VERUM UPPBYGGILEG
ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS
MARS 3. TBL. 2011
Í íþróttum er reynt að starfa eftir
ákveðnum gildum – sem í senn eru
samfélagslega mikilvæg og hafa reynst
vænleg til íþróttalegs árangurs. Meðal
þessa er að læra að taka tapi, og raunar
ekki síður hvernig á að höndla sigur.
Afreksmaður í íþróttum er tæknilega vel
þjálfaður og þarf að hafa persónuleika til
að fara með sína hæfileika. Virðing fyrir
andstæðingum jafnt sem eigin
hæfileikum og takmörkum er
nauðsynlegur þáttur til að ná árangri.
Keppni í íþróttum kallar meira en margt
annað fram tilfinningar á borð við reiði
og gleði. Það er okkur eðlislægt, hvort
heldur við erum þátttakendur eða
áhorfendur. Þessar tilfinningar þurfa
ekki að vera óeðlilegar eða
varhugaverðar – málið snýst fremur um
það hvernig menn höndla þær til
árangurs. Þar kemur til stórt hlutverk
leikstjórnenda og þjálfara, auk hugarfars
viðkomandi íþróttamanns.
Vel má vera að keppandi sem missir
einbeitingu vegna reiði, og sóar orku
sinni í að nöldra yfir dómgæslu allan
leikinn, fái útrás fyrir tilfinningar sínar –
og vel má vera að hann hafi eitthvað til
síns máls um réttmæti sinnar reiði. En
íþróttalegi árangurinn verður einfaldlega
ekki sá sami. Hér er mikilvægt að
forgangsraða rétt. Það er einkenni
afreksíþróttafólks að halda yfirvegun og
einbeitingu – og það er einkenni klókra
þjálfara að virkja tilfinningar sinna
leikmanna til árangurs.
Þessi orð eru hér sett fram ekki síst í
samhengi við vaxandi neikvæða
umræðu í íslensku samfélagi í kjölfar
efnhagshruns. Ekki skal gert lítið úr því
að margir hafa haft tilefni til reiði – en
samhengið hér er hvort stundum sé ekki
nóg komið – hvort ekki sé skynsamlegra
að líta til framtíðar og uppbyggingar
árangurs. Hvort ekki sé ráð að draga
lærdóm af okkar afreksíþróttafólki og
yfirvinna mótlætið – hversu réttlætanleg
sem reiðin að baki því kann annars að
vera. Virkja tilfinningarnar frekar til að
ná markmiðum til framtíðar en að rífa
niður vegna fortíðar.
Það getur vissulega verið nauðsynlegt
að líta annað slagið í baksýnisspegilinn
til þess að skilja hvaðan við erum að
koma til að ákvarða hvaða leið er farin
til framtíðar. En þar sem við getum ekki
breytt atburðarrás fortíðar er
varhugavert að dvelja of lengi við liðna
tíð umfram þann lærdóm sem við
drögum af mistökum. Afreksíþróttafólk
sem nær ekki að yfirstíga tap síðasta
tímabils mun ekki ná sigrum á því
næsta. Síðasta tímabil er liðið hvort
sem okkur líkar það betur eða verr.
Það gilda sambærileg lögmál á sviði
stjórnunarstiga íþróttahreyfingarinnar.
Hvar sem við erum stödd í
pýramídanum, frá leikmanni til þjálfara,
frá þjálfara til stjórnar félags, frá félagi
til sérsambands eða íþróttahéraðs, eða
þaðan til Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands. Á öllum þessum stigum þurfum
við að gæta vel að því að beina orkunni
að uppbyggingu til framtíðar – setja
niður allar óþarfa deilur, hlúa hvert að
öðru og virkja okkar félagsmenn með
jákvæðum hætti til árangurs á öllum
sviðum. Ef við lítum til hugarfars
afreksíþróttamannsins og þjálfarans – að
ná fram því besta úr hverjum
þátttakanda og stefna einbeitt að þeim
markmiðum sem við setjum okkur – þá
mun okkur farnast vel.
MEÐAL EFNIS:
Miðasala London 2012
Lífshlaupið 2011
Íþróttaþing 2011
SIDE-
ÓLYMPÍUFJÖLSKYLDA ÍSÍ
Ábyrgðin er mikil. Skjólstæðingarnir eru
að stóru leyti æska landsins – framtíð
þjóðarinnar. Íslensk íþróttahreyfing er –
og á að vera – í fararbroddi jákvæðrar
uppbyggingar samfélagsins. Afreksfólkið
okkar er fyrirmynd hins uppbyggilega
hugarfars sem íslenskt samfélag þarf á
að halda. Það er okkar hlutverk að
koma því á framfæri við æsku landsins,
og landsmenn alla. Þetta hlutverk
íþróttahreyfingarinnar hefur líklega
aldrei verið jafn mikilvægt og einmitt nú.
Stöndum saman – sendum uppbyggileg
skilaboð til samfélagsins.
Ólafur E. Rafnsson,
forseti ÍSÍ
síðar á þessu ári, og á fyrri hluta ársins
2012 og er gert ráð fyrir að
fyrirkomulag sölunnar taki m.a. mið af
árangri þeirra.
„Þetta er spennandi verkefni fyrir
okkur. Ólympíuleikar draga að sér
geysilegan fjölda gesta og að þessu
sinni búumst við við miklum áhuga
Íslendinga á leikunum m.a. vegna þess
að fátítt er að Ólympíuleikar séu haldnir
í borg svo nálægt Íslandi og með jafn
góðar flugsamgöngur við landið, en
Icelandair flýgur tvisvar á dag til
London", segir Birkir Hólm Guðnason,
framkvæmdastjóri Icelandair.
Á myndinni handsala Ólafur Rafnsson,
forseti Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands og Birkir Hólm Guðnason,
framkvæmdastjóri Icelandair
samkomulagið.
MIÐASALA — LONDON 2012
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og
Icelandair hafa samið um að Icelandair
taki að sér miðasölu á Íslandi fyrir
Ólympíuleikana sem verða haldnir í
London 27. júlí til 12. ágúst 2012.
Miðasalan á Íslandi hefst 3. maí
næstkomandi og mun Icelandair kynna
söluferlið nánar þegar nær dregur.
„Við í íslensku íþróttahreyfingunni
gerum ráð fyrir að þjóðin verði mjög
áhugasöm um leikana á næsta ári. Þeir
Íslendingar sem vilja einhverntíman á
lífsleiðinni upplifa Ólympíuleika hafa til
þess einstakt tækifæri vegna
nálægðarinnar við London. Auk þess
eru líkur eru á að Íslendingar sendi sinn
stærsta keppendahóp frá upphafi á þá,
en bæði A-landslið karla í handknattleik
og U-23 lið karla í knattspyrnu eiga t.d.
möguleika á að tryggja sér
þátttökurétt", segir Ólafur Rafnsson,
forseti Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands.
Í samkomulaginu felst að Icelandair
verður söluaðili á Íslandi fyrir
aðgangsmiða á einstaka viðburði á
Ólympíuleikunum. Í tengslum við
miðasöluna mun Icelandair einnig bjóða
sérsniðnar pakkaferðir til London og
gefa þannig öllum Íslendingum færi á
að upplifa og njóta eins og best verður
á kosið þessa stærsta íþróttaviðburðar
ársins 2012. Þátttaka íslenskra
íþróttamanna á leikunum skýrist nánar
HÖNNUNARSAMKEPPNI
Nú stendur yfir hönnunarsamkeppni á
nýjum verðlaunapeningum fyrir fyrstu
vetrarólympíuleika ungmenna sem verða
í Innsbruck, Austurríki árið 2012. Nú
gefst áhugasömum tækifæri á að koma
nafni sínu og hönnun í sögubækurnar.
Hægt er að senda inn hönnunina fram til
miðnættis þann 29. apríl 2011 (CET).
Sigurvegarinn hlýtur VIP ferð til
Innsbruck 2012 á setningarhátíðina,
eftirprentun af verðlaunapeningnum,
ásamt miðum inn á keppnisviðburði. Þá
verður haldin athöfn til heiðurs
sigurvegaranum þar sem honum/henni
eru veitar þakkir fyrir sitt framlag til
leikanna.
Kosið verður í opinni netkostningu frá 4
maí 2011 til 30 júní 2011 úr innsendum
tillögum og búinn til topp tíu listi. Að
lokum kemur dómnefnd til með að
dæma úr þessum topp tíu lista, einn
sigurvegara. Frekari upplýsingar eru á
heimasíður ÍSÍ, www.isi.is
LEIKAR 2011
SMÁÞJÓÐALEIKAR EVRÓPU
30. MAÍ – 4. JÚNÍ
ÓLYMPÍUHÁTÍÐ EVRÓPUÆSKUNNAR
24.– 29. JÚLÍ
3. TBL. 2011
LÍFSHLAUPIÐ 2011
Verðlaunaafhending Lífshlaupsins 2011
fór fram föstudaginn 25. febrúar sl.
Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ ávarpaði
gesti og veitti verðlaun til sigurliða
ásamt Gesti G. Gestssyni, forstjóra
Skýrr. Ávaxtabíllinn sá um hollar og
ferskar veitingar fyrir þá sem mættu og
smökkuðust þær vel að vanda.
Heildarfjöldi þátttakenda jókst á milli ára
um 23% og var nú 16.499 en var árið
2010 13.337. 10.910 tóku þátt í
vinnustaðakeppninni og 4.705 í
hvatningarleik grunnskólanna. 834
einstaklingar eru að skrá stig inn í
einstaklingskeppnina. 1.432 lið frá 432
fyrirtækjum tóku þátt í
vinnustaðakeppninni og 340 bekkir frá
40 skólum tóku þátt í
hvatningarleiknum.
Sú tegund hreyfingar sem var vinsælust
meðal þátttakenda var ganga með
24,40%, líkamsrækt með 14,95%, hlaup
með 3,97% og skíði með 3,41%.
Samstarfsaðilar Lífshlaupsins eru:
mennta- og
menningarmálaráðuneytið,velferðar-
ráðuneytið, Lýðheilsustöð, Rás 2, Skýrr
og Ávaxtabíllinn.
Á meðfylgjandi mynd eru nemendur
og kennarar frá Víkurskóla, en
nemendurnir þar urðu í fyrsta sæti í
sínum flokki og kennararnir í 2. sæti í
hlutfalli daga og 3. sæti í hlutfalli
mínútna í sínum flokki.
ANDLÁT — SIGURÐUR MAGNÚSSON
Sigurður Magnússon, Heiðursfélagi ÍSÍ
og fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍSÍ,
lést sunnudaginn 27. mars sl. 82 ára að
aldri.
Sigurður hóf starfsferil sinn í
íþróttahreyfingunni liðlega tvítugur, sem
fyrsti framkvæmdastjóri
Íþróttabandalags Reykjavíkur. Eftir árin
hjá ÍBR helgaði Sigurður sig viðskiptum
og kaupmennsku um áratuga skeið en
réð sig svo sem skrifstofu- og
útbreiðslustjóra ÍSÍ árin 1971 til
1980. Árin 1981 til 1985 var hann
framkvæmdastjóri Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra en áhugi hans á
málefnum íþróttahreyfingarinnar var
alltaf til staðar og árið 1985 réðst hann
til ÍSÍ sem framkvæmdastjóri. Því starfi
gegndi hann til starfsloka.
Sigurður gegndi fjölmörgum
trúnaðarstörfum. M.a. var hann
formaður Kaupmannasamtaka Íslands
1961 til 1967 og formaður Óháða
safnaðarins 1967 til 1984. Þá var
Sigurður fyrsti formaður
Íþróttasambands fatlaðra 1979 og beitti
sér mjög í starfi samtakanna.
Sigurður lætur eftir sig eiginkonu,
Sigrúnu Sigurðardóttur, og tvo
uppkomna syni, Sigurð Rúnar og
Jóhann.
Með Sigurði er genginn ötull og góður
liðsmaður íþróttahreyfingarinnar, sem
markaði spor sín í starfsemi samtakanna
með hagsmuni hreyfingarinnar að
leiðarljósi.
ALMENNINGSÍÞRÓTTAVIÐBURÐIR 2011
4.– 24. MAÍ 4. JÚNÍ
ÍSÍ sendir fjölskyldu Sigurðar
Magnússonar og öllum
aðstandendum innilegar
samúðarkveðjur með þakklæti fyrir
farsæla og gefandi samleið.
Útför Sigurðar fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
1. apríl nk.
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal
Engjavegi 6
104 Reykjavík
Sími: 514 4000
Fax: 514 4001
Netfang: [email protected]
ÍÞRÓTTA- OG
ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) varð til við sameiningu
Íþróttasambands Íslands og Ólympíunefndar Íslands árið 1997.
ÍSÍ er landssamband héraðssambanda/íþróttabandalaga og sérsambanda og er einu heildarsamtök íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. ÍSÍ er æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi í landinu samkvæmt íþróttalögum.
Félagsaðildir í íþróttahreyfingunni eru rúmlega 200 þúsund og fjöldi virkra iðkenda er um 85 þúsund.
STARFSSKÝRSLUSKIL Í FELIX
Sambandsaðilar eru minntir á að skila þarf starfsskýrslum til ÍSÍ vegna starfsársins 2010 fyrir 15. apríl nk.
Opið er fyrir skilin á www.felix.is
Aðstoð er veitt á skrifstofu ÍSÍ vegna skila á starfsskýrslum.
Á heimasíðu ÍSÍ má finna frekari upplýsingar um viðburði ársins 2011,
Ólympíuleika, Lífshlaupið og fjölmargt annað um íþróttir á Íslandi.
www.isi.is
MYND MÁNAÐARINS Þingfulltrúar á 46. Íþróttaþingi ÍSÍ 1952.
AFMÆLISDAGAR
26. mars
KSÍ— stofnað 1947, 64 ára
30. mars
USAH— stofnað 1912, 99 ára
ÍSÍ fréttir ● 3. tbl. 2011 ● Ábyrgðarmaður: Ólafur E. Rafnsson ● Ritstjóri: Andri Stefánsson ● Myndir: Úr safni ÍSÍ
70. ÍÞRÓTTAÞING ÍSÍ 2011 GULLHÖMRUM Í GRAFARHOLTI 8.– 9. APRÍL NK.
Föstudagur 8. apríl Kl. 15:30 Þinggögn afhent Kl. 16:30 Setning íþróttaþings Kaffihlé Kl. 17:30 Skýrsla stjórnar og reikningar Kl. 18:00 Lagðar fram tillögur þingsins og þeim
vísað í nefndir Kl. 18:45 Kynnt framboð til forseta,
framkvæmdastjórnar og varastjórnar Kl. 19:30 Þingnefndir starfa - Íþróttamiðstöðin í
Laugardal
Laugardagur 9. apríl Kl. 10:00 Þingstörf hefjast að nýju – þingmál
afgreidd Kl. 12:00 Hádegisverður Kl. 13:00 Kosning til embættis forseta ÍSÍ
Kjör til framkvæmdastjórnar ÍSÍ Þingmál afgreidd Kl. 16:00 Þingslit Kl. 19:00 Kvöldverður – Gullhömrum Grafarholti