View
221
Download
0
Category
Preview:
Citation preview
05.35.00 Heimspekileg forspjallsvísindi
• Kennari: Róbert H. Haraldsson, dósent í heimspeki. Viðtalstími: Miðvikudögum, kl. 13:30–14:30 í Aðalbyggingu (herb. 223). Tölvupóstur: robhar@hi.is og sími: 525–4364.
05.35.00 Heimspekileg forspjallsvísindi
• Dagskrá, lesefni og annað efni (RH: www.hi.is/~robhar) og einnig á heimasvæði námskeiðsins á Uglunni.
Jacques-Louis David, Dauði Sókratesar, 1787 http://socrates.clarke.edu/
Andi Sókratesar
• Samræðan• Siðferðileg hugtök• Aðferðin• Broddflugan• Áhyggjurnar• Stóísk ró• Sláandi fullyrðingar
Aðferðir Sókratesar
Samræðan Áhyggjurnar Broddflugan Kappræða/rökræða Hroki (Að þykjast
vita ...) Afhjúpun
Broddflugan I
„Því að ég er blátt áfram, þótt skringilega kunni að þykja til orða tekið, settur á borgina eins og broddfluga á stóran og kyngóðan hest, sem er í latara lagi sakir stærðar sinnar og þarf því eitthvað til að pipra sig upp“ (Platón, 1990, bls. 54).
Broddflugan II
• Sókrates er að lýsa ákveðnu hlutverki sem heimspekingar eins og hann hafa í borgarsamfélaginu.
• Sá sem leitar og gagnrýnir gerir samborgurum sínum meira gagn en hinn sem flýtur með straumnum.
Þekking og rétt meining
• Að binda niður réttar meiningar
• Að skilja og muna
• Að gera meininguna (skoðunina) að sinni
• Að geta útskýrt skoðunina og varið hana
Gagnrýnin hugsun
• Skilgreining
• Boðorð gagnrýninnar hugsunar
• Leiðir við skoðanamyndun
• Hvað eru góð rök?
Gagnrýnin hugsun
• „Ef menn væru sífellt að gagnrýna kenningar, aðferðir og vinnubrögð í vísindum myndu vísindin staðna smám saman og verða úr sögunni. Framfarirnar eru undir því komnar að menn efist um gildi ríkjandi kenninga, reyni að finna á þeim veika bletti ... Að reynt sé að finna galla á verki - hvert svo sem það er - til að unnt sé að gera betur“ (Páll Skúlason, 1987, bls. 67).
Gagnrýnin hugsun
• Skilgreining Páls:
• „Gagnrýnin er sú hugsun sem fellst ekki á neina skoðun nema hún hafi fyrst rannsakað hvað í henni felst og fundið fullnægjandi rök fyrir henni“ (Páll Skúlason, 1987, bls. 70).
Boðorð gagnrýninnar hugsunar
• Það er rangt að trúa einhverju á ófullnægjandi forsendum.
• „Það er ætíð rangt, alls staðar og fyrir hvern mann að trúa einhverju á ófullnægjandi forsendum“ (Clifford, 1877/1993, bls. 51).
Clifford
• Það eru rætur skoðunar eða sannfæringar (e. belief), en ekki innihald hennar eða afleiðingar, sem skipta máli.
• Réttnefnd sannfæring hefur áhrif á athafnir.
• Sannfæring er ekki einkamál þess er hana hefur.
Leiðir við skoðanamyndun
• Þrjóskuleiðin (e. method of tenacity)
• Kennivaldsleiðin (e. method of authority)
• Fordómaleiðin (e. a priori method)
• Gagnrýnin/vísindaleg hugsun (e. method of science) (sbr. Charles Peirce, 1877)
Hvað eru góð rök?
• Málefnaleg
• Þau má prófa í raunheimi og/eða rökheimi
• Skoðun manns má leiða af rökunum
Leiðarregla Williams James
• Sækstu eftir sannleikanum!
• Varastu villu!• Það dugir ekki að
aðhyllast annað þessara boða, við verðum að hafa hvort tveggja í huga.
Recommended