Upload
petur-thomsen
View
221
Download
3
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Â
Citation preview
Sveitarstjórnarkosningar í Grímsnes- og Grafningshreppi
31. maí 2014
Listi óháðra kjósenda
Gerum gott samfélag betra
Stefnuskrá K- listans fyrir kosningar 2014 Stjórnsýsla
- Að sýnd sé ábyrgð og varfærni í fjármálum sveitarfélagsins.
- Að leitað verði allra leiða til að lækka skuldir sveitarfélagsins.
- Að stjórnskipulag sveitarfélagsins verði endurmetið með það að markmiði að auka hagkvæmni.
- Að starfsmenn sveitarfélagsins séu hvattir til og hafi tækifæri á að sækja sér menntun samhliða störfum sínum.
- Að ráðning á sveitarstjóra sé á faglegum forsendum.
- Að aðgangur íbúa og hagsmunaaðila að upplýsingum sé einfaldaður s.s. með föstum viðtalstímum við sveitarstjórn, íbúafundum, nefndarstörfum og öflugri heimasíðu.
Orkumál
- Að gerð verði áætlun til 10 ára er varðar uppbyggingu á heita- og kaldavatnsveitum sveitarfélagsins.
- Að aukin áhersla verði lögð á innmælingar á lögnum sveitarfélagsins.
- Að skoðaðir verði sérstaklega möguleikar á heitavatnsvæðingu í Grafningi.
- Að sá mikli auður sem er í heitu og köldu vatni í sveitarfélaginu nýtist til atvinnu- og tekjuöflunar innan sveitarfélagsins.
Skipulags- og umhverfismál
- Að aðalskipulag sveitarfélagsins verði rækilega kynnt og þannig stuðlað að frekari uppbyggingu.
- Að við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins verði horft til þróunar íbúðabyggðar, ferðaþjónustu og fjölbreyttrar atvinnustarfssemi.
- Að íbúafundir verði haldnir þannig að sem flestir hafi tækifæri til að hafa áhrif á skipulag sveitarfélagsins.
- Að löngu tímabærar vegabætur verði í Grafningi og að bundið slitlag verði sett á Búrfellsveg.
- Að hreinsunardagur sé annað hvert ár og að sveitarfélagið leggi þá til járn- og timburgám á hvern bæ.
Skólamál
- Að nýtt húsnæði leik- og grunnskóla Kerhólsskóla verði klárað ásamt lóðarframkvæmdum.
- Að elstu bekkir grunnskólans komi “heim” og að sú framkvæmd verði unnin í nánu samstarfi við foreldra, nemendur og kennara.
Stefnuskrá K- listans fyrir kosningar 2014 Landbúnaður
- Að landbúnaður er og verður mikilvægur þáttur í sveitarfélaginu.
- Að skipulagsmál taki mið af mikilvægi landbúnaðar.
- Að minka og refaveiðar verði skipulagðar í samvinnu við þá sem hagsmuna eiga að gæta.
Búsetu- og atvinnumál.
- Að atvinnuuppbygging verði áfram fjölbreytt og að stutt verði við það frumkvöðlastarf sem víða á sér stað um sveitarfélagið.
- Að efla ferðaþjónustu í sveitarfélaginu m.a. með því að stuðla að auknu samstarfi ferðaþjónustuaðila og með stuðning við útgáfu kynningarefnis.
- Að bjóða fjölskyldufólk velkomið í sveitarfélagið með góðum leik- og grunnskóla.
- Gera kröfu á Mílu með að ljósnet/ljósleiðari verði settur upp hjá öllum íbúum/fyrirtækjum í sveitarfélaginu.
Borg
- Að byggt verði dvalarheimili fyrir eldri borgara á Borg.
- Að endurskoðað verði skipulag Borgarsvæðisins m.t.t. iðnaðarsvæðis, hesthúsahverfis, fótboltavallar, tjaldsvæðis sem og uppbyggingar verslunar og atvinnuhúsnæðis.
- Að Borgarsvæðið verði fegrað m.a. með plöntun á trjám, að gangstéttar verði kláraðar og varanlegar hraðahindranir settar upp.
- Að embætti skipulags- og byggingafulltrúa verði staðsett í núverandi skólahúsnæði.
Menning – Nám – Börn – Heldri borgarar
- Að styrkja fjárhagslega unglinga sem stunda framhaldsnám.
- Að bjóða öllum unglingum upp á unglingavinnu.
- Að bjóða áfram upp á fjölbreytt íþrótta- og leikjanámskeið.
- Að áfram verði heldri borgurum boðið til dvalar á Hótel Örk.
- Að efla félagsstarf fyrir heldri borgara.
Frambjóðendur K listans
Guðmundur Ármann PétursssonFramkvæmdastjóri, Sólheimum
Sigrún Jóna JónsdóttirBóndi, Stóra-Hálsi
Jón Örn IngileifssonVerktaki, Svínavatni
Karl ÞorkelssonVerktaki, Borg
Pétur ThomsenLjósmyndari, Sólheimum
Ágúst GunnarssonBóndi, Stærri-Bæ
Hanna Björg ÞrastardóttirMatráður, Ljósafossi
Ólafur Ingi KjartanssonBóndi, Vaðnesi
Jóhannes GuðnasonBifreiðastjóri, Borg
Böðvar PálssonBóndi, Búrfelli
1. 2. 3. 4.
5. 6. 7. 8.
9. 10.Listi óháðra kjósenda
www.facebook.com/klistinn
Forgangsverkefni strax að loknum kosningum- Gerð verði lokatilraun í að selja golfvöllinn við Borg. Ef hann selst ekki á árinu 2014 þá verður haldinn
íbúafundur þar sem kallað verður eftir hugmyndum um notkun á landi golfvallarins.
- Gera kröfu á Mílu að klára strax ljósnet/ljósleiðaravæðingu í sveitarfélaginu.
- Fara í endurskoðun á skipulagi með það að markmiði að hraða uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis.
- Klára skólabyggingu strax og lóðarframkvæmdir eins fljótt og hægt er.
- Moldrok frá golfvelli verði strax stoppað!
- Vegamál, nauðsynlegar vegabætur í Grafningi og bundið slitlag á Búrfellsveg.
- Að göngustígar á Borg verði kláraðir strax.
Sveitarfélagið skuldar 1 miljarð, skuldahlutfall er rúmlega 160%. Það þarf að sýna ráðdeild í rekstri og framkvæma af ábyrgð.