View
232
Download
4
Embed Size (px)
Citation preview
Sameiginleg einkenni• Smáar og þéttar.
– Jörðin er stærst innri reikistjarnanna og hefur stærsta tunglið.
– Eðlismassi þeirra allra er frá um 4000 - 5500 kg/m3.• Berg með fast yfirborð.
– Allar hafa þær fast yfirborð úr bergi. Allar með lofthjúp en misþykkan.
• Fá tungl– Aðeins Jörðin og Mars hafa tungl og eru tungl Mars
mjög smá.
Merkúríus• Massi: 3,3 · 1023 kg = 0,056 MJ
• Radíus: 2438 km = 0,38 RJ
• Eðlismassi: 5400 kg/m3
• Þyngdarhröðun: 3,7 m/s2
• Yfirborðshiti: -180 – 430°C
• Fjarlægð frá sólu:57,9 milljón km = 0,387 Au
Yfirborð Merkúrs• Yfirborð Merkúrs er
mjög líkt yfirborði Tungsins.
• Fast berg sem er alsett gígum eftir loftsteina.
• Vegna hins háa hita og smæðar sinnar þá er lofthjúpur afar þunnur og aðallega úr súrefni og natríum. Léttari efni rjúka burt.
Venus• Massi: 4,87 · 1024 kg = 0,056 MJ
• Radíus: 6052 km = 0,95 RJ
• Eðlismassi: 5200 kg/m3
• Þyngdarhröðun: 8,9 m/s2
• Yfirborðshiti: 464°C
• Fjarlægð frá sólu:
108,2 milljón km = 0,723 Au
Braut Venusar• Brautin er mjög nærri hring með lítið hringvik. Af
reikstjörnunum er braut Venusar næst því að vera hringur.
• Sólnánd: 107,5 milljón km • Sólfirrð: 108,9 milljón km• Venus fer einn hring umhverfis Sólu á 225
jarðardögum.• Venus snýst einn hring um sjálfa sig á 243
jarðardögum en í öfuga átt við allar aðrar reikistjörnur.
• Sólarhringur á Venus er 117 jarðardagar.• Möndulhalli er enginn og því eru ekki árstíðir á
Venus.
Lofthjúpur Venusar• Venus hefur lofthjúp með
þéttum skýjum sem hylja allt yfirborðið.
• Lofthjúpurinn er aðallega koltvísýringur, 96,5 %. Aðeins er af köfnunarefni, vatnsgufu, brennisteinsdíoxíði og argoni.
• Gróðurhúsaáhrif eru mjög sterk og viðhalda jöfnum og háu hitastigi.
Yfirborð Venusar• Undir skýjahulu er fast
yfirborð sem er mjög veðrað.
• Rússnesku Veneraförin lentu á yfirborðinu og gátu tekið myndir af því.
• Síðar tók Magellan farið radarmyndir af yfirborðinu gegnum skýjin og þannig búið til kort af yfirborðinu.
• Miklar jarðhræringar og eldgos.
Jörðin• Massi: 5,97 · 1024 kg= 1 MJ
• Radíus: 6371 km = 1 RJ
• Eðlismassi: 5500 kg/m3
• Þyngdarhröðun: 9,8 m/s2
• Yfirborðshiti: 15°C
• Fjarlægð frá sólu: 149,6 milljón km = 1 Au
Braut Jarðar
• Brautin er sporbaugur með aðra miðjuna í miðju sólar.
• Sólnánd: 147,1 milljón km.• Sólfirrð: 152,1 milljón km• Um 7% meiri orka berst til Jarðar frá Sólu í
sólnánd en í sólfirrð.• Möndulhalli Jarðar er 24,5° og því eru árstíðir
á Jörðu.
Lofthjúpur Jarðar
• Er aðallega úr köfnunarefni (78%) og súrefni (21%).
• Skiptist í nokkur lög eftir hita.• Í neðsta laginu veðrahvolfinu er 75% af massa
lofthjúps og þar er allt veður.• Engin efri mörk eru á lofthjúpnum heldur
þynnist hann smám saman út.
Tunglið
• Jörðin hefur óvenju stórt tungl miðað við stærð hnattarins.
• Meðalfjarlægðin er 384 000 km en það fjarlægist um 2 mm á ári.
• Ef Tunglið fer inn fyrir Roche mörkin (um 18 500 km) þá mun það sundrast vegna flóðkrafta.
Mars• Massi: 6,4 · 1023 kg = 0,107 MJ
• Radíus: 3393 km = 0,53 RJ
• Eðlismassi: 3900 kg/m3
• Þyngdarhröðun: 3,8 m/s2
• Yfirborðshiti: -125 - 25°C
• Fjarlægð frá sólu: 228 milljón km = 1,524 Au
Braut Mars
• Mars er 687 daga að fara einn hring um sólu en snýst einn hring um sjálfa sig á 24,63 klst.
• Sólnánd er í 207 milljón km en sólfirrð er í 249 milljón km.• Mars fær 45% meiri orku frá Sólu í sólnánd en sólfirrð.• Möndull Mars hallar um 25,2° miðað við línu hornrétta á
brautarplanið og því eru árstíðir á Mars.• Möndulhallinn hefur breyst mjög mikið í gegnum tíðina
m.a. vegna þyngdaráhrifa frá Júpíter.
Yfirborð Mars
• Mars hefur fast yfirborð að mestu klettar og sandar.
• Yfirborðið er ríkt að járnsamböndum sem gefur Mars hinn einkenn- andi rauða lit.
Lofthjúpur Mars• Mars hefur þunnan lofthjúp að mestu úr koltvísýringi
(95%).• Veikt aðdráttarafl heldur honum illa og hefur hann
verið meiri í fyrndinni.
Sandstormar
• Á Mars er veður og geta myndast miklir sandstormar sem geta varað lengi, jafnvel nokkra daga.
Tungl Mars• Mars hefur tvö tungl,
Phobos og Deimos.• Bæði eru mjög smá.
– Deimos 8 x 6 x 5 km– Phobos 14 x 11 x 9 km
• Fjarlægð frá Mars– Deimos 23520 km– Phobos 9370 km