12
EUROPROF - ÍSLAND 2009 Europrof er samstarfsverkefni á vegum Comeniusaráætlunar Evrópusambandsins. 7 lönd í Evrópu taka þátt í þessu verkefni sem hófst árið 2006 og lýkur 2009. Eitt helsta markmið Europrof verkefnisins er að efla kennaranema í fjölmenningarlegri færni. Evrópusambandið styrkir þátttakendur þannig að ferða- og dvalarkostnaður er greiddur.

Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

Embed Size (px)

DESCRIPTION

- PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

EUROPROF - ÍSLAND 2009

Europrof er samstarfsverkefni á vegum Comeniusaráætlunar Evrópusambandsins. 7 lönd í Evrópu taka þátt í þessu verkefni sem hófst árið 2006 og lýkur 2009.

Eitt helsta markmið Europrof verkefnisins er að efla kennaranema í fjölmenningarlegri færni.

Evrópusambandið styrkir þátttakendur þannig að ferða- og dvalarkostnaður er greiddur.

Page 2: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

Page 3: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

Flaug til London, tók síðan Eurostar lestina til Parísar, það tók 3 klst. og loks lest í 2 ½ klst. til Rennes, yndislegrar 200þús. manna borgar á

Bretagne skaganum í Frakklandi.

Þinghúsið í Rennes

Bretagne er frægt fyrir litskrúðugt postulín

Til hægri er Musée de Bretage, nýleg stórkostleg safnbygging

Page 4: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

Við komum frá 7 löndum: Englandi, Danmörku, Litháen, Póllandi, Austurríki, Ítalíu og Íslandi, 2 nemar frá hverju landi nema 1 frá Íslandi, alls 12 manns (1 forfallaðist á

Ítalíu)

Page 5: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

Til að hrista saman hópinn var farið í “fjársjóðsleit” í miðborg Rennes þar sem við “fundum” ýmsar þekktar byggingar

borgarinnar og áttuðum okkur aðeins á staðháttum. Frakkarnir fá seint verðlaun fyrir skipulagshæfileika.

Ef kennari hefði ekki fylgt okkur, þá værum við enn að leita að “fjársjóðunum”.

Page 6: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

Hópnum var síðan skipt niður í smærri hópa sem fóru ýmist í grunnskóla eða menntaskóla. Ég fór ásamt Dana og Ítala í menntaskóla, Lycée René Descartes.Þar vorum við með kynningu á löndum okkar, sögðum frá ýmsu varðandi þjóðir okkar og svöruðum spurningum nemenda sem spurðu margs um Ísland og Danmörku, Ítalía er nær þeim svo þeir þekktu það land meira. Við vorum síðan á áhorfi í ensku hjá nokkrum hópum sem kennarinn sem við fylgdum, Fabrice Bouchet, kenndi. Einnig var ég í áhorfi í tíma í frönskum bókmenntum.

Lise kynnir Danmörku fyrir frönskum menntskælingum.

Það voru 2 tölvustofur í skólanum, skjávarpar voru ekki í öðrum stofum þannig að panta varð þessar stofur fyrir kynningar okkar.

Page 7: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

Í “heimaskólanum mínum”

Marco kennaranemi frá Ítalíu, Þórleif og Fabrice Bouchet, enskukennari

Page 8: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

• Ekkert máláreiti í ensku, allt sjónvarpsefni er talsett.

• Öll tölvuforrit sem þeir nota eru á frönsku.

• Nemendur virðast ekki sjá neinn tilgang í því að læra ensku !

Fabrice Bouchet að kenna ensku

• Hæfir kennarar, með fjölbreyttar kennsluaðferðir

• Kennarar mjög duglegir að nota markmálið í tímum

• Áhugavert kennsluefni sem kennarar velja út frá námsvali nemenda (brautum)

• Nemendur allan daginn í sömu stofu nema raungreinum (menntaskóli)

•Mötuneyti fyrir nemendur og kennara

• Matartíminn er 1 ½ klst. frá 12:30 – 14

• SAMT GETA NEMENDUR EKKI TJÁÐ SIG Á ENSKU !

Page 9: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

Við heimsóttum einnig grunnskóla í Rennes,collège public François Truffaut

• Collège er unglingadeild, fyrir 11-16 ára• Sátum í áhorfi í enskutíma hjá 12 ára nem.• Kennari notaði nær eingöngu markmálið• Leikir mikið notaðir í kennslunni• Mikið lagt upp úr því að nem. tjái sig sem mest

Mme Le Rouzic, enskukennarinn, spurði grimmt en var svo snögg að skipta yfir í leik með nemendunum

Page 10: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

• Við skoðuðum m.a. aðstöðu kennara, íslenskum kennurum þætti hún trúlega ekki neitt sérstök.

• Við spjölluðum mikið við kennarana sem gáfu sér góðan tíma til að fræða okkur og vildu einnig fræðast af okkur um lönd okkar.

• Niðurskurðartillögur forsetans, Sarkozy, voru mikið ræddar.• Allsherjarverkfall opinberra starfsmanna var boðað þ. 29. jan. sl.

í Frakklandi

Collège Betton, vinnuaðstaða kennaraVeronique bókm.kennari í öðru vinnuherbergi kennara í Lycée Descartes

Page 11: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

MÓTMÆLI OPINBERRA STARFSMANNA Í RENNES 29. jan. 2009

Ég tók auðvitað þátt í mótmælunumGífurleg stemming og mikil upplifun

Page 12: Við hituðum fyrst upp í London yfir helgi

Frábær reynsla,bæði að kynnast kennurum í grunnskóla, menntaskóla og háskóla og

fræðast um kennsluhætti Frakkaog ekki síður, að kynnast kennaranemum frá öðrum löndum Evrópu ,

nú á maður vísar gistingar víða um Evrópu...

Alþjóðlega kvöldið, allir komu með eitthvað matarkyns frá sínu heimalandi. Og auðvitað lærðum við að baka crêpes, sérrétt Bretagnebúa.

Ég bauð upp á íslenskt brennivín og sælgæti, það fór misvel í fólkið þetta fyrra. Frétti það daginn eftir...