52
FRAMTA KSS JÓÐUR Í S LANDS Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2

Framtakssjóður Íslands

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Framtakssjóður Íslands, Ársskýrsla 2012

Citation preview

Page 1: Framtakssjóður Íslands

FRAMTAKSSJÓÐURÍSLANDS

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2

Page 2: Framtakssjóður Íslands

FRAMTAKSSJÓÐURÍSLANDS

Page 3: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 1

Efnisyfirlit

Ávarp stjórnarformanns 2

Stjórn FSÍ 4

Fulltrúar FSÍ í stjórnum fyrirtækja 6

Viðburðaríkt ár að baki 10

Eignarhlutir FSÍ í félögum 11

Advania 12

Icelandair Group 16

Icelandic Group 20

N1 24

Promens 28

Vodafone 32

Ársreikningur 2012 37

Áritun óháðs endurskoðanda 38

Skýrsla stjórnar 39

Rekstrarreikningur 40

Efnahagsreikningur 41

Yf irlit um sjóðstreymi 42

Skýringar 43

GROUP

Page 4: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S2

HELSTU VERKEFNI ÁRSINS

Árið 2012 var viðburðaríkt og að sama skapi árangurs-ríkt. Í júlí 2012 var eignarhlutur Framtakssjóðsins í Plast-prenti seldur til Kvosar, móðurfélags Prentsmiðjunnar Odda, að loknu formlegu útboðsferli. Söluverðið var 206 milljónir króna. Plastprent var inni í Vestia sem FSÍ keypti af Landsbankanum seint á árinu 2010, en árið 2011 var búið að selja Húsasmiðjuna og stóran hluta af starfsemi Icelandic, sem voru einnig hluti af Vestia-fyrirtækjunum.

Framtakssjóðurinn seldi í nóvember 7% hlutafjár í Icelandair Group, alls 350 milljón hluti fyrir um 2,6 milljarða króna og rann andvirði sölunnar beint til eigenda Framtakssjóðsins í samræmi við skilmála sjóðsins. Framtakssjóðurinn samdi um mitt ár 2010 um kaup á um 30% hlut í Icelandair Group fyrir samtals um 3,6 milljarða króna. Framtakssjóður hefur selt á árinu 2011 og 2012 18% af þessum eignarhlut fyrir um 5,3 milljarða króna, en á enn 12% eignarhlut sem var að markaðsverðmæti 4,9 milljarðar króna í lok árs 2012. Þessi viðskipti hafa reynst afar arðsöm fyrir Framtakssjóðinn á sama tíma og sjóðurinn hefur verið þátttakandi í farsælli uppbyggingu Icelandair Group.

Á árinu var unnið að undirbúningi skráningar Fjar-skipta hf. (Vodafone). Í tengslum við þann undir-búning var hlutafé Fjarskipta aukið um 1,97 milljarða króna og tók Framtakssjóðurinn þátt í þeirri aukningu

að fjárhæð 1,59 milljarðar. Síðan var félagið tekið til skráningar í Kauphöll Íslands í desember og í tengslum við það seldi Framtakssjóðurinn 60% hlut sinn í fé-laginu að upphæð 6,3 milljarðar króna. Eignarhlutur Framtakssjóðsins er eftir þetta 19,7% og að verðmæti 2,15 milljarðar króna miðað við skráð markaðsgengi í lok árs 2012

Ráðist var í eina stóra fjárfestingu á árinu, en í júní-mánuði var keyptur 29% viðbótarhlutur í N1. Fyrir átti Framtakssjóðurinn 16% eignarhlut í félaginu sem keyptur var í októbermánuði árið 2011. Í kjölfar þeirra kaupa og að eignarhlutur Framtakssjóðsins var orðinn þetta ráðandi var skipt um framkvæmdastjóra félags-ins og unnið að nýrri stefnumótun og undirbúningi tilheyrandi skipulagsbreytinga.

Þann 7. júní var haldinn hluthafafundur hjá Framtaks-sjóðnum þar sem samþykktar voru nokkrar breytingar á samþykktum FSÍ slhf. og FSÍ GP ehf. og á skilmálum sjóðsins. Þann 19. desember var haldinn hluthafafund-ur þar sem ákvörðun var tekin um útgreiðslu arðs og lækkun hlutafjár Framtakssjóðsins samtals að upphæð tæplega 9 milljarðar króna. Þannig var ráðstafað til hluthafa sjóðsins söluverði á eignarhlut sjóðsins í Ice-landair Group hf. og Fjarskiptum hf. Á þessum fundi var einnig ákveðið að breyta Framtakssjóði Íslands GP úr einkahlutafélagi (ehf.) í hlutafélag (hf.).

ÁVARP STJÓRNARFORMANNSFramtakssjóður Íslands slhf. (samlagshlutafélag) var stofnaður í desember árið 2009.

Árið 2012 var því þriðja heila árið í rekstri sjóðsins. Stofnendur voru sextán lífeyrissjóðir

og upphafleg hlutafjárloforð námu 30 milljörðum króna, en þau voru svo aukin í 54

milljarða króna sem er núverandi fjárfestingageta sjóðsins. Landsbankinn kom síðar

inn sem stór hluthafi í tengslum við kaup sjóðsins á Vestia sem var eignarhaldsfélag

nokkurra félaga í eigu Landsbankans. Í lok árs 2012 hafði sjóðurinn fjárfest fyrir um 32

milljarða króna í samtals 8 fyrirtækjum. Sjóðurinn hafði þá fjárfest fyrir um 59% af fjár-

festingagetu sjóðsins. Sjóðurinn hefur frá stofnun greitt eigendum sínum til baka um

11 milljarða króna, þar af um 9 milljarða á árinu 2012.

Hlutverk Framtakssjóðsins er að taka þátt í því uppbyggingar- og umbreytingaferli sem fyrirsjáanlegt

var að þyrfti að eiga sér stað í kjölfar bankahrunsins og vera þátttakandi í endurreisn íslensks atvinnu-

lífs. Ekki síður er mikilvægt að honum er ætlað að skila góðri ávöxtun til eigenda sinna. Sjóðurinn

skuldsetur sig ekki heldur innkallar hlutafé hjá eigendum vegna þeirra fjárfestinga sem ráðist er í.

Jafnframt er söluverði fyrirtækja í eigu sjóðsins skilað til eigenda að lokinni sölu. Fram til þessa hefur

sjóðurinn átt umtalsverðan þátt í endurfjármögnun, endurskipulagningu og breyttu eignarhaldi

nokkurra lykilfyrirtækja sem voru að stærstum hluta í eigu banka. Sjóðurinn leggur áherslu á að vera

virkur áhrifafjárfestir með umtalsverðan eignarhlut í þeim félögum sem fjárfest er í.

Þorkell Sigurlaugsson

Page 5: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 3

AFKOMA ÁRSINS

Afkoma af starfsemi sjóðsins á árinu 2012 var mjög góð. Hagnaður á árinu 2012 nam 6.111 milljónum króna og arðsemi eigin fjár var 20,7%. Samkvæmt efnahagsreikningi nema heildareignir félagsins 29.623 milljónum króna og bókfært eigið fé er 29.505 milljónir og eiginfjárhlutfall 99,6%. Færa má rök fyrir því að fjárhagsstaða sjóðsins sé mun sterkari en bókfært eigið fé gefur til kynna. Hlut-deild sjóðsins í eigin fé þeirra félaga sem fjárfest hefur verið í, eða markaðsverði þeirra þegar það á við, er 46.688 milljónir, en bókfært verð sömu eigna 29.098 milljónir króna. Þessi munur gefur til kynna verulegt dulið eigið fé í sjóðnum.

STÖRF STJÓRNAR

Á aðalfundi árið 2012 voru kjörin í stjórn Helga Árna-dóttir, Baldur Vilhjálmsson, Hrefna Ö. Sigfinnsdóttir, Hjörleifur Pálsson, Jón Steindór Valdimarsson, Linda Jónsdóttir og Þorkell Sigurlaugsson. Varamenn voru kjörin Jensína Kristín Böðvarsdóttir, Helga Indriða-dóttir, Georg Páll Skúlason og Sigurbjörn Sigurðsson. Stjórnin skipti með sér verkum að loknum aðalfundi og var Þorkell Sigurlaugsson kosinn formaður og Jón Steindór Valdimarsson varaformaður. Í september-mánuði óskaði Jón Steindór Valdimarsson eftir því láta af störfum sem stjórnarmaður vegna hugsan-legra hagsmunaárekstra vegna stjórnarformennsku Jóns í sameinuðu félagi Landsbréfa og Horns, sem eru í eigu Landsbankans. Var Helga Árnadóttir þá kjörin varaformaður. Einnig óskaði Hrefna Ö. Sigfinnsdóttir eftir að láta af störfum vegna breytinga á hennar starfi innan Landsbankans. Sveinn Hannesson og Hreiðar Bjarnason voru kjörnir í stjórnina í stað þeirra Jóns og Hrefnu, á hluthafafundi þann 3. október.

Haldnir voru 18 stjórnarfundir á starfsárinu, en umfangsmikil og krefjandi verkefni voru á borði stjórnar og starfsmanna vegna fjárfestinga og sölu eigna, sem og verkefni tengd þeim félögum sem sjóðurinn á eignarhlut í.

Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri FSÍ, lét af störfum í byrjun janúar 2012, en hann var búinn að vera framkvæmdastjóri sjóðsins frá upphafi. Í byrjun mars 2012 var gengið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra, Brynjólfs Bjarnasonar. Starfs-menn sjóðsins eru 8.

HORFUR FRAMUNDAN

Ágætar horfur eru með rekstur þeirra félaga sem sjóð-urinn á eignarhlut í. Verið er að undirbúa skráningu sumra þeirra á markað á komandi misserum, en það getur tekið nokkur ár að koma öllum félögum á hluta-bréfamarkað eða selja þau í beinni sölu til fjárfesta. Þangað til er meginverkefnið að tryggja jákvæðan rekstur fyrirtækjanna og auka verðmæti þeirra.

Samkvæmt skilmálum sjóðsins er gert ráð fyrir að fjár-festingum ljúki í byrjun árs 2014. Líftími sjóðsins verður væntanlega talsvert lengri, en það er samt markmið stjórnarinnar að gera sem fyrst verðmæti úr eignum sjóðsins og skila þeim verðmætum til eigenda.

Framtakssjóður Íslands hefur lagt áherslu á góða stjórnarhætti bæði í sínum innri störfum og starfsemi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Góðir stjórn-arhættir skipta máli varðandi mat á verðmæti félags, lánakjör o.fl. Samþykktir, skilmálar, hluthafastefna og fjárfestingastefna sjóðsins voru í endurskoðun á árinu 2012 og þá horft til reynslu af starfsemi sjóðsins undanfarin þrjú ár.

Veruleg óvissa er í efnahagsmálum þjóðarinnar þegar þetta er ritað í marsmánuði 2013 og það getur vissulega haft áhrif á þau félög sem Framtaks-sjóðurinn á eignarhlut í. Einnig er mikil óvissa í stjórn-málum skömmu fyrir alþingiskosningar og óljóst hver verður stefnan í lykilþáttum þjóðfélagsmála, t.d. á sviði ríkisrekstrar, atvinnumála og utanríkismála. Fyrir lífeyrissjóðina, banka og fjárfesta almennt eru gjald-eyrishöft og óviss staða íslensku krónunnar lítt til þess fallin að auka hagvöxt og bæta lífskjör almennings í landinu. Veik forysta í stjórnmálum samhliða veikri stöðu heimila og margra fyrirtækja getur haft alvar-legar afleiðingar fyrir íslenskt atvinnulíf og því einnig komið niður á rekstri sumra þeirra félaga sem Fram-takssjóðurinn á eignarhlut í. Takmörkuð fjárfestinga-tækifæri eru í nýjum verkefnum. Hvað varðar Fram-takssjóðinn er ánægjulegt hve viðhorf eru almennt orðin jákvæð í garð sjóðsins enda hefur árangur af starfsemi hans komið berlega í ljós. Það hefur einnig sýnt sig að fyrir fjárfesta eins og lífeyrissjóðina er mjög farsælt að horfa til þeirra tækifæra sem felast í því að fjárfesta í gegnum framtakssjóði sem einbeita sér að tilteknum verkefnum sem áhrifafjárfestar. Það á að minnka áhættuna fyrir lífeyrissjóðina, en á sama tíma er ábyrgð okkar mikil sem erum starfsmenn eða stjórnarmenn í slíkum sjóðum.

Í ársskýrslunni, á bls. 6–9, eru upplýsingar um fulltrúa sjóðsins í stjórnum þeirra félaga sem hann á hlut í og á bls. 12–35 eru nánari upplýsingar um einstök félög í eigu FSÍ. Ég vil þakka stjórnarfólki, starfsfólki og stjórnendum þeirra félaga sem eru í eigu sjóðsins fyrir þeirra störf á árinu. Þá þakka ég samstarfsfólki mínu í stjórn FSÍ fyrir samstarfið og starfsfólki sjóðsins fyrir framúrskarandi starf við uppbyggingu hans.

Reykjavík, 12. mars 2013

Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður

Page 6: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S4

Hjörleifur Pálsson

Hjörleifur er fjármálastjóri Össurar og hefur setið í framkvæmdastjórn fyrirtækisins frá árinu 2001. Áður starfaði hann sem endurskoðandi, síðast hjá Deloitte & Touche hf. þar sem hann var einn af eigendum félagsins og í stjórn þess. Hjörleifur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1988 og hlaut löggild-ingu til endurskoðendastarfa 1989. Hann hefur setið í stjórn Samtaka atvinnulífsins, Háskóla-ráði Háskólans í Reykjavík og í varastjórn Íslandssjóða hf. frá árinu 2010.

Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður

Þorkell er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann starfaði hjá Eimskipi, lengst af sem framkvæmdastjóri og síðan sem framkvæmdastjóri hjá Burðarási, fjárfestingafélagi Eimskips, til ársins 2004. Þorkell hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja og hefur yfirgripsmikla reynslu úr atvinnulífinu auk þess sem hann hefur skrifað greinar og bækur um stjórnunarmál. Þor-kell hóf störf árið 2004 sem framkvæmdastjóri þróunar og nýsköpunar hjá Háskólanum í Reykjavík og hefur síðustu árin verið framkvæmdastjóri fjármála og reksturs og verkefnastjóri nýbyggingar Háskólans í Reykja-vík í Nauthólsvík.

Baldur Þór Vilhjálmsson

Baldur Þór er forstöðumaður eignastýringar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Hann starfaði hjá Kaupþingi frá 1998 til 2007, einkum sem sérfræð-ingur hjá markaðsviðskiptum og í lífeyrismálum. Baldur var í stjórn Frumtaks frá stofnun til ársins 2010 og situr í ráð-gjafaráði Thule Investments og stjórn Veðskuldabréfasjóðs Virðingar. Hann hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum og setið í nefndum og starfs-hópum á vegum Landssam-taka lífeyrissjóða. Baldur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.

STJÓRN FRAMTAKSSJÓÐS ÍSLANDS

Helga Árnadóttir, varaformaður

Helga er framkvæmdastjóri VR. Hún útskrifaðist sem viðskipta-fræðingur (Cand. oecon.) frá Háskóla Íslands árið 1997 og lauk MS-prófi í fjármálum (MSIM) frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008. Á árunum 2008–2011 starfaði hún sem sviðsstjóri rekstrar- og fjár-málasviðs VR. Áratuginn þar á undan starfaði Helga hjá Icelandair, fyrst í hagdeild en lengst af á sölu- og markaðs-sviði félagsins, m.a. sem sölu- og markaðsstjóri á Íslandi og síðast sem forstöðumaður Vildarklúbbs félagsins. Þá hefur Helga setið í stjórnum, nefndum og ráðum fyrirtækja og félagasamtaka.

Page 7: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 5

Hreiðar Bjarnason

Hreiðar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, með MSc- gráðu í fjármálafræðum frá London Business School og hefur lokið prófi í verðbréfavið-skiptum. Hreiðar hefur starfað í Landsbankanum frá árinu 1998, fyrst sem sérfræðingur í markaðsviðskiptum og síðar í fjárstýringu. Hann tók við sem framkvæmdastjóri markaða og fjárstýringar snemma árs 2010 og tók við stöðu sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsbankans í ágúst 2012.

Linda Jónsdóttir

Linda er framkvæmdastjóri fjármögnunar og fjárstýringar hjá Marel, útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Há-skóla Íslands árið 2001 og lauk meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík 2010. Hún hefur einnig lokið prófi sem löggiltur verðbréfamiðlari. Á árunum 1999–2003 var hún yfirmaður fjárstýringar hjá Eimskipi og hjá Burðarási á árunum 2003–2005. Hún starfaði við fjárstýringu og fjármögnun hjá Straumi fjárfestingarbanka á árunum 2005–2009 og gegndi þar meðal annars starfi forstöðumanns eigna- og skuldastýringar bankans.

Sveinn Hannesson

Sveinn er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1974 og starfaði eftir það í eitt ár hjá Ríkisábyrgðasjóði, síðan hjá Landssambandi iðnaðar-manna frá árinu 1975 til 1982, þegar hann var ráðinn forstöðumaður hagdeildar og síðar lánasviðs Iðn-aðarbanka Íslands. Haustið 1986 var hann ráðinn fyrsti framkvæmdastjóri Lýsingar hf. eignarleigu, sem þá var að hefja starfsemi. Hann gegndi því starfi til ársins 1992 en þá var hann ráðinn framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda og síðan Sam-taka iðnaðarins. Gegndi því starfi til ársloka 2007 eða nærri 16 ár en síðan hefur hann verið framkvæmda-stjóri Gámaþjónustunnar hf. og dótturfyrirtækja. Sveinn hefur setið í stjórnum ýmissa fjármálastofnana, hlutabréfasjóðs, þróunarfyrirtækja, hugverkaverndar- og verktaka-fyrirtækja undanfarna þrjá áratugi. Einnig sat hann í stjórn þriggja líf-eyrissjóða og í stjórn VSÍ og síðan SA í rúman áratug.

Page 8: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S6

Anna Rún Ingvarsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Advania

Anna Rún er viðskiptafræðingur

og starfar sem fjármálastjóri

Apple VAD á Íslandi. Áður var

hún fjármálastjóri Almennu verk-

fræðistofunnar hf. 2008–2011.

Á árunum 2005–2008 var hún

fjármálastjóri Humac sem rak

Apple-verslanir á Norðurlönd-

unum og rekstrarstjóri Median

2004–2005. Anna starfaði hjá

Streng hf. 1996–2004, og stýrði

þar þjónustu- og ráðgjafarsviði.

1992–1996 var hún fjármálastjóri

Tölvusamskipta hf.

Árni Geir Pálsson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group

Árni Geir er með MSc-próf í

alþjóðaviðskiptum frá Copen-

hagen Business School og Cand.

oecon.-próf í viðskiptafræði frá

Háskóla Íslands. Hann hefur á

undanförnum árum verið sjálf-

stætt starfandi rekstrarráð-

gjafi. Á árunum 2006–2008

var hann framkvæmdastjóri

Median og 2005–2006 var hann

framkvæmdastjóri Latabæjar.

Árin 2000–2005 var hann fram-

kvæmdastjóri fyrirtækjaþróunar

hjá Icelandic Group (SH) og þar

áður þróunarstjóri hjá Frjálsri

fjölmiðlun, eigandi auglýsinga-

stofunnar Mátturinn og dýrðin,

kynningarstjóri Samskipa og

verðbréfamiðlari hjá VÍB.

Anna Guðný Aradóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Vodafone

Anna Guðný er með MBA-

gráðu frá Háskólanum í

Reykjavík. Hún stundaði

nám í sálfræði við Háskóla

Íslands og lauk rekstrarnámi

frá Endurmenntun Háskóla

Íslands árið 1996. Hún er

forstöðumaður markaðs- og

samskiptadeildar Samskipa

og hefur sinnt því starfi frá

árinu 2000. Áður var hún

forstöðumaður Landflutninga

og aðstoðarmarkaðsstjóri

Stöðvar 2. Anna Guðný hefur

setið sem varamaður í stjórn

Icelandair Group, varamaður

í stjórn Stafa lífeyrissjóðs og

sem varamaður í stjórn Hljóð-

færahússins.

FULLTRÚAR FRAMTAKSSJÓÐS ÍSLANDS Í

STJÓRNUM FYRIRTÆKJA

Egill Tryggvason Stjórnarseta fyrir FSÍ: Advania, varamaður, Icelandic, varamaður

Egill er starfsmaður Framtaks-

sjóðs Íslands. Hann er með

Cand. oecon.-gráðu frá Háskóla

Íslands og hefur lokið prófi í

verðbréfaviðskiptum. Hann hóf

störf hjá Burðarási árið 1999 sem

fjárfestingarstjóri og starfaði þar

uns félagið var sameinað Straumi

fjárfestingarbanka. Þá hóf hann

störf hjá fyrirtækjaráðgjöf Lands-

banka Íslands. Egill var ráðinn

framkvæmdastjóri hjá Virðingu

verðbréfafyrirtæki haustið 2006.

Frá árinu 2009 starfaði hann hjá

fjármálaráðuneytinu á fjárreiðu-

og eignaskrifstofu en meðal

verkefna var meðferð ríkisins

á eignarhlutum í félögum og

fyrirtækjum ásamt því að vinna

að endurskipulagningu fjármála-

fyrirtækja.

Page 9: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 7

Elín Jónsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Promens

Elín er lögfræðingur að mennt

frá Háskóla Íslands með masters-

gráðu í lögum frá Duke-háskóla í

Norður-Karólínu, Bandaríkjunum

og próf í verðbréfaviðskiptum.

Elín var forstjóri Bankasýslu

ríkisins á árunum 2010 og 2011.

Hún var framkvæmdastjóri Arev

verðbréfafyrirtækis frá árinu

2005–2009. Á árunum 2001–2005

starfaði hún hjá Fjármálaeftir-

litinu. Elín er nú sjálfstætt starf-

andi ráðgjafi hjá Lögmönnum

Bankastræti. Elín hefur setið í

stjórnum ýmissa fyrirtækja og

verið stundakennari í lögum við

Háskóla Íslands og aðstoðar-

kennari við Duke-lagaskólann.

Erna Eiríksdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ:

Vodafone, Advania, vara-maður

Erna er viðskiptafræðingur frá

Háskóla Íslands, hefur lokið

MBA-prófi frá Háskólanum í

Reykjavík og löggildingarprófi

í verðbréfaviðskiptum frá sama

skóla. Hún starfaði sem fjár-

málastjóri Landsvirkjunar Power,

dótturfélags Landsvirkjunar,

2008–2011 og sinnti ýmsum

stjórnunarstörfum á fjármála-

sviði, innanlandssviði, alþjóða-

sviði og við kynningar- og mark-

aðsmál hjá Eimskip á árunum

1990–2005. Erna hefur frá árinu

2009 setið í stjórn Íslandssjóða

hf., dótturfélags Íslandsbanka,

en félagið hefur starfsleyfi sem

rekstrarfélag verðbréfa- og fjár-

festingarsjóða.

Finnbogi var framkvæmdastjóri

Framtakssjóðs Íslands frá 2010–2012.

Hann starfaði í iðnaðarráðuneytinu

1979–1982, var framkvæmdastjóri

Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar 1982–

1986, var forstjóri Síldarvinnslunnar

í Neskaupstað1986–1999, forstjóri

Íslenskra sjávarafurða 1999–2000.

Finnbogi var starfandi stjórnar-

formaður Samherja 2000–2005

og framkvæmdastjóri SR-Mjöls

2004–2006. 2006–2010 var hann

framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs

atvinnulífsins. Finnbogi hefur jafn-

framt setið í stjórnum fjölmargra

fyrirtækja og gegnt fjölda trúnaðar-

starfa í atvinnulífinu. Hann lauk

prófum í eðlisverkfræði og rekstrar-

hagfræði frá Háskólanum í Lundi í

Svíþjóð og frá Háskóla Íslands auk

þess sem hann hefur stundað nám í

stjórnun og alþjóðaviðskiptum.

Finnbogi Jónsson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Advania, formaður, Promens

Page 10: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S8

Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group

Ingunn lauk BA-gráðu frá Há-skóla Íslands í atvinnufélagsfræði árið 1997 og lauk MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005. Hún starfaði hjá Eimskip 1998–2006, í fræðslu og starfsþró-unarmálum og var framkvæmda-stjóri starfsþróunarsviðs samstæð-unnar og sat í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Ingunn tók þátt í stefnumótun mannauðsmála fyrir Excel Airways og Atlanta, þá dótturfyrirtæki Avion Group. Ingunn er í dag einn af eigendum Attentus – Mannauður og ráðgjöf og sinnir mannauðsmálum fyrir ýmis fyrirtæki. Ingunn hefur kennt stjórnun, mannauðsstjórnun og breytingastjórnun við Háskólann í Reykjavík, í Tækniskólanum og Háskóla Íslands. Ingunn var aðal- og/eða varamaður í menntaráði, velferðarráði og leikskólaráði Reykjavíkurborgar.

Hildur Dungal Stjórnarseta fyrir FSÍ: Vodafone

Hildur er starfar sem lögfræð-ingur og ráðgjafi hjá Virtus, en var forstjóri Útlendinga-stofnunar frá 2005 til 2008 þar sem hún hafði starfað sem sérfræðingur frá 2003. Eftir embættispróf í lögfræði árið 2000 starfaði hún sem deildarstjóri lögfræði- og upplýsingadeildar Tollstjórans í Reykjavík. Hildur sat í bæjarstjórn Kópavogs og hefur setið í stjórn Nýherja og Sparisjóðs Norðfjarðar.

Jón Þorgeir Einarsson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group

Jón Þorgeir starfaði hjá löggiltum endurskoðendum í Reykjavík frá 1984–1990. Hann flutti í heimahagana til Bolungarvíkur árið 1990 og hefur starfað við endurskoðun þar síðan. Hann rekur ásamt öðrum Endurskoðun Vestfjarða ehf. sem er með skrifstofur í Bolungarvík og á Ísafirði. Jón rekur einnig útgerðarfyrirtæki ásamt bróður sínum og gerir út línubátinn Einar Hálfdáns BS 11 og færabátinn Albatros IS 101. Jón Þorgeir er við-skiptafræðingur, Cand. oecon., frá HÍ 1985 og löggiltur endur-skoðandi frá 1989.

Herdís Dröfn Fjeldsted Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group, formaður, Icelandair Group, Promens

Herdís starfar hjá Framtakssjóði Íslands en áður starfaði hún hjá Thule Investments í fjárfest-ingarteyminu. Þar áður starfaði hún hjá Spron og hjá Icelandair. Herdís er með diploma í iðn-rekstrarfræði af markaðssviði og BSc-próf í viðskiptafræði. af alþjóðamarkaðssviði. Lauk námi í verðbréfaviðskiptum frá Há-skólanum í Reykjavík og er með MSc. í fjármálum fyrirtækja frá sama skóla.

Page 11: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 9

Kristín Guðmundsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: N1

Kristín útskrifaðist sem viðskipta-fræðingur af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands árið 1980. Kristín hefur mikla reynslu af fjármálastjórn. Hún var fjármála-stjóri Símans hf. og Skipta hf. og staðgengill forstjóra. Kristín var fjármálastjóri Granda hf. á árunum 1994–2002. Á árunum 1990–1994 var hún forstöðumað-ur reikningshalds og áætlana í Íslandsbanka og forstöðumaður fjármálasviðs Iðnaðarbanka Íslands hf. 1985–1990. Hún var innri endurskoðandi Iðnaðar-banka Íslands hf. 1980–1985 og skrifstofustjóri í Grensásútibúi Iðnaðarbankans á árunum 1974–1979.

Kristinn Pálmason Stjórnarseta fyrir FSÍ: N1, varamaður, Promens, varamaður, Vodafone, varamaður

Kristinn er starfsmaður Framtaks-sjóðs Íslands. Hann starfaði frá árinu 2009 sem verkefnisstjóri hjá Eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. sem keypt var af Framtakssjóði Íslands í lok árs 2010. Á árunum 2002–2009 starfaði Kristinn hjá Landsbanka Íslands sem sér-fræðingur við fjármögnun á yfir-tökum fyrirtækja og við ráðgjöf vegna umbreytingarverkefna fyrirtækja bæði á aðalskrifstofu Landsbankans og skrifstofu í London. Hann hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja hér-lendis. Kristinn lauk MSc-prófi í fjármálum fyrirtækja frá Há-skólanum í Reykjavík árið 2010 og BSc-prófi í viðskiptafræði árið 2003 frá sama skóla.

Þór Hauksson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Vodafone, formaður, N1, varaformaður, Advania, varaformaður

Þór starfar hjá Framtakssjóði Íslands en var áður starfsmaður í fjármálaráðuneytinu, hjá Kaup-þingi, Straumi fjárfestingarbanka og Skiptum hf. Hann er með víðtæka þekkingu og reynslu af fjárfestingum og sölu, rekstri og stjórnun fyrirtækja, fjármögnun og endurskipulagningu. Þór er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og MA-gráðu í stjórn-mála- og hagfræði frá University of Hull.

Ævar Agnarsson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group

Ævar hefur margháttaða reynslu af innlendum og alþjóðlegum sjávarútvegi þar sem hann hefur starfað í 30 ár. Hann byrjaði feril sinn sem framleiðslustjóri Loðnuvinnslunnar. Árið 1996 hóf hann störf hjá Iceland Seafood í Bandaríkjunum, fyrst sem innkaupastjóri en síðar sem aðstoðarforstjóri framleiðslu fyrirtækisins. Hann var gerður að forstjóra Iceland Seafood árið 2005. Hann stýrði samruna Samband of Iceland og Icelandic USA og var forstjóri félagsins þar til það var selt árið 2011. Ævar hefur setið í stjórnum alþjóð-legra sjávarútvegsfyrirtækja og samtaka innan sjávarútvegarins.

Page 12: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S10

Árið 2012 var þriðja starfsár Framtakssjóðs Íslands og nam hagnaður af starfsemi sjóðsins 6.111 millj-ónum króna, samanborið við 2.343 milljónir króna árið áður. Heildareignir sjóðsins í árslok námu 29,6 milljörðum króna en þær voru 28,2 milljarðar á sama tíma 2011. Eigið fé í árslok var 29,5 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 97,9%. Eignarhlutir sjóðsins í fyrirtækjum eru færðir á kostnaðarverði nema eignarhlutir í skráðum félögum sem eru metnir á markaðsverði.

Hagnaður Framtakssjóðsins á árinu skýrist því af hækkun markaðsvirðis Icelandair Group, sölu-hagnaði af hlutum í skráðum félögum og sölu Plastprents. Sjóðurinn hefur, í samvinnu við endur-skoðendur félagsins, lagt mat á áætlað gangvirði eignarhluta félaga í eignasafni sjóðsins og er metið að það sé ekki undir 46,7 milljörðum króna, en bókfært verð sömu eigna er 29 milljarðar króna.

ÁRANGURSRÍKT ÁR AÐ BAKI

Áætlað virði miðast við niðurstöður virðisrýrnunar-prófa undirliggjandi eigna.

Þær breytingar urðu á eignasafni sjóðsins á árinu 2012 að Plastprent var selt, 7% hlutur í Icelandair og 60% hlutur í Vodafone (Fjarskipti hf.) samhliða skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Eftir þessi viðskipti á Framtakssjóðurinn 12% í Icelandair og 19,7% í Vodafone. Þá jók Framtakssjóðurinn hlut sinn í N1 og á nú 45% hlut í félaginu. Einnig tók sjóðurinn þátt í hlutafjáraukningu Vodafone á árinu 2012 fyrir skráningu félagsins. Alls hefur sjóðurinn fjárfest í átta félögum frá stofnun en sex eru í núverandi eignasafni. Það eru: Advania, Icelandair, Icelandic, N1 Promens og Vodafone. Andvirði innleystra eigna var ráðstafað til eigenda. Annars vegar með arðgreiðslu og hins vegar með lækkun hlutafjár. Alls voru um níu milljarðar króna greiddir til hluthafa Framtakssjóðsins.

Þór Hauksson, fjárfestingastjóri

Björk Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri

Herdís Dröfn Fjeldsted, fjárfestingastjóri

Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri

Kristinn Pálmason, fjárfestingastjóri

Hafliði Helgason, sérfræðingur

Harpa Helgadóttir, sérfræðingur

Egill Tryggvason, fjárfestingastjóri

Starfsfólk FSÍ

Page 13: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 11

EIGNARHLUTIR FSÍ Í FÉLÖGUM

ICELANDIC GROUP VODAFONEPROMENSICELANDAIR GROUP

12%

100%

ADVANIA

75%

20%

N1

45% 49,50%

Page 14: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S12

Advania er stærsta upplýsingafyrirtæki Íslands og það tíunda stærsta á Norðurlöndum

með 1.100 starfsmenn og 20 starfsstöðvar í fjórum löndum. Þar af starfa um 600 manns á

Íslandi, 300 í Svíþjóð, 200 í Noregi og 20 í Lettlandi. Advania er náinn samstarfsaðili flestra

öflugustu UT-fyrirtækja veraldar.

ADVANIA

Page 15: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 13

(milljónir kr.)

TEKJUR

0

5

10

15

20

25

20112010

22.129

24.499

AFKOMA

(milljónir kr.)

201120100

100

50

200

300

150

400

350

250

389

20

(milljónir kr.)

EBITDA

201120100

200

400

800

600

1200

1000

790

1068

FJÖLBREYTT ÞJÓNUSTA Á ÍSLANDI

Advania á Íslandi veitir samþættar lausnir og þjónustu á sviði upplýsingatækni, sem svara þörfum atvinnulífsins fyrir hugbúnað, ráðgjöf, vélbúnað, hýsingu og rekstrarþjónustu. Lausnaframboð Advania á Íslandi spannar í raun upplýsinga-tækni frá A til Ö. Advania á Íslandi rekur jafnframt eitt stærsta gagnaver landsins. Afkoma Advania á Íslandi á árinu 2012 var góð. Bæði velta og EBITDA voru um eða yfir áætlun.

ERLEND STARFSEMI

Advania í Svíþjóð veitir alhliða rekstrar- og ráðgjafarþjónustu á sviði upplýsingatækni. Um það bil 45% af tekjum samstæðu Advania koma frá Advania í Svíþjóð, sem skilar gríðarsterku uppgjöri fyrir 2012 þar sem velta og EBITDA eru bæði nokkuð yfir áætlun. Advania í Noregi starfar á sviði viðskiptalausna Microsoft Dynamics AX fyrir sérhæfðar atvinnugreinar, til dæmis verslun og þjónustu, rétt eins og Advania í Lettlandi. Liðlega 15% af tekjum samstæðunnar koma frá Advania í Noregi og var reksturinn þar 2012 talsvert undir væntingum. Til að bregð-ast við þungum rekstri í Noregi var gengið í umfangsmiklar breytingar á yfirstjórn og skipulagi, ásamt því sem hagrætt var í rekstri og yfir 20 manns sagt upp störfum. Enn fremur reyndist nauðsynlegt að gera kostnaðarsamar breytingar á lífeyriskerfi starfsfólks vegna lagabreytinga í Noregi. Auk framangreindra breytinga var ákveðið að færa að fullu niður þá viðskiptavild sem tengist Advania AS í samræmi við staðla um meðferð við-skiptavildar í endurskipulögðu félagi. Þessi niðurfærsla í Noregi hefur mikil áhrif á rekstrarniðurstöðu samstæðu Advania á árinu 2012. Vonir standa til að félagið skili jákvæðri afkomu árið 2013.

NAFNBREYTING

Í upphafi árs 2012 var tilkynnt um að Skýrr, HugurAx og norrænu dótturfyrirtækin Aston-Baltic, Hands og Kerfi sæki eftirleiðis fram undir nýju nafni: Advania. Nafnbreytingin var lokahnykkur tveggja ára sameiningarlotu níu fyrirtækja og liður í umbreytingu fyrirtækisins í alþjóðlegt þjónustufyrirtæki með víðtæka starfsemi. Við nafnbreytinguna hurfu af markaði vöru-merkin Skýrr, HugurAx og EJS á Íslandi, ásamt Hands í Noregi, Kerfi í Svíþjóð og Aston-Baltic í Lettlandi. Áður höfðu Eskill, Kögun og Landsteinar-Strengur verið færð undir Skýrr.

ÁRANGURSRÍK ENDURMÖRKUN

Með nafnbreytingunni í upphafi ársins var starfsfólk Advania sameinað undir eitt merki til að fullnýta slagkraft stærðar fyrir-tækisins og skapa því alþjóðlega ásýnd. Hluti af því verkefni var að endurmóta markaðsstarf, kynningarefni og ytri samskipti fyrirtækisins. Árangursrík endurmörkun Advania hefur skilað því að tólf mánuðum eftir nafnbreytinguna er svo komið að 46% Íslendinga nefna Advania sem þekktasta vörumerkið á sviði upplýsingatækni, en helstu samkeppnisaðilar fyrirtækisins mælast með 6–7%. Í samræmi við þetta hlaut Advania verðlaun ÍMARK-markaðssamtakanna fyrir bestu ásýnd fyrirtækis á árinu 2012.

NÝJAR HÖFUÐSTÖÐVAR

Árið 2012 flutti Advania nær alla starfsemi sína í Reykjavík í nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins að Guðrúnartúni 10 í Reykjavík. Starfsemin var áður á fimmtán hæðum í fimm byggingum víðs vegar um Reykjavík. Á því kostnaðarsama fyrirkomulagi voru fjölmargir annmarkar og eitt af lykilverkefnum í styrkingu félagsins var að finna betri lausn, sem svaraði kröfum starfsfólks í nútímalegum þekkingarfyrirtækjum. Hjá Advania við Guð-rúnartún starfa í dag um 520 manns.

Page 16: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S14

ÓVENJULEG VERSLUN

Advania opnaði nýja verslun í húsnæði fyrirtækisins við Guð-rúnartún í janúar 2013. Flest þekktustu vörumerki veraldar á sviði upplýsingatækni eru meðal samstarfsaðila Advania og tekur vöruúrval í versluninni mið af þeirri staðreynd. Óvenjuleg hönnun verslunarinnar endurspeglar enn fremur litríkt vöru-merki Advania á afgerandi hátt og hlaut hún verðlaun ÍMARK

fyrir bestu umhverfisgrafík 2012. Í versluninni er móttökusvæði og kaffihús samtvinnað sýningarsal og verslun. Útkoman er ein-stakur samkomustaður starfsfólks og viðskiptavina. Aðferða-fræði verslunarinnar auðveldar mjög reksturinn og tryggir umtalsverðan gestafjölda.

VIÐSNÚNINGUR Í REKSTRI GAGNAVERS

Starfsemi gagnaversins Advania Thor Data Center í Hafnarfirði gekk vel á árinu og þar átti sér stað viðsnúningur í rekstri. Er nú hugað að tvöföldun versins upp í 6.000 fermetra með möguleika á 20.000 fermetra framtíðarstækkun. Af hápunktum í starfseminni má nefna að stofnanir sem hafa yfirumsjón með vísindarannsóknum háskóla á Norðurlöndum gangsettu

háhraðatölvu í gagnaverinu á árinu. Aðrir lykilviðskiptavinir á Íslandi eru meðal annars fjármálafyrirtækið Valitor og norski hugbúnaðarrisinn Opera Software. Áætlað er að internet-umferð Opera um Advania Thor Data Center í Hafnarfirði sé áþekk að magni og öll önnur internetumferð til og frá Íslandi.

Page 17: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 15

SAMSTARF VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK

Háskólinn í Reykjavík og Advania hafa gert með sér umfangs-mikinn samstarfssamning til þriggja ára sem miðar gagngert að því að fjölga þeim sérfræðingum í atvinnulífinu, sem hafa tvíþætta þekkingu á bæði upplýsingatækni og viðskiptum. Unnið verður að þróun nýrra námsleiða og gagnkvæmrar þekkingarmiðlunar.

14 ÞÚSUND FUNDARGESTIR

Fróðleiksviðburðir Advania hafa sett mikinn svip á starfsemi fyrirtækisins undanfarin ár. Árið 2012 var þar engin undantekn-ing með þúsund manna haustráðstefnu og tæplega 50 öðrum fróðleiksviðburðum. Fjölsóttustu morgunverðarfundir Advania eru sóttir af tæplega 400 manns. Fundirnir eru mikilvæg upp-spretta jákvæðra samskipta og viðskipta, ásamt því að renna stoðum undir hlutverk fyrirtækisins sem þekkingarfyrirtækis í fremstu röð. Um 14.000 þúsund gestir sóttu viðburði Advania árið 2012, sem er 22% fjölgun milli ára.

FORSTJÓRI ADVANIA

Gestur G. Gestsson er forstjóri Advania og hefur hann gegnt starfinu frá því í nóvember 2009. Hann var forstjóri Teymis, en starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Vodafone og Marg-miðlun.

Page 18: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S16

Á árinu 2012 fagnaði Icelandair Group 75 ára stofnafmæli sínu. Stofnun félagsins er rakin til

ársins 1937 þegar Flugfélag Akureyrar var stofnað. Leiðakerfi Icelandair er burðarás í flugsam-

göngum til og frá Íslandi og helsta undirstaða ferðaþjónustunnar. Það byggir á staðsetningu

landsins mitt á milli Norður-Evrópu og Norður-Ameríku sem gerir Icelandair kleift að þjóna

þremur mörkuðum; heimamarkaðinum á Íslandi, ferðamannamarkaðinum til Íslands og

alþjóðlega markaðinum milli Evrópu og Norður-Ameríku.

ICELANDAIR GROUP

Page 19: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 17

84,935

109,646

201220110

20

40

60

80

120

100

36,310

44,275

201220110

1

2

3

4

5

0

200

400

600

800

900

100

300

500

700

20122011

898,866

790,653

TEKJUR EBITDA AFKOMA

(þúsundir USD)(þúsundir USD)(þúsundir USD)

FERÐAÞJÓNUSTA Á BREIÐUM GRUNNI

Icelandair Group sérhæfir sig í flug- og ferðaþjónustu með Ísland sem hornstein alþjóðlegs leiðakerfis. Dótturfélög samstæðunnar á árinu 2012 eru alls níu. Icelandair er þeirra stærst með um 60% af heildartekjum. Leiðakerfi Icelandair er grunnurinn að allri starfsemi Icelandair Group. Icelandair notar landfræðilega legu Íslands til að tengja saman fjölmarga

áfangastaði í Evrópu og Norður-Ameríku í gegnum skiptistöð-ina á Keflavíkurflugvelli. Leiðakerfið er í stöðugri þróun og er góð stýring þess og sveigjanleiki helsta ástæða fyrir velgengni félagsins. Flugfélag Íslands er öflugt og sveigjanlegt flugfélag sem starfar á innanlandsmarkaði en þjónar einnig öðrum vest-norrænum löndum svo sem Færeyjum og Grænlandi. Icelandair Hótel reka bæði alþjóðlegt hótel (Hilton Reykjavik Nordica) og íslensk hótel (Icelandair Hotels og Edduhótelin). Icelandair Cargo býður heildarflutningalausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Á árinu 2012 voru 4 fraktvélar í notkun hjá félaginu og voru áfangastaðir í fraktflugi New York, Liege og East Midlands. Loftleiðir-Icelandic er leiguflugfélag sem sérhæfir sig í lausnum fyrir alþjóðleg flugfélög og ferðaþjónustuaðila.

Félagið sérhæfir sig sérstaklega í leigu véla með alhliða við-haldslausnum. Iceland Travel er stærsta ferðaskrifstofa landsins og býður fjölbreytt úrval þjónustu fyrir ferðamenn sem koma til Íslands. Feria er ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í þjónustu fyrir Íslendinga sem ferðast erlendis. Tvö vörumerki eru rekin undir starfsemi Feria, Vita og Ferd.is. Feria hefur verið rekið sem sjálfstætt dótturfélag innan Icelandair Group samstæðunnar frá byrjun árs 2012, en áður var fyrirtækið hluti af Icelandair

Travel. IGS annast flugvallaþjónustu við flugfélög og farþega á Keflavíkurflugvelli, rekur fyrsta flokks flugeldhús og tollvöru-geymslur, fraktmiðstöð og nýja og glæsilega veitingastaði í Leifsstöð. Fjárvakur sérhæfir sig í umsjón fjármálaferla fyrir meðalstór og stór félög á Íslandi. Félagið býður jafnframt gegnum dótturfélag sitt, Airline Services Estonia, alþjóðlegum flugfélögum útvistun tekjubókhalds þeirra.

Björgólfur Jóhannsson hefur gegnt starfi forstjóra Icelandair Group frá árinu 2008. Björgólfur var forstjóri Icelandic Group frá árinu 2006 og forstjóri ÚA á Akureyri frá árinu 1999. Björg-ólfur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1983 og varð löggildur endurskoðandi árið 1985.

ICELANDAIR GROUP

Page 20: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S18

VIÐSKIPTAVINIR

Viðskiptavinir Icelandair Group eru margir og nýta sér mis-munandi þjónustu félagsins, sem samanstendur af farþega-flugi bæði innanlands og milli landa, fraktflutningum, ferða-tengdri þjónustu ásamt stoðþjónustu í formi flugafgreiðslu og fjármála. Leiðakerfi stærsta dótturfélagsins, Icelandair, hefur stækkað og styrkst á undanförnum áratugum og tengir nú 24 borgir í Evrópu við 10 borgir í Norður-Ameríku með Ísland sem miðpunkt. Leiðakerfið byggist á sólar-hringsskiptingu með tengiflug á Íslandi á morgnana og eftir hádegi.

STARFSEMIN Á ÁRINU 2012

Arðbær innri vöxtur einkenndi rekstur Icelandair Group á árinu 2012. Félagið jók framboð sitt í millilandaflugi um 16% frá fyrra ári og farþegum fjölgaði í heild um 16% eða um 277 þúsund manns, úr 1,7 milljónum árið 2011 upp í 2 milljónir árið 2012. Hefur félagið aldrei áður flutt jafnmarga farþega. Sætanýting á árinu var sú besta í sögu félagsins eða 80,6% og jókst um 1,4 prósentustig. Fluttir farþegar í innanlands- og Grænlands-flugi voru 347 þúsund og fækkaði um 1% á milli ára. Innan-

landsflugsstarfsemi félagsins býr við krefjandi rekstrarumhverfi vegna mikilla hækkana á opinberum gjöldum á Íslandi á und-anförnum árum. Hækkanirnar hafa verið íþyngjandi og dregið úr eftirspurn. Framboðnum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 16% á milli ára. Nýtt hótel í miðbæ Reykjavíkur, Icelandair Hótel Reykjavík Marina, var opnað á vormánuðum ásamt því að framboð var aukið á hóteli félagsins á Akureyri.Herbergjanýting nam 74,4% á árinu og jókst frá fyrra ári er hún var 67,9%.

Rekstrarhagnaður Icelandair Group á árinu 2012 er sá mesti frá upphafi. Arðbær innri vöxtur einkenndi árið og rekstur stærstu rekstrareininga samstæðunnar gekk vel. EBITDA var jákvæð um 109,6 milljónir USD og jókst á milli ára um 24,7 milljónir USD. Hagnaður eftir skatta nam 44,3 milljónum USD og jókst

Page 21: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 19

Í þúsundum USD 2012

Tekjur 898,866EBITDA 109,646Afkoma 44,275 Eigið fé 150,906 Eiginfjárhlutfall 39%Fjöldi starfsfólks 2.532

frá árinu 2011 er hann var 36,3 milljónir USD. Má þakka skýrri stefnu félagsins með áherslu á kjarnastarfsemina ásamt miklum metnaði starfsfólks þennan góða árangur. Í lok árs 2012 er efnahagsreikningur fyrirtækisins sterkur og lausafjárstaðan góð. Eigið fé er 295,9 milljónir USD og eiginfjárhlutfall er 39%. Handbært fé og markaðsverðbréf hafa aukist um 26,1 milljón USD frá upphafi árs og nema 132,8 milljónum USD. Félagið er því vel í stakk búið til áframhaldandi arðbærs innri vaxtar

HORFUR

Horfur í rekstri Icelandair Group eru góðar á árinu 2013. Áfram-haldandi innri vöxtur er ráðgerður með 15% umfangsmeiri flugáætlun í millilandaflugi en á árinu 2012. Flug verður hafið til þriggja nýrra áfangastaða og ferðum er fjölgað til ýmissa borga í Bandaríkjunum og Evrópu. Alls verða 18 Boeing-757 flugvélar nýttar til áætlunarflugsins næsta sumar, tveimur fleiri en á þessu ári. Vöxturinn er áætlaður hlutfallslega meiri yfir vetrarmánuðina en yfir sumarið sem er í takt við þá stefnu félagsins að draga úr árstíðarsveiflu og byggja Ísland upp sem heilsársáfangastað. Gert er ráð fyrir að millilandafarþegar verði yfir 2,3 milljónir á árinu 2013, en þeir voru rétt yfir 2 milljónir á árinu 2012. Bókun-arstaða á fyrstu mánuðum ársins er í takt við áætlanir um vöxt. Gert er ráð fyrir að fjöldi farþega sem fljúga með félaginu yfir

Lykiltölur

N-Atlantshafið muni aukast mest á árinu en jafnframt er áætlað að ferðamönnum til Íslands fjölgi. Millilandaflugið er helsti drifkrafturinn í rekstri Icelandair Group. Þannig hefur aukið framboð og fjölgun farþega jákvæð áhrif á aðra starfsemi sam-stæðunnar, hvort sem um er að ræða hótelrekstur, þjónustu við ferðamenn á Íslandi, flugafgreiðslu eða fraktflutninga milli landa og er gert ráð fyrir vexti í rekstri þessara félaga á árinu. Innanlandsflugsstarfsemi félagsins býr við krefjandi rekstrarum-hverfi vegna mikilla hækkana á opinberum gjöldum á Íslandi á undanförnum árum. Hækkanirnar hafa verið íþyngjandi og dregið úr eftirspurn. Brugðist hefur verið við með minna fram-boði. Ráðgerir félagið að minnka flugáætlun sína innanlands um 4% miðað við árið 2012 vegna þessa.

Page 22: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S20

Icelandic Group er alþjóðlegt fyrirtæki með sjö áratuga sögu í íslenskum sjávarútvegi.

Félagið starfar bæði á smásölumarkaði og á markaði fyrir veitingahús, mötuneyti og stofn-

anir. Icelandic Group framleiðir og selur ferskt, kælt og fryst sjávarfang um heim allan en á

undanförnum árum hefur vöruþróun verið efld á sviði flóknari og virðisaukandi fiskmáltíða

fyrir smásölumarkað. Icelandic er með starfsemi á Íslandi, í Evrópu og Asíu og hjá því starfa

ríflega 1800 starfsmenn.

ICELANDIC GROUP

Page 23: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 21

(milljónir evra)

TEKJUR

0

100

200

300

400

500

600

20122011

525566.5

(milljónir evra)

EBITDA

13,1

11,9

201220110

5

10

15

20

AFKOMA

(milljónir evra)

61,9

0,7

201220110

10

20

30

40

50

60

80

70

UPPSKIPTING OG KAUP

Framtakssjóður Íslands eignaðist Icelandic að fullu árið 2011. Frá kaupum FSÍ hafa orðið miklar breytingar á rekstri félagsins. Eignir hafa verið seldar og aðrar keyptar með það að markmiði að skerpa áherslur í rekstri félagsins og auka arðsemi þess. Á árinu 2012 var félaginu skipt upp í Icelandic Group og IG Investments. Eftir uppskiptingu og fjárhagslega endurskipulagningu standa tvö félög með sterkan efnahag.

Á árinu 2012 keypti Icelandic Group belgíska framleiðslu-fyrirtækið Gadus. Fyrirtækið sérhæfir sig í vinnslu og sölu á ferskum og kældum sjávarafurðum, einkum laxi og þorski, en um þriðjungur af hráefni félagsins kemur frá Íslandi. Meðal viðskiptavina félagsins eru nokkrar af helstu smásölukeðjum í Belgíu en Gadus er annað stærsta fyrirtækið í sölu á ferskum fiskafurðum í landinu. Ársvelta Gadus nemur rúmlega 11 milljörðum króna.

Page 24: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S22

BREYTT FORYSTA

Forstjóraskipti urðu í félaginu á árinu 2012 þegar Magnús Bjarnason tók við starfi forstjóra af Lárusi Ásgeirssyni. Magnús kemur til Icelandic Group frá Landsvirkjun þar sem hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs. Hann var áður framkvæmda-stjóri alþjóðasviðs Glitnis og leiddi þjónustu bankans við alþjóðleg orku- og sjávarútvegsfyrirtæki. Magnús hefur víðtæka reynslu af árangursríku starfi á alþjóðamörkuðum og þekkingu á sjávarútvegi. Auk forstjóraskipta var stjórn-endateymi félagsins styrkt með ráðningu nýs aðstoðarfor-stjóra, Jóns Garðars Guðmundssonar.

NÝTT MARKAÐSSVÆÐI

Geta Icelandic Group til að tengja saman framleiðslu, sölu og markaðssetningu þvert á landamæri tryggir sterka samkeppnisstöðu og mikilvægt forskot til að skapa frekari verðmæti í rekstri. Icelandic Group hefur lagt ríkan metnað í að rækta langtímaviðskiptasambönd við bæði framleiðendur og kaupendur. Þau vörumerki sem fyrir-

tækið hefur byggt upp á undanförnum árum hafa sterka stöðu á mörkuðum. Icelandic-vörumerkið er eitt þekkt-asta vörumerkið í alþjóðlegum sjávarútvegi í heiminum í dag. Undir nýjasta vörumerki félagsins, The Saucy Fish Co., markaðssetur Seachill, dótturfélag Icelandic í Bret-landi hágæðasjávarrétti sem eru tilbúnir til eldunar. The Saucy Fish Co. fer afar vel af stað og hefur þegar náð sterkri stöðu á markaðnum. Staða Icelandic í Bretlandi er afar sterk og markaðshlutdeild félagsins hefur aukist þrátt fyrir erfiðar aðstæður á markaði. Það er ljóst að sá markaður verður áfram afar mikilvægur fyrir félagið.

Page 25: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 23

Í milljónum evra 2012

Tekjur 566,5EBITDA 11,9 Heildarafkoma 0,7 Eigið fé 129,2 Eiginfjárhlutfall 44,2%Fjöldi starfsfólks 1.864

Lykiltölur

Tölur miðast við áframhaldandi starfsemi, auk afkomu af rekstri seldra eininga fram að söludegi.

VERÐMÆT VÖRUMERKI OG ÞEKKING

Icelandic Group er lykilfyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi og þjónustar mörg af mikilvægustu sjávarútvegsfyrir-tækjum landsins. Fyrirtækið býr að sterkum innviðum, á vel þekkt vörumerki á alþjóðamörkuðum, þ.m.t. Ice-landic sem er leiðandi vörumerki fyrir frosnar afurðir til veitingastaða á Spáni og Icelandic í Bandaríkjunum sem er leigt til High Liner Foods. Auk þess er nýjasta vöru-merki félagsins, The Saucy Fish Co., sem er eitt af þeim vörumerkjum sem um þessar mundir vex hvað hraðast í smásölu í Bretlandi. Félagið hefur á að skipa frábæru starfsfólki sem hefur mikla færni í framleiðslu og markaðs-

setningu á afurðum úr sjávarfangi. Eftir umrót undan-farinna ára stendur félagið nú fjárhagslega sterkt. Mikil gerjun er í sjávarútvegsgeiranum og Icelandic Group er í góðri stöðu til að nýta sér þau tækifæri sem myndast við slíkar aðstæður. Félagið hyggst nýta sér þá þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp innan þess og sækja fram á komandi árum. Vinna við mótun stefnu og framtíðasýnar hefur verið í fullum gangi hjá félaginu. Með öflugum stjórnendum, starfsfólki og sterkum rótum er félagið með mikla möguleika til að eflast enn frekar og sækja fram á mörkuðum sínum og byggja upp nýja markaði fyrir verð-mæti íslensks sjávarútvegs.

Page 26: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S24

N1 er leiðandi verslunar- og þjónustufyrirtæki, sem um allt land veitir fólki á ferð og fyrir-

tækjum afburðaþjónustu, gæðavörur og heildarlausnir á sanngjörnu verði.

Kjarnastarfsemi félagsins snýst um sölu á eldsneyti, matvörum, rekstrarvörum, iðnaðarvörum

og þjónustu. Styrkur N1 liggur í gagnlegu vöruúrvali, víðfeðmu dreifikerfi og öflugu starfs-

fólki.

N1

Page 27: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 25

TEKJUR EBITDA AFKOMA

0

20

10

30

40

50

70

60

20122011

60.258

54.701

2.108

2.650

20122011

3.0

0

5

2.0

1.5

1.0

2.5

(milljarðar kr.)(milljarðar kr.)(milljarðar kr.)

1.160

4.509

201220110

5

4

2

3

1

STARFSEMI

N1 starfar um allt land og sinnir jafnt þörfum einstaklinga og fyrirtækja. Þéttriðið net þjónustustöðva sér til þess að eldsneyti og næring eru aðgengileg öllum lands-mönnum. Hluti þessara þjónustustöðva eru í raun stórir veitingastaðir sem sinna bæði fólki á ferðinni og heima-markaði. Fimm þjónustustöðvar á höfuðborgarsvæðinu eru umhverfisvottaðar samkvæmt ISO 14001 og fjórar til viðbótar eru í innleiðingarferli.

Þá rekur N1 bílaþjónustu á átta stöðum, sem sinna dekkjaþjónustu, smurþjónustu og smærri viðgerðum, auk tveggja smurverkstæða. Öll átta hjólbarðaverkstæði N1 eru annað árið í röð „Michelin Quality Dealer“ samkvæmt gæðastaðli Michelin. Frá júní 2010 hefur verkstæði N1 við Bíldshöfða 2 verið umhverfisvottað samkvæmt ISO 14001.

N1 starfrækir öflugt fyrirtækjasvið, sem sinnir viðskipta-vinum með heimsóknum og klæðskerasaumuðum lausnum og rekur verslanir víða um land, sem sérhæfa sig í iðnaðar- og rekstrarvörum til fyrirtækja..

Page 28: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S26

Vöruhús í Klettagörðum var keypt síðla árs og hefur verið aðlagað að þörfum N1.

N1 leggur mikla áherslu á heildarþjónustu við sjávarútveg, bæði við veiðar og vinnslu, og varð mikil aukning í sölu á vörum til sjávarútvegsins í heild sinni.

Aukning var í eldsneytissölu milli ára í heild sinni hjá félaginu og ræður þar mestu mikil aukning á sölu flug-eldsneytis.

Á árinu 2012 náðist þrátt fyrir erfitt árferði einn besti árangur í sölu á öðrum vörum en eldsneyti.

ÁRIÐ 2012

Þjónusta N1 við ferðamenn hefur farið vaxandi. Þjón-ustustöðvar eins og Staðarskáli, Blönduós, Egilsstaðir og Hvolsvöllur eru þungamiðja þeirrar þjónustu sem ferða-menn sækja í hjá félaginu. Í desember 2012 yfirtók N1 rekstur Hyrnunnar í Borgarnesi og fyrirhugar að opna þar gerbreytta og glæsilega N1 þjónustustöð um miðjan maí.

Verklegar framkvæmdir voru heldur meiri en 2011 og dreifðust á nokkra staði. Ber helst að nefna útlitsbreyt-ingu Nestisstöðvanna á Ártúnshöfða, við Hringbraut og við Skógarsel, ásamt öðrum framkvæmdum víða um land.

Page 29: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 27

Í milljónum króna 2012

Tekjur 60.258 EBITDA 2.650 Afkoma 1.160 Eigið fé 14.514 Eiginfjárhlutfall 52,3%Fjöldi starfsfólks 663

Lykiltölur

Mildur vetur gerði það að verkum að sala á vetrardekkjum var minni en væntingar voru um en á móti var aukning í allri sölu á bílavarahlutum, viðgerðum og þjónustu .

BREYTINGAR Á REKSTRI

Í júlí 2012 voru gerðar breytingar á yfirstjórn N1. Mar-grét Guðmundsdóttir tók við af Jóhanni Hjartarsyni sem stjórnarformaður og Eggert Benedikt Guðmundsson var ráðinn forstjóri í stað Hermanns Guðmundssonar, sem lét af störfum.

Í nóvember var tilkynnt að rekstri verslana með bílavara-hluti og -aukahluti yrði skipt út í sérstakt dótturfélag, Bílanaust, sem tók til starfa um áramót.

Á sama tíma var breytt og einfaldað skipulag félagsins kynnt. Rekstrarsvið félagsins urðu tvö. Einstaklingssvið annast og rekur þjónustustöðvar N1 um land allt ásamt bílaþjónustu, þ. á. m. smurstöðvar og dekkjaþjónustu. Fyrirtækjasvið annast viðskipti við stórnotendur og fyrir-tæki, beint frá höfuðstöðvum félagsins og í verslunum N1.

Page 30: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S28

Promens er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á plastvörum. Félagið þjónar viðskiptavinum í fjöl-

breyttum greinum iðnaðar, s.s. matvæla-, efna-, snyrtivöru- og lyfjaiðnaði, auk framleiðenda

bifreiða og þungavinnuvéla. Mörg heimsþekkt vörumerki eru meðal viðskiptavina félags-

ins. Sögu Promens má rekja til ársins 1984 þegar hópur fjárfesta stofnaði Sæplast á Dalvík

sem hóf framleiðslu á einangruðum fiskikerum sem áttu eftir að gjörbylta meðhöndlun og

gæðum fiskafurða. Promens starfrækir 42 verksmiðjur sem flestar eru staðsettar í Evrópu, en

félagið hyggur nú á aukna sókn á nýjum markaðssvæðum, svo sem í BRIK-löndunum svo-

kölluðu, þ.e. Brasilíu, Rússlandi, Indlandi og Kína, enda er vöxtur í notkun plasts mestur þar.

Hjá félaginu starfa um 3600 manns.

PROMENS

Page 31: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 29

TEKJUR EBITDA AFKOMA

0

200

100

400

300

500

600

800

700

20122011

596,7611,8

60,357,5

201220110

10

20

30

50

40

70

6019,7

10,2

20122011

5

10

20

15

0

(milljónir evra) (milljónir evra) (milljónir evra)

ÁHERSLA LÖGÐ Á BESTUN FERLA

Á árinu 2012 var hafist handa við að uppfæra upplýsinga-tæknikerfi samstæðunnar og einnig voru tekin stór skref við innleiðingu á bestunarferli sem hlotið hefur nafnið Promens Process Excellence, eða PPE. Um 200 starfs-menn hlutu í upphafi þjálfun í hugmyndafræði sem lýtur að bestun og samræmingu ferla á öllum sviðum starfsem-innar, allt frá áætlanagerð, vöruþróun og framleiðslu til sölu og markaðsmála. Um er að ræða langtímaverkefni sem mun á nokkrum árum ná til allra starfsstöðva og starfsmanna samstæðunnar.

STARFSEMIN Á ÁRINU 2012

Rekstur félagsins gekk vel á árinu og var afkoman í sam-ræmi við áætlanir. Er þessi árangur sérstaklega ánægju-legur í ljósi erfiðs efnahagsástands á lykilmörkuðum í Evrópu og hækkandi hráefnaverðs. Þrátt fyrir lítils háttar samdrátt í sölu jókst EBIDTA-framlegð félagsins um 4%, úr 57,8 milljónum evra í 60,3 milljónir evra. Eigið fé sam-stæðunnar jókst jafnframt um 11%, úr 149 milljónum evra í 166,4. Hagnaður Promens á árinu 2012 var 19,7 milljónir evra, eða 9,5 milljónum hærri en árið 2011.

Horn fjárfestingafélag og Framtakssjóður Íslands fara með 49,91% og 49,5% hlutafjár í félaginu. 0,59% eru í eigu lykilstarfsmanna. Eignarhald Horns og Framtaks-sjóðs, auk endurfjármögnunar félagsins sem lokið var í desember 2011, hefur skapað traustan grunn fyrir félagið og gert því kleift að horfa lengra fram á veginn en áður hefur verið mögulegt.

Page 32: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S30

VIÐSKIPTAVINIR

Promens á mjög breiðan hóp viðskiptavina og standa 15 stærstu viðskiptavinirnir að baki um 30% af heildarveltu sam-stæðunnar. Meðal þekktra vörumerkja í viðskiptavinahópi félagsins má nefna Shell, Exxon Mobile og Dow AgroScien-ces á sviði kemískra efna; Arla, Kavli og TetraPack á sviði matvælaumbúða; Unilever, Oriflame og Johnson&Johnson á sviði snyrtivöruumbúða og GlaxoSmithKline, Roche og Pfizer á sviði lækningaumbúða. Bifreiðaframleiðendur í við-skiptavinahópi Promens eru meðal annars Skoda, Renault og Volkswagen á sviði einkabíla, Scania, Volvo, og Daimler á sviði vöru- og rútubifreiða og John Deer, Claas og Bomag á sviði landbúnaðar- og þungavinnuvéla.

FRAMTÍÐARSÝN

Stjórn félagsins leiddi stefnumótunarvinnu á árinu þar sem horft er allt fram til ársins 2020. Mikill fjöldi starfsmanna félags-ins kom að þessari vinnu sem leiddi í ljós vaxtartækifæri hjá öllum sviðum félagsins. Afrakstur þessarar vinnu skilaði sér í nýjum langtímamarkmiðum sem þegar er farið að vinna að. Eitt af einkennum plastframleiðslu er tiltölulega litlar einingar. Sú samþjöppun sem átt hefur sér stað í mörgum geirum iðnaðar á liðnum árum er tiltölulega skammt á veg komin í plastiðnaði. Promens er því vakandi fyrir kauptækifærum sem styrkt geta samkeppnisstöðu félagsins og innkomu á nýja markaði.

Page 33: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 31

Plastframleiðsla í heiminum öllum hefur að jafnaði aukist um 10% árlega allt frá árinu 1950 og allt bendir til að þessi vöxtur haldi áfram. Hins vegar virðist vöxturinn á þessu sviði, sem svo mörgum öðrum, vera að færast til markaða eins og Asíu og Suður-Ameríku. Notkun plasts á þessum markaðssvæðum er einungis um 15 kg/mann samanborið við 60 kg/mann í Evr-ópu. Promens hefur því hafið undirbúning nýrra verksmiðja á þessum svæðum og standa vonir til að þær fyrstu hefji rekstur áður en langt um líður.

Í milljónum evra 2012

Tekjur 596,7EBITDA 60,3 Afkoma 19,3 Eigið fé 166,4Eiginfjárhlutfall 33,2%Fjöldi starfsfólks 3.600*Tölur samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri.

Lykiltölur

Page 34: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S32

VODAFONE

Vodafone er fjarskiptafyrirtæki sem býður einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opin-

berum aðilum alla meginþætti fjarskiptaþjónustu. Tugir þúsunda íslenskra heimila og yfir

hundrað þúsund einstaklingar nýta sér þjónustu Vodafone, sem einnig þjónustar öll stærstu

sveitarfélög landsins. Um helmingur tekna fyrirtækisins kemur af þjónustu við fyrirtæki og

helmingur af þjónustu við einstaklinga.

Page 35: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 33

(milljónir kr.)

TEKJUR

0

3000

6000

9000

12000

15000

20122011

(milljónir kr.)

EBITDA

201220110

1000

500

1500

2000

2500

3000

2.5992.768

12.63713.345

(milljónir kr.)

AFKOMA

201220110

100

50

200

300

400

150

250

350

450

227

400

ÁHERSLUR Í ÞJÓNUSTU

Vodafone hefur sett sér metnaðarfull þjónustumarkmið og vinnur markvisst að því að auka ánægju viðskiptavina. Alls voru haldin 158 námskeið fyrir starfsmenn en markmið nám-skeiðanna er að auka þekkingu starfsmanna og þjónustu-vitund. Á einstaklingssviði bar hæst met í fjölda snertinga við viðskiptavini, eftirfylgni sölu var aukin til að tryggja vel

heppnaða innleiðingu hjá viðskiptavinum og netspjallið sem notað er í þjónustuveri hefur notið sífellt meiri vinsælda. Boðið var upp á fjölda snjallsímanámskeiða fyrir viðskiptavini og stofnaðar sérstakar atburðatengdar sjónvarpsstöðvar, m.a. Ólympíurásin, EM Stöðin, 12stig Eurovisionstöð og sjón-varp Menningarnætur. Á fyrirtækjasviði var aukin áhersla á frumkvæði í þjónustu, t.d. með þjónustusímtölum og frum-kvæði í endursamningum ásamt því að úthluta smærri og millistórum fyrirtækjum sérstökum viðskiptastjóra. Áhersla var lögð á tækniaðstoð við fyrirtæki á árinu og hefur símtölum í tækniaðstoð fyrirtækja aukist jafnt og þétt og hefur málum sem klárast í fyrsta símtali fjölgað umtalsvert á árinu. Þjónustu-kannanir sýna að áherslur þjónustusviðs skiluðu enn ánægðari viðskiptavinum.

VEL HEPPNUÐ SKRÁNING Á HLUTABRÉFAMARKAÐ Vodafone hóf nýjan kafla í sögu sinni þegar hlutabréf félags-ins voru tekin til viðskipta á Nasdaq OMX Iceland þann 18. desember 2012. Ákvörðun um að stefna að skráningu var tekin um mitt ár og var undirbúningurinn því bæði stuttur og snarpur. Vodafone var sameinað móðurfélaginu, eignarhalds

félaginu Fjarskiptum ehf., hluthafar fjárfestu í nýju hlutafé í forgangsréttarútboði, langtímskuldir voru greiddar niður um 2,2 milljarða króna og eftirstöðvar endurfjármagnaðar á hag-stæðum kjörum. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðinn ráðgjafi félagsins og Framtakssjóðs Íslands í ferlinu og var það fyrir samstillt átak allra hluteigandi aðila að skráningin á Nasdaq OMX Iceland var til mikils sóma. Þegar upp var staðið hafði 60% eignarhlutur skipt um hendur og var hver hlutur seldur á 31,5 krónu, umframeftirspurn var eftir hlutabréfum.

ÁRIÐ SEM VODAFONE VARÐ FULLTÍÐA

Í aðdraganda skráningarinnar var farið ítarlega yfir alla starf-semi félagsins, allt frá viðskiptasamningum og fjárhagskerfum yfir í stjórnskipulag og stjórnarhætti. Áreiðanleikakannanir, annars vegar lögfræðileg og hins vegar fjárhagsleg, sýndu að félagið var í það heila vel undirbúið að takast á við kröfur markaðarins. Á árinu 2012 fór Vodafone í gegnum ýmiss konar breytingar á stjórnskipulagi félagsins. Í kjölfar þeirra breytinga er Vodafone fulltíða fyrirtæki með sterkar grunn-stoðir og traustan rekstur.

Page 36: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S34

FJÁRFESTINGAR ÁRSINS

Undanfarin ár hafa fjárfestingar Vodafone miðað að því að undirbúa félagið fyrir þær breytingar sem eru að verða á fjarskiptanotkun viðskiptavina. Á árinu var m.a. fjárfest í miðlægum búnaði fyrir gagnvirkt sjónvarp (IPTV), viðmót notenda var endurhannað og fjárfest í nýjum háskerpumynd-lyklum. Hinu nýja IPTV-kerfi var vel tekið og myndar tækifæri

til framtíðarþróunar. Þá var innleiðingu á nýju reikningagerð-arkerfi, LEAP, lokið en kerfið myndar nýtt hjarta í tölvukerfum fyrirtækisins. LEAP er hraðvirkt kerfi með mikinn sveigjanleika sem m.a. gefur meiri möguleika í vöruþróun og stýringu þjón-ustuþátta í rauntíma. Í lok árs gerði Vodafone síðan samning við Huawei um áframhaldandi samstarf við uppbyggingu far-símakerfis. Samningurinn tryggir fyrirtækinu aðgengi að fyrsta flokks vél- og hugbúnaði eftir þörfum og tryggir að Vodafone verði í fremstu röð í farsímaþjónustu á næstu árum.

MARKVERT MARKAÐSSTARF

Markaðsstarf félagsins vakti verðskuldaða athygli á árinu og hlaut m.a. átta tilnefningar í sex mismunandi flokkum til Lúð-ursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna og fjórar tilnefningar til NEXPO-vefverðlaunanna fyrir markaðssetningu á netinu. Meðal tilnefndra auglýsinga var herferðin „Tengjum saman jólin“ sem tilnefnd var í flokki auglýsingaherferða ársins, snjall-

kaupaverslunin á Laugavegi í flokki umhverfisauglýsinga og þá fékk Vodafone þrjár af fimm tilnefningum í flokki stafrænna auglýsinga – hreyfimynda. Í upphafi árs 2013 var undirbúin samskiptayfirlýsing Vodafone sem birt var í febrúar 2013. Samskiptayfirlýsingin er grunnurinn að samfelldu stefi í innri og ytri markaðssetningu og varðar veg félagsins að því mark-miði að eignast ánægðustu viðskiptavinina.

Page 37: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 35

Í milljónum króna 2012

Tekjur 13.345EBITDA 2.768Afkoma 400 Eigið fé 6,782Eiginfjárhlutfall 14,66%Fjöldi stöðugilda 324

Lykiltölur

FJÁRHAGSLEGUR STYRKLEIKI

Velta Vodafone á Íslandi nam um 13,3 milljörðum króna á árinu. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var um 2,76 milljarðar króna. Eigið fé Vodafone í árslok var 6,78 milljarðar og vaxtaberandi langtímaskuldir námu 6,16 milljörðum króna. Hagnaður af rekstri félagsins var 400 milljónir króna. Fjöldi starfsmanna í árslok var 390

en stöðugildin voru 324 talsins. Hlutfall karla var hærra en kvenna í árslok, eða 65% á móti 35% og meðalstarfsaldur var 4,5 ár. Vodafone styður með virkum hætti við starfsþróun starfsmanna en 88% stjórnenda koma úr öðrum störfum innan fyrirtækisins. Mælingar á viðhorfum starfsfólks í árslok sýndu almennt mikla starfsánægju og fyrirtækið virðist standa mörgum öðrum framar á því sviði.

Page 38: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S36

Page 39: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 37

2012ÁRSREIKNINGUR

Page 40: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S38

Kópavogur, 7. mars 2013

Deloitte ehf.

Guðmundur Kjartanssonendurskoðandi

Til stjórnar og hluthafa í Framtakssjóði Íslands slhf.

Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Fram-

takssjóðs Íslands slhf. fyrir árið 2012. Ársreikningurinn

hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, efna-

hagsreikning, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikil-

vægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á ársreikn-

ingnum

Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og

framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um árs-

reikninga. Stjórn og framkvæmdastjóri eru einnig ábyrg

fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð

og framsetningu ársreiknings, þannig að hann sé án

verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða

mistaka.

Ábyrgð endurskoðenda

Ábyrgð okkar felst í því áliti sem við látum í ljós á árs-

reikningnum á grundvelli endurskoðunarinnar. Endur-

skoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunar-

staðla. Samkvæmt þeim ber okkur að fara eftir settum

siðareglum, skipuleggja og haga endurskoðuninni

þannig að nægjanleg vissa fáist um að ársreikningurinn

sé án verulegra annmarka.

Endurskoðun felur í sér aðgerðir til staðfestingar á fjár-

hæðum og skýringum í ársreikningnum. Val endurskoð-

unaraðgerða byggir á faglegu mati endurskoðandans,

meðal annars á þeirri hættu að verulegir annmarkar séu

á ársreikningnum, hvort sem er af völdum sviksemi eða

mistaka. Við áhættumatið er tekið tillit til þess innra

eftirlits félagsins sem varðar gerð og framsetningu árs-

reikningsins, til þess að skipuleggja viðeigandi endur-

skoðunaraðgerðir, en ekki til þess að gefa álit á virkni

innra eftirlits fyrirtækisins. Endurskoðun felur einnig í sér

mat á þeim reikningsskilaaðferðum og matsaðferðum

sem stjórnendur nota við gerð ársreikningsins sem og

mat á framsetningu hans í heild.

Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægi-

legra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Álit

Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd

af afkomu félagsins á árinu 2012, efnahag þess 31. des-

ember 2012 og breytingu á handbæru fé á árinu 2012,

í samræmi við lög um ársreikninga.

Áritun óháðs endurskoðanda

Page 41: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 39

Reykjavík, 7. mars 2013

Í stjórn:Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarmaður

Framkvæmdastjóri:Brynjólfur Bjarnason

Framtakssjóður Íslands slhf. var stofnaður í lok árs 2009 og er tilgangur félagsins að fjárfesta í íslenskum fyrir-tækjum í öllum atvinnugreinum.

Ársreikningur Framtakssjóðs Íslands slhf. fyrir árið 2012 er gerður í samræmi við lög um ársreikninga. Eignarhlut-ar í félögum eru færðir á kostnaðarverði að því undan-skildu að eignarhlutar í félögum sem eru með hlutabréf sín skráð á markaði og teljast ekki hlutdeildarfélög eru færðir á síðasta skráða gengi hlutabréfa í kauphöll í lok árs.

Hagnaður Framtakssjóðs Íslands slhf. á árinu 2012 nam kr. 6.111.145.142. Arðsemi eigin fjár félagsins var um 20,67%. Samkvæmt efnahagsreikningi nema heildar-eignir félagsins kr. 29.623.042.751 og bókfært eigið fé í árslok er kr. 29.504.842.705. Eiginfjárhlutfallið er um 99,6%. Eins og fram kemur í skýringu nr. 6 þá er það mat félagsins að áætlað gangvirði þessara eigna sé um 46.688 milljónir króna en bókfært verð sömu eigna er 29.098 milljónir króna.

Í ársbyrjun 2012 var Eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. slitið og við það færðust allir eignarhlutar í safni þess félags

yfir til Framtakssjóðsins. Í eignasafni Vestia var 57,9% eignarhlutur í Advania hf., 61% hlutur í Eignarhalds-félaginu Fjarskipti hf., 50% eignarhlutur í Holtavegi 10 ehf. (áður Húsasmiðjan ehf.) og 100% eignarhlutur í Plastprenti ehf. Á árinu seldi sjóðurinn alla hluti sína í Plastprenti ehf. og Holtavegi 10 ehf.

Helstu fjárfestingar sjóðsins á árinu voru 29% hlutur í N1 hf. og aukningarhlutir í Fjarskiptum hf. Sjóðurinn seldi á árinu verulegan hlut eða um 60% í Fjarskiptum hf. og 7% hlut í Icelandair Group hf.

Í lok ársins voru hluthafar í félaginu 19 eins og í upphafi árs. Þrír hluthafar eiga meira en 10% hlutafjárins en þeir eru Landsbankinn hf. 27,6%, Lífeyrissjóður verzlunar-manna 19,9% og Gildi lífeyrissjóður 10,4%.

Það er álit stjórnar og framkvæmdastjóra Framtaks-sjóðs Íslands slhf. að í ársreikningi þessum komi fram allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að glöggva sig á stöðu félagsins í lok ársins, rekstrarárangri ársins og fjárhagslegri þróun á árinu. Stjórn og framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands slhf. staðfesta hér með ársreikning félagsins fyrir árið 2012 með undirritun sinni.

Skýrsla stjórnar

Page 42: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S40

Skýr. 2012 2011

Vaxtatekjur 3 180.939.052 28.259.090 Innleystur söluhagnaður eignarhluta 6 4.607.601.215 1.458.983.718 Hækkun markaðsverðs eignarhluta 6 2.021.391.483 1.462.014.371 6.809.931.750 2.949.257.179

Virðisrýrnun eignarhluta 6 (403.000.000) (250.000.000)Umsýsluþóknun (230.785.538) (179.978.626)Beinn kostnaður vegna fjárfestinga (61.792.758) (173.183.717)Annar rekstrarkostnaður (3.207.627) (2.016.142) Rekstrarhagnaður 6.111.145.827 2.344.078.694 Fjármagnsgjöld 4 (685) (98.577) Hagnaður ársins 6.111.145.142 2.343.980.117

Rekstrarreikningur ársins 2012

Page 43: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 41

Eignir Skýr. 31.12.2012 31.12 2011Fjárfestingar Eignarhlutar í félögum á kostnaðarverði 6 22.010.295.994 22.453.423.297 Eignarhlutar í félögum á markaðsverði 6 7.087.972.827 4.781.213.982 29.098.268.821 27.234.637.279

Veltufjármunir Kröfur á tengd félög 10 113.851.228 30.088.882 Aðrar skammtímakröfur 7 41.839.628 5.651.812 Handbært fé 7,10 369.083.074 882.225.155 524.773.930 917.965.849 Eignir 29.623.042.751 28.152.603.128 Eigið fé og skuldir 31.12.2012 31.12 2011Eigið fé 8 Hlutafé 23.387.541 24.506.240 Yfirverðsreikningur 23.364.154.086 24.481.734.251 Lögbundinn varasjóður 6.155.936 0 Óráðstafað eigið fé 6.111.145.142 3.041.155.936 Eigið fé 29.504.842.705 27.547.396.427 Skammtímaskuldir Skuldir við tengd félög 10 6.575.330 17.211.844 Ógreitt vegna fjárfestinga 10 0 558.280.027 Aðrar skammtímaskuldir 9 111.624.716 29.714.830 118.200.046 605.206.701 Skuldir 118.200.046 605.206.701 Eigið fé og skuldir 29.623.042.751 28.152.603.128

Efnahagsreikningur 31. desember 2012

Page 44: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S42

Skýr. 2012 2011Rekstrarhreyfingar Rekstrarhagnaður 6.111.145.827 2.344.078.694 Hækkun markaðsverðs eignarhluta 6 (2.021.391.483) (1.462.014.371)Virðisrýrnun 6 403.000.000 250.000.000 Hreint veltufé frá rekstri (til rekstrar) 4.492.754.344 1.132.064.323 Breyting rekstrartengdra eigna og skulda: Rekstrartengdar eignir, (hækkun) lækkun (36.187.715) 55.560.745 Rekstrartengdar skuldir, hækkun 67.923.544 11.930.712 Handbært fé frá rekstri (til rekstrar) án vaxta og skatta 4.524.490.173 1.199.555.780 Greiddir vextir (685) (98.577)Handbært fé frá rekstri (til rekstrar) 4.524.489.488 1.199.457.203 Fjárfestingahreyfingar Keypt fjárfestingaverðbréf (5.362.149.929) (25.971.492.168)Seld fjárfestingaverðbréf 4.430.620.605 4.450.000.000 (Hækkun) lækkun á kröfum á tengd félög 29.958.382 (30.088.882) (901.570.942) (21.551.581.050)

Fjármögnunarhreyfingar Greiddur arður 8 (3.031.650.172) 0 Innborgað hlutafé 8 4.834.301.136 22.979.391.212 Útborgað hlutafé 8 (5.953.000.000) (2.708.983.721) (4.150.349.036) 20.270.407.491 Lækkun handbærs fjár (527.430.490) (81.716.356)Handbært fé í upphafi árs 882.225.155 963.941.511 Handbært fé við slit Vestia 14.288.409 0 Handbært fé í lok árs 369.083.074 882.225.155

Yfirlit um sjóðstreymi ársins 2012

Page 45: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 43

Skýringar

1. Starfsemi Framtakssjóður Íslands slhf. var stofnaður á árinu 2009 og er tilgangur félagsins að fjárfesta í íslenskum fyrir-tækjum.

Framtakssjóður Íslands slhf. er samlagshlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Samlagshlutafélag er sú tegund samlagsfélaga þar sem einn eða fleiri félagsmenn (ábyrgðaraðilar) bera beina og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins en aðrir félagsmenn (hluthafar), einn eða fleiri, bera takmarkaða ábyrgð á grundvelli framlaga sem mynda hlutafé í félaginu. Ábyrgðaraðilar geta jafnframt verið hluthafar.

2. ReikningsskilaaðferðirGrundvöllur reikningsskilannaÁrsreikningur Framtakssjóðs Íslands slhf. fyrir árið 2012 er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur. Ársreikningurinn byggir á kostnaðarverðsreikningsskilum að því undanskildu að markaðsbréf eru færð á gangverði. Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum.

Eftirfarandi er samantekt á helstu reikningsskilaaðferðum félagsins.

Mat og ákvarðanirVið gerð ársreiknings þurfa stjórnendur, í samræmi við lög um ársreikninga, að taka ákvarðanir, meta og draga ályktanir sem hafa áhrif á eignir og skuldir á reikningsskiladegi, upplýsingar í skýringum og tekjur og gjöld. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og mynda grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti.

Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili þegar þær eiga sér stað.

VaxtatekjurVaxtatekjur eru færðar fyrir viðkomandi tímabil í samræmi við viðeigandi höfuðstól og vaxtaprósentu.

Umsýsluþóknun Framtakssjóður Íslands slhf. greiðir til Framtakssjóðs Íslands GP hf. umsýsluþóknun í samræmi við skilmála félagsins. Umsýsluþóknuninni er ætlað að standa straum af útlögðum kostnaði er fellur til við rekstur Framtakssjóðs Íslands GP hf. að frádregnum öðrum rekstrartekjum.

Fjármagnskostnaður Allur fjármagnskostnaður er færður í rekstrarreikning á því tímabili sem hann fellur til.

SkattamálFélagið er ekki sjálfstæður skattaðili og skattar eru því ekki reiknaðir í ársreikningnum.

VirðisrýrnunÁ hverjum reikningsskiladegi er bókfært verð eigna metið með tilliti til virðisrýrnunar. Komi fram vísbending um virðisrýrnun er endurheimtanlegt virði eignarinnar metið í því skyni að hægt sé að ákvarða hversu víðtæk virðisrýrnun er sé um slíkt að ræða. Eignarhlutar í félögum á kostnaðarverðiEignarhlutar í félögum sem eru færðir á kostnaðarverði eru eignarhlutar í dóttur- og hlutdeildarfélögum. Eignarhlutarnir eru metnir á kostnaðarverði að teknu tilliti til virðisrýrnunar. Eignarhlutar í félögum á markaðsverði Eignarhlutar í félögum sem eru færðir á markaðsverði eru þeir eignarhlutar sem skráðir eru á virkum markaði og keyptir í þeim tilgangi að hagnast á verðbreytingum á skipulögðum markaði. Þeir eru færðir á markaðsverði og færist matsbreyting í rekstrarreikning á því tímabili sem hún fellur til.

Page 46: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S44

3. Vaxtatekjur og arður 2012 2011

Vaxtatekjur af bankainnstæðum 28.092.291 28.259.090

Arður af hlutabréfaeign 152.846.761 0

180.939.052 28.259.090

4. Fjármagnsgjöld

2012 2011

Vaxtagjöld 685 2.001

Stimpilgjöld 0 96.576

685 98.577

5. Arður

Á árinu 2012 var arður greiddur til hluthafa að fjárhæð kr. 3.035.000.000.

6. Eignarhlutar í félögum

2012 2011

Eignarhlutar í félögum færðir á kostnaðarverði: Staða í ársbyrjun 22.453.423.297 0

Keypt á árinu 4.762.149.929 25.903.423.297

Selt á árinu (6.428.851.476) (3.200.000.000)

Virðisrýrnun (403.000.000) (250.000.000)

Leiðrétting vegna slita Vestia (86.289.265) 0

Innleystur söluhagnaður 2.873.230.871 0

Endurflokkun á eignarhlutum úr kostnaðarverði í markaðsverð (1.160.367.362) 0

Kostnaðarverð í árslok 22.010.295.994 22.453.423.297

Eignarhlutir í félögum færðir á markaðsverði:

Staða í ársbyrjun 4.781.213.982 4.569.199.611

Selt á árinu (2.609.370.344) (2.708.983.718)

Innleystur söluhagnaður 1.734.370.344 1.458.983.718

Endurflokkun á eignarhlutum úr kostnaðarverði í markaðsverð 1.160.367.362 0

Fært í markaðsverð 2.021.391.483 1.462.014.371

Bókfært verð eignarhluta í lok ársins 7.087.972.827 4.781.213.982

Skýringar

Page 47: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 45

Yfirlit yfir eignarhluta í félögum á kostnaðarverði:

Hlutdeild % Nafnverð

Eignarhlutur í Icelandic Group hf. 99,99% 1.576.578.000

Eignarhlutur í Icelandic Group Investments hf. 100,0% 495.922.000

Eignarhlutur í Advania hf. 75,36% 417.231.004

Eignarhlutur í Promens hf. (nafnverð í EUR) 49,50% 28.234.814

Eignarhlutur í N1 hf. 44,82% 448.180.945

Yfirlit yfir eignarhluta í félögum á markaðsverði:

Hlutdeild % Nafnverð Markaðsgengi

Eignarhlutur í Fjarskipti hf. 19,70% 66.099.467 32,55

Eignarhlutur í Icelandair Group hf. 12,01% 600.539.559 8,22

Félagið hefur lagt mat á áætlað gangvirði þeirra eignarhluta sem fjárfest hefur verið í. Áætlað gangvirði miðast við niðurstöður virðisrýrnunarprófa undirliggjandi eigna. Við gerð virðisrýrnunarprófs er stuðst við núvirt framtíðarsjóðsflæði hverrar einingar sem byggir á áætlunum viðkomandi félaga og metinni ávöxtunarkröfu þeirra miðað við gefnar forsendur. Það er mat félagsins að áætlað gangvirði þessara eigna sé um 46.688 milljónir króna en bókfært verð sömu eigna er 29.098 milljónir króna.

Gagnvirðismat er háð ýmsum utanaðkomandi áhættuþáttum svo sem breytingu á gengi erlendra gjaldmiðla og vaxtastigi. .

7. Aðrar peningalegar eignir

Aðrar skammtímakröfur

31.12.2012 31.12 2011

Fjármagnstekjuskattur 41.839.628 5.651.812

41.839.628 5.651.812

Handbært fé

31.12.2012 31.12 2011

Óbundnar bankainnstæður í íslenskum krónum 369.083.074 882.225.155

369.083.074 882.225.155

Skýringar

Page 48: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S46

8. Eigið fé

Hlutafé félagsins var aukið um kr. 4.834.301 á árinu með innköllun nýrra hluta. Í desember 2012 var ákveðið að lækka hlutafé um sem nemur kr. 5.953.000 og greiða út til hluthafa. Hver króna nafnverðs jafngildir einu atkvæði.

Eigið fé greinist þannig: Yfirverðs- Lögbundinn Óráðstafað Hlutafé reikningur varasjóður eigið fé Samtals

Eigið fé 1.1.2011 4.235.833 4.231.597.167 0 697.175.819 4.933.008.819

Nýtt hlutafé 22.979.392 22.956.411.820 22.979.391.212

Lækkun hlutafjár (2.708.985) (2.706.274.736) (2.708.983.721)

Hagnaður ársins 2.343.980.117 2.343.980.117

Eigið fé 1.1. 2012 24.506.240 24.481.734.251 0 3.041.155.936 27.547.396.427

Nýtt hlutafé 4.834.301 4.829.466.835 4.834.301.136

Lækkun hlutafjár (5.953.000) (5.947.047.000) (5.953.000.000)

Framlag í varasjóð 6.155.936 (6.155.936) 0

Greiddur arður (3.035.000.000) (3.035.000.000)

Hagnaður ársins 6.111.145.142 6.111.145.142

Eigið fé 31.12 2012 23.387.541 23.364.154.086 6.155.936 6.111.145.142 29.504.842.705

Innborgað - Hluthafar: útborgað Hlutafé alls Hlutdeild í eigin fé

Landsbankinn hf. 27,59% 6.452.293.453 6.452.293 8.139.970.444

Lífeyrissjóður verzlunarmanna 19,91% 4.657.265.414 4.657.266 5.875.431.818

Gildi lífeyrissjóður 10,39% 2.430.363.867 2.430.364 3.066.055.917

Sameinaði lífeyrissjóðurinn 7,72% 1.806.642.167 1.806.643 2.279.192.935

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A-deild 7,36% 1.720.611.587 1.720.612 2.170.659.458

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 6,62% 1.548.550.429 1.548.550 1.953.592.503

Stafir lífeyrissjóður 5,52% 1.290.458.691 1.290.459 1.627.994.593

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga 2,76% 645.229.345 645.229 813.996.666

Festa lífeyrissjóður 2,76% 645.229.345 645.229 813.996.666

Almenni lífeyrissjóðurinn 1,84% 430.152.897 430.153 542.664.864

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 1,47% 344.122.317 344.122 434.131.387

Lífeyrissjóður Bankamanna aldursdeild 1,24% 290.783.358 290.783 366.840.908

Lífeyrissjóður Vestfirðinga 1,10% 258.091.738 258.091 325.597.909

Lífeyrissjóður verkfræðinga 1,10% 258.091.738 258.091 325.597.909

Eftirlaunasjóður FÍA 0,77% 180.664.217 180.664 227.918.915

Íslenski lífeyrissjóðurinn 0,68% 159.156.572 159.157 200.786.492

Lífeyrissjóður Rangæinga 0,58% 136.788.622 136.788 172.566.602

VÍS hf. 0,55% 129.045.869 129.047 162.800.847

Framtakssjóður Íslands GP hf. 0,02% 4.000.000 4.000 5.045.871

23.387.541.627 23.387.541 29.504.842.705

Skýringar

Page 49: Framtakssjóður Íslands

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 2 47

9. Aðrar peningalegar skuldir

Aðrar skammtímaskuldir

31.12.2012 31.12 2011

Ógreiddur fjármagnstekjuskattur 3.349.828 0

Ógreiddur kostnaður 108.274.888 29.714.830

111.624.716 29.714.830

10. Tengdir aðilar

Tengdir aðilar eru þeir aðilar sem hafa umtalsverð áhrif á félagið, beint eða óbeint, þ.m.t. móðurfélag, eigendur og fjölskyldur þeirra, stórir fjárfestar, lykilstarfsmenn og fjölskyldur sem og aðilar sem er stjórnað af eða eru verulega háðir félaginu, s.s. hlutdeildarfélög og samrekstrarfélög. Viðskipti við tengda aðila hafa verið gerð á sambærilegum grundvelli og viðskipti við ótengda aðila.

Upplýsingar varðandi tengda aðila eru eftirfarandi:

Viðskipti við tengd félög árið 2012:

Keypt þjónusta Seld þjónusta Kröfur Skuldir

FSÍ GP hf., ábyrgðaraðili 230.785.538 0 0 6.575.330

Icelandic Group, dótturfélag 0 0 130.500 0

Landsbankinn hf., hluthafi 409.544 510.901 128.218.135 0 231.195.082 510.901 128.348.635 6.575.330

Viðskipti við tengd félög árið 2011:

Keypt þjónusta Seld þjónusta Kröfur Skuldir

FSÍ GP hf., ábyrgðaraðili 179.978.626 0 0 17.211.844

Icelandic Group, dótturfélag 0 0 30.088.882 0

Landsbankinn hf., hluthafi 430.830 0 0 558.280.027

180.409.456 0 30.088.882 575.491.871

11. Önnur mál

Framtakssjóður Íslands slhf. hefur á grundvelli kaupsamnings við Arion banka frá 5. júní 2012 yfirtekið öll réttindi og skyldur seljanda samkvæmt samkomulagi um kauprétt á hlutum í N1 við endurskipulagningu fjárhags frá 7. apríl 2011. Þær skyldur sem lagðar eru á seljanda með samkomulaginu og lúta að kauprétti sem svarar til 10% hlutafjár í N1 eru því nú skyldur Framtakssjóðsins.

12. Samþykki ársreiknings

Ársreikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi þann 7. mars 2013.

Skýringar

Page 50: Framtakssjóður Íslands

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S48

14. Kennitölur

Úr rekstrarreikningi: 2012 2011

Arðsemi

Hagnaður ársins 6.111.145.142 2.343.980.117

Arðsemi eigin fjár - Hagnaður/vegin meðalstaða eigin fjár 20,7% 13,3%

Úr efnahagsreikningi: 31.12.2012 31.12 2011

Fjárhagslegur styrkur

Innra virði hlutafjár - Eigið fé/Hlutafé 1261,56 1124,1

Eiginfjárhlutfall - Eigið fé/Skuldir og eigið fé 99,6% 97,9%

Skýringar

Page 51: Framtakssjóður Íslands

FRAMTAKSSJÓÐURÍSLANDSFramtakssjóður Íslands slhf . Lágmúli 9 108 Reykjavík Sími 571 7080 Fax 571 7089 framtakssjodur@framtakssjodur . is

Hönnun og umbrot : Tómas Tómasson Graf ískur hönnuður FÍTMyndir fyr i r FSÍ : Sigur jón Ragnar / Ragnar Th.Aðrar myndir : Ýmsir l jósmyndarar

www.framtakssjodur . is

Page 52: Framtakssjóður Íslands

FRAMTAKSSJÓÐURÍSLANDS