Upload
sigurdur-fjalar-jonsson
View
234
Download
10
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Hér er sýnt hvernig sótt er um íslenskt lén á ISNIC
Citation preview
SÓTT UM LÉN Á ISNIC
Skráning og umsýsla með íslenskum lénum er á höndum ISNIC. Á vefn
11)) Áður en hægt er að sækja um lén á ISNIC verður að sækja um svokallað NIC auðkenni.
Sótt er um NIC auðkenni á ISNIC vefnum (www.isnic.is) undir liðnum Tengiliðir >
Nýskráning.
22)) Að því loknu er smellt á Nýskráning undir liðnum Tengiliðir. Þar þarf að gefa upp NIC
– auðkennið og lykilorð áður en lengra er haldið.
S.Fjalar 2010 B l s | 2
33)) Að innskráningu lokinn opnast síða þar sem skráningarferlinu er lýst. Fyrsta skrefið er
að slá lénið sem ætlunin era ð sækja um í reitinn Lén og smella svo á hnappinn
[Áfram].
44)) Ef lénið er laust til umsóknar er næst gengið frá vistun þess í nafnaþjónum sem eru
einskonar símaskrár netsins. Ef ekki er búið að ganga frá hýsingu á nafnaþjónum er
einfalt að velja Biðsvæði sem vistunaraðila. Því má síðan breyta þegar búið er að
ganga frá vefhýsingu.
Það er ekki nauðsynlegt að hýsa lénið hjá sama hýsingaraðila og sjálfan vefinn. En oft
er það einfaldasti kosturinn.
S.Fjalar 2010 B l s | 3
55)) Þá er skráð kennitala fyrirhugaðs rétthafa. Hér er ágætt að hafa í huga að
tengiliðurinn, þ.e. sá sem skráir lénið, þarf ekki endilega að vera rétthafi. Hann gæti
t.d. verið tæknilegur umsjónaraðili vefsins en ekki eigandi eða rétthafi.
66)) Næst er gengið frá skráningu á upplýsingum um rétthafa.
77)) Þá eru skráðir þrír tengiliðir lénsins, þ.e. tengiliður rétthafa, greiðandi og tæknilegur
tengiliður.
S.Fjalar 2010 B l s | 4
Þegar um er að ræða einstaklingsvef er ekki óalgengt að þetta sé allt sami
einstaklingurinn.
88)) Að lokum er skráningin staðfest með því að senda skráningarbeiðnina til ISNIC.
99)) Síðast en ekki síst er gengið frá greiðslu. Nokkrir greiðslumátar eru í boði.