarða-‐Loka. Hann hefur verið ginntur, beittur sjónhverfingum; hann vissi ekki við hverja hann hafði átt orðastað. En augljóslega er hann orðinn fróðari en áður, og nú fer hann með þekkingu sína til manna.
Síðasta efnisgreinin er talin síðari tíma viðbót við texta Snorra.
Framhaldsskóli.is 81
Valdir kaflar úr Skáldskaparmálum Eftirfarandi verkefni eru ætluð nemendum sem kynna tilteknar frásagnir úr Skáldskaparmálum frammi fyrir bekkjarfélögum. Hugmyndin er að því fleiri sem kynningarnar verða, þeim mun fleiri goðsögum kynnist nemendur. Lögð skal áhersla á eftirfarandi þætti.
1. Nemendur vinni saman tveir eða þrír. Allir nemendur fái tækifæri til að taka þátt í a.m.k. einni kynningu.
2. Nemendur lesi viðkomandi kafla vel og fletti upp orðum sem þeir skilja ekki. 3. Nemendur æfi flutninginn vel og sjái til þess að hver og einn fái hæfilegt
hlutverk. 4. Nemendur velti fyrir sér hvernig tengja megi textann nútímanum. Með
öðrum orðum: Hvaða erindi á textinn við nútímann? 5. Til greina kemur að beita leikrænum brellum en þó skal það gert í hófi. 6. Hvert verkefni taki ekki meira en 10 mínútur.
Verkefni 1: Kaflar 1–3 í Skáldskaparmálum Epli Iðunnar a) Greinið frá aðdraganda þess að eplin hurfu úr vörslu ása og segið síðan frá rás atburða allt þar til Þjasi er drepinn og dóttir hans reynir að hefna hans. b) Hvaða dýpri merkingu mætti lesa út úr sögunni af Iðunnareplunum? (Dæmi: draumur mannanna um eilífa æsku/ æskudýrkunin o.s.frv.) Verkefni 2: Kaflar 5–6 í Skáldskaparmálum Skáldamjöðurinn a) Hér verði greint frá upphafi mjaðarins (griðin milli ása og vana), Kvasir og blóð hans, hlut dverganna, jötnanna, Gunnlaðar og Óðins. Hvers vegna heitir skáldskapur „Kvasis blóð“/ „Suttung mjöður“/ „fengur Óðins“/? Hvað er skáldfífla hlutur? b) Skáldskapur er hér tengdur vísindum, fæðum og viti og hinum voldugasta meðal ása. Hlutverk skáldskaparins er því geysimikilvægt. Ræðið þetta og tengið nútímanum (t.d. samkeppni í vísindum milli þjóða og fyrirtækja). Einnig má ræða meðferð Óðins á Gunnlöðu og svikum hans og klæjum. Hvað má ganga langt í slíkum efnum? Verkefni 3: Kafli 24 í Skáldskaparmálum Frá Hrugni jötni a) Endursegið kaflann í stuttu og einföldu máli. Dragið fram hlutverk Þórs meðal ása, styrkleika og hugsanlegan vanmátt. Hvet er hlutverk Þjálfa? b) Leggið út af kaflanum. Hvaða öfl takast hér á? Þekkjum við eitthvað svipað úr samtíma okkar? Bendið á hlutverk Óðins í textanum. Má greina e.k. afbrýðisemi Óðins í kaflalok? (Spenna í eigin fylkingu.)
Framhaldsskóli.is 82
Verkefni 4: Kafli 26 í Skáldskaparmálum För Þórs til Geirröðargarða Endursegið kaflann og verið viss um að skilja hvert atriði, t.d. orð Þórs: „Að ósi skal á stemma“; einnig hlutverk stafsins Gríðarvalar. Leggið áherlsu á svik Loka og hjálp Gríðar, sbr. málsháttinn „þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst“. Verkefni 5: Kafli 43 í Skáldskaparmálum Af smíðum Ívaldasona ok Sindra dvergs Endursegið kaflann. Hér er sögð sagan af hári Sifjar og helstu töfragripum ása. Leggið mat á vægi þessara gripa. Hvað finnst konum skipta máli? Hvað finnst körlum skipta máli? Er gull mikilvægara en hamar Þórs? Hvað skiptir mestu máli þá/ nú? Semsagt: Í kjölfar frásagnarinnar ræðið þið um gildi hluta í þátíð og nútíð. Verkefni 6: Kaflar 46–49 í Skáldskaparmálum Sagan um gullið og ógæfuna sem því fylgir Hér þarf a.m.k. fjögurra manna hóp.Tveir endursegi kafla 46 (um oturgjöldin). Tveir endursegi kafla 47, 48 og 49 (um Fáfni, Sigurð, Brynhildi og Gjúkunga). Verkefni 7: Kafli 50 í Skáldskaparmálum Dráp Gjúkunga og hefndir Guðrúnar Endursegið kafla 49 og 50 (um Sigurð, Guðrúnu, Gunnar, Högna, Hamdi og Sörla). Sagan um gullið og Niflunga er ein frægasta mýtan (goðsagan/ hetjusagan) úr germönskum sagnaheimi. Sagan er til í ótal gerðum en þessi er sú stysta og ein sú kraftmesta. Verkefni 8: Kafli 52 í Skáldskaparmálum Frá Fróða konungi og kvörninni Grótta Hér segja nemendur frá „mjöli Fróða“. Endursegið söguna og rýnið í þau gildi og þá lesti sem hér koma við sögu (friðarhugsun, græðgi o.s.frv.). Verkefni 9: Kaflar 53 og 54 í Skáldskaparmálum Frá Hrólfi kraka Danakonungi og Aðils Svíakonungi Hér endursegi nemendur sögur af Hrólfi kraka og átökum hans við Aðils, eiginmann móður sinnar. Hér mætti ræða um stolt, græðgi og orðstír. Er stundum í lagi að leggja á flótta? Leggjast menn stundum lágt í græðgi sinni?
Framhaldsskóli.is 83
1. Ægir sækir heim æsi.
Einn maðr er nefndr Ægir eða Hlér. Hann bjó í eyju þeiri, er nú er kölluð Hlésey. Hann var mjök fjölkunnigr. Hann gerði ferð sína til Ásgarðs, en æsir vissu fyrir ferð hans, ok var honum fagnat vel ok þó margir hlutir gervir með sjónhverfingum. Ok um kveldit, er drekka skyldi, þá lét Óðinn bera inn í höllina sverð ok váru svá björt, at þar af lýsti, ok var ekki haft ljós annat, meðan við drykkju var setit.
Þá gengu æsir at gildi sínu, ok settust í hásæti tólf æsir, þeir er dómendr skyldu vera ok svá váru nefndir: Þórr, Njörðr, Freyr, Týr, Heimdallr, Bragi, Víðarr, Váli, Ullr, Hænir, Forseti, Loki. Slíkt sama ásynjur: Frigg, Freyja, Gefjun, Iðunn, Gerðr, Sigyn, Fulla, Nanna. Ægi þótti göfugligt þar um at sjást. Veggþili öll váru þar tjölduð með fögrum skjöldum. Þar var ok áfenginn mjöðr ok mjök drukkit. Næsti maðr Ægi sat Bragi, ok áttust þeir vit drykkju ok orðaskipti. Sagði Bragi Ægi frá mörgum tíðendum, þeim er æsir höfðu átt.
2. Þjazi jötunn rænti Iðunni.
Hann hóf þar frásögn, at þrír æsir fóru heiman, Óðinn ok Loki ok Hænir, ok fóru um fjöll ok eyðimerkr, ok var illt til matar. En er þeir koma ofan í dal nakkvarn, sjá þeir öxnaflokk ok taka einn uxann ok snúa til seyðis. En er þeir hyggja, at soðit mun vera, raufa þeir seyðinn, ok var ekki soðit. Ok í annat sinn, er þeir raufa seyðinn, þá er stund var liðin, ok var ekki soðit. Mæla þeir þá sín á milli, hverju þetta mun gegna.
Þá heyra þeir mál í eikina upp yfir sik, at sá, er þar sat, kvaðst ráða því, er eigi soðnaði á seyðinum. Þeir litu til, ok sat þar örn ok eigi lítill.
Þá mælti örninn: "Vilið þér gefa mér fylli mína af uxanum, þá mun soðna á seyðinum."
Þeir játa því. Þá lætr hann sígast ór trénu ok sezt á seyðinn ok leggr upp þegar it fyrsta lær uxans tvau ok báða bóguna.
Þá varð Loki reiðr ok greip upp mikla stöng ok reiðir af öllu afli ok rekr á kroppinn erninum. Örninn bregzt við höggit ok flýgr upp. Þá var föst stöngin við bak arnarins, en hendr Loka við annan enda stangarinnar. Örninn flýgr hátt svá, at fætr Loka taka niðr grjót ok urðir ok viðu, en hendr hans, hyggr hann, at slitna munu ór öxlum. Hann kallar ok biðr allþarfliga örninn friðar. En hann segir, at Loki skal aldri lauss verða, nema hann veiti honum svardaga at koma Iðunni út of Ásgarð með epli sín, en Loki vill þat. Verðr hann þá lauss ok ferr til lagsmanna sinna, ok er eigi at sinni sögð fleiri tíðendi um þeira ferð, áðr þeir koma heim.
En at ákveðinni stundu teygir Loki Iðunni út um Ásgarð í skóg nökkurn ok segir, at hann hefir fundit epli þau, er henni munu gripir í þykkja, ok bað, at hon skal hafa með sér sín epli ok bera saman ok hin. Þá kemr þar Þjazi jötunn í arnarham ok tekr Iðunni ok flýgr braut með ok í Þrymheim til bús síns.
Framhaldsskóli.is 84
3. Loki náði Iðunni ok dráp Þjaza.
En æsir urðu illa við hvarf Iðunnar, ok gerðust þeir brátt hárir ok gamlir. Þá áttu þeir æsir þing, ok spyrr hverr annan, hvat síðast vissi til Iðunnar, en þat var sét síðast, at hon gekk út ór Ásgarði með Loka. Þá var Loki tekinn ok færðr á þingit, ok var honum heitit bana eða píslum. En er hann varð hræddr, þá kvaðst hann mundu sækja eftir Iðunni í Jötunheima, ef Freyja vill ljá honum valshams, er hon á.
Ok er hann fær valshaminn, flýgr hann norðr í Jötunheima ok kemr einn dag til Þjaza jötuns. Var hann róinn á sæ, en Iðunn var ein heima. Brá Loki henni í hnotarlíki ok hafði í klóm sér ok flýgr sem mest. En er Þjazi kom heim ok saknar Iðunnar, tekr hann arnarharminn ok flýgr eftir Loka, ok dró arnsúg í flugnum. En er æsirnir sá, er valrinn flaug með hnotina ok hvar örninn flaug, þá gengu þeir út undir Ásgarð ok báru þannig byrðar af lokarspánum. Ok þá er valrinn flaug inn of borgina, lét hann fallast niðr við borgarvegginn. Þá slógu æsirnir eldi í lokarspánuna, en örninn mátti eigi stöðva sik, er hann missti valsins. Laust þá eldinum í fiðri arnarins, ok tók þá af fluginn. Þá váru æsirnir nær ok drápu Þjaza jötun fyrir innan ásgrindr, ok er þat víg allfrægt.
En Skaði dóttir Þjaza jötuns, tók hjálm ok brynju ok öll hervápn ok ferr til Ásgarðs at hefna föður síns. En æsir buðu henni sætt ok yfirbætr ok it fyrsta, at hon skal kjósa sér mann af ásum ok kjósa at fótum ok sjá ekki fleira af.
Þá sá hon eins manns fætr forkunnarfagra ok mælti: "Þenna kýs ek. Fátt mun ljótt á Baldri."
En þat var Njörðr ór Nóatúnum.
Þat hafði hon ok í sættargerð sinni, at æsir skyldu þat gera, er hon hugði, at þeir skyldu eigi mega, at hlægja hana. Þá gerði Loki þat, at hann batt um skegg geitar nökkurrar ok öðrum enda um hreðjar sér, ok létu þau ýmsi eftir ok skrækði hvárt tveggja hátt. Þá lét Loki fallast í kné Skaða, ok þá hló hon. Var þá ger sætt af ásanna hendi við hana.
4. Af ætt Þjaza.
Svá er sagt, at Óðinn gerði þat til yfirbóta við Skaða, at hann tók augu Þjaza ok kastaði upp á himin ok gerði af stjörnur tvær.
Þá mælti Ægir: "Mikill þykkir mér Þjazi fyrir sér hafa verit, eða hvers kyns var hann?"
Bragi svarar: "Ölvaldi hét faðir hans, ok merki munu þér at þykkja, ef ek segi þér frá honum. Hann var mjök gullauðigr. En er hann dó ok synir hans skyldu skipta arfi, þá höfðu þeir mæling á gullinu, er þeir skiptu, at hverr skyldi taka munnfylli sína ok allir jafnmargar. Einn þeira var Þjazi annarr Iði, þriði Gangr. En þat höfum vér orðtak nú með oss at kalla gullit munntal þessa jötna, en vér felum í rúnum eða í skáldskap svá, at vér köllum þat mál eða orð eða tal þessa jötna."
Þá mælti Ægir: "Þat þykkir mér vel fólgit í rúnum."
Framhaldsskóli.is 85
5. Upphaf Suttungamjaðar.
Ok enn mælti Ægir: "Hvaðan af hefir hafizt sú íþrótt, er þér kallið skáldskap?"
Bragi svarar: "Þat váru upphöf til þess, at goðin höfðu ósætt við þat fólk, er Vanir heita. En þeir lögðu með sér friðstefnu ok settu grið á þá lund, at þeir gengu hvárirtveggju til eins kers ok spýttu í hráka sínum. En at skilnaði þá tóku goðin ok vildu eigi láta týnast þat griðamark ok sköpuðu þar ór mann. Sá heitir Kvasir. Hann er svá vitr, at engi spyrr hann þeira hluta, er eigi kann hann órlausn.
Hann fór víða um heim at kenna mönnum fræði, ok þá er hann kom at heimboði til dverga nökkurra, Fjalars ok Galars, þá kölluðu þeir hann með sér á einmæli ok drápu hann, létu renna blóð hans í tvau ker ok einn ketil, ok heitir sá Óðrerir, en kerin heita Són ok Boðn. Þeir blendu hunangi við blóðit, ok varð þar af mjöðr sá, er hverr, er af drekkr, verðr skáld eða fræðamaðr. Dvergarnir sögðu ásum, at Kvasir hefði kafnat í mannviti, fyrir því at engi var þar svá fróðr, at spyrja kynni hann fróðleiks.
Þá buðu þessir dvergar til sín jötni þeim, er Gillingr heitir, ok konu hans. Þá buðu dvergarnir Gillingi at róa á sæ með sér. En er þeir fóru fyrir land fram, reru dvergarnir á boða ok hvelfðu skipinu. Gillingr var ósyndr, ok týndist hann, en dvergarnir réttu skip sitt ok reru til lands. Þeir sögðu konu hans þenna atburð, en hon kunni illa ok grét hátt. Þá spurði Fjalarr hana, ef henni myndi hugléttara, ef hon sæi út á sæinn, þar er hann hafði týnzt, en hon vildi þat. Þá mælti hann við Galar, bróður sinn, at hann skal fara upp yfir dyrrnar, er hon gengi út, ok láta kvernstein falla í höfuð henni, ok talði sér leiðast óp hennar. Ok svá gerði hann.
Þá er þetta spurði Suttungr jötunn, sonr Gillings, ferr hann til ok tók dvergana ok flytr á sæ út ok setr þá í flæðarsker. Þeir biðja Suttung sér lífsgriða ok bjóða honum til sættar í fóðurgjald mjöðinn dýra, ok þat verðr at sætt með þeim. Flytr Suttungr mjöðinn heim ok hirðir, þar sem heita Hnitbjörg, setr þar til gæzlu dóttur sína, Gunnlöðu. Af þessu köllum vér skáldskap Kvasis blóð eða dvergadrekku eða fylli eða nökkurs konar lög Óðreris eða Boðnar eða Sónar eða farskost dverga, fyrir því at sá mjöðr flutti þeim fjörlausn ór skerinu, eða Suttungamjöð eða Hnitbjargalögr."
Þá mælti Ægir: "Myrkt þykkir mér þat mælt at kalla skáldskap með þessum heitum. En hvernig kómuzt þér æsir at Suttungamiði?"
6. Hversu Óðinn komst at miðinum.
Bragi svarar: "Sjá saga er til þess, at Óðinn fór heiman ok kom þar, er þrælar níu slógu hey. Hann spyrr, ef þeir vili, at hann brýni ljá þeira. Þeir játa því. Þá tekr hann hein af belti sér ok brýndi ljána, en þeim þótti bíta ljárnir miklu betr ok föluðu heinina, en hann mat svá, at sá, er kaupa vildi, skyldi gefa við hóf. En allir kváðust vilja ok báðu hann sér selja, en hann kastaði heininni í loft upp. En er allir vildu henda, þá skiptust þeir svá við, at hverr brá ljánum á háls öðrum.
Óðinn sótti til náttstaðar til jötuns þess, er Baugi hét, bróðir Suttungs. Baugi kallaði illt fjárhald sitt ok sagði, at þrælar hans níu höfðu drepizt, en talðist eigi vita sér ván
Framhaldsskóli.is 86
verkmanna. En Óðinn nefndist fyrir honum Bölverkr. Hann bauð at taka upp níu manna verk fyrir Bauga, en mælti sér til kaups einn drykk af Suttungamiði. Baugi kvaðst einskis ráð eiga at miðinum, sagði, at Suttungr vildi einn hafa, en fara kveðst hann mundu með Bölverki, ok freista, ef þeir fengi mjöðinn.
Bölverkr vann um sumarit níu manna verk fyrir Bauga, en at vetri beiddi hann Bauga leigu sínnar. Þá fara þeir báðir til Suttungs. Baugi segir Suttungi, bróður sínum, kaup þeira Bölverks, en Suttungr synjar þverliga hvers dropa af miðinum. Þá mælti Bölverkr til Bauga, at þeir skyldu freista véla nökkurra, ef þeir megi ná miðinum, en Baugi lætr þat vel vera. Þá dregr Bölverkr fram nafar þann, er Rati heitir, ok mælti, at Baugi skal bora bjargit, ef nafarrinn bítr. Hann gerir svá. Þá segir Baugi, at gegnum er borat bjargit, en Bölverkr blæss í nafarsraufina, ok hrjóta spænirnir upp í móti honum. Þá fann hann, at Baugi vildi svíkja hann, ok bað bora gegnum bjargit. Baugi boraði enn, en er Bölverkr blés annat sinn, þá fuku inn spænirnir. Þá brást Bölverkr í ormslíki ok skreið inn í nafarsraufina, en Baugi stakk eftir honum nafrinum ok missti hans.
Fór Bölverkr þar til, sem Gunnlöð var, ok lá hjá henni þrjár nætr, ok þá lofaði hon honum at drekka af miðinum þrjá drykki. Í inum fyrsta drykk drakk hann allt ór Óðreri, en í öðrum ór Boðn, í inum þriðja ór Són, ok hafði hann þá allan mjöðinn. Þá brást hann í arnarham ok flaug sem ákafast.
En er Suttungr sá flug arnarins, tók hann sér arnarham ok flaug eftir honum. En er æsir sá, hvar Óðinn flaug, þá settu þeir út í garðinn ker sín, en er Óðinn kom inn of Ásgarð, þá spýtti hann upp miðinum í kerin, en honum var þá svá nær komit, at Suttungr myndi ná honum, at hann sendi aftr suman mjöðinn, ok var þess ekki gætt. Hafði þat hverr, er vildi, ok köllum vér þat skáldfífla hlut. En Suttungamjöð gaf Óðinn ásunum ok þeim mönnum, er yrkja kunnu. Því köllum vér skáldskapinn feng Óðins ok fund ok drykk hans ok gjöf hans ok drykk ásanna."
7. Einkenni skáldskapar.
Þá mælti Ægir: "Hversu á marga lund breytið þér orðtökum skáldskapar, eða hversu mörg eru kyn skáldskaparins?"
Þá mælti Bragi; "Tvenn eru kyn, þau er greina skáldskap allan."
Ægir spyrr: "Hver tvenn?"
Bragi segir: "Mál ok hættir."
"Hvert máltak er haft til skáldskapar?"
"Þrenn er grein skáldskaparmáls."
"Hver?"
Framhaldsskóli.is 87
"Svá at nefna hvern hlut, sem heitir. Önnur grein er sú, er heitir fornöfn. In þriðja málsgrein er sú, er kölluð er kenning, ok er sú grein svá sett, at vér köllum Óðin eða Þór eða Tý eða einhvern af ásum eða álfum, ok hvern þeira, er ek nefni til, þá tek ek með heiti af eign annars ássins eða get ek hans verka nökkurra. Þá eignast hann nafnit, en eigi hinn, er nefndr var. Svá sem vér köllum sig-‐Tý eða hanga-‐Tý eða farma-‐Týr, þat er þá Óðins heiti, ok köllum vér þat kennt heiti, svá ok at kalla reiðar-‐Tý."
8. Orðum beint til ungra skálda.
En þetta er nú at segja ungum skáldum, þeim er girnast at nema mál skáldskapar ok heyja sér orðfjölða með fornum heitum eða girnast þeir at kunna skilja þat, er hulit er kveðit, þá skili hann þessa bók til fróðleiks ok skemmtunar. En ekki er at gleyma eða ósanna svá þessar frásagnir at taka ór skáldskapinum fornar kenningar, þær er höfuðskáld hafa sér líka látit. En eigi skulu kristnir menn trúa á heiðin goð ok eigi á sannyndi þessa sagna annan veg en svá sem hér finnst í upphafi bókar.
9. Óðinsheiti ok Óðinskenningar.
Nú skal láta heyra dæmin, hvernig höfuðskáldin hafa látit sér sóma at yrkja eftir þessum heitum ok kenningum, svá sem segir Arnórr jarlaskáld, at Óðinn heiti Alföðr:
1. Nú hykk slíðrhugaðs segja, síð léttir mér stríða, þýtr Alföður, ýtum jarls kostu, brim hrosta.
Hér kallar hann ok skáldskapinn hrostabrim Alföður. Hávarðr halti kvað svá:
2. Nú er jódraugum ægis arnar flaug of hauga; hygg ek, at heimboð þiggi Hangagoðs af vangi.
Svá kvað Víga-‐Glúmr:
3. Lattisk herr með höttu Hangatýs at ganga, þóttit þeim at hætta þekkiligt, fyrir brekku.
Svá kvað Refr:
4. Oft kom, jarðar leiftra
Framhaldsskóli.is 88
er Baldr hniginn skaldi, hollr at helgu fulli Hrafnásar mér, stafna.
Svá kvað Eyvindr skáldaspillir:
5. Ok Sigurð hinn er svönum veitti hróka bjór Haddingja vals Farmatýs, fjörvi næmðu jarðráðendr á Öglói.
Svá kvað Glúmr Geirason:
6. Þar var, þrafna byrjar þeim stýrðu goð Beima sjalfr í sæki-‐alfi Sigtýr Atals dýra.
Svá kvað Eyvindr enn:
7. Göndul ok Skögul sendi Gautatýr at kjósa of konunga, hverr Yngva ættar skyldi með Óðni fara ok í Valhöllu vera.
Svá kvað Úlfr Uggason:
8. Ríðr at vilgi víðu víðfrægr, en mér líða, Hroftatýr, of hváfta hróðrmál, sonar báli.
Svá kvað Þjóðólfr inn hvinverski:
9. Valr lá þar á sandi, vitinn inum eineygja Friggjar faðmbyggvi, fögnuðum dáð slíkri.
Framhaldsskóli.is 89
Þat kvað Hallfreðr:
10. Sannyrðum spenr sverða snarr þiggjandi viggjar barrhaddaða byrjar biðkván und sik Þriðja.
Hér er þess dæmi, at jörð er kölluð kona Óðins í skáldskap. Svá er hér sagt, at Eyvindr kvað:
11. Hermóðr ok Bragi, kvað Hroftatýr, gangið í gögn grami, því at konungr ferr, sá er kappi þykkir, til hallar hinig.
Svá kvað Kormákr:
12. Eykr með ennidúki jarðhljótr día fjarðar breyti, hún sá er, beinan, bindr. Seið Yggr til Rindar.
Svá kvað Steinþórr:
13. Forngörvan á ek firnum farms Gunnlaðar arma horna fors at hrósa hlítstyggs ok þó lítinn.
Svá kvað Úlfr Uggason:
14. Þar hykk sigrunni svinnum sylgs valkyrjur fylgja heilags tafns ok hrafna. Hlaut innan svá minnum.
Svá kvað Egill Skalla-‐Grímsson:
15. Blætk eigi af því bróður Vílis, goðjaðar,
Framhaldsskóli.is 90
at ek gjarn séa; þó hefr Míms vinr mér of fengit bölva bætr, er it betra telk. 16. Gafumk íþrótt ulfs of bági, vígi vanr, vammi firrða.
Hér er hann kallaðr goðjaðarr ok Míms vinr ok úlfs bági. Svá kvað Refr:
17. Þér eigu vér veigar, Valgautr, salar brautar, Fals, hrannvala fannar, framr, valdi tamr, gjalda.
Svá kvað Einarr skálaglamm:
18. Hljóta mun ek, né hlítir, Hertýs, of þat frýju, fyrir örþeysi at ausa austr víngnóðar flausta.
Svá kvað Úlfr Uggason:
19. Kostigr ríðr at kesti, kynfróðs, þeim er goð hlóðu, Hrafnfreistaðar, hesti Heimdallr, at mög fallinn.
Svá er sagt í Eiríksmálum:
20. Hvat er þat drauma, kvað Óðinn, ek hugðumk fyrir dag rísa, Valhöll ryðja fyrir vegnu fólki, vekða ek Einherja, bæða ek upp rísa, bekki at strá, bjórker leyðra, valkyrjur vín bera, sem vísi kæmi.
Framhaldsskóli.is 91
Þat kvað Kormákr:
21. Algildan bið ek aldar allvald of mér halda ýs bifvangi Yngva ungr. Fór Hroftr með Gungni.
Þat kvað Þórálfr:
22. Sagði hitt, er hugði, Hliðskjalfar gramr sjalfum, hlífar-‐styggs þar er höggnir Háreks liðar váru.
Svá kvað Eyvindr:
23. Hinn, er Surts ór sökkdölum farmögnuðr fljúgandi bar.
Svá kvað Bragi:
24. Þat erumk sýnt, at snimma sonr Aldaföðrs vildi afls við úri þafðan jarðar reist of freista.
Svá kvað Einarr:
25. Því at fjölkostigr flestu flestr ræðr við son Bestlu, tekit hefk morðs til mærðar, mæringr en þú færa.
Svá kvað Þorvaldr blönduskáld:
26. Nú hef ek margt í miði greipat burar Bors, Búra arfa.
Framhaldsskóli.is 92
10. Skáldskaparkenningar.
Hér skal heyra, hvé skáldin hafa kennt skáldskapinn eftir þessum heitum, er áðr eru rituð, svá sem er at kalla Kvasis dreyra ok dverga skip, dverga mjöð, jötna mjöð, Suttunga mjöð, Óðins mjöð, ása mjöð, föðurgjöld jötna, lögr Óðreris ok Boðnar ok Sónar ok fyllr, lögr Hnitbjarga, fengr ok fundr ok farmr ok gjöf Óðins, svá sem hér er kveðit, er orti Einarr skálaglamm:
27. Hugstóran bið ek heyra, heyr, jarl, Kvasis dreyra, foldar vörð á fyrða fjarðleggjar brim dreggjar.
Ok sem kvað Einarr enn skálaglamm:
28. Ullar gengr of alla asksögn þess, er hvöt magnar byrgis böðvar sorgar, bergs geymi-‐lá dverga.
Svá sem kvað Ormr Steinþórsson:
29. At væri borit bjórs bríkar ok mitt lík, rekkar nemi dauðs drykk Dvalins, í einn sal.
Ok sem Refr kvað:
30. Grjót-‐aldar ték gildi geðreinar Þórsteini; berg-‐Mæra glymr bára, bið ek lýða kyn hlýða.
Svá sem kvað Egill:
31. Buðumk hilmir löð, þar á ek hróðrs of kvöð, bar ek Óðins mjöð á Engla bjöð.
Ok sem kvað Glúmr Geirason:
Framhaldsskóli.is 93
32. Hlýði, hafta beiðis hefk, mildingar, gildi; því biðjum vér þagnar, þegna tjón at fregnum.
Ok sem kvað Eyvindr:
33. Vilja ek hljóð at Hárs líði, meðan Gillings gjöldum yppik, meðan hans ætt í hverlegi galgafarms til goða teljum.
Svá sem Einarr kvað skálaglamm:
34. Eisar vágr fyr vísa, verk Rögnis mér hagna, þýtr Óðreris alda, aldrhafs, við fles galdra.
Ok enn sem hann kvað:
35. Nú er þats Boðnar bára, berg-‐Saxa, tér vaxa, gervi í höll ok hlýði hljóð fley jöfurs þjóðir.
Ok sem kvað Eilífr Guðrúnarson:
36. Verðið ér, alls orða oss grær of kon mæran á sefreinu Sónar sáð, vingjöfum ráða.
Svá sem kvað Völu-‐Steinn:
37. Heyr Míms vinar mína, mér er fundr gefinn Þundar, við góma sker glymja glaumbergs, Egill, strauma.
Framhaldsskóli.is 94
Svá kvað Ormr Steinþórsson:
38. Seggir þurfut ala ugg, engu sný ek í Viðurs feng háði, kunnum hróðrsmíð haga, of mínn brag.
Svá kvað Úlfr Uggason:
39. Haldrgegnis ték Hildar hugreifum Áleifi, hann vil ek at gjöf Grímnis, geðfjarðar lá, kveðja.
Skáldskapr er kallaðr sjár eða lögr dverganna, fyrir því at Kvasis blóð var lögr í Óðreri, áðr mjöðrinn væri gerr, ok þar gerðist hann í katlinum, ok er hann kallaðr fyrir því hverlögr Óðins, svá sem kvað Eyvindr ok fyrr var ritat:
40. Meðan hans ætt í hverlegi galgafarms til goða teljum.
Enn er kallaðr skáldskaprinn far eða líð dverganna. Líð heitir öl, ok líð heitir skip. Svá er tekit til dæma, at skáldskapr er nú kallaðr fyrir því skip dverga, svá sem hér segir:
41. Bæði á ek til brúðar bergjarls ok skip dverga sollinn vind at senda seinfyrnd götu eina.
11. Þórskenningar.
Hvernig skal kenna Þór? Svá, at kalla hann son Óðins ok Jarðar, faðir Magna ok Móða ok Þrúðar, verr Sifjar, stjúpfaðir Ullar, stýrandi ok eigandi Mjöllnis ok megingjarða, Bilskirrnis, verjandi Ásgarðs, Miðgarðs, dólgr ok bani jötna ok trollkvinna, vegandi Hrungnis, Geirröðar, Þrívalda, dróttinn Þjálfa ok Rösku, dólgr Miðgarðsorms, fóstri Vingnis ok Hlóru. Svá kvað Bragi skáld:
42. Vaðr lá Viðris arfa vilgi slakr, er rakðisk, á Eynæfis öndri, Jörmungandr at sandi.
Framhaldsskóli.is 95
Svá kvað Ölvir hnúfa:
43. Æstisk allra landa umbgjörð ok sonr Jarðar.
Svá kvað Eilífr:
44. Vreiðr stóð Vrösku bróðir, vá gagn faðir Magna; skelfra Þórs né Þjalfa þróttar steinn við ótta.
Ok sem kvað Eysteinn Valdason:
45. Leit á brattrar brautar baug hvassligum augum, æstisk áðr at flausti öggs búð, faðir Þrúðar.
Enn kvað Eysteinn:
46. Sín bjó Sifjar rúni snarla fram með karli, hornstraum getum Hrímnis hræra, veiðarfæri.
Ok enn kvað hann:
47. Svá brá viðr, at, sýjur, seiðr, renndu fram breiðar, jarðar, út af borði Ulls mágs hnefar skullu.
Svá kvað Bragi:
48. Hamri fórsk í hægri hönd, þá er allra landa, ægir öflugbarða, endiseiðs of kenndi.
Svá kvað Gamli:
Framhaldsskóli.is 96
49. Þá er gramr, hinn er svik samðit, snart Bilskirrnis hjarta, grundar fisk með grandi gljúfrskeljungs nam rjúfa.
Svá kvað Þorbjörn dísarskáld:
50. Þórr hefir Yggs með árum Ásgarð af þrek varðan.
Svá kvað Bragi:
51. Ok borðróins barða brautar hringr inn ljóti á haussprengi Hrungnis harðgeðr neðan starði.
Enn kvað Bragi:
52. Vel hafið yðrum eykjum aftr, Þrívalda, haldit simbli sumbls of mærum, sundrkljúfr níu höfða.
Svá kvað Eilífr:
53. Þröngvir gein við þungum þangs rauðbita tangar kveldrunninna kvinna kunnleggs alinmunni.
Svá kvað Úlfr Uggason:
54. Þjokkvöxnum kvaðsk þykkja þikling firinmikla hafra njóts at höfgum hætting megindrætti.
Ok enn þetta:
55. Fullöflugr lét fellir fjall-‐Gauts hnefa skjalla,
Framhaldsskóli.is 97
rammt mein var þat, reyni reyrar leggs við eyra. (56.) Víðgymnir laust Vimrar vaðs af fránum naðri hlusta grunn við hrönnum. Hlaut innan svá minnum.
Hér er hann kallaðr jötunn Vimrar vaðs. Á heitir Vimur, er Þórr óð, þá er hann sótti til Geirröðargarða. Ok svá kvað Vetrliði skáld:
57. Leggi brauzt þú Leiknar, lamðir Þrívalda, steypðir Starkeði, stéttu of Gjalp dauða.
Ok svá kvað Þorbjörn dísarskáld:
58. Ball í Keilu kolli, Kjallandi brauzt þú alla, áðr draptu Lút ok Leiða, léztu dreyra Búseyru; heftir þú Hengjankjöftu, Hyrrokkin dó fyrri; þó var snemr in sáma Svívör numin lífi.
12. Baldrskenningar.
Hvernig skal kenna Baldr? Svá, at kalla hann son Óðins ok Friggjar, ver Nönnu, faðir Forseta, eigandi Hringhorna ok Draupnis, dólgr Haðar, Heljar sinni, Gráta-‐goð. Úlfr Uggason hefir kveðit eftir sögu Baldrs langt skeið í Húsdrápu, ok ritat er áðr dæmi til þess, er Baldr er svá kenndr.
13. Njarðarkenningar.
Hvernig skal kenna Njörd? Svá, at kalla hann Vanaguð eða Vananið eða Van ok föður Freys ok Freyju, fégjafa guð. Svá segir Þórðr Sjáreksson:
59. Varð sjalf suna, nama snotr una, Kjalarr of tamði, kváðut Hamði, Goðrún bani,
Framhaldsskóli.is 98
goðbrúðr Vani, heldr vel mara, hjörleik spara.
Hér er þess getit, er Skaði gekk frá Nirði, sem fyrr er ritat.
14. Freyskenningar.
Hvernig skal kenna Frey? Svá, at kalla hann son Njarðar, bróður Freyju ok enn Vanaguð ok Vananið ok Vanr ok árguð ok fégjafa. Svá kvað Egill Skalla-‐Grímsson:
60. Því at Grjótbjörn of gæddan hefir Freyr ok Njörðr at féarafli.
Freyr er kallaðr Belja dólgr, svá sem kvað Eyvindr skáldaspillir:
61. Þá er útröst jarla bági Belja dolgs byggja vildi.
Hann er eigandi Skíðblaðnis ok galtar þess, er Gullinbursti heitir, svá sem hér er sagt:
62. Ívalda synir gengu í árdaga Skíðblaðni at skapa, skipa bazt, skírum Frey, nýtum Njarðar bur.
Svá segir Úlfr Uggason:
63. Ríðr á börg til borgar böðfróðr sonar Óðins Freyr ok folkum stýrir fyrstr inum gulli byrsta.
Hann heitir ok Slíðrugtanni.
Framhaldsskóli.is 99
15. Heimdallarkenningar.
Hvernig skal Heimdall kenna? Svá, at kalla hann son níu mæðra eða vörð goða, svá sem fyrr er ritat, eða hvíta ás, Loka dólg mensækir Freyju. Heimdallar höfuð heitir sverð. Svá er sagt, at hann var lostinn mannshöfði í gegnum. Um þat er kveðit í Heimdallar galdri, ok er síðan kallat höfuð mjötuðr Heimdallar. Sverð heitir manns mjötuðr. Heimdallr er eigandi Gulltopps. Hann er ok tilsækir Vágaskers ok Singasteins. Þá deilði hann við Loka um Brísingamen. Hann heitir ok Vindlér. Úlfr Uggason kvað í Húsdrápu langa stund eftir þeiri frásögu, ok er þess þar getit, at þeir váru í selalíkjum. Hann er ok sonr Óðins.
16. Týskenningar.
Hvernig skal kenna Tý? Svá, at kalla hann einhenda ás ok úlfs fóstra, víga guð, son Óðins.
17. Bragakenningar.
Hvernig skal kenna Braga? Svá, at kalla hann Iðunnar ver, frumsmið bragar ok inn síðskeggja ás -‐ af hans nafni er sá kallaðr skeggbragi, er mikit skegg hefir -‐ ok sonr Óðins.
18. Víðarskenningar.
Hvernig skal kenna Víðar? Hann má kalla inn þögla ás, eiganda járnskós, dólg ok bana Fenrisúlfs, hefniás goðanna, byggviás föðurtófta ok son Óðins, bróður ásanna.
19. Válakenningar.
Hvernig skal kenna Vála? Svá, at kalla hann son Óðins ok Rindar, stjúpson Friggjar, bróður ásanna, hefniás Baldrs, dólg Haðar ok bana hans, byggvanda föðurtófta.
20. Haðarkenningar.
Hvernig skal kenna Höð? Svá, at kalla hann blinda ás, Baldrs bana, skjótanda Mistilteins, son Óðins, Heljar sinna, Vála dólg.
21. Ullarkenningar.
Hvernig skal kenna Ull? Svá, at kalla hann son Sifjar, stjúp Þórs, öndurás, bogaás, veiðiás, skjaldarás.
Framhaldsskóli.is 100
22. Hæniskenningar.
Hvernig skal kenna Hæni? Svá, at kalla hann sessa eða sinna eða mála Óðins ok inn skjóta ás ok inn langa fót ok aurkonung.
23. Lokakenningar.
Hvernig skal kenna Loka? Svá, at kalla hann son Fárbauta ok Laufeyjar, Nálar, bróður Býleists ok Helblinda, föður Vánargands, þat er Fenrisúlfr, ok Jörmundgands, þat er Miðgarðsormr, ok Heljar ok Nara ok Ála, frænda ok föðurbróður, vársinna ok sessa Óðins ok ása, heimsæki ok kistuskrúð Geirröðar, þjóf jötna, hafrs ok Brísingamens ok Iðunnar epla, Sleipnis frænda, ver Sigynjar, goða dólgr, hárskaði Sifjar, bölvasmiðr, inn slægi áss, rægjandi ok vélandi goðanna, ráðbani Baldrs, inn bundni áss, þrætudólgr Heimdallar ok Skaða. Svá sem hér segir Úlfr Uggason:
64. Ráðgenginn bregðr ragna rein at Singasteini frægr við firnaslægjan Fárbauta mög vári; móðöflugr ræðr mæðra mögr hafnýra fögru, kynni ek, áðr ok einnar átta, mærðar þáttum.
Hér er þess getit, að Heimdallr er son níu mæðra.
24. Frá Hrugni jötni.
Nú skal enn segja dæmi, af hverju þær kenningar eru, er nú váru ritaðar, er áðr váru eigi dæmi til sögð, svá sem Bragi sagði Ægi, at Þórr var farinn í austrvega at berja troll, en Óðinn reið Sleipni í Jötunheima ok kom til þess jötuns, er Hrungnir hét. Þá spyrr Hrungnir, hvat manna sá er með gullhjálminn, er ríðr loft ok lög, ok segir, at hann á furðugóðan hest. Óðinn sagði, at þar vill hann veðja fyrir höfði sínu, at engi hestr skal vera jafngóðr í Jötunheimum. Hrungnir segir, at sá er góðr hestr, en hafa lézt hann mundu miklu stórfetaðra hest. Sá heitir Gullfaxi. Hrungnir varð reiðr ok hleypr upp á hest sinn ok hleypir eftir honum ok hyggr at launa honum ofrmæli. Óðinn hleypir svá mikit, at hann var á öðru leiti fyrir, en Hrungnir hafði svá mikinn jötunmóð, at hann fann eigi fyrr en hann kom inn of ásgrindr.
Ok er hann kom at hallardurum, buðu æsir honum til drykkju. Hann gekk í höllina ok bað fá sér at drekka. Váru þá teknar þær skálir, er Þórr var vanr at drekka af, ok snerti Hrungnir ór hverri. En er hann gerðist drukkinn, þá skorti eigi stór orð. Hann lézt skyldu taka upp Valhöll ok færa í Jötunheima, en sökkva Ásgarði, en drepa goð öll, nema Freyju ok Sif vill hann heim hafa með sér, en Freyja ein þorir þá at skenkja honum, ok drekka lézt hann mundu allt ásaöl.
Framhaldsskóli.is 101
En er ásum leiddust ofryrði hans, þá nefna þeir Þór. Því næst kom Þórr í höllina ok hafði á lofti hamarinn ok var allreiðr ok spyrr, hverr því ræðr, er jötnar hundvísir skulu þar drekka, eða hverr seldi Hrungni grið at vera í Valhöll eða hví Freyja skal skenkja honum sem at gildi ása.
Þá svarar Hrungnir ok sér ekki vinaraugum til Þórs, sagði, at Óðinn bauð honum til drykkju ok hann var á hans griðum. Þá mælti Þórr, at þess boðs skal Hrungnir iðrast, áðr hann komi út.
Hrungnir segir, at Ása-‐Þór er þat lítill frami at drepa hann vápnlausan. Hitt er meiri hugraun, ef hann þorir at berjast við hann at landamæri á Grjóttúnagörðum, -‐ "ok hefir þat verit mikit fólskuverk," sagði hann, "er ek lét eftir heima skjöld minn ok hein. En ef ek hefða hér vápn mín, þá skyldum vit nú reyna hólmgönguna, en at öðrum kosti legg ek þér við níðingsskap, ef þú vill drepa mik vápnlausan."
Þórr vill fyrir engan mun bila at koma til einvígis, er honum var hólmr skoraðr, því at engi hafði honum þat fyrr veitt. Fór þá Hrungnir braut leið sína ok hleypði ákafliga, þar til er hann kom í Jötunheima, ok varð ferð hans allfræg með jötnum ok þat, at stefnulag var komit á með þeim Þór. Þóttust jötnar hafa mikit í ábyrgð, hvárr sigr fengi. Þeim var ills ván af Þór, ef Hrungnir léti, fyrir því at hann var þeira sterkastr.
Þá gerðu jötnar mann á Grjóttúnagörðum af leiri, ok var hann níu rasta hár, en þriggja breiðr undir hönd, en ekki fengu þeir hjarta svá mikit, at honum sómði, fyrr en þeir tóku úr meri nökkurri, ok varð honum þar eigi stöðugt, þá er Þórr kom.
Hrungnir átti hjarta þat, er frægt er, af hörðum steini ok tindótt með þrimr hornum, svá sem síðan er gert ristubragð þar, er Hrungnishjarta heitir. Af steini var ok höfuð hans. Skjöldr hans var ok steinn, víðr ok þjokkr, ok hafði hann skjöldinn fyrir sér, er hann stóð á Grjóttatúnagörðum ok beið Þórs, en hein hafði hann fyrir vápn ok reiddi of öxl ok var ekki dælligr. Á aðra hlið honum stóð leirjötunninn, er nefndr er Mökkurkálfi, ok var hann allhræddr. Svá er sagt, at hann meig, er hann sá Þór.
Þórr fór til hólmstefnu ok með honum Þjálfi.
Þá rann Þjálfi fram at, þar er Hrungnir stóð, ok mælti til hans: "Þú stendr óvarliga, jötunn, hefir skjöldinn fyrir þér, en Þórr hefir sét þik, ok ferr hann it neðra í jörðu, ok mun hann koma neðan at þér."
Þá skaut Hrungnir skildinum undir fætr sér ok stóð á, en tvíhendi heinina. Því næst sá hann eldingar ok heyrði þrumur stórar. Sá hann þá Þór í ásmóði. Fór hann ákafliga ok reiddi hamarinn ok kastaði um langa leið at Hrungni. Hrungnir færir upp heinina báðum höndum ok kastar í mót. Mætir hon hamrinum á flugi, ok brotnar sundr heinin. Fellr annarr hlutr á jörð, ok eru þar af orðin öll heinberg. Annarr hlutr brast í höfði Þór, svá at hann fell fram á jörð. En hamarrinn Mjöllnir kom í mitt höfuð Hrungni ok lamði hausinn í smán mola, ok fell hann fram yfir Þór, svá at fótr hans lá of háls Þór. En Þjálfi vá at Mökkurkálfa, ok fell hann við lítinn orðstír.
Framhaldsskóli.is 102
Þá gekk Þjálfi til Þórs ok skyldi taka fót Hrungnis af honum ok gat hvergi valdit. Þá gengu til æsir allir, er þeir spurðu at Þórr var fallinn, ok skyldu taka fótinn af honum ok fengu hvergi komit.
Þá kom til Magni, sonr Þórs ok Járnsöxu. Hann var þá þrínættr. Hann kastaði fæti Hrungnis af Þór ok mælti: "Sé þar ljótan harm, faðir, er ek kom svá síð. Ek hygg, at jötun þenna myndak hafa lostit í hel með hnefa mínum, ef ek hefða fundit hann."
Þá stóð Þórr upp ok fagnaði vel syni sínum ok sagði, at hann myndi verða mikill fyrir sér, -‐ "ok vil ek," sagði hann, "gefa þér hestinn Gullfaxa, er Hrungnir hefir átt."
Þá mælti Óðinn ok sagði, at Þórr gerði rangt, er hann gaf þann inn góða hest gýgjarsyni, en eigi föður sínum.
25. Frá Gróu völu.
Þórr fór heim til Þrúðvanga, ok stóð heinin í höfði honum. Þá kom til völva sú, er Gróa hét, kona Aurvandils ins frækna. Hon gól galdra sína yfir Þór, til þess er heinin losnaði. En er Þórr fann þat ok þótti þá ván, at braut myndi ná heininni, þá vildi hann launa Gró lækninguna ok gera hana fegna, sagði henni þau tíðendi, at hann hafði vaðit norðan yfir Élivága ok hafði borit í meis á baki sér Aurvandil norðan ór Jötunheimum, ok þat til jartegna, at ein tá hans hafði staðit ór meisinum, ok var sú frerin, svá at Þórr braut af ok kastaði upp á himin ok gerði af stjörnu þá, er heitir Aurvandilstá. Þórr sagði, at eigi myndi langt til, at Aurvandill myndi heim koma, en Gróa varð svá fegin, at hon mundi enga galdra, ok varð heinin eigi lausari ok stendr enn í höfði Þór, ok er þat boðit til varnanar at kasta hein of gólf þvert, því at þá hrærist heinin í höfði Þór. Eftir þessi sögu hefir ort Þjóðólfr hvinverski í Haustlöng."
Þá mælti Ægir: "Mikill þótti mér Hrungnir fyrir sér. Vann Þórr meira þrekvirki nökkut, þá er hann átti við troll?"
26. För Þórs til Geirröðargarða.
Þá svarar Bragi: "Mikillar frásagnar er þat vert, er Þórr fór til Geirröðargarða. Þá hafði hann eigi hamarinn Mjöllni eða megingjarðar eða járngreipr, ok olli því Loki. Hann fór með honum, því at Loka hafði þat hent, þá er hann flaug einu sinni at skemmta sér með valsham Friggjar, at hann flaug fyrir forvitni sakar í Geirröðargarða ok sá þar höll mikla, settist ok sá inn of glugg. En Geirröðr leit í móti honum ok mælti, at taka skyldi fuglinn ok færa honum, en sendimaðr komst nauðuliga á hallarvegginn, svá var hann hár. Þat þótti Loka gott, er hann sótti erfiðliga til hans, ok ætlaði sér stund at fljúga eigi upp, fyrr en hann hafði farit allt torleiðit. En er maðrinn sótti at honum, þá beinir hann fluginn ok spyrnir við fast, ok eru þá fætrnir fastir. Var Loki tekinn þar höndum ok færðr Geirröði jötni. En er hann sá augu hans, þá grunaði hann, at maðr myndi vera, ok bað hann svara, en Loki þagði. Þá læsti Geirröðr Loka í kistu ok svelti hann þar þrjá mánuðr. En þá er Geirröðr tók hann upp ok beiddi hann orða, þá sagði Loki, hverr hann var, ok til fjörlausnar vann hann Geirröði þess eiða, at hann skyldi koma Þór í Geirröðargarða, svá at hann hefði hvárki hamarinn né megingjarðar.
Framhaldsskóli.is 103
Þórr kom til gistingar til gýgjar þeirar, er Gríðr er kölluð. Hon var móðir Víðars ins þögla. Hon sagði Þór satt frá Geirröði, at hann var jötunn hundvíss ok illr viðreignar. Hon léði honum megingjarða ok járngreipr, er hon átti, ok staf sinn, er heitir Gríðarvölr.
Þá fór Þórr til ár þeirar, er Vimur heitir, allra á mest. Þá spennti hann sik megingjörðum ok studdi forstreymis Gríðarvöl, en Loki helt undir megingjarðar. Ok þá er Þórr kom á miðja ána, þá óx svá mjök áin, at uppi braut á öxl honum. Þá kvað Þórr þetta:
65 Vax-‐at-‐tu nú, Vimur, alls mik þik vaða tíðir jötna garða í; veiztu, ef þú, vex, at þá vex mér ásmegin jafnhátt upp sem himinn.
Þá sér Þórr uppi í gljúfrum nökkurum, at Gjálp, dóttir Geirröðar stóð þar tveim megin árinnar, ok gerði hon árvöxtinn.
Þá tók Þórr upp ór ánni stein mikinn ok kastaði at henni ok mælti svá: "At ósi skal á stemma."
Eigi missti hann, þar er hann kastaði til. Ok í því bili bar hann at landi ok fekk tekit reynirunn nökkurn ok steig svá ór ánni. Því er það orðtak haft, at reynir er björg Þórs.
En er Þórr kom til Geirröðar, þá var þeim félögum vísat fyrst í geitahús til herbergis, ok var þar einn stóll til sætis, ok sat Þórr þar. Þá varð hann þess varr, at stóllinn fór undir honum upp at ræfri. Hann stakk Gríðarveli upp í raftana ok lét sígast fast á stólinn. Varð þá brestr mikill, ok fylgði skrækr. Þar höfðu verit undir stólinum dætr Geirröðar, Gjálp ok Greip, ok hafði hann brotit hrygginn í báðum.
Þá lét Geirröðr kalla Þór í höllina til leika. Þar váru eldar stórir eftir endilangri höll. En er Þórr kom gagnvart Geirröði, þá tók Geirröðr með töng járnsíu glóandi ok kastar at Þór, en Þórr tók í móti með járngreipum ok færir á loft síuna, en Geirröðr hljóp undir járnsúlu at forða sér. Þórr kastaði síunni ok laust gegnum súluna ok gegnum Geirröð ok gegnum vegginn ok svá fyrir útan í jörðina."
Eftir þessi sögu hefir ort Eilífr Guðrúnarson í Þórsdrápu.
27. Friggjarkenningar.
Hvernig skal kenna Frigg? Svá, at kalla hana dóttur Fjörgyns, kona Óðins, móður Baldrs, elju Jarðar ok Rindar ok Gunnlaðar ok Gerðar, sværa Nönnu, dróttning ása ok ásynja, Fullu ok valshams ok Fensala.
28. Freyjukenningar.
Framhaldsskóli.is 104
Hvernig skal Freyju kenna? Svá, at kalla hana dóttur Njarðar, systur Freys, konu Óðs, móður Hnossar, eigandi valfalls ok Sessrúmnis ok fressa, Brisíngamens, Vanagoð, Vanadís, it grátfagra goð, ástaguð. -‐ Svá má kenna allar ásynjur at nefna annarrar nafni ok kenna við eign eða verk sín eða ættir.
29. Sifjarkenningar.
Hvernig skal kenna Sif? Svá, at kalla hana konu Þórs, móður Ullar, it hárfagra goð, elja Járnsöxu, móður Þrúðar.
30. Iðunnarkenningar.
Hvernig skal kenna Iðunni? Svá, at kalla hana konu Braga ok gætandi eplanna, en eplin ellilyf ásanna. Hon er ok ránfengr Þjaza jötuns, svá sem fyrr er sagt, at hann tók hana braut frá ásum.
Eftir þeiri sögu orti Þjóðólfr inn hvinverski í Haustlöng.
Ásu er svá rétt at kenna at kalla einn hvern annars nafni ok kenna við verk sín eða eign eða ættir.
31. Himinskenningar.
Hvernig skal kenna himin? Svá, at kalla hann Ymis haus ok þar af jötuns haus ok erfiði eða byrði dverganna eða hjálm Vestra ok Austra, Suðra, Norðra, land sólar ok tungls ok himintungla, vagna ok veðra, hjálmr eða hús lofts ok jarðar ok sólar. Svá kvað Arnórr jarlaskáld:
66. Ungr skjöldungr stígr aldri jafnmildr á við skildan þess var grams, und gömlum, gnóg rausn, Ymis hausi.
Ok enn sem hann kvað:
67. Björt verðr sól at svartri, sökkr fold í mar dökkvan, brestr erfiði Austra, allr glymr sjár á fjöllum.
Svá kvað Böðvarr balti:
68. Alls engi verðr Inga undir sólar grundu
Framhaldsskóli.is 105
böðvar hvatr né betri bræðr landreki æðri.
Ok sem kvað Þjóðólfr inn hvinverski:
69. Ók at ísarnleiki Jarðar sunr, en dunði, móðr svall Meila blóða, mána vegr und hánum.
Svá sem kvað Ormr Barreyjarskáld:
70. Hvégi er, Draupnis drógar dís, ramman spyr ek vísa, sá ræðr, valdr, fyr veldi, vagnbrautar mér fagnar.
Svá sem kvað Bragi skáld:
71. Hinn er varp á víða vinda Öndurdísar of manna sjöt margra mundlaug föður augum.
Ok sem Markús kvað:
72. Fjarri hefir, at fæðisk dýrri flotna vörðr á élkers botni, háva leyfir hverr maðr ævi hringvarpaðar, gjalfri kringðum.
Svá sem kvað Steinn Herdísarson:
73. Hás kveð ek helgan ræsi heimtjalds at drag þeima, mærð tésk fram, en fyrða fyrr, því at hann er dyrri.
Ok sem kvað Arnórr jarlaskáld:
74. Hjalp þú, dýrr konungr, dýrum, dags grundar, Hermundi.
Ok enn kvað Arnórr:
Framhaldsskóli.is 106
75. Saðr stillir, hjalp þú snjöllum, sóltjalda, Rögnvaldi.
Ok sem kvað Hallvarðr:
76. Knútr verr jörð sem ítran alls dróttinn sal fjalla.
Sem Arnórr kvað:
77. Míkáll vegr þat er misgért þykkir mannvits fróðr ok allt it góða; tyggi skiptir síðan seggjum sólar hjalms á dæmistóli.
32. Jarðarkenningar.
Hvernig skal jörð kenna? Svá, at kalla hana Ymis hold ok móður Þórs, dóttur Ónars, brúði Óðins, elju Friggjar ok Rindar ok Gunnlaðar, sværu Sifjar, gólf ok botn veðra hallar, sjár dýranna, dóttir Náttar, systir Auðs ok Dags. Svá sem kvað Eyvindr skáldaspillir:
78. Nú er alfröðull elfar jötna dolgs of folginn, ráð eru rammrar þjóðar rík, í móður líki.
Sem kvað Hallfreðr vandræðskáld:
79. Ráð lukusk, at sá, síðan, snjallráðr konungs spjalli átti einga-‐dóttur Ónars viði gróna.
Ok enn sagði hann:
80. Breiðleita gat brúði Báleygs at sér teygða stefnir stöðvar hrafna stála ríkismálum.
Svá sem kvað Þjóðólfr:
Framhaldsskóli.is 107
81. Útan bindr við enda elgvers glöðuðr hersa hreins við, húfi rónum, hafs botni far gotna.
Sem Hallfreðr kvað:
82. Því hygg fleygjanda frægjan, ferr jörð und menþverri ítran, eina at láta Auðs systur mjök trauðan.
Svá kvað Þjóðólfr:
83. Dolgljóss, hefir dási darrlatr staðit fjarri, endr þá er elju Rindar ómynda tók skyndir.
33. Sjávarkenningar.
Hvernig skal sæ kenna? Svá, at kalla hann Ymis blóð, heimsækir goðanna, verr Ránar, faðir Ægisdætra, þeira er svá heita Himinglæva, Dúfa, Blóðughadda, Hefring, Uðr, Hrönn, Bylgja, Bára, Kólga, land Ránar ok Ægisdætra ok skipa ok sæskips heita, kjalar, stála, súða, sýju, fiska, ísa, sækonunga leið ok brautir, eigi síðr hringr eyjanna, hús sanda ok þangs ok skerja, dorgar land ok sæfugla, byrjar. Svá sem kvað Ormr Barreyjarskáld:
84. Útan gnýr á eyri Ymis blóð fara góðra.
Svá kvað Refr:
85. Vágþeysta berr vestan, vætti ek lands fyr brandi, hvalmæni skefr, húna hógdýr of lög bógu.
Svá sem kvað Sveinn:
86. Þá er élreifar ófu Ægis dætr ok tættu
Framhaldsskóli.is 108
föls, við frost of alnar, fjallgarðs rokur harðar.
Ok sem kvað Refr:
87. Færir björn, þar er bára brestr, undinna festa oft í Ægis kjafta úrsvöl Gymis völva.
Hér er sagt, at allt er eitt Ægir ok Hlér ok Gymir. Ok enn kvað hann:
88. En sægnípu Sleipnir slítr úrdrifinn hvítrar Ránar, rauðum steini runnit, brjóst ór munni.
Sem kvað Einarr Skúlason:
89. Harðr hefir ört frá jörðu élvindr, svana strindar blakkr lætr í sog sökkva snægrund, skipi hrundit.
Ok enn sem hann kvað:
90. Margr ríss, en drífr dorgar dynströnd í svig löndum, spend verða stög stundum, stirðr keipr, fira greipum.
Ok enn kvað hann:
91. Grams bera gollna spánu, göfug ferð er sú jöfri, skýtr holmfjöturr Heita hrafni, snekkju stafnar.
Enn sem hann kvað:
92. Haustköld skotar hélðum holmrönd varar öndri.
Ok enn svá:
Framhaldsskóli.is 109
93. Sundr springr svalra landa sverrigjörð fyr börðum.
Sem Snæbjörn kvað:
94. Hvatt kveða hræra Grótta hergrimmastan skerja út fyrir jarðar skauti eylúðrs níu brúðir, þær er, lungs, fyrir löngu, líðmeldr, skipa hlíðar baugskerðir rístr barði ból, Amlóða mólu.
Hér er kallat hafit Amlóða kvern. -‐ Enn sem kvað Einarr Skúlason:
95. Viknar ramr í, Rakna, reksaumr fluga-‐straumi, dúks hrindr böl, Þar er bleikir bifgrund, á stag rifjum.
34. Sólarkenningar.
Hvernig skal kenna sól? Svá, at kalla hana dóttur Mundilfara, systur Mána, kona Glens, eldr himins ok lofts. Svá sem kvað Skúli Þorsteinsson:
96. Glens beðja veðr gyðju goðblíð í vé, síðan ljós kemr gótt með geislum gránserks ofan Mána.
Svá kvað Einarr Skúlason:
97. Hvargi er Beita borgar bálgrimmustum skála hár of hnossvin órum heims vafrlogi sveimar.
Framhaldsskóli.is 110
35. Vindskenningar.
Hvernig skal kenna vind? Svá, at kalla hann son Fornjóts, bróður Ægis ok elds, brjót viðar, skaði ok bani eða hundr eð vargr viðar eða segls eða seglreiða. Svá sagði Sveinn í Norðrsetudrápu:
98. Tóku fyrst til fjúka Fornjóts synir ljótir.
36. Eldskenningar.
Hvernig skal kenna eld? Svá, at kalla hann bróður vinds ok Ægis, bana ok grand viðar ok húsa, Hálfs bani, sól húsanna.
37. Vetrarkenningar.
Hvernig skal kenna vetr? Svá, at kalla hann son Vindsvals ok bana orma, hríðmál. Svá kvað Ormr Steinþórsson:
99. Ræð ek þenna mög manni Vindvals unað blindum.
Svá kvað Ásgrímr:
100. Sigrgæðir var síðan seimörr í Þrándheimi, þjóð veit þínar íðir, þann orms-‐trega, sannar.
38. Sumarkenningar.
Hvernig skal kenna sumar? Svá, at kalla son Svásaðar ok líkn ormanna ok gróðr manna. Svá sem kvað Egill Skalla-‐Grímsson:
101. Upp skulum órum sverðum, ulfs tannlituðr, glitra, eigum dáð at drýgja í dalmiskunn fiska.
39. Mannkenningar ok kvenkenningar.
Hvernig skal kenna manninn? Mann skal kenna við verk sín, þat er hann veitir eða þiggr eða gerir. Hann má ok kenna til eignar sinnar, þeirar er hann á, ok svá ef hann
Framhaldsskóli.is 111
gaf, svá ok við ættir þær, er hann kom af, svá þær, er frá honum kómu. Hvernig skal hann kenna við þessa hluti? Svá, at kalla hann vinnanda eða fremjanda fara sinna eða athafnar, víga eða sæfara eða veiða eða vápna eða skipa. Ok fyrir því at hann er reynir vápnanna ok viðr víganna, allt eitt ok vinnandi. Viðr heitir tré. Reynir heitir ok tré. Af þessum heitum hafa skáldin kallat manninn ask eða hlyn, lund eða öðrum viðarheitum karlkenndum ok kennt til víga eða skipa eða fjár. Mann er ok rétt at kenna til allra ásaheita. Kennt er ok við jötnaheiti, ok er þat flest háð eða lastmæli. Vel þykkir kennt til álfa.
Konu skal kenna til alls kvenbúnaðar, gulls ok gimsteina, öls eða víns eða annars drykkjar, þess er hon selr eða gefr, svá ok til ölgagna ok allra þeira hluta, er henni samir at vinna eða veita. Rétt er at kenna hana svá at kalla hana selju eða lág þess, er hon miðlar, en selja eða lág, þat eru tré. Fyrir því er kona kölluð til kenningar öllum kvenkenndum viðarheitum. En fyrir því er kona kennd til gimsteina eða glersteina, at þat var í forneskju kvinnabúnaðr, er kallat var steinasörvi, er þær höfðu á hálsi sér. Nú er svá fært til kenningar, at konan er nú kennd við stein ok við öll steinsheiti. Kona er ok kennd við allar ásynjur eða valkyrjur eða nornir eða dísir. Konu er ok rétt at kenna við alla athöfn sína eða við eign eða ætt.
40. Gullskenningar.
Hvernig skal kenna gull? Svá, at kalla þat eld Ægis ok barr Glasis, haddr Sifjar, höfuðband Fullu, grátr Freyju, munntal ok rödd ok orð jötna, dropa Draupnis ok regn eða skúr Draupnis eða augna Freyju, otrgjöld, nauðgjald ásanna, sáð Fýrisvalla, haugþak Hölga, eldr allra vatna ok handar, grjót ok sker eða blik handar.
41. Æsir þágu veizlu at Ægis.
Fyrir hví er gull kallat eldr Ægis? Þessi saga er til þess, er fyrr er getit, at Ægir sótti heimboð til Ásgarðs, en er hann var búinn til heimferðar, þá bauð hann til sín Óðni ok öllum ásum á þriggja mánaða fresti. Til þeirar ferðar varð fyrst Óðinn ok Njörðr, Freyr, Týr, Bragi, Viðarr, Loki, svá ok ásynjur Frigg, Freyja, Gefjun, Skaði, Iðunn, Sif. Þórr var eigi þar. Hann var farinn í austrveg at drepa troll. En er goðin höfðu setzt í sæti, þá lét Ægir bera inn á hallargólf lýsigull, þat er birti ok lýsti höllina sem eldr, ok þat var þar haft fyrir ljós at hans veizlu, sem í Valhöllu váru sverðin fyrir eld. Þá sennti Loki þar við öll goð ok drap þræl Ægis, þann er Fimafengr hét. Annarr þræll hans er nefndr Eldir. Rán er nefnd kona hans, en níu dætr þeira, svá sem fyrr er ritat. At þeiri veizlu vannst allt sjálft, bæði vist ok öl ok öll reiða, er til veizlunnar þurfti. Þá urðu æsir þessir varir, at Rán átti net þat, er hon veiddi í menn alla, þá er á sæ kómu.
Nú er þessi saga til þess, hvaðan af þat er, at gull er kallat eldr eða ljós eða birti Ægis, Ránar eða Ægis dætra. Ok af þeim kenningum er nú svá sett, at gull er kallat eldr sævar ok allra hans heita, svá sem Ægir eða Rán eigu heiti við sæinn, ok þaðan af er nú gull kallat eldr vatna eða á ok allra árheita. En þessi heiti hafa svá farit sem önnur ok kenningar, at in yngri skáld hafa ort eftir dæmum inna gömlu skálda, svá sem stóð í þeira kvæðum, en sett síðan út í hálfur þær, er þeim þóttu líkar við þat, er fyrr var
Framhaldsskóli.is 112
ort, svá sem vatnit er sænum, en áin vatninu, en bekkr ánni. Því er þat kallat nýgervingar allt, er út er sett heiti lengra en fyrr finnst, ok þykkir þat vel allt, er með líkendum ferr ok eðli. Svá kvað Bragi skáld:
102. Eld of þák af jöfri ölna bekks við drykkju; þat gaf Fjölnis fjalla, með fulli mér stillir.
42. Frá lundinum Glasi.
Hví er gull kallat barr eða lauf Glasis? Í Ásgarði fyrir durum Valhallar stendr lundr, sá er Glasir er kallaðr, en lauf hans allt er gull rautt, svá sem hér er kveðit, at
103. Glasir stendr með gullnu laufi fyrir Sigtýs sölum.
Sá er viðr fegrstr með goðum ok mönnum.
43. Af smíðum Ívaldasona ok Sindra dvergs.
Hví er gull kallat haddr Sifjar? Loki Laufeyjarson hafði þat gert til lævísi at klippa hár allt af Sif. En er Þórr varð þess varr, tók hann Loka ok myndi lemja hvert bein í honum, áðr hann svarði þess, at hann skal fá af Svartálfum, at þeir skulu gera af gulli Sifju hadd þann, er svá skal vaxa sem annat hár. Eftir þat fór Loki til þeira dverga, er heita Ívaldasynir, ok gerðu þeir haddinn ok Skíðblaðni ok geirinn, er Óðinn átti, er Gungnir heitir. Þá veðjaði Loki höfði sínu við þann dverg, er Brokkr heitir, hvárt bróðir hans, Sindri, myndi gera jafngóða gripi þrjá sem þessir váru. En er þeir kómu til smiðju, þá lagði Sindri svínskinn í aflinn ok bað blása Brokk ok létta eigi fyrr en hann tæki þat ór aflinum, er hann hafði í lagt. En þegar er hann var genginn ór smiðjunni, en hinn blés, þá settist fluga ein á hönd honum ok kroppaði, en hann blés sem áðr, þar til er smiðrinn tók ór aflinum, ok var þat göltr, ok var burstin ór gulli. Því næst lagði hann í aflinn gull ok bað hann blása ok hætta eigi fyrr blæstrinum en hann kæmi aftr. Gekk hann á braut. En þá kom flugan ok settist á háls honum ok kroppaði nú hálfu fastara en áðr, en hann blés, þar til er smiðrinn tók ór aflinum gullhring þann, er Draupnir heitir. Þá lagði hann járn í aflinn ok bað hann blása ok sagði, at ónýtt myndi verða, ef blástrinn felli. Þá settist flugan milli augna honum ok kroppaði hvarmana, en er blóðit fell í augun, svá at hann sá ekki, þá greip hann til hendinni sem skjótast, meðan belgrinn lagðist niðr, ok sveipði af sér flugunni, ok þá kom þar smiðrinn ok sagði, at nú lagði nær, at allt myndi ónýtast, er í aflinum var. Þá tók hann ór aflinum hamar. Fékk hann þá alla gripina í hendr bróður sínum Brokk ok bað hann fara með til Ásgarðs ok leysa veðjunina. En er þeir Loki báru fram gripina, þá settust æsirnir á dómstóla ok skyldi þat atkvæði standast, sem segði Óðinn, Þórr, Freyr. Þá
Framhaldsskóli.is 113
gaf Loki Óðni geirinn Gungni, en Þór haddinn, er Sif skyldi hafa, en Frey Skíðblaðni ok sagði skyn á öllum gripunum, at geirrinn nam aldri staðar í lagi, en haddrinn var holdgróinn, þegar er hann kom á höfuð Sif, en Skíðblaðnir hafði byr, þegar er segl kom á loft, hvert er fara skyldi, en mátti vefja saman sem dúk ok hafa í pungi sér, ef þat vildi. Þá bar fram Brokkr sína gripi. Hann gaf Óðni hringinn ok sagði, at ina níundu hverja nótt myndi drjúpa af honum átta hringar jafnhöfgir sem hann. En Frey gaf hann göltinn ok sagði, at hann mátti renna loft ok lög nótt ok dag meira en hverr hestr ok aldri varð svá myrkt af nótt eða í myrkheimum, at eigi væri ærit ljós, þar er hann fór; svá lýsti af burstinni. Þá gaf hann Þór hamarinn ok sagði, at hann myndi mega ljósta svá stórt sem hann vildi, hvat sem fyrir væri, at eigi myndi hamarrinn bila, ok ef hann yrpi honum til, þá myndi hann aldri missa ok aldri fljúga svá langt, at eigi myndi hann sækja heim hönd, ok ef þat vildi, þá var hann svá lítill, at hafa mátti serk sér. En þat var lýti á, at forskeftit var heldr skammt. Þat var dómr þeira, at hamarrinn var beztr af öllum gripunum ok mest vörn í fyrir hrímþursum, ok dæmðu þeir, at dvergrinn ætti veðféit. Þá bauð Loki at leysa höfuð sitt, en dvergrinn sagði, at þess var engi ván. "Taktu mik þá," kvað Loki, en er hann vildi taka hann, þá var hann víðs fjarri. Loki átti skúa þá, er hann rann á loft ok lög. Þá bað dvergrinn Þór, at hann skyldi taka hann, en hann gerði svá. Þá vildi dvergrinn höggva af höfuð hans, en Loki sagði, at hann átti höfuðit, en eigi hálsinn. Þá tók dvergrinn þveng ok kníf ok vill stinga rauf á vörrum Loka ok vill rifa saman munninn, en knífrinn beit ekki. Þá mælti hann, at betri væri þar alr bróður hans, en jafnskjótt sem hann nefndi hann, þá var þar alrinn, ok beit hann varrarnar. Rifaði hann saman varrirnar, ok reif Loki ór æsunum. Sá þvengr, er muðrinn Loka var saman rifaðr, heitir Vartari.
44. Kenningar á gulli ok Freyju.
Hér heyrir, at gull er kennt til höfuðbands Fullu, er orti Eyvindr skáldaspillir:
104. Fullu skein á fjöllum fallsól bráavallar. Ullar kjóls of allan aldr Hákunar skaldum.
Gull er kallat grátr Freyju, sem fyrr er sagt. Svá kvað Skúli Þorsteinsson:
105. Margr of hlaut of morgin morðelds, þar er val felldum, Freyju tár at fleiri fárbjóðr; at þar várum.
Ok sem kvað Einarr Skúlason:
106. Þar er Mardallar milli, meginhurðar, liggr skurða,
Framhaldsskóli.is 114
Gauts berum galla þrútinn, grátr, dalreyðar látri.
Ok hér hefir Einarr enn kennt svá Freyju at kalla hana móður Hnossar eða konu Óðs, svá sem hér:
107. Eigi þverr fyrir augna Óðs beðvinu Róða ræfrs, eignisk svá, regni ramsvell, konungr elli.
Ok enn svá:
108. Hróðrbarni kná ek Hörnar, hlutum dýran grip, stýra, brandr þrymr gjalfrs á grandi gollvífiðu, hlífar; sáðs, berr sinnar móður, svans unni mér gunnar fóstrgæðandi Fróða, Freys nift bráa driftir.
Hér getr ok þess, at Freyju má svá kenna at kalla hana systur Freys. Ok enn svá:
109. Nýt buðumk Njarðar dóttur, nálægt var þat stáli vel of hrósa ek því vísa vörn, sævar bál barni.
Hér er hon kölluð dóttir Njarðar. Ok enn Svá:
110. Gaf, sá er erring ofrar, ógnprúðr Vanabrúðar þing Váfaðar þröngvir þróttöflga mér dóttur; ríkr leiddi mey mækis mátvaldr á beð skaldi Gefnar, glóðum drifna, Gautreks svana brautar.
Hér er hon kölluð Gefn ok Vanabrúðr. Til allra heita Freyju er rétt at kenna grátinn ok kalla svá gullit, ok á marga lund er þessum kenningum breytt, kallat hagl eða regn eða él eða dropar eða skúrir eða forsar augna hennar eða kinna eða hlýra eða brá eða hvarma.
Framhaldsskóli.is 115
45. Gull kallat mál jötna.
Hér má þat heyra, at kallat er orð eða rödd jötna gullit, svá sem fyrr er sagt. Svá kvað Bragi skáld:
111. Þann átta ek vin verstan vaströdd en mér baztan Ála undirkúlu óniðraðan þriðja.
Hann kallaði stein vasta undirkúlu, en jötun Ála steinsins, en gull rödd jötuns.
46. Af otrgjöldum.
Hver sök er til þess, at gull er kallat otrgjöld? Svá er sagt, at þá er æsir fóru at kanna heim, Óðinn ok Loki ok Hænir, þeir kómu at á nökkurri ok gengu með ánni til fors nökkurs, ok við forsinn var otr einn ok hafði tekit lax ór forsinum ok át blundandi. Þá tók Loki upp stein ok kastaði at otrinum ok laust í höfuð honum. Þá hrósði Loki veiði sinni, at hann hefði veitt í einu höggvi otr ok lax. Tóku þeir þá laxinn ok otrinn ok báru eftir sér, kómu þá at bæ nökkurum ok gengu inn. En sá búandi er nefndr Hreiðmarr, er þar bjó. Hann var mikill fyrir sér ok mjök fjölkunnigr. Beiddust æsir at hafa þar náttstað ok kváðust hafa með sér vist ærna ok sýndu búandanum veiði sína.
En er Hreiðmarr sá otrinn, þá kallaði hann sonu sína, Fáfni ok Regin, ok segir, at Otr, bróðir þeira, var drepinn ok svá, hverir þat höfðu gert. Nú ganga þeir feðgar at ásunum ok taka þá höndum ok binda ok segja þá um otrinn, at hann var sonr Hreiðmars. Æsir bjóða fyrir sik fjörlausn, svá mikit fé sem Hreiðmarr sjálfr vill á kveða, ok varð þat at sætt með þeim ok bundit svardögum. Þá var otrinn fleginn. Tók Hreiðmarr otrbelginn ok mælti við þá, at þeir skulu fylla belginn af rauðu gulli ok svá hylja hann allan, ok skal þat vera at sætt þeira.
Þá sendi Óðinn Loka í Svartálfaheim, ok kom hann til dvergs þess, er heitir Andvari. Hann var fiskr í vatni, ok tók Loki hann höndum ok lagði á hann fjörlausn allt þat gull, er hann átti í steini sínum. Ok er þeir koma í steininn, þá bar dvergrinn fram allt gull, þat er hann átti, ok var þat allmikit fé. Þá svipti dvergrinn undir hönd sér einum litlum gullbaug. Þat sá Loki ok bað hann fram láta bauginn. Dvergrinn bað hann eigi bauginn af sér taka ok lézt mega æxla sér fé af bauginum, ef hann heldi. Loki kvað hann eigi skyldu hafa einn penning eftir ok tók bauginn af honum ok gekk út, en dvergrinn mælti, at sá baugr skyldi vera hverjum höfuðsbani, er ætti. Loki segir, at honum þótti þat vel, ok sagði, at þat skyldi haldast mega fyrir því sá formáli, at hann skyldi flytja þeim til eyrna, er þá tæki við.
Fór hann í braut ok kom til Hreiðmars ok sýndi Óðni gullit. En er hann sá bauginn, þá sýndist honum fagr ok tók hann af fénu, en greiddi Hreiðmari gullit. Þá fylldi hann otrbelginn, sem mest mátti hann, ok setti upp, er fullr var. Gekk þá Óðinn til ok skyldi hylja belginn með gullinu, ok þá mælti hann við Hreiðmar, at hann skal sjá, hvárt
Framhaldsskóli.is 116
belgrinn er þá allr hulðr. En Hreiðmarr leit til ok hugði at vandliga ok sá eitt granahár ok bað þat hylja, en at öðrum kosti væri lokit sætt þeira. Þá dró Óðinn fram bauginn ok hulði granahárit ok sagði, at þá váru þeir lausir frá otrgjöldunum.
En er Óðinn hafði tekit geir sinn, en Loki skúa sína ok þurftu þá ekki at óttast, þá mælti Loki, at þat skyldi haldast, er Andvari hafði mælt, at sá baugr ok þat gull skyldi verða þess bani, er ætti, ok þat helzt síðan. Nú er sagt, af hverju gull er otrgjöld kallat eða nauðgjald ásanna eða rógmálmr.
47. Frá Fáfni, Regin ok Sigurði.
Hvat er fleira at segja frá gullinu? Hreiðmarr tók þá gullit at sonargjöldum, en Fáfnir ok Reginn beiddust af nökkurs í bróðurgjöld. Hreiðmarr unni þeim enskis pennings af gullinu. Þat varð óráð þeira bræðra, at þeir drápu föður sinn til gullsins.
Þá beiddist Reginn, at Fáfnir skyldi skipta gullinu í helminga með þeim. Fáfnir svarar svá, at lítil ván var at hann myndi miðla gullit við bróður sinn, er hann drap föður sinn til gullsins, ok bað Regin fara braut, en at öðrum kosti myndi hann fara sem Hreiðmarr. Fáfnir hafði þá tekit hjálm, er Hreiðmarr hafði átt, ok setti á höfuð sér, er kallaðr var ægishjálmr, er öll kvikvendi hræðast, er sjá, ok sverð þat, er Hrotti heitir. Reginn hafði þat sveð, er Refill er kallaðr. Flýði hann þá braut, en Fáfnir fór upp á Gnitaheiði ok gerði sér þar ból ok brást í ormslíki ok lagðist á gullit. Reginn fór þá til Hjálpreks konungs á Þjóði ok gerðist þar smiðr hans.
Þá tók hann þar til fóstrs Sigurð, son Sigmundar, sonar Völsungs, ok son Hjördísar, dóttur Eylima. Sigurðr var ágætastr allra herkonunga af ætt ok afli ok hug. Reginn sagði honum til, hvar Fáfnir lá á gullinu, ok eggjaði hann at sækja gullit.
Þá gerði Reginn sverð þat, er Gramr heitir, er svá var hvasst, at Sigurðr brá niðr í rennanda vatn ok tók í sundr ullarlagð, er rak fyrir strauminum at sverðsegginni. Því næst klauf Sigurðr steðja Regins ofan í stokkinn með sverðinu.
Eftir þat fóru þeir Sigurðr ok Reginn á Gnitaheiði. Þá gróf Sigurðr gröf á veg Fáfnis ok settist þar í. En er Fáfnir skreið til vatns ok hann kom yfir gröfina, þá lagði Sigurðr sverðinu í gegnum hann, ok var þat hans bani. Kom þá Reginn at ok sagði, at hann hefði drepit bróður hans, ok bauð honum þat at sætt, at hann skyldi taka hjarta Fáfnis ok steikja við eld, en Reginn lagðist niðr ok drakk blóð Fáfnis ok lagðist at sofa.
En er Sigurðr steikði hjartat ok hann hugði, at fullsteikt myndi, ok tók á fingrinum, hvé hart var. En er frauðit rann ór hjartanu á fingrinn, þá brann hann ok drap fingrinum í munn sér. En er hjartablóðit kom á tunguna, þá kunni hann fuglsrödd ok skilði, hvat igðurnar sögðu, er sátu í viðnum. Þá mælti ein:
112. Þar sitr Sigurðr sveita stokkinn, Fáfnis hjarta við funa steikir;
Framhaldsskóli.is 117
spakr þætti mér spillir bauga ef fjörsega fránan æti. 113. Þar liggr Reginn, kvað önnur, ræðr um við sik, vill tæla mög, þann er trúir hánum, berr af reiði röng orð saman, vill bölvasmiðr bróður hefna.
Þá gekk Sigurðr til Regins ok drap hann, en síðan til hests síns, er Grani heitir, ok reið til þess, er hann kom til bóls Fáfnis, tók þá gullit ok batt í klyfjar ok lagði upp á bak Grana ok steig upp sjálfr ok reið þá leið sína.
Nú er þat sagt, hver saga til er þess, at gullit er kallat ból eða byggð Fáfnis eða málmr Gnitaheiðar eða byrðr Grana.
48. Frá Sigurði ok Gjúkungum.
Þá reið Sigurðr, til þess er hann fann á fjallinu hús. Þar svaf inni ein kona, ok hafði sú hjálm ok brynju. Hann brá sverðinu ok reist brynjuna af henni. Þá vaknaði hon ok nefndist Hildr. Hon er kölluð Brynhildr ok var valkyrja.
Sigurðr reið þaðan ok kom til þess konungs, er Gjúki hét. Kona hans er nefnd Grímhildr. Börn þeira váru þau Gunnarr, Högni, Guðrún, Guðný. Gotthormr var stjúpsonr Gjúka. Þar dvalðist Sigurðr langa hríð. Þá fekk hann Guðrúnar Gjúkadóttur, en Gunnarr ok Högni sórust í bræðralag við Sigurð.
Því næst fóru þeir Sigurðr ok Gjúkusynir at biðja Gunnari konu til Atla Buðlasonar, Brynhildar, systur hans. Hon sat á Hindafjalli, ok var um sal hennar vafrlogi, en hon hafði þess heit strengt at eiga þann einn mann, er þorði at ríða vafrlogann. Þá riðu þeir Sigurðr ok Gjúkungar -‐ þeir eru ok kallaðir Niflungar -‐ upp á fjallit, ok skyldi þá Gunnarr ríða vafrlogann. Hann átti hest þann, er Goti heitir, en sá hestr þorði eigi at hlaupa í eldinn.
Þá skiptu þeir litum, Sigurðr ok Gunnarr, ok svá nöfnum, því at Grani vildi undir engum manni ganga nema Sigurði. Þá hljóp Sigurðr á Grana ok reið vafrlogann. Þat kveld gekk hann at brúðlaupi með Brynhildi. En er þau kómu í sæing, þá dró hann sverðit Gram ór slíðum ok lagði í milli þeira. En at morgni, er hann stóð upp ok klæddi sik, þá gaf hann Brynhildi at línfé gullbauginn, þann er Loki hafði tekit af Andvara, en tók af hendi henni annan baug til minja. Sigurðr hljóp þá á hest sinn ok reið til félaga
Framhaldsskóli.is 118
sinna. Skipta þeir Gunnarr þá aftr litum ok fóru heim til Gjúka með Brynhildi. Sigurðr átti tvau börn með Guðrúnu, Sigmund ok Svanhildi.
49. Drepinn Sigurðr.
Þat var eitt sinn, at Brynhildr ok Guðrún gengu til vatns at bleikja hadda sína. Þá er þær kómu til árinnar, þá óð Brynhildr út í ána frá landi ok mælti, at hon vildi eigi bera í höfuð sér þat vatn, er rynni ór hári Guðrúnu, því at hon átti búanda hugaðan betr.
Þá gekk Guðrún í ána eftir henni ok sagði, at hon mátti fyrir því þvá ofar sinn hadd í ánni, at hon átti þann mann, er eigi Gunnarr ok engi annarr í veröldu var jafnfrækn, því at hann vá Fáfni ok Regin ok tók arf eftir báða þá.
Þá svarar Brynhildr: "Meira er þat vert, er Gunnarr reið vafrlogann, en Sigurðr þorði eigi."
Þá hló Guðrún ok mælti: "Ætlar þú, at Gunnarr riði vafrlogann? Sá ætlak at gengi í rekkju hjá þér, er mér gaf gullbaug þenna. En sá gullbaugr, er þú hefir á hendi ok þú þátt at línfé, hann er kallaðr Andvaranautr, ok ætlak, at eigi sótti Gunnarr hann á Gnitaheiði."
Þá þagnaði Brynhildr ok gekk heim. Eftir þat eggjaði hon Gunnar ok Högna at drepa Sigurð, en fyrir því at þeir váru eiðsvarar Sigurðar, þá eggjuðu þeir til Gotthorm, bróður sinn, at drepa Siguð. Hann lagði Sigurð sverði í gegnum sofanda. En er hann fekk sárit, þá kastaði hann sverðinu Gram eftir honum, svá at sundr sneið í miðju manninn. Þar fell Sigurðr ok sonr hans þrévetr, er Sigmundr hét, er þeir drápu. Eftir þat lagði Brynhildr sik sverði, ok var hon brennd með Sigurði, en Gunnarr ok Högni tóku þá Fáfnisarf ok Andvaranaut ok réðu þá löndum.
50. Dráp Gjúkunga ok hefndir Guðrúnar.
Atli konungr Buðlason, bróðir Brynhildar, fekk þá Guðrúnar, er Sigurðr hafði átta, ok áttu þau börn. Atli konungr bauð þá til sín Gunnari ok Högna, en þeir fóru at heimboðinu. En áðr þeir fóru heiman, þá fálu þeir gullit Fáfnisarf í Rín, ok hefir þat gull aldri síðan fundizt. En Atli konungr hafði þar lið fyrir ok barðist við þá Gunnar ok Högna, ok urðu þeir handteknir. Lét Atli konungr skera hjarta ór Högna kykum. Var þat hans bani. Gunnari lét hann kasta í ormgarð, en honum var fengin leyniliga harpa, ok sló hann með tánum, því at hendr hans váru bundnar, en svá lék hann hörpuna, svá at allir ormarnir sofnuðu nema sú naða, er renndi at honum ok hjó svá fyrir flagbrjóskat, at hon steypði höfðinu inn í holit, ok hangði hon á lifrinni, þar til er hann dó. Gunnarr ok Högni eru kallaðir Niflungar ok Gjúkungar. Fyrir því er gull kallat Niflunga skattr eða arfr.
Litlu síðar drap Guðrún tvá sonu sína ok lét gera með gulli ok silfri borðker af hausum þeira, ok þá var gert erfi Niflunga. At þeiri veizlu lét Guðrún skenkja Atla konungi með þeim borðkerum mjöð, ok var blandit við blóði sveinanna, en hjörtu þeira lét hon steikja ok fá konungi at eta. En er þat var gert, þá sagði hon honum sjálfum með
Framhaldsskóli.is 119
mörgum ófögrum orðum. Eigi skorti þar áfenginn drykk, svá at flest fólk sofnaði, þar sem sat. Á þeiri nótt gekk hon til konungs, er hann svaf, ok með henni sonr Högna ok vágu at honum. Þat var hans bani. Þá skutu þau eldi í höllina, ok brann þat fólk, er þar var inni.
Eftir þat fór hon til sjávar ok hljóp á sæinn ok vildi týna sér, en hana rak yfir fjörðinn, kom þá á þat land, er átti Jónakr konungr. En er hann sá hana, tók hann hana til sín ok fekk hennar. Áttu þau þrjá sonu, er svá hétu: Sörli, Hamðir, Erpr. Þeir váru allir svartir sem hrafn á hárslit sem Gunnarr ok Högni ok aðrir Niflungar.
Þar fæddist upp Svanhildr, dóttir Sigurðar sveins, ok var allra kvinna fegrst. Þat spurði Jörmunrekkr konungr inn ríki. Hann sendi son sinn, Randvé, at biðja hennar sér til handa. En er hann kom til Jónakrs, þá var Svanhildr seld honum í hendr. Skyldi hann færa hana Jörmunrekki konungi. Þá sagði Bikki jarl, at þat var betr fallit, at Randvér ætti Svanhildi, er hann var ungr ok bæði þau, en Jörmunrekkr var gamall. Þetta ráð líkaði þeim vel inum ungum mönnum. Því næst sagði Bikki þetta konungi. Þá lét Jörmunrekkr konungr taka son sinn ok leiða til gálga. Þá tók Randvér hauk sinn ok plokkaði af fjaðrarnar ok bað senda feðr sínum. Þá var hann hengðr. En er Jörmunrekkr konungr sá haukinn, þá kom honum í hug, at svá sem haukrinn var ófleygr ok fjaðralauss, svá var ríki hans ófært, er hann var gamall ok sonlauss. Þá leit Jörmunrekkr konungr Svanhildi, er hann reið ór skógi frá veiðum með hirð sína, hvar hon sat at haddbliki. Þá riðu þeir á hana ok tráðu hana undir hestafótum til bana.
En er þetta spurði Guðrún, þá eggjaði hon sonu sína til hefndar eftir Svanhildi. En er þeir bjuggust til ferðar, þá fekk hon þeim brynjur ok hjálma svá sterka, at eigi mundi járn á festa. Hon lagði ráð fyrir þá, at þá er þeir kæmi til Jörmunrekks konungs, at þeir skyldu ganga of nótt at honum sofanda. Skyldi Sörli ok Hamðir höggva af honum hendr ok fætr, en Erpr höfuðit.
En er þeir kómu á leið, þá spurðu þeir Erp, hver liðsemð þeim myndi at honum, ef þeir hitti Jörmunrekk konung. Hann svarar, at hann myndi veita þeim þvílíkt sem hönd fæti. Þeir segja, at þat var alls ekki, at fótr styddist við hönd. Þeir váru svá reiðir móður sinni, er hon hafði leitt þá út með heiftyrðum, ok þeir vildu gera þat, er henni þætti verst, ok drápu Erp, því at hon unni honum mest.
Litlu síðar, er Sörli gekk, skriðnaði hann öðrum fæti, studdi sik með hendinni. Þá mælti hann: "veitti nú höndin fætinum. Betr væri nú, at Erpr lifði."
En er þeir kómu til Jörmunrekks konungs of nótt, þar sem hann svaf, ok hjuggu af honum hendr ok fætr, þá vaknaði hann ok kallaði á menn sína, bað þá vaka.
Þá mælti Hamðir: "Af myndi nú höfuðit, ef Erpr lifði."
Þá stóðu upp hirðmenninir ok sóttu þá ok fengu eigi sótt með vápnum. Þá kallaði Jörmunrekkr, at þá skal berja grjóti. Var svá gert. Þar fellu þeir Sörli ok Hamðir. Þá var ok dauð öll ætt ok afkvæmi Gjúka. Því er brynja kölluð klæði eða váðir Hamðis ok Sörla.
51. Frá Völsungum.
Framhaldsskóli.is 120
Eftir Sigurð svein lifði dóttir, er Áslaug hét, er fædd var at Heimis í Hlymdölum, ok eru þaðan ættir komnar stórar. Svá er sagt, at Sigmundr Völsungsson var svá máttugr, at hann drakk eitr ok sakaði ekki, en Sinfjötli, sonr hans, ok Sigurðr váru svá harðir á húðna, at þá sakaði ekki eitr, at útan kæmi á þá bera. Því hefir Bragi skáld svá kveðit:
114. Þá er forns Litar flotna á fangboða öngli hrökkviáll of hrokkinn hekk Völsunga drekku.
Eftir þessum sögum hafa flest skáld ort ok tekit ýmsa þáttu. Bragi inn gamli orti um fall Sörla ok Hamðis í drápu þeiri, er hann orti um Ragnar loðbrók.
115. Knátti eðr við illan Jörmunrekkr at vakna með dreyrfáar dróttir draum í sverða flaumi; rósta varð í ranni Raudvés höfuðniðja, þá er hrafnbláir hefnðu harma Erps of barmar. 116. Flaut of set við sveita sóknar alfs í golfi hræva dögg, þar er höggnar hendr sem fætr of kenndusk; fell í blóði blandinn brunn ölskála, runna þat er á Leifa landa laufi fátt, at höfði. 117. Þar svá at gerðu gyrðan golfhölkvis sá fylkis segls naglfara siglur saums andvanar standa; urðu snemmst ok sörli samráða þeir Hamðir hörðum herðimýlum Hergauts vinu barðir. 118. Mjök lét stála stökkvir styðja Gjúka niðja flaums, þá er fjörvi næma
Framhaldsskóli.is 121
Foglhildar mun vildu, ok bláserkjar birkis, ball, fagrgötu allir, ennihögg ok eggjar Jónakrs sonum launa. 119. Þat sék fall á fögrum flotna randar botni. Ræs gafumk reiðar mána Ragnarr ok fjölð sagna.
52. Frá Fróða konungi ok kverninni Grótta.
Hví er gull kallat mjöl Fróða? Til þess er saga sjá, at Skjöldr hét sonr Óðins, er Skjöldungar eru frá komnir. Hann hafði atsetu ok réð löndum, þar sem nú er kölluð Danmörk, en þá var kallat Gotland. Skjöldr átti þann son, er Friðleifr hét, er löndum réð eftir hann. Sonr Friðleifs hét Fróði. Mann tók konungdóm eftir föður sinn í þann tíð, er Ágústus keisari lagði frið of heim allan. Þá var Kristr borinn. En fyrir því at Fróði var allra konunga ríkastr á Norðlöndum, þá var honum kenndr friðrinn um alla danska tungu, ok kalla menn það Fróðafrið. Engi maðr grandaði öðrum, þótt hann hitti fyrir sér föðurbana eða bróðurbana lausan eða bundinn. Þá var ok engi þjófr eða ránsmaðr, svá at gullhringr einn lá á Jalangrsheiði lengi.
Fróði konungr sótti heimboð í Svíþjóð til þess konungs, er Fjölnir er nefndr. Þá keypti hann ambáttir tvær, er hétu Fenja ok Menja. Þær váru miklar ok sterkar.
Í þann tíma fundust í Danmörku kvernsteinar tveir svá miklir, at engi var svá sterkr, at dregit gæti. En sú náttúra fylgði kvernunum, at þat mólst á kverninni, sem sá mælti fyrir, er mól. Sú kvern hét Grótti. Hengikjöftr er sá nefndr, er Fróða konungi gaf kvernina.
Fróði konungr lét leiða ambáttirnar til kvernarinnar ok bað þær mala gull, ok svá gerðu þær, mólu fyrst gull ok frið ok sælu Fróða. Þá gaf hann þeim eigi lengri hvílð eða svefn en gaukrinn þagði eða hljóð mátti kveða. Þat er sagt, at þær kvæði ljóð þau, er kallat er Gróttasöngr, ok er þetta upphaf at:
120. Nú erum komnar til konungs húsa framvísar tvær, Fenja ok Menja; þær eru at Fróða Friðleifs sonar máttkar meyjar at mani hafðar.
Framhaldsskóli.is 122
Ok áðr létti kvæðinu, mólu þær her at Fróða, svá at á þeiri nótt kom þar sá sækonungr, er Mýsingr hét, ok drap Fróða, tók þar herfang mikit. Þá lagðist Fróðafriðr. Mýsingr hafði með sér Grótta ok svá Fenju ok Menju ok bað þær mala salt. Ok at miðri nótt spurðu þær, ef eigi leiddist Mýsingi salt. Hann bað þær mala lengr. Þær mólu litla hríð, áðr niðr sökk skipit, ok var þar eftir svelgr í hafinu, er særinn fellr í kvernaraugat. Þá varð sær saltr.
53. Frá Hrólfi kraka ok Vögg
Hví er gull kallat sáð Kraka? Konungr einn í Danmörk er nefndr Hrólfr kraki. Hann var ágætastr fornkonunga fyrst af mildi ok fræknleik ok lítillæti. Þat er eitt mark um lítillæti hans, er mjök er fært í frásagnir, at einn lítill sveinn ok fátækr er nefndr Vöggr. Hann kom í höll Hrólfs konungs. Þá var konungrinn ungr at aldri ok grannligr á vöxt. Þá gekk Vöggr fyrir hann ok sá upp á hann.
Þá mælti konungr: "Hvat viltu mæla, sveinn, er þú sér á mik?"
Vöggr segir: "Þá er ek var heima, heyrðak sagt, at Hrólfr konungr at Hleiðru var mestr maðr á Norðrlöndum, en nú sitr hér í hásæti kraki einn lítill, ok kallið þér hann konung."
Þá svarar konungr: "Þú, sveinn, hefir gefit mér nafn, at ek skal heita Hrólfr kraki, en þat er títt, at gjöf skal fylgja nafnfesti. Nú sé ek þik enga gjöf hafa til at gefa mér at nafnfesti, þá er mér sé þægilig. Nú skal sá gefa öðrum, er til hefir," -‐ tók gullhring af hendi sér ok gaf honum.
Þá mælti Vöggr: "Gef þú allra konunga heilastr, ok þess strengi ek heit at verða þess manns bani, er þinn banamaðr verðr."
Þá mælti konungr ok hló við: "Litlu verðr Vöggr feginn."
54. Frá Hrólfi kraka ok Aðilsi konungi.
Annat mark var þat sagt frá Hrólfi kraka um fræknleik hans, at sá konungr réð fyrir Uppsölum, er Aðils hét. Hann átti Yrsu, móður Hrólfs kraka. Hann hafði ósætt við þann konung, er réð fyrir Nóregi, er Áli hét. Þeir stefndu orrostu milli sín á ísi vatns þess, er Væni heitir. Aðils konungr sendi boð Hrólfi kraka, mági sínum, at hann kæmi til liðveizlu við hann, ok hét mála öllum her hans, meðan þeir væri í ferðinni, en konungr sjálfr skyldi eignast þrjá kostgripi, þá er hann köri af Svíðjóð. Hrólfr konungr mátti eigi fara fyrir ófriði þeim, er hann átti við Saxa, en þó sendi hann Aðilsi berserki sína tólf. Þar var einn Böðvarr bjarki ok Hjalti hugprúði, Hvítserkr hvati, Vöttr, Véseti, þeir bræðr Svipdagr ok Beiguðr. Í þeiri orrostu féll Áli konungr ok mikill hluti liðs hans. Þá tók Aðils konungr af honum dauðum hjálminn Hildisvín ok hest hans Hrafn.
Þá beiddust þeir berserkir Hrólfs kraka at taka mála sinn, þrjú pund gulls hverr þeira, ok um fram beiddust þeir at flytja Hrólfi kraka kostgripi þá, er þeir kuru til handa honum. Þat var hjálmrinn Hildigöltr ok brynjan Finnsleif, er á hvárigu festi járn, ok
Framhaldsskóli.is 123
gullhringr sá, er kallaðr var Svíagríss, er átt höfðu langfeðgar Aðils. En konungr varnaði allra gripanna, ok eigi heldr galt hann málann. Fóru berserkir braut ok unðu illa sínum hlut, sögðu svá búit Hrólfi kraka.
Ok jafnskjótt byrjaði hann ferð sína til Uppsala, ok er hann kom skipum sínum í ána Fýri, þá reið hann til Uppsala, ok með honum tólf berserkir hans, allr griðalausir. Yrsa, móðir hans, fagnaði honum ok fylgði honum til herbergis ok eigi til konungs hallar. Váru þá gervir eldar fyrir þeim ok gefit öl at drekka.
Þá komu menn Aðils konungs inn ok báru skíð á eldinn ok gerðu svá mikinn, at klæði brunnu af þeim Hrólfi, ok mæltu: "Er þat satt, at Hrólfr kraki ok berserkir hans flýja hvárki eld né járn?"
Þá hljóp Hrólfr kraki upp ok allir þeir. Þá mælti hann:
121. "Aukum enn elda at Aðils húsum,"
tók skjöld sinn ok kastaði á eldinn ok hljóp yfir eldinn, meðan skjöldrinn brann, ok mælti enn:
122. "Flýra sá eld er yfir hleypr."
Svá fór hverr at öðrum hans manna, tóku þá ok, er eldinn höfðu aukit, ok köstuðu á eldinn. Þá kom Yrsa ok fekk Hrólfi kraka dýrshorn, fullt af gulli, ok þar með hringinn Svíagrís ok bað þá braut ríða til liðsins. Þeir hljópu á hesta sína ok ríða ofan á Fýrisvöllu. Þá sá þeir, at Aðils konungr reið eftir þeim með her sinn alvápnaðan ok vill drepa þá. Þá tók Hrólfr kraki hægri hendi gullit ofan í hornit ok söri allt um götuna. En er Svíar sjá þat, hlaupa þeir ór söðlunum, ok tók hverr slíkt er fekk, en Aðils konungr bað þá ríða ok reið sjálfr ákafliga. Slöngvir hét hestr hans, allra hesta skjótastr. Þá sá Hrólfr kraki, at Aðils konungr reið nær honum, tók þá hringinn Svíagrís ok kastaði til hans ok bað hann þiggja at gjöf. Aðils konungr reið at hringinum ok tók til með spjótsoddinum ok renndi upp á falinn.
Þá veik Hrólfr kraki aftr ok sá, er hann laut niðr. Þá mælti hann: "Svínbeygt hefi ek nú þann, er ríkastr er með Svíum." Svá skilðust þeir.
Af þessi sök er gull kallat sáð Kraka eða Fýrisvalla. Svá kvað Eyvindr skáldaspillir:
123. Bárum, Ullr, of alla, ímunlauks, á hauka fjöllum Fýrisvalla fræ Hákunar ævi.
Svá sem Þjóðólfr kvað:
Framhaldsskóli.is 124
124. Örð sær Yrsu burðar inndrótt jöfurr sinni bjartplógaðan bauga brattakr völu-‐spakra. Eyss landreki ljósu lastvarr Kraka barri á hlémyldar holdi, hauks kölfur mér sjalfum.