8
GLUGGAR OG HURÐIR - FYRIR ALLAR HÚSGERÐIR Viðargluggar - Álgluggar - Álklæddir viðargluggar - Bílskúrshurðir - Útihurðir

Gluggar og hurðir

Embed Size (px)

DESCRIPTION

BYKO býður upp á fjölbreytt úrval glugga og hurða.

Citation preview

Page 1: Gluggar og hurðir

GLUGGAR OG HURÐIR- FYRIR ALLAR HÚSGERÐIR

Viðargluggar - Álgluggar - Álklæddir viðargluggar - Bílskúrshurðir - Útihurðir

Page 2: Gluggar og hurðir

Reynsla, þekking og fjölbReytt úRval

BYKO býður upp á fjölbreytt úrval glugga og hurða sem framleiddir eru í okkar eigin glugga- og hurðaverksmiðju. BYKO hefur framleitt glugga og hurðir í fjöldamörg ár, hvort tveggja sérhannað fyrir íslenskar aðstæður. Sú mikla reynsla og þekking sem áunnist hefur í BYKO gegnum árin hefur skilað sér í mikilli vöruþróun þannig að bæði gluggarnir og hurðirnar uppfylla ýtrustu gæðakröfur sem gerðar eru á markaðnum. Reynslan hefur líka sýnt fram á einstaklega góða endingu og mikla hagkvæmni í uppsetningu.

Gluggar og hurðir sem henta þínu húsiÞað er mikilvægt að velja glugga og hurðir sem henta aðstæðum og umhverfi hverju sinni. Sölumenn BYKO hafa margra ára reynslu og eru þjálfaðir í að veita viðskipta-v inum faglega ráðgjöf og góða þjónustu.

Það er því alltaf hægt að stóla á að fá góð ráð í BYKO þegar kemur að vali á gluggum og hurðum.

Frábær nýjung hjá BYKO

3ja ára ábyrgð á fullfrágengnum gluggum úr verksmiðju BYKO

Page 3: Gluggar og hurðir

Uppsetning, viðhald og umhirða glugga og hurða

Best er að setja glugga og hurðir upp fullfrágengna þegar húsið er tilbúið undir tréverk, þar sem raka- og hitastig hefur mikil áhrif á timbur og því skiptir rakastig á geymslustað einnig gífurlega miklu máli.

Viðhaldstíðni glugga og hurða fer eftir notkun og aðstæðum, hversu mikið mæðir á þeim, sól, rigningu og almennri veðrun. Mælt er með því að bera á olíuborna glugga að minnsta kosti einu sinni til tvisvar á ári.

Endurmálun glugga og hurða fer einnig eftir því hversu mikið mæðir á viðnum. Skrár og lamir þarfnast enn fremur viðhalds og þarf að smyrja, með sýrulausri olíu eða feiti, eftir þörfum eða minnst tvisvar á ári.

Nánari upplýsingar um almennt viðhald hurða og glugga veita sölumenn glugga- og hurðadeildar BYKO og ráðgjöf um endurmálun og olíuburð veita sérfræðingar í málningardeildum BYKO. Auk þess má fá frekari upp lýsingar á www.byko.is.

BYKO gluggar eru CE vottaðir og með íslenska gerðar vottun frá Nýsköpunar miðstöð Íslands (NMI). Þar eru gluggarnir prófaðir reglulega í slagregnskáp. BYKO er aðili að NORDMARK gæðaeftirliti og hefur fengið sérstaka viðurkenningu NTR (Nordisk Trerad). Rakainnihald viðarins er stöðugt kannað og fylgst er með loftrakastýringu í fyrirtækinu.

GæðaeftirlitBYKO gluggar eru með íslenska vottun frá Nýsköpuna rmiðstöð Íslands (NMI).

byko gluggaR með gæðavottun

Page 4: Gluggar og hurðir

Nánari upplýsingar á byko.is, eða senda fyrirspurn á [email protected]

Sími 515 4000

BYKO býður nú upp á endingargóðar bílskúrshurðir úr galvanhúðuðu stáli sem hafa fyrir löngu sannað sig í rysjóttu íslensku veðurfari. Hurðirnar eru með þykkri einangrun og þola því verulegt vindálag og kulda. Vandaður umbúnaður og traustur frágangur tryggir síðan viðhaldsfría endingu árum saman. Grunnlitur hurðanna er hvítur RAL-9016 en síðan er hægt að sérpanta þær í öllum litum RAL–litakortsins. Enn fremur er hægt að fá hurðirnar með ýmsum viðaráferðum.

Öflugt brautarkerfi hefur margsannað sig við íslenskar aðstæður og renna hurðarflekarnir á braut sem fer upp fyrir efstu brún dyraopsins þannig að hæð þess nýtist að fullu. Öflugir gúmmílistar tryggja þétta lokun og þol gegn vatni og vindi. Að neðan er gúmmílisti með þrefaldri lokun, þ.e. niður, út og inn. Auðvelt er að opna hurðirnar með handafli og einnig er hægt að tengja bílskúrshurðaopnara við þær. Bílskúrshurðirnar eru með klemmivörn.

BYKO býður alla þjónustu við hurðirnar og hægt er að fá þaulvana menn til að annast uppsetningu þeirra.

Nánari upplýsingar um mælingar, áferð og úrval á www.byko.is

bílskúRshuRðiRí miklu úRvali

Page 5: Gluggar og hurðir

byko gluggaRniR eRu séRsmíðaðiR að þínum óskum

GlerBYKO býður upp á ýmsar tegundir glers í gluggana. Stöðluð framleiðsla er með góðu einangrunargleri þar sem U-gildi er ca 1,1 - 1,3. Því lægra sem U-gildið er því meiri ein angr un. Einnig býður BYKO upp á ýmsar gerðir sól varnarglers. Allir glerlistar eru með fræstri rauf fyrir þéttilista sem sameinar kosti hefðbundins þéttilista og toppfyllingar.

Gluggapóstar og karmarÁ karmastykkjum og innanverðum póstum eru brúnir fræstar þannig að gluggarnir eru fallegri og nettari, en þeir fást einnig án skrautprófíls að innanverðu. Allar aðrar brúnir eru rúnnaðar sem dregur úr hættu á skemmd um við flutning og ísetningu. Við málun myndast því heil filma sem slitnar ekki á skörpum brúnum. Öll lárrétt föls eru hallandi til að vatn safnist ekki fyrir í þeim og allir undirlistar eru með droparauf að neðan. Hönnun ál undirlistans miðar að því að halda fölsum þurrum og góðri loftun við glerið. Þá eru fræstar í öll karmastykki vatns- og vindraufar sem einnig eru sæti fyrir gluggalamir. Timburprófíll Álklæddur timburprófíll

Page 6: Gluggar og hurðir

Viðargluggar

Fura / Mahóní / Oregon fura

ViðargluggarBYKO býður upp á viðarglugga úr furu, oregon furu og mahóní. Gluggana er hægt að fá í fjölmörgum útfærslum. Gluggarnir eru fúavarðir. Þeir eru síðan yfirborðsmeðhöndlaðir með viðurkenndu akrýl þekjandi málningar kerfi, þar sem hægt er að velja um fjölda lita. Hægt er að fá gluggana án yfirborðs-meðhöndlunar en ekki er mælt með því, því best er að bera á viðinn og yfirborðsmeðhöndla sem allra fyrst áður en hann fer undir beran himin.

Álklæddir viðargluggar Álkápan í álgluggunum frá BYKO veitir margfalt veðrun ar þol og endingu umfram hefðbundna tréglugga. Hönn un álkápunnar stuðlar að því að halda fölsum þurrum með góðri loftun. Henni er smellt á klossa sem tryggja góða loftun um timburhluta gluggans og halda honum þurrum. Kosturinn við álklædda glugga er að þeir eru nánast viðhaldsfríir og sérstaklega endingargóðir.

Álklætt að utan og viður að innan.

Hægt að velja úr fjölda lita á álkápu.

Hallandi föls eru íundirstykkjum á fögum.

Fræst er úr karmastykkjum fyrir IPA gluggajárnum.

Allar brúnir eru rúnaðar.

Hallandi föls eru í öllum undirstykkjum.

Álklæddir viðargluggar

Hægt er að velja um gluggajárnakerfi og fjölda opnunar möguleika án verulegs aukakostnaðar. Mælt er með notkun bremsulama í fölsum og stangarlæsingum að neðanverðu til að fá sem besta þéttingu.

ÁlgluggarBYKO býður einnig upp á vandaða álglugga í allar gerðir bygginga.

Page 7: Gluggar og hurðir

byko huRðiR fyRiR íslenskaR aðstæðuR

BYKO framleiðir fjölmargar gerðir af hurðum í marg vís legum útfærslum úr besta fáanlega efni sem völ er á. Hurðirnar fást úr furu, oregon furu og mahóní. Auk þeirra stöðluðu og fyrir fram hönnuðu hurða, sem sjá má teikningar af í þessum bæklingi, sérsmíðar BYKO einnig hurðir eftir óskum hvers og eins.

Svalahurðir er einnig hægt að fá með útliti útihurða.Frá UH1 til UH18 að undanskilinni UH6.

SH1 SH2 SH3

Svalahurðir

BYKO býður einnig upp á vandaðar rennihurðir úr áli.

LæsingarAllar innopnanlegar hurðir BYKO eru með þriggja punkta læsingu sem staðalbúnað en þriggja punkta læsing er mikill kostur. Með henni færðu þrjár læsingar: eina uppi, eina í miðjunni og eina niðri. Þriggja punkta læsingar veita ekki einungis meira öryggi heldur eru þær þéttari en hefðbundnar eins punkt læsingar.

Page 8: Gluggar og hurðir

Þriggja ára ábyrgð á fullfrágengnum gluggum úr verksmiðju BYKO

ViðartegundirHægt er að velja úr fjölda lita í RAL-litakerfi auk þess að olíubera þær með glærri viðarvörn.

250

mm

UH17 UH18 UH21

UH12 UH13

UH6-A UH6-B UH6-C UH6-D

UH14 UH15 UH16

UH1 UH5UH2 UH6UH3 UH4

UH9 UH10 UH11UH7 UH8

Oregon furaFura MahóníHvítt

UH6-E UH13 - með hliðargluggum

mikið úRval af huRðum og útfæRslum

Nánari upplýsingar á byko.is, eða senda fyrirspurn á [email protected]ími 515 4000