14
Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið SKIPULAGSFULLTRÚI BORGARTÚN 12-14 105 REYKJAVÍK SÍMI 411 1111 BRÉFASÍMI 411 3071 NETFANG: [email protected] Elliðaárvogur-Ártúnshöfði Hugmyndasamkeppni um rammaskipulag Drög að forsögn að samkeppnislýsingu vegna rammaskipulags/unnin fyrir forval 20. nóvember 2014 Reykjavíkurborg í samstarfi við Arkitektafélag Íslands

20nov2014keppnislys drog

Embed Size (px)

DESCRIPTION

http://hugmyndasamkeppni.is/images/skjalasafn/20nov2014keppnislys_drog.pdf

Citation preview

Page 1: 20nov2014keppnislys drog

Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið

SKIPULAGSFULLTRÚI

BORGARTÚN 12-14 105 REYKJAVÍK

SÍMI 411 1111 BRÉFASÍMI 411 3071

NETFANG: [email protected]

Elliðaárvogur-Ártúnshöfði Hugmyndasamkeppni um rammaskipulag

Drög að forsögn að samkeppnislýsingu vegna rammaskipulags/unnin fyrir forval

20. nóvember 2014

Reykjavíkurborg í samstarfi við Arkitektafélag Íslands

Page 2: 20nov2014keppnislys drog

Efnisyfirlit

1 Aðdragandi 3

1.1 Almennt um svæðið -Inngangur 3

1.2 Forsaga 4

1.3 Skipulagsleg staða svæðisins eins og hús er sett fram í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030: 5

1.4 Vogabyggð-svæði 1 Rammaskipulag 9

2 Leiðarljós og markmið 11

2.1 Leiðarljós: 11

2.2 Megin markmið: 11

3 Tilhögun samkeppni 12

3.1 Almennt um tilhögun 12

3.2 Lykildagsetningar (áætlun) 12

3.3 Forval 12

3.4 Keppnisgögn 13

3.5 Skipun dómnefndar 14

3.6 Skil á gögnum 14

3.7 Fyrirspurnir og skil 14

Page 3: 20nov2014keppnislys drog

bls. 3

1 Aðdragandi

1.1 Almennt um svæðið -Inngangur

Reykjavíkurborg stefnir að því að efna til hugmyndasamkeppni um rammaskipulag svæðis

sem afmarkast af Miklubraut/Vesturlandsvegi til suðurs Elliðaárvogi til vesturs, Grafarvogi til

norðurs og Gullinbrú til austurs og nefnt hefur verið “Elliðaárvogur/Höfðar”, samkvæmt

forsögn þessari og gildandi samkeppnisreglum Arkitektafélags Ísland.

Svæðið sem um ræðir er innan punktalínunnar. Svæðinu öllu er í rammahluta Aðalskipulags

Reykjavíkur 2010-2030 skipt upp í fjögur svæði (sjá mynd bls 8). Hugmyndasamkeppni var

haldin um rammaskipulag svæðis 1 haustið 2013 í framhaldi af því hófst vinna við

deiliskipulagsgerð þess.

Svæði 2, 3 og 4 eru þau svæði sem eru hluti af hugmyndasamkeppninni. Þessi uppskipting í

svæði er það sem miðað er við í forsendugreiningu fyrir verkefnið, ekki ber að líta á hana sem

ófrávíkjanlega heldur er það hluti verkefnisins að horfa til uppskiptingar svæðisins í svæði

með tilliti til meðal annars raunhæfni endurþróunar/-uppbyggingar.

Ætlunin er að stækka Bryggjuhverfið og endurskoða skipulag svæðisins á Ártúnshöfðanum

þannig að það geti þróast og öðlast nýtt hlutverk sem blönduð byggð búsetu og atvinnu í

samræmi við tillögu að Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Fjöldi ólíkra hagsmunaaðila er á

svæðinu, meðal annars hvað eignarhald varðar.

Page 4: 20nov2014keppnislys drog

bls. 4

Svæðið sem áður var í útjaðri byggðar er nú miðsvæðis í Reykjavík. Á svæðinu sem er að

hluta til landfyllingar hafa verið iðnaðarfyrirtæki, verkstæði og geymslur gegnum tíðina og

enn er slík starfsemi víða. Fyrirtækin sem starfað hafa á svæðinu eru fá og stór við

Elliðaárvogin og fleiri og smærri uppi á Ártúnshöfðanum.

1.2 Forsaga

Svæðið hefur þjónað hlutverki sínu í núverandi mynd um áratuga skeið og er nú kominn tími

til að gefa því endurnýjað hlutverk í takt við óskir og þarfir borgarbúa fyrir fleiri íbúðir og

stefnu borgaryfirvalda um góða nýtingu lands og þéttingu byggða. Endurmótun svæðisins

hefur verið til umræðu um allnokkurt skeið m.a. var unnið við gerð rammaskipulags á

árunum 2006-2010 sú vinna skilaði sér inn í aðalskipulag sem rammahluti þess.

Hluti myndar sem sýnir lykil þróunarsvæði Reykjavíkur til langrar framtíðar.

Svæðið er eitt af lykil uppbyggingarsvæðum í borginni og gegnir stóru hlutverki í þeim

markmiðum AR að þétta byggð í borginni m.a. þess vegna þykir tímabært nú að hefja vinnu

við endurþróun þess, en fyrirsjáanlegt er að verkefnið er í heild sinni langtímaverkefni.

Skipulagsyfirvöldum hefur borist nokkur erindi þar sem þess er farið á leit að hafist verði

handa við þessa vinnu. Þessir aðilar sem og aðrir hagsmunaðilar verða upplýstir um

framvindu verkefnisins eða tengdir því eftir atvikum. Ekki liggur endanlega fyrir hvernig

samráði/samvinnu við hagsmunaaðila/lóðarhafa verður háttað.

Með bókun í Umhverfis- og skipulagsráði þann 14. maí 2014 hófst formlega vinna að

undirbúningi verkefnisins; bókunin var eftirfarandi:

“Umhverfis- og skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við undirbúning að

hugmyndasamkeppni um rammaskipulag Ártúnshöfða á svæði sem afmarkast af

Miklubraut til suðurs Elliðaárvogi til vesturs, Grafarvogi til norðurs og Gullinbrú til

austurs.”

Page 5: 20nov2014keppnislys drog

bls. 5

1.3 Skipulagsleg staða svæðisins eins og hús er sett fram í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030:

Skipulagssvæðið er eitt af þremur lykilsvæðum sem sett eru fram í Aðalskipulagi sem

valkostur varðandi vöxt og þróun byggðar í Reykjavík. Á þessum svæðum er reiknað með að

rísi þétt blönduð byggð sem fellur að markmiðum um sjálfbæra og hagkvæma borgarþróun.

Hluti þéttbýlisuppdráttar aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030

Svæðið sem er nokkuð umfangsmikið inniber mismunandi landnotkunarskilgreiningar eftir

staðsetningu, þær eru íbúðarsvæði Elliðaárvogur l og Elliðaárvogur ll, miðsvæði M4a og

athafnasvæði AT1, um þessi svæði segir í landnotkunarkafla aðalskipulags:

„Íbúðarbyggð (ÍB)

Svæði fyrir íbúðarhúsnæði og nærþjónustu sem því tengist, auk minniháttar

atvinnustarfsemi sem samrýmist búsetu eftir því sem nánar er kveðið á um í stefnu

skipulagsins. (gr. 6.2.a. í skipulagsreglugerð).

Á íbúðarsvæðum er almennt gert ráð fyrir íbúðarbyggð ásamt tilheyrandi nærþjónustu.*

Helstu þjónustukjarnar og stofnanir og útivistarsvæði eru afmörkuð sérstaklega á

uppdrætti.

Innan skilgreindra íbúðarsvæða er mögulegt að gera ráð fyrir fjölbreyttri atvinnustarfsemi

enda sé um að ræða þrifalega starfsemi sem ekki veldur ónæði, sbr. nánari stefna í

Skipulagi borgarhluta og/eða í hverfis- og deiliskipulagi.

Fjölbreyttari landnotkun er ennfremur almennt heimil í íbúðarbyggð sem fellur undir

skilgreininguna aðalgata eða nærþjónustukjarnar.“

Page 6: 20nov2014keppnislys drog

bls. 6

„M4. Höfðar-Keldur (M4a,4b,4c, 4d).

Fyrst og fremst gert ráð fyrir rýmisfrekum verslunum, heildsölum og skrifstofum. Léttur iðnaður og verkstæði eru leyfð. Að öllu jöfnu er ekki gert ráð fyrir íbúðarhúsnæði, gistiheimilum eða hótelum, nema það sé sérstaklega tilgreint í deiliskipulagi. Á svæði 4c

(Keldur), næst Húsahverfi er þó gert ráð fyrir íbúðarbyggð. Gera skal grein fyrir nýjum matvöruverslunum í deiliskipulagi. *Matvöruverslun merkir hér verslanir sem selja neysluvörur til daglegra þarfa í öllum helstu vöruflokkum. Minni dagvöruverslanir s.s. bakarí, fiskbúðir, kjötbúðir og aðrar ferskvöruverslanir eru hér undanskyldar.“ „AT1, AT2. Hálsar, Höfðar; AT3. Gylfaflöt, Smálönd, Norðlingaholt

Fyrst og fremst léttur iðnaður, sem ekki hefur í för með sér mengun, verkstæði, umboðs- og heildverslanir, skrifstofur tengdar umræddri starfsemi, þjónusta og rýmisfrek verslun, svo sem bílasölur.“

Auk þess er svæðið skilgreint sem þróunarsvæði Þ87, um það segir í kaflanum um

borgarhluta 8 Grafarvogur:

Þ87 Elliðaárvogur-Ártúnshöfði. Íbúðarbyggð, miðsvæði

(M4a) og svæði fyrir samfélagsþjónustu. Svæðið í heild er um 115 ha svæði, þar af 5 ha ný

landfylling. Í Bryggjuhverfinu eru fastmótuð byggð en aðrir hlutar svæðisins verða í þróun

og uppbyggingu. Einkum er gert ráð fyrir íbúðarbyggð næst Elliðaárvoginum og

Grafarvogi, en blöndu íbúða og skrifstofa, verslana, þjónustu og létts iðnaðar á syðri hluta

svæðisins og næst aðalgötum. Alls er gert ráð fyrir um 2.800 nýjum íbúðum og 100

þúsund m2 atvinnuhúsnæðis (nettóaukning). Hluti aukningar atvinnuhúsnæðis er að

skipulagstímabili loknu. Áhersla er á 2-5 hæða samfellda byggð og borgarmiðað

gatnakerfi. Sjá nánar um uppbyggingu og þróun svæðis í kaflanum Elliðaárvogur (sjá

Borgin við Sundin).

Hluti borgarhlutakorts

Page 7: 20nov2014keppnislys drog

bls. 7

Í kaflanum Borgin við Sundin er gerð frekari grein fyrir helstu uppbyggingarsvæðum

íbúðarbyggðar og blandaðrar byggðar, þar segir m.a. eftirfarandi um svæðið:

Hluti myndar 13. Íbúðarbyggð og blönduð byggð 2010-2030.

Page 8: 20nov2014keppnislys drog

bls. 8

Þessi kafli byggir m.a. á drögum að rammaskipulagi sem Kanon arkitektar og VSÓ unnu fyrir

Reykjavíkurborg á árunum 2006-2010.

Þar er einnig sett fram stefna og markmið um Þróunarás frá Örfirisey í vestri að Keldum í

austri en tilvist hans er afar mikilvæg á þessu svæði. Markmið um hann eru:

Page 9: 20nov2014keppnislys drog

bls. 9

1.4 Vogabyggð-svæði 1 Rammaskipulag

Á árinu 2013 var haldið forval fyrir hugmyndasamkeppni um reit 1, Vogabyggð. Um

sambærilegt ferli er að ræða núna varðandi þessa samkeppni, þ.e. forval og val á fimm

aðilum til að vinna og skila inn tillögum, að undangengnu forvali. Í tilfelli Vogabyggðar þá

voru tvær tillögur valdar sem vinningstillögur það voru tillögur Teiknistofunnar Traðar og

jvantspijker+Felixx frá Hollandi. Þessir aðilar voru síðan ráðnir í samstarf til að vinna

rammaskipulag fyrir svæði Vogabyggðar.

Rammaskipulagið var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði 9. apríl 2014 og fól ráðið þá

embætti skipulagsfulltrúa að hefja undirbúning að gerð deiliskipulags fyrir svæðið í samvinnu

við hagsmunaðila. Núna stendur yfir vinna við þrjá af fjórum deiliskipulagsreitum innan

skipulagssvæðis fyrir Vogabyggð, gert er ráð fyrir að kynna auglýstar tillögur fyrir almenningi

fyrir áramót 2014.

Tillögur arkitektastofanna tveggja

Sameiginleg tillaga arkitektastofanna tveggja að rammaskipulagi Vogahverfis.

Page 10: 20nov2014keppnislys drog

bls. 10

Eftirfarandi er tilvísun í drög að deiliskipulagi fyrir Vogabyggð þar sem fjallað er um grunnskólafyrirkomulag svæðisins og aðliggjandi svæða. „Grunnskóli

Áætlaður fjöldi grunnskólabarna í Vogabyggð er 300-670. Gert er ráð fyrir að grunnskóli fyrir

nemendur í 1.-7. bekk verði starfræktur við Naustavog hjá smábátahöfn Snarfara. Safnskóli

fyrir nemendur í 8.-10. bekk er fyrirhugaður við Sævarhöfða, norðan Geirsnefs. Góðar göngu-

og hjólastígatengingar eru við skólasvæðin.“ (sjá mynd hér að neðan)

Jafnframt er reiknað með grunnskóla fyrir nemendur í 1.-7. bekk á Ártúnshöfðanum.

Bláu punktarnir merkja grunnskóla fyrir nemendur í 1.-7. bekk og sá rauði safnskóla fyrir

nemendur 8.-10. bekkjar.

Hægt er að kynna sér rammaskipulagið á vefsvæðinu hér að neðan, sjá PDF skjal.

www.reykjavik.is/vogabyggd

Page 11: 20nov2014keppnislys drog

bls. 11

2 Leiðarljós og markmið

2.1 Leiðarljós:

Svæðinu er skipt í þrjú meginsvæði í samræmi við rammahluta AR. Eitt sem er áframhald

byggðarinnar í Bryggjuhverfi og tvö sem eru endurþróun á athafna-/iðnaðarsvæðinu við

Elliðaárvoginn og á Ártúnshöfðanum.

Leiðarljós samkeppninnar:

► Samfélag: Að skapa heildstæðar einingar sem fjarlægja hindranir og hvetja til jákvæðra

samskipta á milli mismunandi aldurs- og þjóðfélagshópa.

► Gæði byggðar: Að skipulag byggðar myndi umgjörð um lifandi og aðlaðandi staði sem ýti

undir aukin og gagnkvæm samskipti fólks og umhverfis.

► Samgöngur: Að verslun og þjónusta sé í göngufjarlægð frá öllum íbúum viðkomandi

skipulagssvæðis. Gangandi og hjólandi umferð ásamt almenningssamgöngum verði sett í

forgang.

► Vistkerfi og minjar: Að tryggja náttúrulegan fjölbreytileika lands, lífríkis, og

menningarminja með markvissri verndun og viðhaldi.

► Orka og auðlindir: Stuðla skal að sjálfbærari nýtingu orku og auðlinda svo sem vatns,

rafmagns og lands. Auka kolefnisbindingu með gróðri og hlutdeild endurvinnslu með

markvissri úrgangsstjórnun.

► Mannvirki: Að taka tilliti til framþróunar í vistvænni byggingartækni og mannvirkjagerð

sem verði skilyrtur hluti af framkvæmda- og byggingarskilmálum.

► Náttúruvá: Gera viðeigandi ráðstafanir og marka stefnu til að lágmarka hættu af völdum

loftslagsbreytinga á lágsvæðum.

2.2 Megin markmið:

► Að leita vistvænna skipulagslausna fyrir svæðið, sem er lykilþróunarsvæði í aðalskipulagi

Reykjavíkur 2010-2030.

► Að koma með framsæknar hugmyndir um fyrirkomulag nýrrar blandaðrar byggðar þar

sem lögð er áhersla á heildstæðar götumyndir og borgarmiðað gatnakerfi.

► Að stuðla að góðu samspili fjölbreyttra almenningsrýma, bygginga og nærumhverfis sem

stuðlar að fjölbreyttu og lífandi mannlífi.

► Að nýta þær byggingar sem fyrir eru, í nýju og/eða breyttu samhengi, eftir því sem kostur

er og við á.

► Að virðing sé borin fyrir umhverfi og auðlindum og nærliggjandi náttúrusvæðum.

► Að huga að nánasta umhverfi svæðisins og tengingum við það bæði byggð og náttúru.

► Að sérstaklega sé hugað að fyrirhuguðum þróunar- og samgönguás sem gengur frá

Vogabyggð gegnum svæðið, frá Örfirisey í vestri til Keldna í austri.

► Að lögð sé áhersla á vistvænt samgöngukerfi innan svæðisins og tengingum við það.

► Að sýna fram á mögulega áfangaskiptingu svæðisins fyrir gerð deiliskipulags.

Page 12: 20nov2014keppnislys drog

bls. 12

3 Tilhögun samkeppni

3.1 Almennt um tilhögun

Stefnt er að því að samkeppnin verði lokuð hugmyndasamkeppni um rammaskipulag og að

valdir verði fimm aðilar að undangengnu forvali. Allir þátttakendur fá greitt fyrir tillögur sínar

kr. 1.500.000 auk vsk. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að nýta hverja tillögu að hluta eða í

heild. Greitt verður aukalega kr. 1.000.000 auk vsk. fyrir verðlaunatillögu. Áframhaldandi

skipulagsvinna á svæðinu verður ekki bundin við þátttakendur eða verðlaunahafa eingöngu.

Keppnin stendur yfir í 2 mánuði frá afhendingu gagna til skila. Allar tillögur verða til sýnis

almenningi meðan dómnefnd er að störfum. Nafnleynd hvílir á framlögðum tillögum þar til

dómnefnd hefur skilað áliti sínu. Gert er ráð fyrir að ein tillaga verði valin Verðlaunatillaga.

Allar tillögur og öll samskipti verða á íslensku. Þátttakendur fá greitt eftir að skilagögn hafa

borist og tillögur dæmdar, að því gefnu að teymið hafi unnið tillögur sínar í samræmi við

keppnislýsingu og kröfur sem lagðar hafa verið fram þar. Valin teymi fá afhent gögn og eftir

það skulu öll samskipti vera við trúnaðarmann.

3.2 Lykildagsetningar (áætlun)

Forval auglýst 22. nóvember 2014

Forvals umsóknarfrestur 08. desember 2014

Niðurstöður forvals eigi síðar en 19. desember 2014

Samkeppni hefst 09. janúar 2015

Fyrirspurnarfrestur 06. febrúar 2015

Svör við fyrirspurnum 20. febrúar 2015

Skil á gögnum 31. mars 2015

Dómnefnd lýkur störfum apríl 2015

3.3 Forval

Gerðar eru lágmarkskröfur um hæfni þátttakenda til að öðlast þátttökurétt. Gefin eru stig

fyrir þátttöku og árangur í samkeppnum á liðnum árum. Þeir sem flest stig hafa eru valdir til

þátttöku í keppninni.

Krafa er um að þátttakendur myndi þverfaglegt teymi sérfræðinga sem samsett er af

minnst tveimur af fjórum tilgreindum fagstéttum.

Lágmarkskrafa er að þátttakandi í teymi sé arkitekt, landslagsarkitekt,

skipulagsfræðingur eða verkfræðingur.

Stigagjöf, miðast við vinnu s.l. 15 ára.

Hvert sambærilegt verkefni (þróun skipulags á byggðu svæði): 6 stig,

hámarksstigafjöldi 18 stig.

1.-3. sæti í skipulagssamkeppni: 5 stig, hámarksstigafjöldi 15 stig.

Innkaup eða viðurkenning fyrir athyglisverða tillögu skipulagssamkeppni: 5 stig,

hámarksstigafjöldi 15 stig.

1.-3. sæti í hönnunarsamkeppni: 3 stig, hámarksstigafjöldi 6 stig.

Page 13: 20nov2014keppnislys drog

bls. 13

Innkaup eða viðurkenning fyrir athyglisverða tillögu hönnunarsamkeppni: 3 stig,

hámarksstigafjöldi 6 stig.

Þátttaka í samkeppni 1 stig, hámarksstigafjöldi 5 stig.

Fylla skal inn í töflu sem er aðgengileg á uppgefnu vefsvæði í auglýsingu.

Í forvalinu er miðað er við að velja fimm umsækjendur sem uppfylla 45 stig til þátttöku í

hugmyndasamkeppninni. Ef fleiri en fimm umsækjendur uppfylla 45 stig verða tveir

stigahæstu valdir til þátttöku. Ef fleiri en tveir verða stigahæstir verður dregið um þessi tvö

efstu sæti þeirra á milli. Dregið verður um hin þrjú sætin sem eftir eru úr hópi allra

umsækjanda sem uppfylla 45 stig. Ef færri en 5 umsækjendur uppfylla 45 stig eru valdir 5

stigahæstu umsækjendurnir til þátttöku.

Forvalsnefnd skipa eftirfarandi aðilar:

Lilja Grétarsdóttir, arkitekt, verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa.

Björn Ingi Edvardsson, landslagsarkitekt, verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa

Ágústa Sveinbjörnsdóttir, arkitekt, verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa.

Arkitektafélag Íslands tilnefnir ráðgjafa úr röðum félagsmanna sinna til að fylgjast með

framkvæmd forvalsins fyrir hönd AÍ.

3.4 Keppnisgögn

Auk keppnislýsingar verður keppendum útveguð eftirtalin gögn, sem verða gerð aðgengileg á

samkeppnissvæði borgarinnar www.hugmyndasamkeppni.is

► Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, ásamt greinargerð.

► Gildandi deiliskipulagsáætlanir á svæðinu.

► Samþykkt rammaskipulag- og deiliskipulag Vogabyggðar (drög)

► Skýrsla VSÓ þar sem teknar eru saman helstu forsendur.

► Stafrænn kortagrunnur ásamt loftmynd af samkeppnissvæði.

► Gátlisti um mat á visthæfi byggðar og skipulags, fylgigagn með vinnu við hverfisskipulag.

Þess utan er bent á eftirtalin lög og reglugerðir:

► Skipulagslög nr. 123/2010.

► Lög um mannvirki nr 160/2010.

► Skipulagsreglugerð nr. 90/2013.

► Byggingarreglugerð nr. 112/2012.

► Lög um menningarminjar nr. 80/2012.

► Lög um náttúruvernd nr. 44/1999.

► Menningarstefna í mannvirkjagerð.

Page 14: 20nov2014keppnislys drog

bls. 14

3.5 Skipun dómnefndar

Stefnt er að því að fimm aðilar verði í dómnefnd og verður hún skipuð að loknu forvali.

3.6 Skil á gögnum

Stefnt er að því að skilað verði 2-4 uppdráttum í A1 með greinargerð, uppdráttum skal skila á

pappír límdum á frauð og jafnframt sem pdf á diski. Nánar verður gerð grein fyrir

framsetningu á því sem ber að skila í keppnislýsingu, svo sem mælikvörðum, grunnkortum og

sneiðingum.

3.7 Fyrirspurnir og skil

Arkitektafélag Íslands skipar trúnaðarmann keppenda. Keppni hefst þegar gögn hafa verið

afhent þeim sem eru valdir til þátttöku. Nánari upplýsingar munu verða settar fram um

fyrirspurnir og skil þegar valdir hafa verið aðilar til þátttöku.