9
Velferðin í öndvegi Umræðustjóri: Björk Vilhelmsdóttir Aðalritari: Tryggvi Þórhallsson

Velferðin í öndvegi

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Velferðin í öndvegi. Umræðustjóri: Björk Vilhelmsdóttir Aðalritari: Tryggvi Þórhallsson. Fræðslu- og uppeldismál. Börn fái hagnýta menntun og sýni árangur sem stenst alþjóðlegan samanburð Lestrarfærni og lesskilningur barna efldur og áhersla á náið samstarf skólastiga þar um - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Velferðin í öndvegi

Velferðin í öndvegiUmræðustjóri: Björk Vilhelmsdóttir

Aðalritari: Tryggvi Þórhallsson

Page 2: Velferðin í öndvegi

Fræðslu- og uppeldismál

• Börn fái hagnýta menntun og sýni árangur sem stenst alþjóðlegan samanburð

• Lestrarfærni og lesskilningur barna efldur og áhersla á náið samstarf skólastiga þar um

• Skólastarf miðað við styrkleika, áhugasvið og færni nemenda með auknu valfrelsi, ábyrgð og sjálfræði þeirra

• Vægi verk-, tækni- og listgreina aukið

• Nýtt námsefni fylgi nýjum námskrám

• Lenging kennaranáms verði nemendum og skólastarfi til hagsbóta með aukinni áherslu á vettvangsnám og hagnýtingu í starfi

• Starfsþróun starfsmanna skóla verði forgangsverkefni

Page 3: Velferðin í öndvegi

Fræðslu- og uppeldismál

• Menntun barna til 18 ára aldurs verði á hendi sveitarfélaga

• Leikskólinn - sem fyrsta skólastigið - verði lögbundið verkefni sveitarfélaga og möguleiki á leikskóla að loknu fæðingarorlofi, sem verði 12 mánuðir

• Að sveitarfélög hafi svigrúm til fjölbreytni og sveigjanleika við útfærslu skólastarfs

• Skerpa á ábyrgð og skyldum ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við börn sem búa við fötlun, sjúkdóma eða aðrar sérstakar aðstæður

• Hagræðing í opinberum rekstri búi ekki til grá svæði í þjónustu við börn

• Aukin svæðasamvinna sveitarfélaga um sérfræðiþjónustu, ráðgjöf og úrræði

• Skóla- og fræðslunefndir fylgi eftir niðurstöðum ytra mats

Page 4: Velferðin í öndvegi

Fjárhagsaðstoð og atvinnumál

• Lagavinnan: Félagslegur stuðningur sé skilgreindur út frá þörfum

• Skerpa á að fjárhagsaðstoð sé skilgreind sem neyðaraðstoð

• Sveitarfélög taki yfir alfarið yfir verkefni Vinnumálastofnunar á sviði vinnumiðlunar og úrræða fyrir atvinnuleitendur - tekjustofn verði tryggður

• Sveitarfélögin eru best til þess fallin að koma fólki aftur út á vinnumarkaðinn

• „Grá svæði“ - Skilgreina þarf betur hvaða þjónustu ríki og sveitarfélög eiga að veita

Page 5: Velferðin í öndvegi

Málefni fatlaðs fólks og aldraðra

• Málefni fatlaðs fólks: Eignarhald á málaflokknum / fræðsla til kjörinna fulltrúa

• Endurmatið taki tillit til nýrra laga og hugmyndafræðilegra breytinga sem átt hafa sér stað

• Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

• Fjármögnun búsetuuppbyggingar og tengdrar þjónustu njóti forgangs

• Efla innra og ytra mat á gæðum þjónustunnar

• Þjónusta við aldraða: Áhersla á að ríkið sé stefnumótunaraðili. Stefnumótun og skýrar línur fyrst af hálfu ríkisins og síðan tekin afstaða til yfirfærslu

Page 6: Velferðin í öndvegi

Húsnæðismál og velferðartækni

• Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna félagslegra aðstæðna (annarra en lágra tekna) verði áfram á hendi sveitarfélaga

• Sérstaklega skoðað að hlutverk sveitarfélaga verði að veita stofnframlög

• Stuðla að lækkun byggingakostnaðar í gegnum verð á landi og kostnað við úthlutun lóða

• Stuðla að þróun velferðartækni í félagsþjónustu sveitarfélaga, fyrir þá sem þurfa aðstoð í daglegu lífi

Page 7: Velferðin í öndvegi

Jafnréttis- og mannréttindamál

• Aðgerðir gegn kynbundnum launamun

• Nýtt markmið um að sporna gegn neikvæðum áhrifum staðalmynda, klámvæðingu og vændi og alvarlegum samfélagslegum áhrifum þess

• Lögbundinn stuðningur Fjölmenningarseturs í málefnum innflytjenda áréttaður

• Tekin út hugtök um „Nýja“ íbúa

• Markmið 3.3.28, 3.3.29 og 3.3.30 (innflytjendamál) felld út

Page 8: Velferðin í öndvegi

Menningarmál

• Sambandið skal vinna að því að jafnræðis sé gætt við útdeilingu ríkisvaldsins á fjármunum til menningarmála

Page 9: Velferðin í öndvegi

Æskulýðs- og íþróttamál

• Sambandið móti stefnu um sameiginlegar áherslur sveitarfélaganna á sviði æskulýðs-, íþrótta- og menningarmála

• Áskorun til stjórnar um að sambandið geri þá kröfu til sérsambanda að þau kostnaðarmeti tillögur sínar sem leiði til fjárútláta af hálfu sveitarfélaga

• Sveitarfélög fái stuðning ríkis til aðgerða vegna lögfestingar Barnasáttmálans

• Sveitarfélög vinni eftir uppleggi ráðuneyta og Embættis landlæknis í þágu lýðheilsu gegnum heilsueflingu og forvarnastarf