20
vf.is vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is FÍTON / SÍA FIMMTUDAGURINN 5. MARS 2015 9. TÖLUBLAÐ 36. ÁRGANGUR H æstvirtur forseti. Það stendur í frum- varpinu að það muni aldrei koma til þess að yngri en 18 ára afgreiði vín. En ég velti þá fyrir mér, af því að verslunin í landinu er alltaf að reyna að ná niður kostnaði og græða meira, að t.d. í mínum heimabæ, Grindavík, er meðalaldur þeirra sem eru að afgreiða á kassa 13 og 14 ára, og starfsmannaveltan er gríðarleg,“ sagði grindvíski þingmaðurinn Páll Valur Björnsson, Bjartri framtíð, í and- svari í umræðu um áfengisfrumvarpið á Al- þingi í gær. Páll Valur velti líka fyrir sér hvort Nettó í Grindavík yrði tilbúið að fara að stækka hús- næði sitt til þess að vera með áfengi. „Ég veit það ekki. Ég held að þetta yrði gríðarlegt vanda- mál. Nú þegar starfa 350 manns við þetta og starfsmenn ÁTVR á Íslandi eru mjög ánægðir. Í Grindavík erum við með ÁTVR nánast við hliðina á búðinni. Þar starfa ósköp glaðlyndar og skemmtilegar konur, Gunnhildur og Gerður, og þær hafa miklar áhyggjur af þessu. Þetta hefur sett starf þeirra í mikið uppnám. Ég held að það myndi verða mjög erfitt fyrir verslunareigendur að hafa eftirlit með þessu.“ A tvinnulausum á Suðurnesjum hefur fækkað um 186 á milli áranna 2013 og 2014. 655 voru atvinnulausir í janúar, 290 karlmenn og 365 konur. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofn- unar. Hlutfallslegt atvinnuleysi á Suður- nesjum í janúar var alls 5,8%; 4,8% karla og 7,1% kvenna. Fjöldi atvinnulausra í lok janúarmánaðar voru 43 í Grindavík, 466 í Reykjanesbæ, 77 í Sandgerði, 43 í Garði og 26 í Vogum. 3,6% atvinnuleysi var á landinu á sama tíma. Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og formaður Verslunar- mannafélags Suðurnesja, segir fækkun meðal atvinnulausra vera í samræmi við það að þeim sem fá félagslega aðstoð hjá Reykjanesbæ fækki einnig. „Einnig hefur atvinnulausum félags- mönnum VS fækkað verulega og í dag eru innan við 40 félagsmenn VS á atvinnuleysis- skrá.“ „Það voru þó nokkrir sem sem kláruðu bótaréttinn sinn um áramótin vegna laga- breytinga. Þetta er fyrsti hópurinn sem klárar bótarétt sinn eftir að réttur var skertur, bótarétturinn var á lengdur á tíma- bilinu eftir hrun. Margt af þessu fólki telst hvergi og fær ekki félagslega aðstoð frá sveitarfélaginu sínu vegna þess að maki þess er yfir hámarkskvarða í tekjum. Þetta er ótrúleg grimmd og kerfið hættir að leita að vinnu fyrir fólk,“ segir Kristján Gunnars- son, formaður VSKF. Fólk sé orðið ófeimn- ara við að leita sér fjárhagsaðstoðar en áður. „Það þykir ekki eins mikil skömm að standa í röð til þess og ég held að það sé mjög hæpið að fólk geri slíkt að ástæðulausu til að fá mjólkurpott, brauð og bjúgupakka, sem er nálægt því að renna út á tíma. Fólk er opnara með neyð sína. Atvinnuleysið er örugglega meira en tölur sýna og þær segja ekkert til um félagslega stöðu fólks. Það er því ekki ólíklegt að þessi hópur, sem fær hvergi höfði sínu að halla, leiti til kirknanna, Rauða krossins og Fjölskylduhjálpar.“ Þórunn Íris Þórisdóttir, rekstrarstjóri Kefla- víkurkirkju sem hefur umsjón með Vel- ferðarsjóði Suðurnesja, segir hvorki hafa fækkað né fjölgað í hópnum sem leiti til hennar. „Aldursbilið er orðið breiðara, hópurinn margbrotinn og meira af ungu fólki á menntaskólaaldri sem er í vand- ræðum.“ Unga fólkið sem leiti til hennar geri sér stundum ekki grein fyrir því að ýmislegt er í boði til að efla sjálfsmynd þess til að breyta stöðunni. „Margir sem koma hingað þurfa fyrst og fremst á hvatningu og stuðningi að halda sem þeir fá ekki heima. Það kemur jafnvel stolt hingað til að segja frá góðum árangri sem það hefur náð í námi eftir að hafa þegið styrk úr Velferðarsjóði fyrir skólagjöldum, bókakostnaði og skóla- mat.“ Tugir kláruðu bótarétt sinn um áramótin og fá ekki félagslega aðstoð: Færri atvinnulausir en fleiri í neyð Philips DVD SPILARI 7.995 |-996 | 6.999 kr RISA RAFTÆKJAÚTSALA Í NETTÓ REYKJANESPhilips 50” LED SJÓNVARP FHD 119.995 | 19.996 | 99.999 kr Allir sem versla raftæki geta tekið þátt í leik og unnið þetta Philips 50” LED sjónvarp verðmæti 119.995kr ! Kræsingar & kostakjör Markhönnun ehf RAFTÆKJADAGAR NETTÓ REYKJANESBÆ RISA 10% 20% 30% 40% Nextbook SPJALDTÖLVA 7,85” 16.995 | -2.596 kr | 14.399 kr Páll Valur þingmaður á Alþingi: Eru Gunnhildur og Gerður ekki betri en 13-14 ára unglingar? Vonin KE 10 fauk á hliðina í slippnum hjá Skipa- smíðastöð Njarðvíkur í óveðrinu sem gekk yfir í gær. Í snarpri vindhviðu lagðist Vonin á hliðina. Bátur sem stendur við hliðina stóð einnig tæpt og ætluðu menn að bíða þar til vind lægði til að huga frekar að bátunum. Vonin KE er þjónustu- bátur fyrir köfunarverkefni og var í slippnum til viðhalds. VF-mynd: Hilmar Bragi Fauk á hliðina í slippnum Fimleikar, loðna og leikhús Níundi þáttur Sjónvarps Víkurfrétta verður á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21:30. Í þættinum kíkjum við m.a. í heim- sókn til Fimleikadeildar Keflavíkur en ungir fimleikastrákar nældu í fyrsta bikarmeistaratitil deildarinnar á móti um síðustu helgi. Fim- leikastrákarnir eru á myndinni hér til hliðar. Í þættinum skellum við okkur einnig í loðnuhrognavinnslu hjá Saltveri í Njarðvík, tökum púlsinn á ferðamálum á svæðinu og ræðum við Davíð Guðbrandsson leikara sem er að leikstýra í fyrsta skipti um þessar mundir. Þátturinn verður einnig aðgengilegur í háskerpu á vf.is. -Fólk er opnara með neyð sína, segir formaður VSKF. Fáir atvinnulausir hjá Verslunarmannafélaginu.

09 tbl 2015

Embed Size (px)

DESCRIPTION

09. tbl. 36. árg. 2015.

Citation preview

Page 1: 09 tbl 2015

vf.isvf.is

VíkurfréttirKrossmóa 4a, 4. hæð,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.isauðveldar smásendingar

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

einföld reiknivélá ebox.is

FÍT

ON

/ S

ÍA

FIMMTUDAGURINN 5. MARS 2015 • 9. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR

Hæstvirtur forseti. Það stendur í frum-varpinu að það muni aldrei koma til þess

að yngri en 18 ára afgreiði vín. En ég velti þá fyrir mér, af því að verslunin í landinu er alltaf að reyna að ná niður kostnaði og græða meira, að t.d. í mínum heimabæ, Grindavík, er meðalaldur þeirra sem eru að afgreiða á kassa 13 og 14 ára, og starfsmannaveltan er gríðarleg,“ sagði grindvíski þingmaðurinn Páll Valur Björnsson, Bjartri framtíð, í and-svari í umræðu um áfengisfrumvarpið á Al-þingi í gær. Páll Valur velti líka fyrir sér hvort Nettó í Grindavík yrði tilbúið að fara að stækka hús-næði sitt til þess að vera með áfengi. „Ég veit það ekki. Ég held að þetta yrði gríðarlegt vanda-mál. Nú þegar starfa 350 manns við þetta og starfsmenn ÁTVR á Íslandi eru mjög ánægðir. Í Grindavík erum við með ÁTVR nánast við hliðina á búðinni. Þar starfa ósköp glaðlyndar og skemmtilegar konur, Gunnhildur og Gerður, og þær hafa miklar áhyggjur af þessu. Þetta hefur sett starf þeirra í mikið uppnám. Ég held að það myndi verða mjög erfitt fyrir verslunareigendur að hafa eftirlit með þessu.“

Atvinnulausum á Suðurnesjum hefur fækkað um 186 á milli áranna 2013

og 2014. 655 voru atvinnulausir í janúar, 290 karlmenn og 365 konur. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofn-unar. Hlutfallslegt atvinnuleysi á Suður-nesjum í janúar var alls 5,8%; 4,8% karla og 7,1% kvenna. Fjöldi atvinnulausra í lok janúarmánaðar voru 43 í Grindavík, 466 í Reykjanesbæ, 77 í Sandgerði, 43 í Garði og 26 í Vogum. 3,6% atvinnuleysi var á landinu á sama tíma.Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og formaður Verslunar-mannafélags Suðurnesja, segir fækkun meðal atvinnulausra vera í samræmi við það að þeim sem fá félagslega aðstoð hjá Reykjanesbæ fækki einnig. „Einnig hefur atvinnulausum félags-mönnum VS fækkað verulega og í dag eru innan við 40 félagsmenn VS á atvinnuleysis-skrá.“

„Það voru þó nokkrir sem sem kláruðu bótaréttinn sinn um áramótin vegna laga-breytinga. Þetta er fyrsti hópurinn sem klárar bótarétt sinn eftir að réttur var skertur, bótarétturinn var á lengdur á tíma-bilinu eftir hrun. Margt af þessu fólki telst hvergi og fær ekki félagslega aðstoð frá sveitarfélaginu sínu vegna þess að maki þess er yfir hámarkskvarða í tekjum. Þetta er ótrúleg grimmd og kerfið hættir að leita að vinnu fyrir fólk,“ segir Kristján Gunnars-son, formaður VSKF. Fólk sé orðið ófeimn-ara við að leita sér fjárhagsaðstoðar en áður.

„Það þykir ekki eins mikil skömm að standa í röð til þess og ég held að það sé mjög hæpið að fólk geri slíkt að ástæðulausu til að fá mjólkurpott, brauð og bjúgupakka, sem er nálægt því að renna út á tíma. Fólk er opnara með neyð sína. Atvinnuleysið er örugglega meira en tölur sýna og þær segja ekkert til um félagslega stöðu fólks. Það er

því ekki ólíklegt að þessi hópur, sem fær hvergi höfði sínu að halla, leiti til kirknanna, Rauða krossins og Fjölskylduhjálpar.“

Þórunn Íris Þórisdóttir, rekstrarstjóri Kefla-víkurkirkju sem hefur umsjón með Vel-ferðarsjóði Suðurnesja, segir hvorki hafa fækkað né fjölgað í hópnum sem leiti til hennar. „Aldursbilið er orðið breiðara, hópurinn margbrotinn og meira af ungu fólki á menntaskólaaldri sem er í vand-ræðum.“ Unga fólkið sem leiti til hennar geri sér stundum ekki grein fyrir því að ýmislegt er í boði til að efla sjálfsmynd þess til að breyta stöðunni. „Margir sem koma hingað þurfa fyrst og fremst á hvatningu og stuðningi að halda sem þeir fá ekki heima. Það kemur jafnvel stolt hingað til að segja frá góðum árangri sem það hefur náð í námi eftir að hafa þegið styrk úr Velferðarsjóði fyrir skólagjöldum, bókakostnaði og skóla-mat.“

■■ Tugir kláruðu bótarétt sinn um áramótin og fá ekki félagslega aðstoð:

Færri atvinnulausir en fleiri í neyð

Philips DVD Spilari7.995 |-996 | 6.999 kr

RISA RAftækjAútSAlA í Nettó ReykjANeSbæ

Philips 50” lED SjónVarp FHD119.995 | 19.996 | 99.999 kr

Allir sem versla

raftæki geta tekið

þátt í leik og unnið

þetta Philips 50”

leD sjónvarp að

verðmæti 119.995kr!

Kræsingar & kostakjör

Mar

khön

nun

ehf

RAftækjADAgARnettó reyKjAnesbæ

RISA

10%20% 30%

40%Nextbook SpjalDtölVa 7,85”16.995 | -2.596 kr | 14.399 kr

Páll Valur þingmaður á Alþingi:

Eru Gunnhildur og Gerður ekki betri en 13-14 ára unglingar?

Vonin KE 10 fauk á hliðina í slippnum hjá Skipa-smíðastöð Njarðvíkur í óveðrinu sem gekk yfir í gær. Í snarpri vindhviðu lagðist Vonin á hliðina. Bátur sem stendur við hliðina stóð einnig tæpt og ætluðu menn að bíða þar til vind lægði til að huga frekar að bátunum. Vonin KE er þjónustu-bátur fyrir köfunarverkefni og var í slippnum til viðhalds. VF-mynd: Hilmar Bragi

Fauk á hliðina í slippnum

Fimleikar, loðna og leikhúsNíundi þáttur Sjónvarps Víkurfrétta verður á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21:30. Í þættinum kíkjum við m.a. í heim-sókn til Fimleikadeildar Keflavíkur en ungir fimleikastrákar nældu í fyrsta bikarmeistaratitil deildarinnar á móti um síðustu helgi. Fim-leikastrákarnir eru á myndinni hér til hliðar. Í þættinum skellum við okkur einnig í loðnuhrognavinnslu hjá Saltveri í Njarðvík, tökum púlsinn á ferðamálum á svæðinu og ræðum við Davíð Guðbrandsson leikara sem er að leikstýra í fyrsta skipti um þessar mundir. Þátturinn verður einnig aðgengilegur í háskerpu á vf.is.

-Fólk er opnara með neyð sína, segir formaður VSKF. Fáir atvinnulausir hjá Verslunarmannafélaginu.

Page 2: 09 tbl 2015

2 fimmtudagurinn 5. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Holtaskóli tók Lífshlaupið með stæl

Hafnsögubátur Grindavíkur-hafnar sótti slasaðan sjómann um borð í togara skammt undan Hóp-snesinu við Grindavík í síðustu viku. Þung alda var á vettvangi og um 4 metra ölduhæð. Þrátt fyrir það gekk vel að koma manninum úr togaranum og í hafnsögubát-inn.

Þegar hjálparbeiðni barst var hafnsögubáturinn fyrstur af stað en björgunarskip frá björg-unarsveitinni Þorbirni fylgdi í kjölfarið. Sigurður Arnar Krist-mundsson, hafnarstjóri í Grinda-vík, sagði í samtali við Víkurfréttir

að verkefnið hafi gengið vel og samvinna góð milli björgunarað-ila. „Við vorum fyrstir af stað á hafnsögubátnum eftir að hjálpar-beiðni barst frá togaranum. Ég bað björgunarsveitina strax um að óska eftir aðstoð frá þyrlu Land-helgisgæslunnar því maðurinn sem við vorum að sækja var tals-vert slasaður. Það gekk vel að koma honum um borð hjá okkur og að flytja hann í land“, segir Sigurður.Tveir björgunarsveitarmenn komu yfir í hafnsögubátinn á vett-vangi og hlúðu að hinum slasaða á meðan hann var fluttur í land.

Maðurinn var fluttur að smábáta-bryggjunni þar sem hann fór með sjúkrabíl að norðurgarði Grinda-víkurhafnar. Þar beið þyrla Land-helgisgæslunnar og flutti manninn á Landspítala í Fossvogi. Maður-inn var að vinna við rafmótor í togaranum og hlaut þó nokkur brunasár. Frá því hjálparbeiðni barst leið innan við hálftími þar til hinn slasaði var kominn í land og að þyrlunni sem beið við höfnina. Sigurður segir að aðstæður við skipið hafi alls ekki verið góðar. Ölduhæðin upp á fjóra metra og erfitt að athafna sig. Þrátt fyrir að-stæður hafi aðgerðir tekist vel.

XXLína langsokkur var meðal þeirra sem mættu blaðamanni á Þemadög-unum 'Lífið er yndislegt' sem stóð yfir í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í síðast-liðinni viku. Þar kenndi ýmissa grasa og nemendur fræddust og upplifðu öðruvísi hluti en þeir eru vanir og sáu kennara sína í nýju ljósi.Þegar Víkurfréttir kíktu við var m.a. verið að kenna sushi-gerð, textílvinnu, blómaskreytingar, sultugerð, pizzugerð, múffugerð, kertagerð og graffitimeist-arar létu til sín taka. Þá fengu nemendur og kennarar einnig blóðþrýstinginn mældan. Boðið var upp á ilmandi vöfflur. Klæðnaður kennara og umsjónar-fólks Þemadaganna vakti mikla lukku, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Vogamenn hamstra strætó-

miða á lægra verðiXX Í ljósi boðaðra hækkunar á

gjaldskrá Strætó bs. sem taka á gildi 1. mars 2015 hefur bæjar-stjórn Sveitrfélagsins Voga sam-þykkt að almennir farmiðar verði seldir íbúum með lögheim-ili í sveitarfélaginu á sama verði og gilti fyrir hækkun.Á fundi bæjarstjórnar í gær var samþykkt að fest verði kaup á 1000 almennum farmiðum fyrir gi ldistöku gjaldskrár-breytingar og þeir seldir á inn-kaupsverði. Fyrirkomulagið mun gilda til og með 31. maí 2015 eða eins og birgðir endast.

Ók á verslunarhúsnæðiXXBifreið var ekið á hús í um-

dæmi lögreglunnar á Suður-nesjum á sunnudag. Öku-maðurinn var kominn inn í verslun, sem er í húsnæðinu sem hann ók á, þegar lögreglu bar að garði. Hann reyndist vera sviptur ökuréttindum og kvaðst hafa ætlað að tilkynna óhappið daginn eftir. Skemmdir urðu á bifreiðinni og húsnæðinu.

Ölvaður, réttinda-laus og eftirlýsturXXÖkumaður, sem lögreglan á

Suðurnesjum handtók á sunnu-dag vegna ölvunaraksturs hafði aldrei öðlast ökuréttindi á Ís-landi. Auk þess hafði hann verið sviptur ökuréttindum í heima-landi sínu vegna ölvunaraksturs. Þá var hann eftirlýstur vegna vararefsingar. Tveir farþegar sem voru í bifreiðinni með honum gátu ekki tekið við akstri hennar því þeir voru einnig ölv-aðir.Annar ökumaður sem ók í veg fyrir lögreglubifreið án þess að átta sig á því reyndist hafa neytt fíkniefna.

„Fann þessa hrúgu um daginn í Kúagerðinni. Það kostar ekkert að fara með þetta í endurvinnslu en samt leggur fólk sig svo lágt að fara útí náttúruna og losa sig við svona úrgang,“ segir umhverfisverndar-sinninn Tómas J. Knútsson í færslu á Facebook. Hann birti meðfylgj-andi mynd með.

Færsla Tómasar fær heilmikil viðbrögð og nefnir fólk m.a. að hrúgan minni á hluti sem notaðir séu við kannabisræktun. Einungis vanti kannbisplönturnar á kubb-

ana á myndinni. Ástæðan fyrir því að þetta hafi ekki farið í endur-vinnsluna gæti verið viðkvæmni fyrir því að þurfa að útskýra kanna-bisræktun. Tómas svarar því til að hann hafi komið að pokum í svipuðum haug á leiðinni upp að [fjallinu] Keili í fyrra sem hann hreinsaði einnig í burtu. Hann ætti einnig myndir af þeim.

Mögulega gæti verið um lögreglu-mál að ræða, en það er auðvitað lögreglunnar að meta það og rann-saka.

Hafnsögubátur sótti slasaðan sjómann í togara– sjómaður brenndist mikið eftir vinnu við rafmótor

Grunsamlegur haugur í Kúa-gerði mögulega lögreglumál

Starfsmenn Holtaskóla gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í vinnustaða-keppni Lífshlaupsins árið 2015. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningar-verkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa, vinnustaða og skóla. Keppt er hvoru tveggja í fjölda daga og mínútna og sigraði Holtaskóli með yfirburðum í báðum flokkum. Mjög margir starfsmenn Holtaskóla stunda einhvers konar hreyfingu nokkrum sinnum í viku en þátttaka í Lífshlaupinu hvetur enn fleiri til dáða.

-fréttir pósturX [email protected]

FJÖR Á ÞEMA-DÖGUM Í FS

Laugardaginn 7. mars verður dagskrá í Fjölskyldusetrinu sem hefst kl. 11:00. Þér er boðið.Dagskrá:Kynning á Fjölskyldusetri - Anna Hulda EinarsdóttirÁvarp bæjarstjóra - Kjartan Már KjartanssonErindi - Unnar S. SigurðssonFjölskyldan og fyrirtæki verða ekki skilin að – Elfa Hrund Guttormsdóttir formaður félagsmálaráðs veitir viðurkenningar til fjölskylduvænna fyrirtækja/stofnana.Tónlistaratriði

Dagskráin er öllum opin og eru foreldrar/forráðamenn hvattir til að taka börnin með. Kaffi og meðlæti.

Barnagæsla á staðnum – andlitsmálun og fleira.

Í tilefni dagsins er frítt fyrir alla í Duushús, tveir fyrir einn í Víkingaheima og Rokksafnið og frítt fyrir börn. Fjörheimar/88 húsið er öllum opið kl. 13:00-17:00 og Ungmennagarðurinn er opinn frá kl. 10:00-22:00.

Óskað er eftir starfsmanni á heimili fyrir fatlað fólk í Reykjanesbæ. Um er að ræða 50% starf. Vinnutími frá 9.00 - 13.00 alla virka daga.

Upplýsingar veitir Ólafur Garðar Rósinkarsson forstöðuþroskaþjálfi í síma 421-5041 og á netfangið [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 19. mars nk. Sækja þarf um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf.

Helgina 13. og 14. mars er þér boðið til menningarveislu. Frítt á öll söfn, setur og sýningar á Suðurnesjum.

Hápunktur helgarinnar verður opnun sýningarinnar „Páll Óskar - Einkasafn poppstjörnu“ í Rokksafni Íslands laugardaginn 14. mars kl. 15:00.

Verið velkomin:• Duushús - 6 sýningar• Rokksafn Íslands• Víkingaheimar - 5 sýningar• Bókasafn Reykjanesbæjar• Skessan í hellinum• Rokkheimur Rúnars Júlíussonar• Íbúð kanans• Slökkviliðssafn Íslands• Opnar vinnustofur• Hönnun og handverk

....og margt fleira

Sjá nánar á safnahelgi.is og í Víkur-fréttum í næstu viku.

DAGUR UM MÁLEFNI FJÖLSKYLDUNNAR

ATVINNA Á HEIMILI FATLAÐS FÓLKS

SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM

Page 3: 09 tbl 2015

HV

ÍTA

SIÐ

/SÍA

— 1

5-0

55

4

Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna

Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbygg- ingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.

VerkefnastjóriLeitað er að öflugum verkefna-stjóra til þess að taka þá� í uppbyggingu á Keflavíkur-flugvelli.

Viðkomandi mun taka þá� í skipulagningu og e�irliti með framkvæmda- og �árfestinga-verkefnum. Verk- eða tækni-fræðimenntun er nauðsynleg.

Bifvélavirki/vélvirkiStarfið felst í viðgerðum og viðhaldi á öllum tækjum og bifreiðum Keflavíkurflugvallar.

Meirapróf og vinnuvélapróf er skilyrði og sveinspróf í bifvélavirkjun/vélvirkjun er æskilegt.

Málari Óskað er e�ir faglærðum og vandvirkum málara í viðhalds-teymi eignaumsýslu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.

Sumarstörf á KeflavíkurflugvelliVið óskum e�ir öflugum og heilsuhraustum einstaklingum í sumarstörf.

Störfin felast í viðhaldi Keflavíkurflugvallar og umhverfis hans.

Aukin ökuré�indi eru kostur.

Isavia óskar e�ir öflugum einstaklingum til þess að bætast í frábæran hóp starfsfólks. Okkur vantar verkefnastjóra, bifvélavirkja, málara og kra�mikið sumarstarfsfólk.

Umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsskoðun ríkislögreglustjóra vegna aðgangs að ha�asvæði flugverndar.

Umsóknarfrestur er til og með 21. mars.

Umsóknum skal skila inn rafrænt á heimasíðu Isavia, www.isavia.is/atvinna

Spennandi störfá Keflavíkurflugvelli

Page 4: 09 tbl 2015

4 fimmtudagurinn 5. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Þetta vef vel af stað hjá okkur. Við erum búnir að tæknivæða verulega hjá okkur frá því fyrir

ári síðan. Það hefur verið talsvert um brælur á mið-unum en þetta byrjar vel hjá okkur. Tvo fyrstu dag-ana höfum við tekið inn um 300 tonn af hrognum til frystingar,“ segir Guðmundur Jens Guðmundsson framleiðslu- og útgerðarstjóri hjá Saltveri. Vinnsla á loðnuhrognum hófst hjá fyrirtækinu sl. sunnudag en fyrirtækið er það eina á Suðurnesjum sem frystir loðnuhrogn.

– Þessi tæknivæðing skiptir sköpum fyrir ykkur.„Hún er algjör bylting. Það er mikil sjálfvirkni í vinnsl-unni þannig að frá því hrognunum er sturtað í síló við upphaf vinnslulínunnar þá þarf mannshöndin að hafa fá inngrip þar til frosin loðnuhrognin eru komin í kassa og á bretti við hinn enda línunnar, þaðan sem þau fara í frystiklefa og svo í skip til Japan“.Loðnuhrognin koma frá flokkunarstöðinni í Helguvík og eru flutt þaðan í körum á hafnarvog í Keflavík og þaðan í vinnsluna hjá Saltveri við höfnina í Njarðvík. Þar eru hrognin látin standa í körum í 12-24 tíma, allt eftir því í hvaða vinnslu þau fara. „Japanshrognin“ standa í 12 tíma en „iðnaðarhrognin“ standa í sólar-hring. Hrognin fara svo í gegnum pokavélar sem mata tvo frysta. Út úr frystunum fara svo frosnar öskjur inn í pökkunarlínuna sem skilar afurðunum innpökkuðum í kassa og á vörubretti sem fara í frystiklefa og þaðan til útflutnings.„Það eru margar hendur sem koma að þessu þrátt fyrir að vinnslan sé þó svo tæknivædd eins og raun ber vitni, en þetta gengur mjög vel,“ segir Guðmundur.

– Ástæða þess að þið farið í þessa tæknivæðingu er að það fékkst ekkert fólk til að vinna við loðnuna.„Það var þannig árið 2006 þegar Þorsteinn Erlingsson byrjaði á þessu, þá leit ekki út fyrir að hægt væri að fá marga starfsmenn. Það hefur hins vegar breyst all verulega og nú eru margir sem sækja um vinnu þegar hrognavinnslan hefst“.Saltver var fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að setja upp tæknivædda vinnslulínu fyrir hrognafrystinguna og

síðan þá hafa samskonar vinnslulínur verið settar upp á nokkrum stöðum á landinu. Þorsteinn Erlingsson sé frumkvöðull á þessu sviði og framsýnn þegar kemur að þessari vinnslu sjávarafurða, segir Guðmundur.

– Þið eruð að fá þó nokkuð af skólafólki til ykkar.„Já, það eru sennilega yfir 100 krakkar búnir að sækja um hjá mér fyrir sumarið þegar við förum í frystingu á makríl og svo erum við núna með um 20 ungmenni á næturvaktinni nú í loðnunni og eru örugglega dauð-þreyttir í skólanum í dag,“ segir Guðmundur og brosir.– og er þetta allt í lagi?„Já, buddan verður í lagi hjá þeim og það er vonandi að skólinn sætti sig við það“.

– Hvað er vertíðin í hrognunum lögn hjá ykkur?„Hún virðist ætla að vera löng núna. Hún er yfir-leitt þrjár vikur en við erum að vonast til að fá fjórðu vikuna núna. Í góðum gangi er það að gefa okkur 190 tonn af hrognum á sólarhring. Þá hefur kvótinn verið aukinn þannig að þau fyrirtæki sem við vinnum fyrir eru komin með meiri loðnukvóta. Þá er vöntun á markaði. Það varð hrun á ansjósum í Suður Ameríku, sem veldur hækkunum á markaði. Þá veiddu Norð-menn ekki nóg í fyrra, þannig að það er góður selj-endamarkaður“.

– Hvert fara afurðirnar frá ykkur?„Þetta fer allt á Japansmarkað. Markaðir í Úkraínu og Rússlandi eru erfiðir núna. Sá markaður er sérstakur, eiginlega bara hættulegur í augnablikinu“.

– Það er af sem áður var þegar loðnuhrogn voru fryst í öllum frystihúsum á Suðurnesjum. Þið eruð einir eftir?„Það er orðið lítið um þessa vinnslu í dag og við erum þeir einu sem sitjum að þessu. Við vinnum hrognin í verktöku fyrir Síldarvinnsluna, Samherja og Gjögur-samsteypuna. Þeir eiga skipin sem veiða þetta og loðnumjölsverksmiðjuna. Við erum þakklátir fyrir það að geta unnið með þeim. Við vinnum mikið með Síldarvinnslunni, Samherja og HB Granda og það skiptir okkur miklu máli“.

Vinna 190 tonn af hrognum á sólarhring

Texti og myndir: Hilmar Bragi

Bárðarson.

■■ Saltver með hátækni loðnuhrognavinnslu í Reykjanesbæ:

– og skólafólk vinnur sér inn góðar tekjur á næturvöktum

Hressir skólastrákar í næturloðnuvinnu. Þeir

geta náð sér í 3-400 þús. kr. eftir nokkrar vikur.

Skipin landa í Helguvíkur-

höfn og þar fer flokkun loðn-

unnar fram.

Guðmundur Jens Guð-mundsson.

Falleg hrogn renna sína leið í tækjunum í Saltveri.

Saltver er með hátækni loðnu-hrognavinnslu.

Páll borinn til hinstu hvílu■XPáll Hreinn Pálsson, útgerðarmaður í Grindavík, var jarðsunginn í

Grindavíkurkirkju sl. föstudag að viðstöddu fjölmenni. Börn Páls og tengdabörn voru kistuberar. Mynd: Viktor Svan Sigurðarson.

Umhverfisvænar ræstingar

www.allthreint.is // Holtsgötu 56, 260 // Sími 421 2000

HVAÐ GETUM VIÐ GERT FYRIR ÞIG?

Forðaði árekstri við kött

Árekstur varð um helgina þegar köttur hljóp í veg fyrir bifreið í Njarðvík. Ökumaður-inn stöðvaði bifreiðina til að keyra ekki yfir köttinn og við það hafnaði önnur bifreið aftan á henni.Þá urðu nokkrir ökumenn staðnir að hraðakstri eða að sinna ekki stöðvunarskyldu. Loks voru skráningarnúmer fjarlægð af bifreiðum sem voru ýmist óskoðaðar eða ótryggðar.

Sjáið meira í Sjónvarpi Víkurfrétta!

Page 5: 09 tbl 2015

Ný Corsa

Laugardaginn 7. mars frumsýnum við fimmtu kynslóðina af Opel Corsa – sportlegan fimm manna bíl sem kemur sannarlega á óvart fyrir fullkominn tækni- og öryggisbúnað, ferska hönnun, sprækar vélar, sparneytni og frábært verð. Vertu velkomin(n) á frumsýningu Corsa, Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ, 7. mars. Opið milli kl. 12 og 16.

Við hlökkum til að sjá þig.

Frumsýning á nýrri Opel Corsa – 7. mars!

Bílabúð Benna, í samstarfi við Lykil, býður upp á 10% útborgun við kaup á nýjum Opel. Fáðu nánari upplýsingar hjá sölumönnum Opel.

Page 6: 09 tbl 2015

6 fimmtudagurinn 5. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Ungmennin er okkur hugleikin í Víkurfréttum þessa dagana. Bakgrunnur þeirra er misjafn alveg eins og áhugamálin sem eru fjölbreytt.Davíð Guðbrandsson fann sig ekki í fótbolta, sundi eða körfubolta sem að hans mati þurfti að geta til að meika það í heimabænum þegar hann var barn og unglingur. Hann prófaði að fara í Leikfélag Keflavíkur og var tekið þar opnum örmum. „Það er líka mikill þroski fyrir ungt fólk að taka þátt í leikfélagsstarfi. Þetta er góður félagsskapur fólks á öllum aldri og þessu fylgir mikil ábyrgð,“ segir Davíð í viðtali í Víkurfréttum.

Drengjafimleikar eiga sér mjög stutta sögu hjá Keflavík en fulltrúar félagsins, 9-14 ára, unnu fyrsta bikarmeistaratitilinn í sögu þess, á bikarmóti í áhaldafimleikum um síðustu helgi. Aðrir keppendur frá Keflavík kræktu sér í brons eða unnu sér inn þátttökurétt á Íslands-mótinu. Þar er þjálfarinn Vilhjálmur Ólafsson greinilega að vinna gott starf fyrir félagið, laða að og draga fram það besta í sínu fólki.

Yfir 100 skólakrakkar hafa sótt um sumarvinnu hjá Saltveri í Njarð-vík og 20 ungmenni starfa þessa dagana á næturvöktum í loðnu-vinnslu þar. „Þeir eru örugglega dauðþreyttir í skólanum. Buddan verður í lagi hjá þeim og það er vonandi að skólinn sætti sig við það,“ segir Guðmundur Jens Guðmundsson, framleiðslu- og útgerðar-stjóri, í samtali við Víkurfréttir. Það er ekki oft sem skólakrökkum gefst tækifæri til að vinna sér inn góðar tekjur á stuttum tíma og kynnast fjörinu og puðinu sem fylgir vertíðum. Sú var tíðin að skólar gáfu nemendum jafnvel frí til þess að hægt yrði að bjarga slíkum verð-mætum í vinnslu.

Til er hópur unglinga sem skortir sjálfsöryggi til að finna styrkleika sína og stuðninginn sem þarf til að virkja þá. Þórunn Íris Þórisdóttir, sem hefur umsjón með Velferðarsjóði Suðurnesja, segir fleira ungt fólk á menntaskólaaldri eiga í vandræðum en áður. Unga fólkið sem leiti til hennar geri sér stundum ekki grein fyrir því að ýmislegt er í boði til að efla sjálfsmynd þess til að breyta stöðu sinni. „Margir sem koma hingað þurfa fyrst og fremst á hvatningu og stuðningi að halda sem þeir fá ekki heima. Þeir koma jafnvel stoltir hingað til að segja frá góðum árangri sem þeir hafa náð í námi eftir að hafa þegið styrk úr Velferðarsjóði fyrir skólagjöldum, bókakostnaði og skólamat,“ segir Þórunn Íris í forsíðufrétt í Víkurfréttum.

Þótt baklönd unga fólksins séu misjöfn heima fyrir, þá eru þau samt víða í samfélaginu og þar er vel hægt að ná fram því besta, leyfa því að prófa fjölbreyttar leiðir til að finna sig; hvort sem það er í námi, vinnu eða félagsstarfi. Svo má ekki gleyma að hrósa þeim og hvetja.

vf.isvf.isÚtgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, [email protected]éttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected] Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, [email protected], Eyþór Sæmundsson, [email protected]ýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, [email protected] Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, [email protected], Jóhann Páll Kristbjörnsson, [email protected]ðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, [email protected], Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected] Prentun: Landsprent hf. Upplag: 9000 eintök. Dreifing: ÍslandspósturStafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.isTekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einnsólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

SÍMI 421 0000

Hefur þú ekki tíma fyrir morgunmat?Sumir hlaupa út á morgnana með tóman maga og gefa sér ekki tíma til að byrja daginn á staðgóðum morgunmat. Þarna er snilld að vera búin að græja morgunmatinn áður en þú ferð að sofa og kippa þessu bara með í vinnuna eða skólann næsta morgunn. Þannig ertu viss um að þú sért að byrja daginn vel og getur betur haldið þér í jafnvægi með næstu máltíðir yfir daginn. Hér eru nokkrar hugmyndir að morgunmat sem mér finnst gott að eiga tilbúið í ísskápnum ef tíminn er naumur næsta dag.

• Hafragrautur eða chiagrautur í krukku. Láta hafra eða chia fræ í krukku með vatni eða möndlumjólk og í ísskáp. Sniðugt að bæta kanil, rúsínum, kakódufti, bláberjum og kókósflögum út í. T.d. alveg hægt að gera chia krukkugraut fyrir 3 daga í einu. • Eggjamuffins. Hrærið saman í ommilettu og hellið í sílikon muffins form og bakið í ofni kvöldinu áður. Fínt að grípa 1-2 með sér í vinnuna. • Berjaboost sem hægt er að geyma í ísskápnum og drekka strax um morguninn. Líka gott að gera grænmetissafa í safapressunni gulrótar -eða rauðrófusafa með sítrónu. • Soðin egg og avókdaó. Mjög gott að sjóða vel af eggjum til að grípa með sér ef lítill tími. Egg og avókadó fer mjög vel saman til að redda sér á í morgunkaffinu.

Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.www.facebook.com/grasalaeknir.is, www.pinterest.com/grasalaeknir

ÁSDÍSGRASALÆKNIRSKRIFAR

Árshátíð Reykjanesbæjar var haldin 28. feb. í Stapa og mættu rúmlega 500 manns og skemmtu sér konunglega. Örvar Þór Kristjánsson var veislustjóri, Pétur Jóhann var með uppistand, Sverrir Bergmann og Halldór fjallabróðir voru

með skemmtiatriði ásamt því að spila á Stapabar. Síðan hélt Buffið uppi stuðinu. Holta- og Háaleitisskóli sáu um árshátíðina í ár. Í nefndinni voru úr Holtaskóla Elínborg Herberstdóttir, Freydís Helga Árnadóttir, Hildur Bára Hjartar-dóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir og Stefanía Helga Björnsdóttir. Úr Háaleitisskóla voru Guðný Ólöf Gunnarsdóttir, Halla

Karen Guðjónsdóttir og Jón Haukur Hafsteinsson. Hér eru myndir af nokkrum en það má sjá fleiri á vf.is.

-mannlíf pósturu [email protected]

Ekkert væl bara stuð hjá Reykjanesbæ!

íf

-ritstjórnarbréfOlga Björt Þórðardóttir skrifar

Að velja sér bakland

Page 7: 09 tbl 2015

facebook.com/skolahreysti #skolahreystiMENNTA- OG MENNINGARMÁLARÁÐUNEYTIÐ

SKÓLAHREYSTI ER Í BOÐI LANDSBANKANS

ÁFRAM REYKJANES!

Skólahreysti – hreystikeppni allra grunnskóla á landinu er hafin. Grunnskólar á Reykjanesi etja kappi í Skólahreysti fimmtudaginn 19. mars kl. 19:00 í íþróttahúsinu í Keflavík. Það er ókeypis inn og við hvetjum alla grunnskólakrakka

til að mæta. Keppnin verður svo sýnd á RÚV í apríl.

Page 8: 09 tbl 2015

8 fimmtudagurinn 5. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR

„Þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ að bera ábyrgðina sjálfur, rífa svolítið kjaft og segja 'I'm the boss' á æfingum og láta hlýða mér og svona“, segir Davíð og glottir. Honum finnst greinilega gaman að fá að bera hitann og þungann af verkinu og ákvörðunin með að taka það að sér var ekki erfið. „Þótt ég sé með ótrúlega gott fólk með mér, þá eru ákvarðan-irnar svolítið mínar og það er nýtt fyrir mér. „Mig hafði langað að gera þetta lengi og í raun gamall draumur að fá að koma til baka og vinna með Leikfélaginu.“

Mikill þroski fæst í leikhússtarfiDavíð segist vera Keflvíkingur, ekki Reykja-nesbæingur. „Við erum nokkrir sérvitringar að því leyti. Ég var aldrei nógu góður í fót-

forréttindapjakkurMaður hefur dá-

lítið gott af því að neyðast út í

önnur djobb og taka dálítið á sér

VILL EKKI VERA

Leikstjóri Leikfélags Keflavíkur segist læra mikið af öllum störfum.

bolta, sundi eða körfubolta sem maður þurfti að vera til að meika það í heimabænum þá. Ég ólst svolítið upp í leikfélaginu hér og fann mig svo mikið þar. Kom hingað fyrst 1994 í gamla Félagsbíó og var tekið opnum örmum. Lék fyrst í Stígvélaða kettinum. Eftir það var eiginlega aldrei spurnig um að gera nokkuð annað. Það er líka mikill þroski fyrir ungt fólk að taka þátt í leikfélagsstarfi. Þetta er góður félagsskapur fólks á öllum aldri og þessu fylgir mikil ábyrgð.“

Kann vel við sig í svörtu, gluggalausu rýmiÍ framhaldi af því sótti Davíð um í gamla Leiklistarskóla Íslands, komst inn og út-skrifaðist úr Listaháskólanum fjórum árum

síðar. „Ég var í einum af þeim bekkjum sem gert var tilraunir með varðandi nám. Fór í framhaldi af því að vinna á heimili fyrir aldraða öryrkja. Það var líka mikill skóli. Svo lék ég fljótlega í Borgarleikhúsinu og með leikhópi sem settu upp söngleikinn Hárið í Austurbæjarbíó og svo í Kallakaffi, sællar minningar.“ Næstu fimm árin lék Davíð svo í Borgarleikhúsinu og segist að upplagi þykja vænt um leikhús og kunna vel við sig í svörtu, gluggalausu rými.

Varð þakklátari fyrir önnu störfUndanfarin 6-7 ár hefur Davíð starfað sjálf-stætt. „Það er ‘fansí’-orðið, en ég hef oft þó verið atvinnulaus og snúið mér að öðru. Hef þó unnið við sjónvarp, kvikmyndir, talsetn-ingar o.þ.h. Einnig var ég aðstoðarleikstjóri í kvikmyndinni Fölskum fugli sem ég fram-leiddi ásamt nokkum öðrum fyrir örfáum árum. Hef einnig fengið frábær hlutverk og tekið þátt í skemmtilegum sjónvarpsverk-efnum og kvikmyndum“. Þá segist Davíð einnig hafa fengið tækifæri til að kynnast því hve mikil vinna fer í að koma handriti að frumsýningu. „Ég varð þakklátari fyrir starf

hins fólksins þegar ég er að leika því leikara-starfið virkar auðvelt og lítið snúið í saman-burði við margt sem aðrir gera.“

Gott að beisla orkuna í leiklistStærsti draumurinn vinnulega segir Davíð vera að fá að gera sitt lítið af hverju. „Maður verður háður þessari leikarabraut þegar maður er kominn á hana. Hún er stutt, maður sér fyrir endann á verkefnunum og er alltaf að kynnast nýju fólki og nýjum efnivið. Þó er gaman að staldra við í vinnu af öðrum toga inni á milli. Vera ekki bara forréttin-dapjakkur sem fær að gera það sem hann vill gera. Maður hefur dálítið gott af því að neyðast út í önnur djobb og taka dálítið á sér og kynnast sjálfum sér í leiðinni,“ segir Davíð brosandi en vonar þó að hann haldi áfram að gera það sem hann er að gera. „Það er ótrúleg hreinsun í því og góð leið til að beisla orkuna og koma tilfinningunum í far-veg; fá að vera einhver annar en ég fæ að vera í daglegu lífi því samfélagið hefur kennt mér annað. Kannski sem betur fer,“ segir Davíð að lokum.

Leikarinn og Keflvíkingurinn Davíð Guðbrandsson stýrir sínu fyrsta sviðsverki um þessar mundir í Frumleikhúsinu

í Reykjanesbæ. Þar frumsýnir Leikfélag Keflavíkur á næst-unni sýninguna Killer Joe. Sjálfur var Davíð í leikfélaginu frá 1994-1999, þegar hann komst í Leiklistarskólann - og leik-listarbakterían var þar með komin til að vera.

-mannlíf pósturu [email protected]

Page 9: 09 tbl 2015

9VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 5. mars 2015

Elín Árnadóttir, aðstoðarfor-stjóri Isavia, kynnti í síðustu

viku vinningstillögu að mast-erplani eða þróunaráætlun fyrir Keflavíkurflugvöll til næstu 25 ára í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Masterplan er sveigjanleg þróun-aráætlun sem tekur á öllu svæði og umhverfi flugvallarins, því sem er innan öryggisgirðingar og utan. Masterplan er stjórn-tæki sem haghafar geta nýtt sér til stefnumótunar og uppbyggingar. Þar eru uppbyggingaráform Keflavíkurflugvallar kortlögð

þannig að vel sé farið með fjár-magn flugvallarins. Masterplan er þannig leiðarljós fyrir fram-tíðarskipulag þar sem unnið er flugvellinum í hag í samræmi við umferðar- og farþegaspá.

Það var Hönnunarstofan Nordic - Office of Architecture í Noregi sem varð hlutskörpust í hönnunar-samkeppni. Í hönnunarsamkeppni um Masterplan Keflavíkurflug-vallar var kallað eftir hugmyndum um skipulag flugstöðvarinnar og nærumhverfis, skipulag flug-

vallarins og umhverfisskýrslu. Sömuleiðis var óskað eftir tillögu að nálgun hvað varðar samráð við hagsmunaaðila en slíkt samráð er afar mikilvægt til þess að endanleg áætlun muni lýsi sameiginlegri framtíðarsýn hagsmunaaðila og flugvallarins sjálfs.Sú tillaga sem nú liggur fyrir upp-fyllti best þær kröfur sem settar voru fram í hverjum flokki og lýsir áhugaverðum hugmyndum sem uppfylla þarfir flugvallarins til framtíðar í takti við þróun í far-þegafjölda og umferð.

„Valnefnd var einróma í niður-stöðu sinni og var sömuleiðis sam-hljómur í álitsgjöf hagsmunaaðila um vinningstillögu. Tillaga Nordic er vel útfærð og uppfyllir kröfur í þeim þáttum sem settir voru fram í samkeppnisgögnunum. Sett er fram heildstæð áætlun í umhverf-ismálum og gert ráð fyrir miklu og góðu samráði við hagsmunaaðila á öllum stigum skipulagsgerðar-innar. Þá er hugsað fyrir því að nýir tekjumöguleikar opnist í hverjum framkvæmdaáfanga og að tækifæri til tekjuöflunar opnist um leið og

afkastageta er aukin,“ segir Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia og formaður valnefndar.Vinningstillagan þótti skara fram úr varðandi sjálfbærni og skipu-lags- og umhverfismál auk þess sem skýr stefna er sett í tekjusköpun á uppbyggingartíma og rík áhersla er á samráð við hagsmunaaðila og nærsamfélag flugvallarins. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun flugstöðvarinnar til norðurs og lagningu nýrrar norður-suður flugbrautar vestan við flugvöllinn í framtíðinni.

-fréttir pósturu [email protected]

Svona verður Keflavíkurflugvöllur árið 2040

Svona er framtíðarsýnin fyrir Kefla-víkurflugvöll eftir 25 ár.

Fulltrúar frá Isavia og Nordic - Office of Architecture í Noregi, en hönnunarstofan varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppninni.Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia, kynnti verðlaunatillöguna.

Guðlaugur H. GuðlaugssonLöggiltur fasteignasali

Halldór MagnússonLöggiltur fasteignasali

Haraldur Freyr GuðmundssonSölumaður

Hátún 34 – 230 Reykjanesbær4ja herbergja hæð á góðum stað í Keflavík.

Hæðin er ca 115 fm og bílskúr ca 35m2.Flottur staður í botnlanga götu. 

23.000.000,-

Baugholt 25 – 230 ReykjanesbærGlæsilegt einbýli á góðum stað í Keflavík.

Eignin er samtals 202m2 þar af 40m2 bílskúr.Mikið endurnýjuð eign sem vert er að skoða. 

42.900.000,-

Heiðarbrún 15 – 230 Reykjanesbær6 herbergja einbýli á góðum stað í Keflavík.

Óborganlegt útsýni í átt að berginu.Mikið endurnýjað (sjá á heimasíðu) 

43.000.000,-

Tjarnabraut 16 – 260 ReykjanesbærNýleg 3ja herbergja íbúð á annari hæð, alls 92m2.

Íbúðin hefur sér inngang og sameiginleg geymsla er í húsi.Vel staðsett íbúð í innri Njarðvík, nálægt skóla og leikskóla. 

19.900.000,-Yfirtaka + kostnaður

Heiðarból 45 – 230 ReykjanesbærEinbýlishús á besta stað í Keflavík, lækkað verð.

Ca 200 fm þar af bílskúr ca 30m2, 5 herbergi.Eign sem vert er að skoða, innst í botnlanga. 

40.900.000,-

Háteigur 14 – 230 ReykjanesbærSkemmtileg 4ja herbergja íbúð með sér inngang.

Eignin er samtals 120 fm ca þar af bílskúr ca 26m2.Efrihæð með fallegu útsýni. 

21.000.000,-

100% YFIRTAKA

Stuðlaberg - Hafnargata 20 - 230 Reykjanesbæ - Sími 420 4000 - www.studlaberg.is

420 4000s t u d l a b e r g . i s

- rík áhersla lögð á samráð við hagsmunaaðila og nærsamfélag flugvallarins.

Page 10: 09 tbl 2015

10 fimmtudagurinn 5. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Kræsingar & kostakjörMar

khön

nun

ehf

KjúKlingabringurnettó

1.798áður 1.998 Kr/Kg

ÞorsKhnaKKarroð og beinlausir

1.259áður 1.798 Kr/Kg

-30%

sætar Kartöflur

182áður 363 Kr/Kg

-50%

KjúKlingalundirfrosið, 700gr

986áður 1.761 Kr/Kg

-44%

x-tra vörur í miKlu úrvali flögur 300grbbq/salt/sour creamverð áður 369,-

299,-

100% safi 1,5lepla/appelsínuverð áður 299,-

239,-

vingummi 300grávaxtahlaupverð áður 349,-

299,-

sjampó/hárnæring/sturtusápa500 mlverð áður 179,-

149,-bómullarskífur100 stkverð áður 159,-

129,-

handsápafljótandi, 500 mlverð áður 189,-

159,-eyrnapinnar200 stkverð áður 99,-

89,-

Tilboðin gilda 05. - 08. mars 2015tilboðin gilda meðan birgðir endast. | birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | mjódd · salavegur · hverafold · Grandi · akureyri · höfn · Grindavík · reykjanesbær · borgarnes · egilsstaðir · selfoss |

grísaKótiletturí rasPi - fersKt

1.241áður 2.069 Kr/Kg

-40%

grísaKótiletturrauðvínsKrYddaðar

1.493áður 2.488 Kr/Kg

-40%

1.293áður 1.989 Kr/Kg

-35%

grísahnaKKiúrbeinaður

grísarif bbQgoði

1198

ódýrt ís 900ml3 tegundir

299áður398Kr/stK

-25%

wYmans’s 1,36Kgberjablanda/bláber

-15% earth’s Pride ber/broKKolí 1,36Kg - 1,81Kg

-15%

frábærtverð!

grísahrYggurmeð Pöru - vac.PaKKað

1.140áður 2.280 Kr/Kg

-50%baYonnesKinKa

895áður 1.598 Kr/Kg

-44%verð

sprengja

sunYan núðlur 85ghot&sPicY /KjúKl./ beef

49áður 59 Kr/PK

Page 11: 09 tbl 2015

Kræsingar & kostakjörMar

khön

nun

ehf

KjúKlingabringurnettó

1.798áður 1.998 Kr/Kg

ÞorsKhnaKKarroð og beinlausir

1.259áður 1.798 Kr/Kg

-30%

sætar Kartöflur

182áður 363 Kr/Kg

-50%

KjúKlingalundirfrosið, 700gr

986áður 1.761 Kr/Kg

-44%

x-tra vörur í miKlu úrvali flögur 300grbbq/salt/sour creamverð áður 369,-

299,-

100% safi 1,5lepla/appelsínuverð áður 299,-

239,-

vingummi 300grávaxtahlaupverð áður 349,-

299,-

sjampó/hárnæring/sturtusápa500 mlverð áður 179,-

149,-bómullarskífur100 stkverð áður 159,-

129,-

handsápafljótandi, 500 mlverð áður 189,-

159,-eyrnapinnar200 stkverð áður 99,-

89,-

Tilboðin gilda 05. - 08. mars 2015tilboðin gilda meðan birgðir endast. | birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | mjódd · salavegur · hverafold · Grandi · akureyri · höfn · Grindavík · reykjanesbær · borgarnes · egilsstaðir · selfoss |

grísaKótiletturí rasPi - fersKt

1.241áður 2.069 Kr/Kg

-40%

grísaKótiletturrauðvínsKrYddaðar

1.493áður 2.488 Kr/Kg

-40%

1.293áður 1.989 Kr/Kg

-35%

grísahnaKKiúrbeinaður

grísarif bbQgoði

1198

ódýrt ís 900ml3 tegundir

299áður398Kr/stK

-25%

wYmans’s 1,36Kgberjablanda/bláber

-15% earth’s Pride ber/broKKolí 1,36Kg - 1,81Kg

-15%

frábærtverð!

grísahrYggurmeð Pöru - vac.PaKKað

1.140áður 2.280 Kr/Kg

-50%baYonnesKinKa

895áður 1.598 Kr/Kg

-44%verð

sprengja

sunYan núðlur 85ghot&sPicY /KjúKl./ beef

49áður 59 Kr/PK

Page 12: 09 tbl 2015

12 fimmtudagurinn 5. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Menningarvika Grindavíkur verður haldin 14.-22. mars

n.k. og er nú haldin í sjöunda sinn. Dagskráin er að vanda fjöl-breytt og skemmtileg þar sem vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi.

Meðal þess sem búið er að bóka í Menningarviku eru Tónleikar Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, með afmælisbarninu Gunnari Þórðar-syni. Sameiginlegir tónleikar með listafólki frá Grindavík og vina-bænum Piteå í Svíþjóð. Fjölmenn-ingarhátíð verður í Salthúsinu og bókasafninu og Færeyjakvöld Nor-ræna félagsins í Grindavík. Mál-verkasýningar Helgu Kristjáns-dóttur og Pálmars Guðmundssonar verða, svo og ljósmyndasýning Tinnu Hallsdóttur. Myndasýningar, gönguferðir o.fl verða svo á vegum Minja- og sögufélagsins.

Glæsileg dagskrá verður í tilefni þess að konur fengu kosningarétt fyrir 100 árum. Nýtt íþróttamann-virki verður einnig til sýnis, auk tónleikar Dagbjarts Willardssonar og dagskrá Norræna félagsins. Þá má nefna léttmessu, pottaspjall bæjarfulltrúa, námskeið í að skapa tónlist í snjalltækjum, matreiðslu-námskeið, Siggi stormur kemur í heimsókn, fréttaskot úr fortíðinni, handavinnusýning, árshátíð bæjar-ins, kútmagakvöld Lions, konu-kvöld, blústónleikar og margt fleira.Þá verða stofnanir í Iðu, þ.e. grunn-skólinn, bókasafnið, tónlistarskól-inn og Þruman með opið hús og

grindavík pósturu [email protected]

Pottaspjall, léttmessa á Menningarviku í Grindavík

öfluga dagskrá og þá kemur Lína langsokkur í heimsókn á yngsta stigið í grunnskólann og í leik-skólana. Formleg setning hátíðar-innar verður í Grindavíkurkirkju laugardaginn 14. mars kl. 17:00. Eftir setninguna er gestum boðið í safnaðarheimilið í fjölmenningar-legt veisluborð.

Á Menningarhátíðinni að þessu sinni verður lögð áherslu á fjöl-menningu. Meðal annars var sett á laggirnar fjölmenningarráð sem skipuleggur tvo skemmtilega við-burði, ekki síst fyrir Grindvíkinga til þess að kynna sér menningu fjögurra landa að þessu sinni; Pól-lands, Tælands, Filippseyja og Serbíu. Þá verður kynning á rithöf-undum á bókasafninu frá þessum löndum.

Sem fyrr er uppistaðan í Menn-ingarvikunni framlag heimafólks auk þess sem landsþekkt tónlistar-fólk, listafólk og skemmtikraftar heimsækja Grindavík.

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráð-

herra undirritaði fyrir helgi fjár-festingarsamning við Matorku ehf. vegna fyrirhugaðrar fisk-eldisstöðvar í Grindavík. Áætlað er að framleiðsla hefjist á þessu ári og fullum afköstum verði náð á árinu 2016. Áætluð ársfram-leiðslugeta er 3.000 tonn af eldis-fiski og mun framleiðslan skapa 40 varanleg störf. Heildarfjár-festing fjárfestingarverkefnisins hljóðar upp á tæpar 1.430 m.kr.Fjárfestingarsamningurinn miðar við að félaginu verði veittir af-slættir af sköttum og gjöldum til samræmis við þær ívilnanir sem fram koma í frumvarpi til laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Ís-landi sem liggur fyrir á Alþingi. Ívilnanirnar eru jafnframt í sam-ræmi við ívilnanir til annarra ný-fjárfestingarverkefna sem eru í burðarliðnum og þá fjárfestingar-samninga sem gerðir hafa verið á undanförnum misserum.

Matorka ehf, sem er í blönduðu eignarhaldi, Íslendinga og erlendra fjárfesta, hefur gert fjárfestingar-samning við Ríkisstjórn Íslands um ívilnanir til næstu 10 ára. Heildar-samningurinn hljóðar upp á 425 milljónir króna. Matorka ehf er fiskeldisfyrirtæki sem elur laxfiska á umhverfisvænan hátt með nýt-ingu jarðhita og annara sjálfbæra lausna.Matorka mun byggja nýtt eldi í Grindavík og með samningi við HS orku er affall frá Svartsengi nýtt til framleiðslu. Matorka sérhæfir sig í landeldi, sem mengar ekki hafið og hefur ekki áhrif á villta laxastofna við Ísland.Vatnstakan er hreint og ómengað sjóblandað vatn sem rennur undan hrauninu og því er ekki þörf fyrir sýklalyf né önnur varnarefni gegn laxalús.Jarðhitinn frá Svartsengi mun gera félaginu kleift að framleiða mikið magn af hágæða laxfiski við kjör-hitastig allan ársins hring.

Stafsemi fyrirtækjasamstæðunnar hefur verið síðan 2010 og unnið að sjálfbæru og umhverfisvænu fisk-eldi. Með vaxandi íbúafjölda jarðar bætast við rúmlega 100 milljónir manns árlega - sem þurfa að borða. Vaxandi kaupmáttur í þróunar-löndum og hollustuleitandi vestur-landabúar auka eftirspurn eftir dýrapróteinum þar sem prótein úr fiski eru hágæða prótein og holl. Sér í lagi þar sem laxfiskur er ríkur af omega3 fitusýrum. Framleiðsla félagsins er seld erlendis, skapar mörg ný störf og gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið.Félagið rekur nú fyrir eldisstöð á Suðurlandi og þar eru seiðin fyrir Grindavík framleidd. Því mun slátrun úr nýju eldisstöðinni í Grindavík byrja í lok árs.Á næstu vikum munu fram-kvæmdir við stærstu landeldisstöð landsins hefjast. Fullbúin verður framleiðslugetan 3000 tonn á ári. Stöðin er svokölluð fjöleldisstöð, þar sem ýmsar tegundir geta verið aldar við ýmis seltu og hitastig.

Ný fiskeldisstöð sem nýtir affall úr Svartsengi

-Ný 3000 tonna fjöl-eldisstöð við Grindavík skapar 40 störf - Heildarfjárfesting 1,5 milljarður króna

Frá undirritun fjárfestingar-

samniangs við Matorku

Nánari upplýsingar:

Óskum eftir að ráða í sumar:• Hjúkrunarfræðinga• Hjúkrunarfræðinema• Sjúkraliða• Starfsfólkíaðhlynningu• Starfsfólkíeldhús• Starfsfólkíræstingu

Allarnánariupplýsingarogumsóknareyðublöðfástá www.hrafnista.is

Sumarstarfsfólk óskast til starfa á Hrafnistu í Reykjanesbæ.

Hrafnistaervinnustaðurþarsemstarfsfólkigefsttækifæritilaðaflasérreynsluogþekkingar.Gottvinnuumhverfistuðlaraðþvíaðhæfileikarsérhversstarfsmannsnjótisín.Lágmarksaldurumsækjendaer18ára.

Umsóknarfrestur er til og með 8. mars. Öllum umsóknum verður svarað fyrir 7. apríl 2015.

Viltu vinna með okkur í sumar?

HRAFNISTAReykjavík I

Kópavogur I Reykjanesbær

HRAFNISTA  REYKJANESBÆ

Page 13: 09 tbl 2015

Kræsingar & kostakjör

Mar

khön

nun

ehf

Tilboðin gilda 04. mars. - 08. mars. 2015Tilboðin gilda meðan birgðir endast | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana

netto.is

RafTækjadagaRnettó reyKjanesbæ

Toshiba Satellite L50-B-1T2 i3

fartölva gyllt|109.995 |-16.496|

93.499 krAsus Transformer Pad TF303CL 32GB 4g spjaldtölva79.995 | -11.996 | 67.999 kr

RISA

10%20%

RISa RafTækjaúTSala í NeTTó ReykjaNeSbæ

allir sem versla raftæki geta tekið þátt í

leik og unnið þetta Philips 50” led

sjónvarp að verðmæti 119.995kr

Nextbook spjaldtölva 7,85”16.995 | -2.596 kr | 14.399 kr

Philips dvd spilari7.995 |-996 | 6.999 kr

United 32” lEd sjónvarp 39.995 | -5.996 | 33.999 kr Philips 50” lEd sjónvarp FHD

119.995 | 19.996 | 99.999 kr

Asus MeMo Pad 7” spjaldtölva 8GB hvít24.995 | 3.796 | 21.199 kr

30%40%

gerðu góð kaup á raftækjum og taktu þátt í leik. Þú gætir unnið 50” sjónvarp!

Page 14: 09 tbl 2015

14 fimmtudagurinn 5. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Icelandair flýgur tvisvar í viku til borgarinnar, á fimmtudögum og mánudögum. Víkurfréttir voru í fjölmiðlahópi sem sótti borgina heim á dögunum. Birmingham stendur svo sannarlega undir nafni sem fjölbreytt og skemmtileg borg. Hafandi farið mörgum sinnum til London og Manchester þá er ljóst að Birmingham hefur flest sem systurborgirnar hafa og síðan ýmis-legt sem hinar geta ekki státað sig af. Rólegri en London en fjörugri en Manchester.

Verslun, veitingastaðir og fjörVerslun er oftast í fyrsta sæti hjá Íslendingum þegar farið er í borgar-ferðir og þar er Birmingham í topp-málum. Þar er mikil hefð fyrir verslun og viðskiptum og í mið-borginni er t.d. verslunarmiðstöðin Bullring en í henni eru 160 versl-anir auk 25 veitingastaða og í næstu götum eru hundruð sérverslana. The Malbox er annað skemmtilegt verslunarsvæði og miklum stækk-unarframvæmdum á því er að ljúka núna í vor. Þá má geta þess að BBC ríkisfjölmiðillinn er með skrifstofu sína fyrir miðlöndin í húsinu og þar gefst gestum kostur á að komast

Yngsta borg Evrópu er græn og væn

■■ Enska stórborgin Birmingham er nýjasti áfangastaður Icelandair. Önnur stærsta borg Bretlands býður upp á all það helsta sem ferðalanga þyrstir í:

Birmingham er næst stærsta borg Englands en hefur vissulega staðið í skugganum af London og síðar Manchester sem vinsæll áfangastaður hjá Íslendingum. Eitt-hvað hefur hún þó að geyma úr því Icelandair bætti henni á áfangastaðalistann hjá sér og hóf áætlunarflug þangað í febrúar. Birmingham er yngsta borg Evrópu en um 40% íbúa eru yngri en 25 ára. Hún er ákaflega áhugaverð og á án efa eftir að verða vinsæl meðal íslenskra ferðalanga.

nær beinni útsendingu á sérstöku svæði sem er opið almenningi.

Í borginni er svakalegt úval pöbba og veitingastaða og auðvitað fjör-ugt næturlíf. Þá er Birmingham karrýborg Bretlands. Fjöldi mús-lima býr í Birmingham og kannski þess vegna eru yfir þúsund ind-verskra og asískra veitingastaða. Balti matseld er gríðarlega vin-sæl og mikill fjöldi staðanna er í Balti þríhyrningnum en það er stórt svæði með Asíustemmningu. Þangað koma yfir 20 þús. manns í hverri viku og borða, versla og njóta lífsins. Balti nafnið tengist pönnu eða diski sem notaður er til að framreiða vinsælan karrýrétt í. Í verslunum í Balti þríhyrningnum er skartgripum gert hátt undir höfði en nærri helmingur demantasölu í Bretlandi er frá BirminhgamVið sóttum einn indverska stað-inn sem heitir Mughal e Azam en hann er í gamalli kirkju. Virkilega skemmtilegur veitingastaður í sér-

stöku umhverfi en gestir mega taka sitt eigið vín með eins og á mörgum fleiri Balti stöðum. Óvanalegt en gleðilegt fyrir Íslendinga. En Birm-ingham státar sig af enn frekari viðurkenningu í veitingamennsku því utan London er borgin með flesta Michelin veitingastaði, alls fjóra. Svo eru margir hipp og kúl staðir eins og The Cube sem er á 25. hæð í einum skýjakljúfnum í borginni. Hinn heimsþekkti kokkur Marco Pierre White er þar við stjórnvölinn.

Síkjasigling og grasagaðarHluti af einkennum borgarinnar er mikill fjöldi síkja en vatn rennur um fleiri slíka kílómetra en í Fen-eyjum. Það er skemmtileg upplifun að fara í bátsferð um Birmingham og skoða hana þaðan með einn kaldan á kantinum. Borgin er líka kunn fyrir fjölda grasagarða en yfir 8 þúsund eru í henni og Birming-ham er þannig ein grænasta borg Bretlands.

Kolaport þeirra í borginni er stórt og mikið. Hér er mynd frá ávaxta- og grænmetismarkaði.

The Cube bar og veitingastaður er á 25. hæð í einum skýjakljúfnum í borginni.

Séð inn í Bullring verslanamiðstöðina, líf og fjör.

Brabazon golfvöllur-inn, einn af þremur á Belfry svæðinu. Skylduheimsókn

fyrir kylfinga.

Síkjasigling er skemmtileg afþreying í Birmingham.Icelandair norðurljósavélin á flugvellinum í Birmingham vakti óskipta athygli. T.v.: Forráðamenn Icelandair ásamt borgarstjóra Birmingham

og sendiherra Íslands í Bretlandi. Lengst til vinstri er Suðurnesja-mærin Guðrún Lilja Sigurðardóttir, aðstoðarmanneskja Birkis Hólm

framkvæmdastjóra Icelandair.

Selfridges bygg-ingin í Bullring verslanamið-

stöðinni. Ekkert grín með útlitið hjá Selfridges.

Page 15: 09 tbl 2015

15VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 5. mars 2015

Hvort sem þú vilt fjör, fót-bolta, listir og menning eða

verslun er Birmingham að rokka. Hér eru nokkur dæmi:

Breska súkkulaðið Cadbury á heima í Birmingham. Það er áhugaverð heimsókn að fara í Cad-bury World, fræðast um súkku-laðið, hvernig það er búið til og auðvitað fær maður að smakka. Enda svo heimsóknina á að fara í stærstu Cadbury súkkulaðverslun í heimi.

Eitt af flaggskipum borgarinnar er National SEA LIFE Centre, sæ-dýrasafnið. Þar eru skjaldbökur og hákarlar og allt þar á milli sem getur rúmast í safni.Ef maður vill fara í eitthvað sem tengist gamla tímanum í Englandi er tilvalið að heimsækja Warwick kastalann en þar erum við að tala um meira en þúsund ára sögu. Frá árinu 1978 hefur Warwick kastalinn verið opinn fyrir heim-sóknir og á þeim tíma hafa fjölda sýninga verið opnaðar sem tengjast miðöldum. Árið 2013 voru opnuð herbergi sem höfðu verið lokuð. Í Warwick er hægt að eyða góðu hluta úr degi, þess vegna heilum degi því það er mikið að skoða. Fleiri ævintýri er að finna fyrir alla fjölskylduna í sannkölluðu skógarævintýri í Cannock Chase og Wyre Forest. Fyrir meiri hraða og fjör er tilvalið að heimsækja Go Kart brautina F1K. Meðal áhuga-verðra safna má nefna The Jewell-ery Quarter en þar eru fjögur söfn, m.a. pennasafn en hér á árum áður voru framleiddir pennar í millj-ónavís í Birmingham.

ShakespeareBorgin hefur byggst hratt upp á unanförnum áratugum og margar eldri byggingar verið endurbyggðar en nýjar byggðar. Eitt glæsilegast hús borgarinnar er bókasafnið en það var opnað 2013 en arkitekt-inn sagði það eiga að vera „höll fólksins“.Hið heimsþekkta skáld Shakespe-are nýtur sín í þessari höll en hann er fæddur í smábænum Stratford sem liggur við ána Avon skammt frá. Í bænum er Royal Shake-speare-leikhúsið þar sem sýnd eru fjölmörg verk á hverju ári. Í Birm-ingham er líka glæsilegt listasafn,

Birmingham Museum and Art Gallery.cuss. The Custard Factory er gott dæmi um vel heppnaða endurbyggingu í Birmingham. Þar var áður starf-rækt verksmiðja en er nú eitt heit-asti reiturinn í borginni þar sem saman koma verslanir, vinnustofur listamanna og salir með margvís-legum uppákomum. Yfir 500 fyrir-tæki eru með aðsetur á svæðinu en á árum árum var þar fram-leiddur Alfred Bird krembúðingur. Nú fæðast þar nýjar hugmyndir á hverjum degi. Eftir að húsnæðið hafði staðið autt í tæpa tvo áratugi eftir flutning verksmiðjunnar fóru hlutir að gerast og nú er þetta einn vinsælasti staðurinn í borginni. Hann er á góðum stað og er t.d. í 5 mín. göngufæri frá Bullring versl-unarmiðstöðinni.

Fjölbreytt hótelgistingHótelgisting er fjölbreytt í Birm-ingham. Íslenskir ferðalangar gistu á Hotel La Tour en það er staðsett nokkur hundruð metra frá Bullring verslunarmiðstöðinni. Staðsetn-ingin er frábær og hótelið er líka sérlega skemmtilegt en í því eru 174 herbergi. Þau eru vistleg með öllum helstu þægindum eins og t.d. góðu flatsjónvarpi. Þá er hita og ljósum stjórnað af snertiskjá á veggnum.Þrátt fyrir nýmóðins útlit er hótelið vinsælt fyrir breskt síðdegiste fyrir gesti og gangandi en á hótelinu er góður veitingastaður sem býður upp á mjög veglegan morgunverð.hotel-latour.co.uk

Það er rík íþróttahefð í borginni. Fótboltaliðin Aston Villa og Birm-ingham berjast um hylli borgar-búa en það fyrrnefnda er nú í efstu deild enska boltans. Villa Park tekur léttilega á móti 45 þús. fót-boltaáhorfendum. Birmingham-

liðið er í næst efstu deild og eins og víðar er mikill rígur. Auk þessara tveggja er efstudeildarliðið WBA með aðsetur rétt utan borgarmarka og í næsta nágrenni þekkt lið eins og Coventry og Wolverhamton. Í ferð okkar skoðuðum við Edgba-ston leikvang krikketliðsins War-wickshire Bear en það er í efstu deild íþróttarinnar í Englandi. Þar drípur krikketsagan af hverju strái en leikvangurinn er rúmlega 100 ára gamall. Hann var þó endurnýj-aður fyrir þremur árum síðan fyrir 5 milljarða króna takk fyrir. Um 40 leikir fara þar fram yfir sumarið þegar leiktíðin stendur yfir en yfir veturinn er hann nýttur fyrir ýmsar uppákomur og fögnuði. Í sumar verður stórleikur milli Englands og Ástrala og er búist við yfir 100 þús. áhorfendum í fimm daga sem áætlað er að leikurinn standi yfir.

Það er ekki bara fótbolti og krik-kett í Birmingham því þar eru flest-ar íþróttir stundaðar. Rugby eða ruðningur keppir við krikkett um vinsældir á eftir knattspyrnu en svo er golfíþróttin líka mjög vinsæl í og við Birmingham. Einn mest þekkti golfvöllur Bretlands heitir Belfry en hann er aðeins í um 15 mín. aksturfjarlægð frá flugvellinum. Það er alvöru golfsvæði með 3 golf-völlum og 300 herbergja gistiað-stöðu auk veglegrar æfingaaðstöðu og stærstu golfverslun í Englandi.Belfry er þekktastur fyrir að þar hefur stærsta golfkeppni heims, Ryder-bikarinn, verið haldinn fjórum sinnum. Forest of Arden golfvöllurinn er líka í nágrenninu en þar hafa mörg mót á Evrópu-mótaröðinni farið fram. Fjöldi minna þekktra golfvalla er í og við borgina.

Nánar á [email protected]

Súkkulaði og fleira skemmtilegt í Birmingham

Back to Back housing er sérlega áhugaverður staður fyrir ferðalanga að sækja. Á 19. öld voru byggð „Back to back“ hús víða í Englandi. Þetta voru hrörleg hús ef svo má segja þar sem fólk þurfti virkilega að hafa fyrir því að halda á sér hita á köldum vetrardögum. Í þeim bjuggu mannmargar fjöl-skyldur við erfiðar aðstæður og mjög þröngan húsakost. Leiðsögumenn fara með gesti um húsin og segja frá sögu þeirra. Í leiðinni getur maður sett sig í spor þeirra sem bjuggu þarna. Í Birmingham hafa nokkur hús verið varðveitt og eru vinsæll viðkomustaður ferðalanga sem og margra heimamanna.

Svona bjó fólk í borginni

Í Birmingham er eitt vinsælasta leikhús Bretlands en þar stíga verðandi stjörnur á stokk í Britain got

talent sjónvarpsþættinum. Hér eru tveir ungir á ferð með sjónvarpsvélina á hælunum.

Hótelgisting er fjölbreytt í

borginni. Hotel La Tour er eitt

af mörgum og er mjög vel

staðsett.

Villa Park fótboltavöllur Aston Villa úrvalsdeildarliðsins frá Birmingham.

Back to back húsin sýna hvernig hluti Englend-inga bjó gamla daga.

Ný Opel Corsa verður frumsýnd, laugardaginn 7. mars hjá Bílabúð Benna í Reykjanesbæ. Nýja Corsan er afar sportlegur fimm manna bíll sem kemur virkilega á óvart fyrir óvenju fullkominn tækni- og öryggis-búnað, ferska hönnun, sprækar vélar, sparneytni og frábært verð.

Opel merkið hefur verið á mikilli uppleið í Evrópu og hlotið ótal hönn-unar- og gæðaverðlaun að undanförnu. Metnaður Opel er gríðarlegur og er 4 milljarða evra fjárfesting fyrirtækisins í þróun á nýjum bíl-gerðum til marks um það. Það þýðir að fram til ársins 2018 gerir fyrirtækið ráð fyrir að kynna eina 27 nýja bíla og 17 nýjar bílvélar. Afraksturinn er að skila sér, jafnt og þétt, og nú er komið að fimmtu kyn-slóðinni af Corsa. Mikil eftir-vænting hefur ríkt fyrir komu hans, enda ein mest selda ein-staka bílgerðin sem framleidd hefur verið í Evrópu, með 12,3 milljón eintök seld frá markaðssetningu hans árið 1982. Nýi bíllinn hefur greinilega staðið undir væntingum jafnt gagnrýnenda sem neytenda, en nú í desember, aðeins þremur mánuðum eftir frumsýningu hans í Frankfurt, höfðu borist yfir 55 þúsund pantanir.

Ný Corsa frumsýnd í Reykjanesbæ

-fréttir pósturu [email protected]

Sími 455 54 00

Fax 455 54 99

[email protected]

byggdastofnun.is

Hefur þú rétt á styrk til jöfnunar flutningskostnaðar?

Þeir sem geta sótt um styrk eru einstaklingar og lögaðilar sem:

� stunda framleiðslu á vörum sem falla undir c-bálk íslensku atvinnugreinaflokkunarinnar ÍSAT2008. Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands.

� flytja þurfa framleiðsluvöru sína meira en 245 km frá framleiðslustað á innanlandsmarkað.

Opnað verður fyrir umsóknir 1. mars og er umsóknafrestur til og með 31. mars.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Byggðastofnunar og í síma 455-5400.

Styrkir

Sími 412 2500 - [email protected] - www.murbudin.is

Dreglar og mottur á frábæru verði!

Margar stærðir og gerðir

Ódýrar mottur

40x60 cm frá kr. 350

PVC mottur 50x80 cm1.59066x120 cm kr 2.890100x150 cm kr 5.590

Kletthálsi 7, Reykjavík

Fuglavík 18, Reykjanesbæ

Breidd: 67 cmVerð pr. lengdarmeter 1.595

Breidd: 1 metriVerð pr. lengdarmeter 1.845

6mm gúmmídúkur grófrifflaður 3.490pr.lm.einnig til 3mm á kr.

1.990

Gúmmímottur margar gerðir og stærðir, verðdæmi 66x99cm

2.490

Page 16: 09 tbl 2015

16 fimmtudagurinn 5. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-aðsent pósturu [email protected]

Þa ð er of t erfitt hlut-

skipti að vera d r a u m ó r a -maður. Hugur-inn reikar um óravíddir ein-hverra heima og a l lt snýst í hringi fyrir spennunni sem

því fylgir, sögur og viðburðir þeysast um hugann og það er ekki laust við það að maður verður þreyttur, jafnvel svo þreyttur að maður á erfitt með svefn. Myndin af hertrukknum mínum fyrir utan gamlan herbragga í snjó og kulda og skyndilega fer hugurinn á flug, upp rifjast bæði góðar og slæmar minningar um sögu Keflavíkurflugvallar. Slæmu minningarnar eru sem betur fer ekkert sem ég ræð við, á miklum umbrotatímum í heimssögunni var landið hernumið af Bretum og síðar meir tóku Íslenskir ráða-menn þá ákvörðun að setja hérna niður flugvöll til þess að leyfa hernaðarþjóðum að koma sér hér fyrir til að berja á óvininum. Stríð eru ömurleg staðreynd og hafa verið frá örófi alda. En saga Kefla-víkurflugvallar er stórmerkileg saga og hana ber að varðveita. Núna koma góðu minningarnar til skjalanna.

Keflavíkurflugvöllur hefur frá byrjun verið starfsvettvangur þúsunda Íslendinga, saga hans er saga okkar Suðurnesjamanna og saga þjóðarinnar. Hann hefur gefið okkur gríðarlega mikið í gegnum tíðina. Þessi saga er ekki bara saga um hermenn og flugvélarnar þeirra, hún er eitt stórt ævin-týri flugsögu þjóðarinnar, sam-skipti okkar við Bandaríkjamenn, samskipti okkar við umheiminn,

tækifærið sem okkur var gefið og við urðum að lifa með, í blíðu og stríðu. Án þess að hallað sé á aðrar atvinnugreinar svæðisins vil ég meina að Keflavíkurflugvöllur hafi verið mikill happafengur fyrir okkur Íslendinga og Reykjanesið okkar. Ég man að í gamla daga var talað um að Varnarliðið gæfi um 25% af vergri þjóðarframleiðslu.

Í mörg ár hef ég verið í stjórn félags, áhugafélags um sögu flugvallarins, Flug- og sögusetur Reykjaness ehf. Þessi áhugahópur hefur staðið fyrir 3 sýningum og viðburðum frá 2007 sem voru viðleitni hans til að vekja athygli á þessari merku sögu okkar. Hópurinn hittist yfir 20 skipti og þar var velt upp alls kyns hugmyndum um safn, skrifuð ótal bréf til ráðamanna og fyrirtækja og leitað eftir samstarfi, húsnæði og fjármagni til að getað komið þessum Draum á rekspöl. Miklar vonir voru síðan bundnar við lof-orð um Herminjasafn og skyldi því fundin staður á gamla varnar-svæðinu sem í dag heitir Ásbrú. Lofað var 200 milljónum króna til uppbyggingar á þessu safni, 50 milljónir fóru í að breyta The Offi-cers club í tilvonandi safn, fengnir 3 álitsgjafar til að gefa skýrslu til stjórnvalda og síðan ekki söguna meir. Núna er verið að brenna líkamsfitu í þessum sal sem áskrif-endur einhverrar sjónvarðsstöðvar geta fylgst með.

Minn draumur þarf ekki svona mikið fjármagn, ég vil sjá safn þar sem að allir sem ráku fyrir-tæki á Keflavíkurflugvelli eiga sinn sýningarsal, safnið þarf reyndar að vera í rúmgóðu húsnæði,a.mk. 2-3000 m2. Þar fyrir utan yrði her-þotan í glerhýsi vel varðveitt en hún er í umsjón okkar í Flug og sögu-setrinu. Inni á safninu fengu síðan

þeir aðilar sem vilja segja sögu sína þar svæði sem þeir borguðu leigu fyrir. Þau fyrirtæki sem mesta sögu hafa af Keflavíkurflugvelli og ættu að nýta sér þetta safn til að koma sinni sögu til skila eru Icel-andair ( saga Loftleiða, Flugfélags Íslands), ISAVIA (Fríhöfnin), N1 (ESSO), Íslenskir Aðalverktakar, Keflavíkurverktakar, íslenska ríkið (veðurstofan, tollur,lög-regla), bandaríska ríkið (herminjar, slökkvilið, snjóruðningur, public works, skólahald og fleira), síðan eru Kadeco og Keilir þau fyrirtæki sem skrifa söguna eftir 2006. Einn-ig ætti að bjóða Rússum að segja sína sögu frá austrinu góða en til-urð flugvallarins var jú hættan á Rússagrýlunni eftir að heimstyrj-öldinni síðari lauk. Þessir aðilar væru þungamiðjan í þessu safni, síðan gætu viðburðarstjórar hvers fyrirtækis eða safnins staðið fyrir alls kyns viðburðum fyrir sitt starfsfólk, boðið yrði upp á alls kyns viðburði í kringum safnið og það auglýst út um allan heim sem safnið þar sem austrið og vestrið mættust til að binda endi á þeirra fjandskap. Ef slíkt safn verður að veruleika þori ég að fullyrða að það yrði okkur Suðurnesjamönnum til mikils framdráttar, það er til fullt af sögulegum munum sem eru bara í felum og engin veit um. Það eru líka til munir sem aðrir vilja fá til sín og hafa annarsstaðar til sýnis, það heillar mig ekki að glata sögulegum munum af svæðinu. Ég skora á alla hagsmunaaðila að snúa saman bökum og láta þennan draum rætast, ekki bara minn draum heldur draum mjög margra sem vilja sjá sögu Keflavíkurflug-vallar verða að veruleika.

Með vinsemd og virðinguTómas J. Knútsson

Á hvaða braut ertu? Íþrótta- og afreksbrautHvaðan ertu og aldur? 16 ára frá SandgerðiHelsti kostur FS? Afrekslina FSÁhugamál? TaekwondoHvað hræðistu mest? Nesa HólmHvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Ingimar Jenni fyrir söngHver er fyndnastur í skólanum? Sindri Lars Ómarsson auðvitaðHvað sástu síðast í bíó? Hot tub 2

Hvað finnst þér vanta í mötuneytið?Mætti sleppa þessum fiskibollum og kjötbollum og koma með eitt-hvað betra

Hver er þinn helsti galli? BlakHvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér?Messenger, Snapchat og InstagramHverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Stytta hádegiðHvaða frasa eða orð notar þú oftast? Maður segir bara svonaHvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Rosalega fíntHvert er stefnan tekin í framtíðinni?Ólympíuleikar 2020 og einka-þjálfunHver er best klædd/ur í FS?Samúel Óskar alltaf kallinn flottur á því

Sverrir Elífsen er FS-ingur vikunnar. Hún er á íþrótta- og afreksbraut, æfir taekwondo og segir Afrekslínuna vera helsta kost skólans.

VILL STYTTA HÁDEGIÐ

-fs-ingur vikunnar

-ung

Svanur Þór Mikaelsson er í 9. bekk í Heiðarskóla. Hann vill geta sparkað hraðar en Aaron Cook og langar í ævintýrabusiness.

HELGI RAFN FRÆGASTUR Í SÍMANUM

EftirlætisKennari:Andrés ÍÞF kennari er mjög fínnFag í skólanum: StærðfræðiSjónvarpsþættir: Blue Mount ain StateKvikmynd: Wolf On Wall StreetHljómsveit/tón-listarmaður: Red Hot Chilli Peppees

Leikari: Seth RogenVefsíður: YouTube, Facebook, Fótbolti.netSkyndibiti: SubwayHvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)? Smooth Criminal eftir Bruno Mars

Hvað gerirðu eftir skóla? Fer heim að éta og í Fifa, svo æfing

Hver eru áhugamál þín? Fifa og Taekwondo

Uppáhalds fag í skólanum? Íþróttir eða enska

En leiðinlegasta? Stærðfræði er glötuð, aðallega af því ég sökka í því

Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það? Win Diesel

Ef þú gætir fengið einn ofur-kraft hver væri hann? Geta sparkað hraðar en Aaron Cook

Hvað er draumastarfið í framtíðinni? Atvinnumaður í Taekwondo eða ein-hvers konar ævintýrabusiness

Hver er frægastur í símanum þínum? Helgi Rafn

Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt? Aaron Cook eða Gunnar Nelson

Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag? Sennilega skreppa í bankann

Hvað er uppáhalds appið þitt? Snapchat eða fut appið

Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum? Þægilegur og venjulegur

Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu? „Bad news you are not going to fit in with everyone, the good news are that the best ones never do“

Hvað er skemmtilegast við Heiðarskóla? Ekkert sérstakt haha

Hvaða lag myndi lýsa þér best? Loose yourself-Eminem

Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best? pass

Bíómynd? The Lone Survivor

Sjónvarps-þáttur? Hawaii five-o

Tónlistar-maður/Hljómsveit? Macklemore

Matur? Kj ú l l a r é t t -i rn ir hennar mömmu klikka sjaldan

Drykkur? Hreinn appelsínusafi

Leikari/Leik-kona? Mark Wahlberg

Fatabúð? River Island

Vefsíða? Facebook

Bók? Suarez - l í f m i t t e ð a Zlatan bókin

Besta:

Baldur Kristjánsson, Svala Björgvinsdóttir,Sigríður Baldursdóttir,Sif Baldursdóttir,Björgvin Rúnar Baldursson, Erla Þórisdóttir,María Erla Pálsdóttir,

Ástkær móðir, tengdamóðir og amma,

Guðbjörg (Bubba) Þórhallsdóttir,Aðalgötu 1, Keflavík,

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 12. febrúar.

Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hjartans þakkir til starfsfólks D-deildar og heimahjúkrunar á Heilbrigðis-

stofnun Suðurnesja fyrir góða umönnun og stuðning.

Rakel Ketilsdóttir, Guðmundur Björnsson,Bergþóra Karen Ketilsdóttir, Þorsteinn Ingi Sigfússon,barnabörn og langömmubörn.

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

Bergþóra Heiðrún Guðlaugsdóttir,frá Þverá, Norðurárdal,

áður til heimilis að Heiðarbóli 57,lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi, Reykjanesbæ, 25. febrúar.

Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 12. mars kl. 13:00.

■■ Tómas Knútsson skrifar:

Ég á mér draum! Og kannski margir fleiri

Page 17: 09 tbl 2015
Page 18: 09 tbl 2015

18 fimmtudagurinn 5. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-íþróttir pósturu [email protected]

Kristján Guðmundsson, þjálfari kar-laliðs Keflavíkur, lítur björtum augum

á keppnistímabilið sem er framundan í Pepsi-deildinni. Áherslubreytingar hafa verið gerðar á þjálfun liðsins í vetur og útihlaupin eru ekki á dagskrá lengur og að-eins unnið með bolta í þolþjálfunni. Leik-mannamálin eru enn í vinnslu en Krist-ján telur að íslensk félagslið séu ekki nógu framsýn þegar kemur að uppbyggingu sinna félagsliða.

Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið? – áherslur og annað sem því fylgir? „Undirbúningstímabilið hefur gengur vel. Við fórum aðeins breytta leið þetta árið og tókum aðeins lengra frí strax eftir að mótinu lauk s.l. haust. Það var því minna um frí yfir hátíðirnar – og þolþjálfuninni er stýrt með öðrum hætti en áður. Engin útihlaup og öll hlaup án bolta eru farin út. Öll þol-þjálfun fer fram inni á fótboltavellinum við að spila leikinn sjálfan á mismunandi stórum svæðum, tímalengd, fjölda leikmanna inni á vellinum í senn, mismunandi hvíldir á milli leikja o.s.frv. Strákarnir hafa tekið mjög vel í þetta þrátt fyrir að fyrir marga þeirra er þetta algerlega nýtt.“

Hvernig metur þú stöðuna á liðinu fyrir átökin í Pepsideildinni? „Staðan á liðinu er góð. Það eru engin sér-stök meiðsli á leikmönnum sem um getur sem þýðir að við getum spilað leikina okkar á þeim leikmönnum sem mest mun mæða á í sumar. Alexander Magnússon er að vísu að koma til baka baka eftir hnéaðgerðina en hann lítur vel út og verður kominn á fljúg-andi ferð fyrr en varir. Markmiðin í fyrra voru að bæta í frá fyrri árum, vera hærra í töflunni í lok móts og hrista frá okkur fall-drauginn en jafnframt minna á okkur í leið-inni. Það tókst fyrir utan það að drauginn var erfitt að setja niður. Í ár viljum við halda áfram að láta minna á okkur og ljúka mótinu hærra í töflunni en undanfarin ár. Undan-farin ár hafa kennt okkur að við þurfum líklega aðeins stærri leikmannahóp til að mæta afföllum sem vilja verða við meiðsli eða annað.“

Hvernig er staðan á leikmannamálunum og er liðsstyrkur í kortunum? „Við þurfum að bæta við okkur eins og þremur fullvöxnum leikmönnum fyrir tíma-bilið. Til þess að bæði fylla í þau skörð sem höggvin eru í leikmannahópinn frá í fyrra

sem og að hjálpa okkur í að þróa og þroska þá ungu leikmenn sem æfa með meistara-flokknum. Við erum að vinna í þessum málum öllum stundum, það eru margir leikmenn erlendis frá í boði. Það er eins og að ganga um jarðsprengjusvæði að fara um þann akur og þurfum við að halda vöku okkar þar þegar ákveðið er hvaða leikmenn á að taka til landsins. Innanlandsmarkaður-inn er aftur á móti mjög þröngur en þar þarf jafnframt að taka klókar ákvarðanir. Við erum nú þegar búnir að gera samkomulag við spænskan markvörð og mun hann vinna í markmannsstöðunni í samkeppni og sam-vinnu við Sindra Kristin.“

Þín tilfinning fyrir Pepsi-deildinni í sumar?„Það er gjá á milli þeirra liða sem ná í tekjur frá UEFA, ekki bara á Íslandi heldur einnig í flest öllum öðrum deildum í Evrópu. Þetta hefur gerst mjög hratt hér á Íslandi seinustu ár og athyglisvert er að skoða hversu marga erlenda leikmenn liðin sem ætla sér Evrópu-sæti í ár munu ná sér í til þess eins að tryggja Evrópuveltuna. Þær tölur sem rúlla í gegnum reikningana hjá liðunum sem hafa reglulega verið í efstu sætum deildarinnar seinustu ár eru óþægilega mikið hærri en margra þeirra

liða sem eiga að keppa við þau á samkeppnis-grundvelli úti á knattspyrnuvellinum. Fyrir þau lið sem ekki hafa aðgang að þess háttar tölum er mikilvægt að standa vel að barna og unglingaþjálfun og spara hvergi til þar til þess að koma leikmönnum upp í mfl. fé-laganna og treysta á sölu leikmanns erlendis kannski annað hvert ár. Jafnframt þurfa þessi sömu lið að ná að vera skrefinu á undan í ein-hverjum af þeim þáttum sem snúa að þjálfun og þroska knattspyrnuliðs. Fylgjast vel með nýjabruminu og vera óhrædd við að prófa nýjar og þroskandi leiðir við þjálfun til að ná þessu örlitla forskoti sem þarf. Við höfum tekið þau skref t.d. með breyttri þolþjálfun hjá liðinu okkar. Annað sem virðist fylgja þessu mikla kapphlaupi um UEFA tekjur og titlatog er hversu skammt of mörg félög hugsa. Það er undantekning að finna lið sem hugsar eitthvað fram í tímann með liðið sitt eða leikmannahóp, oft er ekki hugsað lengra en fram að næsta leik í deildabikar! Auðvitað viljum við alltaf vinna næsta leik en ef engin framtíðarstefna er t.d. í leikmannamálum fé-laga þá kemur ansi fljótt að þeim tímapunkti að enn erfiðara verður fyrir liðin að vinna einmitt þennan næsta leik,“ sagði Kristján Guðmundsson.

Útihlaupin úr sögunnihjá Keflavík

■■ Kristján Guðmundsson þjálfari er óhræddur við að gera breytingar í þjálfunaraðferðum liðsins

hluti af Bygma

GERÐU GÓÐ KAUP allt fínt fyrir páska!

Harðparket Eurohome NatureDökkur eikarplanki - líflegt útlitFasaður hringinnBorðastærð 1.285 x 182 mm, 8 mm þykkt147110

2.690 kr/m2

smella5G 15

á r aá b y r g ð

265

HVER HILLA

Hillurekki Strong 265 Galva Stærð: 200x120x50 cmLitur: Galv5803675

Impra veggmálning 10 ltr Mött veggmálningGljástig 10, litur hvítur7119964

8.995 kr

120 cm

Strong 265

3.945 kr

ódýrt

Veggmálning

HandlaugartækiDamixa Space.8000850

74.900 kr

BlástursofnEOB 3311AOXStál. 74 ltr, orkunýting A, kjöthitamælir.1830202

Þurrkari EDC1072LDW 7kg.1805568

69.900 kr

7 kg

Þurrkari

Þvottavél EWP1474TDW 7kg. 1400 sn1805658

74.290 kr

7 kg, 1400 sn

Þvottavél

Lady Pure Color 3 ltr 7122040-53

ALVEG MÖTT MÁLNINGEIN HEITASTA

MÁLNINGIN Í DAG!

8.995 kr

3.947 kr

Hleðsluborvél

14,4V

5245317

Page 19: 09 tbl 2015

Mottumars og sultusala til fjáröflunar– fólk hvatt til að setja upp bláa lýsingu

■■ Krabbameinsfélag Suðurnesja með fjáröflun 6. og 7. mars nk.:

Marsmánuður – Mottumars er mánuður árvekni- og fjáröflun-arátaks Krabbameinsfélagsins gegn krabbameinum hjá körlum. Krabbameinsfélag Suðurnesja mun taka virkan þátt í þessu átaki með ýmsu móti. Til fjáröflunar verða ýmsir munir boðnir til sölu, m.a. heimalöguð chilisulta og rabar-bara- og gráfíkjusulta. Einnig munum við selja muni frá Raven design sem eru sérstaklega hann-aðir fyrir átakið.Föstudaginn 6. mars verðum við að selja í verslunarmiðstöðinni Kross-móa í Reykjanesbæ eftir kl. 16:00 og laugardaginn 7. mars verðum við fyrir framan Bónus frá kl 11:00. Allur ágóði af því sem við seljum hér á svæðinu rennur beint til Krabbameinsfélags Suðurnesja.Sunnudaginn 22. mars kl 20:00 verður messa í Keflavíkurkirkju til-einkuð körlum og krabbameinum. Sr. Sigfús B. Ingvason og Sr. Sig-urður Grétar Sigurðsson þjóna. Kór Keflavíkurkirkju, undir stjórn Arn-órs B. Vilbergssonar, flytur tónlist. Ólafur Gunnlaugsson mun segja frá reynslu sinni af því að greinast með krabbamein. Eins og í fyrra verður kirkjan lýst blá í tilefni af átakinu.

Gaman væri ef Suðurnesjamenn færu í fararbroddi fyrir því að gera körlunum álíka hátt undir höfði og konunum og láta bláa litinn loga jafn skært og bleika litinn í október.Starfsemi félagsins gengur vel og boðið hefur verið upp á ýmsar nýj-ungar í vetur. Má þar nefna að KS og lögfræðistofan LS Legal gerðu með sér samstarfssamning sem felur í sér fría lögfræðiráðgjöf fyrir skjólstæðinga félagsins. KS býður þeim sem greinast með krabba-mein fría tíma hjá félagsráðgjafa sem veitir ráðgjöf um félagsleg réttindamál í veikindum. Áfram er frítt í jóga hjá Ágústu fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein. Jógað er í OM setrinu að Hafnar-götu 57, Reykjanesbæ mánudaga og miðvikudaga kl 10:00. Nú eru í gangi tvö námskeið á vegum fé-lagsins. Qi gong námskeið (Kín-verskar æfingar), leiðbeinandi er Þóra Halldórsdóttir og Hugræn at-ferlismeðferð (HAM), leiðbeinandi er Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi. Fullt er á bæði nám-skeiðin.

(Frétt frá Krabbameinsfélaginu.) ATVINNA

Smiðjuvöllum 5 a // 230 Reykjanesbær // Sími: 578-6070

AFGREIÐSLA OG MEÐFERÐ SKJALA Frágangur á fylgiskjölum í bókhald, almenn þjónusta við viðskiptavini fyrirtækisins, kennsla á tæki og frágangur á skjölum.

Hæfniskröfur: Gott er að viðkomandi hafi reynslu af skjala-vinnslu, rík þjónustulund, tölvukunnátta, tungumálakunnátta, bílpróf og áhugi á ferðaþjónustu. Lágmarks aldur er 25 ár.

AFGREIÐSLAStarfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins, kennslu á tæki og skjalafrágang.

Hæfniskröfur: Rík þjónustulund, tölvukunnáta, tungumálakunnáta, bílpróf og áhugi á ferðaþjónustu. Lágmarks aldur er 20 ár.

ÞRIF OG VIÐHALD HÚSBÍLAVið leitum eftir einstaklingum í þrif og viðhald bifreiða fyrirtækisins.

HæfniskröfurBílpróf, góð þjónustulund.

McRent Iceland húsbílaleiga auglýsir eftirfarandi störf.

SKJALAVINNSLAFrágangur á fylgiskjölum í bókhald. Heilsárs hlutastarf.

HÆFNISKRÖFUR: Gott er að viðkomandi hafi reynslu af skjalavinnslu, rík þjónustulund, tölvukunnátta, tungumálakunnátta, bílpróf og áhugi á ferðaþjónustu. Lágmarks aldur er 25 ár.

AFGREIÐSLAStarfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins, kennslu á tæki og skjalafrágang.

HÆFNISKRÖFUR: Rík þjónustulund, tölvukunná-ta, tungumálakunnáta, bílpróf og áhugi á ferðaþjónustu. Lágmarks aldur er 20 ár.

ÞRIF OG VIÐHALD HÚSBÍLAVið leitum eftir einstakling-um í þrif og viðhald bifreiða fyrirtækisins.

HÆFNISKRÖFURBílpróf, góð þjónustulund, þægileg framkoma, dugnaður og nákvæmni.

Við sækjumst eftir duglegu fólki af báðum kynjum í skemmtileg og krefjandi störf, frá seinni hluta apríl fram til loka september 2015. Ítarleg kennsla fer fram áður en starfsfólk hefur störf

að starfsstöð okkar, Smiðjuvöllum 5 a, Reykjanesbæ.

Umsókn sendist með upplýsingum um starfsferil (CV) og mynd á [email protected]. Umsóknin skal berast fyrir 20. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 578 6070.

Við bjóðum fjölbreytileg og skemmtileg störf í spennandi umhverfi flugheimsins.

IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf hjá fyrirtækinu.

Um er að ræða störf í hlaðdeild og cateringu.

Mikil áhersla er lögð hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi, sveigjanleika og árvekni. Unnið er á vöktum.

HLAÐDEILD Lágmarksaldur 19 ár, almenn ökuréttindi, vinnuvélaréttindi æskileg, íslensku- og/eða enskukunnátta. Ráðningartími er frá byrjun maí og út september en möguleiki á lengri starfstíma.

CATERING Starfið felst m.a. í útkeyrslu og annarri tengdri þjónustu sem fer um borð í flugvélar. Aldurstakmark er 20 ára, almenn ökuréttindi, vinnuvélaréttindi æskileg, íslensku- og/eða enskukunnátta.

STÖRF HJÁ IGS 2015

Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS sjá www.igs.isfyrir 27. mars 2015.

UNAÐSDAGAR Á STYKKISHÓLMI

Dvöl frá mánudeginum 13. apríl til föstudagsins 17. apríl.Verð fyrir gistingu og fullt fæði

og skemmtiatriði á kvöldin er kr. 39.900 á mann.Rútauferðir kr. 4000

Boðið er upp á dagskrá allan daginn gegn gjaldi.

Rútan fer frá eftirtöldum stöðum:Auðarstofu, Garði, kl.10:00.

Miðhúsum, Sandgerði, kl.10:30.Nesvöllum, Reykjanesbæ, kl. 11:00.

Tekið er á móti pöntunum fyrir 27. mars.

Frekari upplýsingar hjá nefndinni og skráning í ferðina:Örn, Vogum, 846-7334

Lýdía, Sandgerði, 423-7604Brynja, Garði, 422-7177

Bjarney, Reykjanesbæ, 421-1961

SPORTSMÆLKI■X Knattspyrnudeild Keflavíkur

og United Silicon undirrituðu á dögunum styrktarsamning til tveggja ára sem gerir fyrirtækið að einum stærsta styrktaraðila deildar-innar. Merki USi mun því prýða alla keppnisbúninga Keflavíkurliðsins á samningstímanum

■X Afekshópur ÍRB keppti nýverið á Euromeet, sterku alþjóðlegu sund-móti sem fram fór í Lúxemburg. Þátttaka í mótinu er mikilvæg fyrir sund-fólk til að öðlast reynslu á stærra sviði og mæla sig við sundfólk á heims-mælikvarða. 800 sundmenn frá 26 löndum tóku þátt í Euromeet og náði Stefanía Sigurþórsdóttir í bronsverðlaun í 200m bringusundi en þónokkrir sundmenn frá félaginu náðu inná topp 10 listann í sínum aldursflokki í sínum bestu greinum.

■X Nettómótið sívinsæla fer fram í Reykja-nesbæ um helgina. Mótið hefur fyrir margt löngu stimplað sig inn sem stærsta yngri flokka mót landsins en 23 félög og 192 keppnislið munu leika á 13 völlum á mótinu í ár. Mótið er ætlað iðkendum í 5. bekk og yngri og er aðalmarkmið mótsins að hafa gaman og njóta þess að vera með. Margt skemmtilegt verður í boði fyrir keppendur annað en að spila körfubolta því bíóferð, pizzaveisla og kvöldvaka er orðið að föstum liðum á Nettómóti.

Page 20: 09 tbl 2015

vf.isvf.is

-mundi„Draumaprinsinn“ var þá bara í

stuði í flugstöðinni!

VIKAN Á VEFNUM

Dúnna pæjaEr að horfa á Kast-ljós...og mér finnst að það eigi að vera mjög harðar

refsingar við því að vekja tálvon og hafa fé af ráðþrota dauð-vona fólki...samviskulaus ógeð þessir sölumenn.

Elín Rós Bjarnad óttirHFrumraun mín sem forseti bæjar-

stjórnar í dag. Góðan bata Anna Lóa mín. Treysti á að þú verðir með mér í anda.

Silja Dögg Gunn-arsdóttirFréttatíminn: Stormur á morgun. Eldgosi að ljúka.

Jarðskjálftahrina. Snjóflóða-hætta á Vestfjörðum. Ó, þú

brjálaða land, ég elska þig!

GuðbergurReynisson

Ég veit ekki hvernig ég fékk þig til að samþykkja þetta ástin mín en það er satt þetta er besti staðurinn ;) Arnbjörg Elsa Hannesdóttir.

FIMMTUDAGINN 5. MARS • 9. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR

Lögreglan á Suðurnesjum var ný-verið kvödd að einum landganga í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna tösku sem verið var að ferma um um borð í flugvél á leið til London. Þótti taskan sú arna láta heldur grunsamlega því hún var öll á iði. Lögreglumenn höfðu upp á eig-anda hennar, erlendri konu, og veitti hún leyfi til þess að taskan yrði opnuð. Gaf þá að líta tæki sem konur hafa stundum við höndina sér til yndisauka, svokallaðan titr-ara, sem hrokkið hafði í gang. Var slökkt á tækinu og taskan sett um borð að því búnu.Atvik af svipuðu tagi eiga sér alltaf öðru hverju stað á Keflavíkurflug-velli og er flugfarþegum bent á að ganga þannig frá rafmagnstækjum, svo sem rakvélum, tannburstum og öðru slíku að þau geti ekki hrokkið í gang við minnsta núning eða högg.

Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf , það breytist ekki!

Sími 412 2500 - [email protected] - www.murbudin.is

Deka Meistaralakk 70 Akrýllakk. hvítt. 1 líter

2.195

LF Veggspartl 0,5 litrar

945

Deka Gólfmálning grá 3 lítrar

4.995Deka Project grunnur. 10 lítrar

6.295

Mako málningar-rúlla og bakki 25cm

1.295

Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16

Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18

Deka Pro 10Innimálning. 10 lítrar

6.995

DekaCryl 7 Innimálning. 10 lítrar

5.995Veggspartl medium,10 lítrar

4.595

Mako pensill 50mm

275

Aqua 25 innimálning á böð4 lítrar

4.795

MÁLNINGARDAGARaf MÚRBÚÐARVERÐI

Scala málarakýtti

495

20m2 málningar-yfirbreiðsla

225

Bakki, 25 cm rúlla, grind og pensill. - Sett

1.695

Mako málaramotta 1x3 metrar

1.145

Málningarpappi 20mx80cm

795

SMIG Med veggspartl 5 kg.

1.590

20%afsláttur

1.272

1.036

636

180

916

396220

1.756

3.996

5.5964.7963.836

1.356

3.676

7565.036

TIL 14. MARS

Lögregla kvödd til vegna titrara

Fimleikar Leikhúslíf Ferðamál Loðnuhrogn Sjónvarp Víkurfrétta

á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30– og í HD á vf.is þegar þér hentar!