28
Umsókn til Tækniþróunarsjóðs Verkefnislýsing og drög að viðskiptaáætlun Vor 2014 Naglinn vefþjónusta ehf. Nagli.is eProcuring.com Merkið við þann flokk sem sótt er um Verkefnisstyrkur NAGLINN Frumherjastyrkur Markaðsstyrkur 17.2.2014 Útgáfa 7.1

Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

  • Upload
    others

  • View
    23

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Umsókn til Tækniþróunarsjóðs Verkefnislýsing og drög að viðskiptaáætlun

Vor 2014

Naglinn vefþjónusta ehf.

Nagli.is eProcuring.com

Merkið við þann flokk sem sótt er um

Verkefnisstyrkur NAGLINN

Frumherjastyrkur

Markaðsstyrkur

17.2.2014

Útgáfa 7.1

Page 2: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða II

1 Fyrirvarar

Skjal þetta er trúnaðarmál. Það er einungis ætlað stjórn Rannís, fagráði Tækniþróunarsjóðs og

öðrum starfsmönnum Rannís sem starfs síns vegna þurfa að meðhöndla það. Skjalið er afhent

ofangreindum með það að markmiði að sækja um styrk í Tækniþróunarsjóð.

Þeir sem fengið hafa skjal þetta skuldbinda sig til að fara með innihald þess sem trúnaðarmál.

Með öllu er óheimilt að nota skjalið eða upplýsingar úr því í öðrum tilgangi heldur en hér að

ofan greinir sem og að miðla því eða upplýsingum úr því til þriðja aðila án skriflegs samþykkis

Naglans vefþjónustu ehf.

Page 3: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða III

2 Samantekt

Naglinn vefþjónusta ehf. er að þróa Naglann – viðskiptamiðju fyrir verktaka á nagli.is. Miðjan

er hönnuð í þeim tilgangi að þjóna þörfum verktaka með veflausn fyrir einföld og örugg

viðskipti. Kerfið hefur verið rúm þrjú ár í þróun og betaútgáfan hefur verið aðgengileg á nagli.is

í rúmlega eitt ár.

Einstaka lausnir eru tilbúnar til notkunar, en kerfið sem heild er enn í þróun. Verkefnið skilar

hagnýtum nýjungum fyrir innlendan markað, en felur mest megnis í sér að klára þróun á

útistandandi kerfishlutum og vefþjónustu fyrir samþætta virkni og markaðssetningu á þessum

nýjungum sem skýjalausnir á erlendum markaði.

Litið er á Ísland sem prufu- og þróunarmarkað. Lokaafurðin er eProcuring.com sem selur og

þjónustar bæði platform as a service (PaaS) og software as a service (SaaS) skýjalausnir fyrir

verktaka, sveitarfélög, fyrirtæki og húsfélög. Rekstur og hýsing á eProcuring.com verður á

Íslandi, reiknað er með 33 nýjum störfum og að um 80-90% af rekstrartekjum verði í erlendum

gjaldeyri.

Summary:

The Naglinn vefþjónusta ehf. company was founded early 2010 by two Icelandic entrepreneurs.

The objective has been to create a contractor-centric platform with pre-built SaaS applications

for procurers to manage projects and to successfully engage with suppliers in efficient XML-

based transactions. The beta-release of the platform has been available on nagli.is for about 18

months.

This project will enable Naglinn to continue development on the platform and subscription-

based services to complete the backlog prescribed ecosystem of solutions. It will support

Naglinn in their effort to market and implement services available to municipalities in Iceland.

Last, but not least, it will help Naglinn upgrade system, security and XML standards to prepare

for market expansion.

The locally developed solutions at Nagli.is will be marketed as niche eBusiness solutions for

public procurement authorities and branded as that of eProcuring.com. Operations based in

Iceland to produce skilled jobs.

Page 4: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða IV

Innihald

1 FYRIRVARAR II

2 SAMANTEKT III

INNIHALD IV

3 VERKEFNIÐ 1

AFURÐIR 2 NÝNÆMI 6 VERKÁÆTLUN 8 FRAMVINDA OG VÖRÐUR 11 SKIPULAG OG STJÓRNUN 12 KOSTNAÐUR OG FJÁRMÖGNUN VERKEFNIS 13

4 VIÐSKIPTAÁÆTLUN 14

STAÐA MARKAÐAR 15 MARKMIÐ 19 TÆKIFÆRI 19 VERÐMÆTI 20 AÐFERÐ 21

5 FRAMTÍÐARSÝN 22

SKIPULAG OG STJÓRNUN TIL FRAMTÍÐAR 23

6 VIÐHENGI: KOSTNAÐARYFIRLIT 24

Page 5: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 1

3 Verkefnið

Verkefnið felur í sér markaðssetningu og áframhaldandi þróun á viðskiptamiðju (e. business

platform) fyrir verktaka og verktakaviðskipti, uppbyggingu á virðisaukandi þjónustum sem

byggja á viðskiptamiðjunni (pre-built applications on top of platform) og þróun á

viðskiptalausnum Naglans með samstarfsaðilum á Íslandi fyrstu tvö árin með það sem markmið

að bjóða upp á lausnir sem pakkaðar eru sem PaaS (e. Platform as a service) og SaaS (e.

Software as a service) í sjálfsþjónustu ferlum undir formerkjum eProcuring.com.

Lokaafurð þessa verkefnis verður heildstætt kerfi fyrir íslenskan markað sem byggir á

viðskiptamiðjunni en tengir saman margar virðisaukandi þjónustu sem samanlagt mynda eina

stærri og öfluga heild. Sem slíkt, þá er einstakar þjónustur tilbúnar til markaðssetningar og sölu

s.s. útboðs- og reikningakerfi sem sjálfstæðar en samhæfðar skýjalausnir, en ennþá vantar

töluvert upp á samþættingu kerfishluta og vefþjónustutengingar svo viðskiptamiðjan sé tilbúin

til markaðssóknar erlendis.

Áætlun er um að klára útfærslu á heildstæðu kerfi og sjálfsþjónustu. Í dag getur kerfið skalað

lóðrétt (database), en með sjálfsþjónustu þarf það líka að geta skalað lárétt (application). Það

að klára útistandandi kerfishluta og vefþjónustu er forsenda fyrir því að ná árangri á innanlands

markaði og að geta farið með vöruna á erlenda markaði.

Þegar að þessu verkefni líkur þá er komin einstök vara og grundvöllur til að sækja fjármagn

fyrir sókn á erlenda markaði. Fyrir neðan er lýsing á þeim vörum sem stendur til að bjóða upp

á á eProcuring, þar sem nagli.is er einn af mörgum platforms. SaaS lausnirnar eru keyrðar af

eProcuring en „consumed“ á platforms eins og nagli.is.

Page 6: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 2

Afurðir

Beta-útgáfa af viðskiptamiðjunni var gerð aðgengileg 2011 á nagli.is fyrir prófanir hjá fyrstu

notendahópunum. Útgáfa 0.6 af Naglinn kerfinu var gefin út mánaðarmótin Jan/Feb 2014,

samhliða innleiðingu á viðbótum fyrir verktaka sem gerir þeim kleift að fullnægja nýlegum

kröfum um gæðastjórnunarkerfi með því að nota Naglann. Með fyrstu útgáfu var einnig opnað

fyrir nýja lausn í áskrift fyrir sveitarfélög – verkbeiðnir.

Lokaafurðin verður heildstætt kerfi fyrir íslenskan markað. Þar sem kerfið er þróað á ensku og

býður upp á stjórnkerfi fyrir þýðingu og stillingar þá verður það tilbúið fyrir útfærslu og

markaðssetningu utan Íslands. Það eru nokkrar einingar í þessari heildstæðu lausn og geta þær

skilað af sér hagnýtum lausnum fyrir innlendan markað.

Fyrir verkkaupa

Frá upphafi var hugsað um að útbúa þjónustu sem hentar sveitarfélögum (og öðrum stórum

verkkaupum með margar eignir). Betaútgáfan er með viðskiptareglur sem henta sveitarfélögum,

en það er þörf á kynningarátaki og vinnustofu til að kenna notendum á kerfið. Einnig er þörf á

að klára vefþjónustu og API leiðbeiningar svo að sveitarfélög (og aðrir stórkaupendur) geti

notað þjónustu Naglans eins og um þeirra kerfi væri að ræða.

Það er búið að útfæra skráningu á beiðna- og/eða pöntunarnúmeri sem hluti af verkskráningu –

nýjungin felst í því að þeir rafrænu reikningar sem kerfið útbýr sjálfvirk fyrir verktaka skráir

númerið í viðeigandi gildi fyrir XML-ið sem svo gerir sveitarfélögum kleift að sjálfvirkt bóka

rafræna reikninga frá verktökum í sínu viðskiptakerfi.

Núverandi kerfi er með veflausn fyrir verkkaupa, en markmiðið er að geta boðið upp á

útboðslausnina sem SaaS þar sem notendur hafa bætt henni við sem virðisaukandi

viðskiptateningu og –ferli fyrir sína eigin procure-to-pay viðskiptalausn (ERP kerfi). Kerfið

býður verkkaupa upp á utanumhald fasteigna, viðhaldssögu og –áætlun. Fyrir stærri verkkaupa

er í boði að virkja áskrift fyrir verkbeiðnir – rafrænt ferli frá beiðni til reiknings. Í dag er einn

stórkaupandi í innleiðingarferli (Reykjanesbær) og annar er langt kominn í viðræðuferli

(Reykjavík). Fyrir neðan er lýsingu á þeim afurðum í þessu verkefni sem nýtast verkkaupa:

Page 7: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 3

Fyrir húsfélög

Þjónustan er hugsuð fyrir þau tilfelli þar sem til staðar er sameign (húsfélög). Þjónustan er

margþætt en ókeypis grunnútgáfa hennar felur í sér aðgangsstýrða húsfélagssíðu þar sem hægt

er að skrá upplýsingar um húsfélag, framkvæmdir, húsfundargerðir og eiga samskipti innan

húsfélags. Þær viðbótarþjónustu sem verða í boði gegn áskriftargjaldi hafa verið í þróun í

samstarfi við byggingarfélagið Múr&Mál og Tækniþjónustu verktaka.

Viðbótarþjónusturnar fela í sér að hús er magnmælt (raunmælt) gegn eingreiðslugjaldi og búin

til viðhaldsáætlun sem haldið er við gegn áskriftargjaldi. Þar með geta húsfélög stillt af

húsfélagsgjöldin svo alltaf sé til nóg í hússjóði þegar ráðist er í framkvæmdir, enda er viðhald

almennt fyrirsjánlegt. Leikur einn er síðan að framkvæma útboð með rafrænum hætti þar sem

öll nauðsynleg útboðsgögn liggja þegar fyrir.

Aðeins viðurkenndir fagmenn með trausta viðskiptasögu munu geta boðið í verkið og þarf

viðkomandi húsfélag því aðeins að hafa áhyggjur af verðinu, en ekki gæðum viðkomandi

verktaka. Útboðið fer allt eins og nafnið gefur til kynna fram í gegnum netið, þ.e. útboðsgögn

send og móttekin rafrænt, tilboðum tekið rafræn og gengið frá samningi með rafrænum hætti.

Hægt er síðan að fylgjast með framvindu framkvæmda útfrá stöðuskýrslum sem birtar eru af

verktökum á síðunni.

Þjónustan heldur síðan utan um sögu hússins, s.s. hvað var framkvæmt hvenær og af hverjum.

Uppsöfnun þessara upplýsinga er mjög verðmæt fyrir húseigendur, tryggir öryggi og er

ómetanleg við endursölu.

Verið er að skoða þann möguleika að sameina ofangreinda þjónustu við fjármálaþjónustu og

hafa fundir átt sér stað með Íslandsbanka til að ræða þann möguleika. Tækifærið væri þá fólgið

í því að bjóða þessa nýju grunnþjónustu húsfélögum að kostnaðarlausu, til að halda í núverandi

kúnna og laða að nýja. En þessi miðill er auk þess mjög verðmæt leið til að safna að sér

upplýsingum um húsfélög, birta þeim auglýsingar og annað sem bankar hafa hingað til ekki

viljað gera í heimabönkum. Slíkar auglýsingar færu þá fram á husfelagiðmitt.is.

Fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þær afurðir verkefnisins er nýtast húsfélögum og húseigendum.

Page 8: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 4

Eins og áður sagði verður skráning fyrir grunnþjónustu ókeypis, en við teljum að svigrúm sé til

að rukka húsfélög um 1.490-1.990 kr. á mánuði per íbúð fyrir heildarþjónustu, en til þess að

þess að ná sölu er að sjálfsögðu nauðsynlegt að selja hagræðið af þjónustunni með

raunverulegum dæmum. Hagræðið felst fyrst og fremst í fernu:

Auðveldar fyrirfram söfnun fyrir kostnaði án þess að húsfélagsgjöld séu ofrukkuð.

Stuðlar að raunsærri og ódýrari framkvæmdum þar sem byggt er á raunmælingum og ekki er

lagt 20% ofan á tilboð til að mæta skekkjumörkum sjónmælinga, eins og algengt er.

Mun kostnaðarminna að bjóða út framkvæmdir, algengt er að greitt sé um 8-10% af

heildarkostnaði verks fyrir framkvæmd útboðs og eftirlit.

Haldið er utan um um sögu viðkomandi húsfélags, allar framkvæmdir, ákvarðanir og annað í

miðlægu kerfi sem hægt er að fletta upp í, afhenda næstu stjórn o.s.frv. Óhætt er að segja að

slíkar upplýsingar auka virði eigna við endursölu, auðvelda aðilum að sækja rétt sinn vegna

illra unna framkvæmda eða galla, spara gríðarlegan tíma og koma í veg fyrir óþarfa áhyggjur.

Naglinn mun leita eftir samstarfi við aðila sem sér um fjármálaþjónstu fyrir húsfélög til að taka

að sér markaðssetningu og sölu á lausnum fyrir húsfélög, en Naglinn tekur að sér rekstur

kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með

fjármálaþjónustu og Naglinn náð í og viðhaldið viðskiptum meirihluta af húsfélögum landsins.

Enda er enginn aðili hér á landi að bjóða viðlíka þjónustu sem m.a. tryggir skilvirka

fjármálastjórnun húsfélaga. Hugsanlegur ávinningur aðila með fjármálaþjónustu felur í sér

samkeppnisforskot - þar sem, með tilkomu lausna frá Naglanum, þjónustustigið verður mun

hærra og boðið er upp á nýja þjónustu sem ætti að virka sem góð beita fyrir ný húsfélög.

Fyrir verktaka og verktakafyrirtæki

Í samstarfi við Samtök iðnaðarins, sem og einstaka meðlimi þar innan, stendur til að útbúa

heilbrigðisvottorð fyrirtækja, þ.e. þjónustu þar sem greitt er fyrir að heilsa fyrirtækis sé vottuð

útfrá þeim upplýsingum sem reglulega verður að vinna þegar tekið er þátt í stærri útboðum.

Þetta eru upplýsingar um leyfi, fjárhag, réttindi o.fl. Aðilar á vegum Samtaka iðnaðarins

nálguðust Naglann þar sem þeir töldu að núverandi grunnkerfi væri að leysa margar af þeim

þörfum sem fólst í uppsetning á yfirlit og vefþjónustu fyrir heilsuvottun fyrirtækja í

byggingariðnaðinum. Með vefþjónustu og skilgreindum reglum er hægt setja upp enn eina

áskriftarþjónustuna sem sparar bæði tíma og pening fyrir verktaka.

Page 9: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 5

Fyrir mobile lausnir

Erum í samstarfi við vefstofuna Kosmos & Kaos sem mun sjá um gerð á responsive design fyrir

reikningalausnina og þróun á iOS og Android hybrid appi fyrir bæði verktaka og reikninga-

notendur. Native hlutinn af appinu nýtir push-notifications, myndavélina, gps og flýtir fyrir

auðkenningu inn á kerfi Naglans. Þess fyrir utan er appið að nota vefparta af vefsíðu Naglans

og konto.is. Þegar herjað verður á erlenda markaði undir formerkjum eProcuring, þá verður

appið frítt, en appið verður að eiga í samskiptum við SaaS skýjalausn sem svo verður að greiða

fyrir. Fyrir neðan er teikning af því hvernig hybrid appið mun virka.

Page 10: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 6

Nýnæmi

Nýnæmi Naglans felst í samspili margra þátta er saman mynda viðskiptamiðju verktaka sem,

með nýstárlegri viðskiptaútfærslu og tækniuppbyggingu sem setur verktakann í miðjuna og

býður verkkaupum uppá tengdar og samhæfðar lausnir fyrir verktakaviðskipti í

áskriftarþjónustu, er einstök á heimsvísu. Það er svo mikið

að gerast í heimi upplýsingatækninar, þróunin á tækninni

fleytir hraðar fram en þróun á viðskiptaháttum, það má

bókstaflega tala um byltingu. Það er ný kynslóð af

upplýsingatækni að taka við, hún mun hafa veruleg og

varanleg áhrif á viðskiptahætti og uppbyggingu lausna.

Þeim sem tekst að nýta þessar nýjungar í sínum lausnum til

að bjóða upp á þjónustu sem er sambærileg við núverandi

kerfi, þeir verða mun samkeppnishæfari en aðrir á markaði.

Þeim sem tekst að nýta þessar nýjungar til að bjóða upp á

þjónustu sem áður fyrr var ekki tæknilega mögulegt að

útfæra og/eða lausnir sem betrumbæta núverandi

viðskiptahætti, þeir munu taka þátt í að leiða byltinguna.

Rík þörf er á útboðslausn sem leysir helstu vandamál á bæði einka- og opinberum markaði.

Markaðsumhverf verktakaviðskipta er flókið fyrir ófaglærða einstaklinga (ástæðan fyrir því að

stofnendur fóru af stað með verkefnið fyrir rúmum fjórum árum síðan) og skortur er á

stöðluðum verklýsingum, samningnum, stýrðum verkferlum og sjálfvirkni sem minnka vinnu

og draga úr líkum á mistökum og slæmum samskiptum. Naglinn býður upp á stýrt ferli sem

fullnægir nýlegum kröfum á verktaka um gæðastjórnunarkerfi og notast við sjálfvirkni til að

tryggja skjölun og rekjanleika, útbúa tilkynningar og senda með tölvupósti, sem og að útbúa

rafræna reikninga sem verkkaupar geta svo bókað rafrænt – jafnvel í sjálfvirku móttökuferli.

Eftir að hafa þróað prótótýpuna fyrir grunnkerfið, útboðslausnina, reikningakerfið og

verkbeiðnalausnina eru margir að sjá tækifæri á samnýtingu og tengingum. Unnið er að spin-

off afurðum sem nýta sér vefþjónustu og viðskiptaferli Naglans. Þessar þjónustur geta náð að

styðja vel við reksturinn á Íslandi og skilað sér í nýjungum í SaaS lausna framboði

eProcuring.com. Dæmi um slík spin-off tækifæri er húsfélagsþjónustan og reikningakerfið.

Hvort tveggja var til að byrja með einungis hugsað sem áskriftarþjónusta (kerfiseining) í

verkþjónustu Naglans, en eru núna á teikniborðinu hugsaðar sem sjálfstæðar PaaS lausnir. Það

er hægt að segja með nokkurri vissu að það er ekkert kerfi á heimsvísu sem getur boðið upp á

þær PaaS lausnir, sem og sumar SaaS lausnir, sem eProcuring leggur upp með.

Naglinn er að notfæra sér nýjungar í tækniheiminum, sem er í miðjum kynslóðaskiptum úr

staðbundna server-client umhverfi yfir í óstaðbundið skýjaumhverfi. Þetta verkefni mun hjálpa

Naglanum að þróa kerfi sem býður upp á margar nýjar lausnir í veflausnum. Ekki eru allar

einstakar lausnir nýjar á markaði. En, þar sem umhverfi upplýsingatækningar er að umbreytast,

þá er gríðarleg nýjung og nýsköpun fólgin í því að setja upp skalanlegar og samhæfðar

veflausnir sem notendur um heim allan geta keypt og stillt í sjálfsþjónustu (e. on-demand).

Page 11: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 7

Nýjar lausnir í umhverfi fyrir næstu kynslóð upplýsingatækningar. Naglinn gerir reikninga-

notendum kleift að stofna reikninga í vefformi og senda á hvern sem er. Hægt að senda sem

PDF viðfang á netföng, sem XML á aðila sem taka á móti rafrænum reikningum eða birta

rafrænan reikning í heimabanka hjá greiðanda. Öll PDF úrtök eru með rafrænni undirskrift og

í verkferli Naglans verða reikningar útbúnir sjálfkrafa fyrir verktaka út frá verkupplýsingum og

tilboði. Í innkaupaferli stærri verkkaupa skráir kerfið sjálfvirkt tilvísun í reikninga hjá

verktökum svo verkkaupar getir notast við sjálfvirkni í bókun á kostnaði. Unnið er við útfærslu

á þessu reikningakerfi fyrir mobile og tengingu við fjármála- og innheimtuþjónustu.

Þessi reikningalausn er algjör nýjung á Íslenskum markaði, nýjung sem margir smáir verktakar

og einstaklingar í sjálfstæðum rekstri eru nú þegar farnir að nýta sér fyrir reikningagerð og

utanumhald á greiðslum. Kostir á lausn sem þessari eru bersýnilegir í ljósi nýlegrar tilkynningar

frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu: „Ætla má að um 500 milljónir geti sparast með notkun rafrænna

reikninga hjá ríkinu, en frá og með 1. janúar 2015 mun ríkið einungis taka við rafrænum reikningum.” 1

Einnig hefur Naglinn hafið innleiðingu hjá Reykjanesbæ á verkbeiðnalausn (viðbótarþjónusta

í boði fyrir þá sem virkjað hafa útboðslausnir) sem er hönnuð fyrir sveitarfélög. Lausnin tryggir

rafrænt ferli frá beiðni til reiknings í einföldu viðmóti – gerir beiðendum kleift að senda inn

beiðnir með tölvupósti. Sambærilegar lausnir er að finna á erlendum mörkuðum, en samhæfing

á reikningakerfinu við viðskiptaferli og aðrar kerfiseiningar eProcuring mun vera einstakt (svo

við vitum). Þetta verkefni mun styðja við innleiðingu og útbreiðslu á verkbeiðnum hjá

sveitarfélögum og gera Naglanum kleift að klára að þróa útlit, lausnir og vefþjónustur.

Rannsóknir sýna skírt fram á mikla mögulega hagræðingu með innleiðingu á slíkum lausnum í

tengslum við innkaup og bókun reikninga. Evrópusambandið hefur nýverið tekið skrefið í að

leið sem mun skilda opinbera aðila til að rafvæða innkaupa- og útboðsferli. En, þrátt fyrir ríka

áherslu hjá Evrópusambandinu, þá hafa innleiðingar gengið hægt og upptaka notenda á

rafrænum lausnum fyrir útboð og rafræna reikningagerð ekki verið í samræmi við væntingar

stjórvalda. Helsta orsökin er léleg þátttaka smærri birgja og þjónustuaðila. Naglinn er að kynna

nýjung fyrir þennan risastóra markað.

Staðbundin kynslóð upplýsingatækningar leiddi af sér lausnir eins og birgjagáttir sem tengdar

eru við hvert og eitt viðskiptakerfi – birginn og þjónustuveitandinn hafa hingað til þurft að

tengjast mörgum kerfum svo að verkkaupi geti verið með allar upplýsingar og sjálfvirkni í sínu

kerfi. En með tilkomu á

skýjaumhverfinu og nýjum

tæknimöguleikum þá er

Naglinn að setja verktakann í

miðjuna. Útbúa miðlægt kerfi

sem þjónustar verktakann í

kerfi fyrir verktakann.

Vefþjónustuteningar og

staðlaðir viðskiptaferlar er

algjörlega ný nálgun í

verktakaviðskiptum hér á landi

og gæti verið leiðin fyrir stærri

kaupendur í ESB til að tryggja

virkari þátttöku hjá sínum

minni sölu- og þjónustuaðilum.

1 http://www.fjarmalaraduneyti.is/frettir/nr/17659

Page 12: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 8

Verkáætlun

Síðustu fjögur ár hafa stofnendur lagt mikinn tíma og rúmlega 10 milljónir í verkefnið. Mest

megnið af fjárfestingunni hefur farið í þróunarstarf. Naglinn hefur unnið með sömu

forriturunum frá upphafi og úthlutað þeim tæplega 4.200 klst í vinnu. Verkáætlun þessi tekur

þrjú ár og sú reynsla og þekking sem stofnendur hafa af kerfinu og þróunarferlinu ætti að auka

líkur á að verkefnið ljúki í samræmi við verk-, tíma- og kostnaðaráætlun. Eftirfarandi, með

áherslu á fyrsta árið, er lýsing á einstaka verkþáttum eins og þeir koma fyrir í tímaröð:

Vetur/Vor 2014

Unnið verður að innleiðingu og kennslu hjá Reykjanesbæ vegna verkbeiðnalausn Naglans. Til

stendur að bjóða uppá vinnustofur fyrir bæði verkkaupa og verktaka. Reykjanesbær mun veita

aðstöðu og sér um að boða verktakana. Verið er að innleiða rafrænt ferli frá skráningu á beiðni

til útgáfu reiknings. Fyrsta viðbótin við núverandi verkbeiðnalausn felur í sér virkni sem gerir

sveitarfélaginu kleift að áframsenda tölvupósta til að stofna beiðnir frá upprunalegum aðila.

Áskriftarþjónustur er verkþáttur sem felur í sér breytingar á viðmóti og útliti á

áskriftarþjónustum Naglans. Það er nú þegar búið að vinna mockups að breytingunum og skrá

verkið í Jira þar sem það bíður í biðröð eftir að forritarateymið fær „go“ á verkþátt. Svo eru

breytingar prófaðar og samþykktar á dev.nagli.is áður en þær eru fluttar á raun.

Húsfélagsþjónusta er dæmi um hagnýta spin-off vöru sem notar grunnvirkni og þjónustu á

Naglanum. Nú þegar er verið að vinna í útfærslu á lausninni, rekstur og þjónustu. Þetta er

tækifæri fyrir Naglann til að setja upp sub-national platform með customization (ein af PaaS

söluvörum eProcuring) og tengja við national platform (nagli.is).

Öllum verkum er hægt að skipta upp í áfanga. Sjálfgefið í ferlinu er einn áfangi og einn

reikningur fyrir hvert verk. Verktakar geta skráð marga áfanga í tilboðsforminu. Verkþáttur í

backlog felur í sér nýtingu á þessari áfangavirkni til að gera bæði verkkaupa og verktaka kleift

að bæta við áfanga á verksíðu þegar þarf að bæta við aukaverki eða viðbótarverki. Naglinn mun

vinna í samstarfi við Tryggva Jakobsson, eiganda og framkvæmdarstjóra Tækniþjónusta

Verktakar við útfærslu á viðskiptareglum og verklagi.

Mobile viðmót fyrir rafræna reikninga með Kosmos & Kaos er skemmtilegt verkefni sem getur

leitt af sér annan sub-national platform sem og gagnast Naglanum töluvert í að útfæra

responsive-design fyrir vefparta kerfisins í heild sinni. Hluti af verkefninu er að útfæra og styðja

við uppbyggingu á spin-off lausnum sem notar að einhverju leiti sameiginlega gagnagrunna og

deila viðskiptaferlum (application business logic). Þessi verkþáttur mun reynast ómetanlegar

þegur kemur að útfærslu á PaaS lausn eProcuring.

Viðhaldsbókin var í fyrstu bara sagan sem varð til á miðlinu og einföld skráning húseigenda,

en með tilkomu á Húsfélagsþjónustunni þá hefur umfang viðhaldsbókarinnar vaxið. Til stendur

að útfæra ítarlegri skráningu verktaka, gera viðhaldssögu aðgengilega á netinu via skönnun á

QR kóða og setja upp viðhalds- og framkvæmdaáætlun. Kerfið getur lagt til um húsfélagsgjöld

og/eða hvernig ætti að spara fyrir áætluðum aðgerðum. Naglinn mun vinna náið með Elías

Víðisson byggingafræðing og framkvæmdarstjóra hjá Múr og Mál í útfærslu á þessari þjónustu.

Reglulega verður að uppfæra vinnslu og xml í samræmi við þær tækniforskriftir sem gefnar eru

út af staðlaráði og markaðsráðandi aðilum. Í þessum verkþátt verður sérstaklega horft til þess

að bjóða upp á bæði BII og NES staðalinn fyrir rafrænan reikning – erum í dag bara með NES.

Einnig verður tekið á breytingum í reglum og tækniforskrift á kredit reikningi.

Fjármálaaðilar er ný tegund notenda sem verður að útfæra í tengslum við þá fjármálaþjónustu

sem á að standa húsfélögum til boða sem hluti af heildstæðum þjónustupakka fyrir húsfélög.

Page 13: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 9

Drög að útfærslu liggja fyrir, en endanlega útfærsla fer eftir því við hvern Naglinn sem til að

bjóða upp á þessa þjónustu sem þriðji aðila í gegnum húsfélagsþjónustuna (sub-national

platform sem notar þjónustu og viðskiptaferla á nagli.is).

Sumar 2014

Fyrir bókhald og innheimtu er í boði að senda reikninga sem pdf og/eða xml á innheimtuaðila

og bókhaldsþjónustu. Til stendur að virkja þjónustu þriðja aðila sem áskriftarþjónusta á

Naglanum. Nokkrir samstarfsaðilar/þjónstuaðilar koma til greina. En, mögulega mun aðkoma

fjármálaaðila hafa einhver áhrif á nánari útfærslu á þessum þjónustum Naglans.

Tenging við island.is, vefþjónusta fyrir auðkenningu og fyrir birtingu gagna. Tenging við

skra.is, vefþjónusta fyrir húseigendur og fyrirtæki. Eitt af hlutverkum Naglans er að tengja

verktaka og viðskiptavini við allar þær þjónustur og upplýsingar sem þarf fyrir einföld og örugg

verktakaviðskitpi. Bæði island.is og skra.is eru í stöðugri þróun og mun þjónusta þeirra vera

bæði öflugari og auðveldari í notkun.

Vetur 2014/2015

Útfærslu á heilsuvottorði fyrirtækja með SI sem og ítarlegri prófanir og þróun á eProcurer

ferlinu með Reykjavík og Reykjanesbæ. Nauðsynlegt að vinna með haghöfum að útfærslunni

og ferli, leyfa endalegum notendum að finnast eins og þeir eigi hlut í vörunni sem þeir munu

svo nota reglulega.

Eftir að hafa útfært þjónustuna fyrir heilsuvottorð fyrirtækja, þá hefst vinna við uppbyggingu á

vefþjónustu sem vinnur með upplýsingar er mynda grundvöll að heilsuvottorðinu. Þetta er

verkþáttur unninn í samstarfi við aðra, en áætlun gerir ráð fyrir bæði auka kostnaði og tíma.

eProcurer API fyrir stórkaupendur. Vefþjónusta sem gerir verkkaupa kleift að nýta

viðskiptaferla og teningar Naglans án þess að fara út úr sín eigin kerfum. Þetta er tengingin fyrir

ERP kerfi kaupenda.

APInn er nauðsynlegur

verkþáttur áður en farið er í

eProcuring.com Fyrir

neðan má sjá teikningu af

ferlinu og útfærslu á ferli

fyrir eProcurer notendur.

eProcurer er ein af SaaS

lausnum sem verður í boði

á eProcuring.com. Það

verkefni sem við leggjum

hér til mun gera okkur

kleift að klára þessa afurð.

Þessi afurð, aðferð og

þjónusta er fyrst núna

möguleg með tilkomu á

skýjaumhverfinu og SaaS

þróun. Þessi eProcurer

lausn er algjör nýjun á

markaði – bæði hér heima

sem og í heimi SaaS lausna

fyrir enterprise.

Page 14: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 10

Responsive user interface þar sem farið verður yfir reynslu af slíkri hönnun á reikningakerfinu

og vinna hafin við að útfæra kerfi Naglans í viðmóti sem bregst við stærð og lögun á skjá

notenda til að tryggja góða upplifun fyrir alla okkar viðskiptavini.

Skoðunaraðilar er nýtt hlutverk sem verður að skilgreina og útfæra á viðskiptamiðju Naglans.

Með tilkomu á Mannvirkjastofnun og nýrri reglugerð þá eru bæði ný starfsheiti eftirlitsaðila og

víðfangsmikil gæðakrafa á alla í byggingariðnaðinum um rekjanlega skráningu, skýrari

verkferla, betri samskipti við viðskiptavini og að verklagsreglum sé fylgt. Naglinn er miðill sem

getur hjálpað verktökum að uppfylla gæðakröfurnar og miðlað samskiptum við verkkaupa.

Aðkoma skoðunaraðila, sem og annarra eftirlitsaðila, verður mótuð í samstarfi við tengiliði sem

komast á í gegnum Tryggva Jakobsson.

Sumar 2015

XLST - útlit í áskriftarþjónustu er tegund af áskriftarþjónustum sem getur nýst reikninga-

notendum, verktökum og stórkaupendum. Með notkun XLST template format fyrir birtingu

reikninga í heimabanka, prentun, Naglanum og þeirra eiginn viðskiptakerfi. Enn ein

viðbótarþjónustan sem verður svo markaðsset sem SaaS lausn á eProcuring.com

iOS and Android mobile app, hybrid app fyrir verktaka og reikninganotendur. Gerð góð skil á

lausninni sem verður svo að framkvæma á bls. 5. Tenging við rsk.is til að einfalda skráningu

hjá sjálfstæðum verktökum og þeim verkkaupum sem sækja eftir endurgreiðslu.

Það þarf reglulega að viðhalda tengingum við samfélagsmiðla eins og facebook, en það er einn

verkþáttur þar sem við stefnum á að fara í uppfærslu á allri social media integration. En, í dag

er nær ómögulegt að sjá fyrir hvar staðan og hver stefnan verður í þessum efnum.

Vetur 2016/2017

Staðlaðir samningar verða innleiddir fyrir ýmis einfaldari verkefni og þeir gerðir aðgengilegir

notendum þegar verk er skráð og/eða þegar verktakar senda tilboð í verkefni á miðlinum.

Achievo.org er open source hugbúnaður með nokkrar lausnir sem stefnt er að nýta sem viðbætur

við núverandi stjórnborð verktaka. Verkstjórnunarkerfi (PM) sem hægt er að nýta fyrir þá sem

notast við undirverktaka. Tímaskráningarkerfi sem hægt er að tengja við reikningagerð og getur

nýst mörgum verktökum, sérstaklega smærri verktökum á markaði. Tímabókunarkerfi svo

verktakar geti boðið sínu viðskiptavinum upp á að bóka tíma og/eða fyrir verkkaupa að setja

upp tímaáætlun og –bókun vettvangsskoðanir. Þessar lausnir eru innlimaðar í kerfi Naglans sem

áskriftarþjónustur, SaaS viðbætur við ókeypis grunnþjónustu.

Á lokasprettinum í verkefninu verður farið í yfirferð á öryggisþáttum og öryggistengdum

skráningu. Sérfræðingur verður fenginn til að framkvæma úttekt. Eftir endurbætur verður farið

í SVÓT greiningu á öryggi, sem áhrifa mikill þáttur í ákvörðunartöku enterprise aðila. Einnig

verður kerfið uppfært í samræmi við eProcurement Golden Book Evrópusambandins í þeim

tilgangi að tengjast öllu viðskiptamörkuðum Evrópu með sameiginlegri tækniforskrift og

verklagi. Í framhaldi af þessum uppfærslum verður unnið í Handbók (wiki) um kerfið sem notað

verður fyrir bæði kerfisgreiningu og leiðbeiningar fyrir notendur.

Sumar 2017

Samræmi í verklagi og tækniforskrift mun opna leiðir inn á Evrópumarkað. Uppbygging hefst

á vef eProcuring.com og verður sjálfsafgreiðslan útfærð. Þegar þessu verkefni líkur, þá er stefnt

að því að kynna eProcruing.com í gegnum Evrópuátakið „Interoperability“ á vegum

Connecting Europe Facility (CEF)2 og herja á fjárfesta eins og NSA til að fara í sókn erlendis.

2 https://ec.europa.eu/digital-agenda/en/connecting-europe-facility

Page 15: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 11

Framvinda og vörður

Page 16: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 12

Skipulag og stjórnun

Þorsteinn Gestsson, þróunarstjóri Naglans

Þorsteinn er þróunarstjóri stjórnsýslulausna hjá Advania, Certified Scrum Master og

kerfishönnuður Naglans. Þorsteinn lærði heimspeki í Columbia university og kláraði diploma

frumkvöðlanám HR. Hefur fimm ára reynslu af þjónustu og þróun á enterprise hugbúnaði og

hefur góða reynslu af verkefnastjórnun er kemur að innleiðingu og utfærslu á viðskipta- og

verkferlum. Sem þróunarstjóri Advania hefur hann stýrt þróun á SaaS og App lausnum.

Guðmundur Kárason, framkvæmdastjóri Naglans

Lögfræðingur sem hefur komið að stofnun og ráðgjöf fjölmargra fyrirtækja. Hefur undanfarin

fjögur ár sinnt störfum í stjórnsýslunni á sviðum rafrænna viðskipta og situr m.a. í stjórn Icepro

vegna starfsársins 2013-2014. Tengt þeim málaflokki hefur hann unnið lagafrumvörp um

rafeyrir, greiðsluþjónustu og greiðslur yfir landamæri auk reglugerðar um rafræna reikninga.

Er löggildur verðbréfamiðlari og starfar sem lögfræðingur hjá Efnahags- og fjármála-

ráðuneytinu.

VERKEFNISSTJÓRNUN

Á miðvikudögum eru verkefnafundnir haldnir, þar sem farið er yfir stöðu núverandi verkefna

og forgangsröðun verkþátta ákveðin. Verkþættir á product backlog erum skráðir í samræmi við

verkáætlun sem unnin er fyrir hvern ársfjórðung. Naglinn notar Jira og Dropbox fyrir rekstur

og utanumhald verkefna.

Þorsteinn, sem þróunarstjóri, heldur utanum þróunarverkefni og samskipti með

verkstjórnunarforritinu Jira. Guðmundur, sem Framkvæmdastjóri, sér um viðskipti og rekstur

félagsins. Öll þróunarverkefni fara í gegnum prófunarkerfi á dev.nagli.is fyrir ítarlegar prófanir

og stillingar. Afhendingar og útgáfustýring á kerfinu er einni möðhöndluð innan Jira. Sem hluti

af verklagi okkar og stilltum verkferlum í Jira eru verkefni unnin af verktökum skráð daglega

og vikulega er birt framvinduskýrslur sem sýna unnin tímafjölda hvers starfsmanns viðkomandi

verktaka ásamt stöðu verkþátta í þróun.

TENGSLANET

Naglinn hefur unnið ötullega að því að byggja upp traust tengslanet til að geta sem best nýtt

alla þá aðstoð sem er í boði. Enda byggist rekstur fyrirtækis fyrst og fremst á þeim samböndum

sem það býr yfir, sambönd við viðskiptavini, birgja, fjárfesta og ráðgjafa. Sem stendur er mest

megnis unnið með Reykjanesbæ og þeim verktökum sem eiga í viðskiptum við Reykjanesbæ.

Þessi reynsla og tengsl mun nýtast Naglanum í söluferli með öðrum sveitarfélögum.

Innanlands er Naglinn að byggja upp góð viðskiptasambönd við ýmisa aðila á markaði sem

hafa áhuga á að taka þátt í þróun. Á erlendum markaði stendur aðilum Naglans í boði samstarf

við Granite Management sem er fasteignafélag í New York. Einnig mjög gott vinnusamband

við Samtök Iðnaðarins, Tækniskólann, Tækniþjónusta Verktakar ehf., Múr og Mál ehf.,

Neytendasamtökin og Húseigendafélagið.

Page 17: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 13

RÁÐGJAFASTJÓRN

Nauðsynlegt var að sækja þau þekkingarverðmæti, þ.e. tengslanet og mannauð, sem uppá

vantaði hjá teymi Naglans til utanaðkomandi aðila. Ráðgjafastjórn sinnir leiðbeinandi hlutverki

og styrkir okkur á sviðum þar sem stofnendur skortir reynslu og/eða þekkingu.3

Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur

Sigurður Guðmundsson, sérfræðingur

Svana Gunnarsdóttir, rekstrarhagfræðingur

Svanur Þorvaldsson, sérfræðingur í stjórnun og sölu

Guðmundur Ingólfsson, hdl., LL.M.

ERLENT SAMSTARF

Naglinn hefur komið á samstarfi við rekstrar og fasteignaþróunarfélagið Granite Management

(GM) í New York sem á og rekur þar yfir 30 fjölbýlishús sem samtals eru verðmetin á yfir 100

milljón USD4. Naglinn mun setja upp kerfið sem nagli.is er byggt á fyrir GM á nýrri netslóð

og mun GM nota kerfið til þess að koma á samböndum við nýja iðnaðarmenn sem og til þess

að eiga samskipti og halda utan um sambönd við núverandi verktaka. Naglinn komst í samband

við GM í gegnum Demetrios Yatrakis sem er meðeigandi og sonur stofnanda félagsins. En

Demetrios var í námi við Columbia með Þorsteini Gestssyni, meðstofnanda Naglans. GM mun

ekki greiða fyrir notkun á kerfinu til þess að byrja með, enda snýr samstarf þetta að prufun á

nýju kerfi á nýjum markaði. Endurmat frá GM verður notað til þess að sníða kerfið að

bandarískum markaði.

HÁSKÓLASAMSTARF

Tækniskólinn og Naglinn hafa komið á samstarfi 5 um gerð einfaldra staðlaðra grunn-

verkupplýsinga sem verkkaupi skal láta verksala í té er óskað er eftir tilboði í tiltekið verk auk

þess að vinna saman að uppfræðslu nemenda Byggingartækniskólans um hagnýta notkun

upplýsingatækni er kemur að þátttöku í útboðum, tilboðsgerð og samskiptum almennt við

verksala.

Kostnaður og fjármögnun verkefnis

Með umsókn þessari er Naglinn að sækja um styrk til Tækniþróunarsjóðs vegna verkefnisins

nagli.is. Frá því að stofnendur hófu vinnu við verkefni þetta fyrir rúmlega þremur árum síðan

hafa þeir staðið undir öllum kostnaði sjálfir.

3 Sjá fylgiskjöl fyrir nánari útlistun á þekkingu og reynslu. 4 Sjá fylgiskjöl. 5 Sjá fylgiskjöl.

Page 18: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 14

4 Viðskiptaáætlun

Stofnendur fóru af stað með verkefnið með það í huga að búa til lausnir sem þeir sjálfur kæmu

til með að nota. Okkur vantaði einfalda og örugga leið til að eiga í verktakaviðskiptum á netinu.

Síðustu fjögur ár, síðan kerfi Naglans byrjaði í þróun, þá hafa ytri áhrif eins og fjármálahrunið

og nýjar reglugerðir um gæðastjórnunarkerfi verið að þvinga markaðinn fyrir verktakastarfsemi

til að breytast. Naglinn hjálpar verktökum að aðlagast þessum breytingum og eykur tækifæri

verkkaupa til að nýta sér lausnir fyrir rafræn viðskipti og skjölun.

Tæknileg þróun hefur einnig opnað ný tækifæri, uppbygging á lausnum Naglans gerir þær hluta

af nýrri kynslóð af upplýsingatækni. Skýjalausnir aðgengilegar í sjálfsafgreiðslu sem SaaS eða

PaaS lausnir sem hægt er að tengja við núverandi ERP kerfi verkkaupa og/eða nota sem

veflausn (web application). Uppbygging á þjónustum Naglans er í kerfiseiningum - modules

and plugins. Það er auðvelt að innleiða nýjar viðbótaþjónustur og setja upp áskriftir sem virkja

tiltekna þjónustu. Naglinn er platform sem vill einnig gera 3. aðila kleift að bjóða uppá og tengja

sína vöru á Naglanum.

Grunnþjónusta á Naglanum er ókeypis og því enginn þröskuldar fyrir nýskráningu. Naglinn

rukkar fyrir viðbótarþjónustur og selur þær sem lausnir í áskrift er notendur virkja og greiða

fyrir í sjálfsþjónustu. Gjald er tekið fyrir viðbótarþjónustur s.s. útboðsþjónustu, vörulista,

verkbeiðnir, innheimtuþjónustu, bókhaldsþjónustu, húsfélagsþjónustu og reikningastílsnið.

Spin-off lausnir sem sprottið hafa út frá frumútgáfu Naglans hafa haft áhrif á þróun og útfærslu

eProcuring. En uppbygging og rekstur á sjálfstæðum lausnum eins og reikningakerfinu og

húsfélagsþjónustunni getur veitt nauðsynlegan stuðning við þróun á heildarkerfi eProcuring á

fyrstu árunum. Einnig, í samræmi við óskir frá Reykjanesbær, þróaði Naglinn verkbeiðnalausn

sem viðbót við útboðsþjónustuna svo hægt væri að tryggja rafrænt ferli frá beiðni til reiknings.

Þegar erlendis er komið, þá er markaðurinn gríðarlega stór og mögulegir viðskiptavinir eru ótal

margir. eProcuring.com býður uppá skalanlegar multi-tenant skýjalausnir og sjálfsþjónustu

fyrir notendur. Notendaviðmótið er með einfalt vefviðmót fyrir stjórnborð þar sem hægt er að

þýða allan texta, stilla kerfið sem og lykla fyrir vefþjónustu án aðkomu tækniaðila. Þessir kostir

eProcuring skila sér í einstaklega lágum rekstrarkostnaði og miklum tengimöguleikum við

önnur kerfi.

Réttur á léninu eprocuring.com kemur til með að skipta miklu máli í leitarbestun og fyrir

markaðssetningu á lausnum til enterprise notenda. Innkaupaaðili (e. Procurer) sem vill rafvæða

innkaupaferlið (e. electronic procurement eða e-procurement) mun væntanlega skoða vörur

með heitið „eProcuring“ því nafnið lýsir þeirri aðgerðin sem verið er að reyna að framkvæma.

Plus, það er með „.com“ endingu. Nýstárleg útfærsla á viðskiptamiðju fyrir rafræn

verktakaviðskipti mun auku líkur á upptöku rafrænna viðskipta hjá verktaka, þar með laða að

verkkaupa sem vilja ná að hagræða. Græn og vistvæn innkaupalausn sem, þegar opinberir

innkaupaaðilar kjósa að innleiða lausnir Naglans, getur gert öllum þegnum samfélagsins kleift

að notast við sömu miðju fyrir sín verktakaviðskipti – hagræðing og einföldun fyrir samfélagið.

Page 19: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 15

Staða markaðar

Tæknin

Tækni Fyrir tæknina þýðir reglubundnari og smærri útgáfur og uppfærslur á hugbúnaði í

umhverfi þar sem þróun gerist mun hraðar en áður. Það er mögulegt að sníða vélbúnaðinn

þannig að uppsetningin taki mið af því hvaða hugbúnað og þjónustu er verið að reka á

viðkomandi vélbúnaði. Vélbúnaðurinn er ekki staðbundinn og bæði fjöldi og breytileiki á

lausnum er að aukast hratt. Allt þetta gerir hlutverk samþættingar enn mikilvægara en áður.

Cloud

Virtualization á vélbúnaði. Vélbúnaðurinn er ekki lengur staðbundinn. Möguleiki á að skala

framboð á afli í samræmi við eftispurn. Mismunandi þjónusta sem hægt er að neyta í skýjunum:

IaaS, PaaS og SaaS. Í dag erum við væntanlega öll að nýta okkur einhverja þjónustu í

skýjunum. Krafa er núna um að skila af sér sömu getu og afli, en fyrir minni pening. Þessi

skýjabylting kemur með aukið flækjustig og krefst annarrar þekkingar en þeirrar sem margir af

núverandi kerfisstjórum státa sig af.

Mobile

• Fartölvan kemur í staðinn fyrir borðtölvur og er meira hugsuð fyrir vinnslu með og gerð

upplýsinga – content creation. Mikið skjápláss skiptir máli (excel). Verið að vinna í

myndvinnslu eða rita mikinn texta. – áfram nauðsynleg, en mikið af afli (CPU-heavy work) og

getu (Apps) má flytja yfir í skýið.

• Spjaldtölvur eru í meira mæli fyrir það að neyta upplýsinga – heil máltíð – to consume

content and information – hentar vel í styttri aðgerðir og starfsfólk sem er mikið á ferðinni. –

mun vaxa mest á vesturlöndunum.

• Síminn er fyrir samskipti – vilja að það berist tilkynningar í símann. Snack on

information – smábitar, ekki heil máltíð. – vex mest í emerging markets. 85% af

heimsbyggðinni er nú þegar með einhverskonar fjarskiptasamband.Hlutfall þeirra sem tengjast

og neyta upplýsinga með mobile á veraldarvefnum mun aukast hratt á næstu árum.

Design

Hönnun á viðmóti, og að mörguleiti ferlum, aðlagast að því hvernig við högum okkur sem

neytendur og að þeim breyttu tólum sem við erum farin að nota. Hönnun á vefsíðum og

hugbúnaði tekur mað að því að notendur eru neytendur upplýsinga og/eða mögulegir

kaupendur. Sumir tala um Consumerization, en aðrir tala um Customerization.

Hyper-connectivity

Aðgengi að öllu, hvenær sem er, úr hvaða tóli sem er og frá hvaða stað sem er - alltaf.

Svo er stórt hlutfall notenda á samfélagsmiðlum að deila og pósta alveg hægri vinstri.

Big data

Árlega er gagnamagnið á netinu að aukast um 50% Einstaklingar eru að búa til efni, upload-a

kvikmyndum, tónlist, myndum og texta. Jafnvel hlutir eru farnir að skrá upplýsingar. Þessi

hraða aukning hefur víðtæk áhrif og skapar algjörlega nýjar kröfur fyrir hýsingu, vinnslu og

greiningu – bæði fyrir þekkingu og tækni. Billjón notendur og heilmikið af fyrirtækjum, stórum

og smáum. Rafvæðing á viðskiptum og samskiptum með innleiðingu á lausnum Naglans mun

gera notendum kleift að vinna með og greina gagnaupplýsingar fyrir betri viðskiptagreind.

Page 20: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 16

Markaðurinn

Markaður Það er til dæmis nýr markaður að þróast fyrir lausnir og sem stýra og stjórna

samþættingu í samskiptum lausna á milli. Enterprise aðilar er nýta sér virðisaukandi lausnir í

formi App-a munu líklega kaupa lausnir frá fleiri en einum aðila, en þeir verða að tengja við

eitt ERP kerfi. SaaS lausnir eru að keyra niður verðið og ýta undir pay-as-you-use

viðskiptamódel. En, markaðurinn yfir höfuð, ekki bara í heimi upplýsingatæknar, er að flytjast

frá því að vera framleiðslu-miðaður yfir í að verða þekkinga-miðaður. Heimur

upplýsingatækningar (UT) og viðskipta mun renna svo mikið saman að ekki verður lengur talað

um UT-verkefni, heldur verða öll viðskipaverkefni með UT-verkþætti og aðkomu.

Í víðtækri úttekt, sem framkvæmd var af Evrópusambandinu árið 20096, kemur fram að ýmis

Evrópuríki eru langt frá því að ná þeim markmiðum sem sett voru 2005 um rafæn viðskipti og

stjórnsýslu. Mikill vilji stendur til – en lausnir vantar! Mikill ávinningur og hagræðing næst

með skilvirkri innleiðingu á rafrænum viðskiptum, breyting á verkferli í opinberum innkaupum

mundi skila milljörðum evra í sparnað á hverju ári.

ÍSLAND

Í eðlilegu árferði veltir íslenskur markaður fyrir nýbyggingar og mannvirkjagerð (e.

Construction) um 150-170 milljörðum á ári, þ.e. um 10% af vergri landsframleiðslu. 7

Nýbyggingar hafa dregist mikið saman síðan 2008 í kjölfar fjármálakreppunnar og þeirrar

ofþenslu sem var á góðærisárunum í nýbyggingum 8 En á móti kemur að velta

viðhaldsframkvæmda hefur aukist nokkuð, m.a. sem afleiðing “allir vinna” átaksins.9 Svört

atvinnustarfssemi almennt hefur verið metin á bilinu 8,5-11,5%, en ýmsir þættir benda til að

hún sé nokkuð hærri í byggingariðnaði hérlendis.10

Gríðarleg ónýtt tækifæri eru til staðar á Íslandi hvað varðar notkun upplýsingatækni til

hagræðingar er kemur að útboðum og tilboðsumleitan. Hið opinbera hefur dregist mjög á eftir

í þessum efnum og lenti Íslandi í 27. sæti (síðasta sæti) í könnun sem framkvæmd var árið 2010

varðandi notkun á rafrænum innkaupaðferðum á meðal EES-ríkjanna.11 Þessi niðurstaða kom

ekki á óvart enda hefur hið opinbera í dag engin tól til þess að framkvæma rafræn útboð. Fyrsta

skrefið í átt að rafvæðingu reikningar hefur hinsvegar verið tekið, nýleg tilkynning frá fjármála-

og efnahagsráðuneytinu: „Ætla má að um 500 milljónir geti sparast með notkun rafrænna reikninga hjá

ríkinu, en frá og með 1. janúar 2015 mun ríkið einungis taka við rafrænum reikningum.” 12

6 Úttekin var framkvæmd til þess að mæla árangur aðildarríkja hvað varðar þau markmið sem sett voru árið 2055

hvað varðar uppbyggingu tæknilegar stoðir fyrir hagkvæmari rekstur hins opinbera – slík þróun var einnig hugsuð

sem skilvirk leið til að tengja aðila sambandsins og sameina markaði undir einn hatt. Nú hefur Ísland óskað eftir

aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hluti af aðildarviðræðunum er ferli þar sem umsóknaraðili verður að setja

sér aðlögunarmarkmið (MIPD) til að fullnægja þeim kröfum sem gerðar eru til aðildarríkja. Hvað varðar opinber

innkaup, má nefna Manchester Declaration (2005) og i2010 eGovernment Action Plan, þar er krafist þess að allar

þjóðir hafi tæknilega getu til að stunda 100% af opinberum innkaupum á rafrænan og gagnsæjan hátt árið 2010.

7 www.hagstofa.is 8 http://www.visir.is/ekki-faerri-ibudir-sidan-i-stridi/article/2011707149933 9 http://eyjan.is/2011/01/05/atakid-allir-vinna-tekist-vonum-framar-hleypt-neista-i-byggingaridnadinn/ 10 http://www.skattrann.is/skjol/skyrsla_skattsvik.pdf 11 Sjá nánar undir kafla 4.3. – Opinberi geirinn. 12 http://www.fjarmalaraduneyti.is/frettir/nr/17659

Page 21: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 17

Hvað varðar einkamarkaðinn þá er aðeins einn aðili sem hefur boðið upp á rafrænt

tiboðsumleitanakerfi á netinu, með litlum árangri13.

Með nýjum mannvirkjalögum eru komnar fram nýjar og auknar kröfur. En hönnuðir,

hönnunarstjórar, byggingarstjórar og iðnmeistararhafa frest til 1. janúar 2015 til að vera farnir

að vinna eftir gæðastjórnunarkerfi. Með notkun á Naglanum geta verktakar með einföldum

hætti fullnægt kröfum sem snúa að samræmdri meðferð skjala og samskipti við viðskiptavini.

Gott tækifæri til að útbúa

áskriftarþjónustu fyrir

verkkaupa sem gerir annars

flókið og dýrt ferli bæði einfalt

og öruggt.

Mannvirkjastofnun verður að

halda utanum mikið af

upplýsingum og tengja mörg

kerfi. Hér til hægri má sjá

uppbyggingu á fyrirhugaðri

byggingargátt Mannvirkja-

stofnunar. Svo fyrir neðan má

sjá samþykktan feril fyrir

byggingaframkvæmdir með

hlutverk Naglans og samskipti

við opinbera aðila.

13 Handtak.is opnaði 2003 og hefur á þeim tíma náð mjög litlum árangri. Sem kemur ekki sérstaklega á óvart. Enda

hefur framþróun á síðunni verið mjög lítil, notendaviðmót er lélegt og markaðssetning mjög takmörkuð.

Page 22: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 18

EVRÓPA

12 milljón íbúa innan Evrópusambandsins hafa beina atvinnu af byggingarstarfssemi og

mannvirkjagerð og 26 milljónir í tengdum greinum. Markaðurinn samanstendur mestmegnis af

litlum og meðalstórum fyrirtækjum (SME) með færri en 250 starfsmenn. Velta markaðar er um

10% af vergri landsframleiðslu aðildarríkja, þ.e. 1.226.838 milljón evrur. Sama hlutall á við á

Norðurlöndunum:14

Danmörk - 23.400 milljón evrur

Noregur - 27.506 milljón evrur

Svíþjóð - 34.667 milljón evrur.

Í Evrópu hefur opinber markaður verið að færast mjög hratt í átt til rafrænna útboða og er

algengast að þá sé um að ræða samstarf hins opinbera og einkaaðila að lausn (svokallað

PrivatePublic Partnership). Er þetta bein afleiðing þeirra markmiða sem aðildarríkin settu sér

árið 200515.

Á einkamarkaði bjóða ýmir aðilar upp á rafræn útboð og hefur þróunin verið sú að þeir einbeita

flestir að smærri verkum og aðkomu þeirra líkur er viðskiptum hefur verið komið á.

Myhammer sem stofnað var 2005 er markaðsleiðtogi í Evrópu og veitir þjónustu sína í

Bretlandi, Þýskalandi, Austurríki og nú nýverið einnig í Bandaríkjunum.16

Á vefsvæðum Myhammer eru 1,5 milljón notendur, þar af 250.000 iðnaðarmenn.

Framkvæmdar 6 milljón leitir mánaðarlega og 3.000 ný verkefni birt á hverjum degi. Um 70

starfsmenn vinna fyrir félagið.17 Á síðustu árum hefur félagið náð ótrúlegum árangri með

4,769% söluaukningu síðustu 5 árin (meðalvöxtur á ári 1,192%).18

BANDARÍKIN

Markaður fyrir nýbyggingar og mannvirkjagerð veltir árlega 225 milljörðum

bandaríkjadollar.19

14 http://en.wikipedia.org/wiki/Economy_of_the_European_Union 15 Markmiðin snúa að uppbyggingu tæknilegra stoða fyrir hagkvæmari rekstur hins opinbera – slík þróun var einnig

hugsuð sem skilvirk leið til að tengja aðila sambandsins og sameina markaði undir einn hatt. Aðildarríkjum voru sett

aðlögunarmarkmið (MIPD) til að fullnægja þeim kröfum sem gerðar eru. Hvað varðar opinber innkaup, má nefna

Manchester Declaration (2005) og i2010 eGovernment Action Plan , þar er krafist þess að allar þjóðir hafi tæknilega

getu til að stunda 100% af opinberum innkaupum á rafrænan og gagnsæjan hátt árið 2010. 16 Neytendur geta leitað í iðnaðarmannaskrá eða birt verk ókeypis. Iðnaðarmenn verða annaðhvort að greiða fyrir

“tengiupplýsingar” kaupanda eða vera í áskrift (minnsta binding £14.90 fyrir þrjá mánuði) og greiða auk þess 6%

þóknun af heildarkostnaði verks (lágmark £2.50). Við verklok gefa aðila hvor öðrum einkunn. Opnuðu í

Bandaríkjunum sumarið 2011. Heimild: http://www.crunchbase.com/company/my-hammer og myhammer.co.uk 17 http://www.crunchbase.com/company/my-hammer 18 Árið 2010 lenti Myhammer í 13. sæti á Deloitte Technology Fast 500 EMEA verðlaunahátíðinni. 19 http://www.bls.gov/oco/cg/cgs003.htm

Page 23: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 19

Markmið

Hér til hægri má sjá þau mælanlegu markmið sem Naglinn hefur sett fyrir þjónustu og rekstur

á nagli.is fyrir fyrstu 18 mánuði verkefnisins. En helsta markmið Naglans er að geta boðið upp

á einföld og örugg verktakaviðskipti á Íslenskum markaði. Á Íslandi eru lausnirnar þróað á

einum platform fyrir heildstæðan markað.

Uppbygging á kerfinu í grunnkerfi og viðbætur

gerir Naglanum kleift að framsetja samæfðar

viðbætur sem SaaS vörur í sjálfsþjónustu og

grunnkerfi sem sjálfstæðar PaaS einingar.

Markmiðið til lengdar er að kynna nýstárlegu

nálgun Naglans fyrir rafvæðingu

verktakaviðskipta fyrir erlendum mörkuðum

undir formerkjum eProcuring.com og geta selt

bæði SaaS og PaaS í sjálfsþjónustu.

Tækifæri

Þetta er tækifæri til að styðja við uppbyggingu á íslensku hugviti og sprotafyrirtæki.

Sprotafyrirtækinu vantar örlítin stuðning til að geta klárað afurðir og komið lausnum í

sjálstæðan rekstur. Hagnýtar lausnir sem standa vel undir rekstri á Íslandi og geta leitt af sér

einstæðar nýjungar í formi skýjalausna.

Sem dæmi má nefna að gríðarleg vannýtt tækifæri eru til staðar á Íslandi hvað varðar notkun

upplýsingatækni til hagræðingar er kemur að útboðum og tilboðsumleitan. Hið opinbera hefur

dregist mjög á eftir í þessum efnum og lenti Íslandi í 27. sæti (síðasta sæti) í könnun sem

framkvæmd var árið 2010 varðandi notkun á rafrænum innkaupaðferðum á meðal EES-

ríkjanna. Þessi niðurstaða kom ekki á óvart enda hefur hið opinbera í dag engin tól til þess að

framkvæma rafræn útboð. Myndin hér fyrir neðan tekur saman tölur úr meistararitgerð20 sem

greindi mögulega hagræðingu sem gæti falist í því að leita alltaf tilboða.

20 Ragnar Davíðsson (2010), Hagræði rafrænnar stjórnsýslu.

Quantifiable targets Time

Completed 6 test projects Month 6

1000 registered users Month 8

500 e-invoices interfaced Month 10

10 public e-procurer users Month 12

1000 registered suppliers Month 14

50 private projects completed Month 16

50 public projects completed Month 18

Page 24: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 20

Gott dæmi um þau spin-off tækifæri sem sprottið hafa út frá grunnþjónustu Naglans er

reikningakerfið og húsfélagsþjónustan. Nú þegar hugmyndir að viðbótarþjónustu eins og

sniðmát reikninga, prentun, birtingu og innheimtu. White-lable sala á reikninglausninni fyrir

enterprise fyrirtæki sem vilja gera sínum viðskiptavinum kleift að senda rafræna reikninga.

Einnig felast víðtækari möguleikar í PaaS þjónstunni. Auk þess að geta boðið upp á kerfi fyrir

einstök sveitarfélög og fagfélög, þá er hægt að setja upp clone network umhverfi fyrir nýja

ótengda lausn eins og fyrir utanumhald hjá tryggingafyrirtæki, fasteignafélagi eða viðburði eins

og ráðstefnur. Bara svo nokkur dæmi séu nefnd.

Í nýútgefinni skýrslu ríkisendurskoðunar um eftirfylgni með innkaupastefnu ráðuneyta (Nóv

2013)21 kemur fram að forsætisráðuneytið telji mikilvægt að það „verði hugað að enn frekari

þróun og einföldun á fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orra) og hliðarkerfum þess og að

fræðsla á notkun kerfanna verði reglubundið efld...“ Nú þegar er í gildi skilgreind stefna um

„Vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur“ fyrir 2013-16. En, í stað þess að framkvæma

samkvæmt henni, þá hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið stofnað nefnd til að vinna nýja

innkaupastefnu og aðgerðaráætlun í innkaupamálum. Þessu til viðbótar, í tillögu frumvarps til

fjárlaga 2014 er búið að fella niður 150 m.kr framlag sem átti að fara í aðgerðir til að framfylgja

núgildandi stefnu. Verkefni Naglans styður við markmið um rafræna innkaupaferla, rafræna

reikninga og vistvænni innkaup. Lausnir Naglans eru heimasmíðaðar og mun ódýrari í rekstri

en enterprise lausnir í boði – með verkefnisstyrk frá TÞS Rannís getur Naglinn hjálpað hinu

opinbera að hagræða í rekstri með einföldum, en öflugum, skýjalausnum fyrir vistvæn viðskipti.

Útboðslöggjöf er svipuð á Norðurlöndunum og tækniforskriftin fyrir rafræn viðskipti er

samræmd. Kerfið er hannað á ensku og er með form fyrir auðvelda þýðingu á öllum texta í

kerfinu. Til þess að setja upp í öðru landi, eins og Noregi, þarf að þýða kerfið, tengja það við

bankaþjónustu, skeytamiðlara og innheimtuþjónustu.

Auk allra þeirra ófyrirséðu og víðtæku möguleika á frekari tækniuppbyggingu sem verða í boði.

Til dæmis þá fjölgar tækifærum í hugbúnaðaþróun, þar sem aðilar og fyrirtæki geta þróað

tengingar og þjónustur sem einfalda margvíslega vinnu notenda og hagræða í viðskiptum.

Tækifæri opnast fyrir fjármögnunaraðila, tryggingafélög, greiningaraðila, birgja sem og hinar

ýmsu stofnanir og samtök. Aðlögunarhæfni kerfisins byggir á staðlaðri tækniforskrift,

stjórnborði fyrir stillingar og grunnplatform með fyrirfram skilgreindar tengingar við banka,

fjármálastofnanir, greiðslugáttir, samfélagsmiðla og skeytamiðla.

Naglinn gerir verktökum ekki bara kleift að útbúa reikning og senda á hvern sem er með

nýstárlegri veflausn, því verktakar sem er skáðir í kerfi Naglans koma sér á kortið og verða

aðgengilegir á netinu. Flest verktakafyrirtæki eru fámenn, um 90% verktakafyrirtækjum eru í

dag ekki með heimasíður og því ekki sýnilegir á netinu. Það fyrsta sem flestir gera í dag þegar

þeir þurfa aðstoð er að “googla”.

Verðmæti

21 http://www.rikisendurskodun.is/skyrslur-radad-eftir-malaflokkum/eftirfylgni-

stjornsysluuttekta.html?eID=dam_frontend_push&docID=2452

Page 25: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 21

Aðferð

Helsti fókusinn er á að þróa heilstæða og samhæfða vöru fyrir innanlandsmarkað. Markhóparnir

eru skráðir fagaðilar og sveitarfélög. Markaðssetning og kynningar verða markvissar og ekki

farið í stórar markaðsherferðir (e. broadcasting) í almennum miðlum. Unnið verður með

fagaðilum í gegnum Samtök iðnaðarins og meistarafélögin sem heyra þar undir.

Framkvæmdarstjóri mun vera í beinum samskiptum við aðila á vegum sveitarfélaga og

stofnendur koma báðir að því að þjálfa starfsfólk sem og verktaka í að nota kerfið. Þessar

meðvirku nálganir og þátttaka aðila á markaði í þróunarferlinu hefur reynst vel hingað til.

Þær vörur sem skapa tekjur eru aðgengilegar í sjálfþjónustu og ekki þarf að koma að

nýskráningu notenda á nagli.is. Kerfið er öruggt, í reglulegri afritun og skalar vélarafli eftir

álagi til að viðhalda hraðri virkni. Hvað varðar sölu og markaðssetningu á spin-off afurðum

eins og reikningakerfinu og húsfélgsþjónustunni, Naglinn sér um uppsetningu og rekstur en

samstarfsaðilar sjá um að þjónusta notendur sem og sölu og markaðssetningu. Að hluta til er

ávinningur samstarfsaðila bundin við árangur í sölu og markaðssetningu. Naglinn leggur til

verkferla fyrir þjónustu og skráningu upplýsinga líkt og sjá má hér fyrir neðan.

Til framtíðar, undir formerkjum eProcuring. Þegar enterprise aðili vill auka getu hjá

innkaupateyminu til að leita tilboða eða aðilinn vill auka sjálfvirkni og áreiðanleika bókhalds,

þá vilja þau electronic procurement solution; þau eru procurer; vilja lausn fyrir procuring;

eitthvað sem virkar með núverandi kerfi, er aðgengilegt í sjálfsþjónustu og skalar eftir þörfum.

Lausnir fyrir verktaka og verkkaupa. Greiðir samkvæmt notkun og það kostar ekkert að byrja.

Hver myndi ekki skoða eProcuring.com lausnina?

Page 26: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 22

5 Framtíðarsýn

Undir nafninu eProcuring (eprocuring.com) verða seld hugbúnaðarleyfi fyrir notkun á

viðskiptamiðli (e. business platform) Naglans um allan heim. Leyfið gerir hvaða aðila sem er

kleift að setja upp sinn eigin viðskiptamiðil, á tilgreindri vefslóð. Miðlarnir byggja á sama

grunni (e. platform as a sevice, PaaS) en hægt verður að sérsníða þá að þörfum hvers og eins

viðskiptavinar með ýmis konar viðbótum (e. software as a service, SaaS) sem bæði Naglinn og

samstarfsaðilar munu þróa.

Greitt verður fast áskriftargjald fyrir viðskiptamiðilinn (299$ á mánuði) og fjárhæð

viðbótargjalda fer eftir fjölda viðbótarþjónustna sem keyptar eru í gegnum eprocuring.com.

Sem dæmi um þjónustu sem þegar eru tilbúnar og hægt er að kaupa er útboðshugbúnaður og

reikningakerfi. Árið 2015-2016 mun fyrirtækið stíga sín fyrstu skref við útgáfu sérleyfa (e.

frenchising) og undirbúa innleiðingu þjónustun sinnar í Skandinavíu.

Fyrirtækið er í viðræðum bæði við íslenskan viðskiptabanka og aðila í Vátryggingar-bransanum

um sölu á hugbúnaðarleyfi fyrir notkun á viðskiptamiðli Naglans til að halda utan um ákveðin

samskipti við tilgreindan kúnnahóp.

Á árinu 2016 verður Naglinn tilbúinn til að taka þátt í verkefni framkvæmdastjórnar

Evrópusambandsins, í framhaldi PEPPOL, sem ætlað er að koma á nauðsynlegri umgjörð fyrir

rafræn innkaup yfir landamæri, Connecting Europe Facility (CEF).

Naglinn hefur alla burði til þess að verða öflugt fyrirtæki sem selja mun hugbúnað sinn og aðra

þjónustu um allan heim frá höfuðstöðum sínum á Íslandi.

Page 27: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 23

Skipulag og stjórnun til framtíðar

Umsækjandi mun fljótlega hefja viðræður við almenna fjárfesta og fjárfestingarsjóði hér á landi

til að styðja fjárhagslega við markaðssetningu og þróun eProcuring á erlendum mörkuðum. Ein

af þeim leiðum sem ætlum að prófa við markaðssetningu erlendis er að selja sérleyfi (e.

franchising) til aðila sem þá sinna stöðu kerfistjóra og stjórna innleiðingu á sínum

heimamarkaði.

Til að auðvelda okkur innreiða á nýja markaði þá munum við reyna að nýta tengslanet okkar

eftir fremsta megni til að byggja á þeim árangri sem önnur íslensk fyrirtæki hafa þegar náð í

Evrópu. Mögulegir samstarfsaðilar í slíkum tilfellum eru meðal annars Advania sem mjög stórt

hugbúnaðarhús á Norðurlöndunum sem veitir mikla þjónustu til sveitarfélaga og Iceconsult sem

hefur náð góðum árangi við sölu á utamunhaldshugbúnaði fyrir fasteignir.

Að meginstefnu vil verður öll hýsing á Íslandi og þjónusta við notendur, nema í þeim tilfellum

sem um sérleyfi er að ræða. Þá mun þjálfun og ráðgjöf við nýja kerfisstjóra eftir sem áður eiga

sér stað frá Íslandi. Þróun verður öll á Íslandi og einnig söluteymið til að byrja með. Söluteymi

verður síðan líklega fært nær markaðnum í Evrópu þegar fram líða stundir.

Með höfuðstöðvar á Íslandi, mun Naglinn geta skapað allt að 70 bein og 150 óbein störf í

þekkingargeiranum og iðnaði. Þessar tölur taka mið af fyrirtæki með hagkvæman rekstur í

Bretlandi er býður upp á svipaða þjónustu.22 Hinsvegar teljum við líklegra að þessar tölur verði

í kringum 33 bein störf og um 50 óbein störf í ljósi aukinnar sjálfvirkni og sjálfsþjónustu fyrir

þær lausnir sem eProcuring mun bjóða upp á. Störfin á Íslandi munu fela m.a. í sér innleiðingar

sölu erlendis, rekstur á kerfum, rekstrarþjónustu, hönnun, prófanir, forritun o.fl.

Félög tengd local og sub-national platforms um heiminn allann skila tekjum og þekkingu til

Íslands ásamt því að opna fyrir tengsl og mögulega innleiðingu á tengdum þjónustu fyrir

staðbundin markað í viðkomandi landi. Rekstrarkostnaður er hlutfallslega lítill og skalanaleiki

á þjónustu bæði lóðrétt og lárétt, uppbygging kerfisins býður upp á þýðingar, auðvelda stjórnun

stillinga og notkun á fleiri gjaldmiðlum. Stefnan er tekin á EES- svæðið og Bandaríkin.

22 Tölur þessar eru m.a. byggðar á starfsmannafjölda Myhammer. En Myhammer sérstaklega notað sem viðmið í

útreikningum. Sjá nánar um félagið í kafla 4.1. Staða markaðarins – undir liðnum Evrópa.

Page 28: Naglinn vefþjónusta ehf. með verkefnið: Nagli.is ... · kerfisins og verður tæknilegur tengiliður. Við teljum að sameiginlega geti þriðji-aðili með fjármálaþjónustu

Síða 24

6 Viðhengi: Kostnaðaryfirlit