31
Réttindi og skyldur Hvað þarftu að vita?

Hvað þarftu að vita?

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: Hvað þarftu að vita?

Réttindi og skyldurHvað þarftu að vita?

Page 2: Hvað þarftu að vita?

Yfirlit

Atvinnuleysistryggingar – almennar upplýsingarRéttindi og skyldur.

Kynning á helstu þjónustuþáttum Vinnumiðlun.Ráðgjafaþjónusta.Vinnumarkaðsúrræði.

Atvinnuleit

Page 3: Hvað þarftu að vita?

Vinnumálastofnun

Heyrir undir VelferðarráðuneytiðFer með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu atvinnuleysistryggingasjóðs.

Starfar samkvæmt lögum Nr. 54/2006 um Atvinnuleysistryggingar.Nr. 55/2006 um Vinnumarkaðsaðgerðir.

Markmið laganna er• Að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir þátttakendur á

vinnumarkaði.• Að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í landinu.

Page 4: Hvað þarftu að vita?

Heimasíða Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is

Page 5: Hvað þarftu að vita?

Skráning - vinnumiðlun - ráðgjöf

Nýskráning og móttaka Móttaka og skráning umsókna um atvinnu- og atvinnuleysisbætur, vottorða og annarra fylgigagna.

VinnumiðlunVeitir m.a. upplýsingar um laus störf og starfstengd vinnumarkaðsúrræði. (Tímapöntun hjá vinnumiðlara.)

RáðgjafaþjónustaVeitir upplýsingar og ráðgjöf varðandi atvinnuleit og möguleika á námi samhliða henni. (Tímapöntun hjá náms- og starfsráðgjafa.)

Úrskurður bótaréttarAfgreiðsla umsóknar og úrskurður bótaréttar getur tekið allt að 6 vikur frá því gögn berast til Greiðslustofu. (Upplýsingar um stöðu umsóknar á Mínum síðum.)

Page 6: Hvað þarftu að vita?

Mínar síður

Page 7: Hvað þarftu að vita?

Mínar síður

• Rafræn skjölGreiðsluseðlar LaunamiðarBréf

• UmsóknUmsókn um atvinnu- og

atvinnuleysisbæturUmsókn um atvinnu án atvinnuleysisbóta

• TilkynningarFá skattkort sentTilkynning um tekjurTilfallandi vinna

Page 8: Hvað þarftu að vita?

Réttur til atvinnuleysisbótaAlmenn skilyrði

Launafólk á aldrinum 18 – 70 ára með búsetu og lögheimili á Íslandi. Atvinnuleitendur þurfa einnig að vera staddir á landinu til að eiga rétt til greiðslu bóta í atvinnuleit.

Krafa er gerð um virka atvinnuleit: Vera fær til flestra almennra starfa. Skila þarf læknisvottorði ef vinnufærni er

skert. Frumkvæði við atvinnuleit og vera reiðubúinn að taka starfi á Íslandi sem

greitt er fyrir skv. lögum og kjarasamningum. Vilji og geta til að taka þátt í úrræðum samanber lög um

vinnumarkaðsaðgerðir.

Lengd bótatímabilsBótatímabilið er 30 mánuðir.

Page 9: Hvað þarftu að vita?

Upphæð atvinnuleysisbóta

Grunnatvinnuleysisbætur

eru kr. 184.188.- á mánuði miðað við fullan bótarétt (100%)

Tekjutengdar atvinnuleysisbætur Bætur eru tekjutengdar í þrjá mánuði í upphafi bótatímabils þannig að greiddar eru grunnbætur fyrsta hálfa mánuðinn en síðan tekur tekjutengingartímabilið við.

Launamaður Miða skal við meðaltal heildarlauna á 6 mánaða tímabili sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus og eru greidd 70% af heildarlaunum viðmiðunartímabilsins.

Sjálfstætt starfandi Miða skal við síðasta heila tekjuár.

Hámark tekjutengdra bóta: kr. 290.366.- á mánuði.

Greiðsla vegna barna: Vegna hvers barns á framfæri yngra en 18 ára eru greiddar kr. 7.368.- á mánuði til viðbótar, óháð hlutfalli bótaréttar.

Page 10: Hvað þarftu að vita?

Útborgun atvinnuleysisbótaAtvinnuleysisbætur eru greiddar út fyrsta virkan dag í mánuði.Greitt er fyrir einn mánuð í einu sem nær yfir tímabilið 1. – 31. hvers mánaðar, greitt eftirá.

Veikindi Tilkynna skal veikindi sem hindra virka atvinnuleit.

5 daga veikindaréttur er á hverju 12 mánaða tímabili eftir 5 mánuði á atvinnuleysisskrá. Má taka í tvennu lagi.

FerðalögAtvinnuleysisbætur eru ekki greiddar ef dvalið er erlendis. Tilkynna þarf um dvöl erlendis fyrir brottför og óska eftir afskráningu. Þegar heim er komið þarf að mæta á næstu þjónustuskrifstofu innan þriggja virkra

daga til að skrá sig aftur í atvinnuleit.Skila þarf afriti af flugfarseðli til staðfestingar eftir að heim er komið.

Page 11: Hvað þarftu að vita?

Reglubundin samskipti

Staðfesting á atvinnuleit fer fram í gegnum Mínar síður

Atvinnuleit þarf að staðfesta 20.- 25. hvers mánaðar þann tíma sem einstaklingur er skráður í atvinnuleit.

Ef staðfest er á tímabilinu 26. – 3. næsta mánaðar seinkar greiðslum um 5 virka daga.

Þeir sem ekki staðfesta atvinnuleit á tilsettum tíma eru afskráðir.

Page 12: Hvað þarftu að vita?

Staðfesting á atvinnuleit

Þegar atvinnuleit hefur verið staðfest berst tölvupóstur um að skráning hafi tekist.

Berist tölvupóstur ekki er mikilvægt að hafa strax samband við þjónustu-skrifstofu Vinnumálastofnunar

Page 13: Hvað þarftu að vita?

Atvinnuleit innanlands og í Evrópu

• Upplýsingar um störf í boði innanlands á www.vinnumalastofnun.is

• Tenglasafn á aðrar ráðningarþjónustur á heimasíðu Vinnumálastofnunar (Störf í boði/Aðrar vinnumiðlanir)

• Evrópsk vinnumiðlun á www.eures.is (Störf í boði/Eures)

• Norræn vinnumiðlun (Störf í boði/Norræn vinnumiðlun)

• Vinnumiðlarar og ráðgjafar Vinnumálastofnunar aðstoða fólk við leit að starfi og veita nánari upplýsingar.

Page 14: Hvað þarftu að vita?

Atvinnuleit í Evrópu

Vottorð U-2Veitir þeim sem eiga staðfestan rétt til atvinnuleysisbóta heimild til að leita að starfi erlendis í allt að þrjá mánuði á greiddum atvinnuleysisbótum frá Íslandi. (Gildir aðeins um lönd í Evrópu)

Afgreiðsla umsókna tekur 3-4 vikur.Nánari upplýsingar á þjónustuskrifstofum VMST.

ATH. Ekki er heimilt að fara til útlanda samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta nema með U-2

Eures - Evrópsk vinnumiðlunUpplýsingar og ráðgjöf um atvinnuleit í Evrópu.

Page 15: Hvað þarftu að vita?

Hlutastörf og tilfallandi vinna

Hlutastarf Breyta þarf rafrænni umsókn á Mínum síðum, skrá þar rétt starfshlutfall í

hlutastarfi og hlutfall í atvinnuleit. Fylla út áætlun um tekjur vegna hlutastarfs á Mínum síðum

(Tilkynningar/tilkynning um tekjur/tekjur af hlutastarfi).

Tilfallandi vinna Tilkynna um tilfallandi vinnu til VMST í síðasta lagi með dags fyrirvara á

Mínum síðum (Tilkynningar/tilfallandi vinna). Heimilt að tilkynna samdægurs við sérstakar aðstæður.

Á við alla tilfallandi vinnu óháð lengd, tíma eða launum. Tilkynna um heildartekjur inn á Mínum síðum þegar laun hafa verið

greidd út (Tilkynningar/tilkynning um tekjur/tilfallandi tekjur).

Page 16: Hvað þarftu að vita?

Tilkynning um tilfallandi vinnuskráð inn gegnum Mínar síður

Page 17: Hvað þarftu að vita?

Tilkynning um tekjur - Mínar síður

Tilkynna þarf um allar tekjur og styrki á Mínar síður.

Page 18: Hvað þarftu að vita?

Frítekjumark v/tilfallandi vinnu

Frítekjumark er kr. 59.047.- á mánuði vegna tilfallandi vinnu.

Dæmi: Heildartekjur kr. 79.047Frítekjumark kr. 59.047 Tekjur umfram frítekjumark kr. 20.000.-

Helmingur af þeim tekjum sem eru umfram frítekjumarkið mynda frádrátt á greiðslu bóta við samkeyrslu við upplýsingar RSK eftir tvo mánuði. Frádráttur vegna tekna væri í þessu dæmi kr. 10.000.-

Page 19: Hvað þarftu að vita?

Sjálfstætt starfandi

• Ekki má opna launagreiðendaskrá samhliða atvinnuleysisbótum.

• Einstaklingur getur ekki verið í sjálfstæðum rekstri og fengið greiddar atvinnuleysisbætur samhliða.

• Þeim sem býðst vinna sem verktakar á eigin kennitölu verða að afskrá sig á meðan verkefni/vinnu stendur.

Page 20: Hvað þarftu að vita?

Upplýsingaskylda

Nauðsynlegt er að tilkynna um breytingar á högum sem snerta atvinnuleitina s.s.

Heimilisfang, símanúmer, netfang. Vinnu (tilfallandi vinnu, hlutastarf, fullt starf). Tekjur (t.d. laun, lífeyrisgr., fjármagnstekjur, styrki s.s. líkamsræktarstyrk og fjárhagsaðstoð). Þátttöku í námi samhliða atvinnuleit. Orlof og ferðir utanlands án U-2. Veikindi sem hindra virka atvinnuleit. Vinnufærni (Skert vinnufærni eða óvinnufærni).

Ef ekki er tilkynnt um breytingar þá getur það leitt til biðtíma/viðurlagaBiðtími/viðurlög: Ekki eru greiddar atvinnuleysisbætur þann tíma sem biðtími varir. Til að biðtími telji þarf atvinnuleitandi í virkri atvinnuleit að sinna skyldum atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun og staðfesta atvinnuleit mánaðarlega.

Page 21: Hvað þarftu að vita?

Biðtími og viðurlög

Komið getur til biðtíma eða viðurlaga í tengslum við...

Starfsmaður segir upp starfi. Starfsmaður er valdur að eigin uppsögn. Námsmaður hættir námi án lokaprófs. Starfi eða atvinnuviðtali hafnað. Þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum hafnað eða mætingarskylda ekki uppfyllt. Er í námi án þess að hafa sótt um námssamning. Látið hjá líða að veita upplýsingar um vinnu, tekjur, dvöl erlendis eða

tilkynna um breytingar á högum (heimilisfang, símanúmer, netfang).

Málum vísað til Greiðslustofu til úrskurðar. Kallað eftir skýringu atvinnuleitanda áður en úrskurðað er í málinu.

Page 22: Hvað þarftu að vita?

Viðurlög eftir 24 mán.

• Einstaklingur sem hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur í 24 mánuði eða lengur - og fær þá viðurlög - á ekki rétt á bótagreiðslum aftur fyrr en hann hefur áunnið sér nýtt bótatímabil.

Viðkomandi þarf að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k.

24 mánuði til að eiga rétt á bótum á ný.

Page 23: Hvað þarftu að vita?

Vinnumarkaðsúrræði

Tegundir vinnumarkaðsúrræðaStarfstengd úrræði, námskeið, námsúrræði, atvinnutengd endurhæfing og ráðgjöf

Markmið vinnumarkaðsúrræða Sporna gegn atvinnuleysi Auðvelda fólki að halda virkni Stuðla að tengslum við atvinnulífið Endurmenntun – viðhalda og öðlast nýja hæfni

Page 24: Hvað þarftu að vita?

Starfstengd vinnumarkaðsúrræði

Starfsþjálfun (3-6 mánuðir) Reynsluráðning (3-6 mánuðir) Sérstök átaksverkefni (3-6 mánuðir) Sjálfboðaliðastarf Atvinnutengd endurhæfing Starfsorka – Frumkvöðlastarf innan fyrirtækis (allt að 6 mán.) Þróun eigin viðskiptahugmyndar (3-6 mánuðir)

Nánari upplýsingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is

Page 25: Hvað þarftu að vita?

Önnur úrræði

• Náms- og starfsráðgjöfOpnir tímar eða tímapantanir hjá ráðgjafa.

• ÁhugasviðsgreiningÍ leit að starfi

• FerilskrárgerðLeiðbeiningar á heimasíðu og aðstoð hjá ráðgjafa.

• Ýmis námskeiðNánari upplýsingar á þinni þjónustuskrifstofu

Page 26: Hvað þarftu að vita?

Atvinnuleysisbætur og nám

Atvinnuleysisbætur – fyrir þá sem eru í virkri atvinnuleit og vilja nýta tíma sinn samhliða atvinnuleitinni til að afla sér þekkingar og færni með því að sækja námskeið og styttra nám. Sbr. reglugerð nr. 13/2009.

Námslán – fyrir þá sem ákveða að hætta virkri atvinnuleit um lengri tíma og fara í formlegt nám.

Nám á eigin vegum samhliða atvinnuleit verður að vera samþykkt af Vinnumálastofnun og uppfylla skilyrði í samræmi við reglugerð. Atvinnuleitendur geta óskað eftir námssamningi skv. reglum þar um.

Page 27: Hvað þarftu að vita?

Viðmið fyrir nám samhliða atvinnuleit

• Nám í dagskóla á framhaldsskólastigi er ekki heimilt samhliða atvinnuleit og greiðslu bóta.

• Að höfðu samráði við náms- og starfsráðgjafa er hægt að gera námssamning um 50% nám í fjarnámi/kvöldskóla á framhaldsskólastigi (dæmi: 9 ein. ef fullt nám er 18 ein.).

• Gerður er námssamningur vegna náms á háskólastigi. Heimilt að vera í námi allt að 10 ECTS ein. Með fleiri einingum á misseri skerðast bætur í ákv. hlutfalli. (Sjá heimasíðu Vinnumálastofnunar.)

Nánari upplýsingar hjá náms- og starfsráðgjöfum.

Page 28: Hvað þarftu að vita?

Námskeið - Námsstyrkir

Námskeið skipulögð af Vinnumálastofnun eru atvinnuleitendum með staðfestan bótarétt að

kostnaðarlausu. Upplýsingar og skráning hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar.

Námsstyrkurer veittur til greiðslu námskeiðsgjalda vegna annarra námskeiða en þeirra sem Vinnumálastofnun stendur fyrir. Skilyrði er að námið auki líkur á vinnu og að umsækjandi sé kominn með staðfestan bótarétt. Námsstyrkur er 50% af námskeiðsgjaldi að hámarki kr. 70.000.-

• Umsókn um námsstyrk skal skila til ráðgjafa, (eyðublað á www.vinnumalastofnun.is) Með umsókninni þurfa að fylgja allar helstu upplýsingar um námið.

• Sækja þarf um áður en námskeið hefst. • Skriflegt svar gildir sem staðfesting á námsstyrk frá Vinnumálastofnun.

Page 29: Hvað þarftu að vita?

Styrkir og afsláttarkjör

BúferlastyrkurHeimilt er að veita styrk vegna búferlaflutnings innanlands frá lögheimili til þess staðar sem lögheimili er flutt í því skyni að sækja vinnu hjá nýjum atvinnurekanda sem hefur sannanlega boðið fastráðningu í starf. Með umsókninni þurfa að fylgja reikningar fyrir útlögðum kostnaði.

LækniskostnaðurAfsláttur fyrir atvinnuleitendur sem hafa verið atvinnulausir samfellt í 6 mánuði eða lengur. Framvísa þarf vottorði frá Vinnumálastofnun við komu á heilsugæslustöð eða lækni. Sótt um hjá þjónustuskrifstofu.

Page 30: Hvað þarftu að vita?

Annað í boði

Stéttarfélög bjóða fjölbreytta þjónustu þeim félagsmönnum sínum, sem hafa misst vinnu og fá greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun.

Atvinnuleitendur hafa val um það hvort þeir halda áfram að greiða félagsgjald í sitt stéttarfélag eftir að þeir hætta störfum og skrá sig í atvinnuleit. Með

áframhaldandi greiðslu félagsgjalds er áunnum réttindum viðhaldið.

Sum sveitarfélög bjóða atvinnuleitendum fríðindi, t.d. frítt í sund. Atvinnuleitendum er bent á að leita upplýsinga á skrifstofu síns sveitarfélags.

Page 31: Hvað þarftu að vita?

Skipulögð atvinnuleit

Ferilskrá og kynningarbréfLeiðbeiningar um ferilskrárgerð og sniðmát fyrir ferilskrár er að finna á

heimasíðu Vinnumálastofnunar. Ráðgjafar aðstoða við ferilskrárgerð. Mikilvægt að setja ferilskrána sem viðhengi á Mínum síðum.

Nálgast atvinnuleit eins og vinnumeð ákveðin verkefni á hverjum degi / í hverri viku.

Setja sér markmið og gera vinnuáætlun í atvinnuleitinni Skrifleg og mælanleg t.d. fyrir eina viku í senn.

Halda skrá yfir: Störf sem sótt er um og svör sem hafa borist. Starfsviðtöl sem farið er í. Fyrirspurnir og tengiliði í tengslaneti. Ráðningastofur og samskipti við þær.

31