NÁMSMAT Í NORÐLINGASKÓLA
NEMANDINN Í ÖNDVEGI
Ágúst Ólason4. september 2009
NÁMSMAT –Í ÞÁGU HVERS?
Sveitaskólinn í Reykjavíkurhreppi Stofnaður í ágúst 2005 (12 starfsmenn / 16 - 44
nemendur) Er að hefja sitt fimmta starfsár (43 starfsmenn – 300
nemendur) Fjöldi skála ásamt tengibyggingum – bráðabirgðahúsnæði Nýtt hús í smíðum
„Skóli er ekki húsnæðið“ Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins 2009 Fjöregg SAMFOK 2009 Íslensku Menntaverðlaun forseta Íslands 2009 Tilnefning til foreldraverðlauna Heimilis og skóla 2009
Í Norðlingaskóla er reynt að vinna að því að skólabragurinn mótist af þeirri sýn að það sé eðlilegt og jafnvel eftirsóknarvert að ekki séu allir eins.
Talið er mikilvægt að hver nemandi fái að njóta sín miðað við getu sína, sérstöðu, þarfir, áhuga og styrkleika.
Lífsgleðin er meginmarkmið, hún er ástunduð og að henni hlúð.
Skólaþróun er talin eðlilegur hluti af starfinu og stöðugt mat á skólastarfinu er talið mikilvægt.
Skólastarfið á að taka mið af nemendunum sem eru í skólanum en nemendur eiga ekki að passa inn í ákveðna gerð af skólastarfi.
ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA
Einstaklingsmiðun Starf skólans tekur mið af því að börnin eru misjafnlega
þroskuð, af margbreytilegum uppruna og hafa öðlast margháttaða og misjafna leikni, reynslu og þekkingu áður en þau hefja nám í grunnskóla.
Unnið með sterkar og veikar hliðar. Skólinn þarf að búa nemendum skilyrði svo þau megi á
eigin forsendum dafna og þroskast með því að stuðla að alhliða þroska þeirra, veita þeim öryggiskennd, sjálfstraust og jákvæða sjálfsmynd.
Þetta gerir skólinn með því að sérhver nemandi fái námsaðstæður og viðfangsefni við sitt hæfi.
LEIKUR SÁ ER MÉR KÆR
Áform Einstaklingsbundnar vikulegar námsáætlanir Samræða - gagnvirkni Símat - endurgjöf
Áhugasvið – sterkar hliðar Í hverri viku fá nemendur 1 – 3 lotur (70 mín.) til að
vinna með áhugasvið sitt, ýmist einstaklingslega eða í litlum hópum.
Áhugahvötin er mikil orkulind enda eru nemendur góðir í því sem þeir hafa áhuga á og verða einnig góðir í því sem þeir fá áhuga fyrir.
Áhugasviðssamningur – tvívirkur: nemandi og kennari.
AÐ VITA MEIRA OG MEIRA
Samkennsla Nemendur í samkennsluhópi eru á misjöfnum aldri, búa
yfir misjöfnum þroska og getu og læra að það er eðlilegt að vinna misjafnlega hratt og hafa margvísleg áhugasvið og fjölbreytta færni.
Teymisvinna Þannig nýtist margbreytileiki í hópi starfsfólks
nemendum betur. Með þessu móti er aldrei einn kennari með nemendahóp
en það eykur sveigjanleika í starfinu og skapar um leið stuðning þegar þörf er á.
Nemendur hafa val!!!
MEIRA Í DAG EN Í GÆR
Smiðjur Smiðjur eru viðfangsefni sem nemendur fást við þvert á
námsgreinar í hverri viku um 7 40. mín kennslust. Reynslan sýnir svo ekki verður um villst að þær veita
nemendum tækifæri til að nálgast námsefni á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt og vekja þannig áhugahvöt þeirra.
Vinna í smiðjum höfðar til mismunandi greinda og færni nemenda og oft hefur það komið fyrir að nemendur hafi gleymt sér í flæði í hita leiksins.
Aldursblöndunin sem fylgir smiðjunum verður einnig til þess að nemendur læra hver af öðrum, þeir eldri kenna þeim yngri og öfugt.
Styður einnig áhuga starfmanna.
BJALLAN HRINGIR
Björnslundur Lögð er sérstök áhersla á að nota náttúruna markvisst í
námi nemenda. Samstarf við Reykjavíkurborg. Samstarf við leikskólann Rauðhól. Samstarf við Háskólann í Bergen í Noregi. Vefur um Björnslund. Vefur um nágrenni Norðlingaskóla.
VIÐ HÖLDUM
Einstaklingsmiðað námsmat Þróunarverkefni til þriggja ára (2006-2009) ásamt
Ingunnarskóla. Mikill áhugi á þróunarstarfi í anda einstaklingsmiðaðs
náms og samvinnunáms. Starfsfólk skólanna hefur leitað leiða til að koma betur til
móts við þarfir nemenda og hæfileika. Báðir skólarnir hafa verið leiðandi á þessu sviði og starf
þeirra vakið athygli. Í báðum skólunum hefur frá upphafi verið mikil umræða
um það hvernig best sé að haga námsmati þannig að það samrýmdist sem best þeim áherslum sem unnið er eftir þegar stefnt er að aukinni einstaklingsmiðun.
HEIM ÚR SKÓLANUM GLÖÐ
Matsamtöl Þróuð hafa verið matssamtöl og þau fest í sessi í
skólastarfi Norðlingaskóla. Þau eru þrjú yfir skólaárið, í byrjun október, í janúar við annarlok
og í júní við skil á vorannarmati. Notaðir eru mismunandi gátlistar í hverju samtali. Þeir fara heim með nemendur að loknu samtali kennara og
nemanda, foreldrar fara yfir punktana og bæta inná. Gátlistarnir eru notaðir á samráðsdegi nemanda, foreldra og
kennara. Vaxandi ánægja hefur verið með þennan þátt í skólastarfinu og
hafa nemendur, foreldrar og kennarar allir verið á einu máli um jákvæða þróun og aukið mikilvægi matsamtalanna.
PRÚÐ OG FRJÁLSLEG Í FASI
Matsamtöl Gerð var könnun á viðhorfum kennara, nemenda og foreldra í
Norðlingaskóla til námsmats í skólanum og þá sérstaklega til matsamtalanna (Ágúst Ólason, 2009).
Þar kemur fram að margvíslegur ávinningur er af viðtölunum. Mat kennara, nemenda og foreldra er að samræðan sem
samtölin byggjast á styrki sjálfsmynd nemenda, auki traust og trúnað og sé upplýsandi fyrir alla aðila.
Matsamtölin gefa þeim sem þátt taka tækifæri til að deila ábyrgð og fylgjast betur með en ella væri.
Einn þáttur matsamtalanna er að draga fram markmið náms og kennslu sem og að skýra væntingar til skólastarfsins.
Í matsamtölum á miðjum vetri og vori er hægt að ræða hvort markmið hafi náðst og hvort staðið hafi verið undir væntingum.
FRAM NÚ ALLIR Í RÖÐ
Markmiðstengdar umsagnir Lögð var áhersla á að annarmati væri skilað með
markmiðum, einkunnum og umsögnum. Fjórir kennarar í 5.–7. bekk, sem er samkennsluhópur í
Norðlingaskóla, tóku að sér að vinna og skila vormati 2009 á þennan hátt.
Niðurstaða þeirra var sú að þessi leið væri skref fram á við.
Hún væri markvissari og skilaði jafnt kennurum sem nemendum áreiðanlegri niðurstöðum.
Í SKÓLANUM Í SKÓLANUM
Markmiðstengdar umsagnir Gerð var könnun meðal foreldra / forráðamanna og
nemenda um viðhorf þeirra til þessarar útfærslu á annarmatinu.
Foreldrar lýstu ánægju sinni með þessa breytingu og töldu hana skemmtilega, skilmerkilega og persónulega.
Helst var gagnrýnt að ósamræmi væri á milli umsagna milli námsgreina.
Flestir nemendanna voru mjög ánægðir eða frekar ánægðir og skildu þær upplýsingar sem birtast á námsmatinu.
ER SKEMMTILEGT AÐ VERA
Námsjóður Unnið er að því að safna gögnum nemenda í flestum
námsgreinum sem og í öðru skólastarfi svo sem í félagslífi skólans.
Nú eiga allir nemendur skólans gögn á rafrænu formi. Unnið er að því að þróa námsjóðinn frekar. Næstu skref er að meta það sem í námsjóðinn fer með
nemandanum og setja á blað rökstuðning með matinu. Hafa sýningu á því sem nemendur velja.
VIÐ LÆRUM ÞAR AÐ LESA STRAX
Námsmat í smiðjum Í tengslum við þessa vinnu sem og stefnumörkun um
námsmat hefur nokkur umræða farið fram um skil á smiðjumati.
Margar leiðir verið reyndar. Smiðjur orðnar þróunarverkefni.
OG LEIRINN HNOÐUM EINS OG VAX
Námsmat í útikennslu Útikennsla í Norðlingaskóla hefur farið fram í
Björnslundi, útikennslustofu skólans, sem og annarsstaðar þar sem viðfangsefni hverju sinni hefur verið að finna.
Í Björnslundi hefur útikennslan oftast verið tengd smiðjum og námsmatið fallið að því starfi.
Þá hefur námsmat tengst svokölluðum Fimmtíu-leik, en leikurinn er útileikur sem byggist á spurningakeppni milli hópa.
Í SKÓLANUM Í SKÓLANUM
Útskriftarmöppur Á vordögum 2009 útskrifaði Norðlingaskóli fyrstu
nemendur úr 10. bekk. Hönnuð var mappa með nafni, kennitölu og mynd af
nemandanum á framhlið og tveimur ljóðum sem einkenna Norðlingaskóla á bakhlið.
Inn í möppuna var síðan stungið námsmati nemandans sem útfært var á svipaðan hátt og námsmat í 5. – 7. bekk.
Upplýsingar um það sem hér hefur verið ,og verður, kynnt er að finna á: http://ingunnarskoli.is http://starfsfolk.khi.is/ingvar/ http://nordlingaskoli.is -
hér hafa þegar verið sett inn gögn sem varða þessa ráðstefnu og kynnt verða fyrir ykkur í málstofunum á eftir.
ER SKEMMTILEGT AÐ VERA
Takk fyrir